""
Tungumál kennslu
Íslenska
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Sækja þarf um aðalgrein áður en hægt er að sækja um aukagrein.
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á ritlist?
  • Finnst þér gaman að vinna með orð?
  • Hefur þú gaman af sögum, ljóðum og leiktexta?
  • Viltu fá þjálfun í hagnýtum skrifum?
  • Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?

Þetta nám er 60 eininga aukagrein og hentar vel með öllu öðru námi. 

Markmið náms í ritlist er að gera nemendur að betri pennum og búa þá undir framhaldsnám af ýmsu tagi, meðal annars í ritlist. Námið nýtist vel á flestum sviðum mannlífsins.

Meðal viðfangsefna

  • Ritfærni
  • Málnotkun
  • Bókmenntafræði
  • Vefskrif
  • Þýðingar 

Í ritlist er lögð áhersla á frjóa hugsun og miðlun hennar í texta af ýmsu tagi, svo sem í ljóðum, smásögum, skáldsögum, bókmenntaþýðingum, leiktexta, greinum og öðrum þeim formum sem þátttakendur kalla til eða finna upp.

Námið er í senn hagnýtt og listrænt. Nemendur fá tilsögn í grundvallaratriðum sem lúta að ritstörfum, svo sem vinnulagi, skapandi hugsun, byggingu, sjónarhorni, málsniði og málnotkun.

Markmið

Markmið náms í ritlist á BA-stigi er að gera nemendur að betri pennum og búa þá undir framhaldsnám af ýmsu tagi, meðal annars í ritlist. Námið nýtist vel á flestum sviðum mannlífsins.

Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf. Nánari upplýsingar er að finna í 17. grein reglna um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022.

Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda grunnnám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku skv. 1. gr. reglnanna.

Nemendum sem leggja stund á ritlist sem 60 eininga aukagrein er skylt að ljúka 40 einingum í smiðjum og námskeiðinu ÍSL111G Bókmenntafræði (eða ABF104G Aðferðir og hugtök). 10 einingum skal ljúka í öðrum námskeiðum en smiðjum.

Smiðjur: Nemendur skulu ljúka a.m.k. 40 einingum í ritsmiðjum. Um tvær leiðir er að velja þegar kemur að ritsmiðjum. Annars vegar eru hreinar smiðjur (merktar svona í Kennsluskrá: RITxxxG Smiðja: Námskeiðsheiti eða ÍSRxxxG Ritfærni: Námskeiðsheiti), þ.e. verkleg námskeið þar sem nemendur leggja fram sitt eigið efni og fá tilsögn. Hins vegar er hægt að ljúka að hámarki 10 smiðjueiningum í gegnum bókmenntanámskeið þar sem nemendur í ritlist sem aukagrein skila að hluta eða öllu leyti verkefnum í formi skapandi ritsmíðar í stað fræðilegrar. Fá þarf samþykki viðkomandi kennara fyrir slíku fyrirkomulagi í upphafi misseris.

Bókmenntafræði: Ætlast er til að allir ritlistarnemar ljúki námskeiðinu ÍSL111G Bókmenntafræði, eða sambærilegu námskeiði í Almennri bókmenntafræði (ABF104G Aðferðir og hugtök). Þar fást ýmis áhöld og hugtök sem nýtast í smiðjunum.

Valnámskeið: Námskeið önnur en smiðjur og bókmenntafræði. Þau má sækja vítt og breitt um deildir Hugvísindasviðs og jafnvel víðar. Gjarnan má nemandi þar elta áhugasvið sín.

Hafi nemandi lokið ABF104G Aðferðir og hugtök eða ÍSL111G Bókmenntafræði í aðalgrein sinni eru námskröfur í ritlist sem aukagrein eftirfarandi: Nemandi þarf að taka 40 einingar í smiðjum og 20 einingar í vali. A.m.k. 10 einingar af valnámskeiðum þurfa að vera í formi fræðilegs námskeiðs (ekki smiðja).

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Óháð námsári | Haust
Smiðja: Veröldin er leiksvið (RIT401G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um leikritun í víðu samhengi og samband leikbókmennta við hefðir og veruleika. Kenningar um byggingu, áferð og fagurfræði kyntar og valdir leiktextar skoðaðir útfrá þeim. Nemendur gera skriflegar æfingar, bæði á eigin spýtur og í hóp. Í lok námskeiðs vinna nemendur að stuttu leikverki sem verður leiklesið í tíma eða tekið til skoðunar með öðrum hætti ef við á. Ætlast er til mætingar og virkrar þátttöku í tímum. Takmarkaður sætafjöldi. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Haust
Þýðingar (ÍSE502G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er inngangur að þýðingum, þýðingasögu og þýðingafræði. Nemendur kynnast helstu hugtökum og kenningum á sviði þýðinga. Námskeiðið skiptist í tvo þætti: Hinn fræðilegi og sögulegi þáttur námskeiðsins fer fram í formi fyrirlestra og umræðna. Jafnframt leggur kennari fram lesefni sem nemendur kynna sér. Námsmat felst í prófum/ritgerðarverkefnum þar sem skyldulesefni er undirstaðan. Verklegi þátturinn fer fram í hópvinnustofum þar sem nemendur æfa sig í þýðingarýni og þýðingum (bókmenntaþýðingum eða nytjaþýðingum) undir handleiðslu kennara. Námsmat felst í skriflegu verkefni eða verkefnum. Nemendur í íslensku sem öðru máli þurfa að hafa lokið öllum námskeiðum á 1. og 2. ári.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Haust
Ritfærni: Fræðileg skrif (ÍSR301G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Ritfærni: Fræðileg skrif er grunnnámskeið í meðferð ritaðs máls. Nemendur hljóta þjálfun í ritun með reglulegum heimaverkefnum, fyrirlestrum, umræðum og smiðjuvinnu. Fjallað verður um vinnulag við ritun fræðilegra texta, svo sem val og afmörkun viðfangsefnis, byggingu, heimildanotkun og frágang. Einnig verður lögð áhersla á að þjálfa nemendur í málnotkun í fræðilegum textum og fjallað meðal annars um málsnið, stíl, stafsetningu, greinarmerkjasetningu og hjálpargögn málnotenda. Nemendur skrifa fræðilega ritgerð í leiðsagnarmati og fá reglulega endurgjöf kennara sem og samnemenda. Námsmat byggist á reglulegum heimaverkefnum, miðmisserisverkefni, jafningjamati, lokaverkefni og virkri þátttöku í ritsmiðjum. Vakin er athygli á því að aðeins er hægt að ljúka námskeiðinu sé öllum verkefnum skilað.

Nemendur sem hyggjast taka námskeiðið sem netnám eru beðnir að skrá sig sem slíkir inni á Uglu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Haust
Bókmenntafræði (ÍSL111G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Vilt þú læra nýjar leiðir til að lesa og skilja bókmenntir, kafa undir yfirborð texta og ræða um skáldverk á faglegan hátt? Í þessu námskeiði kynnast nemendur undirstöðuhugtökum í bókmenntafræði, textagreiningu og ritun bókmenntaritgerða. Nemendur læra um ólíkar nálganir í bókmenntagreiningu og fá þjálfun í að beita hugtökum við greiningu á skáldtextum af ýmsu tagi, bæði munnlega og í rituðu máli. Námskeiðið skiptist í fjóra hluta: Inngang að bókmenntafræði, ljóð, frásagnir (sögur og leikrit) og loks bókmenntaritgerðaskrif. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Smiðja: Satt að segja (RIT206G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessari smiðju skrifa þátttakendur um sannsöguleg efni með aðferðum sagnalistarinnar, s.s. í ritsmíðum sem byggja á heimildum, raunverulegum atburðum eða persónulegum upplifunum af einhverju tagi. Þátttakendur æfa sig í að skapa frásagnarrödd og nýta aðferðir frásagnarlistarinnar til að koma efninu á framfæri. Rædd verða álitamál sem tengjast því að miðla sannsögulegu efni.

Ritsmíðar nemenda verða til umræðu í tímum. Meðfram lesum við sannsögur í ýmsu formi og um þær. Mælst er til þess að þátttakendur mæti í alla tíma og taki virkan þátt.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Ritfærni: Skapandi fræðamiðlun (ÍSR401G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tilgangur þessa námskeiðs er að þjálfa nemendur í ritfærni. Áhersla verður lögð á þjálfun í meðferð texta af ýmsu tagi. Regluleg ritunarverkefni munu þjálfa ólíkar leiðir til að miðla fræðilegum textum á skapandi hátt, t.a.m. í formi pistla og sannsagna (e. creative nonfiction). Einnig munu nemendur skrifa skapandi texta, svo sem örsögur og smásögur. Nemendum mun gefast tækifæri til að notast við efnivið úr sínum aðalgreinum en þurfa einnig að takast á við nýjar áskoranir. Kennsla byggir á fyrirlestrum, umræðum, verkefnum í tíma og ritsmiðjum. Námsmat byggist á reglulegum heimaverkefnum, miðmisserisverkefni, lokaverkefni, ferilmöppu og mætingu og þátttöku. Mæting og þátttaka gildir 15% af einkunn og verður að hluta til skyldumæting (8 af 12 ritsmiðjum). Námskeiðið er opið öllum grunnnemum við Háskóla Ísland en nemendur þurfa sjálfir að aðgæta hvort þeir geti fengið námskeiðið metið upp í sína gráðu.

Netnám:

Námskeiðið er kennt í staðnámi en allir fyrirlestrar kennara verða teknir upp. Þetta er gert til að auka aðgengi að námskeiðinu. Ekki er hægt að tryggja upptökur á umræðum eða framsögum nemenda ef á við. Þeir nemendur sem ekki mæta í tíma skulu hlusta á fyrirlestra og skila skýrslu um efni þeirra með hliðsjón af lesefni. Þá skulu þeir vinna sjálfir að þeim ritsmiðjuverkefnum sem lögð eru fyrir í tíma og skila inn til kennara. Sú vinna er þá jafngildi mætingar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Vor
Smiðja: Á vegum ljóðsins (RIT404G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Smiðjan er grunnnámskeið í ljóðagerð. Annars vegar verða lesin valin ljóð, einkum frá Póllandi, og eiginleikar þeirra skoðaðir með það fyrir augum að gera nemandann að betri ljóðalesanda. Hins vegar verða gerðar tilraunir með ljóðaskrif  og  ljóðagjörninga. Nemendur skila reglulega verkefnum og ljóð þeirra verða rædd í tímum. Ætlast er til að þátttakendur sæki alla tíma og taki virkan þátt.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári
  • Haust
  • RIT401G
    Smiðja: Veröldin er leiksvið
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um leikritun í víðu samhengi og samband leikbókmennta við hefðir og veruleika. Kenningar um byggingu, áferð og fagurfræði kyntar og valdir leiktextar skoðaðir útfrá þeim. Nemendur gera skriflegar æfingar, bæði á eigin spýtur og í hóp. Í lok námskeiðs vinna nemendur að stuttu leikverki sem verður leiklesið í tíma eða tekið til skoðunar með öðrum hætti ef við á. Ætlast er til mætingar og virkrar þátttöku í tímum. Takmarkaður sætafjöldi. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSE502G
    Þýðingar
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er inngangur að þýðingum, þýðingasögu og þýðingafræði. Nemendur kynnast helstu hugtökum og kenningum á sviði þýðinga. Námskeiðið skiptist í tvo þætti: Hinn fræðilegi og sögulegi þáttur námskeiðsins fer fram í formi fyrirlestra og umræðna. Jafnframt leggur kennari fram lesefni sem nemendur kynna sér. Námsmat felst í prófum/ritgerðarverkefnum þar sem skyldulesefni er undirstaðan. Verklegi þátturinn fer fram í hópvinnustofum þar sem nemendur æfa sig í þýðingarýni og þýðingum (bókmenntaþýðingum eða nytjaþýðingum) undir handleiðslu kennara. Námsmat felst í skriflegu verkefni eða verkefnum. Nemendur í íslensku sem öðru máli þurfa að hafa lokið öllum námskeiðum á 1. og 2. ári.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSR301G
    Ritfærni: Fræðileg skrif
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Ritfærni: Fræðileg skrif er grunnnámskeið í meðferð ritaðs máls. Nemendur hljóta þjálfun í ritun með reglulegum heimaverkefnum, fyrirlestrum, umræðum og smiðjuvinnu. Fjallað verður um vinnulag við ritun fræðilegra texta, svo sem val og afmörkun viðfangsefnis, byggingu, heimildanotkun og frágang. Einnig verður lögð áhersla á að þjálfa nemendur í málnotkun í fræðilegum textum og fjallað meðal annars um málsnið, stíl, stafsetningu, greinarmerkjasetningu og hjálpargögn málnotenda. Nemendur skrifa fræðilega ritgerð í leiðsagnarmati og fá reglulega endurgjöf kennara sem og samnemenda. Námsmat byggist á reglulegum heimaverkefnum, miðmisserisverkefni, jafningjamati, lokaverkefni og virkri þátttöku í ritsmiðjum. Vakin er athygli á því að aðeins er hægt að ljúka námskeiðinu sé öllum verkefnum skilað.

    Nemendur sem hyggjast taka námskeiðið sem netnám eru beðnir að skrá sig sem slíkir inni á Uglu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL111G
    Bókmenntafræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Vilt þú læra nýjar leiðir til að lesa og skilja bókmenntir, kafa undir yfirborð texta og ræða um skáldverk á faglegan hátt? Í þessu námskeiði kynnast nemendur undirstöðuhugtökum í bókmenntafræði, textagreiningu og ritun bókmenntaritgerða. Nemendur læra um ólíkar nálganir í bókmenntagreiningu og fá þjálfun í að beita hugtökum við greiningu á skáldtextum af ýmsu tagi, bæði munnlega og í rituðu máli. Námskeiðið skiptist í fjóra hluta: Inngang að bókmenntafræði, ljóð, frásagnir (sögur og leikrit) og loks bókmenntaritgerðaskrif. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • RIT206G
    Smiðja: Satt að segja
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessari smiðju skrifa þátttakendur um sannsöguleg efni með aðferðum sagnalistarinnar, s.s. í ritsmíðum sem byggja á heimildum, raunverulegum atburðum eða persónulegum upplifunum af einhverju tagi. Þátttakendur æfa sig í að skapa frásagnarrödd og nýta aðferðir frásagnarlistarinnar til að koma efninu á framfæri. Rædd verða álitamál sem tengjast því að miðla sannsögulegu efni.

    Ritsmíðar nemenda verða til umræðu í tímum. Meðfram lesum við sannsögur í ýmsu formi og um þær. Mælst er til þess að þátttakendur mæti í alla tíma og taki virkan þátt.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSR401G
    Ritfærni: Skapandi fræðamiðlun
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Tilgangur þessa námskeiðs er að þjálfa nemendur í ritfærni. Áhersla verður lögð á þjálfun í meðferð texta af ýmsu tagi. Regluleg ritunarverkefni munu þjálfa ólíkar leiðir til að miðla fræðilegum textum á skapandi hátt, t.a.m. í formi pistla og sannsagna (e. creative nonfiction). Einnig munu nemendur skrifa skapandi texta, svo sem örsögur og smásögur. Nemendum mun gefast tækifæri til að notast við efnivið úr sínum aðalgreinum en þurfa einnig að takast á við nýjar áskoranir. Kennsla byggir á fyrirlestrum, umræðum, verkefnum í tíma og ritsmiðjum. Námsmat byggist á reglulegum heimaverkefnum, miðmisserisverkefni, lokaverkefni, ferilmöppu og mætingu og þátttöku. Mæting og þátttaka gildir 15% af einkunn og verður að hluta til skyldumæting (8 af 12 ritsmiðjum). Námskeiðið er opið öllum grunnnemum við Háskóla Ísland en nemendur þurfa sjálfir að aðgæta hvort þeir geti fengið námskeiðið metið upp í sína gráðu.

    Netnám:

    Námskeiðið er kennt í staðnámi en allir fyrirlestrar kennara verða teknir upp. Þetta er gert til að auka aðgengi að námskeiðinu. Ekki er hægt að tryggja upptökur á umræðum eða framsögum nemenda ef á við. Þeir nemendur sem ekki mæta í tíma skulu hlusta á fyrirlestra og skila skýrslu um efni þeirra með hliðsjón af lesefni. Þá skulu þeir vinna sjálfir að þeim ritsmiðjuverkefnum sem lögð eru fyrir í tíma og skila inn til kennara. Sú vinna er þá jafngildi mætingar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • RIT404G
    Smiðja: Á vegum ljóðsins
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Smiðjan er grunnnámskeið í ljóðagerð. Annars vegar verða lesin valin ljóð, einkum frá Póllandi, og eiginleikar þeirra skoðaðir með það fyrir augum að gera nemandann að betri ljóðalesanda. Hins vegar verða gerðar tilraunir með ljóðaskrif  og  ljóðagjörninga. Nemendur skila reglulega verkefnum og ljóð þeirra verða rædd í tímum. Ætlast er til að þátttakendur sæki alla tíma og taki virkan þátt.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Ritfærni er mikils virði í samfélagi okkar og ritfæru fólki standa til boða margs konar störf þar sem skila þarf frambærilegum texta.

Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við:

  • Ritun kynningarefnis
  • Fjölmiðlun
  • Útgáfustörf
  • Fræðastörf
  • Ritstörf / Rithöfundur

Listinn er ekki tæmandi.

Mímir er nemendafélag stúdenta í íslenskum fræðum og almennum málvísindum

  • Félagið stuðlar að virku félagslífi og gætir hagsmuna sinna félagsmanna
  • Félagið heldur meðal annars árshátíð og skipuleggur vísindaferðir í stofnanir og fyrirtæki

Meira um félagslíf stúdenta í Hí

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Ástrósu Elísdóttur
Ég held ótrauð áfram í ritlistinni, sem er það langbesta og skemmtilegasta nám sem ég hef nokkurn tímann komist í tæri við. Gæði námsins eru í hæsta flokki og tengslanetið og vináttan sem hefur skapast í kringum námið ómetanleg.
Ljósmynd af Rebekku Sif Stefánsdóttur
Í ritlistinni fann ég bæði agann, hvatninguna og innblásturinn sem ég þurfti til að fleyta drauminum um að verða rithöfundur áfram. Umgjörðin og aðhaldið hentaði mér mjög vel, sem og félagslífið sem er mjög öflugt vegna Blekfjelagsins. Ég valdi það að fara í meistaranám í ritlist því mig langaði til að þjálfa ritvöðvann og þroskast sem höfundur. Ég hafði fylgst með náminu og rithöfundunum sem höfðu tekið það um árabil og sá að það var að hafa áhrif mjög jákvæð áhrif á íslenskt bókmenntalíf. Ef það blundar rithöfundur í þér hvet ég þig eindregið til þess að sækja um í ritlist, það er magnað hvað ég fékk mikið út úr þessum tveimur árum.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil