Tveir nemendur, maður og kona, halla sér yfir handrið
Tungumál kennslu
Enska og pólska
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Vilt þú læra pólsku?
  • Hefur þú áhuga á að kynnast Póllandi?
  • Langar þig að kynnast pólskri menningu og samfélagi?
  • Vilt þú fara í nám sem þú lýkur með diplómagráðu?

Námið er sett upp sem eins árs fullt nám en þú mátt ljúka því á tveimur árum ef þú vilt vera í hlutanámi. Námið hentar vel nemendum sem vilja læra pólsku frá grunni.

Meðal viðfangsefna

  • Pólsk málnotkun
  • Málfræði, ritun og lestur

Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf frá erlendum skóla.

Til þess að ljúka grunndiplómu í pólskum fræðum þarf nemandi að ljúka öllum námskeiðunum sem tilgreind eru á námsleiðinni.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Pólsk málfræði, lestur og ritun I (POL104G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta er grunnnámskeið í pólsku ætlað byrjendum sem hafa enga fyrri þekkingu á málinu. Kennt er á ensku og pólsku.

Námskeiðið kynnir helstu undirstöðuatriði pólskrar málfræði, þar á meðal beygingarfræði, setningafræði og stafsetningu. Nemendur þjálfa lesskilning og ritfærni.

Auk hefðbundinna kennslustunda verða æfingatímar sem ætlaðir eru til að þjálfa framburð, stafsetningu og grunnorðaforða fyrir lestur, ritun og samskipti.

Nemendum sem vilja ná góðum tökum á öllum færniþáttum er ráðlagt að taka einnig námskeiðið POL106G Pólska: málnotkun I.

Virk þátttaka er nauðsynlegur þáttur námskeiðsins.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Pólsk menning og samfélag (POL105G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði fá nemendur yfirlit yfir sögu Póllands allt að fyrri heimsstyrjöld. Farið verður sérstaklega í þá sögulegu atburði sem hafa sett mark sitt á pólska menningu og nemendur kynnast helstu bókmennta- og listaverkum og þeim listamönnum sem mótað hafa pólska þjóðarsál í gegnum aldirnar.Nemendur fá tækifæri til að öðlast skilning á landfræðilegum, pólitískum og samfélagslegum umbreytingum sem hafa mótað land og þjóð. Einnig verður fjallað um ríkulegan menningararf Póllands, þar á meðal hefðir, siði og venjur, sem og birtingarmyndir þeirra og þýðingu í samtímanum. Engrar forkunnáttu er krafist.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Haust
Pólska: málnotkun I (POL106G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta er grunnnámskeið í pólsku ætlað byrjendum sem hafa enga fyrri þekkingu á málinu. Kennt er á ensku og pólsku.

Markmið námskeiðsins er að þjálfa framburð, byggja upp grunnorðaforða, bæta hlustunarfærni og virkja nemendur í samskiptum á pólsku. Einfaldir textar og talmál er notað til að sýna notkun orðaforða og orðasambanda í samskiptum.

Auk hefðbundinna kennslustunda verða æfingatímar sem ætlaðir eru til að hjálpa nemendum að skilja og beita málfræðireglum sem nauðsynlegar eru fyrir bæði munnleg og skrifleg samskipti á pólsku.

Nemendum sem vilja ná góðum tökum á öllum færniþáttum er ráðlagt að taka einnig námskeiðið POL104G Málfræði, lestur og ritun I.

Virk þátttaka er nauðsynlegur þáttur námskeiðsins.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Pólsk málfræði, lestur og ritun II (POL205G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er ætlað nemendum sem hafa lokið námskeiðinu POL104G Pólsk málfræði, lestur og ritun I eða hafa sambærilega undirstöðuþekkingu í pólsku (með samþykki kennara). Kennt er á ensku og pólsku.

Markmiðið er að dýpka þekkingu nemenda á pólskri málfræði og veita aukna þjálfun í lestri og ritun. Frekari þættir beygingarfræði, setningafræði og stafsetningar verða kynntir og æfðir.

Auk hefðbundinna kennslustunda verða æfingatímar sem ætlaðir eru til að þjálfa framburð, stafsetningu og grunnorðaforða fyrir lestur, ritun og samskipti.

Nemendum sem vilja ná góðum tökum á öllum færniþáttum er ráðlagt að taka einnig námskeiðið POL207G Pólska: málnotkun II.

Virk þátttaka er nauðsynlegur þáttur námskeiðsins.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Pólland í dag (POL206G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður fjallað um sögu Póllands og menningu frá síðari heimstyrjöld og til dagsins í dag. Meðal umfjöllunarefna eru saga, stjórnmál og menning (með áherslu á bókmenntir, kvikmyndir og tónlist). Námskeiðið er kennt á ensku.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár | Vor
Pólska: málnotkun II (POL207G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er ætlað nemendum sem hafa lokið Pólska: málnotkun I eða hafa sambærilega undirstöðuþekkingu í pólsku (með samþykki kennara). Kennt er á ensku og pólsku.

Á námskeiðinu fá nemendur frekari þjálfun í framburði, orðaforði verður aukinn, hlustunarfærni styrkt og virk þátttaka í samskiptum á pólsku efld. Einfaldir textar og talmál er notað til að sýna notkun orðaforða og málfræði í samskiptum.

Auk hefðbundinna kennslustunda verða æfingatímar sem ætlaðir eru til að hjálpa nemendum að skilja og beita málfræðireglum sem nauðsynlegar eru fyrir bæði munnleg og skrifleg samskipti á pólsku.

Nemendum sem vilja ná góðum tökum á öllum færniþáttum er ráðlagt að taka einnig námskeiðið POL205G Málfræði, lestur og ritun II.

Virk þátttaka er nauðsynlegur þáttur námskeiðsins.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár
  • Haust
  • POL104G
    Pólsk málfræði, lestur og ritun I
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta er grunnnámskeið í pólsku ætlað byrjendum sem hafa enga fyrri þekkingu á málinu. Kennt er á ensku og pólsku.

    Námskeiðið kynnir helstu undirstöðuatriði pólskrar málfræði, þar á meðal beygingarfræði, setningafræði og stafsetningu. Nemendur þjálfa lesskilning og ritfærni.

    Auk hefðbundinna kennslustunda verða æfingatímar sem ætlaðir eru til að þjálfa framburð, stafsetningu og grunnorðaforða fyrir lestur, ritun og samskipti.

    Nemendum sem vilja ná góðum tökum á öllum færniþáttum er ráðlagt að taka einnig námskeiðið POL106G Pólska: málnotkun I.

    Virk þátttaka er nauðsynlegur þáttur námskeiðsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • POL105G
    Pólsk menning og samfélag
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði fá nemendur yfirlit yfir sögu Póllands allt að fyrri heimsstyrjöld. Farið verður sérstaklega í þá sögulegu atburði sem hafa sett mark sitt á pólska menningu og nemendur kynnast helstu bókmennta- og listaverkum og þeim listamönnum sem mótað hafa pólska þjóðarsál í gegnum aldirnar.Nemendur fá tækifæri til að öðlast skilning á landfræðilegum, pólitískum og samfélagslegum umbreytingum sem hafa mótað land og þjóð. Einnig verður fjallað um ríkulegan menningararf Póllands, þar á meðal hefðir, siði og venjur, sem og birtingarmyndir þeirra og þýðingu í samtímanum. Engrar forkunnáttu er krafist.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • POL106G
    Pólska: málnotkun I
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta er grunnnámskeið í pólsku ætlað byrjendum sem hafa enga fyrri þekkingu á málinu. Kennt er á ensku og pólsku.

    Markmið námskeiðsins er að þjálfa framburð, byggja upp grunnorðaforða, bæta hlustunarfærni og virkja nemendur í samskiptum á pólsku. Einfaldir textar og talmál er notað til að sýna notkun orðaforða og orðasambanda í samskiptum.

    Auk hefðbundinna kennslustunda verða æfingatímar sem ætlaðir eru til að hjálpa nemendum að skilja og beita málfræðireglum sem nauðsynlegar eru fyrir bæði munnleg og skrifleg samskipti á pólsku.

    Nemendum sem vilja ná góðum tökum á öllum færniþáttum er ráðlagt að taka einnig námskeiðið POL104G Málfræði, lestur og ritun I.

    Virk þátttaka er nauðsynlegur þáttur námskeiðsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • POL205G
    Pólsk málfræði, lestur og ritun II
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er ætlað nemendum sem hafa lokið námskeiðinu POL104G Pólsk málfræði, lestur og ritun I eða hafa sambærilega undirstöðuþekkingu í pólsku (með samþykki kennara). Kennt er á ensku og pólsku.

    Markmiðið er að dýpka þekkingu nemenda á pólskri málfræði og veita aukna þjálfun í lestri og ritun. Frekari þættir beygingarfræði, setningafræði og stafsetningar verða kynntir og æfðir.

    Auk hefðbundinna kennslustunda verða æfingatímar sem ætlaðir eru til að þjálfa framburð, stafsetningu og grunnorðaforða fyrir lestur, ritun og samskipti.

    Nemendum sem vilja ná góðum tökum á öllum færniþáttum er ráðlagt að taka einnig námskeiðið POL207G Pólska: málnotkun II.

    Virk þátttaka er nauðsynlegur þáttur námskeiðsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • POL206G
    Pólland í dag
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður fjallað um sögu Póllands og menningu frá síðari heimstyrjöld og til dagsins í dag. Meðal umfjöllunarefna eru saga, stjórnmál og menning (með áherslu á bókmenntir, kvikmyndir og tónlist). Námskeiðið er kennt á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • POL207G
    Pólska: málnotkun II
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er ætlað nemendum sem hafa lokið Pólska: málnotkun I eða hafa sambærilega undirstöðuþekkingu í pólsku (með samþykki kennara). Kennt er á ensku og pólsku.

    Á námskeiðinu fá nemendur frekari þjálfun í framburði, orðaforði verður aukinn, hlustunarfærni styrkt og virk þátttaka í samskiptum á pólsku efld. Einfaldir textar og talmál er notað til að sýna notkun orðaforða og málfræði í samskiptum.

    Auk hefðbundinna kennslustunda verða æfingatímar sem ætlaðir eru til að hjálpa nemendum að skilja og beita málfræðireglum sem nauðsynlegar eru fyrir bæði munnleg og skrifleg samskipti á pólsku.

    Nemendum sem vilja ná góðum tökum á öllum færniþáttum er ráðlagt að taka einnig námskeiðið POL205G Málfræði, lestur og ritun II.

    Virk þátttaka er nauðsynlegur þáttur námskeiðsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Pólska nýtist vel í viðskipalífinu, á alþjóðavettvangi og í ferðamennsku svo eitthvað sé nefnt. 

Fólk með kunnáttu í pólsku starfar meðal annars við:

  • Ferðaþjóðnustu
  • Alþjóðasamskipti
  • Leiðsögn
  • Þýðingar 
  • Túlkun
  • Viðskipti 
  • Inn- og útflutning

Listinn er ekki tæmandi.

  • Linguae er félag nemenda í öllum erlendum tungumálum við HÍ. 
  • Markmið félagsins er að efla félagslíf nemenda erlendra tungumála og vera öflugur vettvangur fyrir tungumálanema til þess að taka sér pásu frá krefjandi skólastarfi.
  • Sjá Facebook síðu Linguae.

Meira um félagslíf stúdenta í Hí.

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil