Nemendur fyrir framan Aðalbyggingu HÍ
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur á ensku eða norðurlandamálum.
Lengd náms
1 ár.
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Sækja þarf um aðalgrein áður en hægt er að sækja um aukagrein.
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á mismunandi trúarbrögðum?
  • Langar þig að skilja hvernig trú getur haft áhrif á samfélög?
  • Viltu nám er þverfaglegt og tengist mörgum fræðasviðum?
  • Langar þig að dýpka skilning þinn á menningu þjóðfélagshópa?
  • Viltu fjölbreytt úrval námskeiða sem eru á þínu áhugasviði?
  • Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?

BA námið er samtals 180 einingar. Aukagrein í trúarbragðafræði til BA náms er 60 eininga nám. Þú tekur því aðalgrein 120 einingar með þessu námi. Aukagreinin er alla jafna valin eftir fyrsta ár í aðalgein. 

Námið er þverfaglegt og er samsett úr námskeiðum innan og utan Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar. Námið er sett upp sem staðnám en valnámskeið geta verið kennd í fjarnámi.

Áhersla í námi

Nám í trúarbragðafræði snýr að hinum margslungna veruleika trúarbragðanna, og eftir atvikum annarra lífsskoðana, í sögu og samtíð.

Fengist er við sögulega þróun trúarbragða og stöðu þeirra í samfélagi og menningu á ólíkum svæðum og tímabilum með fjölbreyttum hætti og frá ólíkum sjónarhornum.

Gerð er grein fyrir heimsmynd þeirra, kenningum þeirra um manneskjuna og afstöðu þeirra til samfélagsins, ekki síst með hliðsjón af hugmyndum þeirra um vald og lífsgæði.

Fjallað er um kenningar og aðferðir í trúarbragðafræði og varpað ljósi á hvernig fræðigreinin skarast við önnur fræðasvið.  

Markmið

Markmið námsins er að nemandinn kunni skil á undirstöðuatriðum á sviði trúarbragðafræði, þar með töldum kenningum, hugtökum og rannsóknaraðferðum en líka sérkennum ólíkra trúarbragða.

Við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands er sérstök áhersla lögð á hin svonefndu abrahamísku trúarbrögð, það er gyðingdóm, kristni og íslam, en einnig er hægt að kynnast öðrum trúarbrögðum í valnámskeiðum utan deildar.

Annað 

Samsett BA námsgráða með aðal- og aukagrein er jafngild BA námsgráðu af einni námsleið. Sjá meira um aðal- og aukagreinar í grunnnámi undir Hjálplegt efni, neðar á síðunni.

Námið gefur aðgang að fjölbreyttu framhaldsnámi. 

Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf. Nánari upplýsingar er að finna í 18. grein reglna um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022. 

Ljúka þarf 60 einingum. Námið er þverfaglegt og samanstendur af námskeiðum innan og utan Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar. Nemendur þurfa að taka a.m.k. helming eininga (30 e) innan Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar HÍ. Námskeið deildarinnar eru merkt sem bundið val í kennsluskrá. 

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Ferilskrá (CV)
  • Greinargerð um markmið með námi
  • Meðmælandi 1, nafn og netfang
  • Meðmælandi 2, nafn og netfang
  • Prófskírteini/námsyfirlit

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Óháð námsári | Haust
Skírn á krossgötum (GFR334G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Hvaða áhrif hafa samfélagsbreytingar á stöðu trúarbragða og trúarlegra hefða? Hvernig birtast þessar breytingar á Norðurlöndum á fyrstu áratugum 21. aldar?  Á námskeiðinu munu nemendur skoða skírnina í ljósi breytts trúarlegs landslags og út frá eigindlegum og megindlegum könnunum og kanna hvernig norrænar meirihlutakirkjur hafa brugðist við, bæði hvað varðar skírnarathöfnina sjálfa og samtalið við almenning, t.d. í ljósi vistfræðilegra og samkirkjulegra áskorana.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Óháð námsári | Haust
Islam í fortíð, nútíð og framtíð (TRÚ003G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Er Íslam helsta ógn samtímans? Nánast daglega má lesa um Íslam í fyrirsögnum fjölmiðla enda eru helstu átök heimsins í dag á menningarsvæðum Múslima. Hvað veldur því að þessi trúarbrögð eru sífellt í fréttum? Er eitthvað í trúnni sem hefur komið á þessari þróun?

Í þessu námskeiði verður fjallað um hina pólítíska og menningarlegu sögu Íslam og þróun helstu stofnana og hugmynda þess. Farið verður yfir helstu guðfræðilegu stoðir trúarinnar með því að skoða feril Múhameðs spámanns. Því næst verða helstu atriði Kóransins skoðuð. Hvaða heimsmynd birtist í þessu helgiriti og hvernig er fjallað um réttlæti? Hvaða lausnir sér Kóraninn fyrir sér á helstu vandamál samtímans? Hvað segir Kóraninn um önnur trúarbrögð? Hvað er heilagt stríð (jihad)? Fjallað verður einnig um Sjaría lagakerfið með sérstakri áherslu á stöðu kvenna.

Stór hluti námskeiðins mun fjalla um stöðu Íslam og Múslima í heiminum í dag ekki síst uppgangur róttækra hreyfinga á borð við al-Qaeda og reynsla Múslima í vestrænum samfélögum. Við munum velta fyrir okkur hvort hægt sé að samhæfa Íslam og vestrænt gildismat og hvaða erindi trúin hefur í nútímasamfélögum til dæmis hvort Íslam og lýðræði eiga samleið. Að lokum munum við velta fyrir okkur framtíð Íslam og að hversu leyti saga þess mun hafa áhrif á ágreiningsmál morgundagsins.

Námskeiðskröfur: 10-12 síðna rigerð, fjölmiðlarýni og blogg.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári | Haust
Inngangur að Gamla testamentinu (GFR104G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um tilurðar- og bókmenntasögu Gamla testamentisins og þá mynd af stjórnmálasögu og trúarsögu „Ísraels“ sem þar er sett fram. Jafnframt verður fjallað um niðurstöður nýjustu ritskýringar-, sagnfræði- og fornleifarannsókna á stjórnmála- og trúarsögu landsvæðisins fyrir botni Miðjarðarhafs frá lokum bronsaldar og á 1. árþúsundi f. Kr. og þær niðurstöður bornar saman við söguskilning Gamla testamentisins. M.ö.o. verður annars vegar leitast við að varpa ljósi á „Ísrael“ Biblíunnar og hins vegar „Ísrael“ sögunnar (í sagnfræðilegum skilningi). Hugað verður að ólíkum hugmyndahefðum sem varðveittar eru í mismunandi bókmenntahefðum Gamla testamentisins og þessar hugmyndahefðir settar í almennt samhengi menningar og trúar þjóðanna fyrir botni Miðjarðarhafs til forna. Einnig verður hugað að þróun guðsmyndarinnar í konungsríkjunum Ísrael og Júda á grundvelli rannsókna á félagssögulegu samhengi átrúnaðar í G.t.

Til grundvallar liggur nálgun og umfjöllun kennslubókar námskeiðsins, Introduction to the Bible eftir Christine Hayes, prófessor í trúarbragðafræðum við Yale-háskóla.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Kirkjudeildafræði (GFR116G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Hvað er kirkjudeildafræði og hvernig er greint milli kirkju, kirkjudeildar og safnaðar? Í hverju felst samkirkjulegt starf? Hvert er framlag heimskristni (e. World Christianity) og boðunarfræði til rannsóknar á kirkjudeildunum? Hver er saga kirkjudeildanna og hvernig kvíslast þær og greinast í ólíkar áttir? Hvað eiga þær sameiginlegt? Í námskeiðinu er fjallað um kennisetningar, skipulag, álitamál og starfshætti helstu kristinna kirkjudeilda og hreyfinga í heiminum. Gerð er grein fyrir starfsemi kirkjudeilda hér á landi og þróun íslenskrar lagasetningar um trúfélög. Unnið er með tengsl heimskristni, samkirkjuhreyfinga og boðunarstarfs innan og milli kirkjudeilda.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári | Haust
Inngangur að trúfræði (GFR204G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið þessa námskeiðs er að gefa sögulegan ramma, þar sem farið er yfir helstu atriði kenningasögunnar frá upphafi og fram á okkar daga. Sérstök áhersla verður lögð á játningamyndun og mótun og einkenni helstu kirkjudeilda.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Inngangur að sögu kristni (GFR117G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Viðfangsefni námskeiðsins er saga kristni frá upphafi til okkar daga. Í námskeiðinu, sem er inngangs- og yfirlitsnámskeið, verður fjallað um megineinkenni á helstu tímabilum í sögu trúarbragðanna á grundvelli nýjustu rannsókna. Það verður gert í tímaröð, þ.e. yfirferðin mun hefjast í frumkristni en ljúka í nútímanum. Einnig verður fjallað sérstaklega um valin stef sem verða tekin reglulega fyrir í námskeiðinu í ólíku sögulegu og menningarlegu samhengi. Þessi stef eru 1) rétttrúnaður og trúvilla, 2) kristni og ofbeldi, 3) afhelgun og 4) klausturhreyfingar. Þó megináhersla liggi á útbreiðslu trúarbragðanna í Evrópu verður hún þó einnig skoðuð með hnattræna dreifingu þeirra í huga. Kynntar verða mikilvægustu kenningar og aðferðir í trúarbragðasögu með sérstakri áherslu á kristni.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Haust
Nýja testamentið í nútímasamfélagi: Áhrif, nálgun og notagildi (GFR331G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Hvaða samfélagslegu áhrif hefur Nýja testamentið í dag? Eru áhrifin góð eða slæm? Hvernig ber að nálgast trúarlega texta eins og rit Nýja testamentisins sem byggja á fornu og allt öðru þekkingarmengi en nútímasamfélög? Hvaða notagildi geta slíkir textar haft í dag og hvaða notagildi ættu þeir að hafa? Í námskeiðinu fást nemendur við þessar almennu kjarnaspurningar út frá ýmsum textum Nýja testamentisins og álitamálum þeim tengdum. Áhersla er lögð á félagslega þætti og mannréttindamál þar sem biblíutextar hafa leynt eða ljóst komið við sögu. Enn fremur er lögð áhersla á að ræða ýmsar birtingarmyndir bókstafshyggju í túlkunum á Nýja testamentinu og leita svara akademískrar nálgunar við þeim. Jafnframt vinna nemendur með spurninguna um gildi og notagildi Nýja testamentisins í samfélaginu í dag, hvort heldur sem er fyrir einstaklinga eða á faglegum vettvangi, s.s. á sviði félagsmála eða sálgæslu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Dýrkun dýrlinga í Norður-Evrópu á miðöldum (SAG447G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Dýrlingar voru mikilvægir í félags-, trúar- og stjórnmálalífi miðalda. Staðbundin norræn dýrlingadýrkun endurspeglaði eldri meginlandshefð og lagði áherslu á tengsl norrænu landanna við hinn kristna heim. Rannsóknir á dýrlingum í norðrinu veita okkur einstaka og mikilvæga mynd af menningar-, trúar- og bókmenntaskiptum við hinn kristna heim á miðöldum. Þrátt fyrir að kristnitakan hafi átt sér stað nokkuð seint í Skandinavíu og á Íslandi (á níundu til elleftu öld) þá sýna sögulegar heimildir norrænt samfélag sem tók fullan þátt í kristnum siðvenjum frá meginlandi Evrópu, en aðlagaði jafnframt texta og helgisiði að heimasamfélaginu. Með umfjöllun um líf dýrlinga mun námskeiðið bregða birtu á frásagnir af kristnitökunni, dýrlingum, hetjuskap og þjóðernishyggju.
Mikil áhersla verður lögð á að taka fyrir spurningar um mörk tegunda, þjóðernis og trúarbragða í samhengi miðalda.

Kennslutungumál: Enska
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Óháð námsári | Haust
Ferlið og dygðin – Bókin um veginn – Daodejing – ritskýring (KÍN502G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður hið sígilda og áhrifamikla heimspeki- og trúarrit Daodejing lesið kafla fyrir kafla með það fyrir augum að gera grein fyrir inntaki textans í ljósi heimspekilegra og trúarlegra kenninga daoismans. Stuðst verður einkum við tvímála þýðingu Ragnars Baldurssonar sem nefnist á íslensku Ferlið og dygðin en jafnframt leitað fanga í öðrum erlendum þýðingum, túlkunum og skýringarritum. Kunnátta í kínversku ritmáli er kostur en ekki skilyrði fyrir þátttöku í námskeiðinu.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári | Haust
Inngangur að heimspeki (HSP103G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um spurninguna: „Hvað er heimspeki?“ og um tengsl heimspeki við vísindi, listir, trúarbrögð og stjórnmál. Lesnir verða textar eftir klassíska heimspekinga og samtímaheimspekinga í því augnamiði að skoða ólíkar aðferðir og vandamál heimspekinnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Indversk menning og samfélag I (HIN201G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið er fyrir alla sem vilja kynnast indverskri menningu og samfélagi.
Engrar forþekkingar er krafist.

Meginmarkmið námskeiðsins er að kynna landfræðilega og menningarlega arfleifð Indlands fyrir nemendum. Í ljósi hinnar miklu menningarlegu fjölbreytni landsins verður einungis stiklað á stóru. Í þessu námskeiði verður fyrst og fremst stuðst við hljóð- og myndefni og viðfangsefnið verður nálgast á gagnvirkan hátt. Nemendum verður séð fyrir fjölbreyttu lesefni og glósum sem tengjast hverju viðfangsefni sérstaklega.

Viðfangsefni námskeiðsins:

  1. Landfræðileg einkenni Indlands og kennileiti
  2. Byggingarlist bænahúsa
  3. Indverskar hátíðir
  4. Ayurveda fyrri hluti
  5. Ayurveda seinni hluti
  6. Indversk krydd

Námskeiðið er kennt í 6 vikna lotu á fyrri hluta haustmisseris, tvisvar í viku, 80 mínútur í senn kl. 16:40 – 18:10.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Óháð námsári | Haust
Saga Mið-Austurlanda I (MAF101G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður farið yfir sögu þess svæðis sem telst til Mið-Austurlanda frá fornöld og fram á miðaldir. Fjallað verður um uppgang Egypta, Súmera og annarra þjóða í hinni svokölluðu 'vöggu siðmenningarinnar'. Sérstök áhersla verður lögð á uppgang íslam á 7. öld og það heimsveldi sem múslimar byggðu upp næstu aldir þar á eftir.  Fjallað verður um Múhameð spámann og eftirmenn hans, tilurð Kóransins, kalífat Umayya, kalífat Abbasída og 'gullöld' íslam. Námskeiðið er kennt á íslensku en mest af lesefninu verður á ensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Japanskt þjóðfélag og menning I (JAP105G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum innsýn í japanskt þjóðfélag og menningu bæði fyrr og nú. Viðfangsefni námskeiðsins eru m.a. sjálfsmynd, menntun, trúarbrögð, hefðir og listir í Japan.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Átakasvæði í heiminum – áskoranir fjölmenningar (SFG001G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginviðfangsefni námskeiðsins eru átök og átakasvæði í heiminum einkum með hliðsjón af tækifærum og áskorunum sem slík viðfangsefni gefa í kennslu. Þátttakendur kynnast hugmyndum og sjónarmiðum tengdum átökum og tengja við landfræðilegar aðstæður, sögu, menningu og trúarbrögð. Unnið verður með valin tvö til þrjú átakasvæði. Til greina koma Írland og írska lýðveldið, Ísrael og Palestína, Mexíkó, Myanmar, Nígería og Tyrkland, auk átaka sem erfitt er að afmarka landfræðilega. Val á viðfangsefnum verður í samráði við þátttakendur og eftir atvikum verða þau tengd við íslenska sögu og aðstæður.

Verkefni námskeiðisins snúa að æfingum í upplýsingaleit, framsetningu sögulegra og landfræðilegra upplýsinga og í að útskýra flókna eða viðkvæma þætti efnisins.

Lokapróf gildir 40%, en verkefni og hlutapróf 60%. Í námskeiðinu er 80% mætingaskylda í kennslustundir.
Sjá nánari upplýsingar á Canvas-vef námskeiðsins. 

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Óháð námsári | Vor
Heimskristni: Hnattræn trú í fortíð og framtíð (GFR418G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Við upphaf tuttugustu aldar bjuggu 80% kristins fólks í Evrópu og Norður Ameríku. Árið 2013, eða um hundrað árum síðar, hafði þessi tala fallið niður í 35%. Þá hafði bæði fækkað í kirkjum í Evrópu og Bandaríkjunum en fjölgað á sama tíma í Suður Ameríku, Afríku og Asíu. Á þessu námskeiði fá þátttakendur tækifæri til að kynna sér rækilega þá sögulegu atburðarás sem liggur að baki þessari þróun og ígrunda gildi hennar fyrir kristnina í samtíð og framtíð frá hnattrænu sjónarhorni.  

Kennari: Leah Rumsey
 

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Inngangur að guðfræðilegri siðfræði (GFR201G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um siðfræði af sjónarhóli guðfræði og heimspeki. Í fyrri hluta námskeiðsins er lögð áhersla á að nemendur kynnist ráðandi kenningum og helstu hugtökum vestrænnar siðfræði. Í seinni hluta námskeiðs er fjallað um spurninguna: „Hvaða siðferðilegu verðmæti gefa lífinu gildi?“ út frá kenningum og fjölbreyttum heimsmyndum sem liggja til grundvallar í siðfræði samtímans.

 

 

 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Frumkristni: Samtíðar- og bókmenntasaga (GFR211G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður fjallað um upphaf frumkristni sem og sögulegan og hugmyndafræðilegan bakgrunn hennar. Áhersla verður lögð á rætur frumkristni í síðgyðingdómi og saga og þróun síðgyðingdómsins rakin í því sambandi. Einnig verða hugmyndafræðilegar rætur frumkristni í hinum helleníska menningarheimi skoðaðar. Fjallað verður um frumkristnar bókmenntir þar sem áhersla verður lögð á sagnfræðilega nálgun efnisins. Gefin verður innsýn í einstök rit Nýja testamentisins sem og önnur frumkristin rit, einkum í ljósi sögulegs samhengis þeirra og annarra samtímabókmennta. Einnig verður fjallað almennt um eðli og form rita af þessu tagi. Þannig verður lagður faglegur grunnur að lestri og rannsóknum á frumkristnum textum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Al-Andalus: Múslimar á Spáni 711-1492 (MAF207G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður farið yfir tæplega átta hundruð ára sögu múslima á Spáni. Meðal umfjöllunarefna verður aðdragandi og framvinda innrásar múslima á Íberíuskaga árið 711, ríki múslima og blómaskeið þess næstu aldir, uppgang lista, bókmennta, byggingarlistar og fræða, mikilvægi arabíska tungumálsins og þýðingar á verkum arabískra fræðimanna á latínu. Einnig munum við skoða hvernig hugmyndir Evrópumanna um íslam og múslima mótuðust að hluta til vegna kynna þeirra af múslimum á Spáni, og hvernig kristin samfélög náðu yfirhöndinni á Íberíuskaga á síð-miðöldum. Námskeiðið er kennt á íslensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári | Vor
Andlegt ferðalag: Úkraínsk og rússnesk heimspeki (RÚS413G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Heimspeki- og trúarhefð Austurkirkjunnar er ólík rómversk-kaþólskri hefð sem þróaðist með fræðaiðkun í klaustrum og háskólum á miðöldum var nátengd þeim straumum sem síðar leiddu til meiriháttar samfélagsbreytinga í vesturhluta Evrópu. Innan heims rétttrúnaðarkirknanna voru ítök nýplatonisma alltaf sterk og beindu trúarlegri hugsun í átt að upplifun og tjáningu frekar en að frumspekilegri greiningu. Helstu heimspekingar rétttrúnaðarkirkjunnar í Rússneska keisaradæminu á nítjándu öld voru hins vegar vel menntaðir í vestrænni heimspeki sem varð til þess að í lok þeirrar aldar og snemma á tuttugustu öld varð til einstök heimspekihefð sem byggði bæði á andlegri áherslu austurkirkjunnar og á skynsemishyggju vestursins. Í námskeiðinu er stiklað á stóru í þessari sögu hugmynda og helstu hugsuðum, úkraínskum jafnt sem rússneskum.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Óháð námsári | Vor
Saga Kína I: From Mythological Origins to Late Ming (KÍN102G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið fjallar um sögu Kína frá goðsögulegum tíma Xia-veldisins á þriðja árþúsundi f.Kr. fram að upphafi nítjándu aldar. Varpað verður ljósi á jafnt þær breytur sem varðað hafa mestu um mótun kínverskrar menningar sem einstaka viðburði í pólítískri og samfélagslegri framvindu þjóðarinnar. Veitt verður yfirlit yfir tilkomu og þróun áhrifamestu kínversku trúarbragða- og heimspekikerfa, einkum konfúsíanisma, daoisma og búddisma. Áhrifamiklir einstaklingar verða kynntir til sögunnar og samskipti og gagnkvæm áhrif erlendra þjóðhópa og Kínverja fá umtalsvert vægi.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Rómverja saga (SAG271G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Arfur Rómaveldis í vestrænni menningu síðari alda er afgerandi og ristir djúpt. Í þessu námskeiði verður fjallað um sögu Rómaveldis frá upphafi fram til fjórðu aldar, frá stofnun borgarinnar til Konstantínusar mikla. Þetta er stórveldistími Rómar, þar sem hún rís frá því að vera bær í afskekktu héraði til stórborgar sem drottnaði yfir og skóp heim Miðjarðarhafsins. Þetta er ekki einföld saga um ris, hátind og hnignun heldur margbrotin saga umbreytinga og átaka í stjórnmálum og stjórnspeki, menningu og listum, efnahag og verslun, trú og heimsmynd, lífskjörum og félagslegum aðstæðum.

Auk grunnbókar um sögu tímabilsins ― Mary T. Boatwright et al., The Romans: From Village to Empire; A History of Rome from the Earliest Times to the End of the Western Empire, 2. útg. (Oxford: Oxford University Press, 2011) ― verða lesnar frumheimildir eftir Júlíus Sesar, Livíus, Dio Cassius, Svetóníus, Tacitus, Virgil, Óvidíus og fleiri. Sérstaklega verður hugað að heimildagrundvelli sögunnar, bæði ritheimildum og fornleifum, og spurt hvaða möguleika við höfum til þess að túlka og skilja horfinn heim. Skipti hlutur einstakra leikenda höfuðmáli eða flutu þeir á undirstraumi annarra aflavaka sögulegrar þróunar? Horft verður á nýlega leikna heimildaþáttaröð, Roman Empire: Reign of Blood, Master of Rome, The Mad Emperor (Netflix, 2016‒19) og gagnrýninna spurninga spurt um hvernig fortíðin birtist okkur í frásögn.

Námsmat byggir á ritgerð og lokaprófi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Indversk menning og samfélag II (HIN202G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið er fyrir alla sem vilja kynnast indverskri menningu og samfélagi.
Engrar forþekkingar er krafist.

Meginmarkmið námskeiðsins er að kynna félagslega  og menningarlega arfleifð Indlands fyrir nemendum. Í ljósi þess hve landið er fjölbreytt verður stiklað á stóru og áhersla lögð á Vedaritin, Upanisjadritin og Itihasa. Einnig munu nemendur kynnast undirliggjandi heimspeki jóga og kirjunar og hvernig það nýtist til sjálfseflingar og vellíðanar. Í þessu námskeiði verður fyrst og fremst stuðst við hljóð- og myndefni og viðfangsefnið verður nálgast á gagnvirkan hátt. Nemendum verður séð fyrir fjölbreyttu lesefni og glósum sem tengjast hverju viðfangsefni sérstaklega.

Viðfangsefni námskeiðsins:

  1. Vedaritin
  2. Bhagavad Gita textarnir
  3. Ramayana textarnir
  4. Jóga sem tæki til sjálfsþroska og sjálfseflingar
  5. Máttur þess að kirja
  6. Andagift og sjálfsefling

Námskeiðið er kennt í 6 vikna lotu á seinni hluta vormisseris, tvisvar í viku, 80 mínútur í senn kl. 16:40 – 18:10.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Óháð námsári | Vor
Trú og töfrar (MAN329G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að kynna hugmyndir og kenningar í mannfræði um trúarbrögð. Fjallað er sögulega um hugmyndir í mannfræði um þessi efni og hugmyndir og kenningar þær sem fram hafa komið kynntar. Efnislega er í námskeiðinu einkum fjallað um trú, töfra og galdur.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Vor
Norræn trú (ÞJÓ437G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Trúarlíf manna á norðurslóðum er tekið fyrir og heimildir allt frá elstu tímum, eins og grafir, rúnasteinar, hellaristur og aðrar fornminjar verða skoðaðar. Einnig verða lesnar lýsingar á norrænum trúarathöfnum í verkum eftir Tacitus, Adam frá Brimum, Saxo Grammaticus og í fornritum Íslendinga eins og Eddukvæðum og Konungasögum. Auk norrænnar trúar verður fjallað um seið og sjamanisma. Örlagatrú er tekin til ítarlegrar umfjöllunar sem meginþáttur í forkristnum átrúnaði á Norðurlöndum. Loks er vikið að því hvernig kristindómur hefur fallið að norrænum lífsháttum og hugsunarhætti. Námskeiðið er kennt á ensku.

Vinnulag:
Kennsla fer fram í fyrirlestrum, og umræðum um fyrirlestra.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Trúarbragðafræðsla og margbreytileiki (SFG003G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Viðfangsefni: Á námskeiðinu er fengist við trúarbrögð og trúarbragðafræðslu í fjölmenningarlegu samfélagi. Fjallað verður um trúarþörf og trúarreynslu mannsins, tilvistarspurningar og leit eftir tilgangi og merkingu. Kynnt verða helstu greiningarhugtök, kenningar og rannsóknir á sviði trúarbragðafræði og trúaruppeldisfræði. Rætt verður um gildi trúarbragða fyrir einstaklinga og samfélög og áhrif þeirra á mótun sjálfsmyndar, gildismats og lífsskilnings. Þá verða helstu trúarbrögð heims skoðuð, þ.e. gyðingdómur, kristni, islam, hindúasiður og búddatrú, auk nokkurra annarra trúarbragða. Einnig verður fjallað um trúlaus og trúarlega hlutlaus lífsviðhorf. Þá verður vikið að stöðu trúarbragða og trúarhreyfinga á tímum fjölmenningar og margbreytileika og rætt um fjölhyggju og samskipti einstaklinga og hópa með ólíkan menningarlegan og trúarlegan bakgrunn, umburðarlyndi og fordóma.

Vinnulag: Námskeiðið byggist á stuttum fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Óháð námsári | Vor
Kínversk trúarbrögð (KÍN614G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður hafist handa við að draga fram þau sérkenni kínverskra trúarbragða sem greina þau frá trúarbrögðum hinnar abrahamísku trúarhefðar. Megininntak námskeiðsins eru síðan þau trúarbrögð sem hafa orðið til innan kínverskrar menningarhefðar, þ.e. daoismi, kínverskur búddismi (m.a. chan 禪, tiantai 天台 og jingtu 淨土) og kínversk alþýðutrú undir konfúsíanískum áhrifum. Rýnt verður í nokkur grunnrit þessara trúarbragða í því skyni að átta sig á helstu kenningum þeirra en jafnframt litið til birtingarforma þeirra í samtímanum, helgiathafna og samfélagslegrar stöðu, jafnt í Alþýðulýðveldinu Kína, Tævan, Malasíu, Singapúr og víðar. Eftir því sem tími gefst til verður jafnframt vikið að nokkrum nýlegum trúarhreyfingum sem blanda saman ýmsum eldri kínverskum hefðum, t.d. Tiandi jiao 天帝, Falun gong 法輪功 og Cao Dai í Víetnam, og hugað að öðrum trúarbragðahefðum sem hafa tekið sér bólstað í Kína, þ.á.m. kristni og íslam.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári | Vor
Íslensk miðaldasaga í ljósi ritheimilda og fornleifa (FOR205G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um sögu Íslands frá landnámi til siðaskipta í ljósi ritheimilda og fornleifa. Yfirlit um sögu víkingaaldar og sögu rannsókna á víkingaöld. Farið er yfir landnámið, forsendur þess og framgang í ljósi fornleifa og ritheimilda. Fjallað verður um mótun nýs samfélags, sjálfsmynd þess og hagrænan grundvöll, byggðaþróun, trú og trúskipti, pólitísk innanlandsátök og innleiðingu ríkisvalds á þrettándu öld.  Kirkjan og félagsleg, menningarleg, pólitísk og hagræn áhrif hennar eru í brennidepli í seinni hluta námskeiðsins. Þessi viðfangsefni verða sett í samhengi við almenna sagnaritun tímabilsins, þróun tækni og efnismenningar og þróun mála í umheiminum. Áhersla er lögð á að nemendur kynni sér frumheimildir, bæði ritheimildir og fornleifar. Kennslan fer fram í fyrirlestrum og í umræðutímum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Cicero: Um eðli guðanna (KLM406G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

M. Tullius Cicero er án nokkurs vafa einn mikilvægasti og áhrifamesti höfundur á latínu í óbundnu máli. Í námskeiðinu verður lesið úr riti hans De natura deorum (Um eðli guðanna), sem fjallar um kenningar heimspekinganna um eðli guðdómsins. Lesið verður úr 2. bók De natura deorum þar sem kenningar stóuspekinnar eru ræddar. Texti verður lesinn á frummálinu, þýddur og skýrður mál- og setningafræðilega og efnislega eftir þörfum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Saga Mið-Austurlanda II (MAF203G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið tekur upp þráðinn þar sem námskeiðinu Saga-Miðausturlanda I sleppir. Það er þó ekki nauðsynlegur undanfari, hægt er að taka bæði námskeiðin eða annað þeirra. Hér verður farið yfir þróun mála í Mið-Austurlöndum frá ca 1300, uppgang Ottómana og Safavída, og sér í lagi tengsl þeirra við Vesturlönd. Meðal efnis verður nýlendustefna Evrópuríkja í þessum heimshluta og áhrif þeirra á menningu og stjórnmál, uppgangur þjóðernishyggju og tilurð ríkja, og ýmis átök og ágreining sem mótað hefur svæðið allt til dagsins í dag. Námskeiðið er kennt á íslensku en mest af lesefninu verður á ensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári
  • Haust
  • GFR334G
    Skírn á krossgötum
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Hvaða áhrif hafa samfélagsbreytingar á stöðu trúarbragða og trúarlegra hefða? Hvernig birtast þessar breytingar á Norðurlöndum á fyrstu áratugum 21. aldar?  Á námskeiðinu munu nemendur skoða skírnina í ljósi breytts trúarlegs landslags og út frá eigindlegum og megindlegum könnunum og kanna hvernig norrænar meirihlutakirkjur hafa brugðist við, bæði hvað varðar skírnarathöfnina sjálfa og samtalið við almenning, t.d. í ljósi vistfræðilegra og samkirkjulegra áskorana.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • TRÚ003G
    Islam í fortíð, nútíð og framtíð
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Er Íslam helsta ógn samtímans? Nánast daglega má lesa um Íslam í fyrirsögnum fjölmiðla enda eru helstu átök heimsins í dag á menningarsvæðum Múslima. Hvað veldur því að þessi trúarbrögð eru sífellt í fréttum? Er eitthvað í trúnni sem hefur komið á þessari þróun?

    Í þessu námskeiði verður fjallað um hina pólítíska og menningarlegu sögu Íslam og þróun helstu stofnana og hugmynda þess. Farið verður yfir helstu guðfræðilegu stoðir trúarinnar með því að skoða feril Múhameðs spámanns. Því næst verða helstu atriði Kóransins skoðuð. Hvaða heimsmynd birtist í þessu helgiriti og hvernig er fjallað um réttlæti? Hvaða lausnir sér Kóraninn fyrir sér á helstu vandamál samtímans? Hvað segir Kóraninn um önnur trúarbrögð? Hvað er heilagt stríð (jihad)? Fjallað verður einnig um Sjaría lagakerfið með sérstakri áherslu á stöðu kvenna.

    Stór hluti námskeiðins mun fjalla um stöðu Íslam og Múslima í heiminum í dag ekki síst uppgangur róttækra hreyfinga á borð við al-Qaeda og reynsla Múslima í vestrænum samfélögum. Við munum velta fyrir okkur hvort hægt sé að samhæfa Íslam og vestrænt gildismat og hvaða erindi trúin hefur í nútímasamfélögum til dæmis hvort Íslam og lýðræði eiga samleið. Að lokum munum við velta fyrir okkur framtíð Íslam og að hversu leyti saga þess mun hafa áhrif á ágreiningsmál morgundagsins.

    Námskeiðskröfur: 10-12 síðna rigerð, fjölmiðlarýni og blogg.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • GFR104G
    Inngangur að Gamla testamentinu
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um tilurðar- og bókmenntasögu Gamla testamentisins og þá mynd af stjórnmálasögu og trúarsögu „Ísraels“ sem þar er sett fram. Jafnframt verður fjallað um niðurstöður nýjustu ritskýringar-, sagnfræði- og fornleifarannsókna á stjórnmála- og trúarsögu landsvæðisins fyrir botni Miðjarðarhafs frá lokum bronsaldar og á 1. árþúsundi f. Kr. og þær niðurstöður bornar saman við söguskilning Gamla testamentisins. M.ö.o. verður annars vegar leitast við að varpa ljósi á „Ísrael“ Biblíunnar og hins vegar „Ísrael“ sögunnar (í sagnfræðilegum skilningi). Hugað verður að ólíkum hugmyndahefðum sem varðveittar eru í mismunandi bókmenntahefðum Gamla testamentisins og þessar hugmyndahefðir settar í almennt samhengi menningar og trúar þjóðanna fyrir botni Miðjarðarhafs til forna. Einnig verður hugað að þróun guðsmyndarinnar í konungsríkjunum Ísrael og Júda á grundvelli rannsókna á félagssögulegu samhengi átrúnaðar í G.t.

    Til grundvallar liggur nálgun og umfjöllun kennslubókar námskeiðsins, Introduction to the Bible eftir Christine Hayes, prófessor í trúarbragðafræðum við Yale-háskóla.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • GFR116G
    Kirkjudeildafræði
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Hvað er kirkjudeildafræði og hvernig er greint milli kirkju, kirkjudeildar og safnaðar? Í hverju felst samkirkjulegt starf? Hvert er framlag heimskristni (e. World Christianity) og boðunarfræði til rannsóknar á kirkjudeildunum? Hver er saga kirkjudeildanna og hvernig kvíslast þær og greinast í ólíkar áttir? Hvað eiga þær sameiginlegt? Í námskeiðinu er fjallað um kennisetningar, skipulag, álitamál og starfshætti helstu kristinna kirkjudeilda og hreyfinga í heiminum. Gerð er grein fyrir starfsemi kirkjudeilda hér á landi og þróun íslenskrar lagasetningar um trúfélög. Unnið er með tengsl heimskristni, samkirkjuhreyfinga og boðunarstarfs innan og milli kirkjudeilda.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • GFR204G
    Inngangur að trúfræði
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið þessa námskeiðs er að gefa sögulegan ramma, þar sem farið er yfir helstu atriði kenningasögunnar frá upphafi og fram á okkar daga. Sérstök áhersla verður lögð á játningamyndun og mótun og einkenni helstu kirkjudeilda.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • GFR117G
    Inngangur að sögu kristni
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni námskeiðsins er saga kristni frá upphafi til okkar daga. Í námskeiðinu, sem er inngangs- og yfirlitsnámskeið, verður fjallað um megineinkenni á helstu tímabilum í sögu trúarbragðanna á grundvelli nýjustu rannsókna. Það verður gert í tímaröð, þ.e. yfirferðin mun hefjast í frumkristni en ljúka í nútímanum. Einnig verður fjallað sérstaklega um valin stef sem verða tekin reglulega fyrir í námskeiðinu í ólíku sögulegu og menningarlegu samhengi. Þessi stef eru 1) rétttrúnaður og trúvilla, 2) kristni og ofbeldi, 3) afhelgun og 4) klausturhreyfingar. Þó megináhersla liggi á útbreiðslu trúarbragðanna í Evrópu verður hún þó einnig skoðuð með hnattræna dreifingu þeirra í huga. Kynntar verða mikilvægustu kenningar og aðferðir í trúarbragðasögu með sérstakri áherslu á kristni.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • GFR331G
    Nýja testamentið í nútímasamfélagi: Áhrif, nálgun og notagildi
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Hvaða samfélagslegu áhrif hefur Nýja testamentið í dag? Eru áhrifin góð eða slæm? Hvernig ber að nálgast trúarlega texta eins og rit Nýja testamentisins sem byggja á fornu og allt öðru þekkingarmengi en nútímasamfélög? Hvaða notagildi geta slíkir textar haft í dag og hvaða notagildi ættu þeir að hafa? Í námskeiðinu fást nemendur við þessar almennu kjarnaspurningar út frá ýmsum textum Nýja testamentisins og álitamálum þeim tengdum. Áhersla er lögð á félagslega þætti og mannréttindamál þar sem biblíutextar hafa leynt eða ljóst komið við sögu. Enn fremur er lögð áhersla á að ræða ýmsar birtingarmyndir bókstafshyggju í túlkunum á Nýja testamentinu og leita svara akademískrar nálgunar við þeim. Jafnframt vinna nemendur með spurninguna um gildi og notagildi Nýja testamentisins í samfélaginu í dag, hvort heldur sem er fyrir einstaklinga eða á faglegum vettvangi, s.s. á sviði félagsmála eða sálgæslu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SAG447G
    Dýrkun dýrlinga í Norður-Evrópu á miðöldum
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Dýrlingar voru mikilvægir í félags-, trúar- og stjórnmálalífi miðalda. Staðbundin norræn dýrlingadýrkun endurspeglaði eldri meginlandshefð og lagði áherslu á tengsl norrænu landanna við hinn kristna heim. Rannsóknir á dýrlingum í norðrinu veita okkur einstaka og mikilvæga mynd af menningar-, trúar- og bókmenntaskiptum við hinn kristna heim á miðöldum. Þrátt fyrir að kristnitakan hafi átt sér stað nokkuð seint í Skandinavíu og á Íslandi (á níundu til elleftu öld) þá sýna sögulegar heimildir norrænt samfélag sem tók fullan þátt í kristnum siðvenjum frá meginlandi Evrópu, en aðlagaði jafnframt texta og helgisiði að heimasamfélaginu. Með umfjöllun um líf dýrlinga mun námskeiðið bregða birtu á frásagnir af kristnitökunni, dýrlingum, hetjuskap og þjóðernishyggju.
    Mikil áhersla verður lögð á að taka fyrir spurningar um mörk tegunda, þjóðernis og trúarbragða í samhengi miðalda.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • KÍN502G
    Ferlið og dygðin – Bókin um veginn – Daodejing – ritskýring
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður hið sígilda og áhrifamikla heimspeki- og trúarrit Daodejing lesið kafla fyrir kafla með það fyrir augum að gera grein fyrir inntaki textans í ljósi heimspekilegra og trúarlegra kenninga daoismans. Stuðst verður einkum við tvímála þýðingu Ragnars Baldurssonar sem nefnist á íslensku Ferlið og dygðin en jafnframt leitað fanga í öðrum erlendum þýðingum, túlkunum og skýringarritum. Kunnátta í kínversku ritmáli er kostur en ekki skilyrði fyrir þátttöku í námskeiðinu.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP103G
    Inngangur að heimspeki
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um spurninguna: „Hvað er heimspeki?“ og um tengsl heimspeki við vísindi, listir, trúarbrögð og stjórnmál. Lesnir verða textar eftir klassíska heimspekinga og samtímaheimspekinga í því augnamiði að skoða ólíkar aðferðir og vandamál heimspekinnar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HIN201G
    Indversk menning og samfélag I
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið er fyrir alla sem vilja kynnast indverskri menningu og samfélagi.
    Engrar forþekkingar er krafist.

    Meginmarkmið námskeiðsins er að kynna landfræðilega og menningarlega arfleifð Indlands fyrir nemendum. Í ljósi hinnar miklu menningarlegu fjölbreytni landsins verður einungis stiklað á stóru. Í þessu námskeiði verður fyrst og fremst stuðst við hljóð- og myndefni og viðfangsefnið verður nálgast á gagnvirkan hátt. Nemendum verður séð fyrir fjölbreyttu lesefni og glósum sem tengjast hverju viðfangsefni sérstaklega.

    Viðfangsefni námskeiðsins:

    1. Landfræðileg einkenni Indlands og kennileiti
    2. Byggingarlist bænahúsa
    3. Indverskar hátíðir
    4. Ayurveda fyrri hluti
    5. Ayurveda seinni hluti
    6. Indversk krydd

    Námskeiðið er kennt í 6 vikna lotu á fyrri hluta haustmisseris, tvisvar í viku, 80 mínútur í senn kl. 16:40 – 18:10.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • MAF101G
    Saga Mið-Austurlanda I
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður farið yfir sögu þess svæðis sem telst til Mið-Austurlanda frá fornöld og fram á miðaldir. Fjallað verður um uppgang Egypta, Súmera og annarra þjóða í hinni svokölluðu 'vöggu siðmenningarinnar'. Sérstök áhersla verður lögð á uppgang íslam á 7. öld og það heimsveldi sem múslimar byggðu upp næstu aldir þar á eftir.  Fjallað verður um Múhameð spámann og eftirmenn hans, tilurð Kóransins, kalífat Umayya, kalífat Abbasída og 'gullöld' íslam. Námskeiðið er kennt á íslensku en mest af lesefninu verður á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • JAP105G
    Japanskt þjóðfélag og menning I
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum innsýn í japanskt þjóðfélag og menningu bæði fyrr og nú. Viðfangsefni námskeiðsins eru m.a. sjálfsmynd, menntun, trúarbrögð, hefðir og listir í Japan.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SFG001G
    Átakasvæði í heiminum – áskoranir fjölmenningar
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginviðfangsefni námskeiðsins eru átök og átakasvæði í heiminum einkum með hliðsjón af tækifærum og áskorunum sem slík viðfangsefni gefa í kennslu. Þátttakendur kynnast hugmyndum og sjónarmiðum tengdum átökum og tengja við landfræðilegar aðstæður, sögu, menningu og trúarbrögð. Unnið verður með valin tvö til þrjú átakasvæði. Til greina koma Írland og írska lýðveldið, Ísrael og Palestína, Mexíkó, Myanmar, Nígería og Tyrkland, auk átaka sem erfitt er að afmarka landfræðilega. Val á viðfangsefnum verður í samráði við þátttakendur og eftir atvikum verða þau tengd við íslenska sögu og aðstæður.

    Verkefni námskeiðisins snúa að æfingum í upplýsingaleit, framsetningu sögulegra og landfræðilegra upplýsinga og í að útskýra flókna eða viðkvæma þætti efnisins.

    Lokapróf gildir 40%, en verkefni og hlutapróf 60%. Í námskeiðinu er 80% mætingaskylda í kennslustundir.
    Sjá nánari upplýsingar á Canvas-vef námskeiðsins. 

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Vor
  • GFR418G
    Heimskristni: Hnattræn trú í fortíð og framtíð
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Við upphaf tuttugustu aldar bjuggu 80% kristins fólks í Evrópu og Norður Ameríku. Árið 2013, eða um hundrað árum síðar, hafði þessi tala fallið niður í 35%. Þá hafði bæði fækkað í kirkjum í Evrópu og Bandaríkjunum en fjölgað á sama tíma í Suður Ameríku, Afríku og Asíu. Á þessu námskeiði fá þátttakendur tækifæri til að kynna sér rækilega þá sögulegu atburðarás sem liggur að baki þessari þróun og ígrunda gildi hennar fyrir kristnina í samtíð og framtíð frá hnattrænu sjónarhorni.  

    Kennari: Leah Rumsey
     

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • GFR201G
    Inngangur að guðfræðilegri siðfræði
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um siðfræði af sjónarhóli guðfræði og heimspeki. Í fyrri hluta námskeiðsins er lögð áhersla á að nemendur kynnist ráðandi kenningum og helstu hugtökum vestrænnar siðfræði. Í seinni hluta námskeiðs er fjallað um spurninguna: „Hvaða siðferðilegu verðmæti gefa lífinu gildi?“ út frá kenningum og fjölbreyttum heimsmyndum sem liggja til grundvallar í siðfræði samtímans.

     

     

     

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • GFR211G
    Frumkristni: Samtíðar- og bókmenntasaga
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður fjallað um upphaf frumkristni sem og sögulegan og hugmyndafræðilegan bakgrunn hennar. Áhersla verður lögð á rætur frumkristni í síðgyðingdómi og saga og þróun síðgyðingdómsins rakin í því sambandi. Einnig verða hugmyndafræðilegar rætur frumkristni í hinum helleníska menningarheimi skoðaðar. Fjallað verður um frumkristnar bókmenntir þar sem áhersla verður lögð á sagnfræðilega nálgun efnisins. Gefin verður innsýn í einstök rit Nýja testamentisins sem og önnur frumkristin rit, einkum í ljósi sögulegs samhengis þeirra og annarra samtímabókmennta. Einnig verður fjallað almennt um eðli og form rita af þessu tagi. Þannig verður lagður faglegur grunnur að lestri og rannsóknum á frumkristnum textum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAF207G
    Al-Andalus: Múslimar á Spáni 711-1492
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður farið yfir tæplega átta hundruð ára sögu múslima á Spáni. Meðal umfjöllunarefna verður aðdragandi og framvinda innrásar múslima á Íberíuskaga árið 711, ríki múslima og blómaskeið þess næstu aldir, uppgang lista, bókmennta, byggingarlistar og fræða, mikilvægi arabíska tungumálsins og þýðingar á verkum arabískra fræðimanna á latínu. Einnig munum við skoða hvernig hugmyndir Evrópumanna um íslam og múslima mótuðust að hluta til vegna kynna þeirra af múslimum á Spáni, og hvernig kristin samfélög náðu yfirhöndinni á Íberíuskaga á síð-miðöldum. Námskeiðið er kennt á íslensku.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • RÚS413G
    Andlegt ferðalag: Úkraínsk og rússnesk heimspeki
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Heimspeki- og trúarhefð Austurkirkjunnar er ólík rómversk-kaþólskri hefð sem þróaðist með fræðaiðkun í klaustrum og háskólum á miðöldum var nátengd þeim straumum sem síðar leiddu til meiriháttar samfélagsbreytinga í vesturhluta Evrópu. Innan heims rétttrúnaðarkirknanna voru ítök nýplatonisma alltaf sterk og beindu trúarlegri hugsun í átt að upplifun og tjáningu frekar en að frumspekilegri greiningu. Helstu heimspekingar rétttrúnaðarkirkjunnar í Rússneska keisaradæminu á nítjándu öld voru hins vegar vel menntaðir í vestrænni heimspeki sem varð til þess að í lok þeirrar aldar og snemma á tuttugustu öld varð til einstök heimspekihefð sem byggði bæði á andlegri áherslu austurkirkjunnar og á skynsemishyggju vestursins. Í námskeiðinu er stiklað á stóru í þessari sögu hugmynda og helstu hugsuðum, úkraínskum jafnt sem rússneskum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • KÍN102G
    Saga Kína I: From Mythological Origins to Late Ming
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið fjallar um sögu Kína frá goðsögulegum tíma Xia-veldisins á þriðja árþúsundi f.Kr. fram að upphafi nítjándu aldar. Varpað verður ljósi á jafnt þær breytur sem varðað hafa mestu um mótun kínverskrar menningar sem einstaka viðburði í pólítískri og samfélagslegri framvindu þjóðarinnar. Veitt verður yfirlit yfir tilkomu og þróun áhrifamestu kínversku trúarbragða- og heimspekikerfa, einkum konfúsíanisma, daoisma og búddisma. Áhrifamiklir einstaklingar verða kynntir til sögunnar og samskipti og gagnkvæm áhrif erlendra þjóðhópa og Kínverja fá umtalsvert vægi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    SAG271G
    Rómverja saga
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Arfur Rómaveldis í vestrænni menningu síðari alda er afgerandi og ristir djúpt. Í þessu námskeiði verður fjallað um sögu Rómaveldis frá upphafi fram til fjórðu aldar, frá stofnun borgarinnar til Konstantínusar mikla. Þetta er stórveldistími Rómar, þar sem hún rís frá því að vera bær í afskekktu héraði til stórborgar sem drottnaði yfir og skóp heim Miðjarðarhafsins. Þetta er ekki einföld saga um ris, hátind og hnignun heldur margbrotin saga umbreytinga og átaka í stjórnmálum og stjórnspeki, menningu og listum, efnahag og verslun, trú og heimsmynd, lífskjörum og félagslegum aðstæðum.

    Auk grunnbókar um sögu tímabilsins ― Mary T. Boatwright et al., The Romans: From Village to Empire; A History of Rome from the Earliest Times to the End of the Western Empire, 2. útg. (Oxford: Oxford University Press, 2011) ― verða lesnar frumheimildir eftir Júlíus Sesar, Livíus, Dio Cassius, Svetóníus, Tacitus, Virgil, Óvidíus og fleiri. Sérstaklega verður hugað að heimildagrundvelli sögunnar, bæði ritheimildum og fornleifum, og spurt hvaða möguleika við höfum til þess að túlka og skilja horfinn heim. Skipti hlutur einstakra leikenda höfuðmáli eða flutu þeir á undirstraumi annarra aflavaka sögulegrar þróunar? Horft verður á nýlega leikna heimildaþáttaröð, Roman Empire: Reign of Blood, Master of Rome, The Mad Emperor (Netflix, 2016‒19) og gagnrýninna spurninga spurt um hvernig fortíðin birtist okkur í frásögn.

    Námsmat byggir á ritgerð og lokaprófi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    HIN202G
    Indversk menning og samfélag II
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið er fyrir alla sem vilja kynnast indverskri menningu og samfélagi.
    Engrar forþekkingar er krafist.

    Meginmarkmið námskeiðsins er að kynna félagslega  og menningarlega arfleifð Indlands fyrir nemendum. Í ljósi þess hve landið er fjölbreytt verður stiklað á stóru og áhersla lögð á Vedaritin, Upanisjadritin og Itihasa. Einnig munu nemendur kynnast undirliggjandi heimspeki jóga og kirjunar og hvernig það nýtist til sjálfseflingar og vellíðanar. Í þessu námskeiði verður fyrst og fremst stuðst við hljóð- og myndefni og viðfangsefnið verður nálgast á gagnvirkan hátt. Nemendum verður séð fyrir fjölbreyttu lesefni og glósum sem tengjast hverju viðfangsefni sérstaklega.

    Viðfangsefni námskeiðsins:

    1. Vedaritin
    2. Bhagavad Gita textarnir
    3. Ramayana textarnir
    4. Jóga sem tæki til sjálfsþroska og sjálfseflingar
    5. Máttur þess að kirja
    6. Andagift og sjálfsefling

    Námskeiðið er kennt í 6 vikna lotu á seinni hluta vormisseris, tvisvar í viku, 80 mínútur í senn kl. 16:40 – 18:10.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • MAN329G
    Trú og töfrar
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að kynna hugmyndir og kenningar í mannfræði um trúarbrögð. Fjallað er sögulega um hugmyndir í mannfræði um þessi efni og hugmyndir og kenningar þær sem fram hafa komið kynntar. Efnislega er í námskeiðinu einkum fjallað um trú, töfra og galdur.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞJÓ437G
    Norræn trú
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Trúarlíf manna á norðurslóðum er tekið fyrir og heimildir allt frá elstu tímum, eins og grafir, rúnasteinar, hellaristur og aðrar fornminjar verða skoðaðar. Einnig verða lesnar lýsingar á norrænum trúarathöfnum í verkum eftir Tacitus, Adam frá Brimum, Saxo Grammaticus og í fornritum Íslendinga eins og Eddukvæðum og Konungasögum. Auk norrænnar trúar verður fjallað um seið og sjamanisma. Örlagatrú er tekin til ítarlegrar umfjöllunar sem meginþáttur í forkristnum átrúnaði á Norðurlöndum. Loks er vikið að því hvernig kristindómur hefur fallið að norrænum lífsháttum og hugsunarhætti. Námskeiðið er kennt á ensku.

    Vinnulag:
    Kennsla fer fram í fyrirlestrum, og umræðum um fyrirlestra.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    SFG003G
    Trúarbragðafræðsla og margbreytileiki
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni: Á námskeiðinu er fengist við trúarbrögð og trúarbragðafræðslu í fjölmenningarlegu samfélagi. Fjallað verður um trúarþörf og trúarreynslu mannsins, tilvistarspurningar og leit eftir tilgangi og merkingu. Kynnt verða helstu greiningarhugtök, kenningar og rannsóknir á sviði trúarbragðafræði og trúaruppeldisfræði. Rætt verður um gildi trúarbragða fyrir einstaklinga og samfélög og áhrif þeirra á mótun sjálfsmyndar, gildismats og lífsskilnings. Þá verða helstu trúarbrögð heims skoðuð, þ.e. gyðingdómur, kristni, islam, hindúasiður og búddatrú, auk nokkurra annarra trúarbragða. Einnig verður fjallað um trúlaus og trúarlega hlutlaus lífsviðhorf. Þá verður vikið að stöðu trúarbragða og trúarhreyfinga á tímum fjölmenningar og margbreytileika og rætt um fjölhyggju og samskipti einstaklinga og hópa með ólíkan menningarlegan og trúarlegan bakgrunn, umburðarlyndi og fordóma.

    Vinnulag: Námskeiðið byggist á stuttum fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • KÍN614G
    Kínversk trúarbrögð
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður hafist handa við að draga fram þau sérkenni kínverskra trúarbragða sem greina þau frá trúarbrögðum hinnar abrahamísku trúarhefðar. Megininntak námskeiðsins eru síðan þau trúarbrögð sem hafa orðið til innan kínverskrar menningarhefðar, þ.e. daoismi, kínverskur búddismi (m.a. chan 禪, tiantai 天台 og jingtu 淨土) og kínversk alþýðutrú undir konfúsíanískum áhrifum. Rýnt verður í nokkur grunnrit þessara trúarbragða í því skyni að átta sig á helstu kenningum þeirra en jafnframt litið til birtingarforma þeirra í samtímanum, helgiathafna og samfélagslegrar stöðu, jafnt í Alþýðulýðveldinu Kína, Tævan, Malasíu, Singapúr og víðar. Eftir því sem tími gefst til verður jafnframt vikið að nokkrum nýlegum trúarhreyfingum sem blanda saman ýmsum eldri kínverskum hefðum, t.d. Tiandi jiao 天帝, Falun gong 法輪功 og Cao Dai í Víetnam, og hugað að öðrum trúarbragðahefðum sem hafa tekið sér bólstað í Kína, þ.á.m. kristni og íslam.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR205G
    Íslensk miðaldasaga í ljósi ritheimilda og fornleifa
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um sögu Íslands frá landnámi til siðaskipta í ljósi ritheimilda og fornleifa. Yfirlit um sögu víkingaaldar og sögu rannsókna á víkingaöld. Farið er yfir landnámið, forsendur þess og framgang í ljósi fornleifa og ritheimilda. Fjallað verður um mótun nýs samfélags, sjálfsmynd þess og hagrænan grundvöll, byggðaþróun, trú og trúskipti, pólitísk innanlandsátök og innleiðingu ríkisvalds á þrettándu öld.  Kirkjan og félagsleg, menningarleg, pólitísk og hagræn áhrif hennar eru í brennidepli í seinni hluta námskeiðsins. Þessi viðfangsefni verða sett í samhengi við almenna sagnaritun tímabilsins, þróun tækni og efnismenningar og þróun mála í umheiminum. Áhersla er lögð á að nemendur kynni sér frumheimildir, bæði ritheimildir og fornleifar. Kennslan fer fram í fyrirlestrum og í umræðutímum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KLM406G
    Cicero: Um eðli guðanna
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    M. Tullius Cicero er án nokkurs vafa einn mikilvægasti og áhrifamesti höfundur á latínu í óbundnu máli. Í námskeiðinu verður lesið úr riti hans De natura deorum (Um eðli guðanna), sem fjallar um kenningar heimspekinganna um eðli guðdómsins. Lesið verður úr 2. bók De natura deorum þar sem kenningar stóuspekinnar eru ræddar. Texti verður lesinn á frummálinu, þýddur og skýrður mál- og setningafræðilega og efnislega eftir þörfum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAF203G
    Saga Mið-Austurlanda II
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið tekur upp þráðinn þar sem námskeiðinu Saga-Miðausturlanda I sleppir. Það er þó ekki nauðsynlegur undanfari, hægt er að taka bæði námskeiðin eða annað þeirra. Hér verður farið yfir þróun mála í Mið-Austurlöndum frá ca 1300, uppgang Ottómana og Safavída, og sér í lagi tengsl þeirra við Vesturlönd. Meðal efnis verður nýlendustefna Evrópuríkja í þessum heimshluta og áhrif þeirra á menningu og stjórnmál, uppgangur þjóðernishyggju og tilurð ríkja, og ýmis átök og ágreining sem mótað hefur svæðið allt til dagsins í dag. Námskeiðið er kennt á íslensku en mest af lesefninu verður á ensku.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Nemendur sem útskrifast úr samsettu námi hafa fjölbreytta starfsmöguleika sem geta byggt á aðalgrein eða aukagrein. 

Fólk með bakgrunn í túarbragða fræði starfar meðal annars fyrir:

  • Félagasamtök 
  • Fjölmiðla
  • Kennslu og fræðastörf
  • Alþjóðastofnanir 
  • Ráðgjöf

Listinn er ekki tæmandi. 

Félag guðfræðinema heitir Fiskurinn og er það hagsmunafélag þeirra er stunda nám við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands.

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil