- Langar þig að auka þekkingu þína á sviði menntunar fyrir alla?
- Vinnur þú með fjöltyngdum börnum?
- Vilt þú styrkja hæfni þína til að styðja við fjölbreyttan nemendahóp?
Kennsla barna með fjölbreyttan bakgrunn er 20 eininga örnámsleið sem ætlað er að styðja við kennara og aðra sem vinna í fjölbreyttum nemendahópum, með áherslu á íslensku sem annað tungumál og hegðun og tilfinningar barna.
Nemendur læra að þekkja og skilja íslenskunám barna með ólíkan tungumála og menningarbakgrunn og geti metið og aðlagað kennsluaðferðir sem ætlað er að mæta einstaklingsbundnum mállegum og námslegum þörfum barna með ólíkan tungumálabakgrunn. Einnig þær áskoranir sem geta haft áhrif á tilfinningar og hegðun barna í nýju umhverfi.
Uppbygging náms
Námið er 20 einingar og er skipulagt sem hlutanánám í eitt ár.
Nemendur taka eftirfarandi námskeið:
- Kennslufræði íslensku sem annars máls , 10 einingar
- Hegðun og tilfinningar barna: Áskoranir og úrræði 10 einingar
Fyrirkomulag kennslu
Kennsla og próf fara fram á íslensku.
Annað
Þeir sem ljúka örnámsleiðinni Kennsla barna með fjölbreyttan bakgrunn geta fengið námið metið upp í meistaranám að uppfylltum skilyrðum viðkomandi námsleiðar.
Við inntöku í námið gildir sú meginregla að umsækjandi hafi lokið kennaranámi, þroskaþjálfanámi, uppeldis- og menntunarfræðinámi, tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærilegu námi til bakkalárgráðu.
Nemendur þurfa að uppfylla kröfur námsleiðar til að fá vottorð um námslok.
- Ferilskrá (CV)
- Prófskírteini/námsyfirlit
- Kynningarbréf/hvers vegna velur þú þetta nám
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.
- Fyrsta ár
- Haust
- Kennslufræði íslensku sem annars máls
- Vor
- Hegðun og tilfinningar barna: Áskoranir og úrræði
Kennslufræði íslensku sem annars máls (ÍET102F)
Um námskeiðið
Námskeiðið er ætlað einkum kennurum sem sérhæfa sig í kennslu íslensku sem annars máls, en einnig leikskólakennurum, bekkjar- og greinarkennurum, sérkennurum og stjórnendum. Námskeiði þessu er ætlað að efla þekkingu og skilning þátttakenda á íslenskunámi barna og nemenda með erlendan bakgrunn og að kynna hagnýtar leiðir og aðferðir í kennslu tals, hlustunar, lesturs, ritunar, orðaforða og málfræði. Fjallað verður um fjöltyngi, máltileinkun og tungumálanám, hæfni og starfsþróun kennara íslensku sem annars máls, áætlanagerð, námsefni, kennsluaðferðir og kenningar í kennslu íslensku sem annars máls. Öll viðfangsefni hafa það meginmarkmið að auka hæfni þátttakenda til að beita markvissum og faglegum kennsluaðferðum í kennslu íslensku sem annars máls og veita stuðning við íslensku á öllum skólastigum, en einnig að hvetja til gagnrýnnar hugsunar við beitingu kennsluaðferða og rökstyðja ákvarðanir um kennslu með tilvísun í íslenskar málstefnur og íslenskar og erlendar rannsóknir um annarsmálsnám. Námskeiðinu er enn fremur ætlað að hvetja til stöðugrar þekkingarleitar og sköpunar lærdómssamfélags á vinnustað.
Hegðun og tilfinningar barna: Áskoranir og úrræði (MAL003F)
Markmiðið með námskeiðinu er að gefa þátttakendum kost á að kynnast völdum þáttum, bæði fræðilegum og hagnýtum, sem auðvelda almennum kennurum og sérkennurum að skilja, meta og bregðast við þörfum nemenda sem eiga við hegðunar- og/eða tilfinningavanda að etja. Fjallað verður um aðferðir við skimun og mat, áhrifaþætti og algengi mismunandi hegðunar- og/eða tilfinningalegra erfiðleika, s.s. mótþróa, þunglyndis og kvíða. Einnig verður fjallað um hegðunar- og/eða tilfinningalega erfiðleika nemenda með athyglisbrest með ofvirkni (ADHD) eða röskun á einhverfurófinu. Sérstök áhersla er á að auka færni þátttakenda í að sníða skólastarf og skólasamfélag betur að þörfum nemenda með hegðunar- og/eða tilfinningalega erfiðleika og veita kennurum og skólastjórnendum ráð um hvernig unnt er að gera slíkt og fjarlægja hindranir sem útiloka og einangra nemendur með slíkan vanda.
Nemendur hafi aflað sér grunnþekkingar á helstu hugtökum og sjónarhornum þroskasálfræði eða félagsvísinda á námsferli sínum áður en þeir sækja námskeiðið. Reynsla af vinnu með börnum eða ungmennum æskileg.
Helstu efnisþættir
- Mismunandi skilgreiningar á hegðunar- og tilfinningaörðugleikum - alþjóðleg viðmið og flokkunarkerfi.
- Hegðunar- og tilfinningaörðugleikar í samfélagslegu samhengi.
- Helstu kenningar um hegðunar- og tilfinningaörðugleika barna og unglinga (conceptual models).
- Viðbrögð skólasamfélagsins; nemendasýn og skólastefna - skóli án aðgreiningar, sérdeildir eða sérskólar? Ólík sjónarhorn við að skilgreina vandann.
- Sértæk úrræði innan skólasamfélagsins og fræðilegur bakgrunnur þeirra.
- Mismunandi aðferðir við virknimat (functional behavioral assessment) til að ákvarða hvaða þættir ýta undir hegðunar- og/eða tilfinningalega erfiðleika nemenda.
- Gerð stuðningsáætlunar með margvíslegum aðferðum til að fyrirbyggja erfiða hegðun eða vanlíðan, kenna og styrkja viðeigandi hegðun og bregðast þannig við erfiðri hegðun þannig að dragi úr henni með tímanum og nemendum líði betur.
- Aðferðir til að auka félagsfærni og sjálfstæð vinnubrögð nemenda með hegðunar- og/eða tilfinningalega erfiðleika.
Vinnulag
Í staðlotum verða fyrirlestrar auk verkefnatíma. Á kennsluvefnum Canvas verða birtar hljóðglærur og kennslubréf, og þar fara fram umræður úr völdum efnisþáttum. Námskeiðið er kennt með fjarnámssniði en mætingarskylda er í staðlotur. Námsmat er að mestu leyti fólgið í hópverkefnum.
- Haust
- ÍET102FKennslufræði íslensku sem annars málsSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Um námskeiðið
Námskeiðið er ætlað einkum kennurum sem sérhæfa sig í kennslu íslensku sem annars máls, en einnig leikskólakennurum, bekkjar- og greinarkennurum, sérkennurum og stjórnendum. Námskeiði þessu er ætlað að efla þekkingu og skilning þátttakenda á íslenskunámi barna og nemenda með erlendan bakgrunn og að kynna hagnýtar leiðir og aðferðir í kennslu tals, hlustunar, lesturs, ritunar, orðaforða og málfræði. Fjallað verður um fjöltyngi, máltileinkun og tungumálanám, hæfni og starfsþróun kennara íslensku sem annars máls, áætlanagerð, námsefni, kennsluaðferðir og kenningar í kennslu íslensku sem annars máls. Öll viðfangsefni hafa það meginmarkmið að auka hæfni þátttakenda til að beita markvissum og faglegum kennsluaðferðum í kennslu íslensku sem annars máls og veita stuðning við íslensku á öllum skólastigum, en einnig að hvetja til gagnrýnnar hugsunar við beitingu kennsluaðferða og rökstyðja ákvarðanir um kennslu með tilvísun í íslenskar málstefnur og íslenskar og erlendar rannsóknir um annarsmálsnám. Námskeiðinu er enn fremur ætlað að hvetja til stöðugrar þekkingarleitar og sköpunar lærdómssamfélags á vinnustað.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
MAL003FHegðun og tilfinningar barna: Áskoranir og úrræðiSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSÞar af 2 vettvangseiningarNámskeiðslýsingMarkmiðið með námskeiðinu er að gefa þátttakendum kost á að kynnast völdum þáttum, bæði fræðilegum og hagnýtum, sem auðvelda almennum kennurum og sérkennurum að skilja, meta og bregðast við þörfum nemenda sem eiga við hegðunar- og/eða tilfinningavanda að etja. Fjallað verður um aðferðir við skimun og mat, áhrifaþætti og algengi mismunandi hegðunar- og/eða tilfinningalegra erfiðleika, s.s. mótþróa, þunglyndis og kvíða. Einnig verður fjallað um hegðunar- og/eða tilfinningalega erfiðleika nemenda með athyglisbrest með ofvirkni (ADHD) eða röskun á einhverfurófinu. Sérstök áhersla er á að auka færni þátttakenda í að sníða skólastarf og skólasamfélag betur að þörfum nemenda með hegðunar- og/eða tilfinningalega erfiðleika og veita kennurum og skólastjórnendum ráð um hvernig unnt er að gera slíkt og fjarlægja hindranir sem útiloka og einangra nemendur með slíkan vanda.
Nemendur hafi aflað sér grunnþekkingar á helstu hugtökum og sjónarhornum þroskasálfræði eða félagsvísinda á námsferli sínum áður en þeir sækja námskeiðið. Reynsla af vinnu með börnum eða ungmennum æskileg.
Helstu efnisþættir
- Mismunandi skilgreiningar á hegðunar- og tilfinningaörðugleikum - alþjóðleg viðmið og flokkunarkerfi.
- Hegðunar- og tilfinningaörðugleikar í samfélagslegu samhengi.
- Helstu kenningar um hegðunar- og tilfinningaörðugleika barna og unglinga (conceptual models).
- Viðbrögð skólasamfélagsins; nemendasýn og skólastefna - skóli án aðgreiningar, sérdeildir eða sérskólar? Ólík sjónarhorn við að skilgreina vandann.
- Sértæk úrræði innan skólasamfélagsins og fræðilegur bakgrunnur þeirra.
- Mismunandi aðferðir við virknimat (functional behavioral assessment) til að ákvarða hvaða þættir ýta undir hegðunar- og/eða tilfinningalega erfiðleika nemenda.
- Gerð stuðningsáætlunar með margvíslegum aðferðum til að fyrirbyggja erfiða hegðun eða vanlíðan, kenna og styrkja viðeigandi hegðun og bregðast þannig við erfiðri hegðun þannig að dragi úr henni með tímanum og nemendum líði betur.
- Aðferðir til að auka félagsfærni og sjálfstæð vinnubrögð nemenda með hegðunar- og/eða tilfinningalega erfiðleika.
Vinnulag
Í staðlotum verða fyrirlestrar auk verkefnatíma. Á kennsluvefnum Canvas verða birtar hljóðglærur og kennslubréf, og þar fara fram umræður úr völdum efnisþáttum. Námskeiðið er kennt með fjarnámssniði en mætingarskylda er í staðlotur. Námsmat er að mestu leyti fólgið í hópverkefnum.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu
Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.
Möguleikar
Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.
Skilyrði
Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:
- 90 ECTS einingar í grunnnámi
- 60 ECTS einingar í framhaldsnámi
Námskeið metin til eininga
Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.
Fólk með þessa menntun starfar:
- með fjöltyngdum börnun
- í leikskólum
- í grunnskólum
- í framhaldsskólum
- á öðrum menntastofnunum
Listinn er ekki tæmandi
Nemendafélagið Kennó er félag kennaranema við Háskóla Íslands. Félagið stendur fyrir skemmtilegum viðburðum, svo sem nýnemakvöldum, árshátíð og vísindaferðum. Félagið hefur einnig staðið fyrir verkefninu Komdu að kenna sem hefur hefur það að markmiði að kynna kennaranám.
Námsvalshjólið
Á hverju hefur þú áhuga?
Veldu framhaldsnám
Skref fyrir skref
Á Þjónustuborði Háskólatorgs færðu aðstoð og upplýsingar um þjónustu Háskóla Íslands. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða notað vefspjallið neðst í hægra horninu á þessari síðu.