""
Tungumál kennslu
Íslenska og enska (lesefni).
Lengd náms
Tvö ár
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Sækja þarf um aðalgrein áður en hægt er að sækja um aukagrein.
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á fjölmenningu?
  • Vilt þú hjálpa fólki að aðlagast íslensku samfélagi?
  • Hefur þú áhuga á menningu og siðum fólks af ólíkum uppruna?
  • Finnst þér gaman að vinna með fólki?
  • Hefur þú góða kunnáttu í að minnsta kosti einu erlendu tungumáli?
  • Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?

Nám í samfélagstúlkun er fyrst og fremst hugsað fyrir starfandi og verðandi túlka í málum sem ekki eru kennd við Háskóla Íslands. Námið er aukagrein á grunnstigi og er því tekið samhliða 120 eininga námi í annarri grein.

Meðal viðfangsefna

  • Túlkunarfræði
  • Siðfræði
  • Þýðingar

Námstilhögun

Rúmlega helmingur námsins (35 einingar) felst í fræðilegum námskeiðum þar sem nemendur bæta við fræðilega þekkingu sína á túlkun, þýðingum, menningu og tungumálum og læra að yfirfæra þá þekkingu á raunverulegar aðstæður.

Tæpur helmingur námsins (25 einingar) er þjálfun í túlkun og töluðu máli og er þar unnið í minni og stærri hópum eftir því hvaða tungumál nemendur nota í túlkun. Verkleg þjálfun er því stór hluti námsins.

Markmið og kröfur

Markmiðið með þessu námi er að mennta tiltekinn hóp virkra innflytjenda sem náð hefur góðum tökum á íslensku og þekkir innviði íslensks samfélags nægilega vel til að miðla þeirri þekkingu til samlanda sinna og annast samskipti þeirra við Íslendinga þegar þörf krefur. Þetta er orðið ákaflega brýnt vegna fjölda útlendinga sem hér eru búsettir og einnig þeirra sem hér ferðast um landið á ári hverju, en þeir eru orðnir umtalsvert fleiri en íbúar landsins.

Forkröfur eru ígíldi stúdentsprófs eða löng reynsla af túlkun hér á landi. Góð kunnátta í móðurmáli og íslensku nauðsynleg.

Námsleiðir

Samfélagstúlkun er 60 eininga nám á grunnstigi sem miðar að því að þjálfa nemendur í túlkun á milli íslensku og erlends máls.

  • Nemendur geta tekið samfélagstúlkun sem aukagrein með annarri aðalgrein eða lokið diplómanámi.

Starfsreynsla af samfélagstúlkun er æskileg. Hægt er að ljúka náminu á einu skólaári eða tveimur. Námið er boðið með fyrirvara um næga þátttöku.

Forkröfur eru ígíldi stúdentsprófs eða löng reynsla af túlkun hér á landi. Góð kunnátta í móðurmáli og íslensku er nauðsynleg.

Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf. Nánari upplýsingar er að finna í 17. grein reglna um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022. Nemendur þurfa að hafa íslensku að móðurmáli og góða færni í erlendu máli, eða hafa erlent móðurmál og góða færni í íslensku. Mikilvægt er að nemendur geti skrifað ritgerðir og tekið próf á íslensku en auk þess lesið fræðilegt efni á ensku. Ef þurfa þykir eru umsækjendur um námið boðaðir í viðtal eða munnlegt/skriflegt mat á tungumálafærni og ætlaðri færni til að starfa sem túlkur. Fyrri reynsla af samfélagstúlkun er æskileg en ekki krafa.

Nemendur sem hafa áhuga á náminu þurfa að hafa samband við námsgreinarformann áður en þeir geta skráð sig í samfélagstúlkun sem aukagrein.

Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda grunnnám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku skv. 1. gr. reglnanna.

Nemendur geta lokið náminu á tveimur árum en námið er boðið með fyrirvara um nægilegan nemendafjölda. Sum námskeið eru samnýtt með námsleiðum í táknmálstúlkun eða íslensku sem erlendu máli. Námskeið í táknmálstúlkun eru ekki kennd árlega og getur það haft áhrif á námskeiðaframboð.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Fyrsta ár | Haust
Samfélagstúlkun I (TÁK006G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið: Að nemendur kynnist faginu samfélagstúlkun.

Viðfangsefni: Fjallað verður um grunnþætti samfélagstúlkunar frá ýmsum sjónarhornum og með ýmsum aðferðum. Nemendur læra og æfa lotutúlkun undir handleiðslu kennara. Kynnt verður þýðingafræði nytjaþýðinga, unnið með textagreiningu, yfirfærslu merkingar og sköpun skilnings. Veittur er inngangur að túlkunar- og glósutækni, siðareglum túlka, kynningu túlka og hegðun þeirra í starfi. Einnig er fjallað um réttindi og skyldur, umsýslu, ásamt verktöku og rekstur einyrkja.

Vinnulag: Fyrirkomulag kennslu er fjölbreytt: í formi fræðilegs lesefnis, fyrirlestra í stofu og á upptökum, auk umræðna í stofu og á fjarfundum um efni fyrirlestra. Nemendur vinna einstaklings- og hópverkefni, æfa túlkun og vinna sjálfstætt, m.a. með upptökur. Nemendur taka í notkun ferilmöppu sem gefur yfirlit um virkni í náminu. Áhersla er lögð á að þjálfa upp færni í samstarfi, sjálfstæði í vinnubrögðum, sveigjanleika og aðlögunarhæfni, sjálfsmat og ígrundun um eigin vinnubrögð auk færni í að veita og þiggja gagnrýni, endurgjöf og jafningjamat. Ætlast er til þess að nemendur mæti undirbúnir í tíma til að geta tekið virkan þátt í verklegum æfingum og umræðum. Mikilvægur hluti námsins er sjálfstætt heimanám, sem felst m.a. í skipulögðum, sjálfstæðum æfingum í að túlka og markvissri viðleitni til að bæta eigin færni í túlkun.
Námsmat:
Símat í formi smærri verkefna yfir misserið. Lokaverkefni þar sem nemendur skila upptöku af túlkun sinni á samtali eða samtölum, ásamt greinargerð. Mætingarskylda er 80% og er forsenda þess að ljúka námskeiði. Standast þarf alla þætti námsmats til að ljúka námskeiði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Fyrsta ár | Haust
Talað mál og framsögn (TÁK503G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginmarkmið námskeiðsins er að gera nemendur færa um að miðla íslensku á vönduðu máli.
Kynntar verða áherslur á flutningi talaðs mál við formlegar og óformlegar aðstæður og nemendur fá þjálfun í að flytja mál sitt skýrt og áheyrilega.
Lögð er áhersla á að nemendur þekki eigin rödd, veikleika og styrkleika, og gildi réttrar raddbeitingar. Þá er undirstrikað að raddvernd er grunnur að áheyrilegri miðlun. Nemendur fá þjálfun í beitingu málsins með innsýn í helstu reglur í íslensku talmáli og vinna munnleg verkefni  þar sem reynir á skýra framsögn, raddbeitingu, ríkan orðaforða, vandað mál og að miðla af öryggi. Í öllum verkefnum eru þættir eins og raddbeiting, framburður, hrynjandi, málnotkun, orðaforði og stíll metnir.
Kennsla fer fram í formi fyrirlestra, verkefnatíma með leiðsögn og verklegrar þjálfunar.

Mætingarskylda er 80% og er forsenda próftökuréttar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Fjölmiðlamál (ÍSE601G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður ítarlega um íslenska málstefnu og málfar í fjölmiðlum í ljósi hennar, einkum í dagblöðum en einnig talmiðlum. Lesnar verða blaðagreinar af ýmsum toga (s.s. leiðarar, pistlar, minningargreinar og fréttaefni) og áhersla lögð á atriði sem oft vefjast fyrir annarsmálsnemum, s.s. orðatiltæki og vísanir í íslenskan menningarheim. Einnig verða til umræðu mismunandi málsnið, munur talmáls og ritmáls, textagerð og þýðingar í sjónvarpi, endurnýjun orða, fyrirsagnir og ensk áhrif í fjölmiðlum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Fyrsta ár | Vor
Samfélagstúlkun II (TÁK007G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið: Að nemendur kynnist faginu samfélagstúlkun, með sérstaka áherslu á túlkun í félagsþjónustu og í skólakerfinu.

Viðfangsefni: Í þessu námskeiði er byggt ofan á námskeiðið TÁK006G. Haldið verður áfram að fjalla um samfélagstúlkun frá ýmsum sjónarhornum og með ýmsum aðferðum. Nemendur læra og æfa lotutúlkun undir handleiðslu kennara, m.a. á sviði félagsþjónustu og skólakerfis. Umfjöllun um stöðu túlks í túlkunaraðstæðum og kynnt verður ferli við ákvarðanatöku og inngrip túlks. Rýnt verður áfram í túlkunar- og glósutækni og undirbúning fyrir túlkun, m.a. vinnu við orðaforða. Kynntar verða fyrirbyggjandi leiðir við sjálfgæslu og til úrvinnslu eftir krefjandi verkefni.

Vinnulag: Fyrirkomulag kennslu er fjölbreytt: í formi fræðilegs lesefnis, fyrirlestra í stofu og á upptökum, auk umræðna í stofu og á fjarfundum um efni fyrirlestra. Nemendur vinna einstaklings- og hópverkefni, æfa túlkun og vinna sjálfstætt, m.a. með upptökur. Fengnir verða gestir í stofu og farið í vettvangsferðir. Nemendur halda áfram að vinna með ferilmöppu sem gefur yfirlit um virkni í náminu. Áhersla er lögð á samstarf, sjálfstæði í vinnubrögðum, sveigjanleika og aðlögunarhæfni, sjálfsmat og ígrundun um eigin vinnubrögð auk færni í að veita og þiggja gagnrýni, endurgjöf og jafningjamat. Ætlast er til þess að nemendur mæti undirbúnir í tíma til að geta tekið virkan þátt í verklegum æfingum og umræðum. Mikilvægur hluti námsins er sjálfstætt heimanám, sem felst m.a. í skipulögðum, sjálfstæðum æfingum í að túlka og markvissri viðleitni til að bæta eigin færni í túlkun.

Námsmat: Símat í formi smærri verkefna yfir misserið. Lokaverkefni þar sem nemendur skila upptöku af túlkun sinni á samtali eða samtölum á orðræðusviðum námskeiðsins, ásamt greinargerð. Mætingarskylda er 80% og er forsenda þess að ljúka námskeiði. Standast þarf alla þætti námsmats til að ljúka námskeiði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Samfélagstúlkun III (TÁK008G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námsform: Námið er staðnám þar sem skiptast á lotur með kennslu í stofu/á vettvangi og rauntímaþátttaka á netfundum þess á milli. 
Markmið:
Að nemendur kynnist faginu samfélagstúlkun, með sérstaka áherslu á túlkun á heilbrigðissviði, vinnumarkaði og í trúarlífi. 
Viðfangsefni: Í þessu námskeiði er byggt ofan á námskeiðin TÁK006G og TÁK007G. Haldið verður áfram að fjalla um samfélagstúlkun frá ýmsum sjónarhornum og með ýmsum aðferðum. Nemendur læra og æfa lotutúlkun undir handleiðslu kennara, m.a. á heilbrigðissviði og í tengslum við vinnumarkað og trúarlíf. Umfjöllun um ýmsar aðferðir við túlkun, til dæmis fjartúlkun og lestúlkun. Rýnt verður áfram í túlkunar- og glósutækni, þ.m.t. samvinnu við teymi fagaðila. Rýnt verður í hlutverk túlksins, m.a. út frá menningarmiðlun, menningarnæmi, samskiptafærni og símenntun í vinnutungumálum. 
Vinnulag: Fyrirkomulag kennslu er fjölbreytt: í formi fræðilegs lesefnis, fyrirlestra í stofu og á upptökum, auk umræðna í stofu og á fjarfundum um efni fyrirlestra. Nemendur vinna einstaklings- og hópverkefni, æfa túlkun og vinna sjálfstætt, m.a. með upptökur. Fengnir verða gestir í stofu og farið í vettvangsferðir. Nemendur halda áfram að vinna með ferilmöppu sem gefur yfirlit um virkni í náminu. Áhersla er lögð á samstarf, sjálfstæði í vinnubrögðum, sveigjanleika og aðlögunarhæfni, sjálfsmat og ígrundun um eigin vinnubrögð auk færni í að veita og þiggja gagnrýni, endurgjöf og jafningjamat. Ætlast er til þess að nemendur mæti undirbúnir í tíma til að geta tekið virkan þátt í verklegum æfingum og umræðum. Mikilvægur hluti námsins er sjálfstætt heimanám, sem felst m.a. í skipulögðum, sjálfstæðum æfingum í að túlka og markvissri viðleitni til að bæta eigin færni í túlkun.  Námsmat: Símat í formi smærri verkefna yfir misserið. Í lok námskeiðs fer fram munnlegt lokapróf, að viðstöddum prófdómurum, þar sem nemandi skal vera fær um að lotutúlka milli íslensku og erlends máls eitt til tvö 5-10 mínútna samtöl milli sérfræðings/þjónustuveitanda og innflytjanda/þjónustuþega á almennu orðræðusviði eða orðræðusviðum námskeiðsins. Í túlkuninni verða að koma fram öll meginatriði samtals og helstu aukaatriði. Mætingarskylda er 80% og er forsenda próftökuréttar. Standast þarf alla þætti námsmats til að ljúka námskeiði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Túlkunarfræði (TÁK501G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið: Að nemendur öðlist grunnþekkingu í túlkunarfræðum og kynnist kenningum um túlkun og hlutverk túlksins.

Viðfangsefni: Farið verður í kenningar um ferli túlkunar og kenningar um hlutverk túlksins. Fjallað verður um menningarleg og málleg vandamál sem upp koma við túlkunaraðstæður og hlutverk túlksins í því að brúa bil milli tveggja menningarheima. Farið verður í mismunandi svið túlkunar, rætt um hagsmunaárekstra og ólíkar aðstæður í túlkun.

Vinnulag: Kennsla er að hluta til í fyrirlestrarformi en nemendur taka virkan þátt í umræðum og vinna bæði hóp- og einstaklingsverkefni á misserinu.

Námsmat: Skriflegt próf og verkefni

Lesefni: Tilkynnt síðar

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Vor
Samfélagstúlkun IV (TÁK009G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námsform: Námið er staðnám þar sem skiptast á lotur með kennslu í stofu/á vettvangi og rauntímaþátttaka á netfundum þess á milli.  
Markmið:
Að nemendur kynnist faginu samfélagstúlkun, með sérstaka áherslu á túlkun í réttarkerfinu, á landamærum og við móttöku innflytjenda. 
Viðfangsefni: Í þessu námskeiði er byggt ofan á námskeiðin TÁK006G, TÁK007G og TÁK008G. Haldið verður áfram að fjalla um samfélagstúlkun frá ýmsum sjónarhornum og með ýmsum aðferðum. Nemendur læra og æfa lotutúlkun undir handleiðslu kennara, m.a. varðandi túlkun í réttarkerfinu, á landamærum og við móttöku innflytjenda. Athugið að námskeiðið gefur ekki löggildingu til dómtúlkunar. Umfjöllun um ýmsar aðferðir við túlkun, til dæmis hvísltúlkun og samtímistúlkun. Rýnt verður áfram í túlkunar- og glósutækni, þ.m.t. samvinnu milli túlka. Upprifjun og samantekt allt frá því nemendur hófu nám í samfélagstúlkun og spáð í framtíðarþróun innan fagsins. 
Vinnulag: Fyrirkomulag kennslu er fjölbreytt: í formi fræðilegs lesefnis, fyrirlestra í stofu og á upptökum, auk umræðna í stofu og á fjarfundum um efni fyrirlestra. Nemendur vinna einstaklings- og hópverkefni, æfa túlkun og vinna sjálfstætt, m.a. með upptökur. Fengnir verða gestir í stofu, farið í vettvangsferðir og fylgst með túlkum að störfum. Nauðsynlegt er að nemendur tryggi sér svigrúm til að geta mætt í verklega þjálfun á vettvangi utan reglulegrar stundatöflu. Nemendur ljúka vinnu við ferilmöppu sem gefur yfirlit um virkni frá upphafi náms. Áhersla er lögð á samstarf, sjálfstæði í vinnubrögðum, sveigjanleika og aðlögunarhæfni, sjálfsmat og ígrundun um eigin vinnubrögð auk færni í að veita og þiggja gagnrýni, endurgjöf og jafningjamat. Ætlast er til þess að nemendur mæti undirbúnir í tíma til að geta tekið virkan þátt í verklegum æfingum og umræðum. Mikilvægur hluti námsins er sjálfstætt heimanám, sem felst m.a. í skipulögðum, sjálfstæðum æfingum í að túlka og markvissri viðleitni til að bæta eigin færni í túlkun.  Námsmat: Símat í formi smærri verkefna yfir misserið. Í lok námskeiðs fer fram munnlegt lokapróf, að viðstöddum prófdómurum, þar sem nemandi skal vera fær um að lotutúlka milli íslensku og erlends máls eitt til tvö 5-10 mínútna löng samtöl milli sérfræðings/þjónustuveitanda og innflytjanda/þjónustuþega á almennu orðræðusviði eða orðræðusviðum námskeiðsins. Gert er ráð fyrir að með skilvirkri glósutækni ráði nemandi við allt að 5-8 setninga langar lotur samfellt. Einnig skal nemandi geta sýnt færni í lestúlkun og vera fær um að hvísltúlka eða samtímistúlka á móðurmál sitt allt að 5 mínútna langa samfellda ræðu á tilteknu orðræðusviði. Í öllum prófverkefnum verða að koma fram öll meginatriði samtals/ræðu og helstu aukaatriði. Mætingarskylda er 80% og er forsenda próftökuréttar. Standast þarf alla þætti námsmats til að ljúka námskeiði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Vor
Siðfræði túlkunar (TÁK601G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið: Nemendur fái innsýn í klassískar siðakenningar og kynnist grundvallarhugtökum siðfræðinnar. Þeir þjálfist í að greina siðræn álitamál tengd túlkun og að taka rökstudda afstöðu til þeirra. Kennslan byggist á fyrirlestrum og umræðum. Í námskeiðinu er fyrst og fremst farið í klassískar kenningar siðfræðinnar og hugtök sem líta má á sem nauðsynlegan grunn til að takast á við þau álitamál sem sérstaklega snúa að starfsvettvangi túlka. Jafnframt er lögð áhersla á að tengja umfjöllunina við siðferðileg álitamál sem upp kunna að koma í túlkaaðstæðum. Mikið er lagt upp úr virkri umræðu nemenda í tímum og því mikilvægt að þeir kynni sér vel lesefni fyrir tímana.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár
  • Haust
  • Ekki kennt á misserinu
    TÁK006G
    Samfélagstúlkun I
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið: Að nemendur kynnist faginu samfélagstúlkun.

    Viðfangsefni: Fjallað verður um grunnþætti samfélagstúlkunar frá ýmsum sjónarhornum og með ýmsum aðferðum. Nemendur læra og æfa lotutúlkun undir handleiðslu kennara. Kynnt verður þýðingafræði nytjaþýðinga, unnið með textagreiningu, yfirfærslu merkingar og sköpun skilnings. Veittur er inngangur að túlkunar- og glósutækni, siðareglum túlka, kynningu túlka og hegðun þeirra í starfi. Einnig er fjallað um réttindi og skyldur, umsýslu, ásamt verktöku og rekstur einyrkja.

    Vinnulag: Fyrirkomulag kennslu er fjölbreytt: í formi fræðilegs lesefnis, fyrirlestra í stofu og á upptökum, auk umræðna í stofu og á fjarfundum um efni fyrirlestra. Nemendur vinna einstaklings- og hópverkefni, æfa túlkun og vinna sjálfstætt, m.a. með upptökur. Nemendur taka í notkun ferilmöppu sem gefur yfirlit um virkni í náminu. Áhersla er lögð á að þjálfa upp færni í samstarfi, sjálfstæði í vinnubrögðum, sveigjanleika og aðlögunarhæfni, sjálfsmat og ígrundun um eigin vinnubrögð auk færni í að veita og þiggja gagnrýni, endurgjöf og jafningjamat. Ætlast er til þess að nemendur mæti undirbúnir í tíma til að geta tekið virkan þátt í verklegum æfingum og umræðum. Mikilvægur hluti námsins er sjálfstætt heimanám, sem felst m.a. í skipulögðum, sjálfstæðum æfingum í að túlka og markvissri viðleitni til að bæta eigin færni í túlkun.
    Námsmat:
    Símat í formi smærri verkefna yfir misserið. Lokaverkefni þar sem nemendur skila upptöku af túlkun sinni á samtali eða samtölum, ásamt greinargerð. Mætingarskylda er 80% og er forsenda þess að ljúka námskeiði. Standast þarf alla þætti námsmats til að ljúka námskeiði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Ekki kennt á misserinu
    TÁK503G
    Talað mál og framsögn
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginmarkmið námskeiðsins er að gera nemendur færa um að miðla íslensku á vönduðu máli.
    Kynntar verða áherslur á flutningi talaðs mál við formlegar og óformlegar aðstæður og nemendur fá þjálfun í að flytja mál sitt skýrt og áheyrilega.
    Lögð er áhersla á að nemendur þekki eigin rödd, veikleika og styrkleika, og gildi réttrar raddbeitingar. Þá er undirstrikað að raddvernd er grunnur að áheyrilegri miðlun. Nemendur fá þjálfun í beitingu málsins með innsýn í helstu reglur í íslensku talmáli og vinna munnleg verkefni  þar sem reynir á skýra framsögn, raddbeitingu, ríkan orðaforða, vandað mál og að miðla af öryggi. Í öllum verkefnum eru þættir eins og raddbeiting, framburður, hrynjandi, málnotkun, orðaforði og stíll metnir.
    Kennsla fer fram í formi fyrirlestra, verkefnatíma með leiðsögn og verklegrar þjálfunar.

    Mætingarskylda er 80% og er forsenda próftökuréttar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Vor
  • ÍSE601G
    Fjölmiðlamál
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður ítarlega um íslenska málstefnu og málfar í fjölmiðlum í ljósi hennar, einkum í dagblöðum en einnig talmiðlum. Lesnar verða blaðagreinar af ýmsum toga (s.s. leiðarar, pistlar, minningargreinar og fréttaefni) og áhersla lögð á atriði sem oft vefjast fyrir annarsmálsnemum, s.s. orðatiltæki og vísanir í íslenskan menningarheim. Einnig verða til umræðu mismunandi málsnið, munur talmáls og ritmáls, textagerð og þýðingar í sjónvarpi, endurnýjun orða, fyrirsagnir og ensk áhrif í fjölmiðlum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    TÁK007G
    Samfélagstúlkun II
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið: Að nemendur kynnist faginu samfélagstúlkun, með sérstaka áherslu á túlkun í félagsþjónustu og í skólakerfinu.

    Viðfangsefni: Í þessu námskeiði er byggt ofan á námskeiðið TÁK006G. Haldið verður áfram að fjalla um samfélagstúlkun frá ýmsum sjónarhornum og með ýmsum aðferðum. Nemendur læra og æfa lotutúlkun undir handleiðslu kennara, m.a. á sviði félagsþjónustu og skólakerfis. Umfjöllun um stöðu túlks í túlkunaraðstæðum og kynnt verður ferli við ákvarðanatöku og inngrip túlks. Rýnt verður áfram í túlkunar- og glósutækni og undirbúning fyrir túlkun, m.a. vinnu við orðaforða. Kynntar verða fyrirbyggjandi leiðir við sjálfgæslu og til úrvinnslu eftir krefjandi verkefni.

    Vinnulag: Fyrirkomulag kennslu er fjölbreytt: í formi fræðilegs lesefnis, fyrirlestra í stofu og á upptökum, auk umræðna í stofu og á fjarfundum um efni fyrirlestra. Nemendur vinna einstaklings- og hópverkefni, æfa túlkun og vinna sjálfstætt, m.a. með upptökur. Fengnir verða gestir í stofu og farið í vettvangsferðir. Nemendur halda áfram að vinna með ferilmöppu sem gefur yfirlit um virkni í náminu. Áhersla er lögð á samstarf, sjálfstæði í vinnubrögðum, sveigjanleika og aðlögunarhæfni, sjálfsmat og ígrundun um eigin vinnubrögð auk færni í að veita og þiggja gagnrýni, endurgjöf og jafningjamat. Ætlast er til þess að nemendur mæti undirbúnir í tíma til að geta tekið virkan þátt í verklegum æfingum og umræðum. Mikilvægur hluti námsins er sjálfstætt heimanám, sem felst m.a. í skipulögðum, sjálfstæðum æfingum í að túlka og markvissri viðleitni til að bæta eigin færni í túlkun.

    Námsmat: Símat í formi smærri verkefna yfir misserið. Lokaverkefni þar sem nemendur skila upptöku af túlkun sinni á samtali eða samtölum á orðræðusviðum námskeiðsins, ásamt greinargerð. Mætingarskylda er 80% og er forsenda þess að ljúka námskeiði. Standast þarf alla þætti námsmats til að ljúka námskeiði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Haust
  • Ekki kennt á misserinu
    TÁK008G
    Samfélagstúlkun III
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námsform: Námið er staðnám þar sem skiptast á lotur með kennslu í stofu/á vettvangi og rauntímaþátttaka á netfundum þess á milli. 
    Markmið:
    Að nemendur kynnist faginu samfélagstúlkun, með sérstaka áherslu á túlkun á heilbrigðissviði, vinnumarkaði og í trúarlífi. 
    Viðfangsefni: Í þessu námskeiði er byggt ofan á námskeiðin TÁK006G og TÁK007G. Haldið verður áfram að fjalla um samfélagstúlkun frá ýmsum sjónarhornum og með ýmsum aðferðum. Nemendur læra og æfa lotutúlkun undir handleiðslu kennara, m.a. á heilbrigðissviði og í tengslum við vinnumarkað og trúarlíf. Umfjöllun um ýmsar aðferðir við túlkun, til dæmis fjartúlkun og lestúlkun. Rýnt verður áfram í túlkunar- og glósutækni, þ.m.t. samvinnu við teymi fagaðila. Rýnt verður í hlutverk túlksins, m.a. út frá menningarmiðlun, menningarnæmi, samskiptafærni og símenntun í vinnutungumálum. 
    Vinnulag: Fyrirkomulag kennslu er fjölbreytt: í formi fræðilegs lesefnis, fyrirlestra í stofu og á upptökum, auk umræðna í stofu og á fjarfundum um efni fyrirlestra. Nemendur vinna einstaklings- og hópverkefni, æfa túlkun og vinna sjálfstætt, m.a. með upptökur. Fengnir verða gestir í stofu og farið í vettvangsferðir. Nemendur halda áfram að vinna með ferilmöppu sem gefur yfirlit um virkni í náminu. Áhersla er lögð á samstarf, sjálfstæði í vinnubrögðum, sveigjanleika og aðlögunarhæfni, sjálfsmat og ígrundun um eigin vinnubrögð auk færni í að veita og þiggja gagnrýni, endurgjöf og jafningjamat. Ætlast er til þess að nemendur mæti undirbúnir í tíma til að geta tekið virkan þátt í verklegum æfingum og umræðum. Mikilvægur hluti námsins er sjálfstætt heimanám, sem felst m.a. í skipulögðum, sjálfstæðum æfingum í að túlka og markvissri viðleitni til að bæta eigin færni í túlkun.  Námsmat: Símat í formi smærri verkefna yfir misserið. Í lok námskeiðs fer fram munnlegt lokapróf, að viðstöddum prófdómurum, þar sem nemandi skal vera fær um að lotutúlka milli íslensku og erlends máls eitt til tvö 5-10 mínútna samtöl milli sérfræðings/þjónustuveitanda og innflytjanda/þjónustuþega á almennu orðræðusviði eða orðræðusviðum námskeiðsins. Í túlkuninni verða að koma fram öll meginatriði samtals og helstu aukaatriði. Mætingarskylda er 80% og er forsenda próftökuréttar. Standast þarf alla þætti námsmats til að ljúka námskeiði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    TÁK501G
    Túlkunarfræði
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið: Að nemendur öðlist grunnþekkingu í túlkunarfræðum og kynnist kenningum um túlkun og hlutverk túlksins.

    Viðfangsefni: Farið verður í kenningar um ferli túlkunar og kenningar um hlutverk túlksins. Fjallað verður um menningarleg og málleg vandamál sem upp koma við túlkunaraðstæður og hlutverk túlksins í því að brúa bil milli tveggja menningarheima. Farið verður í mismunandi svið túlkunar, rætt um hagsmunaárekstra og ólíkar aðstæður í túlkun.

    Vinnulag: Kennsla er að hluta til í fyrirlestrarformi en nemendur taka virkan þátt í umræðum og vinna bæði hóp- og einstaklingsverkefni á misserinu.

    Námsmat: Skriflegt próf og verkefni

    Lesefni: Tilkynnt síðar

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • Vor
  • Ekki kennt á misserinu
    TÁK009G
    Samfélagstúlkun IV

    TÁK601G
    Siðfræði túlkunar

Annað ár

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Diplómanám veitir ekki sérstök starfsréttindi en alltaf er þörf á fólki með þessa menntun. 

Samfélagstúlkar starfa á þeim stöðum þar sem erlendir borgarar þurfa að hafa samskipti við yfirvöld og þjónustuaðila. Mörgum þeirra er tryggður réttur til þess í gegnum alþjóðasáttmála og Evrópska efnahagssvæðið. Í dómskerfi og heilbrigðiskerfi eru til dæmis ákvæði í lögum um rétt til túlkaþjónustu.

Samfélagstúlkar starfa oft á þeim sviðum einkalífsins sem miklu máli skipta, hjá læknum, sýslumanni vegna hjónavígslna og skilnaða, á foreldrafundum í skólum og svo má lengi telja.

Það er því áríðandi að til þess fáist fólk sem hefur þekkingu og þjálfun sem að gagni kemur.

Fólk með þessa menntun starfar fyrir:

  • Einstaklinga
  • Opinberar stofnanir
  • Bæjarfélög
  • Skóla
  • Heilsugæslu og læknastofur

Listinn er ekki tæmandi.

Ekki er sérstakt nemendafélag fyrir þetta nám en nemendur eru duglegir að hittast í Stúdentakjallaranum.

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Ewa Waclawek
Nám í samfélagstúlkun við HÍ er frábært og mjög hagnýtt nám sem kemur sér vel í túlka starfi. Ég kláraði námið í samfélagstúlkun árið 2016 og mæli hiklaust með því fyrir alla sem hafa áhuga á að vinna í túlkaþjónustu að klára þetta nám. Í náminu lærði ég mjög mikið um samfélagstúlkun og einnig um snartúlkun, lotutúlkun, hvísltúlkun og símatúlkun. Auk þess lærði ég um réttindi og skyldur túlka sem finnst mér mjög mikilvægt í túlkastarfi. Túlkaþjónusta er ein mikilvægasta þjónustan í fjölmenningarsamfélagi og á sama tíma ein ört vaxandi þjónusta í okkar samfélagið. Gæði túlkunar skiptir miklu máli fyrir þjónustunotenda og vegna þess eru vel menntaðir og áreiðanlegir túlkar mjög verðmætur starfskraftur. Allir sem hafa áhuga á að starfa í túlkaþjónustu og hjálpa innflytjendum að kynnast íslensku kerfi, þekkja réttindi sín og hjálpa þeim að taka virkan þátt í okkar samfélagi ættu að íhuga að skrá sig í nám í samfélagstúlkun og ég mæli sterklega með því.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil