fólk og hestar
Tungumál kennslu
Íslenska
Lengd náms
Þrjú ár - 180 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Sérðu fyrir þér að starfa í hestamennsku, til dæmis við þjálfun, kennslu eða rekstur?
  • Hefurðu áhuga á að vinna daglega með hestum?
  • Langar þig að þróa hæfni þína í reiðmennsku, tamningum eða kennslu?
  • Líkar þér betur við verklegt nám og útivinnu en skrifstofuvinnu?

Námið er metið til samtals 180 ECTS, eða sem samsvarar fullu námi í þrjú skólaár. Til viðbótar við að hafa lokið stúdentsprófi þurfa nemendur að standast inntökupróf í reiðmennsku áður en þeir geta hafið BS námið.

Meginmarkmið námsins er að veita nemendum fræðilega og hagnýta þekkingu og verklega færni í tamningum, þjálfun, reiðmennsku og reiðkennslu. Fjallað er um líffræði hesta, atferli þeirra og náttúrulegt eðli. Nemendur læra einnig um meðferð og fóðrun hesta, bæði fræðilega og með verklegri þjálfun. Farið er yfir sögu hestsins og gildi hestamennsku í samfélaginu.

Nemendum er veitt undirstöðumenntun í uppeldis- og kennslufræðum, aðferðafræði og vísindalegum vinnubrögðum sem byggt er ofan á með sérhæfðri reiðkennslu og æfingakennslu. Mikil áhersla er lögð á fræðilega þekkingu og verklega þjálfun. Nemendur hljóta jafnframt trausta vísindalega grunnþjálfun sem nýtist til þátttöku í rannsóknarverkefnum, í framhaldsnámi og sjálfstæðri þekkingaröflun á sviði hestaþjálfunar, reiðmennsku og reiðkennslu.

Námið er fjölbreytt að viðfangi og aðferðum þar sem bókleg og verkleg kennsla er samþætt. Kennslan byggist á fyrirlestrum, lestri fagefnis, notkun myndbanda og fjölbreyttri verkefnavinnu nemenda. Mikil áhersla er lögð á verklega þjálfun í formi einkakennslu, hópkennslu og sýnikennslu. Nemandinn tekur þátt í sýningum, keppni og fjölbreyttri æfingakennslu. Fræðilegt lokaverkefni er unnið á 3. námsári.

Inntökupróf/inntökuskilyrði

Auk inntökuprófs í reiðmennsku þurfa umsækjendur um nám í Hestafræðideild að skila inn myndbandi af sér á hestbaki. Haft verður samband við þá umsækjendur sem teljast uppfylla skilyrði til að verða boðið í inntökupróf í reiðmennsku.

Umsækjandi þarf að hafa lokið stúdentsprófi eða lokið öðrum undirbúningi (sbr. lög nr. 63/2006), sem háskólaráð telur jafngildan. Umsóknum nemenda, sem ekki hafa lokið stúdentsprófi, skal vísað til kennslunefndar til umsagnar. Umsækjendur þurfa að þreyta inntökupróf í reiðmennsku og standast þar lágmarkskröfur til að eiga kost á inngöngu í skólann.

Í fullu námi er um að ræða 3 ára nám (60 ECTS á ári). Nemendur ljúki a.m.k. 40 ECTS á fyrsta ári, 90 ECTS á tveimur árum, 140 ECTS eftir þriðja ár og 180 ECTS eftir fjórða ár. Hafi nemandi ekki náð tilskildum einingum eða nær ekki aðaleinkunn þá glatar hann rétti sínum til að halda náminu áfram. Nemandanum er þó heimilt að innritast aftur í námið og fær þá öll námskeið sem hann hefur lokið með einkunninni 7,0 eða hærri metin. Nemendur sem lokið hafa diplómapróf og óska þess að innritast í B.A./B.S./B.Ed. nám innan sömu deildar fá allar einingar diplómanámsins metnar.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Kennslufræði og reiðkennsla I (KOR1504190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennslufræði: Starf og starfskenning kennara.

• Siðferði og fagmennska í kennarastarfi.

• Algengustu kennsluaðferðir.

• Undirbúningur og framkvæmd kennslu • Markmiðssetning og gerð kennsluáætlana

• Framsögn og tjáning Skyndihjálp:

• Fjallað um grunnatriði í skyndihjálp og öryggi.

• Nemendur fá þjálfun í að beita helstu aðferðum í skyndihjálp og að bregðast rétt við ef slys ber að höndum. Þroska- og námssálarfræði:

• Helstu kenningar í náms- og þroskasálfræði og tengsl þessarra þátta við nám og kennslu.

• Fjölgreindarkenningin og tengsl hennar við nám og þroska

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Verklag í námi og starfi (VNS1006120)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er inngangsnámskeið og tekur á ólíkum þáttum vinnulags í háskólanámi og rannsóknum. Markmið námskeiðsins er að kynna fyrir nemendum hlutverk og skipulag háskóla, gagnrýna hugsun og eðli vísindalegra og fræðilegra vinnubragða. Námskeiðið veitir nemendum hagnýtan undirbúning að háskólanámi.

Í námskeiðinu er fjallað um fagleg vinnubrögð í námi og starfi, s.s. tímastjórnun, skipulag vinnu, samskipti í ræðu og riti, siðareglur, gerð ferilskráa og atvinnu- og styrkumsókna. Þá er rætt um framsögn og tjáningu; undirbúning og flutning á verkefnum og hvernig á að gefa og veita uppbyggilega gagnrýni.

Nemendur fræðast um gervigreind og hvernig kunnátta í notkun hennar er lykilhæfni í nútímasamfélagi. Nemendur fá innsýn í hvernig gervigreindartól – og tækni geta nýst í námi, læra að þekkja möguleika og takmarkanir þeirra hennar og að nýta þau á ábyrgan og gagnrýninn hátt.

Skoðaðir verða ólíkir textar og markmið þeirra greind. Farið verður yfir uppbyggingu stærri ritsmíða, t.d. skýrsla og rannsóknarritgerða, s.s. efnisþætti, afmörkun efnis, efnissöfnun, heimildaleit, röðun efnisatriða, stíll og framsetningu upplýsinga í mæltu og rituðu máli og heimildanotkun. Áhersla er á rétta meðferð heimilda. Höfundarréttur kynntur og þær takmarkanir sem eru á notkun á hugverkum annarra.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Haust
Reiðmennska I (REI1104190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið:

Að dýpka skilning nemandans á reiðmennsku og auka hæfni á hestbaki.

Áhersla er lögð á ásetu og stjórnun knapans. Nemandinn er þjálfaður í mismunandi tegundum ásetu, lóðréttri, stígandi og hálfléttri. Farið verður í grunnatriði í hringteymingum og annarri vinnu við hendi. Nemandinn fær þjálfun í að ríða fet, tölt, brokk, stökk og skiptingar á milli hraða og gangtegunda. Nemandinn fær þjálfun í að ríða liðkandi og safnandi æfingar. Kennsla fer fram á skólahesti. Sögu reiðlistarinnar eru gerð góð skil og hlutverk hestsins í nútímasamfélagi tekið til umfjöllunar. Sérstök áhersla er lögð á sögu íslenska hestsins, þróun hans, einkenni og eiginleika. Félagskerfi hestamennskunnar á Íslandi er kynnt, alþjóðasamstarf, útbreiðsla hestsins erlendis og fjallað er um umfang og viðfangsefni atvinnugreinarinnar. Nemendur taka einnig þátt í fóðrun og hirðingu hestanna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Líffæra- og lífeðlisfræði hestsins (LLE1406190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið:

Að dýpka skilning nemandans á líkamsstarfsemi hestsins og þannig búa til grundvallarþekkingu til þess að nýta við umhirðu hesta og þjálfun á þeim. 

Gerð er grein fyrir helstu grunnatriðum í lífefna-, lífeðlis-og líffærafræði hestsins.

Farið verður í frumuna, helstu líffæri hennar, uppbyggingu og efnaskipti. Þættir eins og sýrustig, efnaflutningar inn og útúr frumunni (t.d. osmósa), niðurbrot og nýmyndun verða skýrð og hlutverk ATP. Fjallað verður um grunngerð og hlutverk helstu efna frumunnar, líffæra og líkama hestsins, það er kolvetni, prótein, fituefni, steinefni og vítamín. Fjallað verður um hormón, ensím og hlutverk þeirra. Gerð verður grein fyrir DNA, RNA og frumskiptingum.

Fjallað er um gerð, hlutverk og starfsemi allra helstu líffæra og líffærakerfa hestsins svo sem hjarta og æðakerfi, meltingarfæri, öndunarfæri, taugakerfi, skynfæri, þvagfæri og æxlunarfæri. Sérstök áhersla er lögð á stoðkerfið, bein og beinagrind hestsins, vöðva, liði, sinar og liðbönd.  Við umfjöllun um meltingarfæri hrossa er sérstök áhersla á hvar og hvernig upptaka og nýting helstu næringarefna fer fram.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Knapaþjálfun I (KNÞ1302190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um líkamsbeitingu knapans á hestbaki og samhengið við almenna líkamsbeitingu, sem og við öldrun.  Einnig er fjallað um mataræði íþróttafólks. Sérstök áhersla á sætisæfingar sem og aðrar líkamlegar æfingar og að nemandinn verði meðvitaður um eigin ásetu og líkamsbeitingu. Nemandinn setur sig inn í sína sérstöðu sem knapi með tilliti til líkamsgerðar, líkamlegt ástand og ásetu. Nemandinn gerir í samvinnu við kennara áætlun um að bæta líkamlegt ástand og sér um að fylgja því eftir. Úttekt gerð í upphaf og lok annar. Nemandinn tekur þátt í þjálfunarformi og skrifar heimildaritgerð um formið. (yoga, pílates, hlaupafimi, dans, líkamsrækt, krossfit, sundfimi). Ætlast er til að nemandinn bæti líkamlegt ástand sitt á námskeiðstímanum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Þjálfun reiðhestsins I (ÞRH1204190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um markvissa og kerfisbundna uppbyggingu reiðhests. Sérstaklega er farið í merkjareið og grunnábendingar. Nemandinn lærir að nýta sér náttúrulegt eðli, skynjun og atferli hestsins við þjálfun. Fjallað verður um siðfræði og ábyrgð mannsins við þjálfun og alla meðferð hestsins. Farið verður í líkamlegt og andlegt jafnvægi hestsins, uppbyggileg samskipti við hestinn og notkun ábendinga við stjórnun. Einnig er fjallað um skipulag á þjálfunarstund. Þá er fjallað um grundvallaratriði í líkamsbeitingu hestsins. Verkleg kennsla fer fram að mestu leyti á nemendahesti og hann þjálfaður á fjölbreyttan hátt. Nemendur taka þátt í fóðrun og hirðingu hestanna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Atferlisfræði hestsins (ATH1604190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á námskeiðinu er fjallað um náttúrulegt atferli hestsins, skynjun, eðlisviðbrögð, félagshegðun og  kynhegðun í ljósi uppruna og þróunarsögu hans. Þá er fjallað um hvaða áhrif nútíma hestahald getur haft á líðan, velferð og atferli hesta þar sem tekið er fyrir hvernig æskilegt er að haga umhirðu og meðferð hesta til að stuðla að velferð þeirra.  Sérstök áhersla er lögð á hvernig hesturinn lærir, fjallað um helstu hugtök lærdómsatferlis, hvaða þættir hafa áhrif á námsgetu hestsins og farið yfir aðferðafræði sem beitt er við tamningar og þjálfun hestsins. Kynntar eru ýmsar rannsóknir á atferli hesta.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Knapaþjálfun II (KNÞ2302190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið:

Að dýpka skilning nemandans á eigin ásetu og líffræði knapans. Einnig að geta nýtt sér líkamsæfingar til að bæta og viðhalda eigin líkamsstyrk, mýkt og samhæfingu hreyfinga og notað mismunandi æfingar til að bæta eigin ásetu.

Fjallað er um líffræði knapans á hestbaki og samhengið við almenna líkamsbeitingu.  Nemandinn fær þjálfun í sætisæfingum og öðrum líkamlegum æfingum sem miða annars vegar að því að bæta færni hans sem knapa og hins vegar að auka meðvitund um eigin ásetu og líkamsbeitingu með tilliti til líkamsgerðar og líkamlegs ástands. Nemandinn gerir í samvinnu við kennara áætlun um að bæta líkamlegt ástand og sér um að fylgja því eftir. Úttekt gerð í upphafi og lok annar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Fóðrun reiðhestsins (FÓR2606190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið:

Að öðlast þekkingu og skilning á grunnatriðum í fóðrun reiðhesta og geta nýtt sér til að meta holdafar hesta, gæði fóðurs, fóðurþarfir og við gerð fóðuráætlanna fyrir reiðhesta.

Fjallað er um holdafar hesta og áhrif þess á líkamlega getu reiðhestsins. Skoðað er hvernig hold hesta eru metin og nemendur fá þjálfun í notkun holdastigunarkvarða fyrir reiðhesta. Samhliða er rætt um áhrif þyngdar knapa á líkamlega getu reiðhestsins. Gerð er grein fyrir fóðurmatskerfum fyrir hross og þau útbreiddustu borin saman. Fjallað er um helstu flokka næringarefni í fóðri; kolvetni, fituefni, prótein, steinefni, vítamín. Gerð er grein fyrir uppbyggingu og eiginleikum þessara næringarefna svo og líffræðilegu hlutverki hvers um sig og sem heild. Fjallað er um fóðurþarfir hrossa, einkum reiðhesta, þar sem farið er í þarfir fyrir orku, prótein, vítamín og steinefni. Gerð er grein fyrir átgetu og áttíma hrossa. Fjallað er um helstu fóðurtegundir fyrir hross, s.s. gróffóður, kjarnfóður, próteingjafa, steinefna- og vítamínfóður, kosti þeirra og galla. Einnig um áhrif mismunandi orkugjafa einkum auðleystra kolvetna, trénis og fitu í fóðri reiðhestsins/íþróttahestsins. Áhersla er lögð á fóðrun reiðhestsins (íþróttahestsins), fóðurtegundir, tímasetningu fóðrunar og áhrif á efnaskiptin. Fjallað er um stöðu þekkingar og rannsóknir á fóðrun íþróttahesta. Farið er ítarlega í fóðuráætlanagerð fyrir reiðhesta þar sem nemendur vinna verkefni og tengja það við raunverulega fóðrun á eigin reiðhestum. Lögð er áhersla á að nemendur geti nýtt sér niðurstöður heyefnagreininga við fóðrun hesta, geti lesið sér til um efnainnihaldslýsingar á fóðri og lagt mat á fóður í ljósi þeirra. Fjallað verður um helstu gras- og beitartegundir, uppskeru og næringargildi þeirra. Fjallað er um grunnþætti við heyverkun.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Reiðmennska II (REI2104190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Verkleg kennsla fer fram á skólahestum. Áfram er haldið með verklega þjálfun nemandans í stjórnun og ásetu.  Áhersla er lögð að geta riðið hestinum í réttri líkamsbeitingu með léttleikandi samband við hestinn. Nemendur fá þjálfun í að ríða safnandi fimiæfingar á feti og tölti ásamt nákvæmar gangskiptingar og reiðleiðir. Fjallað er um mismunandi beislabúnað og virkni. Kennt er á íslenskar stangir og fær nemandinn þjálfun í notkun þeirra á hestvænan hátt. Nemendur ríða knapamerkjapróf í kennslufræðinámskeiði hjá nemendum á 2. og 3.ári skólans, er þetta liður í því að undirbúa nemendur að koma fram og framkvæma ákveðin verkefni. Nemendur fá þjálfun í að ríða greitt tölt og kynningu á reiðmennsku á skeiði. Nemendur taka þátt í fóðrun og hirðingu hestanna og halda dagbók um námskeiðið.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Þjálfun reiðhestsins II (ÞRH2204200)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um markvissa og kerfisbundna uppbyggingu ganghests. Farið er frekar í líkamsbeitingu hestsins og ítarlega verður unnið með þjálfunarþrep Hólaskóla. Nemandinn fær þjálfun í notkun hringtaums á hestvænan hátt og farið verður í tvítaumsvinnu í hringgerði og utan þess. Áhersla er lögð á hestvænar þjálfunaraðferðir og jákvætt samspil við hestinn.

Nemendur fá þjálfun í að ríða fimiæfingar og nákvæmar reiðleiðir á velli sem síðan er fléttað saman í fimiþjálfun og þjálfun gangtegunda. Áfram er haldið með verklega þjálfun nemandans í stjórnun og ásetu. Nemendur taka þátt í keppni og/eða gæðingafimi eða annars konar sýningu. 

Farið er í teymingar á hesti og notkun umhverfis og náttúrunnar við þjálfun hesta  á uppbyggilegan hátt. Nemendur halda þjálfunardagbók og taka þátt í fóðrun og hirðingu hestanna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Fortamningar - tamningafræði (FOT2702190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemandinn öðlist skilning og hæfni í fortamningu ungra trippa.

Fjallað er um læriatferli hesta og tamningaaðferðir sem byggja á forsendum hestsins; eðlisviðbrögðum hans, skynjun og náttúrlegu atferli. Áhersla er lögð á með hvaða hætti hesturinn lærir og hvernig unnt er að vinna traust hestsins. Nemendur fá verklega þjálfun í fortamningum, aðferðum og vinnubrögðum, með það að markmiði að skapa gott samband milli manns og hests. Nemendur halda tamningadagbók og taka þátt í fóðrun og hirðingu trippanna.

Kennsluhættir:

Verkleg kennsla fer fram í reiðhöll og í hesthúsi. Aðallega hópakennsla. Bókleg kennsla er í formi verkefnarvinnu nemandans, fyrirlestra og sýnikennslna. Mætingaskylda er í námskeiðinu og taka nemendur þátt í fóðrun og hirðingu hestana.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Heilsufræði hestsins (HEH2404190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið:

Dýpka skilning nemandans á heilsufari hestsins og hvað sé hægt að gera til að fyrirbyggja sjúkdóma eða álagsmeiðsli. Auka þekkingu nemandans á einkennum, til að meiri líkur verði á að hægt sé að grípa fljótt inní og koma þannig oft á tíðum í veg fyrir að vandamálið verði alvarlegt.

Fjallað verður um velferð hrossa og sérstök áhersla er lögð á fyrirbyggjandi aðgerðir sem stuðla að góðri endingu þeirra og draga úr álags- og meðferðartengdum sjúkdómum.Á námskeiðinu er gerð grein fyrir algengustu sjúkdómum sem þekktir eru í íslenskum hrossum og farið yfir orsakir, einkenni, greiningaraðferðir og meðhöndlun þeirra.  Á námskeiðinu verður fjallað um lög og reglugerðir er varða hestahald. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Kennslufræði og reiðkennsla II (KOR2504190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Verður endurskoðað

• Knapamerki stig 1 og 2 . Stigskipt nám (kennsluefni) fyrir hinn almenna hestamann. • Aðferðafræði og undirbúningur bóklegrar og verklegrar reiðkennslu. • Gerð kennsluáætlana, kennsluverkefna og framkvæmd kennslu. • Æfingakennsla með jafningjum og hóp af byrjendum

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Hestahald og hófhirða (HUJ2304190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið:

Að fá þekkingu á helstu reglum og viðmiðum varðandi hestahald og hvernig þær tengjast hesthúsbyggingum og aðstöðu. Að veita grunnþekkingu í hófhirðu og járningum.

Fjallað er um húsvist hesta og kröfur tengdar umhirðu. Gerð er sérstök grein fyrir mismunandi loftræstingum og lýsingu í hesthúsum, undirburð í safnstíum og eiginleikum hans. Kynntar eru rannsóknir á húsvist og hestahaldi og fjallað um innra skipulag hesthúsa. Í námskeiðinu er einnig fjallað um staðarval hesthúsa/reiðhalla gerði og reiðgötur auk beitarfræði og landnýtingu tengd hestahaldi. Í járningahluta námskeiðsins er lögð áhersla á mikilvægi fótstöðu hesta. Farið verður í uppbyggingu hófsins og líffræði hans. Fjallað verður um járningar almennt en sérstök áhersla á jafnvægisjárningar. Hófhirðu stóðhrossa verður gerðsérstök skil. Námskeiðið skiptist til helminga milli hestahalds og heshúshúsbygginga og járningahluta

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Annað ár | Haust
Reiðmennska III/knapaþjálfun (REI3104190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Verkleg kennsla fer fram á skólahestum. Áfram er haldið með verklega þjálfun nemandans í stjórnun og ásetu.  Fjallað er ítarlega um ásetugalla og áhrif á hreyfingar og líkamsbeitingu hestsins. Nemandinn fær þjálfun í sætisæfingum og öðrum knapaæfingum. Nemandinn gerir í samvinnu við kennara áætlun um að bæta líkamlegt ástand sitt og sér um að fylgja því eftir. Úttekt gerð í upphafi og lok annar. Áhersla er lögð að geta riðið hesti í réttri líkamsbeitingu með léttleikandi samband við hestinn. Nemendur fá kynningu á hindrunarstökki. Nemendur fá þjálfun í að ríða safnandi fimiæfingar ásamt nákvæmar gangskiptingar og reiðleiðir. Nemendur taka þátt í fóðrun og hirðingu hestanna og halda dagbók um námskeiðið.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Annað ár | Haust
Þjálfun I (ÞJÁ3302190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um almenna framhaldsþjálfun reiðhesta s.s. bætta svörun ábendinga, meiri stjórnun og kröfur á líkamsbeitingu og form hestsins, betra jafnvægi, hreyfingu,  jafnvægi, jákvæðni og vilja. Áhersla er lögð á gott jafnvægi knapans og nákvæmar ábendingar. Nemendur  þjálfa hross, sem eru a.m.k. grunnþjálfuð. Hrossin eru tekin út í upphafi og lok þjálfunartímabilsins, og mat er lagt á framfarir og árangur. Nemendur fá þjálfun í að meta líkamlegt og andlegt ástand hestsins og þjálfunarstig hans. Ítarlega er fjallað um líkamsbeitingu og afleiðingar réttrar og rangrar líkamsbeitingar. Haldin er þjálfunardagbók í samræmi við þjálfunarskipulag. Nemendur taka þátt í allri umhirðu þjálfunarhrossanna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Haust
Íþróttasálfræði (ÍÞS3406190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Íþróttasálfræði, helstu kenningar og hugtök:

  • Hugþjálfun og skynmyndir.
  • Markmiðssetning í íþróttum.
  • Hestamennska sem íþrótt.
  • Kvíðastjórnun og sjálfstraust.
  • Samstarf og hópavinna.
  • Að hámarka árangur á jákvæðan hátt.
Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Annað ár | Haust
Tamningar I (TAM3208190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um læriatferli hesta og tamningaaðferðir sem byggja á forsendum hestsins; eðlisviðbrögðum hans, skynjun og náttúrlegu atferli. Áhersla er lögð á með hvaða hætti hesturinn lærir, leiðtogahlutverk tamningamannsins og hvernig unnt er að vinna traust hestsins. Farið er í líkamsbeitingu og uppbyggingu á líkamlegum styrk. Nemendur fá verklega þjálfun í frumtamningum og grunnþjálfun, með það að markmiði að skapa gott samband milli manns og hests. Nemendur frumtemja fortamin trippi þar sem lögð er áhersla á andlegt og líkamlegt jafnvægi þeirra, samstarfsvilja og traust. Fjallað er um grunnþjálfun, s.s. bætta svörun og aukið samspil hvetjandi og hamlandi ábendinga, mikilvægi framhugsunar, andlegs jafnvægis og að hreyfingar séu frjálsar og óþvingaðar. Unnið er að betra jafnvægi hestsins á gangtegundum. Ítarlega er fjallað um líkamsbeitingu, sveiganleika, jafnvægi til hliðanna og stjórn yfirlínu á grunnþjálfunarstigi. Farið er í teymingar á hesti, reið á víðavangi, vinnu við hendi og langan taum. Nemendur halda tamningadagbók og taka þátt í fóðrun og hirðingu trippanna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Rekstur fyrirtækja í hestamennsku (RFH3604190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um starfsumhverfi og rekstur hrossaræktarbúa, tamningastöðva og annarra hestatengdra fyrirtækja. Fjallað er um stofnun fyrirtækja, rekstrarform, lög og reglugerðir, bókhald og réttindi og skyldur rekstraraðila. Kynnt eru undirstöðuatriði í launaútreikningi, reikningagerð og virðisaukaskatti og gerð grein fyrir muninum á verktökum og launþegum. Einnig er fjallað um framboð og eftirspurn, markaðssetningu, markmiðasetningu og áætlanagerð. Rýnt er í eðli og sérkenni hestatengdrar þjónustu, mótun ímyndar og samskipti við viðskiptavini. Áhersla er lögð á að undirbúa nemendur til að starfa á eigin vegum og fyrir aðra í hestatengdri starfsemi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Haust
Hreyfingafræði hestsins (HRH3506190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið:

Að nemandinn geti hagnýtt sér aðferðir hreyfingafræðinnar við mat á gangtegundum og hreyfingum hestsins.

Fjallað er um hvernig gerð og virkni stoðkerfis hestsins hefur áhrif á hreyfingar hans. Kynntar verða aðferðir, hugtök og kenningar sem notaðar eru í hreyfifræði og hreyfiaflfræði. Sérstaklega er fjallað um hreyfingar, jafnvægi og líkamsbeitingu hestsins við þjálfun og einnig samspil þessara þátta við álag og endingu hestsins. Ítarlega er fjallað um gangtegundir og mat á gæðum þeirra bæði með huglægum og hlutlægum aðferðum. Kynntur verður sá tækjabúnaður og mælitæki sem hægt er að nota við að mæla hreyfingar og gangtegundir hestsins og einnig ásetu og stjórnun knapans. Kynntar eru ýmsar rannsóknir í hreyfingafræði hesta.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Kennslufræði III (KOR4504190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið:

Markmið námskeiðsins er að nemendur geti kennt og þekki vel alla þætti Knapamerkja 1 - 3.

Nemendur fá þjálfun í að setja fram kennsluáætlanir, undirbúa og framkvæma kennslu fyrir nokkuð vana knapa. Nemendur fá þjálfun í að skipuleggja og byggja upp reiðnámskeið, búa til kynningarefni og vinna sjálfstætt með námskeiðahald.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Vor
Reiðmennska IV/knapaþjálfun (REI4104190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Verkleg kennsla fer fram á skólahestum og skeiðhestum skólans. Áfram er haldið með verklega þjálfun nemandans í stjórnun og ásetu. Áhersla er lögð á að geta riðið hestinum í réttri líkamsbeitingu með léttleikandi samband við hestinn. Nemendur

  • fá þjálfun í að ríða skeið
  • fá þjálfun í að greina misstyrk og finna fjölbreyttar leiðir til að jafna misstyrk
  • taka þátt í fóðrun og hirðingu hestanna og halda dagbók um námskeiðið
  • velja sér aðferð til líkamsræktar, leggja stund á hana á meðan á námskeiðinu stendur, og skila heimildaritgerð um hana (t.d. jóga, pílates, hlaupafimi, dans, leikfimi, krossfit)
  • fá þjálfun í að meta ásetu hjá öðrum knöpum, skipuleggja og kenna ásetuæfingar á skólahestum
Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Vor
Þjálfunarlífeðlisfræði (ÞLE4406190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um grunnatriði þjálfunarlífeðlisfræðinnar og sérstöðu hestins. Ítarlega er fjallað um áhrif þjálfunar á vöðva, bein og beinagrind, liði, sinar og liðbönd, öndunarfæri, hjarta og æðakerfi hestsins. Greint er frá áhrifum þjálfunar á efnaskipti, blóð og hitastjórnun í líkama hestsins. Gerð er grein fyrir hvaða þættir hafa takmarkandi áhrif á afköst og frammistöðu hesta. Fjallað er um mikilvægi líkamlegrar þjálfunar fyrir hestinn og hvernig má bæta líkamlegt þjálfunarástand hesta (þjálfunaraðferðir). Kynntur verður sá tækjabúnaður og mælitæki sem hægt er að nota á hagnýtan hátt við þjálfun hrossa, mat á þjálfunarálagi og þjálfunarástandi. Kynnt verður hvernig mælingar s.s. á hjartslætti, líkamshita, öndunartíðni og mjólkursýru í blóði eru notaðar til að meta þjálfunarálag á hesta. Sérstök áhersla er á að kynna rannsóknarniðurstöður um þjálfunarlífeðlisfræði íslenska hestsins.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Vor
Tamningar II (TAM4204190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið:

Nemandinn öðlist reynslu og aukið sjálfstæði í að gera bandvanan hest reiðfæran og taminn til að verða reiðhestur.

Fjallað er um einstaklingsmiðað tamningaferli í gegnum frumtamningar og grunnþjálfun. Ítarlega er fjallað um mat og flokkun hesta í samræmi við skapgerð þeirra og mismunandi áherslur við tamninguna skv. því. Þá er einnig fjallað um áhrif byggingarlags, ganglags og líkamlegs atgervis á vinnulag.

Nemendur

  • vinna með fortamin trippi í gegnum frumtamningar- og grunnþjálfunarferli
  • fá þjálfun í skipulögðum og sjálfstæðum vinnubrögðum með áherslu á hestvænar aðferðir og einstaklingsmiðaða tamningu
  • halda tamningadagbók og taka þátt í fóðrun og hirðingu trippanna.
Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Vor
Verknám - þjálfun III (ÞJV4610190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fer fram á viðurkenndum verknámsstað þar sem fagleg og skipuleg vinnubrögð ásamt eflingu á frumkvæði nemandans eru höfð að leiðarljósi. Megináhersla er á að auka þekkingu og færni nemendans í þjálfun reiðhrossa með því að hann þjálfi mismunandi hestgerðir og á mismunandi þjálfunarstigi. Áhersla er lögð á markvissa þjálfun ásetu og stjórnunar knapans.

Nemendur

  • halda þjálfunarskýrslur og taka þátt í umhirðu hestanna
  • vinna kerfisbundnar úttektir á ólíkum hestgerðum og gera einstaklingsmiðaðar þjálfunaráætlanir
  • fá þjálfun í að sýna hestana og gera grein fyrir þjálfun þeirra auk þess að taka þátt í keppni og/eða sýningum
  • þjálfa einnig eigin hest í verknáminu.
Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Annað ár | Vor
Þjálfun II (ÞJÁ4302190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennt er á nemendahesti ekki yngri en á sjötta vetur. Hesturinn á að vera væntanlegur nemendahestur nemandans á 3. ári. Fjallað er ítarlega um framhaldsþjálfun. Áhersla er lögð á kerfisbundið mat reiðhesta, mismunandi hestgerðir, tamninga- og þjálfunarstig þeirra og gerð einstaklingsmiðaðra þjálfunaráætlana. Nemendur fá þjálfun í að sýna hestana og gera grein fyrir þjálfun þeirra. Áhersla er lögð á hestvænar aðferðir, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð. Námskeiðið er undanfari að  verknámi á viðurkenndum verknámsstað og á hesturinn að fylgja nemandanum í verknámið. Nemendur halda þjálfunarskýrslur og taka þátt í allri umhirðu hestanna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Þriðja ár | Haust
Kennslufræði IV (KOR5504190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið

Markmið námskeiðsins er að nemandinn geti beitt fjölbreyttum þáttum kennslufræðinnar í bóklegri og verklegri reiðkennslu auk þess að hafa öðlast sjálfsöryggi og frumkvæði til að takast á við fagleg og krefjandi verkefni á sviði hestamennskunnar.

Námskeiðslýsing

Nemendur fá þjálfun í að setja fram kennsluáæltanir, undirbúa og framkvæma kennslu fyrir nokkuð vana knapa á hinum ýmsu sviðum.

Námskeiðið skiptist upp í eftirfarandi þætti:

Fyrirlestur "Power of coaching"

Nemendur halda fyrirlestur um bókina Power of coaching.

Sýnikennsla 

Fjallað um sýnikennslu sem kennsluaðferð í reiðkennslu. Nemendur fá yfirgripsmikla þjálfun í að vinna með fjölbreytt sýnikennsluatriði valin af kennurum. Farið ítarlega í skipulag sýnikennslu og verklegar útfærslur.

Vettvangsnám FNV 

Farið er á vettvang, þar sem nemendur halda fræðslu. Nemendur fá yfirgripsmikla þjálfun í bóklegri og verklegri kennslu, þ.m.t. sýnikennslu.

Jafningjakennsla

Nemendur fá æfingu í að kenna knöpum á svipuðu getustigi og hann er sjálfur.

Sætisæfingakennsla

Nemendur fá æfingu í að meta ásetu, finna æfingar við hæfi og framfylgja sætisæfingar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Þriðja ár | Haust
Skeið og þjálfun I (SKÞ5202190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um skeið, þjálfun þess, ábendingar og stjórnun knapans. Fjallað er um mat á þjálfunarstigi og þreki og gerð þjálfunaráætlana keppnishesta með sérstöku tilliti til skeiðhesta. Nemendur fá þjálfun í að fylgjast með og meta lífeðlisfræðilega þætti hestsins. Áhersla er lögð á uppbyggingu skeiðkeppnishests, nákvæmni í stjórnun og að laða fram rétt viðbrögð hestsins, traust hans, jákvæðan samstarfsvilja, líkamsbeitingu og hreyfingar. Nemendur gera áætlun og leggja grunn að keppnisþátttöku á vorönn. Kennt er á skeiðhesta skólans. Nemendur sjá um umhirðu hestanna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Haust
Þjálfun keppnishesta I (ÞJK5106190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Ítarlega er fjallað um hugtök reiðmennskunar og líkamsbeitingu reiðhestsins og vinna nemendur verkefni um stöðu þekkingar á þeim. Verkleg kennsla fer fram á skólahestum og nemendahestum. Fjallað er um mat á gæðum keppnishesta, markmiðssetningu við þjálfun þeirra og gerð þjálfunaráætlunar. Áfram er haldið með verklega þjálfun nemandans í stjórnun og ásetu.  Áhersla er lögð að geta riðið hestinum í réttri líkamsbeitingu með léttleikandi samband við hestinn. Nemendur fá þjálfun í að meta eigin frammistöðu, sem og hestsins. Sérstök áhersla er lögð á andlegan og líkamlegan undirbúning knapans fyrir keppni og sýningar. Nemendur taka þátt í fóðrun og hirðingu hestanna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Haust
Þjálfun IV (ÞJÁ5304190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er ítarlega um þjálfun unghrossa í framhaldi af frumtamningastigi. Áhersla er lögð á kerfisbundið mat og þjálfunaráætlun byggða á mismunandi hestgerðum og þjálfunarstigi, m.a. ganglagi, geðslagi, líkamlegum styrk og fóðurástandi. Áhersla er lögð á hestvænar aðferðir, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð. Nemendur fá þjálfun í að sýna og gera grein fyrir þjálfun hrossanna. Námskeiðið er tvískipt, á fyrri hluta þess vinna nemendur með hross sem nýlega hefur lokið frumtamningastigi. Hér er  áhersla lögð á gangsetningu og auknar kröfur um samspil ábendinga, taumsamband, hvelfdara líkamsform og þjálfun gangtegunda. Á seinni hluta námskeiðsins vinna nemendur með ungt kynbótahross sem miðað er við að þeir sýni á kynbótasýningu síðar á námsárinu (sjá námskeiðið KYD6304 - Kynbótahross – þjálfun og dómar). Heildstæð úttekt á sköpulagi, reiðhestskostum, þjálfunarstigi og útliti er lögð til grundvallar fyrir einstaklingsmiðaða þjálfunaráætlun hrossanna.  Áhersla er lögð á markvissa uppbyggingu hrossanna, s.s. varðandi svörun ábendinga, líkamlegan styrk og jafnvægi í hreyfingum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Þriðja ár | Haust
Rannsóknaaðferðir-tölfræði (ROT5706190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um

  • aðferðafræði rannsókna, s.s. hönnun tilrauna, gerð skoðanakannana og viðtöl
  • vísindalegar aðferðir, tilgátur, tengsl tilgáta og tölfræði
  • gagnaöflun
  • framsetningu tölfræðilegra niðurstaðna, t.d. myndræna

Helstu grundvallarhugtök tölfræðinnar og lýsandi tölfræði eru kynnt, sem og úrvinnsla lýsandi tölfræði. Áhersla er lögð á verkefnavinnu með tölfræðigögn, þar sem skráning á gögnum í töflureikni er æfð

Nemendur eru æfðir í

  • gagnrýninni hugsun
  • öflun og meðferð heimilda
  • framsetningu rannsóknarspurninga
  • hönnun og skipulagningu eigin rannsókna, meðal annars með verkefnavinnu

Fjallað er ítarlega um vísindaskrif, á formi námsritgerða, veggspjalda og vísindagreina, og vísindaskrif æfð í verkefnavinnu. Nemendur leggja grunn að eigin rannsóknarverkefni og skila lýsingu og verkáætlun fyrir einstaklingsverkefni sem þeir vinna á lokaönn BS-námsins.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Þriðja ár | Haust
Þroskasálfræði (ÞRS5404190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um helstu kenningar og aðferðir þroskasálfræðinnar sem tengjast námi og kennslu ásamt því hvað einkennir góð vísindaleg vinnubrögð. Sérstök áhersla verður lögð á vinnu með nýlegar rannsóknarniðurstöður á sviði þroskasálfræði sem tengjast vinnu með hestum. Fjallað verður um orsakir og eðli einstaklingsmunar, samfellu í þroska og sveigjanleika þroskaferlisins. Fjallað verður sérstaklega um kenningar sem hafa bein áhrif á störf kennara s.s. kenningar um vitrænan þroska, tilfinningaþroska, þróun tilfinningatengsla, kenningar um félagsþroska, þróun sjálfsmyndar og siðferðisvitundar. Jafnframt verður fjallað um áhrif uppeldis, menningar og félagslegra aðstæðna á þroska. Umfjöllun námskeiðsins verður afmörkuð við börn, unglinga og ungt fólk. Fjallað verður um helstu þroskabreytingar á þessu tímabili og sú umfjöllun tengd starfsvettvangi námsleiðarinnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Þriðja ár | Haust
Erfðir og kynbætur hesta (EKH5604190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið:

Að fá grunnþekkingu íerfða- og kynbótarfræði til að geta hagnýttþekkinguna við ræktun hrossa og öðlast grunnskilning á kynbótastarfi í íslenskri hrossarækt.

Fjallað er um grundvallarhugtök í erfðafræðinni, erfðavísa og litninga, flutning erfðaefnis milli kynslóða, DNA, RNA, virkni erfðavísa, áhrif erfða og umhverfis. Áhersla er lögð á erfðir séðra eiginleika í hrossum s.s. hrossalita og ýmissa erfðagalla. Farið er yfir helstu hugtök og grunnatriði kynbótafræðinnar s.s. breytileika, svipfar, umhverfisáhrif, arfgengi, öryggi, ættliðabil, úrval og erfðaframfarir. Fjallað um áhrif stórtækra erfðavísa s.s. DMRT3 erfðavísinn. Helstu ganghesta- og keppnishestakyn heimsins eru kynnt. Farið yfir kynbótaskipulag í íslenskri hrossarækt með áherslu á kynbótamatskerfið (BLUP) og hagnýtingu þess í ræktunarstarfinu. Einnig er fjallað um skýrsluhald hrossaræktarinnar og gagnavörsluforritið WorldFeng.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Vor
BS verkefni (BSV6610190)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið:

Nemandinn fær þjálfun í að hanna rannsókn, setja fram rannsóknarspurningu/ar, safna gögnum, vinna úr þeim, setja þau fram, túlka og kynna í skriflegum texta.

Nemandi velur sér verkefni í samráði við sérfræðing við Háskólann á Hólum. Nemandi afmarkar viðfangsefnið, setur fram rannsóknarspurningu/ar, velur rannsóknaraðferð í samráði við leiðbeinanda, safnar gögnum, vinnur tölfræðilega úr þeim, og skrifar ritgerð. Nemandi setur fram rannsóknarniðurstöður, túlkar þær í umræðum og dregur ályktun/anir. Ritgerðin er unnin samkvæmt reglum skólans um BS verkefni og um það er gerður sérstakur samningur skóla, nemanda og leiðbeinanda.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Þriðja ár | Vor
BS-námskeið (BSN6606190, TÖL6404190)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið:

Nemandinn fær þjálfun í að hanna rannsókn, setja fram rannsóknarspurningu/ar, safna gögnum, vinna úr þeim, setja þau fram, túlka og kynna í skriflegum texta og fyrirlestri.

Nemandi skipuleggur og hannar eigin rannsókn, safnar gögnum, setur fram rannsóknarspurningu/ar og tilgátu/r. Hann vinnur tölfræðilega úr gögnunum, setur fram rannsóknarniðurstöður, túlkar þær og dregur ályktun/anir. Nemandi kynnir verkefni sitt í málstofu, fyrir samnemendum og kennurum deildarinnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Þriðja ár | Vor
Tölfræði (BSN6606190, TÖL6404190)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Áhersla er lögð á að efla talnalæsi nemenda með verkefnavinnu og þjálfun í vinnu með tölfræðigögn. Kynnt eru helstu grundvallarhugtök tölfræðinnar, tilgátur, prófun tilgátna og túlkun niðurstaðna.

Nemendur

  • fá þjálfun í notkun tölfræðiprófa við samanburð á meðaltölum og hlutföllum
  • vinna með eigin gögn, æfa gagnaskráningu í töflureikni (Excel) og hvernig má færa gögn í tölfræðiforritið Minitab
  • æfa notkun á tölfræðigreiningum (t.d. fylgni) og tölfræðiprófum (t.d. t-próf, anova) í töflureikni og Minitab
  • æfa sig í að setja tölfræðilegar upplýsingar fram á skýran hátt og að draga (réttar) ályktanir af niðurstöðum tölfræðinnar
Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Þriðja ár | Vor
Skeið og þjálfun II (SKÞ6202190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um þjálfun skeiðs og taka nemendur þátt í sýningum og keppni. Áhersla er lögð á líkamsbeitingu, orkustig, skreflengd og rými hestsins. Jafnframt er lögð áhersla á andlegt jafnvægi hestsins, samstarfsvilja og einbeitingu við mikið þjálfunarálag. Sérstök áhersla er lögð á skeið, þjálfun þess og uppbyggingu, en einnig að bæta gangtegundir hestsins almennt. Nemendur fá ítarlega þjálfun á mismunandi skeiðhestum. Fjallað er um andlegan undirbúning og þátttöku knapa og hests í keppni og hvernig má hámarka árangur.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Vor
Kynbótahross - Þjálfun og dómar (KYD6304190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemandinn þjálfar kynbótahross og fer með í dóm á sýningu sem er uppsett eins og opinber kynbótasýning. Hann ber jafnframt ábyrgð á fóðrun og allri umhirðu hrossins. Kennsla er einstaklingsmiðuð og fer fram í einkakennslu og skipulögðum úttektum með kennara. Áhersla er lögð á að byggja upp sjálfstæð vinnubrögð nemendans við þjálfun. Reglur og dómstigi kynbótasýninga er kynntur og fá nemendur þjálfun í mati á sköpulagi og reiðhestshæfileikum hrossa. Sérstaklega verður tekin fyrir sýningartækni fyrir byggingar- og hæfileikadóma sem og annar sérhæfður undirbúningur fyrir kynbótasýningar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Vor
Þjálfun keppnishesta II (ÞJK6106190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um þjálfun keppnishrossa og taka nemendur þátt í sýningum og keppni. Áhersla er lögð á líkamsbeitingu, orkustig, söfnun, fjaðurmagn og rými hestsins. Jafnframt á andlegt jafnvægi hestsins, samstarfsvilja og einbeitingu við mikið þjálfunarálag. Fjallað er um þá þætti sem mat er lagt á í keppni og öðrum sýningum á hestum, og á hverju matið byggist. Nemendur fá ítarlega þjálfun í reiðmennsku með áherslu á uppbyggingu keppnishests. Fjallað er um yfirferð, þjálfun, ábendingar og stjórnun knapans. Nemandinn kemur sjálfur með hest, sem verður að uppfylla lágmarkskröfur alhliða keppnishests, með það að markmiði að bæta allar gangtegundir. Fjallað er um andlegan undirbúning og þátttöku knapa og hests á sýningum og keppni og hvernig má hámarka árangur. Nemendur taka þátt í fóðrun og hirðingu hestanna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Vor
Kennslufræði V (KOR6506190)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið skiptist upp í eftirfarandi þætti:

Fyrirlestur 5%

Knapamerki 20% 

Farið yfir alla þætti Knapamerkjanna með sérstakri áherslu á faglega þætti og hugtakanotkun á stigum 4 og 5. Nemendur fá þjálfun í að meta og dæma Knapamerkjapróf.

Einkakennsla 30%

Fjallað um einkakennslu sem kennsluaðferð í reiðkennslu. Nemendur fá yfirgripsmikla þjálfun í að undirbúa, framkvæma og fylgja eftir sérhæfðri einkakennslu með vönum knöpum.

Kennslusýning 40%

Skipulag kennslusýningar, fræðsla og sýnikennslur fyrir hinn almenna hestamann. Nemendur fá yfirgripsmikla þjálfun í að skipuleggja og framkvæma í verki fjölbreytta fræðslumöguleika.

Lokapróf 5%

Nemandinn heldur sýnikennslu, þar sem hann sýnir fram á færni á hestbaki, fræðilega þekkingu og hæfni til að sýna fræði í verki.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Vor
Einstaklingsverkefni (EIV6902190)
Valnámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemandinn velur sér einstaklingsverkefni í samráði við umsjónarmann námskeiðsins. Áhersla er lögð á að verkefnið standist kröfur um vísindalega vinnubrögð varðandi efnistök, heimildanotkun, gagnaöflun og úrvinnslu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Vor
Járningar (JÁR6802190)
Valnámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um almennar járningar auk jafnvægisjárninga og samspil við ganglag, hreyfingar og jafnvægi hestsins. Þá er fjallað um notkun helstu hóffylli- og hófviðgerðarefna.  Áhersla er lögð á verklega þjálfun nemenda við járningar, breytingar á skeifum og notkun botna, hóffylli- og viðgerðarefna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Vor
Hestadómar (HDÓ6702190)
Valnámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á námskeiðinu er fjallað um skipulag og reglur Landsambands hestamannafélaga fyrir gæðingakeppni og keppnisgreinar hestaíþrótta. Ítarlega er farið yfir dómkvarða allra keppnisgreinanna og nemendur fá þjálfun í dómstörfum (myndbönd). Nemendur þreyta verklegt dómarapróf á myndböndum ásamt bóklegt próf í reglugerð Gæðingadómarafélagsins og Hestaíþróttafélagsins.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Vor
Hestatengd þjálfun fólks (HÞF6002190)
Valnámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um lífeðlisfræðilegan og sálfræðilegan bakgrunn þess að styðjast við dýr í starfi með fólki. Sérstaklega er fjallað um hvernig dýr geta aðstoðað meðferðaraðila við að ná markmiðum sínum í starfi s.s. iðjuþjálfa, sálfræðinga og kennara. Fjallað verður um hverjum slík aðstoð gæti hentað og á hvaða formi. Í námskeiðinu verða nemendum kynntar helstu stefnur og straumar á þessu sviði, hver er bakgrunnurinn og hverjar eru helstu aðferðir við að nýta hross í starfi með fólki. Sérstaklega verður kynnt form samvinnu og íhlutunar þar sem hestar eru nýttir í starfi með fólki tengt lærdómi/skólasókn, félagsfærni og sálrænum þáttum. Áhersla verður lögð á vinnu með nýlegar rannsóknarniðurstöður á slíkum íhlutunum.

Kennslutungumál: Íslenska
Fyrsta ár
  • Haust
  • KOR1504190
    Kennslufræði og reiðkennsla I
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennslufræði: Starf og starfskenning kennara.

    • Siðferði og fagmennska í kennarastarfi.

    • Algengustu kennsluaðferðir.

    • Undirbúningur og framkvæmd kennslu • Markmiðssetning og gerð kennsluáætlana

    • Framsögn og tjáning Skyndihjálp:

    • Fjallað um grunnatriði í skyndihjálp og öryggi.

    • Nemendur fá þjálfun í að beita helstu aðferðum í skyndihjálp og að bregðast rétt við ef slys ber að höndum. Þroska- og námssálarfræði:

    • Helstu kenningar í náms- og þroskasálfræði og tengsl þessarra þátta við nám og kennslu.

    • Fjölgreindarkenningin og tengsl hennar við nám og þroska

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • VNS1006120
    Verklag í námi og starfi
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er inngangsnámskeið og tekur á ólíkum þáttum vinnulags í háskólanámi og rannsóknum. Markmið námskeiðsins er að kynna fyrir nemendum hlutverk og skipulag háskóla, gagnrýna hugsun og eðli vísindalegra og fræðilegra vinnubragða. Námskeiðið veitir nemendum hagnýtan undirbúning að háskólanámi.

    Í námskeiðinu er fjallað um fagleg vinnubrögð í námi og starfi, s.s. tímastjórnun, skipulag vinnu, samskipti í ræðu og riti, siðareglur, gerð ferilskráa og atvinnu- og styrkumsókna. Þá er rætt um framsögn og tjáningu; undirbúning og flutning á verkefnum og hvernig á að gefa og veita uppbyggilega gagnrýni.

    Nemendur fræðast um gervigreind og hvernig kunnátta í notkun hennar er lykilhæfni í nútímasamfélagi. Nemendur fá innsýn í hvernig gervigreindartól – og tækni geta nýst í námi, læra að þekkja möguleika og takmarkanir þeirra hennar og að nýta þau á ábyrgan og gagnrýninn hátt.

    Skoðaðir verða ólíkir textar og markmið þeirra greind. Farið verður yfir uppbyggingu stærri ritsmíða, t.d. skýrsla og rannsóknarritgerða, s.s. efnisþætti, afmörkun efnis, efnissöfnun, heimildaleit, röðun efnisatriða, stíll og framsetningu upplýsinga í mæltu og rituðu máli og heimildanotkun. Áhersla er á rétta meðferð heimilda. Höfundarréttur kynntur og þær takmarkanir sem eru á notkun á hugverkum annarra.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • REI1104190
    Reiðmennska I
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið:

    Að dýpka skilning nemandans á reiðmennsku og auka hæfni á hestbaki.

    Áhersla er lögð á ásetu og stjórnun knapans. Nemandinn er þjálfaður í mismunandi tegundum ásetu, lóðréttri, stígandi og hálfléttri. Farið verður í grunnatriði í hringteymingum og annarri vinnu við hendi. Nemandinn fær þjálfun í að ríða fet, tölt, brokk, stökk og skiptingar á milli hraða og gangtegunda. Nemandinn fær þjálfun í að ríða liðkandi og safnandi æfingar. Kennsla fer fram á skólahesti. Sögu reiðlistarinnar eru gerð góð skil og hlutverk hestsins í nútímasamfélagi tekið til umfjöllunar. Sérstök áhersla er lögð á sögu íslenska hestsins, þróun hans, einkenni og eiginleika. Félagskerfi hestamennskunnar á Íslandi er kynnt, alþjóðasamstarf, útbreiðsla hestsins erlendis og fjallað er um umfang og viðfangsefni atvinnugreinarinnar. Nemendur taka einnig þátt í fóðrun og hirðingu hestanna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • LLE1406190
    Líffæra- og lífeðlisfræði hestsins
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið:

    Að dýpka skilning nemandans á líkamsstarfsemi hestsins og þannig búa til grundvallarþekkingu til þess að nýta við umhirðu hesta og þjálfun á þeim. 

    Gerð er grein fyrir helstu grunnatriðum í lífefna-, lífeðlis-og líffærafræði hestsins.

    Farið verður í frumuna, helstu líffæri hennar, uppbyggingu og efnaskipti. Þættir eins og sýrustig, efnaflutningar inn og útúr frumunni (t.d. osmósa), niðurbrot og nýmyndun verða skýrð og hlutverk ATP. Fjallað verður um grunngerð og hlutverk helstu efna frumunnar, líffæra og líkama hestsins, það er kolvetni, prótein, fituefni, steinefni og vítamín. Fjallað verður um hormón, ensím og hlutverk þeirra. Gerð verður grein fyrir DNA, RNA og frumskiptingum.

    Fjallað er um gerð, hlutverk og starfsemi allra helstu líffæra og líffærakerfa hestsins svo sem hjarta og æðakerfi, meltingarfæri, öndunarfæri, taugakerfi, skynfæri, þvagfæri og æxlunarfæri. Sérstök áhersla er lögð á stoðkerfið, bein og beinagrind hestsins, vöðva, liði, sinar og liðbönd.  Við umfjöllun um meltingarfæri hrossa er sérstök áhersla á hvar og hvernig upptaka og nýting helstu næringarefna fer fram.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • KNÞ1302190
    Knapaþjálfun I
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um líkamsbeitingu knapans á hestbaki og samhengið við almenna líkamsbeitingu, sem og við öldrun.  Einnig er fjallað um mataræði íþróttafólks. Sérstök áhersla á sætisæfingar sem og aðrar líkamlegar æfingar og að nemandinn verði meðvitaður um eigin ásetu og líkamsbeitingu. Nemandinn setur sig inn í sína sérstöðu sem knapi með tilliti til líkamsgerðar, líkamlegt ástand og ásetu. Nemandinn gerir í samvinnu við kennara áætlun um að bæta líkamlegt ástand og sér um að fylgja því eftir. Úttekt gerð í upphaf og lok annar. Nemandinn tekur þátt í þjálfunarformi og skrifar heimildaritgerð um formið. (yoga, pílates, hlaupafimi, dans, líkamsrækt, krossfit, sundfimi). Ætlast er til að nemandinn bæti líkamlegt ástand sitt á námskeiðstímanum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • ÞRH1204190
    Þjálfun reiðhestsins I
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um markvissa og kerfisbundna uppbyggingu reiðhests. Sérstaklega er farið í merkjareið og grunnábendingar. Nemandinn lærir að nýta sér náttúrulegt eðli, skynjun og atferli hestsins við þjálfun. Fjallað verður um siðfræði og ábyrgð mannsins við þjálfun og alla meðferð hestsins. Farið verður í líkamlegt og andlegt jafnvægi hestsins, uppbyggileg samskipti við hestinn og notkun ábendinga við stjórnun. Einnig er fjallað um skipulag á þjálfunarstund. Þá er fjallað um grundvallaratriði í líkamsbeitingu hestsins. Verkleg kennsla fer fram að mestu leyti á nemendahesti og hann þjálfaður á fjölbreyttan hátt. Nemendur taka þátt í fóðrun og hirðingu hestanna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • ATH1604190
    Atferlisfræði hestsins
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu er fjallað um náttúrulegt atferli hestsins, skynjun, eðlisviðbrögð, félagshegðun og  kynhegðun í ljósi uppruna og þróunarsögu hans. Þá er fjallað um hvaða áhrif nútíma hestahald getur haft á líðan, velferð og atferli hesta þar sem tekið er fyrir hvernig æskilegt er að haga umhirðu og meðferð hesta til að stuðla að velferð þeirra.  Sérstök áhersla er lögð á hvernig hesturinn lærir, fjallað um helstu hugtök lærdómsatferlis, hvaða þættir hafa áhrif á námsgetu hestsins og farið yfir aðferðafræði sem beitt er við tamningar og þjálfun hestsins. Kynntar eru ýmsar rannsóknir á atferli hesta.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • Vor
  • KNÞ2302190
    Knapaþjálfun II
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið:

    Að dýpka skilning nemandans á eigin ásetu og líffræði knapans. Einnig að geta nýtt sér líkamsæfingar til að bæta og viðhalda eigin líkamsstyrk, mýkt og samhæfingu hreyfinga og notað mismunandi æfingar til að bæta eigin ásetu.

    Fjallað er um líffræði knapans á hestbaki og samhengið við almenna líkamsbeitingu.  Nemandinn fær þjálfun í sætisæfingum og öðrum líkamlegum æfingum sem miða annars vegar að því að bæta færni hans sem knapa og hins vegar að auka meðvitund um eigin ásetu og líkamsbeitingu með tilliti til líkamsgerðar og líkamlegs ástands. Nemandinn gerir í samvinnu við kennara áætlun um að bæta líkamlegt ástand og sér um að fylgja því eftir. Úttekt gerð í upphafi og lok annar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FÓR2606190
    Fóðrun reiðhestsins
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið:

    Að öðlast þekkingu og skilning á grunnatriðum í fóðrun reiðhesta og geta nýtt sér til að meta holdafar hesta, gæði fóðurs, fóðurþarfir og við gerð fóðuráætlanna fyrir reiðhesta.

    Fjallað er um holdafar hesta og áhrif þess á líkamlega getu reiðhestsins. Skoðað er hvernig hold hesta eru metin og nemendur fá þjálfun í notkun holdastigunarkvarða fyrir reiðhesta. Samhliða er rætt um áhrif þyngdar knapa á líkamlega getu reiðhestsins. Gerð er grein fyrir fóðurmatskerfum fyrir hross og þau útbreiddustu borin saman. Fjallað er um helstu flokka næringarefni í fóðri; kolvetni, fituefni, prótein, steinefni, vítamín. Gerð er grein fyrir uppbyggingu og eiginleikum þessara næringarefna svo og líffræðilegu hlutverki hvers um sig og sem heild. Fjallað er um fóðurþarfir hrossa, einkum reiðhesta, þar sem farið er í þarfir fyrir orku, prótein, vítamín og steinefni. Gerð er grein fyrir átgetu og áttíma hrossa. Fjallað er um helstu fóðurtegundir fyrir hross, s.s. gróffóður, kjarnfóður, próteingjafa, steinefna- og vítamínfóður, kosti þeirra og galla. Einnig um áhrif mismunandi orkugjafa einkum auðleystra kolvetna, trénis og fitu í fóðri reiðhestsins/íþróttahestsins. Áhersla er lögð á fóðrun reiðhestsins (íþróttahestsins), fóðurtegundir, tímasetningu fóðrunar og áhrif á efnaskiptin. Fjallað er um stöðu þekkingar og rannsóknir á fóðrun íþróttahesta. Farið er ítarlega í fóðuráætlanagerð fyrir reiðhesta þar sem nemendur vinna verkefni og tengja það við raunverulega fóðrun á eigin reiðhestum. Lögð er áhersla á að nemendur geti nýtt sér niðurstöður heyefnagreininga við fóðrun hesta, geti lesið sér til um efnainnihaldslýsingar á fóðri og lagt mat á fóður í ljósi þeirra. Fjallað verður um helstu gras- og beitartegundir, uppskeru og næringargildi þeirra. Fjallað er um grunnþætti við heyverkun.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • REI2104190
    Reiðmennska II
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Verkleg kennsla fer fram á skólahestum. Áfram er haldið með verklega þjálfun nemandans í stjórnun og ásetu.  Áhersla er lögð að geta riðið hestinum í réttri líkamsbeitingu með léttleikandi samband við hestinn. Nemendur fá þjálfun í að ríða safnandi fimiæfingar á feti og tölti ásamt nákvæmar gangskiptingar og reiðleiðir. Fjallað er um mismunandi beislabúnað og virkni. Kennt er á íslenskar stangir og fær nemandinn þjálfun í notkun þeirra á hestvænan hátt. Nemendur ríða knapamerkjapróf í kennslufræðinámskeiði hjá nemendum á 2. og 3.ári skólans, er þetta liður í því að undirbúa nemendur að koma fram og framkvæma ákveðin verkefni. Nemendur fá þjálfun í að ríða greitt tölt og kynningu á reiðmennsku á skeiði. Nemendur taka þátt í fóðrun og hirðingu hestanna og halda dagbók um námskeiðið.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • ÞRH2204200
    Þjálfun reiðhestsins II
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um markvissa og kerfisbundna uppbyggingu ganghests. Farið er frekar í líkamsbeitingu hestsins og ítarlega verður unnið með þjálfunarþrep Hólaskóla. Nemandinn fær þjálfun í notkun hringtaums á hestvænan hátt og farið verður í tvítaumsvinnu í hringgerði og utan þess. Áhersla er lögð á hestvænar þjálfunaraðferðir og jákvætt samspil við hestinn.

    Nemendur fá þjálfun í að ríða fimiæfingar og nákvæmar reiðleiðir á velli sem síðan er fléttað saman í fimiþjálfun og þjálfun gangtegunda. Áfram er haldið með verklega þjálfun nemandans í stjórnun og ásetu. Nemendur taka þátt í keppni og/eða gæðingafimi eða annars konar sýningu. 

    Farið er í teymingar á hesti og notkun umhverfis og náttúrunnar við þjálfun hesta  á uppbyggilegan hátt. Nemendur halda þjálfunardagbók og taka þátt í fóðrun og hirðingu hestanna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • FOT2702190
    Fortamningar - tamningafræði
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemandinn öðlist skilning og hæfni í fortamningu ungra trippa.

    Fjallað er um læriatferli hesta og tamningaaðferðir sem byggja á forsendum hestsins; eðlisviðbrögðum hans, skynjun og náttúrlegu atferli. Áhersla er lögð á með hvaða hætti hesturinn lærir og hvernig unnt er að vinna traust hestsins. Nemendur fá verklega þjálfun í fortamningum, aðferðum og vinnubrögðum, með það að markmiði að skapa gott samband milli manns og hests. Nemendur halda tamningadagbók og taka þátt í fóðrun og hirðingu trippanna.

    Kennsluhættir:

    Verkleg kennsla fer fram í reiðhöll og í hesthúsi. Aðallega hópakennsla. Bókleg kennsla er í formi verkefnarvinnu nemandans, fyrirlestra og sýnikennslna. Mætingaskylda er í námskeiðinu og taka nemendur þátt í fóðrun og hirðingu hestana.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • HEH2404190
    Heilsufræði hestsins
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið:

    Dýpka skilning nemandans á heilsufari hestsins og hvað sé hægt að gera til að fyrirbyggja sjúkdóma eða álagsmeiðsli. Auka þekkingu nemandans á einkennum, til að meiri líkur verði á að hægt sé að grípa fljótt inní og koma þannig oft á tíðum í veg fyrir að vandamálið verði alvarlegt.

    Fjallað verður um velferð hrossa og sérstök áhersla er lögð á fyrirbyggjandi aðgerðir sem stuðla að góðri endingu þeirra og draga úr álags- og meðferðartengdum sjúkdómum.Á námskeiðinu er gerð grein fyrir algengustu sjúkdómum sem þekktir eru í íslenskum hrossum og farið yfir orsakir, einkenni, greiningaraðferðir og meðhöndlun þeirra.  Á námskeiðinu verður fjallað um lög og reglugerðir er varða hestahald. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • KOR2504190
    Kennslufræði og reiðkennsla II
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Verður endurskoðað

    • Knapamerki stig 1 og 2 . Stigskipt nám (kennsluefni) fyrir hinn almenna hestamann. • Aðferðafræði og undirbúningur bóklegrar og verklegrar reiðkennslu. • Gerð kennsluáætlana, kennsluverkefna og framkvæmd kennslu. • Æfingakennsla með jafningjum og hóp af byrjendum

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • HUJ2304190
    Hestahald og hófhirða
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið:

    Að fá þekkingu á helstu reglum og viðmiðum varðandi hestahald og hvernig þær tengjast hesthúsbyggingum og aðstöðu. Að veita grunnþekkingu í hófhirðu og járningum.

    Fjallað er um húsvist hesta og kröfur tengdar umhirðu. Gerð er sérstök grein fyrir mismunandi loftræstingum og lýsingu í hesthúsum, undirburð í safnstíum og eiginleikum hans. Kynntar eru rannsóknir á húsvist og hestahaldi og fjallað um innra skipulag hesthúsa. Í námskeiðinu er einnig fjallað um staðarval hesthúsa/reiðhalla gerði og reiðgötur auk beitarfræði og landnýtingu tengd hestahaldi. Í járningahluta námskeiðsins er lögð áhersla á mikilvægi fótstöðu hesta. Farið verður í uppbyggingu hófsins og líffræði hans. Fjallað verður um járningar almennt en sérstök áhersla á jafnvægisjárningar. Hófhirðu stóðhrossa verður gerðsérstök skil. Námskeiðið skiptist til helminga milli hestahalds og heshúshúsbygginga og járningahluta

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • Haust
  • REI3104190
    Reiðmennska III/knapaþjálfun
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Verkleg kennsla fer fram á skólahestum. Áfram er haldið með verklega þjálfun nemandans í stjórnun og ásetu.  Fjallað er ítarlega um ásetugalla og áhrif á hreyfingar og líkamsbeitingu hestsins. Nemandinn fær þjálfun í sætisæfingum og öðrum knapaæfingum. Nemandinn gerir í samvinnu við kennara áætlun um að bæta líkamlegt ástand sitt og sér um að fylgja því eftir. Úttekt gerð í upphafi og lok annar. Áhersla er lögð að geta riðið hesti í réttri líkamsbeitingu með léttleikandi samband við hestinn. Nemendur fá kynningu á hindrunarstökki. Nemendur fá þjálfun í að ríða safnandi fimiæfingar ásamt nákvæmar gangskiptingar og reiðleiðir. Nemendur taka þátt í fóðrun og hirðingu hestanna og halda dagbók um námskeiðið.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • ÞJÁ3302190
    Þjálfun I
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um almenna framhaldsþjálfun reiðhesta s.s. bætta svörun ábendinga, meiri stjórnun og kröfur á líkamsbeitingu og form hestsins, betra jafnvægi, hreyfingu,  jafnvægi, jákvæðni og vilja. Áhersla er lögð á gott jafnvægi knapans og nákvæmar ábendingar. Nemendur  þjálfa hross, sem eru a.m.k. grunnþjálfuð. Hrossin eru tekin út í upphafi og lok þjálfunartímabilsins, og mat er lagt á framfarir og árangur. Nemendur fá þjálfun í að meta líkamlegt og andlegt ástand hestsins og þjálfunarstig hans. Ítarlega er fjallað um líkamsbeitingu og afleiðingar réttrar og rangrar líkamsbeitingar. Haldin er þjálfunardagbók í samræmi við þjálfunarskipulag. Nemendur taka þátt í allri umhirðu þjálfunarhrossanna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • ÍÞS3406190
    Íþróttasálfræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Íþróttasálfræði, helstu kenningar og hugtök:

    • Hugþjálfun og skynmyndir.
    • Markmiðssetning í íþróttum.
    • Hestamennska sem íþrótt.
    • Kvíðastjórnun og sjálfstraust.
    • Samstarf og hópavinna.
    • Að hámarka árangur á jákvæðan hátt.
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • TAM3208190
    Tamningar I
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um læriatferli hesta og tamningaaðferðir sem byggja á forsendum hestsins; eðlisviðbrögðum hans, skynjun og náttúrlegu atferli. Áhersla er lögð á með hvaða hætti hesturinn lærir, leiðtogahlutverk tamningamannsins og hvernig unnt er að vinna traust hestsins. Farið er í líkamsbeitingu og uppbyggingu á líkamlegum styrk. Nemendur fá verklega þjálfun í frumtamningum og grunnþjálfun, með það að markmiði að skapa gott samband milli manns og hests. Nemendur frumtemja fortamin trippi þar sem lögð er áhersla á andlegt og líkamlegt jafnvægi þeirra, samstarfsvilja og traust. Fjallað er um grunnþjálfun, s.s. bætta svörun og aukið samspil hvetjandi og hamlandi ábendinga, mikilvægi framhugsunar, andlegs jafnvægis og að hreyfingar séu frjálsar og óþvingaðar. Unnið er að betra jafnvægi hestsins á gangtegundum. Ítarlega er fjallað um líkamsbeitingu, sveiganleika, jafnvægi til hliðanna og stjórn yfirlínu á grunnþjálfunarstigi. Farið er í teymingar á hesti, reið á víðavangi, vinnu við hendi og langan taum. Nemendur halda tamningadagbók og taka þátt í fóðrun og hirðingu trippanna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • RFH3604190
    Rekstur fyrirtækja í hestamennsku
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um starfsumhverfi og rekstur hrossaræktarbúa, tamningastöðva og annarra hestatengdra fyrirtækja. Fjallað er um stofnun fyrirtækja, rekstrarform, lög og reglugerðir, bókhald og réttindi og skyldur rekstraraðila. Kynnt eru undirstöðuatriði í launaútreikningi, reikningagerð og virðisaukaskatti og gerð grein fyrir muninum á verktökum og launþegum. Einnig er fjallað um framboð og eftirspurn, markaðssetningu, markmiðasetningu og áætlanagerð. Rýnt er í eðli og sérkenni hestatengdrar þjónustu, mótun ímyndar og samskipti við viðskiptavini. Áhersla er lögð á að undirbúa nemendur til að starfa á eigin vegum og fyrir aðra í hestatengdri starfsemi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • HRH3506190
    Hreyfingafræði hestsins
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið:

    Að nemandinn geti hagnýtt sér aðferðir hreyfingafræðinnar við mat á gangtegundum og hreyfingum hestsins.

    Fjallað er um hvernig gerð og virkni stoðkerfis hestsins hefur áhrif á hreyfingar hans. Kynntar verða aðferðir, hugtök og kenningar sem notaðar eru í hreyfifræði og hreyfiaflfræði. Sérstaklega er fjallað um hreyfingar, jafnvægi og líkamsbeitingu hestsins við þjálfun og einnig samspil þessara þátta við álag og endingu hestsins. Ítarlega er fjallað um gangtegundir og mat á gæðum þeirra bæði með huglægum og hlutlægum aðferðum. Kynntur verður sá tækjabúnaður og mælitæki sem hægt er að nota við að mæla hreyfingar og gangtegundir hestsins og einnig ásetu og stjórnun knapans. Kynntar eru ýmsar rannsóknir í hreyfingafræði hesta.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • KOR4504190
    Kennslufræði III
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið:

    Markmið námskeiðsins er að nemendur geti kennt og þekki vel alla þætti Knapamerkja 1 - 3.

    Nemendur fá þjálfun í að setja fram kennsluáætlanir, undirbúa og framkvæma kennslu fyrir nokkuð vana knapa. Nemendur fá þjálfun í að skipuleggja og byggja upp reiðnámskeið, búa til kynningarefni og vinna sjálfstætt með námskeiðahald.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • REI4104190
    Reiðmennska IV/knapaþjálfun
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Verkleg kennsla fer fram á skólahestum og skeiðhestum skólans. Áfram er haldið með verklega þjálfun nemandans í stjórnun og ásetu. Áhersla er lögð á að geta riðið hestinum í réttri líkamsbeitingu með léttleikandi samband við hestinn. Nemendur

    • fá þjálfun í að ríða skeið
    • fá þjálfun í að greina misstyrk og finna fjölbreyttar leiðir til að jafna misstyrk
    • taka þátt í fóðrun og hirðingu hestanna og halda dagbók um námskeiðið
    • velja sér aðferð til líkamsræktar, leggja stund á hana á meðan á námskeiðinu stendur, og skila heimildaritgerð um hana (t.d. jóga, pílates, hlaupafimi, dans, leikfimi, krossfit)
    • fá þjálfun í að meta ásetu hjá öðrum knöpum, skipuleggja og kenna ásetuæfingar á skólahestum
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • ÞLE4406190
    Þjálfunarlífeðlisfræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um grunnatriði þjálfunarlífeðlisfræðinnar og sérstöðu hestins. Ítarlega er fjallað um áhrif þjálfunar á vöðva, bein og beinagrind, liði, sinar og liðbönd, öndunarfæri, hjarta og æðakerfi hestsins. Greint er frá áhrifum þjálfunar á efnaskipti, blóð og hitastjórnun í líkama hestsins. Gerð er grein fyrir hvaða þættir hafa takmarkandi áhrif á afköst og frammistöðu hesta. Fjallað er um mikilvægi líkamlegrar þjálfunar fyrir hestinn og hvernig má bæta líkamlegt þjálfunarástand hesta (þjálfunaraðferðir). Kynntur verður sá tækjabúnaður og mælitæki sem hægt er að nota á hagnýtan hátt við þjálfun hrossa, mat á þjálfunarálagi og þjálfunarástandi. Kynnt verður hvernig mælingar s.s. á hjartslætti, líkamshita, öndunartíðni og mjólkursýru í blóði eru notaðar til að meta þjálfunarálag á hesta. Sérstök áhersla er á að kynna rannsóknarniðurstöður um þjálfunarlífeðlisfræði íslenska hestsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • TAM4204190
    Tamningar II
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið:

    Nemandinn öðlist reynslu og aukið sjálfstæði í að gera bandvanan hest reiðfæran og taminn til að verða reiðhestur.

    Fjallað er um einstaklingsmiðað tamningaferli í gegnum frumtamningar og grunnþjálfun. Ítarlega er fjallað um mat og flokkun hesta í samræmi við skapgerð þeirra og mismunandi áherslur við tamninguna skv. því. Þá er einnig fjallað um áhrif byggingarlags, ganglags og líkamlegs atgervis á vinnulag.

    Nemendur

    • vinna með fortamin trippi í gegnum frumtamningar- og grunnþjálfunarferli
    • fá þjálfun í skipulögðum og sjálfstæðum vinnubrögðum með áherslu á hestvænar aðferðir og einstaklingsmiðaða tamningu
    • halda tamningadagbók og taka þátt í fóðrun og hirðingu trippanna.
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • ÞJV4610190
    Verknám - þjálfun III
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fer fram á viðurkenndum verknámsstað þar sem fagleg og skipuleg vinnubrögð ásamt eflingu á frumkvæði nemandans eru höfð að leiðarljósi. Megináhersla er á að auka þekkingu og færni nemendans í þjálfun reiðhrossa með því að hann þjálfi mismunandi hestgerðir og á mismunandi þjálfunarstigi. Áhersla er lögð á markvissa þjálfun ásetu og stjórnunar knapans.

    Nemendur

    • halda þjálfunarskýrslur og taka þátt í umhirðu hestanna
    • vinna kerfisbundnar úttektir á ólíkum hestgerðum og gera einstaklingsmiðaðar þjálfunaráætlanir
    • fá þjálfun í að sýna hestana og gera grein fyrir þjálfun þeirra auk þess að taka þátt í keppni og/eða sýningum
    • þjálfa einnig eigin hest í verknáminu.
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • ÞJÁ4302190
    Þjálfun II
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennt er á nemendahesti ekki yngri en á sjötta vetur. Hesturinn á að vera væntanlegur nemendahestur nemandans á 3. ári. Fjallað er ítarlega um framhaldsþjálfun. Áhersla er lögð á kerfisbundið mat reiðhesta, mismunandi hestgerðir, tamninga- og þjálfunarstig þeirra og gerð einstaklingsmiðaðra þjálfunaráætlana. Nemendur fá þjálfun í að sýna hestana og gera grein fyrir þjálfun þeirra. Áhersla er lögð á hestvænar aðferðir, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð. Námskeiðið er undanfari að  verknámi á viðurkenndum verknámsstað og á hesturinn að fylgja nemandanum í verknámið. Nemendur halda þjálfunarskýrslur og taka þátt í allri umhirðu hestanna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • Haust
  • KOR5504190
    Kennslufræði IV
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið

    Markmið námskeiðsins er að nemandinn geti beitt fjölbreyttum þáttum kennslufræðinnar í bóklegri og verklegri reiðkennslu auk þess að hafa öðlast sjálfsöryggi og frumkvæði til að takast á við fagleg og krefjandi verkefni á sviði hestamennskunnar.

    Námskeiðslýsing

    Nemendur fá þjálfun í að setja fram kennsluáæltanir, undirbúa og framkvæma kennslu fyrir nokkuð vana knapa á hinum ýmsu sviðum.

    Námskeiðið skiptist upp í eftirfarandi þætti:

    Fyrirlestur "Power of coaching"

    Nemendur halda fyrirlestur um bókina Power of coaching.

    Sýnikennsla 

    Fjallað um sýnikennslu sem kennsluaðferð í reiðkennslu. Nemendur fá yfirgripsmikla þjálfun í að vinna með fjölbreytt sýnikennsluatriði valin af kennurum. Farið ítarlega í skipulag sýnikennslu og verklegar útfærslur.

    Vettvangsnám FNV 

    Farið er á vettvang, þar sem nemendur halda fræðslu. Nemendur fá yfirgripsmikla þjálfun í bóklegri og verklegri kennslu, þ.m.t. sýnikennslu.

    Jafningjakennsla

    Nemendur fá æfingu í að kenna knöpum á svipuðu getustigi og hann er sjálfur.

    Sætisæfingakennsla

    Nemendur fá æfingu í að meta ásetu, finna æfingar við hæfi og framfylgja sætisæfingar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • SKÞ5202190
    Skeið og þjálfun I
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um skeið, þjálfun þess, ábendingar og stjórnun knapans. Fjallað er um mat á þjálfunarstigi og þreki og gerð þjálfunaráætlana keppnishesta með sérstöku tilliti til skeiðhesta. Nemendur fá þjálfun í að fylgjast með og meta lífeðlisfræðilega þætti hestsins. Áhersla er lögð á uppbyggingu skeiðkeppnishests, nákvæmni í stjórnun og að laða fram rétt viðbrögð hestsins, traust hans, jákvæðan samstarfsvilja, líkamsbeitingu og hreyfingar. Nemendur gera áætlun og leggja grunn að keppnisþátttöku á vorönn. Kennt er á skeiðhesta skólans. Nemendur sjá um umhirðu hestanna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • ÞJK5106190
    Þjálfun keppnishesta I
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Ítarlega er fjallað um hugtök reiðmennskunar og líkamsbeitingu reiðhestsins og vinna nemendur verkefni um stöðu þekkingar á þeim. Verkleg kennsla fer fram á skólahestum og nemendahestum. Fjallað er um mat á gæðum keppnishesta, markmiðssetningu við þjálfun þeirra og gerð þjálfunaráætlunar. Áfram er haldið með verklega þjálfun nemandans í stjórnun og ásetu.  Áhersla er lögð að geta riðið hestinum í réttri líkamsbeitingu með léttleikandi samband við hestinn. Nemendur fá þjálfun í að meta eigin frammistöðu, sem og hestsins. Sérstök áhersla er lögð á andlegan og líkamlegan undirbúning knapans fyrir keppni og sýningar. Nemendur taka þátt í fóðrun og hirðingu hestanna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • ÞJÁ5304190
    Þjálfun IV
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er ítarlega um þjálfun unghrossa í framhaldi af frumtamningastigi. Áhersla er lögð á kerfisbundið mat og þjálfunaráætlun byggða á mismunandi hestgerðum og þjálfunarstigi, m.a. ganglagi, geðslagi, líkamlegum styrk og fóðurástandi. Áhersla er lögð á hestvænar aðferðir, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð. Nemendur fá þjálfun í að sýna og gera grein fyrir þjálfun hrossanna. Námskeiðið er tvískipt, á fyrri hluta þess vinna nemendur með hross sem nýlega hefur lokið frumtamningastigi. Hér er  áhersla lögð á gangsetningu og auknar kröfur um samspil ábendinga, taumsamband, hvelfdara líkamsform og þjálfun gangtegunda. Á seinni hluta námskeiðsins vinna nemendur með ungt kynbótahross sem miðað er við að þeir sýni á kynbótasýningu síðar á námsárinu (sjá námskeiðið KYD6304 - Kynbótahross – þjálfun og dómar). Heildstæð úttekt á sköpulagi, reiðhestskostum, þjálfunarstigi og útliti er lögð til grundvallar fyrir einstaklingsmiðaða þjálfunaráætlun hrossanna.  Áhersla er lögð á markvissa uppbyggingu hrossanna, s.s. varðandi svörun ábendinga, líkamlegan styrk og jafnvægi í hreyfingum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • ROT5706190
    Rannsóknaaðferðir-tölfræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um

    • aðferðafræði rannsókna, s.s. hönnun tilrauna, gerð skoðanakannana og viðtöl
    • vísindalegar aðferðir, tilgátur, tengsl tilgáta og tölfræði
    • gagnaöflun
    • framsetningu tölfræðilegra niðurstaðna, t.d. myndræna

    Helstu grundvallarhugtök tölfræðinnar og lýsandi tölfræði eru kynnt, sem og úrvinnsla lýsandi tölfræði. Áhersla er lögð á verkefnavinnu með tölfræðigögn, þar sem skráning á gögnum í töflureikni er æfð

    Nemendur eru æfðir í

    • gagnrýninni hugsun
    • öflun og meðferð heimilda
    • framsetningu rannsóknarspurninga
    • hönnun og skipulagningu eigin rannsókna, meðal annars með verkefnavinnu

    Fjallað er ítarlega um vísindaskrif, á formi námsritgerða, veggspjalda og vísindagreina, og vísindaskrif æfð í verkefnavinnu. Nemendur leggja grunn að eigin rannsóknarverkefni og skila lýsingu og verkáætlun fyrir einstaklingsverkefni sem þeir vinna á lokaönn BS-námsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • ÞRS5404190
    Þroskasálfræði
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um helstu kenningar og aðferðir þroskasálfræðinnar sem tengjast námi og kennslu ásamt því hvað einkennir góð vísindaleg vinnubrögð. Sérstök áhersla verður lögð á vinnu með nýlegar rannsóknarniðurstöður á sviði þroskasálfræði sem tengjast vinnu með hestum. Fjallað verður um orsakir og eðli einstaklingsmunar, samfellu í þroska og sveigjanleika þroskaferlisins. Fjallað verður sérstaklega um kenningar sem hafa bein áhrif á störf kennara s.s. kenningar um vitrænan þroska, tilfinningaþroska, þróun tilfinningatengsla, kenningar um félagsþroska, þróun sjálfsmyndar og siðferðisvitundar. Jafnframt verður fjallað um áhrif uppeldis, menningar og félagslegra aðstæðna á þroska. Umfjöllun námskeiðsins verður afmörkuð við börn, unglinga og ungt fólk. Fjallað verður um helstu þroskabreytingar á þessu tímabili og sú umfjöllun tengd starfsvettvangi námsleiðarinnar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • EKH5604190
    Erfðir og kynbætur hesta
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið:

    Að fá grunnþekkingu íerfða- og kynbótarfræði til að geta hagnýttþekkinguna við ræktun hrossa og öðlast grunnskilning á kynbótastarfi í íslenskri hrossarækt.

    Fjallað er um grundvallarhugtök í erfðafræðinni, erfðavísa og litninga, flutning erfðaefnis milli kynslóða, DNA, RNA, virkni erfðavísa, áhrif erfða og umhverfis. Áhersla er lögð á erfðir séðra eiginleika í hrossum s.s. hrossalita og ýmissa erfðagalla. Farið er yfir helstu hugtök og grunnatriði kynbótafræðinnar s.s. breytileika, svipfar, umhverfisáhrif, arfgengi, öryggi, ættliðabil, úrval og erfðaframfarir. Fjallað um áhrif stórtækra erfðavísa s.s. DMRT3 erfðavísinn. Helstu ganghesta- og keppnishestakyn heimsins eru kynnt. Farið yfir kynbótaskipulag í íslenskri hrossarækt með áherslu á kynbótamatskerfið (BLUP) og hagnýtingu þess í ræktunarstarfinu. Einnig er fjallað um skýrsluhald hrossaræktarinnar og gagnavörsluforritið WorldFeng.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • BSV6610190
    BS verkefni
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið:

    Nemandinn fær þjálfun í að hanna rannsókn, setja fram rannsóknarspurningu/ar, safna gögnum, vinna úr þeim, setja þau fram, túlka og kynna í skriflegum texta.

    Nemandi velur sér verkefni í samráði við sérfræðing við Háskólann á Hólum. Nemandi afmarkar viðfangsefnið, setur fram rannsóknarspurningu/ar, velur rannsóknaraðferð í samráði við leiðbeinanda, safnar gögnum, vinnur tölfræðilega úr þeim, og skrifar ritgerð. Nemandi setur fram rannsóknarniðurstöður, túlkar þær í umræðum og dregur ályktun/anir. Ritgerðin er unnin samkvæmt reglum skólans um BS verkefni og um það er gerður sérstakur samningur skóla, nemanda og leiðbeinanda.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • BSN6606190, TÖL6404190
    BS-námskeið
    Bundið valnámskeið
    4
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið:

    Nemandinn fær þjálfun í að hanna rannsókn, setja fram rannsóknarspurningu/ar, safna gögnum, vinna úr þeim, setja þau fram, túlka og kynna í skriflegum texta og fyrirlestri.

    Nemandi skipuleggur og hannar eigin rannsókn, safnar gögnum, setur fram rannsóknarspurningu/ar og tilgátu/r. Hann vinnur tölfræðilega úr gögnunum, setur fram rannsóknarniðurstöður, túlkar þær og dregur ályktun/anir. Nemandi kynnir verkefni sitt í málstofu, fyrir samnemendum og kennurum deildarinnar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • BSN6606190, TÖL6404190
    Tölfræði
    Bundið valnámskeið
    4
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Áhersla er lögð á að efla talnalæsi nemenda með verkefnavinnu og þjálfun í vinnu með tölfræðigögn. Kynnt eru helstu grundvallarhugtök tölfræðinnar, tilgátur, prófun tilgátna og túlkun niðurstaðna.

    Nemendur

    • fá þjálfun í notkun tölfræðiprófa við samanburð á meðaltölum og hlutföllum
    • vinna með eigin gögn, æfa gagnaskráningu í töflureikni (Excel) og hvernig má færa gögn í tölfræðiforritið Minitab
    • æfa notkun á tölfræðigreiningum (t.d. fylgni) og tölfræðiprófum (t.d. t-próf, anova) í töflureikni og Minitab
    • æfa sig í að setja tölfræðilegar upplýsingar fram á skýran hátt og að draga (réttar) ályktanir af niðurstöðum tölfræðinnar
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • SKÞ6202190
    Skeið og þjálfun II
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um þjálfun skeiðs og taka nemendur þátt í sýningum og keppni. Áhersla er lögð á líkamsbeitingu, orkustig, skreflengd og rými hestsins. Jafnframt er lögð áhersla á andlegt jafnvægi hestsins, samstarfsvilja og einbeitingu við mikið þjálfunarálag. Sérstök áhersla er lögð á skeið, þjálfun þess og uppbyggingu, en einnig að bæta gangtegundir hestsins almennt. Nemendur fá ítarlega þjálfun á mismunandi skeiðhestum. Fjallað er um andlegan undirbúning og þátttöku knapa og hests í keppni og hvernig má hámarka árangur.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • KYD6304190
    Kynbótahross - Þjálfun og dómar
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemandinn þjálfar kynbótahross og fer með í dóm á sýningu sem er uppsett eins og opinber kynbótasýning. Hann ber jafnframt ábyrgð á fóðrun og allri umhirðu hrossins. Kennsla er einstaklingsmiðuð og fer fram í einkakennslu og skipulögðum úttektum með kennara. Áhersla er lögð á að byggja upp sjálfstæð vinnubrögð nemendans við þjálfun. Reglur og dómstigi kynbótasýninga er kynntur og fá nemendur þjálfun í mati á sköpulagi og reiðhestshæfileikum hrossa. Sérstaklega verður tekin fyrir sýningartækni fyrir byggingar- og hæfileikadóma sem og annar sérhæfður undirbúningur fyrir kynbótasýningar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • ÞJK6106190
    Þjálfun keppnishesta II
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um þjálfun keppnishrossa og taka nemendur þátt í sýningum og keppni. Áhersla er lögð á líkamsbeitingu, orkustig, söfnun, fjaðurmagn og rými hestsins. Jafnframt á andlegt jafnvægi hestsins, samstarfsvilja og einbeitingu við mikið þjálfunarálag. Fjallað er um þá þætti sem mat er lagt á í keppni og öðrum sýningum á hestum, og á hverju matið byggist. Nemendur fá ítarlega þjálfun í reiðmennsku með áherslu á uppbyggingu keppnishests. Fjallað er um yfirferð, þjálfun, ábendingar og stjórnun knapans. Nemandinn kemur sjálfur með hest, sem verður að uppfylla lágmarkskröfur alhliða keppnishests, með það að markmiði að bæta allar gangtegundir. Fjallað er um andlegan undirbúning og þátttöku knapa og hests á sýningum og keppni og hvernig má hámarka árangur. Nemendur taka þátt í fóðrun og hirðingu hestanna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • KOR6506190
    Kennslufræði V
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið skiptist upp í eftirfarandi þætti:

    Fyrirlestur 5%

    Knapamerki 20% 

    Farið yfir alla þætti Knapamerkjanna með sérstakri áherslu á faglega þætti og hugtakanotkun á stigum 4 og 5. Nemendur fá þjálfun í að meta og dæma Knapamerkjapróf.

    Einkakennsla 30%

    Fjallað um einkakennslu sem kennsluaðferð í reiðkennslu. Nemendur fá yfirgripsmikla þjálfun í að undirbúa, framkvæma og fylgja eftir sérhæfðri einkakennslu með vönum knöpum.

    Kennslusýning 40%

    Skipulag kennslusýningar, fræðsla og sýnikennslur fyrir hinn almenna hestamann. Nemendur fá yfirgripsmikla þjálfun í að skipuleggja og framkvæma í verki fjölbreytta fræðslumöguleika.

    Lokapróf 5%

    Nemandinn heldur sýnikennslu, þar sem hann sýnir fram á færni á hestbaki, fræðilega þekkingu og hæfni til að sýna fræði í verki.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • EIV6902190
    Einstaklingsverkefni
    Valnámskeið
    2
    Valnámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemandinn velur sér einstaklingsverkefni í samráði við umsjónarmann námskeiðsins. Áhersla er lögð á að verkefnið standist kröfur um vísindalega vinnubrögð varðandi efnistök, heimildanotkun, gagnaöflun og úrvinnslu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • JÁR6802190
    Járningar
    Valnámskeið
    2
    Valnámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um almennar járningar auk jafnvægisjárninga og samspil við ganglag, hreyfingar og jafnvægi hestsins. Þá er fjallað um notkun helstu hóffylli- og hófviðgerðarefna.  Áhersla er lögð á verklega þjálfun nemenda við járningar, breytingar á skeifum og notkun botna, hóffylli- og viðgerðarefna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HDÓ6702190
    Hestadómar
    Valnámskeið
    2
    Valnámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu er fjallað um skipulag og reglur Landsambands hestamannafélaga fyrir gæðingakeppni og keppnisgreinar hestaíþrótta. Ítarlega er farið yfir dómkvarða allra keppnisgreinanna og nemendur fá þjálfun í dómstörfum (myndbönd). Nemendur þreyta verklegt dómarapróf á myndböndum ásamt bóklegt próf í reglugerð Gæðingadómarafélagsins og Hestaíþróttafélagsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HÞF6002190
    Hestatengd þjálfun fólks

Annað ár

Þriðja ár

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Að námi loknu gætir þú meðal annars starfað við:

  • Reiðkennslu og þjálfun knapa
  • Tamningar og þjálfun hrossa
  • Rekstur reiðskóla eða hestamennskuferða
  • Hestahald og búrekstur tengdan hrossarækt
  • Ráðgjöf í hestamennsku og ræktun
  • Sýningar og keppni með hross
  • Rannsóknir og þróunarverkefni tengd hestafræðum

Listinn er ekki tæmandi

Lögð er áhersla á að nemendur við HÍ á Hólum efli tengslanet sitt með því að hittast í staðlotum og finni eigin leiðir til að efla félagslíf deildarinnar. Hluti af félagslífi er að kynnast í staðlotum og skipuleggja viðburði tengt náminu.

Skólaárið 2026-2027 verður nýtt til að skilgreina og skipuleggja félagslíf stúdenta við HÍH meðal annars með því að stofna nemendafélög og skilgreina aðkomu stúdenta HÍH að Stúdentaráði. Nemendur HÍH munu fá stúdentakort og afslætti í samræmi við aðra stúdenta í háskólasamstæðunni.

Nemendur Háskóla Íslands eru dugleg að hittast á stúdentakjallaranum og eru nemendur HÍH hvött til að hittast þar ef tækifæri er til.

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Háskóli Íslands á Hólum
Hólar í Hjaltadal
Mán. - fim. 10-12 og 12:30 - 14 og fös. 10-12
Nemenda og kennsluþjónusta

Þjónustuborð er staðsett í aðalbyggingu skólans á Hólum en nemendur geta einnig nýtt sér þjónustuborð HÍ á Háskólatorgi.

Fylgdu HÍ á Hólum á:
FacebookYoutubeInstagram, TikTok

Hólar í Hjaltadal - Aðalbygging

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil