""
Tungumál kennslu
Enska
Lengd náms
Eitt misseri
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Vekja staðbundin, svæðisbundin og alþjóðleg sjónarhorn norðurslóða áhuga þinn?
  • Viltu öðlast djúpa þekkingu á málefnum norðurslóða?
  • Hefur þú áhuga á að kynnast og rækta tengslanet við aðra sem deila áhuga á málefnum norðurslóða?

Helst hefur verið horft til norðurslóða úr mikilli fjarlægð, til dæmis af rannsakendum og fjárfestum sem hvorki búa á svæðinu eða þekkja það og af ríkisstjórnum landa sem eru langt frá svæðinu. Það sjónarhorn hefur haft áhrif á þróun rannsókna á norðurslóðum hingað til.

Í náminu eru norðurslóðir útgangspunkturinn og er horfið frá eldri aðferðafræði og áhersla lögð á nýja hugsun og aðferðir í rannsóknum á norðurslóðum.

Uppbygging náms

Námið er 30 einingar og sett upp sem fullt nám til eins misseris en hægt að að ljúka náminu á lengri tíma.

Meðal viðfangsefna

  • Inngangur að norðurslóðafræðum
  • Stjórnmál, varnar- og öryggismál og stjórnsýsla norðurslóða
  • Alþjóðastjórnmál og norðurslóðir (t.d. samvinna, samkeppni)
  • Norðurslóðir og alþjóðleg skipan (stofnanir, Hringborð norðurslóða og fleira)

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á ensku og kennslubækur eru á ensku, nemendur þurfa því að hafa góða þekkingu á enskri tungu.

    Meginmarkmið

    Að námi loknu eiga nemendur að hafa víðtæka yfirsýn og skilning á efninu og geta beitt gagnrýnni hugsun sem gerir þeim kleift að mynda niðurstöðu byggða á fyrirliggjandi gögnum. Slík hæfni er nauðsynleg á mörgum sviðum eins og:

    • Við stefnumótun og stefnuinnleiðingu
    • Rannsóknir
    • Skýrslugerð
    • Upplýsingagjöf
    • Doktorsnámi

    Annað

    Örnámi lokið með fyrstu einkunn veitir aðgang að meistaranámi við Stjórnmálafræðideild.

    BA-, B.Ed.- eða BS-gráða eða sambærilegt nám. Erlendir umsækjendur, sem ekki hafa ensku að móðurmáli, þurfa að sýna fram á góða þekkingu á enskri tungu (TOEFL 79, IELTS 6.5).

    Ljúka þarf 30 ECTS einingum.  Námið skiptist í 24e í skyldunámskeiðum og 6e í valnámskeiðum.

    Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
    • Ferilskrá (CV)
    • Prófskírteini/námsyfirlit
    Uppsetning náms

    Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

    Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

    Óháð námsári | Haust
    Kenningar í alþjóðasamskiptum (ASK102F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er inngangur að kenningum í alþjóðasamskiptum. Það veitir nemendum undirstöðu til greininga á öðrum sviðum alþjóðasamskipta. Mælt er með að nemendur taki það sem fyrst á námsferlinum. Í námskeiðinu eru nemendur kynntir fyrir kenningaramma alþjóðasamskipta með það að markmiði að þroska færni þeirra til að skilja og greina viðburði samtímans með því að beita kenningum.

    Viðfangsefnið er skoðað í gegnum helstu umræður (e. debates) í fræðunum, með áherslu á raunhyggju (e. realism), frjálslynda stofnanahyggju (e. liberalism/liberal institutionalism), og mótunarhyggju (e. constructivism) og samspil sögulegra og vísindalegra aðferða annars vegar og gerendahæfni og formgerðar hins vegar.

    Fjallað er um viðfangsefni alþjóðasamskipta. Annars vegar þær aðferðir sem kenningarnar nota til að varpa ljósi á þessi efni og hins vegar hvernig kenningarnar lýsa stjórnmálum alþjóðakerfisins.

    Námskeiðið byggir á fyrirlestrum og umræðum, í minni og stærri hópum. Áhersla er lögð á að nemendur þroski greiningar- og ritfærni í gegnum skil á ólíkum rituðum verkefnum.

    Kennslutungumál: Enska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Óháð námsári | Haust
    Arctic Politics in International Context (ASK113F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    This course examines the aims, interests, opportunities, and challenges of states, non-state actors, regional fora, and international organizations in a changing Arctic region. With a focus on policy, politics, and current issues, it analyses the contemporary dilemmas posed by Arctic governance, cooperation, and imaginaries of the region.

    Building on the fundamentals taught in ‘Introduction to Arctic Studies’, this course investigates the Arctic policies of the ‘Arctic Eight’ states, as well as states located outside the region. Five of the ‘Arctic Eight’ are Nordic small states, and so this angle is also considered. The role and achievements of other relevant entities such as the Arctic Council, the Arctic Coast Guard Forum, NATO, the EU, and the UN is also analyzed. The course has an international focus and provides an in-depth examination of the major political contours in today’s Arctic

    Kennslutungumál: Enska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Óháð námsári | Haust
    Understanding the New Arctic (áður Introduction to Arctic Studies) (ASK117F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu er ætlað að kynna nemendur fyrir hugmyndum, hugtökum og nálgunum sem stuðst er við í norðurslóðafræðum til þess að veita betri skilning á norðurskautssvæðinu. Námskeiðið byrjar á yfirliti yfir grunnatriði norðurslóða í nútíma og víkur síðan að framlagi bæði hefðbundinna og gagnrýninna kenninga innan norðurslóðafræða. Ítarleg yfirferð er á grunnnálgunum norðurslóða sem og grunnhugtökum líkt og stjórnun norðurslóða, öryggi, fullveldi og sérstöðuhyggja. Einnig eru skoðaðar þær áskoranir og tækifæri sem þessar mismunandi nálganir bjóða upp á.

    Markmið námskeiðsins er að veita nemendum vandaðan grunn á sviði norðurslóðafræða og dýpka þekkingu og skilning á ört breytilegu svæði sem skiptir miklu máli fyrir Ísland. Námskeiðið er hugsað sem viðbót við ASK113F Arctic Politics in International Context sem leggur meiri áherslu á stefnur og beitingu þeirra.

    Kennslutungumál: Enska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Óháð námsári | Haust
    Staða Íslands í alþjóðakerfinu (ASK105F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að kynna nemendur fyrir alþjóðasamvinnu og stöðu Íslands í alþjóðakerfinu. Hnattvæðing verður skoðuð í sögulegu ljósi og farið yfir helstu kenningar um hnattvæðingu. Fjallað verður um áhrif hnattvæðingar á stjórnmál, efnahagsmál, ríki og einstaklinga. Utanríkisstefna Íslands verður greind og áhersla lögð á þau málefni sem eru í forgangi hjá íslenskum stjórnvöldum um þessar mundir. Sjónum er beint að varnar- og öryggismálum á Íslandi, þátttöku Íslands í málefnum norðurslóða og norrænu samstarfi, og stöðu Íslands í ljósi breyttrar heimsmyndar. Fjallað verður sérstaklega um stofnanir sem sinna öryggismálum á landinu eins og Landhelgisgæsluna, Póst- og fjarskiptastofnunina og Ríkislögreglustjóra. Samrunaþróunin í Evrópu verður skoðuð með tilliti til þeirra leiða sem Ísland hefur valið í samskiptum sínum við Evrópu. Skoðað verður sérstaklega hvaða áhrif EES-samningurinn hefur haft á Íslandi. Einnig verður gerð grein fyrir þátttöku Íslands í starfi Sameinuðu þjóðanna og framboði Íslands til Öryggisráðs SÞ.

    Kennslutungumál: Enska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Óháð námsári | Haust
    Norðurheimur á miðöldum (SAG716M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Sögulegt yfirlit og saga rannsóknarhefðar um valin þemu norrænna miðalda, með áherslu á Ísland og Noreg frá víkingaöld fram til fjórtándu aldar. Þemu telja, m.a.: vald, konungur og ríki; lög og fæðardeilur; kyngervi, mægðir og félagstengsl; trú og hugarfar; kristnitaka, kristni og kirkja; efnahagur. Grunnþekking í atburðasögu tímabilsins er hjálpleg en ekki skilyrði.

    Kennslutungumál: Enska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Óháð námsári | Haust
    Verkefni í alþjóðasamskiptum (ASK106F)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendum gefst færi á að vinna einstaklings verkefni í umsjón fastra kennara við deildina. Viðfangsefni og lesefni er ákveðið í sameiningu af kennara og nemanda.  Nemandi hefur frumkvæði af því að hafa samband við þann kennara sem hann óskar eftir að vinna verkefnið hjá.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Óháð námsári | Haust
    The Arctic Circle (UAU018M)
    Valnámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Með loftslagsbreytingum er talið að mikilvægi norðurslóða muni aukast á næstu áratugum þar sem náttúruauðlindir verða aðgengilegri og nýjar samgönguleiðir opnast. Á sama tíma skapast ógnir við viðkvæm vistkerfi og samfélög en efnhagsleg tækifæri verða einnig til. Arctic Circle samtökin mynda viðamikið tengslanet sem byggir á alþjóðlegu samstarfi og umræðu um framtíð norðurskautsins. Arctic Circle samtökin eru opinn og lýðræðislegur vettvangur með þátttöku ríkisstjórna, stofnana, fyrirtækja, háskóla, fræðimannahópa, umhverfissamtaka, samfélaga frumbyggja, almennra borgara og annars áhugafólks um þróun norðurskautsins og afleiðinga þess á framtíð jarðar. Árlega Arctic Circle ráðstefnan er stærsta alþjóðlega samkoman með áherslu á norðurskautið. Árlega mæta yfir 2000 þátttakendur frá yfir 50 löndum.

    Á Arctic Circle ráðstefnunni hefur meðal annars verið fjallað um eftirtalin málefni:

    • Bráðnun íss og öfgakennd veður
    • Hlutverk og réttur innfæddra
    • Öryggismál á norðurslóðum
    • Innviðir fjárfestinga á norðuslóðum
    • Byggðaþróun
    • Innviðir flutningakerfa
    • Orkumál
    • Hlutverk Evrópu- og Asíuþjóða
    • Asía og Norðursjávarsiglingaleiðin
    • Lýðheilsa og velferð á heimskautasvæðum
    • Vísindi og þekking frumbyggja
    • Ferðamennska og flugsamgöngur á norðurslóðum
    • Vistkerfi og haffræði
    • Sjálfbær þróun
    • Þróun endurnýjanlegrar orku fyrir afskekkt samfélög
    • Tækifæri og ógnir við borun eftir náttúruauðlindum
    • Auðlindir á norðuslóðum
    • Viðskiptasamstarf á norðurslóðum
    • Úthöfin á norðurslóðum
    • Sjávarútvegur og lífrænar auðlindir
    • Jarðfræði og jöklafræði
    • Heimskautaréttur: sáttmálar og samningar
    • Heimur háður ís: norðurslóðir og Himalaya

    Á námskeiðinu taka nemendur þátt í Arctic Circle ráðstefnunni í Hörpu. Skyldumæting er fyrir nemendur á ráðstefnuna. Nemendur þurfa að mæta í tvær kennslustundir, eina stuttu fyrir ráðstefnuna og aðra stuttu eftir ráðstefnuna.

    Arctic Circle Assembly verður 8. - 10. október 2026 í Hörpu. Skyldumæting er á ráðstefnuna, auk mætingar í eina session fyrir ráðstefnuna (6. október) og aðra í vikunni eftir ráðstefnuna. 

    Nemendur greiða skráningargjald á ráðstefnuna. Gjaldið er almennt nemendagjald með afslætti. 

    Kennslutungumál: Enska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Óháð námsári
    • Haust
    • ASK102F
      Kenningar í alþjóðasamskiptum
      Skyldunámskeið
      6
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      6 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið er inngangur að kenningum í alþjóðasamskiptum. Það veitir nemendum undirstöðu til greininga á öðrum sviðum alþjóðasamskipta. Mælt er með að nemendur taki það sem fyrst á námsferlinum. Í námskeiðinu eru nemendur kynntir fyrir kenningaramma alþjóðasamskipta með það að markmiði að þroska færni þeirra til að skilja og greina viðburði samtímans með því að beita kenningum.

      Viðfangsefnið er skoðað í gegnum helstu umræður (e. debates) í fræðunum, með áherslu á raunhyggju (e. realism), frjálslynda stofnanahyggju (e. liberalism/liberal institutionalism), og mótunarhyggju (e. constructivism) og samspil sögulegra og vísindalegra aðferða annars vegar og gerendahæfni og formgerðar hins vegar.

      Fjallað er um viðfangsefni alþjóðasamskipta. Annars vegar þær aðferðir sem kenningarnar nota til að varpa ljósi á þessi efni og hins vegar hvernig kenningarnar lýsa stjórnmálum alþjóðakerfisins.

      Námskeiðið byggir á fyrirlestrum og umræðum, í minni og stærri hópum. Áhersla er lögð á að nemendur þroski greiningar- og ritfærni í gegnum skil á ólíkum rituðum verkefnum.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • ASK113F
      Arctic Politics in International Context
      Skyldunámskeið
      6
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      6 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      This course examines the aims, interests, opportunities, and challenges of states, non-state actors, regional fora, and international organizations in a changing Arctic region. With a focus on policy, politics, and current issues, it analyses the contemporary dilemmas posed by Arctic governance, cooperation, and imaginaries of the region.

      Building on the fundamentals taught in ‘Introduction to Arctic Studies’, this course investigates the Arctic policies of the ‘Arctic Eight’ states, as well as states located outside the region. Five of the ‘Arctic Eight’ are Nordic small states, and so this angle is also considered. The role and achievements of other relevant entities such as the Arctic Council, the Arctic Coast Guard Forum, NATO, the EU, and the UN is also analyzed. The course has an international focus and provides an in-depth examination of the major political contours in today’s Arctic

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • ASK117F
      Understanding the New Arctic (áður Introduction to Arctic Studies)
      Skyldunámskeið
      6
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      6 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðinu er ætlað að kynna nemendur fyrir hugmyndum, hugtökum og nálgunum sem stuðst er við í norðurslóðafræðum til þess að veita betri skilning á norðurskautssvæðinu. Námskeiðið byrjar á yfirliti yfir grunnatriði norðurslóða í nútíma og víkur síðan að framlagi bæði hefðbundinna og gagnrýninna kenninga innan norðurslóðafræða. Ítarleg yfirferð er á grunnnálgunum norðurslóða sem og grunnhugtökum líkt og stjórnun norðurslóða, öryggi, fullveldi og sérstöðuhyggja. Einnig eru skoðaðar þær áskoranir og tækifæri sem þessar mismunandi nálganir bjóða upp á.

      Markmið námskeiðsins er að veita nemendum vandaðan grunn á sviði norðurslóðafræða og dýpka þekkingu og skilning á ört breytilegu svæði sem skiptir miklu máli fyrir Ísland. Námskeiðið er hugsað sem viðbót við ASK113F Arctic Politics in International Context sem leggur meiri áherslu á stefnur og beitingu þeirra.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • ASK105F
      Staða Íslands í alþjóðakerfinu
      Skyldunámskeið
      6
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      6 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Markmið námskeiðsins er að kynna nemendur fyrir alþjóðasamvinnu og stöðu Íslands í alþjóðakerfinu. Hnattvæðing verður skoðuð í sögulegu ljósi og farið yfir helstu kenningar um hnattvæðingu. Fjallað verður um áhrif hnattvæðingar á stjórnmál, efnahagsmál, ríki og einstaklinga. Utanríkisstefna Íslands verður greind og áhersla lögð á þau málefni sem eru í forgangi hjá íslenskum stjórnvöldum um þessar mundir. Sjónum er beint að varnar- og öryggismálum á Íslandi, þátttöku Íslands í málefnum norðurslóða og norrænu samstarfi, og stöðu Íslands í ljósi breyttrar heimsmyndar. Fjallað verður sérstaklega um stofnanir sem sinna öryggismálum á landinu eins og Landhelgisgæsluna, Póst- og fjarskiptastofnunina og Ríkislögreglustjóra. Samrunaþróunin í Evrópu verður skoðuð með tilliti til þeirra leiða sem Ísland hefur valið í samskiptum sínum við Evrópu. Skoðað verður sérstaklega hvaða áhrif EES-samningurinn hefur haft á Íslandi. Einnig verður gerð grein fyrir þátttöku Íslands í starfi Sameinuðu þjóðanna og framboði Íslands til Öryggisráðs SÞ.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • SAG716M
      Norðurheimur á miðöldum
      Valnámskeið
      10
      Valnámskeið á námsleiðinni
      10 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Sögulegt yfirlit og saga rannsóknarhefðar um valin þemu norrænna miðalda, með áherslu á Ísland og Noreg frá víkingaöld fram til fjórtándu aldar. Þemu telja, m.a.: vald, konungur og ríki; lög og fæðardeilur; kyngervi, mægðir og félagstengsl; trú og hugarfar; kristnitaka, kristni og kirkja; efnahagur. Grunnþekking í atburðasögu tímabilsins er hjálpleg en ekki skilyrði.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • ASK106F
      Verkefni í alþjóðasamskiptum
      Valnámskeið
      2
      Valnámskeið á námsleiðinni
      2 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Nemendum gefst færi á að vinna einstaklings verkefni í umsjón fastra kennara við deildina. Viðfangsefni og lesefni er ákveðið í sameiningu af kennara og nemanda.  Nemandi hefur frumkvæði af því að hafa samband við þann kennara sem hann óskar eftir að vinna verkefnið hjá.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • UAU018M
      The Arctic Circle
      Valnámskeið
      4
      Valnámskeið á námsleiðinni
      4 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Með loftslagsbreytingum er talið að mikilvægi norðurslóða muni aukast á næstu áratugum þar sem náttúruauðlindir verða aðgengilegri og nýjar samgönguleiðir opnast. Á sama tíma skapast ógnir við viðkvæm vistkerfi og samfélög en efnhagsleg tækifæri verða einnig til. Arctic Circle samtökin mynda viðamikið tengslanet sem byggir á alþjóðlegu samstarfi og umræðu um framtíð norðurskautsins. Arctic Circle samtökin eru opinn og lýðræðislegur vettvangur með þátttöku ríkisstjórna, stofnana, fyrirtækja, háskóla, fræðimannahópa, umhverfissamtaka, samfélaga frumbyggja, almennra borgara og annars áhugafólks um þróun norðurskautsins og afleiðinga þess á framtíð jarðar. Árlega Arctic Circle ráðstefnan er stærsta alþjóðlega samkoman með áherslu á norðurskautið. Árlega mæta yfir 2000 þátttakendur frá yfir 50 löndum.

      Á Arctic Circle ráðstefnunni hefur meðal annars verið fjallað um eftirtalin málefni:

      • Bráðnun íss og öfgakennd veður
      • Hlutverk og réttur innfæddra
      • Öryggismál á norðurslóðum
      • Innviðir fjárfestinga á norðuslóðum
      • Byggðaþróun
      • Innviðir flutningakerfa
      • Orkumál
      • Hlutverk Evrópu- og Asíuþjóða
      • Asía og Norðursjávarsiglingaleiðin
      • Lýðheilsa og velferð á heimskautasvæðum
      • Vísindi og þekking frumbyggja
      • Ferðamennska og flugsamgöngur á norðurslóðum
      • Vistkerfi og haffræði
      • Sjálfbær þróun
      • Þróun endurnýjanlegrar orku fyrir afskekkt samfélög
      • Tækifæri og ógnir við borun eftir náttúruauðlindum
      • Auðlindir á norðuslóðum
      • Viðskiptasamstarf á norðurslóðum
      • Úthöfin á norðurslóðum
      • Sjávarútvegur og lífrænar auðlindir
      • Jarðfræði og jöklafræði
      • Heimskautaréttur: sáttmálar og samningar
      • Heimur háður ís: norðurslóðir og Himalaya

      Á námskeiðinu taka nemendur þátt í Arctic Circle ráðstefnunni í Hörpu. Skyldumæting er fyrir nemendur á ráðstefnuna. Nemendur þurfa að mæta í tvær kennslustundir, eina stuttu fyrir ráðstefnuna og aðra stuttu eftir ráðstefnuna.

      Arctic Circle Assembly verður 8. - 10. október 2026 í Hörpu. Skyldumæting er á ráðstefnuna, auk mætingar í eina session fyrir ráðstefnuna (6. október) og aðra í vikunni eftir ráðstefnuna. 

      Nemendur greiða skráningargjald á ráðstefnuna. Gjaldið er almennt nemendagjald með afslætti. 

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu

    Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

    Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

    Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




    Frekari upplýsingar

    Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

    Möguleikar

    Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

    Skilyrði

    Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

    • 90 ECTS einingar í grunnnámi
    • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

    Sjá frekari skilyrði

    Námskeið metin til eininga

    Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

    Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

    Að námi loknu hefja nemendur gjarnan störf hjá:

    • Opinberum stofnunum
    • Hagsmunasamtökum
    • Sveitarfélögum
    • Alþjóðastofnunum

    Aðrir halda áfram í námi og ljúka meistaraprófi.

    Listinn er ekki tæmandi.

    Ekki er sérstakt nemendafélag fyrir þessa námsleið, en nemendur eru duglegir að hittast á stúdentakjallaranum.

    Umsagnir nemenda
    Portrait photo of Frederik
    Diplómanámið í norðurslóðafræði var mér ómetanleg reynsla og dýpkaði þekkingu mína á þessu einstaka svæði varðandi pólítík, umhverfi og menningu. Námið samanstendur af námskeiðum þar sem Norðurheimskautið og alþjóðasamskipti eru í brennidepli og þau gefa góðan grunn. Með þátttöku í Hringborði norðurslóða fengum við innsýn í raunveruleikann á bak við fræðin. Námsleiðin jók ástríðu mína fyrir málefnum norðurslóða og opnaði tækifæri til framtíðar.
    Ljósmynd af Cynthiu Neil
    Námið í norðurslóðafræðum veitti mér hagnýta þekkingu byggða á kenningum alþjóðasamskipta, sem hjálpaði mér að skilja betur flóknar hnattrænar og pólitískar áskoranir norðurslóða. Þessi sérfræðiþekking hefur nýst í starfi mínu hjá Umhverfisstofnun Bandaríkjanna, sem rannsakandi við Háskólann í Iowa og sem kennari í samfélagsháskóla. Það var mjög vel tekið á móti mér af bæði nemendum og kennurum við HÍ. Ég byggði upp gott tengslanet og eignaðist vini til frambúðar á þessu misseri í Reykjavík.
    Gagnlegt efni
    Aurora Cooperation

    Námsvalshjólið

    Á hverju hefur þú áhuga?

    Aurora Cooperation

    Veldu framhaldsnám

    Skref fyrir skref

    Hafðu samband
    Stjórnmálafræðideild
    Virka daga 9:00 - 15:00
    Þjónusta

    Þjónustuborðið er fyrsti viðkomustaður fyrir alla þjónustu Háskóla Íslands. Hægt er að koma við í Háskólatorgi eða nota netspjallið neðst í hægra horninu á þessari síðu.

    Fylgdu okkur:
    Instagram   Facebook

    Deila

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil