""
Tungumál kennslu
Sænska
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið Fjarnámsleið Netnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á sænsku tungumáli?
  • Hefur þú gaman af sænskri menningu?
  • Langar þig að starfa við menningarstarfsemi?
  • Viltu efla þig í norrænu tungumáli?
  • Býrð þú yfir einhverri færni í sænskri ritun og talmáli sem þú vilt styrkja?

Sænska grunndiplóma er hagnýtt eins árs nám með áherslu á að nemendur nái hratt og örugglega valdi á sænsku, öðlist lesskilning, byggi upp orðaforða og þjálfist í töluðu máli.

Meginmarkmiðið með náminu er að þú náir góðum tökum á sænsku máli í ræðu og riti, öðlist fræðilega þekkingu á sænskri tungu og sænsku þjóðlífi ásamt þekkingu á bókmenntum og menningu Svía.

Kennd eru akademísk vinnubrögð og þú færð fræðilega undirstöðu til að takast á við frekara nám. Námsleiðin er kennd í fjarnámi, netnámi. Netnám gerir þér kleift að horfa á fyrirlestra utan hefðbundins skólatíma. 

Meðal viðfangsefna

  • Sænsk málfræði
  • Sænsk málnotkun
  • Hljóðfræði og sænskur framburður
  • Orðaforði og orðamyndun
  • Þýðingar

Annað

  • Þau sem hafa áhuga á því að ljúka BA prófi geta tekið sænsku sem 60 eininga aukagrein, með 120 eininga aðalgrein í öðru fagi, samtals 180 einingar.

Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf frá erlendum skóla. 

Nemendur skulu hafa lokið að minnsta kosti 10 einingum í sænsku, dönsku eða norsku á framhaldsskólastigi eða hafi undirbúning sem samsvarar B2 í evrópska viðmiðunarrammanum fyrir tungumál.

Nemendur verða að ljúka öllum skyldunámskeiðunum tilgreindum á kennsluskrá til að ljúka grunndiplómu.

Eftirtalin námskeið eru skyldunámskeið: 
- SÆN101G Sænsk málnotkun I
- SÆN102G Sænskar bókmenntir eftir 1980
- SÆN105G Ingmar Bergman - uppreisn gegn föðurímynd
- SÆN106G Sænsk málfræði I
- SÆN111G Orðaforði og orðmyndun
- SÆN112G Hagnýt sænska
- SÆN109G Svíþjóð í tónum - frá Gamla Nóa til ABBA
- SÆN201G Sænsk málnotkun II
- SÆN203G Félagsleg málvísindi og sænskar mállýskur
- SÆN205G Þýðingar (sænska)
- SÆN206G Sænsk málfræði II
- SÆN211G Sænsk málsaga í 13 textum

60 ECTS er samkvæmt skilgreiningu fullt nám í eitt ár og því tekur námið eitt ár miðað við fullan námshraða. Nemandi má ljúka diplóma í sænskum fræðum á tveimur árum. Ef ekki tekst að ljúka náminu á tveimur árum má sækja um undanþágu frá tímamörkum til námsbrautar. Námsbraut getur veitt undanþágu með skilyrðum.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Óháð námsári | Haust
Sænsk málnotkun I (SÆN101G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lögð verður áhersla á talað mál, orðaforða, ásamt færni í að tala eðlilega og fjölbreytta sænsku. Markmiðið er að nemendur nái góðum tökum á að nota sænsku til tjáskipta. Lestur, talmál, munnlegar æfingar í nútímasænsku. Ætlast er til að nemendur hafi a.m.k. grunnþekkingu í sænsku fyrir. Nemendur í fjarnámi gera æfingar skriflega eða taka upp myndbönd eða hljóðskrár þar sem þeir svara spurningum vikunnar.

Lokaprófið er munnlegt fyrir alla og þá á Teams fyrir þá sem komast ekki á staðinn.

Kennslutungumál: Sænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Haust
Sænskar bókmenntir frá sósíalrealisma til okkar daga (SÆN102G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er inngangur að sænskum bókmenntum frá uppgangsárum verkamannabókmennta í Svíþjóð um 1930 til okkar daga.

Í hverri viku fá nemendur s.k. námsbréf þar sem ákveðnar stefnur úr bókmenntasögu Svía eru teknar fyrir, eins og glæpasögur, póstmódernismi og barnabókmenntir. Þá fylgja þessum námsbréfum spurningar sem eru æfingar fyrir lokaprófið.

Námskeiðið byrjar á rithöfundum sem byrjuðu að vera virkir fyrir og eftir lok seinni heimstyrjaldar eins og Ivar Lo-Johansson, Moa Martinson, Astrid Lindgren, og Nóbelsverðlaunahöfundinum Tomas Tranströmmer. Þaðan verður meðal annars farið í samfélagsgagnrýni sjöunda áratugarins, póstmódernisma níunda áratugarins og skáldaðar ævisögur okkar daga.

Miðannarverkefnið er munnleg kynning á smásögu sem nemendur lesa í verkefnavikunni.

Lokaprófið er skriflegt og fer þannig fram að nemendur fá fjórar spurningar og velja þrjár þeirra að skrifa um. Nemendur eiga að fara yfir texta og setja þá í samhengi, til dæmis með því að velja hvaða stefnur þeir tilheyra og fjalla um stílinn í textabrotunum.

Kennslutungumál: Sænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Haust
Stiklur um sænskt samfélag (SÆN105G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið býður upp á yfirlit yfir lykilatburði og áhrifamikla einstaklinga í sænsku samfélagi og sýnir hvernig þeir hafa mótað menningarlega og stjórnmálalega sjálfsmynd sænsku þjóðarinnar. Námskeiðið veitir innsýn í sænska siðferði og lífshætti, allt frá angurværu aðdráttarafli leikkonunnar Gretu Garbo til hinnar dýrmætu fika hefðar og djúpstæðra áhrifa morðsins á forsætisráðherranum Olof Palme árið 1986.

Kennslutungumál: Sænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Haust
Sænsk málfræði I (SÆN106G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið yfir grundvallaratriði í sænskri málfræði. Í námskeiðinu er áherslan lögð á beygingarfræði. Fjallað verður um orðflokkana og gefið yfirlit yfir uppbyggingu og beygingu orða. Veittur verður fræðilegur grunnur ásamt því að nemendur geri skriflegar æfingar.

Kennslutungumál: Sænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Haust
Orðaforði og orðmyndun (SÆN111G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að auka orðaforða nemenda. Námskeiðið skiptist í merkingarfræðihluta og orðmyndunarhluta. Fjallað verður um fyrirbrigði eins og merkingu, samhljóða orð, samheiti og skammstafanir. Í seinni hluta námskeiðsins verður sjónum beint að orðmyndun, nýyrðum og tökuorðum.

Kennslutungumál: Sænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Haust
Hagnýt sænska (SÆN112G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er fyrir nemendur sem óska eftir grunnþekkingu í sænsku máli sem er hægt að nota á hagnýtan hátt annað hvort í námi eða starfi í Svíþjóð. Námið inniheldur vikulegar æfingar í Canvas í skriflegu formi en einnig æfingar sem gerðar eru í tíma eða heima þar sem nemendur fá að æfa framburð og tjáningu á sænsku. Nemendur læra helstu orð og frasa sem notuð eru í daglegu tali og fá einnig að æfa hagnýta málfræði þar sem áherslan er á notkun en ekki fræði.

Kennslutungumál: Sænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Svíþjóð í tónum - frá Gamla Nóa til ABBA (SÆN109G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er kynning á sænskri tónlist með sérstakri áherslu á tónlist sem slegið hefur í gegn á heimsvísu, en einnig verður farið yfir sænska tónlistarsögu og sænska vísnahefð. Fjallað verður sérstaklega um ABBA og áhrif þessarar hljómsveitar, nútímapopptónlist og tónlist í samfélagslegu samhengi. Nemendur eru hvattir til að hlusta á sænska tónlist og mynda sína eigin skoðun um hana sem og að greina hana.

Kennslutungumál: Sænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Vor
Sænsk málnotkun II (SÆN201G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lögð verður áhersla á talað mál og ritað mál. Markmiðið er að nemendur nái góðum tökum á að nota sænsku til tjáskipta. Talað og ritað mál, munnlegar og skriflegar æfingar í nútímasænsku.

Kennslutungumál: Sænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Vor
Félagsleg málvísindi og sænskar mállýskur (SÆN203G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðisins er að kynna nemendum helstu viðfangsefni í félagslegum málvísindum. Meðal annars verður fjallað um kyn-, aldurs- og svæðisbundna málnotkun, innflytjendamál og áhrif þeirra á sænskuna, samtalsgreiningu og áhrif viðhorfa málnotenda á tungumálið. 

Kennslutungumál: Sænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Vor
Þýðingar (sænska) (SÆN205G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu fást nemendur einkum við að þýða texta úr sænsku og á móðurmál sitt.

Skoðaðir verða ýmsar gerðir texta, bæði fagtextar og bókmenntatextar. Textarnir eru fengnir úr bókum, dagblöðum, bæklingum og af vefsíðum stofnana. Þýðingar á fagurbókmenntum verða teknar til sérstakrar athugunar. Nemendur þýða stutta texta og rædd verða þýðingavandamál sem upp koma eins og orðasambönd og menningarbundin atriði og hugað að mismunandi lausnum á þeim. Grunnatriði í þýðingarfræðum verða kynnt og nemendur kynna sér ritgerðir sem fjalla um rannsóknir á þýðingum.

Kennslutungumál: Sænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Vor
Sænsk málfræði II (SÆN206G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Sænsk málfræði II er framhald af Sænskri málfræði I en ekki er þó nauðsynlegt að hafa lokið því námskeiði. Fjallað verður um sænska beygingarfræði, sérstaklega fallorð og sagnorð. Kynnt verða hugtök á borð við persónuhætti og fallhætti og agnarsagnir. Innan setningafræði verður fjallað um setningar, setningarliði og greiningu á setningarhlutum. Einnig verður rætt um orðaröð og upplýsingaflæði.

Kennslutungumál: Sænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Vor
Sænskar bókmenntir frá Víkingaöld til módernisma (SÆN211G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er inngangur að sænskum bókmenntum frá rúnum á Víkingaöld til gullaldar sænsks módernisma. Í hverri viku fá nemendur stutta texta úr mikilvægum ritum og bókum í sænskri málsögu og svara síðan spurningum um þessa texta. Spurningarnar undirbúa nemendur fyrir lokaprófið.

Námskeiðið byrjar á rúnasteininum Rökstenen frá um 800 og svo verður farið fram í tímann vikulega. Þá verða tekin fyrir atriði eins og málfræði, stafsetning, orðmyndun og menningarlegt innihald. Í lok námskeiðsins fá nemendur að kynnast frægum rithöfundum eins og August Strindberg, Selma Lagerlöf og Hjalmar Söderberg.

Munnlegt miðannarverkefni virkar þannig að nemendur búa til stutta kynningu um efni sem kennarinn lætur þá fá í verkefnavikunni. Nemendur geta flutt kynninguna í tíma eða í gegnum myndband ef þeir vinna í fjarnámi eða netnámi.

Lokaprófið er skriflegt og fer þannig fram að nemendur fá fjórar spurningar og velja þrjár þeirra að skrifa um. Spurningarnar geta verið um forna málfræði, um rithöfunda og líf þeirra, og um innihald ákveðinna verka.

Kennslutungumál: Sænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári
  • Haust
  • SÆN101G
    Sænsk málnotkun I
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lögð verður áhersla á talað mál, orðaforða, ásamt færni í að tala eðlilega og fjölbreytta sænsku. Markmiðið er að nemendur nái góðum tökum á að nota sænsku til tjáskipta. Lestur, talmál, munnlegar æfingar í nútímasænsku. Ætlast er til að nemendur hafi a.m.k. grunnþekkingu í sænsku fyrir. Nemendur í fjarnámi gera æfingar skriflega eða taka upp myndbönd eða hljóðskrár þar sem þeir svara spurningum vikunnar.

    Lokaprófið er munnlegt fyrir alla og þá á Teams fyrir þá sem komast ekki á staðinn.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SÆN102G
    Sænskar bókmenntir frá sósíalrealisma til okkar daga
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er inngangur að sænskum bókmenntum frá uppgangsárum verkamannabókmennta í Svíþjóð um 1930 til okkar daga.

    Í hverri viku fá nemendur s.k. námsbréf þar sem ákveðnar stefnur úr bókmenntasögu Svía eru teknar fyrir, eins og glæpasögur, póstmódernismi og barnabókmenntir. Þá fylgja þessum námsbréfum spurningar sem eru æfingar fyrir lokaprófið.

    Námskeiðið byrjar á rithöfundum sem byrjuðu að vera virkir fyrir og eftir lok seinni heimstyrjaldar eins og Ivar Lo-Johansson, Moa Martinson, Astrid Lindgren, og Nóbelsverðlaunahöfundinum Tomas Tranströmmer. Þaðan verður meðal annars farið í samfélagsgagnrýni sjöunda áratugarins, póstmódernisma níunda áratugarins og skáldaðar ævisögur okkar daga.

    Miðannarverkefnið er munnleg kynning á smásögu sem nemendur lesa í verkefnavikunni.

    Lokaprófið er skriflegt og fer þannig fram að nemendur fá fjórar spurningar og velja þrjár þeirra að skrifa um. Nemendur eiga að fara yfir texta og setja þá í samhengi, til dæmis með því að velja hvaða stefnur þeir tilheyra og fjalla um stílinn í textabrotunum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SÆN105G
    Stiklur um sænskt samfélag
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið býður upp á yfirlit yfir lykilatburði og áhrifamikla einstaklinga í sænsku samfélagi og sýnir hvernig þeir hafa mótað menningarlega og stjórnmálalega sjálfsmynd sænsku þjóðarinnar. Námskeiðið veitir innsýn í sænska siðferði og lífshætti, allt frá angurværu aðdráttarafli leikkonunnar Gretu Garbo til hinnar dýrmætu fika hefðar og djúpstæðra áhrifa morðsins á forsætisráðherranum Olof Palme árið 1986.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SÆN106G
    Sænsk málfræði I
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið yfir grundvallaratriði í sænskri málfræði. Í námskeiðinu er áherslan lögð á beygingarfræði. Fjallað verður um orðflokkana og gefið yfirlit yfir uppbyggingu og beygingu orða. Veittur verður fræðilegur grunnur ásamt því að nemendur geri skriflegar æfingar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SÆN111G
    Orðaforði og orðmyndun
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að auka orðaforða nemenda. Námskeiðið skiptist í merkingarfræðihluta og orðmyndunarhluta. Fjallað verður um fyrirbrigði eins og merkingu, samhljóða orð, samheiti og skammstafanir. Í seinni hluta námskeiðsins verður sjónum beint að orðmyndun, nýyrðum og tökuorðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SÆN112G
    Hagnýt sænska
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er fyrir nemendur sem óska eftir grunnþekkingu í sænsku máli sem er hægt að nota á hagnýtan hátt annað hvort í námi eða starfi í Svíþjóð. Námið inniheldur vikulegar æfingar í Canvas í skriflegu formi en einnig æfingar sem gerðar eru í tíma eða heima þar sem nemendur fá að æfa framburð og tjáningu á sænsku. Nemendur læra helstu orð og frasa sem notuð eru í daglegu tali og fá einnig að æfa hagnýta málfræði þar sem áherslan er á notkun en ekki fræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • SÆN109G
    Svíþjóð í tónum - frá Gamla Nóa til ABBA
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er kynning á sænskri tónlist með sérstakri áherslu á tónlist sem slegið hefur í gegn á heimsvísu, en einnig verður farið yfir sænska tónlistarsögu og sænska vísnahefð. Fjallað verður sérstaklega um ABBA og áhrif þessarar hljómsveitar, nútímapopptónlist og tónlist í samfélagslegu samhengi. Nemendur eru hvattir til að hlusta á sænska tónlist og mynda sína eigin skoðun um hana sem og að greina hana.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SÆN201G
    Sænsk málnotkun II
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lögð verður áhersla á talað mál og ritað mál. Markmiðið er að nemendur nái góðum tökum á að nota sænsku til tjáskipta. Talað og ritað mál, munnlegar og skriflegar æfingar í nútímasænsku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SÆN203G
    Félagsleg málvísindi og sænskar mállýskur
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðisins er að kynna nemendum helstu viðfangsefni í félagslegum málvísindum. Meðal annars verður fjallað um kyn-, aldurs- og svæðisbundna málnotkun, innflytjendamál og áhrif þeirra á sænskuna, samtalsgreiningu og áhrif viðhorfa málnotenda á tungumálið. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SÆN205G
    Þýðingar (sænska)
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu fást nemendur einkum við að þýða texta úr sænsku og á móðurmál sitt.

    Skoðaðir verða ýmsar gerðir texta, bæði fagtextar og bókmenntatextar. Textarnir eru fengnir úr bókum, dagblöðum, bæklingum og af vefsíðum stofnana. Þýðingar á fagurbókmenntum verða teknar til sérstakrar athugunar. Nemendur þýða stutta texta og rædd verða þýðingavandamál sem upp koma eins og orðasambönd og menningarbundin atriði og hugað að mismunandi lausnum á þeim. Grunnatriði í þýðingarfræðum verða kynnt og nemendur kynna sér ritgerðir sem fjalla um rannsóknir á þýðingum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SÆN206G
    Sænsk málfræði II
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Sænsk málfræði II er framhald af Sænskri málfræði I en ekki er þó nauðsynlegt að hafa lokið því námskeiði. Fjallað verður um sænska beygingarfræði, sérstaklega fallorð og sagnorð. Kynnt verða hugtök á borð við persónuhætti og fallhætti og agnarsagnir. Innan setningafræði verður fjallað um setningar, setningarliði og greiningu á setningarhlutum. Einnig verður rætt um orðaröð og upplýsingaflæði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SÆN211G
    Sænskar bókmenntir frá Víkingaöld til módernisma
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er inngangur að sænskum bókmenntum frá rúnum á Víkingaöld til gullaldar sænsks módernisma. Í hverri viku fá nemendur stutta texta úr mikilvægum ritum og bókum í sænskri málsögu og svara síðan spurningum um þessa texta. Spurningarnar undirbúa nemendur fyrir lokaprófið.

    Námskeiðið byrjar á rúnasteininum Rökstenen frá um 800 og svo verður farið fram í tímann vikulega. Þá verða tekin fyrir atriði eins og málfræði, stafsetning, orðmyndun og menningarlegt innihald. Í lok námskeiðsins fá nemendur að kynnast frægum rithöfundum eins og August Strindberg, Selma Lagerlöf og Hjalmar Söderberg.

    Munnlegt miðannarverkefni virkar þannig að nemendur búa til stutta kynningu um efni sem kennarinn lætur þá fá í verkefnavikunni. Nemendur geta flutt kynninguna í tíma eða í gegnum myndband ef þeir vinna í fjarnámi eða netnámi.

    Lokaprófið er skriflegt og fer þannig fram að nemendur fá fjórar spurningar og velja þrjár þeirra að skrifa um. Spurningarnar geta verið um forna málfræði, um rithöfunda og líf þeirra, og um innihald ákveðinna verka.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Diplóman nýtist þeim vel sem hyggja á frekara háskólanám erlendis. Námið veitir ekki starfsréttindi en nýtist vel í mörgum störfum.

Fólk með góða þekkingu í sænsku starfar meðal annars starfað við:

  • Ferðaþjónustu
  • Markaðsmál
  • Inn- og útflutningsfyrirtæki
  • Þýðingar og túlkun

Listinn er ekki tæmandi.

  • Linguae er félag tungumálanema við Háskóla Íslands.
  • Markmið félagsins er að efla félagslíf nemenda innan Mála- og menningardeildar.
  • Enn sem komið er samanstendur það af ítölsku-, frönsku-, þýsku-, spænsku-, dönsku-, kínversku- og rússneskunemum.
  • Nemendafélagið heldur úti Facebook-síðu.

Meira um félagslíf stúdenta í Hí

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Ásdísi Ingólfsdóttur
Þegar ég hóf nám í ritlist við Háskóla Íslands gat ég valið námskeið í sænskudeildinni. Til að byrja með valdi ég sænskar bókmenntir og þýðingar úr sænsku en fleira vakti áhuga minn. Þannig að þegar ég kláraði ritlistina ákvað ég að halda áfram í sænskunni og klára diplóma-próf. Bæði fann ég hvað það bætti sænskuna mína og styrkti kunnáttu mína í málfræði, auk þess var fjöldi áhugaverðra námskeiða sem mig langaði til að taka meðal annars um sænska tónlist og kvikmyndir. Kennararnir eru áhugasamir og metnaðarfullir. Hóparnir litlir og möguleiki er að taka námskeið í fjarnámi sem hentaði mér vel. Með því að ljúka prófi í sænsku aukast möguleikar mínir á að fá verkefni í þýðingum og kennslu sem ég hef að aðalstarfi.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil