""
Tungumál kennslu
Íslenska
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á að efla þekkingu þína á Mið-Austurlöndum?
  • Vantar þig grunnþekkingu í arabísku starfs þíns vegna?
  • Viltu stutt og markvisst diplómanám?
  • Viltu þekkja sögu músima frá miðöldum til okkar daga?
  • Langar þig að læra arabísku?

Þetta nám er 60 eininga diplóma á grunnstigi og hentar vel þeim sem vilja bæta við sig þekkingu.

Í námsleiðinni er fjallað um heim Mið-Austurlanda frá fornöld og veldi múslima á miðöldum.  Einnig um lönd þar sem Íslam hefur náð útbreiðslu fram á okkar daga.

Veitt verður yfirlit yfir söguna og menningu, helstu bókmenntir, fræði og listir með það að augnamiði að varpa ljósi á þróun mála í nútímanum.

Helstu viðfangsefni 

  • Saga Mið-Austurlands
  • Arabíska
  • Bókmenntir
  • Samfélög múslima

Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf frá erlendum skóla. Nánari upplýsingar er að finna í 15. grein reglna um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022. 

Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda nám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku skv. 1. gr. reglnanna.

Nemendur taka öll skyldunámskeið námsleiðarinnar, samtals 60 einingar. 

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Óháð námsári | Haust
Saga Mið-Austurlanda I (MAF101G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður farið yfir sögu þess svæðis sem telst til Mið-Austurlanda frá fornöld og fram á miðaldir. Fjallað verður um uppgang Egypta, Súmera og annarra þjóða í hinni svokölluðu 'vöggu siðmenningarinnar'. Sérstök áhersla verður lögð á uppgang íslam á 7. öld og það heimsveldi sem múslimar byggðu upp næstu aldir þar á eftir.  Fjallað verður um Múhameð spámann og eftirmenn hans, tilurð Kóransins, kalífat Umayya, kalífat Abbasída og 'gullöld' íslam. Námskeiðið er kennt á íslensku en mest af lesefninu verður á ensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Arabíska I (MAF102G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur byrja á því að læra arabíska stafrófið og málhljóðin ásamt undirstöðuatriðum. Eftir að nemendur hafa náð góðum tökum á stafrófinu verður farið í helstu málfræðiatriði, einfalda setningargerð og orðaforða. Samhliða því er einblínt á bæði hlustun og munnlega tjáningu. Mikil áhersla er lögð á mætingu og heimavinnu nemenda. Námskeiðið er kennt á íslensku.

Námskeiðið er undanfari MAF204G: Arabíska II.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Bókmenntir Mið-Austurlanda (MAF108G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Yfirgripsmikið námskeið um bókmenntir Mið-Austurlanda. Farið verður yfir bókmenntasögu Mið-Austurlanda, allt frá árdögum ritlistarinnar í Súmer fram til 21. aldar.

Nýttar verða ýmist enskar eða íslenskar þýðingar.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Saga Mið-Austurlanda II (MAF203G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið tekur upp þráðinn þar sem námskeiðinu Saga-Miðausturlanda I sleppir. Það er þó ekki nauðsynlegur undanfari, hægt er að taka bæði námskeiðin eða annað þeirra. Hér verður farið yfir þróun mála í Mið-Austurlöndum frá ca 1300, uppgang Ottómana og Safavída, og sér í lagi tengsl þeirra við Vesturlönd. Meðal efnis verður nýlendustefna Evrópuríkja í þessum heimshluta og áhrif þeirra á menningu og stjórnmál, uppgangur þjóðernishyggju og tilurð ríkja, og ýmis átök og ágreining sem mótað hefur svæðið allt til dagsins í dag. Námskeiðið er kennt á íslensku en mest af lesefninu verður á ensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári | Vor
Arabíska II (MAF204G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu framhaldsnámskeiði í arabísku verður haldið áfram að þjálfa þau atriði sem byrjað var á í grunnnámskeiðinu. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi náð góðum tökum á stafrófinu og geti lesið einfaldan texta og skrifað setningar. Áhersla er lögð á lestur og skrift og farið verður dýpra í arabíska málfræði og notkun orðabókar. Þá verður áfram einblínt á bæði hlustun og munnlega tjáningu samhliða því. Mikil áhersla er lögð á mætingu í tíma og heimavinnu nemenda. Námskeiðið er kennt á ensku.

Undanfari námskeiðsins er MAF102G: Arabíska I.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Al-Andalus: Múslimar á Spáni 711-1492 (MAF207G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður farið yfir tæplega átta hundruð ára sögu múslima á Spáni. Meðal umfjöllunarefna verður aðdragandi og framvinda innrásar múslima á Íberíuskaga árið 711, ríki múslima og blómaskeið þess næstu aldir, uppgang lista, bókmennta, byggingarlistar og fræða, mikilvægi arabíska tungumálsins og þýðingar á verkum arabískra fræðimanna á latínu. Einnig munum við skoða hvernig hugmyndir Evrópumanna um íslam og múslima mótuðust að hluta til vegna kynna þeirra af múslimum á Spáni, og hvernig kristin samfélög náðu yfirhöndinni á Íberíuskaga á síð-miðöldum. Námskeiðið er kennt á íslensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári
  • Haust
  • MAF101G
    Saga Mið-Austurlanda I
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður farið yfir sögu þess svæðis sem telst til Mið-Austurlanda frá fornöld og fram á miðaldir. Fjallað verður um uppgang Egypta, Súmera og annarra þjóða í hinni svokölluðu 'vöggu siðmenningarinnar'. Sérstök áhersla verður lögð á uppgang íslam á 7. öld og það heimsveldi sem múslimar byggðu upp næstu aldir þar á eftir.  Fjallað verður um Múhameð spámann og eftirmenn hans, tilurð Kóransins, kalífat Umayya, kalífat Abbasída og 'gullöld' íslam. Námskeiðið er kennt á íslensku en mest af lesefninu verður á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAF102G
    Arabíska I
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur byrja á því að læra arabíska stafrófið og málhljóðin ásamt undirstöðuatriðum. Eftir að nemendur hafa náð góðum tökum á stafrófinu verður farið í helstu málfræðiatriði, einfalda setningargerð og orðaforða. Samhliða því er einblínt á bæði hlustun og munnlega tjáningu. Mikil áhersla er lögð á mætingu og heimavinnu nemenda. Námskeiðið er kennt á íslensku.

    Námskeiðið er undanfari MAF204G: Arabíska II.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAF108G
    Bókmenntir Mið-Austurlanda
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Yfirgripsmikið námskeið um bókmenntir Mið-Austurlanda. Farið verður yfir bókmenntasögu Mið-Austurlanda, allt frá árdögum ritlistarinnar í Súmer fram til 21. aldar.

    Nýttar verða ýmist enskar eða íslenskar þýðingar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • MAF203G
    Saga Mið-Austurlanda II
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið tekur upp þráðinn þar sem námskeiðinu Saga-Miðausturlanda I sleppir. Það er þó ekki nauðsynlegur undanfari, hægt er að taka bæði námskeiðin eða annað þeirra. Hér verður farið yfir þróun mála í Mið-Austurlöndum frá ca 1300, uppgang Ottómana og Safavída, og sér í lagi tengsl þeirra við Vesturlönd. Meðal efnis verður nýlendustefna Evrópuríkja í þessum heimshluta og áhrif þeirra á menningu og stjórnmál, uppgangur þjóðernishyggju og tilurð ríkja, og ýmis átök og ágreining sem mótað hefur svæðið allt til dagsins í dag. Námskeiðið er kennt á íslensku en mest af lesefninu verður á ensku.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAF204G
    Arabíska II
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu framhaldsnámskeiði í arabísku verður haldið áfram að þjálfa þau atriði sem byrjað var á í grunnnámskeiðinu. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi náð góðum tökum á stafrófinu og geti lesið einfaldan texta og skrifað setningar. Áhersla er lögð á lestur og skrift og farið verður dýpra í arabíska málfræði og notkun orðabókar. Þá verður áfram einblínt á bæði hlustun og munnlega tjáningu samhliða því. Mikil áhersla er lögð á mætingu í tíma og heimavinnu nemenda. Námskeiðið er kennt á ensku.

    Undanfari námskeiðsins er MAF102G: Arabíska I.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAF207G
    Al-Andalus: Múslimar á Spáni 711-1492
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður farið yfir tæplega átta hundruð ára sögu múslima á Spáni. Meðal umfjöllunarefna verður aðdragandi og framvinda innrásar múslima á Íberíuskaga árið 711, ríki múslima og blómaskeið þess næstu aldir, uppgang lista, bókmennta, byggingarlistar og fræða, mikilvægi arabíska tungumálsins og þýðingar á verkum arabískra fræðimanna á latínu. Einnig munum við skoða hvernig hugmyndir Evrópumanna um íslam og múslima mótuðust að hluta til vegna kynna þeirra af múslimum á Spáni, og hvernig kristin samfélög náðu yfirhöndinni á Íberíuskaga á síð-miðöldum. Námskeiðið er kennt á íslensku.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Í fjölmenningarsamfélagi er þörf á fólki sem hefur innsýn og skilning í menningu annarra þjóða. 

Fólk með þekkingu á Mið-Austurlöndum starfar meðal annars:

  • Við móttöku flóttamanna og hælisleytenda
  • Hjá alþjóðastofnunum 
  • Í félagsþjónustu
  • Blaða og fréttamennsku
  • Fræðimennsku
  • Rannsóknir 
  • Ráðgjöf

Listinn er ekki tæmandi. 

  • Linguae er félag tungumálanema við Háskóla Íslands.
  • Markmið félagsins er að efla félagslíf nemenda innan Mála- og menningardeildar.
  • Enn sem komið er samanstendur það af ítölsku-, frönsku-, þýsku-, spænsku-, dönsku-, kínversku- og rússneskunemum.
  • Nemendafélagið heldur úti Facebook-síðu.

Meira um félagslíf stúdenta í Hí

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil