""
Tungumál kennslu
Að mestu á íslensku, en einhver námskeið kunna að vera kennd á ensku. Flestar kennslubækur eru á ensku.
Lengd náms
Þrjú ár - 180 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á hreyfingu og færni líkamans?
  • Viltu stunda nám sem er bæði bóklegt og verklegt?
  • Langar þig að skilja getu og takmarkanir líkamans?
  • Finnst þér gaman að vinna með fólki?
  • Viltu leiðbeina öðrum og stuðla að heilsueflingu? 
  • Viltu stunda krefjandi nám sem tryggir góða atvinnumöguleika? ​​​​​​

BS-nám í sjúkraþjálfunarfræðum er 180e fræðilegt og verklegt grunnnám og er nauðsynlegur grunnur fyrir meistaranám í sjúkraþjálfun.

Inntökupróf fer fram í byrjun sumars ár hvert og er það sameiginlegt með læknisfræði. Nánari upplýsingar um inntökuprófið.

Markmið sjúkraþjálfunar er að efla og viðhalda líkamlegri og andlegri færni og heilsu og stuðla þannig að bættum lífsgæðum og virkri þátttöku í síbreytilegu samfélagi.

Meðal viðfangsefna

  • Líffærafræði
  • Vöxtur og þroski
  • Frumulífeðlisfræði
  • Aðferðir í sjúkraþjálfun
  • Lífeðlisfræði
  • Stjórnun og rekstur
  • Hreyfivísindi
  • Áreynslulífeðlisfræði
  • Færni og fötlun
  • Hreyfistjórn og greining
  • Heilsusálfræði og geðsjúkraþjálfun
  • Öldrunarfræði
  • Heilsuefling

Hvað er sjúkraþjálfun?

Sjúkraþjálfun er sú þjónusta, meðferð og heilsuvernd sem veitt er af sjúkraþjálfurum. Fagið byggir á fræðilegum og vísindalegum grunni þar sem lykilhugtökin eru hreyfing (movement) og færni (functioning) frá vöggu til grafar.

Sjúkraþjálfarar greina orsakir hreyfitruflana og færniskerðinga og veita meðferð sem byggir á greiningunni. Þar að auki fást sjúkraþjálfarar við að koma í veg fyrir eða draga úr neikvæðum afleiðingum áverka, álagseinkenna, sjúkdóma, öldrunar, lífsstíls og umhverfisþátta sem geta truflað hreyfingu og raskað lífi einstaklingsins.

Annað

Stúdentspróf eða sambærilegt próf frá erlendum skóla. Nemendur sem lokið hafa prófi frá tækni- og verkfræðigrunni háskólagrunns Háskólans í Reykjavík eða verk- og raunvísindadeild háskólabrúar Keilis teljast uppfylla inntökuskilyrði deildarinnar. 

Nemendur eru teknir inn í sjúkraþjálfunarfræði á grundvelli inntökuprófs sem haldið er í júní ár hvert. Inntökuprófið byggist að hluta til á námsefni framhaldsskólanna, en einnig reynir á almenna þekkingu, siðfræðilega afstöðu og rökhugsun. Fjöldi þeirra nemenda sem öðlast rétt til náms í sjúkraþjálfunarfræði við deildina er takmarkaður, nú við 35.

Sjá Reglur um inntökuskilyrði í grunnnám (2022) og Reglur um inntöku nýnema í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði í Læknadeild Háskóla Íslands.

Ljúka þarf 180 einingum fyrir lokapróf. Ljúka þarf öllum einingum hvers árs áður en nám er hafið á því næsta.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Líffærafræði sj. IB (LÆK116G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Stórsæ líffærafræði útlima og bols.

Í fyrirlestrum og verklegum tímum er farið kerfisbundið yfir sértæka líffærafræði (anatomia systematica), líffærafræði svæða (anatomia topographica), yfirborðsútlit og starfsemi (anatomia functionalis) útlima og bols. Fyrirlestraskrá varðandi námsefni hverrar kennslustundar verður aðgengilegt við upphaf námskeiðs.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Líffærafræði sj. IA - Almenn (LÆK121G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Almenn líffærafræði (general anatomy) er tekur til byggingar þ.e. gerð og útlits mannslíkamans. Í fyrirlestrum er farið kerfisbundið yfir almenna líffærafræði mannslíkamans, bæði stórsæar og smásæar byggingar frá vefjum um líffæri og líffærakerfi til samþáttunar í fullþroska mannslíkama. Í verklegum tímum er farið í smásæa bygginu grunnvefja líkamans. Ennfremur er vísað til fyrirlestraskrár varðandi námsefnið, sem afhent verður í upphafi námskeiðs.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Inngangur að sjúkraþjálfun (SJÚ105G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verða sjúkraþjálfunarfræði og sjúkraþjálfun kynnt ásamt stefnu, hugmyndafræðilegum ramma og gildum Námsbrautar í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands. Fjallað verður um þróun og framtíðarsýn sjúkraþjálfunar, hugmyndafræðilegan ramma Alþjóðlegs flokkunarkerfis um færni, fötlun og heilsu (ICF) og lykilhugtök fræðigreinarinnar (hreyfing og færni). 

Kynntir verða til sögunnar meginþættir námsins í sjúkraþjálfunarfræðum og sjúkraþjálfun; hreyfistjórn, meðferðarferli sjúkraþjálfunar, notanda-/sjúklingsmiðuð nálgun, gagnreynd nálgun og fagmennska. Nemendur heimsækja vinnustaði sjúkraþjálfara og fylgjast með störfum þeirra. Nemendur fá þjálfun í grundvallaratriðum fræðilegra og gagnreyndra vinnubragða með áherslu á vísindaleg skrif, skilgreiningar hugtaka, rannsóknarspurningar, tilgátur, helstu rannsóknaraðferðir í heilbrigðisvísindum, heimildaleit, tilvísanir í heimildir og heimildaskráningu. Lagður verður grunnur að siðfræði og fagmennsku í námi og framtíðarstörfum. Nemendur fá þjálfun í gagnrýnni hugsun og áhersla lögð á að efla siðferðilega dómgreind og sjálfstæði nemenda þannig að þeir temji sér að ígrunda skoðanir sínar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Vöxtur og þroski (SJÚ106G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á þessu námskeiði fá nemendur innsýn í lýðfræði, sjónarmið og kenningar um vöxt og þroska manneskjunnar frá vöggu til grafar. Nemendur kynna sér og ræða fjölbreyttar kenningar og hugmyndir sem lúta að dæmigerðum líkamlegum, vitrænum, félagslegum og tilfinningalegum vexti og þroska; og fá dæmisögur um það hvernig líf-sál-félagsleg nálgun birtist í meðferðarferli sjúkraþjálfunar og notendamiðaðri sjúkraþjálfun. Nemendur læra um mikilvæga áhrifaþætti vaxtar og þroska og þar er sérstaklega fjallað um samspil erfða og umhverfis. Enn fremur, kynnast nemendur ýmsum frávikum frá dæmigerðum vexti og þroska ásamt algengum áskorunum sem tengjast ákveðnum aldursskeiðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Frumulífeðlisfræði (SJÚ107G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið í byggingu og starfsemi frumna og frumulíffæra, lífsameindir, stjórnun orkubúskapar og efnaskipta, boðskipti á milli frumna, lífeðlisfræðilega starfsemi taugakerfa, hormónakerfa og vöðva. Kynning á vefjaflokkum mannslíkamans.

Verklegar æfingar: himnuspenna- og viðtakar; og beinagrindavöðvar (taugaleiðni).

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Efnisgjald er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Inngangur í þverfræðileg heilbrigðisvísindi - heilbrigðisvísindadagurinn (HVS202G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
1 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er ætlað nemendum á fyrsta námsári í greinum heilbrigðisvísinda.  Sameiginlegur heilbrigðisvísindadagur nýnema allra deilda á Heilbrigðisvísindasviði í janúar ár hvert. Fjallað er um þverfaglegt samstarf og mikilvægi þess. Farið verður í grundvallarþætti samstarfsins svo sem sameiginlega sýn á réttindi til heilsu, samskipti og siðfræði. Einnig er fjallað um hlutverk og ábyrgð heilbrigðisvísinda.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Líffærafræði sj. IIA (LÆK214G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Taugalíffærafræði og líffærafræði höfuðs og háls. Líffæra- og fósturfræði höfuðs og háls (15F/N, 10V/N). Farið er yfir fósturfræði, líffærakerfi (anatomia systemica) og svæði (anatomia topographica) höfuðs og háls. Sýnikennsla eftir því sem aðstæður leyfa. Líffæra- og fósturfræði taugakerfis (26F/N, 14V/N). Í líffærafræði er farið yfir fósturþroska og starfræn kerfi taugakerfis. Í verklegum-/sýnikennslutímum er farið yfir ytri og innri gerð heilans.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Líffærafræði sj IIB (LÆK218G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Stórsæ líffærafræði (macroanatomia) innri (iðrar) líffæra. Í fyrirlestrum er farið yfir líffærafræði brjósthols-, kviðarhols- og grindarholslíffæra og fósturfræði þeirra kynnt þar sem við á. Einnig er kynnt yfirborðs líffærafræði búks og spangar þar sem bygging búk- og spangar veggjanna er skoðuð sérstaklega. Fyrirlestrar byggja á kliniskum tilfellum þar sem því verður við komið svo auka megi skilning vægi byggingar í klinisku samhengi.

Kennsla í LÆK218G (SJÚ) byggist á hefðbundnum fyrirlestrum, netfyrirlestrum, umræðutímum og verkefnum. Kennslufyrirkomulag í námskeiðinu er í stöðugri endurskoðun er taka til framfara í kennslu og því er áskilinn réttur til breytinga.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Líffærafræði sj. IA - Fósturfræði (LÆK219G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fósturfræði. Kynnt verða grundvallaratriði í fósturfræði: heiti (íslenskt, latneskt, enskt) atburða í fósturþroska, ferill breytinga í fósturþroska og stjórnun þeirra, orsakir og afleiðingar truflaðrar myndunar. Miðlun þessarar þekkingar til fagaðila, sjúklinga og almennings.
Kynntar verða með lestri greina helstu rannsóknir í fósturfræði og hvernig nota má þær til ákvarðanatöku (klíník og stefnumörkun) um greiningu og meðferð vandamála og miðlun þeirra ákvarðana til fagaðila, sjúklinga og almennings.
Í námskeiðinu er farið í fyrirlestrum yfir grundvallaratriði fósturfræði og gerð mannslíkamans skýrð með tilvísun til uppruna hans. Námsefnið kemur fram í fyrirlestraskrá í CANVAS við upphafi námskeiðs.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Aðferðir í sjúkraþjálfun I (SJÚ205G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fræðilegur grunnur fyrir mjúkvefjameðferð í lækningaskyni er kynntur fyrir nemendum í fyrirlestraformi.  Farið er í gegnum mismunandi ástand vefja og greiningu auk þess sem farið er í grundvallaratriði við val á mjúkvefjameðferð.  Í verklegum tímum eru æfð helstu hefðbundnu handtök sem beitt er við mjúkvefjameðferð, m.a. þrýstipunktameðferð, hreyfinudd og  losun á bandvefsreifum vöðva (myofascial release).  Einnig er kennd meðferð við sogæðabjúg.  Helstu líffærafræðilegu kennileiti eru fundin og þreifuð.  Nemendur læra um sína eigin líkamsvitund. Frætt er um líkamsbeitingu við vinnu sem sjúkraþjálfari og áhersla lögð á að nemendur beiti sér vel í verklegum tímum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Lífeðlisfræði (SJÚ206G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður m.a. farið yfir eftirfarandi efnisatriði:

  • Miðtaugakerfið.
  • Skynjun, þar með talið sjón, heyrn, jafnvægi og efnaskyn.
  • Stjórn hreyfinga.
  • Hjarta og blóðrás.
  • Öndun.
  • Hitastjórnun.
  • Áreynsla.
  • Hormón.
  • Melting.
  • Nýru, vökva- og jónavægi.
  • Æxlun og þungun.

Yfirferð verður á formi fyrirlestra og samhliða umræðu. Að auki verða þrjár verklegar æfingar í námskeiðinu:

  • Hjarta og blóðrás.
  • Nýrnastarfsemi.
  • Áreynsla.
Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Efnisgjald er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Heilsuefling I (SJÚ311G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu fyrra heilsueflingarnámskeiði verður lögð áhersla á hlutverk sjúkraþjálfara við heilsueflingu hópa og samfélaga. Farið verður yfir grundvallarhugmyndafræði lýðheilsu, vellíðunar og mismunandi stig forvarna með áherslu á gagnreynda nálgun. Nemendur öðlast þekkingu á heilsueflandi samfélagsverkefnum sem eru/hafa verið í gangi og hvernig sjúkraþjálfarar geta komið að og/eða nýtt sér slíkt verkefni í starfi. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna verða skoðuð og hlutverk sjúkraþjálfara í tengslum við sjálfbærni og umhverfið. Farið verður yfir áhrifaþætti heilbrigðis, með tilliti til líkamlegra, sálfræðilegra og félagslegra þátta og horft til heilsulæsis einstaklinga. Grunnþættir í heilsuhagfræði verða kynntir og tengsl þeirra við heilsu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Haust
Hreyfivísindi I: Starfræn líffærafræði og lífaflfræði (SJÚ306G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeið verða kynnt hugtök og lögmál sem nauðsynleg eru til að geta greint hreyfingar mannsins. Námskeiðið skiptist í starfræna líffærafræði stoðkerfisins, lífaflfræði og mat á starfsemi liðamóta og vöðva. Í starfrænni líffærafræði er lögð áhersla á eðlilega og skerta starfsemi einstaka liðamóta og vöðva og unnið með dæmi um samsettar liðhreyfingar tengdar ýmsum athöfnum. Unnið er með lífaflfræðihugtök  og farið yfir lífaflfræðilega eiginleika vefja. Áhersla er lögð á áhrif þyngdarkrafts, annarra ytri krafta og kraftvægja á líkamann. Fjallað er um hreyfingar mannslíkamans og líkamsstöðu með tilliti til samspils ytri og innri krafta. Nemendur þjálfa leikni í mati á hreyfingum helstu liðamóta, vöðvastyrk og líkamsstöðu, ásamt leikni í að skrá og túlka niðurstöður matsins.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Haust
Töl- og aðferðafræði (SJÚ307G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið er í mismunandi rannsóknarsnið og aðferðir, bæði í eigindlegum og megindlegum rannsóknum. Lögð verður áhersla á að kynna kosti og galla hverrar aðferðar fyrir sig þannig að nemandinn skilji gæðamun á rannsóknum þar sem mismunandi aðferðum er beitt m.t.t. gagnreyndrar þekkingar. Farið er í lýsandi tölfræði og grunnatriði í ályktunartölfræði. Kynnt verða einföld og algeng tölfræðipróf, eins og t-próf, einþátta dreifnigreiningu, kí-kvaðrat próf, stikalaus próf og línulega aðhvarfsgreiningu, svo og helstu tölfræðiaðferðir við að meta áreiðanleika. Nemendur fá þjálfun í notkun á aðgengilegu tölfræðiforriti.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Annað ár | Haust
Áreynslulífeðlisfræði (SJÚ308G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið er í áhrif áreynslu og þjálfunar á efnaskipti og lífeðlisfræðilega starfsemi líffærakerfa líkamans, þ.e. vöðva, bein, taugakerfið, hormónakerfið, öndunarfærin, hjarta- og blóðrásarkerfið, ónæmiskerfið, hitastigsstjórnun og vatns- og saltbúskap. Þá verður farið í þreytu og mismunandi orsakir hennar, svo og stjórnun líkamsþyngdar.

Lagt verður upp úr að þjálfa nemendur í úrvinnslu heimilda með kynningum í verkefnatímum og málstofum.  Við skil á öllum verkefnum (skriflega/munnlega) þarf að gera grein fyrir notkun gervigreindar og í hverju hún var fólginn. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Efnisgjald er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Haust
Félagslegt umhverfi (SJÚ309G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði er sjónum beint að áhrifum umhverfisþátta á færni, fötlun og heilsu sem samkvæmt hugmyndafræði ICF eru: afurðir og tækni, náttúrulegt umhverfi og umhverfisbreytingar af manna völdum, stuðningur og tengsl, viðhorf og þjónusta, kerfi og stefnur. Hugtökin algild hönnun og inngilding eru kynnt og unnið umhverfisverkefni tengt aðgengi. Rætt er um félagslegan fjölbreytileika og félagslega áhrifaþætti heilsu; fjallað um fjölmenningu, áhrif áfalla og félagslegt umhverfi transfólks, ásamt mismunandi skilningi á fötlun. Líkan um menningarhæfni er kynnt og tengsl þess við notendamiðaða nálgun og fagmennsku. Fjallað er um heilbrigðiskerfið á Íslandi og viðmið um réttlæti; Heilbrigðisstefnu til ársins 2030, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, forgangsröðun, réttindi sjúklinga, réttindi fatlaðs fólks og almannatryggingar, m.a. með tilliti til félagslegrar stöðu mismunandi hópa samfélagsins.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Annað ár | Vor
Heilsuefling II (SJÚ412G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu seinna heilsueflingarnámskeiði verður áhersla lögð á heilsueflingu á einstaklingsmiðaðan hátt, áhrifaþætti heilsuhegðunar einstaklinga og hvernig sjúkraþjálfarar geta haft áhrif á kyrrsetu og hreyfingarleysi. Farið verður í ráðleggingar hreyfingar sem forvörn og meðferð ýmissa sjúkdóma. Nemendur öðlast leikni í að beita aðferðum áhugahvetjandi samtalstækni með áherslu á notkun Hreyfiseðils sem meðferð sjúkdóma og sjúkdómseinkenna. Kynnt verður hvernig hægt er að nýta smáforrit í heilsueflingu. Nemendur öðlast leikni í að ræða heilsu og sjúkraþjálfun á erlendu tungumáli og þekkingu á sjúkraþjálfunarfaginu og heilbrigðiskerfum í evrópskum löndum. Auk þess verður farið í grunnatriði í næringarfræði og svefns og leiðir til að skima lífsstíl einstaklinga verða ræddar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Annað ár | Vor
Mælingar á færni og fötlun (SJÚ407G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið felur í sér kynningu á fræðilegum undirstöðum mælinga í heilbrigðisvísindum með áherslu á staðlað mat sjúkraþjálfara á athöfnum- og þátttöku (mat á færni). Nemendur kynnast mismunandi mælikvörðum og mælitækjum sem hafa verið hönnuð fyrir fjölbreytta notenda-/sjúklingahópa.

Nemendur læra um grundvallaratriði í mælinga- og próffræði, með það að markmiðið að geta valið, gagnrýnt og notað mælitæki á faglegan og öruggan máta. Nemendur þjálfa leikni í að nýta hugmyndafræðilegan ramma ICF og samtímakenningar um hreyfistjórn þegar þau flokka mælitækin og túlka niðurstöður þeirra. Hugmyndafræði ICF er einnig lögð til grundvallar þegar nemendur kortleggja og rökstyðja þátttöku sjúkraþjálfara í heildrænu mati tengt teymisvinnu. Kynntar verða aðferðir við þýðingu, staðfærslu og staðalbindingu alþjóðlegra mælitækja.

Nemendur munu fá tækifæri til að þjálfa leikni í að gagnrýna og nota staðlaðar mælingar í heimaverkefnum og verklegum kennslustundum. Nemendur vinna jafnframt verkefni þar sem þau leggja gagnrýnið mat á tiltekið mælitæki og setja niðurstöðurnar fram á fræðilegan og notendavænan máta sem hentar sjúkraþjálfurum í klínísku starfi. Í námskeiðinu er lögð áhersla á hæfni í að beita gagnreyndri nálgun við val á mælitækjum; og að gæta fyllsta öryggis þegar ögra þarf líkamlegri færni notanda-/sjúklings.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Annað ár | Vor
Meinafræði, myndgreining og lyf (SJÚ408G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu fá nemendur kynningu á grunnatriðum í meinafræði, lyfjafræði og myndgreiningu.

  1. Fjallað er um frumu- og vefjabreytingar við ýmis konar áreiti, afleiðingar frumuskemmda, bólguviðbrögð, græðslu og viðgerð, ónæmisviðbrögð, ofvöxt og eðli æxlisvaxtar.
  2. Kynnt er fræðigreinin líflyfjafræði og fjallað um hvar finna má upplýsingar um lyf. Tekin verða nokkur dæmi um lyfjaflokka og fjallað um hvernig notkun sjúklinga á þeim geta tengst starfi sjúkraþjálfara.
  3. Kynntar verða myndgreiningaraðferðir sem notaðar eru við rannsóknir á stoðkerfi, taugakerfi, lungum og hjarta- og æðakerfi. Lögð er áhersla á gagnsemi upplýsinga úr myndgreiningu fyrir sjúkraþjálfun.
Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Vor
Hreyfivísindi II: Hreyfistjórn og hreyfigreining (SJÚ409G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemandi mun fá þekkingu og skilning á hreyfivísindum. Fjallað er um helstu kenningar að baki hreyfistjórnar og hreyfináms og áhrif sem þær hafa haft á skoðun og íhlutun sjúkraþjálfara. Athygli er beint að kerfakenningum og athafnamiðaðri nálgun. Tenging kenningar kvikra kerfa og Alþjóðlega flokkunarkerfisins um færni, fötlun og heilsu (International Classification of Function, Disability and Health- ICF) verða útskýrð. Lífeðlisfræði hreyfistjórnar og hreyfináms verður kennd. Farið er í hvað er hreyfifærni og um breytingar á henni sem verða við þjálfun. Fjallað verður um áhrifaþætti hreyfináms og í tengslum við það verður talað um aðlögunarhæfni (plasticity) heilans þegar verið er að ná tökum á athöfnum. Breytingar á hreyfistjórn tengdar þroska og aldri verða skoðaðar. Farið verður yfir hvernig nota má vísindalega þekkingu hreyfivísinda sem grunn fyrir gagnreynda nálgun í sjúkraþjálfun.

Áhersla er lögð á athafnamiðaðar hreyfingar mannsins, einkum þær sem fela í sér að koma sér um, hafa stjórn á jafnvægi og stjórn á efri útlimum. Eðlileg framkvæmd hreyfiathafna er skoðuð með áherslu á hreyfingar liðamóta (kinematics) og verkun krafta á líkamann (kinetics) . Einnig verður fjallað um sértækar kröfur í mismunandi verkefnum og umhverfisaðstæðum. Nemendur læra að greina hreyfingar með því að horfa á þær. Þá munu þeir læra um ýmis próf/matstæki sem notuð eru til að meta jafnvægi, göngu, að standa upp og færni með höndum. Þeir  kynna próf/matstæki, æfa sig í að leggja próf fyrir þar sem gætt er að stöðlun mælinga og öryggi sjúklinga auk þess sem þeir skrá og túlka niðurstöður. Dæmi eru tekin um frávik í hreyfistjórn vegna sjúkdóma og slysa.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Aðferðir í sjúkraþjálfun II - Þjálffræði (SJÚ411G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðis er nemendur geti samnýtt þekkingu um helstu kenningar í þjálfræði við þekkingu úr líffærafræði, lífaflfræði, og lífeðlisfræði til að útbúa þjálfunaráætlun, og til að þjálfa notendur og hópa.

Innihald námskeiðs: 

Nemendur læra um grundvallaratriði varðandi upphitun, þolþjálfun, styrkþjálfun, liðleikaþjálfun, og stöðugleikaþjálfun. Nemendur nýta þekkingu sína til að velja hagstæðar æfingar og meta framkvæmd æfinganna hjá einstaklingum. Nemendur beita þekkingu sinni til að útbúa tímaseðil fyrir hópa með breitt getustig.
Fjallað verður um markmiðssetningu einstaklinga og hópa, skipulag þjálfunar og áætlanagerð með tilliti til markmiða, uppsetningu og útfærslu æfingaprógramma og stignun í þjálfun. Skoðuð verða grundvallaratriði varðandi upphitun, þolþjálfun, styrkþjálfun, liðleikaþjálfun, stöðugleikaþjálfun og jafnvægisþjálfun. Einnig verða kynntar aðferðir við  samhæfingar/tækni/færniþjálfun, sprengikrafts- og hraðaþjálfun. Auk þess verður fjallað um endurheimt og ofþjálfun. Kynntar verða mismunandi áherslur í þjálfun barna, unglinga, almennings og eldri borgara með áherslu á markmið, ákefð og stignun. Kynntar verða ýmsar mælingar tengdar þjálfun. Auk þessa verður farið í helstu þætti þjálfunar í vatni. Áhrif mismunandi útfærslu æfinga og breytilegra þyngda verða skoðuð út frá lífaflfræðilegu sjónarhorni. Nemendur vinna verkefni í tengslum við þjálfun ólíkra hópa, setja upp tímaseðla og fylgja þeim eftir með kennslu hópa í íþróttasal. Einnig fá þeir verkefni tengt einstaklingsþjálfun í tækjasal.

Kennsla: Fyrirlestrar, vendikennsla, verklegir tímar, æfingakennsla, umræðutímar, verkefni.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Þriðja ár | Haust
BS verkefni A (SJÚ512G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið sem gefur nemendum tækifæri á að vinna saman í hóp við að undirbúa verkefni þar sem þau fá þjálfun í vinnubrögðum við afmarkaðan þátt í rannsóknum og nýsköpun. Verkefnin geta t.d. verið heimildaöflun og úrvinnsla þeirra, aðstoð við söfnun gagna og úrvinnslu þeirra eða greining á klínískum vandamálum. Lagt verður upp úr gagnrýnni nálgun á viðfangsefnið, nýsköpun, gagnreyndum aðferðum, framsetningu á niðurstöðum, færni í samvinnu og verkstjórnun, og sjálfstæðum vinnubrögðum. Nemendur skila í lok námskeiðsins stuttri samantekt þar sem verkefnið er skilgreint og verkáætlun sett fram.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Þriðja ár | Haust
Þverfræðileg samvinna í heilbrigðisvísindum (HVS501M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið (2 ECTS) er ætlað nemendum á þriðja námsári eða síðar sem lokið hafa a.m.k. tveimur árum grunnnáms í greinum heilbrigðisvísinda.  Í námskeiðinu er lögð áhersla á þverfræðilega samvinnu í heilbrigðisþjónustu og mikilvægi hennar fyrir heildræna, sanngjarna og einstaklingsmiðaða þjónustu. Nemendur vinna saman í þverfræðilegum teymum að sameiginlegum verkefnum og fá tækifæri til að þjálfa sig í teymisvinnu, og efla samskipti. 

Sérstök áhersla er lögð á fjölbreytileika samfélagsins og reynslu einstaklinga og hópa sem búa við jaðarsetningu og/eða heilsuójöfnuð. Nemendur kynnast því hvernig félagslegir, menningarlegir og kerfisbundnir þættir geta haft áhrif á heilsu og aðgengi að þjónustu.

Námsmat (staðið/fallið) byggist á  verkefnavinnu, virkni í verkefnavinnu og prófum sem verða á rafrænu formi í kennslulotunni.
 
Kennslutilhögun:
Nemendum er skipt í þverfaglega námshópa í byrjun annar sem síðan skipuleggja fundartíma sínir sjálfir og skila lokaverkefnum fyrir lok október. 

Kennslutungumál: Íslenska
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Haust
Skráning í sjúkraþjálfun (SJÚ505G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður lögð áhersla á að kenna hagnýtar aðferðir við skráningu í sjúkraskrá og hvernig sjúkraskráningu skuli háttað í samræmi við lög og almenna starfshætti. Fylgt er meðferðarferli sjúkraþjálfunar þar sem skráning á hverju stigi meðferðarferlisins er kennd, skoðun, mat, greining, horfur, íhlutun og endurmat. Kennslan byggir á ICF-líkaninu þar sem öll upplýsingasöfnun og uppbygging skráningar byggir á því líkani. Nemendur þjálfast í að taka sjúkra- og félagssögu bæði með samnemendum og úti á vettvangi. Nemendur fá kynningu á hvernig er kóðað í ICF og æfast í að búa til færnimat með aðstoð kjarnasafna ICF. 

Kenndar verða aðferðir til að þróa klíníska rökhugsun til að geta dregið skynsamlegar ályktanir sem varða notendur. Einnig verða kenndar aðferðir við markmiðssetningu í meðferðarferlinu og hvernig skrifum á dagnótum skuli háttað (SOAP). Nemendur fá stutta kynningu á helstu rafrænu sjúkraskrám sem notaðar eru á Íslandi og einnig á ICD-10 og ICD-11 kóðunarkerfinu. Kennsla fer fram í fyrirlestraformi, í vinnusmiðjum og út á vettvangi.   

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Þriðja ár | Haust
Vinnuvistfræði (SJÚ506G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeið verður kennd líkamsbeiting og færslutækni, en unnið verður út frá þekkingu á lífaflfræði, starfrænni líffærafræði og hreyfistjórn. Grunnatriði forvarna og heilsueflingar á vinnustöðum verða einnig kennd og farið yfir þætti sem geta valdi skertri starfsgetu. Helstu innri sem ytri áhættuþættir og áhrif þeirra á heilsufar og almennt öryggi á vinnustað verða kynntir. Fjallað verður um þverfræðilega teymisvinnu og einstaklingsmiðuð úrræði og ráðgjöf í tengslum við starfsendurhæfingu. Nemendur þjálfa leikni í að framkvæma, skrá og túlka niðurstöður grunnmats á starfsumhverfi og –getu, og læra að skilgreina helstu takmarkandi þætti, með hliðsjón af ICF flokkunarkerfinu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Þriðja ár | Haust
Sjúkdóma- og sjúkraþjálfunarfræði stoðkerfis I (SJÚ508G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið er í faraldsfræði helstu sjúkdóma, álagseinkenna og áverka stoðkerfis og áhrif þeirra á líkamsbyggingu, -starfsemi og athafnagetu. Byggt er á grunni úr líffærafræði, hreyfivísindum, og meinafræði. Markmið kennslunnar er að nemandi öðlist þekkingu á læknisfræðilegu mati og mismunagreiningu í tengslum við áverka, meðfædd frávik/fötlun og sjúkdóma. Nemandi öðlast einnig þekkingu á úrræðum og nálgun ólíkra faghópa í teymisvinnu meðferðar vegna heilsubrests/langvinnra verkja (t.d. lækna, sjúkraþjálfara, stoðtækjafræðinga).

Nemendur nota sjálfstæð vinnubrögð við öflun gagnreyndrar þekkingar til vinnu hópverkefna og þjálfa leikni við grunnskoðun sem tengist verkefninu og flutning þess, og hæfni til að ræða efnið.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Þriðja ár | Haust
Heilsusálfræði og geðsjúkraþjálfun (SJÚ509G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er gefin innsýn í grundvallarhugtök sálfræðinnar og farið yfir ýmsa geðræna sjúkdóma, s.s. kvíðaraskanir, þunglyndi, persónuleikaraskanir, geðklofa, átraskanir, og ýmsar sálrænar truflanir á öllum aldri. Veitt verður innsýn í aðalþætti og markmið geðsjúkraþjálfunar og meðal annars fjallað um aðkomu sjúkraþjálfara í örorku- og starfshæfnimati fólks með andlega heilsu. Þá verður fjallað um lífsgæðaskerðingu og sálfræðilegar hliðar á því að takast á við fötlun og veikindi s.s. krabbamein, langvarandi verki og afleiðingar slysa eða íþróttameiðsla. Farið verður yfir áhrif streitu og áfalla á heilsufar, einkenni áfallastreitu og sorgarviðbragða, þar sem áhersla verður á það hvernig sálfræðileg þekking og nálgun getur gagnast sjúkraþjálfurum í að veita meðferð vegna hvers konar heilsubrests. Áhersla er lögð á samspil andlegrar og líkamlegrar líðanar, þróun sálvefrænna vandamála og aðkomu sjúkraþjálfara. Nemendur fá þjálfun í að koma auga á eigin tilfinningar, hugsun og viðbragð við álagi. Farið verður yfir þróun heilsusálfræðinnar, leiðir til áhugahvatningar og jákvæða sálfræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Þriðja ár | Haust
Innri líffæri og húð (SJÚ511G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
9 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verða kenndir helstu sjúkdómar og áverkar í brjóst- og kviðarholi og læknisfræðilegar meðferðir, ásamt hlutverki sjúkraþjálfara. Einnig verða kynntir húðsjúkdómar og sár og hlutverk sjúkraþjálfara í mati og meðferð þeirra. Markmið námskeiðsins er að nemendur nái tökum á að draga ályktanir og setja fram greiningu sjúkraþjálfara ásamt meðferðaráætlun fyrir þennan sjúklingahóp. Lögð verður áhersla á klíníska rökhugsun.

Í verklegum hluta námskeiðsins verður kennd skoðun sjúkraþjálfara og meðferðarmöguleikar á bráða- og endurhæfingarstigi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Vor
Stjórnun og rekstur (SJÚ617G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um stjórnskipulaglag og lagaumhverfi í heilbrigðisþjónustu á Íslandi og stöðu sjúkraþjálfara innan heilbrigðiskerfisins. Farið er yfir hugmyndafræði stjórnunar, verkefnisstjórnun, starfsmannastjórnun, þætti í heilsuhagfræði og gæðastjórnun. Kynntir eru helstu þættir stjórnunarferilsins: markmiðssetning, áætlanagerð, skipulagning, mönnun, samhæfing og mat. Rýnt er í helstu hugtök og kenningar leiðtogafræða ásamt nýjustu stefnum og straumum. Fjallað er um hagnýta þætti sem tengjast rekstri á sjúkraþjálfunarstofum og heilbrigðisstofnunum, almannatengsl og markaðssetningu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Þriðja ár | Vor
BS verkefni B (SJÚ615G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið sem gefur nemendum tækifæri á að vinna í hóp að verkefnum þar sem þau fá þjálfun í vinnubrögðum við afmarkaðan þátt í rannsóknum og nýsköpun. Verkefnin geta t.d. verið heimildaöflun og úrvinnsla þeirra, aðstoð við söfnun gagna og úrvinnslu þeirra eða greining á klínískum vandamálum. Lagt verður upp úr gagnrýnni nálgun á viðfangsefnið, nýsköpun, gagnreyndum aðferðum, framsetningu á niðurstöðum, færni í samvinnu og verkstjórnin, og sjálfstæðum vinnubrögðum. Lok á verkefnavinnunni skal skila sem stuttri skýrslu og kynningu á sameiginlegri málstofu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Þriðja ár | Vor
Aðferðir í sjúkraþjálfun III - Rafmagnsfræði (SJÚ608G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í fyrri hluta námskeiðsins eru grunnatriði í eðlisfræði rafmagns kennd.  Farið er í uppbyggingu efnis, bylgjur og hljóð, rafsvið, segulsvið, krafta, spennu og strauma.  Einnig er fjallað um ljósfræði og varmafræði.  Sérstaklega er farið í eðlisfræðina á bak við þau rafmagnstæki sem notuð eru innan sjúkraþjálfunar og öryggisatriði er varða rafmagnsnotkun.

Í hinum hluta námskeiðsins er farið yfir fræðilegan bakgrunn rafmagnstækja sem notuð eru í sjúkraþjálfun og lífeðlisfræðileg áhrif á vefi líkamans.  Einnig verða kennd lífeðlisfræðileg áhrif hita- og kælimeðferða.  Kenndar  verða ábendingar og frábendingar þeirra rafmagns- og hita/kuldameðferða sem notaðar eru í sjúkraþjálfun.  Farið er sérstaklega í jákvæð og neikvæð viðbrögð líkamans við meðferðunum.  Lögð er áhersla á gagnreynda nálgun.  

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Vor
Sjúkdóma- og sjúkraþjálfunarfræði taugakerfis (SJÚ609G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið verður yfir fræðilegan bakgrunn taugasjúkraþjálfunar sem eru nýjustu kenningar um hreyfistjórn, hugmyndafræði  Alþjóðlegs flokkunarkerfis um færni, fötlun og heilsu, sem og skjólstæðingsmiðaða nálgun (client/patient-centered practice).

Fjallað verður um eðli helstu sjúkdóma og áverka í taugakerfi hjá fullorðnum. Farið verður yfir áhrif þeirra á byggingu og starfsemi líkamans, getu til athafna og þátttöku í samfélaginu. Rætt er um möguleika taugakerfis til aðlögunar eftir taugasjúkdóma og hvaða þættir hafa þar áhrif (t.d. þjálfun). Skoðun, mat og  meðferð verður kennd bæði fræðilega og verklega. Ýmsar aðferðir sjúkraþjálfunar verður kenndar og ræddar í samhengi við klínískar rannsóknir. Kynntar verða leiðir til að stuðla að aukinni þátttöku sjúklinga í samfélaginu út frá forsendum hvers og eins í þeim aðstæðum sem hann býr við. Lögð er áhersla á gagnreynda sjúkraþjálfun (evidenced based practice) þ.e. að tengja saman bestu vísindalegur sannanir við klíníska reynslu og val skjólstæðinga.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Vor
Öldrunarfræði fyrir sjúkraþjálfara (SJÚ611G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er það fyrra af tveimur sem fjalla um öldrunarsjúkraþjálfun. Í þessu námskeiði læra nemendur um lykilhugtök og kenningar sem tengjast öldrunarfræðum og mynda grunninn fyrir öldrunarsjúkraþjálfun. Rýnt er í og rætt um tengsl öldrunarsjúkraþjálfunar við lýðfræði öldrunar, lífeðlisfræðilegar öldrunarbreytingar, líffræðilegar og sálfélagslegar öldrunarkenningar. Nemendur læra um lykilþætti sem tengjast heilsufari (sjúkdómum og röskunum) og lyfjanotkun á efri árum, með áherslu á byltur og byltuvarnir. Fjallað er um faraldfræði færni og fötlunar á efri árum og það hvernig færni/fötlun byggir á samspili á milli heilsufars, umhverfisþátta og einstaklingsbundinna þátta. Kynntur er fjölbreyttur starfsvettvangur sjúkraþjálfara með eldri notendum/sjúklingum, lög, reglugerðir, talsmannahlutverk sjúkraþjálfara og siðfræðileg gildi sem tengjast málefnum eldri einstaklinga. Þjálfuð er leikni og hæfni í samskiptum við eldra fólk með skerta heyrn og nemendur læra skima fyrir vitrænni skerðingu og þunglyndi. Nemendur ígrunda viðhorf til öldrunar, og þjálfa samskipti og samstarf við eldri einstaklinga, í tengslum við viðtöl við fólk úr þeim aldurshópi og fræðslu sem nemendur veita á vettvangi öldrunarþjónustu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Þriðja ár | Vor
Klínískt nám – hópþjálfun (SJÚ613G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í klínísku námi – Hópþjálfun fá nemendur innsýn inn í hlutverk sjúkraþjálfara sem leiðbeinanda/kennara. Grundvallarhugmyndir um kennsluhætti eru kynntar og nemendur skoða leiðir til að ná og halda athygli og hvernig þau „þekkja hópinn sinn“.  Til undirbúnings fyrir verklega hópkennslu á klínískum kennslustöðum, fá nemendur kennslu í skyndihjálp og aðferðum við að bregðast við bráðaástandi. Einnig er kennd björgun úr laug. Nemendur kynnast sýkingavörnum á heilbrigðisstofnunum og þjálfast í framkvæmd þeirra. 

Klíníski hluti námskeiðsins fer fram á heilbrigðisstofnunum, sjúkraþjálfunarstofum og heilsuræktarstöðvum þar sem sjúkraþjálfarar og/eða íþróttakennarar/-fræðingar starfa við hópþjálfun. Klíníski hlutinn er kenndur á þremur vikum í lok annar.  Á tímabilinu er lögð áhersla á eftirfarandi: 

  • Hóptímakennsla: Að nemendur fái innsýn og reynslu í að stýra hópþjálfun og/eða æfingakennslu heilbrigðra jafnt sem valinna sjúklingahópa. Miðað er við að hver nemandi fylgist með fagmanni stjórna hópi og taki síðan við kennslunni.  
  • Áhorf: Að nemandi fylgist með sjúkraþjálfara (fylgiþjálfun / job shadowing) við einstaklingsmeðferð með notendum eða annarri vinnu tengdu starfinu s.s. teymisfundum, fræðslu ofl. 

Gildir fyrir öll klínísk tímabil: Þar sem klínískt nám fer fram á stofnunum og stofum um allt land þurfa nemendur að gera ráð fyrir að hluti námsins fari fram utan höfuðborgarsvæðisins. Höfuðborgarsvæðið er skilgreint sem 60 km radíus frá Stapa, húsi Námsbrautar í sjúkraþjálfun. Hver nemandi má gera ráð fyrir að eitt tímabil, að hópþjálfunarkúrsinum meðtöldum, fari fram utan þess svæðis. Í sumum tilfellum geta nemendur farið í klínískt nám í heimabyggð. Í sumum tilfellum hafa stofnanir á landsbyggðinni getað útvegað nemendum húsnæði endurgjaldslaust. Almenna reglan er að Námsbrautin útvegar nemendum pláss í klínískt nám en nemendur bera kostnað þegar það á við. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár
  • Haust
  • LÆK116G
    Líffærafræði sj. IB
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Stórsæ líffærafræði útlima og bols.

    Í fyrirlestrum og verklegum tímum er farið kerfisbundið yfir sértæka líffærafræði (anatomia systematica), líffærafræði svæða (anatomia topographica), yfirborðsútlit og starfsemi (anatomia functionalis) útlima og bols. Fyrirlestraskrá varðandi námsefni hverrar kennslustundar verður aðgengilegt við upphaf námskeiðs.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • LÆK121G
    Líffærafræði sj. IA - Almenn
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Almenn líffærafræði (general anatomy) er tekur til byggingar þ.e. gerð og útlits mannslíkamans. Í fyrirlestrum er farið kerfisbundið yfir almenna líffærafræði mannslíkamans, bæði stórsæar og smásæar byggingar frá vefjum um líffæri og líffærakerfi til samþáttunar í fullþroska mannslíkama. Í verklegum tímum er farið í smásæa bygginu grunnvefja líkamans. Ennfremur er vísað til fyrirlestraskrár varðandi námsefnið, sem afhent verður í upphafi námskeiðs.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • SJÚ105G
    Inngangur að sjúkraþjálfun
    Skyldunámskeið
    7
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verða sjúkraþjálfunarfræði og sjúkraþjálfun kynnt ásamt stefnu, hugmyndafræðilegum ramma og gildum Námsbrautar í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands. Fjallað verður um þróun og framtíðarsýn sjúkraþjálfunar, hugmyndafræðilegan ramma Alþjóðlegs flokkunarkerfis um færni, fötlun og heilsu (ICF) og lykilhugtök fræðigreinarinnar (hreyfing og færni). 

    Kynntir verða til sögunnar meginþættir námsins í sjúkraþjálfunarfræðum og sjúkraþjálfun; hreyfistjórn, meðferðarferli sjúkraþjálfunar, notanda-/sjúklingsmiðuð nálgun, gagnreynd nálgun og fagmennska. Nemendur heimsækja vinnustaði sjúkraþjálfara og fylgjast með störfum þeirra. Nemendur fá þjálfun í grundvallaratriðum fræðilegra og gagnreyndra vinnubragða með áherslu á vísindaleg skrif, skilgreiningar hugtaka, rannsóknarspurningar, tilgátur, helstu rannsóknaraðferðir í heilbrigðisvísindum, heimildaleit, tilvísanir í heimildir og heimildaskráningu. Lagður verður grunnur að siðfræði og fagmennsku í námi og framtíðarstörfum. Nemendur fá þjálfun í gagnrýnni hugsun og áhersla lögð á að efla siðferðilega dómgreind og sjálfstæði nemenda þannig að þeir temji sér að ígrunda skoðanir sínar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • SJÚ106G
    Vöxtur og þroski
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á þessu námskeiði fá nemendur innsýn í lýðfræði, sjónarmið og kenningar um vöxt og þroska manneskjunnar frá vöggu til grafar. Nemendur kynna sér og ræða fjölbreyttar kenningar og hugmyndir sem lúta að dæmigerðum líkamlegum, vitrænum, félagslegum og tilfinningalegum vexti og þroska; og fá dæmisögur um það hvernig líf-sál-félagsleg nálgun birtist í meðferðarferli sjúkraþjálfunar og notendamiðaðri sjúkraþjálfun. Nemendur læra um mikilvæga áhrifaþætti vaxtar og þroska og þar er sérstaklega fjallað um samspil erfða og umhverfis. Enn fremur, kynnast nemendur ýmsum frávikum frá dæmigerðum vexti og þroska ásamt algengum áskorunum sem tengjast ákveðnum aldursskeiðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • SJÚ107G
    Frumulífeðlisfræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið í byggingu og starfsemi frumna og frumulíffæra, lífsameindir, stjórnun orkubúskapar og efnaskipta, boðskipti á milli frumna, lífeðlisfræðilega starfsemi taugakerfa, hormónakerfa og vöðva. Kynning á vefjaflokkum mannslíkamans.

    Verklegar æfingar: himnuspenna- og viðtakar; og beinagrindavöðvar (taugaleiðni).

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Efnisgjald er í námskeiðinu
  • Vor
  • HVS202G
    Inngangur í þverfræðileg heilbrigðisvísindi - heilbrigðisvísindadagurinn
    Skyldunámskeið
    1
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    1 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er ætlað nemendum á fyrsta námsári í greinum heilbrigðisvísinda.  Sameiginlegur heilbrigðisvísindadagur nýnema allra deilda á Heilbrigðisvísindasviði í janúar ár hvert. Fjallað er um þverfaglegt samstarf og mikilvægi þess. Farið verður í grundvallarþætti samstarfsins svo sem sameiginlega sýn á réttindi til heilsu, samskipti og siðfræði. Einnig er fjallað um hlutverk og ábyrgð heilbrigðisvísinda.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK214G
    Líffærafræði sj. IIA
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Taugalíffærafræði og líffærafræði höfuðs og háls. Líffæra- og fósturfræði höfuðs og háls (15F/N, 10V/N). Farið er yfir fósturfræði, líffærakerfi (anatomia systemica) og svæði (anatomia topographica) höfuðs og háls. Sýnikennsla eftir því sem aðstæður leyfa. Líffæra- og fósturfræði taugakerfis (26F/N, 14V/N). Í líffærafræði er farið yfir fósturþroska og starfræn kerfi taugakerfis. Í verklegum-/sýnikennslutímum er farið yfir ytri og innri gerð heilans.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • LÆK218G
    Líffærafræði sj IIB
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Stórsæ líffærafræði (macroanatomia) innri (iðrar) líffæra. Í fyrirlestrum er farið yfir líffærafræði brjósthols-, kviðarhols- og grindarholslíffæra og fósturfræði þeirra kynnt þar sem við á. Einnig er kynnt yfirborðs líffærafræði búks og spangar þar sem bygging búk- og spangar veggjanna er skoðuð sérstaklega. Fyrirlestrar byggja á kliniskum tilfellum þar sem því verður við komið svo auka megi skilning vægi byggingar í klinisku samhengi.

    Kennsla í LÆK218G (SJÚ) byggist á hefðbundnum fyrirlestrum, netfyrirlestrum, umræðutímum og verkefnum. Kennslufyrirkomulag í námskeiðinu er í stöðugri endurskoðun er taka til framfara í kennslu og því er áskilinn réttur til breytinga.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LÆK219G
    Líffærafræði sj. IA - Fósturfræði
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fósturfræði. Kynnt verða grundvallaratriði í fósturfræði: heiti (íslenskt, latneskt, enskt) atburða í fósturþroska, ferill breytinga í fósturþroska og stjórnun þeirra, orsakir og afleiðingar truflaðrar myndunar. Miðlun þessarar þekkingar til fagaðila, sjúklinga og almennings.
    Kynntar verða með lestri greina helstu rannsóknir í fósturfræði og hvernig nota má þær til ákvarðanatöku (klíník og stefnumörkun) um greiningu og meðferð vandamála og miðlun þeirra ákvarðana til fagaðila, sjúklinga og almennings.
    Í námskeiðinu er farið í fyrirlestrum yfir grundvallaratriði fósturfræði og gerð mannslíkamans skýrð með tilvísun til uppruna hans. Námsefnið kemur fram í fyrirlestraskrá í CANVAS við upphafi námskeiðs.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SJÚ205G
    Aðferðir í sjúkraþjálfun I
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fræðilegur grunnur fyrir mjúkvefjameðferð í lækningaskyni er kynntur fyrir nemendum í fyrirlestraformi.  Farið er í gegnum mismunandi ástand vefja og greiningu auk þess sem farið er í grundvallaratriði við val á mjúkvefjameðferð.  Í verklegum tímum eru æfð helstu hefðbundnu handtök sem beitt er við mjúkvefjameðferð, m.a. þrýstipunktameðferð, hreyfinudd og  losun á bandvefsreifum vöðva (myofascial release).  Einnig er kennd meðferð við sogæðabjúg.  Helstu líffærafræðilegu kennileiti eru fundin og þreifuð.  Nemendur læra um sína eigin líkamsvitund. Frætt er um líkamsbeitingu við vinnu sem sjúkraþjálfari og áhersla lögð á að nemendur beiti sér vel í verklegum tímum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • SJÚ206G
    Lífeðlisfræði
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður m.a. farið yfir eftirfarandi efnisatriði:

    • Miðtaugakerfið.
    • Skynjun, þar með talið sjón, heyrn, jafnvægi og efnaskyn.
    • Stjórn hreyfinga.
    • Hjarta og blóðrás.
    • Öndun.
    • Hitastjórnun.
    • Áreynsla.
    • Hormón.
    • Melting.
    • Nýru, vökva- og jónavægi.
    • Æxlun og þungun.

    Yfirferð verður á formi fyrirlestra og samhliða umræðu. Að auki verða þrjár verklegar æfingar í námskeiðinu:

    • Hjarta og blóðrás.
    • Nýrnastarfsemi.
    • Áreynsla.
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Efnisgjald er í námskeiðinu
  • Haust
  • SJÚ311G
    Heilsuefling I
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu fyrra heilsueflingarnámskeiði verður lögð áhersla á hlutverk sjúkraþjálfara við heilsueflingu hópa og samfélaga. Farið verður yfir grundvallarhugmyndafræði lýðheilsu, vellíðunar og mismunandi stig forvarna með áherslu á gagnreynda nálgun. Nemendur öðlast þekkingu á heilsueflandi samfélagsverkefnum sem eru/hafa verið í gangi og hvernig sjúkraþjálfarar geta komið að og/eða nýtt sér slíkt verkefni í starfi. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna verða skoðuð og hlutverk sjúkraþjálfara í tengslum við sjálfbærni og umhverfið. Farið verður yfir áhrifaþætti heilbrigðis, með tilliti til líkamlegra, sálfræðilegra og félagslegra þátta og horft til heilsulæsis einstaklinga. Grunnþættir í heilsuhagfræði verða kynntir og tengsl þeirra við heilsu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • SJÚ306G
    Hreyfivísindi I: Starfræn líffærafræði og lífaflfræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeið verða kynnt hugtök og lögmál sem nauðsynleg eru til að geta greint hreyfingar mannsins. Námskeiðið skiptist í starfræna líffærafræði stoðkerfisins, lífaflfræði og mat á starfsemi liðamóta og vöðva. Í starfrænni líffærafræði er lögð áhersla á eðlilega og skerta starfsemi einstaka liðamóta og vöðva og unnið með dæmi um samsettar liðhreyfingar tengdar ýmsum athöfnum. Unnið er með lífaflfræðihugtök  og farið yfir lífaflfræðilega eiginleika vefja. Áhersla er lögð á áhrif þyngdarkrafts, annarra ytri krafta og kraftvægja á líkamann. Fjallað er um hreyfingar mannslíkamans og líkamsstöðu með tilliti til samspils ytri og innri krafta. Nemendur þjálfa leikni í mati á hreyfingum helstu liðamóta, vöðvastyrk og líkamsstöðu, ásamt leikni í að skrá og túlka niðurstöður matsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SJÚ307G
    Töl- og aðferðafræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið er í mismunandi rannsóknarsnið og aðferðir, bæði í eigindlegum og megindlegum rannsóknum. Lögð verður áhersla á að kynna kosti og galla hverrar aðferðar fyrir sig þannig að nemandinn skilji gæðamun á rannsóknum þar sem mismunandi aðferðum er beitt m.t.t. gagnreyndrar þekkingar. Farið er í lýsandi tölfræði og grunnatriði í ályktunartölfræði. Kynnt verða einföld og algeng tölfræðipróf, eins og t-próf, einþátta dreifnigreiningu, kí-kvaðrat próf, stikalaus próf og línulega aðhvarfsgreiningu, svo og helstu tölfræðiaðferðir við að meta áreiðanleika. Nemendur fá þjálfun í notkun á aðgengilegu tölfræðiforriti.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • SJÚ308G
    Áreynslulífeðlisfræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið er í áhrif áreynslu og þjálfunar á efnaskipti og lífeðlisfræðilega starfsemi líffærakerfa líkamans, þ.e. vöðva, bein, taugakerfið, hormónakerfið, öndunarfærin, hjarta- og blóðrásarkerfið, ónæmiskerfið, hitastigsstjórnun og vatns- og saltbúskap. Þá verður farið í þreytu og mismunandi orsakir hennar, svo og stjórnun líkamsþyngdar.

    Lagt verður upp úr að þjálfa nemendur í úrvinnslu heimilda með kynningum í verkefnatímum og málstofum.  Við skil á öllum verkefnum (skriflega/munnlega) þarf að gera grein fyrir notkun gervigreindar og í hverju hún var fólginn. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Efnisgjald er í námskeiðinu
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • SJÚ309G
    Félagslegt umhverfi
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði er sjónum beint að áhrifum umhverfisþátta á færni, fötlun og heilsu sem samkvæmt hugmyndafræði ICF eru: afurðir og tækni, náttúrulegt umhverfi og umhverfisbreytingar af manna völdum, stuðningur og tengsl, viðhorf og þjónusta, kerfi og stefnur. Hugtökin algild hönnun og inngilding eru kynnt og unnið umhverfisverkefni tengt aðgengi. Rætt er um félagslegan fjölbreytileika og félagslega áhrifaþætti heilsu; fjallað um fjölmenningu, áhrif áfalla og félagslegt umhverfi transfólks, ásamt mismunandi skilningi á fötlun. Líkan um menningarhæfni er kynnt og tengsl þess við notendamiðaða nálgun og fagmennsku. Fjallað er um heilbrigðiskerfið á Íslandi og viðmið um réttlæti; Heilbrigðisstefnu til ársins 2030, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, forgangsröðun, réttindi sjúklinga, réttindi fatlaðs fólks og almannatryggingar, m.a. með tilliti til félagslegrar stöðu mismunandi hópa samfélagsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • Vor
  • SJÚ412G
    Heilsuefling II
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu seinna heilsueflingarnámskeiði verður áhersla lögð á heilsueflingu á einstaklingsmiðaðan hátt, áhrifaþætti heilsuhegðunar einstaklinga og hvernig sjúkraþjálfarar geta haft áhrif á kyrrsetu og hreyfingarleysi. Farið verður í ráðleggingar hreyfingar sem forvörn og meðferð ýmissa sjúkdóma. Nemendur öðlast leikni í að beita aðferðum áhugahvetjandi samtalstækni með áherslu á notkun Hreyfiseðils sem meðferð sjúkdóma og sjúkdómseinkenna. Kynnt verður hvernig hægt er að nýta smáforrit í heilsueflingu. Nemendur öðlast leikni í að ræða heilsu og sjúkraþjálfun á erlendu tungumáli og þekkingu á sjúkraþjálfunarfaginu og heilbrigðiskerfum í evrópskum löndum. Auk þess verður farið í grunnatriði í næringarfræði og svefns og leiðir til að skima lífsstíl einstaklinga verða ræddar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • SJÚ407G
    Mælingar á færni og fötlun
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið felur í sér kynningu á fræðilegum undirstöðum mælinga í heilbrigðisvísindum með áherslu á staðlað mat sjúkraþjálfara á athöfnum- og þátttöku (mat á færni). Nemendur kynnast mismunandi mælikvörðum og mælitækjum sem hafa verið hönnuð fyrir fjölbreytta notenda-/sjúklingahópa.

    Nemendur læra um grundvallaratriði í mælinga- og próffræði, með það að markmiðið að geta valið, gagnrýnt og notað mælitæki á faglegan og öruggan máta. Nemendur þjálfa leikni í að nýta hugmyndafræðilegan ramma ICF og samtímakenningar um hreyfistjórn þegar þau flokka mælitækin og túlka niðurstöður þeirra. Hugmyndafræði ICF er einnig lögð til grundvallar þegar nemendur kortleggja og rökstyðja þátttöku sjúkraþjálfara í heildrænu mati tengt teymisvinnu. Kynntar verða aðferðir við þýðingu, staðfærslu og staðalbindingu alþjóðlegra mælitækja.

    Nemendur munu fá tækifæri til að þjálfa leikni í að gagnrýna og nota staðlaðar mælingar í heimaverkefnum og verklegum kennslustundum. Nemendur vinna jafnframt verkefni þar sem þau leggja gagnrýnið mat á tiltekið mælitæki og setja niðurstöðurnar fram á fræðilegan og notendavænan máta sem hentar sjúkraþjálfurum í klínísku starfi. Í námskeiðinu er lögð áhersla á hæfni í að beita gagnreyndri nálgun við val á mælitækjum; og að gæta fyllsta öryggis þegar ögra þarf líkamlegri færni notanda-/sjúklings.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • SJÚ408G
    Meinafræði, myndgreining og lyf
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu fá nemendur kynningu á grunnatriðum í meinafræði, lyfjafræði og myndgreiningu.

    1. Fjallað er um frumu- og vefjabreytingar við ýmis konar áreiti, afleiðingar frumuskemmda, bólguviðbrögð, græðslu og viðgerð, ónæmisviðbrögð, ofvöxt og eðli æxlisvaxtar.
    2. Kynnt er fræðigreinin líflyfjafræði og fjallað um hvar finna má upplýsingar um lyf. Tekin verða nokkur dæmi um lyfjaflokka og fjallað um hvernig notkun sjúklinga á þeim geta tengst starfi sjúkraþjálfara.
    3. Kynntar verða myndgreiningaraðferðir sem notaðar eru við rannsóknir á stoðkerfi, taugakerfi, lungum og hjarta- og æðakerfi. Lögð er áhersla á gagnsemi upplýsinga úr myndgreiningu fyrir sjúkraþjálfun.
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • SJÚ409G
    Hreyfivísindi II: Hreyfistjórn og hreyfigreining
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemandi mun fá þekkingu og skilning á hreyfivísindum. Fjallað er um helstu kenningar að baki hreyfistjórnar og hreyfináms og áhrif sem þær hafa haft á skoðun og íhlutun sjúkraþjálfara. Athygli er beint að kerfakenningum og athafnamiðaðri nálgun. Tenging kenningar kvikra kerfa og Alþjóðlega flokkunarkerfisins um færni, fötlun og heilsu (International Classification of Function, Disability and Health- ICF) verða útskýrð. Lífeðlisfræði hreyfistjórnar og hreyfináms verður kennd. Farið er í hvað er hreyfifærni og um breytingar á henni sem verða við þjálfun. Fjallað verður um áhrifaþætti hreyfináms og í tengslum við það verður talað um aðlögunarhæfni (plasticity) heilans þegar verið er að ná tökum á athöfnum. Breytingar á hreyfistjórn tengdar þroska og aldri verða skoðaðar. Farið verður yfir hvernig nota má vísindalega þekkingu hreyfivísinda sem grunn fyrir gagnreynda nálgun í sjúkraþjálfun.

    Áhersla er lögð á athafnamiðaðar hreyfingar mannsins, einkum þær sem fela í sér að koma sér um, hafa stjórn á jafnvægi og stjórn á efri útlimum. Eðlileg framkvæmd hreyfiathafna er skoðuð með áherslu á hreyfingar liðamóta (kinematics) og verkun krafta á líkamann (kinetics) . Einnig verður fjallað um sértækar kröfur í mismunandi verkefnum og umhverfisaðstæðum. Nemendur læra að greina hreyfingar með því að horfa á þær. Þá munu þeir læra um ýmis próf/matstæki sem notuð eru til að meta jafnvægi, göngu, að standa upp og færni með höndum. Þeir  kynna próf/matstæki, æfa sig í að leggja próf fyrir þar sem gætt er að stöðlun mælinga og öryggi sjúklinga auk þess sem þeir skrá og túlka niðurstöður. Dæmi eru tekin um frávik í hreyfistjórn vegna sjúkdóma og slysa.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SJÚ411G
    Aðferðir í sjúkraþjálfun II - Þjálffræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðis er nemendur geti samnýtt þekkingu um helstu kenningar í þjálfræði við þekkingu úr líffærafræði, lífaflfræði, og lífeðlisfræði til að útbúa þjálfunaráætlun, og til að þjálfa notendur og hópa.

    Innihald námskeiðs: 

    Nemendur læra um grundvallaratriði varðandi upphitun, þolþjálfun, styrkþjálfun, liðleikaþjálfun, og stöðugleikaþjálfun. Nemendur nýta þekkingu sína til að velja hagstæðar æfingar og meta framkvæmd æfinganna hjá einstaklingum. Nemendur beita þekkingu sinni til að útbúa tímaseðil fyrir hópa með breitt getustig.
    Fjallað verður um markmiðssetningu einstaklinga og hópa, skipulag þjálfunar og áætlanagerð með tilliti til markmiða, uppsetningu og útfærslu æfingaprógramma og stignun í þjálfun. Skoðuð verða grundvallaratriði varðandi upphitun, þolþjálfun, styrkþjálfun, liðleikaþjálfun, stöðugleikaþjálfun og jafnvægisþjálfun. Einnig verða kynntar aðferðir við  samhæfingar/tækni/færniþjálfun, sprengikrafts- og hraðaþjálfun. Auk þess verður fjallað um endurheimt og ofþjálfun. Kynntar verða mismunandi áherslur í þjálfun barna, unglinga, almennings og eldri borgara með áherslu á markmið, ákefð og stignun. Kynntar verða ýmsar mælingar tengdar þjálfun. Auk þessa verður farið í helstu þætti þjálfunar í vatni. Áhrif mismunandi útfærslu æfinga og breytilegra þyngda verða skoðuð út frá lífaflfræðilegu sjónarhorni. Nemendur vinna verkefni í tengslum við þjálfun ólíkra hópa, setja upp tímaseðla og fylgja þeim eftir með kennslu hópa í íþróttasal. Einnig fá þeir verkefni tengt einstaklingsþjálfun í tækjasal.

    Kennsla: Fyrirlestrar, vendikennsla, verklegir tímar, æfingakennsla, umræðutímar, verkefni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • Haust
  • SJÚ512G
    BS verkefni A
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeið sem gefur nemendum tækifæri á að vinna saman í hóp við að undirbúa verkefni þar sem þau fá þjálfun í vinnubrögðum við afmarkaðan þátt í rannsóknum og nýsköpun. Verkefnin geta t.d. verið heimildaöflun og úrvinnsla þeirra, aðstoð við söfnun gagna og úrvinnslu þeirra eða greining á klínískum vandamálum. Lagt verður upp úr gagnrýnni nálgun á viðfangsefnið, nýsköpun, gagnreyndum aðferðum, framsetningu á niðurstöðum, færni í samvinnu og verkstjórnun, og sjálfstæðum vinnubrögðum. Nemendur skila í lok námskeiðsins stuttri samantekt þar sem verkefnið er skilgreint og verkáætlun sett fram.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • HVS501M
    Þverfræðileg samvinna í heilbrigðisvísindum
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið (2 ECTS) er ætlað nemendum á þriðja námsári eða síðar sem lokið hafa a.m.k. tveimur árum grunnnáms í greinum heilbrigðisvísinda.  Í námskeiðinu er lögð áhersla á þverfræðilega samvinnu í heilbrigðisþjónustu og mikilvægi hennar fyrir heildræna, sanngjarna og einstaklingsmiðaða þjónustu. Nemendur vinna saman í þverfræðilegum teymum að sameiginlegum verkefnum og fá tækifæri til að þjálfa sig í teymisvinnu, og efla samskipti. 

    Sérstök áhersla er lögð á fjölbreytileika samfélagsins og reynslu einstaklinga og hópa sem búa við jaðarsetningu og/eða heilsuójöfnuð. Nemendur kynnast því hvernig félagslegir, menningarlegir og kerfisbundnir þættir geta haft áhrif á heilsu og aðgengi að þjónustu.

    Námsmat (staðið/fallið) byggist á  verkefnavinnu, virkni í verkefnavinnu og prófum sem verða á rafrænu formi í kennslulotunni.
     
    Kennslutilhögun:
    Nemendum er skipt í þverfaglega námshópa í byrjun annar sem síðan skipuleggja fundartíma sínir sjálfir og skila lokaverkefnum fyrir lok október. 

    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • SJÚ505G
    Skráning í sjúkraþjálfun
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður lögð áhersla á að kenna hagnýtar aðferðir við skráningu í sjúkraskrá og hvernig sjúkraskráningu skuli háttað í samræmi við lög og almenna starfshætti. Fylgt er meðferðarferli sjúkraþjálfunar þar sem skráning á hverju stigi meðferðarferlisins er kennd, skoðun, mat, greining, horfur, íhlutun og endurmat. Kennslan byggir á ICF-líkaninu þar sem öll upplýsingasöfnun og uppbygging skráningar byggir á því líkani. Nemendur þjálfast í að taka sjúkra- og félagssögu bæði með samnemendum og úti á vettvangi. Nemendur fá kynningu á hvernig er kóðað í ICF og æfast í að búa til færnimat með aðstoð kjarnasafna ICF. 

    Kenndar verða aðferðir til að þróa klíníska rökhugsun til að geta dregið skynsamlegar ályktanir sem varða notendur. Einnig verða kenndar aðferðir við markmiðssetningu í meðferðarferlinu og hvernig skrifum á dagnótum skuli háttað (SOAP). Nemendur fá stutta kynningu á helstu rafrænu sjúkraskrám sem notaðar eru á Íslandi og einnig á ICD-10 og ICD-11 kóðunarkerfinu. Kennsla fer fram í fyrirlestraformi, í vinnusmiðjum og út á vettvangi.   

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • SJÚ506G
    Vinnuvistfræði
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeið verður kennd líkamsbeiting og færslutækni, en unnið verður út frá þekkingu á lífaflfræði, starfrænni líffærafræði og hreyfistjórn. Grunnatriði forvarna og heilsueflingar á vinnustöðum verða einnig kennd og farið yfir þætti sem geta valdi skertri starfsgetu. Helstu innri sem ytri áhættuþættir og áhrif þeirra á heilsufar og almennt öryggi á vinnustað verða kynntir. Fjallað verður um þverfræðilega teymisvinnu og einstaklingsmiðuð úrræði og ráðgjöf í tengslum við starfsendurhæfingu. Nemendur þjálfa leikni í að framkvæma, skrá og túlka niðurstöður grunnmats á starfsumhverfi og –getu, og læra að skilgreina helstu takmarkandi þætti, með hliðsjón af ICF flokkunarkerfinu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • SJÚ508G
    Sjúkdóma- og sjúkraþjálfunarfræði stoðkerfis I
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið er í faraldsfræði helstu sjúkdóma, álagseinkenna og áverka stoðkerfis og áhrif þeirra á líkamsbyggingu, -starfsemi og athafnagetu. Byggt er á grunni úr líffærafræði, hreyfivísindum, og meinafræði. Markmið kennslunnar er að nemandi öðlist þekkingu á læknisfræðilegu mati og mismunagreiningu í tengslum við áverka, meðfædd frávik/fötlun og sjúkdóma. Nemandi öðlast einnig þekkingu á úrræðum og nálgun ólíkra faghópa í teymisvinnu meðferðar vegna heilsubrests/langvinnra verkja (t.d. lækna, sjúkraþjálfara, stoðtækjafræðinga).

    Nemendur nota sjálfstæð vinnubrögð við öflun gagnreyndrar þekkingar til vinnu hópverkefna og þjálfa leikni við grunnskoðun sem tengist verkefninu og flutning þess, og hæfni til að ræða efnið.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • SJÚ509G
    Heilsusálfræði og geðsjúkraþjálfun
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er gefin innsýn í grundvallarhugtök sálfræðinnar og farið yfir ýmsa geðræna sjúkdóma, s.s. kvíðaraskanir, þunglyndi, persónuleikaraskanir, geðklofa, átraskanir, og ýmsar sálrænar truflanir á öllum aldri. Veitt verður innsýn í aðalþætti og markmið geðsjúkraþjálfunar og meðal annars fjallað um aðkomu sjúkraþjálfara í örorku- og starfshæfnimati fólks með andlega heilsu. Þá verður fjallað um lífsgæðaskerðingu og sálfræðilegar hliðar á því að takast á við fötlun og veikindi s.s. krabbamein, langvarandi verki og afleiðingar slysa eða íþróttameiðsla. Farið verður yfir áhrif streitu og áfalla á heilsufar, einkenni áfallastreitu og sorgarviðbragða, þar sem áhersla verður á það hvernig sálfræðileg þekking og nálgun getur gagnast sjúkraþjálfurum í að veita meðferð vegna hvers konar heilsubrests. Áhersla er lögð á samspil andlegrar og líkamlegrar líðanar, þróun sálvefrænna vandamála og aðkomu sjúkraþjálfara. Nemendur fá þjálfun í að koma auga á eigin tilfinningar, hugsun og viðbragð við álagi. Farið verður yfir þróun heilsusálfræðinnar, leiðir til áhugahvatningar og jákvæða sálfræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • SJÚ511G
    Innri líffæri og húð
    Skyldunámskeið
    9
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    9 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verða kenndir helstu sjúkdómar og áverkar í brjóst- og kviðarholi og læknisfræðilegar meðferðir, ásamt hlutverki sjúkraþjálfara. Einnig verða kynntir húðsjúkdómar og sár og hlutverk sjúkraþjálfara í mati og meðferð þeirra. Markmið námskeiðsins er að nemendur nái tökum á að draga ályktanir og setja fram greiningu sjúkraþjálfara ásamt meðferðaráætlun fyrir þennan sjúklingahóp. Lögð verður áhersla á klíníska rökhugsun.

    Í verklegum hluta námskeiðsins verður kennd skoðun sjúkraþjálfara og meðferðarmöguleikar á bráða- og endurhæfingarstigi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • SJÚ617G
    Stjórnun og rekstur
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um stjórnskipulaglag og lagaumhverfi í heilbrigðisþjónustu á Íslandi og stöðu sjúkraþjálfara innan heilbrigðiskerfisins. Farið er yfir hugmyndafræði stjórnunar, verkefnisstjórnun, starfsmannastjórnun, þætti í heilsuhagfræði og gæðastjórnun. Kynntir eru helstu þættir stjórnunarferilsins: markmiðssetning, áætlanagerð, skipulagning, mönnun, samhæfing og mat. Rýnt er í helstu hugtök og kenningar leiðtogafræða ásamt nýjustu stefnum og straumum. Fjallað er um hagnýta þætti sem tengjast rekstri á sjúkraþjálfunarstofum og heilbrigðisstofnunum, almannatengsl og markaðssetningu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • SJÚ615G
    BS verkefni B
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeið sem gefur nemendum tækifæri á að vinna í hóp að verkefnum þar sem þau fá þjálfun í vinnubrögðum við afmarkaðan þátt í rannsóknum og nýsköpun. Verkefnin geta t.d. verið heimildaöflun og úrvinnsla þeirra, aðstoð við söfnun gagna og úrvinnslu þeirra eða greining á klínískum vandamálum. Lagt verður upp úr gagnrýnni nálgun á viðfangsefnið, nýsköpun, gagnreyndum aðferðum, framsetningu á niðurstöðum, færni í samvinnu og verkstjórnin, og sjálfstæðum vinnubrögðum. Lok á verkefnavinnunni skal skila sem stuttri skýrslu og kynningu á sameiginlegri málstofu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • SJÚ608G
    Aðferðir í sjúkraþjálfun III - Rafmagnsfræði
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í fyrri hluta námskeiðsins eru grunnatriði í eðlisfræði rafmagns kennd.  Farið er í uppbyggingu efnis, bylgjur og hljóð, rafsvið, segulsvið, krafta, spennu og strauma.  Einnig er fjallað um ljósfræði og varmafræði.  Sérstaklega er farið í eðlisfræðina á bak við þau rafmagnstæki sem notuð eru innan sjúkraþjálfunar og öryggisatriði er varða rafmagnsnotkun.

    Í hinum hluta námskeiðsins er farið yfir fræðilegan bakgrunn rafmagnstækja sem notuð eru í sjúkraþjálfun og lífeðlisfræðileg áhrif á vefi líkamans.  Einnig verða kennd lífeðlisfræðileg áhrif hita- og kælimeðferða.  Kenndar  verða ábendingar og frábendingar þeirra rafmagns- og hita/kuldameðferða sem notaðar eru í sjúkraþjálfun.  Farið er sérstaklega í jákvæð og neikvæð viðbrögð líkamans við meðferðunum.  Lögð er áhersla á gagnreynda nálgun.  

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SJÚ609G
    Sjúkdóma- og sjúkraþjálfunarfræði taugakerfis
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið verður yfir fræðilegan bakgrunn taugasjúkraþjálfunar sem eru nýjustu kenningar um hreyfistjórn, hugmyndafræði  Alþjóðlegs flokkunarkerfis um færni, fötlun og heilsu, sem og skjólstæðingsmiðaða nálgun (client/patient-centered practice).

    Fjallað verður um eðli helstu sjúkdóma og áverka í taugakerfi hjá fullorðnum. Farið verður yfir áhrif þeirra á byggingu og starfsemi líkamans, getu til athafna og þátttöku í samfélaginu. Rætt er um möguleika taugakerfis til aðlögunar eftir taugasjúkdóma og hvaða þættir hafa þar áhrif (t.d. þjálfun). Skoðun, mat og  meðferð verður kennd bæði fræðilega og verklega. Ýmsar aðferðir sjúkraþjálfunar verður kenndar og ræddar í samhengi við klínískar rannsóknir. Kynntar verða leiðir til að stuðla að aukinni þátttöku sjúklinga í samfélaginu út frá forsendum hvers og eins í þeim aðstæðum sem hann býr við. Lögð er áhersla á gagnreynda sjúkraþjálfun (evidenced based practice) þ.e. að tengja saman bestu vísindalegur sannanir við klíníska reynslu og val skjólstæðinga.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SJÚ611G
    Öldrunarfræði fyrir sjúkraþjálfara

  • SJÚ613G
    Klínískt nám – hópþjálfun

Annað ár

Þriðja ár

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Starf sjúkraþjálfara er mjög fjölbreytt og miðar að því að bæta hreyfigetu, færni og heilsu fólks á öllum aldri.

Námið opnar til fjölbreyttra starfa, t.d. við fræðslu, þjálfun og forvarnir á sviði heilsuræktar og hreyfinga.

Til þess að geta sótt um starfsleyfi sjúkraþjálfara þarf að ljúka MS-námi í sjúkraþjálfun.

Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við:

  • Endurhæfingastofnanir
  • Einkareknar sjúkraþjálfunarstofur
  • Sjúkrahús
  • Öldrunarstofnanir
  • Líkamsræktarstöðvar
  • Íþróttafélög
  • Vinnuvernd
  • Kennsla og rannsóknir
  • Ráðgjöf á sviði forvarna og heilsueflingar

Listinn er ekki tæmandi.

Félag nema í sjúkraþjálfun er VIRTUS og gætir það hagsmuna nemenda og hefur forgöngu um félagslíf þeirra. Facebook síða VIRTUS.

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Guðrúnu Marín Viðarsdóttur
Ég hef alla tíð verið mikið í íþróttum og mætti segja að áhuginn hafi kviknað þar. Ég hef unnið með mörgum sjúkraþjálfurum í gegnum tíðina, meðal annars á mínum landliðsliðsferli og mér fannst þessi starfsgrein mjög spennandi. Einnig hefur alltaf heillað mig að vinna með fólki og getað hjálpað því að öðlast betri heilsu og lífsgæði. Svo finnst mér líka kostur að þetta starf krefst ekki mikillar kyrrsetu. Námið er mjög skemmtilegt og krefjandi á sama tíma. Kennslan er góð, fjölbreytt og kennararnir eru mjög góðir. Ef þú hefur áhuga á því að vinna náið með fólki í framtíðinni og ef að mannslíkaminn og hreyfing heillar þig þá er þetta nám fyrir þig. Það er frábært hvað er öflugt og gott félagslíf innan deildarinnar. Svo er maður í 35 manna bekk og maður kynnist fólki mjög vel. Ég hef eignast æðislega vini til framtíðar í þessu námi.
Ljósmynd af Bjarna Geir Gunnarssyni
Ég ákvað þegar ég var 13 ára að ég ætlaði mér að verða sjúkraþjálfari. Hreyfing og heilsusamlegur lífstíll er ástríðan mín og ég vil hjálpa fólki að endurheimta, viðhalda og/eða bæta sína heilsu í gegnum hreyfingu og heilsusamlegt líferni. Mér finnst námið mjög skemmtilegt. Það er áhugavert, krefjandi og líflegt. Það sem kom mér mest á óvart var að átta mig á því hve fjölbreytt námið og fagið er í raun og veru. Sjúkraþjálfunarvísindi eru ört vaxandi grein innan læknisfræðinnar og framtíðin er björt! Ef þú hefur áhuga á heilsu og hreyfingu, villt kynnast skemmtilegu fólki og læra eitthvað sem getur hjálpað öðru fólki í framtíðinni. Þá er þetta nám fyrir þig.
Ljósmynd af Sigríði Elmu Svanbjargardóttur
Áhuginn kviknaði þegar fór fyrst til sjúkraþjálfara 13 ára gömul. Nám í sjúkraþjálfunarfræði er fjölbreytt, krefjandi og mjög skemmtilegt. Námið kennir manni ekki bara faglegan grunn og anatomíu heldur svo mikið meira sem þú lærir ekki með því að lesa bækur. Það sem kom mér mest að óvart var hversu fjölbreytt starf sjúkraþjálfara er. Ef áhuginn er til staðar á náminu verður lærdómurinn mun auðveldari.
Ljósmynd af Þóru Kristín Bergsdóttur
Ég valdi nám í sjúkraþjálfun vegna þess að nákominn vinur lenti í slysi og þurfti á endurhæfingu á halda. Þegar ég sá hvað sjúkraþjálfararnir gerðu mikil kraftaverk var ég ákveðin að þetta væri eitthvað sem mig langaði að gera. Námið er skemmtilegt, krefjandi og áhersla á gæði er mikil. Mér finnst skemmtilegast í heiminum að læra um líkamann, hvernig hann virkar og hvað við getum gert til láta okkur líða betur. Það kom mér á óvart hvað farið er djúpt í margt efni en á sama tíma er farið í rosalega margt efni, því sjúkraþjálfarar vita svo margt! Það kom mér líka á óvart hvað námið var fjölbreytt og hvað starfsmöguleikar eftir nám eru margbreytilegir og áhugaverðir. Námið er áhugavert, krefjandi, fjölbreytt, besta félagslífið og síðast en ekki síst er svo skemmtilegt að læra allt um líkamann! Sjúkraþjálfarar eru framtíðin!
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Skrifstofa læknadeildar
Virka daga 9:00 – 15:00
Almenn þjónusta

Við bendum á þjónustumiðju HÍ fyrir allar almennar fyrirspurnir. Einnig er hægt að mæta á Þjónustuborðið á Háskólatorgi eða nota spjallmenni HÍ hér neðst til hægri á síðunni.

Læknagarðar

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil