""
Tungumál kennslu
Íslenska
Lengd náms
1 - 2 ár
Námsform
Blönduð námsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á að bæta við menntun þína?
  • Vilt þú auka þekkingu þína og færni í takt við þarfir samfélagsins?
  • Langar þig í nám sem þú getur stundað meðfram vinnu?

Örnám til 30 eininga á sérsviðum hjúkrunar er nám á meistarastigi sem fer fram að loknu BS-prófi í hjúkrunarfræði.

Kjörsvið námsins eru breytileg milli ára enda eru þau skipulögð í takt við samfélagslegar þarfir og eftirspurn hjúkrunarfræðinga hverju sinni.

Uppbygging náms

Námið er 30 einingar og er skipulagt sem hlutanám í eitt eða tvö ár.

Kjörsvið eru tvö:

  • Hjúkrunarstjórnun og forysta
    Í örnámi með áherslu á hjúkrunarstjórnun og forystu er lögð áhersla á að dýpka þekkingu, skilning og færni nemenda á sviði stjórnunar og forystu í hjúkrun og heilbrigðisþjónustu og þar með undirbúa þá til starfa sem stjórnendur og leiðtoga í hjúkrun.

  • Heilsugæsluhjúkrun með áherslu á brjóstagjöf
    Markmið örnámsins er að auka þekkingu og færni hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra sem námsleiðina sækja um brjóstagjöf. Nemendur öðlast gagnreynda þekkingu á efni er tengist brjóstagjöf, allt frá líffæra- og lífeðlisfræði brjóstagjafar til sérhæfðari þekkingar á hinum ýmsu áskorunum og verkefnum sem upp geta komið við brjóstagjöf. Auk þess verður lögð sérstök áhersla á heildrænt heilsufarsmat móður, barns og fjölskyldu, áhrif á árangur brjóstagjafar, samskiptafærni þjálfun ráðgjafar og leiðtogahlutverks.

Meginmarkmið

Markmið örnámsins er að gefa nemendum kost á að auka þekkingu sína og færni á sviði í takt við samfélagslegar þarfir og eftirspurn.

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á íslensku og flestar kennslubækur eru á ensku.

Mætingarskylda er í flest skyldunámskeið.

Annað

Frekari upplýsingar um námsleiðina.

Nemendur geta sótt um að fá hluta af örnámi sínu metið inn í annað nám á meistarastigi, í samræmi við önnur inntökuskilyrði og samsetningu náms á kjörsviði.

Inntökuskilyrði: BS-próf í hjúkrunarfræði eða sambærilegt nám með að lágmarki 6,5 í meðaleinkunn og íslenskt hjúkrunarleyfi. Jafnframt þarf nemandi að búa yfir góðri íslensku- og enskukunnáttu. Kennsla fer fram á íslensku.

Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda framhaldsnám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku. Nánari upplýsingar má finna hérna: Inntökupróf í íslensku fyrir umsækjendur um nám sem kennt er á íslensku | Háskóli Íslands

Námskeið í örnámi skulu vera á meistarastigi og standast kröfur þar um. Örnámi lýkur ekki með viðurkenndri háskólagráðu en nemandi sem klárar slíkt nám fær staðfest vottorð um það og getur sótt um að fá það metið til styttingar á framhaldsnámi. Lágmarkseinkunn í námskeiðum í örnámi skal vera 6,0.

Lengd örnáms er að jafnaði eitt til tvö ár en náminu í heild skal vera lokið innan þriggja ára. Námshraði nemenda skal vera í samræmi við auglýsta námskrá og framboð námskeiða.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Ferilskrá (CV)
  • Meðmælandi 1, nafn og netfang
  • Meðmælandi 2, nafn og netfang
  • Prófskírteini/námsyfirlit
  • Ef umsækjandi hefur erlent ríkisfang og erlent próf þarf að skila staðfestingu á enskukunnáttu

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Fyrsta ár | Haust
Respiratory Nursing (HJÚ0BPF)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið veitir ítarlega þekkingu á nýjustu rannsóknum í hjúkrun fólks með öndunarfærasjúkdóma. Fjallað er um aðferðir og íhlutanir sem styðja við sjúklinga með lungnasjúkdóma.

Þetta er samnorrænt námskeið og hægt að finna frekari upplýsingar um námskeiðið hér: https://www.miun.se/en/utbildning/kompetensutveckling/utveckla-dina-medarbetare/vard-och-omsorg/graduate-course-in-respiratory-nursing/

Kennslutungumál: Enska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Haust
Fræðileg aðferð (HJÚ140F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur nái tökum á fræðilegum vinnubrögðum á þann hátt að þeir geti hagnýtt fyrirliggjandi fræðilega þekkingu í hjúkrun. Athyglin beinist að aðferðum við öflun heimilda í gagnasöfnum og mati á þeim. Fjallað er um gagnreynda starfshætti, s.s. notkun klínískra leiðbeininga og verklagsreglna. Áhersla er lögð á að þjálfa aðferðir við leitir og mat á fræðilegu efni ásamt textavinnslu.

Námskeiðið er haldið í upphafi kennslumisseris.

Kennslutungumál: Íslenska
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Lyfjafræði fyrir hjúkrunarfræðinga (HJÚ159F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að hjúkrunarfræðingar þekki og skilji virkni lyfja sem geri þeim kleift að meðhöndla lyf og flóknar lyfjagjafir til sjúklinga innan og utan sjúkrahúsa á öruggan og ábyrgan hátt.

Í námskeiðinu er með fyrirlestrum og  umræðutímum kynnt virkni, lyfhrif, lyfjahvörf, ábendingar og frábendingar hjarta- og æða-lyfja, sýklalyfja, meltingarfæralyfja, innkirtlalyfja, hormónalyfja, taugalyfja, verkjalyfja og öndunarfæralyfja auk lyfjaforma. Áhersla er á að leysa flókin klínísk dæmi í hjúkrun sjúklinga innan og utan sjúkrahúsa þar sem þekking á virkni, auka-, milli-, og sam-verkunum lyfja og lyfjaforma er þjálfuð.

Námskeiðið er ætlað hjúkrunarfræðingum í framhaldsnámi í Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild.

Kennarar eru lyfjafræðingar, sérfræðilæknar og sérfræðingar í hjúkrun.

Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Klínísk lífeðlis- og meinafræði (HJÚ0AQF)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tilgangur námskeiðsins er að dýpka þekkingu hjúkrunarfræðinga á lífeðlisfræðilegum ferlum og meinafræðilegum breytingum í starfsemi mannslíkamans sem orsaka sjúkdóma. Fjallað verður um algenga sjúkdóma á mismunandi æviskeiðum lífsins með áherslu á orsakir, undirliggjandi meinalífeðlisfræðilegar breytingar, klínísk einkenni, sjúkdómsferli, greiningu, og meðferð. Jafnframt verður fjallað um eðlilegar breytingar á lífeðlisfræðilegum ferlum öldrunar og áhrif þeirra á starfsemi líffæra og líffærakerfa á efri árum. Í námskeiðinu verður notast við fjölþættar kennsluaðferðir þar sem áhersla er lögð á virka þáttöku nemenda og yfirfærslu þekkingar yfir á klínískar aðstæður.  

Líknarmeðferð (HJÚ263F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Viðfangsefni námskeiðsins er líknarmeðferð þar sem megin áhersla er á lífsgæði sjúklinga með lífsógnandi sjúkdóma og fjölskyldna þeirra, meðferð og umönnun við lífslok sem stuðlar að jákvæðri upplifun af lífslokum.  

Umfjöllun verður um líknarmeðferð bæði sem hugmyndafræði og meðferð. Fjallað verður um líknarmeðferð fyrir mismunandi sjúklingahópa og  lögð verður áhersla á mat og meðferð helstu einkenna,  sálfélagslegan stuðning við sjúkling og fjölskyldu, tjáskipti og samskipti, siðfræðileg álitamál, sorg og sorgarúrvinnslu. 

Áhersla verður lögð á grundvallarþætti líknarmeðferðar og útfærslu þeirra í klínísku starfi og farið verður yfir nýjustu stefnumótun varðandi útfærslu á líknameðferð innan heilbrigðiskerfis. Nemendur verða hvattir til að spegla nýja þekkingu við klínískt starf og miðað er við að námskeiðið nýtist vel í klínísku starfi.

Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Mat og hjúkrunarmeðferð lungnasjúklinga (HJÚ0BKF)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið veitir yfirsýn og dýpri skilning á hjúkrun lungnasjúklinga frá forvörnum til meðferðar, endurhæfingar og eftirfylgdar. Fjallað er um faraldsfræði og áhættuþætti lungnasjúkdóma, skimun og greiningarferli, túlkun á rannsóknarniðurstöðum tengdum starfsemi öndunarfæra, mat og meðferð á einkennum tengdum öndun, helstu meðferðarform og áhrif sjúkdóms og meðferðar á líkamlega, andlega og félagslega heilsu sjúklinga. Fjallað verður um öndunarþjálfun og öndunarstuðning, skjólstæðingsmiðaða hjúkrun sjúklinga og fjölskyldur og kennslu og eftirlit með innöndunarlyfjanotkun sjúklinga ásamt tóbaksvörnum. Teymisvinna og hjúkrun innan og utan bráðameðferðar verður útfærð sérstaklega.

Námskeiðið leggur grunn að klínískri, fræðilegri og ígrundandi færni sem nýtist við sérhæfða hjúkrun sjúklinga með lungnasjúkdóma og við þróun hjúkrunar á þessu sviði.

Kennsla byggist á blandaðri nálgun þar sem nýjustu rannsóknir og klínískar leiðbeiningar eru tengdar dæmum úr klínísku starfi. Notast er við fyrirlestra, umræður, ígrundun og verkefni.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Haust
Stuðningur við fullorðna í samfélaginu (HJÚ0BGF)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði er áhersla á uppbyggingu þekkingar og færni á faglegu mati og viðbrögðum aðstæðna hjá eldra fólki í samfélaginu. Nemendur nýta þessa þekkingu við útfærslu á stuðningi og umönnun þeirra sem búa við heilsubrest og/eða færniskerðingu vegna langvinnra veikinda eða öldrunarbreytinga. Unnið verður með útfærslu á hagnýtingu gagnreyndrar þekkingar sem finna má í klínískum leiðbeiningum og fræðilegum samantektum. Nemendur fá þjálfun í að hanna stuðningsleiðir við ólíkar aðstæður í þjónustu; t.d. á göngudeildum, í heilsugæslu og í heimaþjónustu með áherslu á fólk með langvinnan heilsuvanda og/eða hrumt eldra fólk. Fjallað verður um áhrif aðstæðna á heimili, skipulag þjónustu, samþættingu og notkun velferðartækni.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Óháð misseri
Gjörgæsluhjúkrun I (HJÚ160F)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið veitir nemendum yfirsýn yfir grunnþætti gjörgæsluhjúkrunar með áherslu á þróun þekkingarfræðilegs grunns í gjörgæsluhjúkrun. Megin atriði er að nemendur þekki meðferð sem styður útkomu gjörgæslusjúklinga. Áhersla er á hjúkrunarmeðferð klínískt flókinna sjúklinga.Verkefni sem unnin eru í námskeiðinu skulu stuðla sem mest að markvissri þekkingarþróun nemanda á eigin sérsviði og samkvæmt verkefnalýsingum námskeiðsins. 

Sérhæfð fjölskylduhjúkrun (HJÚ0ADF)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að gefa hjúkrunarfræðingum sem og öðrum fagaðilum tækifæri á að auka hæfni sína í að meta og útfæra hugmyndafræði fjölskyldumiðaðrar nálgunar. Stuðst verður m.a. við hugmyndafræði Calgary og aðrar fjölskyldukenningar sem hún byggir á. Auk þess verður áhersla lögð á að þróa klíníska færni fagaðila í að sinna einstaklingum og fjölskyldum þeirra sem fást við  ýmsa sjúkdóma, raskanir og eða áföll.  Í ljósi þess verður sérstök áhersla á, að vinna með aðlögun, tengsl, bjargráð, virkni, tilfinningar, hegðun, samskipti, færni, álag og viðhorf fjölskyldumeðlima.

Samskiptakenningar og hugmyndafræði Wright og Bell (2021) og Wright og Leahey (2023) um breytt tengsl fjölskyldumeðlima vegna langvinnra eða bráðra sjúkdóma og eða áfalla og hugmyndafræði um samvinnu við fjölskyldur á klínískum vettvangi er meðal þess efnis sem farið verður yfir.  Megin áhersla á námskeiðinu er á gagnreynda starfshætti fjölskyldumiðaðrar þjónustu og á þróun meðferðarsamræðna við fjölskyldur. Unnið er meðal annars með áhrif viðhorfs fjölskyldumeðlima, viðhorf fagaðila og samspil þeirra á milli.  Ítarleg umfjöllun verður um undirbúning og framkvæmd fjölskylduviðtala sem meðferðarform og þróun styrkleikamiðaðrar meðferðar fyrir fjölskyldur.    

Námskeiðinu er ætlað að gefa nemendum tækifæri á að þróa eigin færni í að aðstoða fjölskyldur við aðlögun og/eða takast á við alvarleg veikindi, röskun og áföll og á þann hátt að virkja og styrkja fjölskyldur í eigin eflingu. Sérstök áhersla verður lögð á einstaklingsbundna þjálfun þar sem nemendur fá persónulega leiðbeiningu um framkvæmd og aðferðir meðferðarsamræðna við fjölskyldumeðlimi.    

Námsmat er í formi einstaklingsverkefna þar sem um próflausan áfanga er að ræða er gerð krafa um 80% mætingu á námskeiðið. 

Ráðgjöf um getnaðarvarnir - lyfjaávísanir (HJÚ157F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Þar af 1 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Almenn umfjöllun er um lög og reglur varðandi lyfjaávísanir og ábyrgðarskyldu heilbrigðisstarfsmanna. Farið er í lyfjafræði hormónagetnaðarvarna út frá áhrifum þeirra á líkamann og milliverkun lyfja. Gerð er grein fyrir helstu frábendingum getnaðarvarna og hvað skuli varast við ávísun þeirra. Lögð er áhersla á heilsufarssögu og fleiri áhrifaþætti (viðhorf, þekkingu, reynslu...) er varða upplýsta ákvörðun um val á getnaðarvörnum. Fjallað er um verkun prógesteróns og estrógens á líkamann, gerður samanburður á samsettum getnaðarvörnum og prógesterón getnaðarvörnum , kostum þeirra, aukaverkunum og meðhöndlun þeirra. Veitt er kennsla um kynheilbrigði, kynlífsvanda og kynsjúkdóma.

Nemendur fá þjálfun í ráðgjöf um getnaðarvarnir þar sem að miklu leiti er byggt á klínískum tilfellum. Þeir æfa sig við að beita aðferðum sem geta skipt sköpum til að ná árangri með ráðgjöfinni og stuðlað getur að markvissri notkun getnaðarvarna. Fjallað er um mismunandi áherslur viðtala eftir sérhópum. Fram fer sýnikennsla í uppsetningu á hormónastaf og lykkju og nemendur fá tækifæri til að æfa sig í þeim handbrögðum.

ATH: Fræðilegi hluti námskeiðsins er kenndur í 5 daga lotu. Námskeiðið nær yfir fimm vikur og á þeim tíma þurfa nemendur að skila tveimur verkefnum og taka rafrænt lokapróf.
Skyldumæting í tvo umræðufundi sem og í sýnikennslu. 

Kennslutungumál: Íslenska
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Óháð misseri
Stjórnun í heilbrigðisþjónustu (HJÚ259F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemandi öðlist fræðilega og hagnýta þekkingu á viðfangsefnum stjórnunar og búa þá undir hlutverk stjórnenda í heilbrigðisþjónustu. Áhersla er lögð á hlutverk stjórnenda, mannauðsstjórnun, teymisvinnu, vinnuumhverfi, þjónustu við sjúklinga, gæði og öryggi. Leitast er við að taka fyrir hagnýt viðfangsefni heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi og í alþjóðlegu samhengi í nútíð og framtíð og þannig efla fræðilega og hagnýta hæfni nemandans.

Námskeiðið er kennt í samstarfi við University of Minnesota og er COIL námskeið (Collaborative Online International Learning) sem felur í sér sameiginlegt kennsluefni og verkefni með kennurum og nemendum í DNP námi í forystu í hjúkrun. Aðalsamstarfskennari við University of Minnesota er dr. Stephanie Gingerich, lektor við University of Minnesota.

Forysta í hjúkrun – hnattræn nálgun (HJÚ801F)
Valnámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á síðustu árum hafa orðið miklar breytingar á starfsumhverfi heilbrigðisstofnana. Hið síbreytilega starfsumhverfi gerir enn meiri kröfur til hjúkrunarfræðinga um færni í leiðtogahlutverkinu, að þeir hugsi hnattrænt ekki síður en staðbundið og tileinki sér aðferðir frumkvöðla í stjórnun og forystu.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Óháð námsári | Óháð misseri
Hugræn atferlismeðferð á tímum lífsbreytinga (HJÚ169F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Megintilgangur námskeiðsins er að kynna fræðilega undirstöðu og klínískar aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar sem gagnast einstaklingum og hópum sem standa frammi fyrir krefjandi lífsbreytingum t.d. tengt veikindum, áhættuþáttum geðheilbrigðis, streitu, þroskaverkefnum og aðstæðum. Sérstaklega verður tekið mið af kenningum Meleis o.fl. um lífsbreytingar og hugrænni atferlismeðferð samkvæmt Aaron Beck. Leitast verður við að nemendur skoði sína eigin faglegu og, eftir atvikum, persónulegu reynslu og úrvinnslu lífsbreytinga samkvæmt ofangreindri lífsbreytingakenninguLögð verður áhersla á virkni nemenda og samvinnu þar sem unnið verður ýmist með eigin reynslu, tilbúin dæmi eða skjólstæðing(a). Miðað er við að nemendur hljóti grunnþjálfun í að beita aðferðum sem byggja á hugrænni atferlismeðferð til að fást við atferli og vanlíðan s.s. streitu, kvíða og þunglyndi með stuttum og markvissum inngripum. Unnið verður sérstaklega með einstaklingshæft mat samkvæmt aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar meðal annars til að greina áhrif lífsbreytinga á einstaklinga sem og gagnreyndar aðferðir til íhlutunar. Notkun hugsanaskráa og markviss athafnavirkjun samkvæmt hugrænni atferlismeðferð verður kynnt og æfð í færnibúðum og í vinnu með skjóstæðingi/skjólstæðingum . Einnig verða ræddar aðferðir til að takast á við líkamleg einkenni vanlíðunar samkvæmt bestu þekkingu s.s. með hreyfingu, núvitund og öndunaræfingum. Kennsla fer fram í fjórum til sex lotum. Sérfræðingar á sviði hugrænnar atferlismeðferðar verða gestakennarar í námskeiðinu. 

Námsmat fer fram með einstaklingsverkefnum og gerð er krafa um 80% mætingar í námskeiðinu

Rekstur og heilbrigðisþjónusta (HJÚ142F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í fræðilega nálgun ýmissa hagrænna þátta sem hafa áhrif á starfsumhverfi í heilbrigðisþjónustu. Þessir þættir eru óumflýjanlegir í öllum rekstri stórum og smáum, hvort sem er opinber rekstur eða einkarekstur.  Í námskeiðinu er farið yfir með hvaða hætti þættirnir birtast og hvernig hægt er að hafa áhrif á þá rekstrinum til góða.  Meðal hugtaka sem farið verður yfir:

  • Framboð, eftirspurn, framleiðsluþættir, teygni
  • Breytilegur-, fastur-, beinn- og óbeinn kostnaður.
  • Áhrif skattheimtu og utanaðkomandi áhrif. Einkagæði og sameiginleg gæði.
  • Viðskipti og hlutfallslegir yfirburðir. Hringrás efnahagslífsins.
  • Framfærslukostnaður, vísitölur og þjóðhagsreikningar.
  • Fjárhagsbókhald, rekstrar- og efnahagsreikningur.
  • Rekstrarbókhald, mismunandi rekstrargreiningar.

Inngangur að sérhæfðri krabbameinshjúkrun: forvarnir, greining, meðferð og eftirfylgd (HJÚ173F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið veitir yfirsýn og dýpri skilning á hjúkrun sjúklinga með krabbamein, frá forvörnum og snemmgreiningu til meðferðar, endurhæfingar og eftirfylgdar. Fjallað er um faraldsfræði og áhættuþætti krabbameina, skimun og greiningargerli, helstu meðferðarform og áhrif sjúkdóms og meðferðar á líkamlega, andlega og félagslega heilsu sjúklinga.

Áhersla er lögð á sérhæft hlutverk hjúkrunarfræðinga í greiningar- og meðferðarferli sjúklinga, þ.m.t. klínískt mat, einkennameðferð, fræðslu, teymisvinnu og stuðning við sjúklinga og aðstandendur. Rýnt er í klínískar leiðbeiningar, nýjustu rannsóknir og gagnreynda nálgun í krabbameinshjúkrun, auk þess sem fjallað er um siðferðileg álitaefni sem tengjast greiningu, meðferð og ákvarðanatöku.

Námskeiðið leggur grunn að klínískri, fræðilegri og ígrundandi færni sem nýtist við sérhæfða hjúkrun sjúklinga með krabbamein og við þróun hjúkrunar á þessu sviði.

Hjúkrun nýrnasjúklinga I (HJÚ0BLF)
Valnámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið veitir yfirsýn og dýpri skilning á bráðum og langvinnum nýrnasjúkdómum, faraldsfræði, áhættuþáttum, fylgikvillum og meðferð, ásamt færni í líkamsmati á einkennum tengdum vanstarfsemi í nýrum. Fjallað verður um fyrirbyggingu og seinkun framgangs nýrnasjúkdóma ásamt sértækri lyfjafræði þar sem áhersla er á lyf sem hafa áhrif á starfsemi nýrna, auk greiningar á vökva- og elektrólýta jafnvægi tengd minnkraðri starfsgetu nýrna, eftirlit og meðferðir tengdar skilunarmeðferð. Jafnframt verður fjallað um sértæk næringarvandamál nýrnasjúklinga.

Námskeiðið leggur grunn að klínískri, fræðilegri og ígrundandi færni sem nýtist við sérhæfða hjúkrun sjúklinga með nýrnasjúkdóma og við þróun hjúkrunar á þessu sviði.

Kennsla byggist á blandaðri nálgun og notast við fyrirlestra, umræður, ígrundun og verkefni.

Geðlyfjafræði fyrir fagfólk í heilbrigðisvísindum (HJÚ0AFF)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið kynnir hugtök og þekkingu á sviði taugafræði og geðlyfjafræði og hvernig þau nýtast skjólstæðingum sem fá lyfjameðferð vegna geðrænna raskana. Sérstök áhersla er lögð á að nota nýjustu þekkingu innan geðlyfjafræðinnar fyrir notendur geðheilbrigðisþjónustunnar á mismunandi vettvangi.

Námskeiðið verður bæði lotu- og staðnám.

Faraldsfræði, útbreiðsla smitsjúkdóma og sóttvarnir (HJÚ162F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tilgangur námskeiðsins er að kynna hjúkrunarfræðingum fyrir faraldsfræði smitsjúkdóma og aðferðum til að meta og stemma stigu við útbreiðslu þeirra; þeim lögum og reglugerðum sem ná yfir opinberar sóttvarnarráðstafanir; og starfsemi ónæmiskerfisins í tengslum við sýkingar og virkni bóluefna.

Í námskeiðinu verður fjallað um smitsjúkdómafaraldsfræði, sögu fræðigreinarinnar og helstu hugtakaskilgreiningar. Nemendur fá kynningu á nálgun orsaka, faraldsfræðilegum rannsóknaraðferðum og þeim mæliaðferðum sem notaðar eru til að skilgreina og meta útbreiðslu smitsjúkdóma. Rætt verður um notkun tölfræði í faraldsfræði, kerfisbundna skekkjuvalda í rannsóknum og aðferðir til að koma í veg fyrir þá. Fjallað verður um tegundir faraldra, viðbrögð við hópsýkingum og vöktun á tíðni smitsjúkdóma. Þá fá nemendur einnig kynningu á sóttvarnarlögum og reglugerð um sóttvarnarráðstafanir; hlutverki opinberra stofnana eins og embætti Sóttvarnarlæknis; og samstarfi við Almannavarnir og heilbrigðisstofnanir þegar tekist er á við heilbrigðisvá. Einnig er fjallað um siðferðisleg álitamál tengt lögbundnum aðgerðum til að stemma stigu við útbreiðslu smitsjúkdóma. Að lokum fá nemendur kennslu um ræsingu ósértæka og sértæka ónæmiskerfisins í tengslum við algenga smitsjúkdóma og virkni bóluefna.

Gert er ráð fyrir því að kennsla geti farið fram bæði í fjar- og staðarnámi eftir aðstæðum nemenda, og/eða stöðu heimsfaraldurs Covid-19.

Forysta í heilbrigðisþjónustu (HJÚ258F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist fræðilega og hagnýta þekkingu á viðfangsefnum forystu og búa þá undir hlutverk leiðtoga í heilbrigðisþjónustu. Áhersla er lögð á hlutverk leiðtoga í klíník, stjórnun og kennslu. Námskeiðinu er ætlað að búa nemendur undir forystuhlutverk í starfi. Farið er í lykilþætti forystu í heilbrigðisþjónustu staðbundið og í alþjóðlegu samhengi. Fjallað verður um ýmis hugtök, kenningar og hugmyndafræði forystu almennt. Enn fremur verður fjallað um hlutverk og hegðun leiðtoga og hlutverk leiðtoga í breytingaferlinu. Áhersla er á forystuhlutverk heilbrigðisstarfsmanna innan heilbrigðisstofnana og í samfélaginu, staðbundið og í alþjóðlegu samhengi, nú og til framtíðar. Lögð er áhersla á hnattræna framtíðarsýn og frumkvæði.

Fyrirkomulag
Staðlotur og vefkennsla.

Bráðahjúkrun - mat og meðferð (HJÚ271F)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tilgangur þessa námskeiðs er að dýpka þekkingu hjúkrunarfræðinga á orsökum bráðra og alvarlegra sjúkdóma og færni í mati og meðferð mikið veikra sjúklinga. Í námskeiðinu er meðal annars fjallað um bráð vandamál tengd smitsjúkdómum, eitrunum og fjöláverkum, mat á bráðveikum, endurlífgun, öndunarbilun, bráð vandamál i miðtaugakerfi, nýrnavandamál, vökva- og elektrólýtatruflanir, sýklasótt og lost. Lögð er áhersla á að kenna nemendum mat á alvarlegu ástandi sjúklinga og fyrstu viðbrögð við því. Í þeim tilgangi verður sérstök áhersla á klínískar leiðbeiningar og verkferla, gagnreynda klíníska þekkingu, þjálfun í færni og eflingu hæfni nemenda í bráðum aðstæðum.

Breytingastjórnun (VIÐ190F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður farið yfir helstu atriði breytingastjórnunar, s.s. innleiðingu breytinga, viðbrögð starfsmanna, helstu hindranir í vegi breytinga ásamt þeim hamlandi og hvetjandi kröftum sem eru að verki í breytingaferlinu.  Farið verður ítarlega í kenningar og aðferðir sem breytingastjórnun byggir á og ræddar verða algengustu lausnir og aðferðir í stjórnun breytinga.  Rætt verður um hlutverk leiðtoga, stjórnenda almennt og millistjórnenda í breytingum sem og krísustjórnun. Fjallað verður einnig um fyrirtækjamenningu og hvers vegna hún er mikilvægur þáttur í breytingaferlinu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt í lotu II
Óháð námsári | Óháð misseri
Siðferðileg álitamál samtímans (HSP723M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Áleitin siðferðileg úrlausnarefni ofarlega á baugi í nútímasamfélagi eru meginviðfangsefni þessa námskeiðs. Sjónum er beint að möguleikum siðfræðinnar á að takast á við klemmur sem upp koma, jafnt í lífi einstaklinga sem á samfélagsgrundvelli. Val á viðfangsefnum getur breyst milli ára en meðal mögulegra viðfangsefna námskeiðsins má nefna tjáningarfrelsi, stöðu flóttafólks, réttindi dýra, fátækt og ójöfnuð, kynjamisrétti, kynþáttamisrétti, umhverfismál og ýmis álitamál úr heilbrigðiskerfinu. Farið er í tengsl fræðilegrar og hagnýttrar siðfræði. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum með ríkri áherslu á virka þátttöku nemenda í umræðum.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Óháð misseri
Stjórnsýsluréttur fyrir stjórnendur og starfsmenn opinberra stofnana (OSS204F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um íslensk stjórnvöld, íslenska stjórnsýslukerfið, reglur sem gilda um samskipti og yfirstjórn innan stjórnsýslukerfisins, um meðferð stjórnsýslumála og upplýsingarétt almennings. Aðalháerslan er á meðferð stjórnsýslumála og þýðingu stjórnsýslulaga nr. 37/1993 í því sambandi. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Óháð misseri
Mannauðsstjórnun ríkis og sveitarfélaga (OSS102F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um mannauðsstjórnun hjá hinu opinbera. Farið er yfir helstu kenningar og aðferðir mannauðsstjórnunar, þar á meðal mannauðsstefnur, ráðningar, frammistöðustjórnun, launakerfi og kjarasamninga. Jafnframt er farið yfir lög og reglur sem gilda um réttarsamband opinberra starfsmanna við vinnuveitendur, breytingar á störfum, starfslok og hlutverk stéttarfélaga. Áhersla er lögð á að tengja fræðilega þekkingu við hagnýt álitaefni og ákvörðunartöku stjórnenda og mannauðssérfræðinga hjá ríki og sveitarfélögum.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Óháð misseri
Nám fullorðinna og þróun mannauðs (NAF003F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Símenntun, endurmenntun, mannauðsþróun eru hugtök sem æ fleiri þurfa að takast á við vegna vinnu sinnar. Stjórnendur þurfa til dæmis að útbúa símenntunaráætlanir, sérfræðingar þurfa að kenna samstarfsfólki sínu, kennarar koma að foreldrastarfi eða starfsþróun samkennara sinna og svo mætti lengi telja.  Þetta námskeið er fyrir fólk sem vill dýpka skilning sinn á námi fullorðinna, til að geta betur tekið ákvarðanir um símenntun, skipulagt fræðslustarf eða unnið á annan hátt með fullorðnum sem ætla að læra. Námskeiðið gefur fræðilegan grunn undir allt fræðslustaf með fullorðnum.

Markmið
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist haldgóða þekkingu á rannsóknum og kenningum um nám fullorðinna, og geti nýtt þá þekkingu til að taka rökstuddar ákvarðanir í tengslum við skipulagningu náms fyrir fullorðna og / eða við það hjálpa fullorðnum á annan hátt til að læra, takast á við breytingaferli og þroskast.

Inntak / viðfangsefni
Til að ná þessum yfirmarkmiðum takast nemendur við þrjú aðal viðfangsefni á námskeiðinu:

  1. Greiningu á hlutverki náms og menntunar fullorðinna í ljósi þróunar samfélagsins, rannsókn á því hvernig stofnanir samfélagsins hafa brugðist við - einkum hvað varðar aðgerðir sem ætlað er að styðja við nám fullorðinna. Þátttakendur læra að nota ýmis verkfæri til þess að greina samtímann og meta mögulegar þarfir fullorðinna fyrir nám.
  2. Rannsókn á sérkennum og sérstöðu fullorðinna námsmanna. Könnun á kenningum um hið sama og greining á gagni þeirra til að skýra og skipuleggja nám fyrir fullorðna og með þeim.
  3. Þátttakendur kynna sér nokkur meginstef úr kennslufræði fullorðinna. Hugmyndir um fullorðna námsmenn, þátttöku þeirra í fræðslu, áhugahvöt og hindranir, hlutverk leiðbeinenda í fullorðinsfræðslu, mótun námsumhverfis, samskipti kennara og nemenda og fleira.

Vinnulag

Námskeiðið verður kennt á formi sem er kallað "Valvíst nám". En það þýðir að þátttakendur geta valið hvort þeir mæta í skólann, taka þátt í gegnum fjarfundabúnað í rauntíma eða hlusta á upptökur og taka virkan þátt í samvinnu þátttakenda á netinu milli reglulegra funda.

Á námskeiðinu eru tvær "vinnulotur" þar sem allir þátttakendur vinna saman í heilan dag í tengslum við efni namskeiðsins. Þátttakendur eru hvattir til að mæta í húsnæði Menntavísindasviðs í Sögu í vinnuloturnar. Þar verða teknar mikilvægar ákvarðanir um námskeiðið, þátttakendur kynnast vel og það styður við samvinnu þeirra á námskeiðinu, þá reynum við að beita aðferðum sem nýtast vel í fullorðinsfræðslu, þannig að þátttakendur upplifa ýmsar aðferðir sem þeir geta síðan nýtt við skipulagningu náms og kennslu.

Síðan hittast þeir vikulega í húsnæði skólans eða á netinu.

Á milli funda og vinnulota fer samvinnan fram á vef námskeiðsins, t.d. í gegnum skriflegar umræður á umræðuþráðum námskeiðsins.

Fyrir hverja er þetta námskeið?

Námskeiðið hentar öllum þeim sem koma – eða vilja koma – á einhvern hátt að ákvörðunum um nám fullorðinna, skipulagningu þess og útfærslu. Það hentar þannig fólki sem starfar við mannauðs- og fræðslumál innan fyrirtækja og stofnana, stjórnendur og verkefnastjóra í stofnunum sem bjóða upp á nám og námskeið fyrir fullorðna sem og sérfræðingum sem hafa áhuga á að kenna fullorðnum. Námskeiðið býður þessu fólki tækifæri að afla sér góðrar grunnþekkingar á helstu spurningum og viðfangsefnum sem snerta nám fullorðinna, forsendur, aðstæður og skipulagningu þess. Námskeiðið gefur þannig góða undirstöðu fyrir alls konar verkefni er varða nám fullorðinna almennt.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Óháð misseri
Fjölbreytileiki og inngilding (inclusion) í skipulagsheildum (VIÐ288F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið veitir nemendum tækifæri til að bera kennsl á þörfina á að þróa vinnuumhverfi sem byggir á jafnréttishugsun og inngildingu ólíkra hópa þar sem fjölbreytt framlag er velkomið. Nemendur læra að bera kennsl á félagslegt réttlæti/útilokun minnihlutahópa t.d. vegna kynþáttar, uppruna, aldurs, kyns, trúarbragða, kynhneigðar, fötlunar/færni, stéttar og annara fjölbreytileikaþátta í skipulagsheildum og nýta þekkinguna til að greina og beita aðferðum stjórnunar fjölbreytileika og  inngildingar í skipulagsheildum. Nemendur kynnast nýjum rannsóknum á sviðinu til að efla gagnrýna hugsun um viðfangsefni eins og sjálfsmynd (identity), (ó)meðvitaða hlutdrægni, samvinnu í fjölbreyttum teymum, (ó)jöfn tækifæri í skipulagsheildum og tækifærum sem felast í fjölbreytileikanum. 

Námskeiðið er kennt á ensku

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt í lotu IV

Fyrsta ár
  • Haust
  • HJÚ0BPF
    Respiratory Nursing
    Bundið valnámskeið
    7,5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið veitir ítarlega þekkingu á nýjustu rannsóknum í hjúkrun fólks með öndunarfærasjúkdóma. Fjallað er um aðferðir og íhlutanir sem styðja við sjúklinga með lungnasjúkdóma.

    Þetta er samnorrænt námskeið og hægt að finna frekari upplýsingar um námskeiðið hér: https://www.miun.se/en/utbildning/kompetensutveckling/utveckla-dina-medarbetare/vard-och-omsorg/graduate-course-in-respiratory-nursing/

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HJÚ140F
    Fræðileg aðferð
    Bundið valnámskeið
    2
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur nái tökum á fræðilegum vinnubrögðum á þann hátt að þeir geti hagnýtt fyrirliggjandi fræðilega þekkingu í hjúkrun. Athyglin beinist að aðferðum við öflun heimilda í gagnasöfnum og mati á þeim. Fjallað er um gagnreynda starfshætti, s.s. notkun klínískra leiðbeininga og verklagsreglna. Áhersla er lögð á að þjálfa aðferðir við leitir og mat á fræðilegu efni ásamt textavinnslu.

    Námskeiðið er haldið í upphafi kennslumisseris.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HJÚ159F
    Lyfjafræði fyrir hjúkrunarfræðinga
    Skyldunámskeið
    6

  • Vor
  • HJÚ0AQF
    Klínísk lífeðlis- og meinafræði

  • HJÚ263F
    Líknarmeðferð

  • Ekki kennt á misserinu
    HJÚ0BKF
    Mat og hjúkrunarmeðferð lungnasjúklinga

  • HJÚ0BGF
    Stuðningur við fullorðna í samfélaginu
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði er áhersla á uppbyggingu þekkingar og færni á faglegu mati og viðbrögðum aðstæðna hjá eldra fólki í samfélaginu. Nemendur nýta þessa þekkingu við útfærslu á stuðningi og umönnun þeirra sem búa við heilsubrest og/eða færniskerðingu vegna langvinnra veikinda eða öldrunarbreytinga. Unnið verður með útfærslu á hagnýtingu gagnreyndrar þekkingar sem finna má í klínískum leiðbeiningum og fræðilegum samantektum. Nemendur fá þjálfun í að hanna stuðningsleiðir við ólíkar aðstæður í þjónustu; t.d. á göngudeildum, í heilsugæslu og í heimaþjónustu með áherslu á fólk með langvinnan heilsuvanda og/eða hrumt eldra fólk. Fjallað verður um áhrif aðstæðna á heimili, skipulag þjónustu, samþættingu og notkun velferðartækni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Óháð misseri
  • Ekki kennt á misserinu
    HJÚ160F
    Gjörgæsluhjúkrun I
    Valnámskeið
    8

  • HJÚ0ADF
    Sérhæfð fjölskylduhjúkrun

  • HJÚ157F
    Ráðgjöf um getnaðarvarnir - lyfjaávísanir

  • HJÚ259F
    Stjórnun í heilbrigðisþjónustu

  • HJÚ801F
    Forysta í hjúkrun – hnattræn nálgun
    Valnámskeið
    3

  • HJÚ169F
    Hugræn atferlismeðferð á tímum lífsbreytinga

  • HJÚ142F
    Rekstur og heilbrigðisþjónusta

  • HJÚ173F
    Inngangur að sérhæfðri krabbameinshjúkrun: forvarnir, greining, meðferð og eftirfylgd

  • HJÚ0BLF
    Hjúkrun nýrnasjúklinga I
    Valnámskeið
    4

  • HJÚ0AFF
    Geðlyfjafræði fyrir fagfólk í heilbrigðisvísindum

    HJÚ162F
    Faraldsfræði, útbreiðsla smitsjúkdóma og sóttvarnir

    HJÚ258F
    Forysta í heilbrigðisþjónustu

    HJÚ271F
    Bráðahjúkrun - mat og meðferð

Annað ár

Óháð námsári

    Fræðileg aðferð hide

    Rekstur og heilbrigðisþjónusta hide

    Stjórnun í heilbrigðisþjónustu hide

    Forysta í heilbrigðisþjónustu hide

    Stuðningur við fullorðna í samfélaginu hide

    VIÐ190F
    Breytingastjórnun hide
    Bundið valnámskeið
    7,5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður farið yfir helstu atriði breytingastjórnunar, s.s. innleiðingu breytinga, viðbrögð starfsmanna, helstu hindranir í vegi breytinga ásamt þeim hamlandi og hvetjandi kröftum sem eru að verki í breytingaferlinu.  Farið verður ítarlega í kenningar og aðferðir sem breytingastjórnun byggir á og ræddar verða algengustu lausnir og aðferðir í stjórnun breytinga.  Rætt verður um hlutverk leiðtoga, stjórnenda almennt og millistjórnenda í breytingum sem og krísustjórnun. Fjallað verður einnig um fyrirtækjamenningu og hvers vegna hún er mikilvægur þáttur í breytingaferlinu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu II
  • HSP723M
    Siðferðileg álitamál samtímans hide
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Áleitin siðferðileg úrlausnarefni ofarlega á baugi í nútímasamfélagi eru meginviðfangsefni þessa námskeiðs. Sjónum er beint að möguleikum siðfræðinnar á að takast á við klemmur sem upp koma, jafnt í lífi einstaklinga sem á samfélagsgrundvelli. Val á viðfangsefnum getur breyst milli ára en meðal mögulegra viðfangsefna námskeiðsins má nefna tjáningarfrelsi, stöðu flóttafólks, réttindi dýra, fátækt og ójöfnuð, kynjamisrétti, kynþáttamisrétti, umhverfismál og ýmis álitamál úr heilbrigðiskerfinu. Farið er í tengsl fræðilegrar og hagnýttrar siðfræði. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum með ríkri áherslu á virka þátttöku nemenda í umræðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • OSS204F
    Stjórnsýsluréttur fyrir stjórnendur og starfsmenn opinberra stofnana hide
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um íslensk stjórnvöld, íslenska stjórnsýslukerfið, reglur sem gilda um samskipti og yfirstjórn innan stjórnsýslukerfisins, um meðferð stjórnsýslumála og upplýsingarétt almennings. Aðalháerslan er á meðferð stjórnsýslumála og þýðingu stjórnsýslulaga nr. 37/1993 í því sambandi. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • OSS102F
    Mannauðsstjórnun ríkis og sveitarfélaga hide
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um mannauðsstjórnun hjá hinu opinbera. Farið er yfir helstu kenningar og aðferðir mannauðsstjórnunar, þar á meðal mannauðsstefnur, ráðningar, frammistöðustjórnun, launakerfi og kjarasamninga. Jafnframt er farið yfir lög og reglur sem gilda um réttarsamband opinberra starfsmanna við vinnuveitendur, breytingar á störfum, starfslok og hlutverk stéttarfélaga. Áhersla er lögð á að tengja fræðilega þekkingu við hagnýt álitaefni og ákvörðunartöku stjórnenda og mannauðssérfræðinga hjá ríki og sveitarfélögum.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • NAF003F
    Nám fullorðinna og þróun mannauðs hide
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Símenntun, endurmenntun, mannauðsþróun eru hugtök sem æ fleiri þurfa að takast á við vegna vinnu sinnar. Stjórnendur þurfa til dæmis að útbúa símenntunaráætlanir, sérfræðingar þurfa að kenna samstarfsfólki sínu, kennarar koma að foreldrastarfi eða starfsþróun samkennara sinna og svo mætti lengi telja.  Þetta námskeið er fyrir fólk sem vill dýpka skilning sinn á námi fullorðinna, til að geta betur tekið ákvarðanir um símenntun, skipulagt fræðslustarf eða unnið á annan hátt með fullorðnum sem ætla að læra. Námskeiðið gefur fræðilegan grunn undir allt fræðslustaf með fullorðnum.

    Markmið
    Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist haldgóða þekkingu á rannsóknum og kenningum um nám fullorðinna, og geti nýtt þá þekkingu til að taka rökstuddar ákvarðanir í tengslum við skipulagningu náms fyrir fullorðna og / eða við það hjálpa fullorðnum á annan hátt til að læra, takast á við breytingaferli og þroskast.

    Inntak / viðfangsefni
    Til að ná þessum yfirmarkmiðum takast nemendur við þrjú aðal viðfangsefni á námskeiðinu:

    1. Greiningu á hlutverki náms og menntunar fullorðinna í ljósi þróunar samfélagsins, rannsókn á því hvernig stofnanir samfélagsins hafa brugðist við - einkum hvað varðar aðgerðir sem ætlað er að styðja við nám fullorðinna. Þátttakendur læra að nota ýmis verkfæri til þess að greina samtímann og meta mögulegar þarfir fullorðinna fyrir nám.
    2. Rannsókn á sérkennum og sérstöðu fullorðinna námsmanna. Könnun á kenningum um hið sama og greining á gagni þeirra til að skýra og skipuleggja nám fyrir fullorðna og með þeim.
    3. Þátttakendur kynna sér nokkur meginstef úr kennslufræði fullorðinna. Hugmyndir um fullorðna námsmenn, þátttöku þeirra í fræðslu, áhugahvöt og hindranir, hlutverk leiðbeinenda í fullorðinsfræðslu, mótun námsumhverfis, samskipti kennara og nemenda og fleira.

    Vinnulag

    Námskeiðið verður kennt á formi sem er kallað "Valvíst nám". En það þýðir að þátttakendur geta valið hvort þeir mæta í skólann, taka þátt í gegnum fjarfundabúnað í rauntíma eða hlusta á upptökur og taka virkan þátt í samvinnu þátttakenda á netinu milli reglulegra funda.

    Á námskeiðinu eru tvær "vinnulotur" þar sem allir þátttakendur vinna saman í heilan dag í tengslum við efni namskeiðsins. Þátttakendur eru hvattir til að mæta í húsnæði Menntavísindasviðs í Sögu í vinnuloturnar. Þar verða teknar mikilvægar ákvarðanir um námskeiðið, þátttakendur kynnast vel og það styður við samvinnu þeirra á námskeiðinu, þá reynum við að beita aðferðum sem nýtast vel í fullorðinsfræðslu, þannig að þátttakendur upplifa ýmsar aðferðir sem þeir geta síðan nýtt við skipulagningu náms og kennslu.

    Síðan hittast þeir vikulega í húsnæði skólans eða á netinu.

    Á milli funda og vinnulota fer samvinnan fram á vef námskeiðsins, t.d. í gegnum skriflegar umræður á umræðuþráðum námskeiðsins.

    Fyrir hverja er þetta námskeið?

    Námskeiðið hentar öllum þeim sem koma – eða vilja koma – á einhvern hátt að ákvörðunum um nám fullorðinna, skipulagningu þess og útfærslu. Það hentar þannig fólki sem starfar við mannauðs- og fræðslumál innan fyrirtækja og stofnana, stjórnendur og verkefnastjóra í stofnunum sem bjóða upp á nám og námskeið fyrir fullorðna sem og sérfræðingum sem hafa áhuga á að kenna fullorðnum. Námskeiðið býður þessu fólki tækifæri að afla sér góðrar grunnþekkingar á helstu spurningum og viðfangsefnum sem snerta nám fullorðinna, forsendur, aðstæður og skipulagningu þess. Námskeiðið gefur þannig góða undirstöðu fyrir alls konar verkefni er varða nám fullorðinna almennt.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    VIÐ288F
    Fjölbreytileiki og inngilding (inclusion) í skipulagsheildum hide
    Bundið valnámskeið
    7,5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið veitir nemendum tækifæri til að bera kennsl á þörfina á að þróa vinnuumhverfi sem byggir á jafnréttishugsun og inngildingu ólíkra hópa þar sem fjölbreytt framlag er velkomið. Nemendur læra að bera kennsl á félagslegt réttlæti/útilokun minnihlutahópa t.d. vegna kynþáttar, uppruna, aldurs, kyns, trúarbragða, kynhneigðar, fötlunar/færni, stéttar og annara fjölbreytileikaþátta í skipulagsheildum og nýta þekkinguna til að greina og beita aðferðum stjórnunar fjölbreytileika og  inngildingar í skipulagsheildum. Nemendur kynnast nýjum rannsóknum á sviðinu til að efla gagnrýna hugsun um viðfangsefni eins og sjálfsmynd (identity), (ó)meðvitaða hlutdrægni, samvinnu í fjölbreyttum teymum, (ó)jöfn tækifæri í skipulagsheildum og tækifærum sem felast í fjölbreytileikanum. 

    Námskeiðið er kennt á ensku

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu IV
  • Ekki kennt á misserinu
    HJÚ160F
    Gjörgæsluhjúkrun I hide

    Klínísk lífeðlis- og meinafræði hide

    Mat og hjúkrunarmeðferð lungnasjúklinga hide

    Sérhæfð fjölskylduhjúkrun hide

    Ráðgjöf um getnaðarvarnir - lyfjaávísanir hide

    Forysta í hjúkrun – hnattræn nálgun hide

    Hugræn atferlismeðferð á tímum lífsbreytinga hide

    Lyfjafræði fyrir hjúkrunarfræðinga hide

    Inngangur að sérhæfðri krabbameinshjúkrun: forvarnir, greining, meðferð og eftirfylgd hide

    Hjúkrun nýrnasjúklinga I hide

    Geðlyfjafræði fyrir fagfólk í heilbrigðisvísindum hide

    Faraldsfræði, útbreiðsla smitsjúkdóma og sóttvarnir hide

    Líknarmeðferð hide

    Bráðahjúkrun - mat og meðferð hide

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Hjúkrunarfræðingar eru eftirsóttir starfskraftar um allan heim. Fjölbreytileiki starfsins er mikill og sérhæfing nýtist víða.

Fólk þessa menntun starfar auk hjúkrunar meðal annars við:

  • Rannsóknir
  • Innleiðingu nýjunga í hjúkrun
  • Breytingastjórnun
  • Öryggi í heilbrigðisþjónustu
  • Verkefnastjórnun
  • Gagnavinnslu og upplýsingatækni
  • Kennslu

Listinn er ekki tæmandi

Nemendafélagið Curator heldur uppi frábæru félagslífi við Hjúkrunar-og ljósmóðurfræðideild. Markmið Curator er að stuðla að skemmtun, samheldni og góðum anda í deildinni.

Félagið stendur meðal annars fyrir nýnemadegi, vísindaferðum, óvissuferð og fleira.

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Sólveigu Gylfadóttur
Mig langaði alltaf í meira nám en var óviss hvað myndi henta miðað við mitt áhugasvið. Ég hef alltaf haft áhuga á sýkingavörnum og smitsjúkdómahjúkrun og þvílíka gleðin þegar ég vissi að þessi nýja diplóma væri að byrja við Háskóla Íslands. Ég er að útskrifast núna um áramótin og gæti ekki verið ánægðari með námið. Ótrúlega gaman að kafa dýpra í áhugasviðið sitt og reyna að bæta þjónustu á sviði sýkingavarna og smitsjúkdómahjúkrunar.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild
Virka daga 9:00 - 15:00
Almenn þjónusta

Við bendum á þjónustumiðju HÍ fyrir allar almennar fyrirspurnir. Einnig er hægt að mæta á Þjónustuborðið á Háskólatorgi eða nota spjallmenni HÍ hér neðst til hægri á síðunni.

Eirberg

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil