""
Tungumál kennslu
Íslenska.
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Sækja þarf um aðalgrein áður en hægt er að sækja um aukagrein.
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á tungumálum?
  • Finnst þér gaman að vinna með orð?
  • Viltu vinna með fólki og fjölmenningu?
  • Hefur þú góð tök á íslensku og að minnsta kosti einu öðru tungumáli?
  • Vilt þú starfa á sviði miðlunar?
  • Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?

Þýðingarfræði er 60 eininga aukagrein sem er hægt að taka með annarri 120 eininga aðalgrein. Ljúka þarf 180 einningum til að útskrifast með BA-próf. 

Nám í þýðingafræði undirbýr þig undir miðlun upplýsinga milli menningarheima og eru viðfangsefnin af margvíslegu tagi.

Þú lærir að meta upplýsingar og vinna með þær með það fyrir augum að færa þær á milli menningarheima eða kerfa.

Kennsla í þýðingafræði fer fram í fyrirlestrum og verklegum æfingum, bæði í málverum og tölvustofum. Nemendur eru þjálfaðir í að þýða og túlka. 

Námið skiptist gróflega í þrjár meginstoðir, fræðilegan kjarna, móðurmál og erlent mál og geta nemendur valið námskeið saman eftir áhugasviðum sínum.

Námið byggist bæði á sögulegum þætti fagsins allt aftur til fornaldar og nýjustu þýðingatækni með þýðingaminnum og öðrum forritum.

Meðal viðfangsefna

  • Þýðingar 
  • Textagreining
  • Tækni við þýðingar

Markmið

  • að kynna þér helstu aðferðir og vinnubrögð í þýðingum og túlkun
  • að veita þérþekkingu á nýjustu tölvutækni þýðinga
  • að miðla þekkingu á hugtökum og helstu kenningum þýðingafræði
  • að gera þér kleift að meta verkefni sem þeim gætu staðið til boða 
  • að undirbúa þig undir nám á meistarastigi í þýðingafræði, nytjaþýðingum eða ráðstefnutúlkun

Kennt er í Aðalbyggingu og ýmsum öðrum byggingum HÍ, tölvuverum og Tungumálamiðstöð.

Hægt er að hafa samband við verkefnastjóra deildar og verkefnastjóra alþjóðamála til að fá nánari upplýsingar um nám og skiptinám. 

Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf. Nánari upplýsingar er að finna í 17. grein reglna um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022.

Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda grunnnám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku skv. 1. gr. reglnanna.

Þýðingafræði, sem 60 eininga aukagrein til BA-prófs, er aðeins ætluð nemendum sem lokið hafa 120 eininga aðalgrein í tungumáli. Námið er þverfaglegt og skiptist að jafnaði í 20 einingar í þýðingafræði, 20 einingar í íslensku og 20 einingar í erlenda málinu. Miðað er við að valin séu þýðingatengd námskeið í íslensku og erlendu máli.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Óháð námsári | Haust
Þýðingar (ÍSE502G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er inngangur að þýðingum, þýðingasögu og þýðingafræði. Nemendur kynnast helstu hugtökum og kenningum á sviði þýðinga. Námskeiðið skiptist í tvo þætti: Hinn fræðilegi og sögulegi þáttur námskeiðsins fer fram í formi fyrirlestra og umræðna. Jafnframt leggur kennari fram lesefni sem nemendur kynna sér. Námsmat felst í prófum/ritgerðarverkefnum þar sem skyldulesefni er undirstaðan. Verklegi þátturinn fer fram í hópvinnustofum þar sem nemendur æfa sig í þýðingarýni og þýðingum (bókmenntaþýðingum eða nytjaþýðingum) undir handleiðslu kennara. Námsmat felst í skriflegu verkefni eða verkefnum. Nemendur í íslensku sem öðru máli þurfa að hafa lokið öllum námskeiðum á 1. og 2. ári.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Þýðingarýni og þýðingatækni (ÞÝÐ201G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er í fyrsta lagi að nemendur læra að rýna í þýðingar sem og greina texta á erlendu máli til að þýða yfir á móðurmálið. Nemendur velja bókmennta- eða nytjatexta í samráði við kennarann og vinna með þá texta.

Í öðru lagi kynnast nemendur þeim hjálpargögnum og tæknilausnum sem notuð eru í þýðingarferlinu. Þannig fá þeir að sama skapi innsýn í starf atvinnuþýðenda á ýmsum sviðum.

Kennsla fer að mestu leyti fram í formi hagnýtra æfinga, umræðna og verkefna undir handleiðslu kennara. 

Einnig flytja nemendur erindi í tíma.

Þýðingarýni og textagreining er skyldunámskeið í Þýðingafræði sem aukagrein á BA stigi. Það er einnig opið öðrum nemendum en góð færni í erlendu tungumáli (samsvarandi 3. ári í grunnnámi) er nauðsynleg undirstaða.

Kennsla fer fram á íslensku. Nemendur þýða úr erlendu máli yfir á móðurmálið. Önnur verkefni eru unnin á íslensku.

Undirstaða í þýðingafræði (10 e) er æskileg en ekki nauðsynleg.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári
  • Haust
  • ÍSE502G
    Þýðingar
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er inngangur að þýðingum, þýðingasögu og þýðingafræði. Nemendur kynnast helstu hugtökum og kenningum á sviði þýðinga. Námskeiðið skiptist í tvo þætti: Hinn fræðilegi og sögulegi þáttur námskeiðsins fer fram í formi fyrirlestra og umræðna. Jafnframt leggur kennari fram lesefni sem nemendur kynna sér. Námsmat felst í prófum/ritgerðarverkefnum þar sem skyldulesefni er undirstaðan. Verklegi þátturinn fer fram í hópvinnustofum þar sem nemendur æfa sig í þýðingarýni og þýðingum (bókmenntaþýðingum eða nytjaþýðingum) undir handleiðslu kennara. Námsmat felst í skriflegu verkefni eða verkefnum. Nemendur í íslensku sem öðru máli þurfa að hafa lokið öllum námskeiðum á 1. og 2. ári.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • ÞÝÐ201G
    Þýðingarýni og þýðingatækni
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er í fyrsta lagi að nemendur læra að rýna í þýðingar sem og greina texta á erlendu máli til að þýða yfir á móðurmálið. Nemendur velja bókmennta- eða nytjatexta í samráði við kennarann og vinna með þá texta.

    Í öðru lagi kynnast nemendur þeim hjálpargögnum og tæknilausnum sem notuð eru í þýðingarferlinu. Þannig fá þeir að sama skapi innsýn í starf atvinnuþýðenda á ýmsum sviðum.

    Kennsla fer að mestu leyti fram í formi hagnýtra æfinga, umræðna og verkefna undir handleiðslu kennara. 

    Einnig flytja nemendur erindi í tíma.

    Þýðingarýni og textagreining er skyldunámskeið í Þýðingafræði sem aukagrein á BA stigi. Það er einnig opið öðrum nemendum en góð færni í erlendu tungumáli (samsvarandi 3. ári í grunnnámi) er nauðsynleg undirstaða.

    Kennsla fer fram á íslensku. Nemendur þýða úr erlendu máli yfir á móðurmálið. Önnur verkefni eru unnin á íslensku.

    Undirstaða í þýðingafræði (10 e) er æskileg en ekki nauðsynleg.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Fólk með háskólamenntun í íslensku fæst við kennslu á öllum skólastigum og fræðistörf, m.a. á rannsóknastofnunum á sviði íslenskra fræða.

Margir leggja fyrir sig ritstörf eða önnur störf á sviði menningar og lista, fjölmiðlun af ýmsu tagi og útgáfustörf (sem fréttamenn, blaðamenn, ritstjórar, málfarsráðgjafar, þýðendur, bókmenntarýnar o.s.frv.).

Menntunin kemur að góðum notum í öllum störfum þar sem gott vald á íslensku máli og/eða þekking á íslenskum bókmenntum og málfræði er nauðsynleg.

Með þessa menntun gætir þú meðal annars starfað við:

  • Kennslu á öllum skólastigum
  • Fræðastörf
  • Fjölmiðlun
  • Útgáfustörf
  • Vefmiðlun

Listinn er ekki tæmandi.

Nemendafélagið Mímir er félag stúdenta í íslensku, almennum málvísindum og táknmálsfræði við Háskóla Íslands. Facebook síða Mímis.

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Rebekku Lind Ívarsdóttur Wiium
Námið er krefjandi en mjög gefandi og skemmtilegt. Bekkirnir eru litlir en það hefur sína kosti þar sem mikið er um umræðu tíma svo að allir geti hjálpast að við að skilja námsefnið í sameiningu. Þetta nám hefur kennt mér að tungumál eru meira en bara orð. Þau eru samblanda af menningu og hvernig fólk tjáir sig á mismunandi hátt. Þetta nám hefur ekki bara bætt skilning minn á nýju tungumáli, heldur hefur það einnig styrkt mig í eigin móðurmáli.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil