""
Tungumál kennslu
Að mestu á íslensku, en einhver námskeið kunna að vera kennd á ensku. Flestar kennslubækur eru á ensku.
Lengd náms
Tvö ár - 120 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Viltu öðlast sérfræðiþekkingu um stoðkerfi líkamans?
  • Langar þig í hagnýtt klínískt nám?
  • Viltu auka þekkingu þína á greiningu og meðferð sjúkraþjálfunar?
  • Langar þig að eiga möguleika á doktorsnámi?

MS nám í sjúkraþjálfun er bæði fræðilegt og klínískt framhaldsnám.

Námið er tvíþætt. Annars vegar fræðilegt nám með áherslu á grunn- og hagnýtar rannsóknir. Hins vegar verklegt nám á heilbrigðisstofnunum og stofum með áherslu á klíníska þjálfun.

Uppbygging náms 

Námið er 120 einingar og er skipulagt sem fullt nám til tveggja ára.

Námið skiptist í

  • Námskeið, 48 einingar
  • Klínískt nám, 42 einingar
  • Meistaraverkefni, 30 einingar

Fyrirkomulag kennslu

Námið er að mestu kennt á íslensku, en einhver námskeið kunna að vera kennd á ensku. Flestar kennslubækur eru á ensku.

Að jafnaði eru aðeins teknir inn nemendur sem lokið hafa 180 eininga BS prófi í sjúkraþjálfunarfræðum með fyrstu einkunn.

Meginmarkmið

Að nemendur geti beitt klínískri rökhugsun og ákvarðanatöku, gagnreyndum vinnubrögðum, greiningu og meðferð. Að loknu námi verði nemendur færir um að veita hvers konar sjúkraþjálfun með eða án tilvísunar frá öðrum heilbrigðisstarfsmönnum.

Annað

MS próf í sjúkraþjálfun veitir rétt til að starfa sem löggiltur sjúkraþjálfari

Námið veitir aðgang að doktorsnámi.

Til að innritast í meistaranám í sjúkraþjálfun þarf að hafa lokið BS prófi í sjúkraþjálfunarfræðum með að lágmarki 6,5 í meðaleinkunn. Heimilt er að taka allt að 35 nemendur inn í meistaranámið.

Ljúka þarf 120 einingum fyrir lok námstímans, en af þeim eru 30 einingar vegna rannsóknarvinnu og lokaritgerðar. Ljúka þarf öllum einingum fyrra árs áður en nám er hafið á því seinna.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Sjúkraþjálfunarfræði stoðkerfis IIA (SJÚ102F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur verði færir um að skipuleggja og framkvæma skoðun vegna stoðkerfisvandamála auk þess að skipuleggja meðferðaráætlun, veita meðferðir, og fylgja þeim eftir. Í námskeiðinu er löggð mikil áhersla á þjálfun klínískrar rökhugsunar og samþættingu grunnnáms við klíníska færni.

Í námskeiðunum nota nemendur alla þætti skoðunnar; almenn athugun, greining á líkamsstöðu og starfrænum hreyfingum, þreifing, mat á styrk, liðleika, stöðugleika, úthaldi, sérprófanir, og staðlaðar mælingar. Nemendur þjálfast einnig í gerð skýrslna fyrir klíníska vinnu með stoðkerfisvandamál.

Í námskeiðinu er notuð tilfellamiðuð nálgun þar sem nemendur fá tilfelli frá kennurum, og skipuleggja vinnu tengda tilfellunum. Nemendur ræða svo tilfelli sín á milli undir handleiðslu kennara. Löggð er rík áhersla á sjálfstæð nemendadrifin vinnubrögð.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Sjúkraþjálfunarfræði stoðkerfis IIB (SJÚ103F)

Sjúkraþjálfunarfræði stoðkerfis III (SJÚ104F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennslan er í formi fyrirlestra, umræðu- og verkefnavinnu, auk heimsókna. Fjallað verður um áhrif helstu gigtar- og bandvefssjúkdóma á líkamsstarfsemi, sem og um langvinna verki og áhrif þeirra. Meðferðarferli sjúkraþjálfara liggur til grundvallar klínískrar rökhugsunar við greiningu og meðferð á vandamálum sjúklinga. Viðurkenndar aðferðir við skoðun sjúkraþjálfara eru kenndar, sem og leiðir til mats á athafnagetu, líðan og lífsgæðum, og gerð meðferðaráætlunar. Markmið kennslunnar er að nemandi öðlist þekkingu á úrræðum og aðkomu/samvinnu ólíkra faghópa í meðferð fólks með gigtar- og bandvefssjúkdóma eða langvinna verki af ýmsum orsökum. Einnig að nemandi þjálfi leikni í að framkvæma athafnamiðuð próf og leggja fram markmið og þjálfunaráætlun fyrir skilgreinda sjúklingahópa. Nauðsynlegur grunnur: líffærafræði, lífeðlisfræði, meinafræði, hreyfivísindi, sjúkdómafræði og þjálffræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Klínískt nám I (SJÚ105F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í klínísku námi fá nemendur innsýn í heilbrigðiskerfið á Íslandi og stöðu og hlutverk sjúkraþjálfara innan þess. Klínískt nám I er kennt á sjúkrahúsum eða sjúkrahústengdum stofnunum. Gert er ráð fyrir að á þessu fyrsta klíníska tímabili öðlist nemendur innsýn í störf sjúkraþjálfara, kynnist starfsemi sjúkrahúsa og fái tækifæri til að fylgjast með og taka þátt í fjölbreyttu starfi innan þeirra. Í klínísku námi starfa nemendur undir handleiðslu klínískra kennara. Klínískir kennarar aðstoða nemendur við að æfa klíníska rökhugsun, tileinka sér heildarnálgun út frá Alþjóða flokkunarkerfinu á færni, fötlun og heilsu (ICF) og tengja fræðilega þekkingu við raunverulegar aðstæður. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist reynslu í að skoða, meta og meðhöndla fólk með mismunandi tegundir sjúkdóma og einkenna. Í klínísku námi I er sérstök áhersla lögð á skráningu, teymisvinnu og fagmennsku. Á tímabilinu eru gjarnan haldnar málstofur þar sem nemendur kynna tilfelli fyrir samnemendum, klínískum kennurum og öðrum sjúkraþjálfurum. Klínískt nám I byrjar á undirbúningsfundi með verkefnisstjóra klínísks náms. 
 
Gildir fyrir öll klínísk tímabil: Þar sem klínískt nám fer fram á stofnunum og stofum um allt land er gert ráð fyrir að hluti námsins fari fram utan höfuðborgarsvæðisins. Höfuðborgarsvæðið er skilgreint sem 60 km radíus frá Stapa, húsi Námsbrautar í sjúkraþjálfun. Hver nemandi má gera ráð fyrir að eitt tímabil, að hópþjálfunarkúrsinum meðtöldum, fari fram utan þess svæðis. Í sumum tilfellum geta nemendur farið í klínískt nám í heimabyggð og stundum hafa stofnanir á landsbyggðinni getað útvegað nemendum húsnæði endurgjaldslaust. Almenna reglan er að Námsbrautin útvegar nemendum pláss í klínískt nám en nemendur bera kostnað þegar það á við. 

Stefnt skal að því að hver nemandi fái reynslu af sjúkraþjálfun á bráðasjúkrahúsi, í þverfræðilegri endurhæfingu á stofnun, í sjúkraþjálfun á stofu með áherslu á stoðkerfi og sjúkraþjálfun í öldrunarumhverfi. Hæfniviðmið fyrir hvert klínískt tímabil miðast við starf sjúkraþjálfara á viðkomandi kennslustað. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Aðferðir í sjúkraþjálfun IV: Stoð- og hjálpartæki (SJÚ106F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið verður yfir algengustu hjálpartæki ólíkra vegna ólíkra fatlana og notkun þeirra. Nemendur fá einnig kennslu við val á spelkum eða öðrum stoðtækjum fyrir sjúklinga. Verklag við einstaklingsmiðað mat á þörfum, val, og pöntun á hjálpar- og stoðtækjum á Íslandi er kennt, sem og við þjálfun á notkun tækja og endurmat. Alþjóðlegt líkan og flokkunarkerfi um færni, fötlun og heilsu (ICF) er haft að leiðarljósi þegar meta skal þörf fyrir hjálpar- og stoðtæki hvers og eins. Nemendur lesa sér til og taka þátt í lausnarleitarvinnu í verklegum tímum þar sem þeir vinna með fólki sem þarf á hjálpartækjum að halda. Um er að ræða fólk með sjúkdóma eða skaða í taugakerfi, fólk með aðra langvinna sjúkdóma, með fjölfötlun, aldraða eða börn með hreyfihamlanir.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Aðferðafræði rannsókna (SJÚ201F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið verður í siðfræði rannsókna og þar með talið Helsinki sáttmálann. Farið verður í gerð rannsóknaráætlunar og gerð umsókna til viðeigandi aðila eins og Vísindasiðanefndar o.fl. Farið verður í almenn vinnubrögð í rannsóknum eins og heimildaleit, skráningar á gögnum, færslu dagbóka (log-bækur) svo og umgengni við rannsóknartæki og á rannsóknarstofum (öryggiskröfur o.þ.h.). Í námskeiðinu munu nemendur vinna rannsóknaráætlun fyrir lokaverkefni sín og leggja hana fram í lok námskeiðsins og kynna á málstofu. Nemendur fá þjálfun í að auka færni sína í að skilja og túlka niðurstöður tölfræðigreininga í fræðiritum bæði rannsóknagreinum og yfirlits greinum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Öldrunarsjúkraþjálfun (SJÚ202F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er það seinna af tveimur sem fjalla um öldrunarsjúkraþjálfun. Í þessu námskeiði er lögð áhersla á fatlanir, sjúkdóma og aðstæðubundnar hindranir sem eru algengar á efri árum og kalla á sjúkraþjálfun. Raunveruleg dæmi eru lögð til grundvallar í lausnaleitarnámi þar sem nemendur vinna með staðlað og klínískt mat í öldrunarsjúkraþjálfun, heildrænt öldrunarmat, klíníska rökhugsun og gagnreyndar leiðir til íhlutunar (meðferðar). Kennsla fer m.a. fram í hermisetri með áherslu á skoðun og mat á eldri notendum/sjúklingum í byltuhættu. Unnið er með viðeigandi efni fyrir öldrunarsjúkraþjálfun á meistarastigi, þvert á sérsvið innan sjúkraþjálfunar og mismunandi vinnustaði sjúkraþjálfara. Í námskeiðslok er nemandinn hæfur til að beita klínískri rökhugsun, gagnreyndri og notandamiðaðri nálgun við að skipuleggja viðeigandi meðferðarferli fyrir aldraðan sjúkling/notanda. Meðferðarferlið byggir á markmiðum einstaklingsins, miðar að sem bestri færni og vellíðan, og tillit er tekið til aðstæðna (þar á meðal formlegra/óformlegra umönnunaraðila) og heilsufars.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Klínískt nám II (SJÚ203F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
12 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í klínísku námi fá nemendur innsýn í heilbrigðiskerfið á Íslandi og stöðu og hlutverk sjúkraþjálfara innan þess. Klínískt nám II-IV eru kennd á heilbrigðisstofnunum og sjúkraþjálfunarstofum um allt land. Í klínísku námi starfa nemendur undir handleiðslu klínískra kennara. Klínískir kennarar aðstoða nemendur við að æfa klíníska rökhugsun, tileinka sér heildarnálgun út frá Alþjóða flokkunarkerfinu á færni, fötlun og heilsu (ICF) og tengja fræðilega þekkingu við raunverulegar aðstæður. Leitast skal eftir því að nemendur kynnist sjúkraþjálfun á sem fjölbreyttastan hátt og fái til meðhöndlunar fólk á mismunandi aldri með mismunandi sjúkdóma, einkenni og fatlanir. Á tímabilinu er gjarnan haldin málstofa þar sem nemendur kynna tilfelli fyrir samnemendum, klínískum kennurum og öðrum sjúkraþjálfurum. Klínískt nám II-IV hefst á undirbúningsfundi með verkefnisstjóra klínísks náms. 

Gildir fyrir öll klínísk tímabil: Þar sem klínískt nám fer fram á stofnunum og stofum um allt land þurfa nemendur að gera ráð fyrir að hluti námsins fari fram utan höfuðborgarsvæðisins. Höfuðborgarsvæðið er skilgreint sem 60 km radíus frá Stapa, húsi Námsbrautar í sjúkraþjálfun. Hver nemandi má gera ráð fyrir að eitt tímabil, að hópþjálfunarkúrsinum meðtöldum, fari fram utan þess svæðis. Í sumum tilfellum geta nemendur farið í klínískt nám í heimabyggð og stundum hafa stofnanir á landsbyggðinni getað útvegað nemendum húsnæði endurgjaldslaust. Almenna reglan er að Námsbrautin útvegar nemendum pláss í klínískt nám en nemendur bera kostnað þegar það á við. 

Stefnt skal að því að hver nemandi fái reynslu af sjúkraþjálfun á bráðasjúkrahúsi, í þverfræðilegri endurhæfingu á stofnun, í sjúkraþjálfun á stofu með áherslu á stoðkerfi og sjúkraþjálfun í öldrunarumhverfi. Hæfniviðmið fyrir hvert klínískt tímabil miðast við starf sjúkraþjálfara á viðkomandi kennslustað. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Barnasjúkraþjálfun (SJÚ204F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið verður yfir fræðilegan ramma barnasjúkraþjálfunar sem eru kerfakenningar um þroska, Alþjóðlegt flokkunarkerfi um færni, fötlun og heilsu, fjölskyldumiðuð nálgun (family-centered practice) og þjónusta sem felst í snemmtækri íhlutun (early intervention - EI).

Fjallað verður um eðli og horfur helstu sjúkdóma, raskana og áverka í flestum líkamskerfum hjá börnum. Farið verður í hvernig þessir sjúkdómar og raskanir hafa áhrif á byggingu líkamans (m.a. hreyfistjórn), athafnir og þátttöku í samfélaginu.

Í námskeiðinu verður fjallað um börn með ýmsar truflanir í miðtaugakerfi s.s. cerebral palsy og almennar þroskaraskanir svo og börn með langvinna sjúkdóma s.s. barnagigt, hjartasjúkdóma, og krabbamein. Nemendur rifja upp meðferðarferlið og læra notkun þess í barnasjúkraþjálfun. Farið verður í sögu og skoðun (examination), mat, (evaluation) að setja fram greiningu (diagnosis), meta horfur (prognosis) um ýmis meðferðarform sjúkraþjálfunar. Ýmis stöðluð mælitæki/próf verða kynnt. Rætt verður um mismunagreiningu og tivísun til annara fagstétta. Lögð er áhersla á gagnreynda sjúkraþjálfun (evidenced based practice) þ.e. að tengja saman bestu vísindalegur sannanir við klíníska reynslu og val skjólstæðinga. Farið verður yfir mikilvægi þess að gæta að líðan og öryggi barna við skoðun og meðferð sjúkraþjálfara. Í verklegum tímum eru ákveðin handtök til að örva hreyfingar hjá ungabörnum æfð og einnig hvernig á að koma fram við barn og fjölskyldu sem koma til sjúkraþjálfara.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Fyrsta ár | Vor
Hreyfistjórn (SJÚ205F)
Valnámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Hreyfistjórn er eitt þriggja valnámskeiða sem er í boði á vormisseri fyrra árs MS náms í sjúkraþjálfun. Markmið með námskeiðinu er að dýpka þekkingu nemenda á fræðilegum grunni hreyfistjórnar. Áhersla verður á nýjustu kenningar um hreyfistjórn og hreyfinám og áhrif þeirra á nálgun í greiningu og meðferð. Fjallað verður um eiginleika hreyfistjórnar, breytingar vegna aldurs, þroska og þjálfunar og mælingar. Námið byggir að miklu leyti á verkefnavinnu, auk fyrirlestra og heimsókna. Nemendur munu þannig öðlast dýpri þekkingu á efninu, auk leikni og hæfni í tengslum við mat og þjálfun sem byggja á fræðilegum grunni hreyfistjórnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Hreyfigreining - lífaflfræði (SJÚ206F)
Valnámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Hreyfigreining er eitt þriggja valnámskeiða sem er í boði á vormisseri fyrra árs MS náms í sjúkraþjálfun. Í námskeiðinu verða grunnhugtök lífaflfræðinnar rifjuð upp. Aðferðafræði sem tengist mati á hreyfingu (kinematics) og lífaflfræði (kinetics) í þrívídd sem og vöðvarafritum (electromyography (EMG)) verður kynnt. Kennsla er aðallega í formi verklegrar kennslu/þjálfunar auk vettvangsheimsókna. Námið byggir á verkefnum þar sem aðferðir og tæki eru nýtt til að auka þekkingu, leikni og hæfni nemenda í að meta hreyfingu mannsins og túlka niðurstöður mælinga.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Íþróttasjúkraþjálfun (SJÚ207F)
Valnámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Íþróttasjúkraþjálfun er eitt þriggja valnámskeiða sem er í boði á vormisseri fyrra árs MS náms í sjúkraþjálfun. Fjallað verður um algeng íþróttameiðsli, bæði bráð meiðsli og álagseinkenni, áhættuþætti þeirra, forvarnir, og helstu áherslur í endurhæfingarferlinu. Námið byggir að mestu leyti á lausnaleitarnámi, umræðutímum, verkefnavinnu og þjálfun klínískra aðferða, auk vendikennslu. Námskeiðið veitir nemendum dýpri þekkingu á sviðinu, auk þjálfunar í klínískri rökhugsun og leikni í algengum aðferðum sem tengjast íþróttasjúkraþjálfun.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Lesnámskeið í Sjúkraþjálfun MS (SJÚ210F)
Valnámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lesnámskeiðið er eitt fjögurra valnámskeiða sem er í boði á vormisseri fyrra árs MS náms í sjúkraþjálfun. Markmið þessa námsskeiðs er að gefa nemandanum tækifæri til að rýna í og dýpka þekkingu sína á vel skilgreindu og afmörkuðu efni. Nemandinn þróar með sér hæfni til að leita eftir nýjum heimildum, greina þær og gagnrýna, taka saman og nýta upplýsingarnar til að búa sér til nýja þekkingu. ATHUGIÐ, þetta má ekki vera hluti af meistaraverkefni í Sjúkraþjálfun MS eða tengjast því sérstaklega.
Þetta námskeið má jafnframt nýta af þeim nemendum sem taka þátt í Nordplus námskeiði og vilja skrifa um það fræðslugrein. 

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Annað ár | Haust
Flókin tilfelli og mismunagreining (SJÚ301F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennslan er í formi (net-) fyrirlestra og rafrænu námsefni, umræðu- og verkefnavinnu, málstofum, hermikennslu, auk heimsókna. Námskeiðinu er ætlað að þjálfa nemendur í vísindalegri rökhugsun og skilvirkum samskiptum með áherslu á fjölbreytileika flókin tilfelli úr klínísku starfi. Lögð er áhersla á klíníska rökhugsun samkvæmt kerfakenningunni, klíníska ákvarðanatöku og gagnreynda nálgun. Námskeiðið mun auka hæfni nemenda í heildarnálgun í klínísku starfi með áherslu á flókin og/eða fjölþætt viðfangsefni. Námskeiðinu er jafnframt ætlað að gera nemendur hæfari til að mismunagreina og undirbúa þá til að taka sjálfstæðar ákvarðanir byggðar á gagnreyndri þekkingu. Nemendur fá kynningu á tilfellum og ræða í hópum um skimun á sjúklingum/skjólstæðingum og tilvísunarskyldu á aðra sérfræðinga ef vandamálin eru utan við þekkingarsvið sjúkraþjálfunar. Nemendur munu fá tækifæri til að vinna að flóknum raunverulegum tilfellum í samstarfi við klíníska sérfræðinga í sjúkraþjálfun.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Haust
Klínískt nám III (SJÚ302F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
11 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í klínísku námi fá nemendur innsýn í heilbrigðiskerfið á Íslandi og stöðu og hlutverk sjúkraþjálfara innan þess. Klínískt nám II-IV eru kennd á heilbrigðisstofnunum og sjúkraþjálfunarstofum um allt land. Í klínísku námi starfa nemendur undir handleiðslu klínískra kennara. Klínískir kennarar aðstoða nemendur við að æfa klíníska rökhugsun, tileinka sér heildarnálgun út frá Alþjóða flokkunarkerfinu á færni, fötlun og heilsu (ICF) og tengja fræðilega þekkingu við raunverulegar aðstæður. Leitast skal eftir því að nemendur kynnist sjúkraþjálfun á sem fjölbreyttastan hátt og fái til meðhöndlunar fólk á mismunandi aldri með mismunandi sjúkdóma, einkenni og fatlanir. Á tímabilinu er gjarnan haldin málstofa þar sem nemendur kynna tilfelli fyrir samnemendum, klínískum kennurum og öðrum sjúkraþjálfurum. Klínískt nám II-IV hefst á undirbúningsfundi með verkefnisstjóra klínísks náms. 

Gildir fyrir öll klínísk tímabil: Þar sem klínískt nám fer fram á stofnunum og stofum um allt land þurfa nemendur að gera ráð fyrir að hluti námsins fari fram utan höfuðborgarsvæðisins. Höfuðborgarsvæðið er skilgreint sem 60 km radíus frá Stapa, húsi Námsbrautar í sjúkraþjálfun. Hver nemandi má gera ráð fyrir að eitt tímabil, að hópþjálfunarkúrsinum meðtöldum, fari fram utan þess svæðis. Í sumum tilfellum geta nemendur farið í klínískt nám í heimabyggð og stundum hafa stofnanir á landsbyggðinni getað útvegað nemendum húsnæði endurgjaldslaust. Almenna reglan er að Námsbrautin útvegar nemendum pláss í klínískt nám en nemendur bera kostnað þegar það á við. 

Stefnt skal að því að hver nemandi fái reynslu af sjúkraþjálfun á bráðasjúkrahúsi, í þverfræðilegri endurhæfingu á stofnun, í sjúkraþjálfun á stofu með áherslu á stoðkerfi og sjúkraþjálfun í öldrunarumhverfi. Hæfniviðmið fyrir hvert klínískt tímabil miðast við starf sjúkraþjálfara á viðkomandi kennslustað. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Lokaverkefni (SJÚ401L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
19 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lokaverkefni til MS prófs í sjúkraþjálfun er einstaklingsverkefni sem nemandi vinnur sjálfstætt undir leiðsögn leiðbeinanda. Nemendur leita til námsbrautarformanns eftir ráðgjöf um leiðbeinanda fyrir lokaverkefnið. Lokaverkefnið er unnið í tveimur áföngum. Nemendur vinna lokaverkefnið samkvæmt rannsóknaáætlun sem unnin er í kúrsinum Aðferðafræði rannsókna. Rannsóknarverkefnið endar með; 1) handrit að vísindagrein tilbúið til birtingar í valið tímarit, ásamt fræðilegum kafla og 2) kynning á málstofu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Annað ár | Vor

Klínískt nám IV (SJÚ402F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
11 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í klínísku námi fá nemendur innsýn í heilbrigðiskerfið á Íslandi og stöðu og hlutverk sjúkraþjálfara innan þess. Klínískt nám II-IV eru kennd á heilbrigðisstofnunum og sjúkraþjálfunarstofum um allt land. Í klínísku námi starfa nemendur undir handleiðslu klínískra kennara. Klínískir kennarar aðstoða nemendur við að æfa klíníska rökhugsun, tileinka sér heildarnálgun út frá Alþjóða flokkunarkerfinu á færni, fötlun og heilsu (ICF) og tengja fræðilega þekkingu við raunverulegar aðstæður. Leitast skal eftir því að nemendur kynnist sjúkraþjálfun á sem fjölbreyttastan hátt og fái til meðhöndlunar fólk á mismunandi aldri með mismunandi sjúkdóma, einkenni og fatlanir. Á tímabilinu er gjarnan haldin málstofa þar sem nemendur kynna tilfelli fyrir samnemendum, klínískum kennurum og öðrum sjúkraþjálfurum. Klínískt nám II-IV hefst á fundi með verkefnisstjóra klínísks náms.

Fyrsta ár
  • Haust
  • SJÚ102F
    Sjúkraþjálfunarfræði stoðkerfis IIA
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur verði færir um að skipuleggja og framkvæma skoðun vegna stoðkerfisvandamála auk þess að skipuleggja meðferðaráætlun, veita meðferðir, og fylgja þeim eftir. Í námskeiðinu er löggð mikil áhersla á þjálfun klínískrar rökhugsunar og samþættingu grunnnáms við klíníska færni.

    Í námskeiðunum nota nemendur alla þætti skoðunnar; almenn athugun, greining á líkamsstöðu og starfrænum hreyfingum, þreifing, mat á styrk, liðleika, stöðugleika, úthaldi, sérprófanir, og staðlaðar mælingar. Nemendur þjálfast einnig í gerð skýrslna fyrir klíníska vinnu með stoðkerfisvandamál.

    Í námskeiðinu er notuð tilfellamiðuð nálgun þar sem nemendur fá tilfelli frá kennurum, og skipuleggja vinnu tengda tilfellunum. Nemendur ræða svo tilfelli sín á milli undir handleiðslu kennara. Löggð er rík áhersla á sjálfstæð nemendadrifin vinnubrögð.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SJÚ103F
    Sjúkraþjálfunarfræði stoðkerfis IIB

  • SJÚ104F
    Sjúkraþjálfunarfræði stoðkerfis III
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennslan er í formi fyrirlestra, umræðu- og verkefnavinnu, auk heimsókna. Fjallað verður um áhrif helstu gigtar- og bandvefssjúkdóma á líkamsstarfsemi, sem og um langvinna verki og áhrif þeirra. Meðferðarferli sjúkraþjálfara liggur til grundvallar klínískrar rökhugsunar við greiningu og meðferð á vandamálum sjúklinga. Viðurkenndar aðferðir við skoðun sjúkraþjálfara eru kenndar, sem og leiðir til mats á athafnagetu, líðan og lífsgæðum, og gerð meðferðaráætlunar. Markmið kennslunnar er að nemandi öðlist þekkingu á úrræðum og aðkomu/samvinnu ólíkra faghópa í meðferð fólks með gigtar- og bandvefssjúkdóma eða langvinna verki af ýmsum orsökum. Einnig að nemandi þjálfi leikni í að framkvæma athafnamiðuð próf og leggja fram markmið og þjálfunaráætlun fyrir skilgreinda sjúklingahópa. Nauðsynlegur grunnur: líffærafræði, lífeðlisfræði, meinafræði, hreyfivísindi, sjúkdómafræði og þjálffræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • SJÚ105F
    Klínískt nám I
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í klínísku námi fá nemendur innsýn í heilbrigðiskerfið á Íslandi og stöðu og hlutverk sjúkraþjálfara innan þess. Klínískt nám I er kennt á sjúkrahúsum eða sjúkrahústengdum stofnunum. Gert er ráð fyrir að á þessu fyrsta klíníska tímabili öðlist nemendur innsýn í störf sjúkraþjálfara, kynnist starfsemi sjúkrahúsa og fái tækifæri til að fylgjast með og taka þátt í fjölbreyttu starfi innan þeirra. Í klínísku námi starfa nemendur undir handleiðslu klínískra kennara. Klínískir kennarar aðstoða nemendur við að æfa klíníska rökhugsun, tileinka sér heildarnálgun út frá Alþjóða flokkunarkerfinu á færni, fötlun og heilsu (ICF) og tengja fræðilega þekkingu við raunverulegar aðstæður. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist reynslu í að skoða, meta og meðhöndla fólk með mismunandi tegundir sjúkdóma og einkenna. Í klínísku námi I er sérstök áhersla lögð á skráningu, teymisvinnu og fagmennsku. Á tímabilinu eru gjarnan haldnar málstofur þar sem nemendur kynna tilfelli fyrir samnemendum, klínískum kennurum og öðrum sjúkraþjálfurum. Klínískt nám I byrjar á undirbúningsfundi með verkefnisstjóra klínísks náms. 
     
    Gildir fyrir öll klínísk tímabil: Þar sem klínískt nám fer fram á stofnunum og stofum um allt land er gert ráð fyrir að hluti námsins fari fram utan höfuðborgarsvæðisins. Höfuðborgarsvæðið er skilgreint sem 60 km radíus frá Stapa, húsi Námsbrautar í sjúkraþjálfun. Hver nemandi má gera ráð fyrir að eitt tímabil, að hópþjálfunarkúrsinum meðtöldum, fari fram utan þess svæðis. Í sumum tilfellum geta nemendur farið í klínískt nám í heimabyggð og stundum hafa stofnanir á landsbyggðinni getað útvegað nemendum húsnæði endurgjaldslaust. Almenna reglan er að Námsbrautin útvegar nemendum pláss í klínískt nám en nemendur bera kostnað þegar það á við. 

    Stefnt skal að því að hver nemandi fái reynslu af sjúkraþjálfun á bráðasjúkrahúsi, í þverfræðilegri endurhæfingu á stofnun, í sjúkraþjálfun á stofu með áherslu á stoðkerfi og sjúkraþjálfun í öldrunarumhverfi. Hæfniviðmið fyrir hvert klínískt tímabil miðast við starf sjúkraþjálfara á viðkomandi kennslustað. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • SJÚ106F
    Aðferðir í sjúkraþjálfun IV: Stoð- og hjálpartæki
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið verður yfir algengustu hjálpartæki ólíkra vegna ólíkra fatlana og notkun þeirra. Nemendur fá einnig kennslu við val á spelkum eða öðrum stoðtækjum fyrir sjúklinga. Verklag við einstaklingsmiðað mat á þörfum, val, og pöntun á hjálpar- og stoðtækjum á Íslandi er kennt, sem og við þjálfun á notkun tækja og endurmat. Alþjóðlegt líkan og flokkunarkerfi um færni, fötlun og heilsu (ICF) er haft að leiðarljósi þegar meta skal þörf fyrir hjálpar- og stoðtæki hvers og eins. Nemendur lesa sér til og taka þátt í lausnarleitarvinnu í verklegum tímum þar sem þeir vinna með fólki sem þarf á hjálpartækjum að halda. Um er að ræða fólk með sjúkdóma eða skaða í taugakerfi, fólk með aðra langvinna sjúkdóma, með fjölfötlun, aldraða eða börn með hreyfihamlanir.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • Vor
  • SJÚ201F
    Aðferðafræði rannsókna
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið verður í siðfræði rannsókna og þar með talið Helsinki sáttmálann. Farið verður í gerð rannsóknaráætlunar og gerð umsókna til viðeigandi aðila eins og Vísindasiðanefndar o.fl. Farið verður í almenn vinnubrögð í rannsóknum eins og heimildaleit, skráningar á gögnum, færslu dagbóka (log-bækur) svo og umgengni við rannsóknartæki og á rannsóknarstofum (öryggiskröfur o.þ.h.). Í námskeiðinu munu nemendur vinna rannsóknaráætlun fyrir lokaverkefni sín og leggja hana fram í lok námskeiðsins og kynna á málstofu. Nemendur fá þjálfun í að auka færni sína í að skilja og túlka niðurstöður tölfræðigreininga í fræðiritum bæði rannsóknagreinum og yfirlits greinum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SJÚ202F
    Öldrunarsjúkraþjálfun
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er það seinna af tveimur sem fjalla um öldrunarsjúkraþjálfun. Í þessu námskeiði er lögð áhersla á fatlanir, sjúkdóma og aðstæðubundnar hindranir sem eru algengar á efri árum og kalla á sjúkraþjálfun. Raunveruleg dæmi eru lögð til grundvallar í lausnaleitarnámi þar sem nemendur vinna með staðlað og klínískt mat í öldrunarsjúkraþjálfun, heildrænt öldrunarmat, klíníska rökhugsun og gagnreyndar leiðir til íhlutunar (meðferðar). Kennsla fer m.a. fram í hermisetri með áherslu á skoðun og mat á eldri notendum/sjúklingum í byltuhættu. Unnið er með viðeigandi efni fyrir öldrunarsjúkraþjálfun á meistarastigi, þvert á sérsvið innan sjúkraþjálfunar og mismunandi vinnustaði sjúkraþjálfara. Í námskeiðslok er nemandinn hæfur til að beita klínískri rökhugsun, gagnreyndri og notandamiðaðri nálgun við að skipuleggja viðeigandi meðferðarferli fyrir aldraðan sjúkling/notanda. Meðferðarferlið byggir á markmiðum einstaklingsins, miðar að sem bestri færni og vellíðan, og tillit er tekið til aðstæðna (þar á meðal formlegra/óformlegra umönnunaraðila) og heilsufars.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • SJÚ203F
    Klínískt nám II
    Skyldunámskeið
    12

  • SJÚ204F
    Barnasjúkraþjálfun
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið verður yfir fræðilegan ramma barnasjúkraþjálfunar sem eru kerfakenningar um þroska, Alþjóðlegt flokkunarkerfi um færni, fötlun og heilsu, fjölskyldumiðuð nálgun (family-centered practice) og þjónusta sem felst í snemmtækri íhlutun (early intervention - EI).

    Fjallað verður um eðli og horfur helstu sjúkdóma, raskana og áverka í flestum líkamskerfum hjá börnum. Farið verður í hvernig þessir sjúkdómar og raskanir hafa áhrif á byggingu líkamans (m.a. hreyfistjórn), athafnir og þátttöku í samfélaginu.

    Í námskeiðinu verður fjallað um börn með ýmsar truflanir í miðtaugakerfi s.s. cerebral palsy og almennar þroskaraskanir svo og börn með langvinna sjúkdóma s.s. barnagigt, hjartasjúkdóma, og krabbamein. Nemendur rifja upp meðferðarferlið og læra notkun þess í barnasjúkraþjálfun. Farið verður í sögu og skoðun (examination), mat, (evaluation) að setja fram greiningu (diagnosis), meta horfur (prognosis) um ýmis meðferðarform sjúkraþjálfunar. Ýmis stöðluð mælitæki/próf verða kynnt. Rætt verður um mismunagreiningu og tivísun til annara fagstétta. Lögð er áhersla á gagnreynda sjúkraþjálfun (evidenced based practice) þ.e. að tengja saman bestu vísindalegur sannanir við klíníska reynslu og val skjólstæðinga. Farið verður yfir mikilvægi þess að gæta að líðan og öryggi barna við skoðun og meðferð sjúkraþjálfara. Í verklegum tímum eru ákveðin handtök til að örva hreyfingar hjá ungabörnum æfð og einnig hvernig á að koma fram við barn og fjölskyldu sem koma til sjúkraþjálfara.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • Ekki kennt á misserinu
    SJÚ205F
    Hreyfistjórn
    Valnámskeið
    4
    Valnámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Hreyfistjórn er eitt þriggja valnámskeiða sem er í boði á vormisseri fyrra árs MS náms í sjúkraþjálfun. Markmið með námskeiðinu er að dýpka þekkingu nemenda á fræðilegum grunni hreyfistjórnar. Áhersla verður á nýjustu kenningar um hreyfistjórn og hreyfinám og áhrif þeirra á nálgun í greiningu og meðferð. Fjallað verður um eiginleika hreyfistjórnar, breytingar vegna aldurs, þroska og þjálfunar og mælingar. Námið byggir að miklu leyti á verkefnavinnu, auk fyrirlestra og heimsókna. Nemendur munu þannig öðlast dýpri þekkingu á efninu, auk leikni og hæfni í tengslum við mat og þjálfun sem byggja á fræðilegum grunni hreyfistjórnar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • SJÚ206F
    Hreyfigreining - lífaflfræði
    Valnámskeið
    4
    Valnámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Hreyfigreining er eitt þriggja valnámskeiða sem er í boði á vormisseri fyrra árs MS náms í sjúkraþjálfun. Í námskeiðinu verða grunnhugtök lífaflfræðinnar rifjuð upp. Aðferðafræði sem tengist mati á hreyfingu (kinematics) og lífaflfræði (kinetics) í þrívídd sem og vöðvarafritum (electromyography (EMG)) verður kynnt. Kennsla er aðallega í formi verklegrar kennslu/þjálfunar auk vettvangsheimsókna. Námið byggir á verkefnum þar sem aðferðir og tæki eru nýtt til að auka þekkingu, leikni og hæfni nemenda í að meta hreyfingu mannsins og túlka niðurstöður mælinga.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SJÚ207F
    Íþróttasjúkraþjálfun
    Valnámskeið
    4
    Valnámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Íþróttasjúkraþjálfun er eitt þriggja valnámskeiða sem er í boði á vormisseri fyrra árs MS náms í sjúkraþjálfun. Fjallað verður um algeng íþróttameiðsli, bæði bráð meiðsli og álagseinkenni, áhættuþætti þeirra, forvarnir, og helstu áherslur í endurhæfingarferlinu. Námið byggir að mestu leyti á lausnaleitarnámi, umræðutímum, verkefnavinnu og þjálfun klínískra aðferða, auk vendikennslu. Námskeiðið veitir nemendum dýpri þekkingu á sviðinu, auk þjálfunar í klínískri rökhugsun og leikni í algengum aðferðum sem tengjast íþróttasjúkraþjálfun.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SJÚ210F
    Lesnámskeið í Sjúkraþjálfun MS
    Valnámskeið
    4
    Valnámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lesnámskeiðið er eitt fjögurra valnámskeiða sem er í boði á vormisseri fyrra árs MS náms í sjúkraþjálfun. Markmið þessa námsskeiðs er að gefa nemandanum tækifæri til að rýna í og dýpka þekkingu sína á vel skilgreindu og afmörkuðu efni. Nemandinn þróar með sér hæfni til að leita eftir nýjum heimildum, greina þær og gagnrýna, taka saman og nýta upplýsingarnar til að búa sér til nýja þekkingu. ATHUGIÐ, þetta má ekki vera hluti af meistaraverkefni í Sjúkraþjálfun MS eða tengjast því sérstaklega.
    Þetta námskeið má jafnframt nýta af þeim nemendum sem taka þátt í Nordplus námskeiði og vilja skrifa um það fræðslugrein. 

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Haust
  • SJÚ301F
    Flókin tilfelli og mismunagreining
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennslan er í formi (net-) fyrirlestra og rafrænu námsefni, umræðu- og verkefnavinnu, málstofum, hermikennslu, auk heimsókna. Námskeiðinu er ætlað að þjálfa nemendur í vísindalegri rökhugsun og skilvirkum samskiptum með áherslu á fjölbreytileika flókin tilfelli úr klínísku starfi. Lögð er áhersla á klíníska rökhugsun samkvæmt kerfakenningunni, klíníska ákvarðanatöku og gagnreynda nálgun. Námskeiðið mun auka hæfni nemenda í heildarnálgun í klínísku starfi með áherslu á flókin og/eða fjölþætt viðfangsefni. Námskeiðinu er jafnframt ætlað að gera nemendur hæfari til að mismunagreina og undirbúa þá til að taka sjálfstæðar ákvarðanir byggðar á gagnreyndri þekkingu. Nemendur fá kynningu á tilfellum og ræða í hópum um skimun á sjúklingum/skjólstæðingum og tilvísunarskyldu á aðra sérfræðinga ef vandamálin eru utan við þekkingarsvið sjúkraþjálfunar. Nemendur munu fá tækifæri til að vinna að flóknum raunverulegum tilfellum í samstarfi við klíníska sérfræðinga í sjúkraþjálfun.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • SJÚ302F
    Klínískt nám III
    Skyldunámskeið
    11

  • SJÚ401L
    Lokaverkefni
    Skyldunámskeið
    19

  • SJÚ402F
    Klínískt nám IV

Annað ár

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Starf sjúkraþjálfara er fjölbreytt og miðar að því að bæta hreyfigetu, færni og heilsu fólks á öllum aldri. Sjúkraþjálfarar greina orsakir hreyfitruflana og færniskerðinga og veita meðferð. Auk þess fást þeir við að fyrirbyggja eða draga úr afleiðingum áverka, álagseinkenna, sjúkdóma, öldrunar og lífsstíls. Ráðgjöf og fræðsla er hluti af starfi sjúkraþjálfara. 
 
Með þessa menntun getur þú starfað við:

  • Endurhæfingastofnanir
  • Einkareknar sjúkraþjálfunarstofur
  • Sjúkrahús
  • Öldrunarstofnanir
  • Líkamsræktarstöðvar
  •  Íþróttafélög
  • Vinnuvernd
  •  Kennsla og rannsóknir t.d. við háskóla
  • Ráðgjöf á sviði forvarna og heilsueflingar

Listinn er ekki tæmandi

Félag nema í sjúkraþjálfun er VIRTUS og gætir það hagsmuna nemenda og hefur forgöngu um félagslíf þeirra. Facebook síða VIRTUS.

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Skrifstofa Námsbrautar í sjúkraþjálfun
Virka daga 10:00 - 12:00 og 13:00 - 15:00
Samfélagsmiðalr
Mynd af háskólabyggingunni Stapa

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil