""
Tungumál kennslu
Íslenska. Þó kunna einstök námskeið að vera kennd á ensku. Flestar kennnslubækur eru á ensku.
Lengd náms
60 einingar
Námsform
Blönduð námsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefurðu áhuga á skipulagningu viðburða og hvernig hægt er að gera þá sjálfbæra?
  • Finnst þér spennandi að vinna með umhverfismál og samfélagslega ábyrgð í verkefnum?
  • Líkar þér að skipuleggja, stýra verkefnum og vinna með ólíkum hópum?
  • Geturðu séð þig starfa í ferðaþjónustu, viðburðahaldi eða verkefnastjórnun?

Í diplómanámi í sjálfbærni viðburða er lögð áhersla á umhverfisstjórnun og sjálfbæra þróun. Nemendur öðlast þekkingu á sviði sjálfbærni og viðburðahalds og kynnast öryggismálum og lagaumhverfi viðburða. Áhersla er lögð á ábyrga stjórnun og stefnumótun þar sem tekið er mið af auðlindum, umhverfi, samfélagi og ólíkum hagsmunaaðilum.

Nemendur öðlast færni í sjálfstæðum vinnubrögðum meðal annars í gegnum hagnýtt lokaverkefni þar sem hver nemandi getur sérhæft sig í viðfangsefni að eigin vali.

Námið veitir grunn til frekara náms og mögulegt er að bæta við einu ári í diplóma í viðburðastjórnun og svo öðru ári til að ljúka BA í ábyrgri stjórnun viðburða og ferðaþjónustu.

Námið er fjarnám með staðbundnum lotum sem hægt er að taka sem fullt nám eða hlutanám.

Umsækjandi þarf að hafa lokið stúdentsprófi eða lokið öðrum undirbúningi (sbr. lög nr. 63/2006), sem háskólaráð telur jafngildan. Umsóknum nemenda, sem ekki hafa lokið stúdentsprófi, skal vísað til kennslunefndar til umsagnar. Nemendur annarra háskóla geta einnig tekið hluta af námi sínu við Háskóla Íslands á Hólum enda sé kveðið á um það í sérstökum samningum milli stofnanna.

Nemendur skulu ljúka diplómaprófi innan þriggja ára frá fyrstu innritun.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Rannsóknir í ferðamálum og viðburðastjórnun (RFV3206170)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er kynning á grundvallaratriðum rannsóknahefða, hugmyndafræði og kenningaramma í félagsvísindum. Fjallað er um helstu áfanga í rannsóknaferli frá afmörkun viðfangsefnis til miðlunar á niðurstöðum rannsóknar. Sérstök áhersla er lögð á hlutverk heimildavinnu við gerð yfirlits um stöðu þekkingar. Farið verður í það hvernig á að greina fræðileg rök og fullyrðingar um þekkingu á sviði ferðamálafræði og viðburðastjórnunar út frá helstu áföngum rannsóknaferlis s.s. afmörkun viðfangsefnis, skilgreiningu hugtaka, val rannsóknaraðferða, tengingu við kenningaramma, rannsóknarhefða og fyrirliggjandi rannsókna. Markmiðið er að þróa skilning nemenda á tengslum fræða og framkvæmdar í rannsóknum.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Haust
Umhverfisfræði (UMH1406120)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um almenn atriði umhverfisfræðarinnar, svo sem: Náttúrusiðfræði, grundvallarhugtakið sjálfbæra þróun, sjálfbæra starfshætti og vottanir. Þá verður fjallað um hlutverk landvarða í stjórnsýslu, náttúruvernd, friðlýsingar, hlutverk friðlanda, þjóðgarða. Markmið og tilgangur gestastofa, stjórnsýsla umhverfismála og - stefna Íslands, verða kynnt. Einnig verður farið yfir umhverfisvandamál almennt, grunnatriði vistfræðinnar, - loftslagsbreytinga og afleiðingar þeirra á umhverfi okkar. Námskeiðið er eitt þeirra sem eru til grundvallar við veitingu landvarðarréttinda, í samvinnu við Umhverfisstofnun.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Verklag í námi og starfi (VNS1006120)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er inngangsnámskeið og tekur á ólíkum þáttum vinnulags í háskólanámi og rannsóknum. Markmið námskeiðsins er að kynna fyrir nemendum hlutverk og skipulag háskóla, gagnrýna hugsun og eðli vísindalegra og fræðilegra vinnubragða. Námskeiðið veitir nemendum hagnýtan undirbúning að háskólanámi.

Í námskeiðinu er fjallað um fagleg vinnubrögð í námi og starfi, s.s. tímastjórnun, skipulag vinnu, samskipti í ræðu og riti, siðareglur, gerð ferilskráa og atvinnu- og styrkumsókna. Þá er rætt um framsögn og tjáningu; undirbúning og flutning á verkefnum og hvernig á að gefa og veita uppbyggilega gagnrýni.

Nemendur fræðast um gervigreind og hvernig kunnátta í notkun hennar er lykilhæfni í nútímasamfélagi. Nemendur fá innsýn í hvernig gervigreindartól – og tækni geta nýst í námi, læra að þekkja möguleika og takmarkanir þeirra hennar og að nýta þau á ábyrgan og gagnrýninn hátt.

Skoðaðir verða ólíkir textar og markmið þeirra greind. Farið verður yfir uppbyggingu stærri ritsmíða, t.d. skýrsla og rannsóknarritgerða, s.s. efnisþætti, afmörkun efnis, efnissöfnun, heimildaleit, röðun efnisatriða, stíll og framsetningu upplýsinga í mæltu og rituðu máli og heimildanotkun. Áhersla er á rétta meðferð heimilda. Höfundarréttur kynntur og þær takmarkanir sem eru á notkun á hugverkum annarra.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Haust
Inngangur að viðburðastjórnun (VBS2106210)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um eðli viðburða og fjölbreytileika þeirra, innanlands og á alþjóðavísu. Fjallað um tengsl viðburða og ferðaþjónustu. Kynntar eru aðferðir við skipulag, framkvæmd og gæðamat viðburða. Fjallað er um lög, reglur og öryggisatriði sem snúa að viðburðum.  Áhersla er lögð á að kynna nemendum ferlið frá hugmynd til framkvæmdar á viðburði. Fjallað er um áætlanagerð og mat á áhrifum viðburða.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Upplifunarhönnun og viðburðir (UHV4606170)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um hvernig hanna má upplifun þátttakenda í viðburðum á markvissan og skapandi hátt. Nemendur kynnast hugmyndafræðinni að baki upplifunarhönnun (e. experience desing). Áhersla er lögð á að nemendur skilji hvernig upplifun gesta mótast af samspili rýmis, stemningar, frásagnar, þjónustu og þátttöku. Kynnt verða verkfæri til að öðlast dýpri skilning á þessum þáttum og hvernig má hanna upplifun með merkingu að leiðarljósi (e. design for meaning). Nemendur kynnast kenningum um upplifunarhagkerfið (e. experience economy) og læra hvernig nýta má þær við þróun viðburða sem skapa eftirminnileg og merkingarbær augnablik fyrir þátttakendur. Skynjun er ein af lykilþáttum upplifunarhönnunar. Útivera, staðarvitund og náttúruupplifun verða m.a. nýtt í námskeiðinu til að varpa ljósi á hvernig þessi þættir geta skapað eftirsóknarverða upplifun. Nemendur vinna með raunveruleg dæmi úr viðburðageiranum og þróa eigin hugmynd að viðburði þar sem upplifunarhönnun er í forgrunni. Lögð er áhersla á gagnrýna og skapandi hugsun og hagnýta notkun fræðilegra hugmynda við skipulagningu viðburða.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Ábyrg stefnumótun og verkefnastjórn (ÁSV4406170)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um ábyrga mótun stefnu og stjórn verkefna þar sem leitast er við að undirbúningur, framkvæmd og frágangur viðburða og annarra verkefna sé í samræmi við sjálfbærnimarkmið sameinuðu þjóðanna og viðmið um ábyrga ferðamennsku og stjórnun.

Fjallað er um hugtök eins og sjálfbærni, ábyrga ferðamennsku/viðburði og nærandi ferðamennsku og innsýn veitt í þekkingarlegan bakgrunn þessara fræða. Fjallað er um tengsl og hlutverk mismunandi hagaðila í ábyrgu viðburðahaldi og ferðamennsku.

Nemendur læra að móta stefnu í  málefnum viðburðahalds og ferðamennsku út frá hagsmunum ólíkra hagaðila og öðlast innsýn í stjórn verkefna s.s. hjá  einstaklingum, frjálsum félögum, fyrirtækjum, sveitarfélögum og öðrum stjórnvaldsaðilum. Einnig er fjallað um gerð aðgerðaáætlunar til að fylgja eftir stefnu og styðja við stjórn verkefna.

Kennslutungumál: Íslenska
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Hagnýtt lokaverkefni (HLV4506170)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í hagnýtu lokaverkefni gefst nemendum tækifæri á að sérhæfa sig í viðfangsefni að eigin vali í samráði við umsjónarmann námskeiðsins. Nemandi skilar einu verkefni í lok námskeiðs. Verkefni skal unnið í samræmi við leiðbeinandi handbók námskeiðsins um framkvæmd verkefnisins. Nemandi vinnur sjálfstætt að gerð verkefnisins samkvæmt leiðbeiningunum. Ekki er gert ráð fyrir að nemandi safni frumgögnum líkt og um rannsóknaverkefni sé að ræða, heldur er áhersla lögð á hagnýta greiningu viðburðahalds með áherslu á umhverfisstjórnun og ábyrga þróun.

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Fyrsta ár | Vor
Græn framtíð – skapandi lausnir (GFS4306170)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um innleiðingu sjálfbærni og ábyrgðar í þróun og framleiðsluferlum viðburða, sjónvarpsefnis, kvikmyndagerðar og öðrum skapandi greinum. Rýnt er í með hvaða hætti slíkar greinar geta með smáum en markvissum skrefum náð aukinni sjálfbærni og þannig mætt nútíma kröfum og viðmiðum í sjálfbærni í viðburðahaldi og framleiðslu t.d. í kvikmyndagerð. Áhersla er lögð á ábyrgð þeirra sem að málum koma á öllum stigum viðburðahalds og framleiðslu. M.a. er fjallað um sjálfbærni, innleiðingu ábyrgra starfshátta, losun, sviðssetningu, eftirvinnslu og vottunarferli.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Stjórnun (STJ2006120)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Viðfangsefni námskeiðsins í stjórnun eru stjórnunarferlið, helstu stjórnunarkenningar og þróun þeirra. Ennfremur er hlutverk stjórnenda, í síbreytilegu viðskiptaumhverfi, skoðað s.s. færni, persónueinkenni, stjórnunarstíll og ábyrgð sem tengist vinnustaðamenningu, hagaðilum fyrirtækis, viðskiptasiðferði og frumkvöðlastarfi. Farið er í helstu störf stjórnanda s.s. markmiðssetningu, stefnumótun, áætlanagerð, skipulag, leiðsögn og eftirlit ásamt skipulagi fyrirtækis, starfa og verkefnisstjórnun. Grunnatriði mannauðsstjórnunar eru til skoðunar s.s. leiðtogastarf, hvatning, val og ráðning starfsfólks og leiðir til að mæta fjölbreytileika í starfsmannahópnum. Að síðustu er farið í það hvernig stýra má hópum/teymum til árangurs, leysa vandamál sem upp koma og auka starfsánægju.
Í verkefnum námskeiðsins eru hugtök, kenningar og líkön stjórnunar prófuð og sannreynd í ferðaþjónustufyrirtækjum.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Lög, reglur og öryggismál (LRÖ2306170)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Viðfangsefni námskeiðsins er tvíþætt. Annars vegar er farið yfir lög, reglugerðir og leyfisveitingar er varða ferðaþjónustu, m.a. veitinga- og gististaði. Hins vegar er fjallað um öryggismál í ferðaþjónustu. Rætt er um samstarf hins opinbera við einkaaðila á sviði ferðamála, og hvaða þýðingu aðkoma stjórnvalda hefur á þróun og afkomu greinarinnar, gegnum lög og reglugerðir. Fjallað um öryggismál ferðaþjónustu í heild og í samhengi mismunandi tegunda ferðaþjónustu, veitinga- og gististaða. Skoðað er samstarf ferðaþjónustu, stjórnvalda og sjálfboðaliðahreyfinga um öryggismál. Þá eru skoðaðar mismunandi leiðir til þess að koma upplýsingum um lög, reglur og öryggismál á framfæri til erlendra og innlendra ferðamanna.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár
  • Haust
  • RFV3206170
    Rannsóknir í ferðamálum og viðburðastjórnun
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er kynning á grundvallaratriðum rannsóknahefða, hugmyndafræði og kenningaramma í félagsvísindum. Fjallað er um helstu áfanga í rannsóknaferli frá afmörkun viðfangsefnis til miðlunar á niðurstöðum rannsóknar. Sérstök áhersla er lögð á hlutverk heimildavinnu við gerð yfirlits um stöðu þekkingar. Farið verður í það hvernig á að greina fræðileg rök og fullyrðingar um þekkingu á sviði ferðamálafræði og viðburðastjórnunar út frá helstu áföngum rannsóknaferlis s.s. afmörkun viðfangsefnis, skilgreiningu hugtaka, val rannsóknaraðferða, tengingu við kenningaramma, rannsóknarhefða og fyrirliggjandi rannsókna. Markmiðið er að þróa skilning nemenda á tengslum fræða og framkvæmdar í rannsóknum.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • UMH1406120
    Umhverfisfræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um almenn atriði umhverfisfræðarinnar, svo sem: Náttúrusiðfræði, grundvallarhugtakið sjálfbæra þróun, sjálfbæra starfshætti og vottanir. Þá verður fjallað um hlutverk landvarða í stjórnsýslu, náttúruvernd, friðlýsingar, hlutverk friðlanda, þjóðgarða. Markmið og tilgangur gestastofa, stjórnsýsla umhverfismála og - stefna Íslands, verða kynnt. Einnig verður farið yfir umhverfisvandamál almennt, grunnatriði vistfræðinnar, - loftslagsbreytinga og afleiðingar þeirra á umhverfi okkar. Námskeiðið er eitt þeirra sem eru til grundvallar við veitingu landvarðarréttinda, í samvinnu við Umhverfisstofnun.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • VNS1006120
    Verklag í námi og starfi
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er inngangsnámskeið og tekur á ólíkum þáttum vinnulags í háskólanámi og rannsóknum. Markmið námskeiðsins er að kynna fyrir nemendum hlutverk og skipulag háskóla, gagnrýna hugsun og eðli vísindalegra og fræðilegra vinnubragða. Námskeiðið veitir nemendum hagnýtan undirbúning að háskólanámi.

    Í námskeiðinu er fjallað um fagleg vinnubrögð í námi og starfi, s.s. tímastjórnun, skipulag vinnu, samskipti í ræðu og riti, siðareglur, gerð ferilskráa og atvinnu- og styrkumsókna. Þá er rætt um framsögn og tjáningu; undirbúning og flutning á verkefnum og hvernig á að gefa og veita uppbyggilega gagnrýni.

    Nemendur fræðast um gervigreind og hvernig kunnátta í notkun hennar er lykilhæfni í nútímasamfélagi. Nemendur fá innsýn í hvernig gervigreindartól – og tækni geta nýst í námi, læra að þekkja möguleika og takmarkanir þeirra hennar og að nýta þau á ábyrgan og gagnrýninn hátt.

    Skoðaðir verða ólíkir textar og markmið þeirra greind. Farið verður yfir uppbyggingu stærri ritsmíða, t.d. skýrsla og rannsóknarritgerða, s.s. efnisþætti, afmörkun efnis, efnissöfnun, heimildaleit, röðun efnisatriða, stíll og framsetningu upplýsinga í mæltu og rituðu máli og heimildanotkun. Áhersla er á rétta meðferð heimilda. Höfundarréttur kynntur og þær takmarkanir sem eru á notkun á hugverkum annarra.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • VBS2106210
    Inngangur að viðburðastjórnun
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um eðli viðburða og fjölbreytileika þeirra, innanlands og á alþjóðavísu. Fjallað um tengsl viðburða og ferðaþjónustu. Kynntar eru aðferðir við skipulag, framkvæmd og gæðamat viðburða. Fjallað er um lög, reglur og öryggisatriði sem snúa að viðburðum.  Áhersla er lögð á að kynna nemendum ferlið frá hugmynd til framkvæmdar á viðburði. Fjallað er um áætlanagerð og mat á áhrifum viðburða.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • UHV4606170
    Upplifunarhönnun og viðburðir
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um hvernig hanna má upplifun þátttakenda í viðburðum á markvissan og skapandi hátt. Nemendur kynnast hugmyndafræðinni að baki upplifunarhönnun (e. experience desing). Áhersla er lögð á að nemendur skilji hvernig upplifun gesta mótast af samspili rýmis, stemningar, frásagnar, þjónustu og þátttöku. Kynnt verða verkfæri til að öðlast dýpri skilning á þessum þáttum og hvernig má hanna upplifun með merkingu að leiðarljósi (e. design for meaning). Nemendur kynnast kenningum um upplifunarhagkerfið (e. experience economy) og læra hvernig nýta má þær við þróun viðburða sem skapa eftirminnileg og merkingarbær augnablik fyrir þátttakendur. Skynjun er ein af lykilþáttum upplifunarhönnunar. Útivera, staðarvitund og náttúruupplifun verða m.a. nýtt í námskeiðinu til að varpa ljósi á hvernig þessi þættir geta skapað eftirsóknarverða upplifun. Nemendur vinna með raunveruleg dæmi úr viðburðageiranum og þróa eigin hugmynd að viðburði þar sem upplifunarhönnun er í forgrunni. Lögð er áhersla á gagnrýna og skapandi hugsun og hagnýta notkun fræðilegra hugmynda við skipulagningu viðburða.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • Vor
  • ÁSV4406170
    Ábyrg stefnumótun og verkefnastjórn
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um ábyrga mótun stefnu og stjórn verkefna þar sem leitast er við að undirbúningur, framkvæmd og frágangur viðburða og annarra verkefna sé í samræmi við sjálfbærnimarkmið sameinuðu þjóðanna og viðmið um ábyrga ferðamennsku og stjórnun.

    Fjallað er um hugtök eins og sjálfbærni, ábyrga ferðamennsku/viðburði og nærandi ferðamennsku og innsýn veitt í þekkingarlegan bakgrunn þessara fræða. Fjallað er um tengsl og hlutverk mismunandi hagaðila í ábyrgu viðburðahaldi og ferðamennsku.

    Nemendur læra að móta stefnu í  málefnum viðburðahalds og ferðamennsku út frá hagsmunum ólíkra hagaðila og öðlast innsýn í stjórn verkefna s.s. hjá  einstaklingum, frjálsum félögum, fyrirtækjum, sveitarfélögum og öðrum stjórnvaldsaðilum. Einnig er fjallað um gerð aðgerðaáætlunar til að fylgja eftir stefnu og styðja við stjórn verkefna.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • HLV4506170
    Hagnýtt lokaverkefni
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í hagnýtu lokaverkefni gefst nemendum tækifæri á að sérhæfa sig í viðfangsefni að eigin vali í samráði við umsjónarmann námskeiðsins. Nemandi skilar einu verkefni í lok námskeiðs. Verkefni skal unnið í samræmi við leiðbeinandi handbók námskeiðsins um framkvæmd verkefnisins. Nemandi vinnur sjálfstætt að gerð verkefnisins samkvæmt leiðbeiningunum. Ekki er gert ráð fyrir að nemandi safni frumgögnum líkt og um rannsóknaverkefni sé að ræða, heldur er áhersla lögð á hagnýta greiningu viðburðahalds með áherslu á umhverfisstjórnun og ábyrga þróun.

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • GFS4306170
    Græn framtíð – skapandi lausnir
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um innleiðingu sjálfbærni og ábyrgðar í þróun og framleiðsluferlum viðburða, sjónvarpsefnis, kvikmyndagerðar og öðrum skapandi greinum. Rýnt er í með hvaða hætti slíkar greinar geta með smáum en markvissum skrefum náð aukinni sjálfbærni og þannig mætt nútíma kröfum og viðmiðum í sjálfbærni í viðburðahaldi og framleiðslu t.d. í kvikmyndagerð. Áhersla er lögð á ábyrgð þeirra sem að málum koma á öllum stigum viðburðahalds og framleiðslu. M.a. er fjallað um sjálfbærni, innleiðingu ábyrgra starfshátta, losun, sviðssetningu, eftirvinnslu og vottunarferli.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • STJ2006120
    Stjórnun
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni námskeiðsins í stjórnun eru stjórnunarferlið, helstu stjórnunarkenningar og þróun þeirra. Ennfremur er hlutverk stjórnenda, í síbreytilegu viðskiptaumhverfi, skoðað s.s. færni, persónueinkenni, stjórnunarstíll og ábyrgð sem tengist vinnustaðamenningu, hagaðilum fyrirtækis, viðskiptasiðferði og frumkvöðlastarfi. Farið er í helstu störf stjórnanda s.s. markmiðssetningu, stefnumótun, áætlanagerð, skipulag, leiðsögn og eftirlit ásamt skipulagi fyrirtækis, starfa og verkefnisstjórnun. Grunnatriði mannauðsstjórnunar eru til skoðunar s.s. leiðtogastarf, hvatning, val og ráðning starfsfólks og leiðir til að mæta fjölbreytileika í starfsmannahópnum. Að síðustu er farið í það hvernig stýra má hópum/teymum til árangurs, leysa vandamál sem upp koma og auka starfsánægju.
    Í verkefnum námskeiðsins eru hugtök, kenningar og líkön stjórnunar prófuð og sannreynd í ferðaþjónustufyrirtækjum.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • LRÖ2306170
    Lög, reglur og öryggismál
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni námskeiðsins er tvíþætt. Annars vegar er farið yfir lög, reglugerðir og leyfisveitingar er varða ferðaþjónustu, m.a. veitinga- og gististaði. Hins vegar er fjallað um öryggismál í ferðaþjónustu. Rætt er um samstarf hins opinbera við einkaaðila á sviði ferðamála, og hvaða þýðingu aðkoma stjórnvalda hefur á þróun og afkomu greinarinnar, gegnum lög og reglugerðir. Fjallað um öryggismál ferðaþjónustu í heild og í samhengi mismunandi tegunda ferðaþjónustu, veitinga- og gististaða. Skoðað er samstarf ferðaþjónustu, stjórnvalda og sjálfboðaliðahreyfinga um öryggismál. Þá eru skoðaðar mismunandi leiðir til þess að koma upplýsingum um lög, reglur og öryggismál á framfæri til erlendra og innlendra ferðamanna.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við:

  • Viðburðastjórnun
  • Sjálfbærni- og umhverfisstjórnun hjá fyrirtækjum eða stofnunum
  • Verkefnastjórnun í ferðaþjónustu eða tengdum greinum
  • Ráðgjöf í sjálfbærum viðburðum og ábyrgri starfsemi
  • Skipulagningu og stefnumótun viðburða
  • Störf hjá sveitarfélögum, fyrirtækjum eða félagasamtökum
  • Frekara nám í viðburðastjórnun eða ferðaþjónustu

Listinn er ekki tæmandi

Lögð er áhersla á að nemendur við HÍ á Hólum efli tengslanet sitt með því að hittast í staðlotum og finni eigin leiðir til að efla félagslíf deildarinnar. Hluti af félagslífi er að kynnast í staðlotum og skipuleggja viðburði tengt náminu.

Skólaárið 2026-2027 verður nýtt til að skilgreina og skipuleggja félagslíf stúdenta við HÍH meðal annars með því að stofna nemendafélög og skilgreina aðkomu stúdenta HÍH að Stúdentaráði. Nemendur HÍH munu fá stúdentakort og afslætti í samræmi við aðra stúdenta í háskólasamstæðunni.

Nemendur Háskóla Íslands eru dugleg að hittast á stúdentakjallaranum og eru nemendur HÍH hvött til að hittast þar ef tækifæri er til.

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Háskóli Íslands á Hólum
Hólar í Hjaltadal
Mán. - fim. 10-12 og 12:30 - 14 og fös. 10-12
Nemenda og kennsluþjónusta

Þjónustuborð er staðsett í aðalbyggingu skólans á Hólum en nemendur geta einnig nýtt sér þjónustuborð HÍ á Háskólatorgi.

Fylgdu HÍ á Hólum á:
FacebookYoutubeInstagram, TikTok

Hólar í Hjaltadal - Aðalbygging

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil