""
Tungumál kennslu
Íslenska
Lengd náms
1 ár.
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú lokið 120 eininga aðalgrein til BA/BS eða BEd-prófs?
  • Stefnir þú á að fara í meistaranám í talmeinafræði?
  • Þarftu að taka undirbúningsnám til þess að uppfylla forkröfur?
  • Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?

Þetta nám er fyrst og fremst ætlað nemendum sem stefna á að fara í meistaranám í talmeinafræði.

Undirbúningsnámið veitir ekki rétt á þátttöku í meistaranáminu. Fjöldatakmaranir eru í meistaranámið og þar eru einungis 16 nemendur teknir inn í námið annað hvert ár. 

Undirbúningsnámið gerir þér kleift að uppfylla þær forkröfur sem þú þarft að hafa til þess að umsókn þín verði metin fullgild. 

Meðal viðfangsefna

  • Máltaka barna
  • Málfræði
  • Tal og málmein
  • Þroskasálfræði
  • Tölfræði og mælingar

Aðgangur að frekara námi:

Nemendur skulu hafa lokið eftirtöldum námskeiðum eða öðrum sambærilegum, áður en eiginlegt nám í meistaranámi í talmeinafræði hefst. Hugsanlegt er að fá önnur sambærileg námskeið metin og verður það metið sérstaklega hverju sinni.*

  • Málfræði (íslenska/almenn málvísindi) - 40 einingar 
  • Sálfræði - 35 einingar 
  • Önnur sambærileg grunnnámskeið sem nemendur kynnu að hafa í upphafi náms verða metin sérstaklega, t.d. ef nemandi hefur lokið grunnnámi í talmeinafræði við erlendan háskóla.

A.m.k. 120 einingar til BA/BS/BEd-prófs. Námskeið í undirbúningsnáminu geta gilt sem hluti BA/BS/BEd-prófs að einhverju eða öllu leyti skv. reglum viðkomandi deildar.

Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda grunnnám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku skv. 1. gr. reglnanna.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Fyrsta ár | Haust
Tal- og málmein (AMV415G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu fá nemendur yfirlit yfir helstu viðfangsefni talmeinafræðinga á Íslandi. Um er að ræða fjölbreytt efni, allt frá greiningu og meðferð málstols og kyngingartregðu hjá fullorðnum einstaklingum yfir í málþroskaröskun og framburðarfrávik barna á leikskólaaldri. Unnið er út frá nauðsynlegri grunnþekkingu og yfir í hagnýtari nálganir á viðfangsefnið. Einnig verður lögð áhersla á að nemendur geti kynnt sér fræðilega umræðu og ritrýndar greinar á sviði talmeinafræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Inngangur að málfræði (ÍSL110G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kynnt verða helstu viðfangsefni málvísinda og undirstöðuatriði í íslenskri málfræði. Fjallað verður um valin atriði innan höfuðgreina málvísinda og helstu hliðargreinar þeirra auk þess sem gefið verður yfirlit yfir þróun málvísinda í gegnum aldirnar. Meginmarkmið námskeiðsins er að efla skilning nemenda á eðli tungumála og kynna þeim helstu grundvallarhugtök og aðferðir málvísinda. Kennsla felst í fyrirlestrum kennara og umræðum nemenda og kennara um efnið. Nemendur vinna heimaverkefni reglulega yfir misserið, taka tvö heimakrossapróf og ljúka námskeiðinu með lokaprófi í stofu á háskólasvæðinu.

 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Tölfræði I (SÁL102G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginefni námskeiðsins er lýsandi tölfræði og myndræn framsetning gagna. Fjallað verður m.a. um helstu mælitölur lýsandi tölfræði, myndræna framsetningu gagna, einfalda línulega aðhvarfsgreiningu, fylgni, úrtaksgerð, grunnatriði líkindafræði og úrtakadreifingar.

Námskeiðið er ekki kennt í fjarnámi. Ætlast er til þess að nemendur mæti í alla fyrirlestra.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Máltaka barna (ÍSL508G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Gefið verður yfirlit yfir málfræðilegar rannsóknir á máltöku barna. Byrjað verður á að kynna líffræðilegar forsendur máltöku (málstöðvar í heilanum, markaldur í máli, o.fl.) og áhrif þess málumhverfis sem börn alast upp í á málþroska þeirra. Í því sambandi verður rætt um nýlegar rannsóknir á áhrifum stafræns málsambýlis við ensku á máltöku íslenskra barna. Auk þess verður fjallað um kenningar um máltöku og saga barnamálsrannsókna rakin. Síðan verður gerð grein fyrir því hvernig börn ná valdi á höfuðþáttum móðurmáls síns, þ.e. hljóð- og hljóðkerfisfræði, beygingar- og orðmyndunarfræði, setningafræði, merkingarfræði og þróun orðaforða. Einnig verður rætt um tengsl máltöku við málbreytingar, þróun læsis og tengsl málþroska við lestrarfærni, t.d. um mikilvægi orðaforða og hljóðkerfisvitundar fyrir lestrarnám. Að lokum verða frávik í málþroska rædd (lesblinda, stam, málþroskaröskun og aðrar málraskanir), fjallað um máltöku annars og erlends máls, tvítyngi og fjöltyngi. Markmið námskeiðsins er að varpa ljósi á hvernig börn læra móðurmál sitt og þau stig sem þau ganga í gegnum í málþroska. Í þessum tilgangi verður lesin yfirlitsbók um efnið auk greina um íslenskar og erlendar barnamálsrannsóknir.

Athugið að fjöldi nemenda í námskeiðið takmarkast við 70.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Málkerfið – hljóð og orð (ÍSL209G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta er grundvallarnámskeið í íslenskri hljóðfræði, hljóðkerfisfræði, beygingarfræði og orðmyndunarfræði. Farið verður í grundvallaratriði hljóðeðlisfræði og íslenskrar hljóðmyndunar og nemendur þjálfaðir í hljóðritun. Helstu hugtök í hljóðkerfisfræði verða kynnt og gefið yfirlit yfir hljóðferli í íslensku og skilyrðingu þeirra. Einnig verða grundvallarhugtök orðhlutafræðinnar kynnt og farið yfir helstu orðmyndunarferli í íslensku og virkni þeirra. Málfræðilegar formdeildir verða skoðaðar, beygingu helstu orðflokka lýst og gerð grein fyrir beygingarflokkum og tilbrigðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Tölfræði II (SÁL203G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginefni námskeiðsins er ályktunartölfræði. Fjallað verður m.a. um spá á grunni úrtaksupplýsinga (estimation), öryggisbil, úrtakadreifingu, tilgátuprófun, t-próf og kíkvaðratpróf. Nemendur vinna verkefni samhliða fyrirlestrum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Þroskasálfræði (SÁL414G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um rannsóknaraðferðir, kenningar og viðfangsefni þroskasálfræði. Þróun frá fæðingu til unglingsára er lýst í samhengi við viðeigandi rannsóknaniðurstöður. Nemendur starfa að sérstökum rannsóknarverkefni og kynna og skila skýrslu. Skylt er að taka þátt í verkefna- og umræðutímum og skila þar tilskildum verkefnum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Mælinga- og próffræði (SÁL418G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um fræðilegan grundvöll, samningu og túlkun sálfræðilegra prófa. Í verklegum æfingum er lögð áhersla á hefðbundna atriðagreiningu, áreiðanleika og leitandi þáttagreiningu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár
  • Haust
  • Ekki kennt á misserinu
    AMV415G
    Tal- og málmein
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu fá nemendur yfirlit yfir helstu viðfangsefni talmeinafræðinga á Íslandi. Um er að ræða fjölbreytt efni, allt frá greiningu og meðferð málstols og kyngingartregðu hjá fullorðnum einstaklingum yfir í málþroskaröskun og framburðarfrávik barna á leikskólaaldri. Unnið er út frá nauðsynlegri grunnþekkingu og yfir í hagnýtari nálganir á viðfangsefnið. Einnig verður lögð áhersla á að nemendur geti kynnt sér fræðilega umræðu og ritrýndar greinar á sviði talmeinafræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL110G
    Inngangur að málfræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kynnt verða helstu viðfangsefni málvísinda og undirstöðuatriði í íslenskri málfræði. Fjallað verður um valin atriði innan höfuðgreina málvísinda og helstu hliðargreinar þeirra auk þess sem gefið verður yfirlit yfir þróun málvísinda í gegnum aldirnar. Meginmarkmið námskeiðsins er að efla skilning nemenda á eðli tungumála og kynna þeim helstu grundvallarhugtök og aðferðir málvísinda. Kennsla felst í fyrirlestrum kennara og umræðum nemenda og kennara um efnið. Nemendur vinna heimaverkefni reglulega yfir misserið, taka tvö heimakrossapróf og ljúka námskeiðinu með lokaprófi í stofu á háskólasvæðinu.

     

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SÁL102G
    Tölfræði I
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginefni námskeiðsins er lýsandi tölfræði og myndræn framsetning gagna. Fjallað verður m.a. um helstu mælitölur lýsandi tölfræði, myndræna framsetningu gagna, einfalda línulega aðhvarfsgreiningu, fylgni, úrtaksgerð, grunnatriði líkindafræði og úrtakadreifingar.

    Námskeiðið er ekki kennt í fjarnámi. Ætlast er til þess að nemendur mæti í alla fyrirlestra.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • ÍSL508G
    Máltaka barna
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Gefið verður yfirlit yfir málfræðilegar rannsóknir á máltöku barna. Byrjað verður á að kynna líffræðilegar forsendur máltöku (málstöðvar í heilanum, markaldur í máli, o.fl.) og áhrif þess málumhverfis sem börn alast upp í á málþroska þeirra. Í því sambandi verður rætt um nýlegar rannsóknir á áhrifum stafræns málsambýlis við ensku á máltöku íslenskra barna. Auk þess verður fjallað um kenningar um máltöku og saga barnamálsrannsókna rakin. Síðan verður gerð grein fyrir því hvernig börn ná valdi á höfuðþáttum móðurmáls síns, þ.e. hljóð- og hljóðkerfisfræði, beygingar- og orðmyndunarfræði, setningafræði, merkingarfræði og þróun orðaforða. Einnig verður rætt um tengsl máltöku við málbreytingar, þróun læsis og tengsl málþroska við lestrarfærni, t.d. um mikilvægi orðaforða og hljóðkerfisvitundar fyrir lestrarnám. Að lokum verða frávik í málþroska rædd (lesblinda, stam, málþroskaröskun og aðrar málraskanir), fjallað um máltöku annars og erlends máls, tvítyngi og fjöltyngi. Markmið námskeiðsins er að varpa ljósi á hvernig börn læra móðurmál sitt og þau stig sem þau ganga í gegnum í málþroska. Í þessum tilgangi verður lesin yfirlitsbók um efnið auk greina um íslenskar og erlendar barnamálsrannsóknir.

    Athugið að fjöldi nemenda í námskeiðið takmarkast við 70.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL209G
    Málkerfið – hljóð og orð
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta er grundvallarnámskeið í íslenskri hljóðfræði, hljóðkerfisfræði, beygingarfræði og orðmyndunarfræði. Farið verður í grundvallaratriði hljóðeðlisfræði og íslenskrar hljóðmyndunar og nemendur þjálfaðir í hljóðritun. Helstu hugtök í hljóðkerfisfræði verða kynnt og gefið yfirlit yfir hljóðferli í íslensku og skilyrðingu þeirra. Einnig verða grundvallarhugtök orðhlutafræðinnar kynnt og farið yfir helstu orðmyndunarferli í íslensku og virkni þeirra. Málfræðilegar formdeildir verða skoðaðar, beygingu helstu orðflokka lýst og gerð grein fyrir beygingarflokkum og tilbrigðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SÁL203G
    Tölfræði II
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginefni námskeiðsins er ályktunartölfræði. Fjallað verður m.a. um spá á grunni úrtaksupplýsinga (estimation), öryggisbil, úrtakadreifingu, tilgátuprófun, t-próf og kíkvaðratpróf. Nemendur vinna verkefni samhliða fyrirlestrum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SÁL414G
    Þroskasálfræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um rannsóknaraðferðir, kenningar og viðfangsefni þroskasálfræði. Þróun frá fæðingu til unglingsára er lýst í samhengi við viðeigandi rannsóknaniðurstöður. Nemendur starfa að sérstökum rannsóknarverkefni og kynna og skila skýrslu. Skylt er að taka þátt í verkefna- og umræðutímum og skila þar tilskildum verkefnum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SÁL418G
    Mælinga- og próffræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um fræðilegan grundvöll, samningu og túlkun sálfræðilegra prófa. Í verklegum æfingum er lögð áhersla á hefðbundna atriðagreiningu, áreiðanleika og leitandi þáttagreiningu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Undirbúningsnámið veitir ekki sérstök starfsréttindi. Að loknu MS prófi í talmeinafræði og 6 mánaða verklegri þjálfun undir handleiðslu talmeinafræðings er hægt að sækja um starfsleyfi til Landlæknisembættisins.

Talmeinafræðingar starfa meðal annars á:

  • Sjúkrastofnunum
  • Endurhæfingarstöðvum
  • Þjónustumiðstöðum
  • Heilsugæslu
  • Leik- og grunnskólum
  • Einkareknum talmeinastofum

Listinn er ekki tæmandi.

Mímir er nemendafélag stúdenta í íslenskum fræðum og almennum málvísindum

  • Félagið stuðlar að virku félagslífi og gætir hagsmuna sinna félagsmanna
  • Félagið heldur meðal annars árshátíð og skipuleggur vísindaferðir í stofnanir og fyrirtæki

Meira um félagslíf stúdenta í Hí

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Önnu Lísu Benediktsdóttur
Ég valdi talmeinafræðina vegna þess að hún sameinar áhuga minn á tungumálinu og forvitni mína um starfsemi heilans. Hæfni okkar til tjáningar er gríðarlega mikilvæg og á þátt í að skilgreina okkur sem persónur. Fyrir tilstuðlan tungumálsins getum við deilt hugsunum okkar og skoðunum, þörfum og löngunum með öðrum. Erfiðleikar í tali, máli og tjáskiptum geta haft umtalsverð áhrif, þeir geta valdið hindrunum í leik og starfi og haft áhrif á andlega og félagslega líðan. Talmeinafræðingar sinna því afar mikilvægu og þörfu starfi.Talmeinafræðingar starfa á fjölbreyttum vettvangi, skjólstæðingahópur þeirra er á öllum aldri og þeir vinna oft í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir. Mikil eftirspurn er eftir talmeinafræðingum og því eru atvinnuhorfur góðar að námi loknu.
Ljósmynd af Sigfúsi Helga Kristinssyni
Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á tungumálum, sér í lagi hvernig við tileinkum okkur tungumál fyrirhafnarlaust í bernsku. Þar fyrir utan hef ég alltaf haft áhuga á taugafræði og líffræði mannsins. Fyrir mér lá því beinast við að sameina þessi áhugasvið og leggja stund á nám í talmeinafræði. Námið var bæði stórskemmtilegt og krefjandi. Þar er samofin bein þekkingaröflun á máli og tali og hagnýting þekkingar, þ.e. hvernig megi með sem skilvirkustum hætti greina og veita meðferð við tal- og málmeinum og ekki síður hvernig megi haga frekari þekkingaröflun til eflingar í starfi. Þrátt fyrir allt vakti námið í raun fleiri spurningar hjá mér en það svaraði og hygg ég á frekari sérhæfingu í greininni. Ég tel námið hafa veitt mér styrkan grunn til að halda áfram í sérhæft nám (doktorsnám í talmeinafræði við háskólann í Suður-Karólínu í USA) og í framhaldinu starfsframa í grein sem er í stöðugri mótun og þróun.
Ljósmynd af Heiðu D. Sigurjónsdóttur
Ég ákvað að fara í talmeinafræði eftir að hafa starfað sem leikskólakennari í nokkur ár. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á hvers konar starfi með börnum og langaði að öðlast sérhæfðari þekkingu til að vinna með þeim hópi svo ég dreif mig í meistaranám í talmeinafræði. Námið var mjög krefjandi en mjög skemmtilegt á sama tíma. Svo þegar ég kynntist faginu almennilega kom í ljós hvað starf talmeinafræðinga er ótrúlega fjölbreytt og býður upp á marga möguleika, bæði í vinnu með ungbörnum, börnum á leik- og grunnskólaaldri, unglingum og fullorðnu fólki.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil