""
Tungumál kennslu
Íslenska
Lengd náms
Eitt ár - 30 einingar
Námsform
Staðnámsleið Fjarnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Ert þú með kennsluréttindi?
  • Hefur þú minnst tveggja ára starfsreynslu?
  • Tekur þú á móti kennaranemum eða öðrum nýliðum í þínu starfi?
  • Vilt þú efla leiðsagnarhæfni þína?

Örnámsleið í starfstengdri leiðsögn og kennsluráðgjöf er hagnýt námsleið þar sem nemendur kynnast fjölbreyttum aðferðum og hagnýtum verkfærum sem þau geta notað strax í sínu starfi.

Sjónum er einkum beint að hlutverki kennsluráðgjafa, skólaþjónustu og kennara sem annast leiðsögn í starfi svosem til kennaranema í vettvangsnámi, nýrra kennara eða samkennara í skólaþróun.

Námið er ætlað þeim nemendum sem hafa lokið grunnámi á sviði menntavísinda með fyrstu einkunn og hafi auk þess minnst tveggja ára starfsreynslu af störfum tengdum menntun og menntakerfum.

Uppbygging náms

Námið er 30 einingar og er skipulagt sem hlutanám til eins árs með vinnu.

Námið samanstendur af 3 skyldunámskeiðum.

Meginmarkmið

Meginmarkmið námsins er að efla leiðsagnarhæfni þeirra sem annast starfstengda leiðsögn og ráðgjöf við kennara og skóla á sviði kennslufræði, uppeldis og menntunar. Leiðsögninni er ætlað að efla starfshæfni og fagmennsku einstaklinga, hópa og starfseininga út frá hugmyndafræði lærdómssamfélags.

Annað

Námið getur veitt aðgang að meistaranámi

  • M.Ed. námsleið til meistaraprófs.

Við inntöku gildir sú meginregla að umsækjandi hafi lokið bakkalárgráðu með fyrstu einkunn (7,25). Auk þess er gerð krafa um leyfisbréf til kennslu og minnst tveggja ára starfsreynslu að loknu kennsluréttindanámi.

Ljúka þarf 30e

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Ferilskrá (CV)
  • Prófskírteini/námsyfirlit
  • Kynningarbréf/hvers vegna velur þú þetta nám
  • Leyfisbréf

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Starfstengd leiðsögn – leiðsagnarhlutverkið (STM104F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er ætlað kennurum á öllum skólastigum og öðrum sem annast starfstengda leiðsögn á sviði uppeldis og menntunar. Námskeiðið er grunnnámskeið á námssviðinu/námsleiðinni Starfstengd leiðsögn á sviði uppeldis og menntunar en einnig er hægt að taka það sem stakt valnámskeið. 

Tilgangur námskeiðisins er að nemendur öðlist þekkingu og skilning á starfstengdri leiðsögn, markmiðum með slíkri leiðsögn, leiðsagnarhlutverki kennara og leiðsagnaraðferðum, og geti beitt þekkingunni í starfi. Stefnt er að því að nemendur geti nýtt sér helstu kenningar um starfstengda leiðsögn og fræðileg hugtök til að ræða og skipuleggja eigið starf sem leiðsagnarkennarar. Áhersla er lögð á að nemendur verði meðvitaðir um hvernig starfstengd leiðsögn getur eflt faglega starfshæfni einstaklinga og hópa, m.a. nemenda í vettvangsnámi, nýliða í kennslu, reyndra kennara og annars fagfólks. Lögð er áhersla á hagnýta þjálfun í starfstengdri leiðsögn sem leið til aukinnar fagmennsku og hugað er að ábyrgð og samstarfi leiðsagnarkennara og þeirra sem njóta leiðsagnarinnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Þróunarstarf og starfsþróun á vettvangi menntunar (STM110F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið þessa námskeiðs er að þátttakendur öðlist hagnýta og fræðilega þekkingu á einkennum þróunarstarfs og þáttum í menningu menntastofnana sem stuðla að umbótum eða hindra þær. Jafnframt öðlist þeir leikni í að skipuleggja og leiða þróunarstarf, starfsþróunartækifæri og móta þróunaráætlanir. Byggt er á kenningum um faglegt lærdómssamfélag sem gerir ráð fyrir að faglegt nám og þróun stofununar séu nátengd.

Í lok námskeiðsins eiga nemendur að

  • hafa skilning á helstu hugtökum og kenningum um þróun menntastofnana og skóla sem og frístundastofnana sem lærdómssamfélags,
  • geta tekið faglegar ákvarðanir um leiðir í starfs og skólaþróun sem og þróun frístundastofnana og rökstutt þær,
  • geta aflað fjölbreyttra gagna um þróunarstarf og metið gildi þeirra,
  • geta beitt hugtökum, kenningum, líkönum og aðferðum á raunveruleg viðfangsefni,
  • geta átt frumkvæði og haft forystu um rannsóknar- og þróunarverkefni í mennta- og frístundastofnunum til að efla fagmennsku,
  • geta greint leiðir til að efla kennara og starfsfólk frístundastarfi í með þátttöku alls samfélagasins.

Námskeiðið er skipulagt í lotum með fjarnámssniði, staðlotur (skyldumæting er í fyrri staðlotu) eru tvær auk kynninga á lokaverkefnum. Þess á milli fer fram lestur fræðilegs efnis, verkefnavinna og samræður þátttakenda. Auk þess býðst nemendum að taka þátt í umræðutímum um viðfangsefnin. Verkefni námskeiðsins eru hagnýt og tengjast þróunarstarfi og leiðsögn við raunverulegar aðstæður. Lögð er áhersla á samræðu og samstarf nemenda samhliða sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði auk virkni í umræðum og lestri fræðilegs efnis.

Námsmat byggir á fjölbreyttum verkefnum sem ýmist eru unnin í samvinnu við aðra eða eru einstaklingsverkefni. 

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf: Verklag og aðferðir (STM112F)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er ætlað kennurum á öllum skólastigum og öðrum fagaðilum sem sinna starfstengdri leiðsögn á sviði uppeldis og menntunar. Markmið þess er að veita þátttakendum fræðilegan og hagnýtan grunn í starfstengdri leiðsögn og kennsluráðgjöf.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að efla hæfni þátttakenda til að styðja við fagleg lærdómssamfélög í skólum og fagþróun fagfólks. Þá verður farið í það hvernig byggja má upp traust, ábyrgð og gagnvirk samskipti milli mentora og þeirra sem þiggja leiðsögn. Þátttakendur kynnast helstu kenningum um nám og kennslu, leiðsögn og starfsþróun kennara og læra að beita skipulögðum aðferðum og verkfærum við leiðsögn.

Að loknu námskeiði verða þátttakendur betur í stakk búnir til að beita fræðilegum hugtökum og kenningum til að greina og skipuleggja leiðsögn á vettvangi. Fjallað verður um hvernig starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf getur styrkt faglega starfshæfni ólíkra hópa, þar á meðal kennaranema í vettvangsnámi, nýliða í kennslu, reyndra kennara í starfsþróun og annarra fagstétta.

Í námskeiðinu er lögð áhersla á hagnýta þjálfun í leiðsögn og kennsluráðgjöf sem leið til að efla fagmennsku. Einnig er fjallað um ábyrgð, hlutverk og samstarf leiðbeinenda og þeirra sem þiggja leiðsögn, með hliðsjón af faglegum og skipulagslegum áskorunum í skólastarfi.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Vor
Forysta og kennsluráðgjöf (STM215F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tilgangur námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu og skilning á leiðsögn og samvinnu í skólastarfi þar sem stefnt er að starfsmenntun kennara, skólaþróun og öflugu foreldrasamstarfi, og að þeir geti beitt þekkingunni í starfi. Nemendur kynnast helstu rannsóknum og kenningum um starfstengda leiðsögn, og er stefnt að því að þeir geti nýtt sér þær á gagnrýninn og markvissan hátt sem leiðsagnarkennarar nýrra kennara og leiðtogar í teymisvinnu, jafningjaleiðsögn og þverfaglegu samstarfi í hópum. Einnig er lögð áhersla á hlutverk kennara í foreldrasamstarfi og í því að efla tengsl heimila og skóla. Kynnast þeir helstu kenningum og rannsóknum á því sviði, og tengja þær við eigin reynslu í starfi. Nemendur vinna með æfingar og verkefni sem miða að því að efla samskiptahæfni þeirra, einkum hæfni í leiðtoga- og leiðsagnarhlutverki, og í faglegum samskiptum við samstarfsfólk og foreldra. 

Námskeið er kennt í fjarnámi með þremur staðbundnum lotum. Gert er ráð fyrir mætingu í staðbundnar lotur. Fyrirlestrar, umræður, einstaklings- og hópverkefni.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf: Ígrundun, fagþroski og þróun starfskenningar (STM217F)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið byggir á vinnu sem hófst í námsskeiðinu Starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf: Verklag og aðferðir.  Markmið þessa hluta er að dýpka skilning þátttakenda á eigin leiðsagnarnálgun, þroska faglega sjálfsvitund og efla ígrundun sem verkfæri í faglegu starfi.

Lögð er áhersla á gagnrýna sýn á leiðsögn, sjálfsmat, endurgjöf frá jafningjum og þróun sértækra leiðsagnaraðferða sem hæfa ólíkum nemendahópum og faglegu samhengi. Unnið verður með raunveruleg dæmi úr vettvangi, persónuleg lærdómsferli og siðferðilegar áskoranir sem leiðbeinendur mæta í starfi.

Sérstök áhersla er á að þátttakendur þroski eigið faglegt sjálf, taki upplýstar og siðferðilega ábyrgar ákvarðanir og dýpki hæfni sína í að styðja við sjálfstæði og fagsýn þeirra sem þeir leiðsegja.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár
  • Haust
  • STM104F
    Starfstengd leiðsögn – leiðsagnarhlutverkið
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er ætlað kennurum á öllum skólastigum og öðrum sem annast starfstengda leiðsögn á sviði uppeldis og menntunar. Námskeiðið er grunnnámskeið á námssviðinu/námsleiðinni Starfstengd leiðsögn á sviði uppeldis og menntunar en einnig er hægt að taka það sem stakt valnámskeið. 

    Tilgangur námskeiðisins er að nemendur öðlist þekkingu og skilning á starfstengdri leiðsögn, markmiðum með slíkri leiðsögn, leiðsagnarhlutverki kennara og leiðsagnaraðferðum, og geti beitt þekkingunni í starfi. Stefnt er að því að nemendur geti nýtt sér helstu kenningar um starfstengda leiðsögn og fræðileg hugtök til að ræða og skipuleggja eigið starf sem leiðsagnarkennarar. Áhersla er lögð á að nemendur verði meðvitaðir um hvernig starfstengd leiðsögn getur eflt faglega starfshæfni einstaklinga og hópa, m.a. nemenda í vettvangsnámi, nýliða í kennslu, reyndra kennara og annars fagfólks. Lögð er áhersla á hagnýta þjálfun í starfstengdri leiðsögn sem leið til aukinnar fagmennsku og hugað er að ábyrgð og samstarfi leiðsagnarkennara og þeirra sem njóta leiðsagnarinnar.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • STM110F
    Þróunarstarf og starfsþróun á vettvangi menntunar
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið þessa námskeiðs er að þátttakendur öðlist hagnýta og fræðilega þekkingu á einkennum þróunarstarfs og þáttum í menningu menntastofnana sem stuðla að umbótum eða hindra þær. Jafnframt öðlist þeir leikni í að skipuleggja og leiða þróunarstarf, starfsþróunartækifæri og móta þróunaráætlanir. Byggt er á kenningum um faglegt lærdómssamfélag sem gerir ráð fyrir að faglegt nám og þróun stofununar séu nátengd.

    Í lok námskeiðsins eiga nemendur að

    • hafa skilning á helstu hugtökum og kenningum um þróun menntastofnana og skóla sem og frístundastofnana sem lærdómssamfélags,
    • geta tekið faglegar ákvarðanir um leiðir í starfs og skólaþróun sem og þróun frístundastofnana og rökstutt þær,
    • geta aflað fjölbreyttra gagna um þróunarstarf og metið gildi þeirra,
    • geta beitt hugtökum, kenningum, líkönum og aðferðum á raunveruleg viðfangsefni,
    • geta átt frumkvæði og haft forystu um rannsóknar- og þróunarverkefni í mennta- og frístundastofnunum til að efla fagmennsku,
    • geta greint leiðir til að efla kennara og starfsfólk frístundastarfi í með þátttöku alls samfélagasins.

    Námskeiðið er skipulagt í lotum með fjarnámssniði, staðlotur (skyldumæting er í fyrri staðlotu) eru tvær auk kynninga á lokaverkefnum. Þess á milli fer fram lestur fræðilegs efnis, verkefnavinna og samræður þátttakenda. Auk þess býðst nemendum að taka þátt í umræðutímum um viðfangsefnin. Verkefni námskeiðsins eru hagnýt og tengjast þróunarstarfi og leiðsögn við raunverulegar aðstæður. Lögð er áhersla á samræðu og samstarf nemenda samhliða sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði auk virkni í umræðum og lestri fræðilegs efnis.

    Námsmat byggir á fjölbreyttum verkefnum sem ýmist eru unnin í samvinnu við aðra eða eru einstaklingsverkefni. 

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • STM112F
    Starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf: Verklag og aðferðir
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er ætlað kennurum á öllum skólastigum og öðrum fagaðilum sem sinna starfstengdri leiðsögn á sviði uppeldis og menntunar. Markmið þess er að veita þátttakendum fræðilegan og hagnýtan grunn í starfstengdri leiðsögn og kennsluráðgjöf.

    Á námskeiðinu er lögð áhersla á að efla hæfni þátttakenda til að styðja við fagleg lærdómssamfélög í skólum og fagþróun fagfólks. Þá verður farið í það hvernig byggja má upp traust, ábyrgð og gagnvirk samskipti milli mentora og þeirra sem þiggja leiðsögn. Þátttakendur kynnast helstu kenningum um nám og kennslu, leiðsögn og starfsþróun kennara og læra að beita skipulögðum aðferðum og verkfærum við leiðsögn.

    Að loknu námskeiði verða þátttakendur betur í stakk búnir til að beita fræðilegum hugtökum og kenningum til að greina og skipuleggja leiðsögn á vettvangi. Fjallað verður um hvernig starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf getur styrkt faglega starfshæfni ólíkra hópa, þar á meðal kennaranema í vettvangsnámi, nýliða í kennslu, reyndra kennara í starfsþróun og annarra fagstétta.

    Í námskeiðinu er lögð áhersla á hagnýta þjálfun í leiðsögn og kennsluráðgjöf sem leið til að efla fagmennsku. Einnig er fjallað um ábyrgð, hlutverk og samstarf leiðbeinenda og þeirra sem þiggja leiðsögn, með hliðsjón af faglegum og skipulagslegum áskorunum í skólastarfi.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • STM215F
    Forysta og kennsluráðgjöf
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Tilgangur námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu og skilning á leiðsögn og samvinnu í skólastarfi þar sem stefnt er að starfsmenntun kennara, skólaþróun og öflugu foreldrasamstarfi, og að þeir geti beitt þekkingunni í starfi. Nemendur kynnast helstu rannsóknum og kenningum um starfstengda leiðsögn, og er stefnt að því að þeir geti nýtt sér þær á gagnrýninn og markvissan hátt sem leiðsagnarkennarar nýrra kennara og leiðtogar í teymisvinnu, jafningjaleiðsögn og þverfaglegu samstarfi í hópum. Einnig er lögð áhersla á hlutverk kennara í foreldrasamstarfi og í því að efla tengsl heimila og skóla. Kynnast þeir helstu kenningum og rannsóknum á því sviði, og tengja þær við eigin reynslu í starfi. Nemendur vinna með æfingar og verkefni sem miða að því að efla samskiptahæfni þeirra, einkum hæfni í leiðtoga- og leiðsagnarhlutverki, og í faglegum samskiptum við samstarfsfólk og foreldra. 

    Námskeið er kennt í fjarnámi með þremur staðbundnum lotum. Gert er ráð fyrir mætingu í staðbundnar lotur. Fyrirlestrar, umræður, einstaklings- og hópverkefni.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • STM217F
    Starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf: Ígrundun, fagþroski og þróun starfskenningar
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið byggir á vinnu sem hófst í námsskeiðinu Starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf: Verklag og aðferðir.  Markmið þessa hluta er að dýpka skilning þátttakenda á eigin leiðsagnarnálgun, þroska faglega sjálfsvitund og efla ígrundun sem verkfæri í faglegu starfi.

    Lögð er áhersla á gagnrýna sýn á leiðsögn, sjálfsmat, endurgjöf frá jafningjum og þróun sértækra leiðsagnaraðferða sem hæfa ólíkum nemendahópum og faglegu samhengi. Unnið verður með raunveruleg dæmi úr vettvangi, persónuleg lærdómsferli og siðferðilegar áskoranir sem leiðbeinendur mæta í starfi.

    Sérstök áhersla er á að þátttakendur þroski eigið faglegt sjálf, taki upplýstar og siðferðilega ábyrgar ákvarðanir og dýpki hæfni sína í að styðja við sjálfstæði og fagsýn þeirra sem þeir leiðsegja.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við:

  • Kennslu í leik, grunn og framhaldsskólum
  • Ráðgjöf í skólaþjónustu
  • Ýmis störf á sviði uppeldis og menntunar

Listinn er ekki tæmandi

Nemendafélagið Kennó er félag kennaranema við Háskóla Íslands. Félagið stendur fyrir skemmtilegum viðburðum, svo sem nýnemakvöldum, árshátíð og vísindaferðum. Félagið hefur einnig staðið fyrir verkefninu Komdu að kenna sem hefur hefur það að markmiði að kynna kennaranám.

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Björgu Melsted
Námið veitir góða innsýn í hugmyndafræði starfstengdrar leiðsagnar og eflir þætti sem mikilvægt er að hafa á valdi sínu til að takast á við þær áskoranir sem fylgja leiðsagnarstarfi. Námið nýtist vel kennurum sem veita nemum í vettvangsnámi og nýliðum í starfi leiðsögn.
Ljósmynd af Önnu Rósu Sigurjónsdóttir
Starfstengd leiðsögn er gagnlegt og mikilvægt nám fyrir kennara. Ég finn fyrir mun meira öryggi í starfi bæði hvað varðar móttöku kennaranema og nýliða og hef fengið fleiri verkfæri til að vinna með. Þetta nám nýtist ekki síður í samræðum og samstarfi við starfsfólk leikskólans þar sem við rýnum saman til gagns um starfsemi leikskólans.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Menntavísindasvið | Kennsluskrifstofa
Virka daga 9:00 - 15:00
Þjónustuborð og samfélagsmiðlar

Á Þjónustuborði Háskólatorgs færðu aðstoð og upplýsingar um þjónustu Háskóla Íslands. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða notað vefspjallið neðst í hægra horninu á þessari síðu.

Fylgdu okkur á Instagram, Youtube og Facebook

Mynd af byggingunni Sögu við Hagatorg

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil