""
Tungumál kennslu
Íslenska
Lengd náms
1 ár.
Námsform
Staðnámsleið Fjarnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Langar þig að auka þekkingu þína á sviði menntunar fyrir alla?
  • Vinnur þú með fjöltyngdum börnum?
  • Vilt þú styrkja hæfni þína til að styðja við fjölbreyttan nemendahóp?

Kennsla íslensku og læsis er 20 eininga örnámsleið sem ætlað er að styðja við kennara og aðra sem vinna í fjölbreyttum nemendahópum,  með áherslu á málþroska, læsisfærni og kennslu fjöltyngdra barna.

Nemendur læra að þekkja og skilja íslenskunám barna með ólíkan tungumála og menningarbakgrunn og geti metið og aðlagað kennsluaðferðir sem ætlað er að mæta einstaklingsbundnum mállegum og námslegum þörfum barna með ólíkan tungumálabakgrunn.

Uppbygging náms

Námið er 20 einingar og er skipulagt sem hlutanánám í eitt ár.

Nemendur taka eftirfarandi námskeið:

  • Fjöltyngi og læsi, 10 einingar
  • Tengsl málþroska og læsis, 10 einingar

Fyrirkomulag kennslu

Kennsla og próf fara fram á íslensku.

Annað

Þau sem ljúka örnámsleiðinni Kennsla íslensku og læsi geta fengið námið metið upp í meistaranám að uppfylltum skilyrðum viðkomandi námsleiðar.

Umsækjandi hafi lokið kennaranámi, þroskaþjálfanámi, uppeldis- og menntunarfræði, tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærilegu námi til bakkalárgráðu.

Nemendur þurfa að uppfylla kröfur námsleiðar til að fá vottorð um námslok.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Ferilskrá (CV)
  • Prófskírteini/námsyfirlit
  • Kynningarbréf/hvers vegna velur þú þetta nám

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Fjöltyngi og læsi (KME116F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að efla skilning og faglega þekkingu nemenda á þeim áhrifum sem tví- eða fjöltyngi getur haft á þróun læsis. Fjallað verður um lestrarnám fjöltyngdra barna, sem tekur mið af ritkerfum tungumála þeirra, árangursríkar kennsluaðferðir í íslensku sem öðru máli fyrir nemendur á ólíkum aldri sem eru nýflutt til Íslands, en einnig með börnum sem eru fædd hér eða komu ung til landsins og þurfa gæðastuðning til námsárangurs. Fjallað verður um nýtt námsefni Íslenskur námsorðaforði: Árangursríkir kennsluhættir með fjöltyngdum nemendahópum, sem hlaut Vísinda- og nýsköpunarverðlaun HÍ í flokknum Samfélag vorið 2023. Námsefnið er styrkt Rannsóknasjóði HÍ, Markáætlun um tungu og tækni, Íslenskusjóðnum og Menntarannsóknasjóði.

Á námskeiðinu er byggt á niðurstöðum hágæðarannsókna víða um heim í málþroska- og læsisfræðum. Nemendur eru hvattir til að beita gagnrýninni hugsun, að tengja við eigin reynslu og að nýta sér inntak námskeiðsins á sínu sérsviði.

Námskeiðinu er enn fremur ætlað að vera stökkpallur fyrir stöðuga þekkingarleit, byggða á læsisrannsóknum hér á landi og erlendis, sem leiðir til sífelldrar endurskoðunar og framfara í kennsluháttum með fjöltyngdum börnum.

Vinnulag: Kennsla fer fram bæði í tímum og á vef námskeiðsins. Fyrirlestrar eru settir eru á vefinn og nemendur taka þátt í umræðum í rauntíma og á vef. Tvisvar mæta nemendur á Sögu og kynna verkefni sín.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Tengsl málþroska og læsis (KME204F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginmarkmið námskeiðsins eru að gefa nemendum traustan fræðilegan grunn um tengsl málþroska og læsis á ýmsum stigum námsins: í leik-, grunn- og framhaldsskóla og að þeir efli færni sína í að beita árangursríkum kennsluaðferðum. Nemendur taki mið af þeim aldri sem hæfir sérsviði þeirra.

Meginumfjöllunarefnin eru:

  • Læsi og forsendur lestrarnáms: lestrarkennsla, snemmtæk íhlutun og stuðningur við börn sem gengur illa að ná tökum á tæknilegri lestrarfærni.
  • Hvernig málþroski og læsisþróun breytast samhliða aldri og aukinni alhliða námsfærni.
  • Hvernig virkni í leik-, grunn- og framhaldsskóla er bæði markmið í öllu námi og leið til að efla málþroska.
  • Hvað skynsamlegast er að gera þegar nemandi sýnir engan áhuga og/eða tómlæti (e. apathy) gagnvart lestri.
  • Hvernig kennarar geta nýtt niðurstöður rannsókna til að fjölga tækifærum allra barna til að efla stöðugt málþroska sinn og læsisfærni.
  • Hvernig hægt er að nýta hæfniviðmið við mat á málþroska og læsi barna

Kennsla fer fram bæði í tímum og á vef námskeiðsins. Fyrirlestrar eru settir á vef námskeiðsins og nemendur taka þátt í umræðum í rauntíma og á vef.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár
  • Haust
  • KME116F
    Fjöltyngi og læsi
    Skyldunámskeið
    10

  • Vor
  • KME204F
    Tengsl málþroska og læsis

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Fólk með þessa menntun starfar:

  • með fjöltyngdum börnun
  • í leikskólum
  • í grunnskólum
  • í framhaldsskólum
  • á öðrum menntastofnunum

Listinn er ekki tæmandi

Nemendafélagið Kennó er félag kennaranema við Háskóla Íslands. Félagið stendur fyrir skemmtilegum viðburðum, svo sem nýnemakvöldum, árshátíð og vísindaferðum. Félagið hefur einnig staðið fyrir verkefninu Komdu að kenna sem hefur hefur það að markmiði að kynna kennaranám.

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Menntavísindasvið | Kennsluskrifstofa
Virka daga 9:00 - 15:00
Þjónustuborð og samfélagsmiðlar

Á Þjónustuborði Háskólatorgs færðu aðstoð og upplýsingar um þjónustu Háskóla Íslands. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða notað vefspjallið neðst í hægra horninu á þessari síðu.

Fylgdu okkur á Instagram, Youtube og Facebook

Mynd af byggingunni Sögu við Hagatorg

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil