""
Tungumál kennslu
Danska, norska og sænska
Lengd náms
Tvö ár - 120 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú lokið háskólanámi á BA-/BS-stigi eða sambærilegu námi á Norðurlöndum? 
  • Hefur þú numið norræn fræði innan eða utan Norðurlanda og viltu auka möguleika þína til frekara náms, leiks eða starfa í norrænu samhengi?
  • Langar þig að auka skilning þinn á stöðu ólíkra tungumála og hvernig þau tengjast menningarlegum fjölbreytileika á Norðurlöndum?
  • Vilt þú geta notað tungumálið til að miðla þekkingu á fræðilegum viðfangsefnum á alþjóðlegum vettvangi?

Í MA námi í norðurlandafræði fá nemendur innsýn í það sem einkennir norræn þjóðfélög og þróun þeirra, daglegt líf, bókmenntir og menningu.

Áhersla er lögð á að nemendur geti nýtt kunnáttu sína í a.m.k. einu Norðurlandamáli til að öðlast alhliða færni í dönsku, norsku og sænsku (þ.m.t. finnlands-sænsku) og notað þau til samskipta á norrænum vettvangi.

Í náminu er áhersla lögð á það sem einkennir Norðurlönd sem svæði með tilliti til  menningar, tungumála og samskipta auk helstu samfélagslegra einkenna.

Uppbygging náms 

Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára.

Námið skiptist í:

  • Skyldunámskeið, 25 einingar
  • Bundin valnámskeið, 10 einingar
  • Valnámskeið, 55 einingar
  • Lokaverkefni, 30 einingar

Meðal viðfangsefna

Það sem einkennir Norðurlönd sem svæði m.a. með tilliti til menningar (t.d. bókmennta, kvikmynda, byggingarlistar og fjölmiðla), tungumála (þróun málanna, það sem er líkt og ólíkt í beygingarkerfi, orðaforða og málvenjum) og samskipta auk helstu samfélagslegra einkenna.

Í námskeiðum um tjáskipti verður varpað ljósi á stöðu ólíkra tungumála og hvernig þau tengjast menningarlegum fjölbreytileika á Norðurlöndum.

Sérstök áhersla verður lögð á málnotkun svo sem hvað beri að hafa í heiðri og hvað beri að varast í samskiptum við Norðurlandabúa.

Í námskeiðum um bókmenntir og menningartengd efni verður nálgunin þverfagleg og áhersla lögð á samanburð og þróun. Á þann hátt fái nemendur innsýn í strauma og stefnur í bókmenntum, kvikmyndum og fjölmiðlum.

Fyrirkomulag kennslu 

Kennslan fer fram á dönsku, norsku og sænsku og er námsefni einnig á þessum tungumálum.

Meginmarkmið 

Miðað er að því að nemendur

  • öðlist breiða þekkingu á Norðurlöndunum sem sérstöku mál- og menningarsvæði og geti auðveldlega tjáð sig i norrænu samhengi.
  • fái innsýn í daglegt líf, bókmenntir og menningu Norðurlanda og þróun norænna samfélaga.
  • geti notað kunnáttu sína í einu skandinavísku máli sem lykil að grannmálunum tveimur og aukið þannig möguleika sína til hvers konar starfa á norræna málsvæðinu.

Annað

MA-próf í Mála- og menningardeild veitir rétt til að sækja um doktorsnám á kjörsviði.

BA/BS gráða, eða samsvarandi menntun með fyrstu einkunn (7,25) og lokaverkefni, t.d. á sviði hugvísinda, félagsvísinda, lista eða viðskipta, frá dönskum, finnskum, norskum eða sænskum háskólum í norrænum málum frá Háskóla Íslands eða frá öðrum háskólum þar sem kennsla hefur farið fram á einu skandinavísku málanna, dönsku, norsku eða sænsku. Að umsækjandi hafi numið í einu Norðurlandanna og notað dönsku, norsku eða sænsku í námi sínu eða hafi staðgóða þekkingu í a.m.k. einu skandinavísku málanna, þ.e. í dönsku, norsku eða sænsku.

Hámark 30 einingar mega vera úr námskeiðum með innihaldi frá aðeins einu málsvæði á Norðurlöndum.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Greinargerð um markmið með námi
  • Meðmælandi 1, nafn og netfang
  • Meðmælandi 2, nafn og netfang
  • Prófskírteini/námsyfirlit
Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Óháð námsári | Haust
Norrænn módernismi og framúrstefna - frá Edith Södergran til óreiðu internetsins (DAN501F, DAN502F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður saga módernisma og framúrstefnuhreyfinga á Norðurlöndunum könnuð og lesnir ýmsir lykiltextar norræns módernisma. Fjallað verður um komu framúrstefnuhreyfingar til Norðurlandanna, expressionisma, súrrealisma og fleiri stefna sem voru áberandi í Evrópu á millistríðsárunum. Einnig verður hugað að hópum skálda og listamanna sem störfuðu undir merkjum módernismans á Norðurlöndunumallt frá hópum  eins og Heretica í Danmörku og Birtíngsmanna á Íslandi á eftirstríðsárunum til margvíslegra hreyfinga rithöfunda og annarra listamanna sem starfa í samtímanum, ekki síst á netinu.

Á námskeiðinu verður einnig fengist við grundvallarspurningar eins og þá hvernig módernisminn bregst við hinum "stóru frásögnum" nútímavæðingarinnar og hvort módernisminn sjálfur sé orðinn að hefð og stórri skýringarfrásögn í bókmenntasögunni.

Kennslutungumál: Danska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Norræn öndvegisverk í bókmenntum (DAN501F, DAN502F)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Norræn öndvegisverk verða kynnt og rædd frá gagnrýnu sjónarhorni þar sem kanónu-hugtakið er í brennidepli. Úrval meginverka Norðurlanda verða kynnt, lesin og greind. Í tengslum við námskeiðið verður haldin málstofa í bókmenntum með þátttöku gagnrýnenda og rithöfunda af Norðurlöndunum.

Kennslutungumál: Danska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Meistararitgerð í Norðurlandafræðum (NLF441L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meistararitgerð í norðurlandafræðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári | Haust
Tungumál og menning I (MOM301F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Viðfangsefni námskeiðsins eru margvísleg tengsl menningar og tungumála út frá hugmyndasögulegum, félags- og málvísindalegum forsendum. Gömul og ný heimsmál verða kynnt, tilurð þeirra, áhrif og afleiðingar. Fjallað verður um talmál og ritmál: Hvað er skrifað, hvers vegna og hvernig? Reglur og ólík viðhorf til tungumála eru rædd og velt verður upp spurningum um tengsl mannsins við hugsun og tungumál.

Kennslutungumál: Enska
Óháð námsári | Haust
Málnotkun og framsetning: Danska (DAN703F)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er bæði fræðilegt og hagnýtt. Nemendur rifja upp helstu reglur um danskt mál, málnotkun og stílbrögð. Þeir greina hvernig ólíkar textagerðir taka mið af mismunandi tilgangi tjáskipta. Áhersla verður einnig lögð á ritfærni nemenda á dönsku og þeir þjálfaðir í notkun hjálpargagna.

Kennslutungumál: Danska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Haust
Víkingaöldin (MIS704M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á víkingaöld héldu norrænir menn í stórum stíl frá meginlandi Skandinavíu vítt og breitt um Evrópu, austur til Miklagarðs og Kaspíahafs, vestur til Bretlandseyja, Írlands og Frakklands, og suður fyrir Íberíuskaga og inn í Miðjarðarhafið. Margvíslegar heimildir vitna um ferðir þeirra, fornleifar sem og ritaðar lýsingar þar sem þeir ganga undir ýmsum nöfnum og koma fyrir í margvíslegum hlutverkum, t.d. sem ógvekjandi innrásarsveitir, nokkuð friðsamir kaupmenn, eða leiguliðar.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Tungumál og menning II: Evrópsk menntahefð (MOM402M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Evrópsk mennta- og umræðuhefð einkennist af sterkum tengslum háskóla og samfélags. Margir áhrifamestu hugsuða Evrópu á 19. og 20. öld störfuðu utan háskólanna og margir þeirra sem áttu hefðbundinn starfsferil innan háskólanna voru líka virkir samfélagsgagnrýnendur, skiptu sér af stjórnmálaumræðu dagsins og höfðu jafnvel talsverð áhrif. Í námskeiðinu lítum við á verk nokkurra valinna evrópskra hugsuða sem eiga það sameiginlegt að hafa verið áhrifamiklir jafnt í fræðunum sem á vettvangi samfélagsumræðunnar. Um leið hugleiðum við stöðu hins „evrópska“ – að hvaða leyti verk þessara hugsuða eru í eðli sínu evrópumiðuð og að hvaða marki við sjáum skilning á menningarlegri óvissu koma fram.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Vor
Alþýðumenning og fagurfræði hversdagsins (ÞJÓ212F)
Valnámskeið á námsleiðinni
15 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu rannsökum við sjónarhorn þjóðfræðinnar á menningu og samfélag með sérstakri áherslu á daglegt líf og daglegt brauð - það sem kalla mætti prósa heimsins. Við tökum sögu þjóðfræðinnar til skoðunar með gagnrýnu hugarfari og setjum í samhengi við sögu grannfaganna og við könnum í sameiningu strauma og stefnur við upphaf 21. aldar. Þá förum við í saumana á helstu hugtökum, þ.á m. menningarmun og margbreytileika, þjóðerni, kyngervi, alþýðu, hefð, hópi, höfundi, hnattvæðingu, fjölhyggju, elleftu stundinni, menningarlegu forræði, menningararfi og eignarhaldi á menningu.

Markmiðið er að skilja hvernig mennirnir skapa hversdaginn og fylla daglegt umhverfi sitt merkingu, hvernig þeir móta líf sitt við aðstæður sem þeir hafa ekki sjálfir kosið sér, hvort heldur sem er í bændasamfélagi fyrri tíðar eða borgarsamfélagi 21. aldarinnar. Námskeiðið er ætlað meistaranemum, en er einnig opið nemendum á þriðja ári í BA-námi.

Markmið:

Í lok námskeiðsins er ætlast til að nemandinn:

  • Hafi lesið ýmis grundvallarrit í þjóðfræði
  • Kunni skil á straumum og stefnum á 20. og 21. öld
  • Þekki þær breytingar sem fagið hefur gengið í gegnum og þá sjálfsgagnrýnu umræðu sem fer nú fram innan fagsins
  • Hafi vald á lykilhugtökum í greiningu á alþýðumenningu og fagurfræði hversdagsins
  • Geti rökrætt um menningu hópa og menningarmun með tilvísun til kenninga og fræðilegra hugtaka

Vinnulag

Kennsla fer fram í fyrirlestrum og umræðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Vor
Fjölmenning og fólksflutningar (MAN017F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Oft er talað um fólksflutninga og fjölmenningu sem eitt megin einkenni samfélaga samtímans. Í námskeiðinu eru kynntar helstu kenningar og stefnur sem fram hafa komið í tengslum við rannsóknir á fólksflutningum og fjölmenningu. Fjallað er á gagnrýninn hátt um margskonar kenningar sem tengjast þessum rannsóknarviðfangsefnum og gagnsemi þeirra skoðuð. Skoðuð eru hugtök eins og menning, samlögun, aðlögun og samþætting, en jafnframt gert grein fyrir hreyfanleika fortíðar og tengslum hans við fjölmenningu. Í námskeiðinu eru ólíkar nálganir og kenningarmótun fræðimanna fyrst og fremst dregnar fram og gerð grein fyrir helstu viðfangsefnum félagsvísindamanna á þessu sviði.

Kennslan fer fram í formi fyrirlestra og umræðna.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Vor
Nýjar rannsóknir í sagnfræði (SAG201F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verða lesnar þekktar sagnfræðilegar rannsóknir úr vestrænni menningarsögu sem fjalla um margvísleg efni sem hafa verið ofarlega á baugi innan fagsins. Gerð verður tilraun til að sýna hvernig sagnfræðingar, bæði í lok tuttugustu aldar og í upphafi tuttugustu og fyrstu aldar, glíma við ólík efni í rannsóknum sínum. Umfjöllunin verður sett í hugmyndafræðilegt samhengi og lögð verður áhersla á að sýna fram á ólík gímutök sagnfræðinga þegar viðfangsefnið hefur tengst áðurnefndu fræðasviði. Reynt var að velja áhugaverðar bækur sem eru líklegar til að gefa okkur áhugaverða mynd af stöðu sagnfræðinnar í dag.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Sjálfbær þróun ferðaþjónustu á norðlægum svæðum (FER214F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið Sjálfbær þróun ferðaþjónustu á norðlægum svæðum er tekið í fjarnámi frá háskólanum í OULU - Finnlandi. Námskeiðið er partur af samstarfi við þemanet háskóla norðuslóða: Thematic Network on Northern Tourism.

Auglýsing um aðgang að námskeiðinu er send til framhaldsnema í lok hvers árs. Nemendur þurfa að sækja um og skrá sig í gegnum nemendaþjónustu VON MS-SENS (mssens@hi.is)

Takmarkaður fjöldi nemendaplássa er í boði.

The course will address tourism in the circumpolar north from a societal perspective. It will present different views on the phenomenon and its dimensions, resources and implications for nature, places and cultures involved. The place of northern tourism in times of globalization and emergent global issues like climate changes will be explored, together with the relevant governance aspects.

Kennslutungumál: Enska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Vor
Norræn trú (ÞJÓ203F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Trúarlíf manna á norðurslóðum er tekið fyrir og heimildir allt frá elstu tímum, eins og grafir, rúnasteinar, hellaristur og aðrar fornminjar verða skoðaðar. Einnig verða lesnar lýsingar á norrænum trúarathöfnum í verkum eftir Tacitus, Adam frá Brimum, Saxo Grammaticus og í fornritum Íslendinga eins og Eddukvæðum og Konungasögum. Auk norrænnar trúar verður fjallað um seið og sjamanisma. Örlagatrú er tekin til ítarlegrar umfjöllunar sem meginþáttur í forkristnum átrúnaði á Norðurlöndum. Loks er vikið að því hvernig kristindómur hefur fallið að norrænum lífsháttum og hugsunarhætti. Námskeiðið er kennt á ensku.

Vinnulag

Kennsla fer fram í fyrirlestrum, og umræðum um fyrirlestra.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári
  • Haust
  • DAN501F, DAN502F
    Norrænn módernismi og framúrstefna - frá Edith Södergran til óreiðu internetsins
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður saga módernisma og framúrstefnuhreyfinga á Norðurlöndunum könnuð og lesnir ýmsir lykiltextar norræns módernisma. Fjallað verður um komu framúrstefnuhreyfingar til Norðurlandanna, expressionisma, súrrealisma og fleiri stefna sem voru áberandi í Evrópu á millistríðsárunum. Einnig verður hugað að hópum skálda og listamanna sem störfuðu undir merkjum módernismans á Norðurlöndunumallt frá hópum  eins og Heretica í Danmörku og Birtíngsmanna á Íslandi á eftirstríðsárunum til margvíslegra hreyfinga rithöfunda og annarra listamanna sem starfa í samtímanum, ekki síst á netinu.

    Á námskeiðinu verður einnig fengist við grundvallarspurningar eins og þá hvernig módernisminn bregst við hinum "stóru frásögnum" nútímavæðingarinnar og hvort módernisminn sjálfur sé orðinn að hefð og stórri skýringarfrásögn í bókmenntasögunni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    DAN501F, DAN502F
    Norræn öndvegisverk í bókmenntum
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Norræn öndvegisverk verða kynnt og rædd frá gagnrýnu sjónarhorni þar sem kanónu-hugtakið er í brennidepli. Úrval meginverka Norðurlanda verða kynnt, lesin og greind. Í tengslum við námskeiðið verður haldin málstofa í bókmenntum með þátttöku gagnrýnenda og rithöfunda af Norðurlöndunum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • NLF441L
    Meistararitgerð í Norðurlandafræðum
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meistararitgerð í norðurlandafræðum.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MOM301F
    Tungumál og menning I
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni námskeiðsins eru margvísleg tengsl menningar og tungumála út frá hugmyndasögulegum, félags- og málvísindalegum forsendum. Gömul og ný heimsmál verða kynnt, tilurð þeirra, áhrif og afleiðingar. Fjallað verður um talmál og ritmál: Hvað er skrifað, hvers vegna og hvernig? Reglur og ólík viðhorf til tungumála eru rædd og velt verður upp spurningum um tengsl mannsins við hugsun og tungumál.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • DAN703F
    Málnotkun og framsetning: Danska
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er bæði fræðilegt og hagnýtt. Nemendur rifja upp helstu reglur um danskt mál, málnotkun og stílbrögð. Þeir greina hvernig ólíkar textagerðir taka mið af mismunandi tilgangi tjáskipta. Áhersla verður einnig lögð á ritfærni nemenda á dönsku og þeir þjálfaðir í notkun hjálpargagna.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MIS704M
    Víkingaöldin
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á víkingaöld héldu norrænir menn í stórum stíl frá meginlandi Skandinavíu vítt og breitt um Evrópu, austur til Miklagarðs og Kaspíahafs, vestur til Bretlandseyja, Írlands og Frakklands, og suður fyrir Íberíuskaga og inn í Miðjarðarhafið. Margvíslegar heimildir vitna um ferðir þeirra, fornleifar sem og ritaðar lýsingar þar sem þeir ganga undir ýmsum nöfnum og koma fyrir í margvíslegum hlutverkum, t.d. sem ógvekjandi innrásarsveitir, nokkuð friðsamir kaupmenn, eða leiguliðar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • MOM402M
    Tungumál og menning II: Evrópsk menntahefð
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Evrópsk mennta- og umræðuhefð einkennist af sterkum tengslum háskóla og samfélags. Margir áhrifamestu hugsuða Evrópu á 19. og 20. öld störfuðu utan háskólanna og margir þeirra sem áttu hefðbundinn starfsferil innan háskólanna voru líka virkir samfélagsgagnrýnendur, skiptu sér af stjórnmálaumræðu dagsins og höfðu jafnvel talsverð áhrif. Í námskeiðinu lítum við á verk nokkurra valinna evrópskra hugsuða sem eiga það sameiginlegt að hafa verið áhrifamiklir jafnt í fræðunum sem á vettvangi samfélagsumræðunnar. Um leið hugleiðum við stöðu hins „evrópska“ – að hvaða leyti verk þessara hugsuða eru í eðli sínu evrópumiðuð og að hvaða marki við sjáum skilning á menningarlegri óvissu koma fram.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞJÓ212F
    Alþýðumenning og fagurfræði hversdagsins
    Valnámskeið
    15
    Valnámskeið á námsleiðinni
    15 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu rannsökum við sjónarhorn þjóðfræðinnar á menningu og samfélag með sérstakri áherslu á daglegt líf og daglegt brauð - það sem kalla mætti prósa heimsins. Við tökum sögu þjóðfræðinnar til skoðunar með gagnrýnu hugarfari og setjum í samhengi við sögu grannfaganna og við könnum í sameiningu strauma og stefnur við upphaf 21. aldar. Þá förum við í saumana á helstu hugtökum, þ.á m. menningarmun og margbreytileika, þjóðerni, kyngervi, alþýðu, hefð, hópi, höfundi, hnattvæðingu, fjölhyggju, elleftu stundinni, menningarlegu forræði, menningararfi og eignarhaldi á menningu.

    Markmiðið er að skilja hvernig mennirnir skapa hversdaginn og fylla daglegt umhverfi sitt merkingu, hvernig þeir móta líf sitt við aðstæður sem þeir hafa ekki sjálfir kosið sér, hvort heldur sem er í bændasamfélagi fyrri tíðar eða borgarsamfélagi 21. aldarinnar. Námskeiðið er ætlað meistaranemum, en er einnig opið nemendum á þriðja ári í BA-námi.

    Markmið:

    Í lok námskeiðsins er ætlast til að nemandinn:

    • Hafi lesið ýmis grundvallarrit í þjóðfræði
    • Kunni skil á straumum og stefnum á 20. og 21. öld
    • Þekki þær breytingar sem fagið hefur gengið í gegnum og þá sjálfsgagnrýnu umræðu sem fer nú fram innan fagsins
    • Hafi vald á lykilhugtökum í greiningu á alþýðumenningu og fagurfræði hversdagsins
    • Geti rökrætt um menningu hópa og menningarmun með tilvísun til kenninga og fræðilegra hugtaka

    Vinnulag

    Kennsla fer fram í fyrirlestrum og umræðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAN017F
    Fjölmenning og fólksflutningar
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Oft er talað um fólksflutninga og fjölmenningu sem eitt megin einkenni samfélaga samtímans. Í námskeiðinu eru kynntar helstu kenningar og stefnur sem fram hafa komið í tengslum við rannsóknir á fólksflutningum og fjölmenningu. Fjallað er á gagnrýninn hátt um margskonar kenningar sem tengjast þessum rannsóknarviðfangsefnum og gagnsemi þeirra skoðuð. Skoðuð eru hugtök eins og menning, samlögun, aðlögun og samþætting, en jafnframt gert grein fyrir hreyfanleika fortíðar og tengslum hans við fjölmenningu. Í námskeiðinu eru ólíkar nálganir og kenningarmótun fræðimanna fyrst og fremst dregnar fram og gerð grein fyrir helstu viðfangsefnum félagsvísindamanna á þessu sviði.

    Kennslan fer fram í formi fyrirlestra og umræðna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SAG201F
    Nýjar rannsóknir í sagnfræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verða lesnar þekktar sagnfræðilegar rannsóknir úr vestrænni menningarsögu sem fjalla um margvísleg efni sem hafa verið ofarlega á baugi innan fagsins. Gerð verður tilraun til að sýna hvernig sagnfræðingar, bæði í lok tuttugustu aldar og í upphafi tuttugustu og fyrstu aldar, glíma við ólík efni í rannsóknum sínum. Umfjöllunin verður sett í hugmyndafræðilegt samhengi og lögð verður áhersla á að sýna fram á ólík gímutök sagnfræðinga þegar viðfangsefnið hefur tengst áðurnefndu fræðasviði. Reynt var að velja áhugaverðar bækur sem eru líklegar til að gefa okkur áhugaverða mynd af stöðu sagnfræðinnar í dag.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FER214F
    Sjálfbær þróun ferðaþjónustu á norðlægum svæðum
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið Sjálfbær þróun ferðaþjónustu á norðlægum svæðum er tekið í fjarnámi frá háskólanum í OULU - Finnlandi. Námskeiðið er partur af samstarfi við þemanet háskóla norðuslóða: Thematic Network on Northern Tourism.

    Auglýsing um aðgang að námskeiðinu er send til framhaldsnema í lok hvers árs. Nemendur þurfa að sækja um og skrá sig í gegnum nemendaþjónustu VON MS-SENS (mssens@hi.is)

    Takmarkaður fjöldi nemendaplássa er í boði.

    The course will address tourism in the circumpolar north from a societal perspective. It will present different views on the phenomenon and its dimensions, resources and implications for nature, places and cultures involved. The place of northern tourism in times of globalization and emergent global issues like climate changes will be explored, together with the relevant governance aspects.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞJÓ203F
    Norræn trú
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Trúarlíf manna á norðurslóðum er tekið fyrir og heimildir allt frá elstu tímum, eins og grafir, rúnasteinar, hellaristur og aðrar fornminjar verða skoðaðar. Einnig verða lesnar lýsingar á norrænum trúarathöfnum í verkum eftir Tacitus, Adam frá Brimum, Saxo Grammaticus og í fornritum Íslendinga eins og Eddukvæðum og Konungasögum. Auk norrænnar trúar verður fjallað um seið og sjamanisma. Örlagatrú er tekin til ítarlegrar umfjöllunar sem meginþáttur í forkristnum átrúnaði á Norðurlöndum. Loks er vikið að því hvernig kristindómur hefur fallið að norrænum lífsháttum og hugsunarhætti. Námskeiðið er kennt á ensku.

    Vinnulag

    Kennsla fer fram í fyrirlestrum, og umræðum um fyrirlestra.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Möguleg störf að námi loknu:

  • norræn samvinna
  • utanríkisþjónusta
  • ferðaþjónusta
  • fjölmiðlar
  • menningarmiðlun af ýmsu tagi
  • verslun og viðskipti
  • alþjóðasamskipti
  • þýðingar
  • kennsla

Listinn er ekki tæmandi.

  • Linguae er félag tungumálanema við Háskóla Íslands.
  • Markmið félagsins er að efla félagslíf nemenda innan Mála- og menningardeildar.
  • Enn sem komið er samanstendur það af ítölsku-, frönsku-, þýsku-, spænsku-, dönsku-, kínversku- og rússneskunemum.
  • Nemendafélagið heldur úti Facebook hópi og Facebook-síðu.

Meira um félagslíf stúdenta í Hí.

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil