Nei, ekki er hægt að sækja eingöngu um einstök námskeið. Til að stunda nám við Háskóla Íslands þarf fyrst að sækja um og fá inngöngu í námsleið.
Ef þú sækir um grunnnám getur þú bara sótt um eina námsleið. Ef þú sækir um framhaldsnám er hægt að sækja um nám á fleiri námsleiðum.
Sjá upplýsingar um undanþágur frá formlegum inntökuskilyrðum í bakkalárnám hér.
Hægt er að bóka stofu fyrir hópavinnu einu sinni í viku í allt að þrjá tíma. Til að bóka þarf að senda póst á kennslustofur@hi.is. Í póstinum verður að taka fram nafn, kennitölu, námskeið og námskeiðsnúmer og nöfn þeirra sem eru í hópnum.
Alþjóðasvið tekur við umsóknum frá nemendum Háskóla Íslands sem hyggjast fara utan sem skiptinemar og annast samskipti við samstarfsskólann.
Þú finnur bókalista á vef námskeiða í Canvas eða í kennsluskrá.
Flest lokaverkefni nemenda í grunnnámi, viðbótardiplómanámi og meistaranámi má finna í Skemmunni. Lokaverkefnin eru ýmist skrifuð á íslensku eða ensku.
Nemendur eiga rétt á því að fá að skoða eldri prófverkefni sem lögð hafa verið fyrir. Prófverkefni eru í prófasafni hvers námskeiðs. Prófasafnið er aðgengilegt á vef námskeiðsins í Uglu.
Kennsluáætlun finnur þú á vef hvers námskeiðs í námsumsjónarkerfinu Canvas. Í kennsluáætlun er oftast að finna upplýsingar um lesefni námskeiðsins.
Leiðbeiningar um notkun forritsins má nálgast í PDF-skjali í Uglu, innri vef Háskólans eða í kennsluskrá.