Hallormsstaður
Tungumál kennslu
Íslenska
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á skapandi hugsun, sjálfbærni og nýsköpun? 
  • Viltu efla sköpunarkraftinn og hafa áhrif í átt að betra umhverfi og samfélagi?
  • Finnst þér spennandi að tengja saman hefðbundið handverk og nýja tækni?
  • Langar þig að auka þekkingu þína á nýtingarmöguleikum náttúrunnar?
  • Viltu styrkja hæfni þína til að takast á við áskoranir framtíðarinnar? 

Nám í Skapandi sjálfbærni á Hallormsstað er sveigjanlegt, fræðilegt og verklegt nám sem leggur áherslu á virka þátttöku nemenda. Náttúran og umhverfið er stærsta kennslustofan þar sem nemendur kynnast staðbundu hráefni svæðisins og taka þátt í öflun þess.

Þverfræðilegt eðli námsins tengir saman náttúrvísindi, listir, handverk og samfélagsgreinar með sérstaka áherslu á nýtingu staðbundinna auðlinda og náttúrulegra hráefna.

Nemendur læra fjölbreyttar aðferðir við meðhöndlun og nýtingu hráefna þar sem lögð er áhersla á menningararf, handverk, nýsköpun og miðlun þekkingar. Námið byggist upp af sex námskeiðum sem kennd eru í 5 vikna lotum. Viðfangsefnin eru árstíðabundin og stundataflan mótast af náttúru, veðri og aðstæðum hverju sinni. 

Meðal viðfangsefna:

  • Sjálfbær nýting hráefna og staðbundinna auðlinda
  • Skapandi og lausnamiðuð hugsun
  • Menningararfur og handverk
  • Hæglæti og samfélag
  • Hagnýting og miðlun  þekkingar
  • Nýsköpun og frumkvöðlanálgun

Annað

Skapandi sjálfbærni er einnig hægt að taka sem:  

Frekari upplýsingar um aðal- og aukagreinar má finna undir hjálplegt efni neðar á síðunni.

Athugið að aðgengi fyrir hreyfihamlaða er takmarkað í skólahúsinu og í skóginum.

Stúdentspróf eða annað sambærilegt próf.

Nemendur ljúka skyldunámskeiðum, samtals 60 einingum. 

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Lifað með landinu (SKS101G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið gefur nemendum tækifæri til að vinna með auðlindir og hráefni úr íslenskri náttúru með áherslu á sjálfbærni og siðfræði náttúrunýtingar. Nemendur læra hefðir og aðferðir nytjasöfnunar, ásamt ferlinu frá uppruna hráefnis til endurvinnslu eða eyðingar. Kenndar eru viðurkenndar aðferðir í meðhöndlun hráefna, með áherslu á nýsköpun og skapandi hugsun. Nemendur öðlast innsýn í nýtingu staðbundinna hráefna og efnisþekkingu sem gefur ríkari vistkerfisvitund.

Nemendur öðlast einnig innsýn í mismunandi vistkerfi og líffræðilegan fjölbreytileika. Nemendur safna hráefnum úr náttúrunni og vinna þau áfram. Áhersla er lögð á ábyrga nýtingu og verklega færni sem stuðlar að sjálfbærni og seiglu samfélaga, með samfélag og lífríki að leiðarljósi.

Námskeiðið er kennt í staðnámi á Hallormsstað á Austurlandi.

Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, vettvangsferða, verklegrar vinnu og umræðu. Nemendur munu fá tækifæri til að taka þátt í nytjasöfnun og varðveislu hráefna úr náttúrunni.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Skapandi sjálfbærni (SKS102G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið miðar að því að veita nemendum skilning á hugtökunum sjálfbærni og sköpun, bæði í fræðilegu og verklegu samhengi. Fjallað er um umhverfis- og samfélagsleg vandamál og vistkerfi jarðar. Unnið er út frá hugmyndafræði sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda og hráefna, þar sem lögð er áhersla á skapandi greinar og nýsköpun sem mikilvæga þætti í sjálfbærri þróun.

Áhersla er á þverfræðilega nálgun þar sem sýn og aðferðir úr ólíkum greinum eru samþætt. Nemendur þróa færni í skapandi lausnaleit til að takast á við hnattrænar og staðbundnar áskoranir með sjálfstæðum og rannsakandi vinnubrögðum. Nemendur vinna að sjálfbærum lausnum með staðbundnum hráefnum í raunverulegum aðstæðum. Verkefnavinna og skapandi lausnaleit eru lykilþættir námskeiðsins.

Námskeiðið er kennt í staðnámi á Hallormsstað á Austurlandi.

Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, vettvangsferða, verklegrar vinnu og umræðu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Sjálfbært samfélag (SKS103G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um þróun sjálfbærra samfélaga með áherslu á félagslega arfleifð, menningararf, handverk og samfélagslega nýsköpun. Nemendur fá innsýn í hvernig sjálfbærni tengist byggðaþróun, búsetu og framtíðarsýn samfélaga, ásamt því að skoða hvernig fortíð og menningararfur móta sjálfbærnileiðir nútímans.

Nemendur læra að nálgast menningararfinn með skapandi og gagnrýnni hugsun ásamt því að nálgast nýsköpun með lærdóm fyrri kynslóða í farteskinu. Þau kynnast helstu aðferðum og tækni í margskonar handverki og lögð er rík áhersla á að hlúa að óáþreifanlegum menningararfi og miðlun þekkingar milli kynslóða.

Nemendur kynnast einnig hefðbundum aðferðum fyrri kynslóða m.a. í meðferð og fullvinnslu hráefna, mismunandi verkunar og geymsluaðferða og nýtingarmöguleikum vannýttra hráefna. Nemendur kynnast jafnframt skapandi uppfinningum alþýðufólks fyrri tíma sem þurfti að bjarga sér með það sem hendi var næst. Í námskeiðinu verður lögð áhersla á aðferðir sem geta stuðlað að blómlegu og sjálfbæru samfélagi í jafnvægi við náttúru og mannvirki.

Námskeiðið er kennt í staðnámi á Hallormsstað á Austurlandi.

Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, vettvangsferða, verklegrar vinnu og umræðu og nemendur fá tækifæri til læra verklegar aðferðir handverks.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Lausnamiðuð sjálfbærni (SKS201G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um þróun samfélaga og hagkerfa í átt að sjálfbærni með lausnamiðuðum nálgunum við áskoranir samtímans. Nemendur öðlast skilning á efnahagslegum, félagslegum og umhverfislegum hugtökum sjálfbærni, og hvernig alþjóðasamningar, lög og reglugerðir hafa áhrif á þessi svið. Lausnamiðuð sjálfbærni felur í sér bæði greiningu á vandamálum og þróun hagnýtra lausna.

Nemendur læra að nýta skapandi og gagnrýna hugsun með sjálfstæðri verkefnavinnu. Markmið námskeiðsins er að valdefla nemendur til að taka virkan þátt í sjálfbærri þróun með því að beita lausnamiðaðri nálgun. Áhersla er lögð á inngildingu, jafnrétti og réttlæti, þar sem nemendur vinna að þróun hagnýtra verkefna og verklegra lausna sem stuðla að sjálfbærri framtíð. Nemendur fá tækifæri til að móta eigin framtíðarsýn og þjálfa hæfni til að miðla lausnum í fjölbreyttum aðstæðum.

Námskeiðið er kennt í staðnámi á Hallormsstað á Austurlandi.

Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, vettvangsferða, verklegrar vinnu og umræðu. Nemendur munu fá tækifæri til að læra verklegar aðferðir við þróun sjálfbærra lausna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Skapandi ferli og nýting auðlinda (SKS202G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Með viðurkenndum vinnsluaðferðum og fræðilegri umfjöllun læra nemendur aðferðir við meðhöndlun og nýtingu fjölbreyttra auðlinda og hráefna á sjálfbæran og nýskapandi hátt. Áhersla er lögð á skapandi greinar og nýsköpun, þar sem nemendur tengja þekkingu sína við nánasta umhverfi og hnattrænar áskoranir. Sérfræðingar úr ýmsum greinum styðja við fræðilegan grunn námskeiðsins og veita faglega innsýn.

Nemendur vinna undir handleiðslu sérfræðinga, þróa eigin verklegar lausnir og dýpka skilning sinn á skapandi ferlum. Lögð er áhersla á fjölbreytt verklag og miðlun niðurstaðna til að tryggja áframhaldandi þekkingarflæði og nýsköpun.

Námskeiðið er kennt í staðnámi á Hallormsstað á Austurlandi.

Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, vettvangsferða, verklegrar vinnu og umræðu. Nemendur munu fá tækifæri til að læra viðurkenndar vinnsluaðferðir við vinnslu hráefna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Arftakar framtíðar (SKS203G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að gera nemendur að virkum þátttakendum í mótun sjálfbærrar framtíðar. Nemendur öðlast færni í að skapa lausnir við samfélagslegum, umhverfislegum og efnahagslegum áskorunum og verða arftakar framtíðarinnar. Nemendur læra að tengja saman skapandi sjálfbærni, samfélagsábyrgð og miðlun.

Nemendur vinna að verklegum lausnum sem krefjast nýsköpunar og skapandi hugsunar. Lögð er áhersla á skapandi hugsun, sjálfstæð vinnubrögð, þróun leiðtogahæfni og mótun eigin framtíðarsýnar til dæmis með nálgun kerfisbundinna framtíðarfræða og nýtingu sviðsmynda.

Námskeiðið er kennt í staðnámi á Hallormsstað á Austurlandi.

Með valdeflandi nálgun öðlast nemendur hæfni til að miðla þekkingu sinni og verða leiðandi í mótun sjálfbærrar framtíðar. Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, vettvangsferða, verklegrar vinnu og umræðu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár
  • Haust
  • SKS101G
    Lifað með landinu
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið gefur nemendum tækifæri til að vinna með auðlindir og hráefni úr íslenskri náttúru með áherslu á sjálfbærni og siðfræði náttúrunýtingar. Nemendur læra hefðir og aðferðir nytjasöfnunar, ásamt ferlinu frá uppruna hráefnis til endurvinnslu eða eyðingar. Kenndar eru viðurkenndar aðferðir í meðhöndlun hráefna, með áherslu á nýsköpun og skapandi hugsun. Nemendur öðlast innsýn í nýtingu staðbundinna hráefna og efnisþekkingu sem gefur ríkari vistkerfisvitund.

    Nemendur öðlast einnig innsýn í mismunandi vistkerfi og líffræðilegan fjölbreytileika. Nemendur safna hráefnum úr náttúrunni og vinna þau áfram. Áhersla er lögð á ábyrga nýtingu og verklega færni sem stuðlar að sjálfbærni og seiglu samfélaga, með samfélag og lífríki að leiðarljósi.

    Námskeiðið er kennt í staðnámi á Hallormsstað á Austurlandi.

    Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, vettvangsferða, verklegrar vinnu og umræðu. Nemendur munu fá tækifæri til að taka þátt í nytjasöfnun og varðveislu hráefna úr náttúrunni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • SKS102G
    Skapandi sjálfbærni
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið miðar að því að veita nemendum skilning á hugtökunum sjálfbærni og sköpun, bæði í fræðilegu og verklegu samhengi. Fjallað er um umhverfis- og samfélagsleg vandamál og vistkerfi jarðar. Unnið er út frá hugmyndafræði sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda og hráefna, þar sem lögð er áhersla á skapandi greinar og nýsköpun sem mikilvæga þætti í sjálfbærri þróun.

    Áhersla er á þverfræðilega nálgun þar sem sýn og aðferðir úr ólíkum greinum eru samþætt. Nemendur þróa færni í skapandi lausnaleit til að takast á við hnattrænar og staðbundnar áskoranir með sjálfstæðum og rannsakandi vinnubrögðum. Nemendur vinna að sjálfbærum lausnum með staðbundnum hráefnum í raunverulegum aðstæðum. Verkefnavinna og skapandi lausnaleit eru lykilþættir námskeiðsins.

    Námskeiðið er kennt í staðnámi á Hallormsstað á Austurlandi.

    Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, vettvangsferða, verklegrar vinnu og umræðu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • SKS103G
    Sjálfbært samfélag
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um þróun sjálfbærra samfélaga með áherslu á félagslega arfleifð, menningararf, handverk og samfélagslega nýsköpun. Nemendur fá innsýn í hvernig sjálfbærni tengist byggðaþróun, búsetu og framtíðarsýn samfélaga, ásamt því að skoða hvernig fortíð og menningararfur móta sjálfbærnileiðir nútímans.

    Nemendur læra að nálgast menningararfinn með skapandi og gagnrýnni hugsun ásamt því að nálgast nýsköpun með lærdóm fyrri kynslóða í farteskinu. Þau kynnast helstu aðferðum og tækni í margskonar handverki og lögð er rík áhersla á að hlúa að óáþreifanlegum menningararfi og miðlun þekkingar milli kynslóða.

    Nemendur kynnast einnig hefðbundum aðferðum fyrri kynslóða m.a. í meðferð og fullvinnslu hráefna, mismunandi verkunar og geymsluaðferða og nýtingarmöguleikum vannýttra hráefna. Nemendur kynnast jafnframt skapandi uppfinningum alþýðufólks fyrri tíma sem þurfti að bjarga sér með það sem hendi var næst. Í námskeiðinu verður lögð áhersla á aðferðir sem geta stuðlað að blómlegu og sjálfbæru samfélagi í jafnvægi við náttúru og mannvirki.

    Námskeiðið er kennt í staðnámi á Hallormsstað á Austurlandi.

    Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, vettvangsferða, verklegrar vinnu og umræðu og nemendur fá tækifæri til læra verklegar aðferðir handverks.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Vor
  • SKS201G
    Lausnamiðuð sjálfbærni
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um þróun samfélaga og hagkerfa í átt að sjálfbærni með lausnamiðuðum nálgunum við áskoranir samtímans. Nemendur öðlast skilning á efnahagslegum, félagslegum og umhverfislegum hugtökum sjálfbærni, og hvernig alþjóðasamningar, lög og reglugerðir hafa áhrif á þessi svið. Lausnamiðuð sjálfbærni felur í sér bæði greiningu á vandamálum og þróun hagnýtra lausna.

    Nemendur læra að nýta skapandi og gagnrýna hugsun með sjálfstæðri verkefnavinnu. Markmið námskeiðsins er að valdefla nemendur til að taka virkan þátt í sjálfbærri þróun með því að beita lausnamiðaðri nálgun. Áhersla er lögð á inngildingu, jafnrétti og réttlæti, þar sem nemendur vinna að þróun hagnýtra verkefna og verklegra lausna sem stuðla að sjálfbærri framtíð. Nemendur fá tækifæri til að móta eigin framtíðarsýn og þjálfa hæfni til að miðla lausnum í fjölbreyttum aðstæðum.

    Námskeiðið er kennt í staðnámi á Hallormsstað á Austurlandi.

    Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, vettvangsferða, verklegrar vinnu og umræðu. Nemendur munu fá tækifæri til að læra verklegar aðferðir við þróun sjálfbærra lausna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • SKS202G
    Skapandi ferli og nýting auðlinda
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Með viðurkenndum vinnsluaðferðum og fræðilegri umfjöllun læra nemendur aðferðir við meðhöndlun og nýtingu fjölbreyttra auðlinda og hráefna á sjálfbæran og nýskapandi hátt. Áhersla er lögð á skapandi greinar og nýsköpun, þar sem nemendur tengja þekkingu sína við nánasta umhverfi og hnattrænar áskoranir. Sérfræðingar úr ýmsum greinum styðja við fræðilegan grunn námskeiðsins og veita faglega innsýn.

    Nemendur vinna undir handleiðslu sérfræðinga, þróa eigin verklegar lausnir og dýpka skilning sinn á skapandi ferlum. Lögð er áhersla á fjölbreytt verklag og miðlun niðurstaðna til að tryggja áframhaldandi þekkingarflæði og nýsköpun.

    Námskeiðið er kennt í staðnámi á Hallormsstað á Austurlandi.

    Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, vettvangsferða, verklegrar vinnu og umræðu. Nemendur munu fá tækifæri til að læra viðurkenndar vinnsluaðferðir við vinnslu hráefna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • SKS203G
    Arftakar framtíðar
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að gera nemendur að virkum þátttakendum í mótun sjálfbærrar framtíðar. Nemendur öðlast færni í að skapa lausnir við samfélagslegum, umhverfislegum og efnahagslegum áskorunum og verða arftakar framtíðarinnar. Nemendur læra að tengja saman skapandi sjálfbærni, samfélagsábyrgð og miðlun.

    Nemendur vinna að verklegum lausnum sem krefjast nýsköpunar og skapandi hugsunar. Lögð er áhersla á skapandi hugsun, sjálfstæð vinnubrögð, þróun leiðtogahæfni og mótun eigin framtíðarsýnar til dæmis með nálgun kerfisbundinna framtíðarfræða og nýtingu sviðsmynda.

    Námskeiðið er kennt í staðnámi á Hallormsstað á Austurlandi.

    Með valdeflandi nálgun öðlast nemendur hæfni til að miðla þekkingu sinni og verða leiðandi í mótun sjálfbærrar framtíðar. Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, vettvangsferða, verklegrar vinnu og umræðu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Áskoranir samtímans kalla á fagfólk sem hefur þekkingu á sjálfbærni og getur unnið að skapandi lausnum þvert á fræði- og atvinnugreinar. Nemendahópurinn samanstendur af fólki með fjölbreyttan bakgrunn sem nýtir námið til að efla sig í starfi á mismunandi vettvangi.  

Að loknu námi geta nemendur hagnýtt námið með ýmsum hætti, til að mynda sem frumkvöðlar í samfélagslegri nýsköpun, sjálfbærri framleiðslu á vöru,  þjónustu, ráðgjöf, sköpun eða stjórnun. Í náminu kynnast nemendur fjölda sérfræðinga, frumkvöðla og einstaklinga þar sem náin samvera skapar tækifæri til  samræðu og tengslamyndunar.

Þónokkur sprotafyrirtæki hafa orðið til upp úr náminu á ýmsum sviðum, svo sem á sviði:

  • Matvælaframleiðslu 
  • Snyrtivara
  • Textíls 
  • Fjölbreyttrar þjónustu og afþreyingar
  • Minjagripa og vara úr náttúrlegum efnum.

Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við: 

  • Kennslu
  • Menningarstarfsemi
  • Stjórnun
  • Sköpun
  • Sjálfbæra framleiðslu
  • Ferðaþjónustu
  • Kynningarstörf

Listinn er ekki tæmandi 

Á Hallormsstað verður til samheldið samfélag nemenda og óformlegt félagslíf í fámenni og hæglæti skógarins. Nemendur nýta skóginn og umhverfið til útivistar og vellíðanar.

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Kennsluskrifstofa Menntavísindasviðs
Virka daga 9:00 - 15:00
Hallormsstaðaskóli

Sími: +354 864 8088
netfang: hallormsstadur@hi.is
Opið: Mán-fim 9:00 -16:00 og fös 9:00 - 13:00

Hallormsstaðarskóli á samfélagsmiðlum:
Facebook  -  Instagram  - Youtube

Mynd af Hallormsstaðaskóla

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil