""
Tungumál kennslu
Íslenska
Lengd náms
1 og ½ ár.
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Langar þig að kunna skil á útgáfuferli verks frá uppkasti til útgáfu?
  • Hefur þú mikinn áhuga á öllu því sem við kemur ritstjórnarstörfum?
  • Vilt þú fá þjálfun og undirbúningi fyrir ritstjórnar- og/eða útgáfustörf?
  • Vilt þú fara í framhaldsnám sem byggir ofan á grunnám þitt án þess að stefna að fræðimennsku á því sviði?

Meistaranám í hagnýtri ritstjórn og útgáfu er einkum ætlað nemendum sem lokið hafa BA-prófi með fyrstu einkunn í hugvísindum eða skyldum greinum.

Áhersla er lögð á þverfaglega samvinnu og tengsl við atvinnulífið svo að nemendur fái víða sýn yfir viðfangsefnið og öðlist reynslu sem geri þeim kleift að vinna sjálfstætt að ritstjórn og útgáfum.

Uppbygging náms 

Námið er 90 einingar og er sett upp sem fullt nám til eins og hálfs árs.

Námið skipist í

  • Skyldunámskeið, 30 einingar
  • Valnámskeið, 30 einingar
  • Lokaverkefni, 30 einingar

Fyrirkomulag kennslu

Kennsla fer fram á íslensku í formi fyrirlestra, samræðum og málstofum.

Tímasókn er mikilvæg og þurfa nemendur að koma vel undirbúnir en frumskilyrði er að hafa lesið þá texta sem fjalla á um hverju sinni. Gera þarf ráð fyrir mikilli heimavinnu.

Meðal viðfangsefna má nefna:

  • Ritsjórn og vefritstjórn
  • Þýðingarfræði
  • Rannsóknarverkefni

Meginmarkmið

Hagnýt ritstjórn og útgáfustörf er ný leið fyrir þá sem hafa áhuga á framhaldsnámi sem byggir ofan á grunnám þeirra en eru ekki endilega að hugsa um fræðimennsku á því sviði. Nemendur í fjölmörgum greinum hugvísinda fá margvíslega þjálfun í ritstörfum og frágangi texta.

Annað

MA-próf veitir rétt til að sækja um doktorsnám.

BA-próf með fyrstu einkunn veitir aðgang að meistaranámi á háskólastigi. Þó má víkja frá reglu um fyrstu einkunn (þó ekki meira en sem nemur 0,25) hafi umsækjandi 5 ára starfsreynslu við ritstjórn eða útgáfu. 

Til MA-prófs í hagnýtri ritstjórn og útgáfu er krafist að minnsta kosti 90 eininga þar af er lokaritgerð 30 einingar.

Hagnýt ritstjórn og útgáfufræði er 90 eininga meistaranám á Hugvísindasviði, einkum ætlað nemendum sem lokið hafa BA-prófi með fyrstu einkunn í hugvísindum eða skyldum greinum. Með náminu er nemendum gefinn kostur á að búa sig á skipulegan hátt undir ritstjórnar- og útgáfustörf, t.d. hjá fjölmiðlum, bókaútgáfum og fræðastofnunum. Áhersla er lögð á hvort tveggja, þverfaglega samvinnu og tengsl við atvinnulífið svo að nemendur fái víða sýn yfir viðfangsefnið og öðlist reynslu sem geri þeim kleift að vinna sjálfstætt að ritstjórn og útgáfum. MA-nám í hagnýtri ritstjórn og útgáfufræðum skiptist í þrjá meginhluta:

 

  1. Nemendur sækja þrjú skyldunámskeið í Íslensku– og menningardeild.
  2. Nemendur sækja þrjú valnámskeið á Hugvísindasviði með hliðsjón af skipulagi námsins í Kennsluskrá. Nemendur geta leitað til umsjónarmanns námsins varðandi önnur námskeið.
  3. Lokaverkefni (30 einingar). 

Lokaverkefni í hagnýtri ritstjórn og útgáfu byggist annars vegar á 20 ect starfsnámi (10 vikna starf unnið við ritstjórn og útgáfu) og 10 ect ritgerð hins vegar.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Greinargerð um markmið með námi
  • Prófskírteini/námsyfirlit

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Óháð námsári | Haust
Meistararitgerð í hagnýtri ritstjórn og útgáfu (RÚT431L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meistararitgerð í hagnýtri ritstjórn og útgáfu

Kennslutungumál: Íslenska
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Óháð námsári | Haust
Ritstjórn og fræðileg skrif (ÍSL101F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þjálfun í ýmsum þáttum er varða ritun fræðilegs efnis og ritstjórn. Ólíkar gerðir fræðilegra ritsmíða skoðaðar og metnar. Þjálfun í því að gera athugasemdir við skipulag og framsetningu á fræðilegum texta og í öðrum þáttum ritstjórnar. Áhersla lögð á ritun fræðilegra greina, en einnig hugað að samningu smærri verka (ráðstefnuútdrátta, ritdóma) og stærri (M.A.-ritgerða, doktorsritgerða, bóka). Fjallað um rannsóknaráætlanir, frágang handrita og ritstuld. Tekin dæmi af textum um ýmis efni, einkum málfræðileg,  bókmenntaleg og sagnfræðileg. Stuðst við bókina Skrifaðu bæði skýrt og rétt (Höskuldur Þráinsson 2015).

Námskeiðið er opið nemendum á mörgum námsleiðum í MA-námi á Hugvísindasviði skv. reglum viðkomandi greina. Nemendur á MA-stigi í íslenskum bókmenntum, íslenskri málfræði, íslenskum fræðum og íslenskukennslu geta fengið námskeiðið metið sem hluta af þeirri skyldu sem þeir þurfa að uppfylla í meistarastigsnámskeiðum í íslenskum bókmenntum eða íslenskri málfræði. Nemendur í MA-námi í íslenskukennslu geta þó ekki haft þetta námskeið sem eina málfræði- eða bókmenntanámskeiðið á MA-ferlinum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Grundvallaratriði vefmiðlunar ‐ Starf vefstjórans og vefritstjórn (RÚT704F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Starf vefstjórans hefur tekið miklum breytingum með stöðugri tækniþróun og áherslu á stafrænar lausnir. Leitast verður við að veita nemendum góða innsýn í helstu þætti í starfi vefstjórans. Rýnt verður í skrif fræðimanna á sviði vefmiðlunar, nemendur kynnast nauðsynlegum tækjum og tólum og við fáum til okkar góða gesti sem hafa fjölbreytta starfsreynslu sem vefstjórar, vefritstjórar og á sviði stafrænnar miðlunar.

Starf vefritstjóra er iðulega samofið almennri vefstjórn. Nemendur fá góða innsýn í ritstjórn vefja og skrifum fyrir stafræna miðla. Fjallað verður um helstu þætti sem vefstjóri / vefritstjóri þarf að hafa vald á, svo sem upplýsingaarkitektúr, skrifum fyrir vef, framsetningu myndefnis, grundvallaratriði í vefhönnun, aðgengismál, nytsemi, öryggismál, vefmælingar, vefumsjónarkerfi, grunntækni vefviðmótsins, helstu hugtök og skilgreiningar í tækni vefsins og netsins.

Nemendur setja upp eigin vef og nota til þess vefumsjónarkerfi að eigin vali, t.d WordPress eða Wix, sem bæði eru til í ókeypis útgáfum, og er hluta verkefna skilað þar. Þannig öðlast nemendur þjálfun í að setja upp einfaldan vef og byggja upp leiðakerfi. Athygli er sérstaklega vakin á því að í námskeiðinu er ekki kennsla á vefumsjónarkerfi. Þeim sem ekki hafa reynslu af notkun þeirra fyrir er bent á að á YouTube má finna fjölda myndbanda þar sem hægt er að læra á kerfin, allt frá grunnatriðum og upp í mun flóknari þætti en ætlast er til að í þessu námskeiði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Skáldskapur á mörkum (ABF715F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið mun fjalla um skáldverk frá síðustu 50 árum eða svo sem á einhvern hátt eru á mörkum bókmenntagreina, s.s. eins á mörkum skáldsögu og sjálfsævisögu, sagnfræði, blaðamennsku o.s.frv. Skoðaðar verða heimildaskáldsögur, ljósmyndaesseyjur, sjálfsævisöguleg verk, falsanir og fleira. Litið verður til kenninga um bókmenntagreinar, hugmyndasögu og tengsl við stefnur og strauma í bókmenntum og bókmenntafræðum tímabilsins.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári | Haust
Þýðingafræði (ÞÝÐ027F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Inngangsnámskeið í fræðunum þar sem farið verður yfir helstu kenningar tuttugustu aldar á þessu sviði. Nemendur lesa lykiltexta úr fræðunum (sem sumir eru nú til í íslenskri þýðingu), flytja erindi um einn höfundinn og verk hans, þýða einn slíkan fræðitexta og einn bókmenntatexta að eigin vali.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Rannsóknarverkefni A (ABF020F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Áður en nemandi skráir sig í rannsóknaverkefni velur hann verksvið í samráði við kennara. Í upphafi námskeiðs leggur hann fram greina- og bókalista sem síðan er lagaður að þeim kröfum sem kennari gerir til verkefnisins. Nemandi og kennari hafa með sér reglulega fundi um verkefnið, að jafnaði fimm á misseri. Einnig geta fleiri kennarar og nemendur tekið sig saman um að halda málstofu um tiltekin verkefni eftir því sem henta þykir. Séu verkefni umfangsmikil geta tveir nemendur eða fleiri unnið sameiginlega að úrlausn þeirra. Frekari upplýsingar má finna hjá greinarformanni námsleiðar.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári | Haust
Rannsóknarverkefni B (ABF024F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Áður en nemandi skráir sig í rannsóknaverkefni velur hann verksvið í samráði við kennara. Í upphafi námskeiðs leggur hann fram greina- og bókalista sem síðan er lagaður að þeim kröfum sem kennari gerir til verkefnisins. Nemandi og kennari hafa með sér reglulega fundi um verkefnið, að jafnaði fimm á misseri. Einnig geta fleiri kennarar og nemendur tekið sig saman um að halda málstofu um tiltekin verkefni eftir því sem henta þykir. Séu verkefni umfangsmikil geta tveir nemendur eða fleiri unnið sameiginlega að úrlausn þeirra. Frekari upplýsingar veitir greinarformaður.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári | Vor
Ritstjórn og hönnun prentgripa (RÚT803F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið felst í að skoða samstarf og verkaskiptingu milli ritstjóra og hönnuða við gerð og útgáfu prentgripa. Veitt verður innsýn í undirstöðuþætti leturfræði, grafískrar hönnunar og undirbúning fyrir prentun. Einnig verða helstu verkfæri hönnuða skoðuð með tilliti til ólíkra útgáfuverkefna. Farið verður yfir helstu kenningar um áhrif grafískrar hönnunar og leturfræði á læsileika og skilning á inntaki. Rætt verður um gæði, notagildi, fagurfræði og hagkvæmnisjónarmið í grafískri hönnun.

Nemendur flytja erindi og skila skriflegri greiningu á hönnunargrip/um að eigin vali og eru einnig hvattir til að taka virkan þátt í umræðum í tímum. Lokaverkefni námskeiðs felst í að skapa eigið útgáfuverkefni og miðla hugmyndum um ritstjórn þess í máli og myndum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Vor
Meistararitgerð í hagnýtri ritstjórn og útgáfu (RÚT431L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meistararitgerð í hagnýtri ritstjórn og útgáfu

Kennslutungumál: Íslenska
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Óháð námsári | Vor
Birtingur - RÚT (RÚT805F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á þessu námskeiði munu nemar í hagnýtri ritstjórn og útgáfu vinna með ritlistarnemum að því að búa til frumsamið efni til útgáfu. Farið verður í gegnum útgáfuferlið, jafnt fyrir prentuð rit sem rafbækur; ritstjórn, prófarkalestur, umbrot og annað sem tilheyrir. Miðað er við að afrakstur námskeiðsins verði rit sem er tilbúið til prentunar.

Fimm ritstjórnarnemar geta sótt námskeiðið; fyrstir skrá, fyrstir fá.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Vinnustofa í menningarblaðamennsku (ÍSB707F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Hluti nemenda sem útskrifast af Hugvísindasviði, ekki síst úr Íslensku- og menningardeild, mun væntanlega starfa í framtíðinni á fjölmiðlum, forlögum og opinberum menningarstofnunum og fást þar við umfjöllun og kynningu á bókum og listviðburðum. Í námskeiðinu verður fjallað um hlutverk og einkenni íslenskrar menningarblaðamennsku í víðum skilningi og glímt við þær textategundir sem henni tilheyra, þar á meðal viðtöl, ritdóma, listgagnrýni, fréttatilkynningar og svonefnt "plögg". Nemendur vinna hagnýt verkefni sem tengjast annars vegar þessum starfsvettvangi og hins vegar íslensku menningarlífi eins og það kemur til með að þróast vorið 2018.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári | Vor
Frásögn, kvikmyndir og menning í verkum Sjóns (ABF846F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

  Í námskeiðinu verður fjallað um höfundarverk Sjóns með áherslu á skáldsögur, ljóð og kvikmyndir. Gengið verður útfrá bókinni Sjónsbók : Ævintýrið um höfundinn, súrrealisma og sýnir (2016) eftir Úlfhildi Dagsdóttur, og greinasafninu Critical Approaches to Sjón : North of the Sun (2025). Meðal annars verður farið yfir kenningar um súrrealisma og framúrstefnu, frásagnafræði og menningarfræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Rannsóknarverkefni A (ABF020F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Áður en nemandi skráir sig í rannsóknaverkefni velur hann verksvið í samráði við kennara. Í upphafi námskeiðs leggur hann fram greina- og bókalista sem síðan er lagaður að þeim kröfum sem kennari gerir til verkefnisins. Nemandi og kennari hafa með sér reglulega fundi um verkefnið, að jafnaði fimm á misseri. Einnig geta fleiri kennarar og nemendur tekið sig saman um að halda málstofu um tiltekin verkefni eftir því sem henta þykir. Séu verkefni umfangsmikil geta tveir nemendur eða fleiri unnið sameiginlega að úrlausn þeirra. Frekari upplýsingar má finna hjá greinarformanni námsleiðar.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári | Vor
Rannsóknarverkefni B (ABF024F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Áður en nemandi skráir sig í rannsóknaverkefni velur hann verksvið í samráði við kennara. Í upphafi námskeiðs leggur hann fram greina- og bókalista sem síðan er lagaður að þeim kröfum sem kennari gerir til verkefnisins. Nemandi og kennari hafa með sér reglulega fundi um verkefnið, að jafnaði fimm á misseri. Einnig geta fleiri kennarar og nemendur tekið sig saman um að halda málstofu um tiltekin verkefni eftir því sem henta þykir. Séu verkefni umfangsmikil geta tveir nemendur eða fleiri unnið sameiginlega að úrlausn þeirra. Frekari upplýsingar veitir greinarformaður.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári
  • Haust
  • RÚT431L
    Meistararitgerð í hagnýtri ritstjórn og útgáfu
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meistararitgerð í hagnýtri ritstjórn og útgáfu

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • ÍSL101F
    Ritstjórn og fræðileg skrif
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þjálfun í ýmsum þáttum er varða ritun fræðilegs efnis og ritstjórn. Ólíkar gerðir fræðilegra ritsmíða skoðaðar og metnar. Þjálfun í því að gera athugasemdir við skipulag og framsetningu á fræðilegum texta og í öðrum þáttum ritstjórnar. Áhersla lögð á ritun fræðilegra greina, en einnig hugað að samningu smærri verka (ráðstefnuútdrátta, ritdóma) og stærri (M.A.-ritgerða, doktorsritgerða, bóka). Fjallað um rannsóknaráætlanir, frágang handrita og ritstuld. Tekin dæmi af textum um ýmis efni, einkum málfræðileg,  bókmenntaleg og sagnfræðileg. Stuðst við bókina Skrifaðu bæði skýrt og rétt (Höskuldur Þráinsson 2015).

    Námskeiðið er opið nemendum á mörgum námsleiðum í MA-námi á Hugvísindasviði skv. reglum viðkomandi greina. Nemendur á MA-stigi í íslenskum bókmenntum, íslenskri málfræði, íslenskum fræðum og íslenskukennslu geta fengið námskeiðið metið sem hluta af þeirri skyldu sem þeir þurfa að uppfylla í meistarastigsnámskeiðum í íslenskum bókmenntum eða íslenskri málfræði. Nemendur í MA-námi í íslenskukennslu geta þó ekki haft þetta námskeið sem eina málfræði- eða bókmenntanámskeiðið á MA-ferlinum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • RÚT704F
    Grundvallaratriði vefmiðlunar ‐ Starf vefstjórans og vefritstjórn
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Starf vefstjórans hefur tekið miklum breytingum með stöðugri tækniþróun og áherslu á stafrænar lausnir. Leitast verður við að veita nemendum góða innsýn í helstu þætti í starfi vefstjórans. Rýnt verður í skrif fræðimanna á sviði vefmiðlunar, nemendur kynnast nauðsynlegum tækjum og tólum og við fáum til okkar góða gesti sem hafa fjölbreytta starfsreynslu sem vefstjórar, vefritstjórar og á sviði stafrænnar miðlunar.

    Starf vefritstjóra er iðulega samofið almennri vefstjórn. Nemendur fá góða innsýn í ritstjórn vefja og skrifum fyrir stafræna miðla. Fjallað verður um helstu þætti sem vefstjóri / vefritstjóri þarf að hafa vald á, svo sem upplýsingaarkitektúr, skrifum fyrir vef, framsetningu myndefnis, grundvallaratriði í vefhönnun, aðgengismál, nytsemi, öryggismál, vefmælingar, vefumsjónarkerfi, grunntækni vefviðmótsins, helstu hugtök og skilgreiningar í tækni vefsins og netsins.

    Nemendur setja upp eigin vef og nota til þess vefumsjónarkerfi að eigin vali, t.d WordPress eða Wix, sem bæði eru til í ókeypis útgáfum, og er hluta verkefna skilað þar. Þannig öðlast nemendur þjálfun í að setja upp einfaldan vef og byggja upp leiðakerfi. Athygli er sérstaklega vakin á því að í námskeiðinu er ekki kennsla á vefumsjónarkerfi. Þeim sem ekki hafa reynslu af notkun þeirra fyrir er bent á að á YouTube má finna fjölda myndbanda þar sem hægt er að læra á kerfin, allt frá grunnatriðum og upp í mun flóknari þætti en ætlast er til að í þessu námskeiði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ABF715F
    Skáldskapur á mörkum
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið mun fjalla um skáldverk frá síðustu 50 árum eða svo sem á einhvern hátt eru á mörkum bókmenntagreina, s.s. eins á mörkum skáldsögu og sjálfsævisögu, sagnfræði, blaðamennsku o.s.frv. Skoðaðar verða heimildaskáldsögur, ljósmyndaesseyjur, sjálfsævisöguleg verk, falsanir og fleira. Litið verður til kenninga um bókmenntagreinar, hugmyndasögu og tengsl við stefnur og strauma í bókmenntum og bókmenntafræðum tímabilsins.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞÝÐ027F
    Þýðingafræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Inngangsnámskeið í fræðunum þar sem farið verður yfir helstu kenningar tuttugustu aldar á þessu sviði. Nemendur lesa lykiltexta úr fræðunum (sem sumir eru nú til í íslenskri þýðingu), flytja erindi um einn höfundinn og verk hans, þýða einn slíkan fræðitexta og einn bókmenntatexta að eigin vali.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ABF020F
    Rannsóknarverkefni A
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Áður en nemandi skráir sig í rannsóknaverkefni velur hann verksvið í samráði við kennara. Í upphafi námskeiðs leggur hann fram greina- og bókalista sem síðan er lagaður að þeim kröfum sem kennari gerir til verkefnisins. Nemandi og kennari hafa með sér reglulega fundi um verkefnið, að jafnaði fimm á misseri. Einnig geta fleiri kennarar og nemendur tekið sig saman um að halda málstofu um tiltekin verkefni eftir því sem henta þykir. Séu verkefni umfangsmikil geta tveir nemendur eða fleiri unnið sameiginlega að úrlausn þeirra. Frekari upplýsingar má finna hjá greinarformanni námsleiðar.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ABF024F
    Rannsóknarverkefni B
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Áður en nemandi skráir sig í rannsóknaverkefni velur hann verksvið í samráði við kennara. Í upphafi námskeiðs leggur hann fram greina- og bókalista sem síðan er lagaður að þeim kröfum sem kennari gerir til verkefnisins. Nemandi og kennari hafa með sér reglulega fundi um verkefnið, að jafnaði fimm á misseri. Einnig geta fleiri kennarar og nemendur tekið sig saman um að halda málstofu um tiltekin verkefni eftir því sem henta þykir. Séu verkefni umfangsmikil geta tveir nemendur eða fleiri unnið sameiginlega að úrlausn þeirra. Frekari upplýsingar veitir greinarformaður.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • RÚT803F
    Ritstjórn og hönnun prentgripa
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið felst í að skoða samstarf og verkaskiptingu milli ritstjóra og hönnuða við gerð og útgáfu prentgripa. Veitt verður innsýn í undirstöðuþætti leturfræði, grafískrar hönnunar og undirbúning fyrir prentun. Einnig verða helstu verkfæri hönnuða skoðuð með tilliti til ólíkra útgáfuverkefna. Farið verður yfir helstu kenningar um áhrif grafískrar hönnunar og leturfræði á læsileika og skilning á inntaki. Rætt verður um gæði, notagildi, fagurfræði og hagkvæmnisjónarmið í grafískri hönnun.

    Nemendur flytja erindi og skila skriflegri greiningu á hönnunargrip/um að eigin vali og eru einnig hvattir til að taka virkan þátt í umræðum í tímum. Lokaverkefni námskeiðs felst í að skapa eigið útgáfuverkefni og miðla hugmyndum um ritstjórn þess í máli og myndum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • RÚT431L
    Meistararitgerð í hagnýtri ritstjórn og útgáfu
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meistararitgerð í hagnýtri ritstjórn og útgáfu

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • RÚT805F
    Birtingur - RÚT
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á þessu námskeiði munu nemar í hagnýtri ritstjórn og útgáfu vinna með ritlistarnemum að því að búa til frumsamið efni til útgáfu. Farið verður í gegnum útgáfuferlið, jafnt fyrir prentuð rit sem rafbækur; ritstjórn, prófarkalestur, umbrot og annað sem tilheyrir. Miðað er við að afrakstur námskeiðsins verði rit sem er tilbúið til prentunar.

    Fimm ritstjórnarnemar geta sótt námskeiðið; fyrstir skrá, fyrstir fá.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSB707F
    Vinnustofa í menningarblaðamennsku
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Hluti nemenda sem útskrifast af Hugvísindasviði, ekki síst úr Íslensku- og menningardeild, mun væntanlega starfa í framtíðinni á fjölmiðlum, forlögum og opinberum menningarstofnunum og fást þar við umfjöllun og kynningu á bókum og listviðburðum. Í námskeiðinu verður fjallað um hlutverk og einkenni íslenskrar menningarblaðamennsku í víðum skilningi og glímt við þær textategundir sem henni tilheyra, þar á meðal viðtöl, ritdóma, listgagnrýni, fréttatilkynningar og svonefnt "plögg". Nemendur vinna hagnýt verkefni sem tengjast annars vegar þessum starfsvettvangi og hins vegar íslensku menningarlífi eins og það kemur til með að þróast vorið 2018.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ABF846F
    Frásögn, kvikmyndir og menning í verkum Sjóns
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

      Í námskeiðinu verður fjallað um höfundarverk Sjóns með áherslu á skáldsögur, ljóð og kvikmyndir. Gengið verður útfrá bókinni Sjónsbók : Ævintýrið um höfundinn, súrrealisma og sýnir (2016) eftir Úlfhildi Dagsdóttur, og greinasafninu Critical Approaches to Sjón : North of the Sun (2025). Meðal annars verður farið yfir kenningar um súrrealisma og framúrstefnu, frásagnafræði og menningarfræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ABF020F
    Rannsóknarverkefni A
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Áður en nemandi skráir sig í rannsóknaverkefni velur hann verksvið í samráði við kennara. Í upphafi námskeiðs leggur hann fram greina- og bókalista sem síðan er lagaður að þeim kröfum sem kennari gerir til verkefnisins. Nemandi og kennari hafa með sér reglulega fundi um verkefnið, að jafnaði fimm á misseri. Einnig geta fleiri kennarar og nemendur tekið sig saman um að halda málstofu um tiltekin verkefni eftir því sem henta þykir. Séu verkefni umfangsmikil geta tveir nemendur eða fleiri unnið sameiginlega að úrlausn þeirra. Frekari upplýsingar má finna hjá greinarformanni námsleiðar.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ABF024F
    Rannsóknarverkefni B
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Áður en nemandi skráir sig í rannsóknaverkefni velur hann verksvið í samráði við kennara. Í upphafi námskeiðs leggur hann fram greina- og bókalista sem síðan er lagaður að þeim kröfum sem kennari gerir til verkefnisins. Nemandi og kennari hafa með sér reglulega fundi um verkefnið, að jafnaði fimm á misseri. Einnig geta fleiri kennarar og nemendur tekið sig saman um að halda málstofu um tiltekin verkefni eftir því sem henta þykir. Séu verkefni umfangsmikil geta tveir nemendur eða fleiri unnið sameiginlega að úrlausn þeirra. Frekari upplýsingar veitir greinarformaður.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Tækifæri að námi loknu

  • Ritstjórn
  • Ritstörf
  • Útgáfa
  • Fjölmiðlar
  • Vefmiðlar
  • Bókaútgáfa

Listinn er ekki tæmandi.

Ekki er sérstakt nemendafélag fyrir þetta nám en nemendur eru duglegir að hittast í Stúdentakjallaranum.

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil