Nemandi í tannsmíði við störf
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum tungumálum t.d. norðurlandamálum.
Lengd náms
Þrjú ár - 180 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú gott auga fyrir litum, formum og smáatriðum? 
  • Hefur þú gaman að því að vinna með höndunum? 
  • Hefur þú áhuga á bóklegu, verklegu og tölvutengdu námi?  
  • Langar þig að stunda vettvangsnám?  
  • Viltu stunda nám við litla og persónulega deild? 
  • Langar þig að starfa í tannheilsuteyminu?  

Tannsmíði er krefjandi og skemmtilegt nám. Í stað skemmdra og brott numinna tanna eru hönnuð og smíðuð ýmiskonar tanngervi með hefðbundnum hætti eða tölvutækni, á tennur, tannplanta eða á gómboga.  

Unnið er með ýmiskonar efni, áhöld, tækja- og hugbúnað. Starfið felur í sér nákvæmnisvinnu og er handlagni kostur. 

Tannsmiðir þurfa að hafa næmt auga fyrir litum og litbrigðum, vera útsjónarsamir og hafa tilfinningu fyrir heildarsvip. 

Markmið námsins er að nemendur verði að því loknu færir til að stunda sjálfstæðar tann-og munngervasmíðar og starfa í tannheilsuteyminu. 

Meðal viðfangsefna

  • Form- og bitfræði
  • Efna- og efnisfræði
  • Líffærafræði höfuðs og háls
  • CAD/CAM Tanngervi
  • Krónu- og brúargerð
  • Heilgóma- og partagerð
  • Tannréttingar

Tannlæknadeild er lítil og persónuleg deild þar sem lausnarleitarnám er haft að leiðarljósi í kennslu. Samkennsla er hjá tannsmiða - og tannlækna nemum, einkum á fyrsta misseri og í bóklegum fögum á seinni misserum. 

Grunnfög námsleiðarinnar eru form – og bitfræði, efna- og efnisfræði, líffærafræði höfuðs og háls, krónu- og brúargerð, heilgóma- og partagerð og tannréttingatæki. Auk námskeiða sem búa nemendur undir rannsóknarvinnu og þátttöku í atvinnulífinu. 

Flestar kennslubækur í faginu eru á ensku eða Norðurlandamálum en kennsla fer fram á íslensku. Kennsla í bóklegum og verklegum námskeiðum er skipulögð sem lotukennsla eða sem námskeið sem kennd eru alla önnina. 

Samkeppnispróf eru haldin í desember í lok fyrsta misseris og fá fimm efstu nemendurnir, sem náð hafa tilskildum lágmarkseinkunnum, rétt til áframhaldandi náms í tannsmíði.

Fyrstu tvö árin fer þjálfun í tann-og munngervasmíði fram í verklegum kennslustofum námsbrautarinnar. Nemendur á þriðja námsári eru í skipulögðu vettvangsnámi á tannsmíðastofu Tannlæknadeildar og hjá samstarfsaðilum í atvinnulífinu hér á landi eða erlendis. Samhliða eru nemendur í fjarnámskeiðum sem búa þá undir að starfa sem heilbrigðisstarfsmenn og undirbúa rannsóknaráætlun sem lýkur með BS lokaverkefni. 

Á tannlækningastofu deildarinnar veita lengra komnir tannlækna- og tannsmiðanemar í verknámi almenningi þjónustu gegn vægu gjaldi. Öll vinna nemenda er unnin undir handleiðslu kennara.

Skiptinám

Nemendur í tannsmíði hafa nýtt sér möguleika á Erasmus skiptinámi á fimmta misseri námsins og fengið verklega þjálfun erlendis.

Samkeppnispróf

Samkeppnispróf eru haldin í desember í lok fyrsta misseris og fá fimm efstu nemendurnir, sem náð hafa tilskildum lágmarkseinkunnum, rétt til áframhaldandi náms í tannsmíði.

Sjá reglur um samkeppnispróf í Tannlæknadeild.

Til að hefja nám í tannsmíði við deildina skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi frá erlendum skóla. Lokapróf frá háskólabrú Keilis telst sambærilegt stúdentsprófi, sjá nánari upplýsingar.

Ljúka þarf 180 einingum fyrir lokapróf, 60 einingum á hverju ári.

Ljúka þarf öllum einingum hvers árs fyrir sig áður en nám er hafið á næsta ári.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Fagvitund starfsstéttar (TSM101G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um grunn í fræðilegum vinnubrögðum í háskólanámi, heimildaleit og hugtök aðferðafræði. Nemendur þjálfast í sjálfstæðri heimildaleit og lestri fræðigreina. Einnig eru kynnt fagsvið tann- og munngervalækninga og smíði þar á meðal heilgóma- og partagerð, krónu- og brúargerð og tannréttingar. Fjallað er um fagvitund starfstéttar svo sem ábyrgð, samvinnu og siðferði í tannheilsuteyminu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Líffærafræði (TSM102G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er ætlað nemendum í tannsmíði og fjallar um líffærafræði höfuðs og háls með sérstakri áherslu á byggingu og starfsemi þeirra líffæra og vefja sem tengjast munnholi. Fjallað er um grunnatriði frumu- og vefjafræði sem undirstöðu skilnings á uppbyggingu og starfsemi munnhols, auk helstu líffærafræðilegra eininga, þar á meðal kjálkalið, munnhol og munnvatnskirtla.

Einnig er fjallað um tauga-, æða- og vessaæðakerfi höfuðs og háls, sem og líffærafræðileg rými (fascia og spaces) og útbreiðslu tannsýkinga. Áhersla er lögð á anatomísk hugtök og líffærafræðilega þekkingu sem hafa beina þýðingu fyrir tann- og munngervalækningar og smíði tanngerva.

Námskeiðið er inngangsnámskeið og leggur fræðilegan grunn sem nýtist í áframhaldandi námi í faggreinum tannsmíði, svo sem heilgóma- og partagerð, krónu- og brúargerð og tannréttingum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Efnafræði (TSM103G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið yfir grunnatriði  í almennri efnafræði, stilling efnajafna, nafngiftir, mólreikningur, leysni, styrkur.  Grunnur skammtafræðinnar og bygging atómsins er kennd sem undirstaða efnaeiginleika frumefnanna og efnahvarfa þeirra. Farið er yfir rafeindaskipan frumefnanna, og myndun efnatengja. Helstu kenningar til að ákvarða byggingu og þrívíðan strúktúr sameinda og millisameindakraftar. Farið yfir efnajafnvægi og sýru/basahvörf. 

Kennsluaðferðir:
Fyrirlestrar, dæmareikningur og heimaverkefni.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Formfræði tanna verkleg (TAN101G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að kynna meginþætti í bersæju formi tanna mannsins. Sérstök áhersla verður lögð á að tengja formið við hlutverk tanna og tannhluta sem og hagnýtt gildi þessa við tannlækningar. Nemendur fá tækifæri til þess að öðlast reynslu í að greina tennur og tannhluta og færni í að móta tennur í vax eftir fyrirmyndum. Námskeiðinu er ætlað að byggja upp þekkingu og hagnýta undirstöðu fyrir áframhaldandi nám í tannlæknisfræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Formfræði tanna fræðileg (TAN107G)

Fyrsta ár | Vor
Inngangur að tannsmíði (TSM201G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing
  • Nemendur læra að tileinka sér vinnureglur varðandi umgengni við tækjabúnað, áhöld og efni sem tilheyra starfssviðinu.
  • Farið er yfir skipulag vinnusvæða, rökrétta verkferla, umgengni við efni, varúðarráðstafanir og öryggisatriði sem notuð eru við framleiðslu tanngerva. 
  • Áhersla er lögð á að nemendur tileiki sér gagnrýna hugsun í tengslum við eigið starfssvið, öðlist sterka öryggisvitund og grunnfærni í miðlun upplýsinga um fagið.

Nemendur þurfa að útvega eigin námsgögn. Þar með talin eru handverkfæri, bithermir og persónuhlífar (vinnusloppur, öryggisgleraugu, inniskór) meðan þeir stunda nám við námsbrautina.

Frekari upplýsingar varðandi námsgögn eru veittar í upphafi náms á 2. misseri.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Krónu- og brúargerð I (TSM202G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið ætlað nemendum í tannsmíði. Fæðilegur hluti námskeiðsins er í formi fyrirlestra, umræðna og verkefnavinnu. Verklegar æfingar fara fram á kennsluverkstæði deildarinnar.

Kennd er hönnun og framleiðsla fastra tanngerva, stakar krónur, brýr, innlegg, onlay og meðferð efna, áhalda og tækja sem notuð eru í hefðbundinni tannsmíði og tölvustuddri tannsmíði CAD/CAM. Í lok námskeiðs á nemandi að geta notað fræðilega þekkingu og verklega færni til smíði tanngerva sem uppfylla gæðakröfur gerðar til lækningatækja í mannslíkamann.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt í lotu III
Fyrsta ár | Vor
Tannréttingar I (TSM203G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið ætlað nemendum í tannsmíði, kennd er undirstaða í þekkingu á bitskekkju, fræðiheitum sem notuð eru í greininni auk þekkingar í notkun lausra tannréttingatækja. Unnið er með hefðbundin mát og æfð móttaka stafrænnar máttöku (e. mouth scan). Fjallað er um efni, aðferðir og framleiðslu lausra tannréttingatækja með hefðbundnum aðferðum og CAD/CAM tækni. 

Í verklegum hluta námskeiðsins er kennd undirstaða í smíði lausra tannréttingatækja.

Í lok námskeiðs hafa nemendur náð að samtvinna fræðilega og verklega þekkingu og náð færni í að framleiða einföld tannréttingartæki í samræmi við gæðastaðla.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt í lotu II
Fyrsta ár | Vor
Heilgómagerð I (TSM204G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið ætlað nemendum á öðru misseri í tannsmíði og er byggt bæði á fræðilegri og verklegri kennslu í heilgómagerð.

Fræðileg kennsla fer fram með fyrirlestrum, umræðum og verkefnum. Verkleg kennsla fer fram á kennsluverkstæði deildarinnar undir handleiðslu kennara. Kennd er alhliða heilgómagerð frá upphafi til enda með hefðbundnum aðferðum og fjallað um CAD/CAM og 3-D tækni í heilgómagerð.

Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur geti í lok námskeiðs sýnt fram á þekkingu, færni og getu til að framleiða og smíða heilsett, frá fyrsta máti til lokaskila tanngervis til tannlæknis, heilsett og heilgóma sem uppfylla gæðakröfur gerðar til tanngerva af þessari gerð.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt í lotu I
Fyrsta ár | Vor
Forvarnir og heilsuefling (TAN013G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
1 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kynnt verður grunnþekking á orsökum og afleiðingum munnsjúkdóma með áherslu á hvernig beita má forvörnum.  Farið yfir grunnatriðin um hvernig miðla má tannheilsuforvörnum til almennings. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Bitfræði fræðileg (TAN103G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um tannbogana í heild, lögun þeirra og innbyrðis afstöður í biti og við bithreyfingar. Námið felur í sér verklegar æfingar og seminarverkefni.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Bitfræði verkleg (TAN104G)

Inngangur í þverfræðileg heilbrigðisvísindi - heilbrigðisvísindadagurinn (HVS202G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
1 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er ætlað nemendum á fyrsta námsári í greinum heilbrigðisvísinda.  Sameiginlegur heilbrigðisvísindadagur nýnema allra deilda á Heilbrigðisvísindasviði í janúar ár hvert. Fjallað er um þverfaglegt samstarf og mikilvægi þess. Farið verður í grundvallarþætti samstarfsins svo sem sameiginlega sýn á réttindi til heilsu, samskipti og siðfræði. Einnig er fjallað um hlutverk og ábyrgð heilbrigðisvísinda.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Inngangur að tannlæknisfræði (TAN108G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
1 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námsefni:Kynning á klínískum greinum tannlækninga fyrir nema í Tannlæknadeild, námsbraut í tannsmíði og tanntæknanema. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Tölvustýrð tannsmíði og tannplantar (TSM301G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið fyrir nemendur í tannsmíði. Nemendur læra um þróun fagsins, gerð, hönnun og framleiðslu tannplanta verkefna með hefðbundnum hætti og þrívíddartækni (CAD/CAM), auk þess sem þeir læra um kosti, galla og áhættu sem fylgja tannplöntum og tannplantameðferð fyrir sjúklinga.

Nemendur læra um mismunandi tannplantakerfi, þjálfa notkun þeirra og uppbyggingu fastra og lausra tanngerva á tannplanta. Áhersla er lögð á verklega þjálfun í undirbúningsvinnu, gerð hefðbundinna og þrívíddarprentaðra tannplantamódela, meðferð íhluta (abutmenta og analoga), hönnun og framleiðslu tannplanta verkefna með hefðbundnum hætti og CAD/CAM, þar sem reynir á mismunandi færni við úrlausn verkefna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt í lotu II
Annað ár | Haust
Stálgrindur og partagerð (TSM302G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið í stálgrinda- og partagerð fyrir nemendur í tannsmíði. Kennd er fræðileg og verkleg stálgrinda- og partagerð, nemendur læra undirstöðu hönnunar parta, læra flokkun parta skv. Kennedy Classes I-IV, notkun lóðkana (surveyors) og framleiðsluferil stálgrinda í báða góma, viðgerðir og endurnýjun tanngerva úr gómaefni og gerð bráðabirgðaparta.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt í lotu III
Annað ár | Haust
Krónu- og brúargerð II (TSM303G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur læra fræðilega og verklega krónu og brúargerð, auk hönnunar tanngerva úr heil-postulíni. Kennd er meðferð, uppbygging og frágangur postulíns tanngerva til lokaskila, sem uppfylla gæðakröfur til slíkra lækningatækja.

Kennt verður á CAD/CAM hönnunar- og skönnunarforrit tanngerva.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt í lotu I
Annað ár | Haust
Efnisfræði I (TSM304G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið fyrir nemendur í tannsmíði, farið er í efnisfræði sem tengist fagsviði tannsmiða. Nemendur læra um notkunarsvið þeirra efna sem notuð eru í faginu, eiginleika þeirra og meðhöndlun.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Heilgómagerð II (TSM401G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Framhaldsnámskeið í heilgómagerð, fjallað er um frávik og einstaklingsbunda þætti í uppstillingum í heilgómagerð og þróun á framleiðsluaðferðum s.s. CAD/CAM og 3-D tækni.

Í fræðilegum og verklegum hluta námskeiða er farið er í gerð heilgómasetta, ásetugóma, sáragóma, herimitanna og stakra heilgóma á móti eigin tönnum. Frekari þjálfun á uppstillingu við normal aðstæður við þrengsli, yfirbit og krossbit. Rifjuð er upp fóðrun (reline), endurplöstun (rebase) eldri tanngerva og viðgerðir á brotnum gómum og endurnýjun brotinna tanna. Val tanna og notkun ALMA gauge kynnt.

Í lok námskeiðs geta nemendur samþætt fræðilega og verklega þekkingu við uppstillingu ólíkra gerða heilgóma og framleitt þá í samræmi við gæðastaðla.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt í lotu I
Annað ár | Vor
Krónu- og brúargerð III (TSM402G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Framhaldsnámskeið í krónu- og brúargerð, nemendur bæta við þekkingu og færni sína frá fyrra námskeiði.  Áhersla er lögð á fræðilega og verklega kennslu í meðferð postulíns og hönnun, uppbyggingu tanngerva úr heilpostulíni (e. All Ceramic) og hönnun málmlausra tanngerva og módela í CAD-CAM.  Nemendur læra um mismunandi postulínskerfi, notkunarsvið þeirra, takmarkanir, ábendingar, kosti og galla. Í fyrirlestrum er fjallað um hugmyndafræði hönnunar og meðferð postulínskerfa. Notkun og meðferð efna, áhalda, tækja og búnaðar sem þarf til  að fullvinna málmlaus tanngervi. 

  • Í kennslustundum er fjallað um hugmyndafræði, hönnun, meðferð og notkun ólíkra postulínskerfa við smíði lækningatækja í munnhol.
  • Fjallað er um megin mun á milli kerfa, notkunarsvið, takmarkanir, kosti og galla. Einnig notkun og meðferð efna, áhalda, tækja og búnaðar sem þarf til fullvinnslu PBM og all Ceramic tanngerva.
  • Á námskeiðinu vinna nemenduri sjálfstætt að verkefnum, þjálfa færni sína í upplýsingalæsi á eigin fagsviði og að miðla þekkingu sinni til annarra.
  • Verklegar æfingar í meðferð og notkun efna og tækja er æfð undir handleiðslu kennara á kennsluverkstæði deildarinnar.
Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt í lotu III
Annað ár | Vor
Tannréttingar II (TSM403G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Framhaldsnámskeið ætlað nemendum í tannsmíði, kennd er undirstaða í þekkingu á bitskekkju, fræðiheitum sem notuð eru í greininni auk þekkingar í notkun lausra tannréttingatækja. Í verklegum hluta námskeiðsins er kennd smíði flóknari gerða af lausum tannréttingatækjum, þjálfuð mótttaka stafrænna máta (e. digital impressions) og verkefni smíðuð með hefðbundinni og/eða CAD/CAM tækni s.s. hörð bithlíf.

Í lok námskeiðs getur nemandi samþætt fræðilega- og verklega þekkingu í tannréttingum, hannað og framleitt á sjálfstæðan hátt tannréttingartæki með ýmsum íhlutum og notað til þess ýmis efni, áhöld og tæki.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt í lotu II
Annað ár | Vor
Efnisfræði II (TSM404G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið fyrir nemendur í tannsmíði, farið er í efnisfræði sem tengist fagsviði tannsmiða. Nemendur læra um notkunarsvið þeirra efna sem notuð eru í faginu, eiginleika þeirra og meðhöndlun.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Aðfari að vísindalegum vinnubrögðum (TSM405G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennd eru undirstöðu atriði í aðferðafræði rannsókna innan tannlæknavísinda.

Nemendur lesa ritrýndar fræðigreinar og æfa sig í að lesa úr rannsóknarniðurstöðum með gagnrýnum hætti. Samhliða vinna nemendur í tölfræðiforriti (Jamovi) og með töflureikni úr gagnasettum lýsandi og greinandi tölfræði. Þeir æfa framsetningu niðurstaðna í texta, töflum og myndum, túlka þær og draga af þeim ályktanir í formlegri rannsóknarskýrslu.

Skyldumæting er á skipulagða viðburði skv. kennsluáætlun svo sem þátttaka í málstofu þar sem nemendur kynna niðurstöður BS verkefna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Haust
Vettvangsnám I (TSM501G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
24 einingar, ETCS
Þar af 20 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er vettvangsnám þar sem nemendur vinna að raunverulegum verkefnum í tannsmíði undir handleiðslu fagfólks. Vettvangsnám fer fram innan og utan kennsluverkstæðis Tannlæknadeildar Háskóla Íslands og á tannlækna- og/eða tannsmíðastofum innanlands eða erlendis, meðal annars innan Erasmus-samstarfs.

Áhersla er lögð á að nemendur yfirfæri fræðilega þekkingu og verklega færni í raunverulegt starf og þrói með sér sjálfstæði, ábyrgð og fagvitund. Nemendur fá tækifæri til að takast á við fjölbreytt verkefni, beita hefðbundnum og stafrænum aðferðum (CAD/CAM) við hönnun og framleiðslu tanngerva og vinna með viðeigandi efni, tæki og búnað.

Jafnhliða vettvangsnámi vinna nemendur að eigin faglegu þróun með reglulegri ígrundun í dagbók og ferilmöppu. Einnig hefja þeir undirbúning að rannsóknaráætlun fyrir BS-lokaverkefni og þjálfast í heimildaleit, gagnaöflun og fræðilegum vinnubrögðum.

Kennsla hefst með staðlotu í upphafi annar. Að öðru leyti fer kennsla og leiðsögn fram í fjarnámi í Canvas samhliða vettvangsnámi.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Haust
Fagvitund og heilbrigðisþjónusta (TSM502G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um lög og reglur um heilbrigðisstarfsmenn og rekstrarumhverfi helbrigðisþjónustu, siðareglur og starfsleyfi Embættis landlæknis. Ígrundað er gæðaeftirlit, kynnt fyrirkomulag skráningu sérsmíðaðra lækningatækja og gildi upprunavottorða. Rætt er um samskipti, teymisvinnu og vinnuumhverfi. Farið er í hagnýt atriði sem snúa að sótt- og smitvörnum á starfsvettvangi tannsmiða, áhrif sóttvarnarefna á mátefni og kenndur frágangur lækningatækja til lokaskila.

Kennslutungumál: Íslenska
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Þriðja ár | Vor
Vettvangsnám II (TSM603G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Þar af 4 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Vettvangsnám II, fer fram á kennsluverkstæði Tannlæknadeildar samkvæmt skipulagðri dagskrá. Þar vinna nemedur að því að leysa raunveruleg verkefni í tannsmíði í samvinnu við meðferðaraðila. Samhliða þjálfa þeir leikni í hönnun flóknari tann- og munngerva með tölvutækni (Computer aided design).

Þátttaka í námskeiðinu undirbýr nemendur undir atvinnuþátttöku að námi loknu.

Námskeiðið reynir á faglega hæfni nemandans, tímastjórn og útsjónasemi í að leysa úr fjölbreyttum verkefnum í tannsmíði.

Gæðeftirlit er í höndum fagfólks sem veitir nauðsynlega handleiðslu eins og við á.  

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Þriðja ár | Vor
Verklegt lausnarleitarnám (TSM604G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið ætlað nemendum á sjötta misseri í tannsmíði. Nemendur takast á við raunveruleg tannsmíðaverkefni og beita til þess lausnarleitarnámi.

Viðfangsefni:

  • Nemendur vinna valin verkefni, gera vinnuáætlun og fylgja henni til lokaskila á verkefnum. 
  • Þjálfa skipulagningu á verkferlum og tímastjórn.
  • Þjálfa samvinnu innan tannheilsuteymis.

Vinnulag:

  • Vinnan á verkefnunum fer fram á verknámsstofu Námsbrautar í tannsmíði.
  • Nemendur hafa frjálsan vinnutíma en verkefnunum skal skilað á fyrirfram ákveðnum tíma.
Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Vor
Verkefnakynning (TSM607G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Vettvangur til að kynna eigið verkefni og kynnast verkefnum annarra. Kynning á fyrirframvöldu verkefni tengdu tannsmíði. Notkun á fræðilegum hugtökum tengdu fagi tannsmiða. Tækifæri til skoðanaskipta um fræðileg álitamál og gagnrýna uppbyggilega umræðu um verkefnið. Nemendur veita hvort öðru gagnkvæman stuðning og aðhald.

Lotukennsla í upphafi annar til stuðnings BS verkefna vinnu, umræðutímar og vinnustofur eru skipulaðgar með þarfir nemendahópsins í huga hverju sinni. Í lok námskeiðs kynnir nemandi eigin BS niðurstöður fyrir samnemendum, kennurum og leiðbeinendum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Vor
BS Lokaverkefni (TSM608L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemandi/ur vinnur sjálfstætt að gerð lokaverkefnis, undir stjórn leiðsögukennara.

Notar til þess viðurkennda aðferðafræði, rannsóknir og heimildaöflun.

Nemandi/ur skili inn til námsmats lokaverkefni unnu samkvæmt kröfum sem gerðar eru til lokaverkefna innan háskólasamfélagsins

Inntak / viðfangsefni: Undir lok grunnnámsins vinna nemendur verkefni að eigin vali sem er einskonar smiðshögg á nám þeirra.

Lokaverkefnið skal vera fræðileg ritgerð sem byggist á rannsókn og/eða heimildavinnu. Gert er ráð fyrir að nemendur rifji upp og dýpki þekkingu sína á heimildaöflun, framsetningu fræðitexta og á aðferðafræði rannsókna í tengslum við verkefnið.

Vinnulag: Nemendur fá undir stjórn kennara staðgóða upprifjun á meginatriðum sem varða heimildaöflun, framsetningu fræðitexta og á aðferðafræði rannsókna. Farið er með þeim yfir helstu verkþætti og vinnuferli en þeir vinna að öðru leyti sjálfstætt að lokaverkefni sínu með ráðgjöf frá leiðsögukennara sem valinn er í samráði við umsjónarmann, úr hópi akademískra kennara við Tannlæknadeild. Lokaverkefni vinna nemendur einn eða tveir saman.

Kennslutungumál: Íslenska
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Fyrsta ár
  • Haust
  • TSM101G
    Fagvitund starfsstéttar
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um grunn í fræðilegum vinnubrögðum í háskólanámi, heimildaleit og hugtök aðferðafræði. Nemendur þjálfast í sjálfstæðri heimildaleit og lestri fræðigreina. Einnig eru kynnt fagsvið tann- og munngervalækninga og smíði þar á meðal heilgóma- og partagerð, krónu- og brúargerð og tannréttingar. Fjallað er um fagvitund starfstéttar svo sem ábyrgð, samvinnu og siðferði í tannheilsuteyminu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TSM102G
    Líffærafræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er ætlað nemendum í tannsmíði og fjallar um líffærafræði höfuðs og háls með sérstakri áherslu á byggingu og starfsemi þeirra líffæra og vefja sem tengjast munnholi. Fjallað er um grunnatriði frumu- og vefjafræði sem undirstöðu skilnings á uppbyggingu og starfsemi munnhols, auk helstu líffærafræðilegra eininga, þar á meðal kjálkalið, munnhol og munnvatnskirtla.

    Einnig er fjallað um tauga-, æða- og vessaæðakerfi höfuðs og háls, sem og líffærafræðileg rými (fascia og spaces) og útbreiðslu tannsýkinga. Áhersla er lögð á anatomísk hugtök og líffærafræðilega þekkingu sem hafa beina þýðingu fyrir tann- og munngervalækningar og smíði tanngerva.

    Námskeiðið er inngangsnámskeið og leggur fræðilegan grunn sem nýtist í áframhaldandi námi í faggreinum tannsmíði, svo sem heilgóma- og partagerð, krónu- og brúargerð og tannréttingum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TSM103G
    Efnafræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið yfir grunnatriði  í almennri efnafræði, stilling efnajafna, nafngiftir, mólreikningur, leysni, styrkur.  Grunnur skammtafræðinnar og bygging atómsins er kennd sem undirstaða efnaeiginleika frumefnanna og efnahvarfa þeirra. Farið er yfir rafeindaskipan frumefnanna, og myndun efnatengja. Helstu kenningar til að ákvarða byggingu og þrívíðan strúktúr sameinda og millisameindakraftar. Farið yfir efnajafnvægi og sýru/basahvörf. 

    Kennsluaðferðir:
    Fyrirlestrar, dæmareikningur og heimaverkefni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TAN101G
    Formfræði tanna verkleg
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu er ætlað að kynna meginþætti í bersæju formi tanna mannsins. Sérstök áhersla verður lögð á að tengja formið við hlutverk tanna og tannhluta sem og hagnýtt gildi þessa við tannlækningar. Nemendur fá tækifæri til þess að öðlast reynslu í að greina tennur og tannhluta og færni í að móta tennur í vax eftir fyrirmyndum. Námskeiðinu er ætlað að byggja upp þekkingu og hagnýta undirstöðu fyrir áframhaldandi nám í tannlæknisfræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TAN107G
    Formfræði tanna fræðileg

  • Vor
  • TSM201G
    Inngangur að tannsmíði
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing
    • Nemendur læra að tileinka sér vinnureglur varðandi umgengni við tækjabúnað, áhöld og efni sem tilheyra starfssviðinu.
    • Farið er yfir skipulag vinnusvæða, rökrétta verkferla, umgengni við efni, varúðarráðstafanir og öryggisatriði sem notuð eru við framleiðslu tanngerva. 
    • Áhersla er lögð á að nemendur tileiki sér gagnrýna hugsun í tengslum við eigið starfssvið, öðlist sterka öryggisvitund og grunnfærni í miðlun upplýsinga um fagið.

    Nemendur þurfa að útvega eigin námsgögn. Þar með talin eru handverkfæri, bithermir og persónuhlífar (vinnusloppur, öryggisgleraugu, inniskór) meðan þeir stunda nám við námsbrautina.

    Frekari upplýsingar varðandi námsgögn eru veittar í upphafi náms á 2. misseri.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • TSM202G
    Krónu- og brúargerð I
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeið ætlað nemendum í tannsmíði. Fæðilegur hluti námskeiðsins er í formi fyrirlestra, umræðna og verkefnavinnu. Verklegar æfingar fara fram á kennsluverkstæði deildarinnar.

    Kennd er hönnun og framleiðsla fastra tanngerva, stakar krónur, brýr, innlegg, onlay og meðferð efna, áhalda og tækja sem notuð eru í hefðbundinni tannsmíði og tölvustuddri tannsmíði CAD/CAM. Í lok námskeiðs á nemandi að geta notað fræðilega þekkingu og verklega færni til smíði tanngerva sem uppfylla gæðakröfur gerðar til lækningatækja í mannslíkamann.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt í lotu III
  • TSM203G
    Tannréttingar I
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeið ætlað nemendum í tannsmíði, kennd er undirstaða í þekkingu á bitskekkju, fræðiheitum sem notuð eru í greininni auk þekkingar í notkun lausra tannréttingatækja. Unnið er með hefðbundin mát og æfð móttaka stafrænnar máttöku (e. mouth scan). Fjallað er um efni, aðferðir og framleiðslu lausra tannréttingatækja með hefðbundnum aðferðum og CAD/CAM tækni. 

    Í verklegum hluta námskeiðsins er kennd undirstaða í smíði lausra tannréttingatækja.

    Í lok námskeiðs hafa nemendur náð að samtvinna fræðilega og verklega þekkingu og náð færni í að framleiða einföld tannréttingartæki í samræmi við gæðastaðla.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt í lotu II
  • TSM204G
    Heilgómagerð I
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeið ætlað nemendum á öðru misseri í tannsmíði og er byggt bæði á fræðilegri og verklegri kennslu í heilgómagerð.

    Fræðileg kennsla fer fram með fyrirlestrum, umræðum og verkefnum. Verkleg kennsla fer fram á kennsluverkstæði deildarinnar undir handleiðslu kennara. Kennd er alhliða heilgómagerð frá upphafi til enda með hefðbundnum aðferðum og fjallað um CAD/CAM og 3-D tækni í heilgómagerð.

    Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur geti í lok námskeiðs sýnt fram á þekkingu, færni og getu til að framleiða og smíða heilsett, frá fyrsta máti til lokaskila tanngervis til tannlæknis, heilsett og heilgóma sem uppfylla gæðakröfur gerðar til tanngerva af þessari gerð.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt í lotu I
  • TAN013G
    Forvarnir og heilsuefling
    Skyldunámskeið
    1
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    1 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kynnt verður grunnþekking á orsökum og afleiðingum munnsjúkdóma með áherslu á hvernig beita má forvörnum.  Farið yfir grunnatriðin um hvernig miðla má tannheilsuforvörnum til almennings. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • TAN103G
    Bitfræði fræðileg
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um tannbogana í heild, lögun þeirra og innbyrðis afstöður í biti og við bithreyfingar. Námið felur í sér verklegar æfingar og seminarverkefni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TAN104G
    Bitfræði verkleg

  • HVS202G
    Inngangur í þverfræðileg heilbrigðisvísindi - heilbrigðisvísindadagurinn
    Skyldunámskeið
    1
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    1 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er ætlað nemendum á fyrsta námsári í greinum heilbrigðisvísinda.  Sameiginlegur heilbrigðisvísindadagur nýnema allra deilda á Heilbrigðisvísindasviði í janúar ár hvert. Fjallað er um þverfaglegt samstarf og mikilvægi þess. Farið verður í grundvallarþætti samstarfsins svo sem sameiginlega sýn á réttindi til heilsu, samskipti og siðfræði. Einnig er fjallað um hlutverk og ábyrgð heilbrigðisvísinda.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Haust
  • TAN108G
    Inngangur að tannlæknisfræði
    Skyldunámskeið
    1
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    1 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námsefni:Kynning á klínískum greinum tannlækninga fyrir nema í Tannlæknadeild, námsbraut í tannsmíði og tanntæknanema. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • TSM301G
    Tölvustýrð tannsmíði og tannplantar
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeið fyrir nemendur í tannsmíði. Nemendur læra um þróun fagsins, gerð, hönnun og framleiðslu tannplanta verkefna með hefðbundnum hætti og þrívíddartækni (CAD/CAM), auk þess sem þeir læra um kosti, galla og áhættu sem fylgja tannplöntum og tannplantameðferð fyrir sjúklinga.

    Nemendur læra um mismunandi tannplantakerfi, þjálfa notkun þeirra og uppbyggingu fastra og lausra tanngerva á tannplanta. Áhersla er lögð á verklega þjálfun í undirbúningsvinnu, gerð hefðbundinna og þrívíddarprentaðra tannplantamódela, meðferð íhluta (abutmenta og analoga), hönnun og framleiðslu tannplanta verkefna með hefðbundnum hætti og CAD/CAM, þar sem reynir á mismunandi færni við úrlausn verkefna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt í lotu II
  • TSM302G
    Stálgrindur og partagerð
    Skyldunámskeið
    7
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeið í stálgrinda- og partagerð fyrir nemendur í tannsmíði. Kennd er fræðileg og verkleg stálgrinda- og partagerð, nemendur læra undirstöðu hönnunar parta, læra flokkun parta skv. Kennedy Classes I-IV, notkun lóðkana (surveyors) og framleiðsluferil stálgrinda í báða góma, viðgerðir og endurnýjun tanngerva úr gómaefni og gerð bráðabirgðaparta.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt í lotu III
  • TSM303G
    Krónu- og brúargerð II
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur læra fræðilega og verklega krónu og brúargerð, auk hönnunar tanngerva úr heil-postulíni. Kennd er meðferð, uppbygging og frágangur postulíns tanngerva til lokaskila, sem uppfylla gæðakröfur til slíkra lækningatækja.

    Kennt verður á CAD/CAM hönnunar- og skönnunarforrit tanngerva.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt í lotu I
  • TSM304G
    Efnisfræði I
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeið fyrir nemendur í tannsmíði, farið er í efnisfræði sem tengist fagsviði tannsmiða. Nemendur læra um notkunarsvið þeirra efna sem notuð eru í faginu, eiginleika þeirra og meðhöndlun.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Vor
  • TSM401G
    Heilgómagerð II
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Framhaldsnámskeið í heilgómagerð, fjallað er um frávik og einstaklingsbunda þætti í uppstillingum í heilgómagerð og þróun á framleiðsluaðferðum s.s. CAD/CAM og 3-D tækni.

    Í fræðilegum og verklegum hluta námskeiða er farið er í gerð heilgómasetta, ásetugóma, sáragóma, herimitanna og stakra heilgóma á móti eigin tönnum. Frekari þjálfun á uppstillingu við normal aðstæður við þrengsli, yfirbit og krossbit. Rifjuð er upp fóðrun (reline), endurplöstun (rebase) eldri tanngerva og viðgerðir á brotnum gómum og endurnýjun brotinna tanna. Val tanna og notkun ALMA gauge kynnt.

    Í lok námskeiðs geta nemendur samþætt fræðilega og verklega þekkingu við uppstillingu ólíkra gerða heilgóma og framleitt þá í samræmi við gæðastaðla.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt í lotu I
  • TSM402G
    Krónu- og brúargerð III
    Skyldunámskeið
    7
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Framhaldsnámskeið í krónu- og brúargerð, nemendur bæta við þekkingu og færni sína frá fyrra námskeiði.  Áhersla er lögð á fræðilega og verklega kennslu í meðferð postulíns og hönnun, uppbyggingu tanngerva úr heilpostulíni (e. All Ceramic) og hönnun málmlausra tanngerva og módela í CAD-CAM.  Nemendur læra um mismunandi postulínskerfi, notkunarsvið þeirra, takmarkanir, ábendingar, kosti og galla. Í fyrirlestrum er fjallað um hugmyndafræði hönnunar og meðferð postulínskerfa. Notkun og meðferð efna, áhalda, tækja og búnaðar sem þarf til  að fullvinna málmlaus tanngervi. 

    • Í kennslustundum er fjallað um hugmyndafræði, hönnun, meðferð og notkun ólíkra postulínskerfa við smíði lækningatækja í munnhol.
    • Fjallað er um megin mun á milli kerfa, notkunarsvið, takmarkanir, kosti og galla. Einnig notkun og meðferð efna, áhalda, tækja og búnaðar sem þarf til fullvinnslu PBM og all Ceramic tanngerva.
    • Á námskeiðinu vinna nemenduri sjálfstætt að verkefnum, þjálfa færni sína í upplýsingalæsi á eigin fagsviði og að miðla þekkingu sinni til annarra.
    • Verklegar æfingar í meðferð og notkun efna og tækja er æfð undir handleiðslu kennara á kennsluverkstæði deildarinnar.
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt í lotu III
  • TSM403G
    Tannréttingar II
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Framhaldsnámskeið ætlað nemendum í tannsmíði, kennd er undirstaða í þekkingu á bitskekkju, fræðiheitum sem notuð eru í greininni auk þekkingar í notkun lausra tannréttingatækja. Í verklegum hluta námskeiðsins er kennd smíði flóknari gerða af lausum tannréttingatækjum, þjálfuð mótttaka stafrænna máta (e. digital impressions) og verkefni smíðuð með hefðbundinni og/eða CAD/CAM tækni s.s. hörð bithlíf.

    Í lok námskeiðs getur nemandi samþætt fræðilega- og verklega þekkingu í tannréttingum, hannað og framleitt á sjálfstæðan hátt tannréttingartæki með ýmsum íhlutum og notað til þess ýmis efni, áhöld og tæki.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt í lotu II
  • TSM404G
    Efnisfræði II

  • TSM405G
    Aðfari að vísindalegum vinnubrögðum
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennd eru undirstöðu atriði í aðferðafræði rannsókna innan tannlæknavísinda.

    Nemendur lesa ritrýndar fræðigreinar og æfa sig í að lesa úr rannsóknarniðurstöðum með gagnrýnum hætti. Samhliða vinna nemendur í tölfræðiforriti (Jamovi) og með töflureikni úr gagnasettum lýsandi og greinandi tölfræði. Þeir æfa framsetningu niðurstaðna í texta, töflum og myndum, túlka þær og draga af þeim ályktanir í formlegri rannsóknarskýrslu.

    Skyldumæting er á skipulagða viðburði skv. kennsluáætlun svo sem þátttaka í málstofu þar sem nemendur kynna niðurstöður BS verkefna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Haust
  • TSM501G
    Vettvangsnám I
    Skyldunámskeið
    24
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    24 einingar, ETCS
    Þar af 20 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er vettvangsnám þar sem nemendur vinna að raunverulegum verkefnum í tannsmíði undir handleiðslu fagfólks. Vettvangsnám fer fram innan og utan kennsluverkstæðis Tannlæknadeildar Háskóla Íslands og á tannlækna- og/eða tannsmíðastofum innanlands eða erlendis, meðal annars innan Erasmus-samstarfs.

    Áhersla er lögð á að nemendur yfirfæri fræðilega þekkingu og verklega færni í raunverulegt starf og þrói með sér sjálfstæði, ábyrgð og fagvitund. Nemendur fá tækifæri til að takast á við fjölbreytt verkefni, beita hefðbundnum og stafrænum aðferðum (CAD/CAM) við hönnun og framleiðslu tanngerva og vinna með viðeigandi efni, tæki og búnað.

    Jafnhliða vettvangsnámi vinna nemendur að eigin faglegu þróun með reglulegri ígrundun í dagbók og ferilmöppu. Einnig hefja þeir undirbúning að rannsóknaráætlun fyrir BS-lokaverkefni og þjálfast í heimildaleit, gagnaöflun og fræðilegum vinnubrögðum.

    Kennsla hefst með staðlotu í upphafi annar. Að öðru leyti fer kennsla og leiðsögn fram í fjarnámi í Canvas samhliða vettvangsnámi.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • TSM502G
    Fagvitund og heilbrigðisþjónusta
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um lög og reglur um heilbrigðisstarfsmenn og rekstrarumhverfi helbrigðisþjónustu, siðareglur og starfsleyfi Embættis landlæknis. Ígrundað er gæðaeftirlit, kynnt fyrirkomulag skráningu sérsmíðaðra lækningatækja og gildi upprunavottorða. Rætt er um samskipti, teymisvinnu og vinnuumhverfi. Farið er í hagnýt atriði sem snúa að sótt- og smitvörnum á starfsvettvangi tannsmiða, áhrif sóttvarnarefna á mátefni og kenndur frágangur lækningatækja til lokaskila.

    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • TSM603G
    Vettvangsnám II
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Þar af 4 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Vettvangsnám II, fer fram á kennsluverkstæði Tannlæknadeildar samkvæmt skipulagðri dagskrá. Þar vinna nemedur að því að leysa raunveruleg verkefni í tannsmíði í samvinnu við meðferðaraðila. Samhliða þjálfa þeir leikni í hönnun flóknari tann- og munngerva með tölvutækni (Computer aided design).

    Þátttaka í námskeiðinu undirbýr nemendur undir atvinnuþátttöku að námi loknu.

    Námskeiðið reynir á faglega hæfni nemandans, tímastjórn og útsjónasemi í að leysa úr fjölbreyttum verkefnum í tannsmíði.

    Gæðeftirlit er í höndum fagfólks sem veitir nauðsynlega handleiðslu eins og við á.  

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • TSM604G
    Verklegt lausnarleitarnám
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeið ætlað nemendum á sjötta misseri í tannsmíði. Nemendur takast á við raunveruleg tannsmíðaverkefni og beita til þess lausnarleitarnámi.

    Viðfangsefni:

    • Nemendur vinna valin verkefni, gera vinnuáætlun og fylgja henni til lokaskila á verkefnum. 
    • Þjálfa skipulagningu á verkferlum og tímastjórn.
    • Þjálfa samvinnu innan tannheilsuteymis.

    Vinnulag:

    • Vinnan á verkefnunum fer fram á verknámsstofu Námsbrautar í tannsmíði.
    • Nemendur hafa frjálsan vinnutíma en verkefnunum skal skilað á fyrirfram ákveðnum tíma.
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TSM607G
    Verkefnakynning
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Vettvangur til að kynna eigið verkefni og kynnast verkefnum annarra. Kynning á fyrirframvöldu verkefni tengdu tannsmíði. Notkun á fræðilegum hugtökum tengdu fagi tannsmiða. Tækifæri til skoðanaskipta um fræðileg álitamál og gagnrýna uppbyggilega umræðu um verkefnið. Nemendur veita hvort öðru gagnkvæman stuðning og aðhald.

    Lotukennsla í upphafi annar til stuðnings BS verkefna vinnu, umræðutímar og vinnustofur eru skipulaðgar með þarfir nemendahópsins í huga hverju sinni. Í lok námskeiðs kynnir nemandi eigin BS niðurstöður fyrir samnemendum, kennurum og leiðbeinendum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • TSM608L
    BS Lokaverkefni
    Skyldunámskeið
    0

Annað ár

Þriðja ár

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

BS gráða veitir rétt til að starfa sjálfstætt við tannsmíðar á Íslandi.

Tannsmiðir eru hluti af tannheilsuteyminu og starfa ýmist á:

  • Tannsmíðastofum
  • Tannlæknastofum
  • Eru með eigin rekstur

Listinn er ekki tæmandi.

Tannsmiðir hafa tekið að sér sérverkefni fyrir kvikmyndagerð, sjónvarp og leikhús.

    • Nemendafélagið nefnist Félag íslenskra tannlæknanema (FÍT)
    • Félagið stendur fyrir fjölbreyttum og skemmtilegum viðburðum
    • Viðburðir eru einnig haldnir með nemendafélögum annarra deilda Heilbrigðisvísindasviðs
    • Fylgdu FÍT á Instagram

    Meira um félagslíf stúdenta í Hí.

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Snædísi Ómarsdóttur
Ég fór á Háskóladaginn og heillaðist af tannsmiðakynningunni! Kostirnir við tannsmiðanámið er að eftir 3 ára nám til BS gráðu fær maður réttindi til að starfa sem tannsmiður. Einnig er í boði fjölbreytt framhaldsnám í útlöndum sem mér finnst mjög spennandi. Ég hef áhuga á efnafræði, en það er eina raungreinin í tannsmíði.
Ljósmynd af Alexander Nökkva Baldurssyni
Það sem hefur komið mér á óvart í náminu er hve mikilvægur þátttakandi tannsmiðurinn er í tannheilsuteyminu, þó lítið beri á þeim fyrir augum sjúklingsins. Mér hefur fundist Vettvangsnámið áhugaverðast en þar hef ég fengið að kynnast því að vinna raunhæf verkefni fyrir sjúklinga.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Skrifstofa tannlæknadeildar
Virka daga 10:00 – 14:00
Almenn þjónusta

Við bendum á þjónustumiðju HÍ fyrir allar almennar fyrirspurnir. Einnig er hægt að mæta á Þjónustuborðið á Háskólatorgi eða nota spjallmenni HÍ hér neðst til hægri á síðunni.

Læknagarðar

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil