"""
Tungumál kennslu
Íslenska og enska
Lengd náms
Tvö ár - 120 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á málhljóðatileinkun barna?
  • Langar þig að geta aðstoðað fólk með tal- og málörðugleika?
  • Vilt þú geta byggt upp meðferðaráætlanir til að nota við þjálfun barna með málþroskaraskanir?
  • Getur þú hugsað þér að vinna við greiningu og íhlutun á mál- og talmeinum?

Talmeinafræði er þverfræðilegt nám, skipulagt af Menntavísindasviði, Íslensku- og menningardeild, Læknadeild og Sálfræðideild.

Uppbygging náms

Námið er 120 einingar og er skipulagt sem fullt nám til tveggja ára.

Námið skiptist í:

  • Skyldunámskeið, 79 einingar
  • Starfsnám, 11 einingar
  • Lokaverkefni, 30 einingar

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á íslensku eða ensku.

Tekið er inn í meistaranám í talmeinafræði annað hvert ár og takmarkast fjöldi nýrra nemenda við töluna 15.

Meginmarkmið

Miðað að því að veita vísindalega menntun og þjálfun í talmeinafræði og búa nemendur undir störf talmeinafræðinga og vísindastörf sem tengjast greininni.

Annað

Að loknu MS prófi í talmeinafræði og 6 mánaða verklegri þjálfun undir handleiðslu talmeinafræðings er hægt að sækja um starfsleyfi til Landlæknisembættisins.

Námið veitir aðgang að doktorsnámi

Nemendur sem hefja meistaranám í talmeinafræði skulu uppfylla eftirfarandi skilyrði:

a. Hafa lokið BA, B.Ed. eða BS prófi með að jafnaði 1. einkunn.

b. Hafa lokið eftirfarandi námskeiðum eða námskeiðum sem metin eru sambærileg af stjórn námsleiðar í Talmeinafræði við HÍ:*

  1. Málfræði (íslenska/almenn málvísindi) - 40ECTS
    1. Málkerfið - hljóð og orð ÍSL209G (10e)
    2. Inngangur að málfræði ÍSL110G (10e)
    3. Tal- og málmein AMV415G (10e)
    4. Máltaka barna ÍSL508G (10e)
  2. Sálfræði - 35ECTS
    1. Tölfræði I SÁL102G (10e)
    2. Tölfræði II SÁL203G (5e)
    3. Þroskasálfræði SÁL414G (10e)
    4. Mælinga- og próffræði SÁL418G (10e)

Tekið er inn í meistaranám í talmeinafræði annað hvert ár og takmarkast fjöldi nýrra nemenda við töluna 16.

*Námskeið sem teljast sambærileg forkröfunámskeiðunum

(Með fyrirvara um villur og breytingar)

Ljúka þarf 120 einingum sem skiptast svo: 90 einingar í námskeiðum í skyldukjarna sem ákveðin eru af námsstjórn og tilgreind í kennsluskrá, eða sambærileg námskeið sem námsstjórn samþykkir sem valnámskeið, og 30 einingar í rannsóknarverkefni. Lágmarkseinkunn í námskeiðum er 6,0.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Ferilskrá (CV)
  • Greinargerð um markmið með námi
  • Meðmælandi 1, nafn og netfang
  • Meðmælandi 2, nafn og netfang
  • Prófskírteini/námsyfirlit
  • Ef umsækjandi hefur erlent ríkisfang og erlent próf þarf að skila staðfestingu á enskukunnáttu

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Taugalíffærafræði fyrir talmeinafræði (TAL101F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verða skoðuð tengsl taugavísinda og talmeinafræði. Farið verður yfir miðtaugakerfið, taugafrumur, skynbörk, hreyfikerfi, heilataugar, blóðflæði og heilavökva. Heilabörkur og æðri heilastarfsemi verða tekin fyrir ásamt rödd, sjón, heyrn og jafnvægi. Loks verða skoðaðar ýmsar leiðir til myndgreiningar á heila.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Málhömlun fullorðinna I (TAL103F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður fjallað um mismunandi tegundir af málstoli. Farið verður yfir mat og greiningu á málgetu fullorðinna einstaklinga eftir heilablóðfall og tilfelli skoðuð. Helstu málstolspróf verða skoðuð, hvernig þau eru lögð fyrir og meðferð skipulögð í framhaldi af greiningu á skertri málgetu sjúklinga.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Málhljóðaröskun barna (TAL109F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið verður yfir málhljóðatileinkun barna og rýnt í helstu kenningar innan hljóðkerfisfræðinnar sem nýtast talmeinafræðingum í meðferð á málhljóðaröskunum. Nemendur læra að greina raskanir í málhljóðamyndun og framburði. Mismunandi leiðir í gagnaöflun teknar fyrir. Nemendur læra að semja meðferðaráætlun út frá eðli röskunarinnar og kynnast aðferðum sem notaðar eru í meðferð. Nemendur fá kynningu á skarði í gómi og vör: þeir læra um mismunandi tegundir skarða og áhrif þeirra á tal, heyrn og fæðuinntöku. Nemendur kynnast þjónustuferli barna með skarð í góm og vör, ráðgjöf og fræðslu til foreldra og annarra í nánasta umhverfi barnsins.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Fagleg og vísindaleg vinnubrögð - Starfsnám 1 (TAL110F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur kynnast helstu próftækjum á sviði tal- og málmeina sem notuð eru af talmeinafræðingum og kynnt verður uppbygging prófa og gildi þeirra í fræðilegum og hagnýtum tilgangi. Nemendur fylgjast með talmeinafræðingum að störfum með heimsóknum á vettvang (Starfsnám I). Lög, reglugerðir og siðareglur talmeinafræðinga verða kynntar. Rýnt verður í aðferðafræði sem tengist talmeinafræði og litið til gagnreyndra aðferða í tengslum við meðferð á tal- og málmeinum. Farið verður í aðferðir við leit að rannsóknargreinum og mat á þeim rannsóknargrunni sem liggur til grundvallar meðferð og matsaðferðum talmeinafræðinga.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Málþroskaröskun barna I (TAL111F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað um eðli og orsakir málþroskaröskunar á fræðilegan hátt ásamt greiningu þeirra. Námskeiðið skiptist í tvo þætti. Annars vegar er fræðileg umfjöllun um máltöku, tvítyngi seinan málþroska,  og málþroskaröskun og hins vegar er fjallað um mælingar á málþroska. Í fyrri hlutanum kynna nemendur sér nýjustu kenningar og fræðilega umfjöllun um málþroskaröskun eðli hennar og umfang. Í seinni þættinum læra nemendur um greiningar og mikilvægi þeirra, ennfremur að beita og nota stöðluð greiningartæki til að mæla málþroska barna, þekki matstæki sem til eru fyrir íslensku sem og fræðilegan bakgrunn þeirra og hvernig málsýni nýtast við greiningu á málþroska barna. Einnig verður fjallað um greiningar á málþroska tvítyngdra barna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir (TAL213F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um innleiðingu óhefðbundinna tjáskiptaleiða og tjáskiptatækni til notenda með flóknar tjáskiptaþarfir. Farið verður í helstu forsendur sem liggja að baki uppbyggingu málnotkunar í gegnum mismunandi tjáskiptatækni, bæði í tölvu- og pappírslausnum. Farið er yfir matsaðferðir og meðferðarleiðir fyrir mismunandi hópa.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Starfsnám 2 (TAL216F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur starfa á vettvangi undir handleiðslu talmeinafræðinga. Starfsnámið felur í sér þjálfun í greiningu og mati á mismunandi mál- og talmeinum barna og fullorðina auk viðeigandi skýrslu og álitsgerða. Nemar læra að byggja upp markvissa þjálfun og velja viðeigandi íhlutunaraðgerðir fyrir skjólstæðinga.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Tölfræði og aðferðafræði 1 (TAL217F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu kynnast nemendur fjölbreyttum aðferðum í gagnaleit, eigindlega og megindlega gagnaöflun, gagnaöflun, greiningu gagna, auk aðferða við greiningu á rannsóknarniðurstöðum. Einnig kynnast nemendur ólíkum tölfræðiaðferðum með lestri rannsóknargreina. Einkum verður einblínt á aðferðir sem nýtast nemendum beint í komandi meistaraverkefnum. Áður en námskeiðinu lýkur munu nemendur hafa fundað með leiðbeinendum sínum og meistaranefnd og leitað í gagnagrunnum að heimildum er nýtast í viðkomandi meistaraverkefnum. Í lok námskeiðs skila nemendur drög að fræðilegum inngangi og aðferðum ritgerðar sinnar sem þeir kynna fyrir samnemendum og leiðbeinendum.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Taltruflanir (TAL218F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður taugafræðilegur grunnur tals rifjaður upp og fjallað um taltruflanir í kjölfar sjúkdóma og áverka á taugakerfið. Farið verður yfir mismunandi tegundir þvogls og verkstols. Fjallað verður um greiningaraðferðir vegna þvogls og verkstols, úrræði og meðferð. Nemendur fá þjálfun í hlustun og greiningu með hljóð- og myndbandsupptökum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Kynging og kyngingartregða (TAL219F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður fjallað um kyngingingartregðu á munnkokstigi, t.d. í kjölfar taugasjúkdóma, krabbameins í munni og hálsi eða heilablóðfalls. Farið verður yfir líffærafræði og ferli kyngingar á munnkokstigi hjá börnum og fullorðnum. Taugafræðilegur grunnur kyngingar verður rifjaður upp. Farið verður yfir greiningu, úrræði og meðferð vegna kyngingartregðu á munnkokstigi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Málþroskaröskun barna II (TAL307F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er umfjöllun um almenna málörvun,  meðferð málþroskafrávika og tengsl málþekkingar við lestrar- og námserfiðleika. Fjallað verður um málörvun leikskóla- og grunnskólabarna, hljóðkerfisvitund og lestrarnám, skólalíkön og samstarf við aðrar fagstéttir. Nemendur skoða leiðir byggðar á vísindalegum grunni til að vinna með orðaforða, setningar, málfræði, og málnotkun. Nemendur læra að byggja upp meðferðaráætlanir til að nota við þjálfun barna með málþroskaröskun.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Stam og flausturmæli (TAL316F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að gefa fræðilegt yfirlit yfir nýjustu rannsóknir um eðli, einkenni og meðferð stams. Nemendur kynnast helstu hugmyndum og kenningum um stam og umdeildum skýringum á orsökum stamsins. Nemendur læra að greina stam og kynnast helstu meðferðum sem eru notaðar í meðhöndlun stams hjá börnum og fullorðnum. Nemendur kynnast einnig flausturmæli sem er önnur truflun á talflæði. Fjallað verður um meðhöndlun stams út frá dæmum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Inngangur að heyrnarfræði (TAL204F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið verður í grunnatriði hljóðs og heyrnar. Fjallað verður um líffærafræði eyrans og lífeðlisfræði heyrnar sem og ýmsar tegundir heyrnarskerðingar og sjúkdóma sem tengjast heyrn. Kynnt verða helstu meðferðarúrræði við heyrnarskeðingum. Nemendur kynnast ýmsum aðferðum heyrnarmælinga. Kynnt verður talþjálfun fyrir einstaklinga með heyrnarskerðingu, þar á meðal einstaklinga sem farið hafa í kuðungsígræðslu. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Rödd og raddveilur (TAL220F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið verður í lífeðlisfræði raddar, orsakir raddveilna og sjúkdómafræði þeim tengdum. Fjallað verður um greiningu og meðferð á raddveilum og hljómvanda hjá börnum og fullorðnum. Nemendur kynnast ýmsum hugtökum og rannsóknum raddvísinda. Fjallað verður um fyrirbyggjandi aðgerðir til að draga úr hættu á raddveilum. Nemendur fá að kynnast tækjabúnaði og forritum sem nýtast við greiningar og meðferð á raddveilum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Starfsnám 3 (TAL311F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur starfa á vettvangi undir handleiðslu talmeinafræðinga. Starfsnámið felur í sér þjálfun í greiningu og mati á mismunandi mál- og talmeinum barna og fullorðinna auk viðeigandi skýrslu og álitsgerða. Nemar læra að byggja upp markvissa þjálfun og velja viðeigandi íhlutunaraðgerðir fyrir skjólstæðinga. Nemar læra að meta árangur þjálfunar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Málhömlun fullorðinna II (TAL313F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um tal- og málörðugleika eftir ákominn heilaskaða í tengslum við höfuðáverka, heilablóðfall í hægra heilahveli og heilabilun. Farið verður yfir einkenni vitrænnar tjáskiptaskerðingar, algengustu matstækin sem meta hana og helstu meðferðarleiðir til að bæta tjáskiptafærni fólks með ákominn heilaskaða. Einnig verður farið yfir helstu þætti fræðslu og ráðgjafar um samskiptastuðning til aðstandenda og fagfólks.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Fjölþættar tjáskiptaþarfir – tilfellamiðað nám (TAL314F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að auka sjálfstæði nemenda við að leita lausna á klínískum tilfellum á breiðu sviði innan talmeinafræðinnar. Í námskeiðinu vinna nemendur í litlum hópum og fá leiðsögn við að afla upplýsinga, ákvarða greiningarleiðir og finna úrræði fyrir börn og fullorðna sem glíma við tal- og málmein.

Meðal klínískra tilvika eru málefni einstaklinga með t.d. flókinn tjáskiptavanda, málstol og verkstol í tali. Með námskeiðinu verður nemendum gert kleift að dýpka skilning á ákveðnu viðfangsefni með beinni klínískri skírskotun. Þá verður fjallað um gerð þjálfunaráætlana og hvernig ber að framfylgja þeim ásamt ráðgjöf til aðstandenda og fagfólks.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Tölfræði og aðferðafræði 2 (TAL315F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið er í beinu framhaldi af TAL217F Tölfræði og aðferðafræði 1 (hét áður Tölfræðilæsi og lestur rannsóknargreina). Nemendur fá áframhaldandi þjálfun í að beita mismunandi rannsóknaraðferðum þótt megin áhersla verði lögð á aðferðafræði eigin meistaraverkefnis. Auk þess verður fjallað um gagnaöflun er lýtur að meistaraverkefnum nemenda, greiningu gagna og rýnt í  hvernig niðurstöður, umræður og ályktanir eru settar fram. Nemendum gefst tækifæri til að vinna í meistaraverkefnum sínum og í lok námskeiðs munu þeir skila fræðilegum inngangi og aðferðakafla MS ritgerðar auk þess að hafa undirbúið hluta af lokafyrirlestri um ritgerðina.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Meistaraverkefni í talmeinafræði (TAL441L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meistaranám í talmeinafræði er 120 eininga þverfræðilegt framhaldsnám og þar af skal rannsóknarverkefni vera 30 e. Rannsóknarverkefnið er unnið á öðru, þriðja og fjórða misseri námsins.

Vor (2. önn): Við lok þessarar annar á nemandi að koma með hugmynd að meistaraverkefni sínu, finna leiðbeinanda og hefja gagnaleit.

Haust (3. önn): Á þessu misseri móta nemendur rannsóknarviðfangsefni sitt og rannsóknarspurningar og leggja fram áætlun um rannsóknina til samþykktar af fagráði kennara talmeinafræðinnar. Nemendur skulu enn fremur ljúka vinnu á fræðilegum bakgrunni verkefnisins á þessari önn og sjá um að senda umsóknir til viðeigandi aðila ef þörf krefur, t.d. Vísindasiðanefndar Íslands, Vísindasiðanefndar HÍ eða Siðanefndar Landspítalans, eftir því sem við á (2e). Námsmat: Staðið/fallið.

Vor (4. önn): Vinnu við lokaverkefnið lýkur á þessari síðustu önn námsins með meistaravörn í lok annar (28e). Námsmat: Staðið/fallið.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Vor
Starfsnám 4 (TAL401F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur starfa samfellt í fjórar vikur á vettvangi. Þeir starfa sjálfstætt en í náinni samvinnu við talmeinafræðinga. Starfsnámið felur áfram í sér þjálfun í greiningu og mati á mismunandi tal- og málmeinum barna og fullorðinna, auk viðeigandi skýrslu- og álitsgerða. Nemar læra að byggja upp markvissa þjálfun og velja viðeigandi íhlutunaraðgerðir fyrir skjólstæðinga, sömuleiðis að meta árangur þjálfunar. Þeir vinna með öðrum starfstéttum til að koma til móts við þarfir skjólstæðinganna, t.d. með því að sitja fjölskyldu- og teymisfundi varðandi skjólstæðinga.

Fyrsta ár
  • Haust
  • TAL101F
    Taugalíffærafræði fyrir talmeinafræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verða skoðuð tengsl taugavísinda og talmeinafræði. Farið verður yfir miðtaugakerfið, taugafrumur, skynbörk, hreyfikerfi, heilataugar, blóðflæði og heilavökva. Heilabörkur og æðri heilastarfsemi verða tekin fyrir ásamt rödd, sjón, heyrn og jafnvægi. Loks verða skoðaðar ýmsar leiðir til myndgreiningar á heila.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TAL103F
    Málhömlun fullorðinna I
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður fjallað um mismunandi tegundir af málstoli. Farið verður yfir mat og greiningu á málgetu fullorðinna einstaklinga eftir heilablóðfall og tilfelli skoðuð. Helstu málstolspróf verða skoðuð, hvernig þau eru lögð fyrir og meðferð skipulögð í framhaldi af greiningu á skertri málgetu sjúklinga.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TAL109F
    Málhljóðaröskun barna
    Skyldunámskeið
    7
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið verður yfir málhljóðatileinkun barna og rýnt í helstu kenningar innan hljóðkerfisfræðinnar sem nýtast talmeinafræðingum í meðferð á málhljóðaröskunum. Nemendur læra að greina raskanir í málhljóðamyndun og framburði. Mismunandi leiðir í gagnaöflun teknar fyrir. Nemendur læra að semja meðferðaráætlun út frá eðli röskunarinnar og kynnast aðferðum sem notaðar eru í meðferð. Nemendur fá kynningu á skarði í gómi og vör: þeir læra um mismunandi tegundir skarða og áhrif þeirra á tal, heyrn og fæðuinntöku. Nemendur kynnast þjónustuferli barna með skarð í góm og vör, ráðgjöf og fræðslu til foreldra og annarra í nánasta umhverfi barnsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TAL110F
    Fagleg og vísindaleg vinnubrögð - Starfsnám 1
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur kynnast helstu próftækjum á sviði tal- og málmeina sem notuð eru af talmeinafræðingum og kynnt verður uppbygging prófa og gildi þeirra í fræðilegum og hagnýtum tilgangi. Nemendur fylgjast með talmeinafræðingum að störfum með heimsóknum á vettvang (Starfsnám I). Lög, reglugerðir og siðareglur talmeinafræðinga verða kynntar. Rýnt verður í aðferðafræði sem tengist talmeinafræði og litið til gagnreyndra aðferða í tengslum við meðferð á tal- og málmeinum. Farið verður í aðferðir við leit að rannsóknargreinum og mat á þeim rannsóknargrunni sem liggur til grundvallar meðferð og matsaðferðum talmeinafræðinga.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TAL111F
    Málþroskaröskun barna I
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað um eðli og orsakir málþroskaröskunar á fræðilegan hátt ásamt greiningu þeirra. Námskeiðið skiptist í tvo þætti. Annars vegar er fræðileg umfjöllun um máltöku, tvítyngi seinan málþroska,  og málþroskaröskun og hins vegar er fjallað um mælingar á málþroska. Í fyrri hlutanum kynna nemendur sér nýjustu kenningar og fræðilega umfjöllun um málþroskaröskun eðli hennar og umfang. Í seinni þættinum læra nemendur um greiningar og mikilvægi þeirra, ennfremur að beita og nota stöðluð greiningartæki til að mæla málþroska barna, þekki matstæki sem til eru fyrir íslensku sem og fræðilegan bakgrunn þeirra og hvernig málsýni nýtast við greiningu á málþroska barna. Einnig verður fjallað um greiningar á málþroska tvítyngdra barna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • TAL213F
    Óhefðbundnar tjáskiptaleiðir
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um innleiðingu óhefðbundinna tjáskiptaleiða og tjáskiptatækni til notenda með flóknar tjáskiptaþarfir. Farið verður í helstu forsendur sem liggja að baki uppbyggingu málnotkunar í gegnum mismunandi tjáskiptatækni, bæði í tölvu- og pappírslausnum. Farið er yfir matsaðferðir og meðferðarleiðir fyrir mismunandi hópa.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TAL216F
    Starfsnám 2
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur starfa á vettvangi undir handleiðslu talmeinafræðinga. Starfsnámið felur í sér þjálfun í greiningu og mati á mismunandi mál- og talmeinum barna og fullorðina auk viðeigandi skýrslu og álitsgerða. Nemar læra að byggja upp markvissa þjálfun og velja viðeigandi íhlutunaraðgerðir fyrir skjólstæðinga.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • TAL217F
    Tölfræði og aðferðafræði 1
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu kynnast nemendur fjölbreyttum aðferðum í gagnaleit, eigindlega og megindlega gagnaöflun, gagnaöflun, greiningu gagna, auk aðferða við greiningu á rannsóknarniðurstöðum. Einnig kynnast nemendur ólíkum tölfræðiaðferðum með lestri rannsóknargreina. Einkum verður einblínt á aðferðir sem nýtast nemendum beint í komandi meistaraverkefnum. Áður en námskeiðinu lýkur munu nemendur hafa fundað með leiðbeinendum sínum og meistaranefnd og leitað í gagnagrunnum að heimildum er nýtast í viðkomandi meistaraverkefnum. Í lok námskeiðs skila nemendur drög að fræðilegum inngangi og aðferðum ritgerðar sinnar sem þeir kynna fyrir samnemendum og leiðbeinendum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TAL218F
    Taltruflanir
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður taugafræðilegur grunnur tals rifjaður upp og fjallað um taltruflanir í kjölfar sjúkdóma og áverka á taugakerfið. Farið verður yfir mismunandi tegundir þvogls og verkstols. Fjallað verður um greiningaraðferðir vegna þvogls og verkstols, úrræði og meðferð. Nemendur fá þjálfun í hlustun og greiningu með hljóð- og myndbandsupptökum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TAL219F
    Kynging og kyngingartregða
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður fjallað um kyngingingartregðu á munnkokstigi, t.d. í kjölfar taugasjúkdóma, krabbameins í munni og hálsi eða heilablóðfalls. Farið verður yfir líffærafræði og ferli kyngingar á munnkokstigi hjá börnum og fullorðnum. Taugafræðilegur grunnur kyngingar verður rifjaður upp. Farið verður yfir greiningu, úrræði og meðferð vegna kyngingartregðu á munnkokstigi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TAL307F
    Málþroskaröskun barna II
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er umfjöllun um almenna málörvun,  meðferð málþroskafrávika og tengsl málþekkingar við lestrar- og námserfiðleika. Fjallað verður um málörvun leikskóla- og grunnskólabarna, hljóðkerfisvitund og lestrarnám, skólalíkön og samstarf við aðrar fagstéttir. Nemendur skoða leiðir byggðar á vísindalegum grunni til að vinna með orðaforða, setningar, málfræði, og málnotkun. Nemendur læra að byggja upp meðferðaráætlanir til að nota við þjálfun barna með málþroskaröskun.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TAL316F
    Stam og flausturmæli
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að gefa fræðilegt yfirlit yfir nýjustu rannsóknir um eðli, einkenni og meðferð stams. Nemendur kynnast helstu hugmyndum og kenningum um stam og umdeildum skýringum á orsökum stamsins. Nemendur læra að greina stam og kynnast helstu meðferðum sem eru notaðar í meðhöndlun stams hjá börnum og fullorðnum. Nemendur kynnast einnig flausturmæli sem er önnur truflun á talflæði. Fjallað verður um meðhöndlun stams út frá dæmum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Haust
  • Ekki kennt á misserinu
    TAL204F
    Inngangur að heyrnarfræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið verður í grunnatriði hljóðs og heyrnar. Fjallað verður um líffærafræði eyrans og lífeðlisfræði heyrnar sem og ýmsar tegundir heyrnarskerðingar og sjúkdóma sem tengjast heyrn. Kynnt verða helstu meðferðarúrræði við heyrnarskeðingum. Nemendur kynnast ýmsum aðferðum heyrnarmælinga. Kynnt verður talþjálfun fyrir einstaklinga með heyrnarskerðingu, þar á meðal einstaklinga sem farið hafa í kuðungsígræðslu. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    TAL220F
    Rödd og raddveilur
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið verður í lífeðlisfræði raddar, orsakir raddveilna og sjúkdómafræði þeim tengdum. Fjallað verður um greiningu og meðferð á raddveilum og hljómvanda hjá börnum og fullorðnum. Nemendur kynnast ýmsum hugtökum og rannsóknum raddvísinda. Fjallað verður um fyrirbyggjandi aðgerðir til að draga úr hættu á raddveilum. Nemendur fá að kynnast tækjabúnaði og forritum sem nýtast við greiningar og meðferð á raddveilum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    TAL311F
    Starfsnám 3
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur starfa á vettvangi undir handleiðslu talmeinafræðinga. Starfsnámið felur í sér þjálfun í greiningu og mati á mismunandi mál- og talmeinum barna og fullorðinna auk viðeigandi skýrslu og álitsgerða. Nemar læra að byggja upp markvissa þjálfun og velja viðeigandi íhlutunaraðgerðir fyrir skjólstæðinga. Nemar læra að meta árangur þjálfunar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Ekki kennt á misserinu
    TAL313F
    Málhömlun fullorðinna II
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um tal- og málörðugleika eftir ákominn heilaskaða í tengslum við höfuðáverka, heilablóðfall í hægra heilahveli og heilabilun. Farið verður yfir einkenni vitrænnar tjáskiptaskerðingar, algengustu matstækin sem meta hana og helstu meðferðarleiðir til að bæta tjáskiptafærni fólks með ákominn heilaskaða. Einnig verður farið yfir helstu þætti fræðslu og ráðgjafar um samskiptastuðning til aðstandenda og fagfólks.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    TAL314F
    Fjölþættar tjáskiptaþarfir – tilfellamiðað nám
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að auka sjálfstæði nemenda við að leita lausna á klínískum tilfellum á breiðu sviði innan talmeinafræðinnar. Í námskeiðinu vinna nemendur í litlum hópum og fá leiðsögn við að afla upplýsinga, ákvarða greiningarleiðir og finna úrræði fyrir börn og fullorðna sem glíma við tal- og málmein.

    Meðal klínískra tilvika eru málefni einstaklinga með t.d. flókinn tjáskiptavanda, málstol og verkstol í tali. Með námskeiðinu verður nemendum gert kleift að dýpka skilning á ákveðnu viðfangsefni með beinni klínískri skírskotun. Þá verður fjallað um gerð þjálfunaráætlana og hvernig ber að framfylgja þeim ásamt ráðgjöf til aðstandenda og fagfólks.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Ekki kennt á misserinu
    TAL315F
    Tölfræði og aðferðafræði 2
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið er í beinu framhaldi af TAL217F Tölfræði og aðferðafræði 1 (hét áður Tölfræðilæsi og lestur rannsóknargreina). Nemendur fá áframhaldandi þjálfun í að beita mismunandi rannsóknaraðferðum þótt megin áhersla verði lögð á aðferðafræði eigin meistaraverkefnis. Auk þess verður fjallað um gagnaöflun er lýtur að meistaraverkefnum nemenda, greiningu gagna og rýnt í  hvernig niðurstöður, umræður og ályktanir eru settar fram. Nemendum gefst tækifæri til að vinna í meistaraverkefnum sínum og í lok námskeiðs munu þeir skila fræðilegum inngangi og aðferðakafla MS ritgerðar auk þess að hafa undirbúið hluta af lokafyrirlestri um ritgerðina.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Ekki kennt á misserinu
    TAL441L
    Meistaraverkefni í talmeinafræði
    Skyldunámskeið
    0

    TAL401F
    Starfsnám 4

Annað ár

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Dæmi um starfsvettvang:

  • Sjúkrastofnanir
  • Endurhæfingarstöðvar
  • Þjónustumiðstöðvar
  • Heilsugæslan
  • Leik- og grunnskólar
  • Einkareknar talmeinastofur

Listinn er ekki tæmandi

Ekki er sérstakt nemendafélag fyrir þetta nám en nemendur eru duglegir að hittast í Stúdentakjallaranum.

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Önnu Lísu Benediktsdóttur
Ég valdi talmeinafræðina vegna þess að hún sameinar áhuga minn á tungumálinu og forvitni mína um starfsemi heilans. Hæfni okkar til tjáningar er gríðarlega mikilvæg og á þátt í að skilgreina okkur sem persónur. Fyrir tilstuðlan tungumálsins getum við deilt hugsunum okkar og skoðunum, þörfum og löngunum með öðrum. Erfiðleikar í tali, máli og tjáskiptum geta haft umtalsverð áhrif, þeir geta valdið hindrunum í leik og starfi og haft áhrif á andlega og félagslega líðan. Talmeinafræðingar sinna því afar mikilvægu og þörfu starfi.Talmeinafræðingar starfa á fjölbreyttum vettvangi, skjólstæðingahópur þeirra er á öllum aldri og þeir vinna oft í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir. Mikil eftirspurn er eftir talmeinafræðingum og því eru atvinnuhorfur góðar að námi loknu.
Ljósmynd af Sigfúsi Helga Kristinssyni
Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á tungumálum, sér í lagi hvernig við tileinkum okkur tungumál fyrirhafnarlaust í bernsku. Þar fyrir utan hef ég alltaf haft áhuga á taugafræði og líffræði mannsins. Fyrir mér lá því beinast við að sameina þessi áhugasvið og leggja stund á nám í talmeinafræði. Námið var bæði stórskemmtilegt og krefjandi. Þar er samofin bein þekkingaröflun á máli og tali og hagnýting þekkingar, þ.e. hvernig megi með sem skilvirkustum hætti greina og veita meðferð við tal- og málmeinum og ekki síður hvernig megi haga frekari þekkingaröflun til eflingar í starfi. Þrátt fyrir allt vakti námið í raun fleiri spurningar hjá mér en það svaraði og hygg ég á frekari sérhæfingu í greininni. Ég tel námið hafa veitt mér styrkan grunn til að halda áfram í sérhæft nám (doktorsnám í talmeinafræði við háskólann í Suður-Karólínu í USA) og í framhaldinu starfsframa í grein sem er í stöðugri mótun og þróun.
Ljósmynd af Heiðu D. Sigurjónsdóttur
Ég ákvað að fara í talmeinafræði eftir að hafa starfað sem leikskólakennari í nokkur ár. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á hvers konar starfi með börnum og langaði að öðlast sérhæfðari þekkingu til að vinna með þeim hópi svo ég dreif mig í meistaranám í talmeinafræði. Námið var mjög krefjandi en mjög skemmtilegt á sama tíma. Svo þegar ég kynntist faginu almennilega kom í ljós hvað starf talmeinafræðinga er ótrúlega fjölbreytt og býður upp á marga möguleika, bæði í vinnu með ungbörnum, börnum á leik- og grunnskólaaldri, unglingum og fullorðnu fólki.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Talmeinafræði
Eftir samkomulagi
Umsjónaraðilar námsleiðar
Nýi Garður háskólabygging

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil