- Hefur þú áhuga á að leysa flókin vandamál með tölvutækni?
- Langar þig að skilja hvernig gervigreind og máltækni í tölvum virkar?
- Langar þig að starfa með fólki úr mörgum fagstéttum?
- Vilt þú vinna fjölbreytt verkefni undir handleiðslu helstu sérfræðinga landsins í tölvunarfræði?
- Hefur þú gaman af því að forrita og hanna?
- Vilt þú geta valið úr fjölbreyttu úrvali námskeiða á þínu áhugasviði?
- Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?
Tölvunarfræðinám miðar að því að þú fáir góða undirstöðu í grundvallaratriðum tölvunarfræðinnar sem og skilning á gagnaskipan, reikniritum, forritunarmálum, netkerfum og gagnagrunnum. Námið miðar að því að þú verðir fær um að þróa og reka traustan og skilvirkan hugbúnað.
Þú færð góðan undirbúning til að takast á við ýmis verkefni atvinnulífsins. Færð traustan grunn til að bæta stöðugt við þekkingu þína og bregðast við hraðri framþróun á fagsviðinu.
Námið er eitt það hagnýtasta sem völ er á.
Skyldunámskeið eru um tveir þriðju hlutar námsins. Afganginn má velja innan tölvunarfræði eða úr öðrum fræðigreinum.
Í boði eru eftirfarandi kjörsvið:
Allir nemendur taka sömu kjarnanámskeið en námskeiðaúrval greinist á milli kjörsviða.
Meðal viðfangsefna
- Hönnun, greining og notkun forritunarmála
- Reiknirit
- Þróun hugbúnaðar
- Smíði tölvuviðmóta
- Tölvugrafík og leikjaforritun
- Vefforritun
- Greining, hönnun og notkun gagnamóta og gagnasafnskerfa
- Stýrikerfi
- Tölvunet og dreifð kerfi
- Tölvuöryggi
- Skýjaforritun og forritun ofurtölva
- Gervigreind
- Reiknifræði og bestun
- Fræðileg tölvunarfræði
- Stærðfræði
- Máltækni
- Lífupplýsingafræði
Annað
Einnig er hægt að taka þetta nám sem:
Frekari upplýsingar um aðal- og aukagreinar má finna undir hjálplegt efni neðar á síðunni.
Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf. Deildin mælir eindregið með að stúdent hafi lokið a.m.k. 40 einingum í stærðfræði (fyrir reiknifræðilínu þó a.m.k. 40 einingum í stærðfræði og auk þess 35 einingum í raungreinum).
Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda grunnnám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR).
Inntökupróf í íslensku fyrir umsækjendur um nám sem kennt er á íslensku | Háskóli Íslands
Ljúka þarf 180 einingum til BS-gráðu. Skipulagt sem 3ja ára nám með 30 einingar á misseri að jafnaði. Hægt er að velja milli þriggja kjörsviða.
Í kjörsviðinu almenn tölvunarfræði eru 120 einingar í skyldunámskeiðum og 60 einingar í valnámskeiðum.
Í kjörsviðinu gagnavísindi eru 134 til 136 einingar í skyldunámskeiðum, 6 til 8 einingar í bundnu vali og 36 til 40 einingar í valnámskeiðum.
Í kjörsviðinu reiknifræði eru 114 einingar í skyldunámskeiðum, 6 til 8 einingar í bundnu vali og 58 til 60 einingar í valnámskeiðum.
Reiknifræðikjörsvið miðar að því að gera nemendur hæfa til þess að takast á við reiknifræðilega líkanagerð og fræðilegri þætti tölvunarfræði. Þeir sem ljúka BS-gráðu af þessu kjörsviði geta án frekari undirbúnings haldið áfram í meistaranámi í reikniverkfræði.
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
- Fyrsta ár
- Haust
- Tölvufærni 1
- Stærðfræði N
- Tölvunarfræði 1
- Stærðfræðimynstur
- Vefforritun 1
- Vor
- Viðmótsforritun
- Stærðfræði og reiknifræði
- Tölvunarfræði 2
- Tölvufærni 2
- Greining og hönnun stafrænna rása
Tölvufærni 1 (TÖL109G)
Þetta námskeið er systurnámskeið Tölvufærni 2. Í námskeiðunum er snert á mörgum hlutum sem tengjast tölvufærni. Markmið námskeiðsins er að kynna nemandann fyrir ýmsum hugtökum án þess þó að kafa djúpt í hvert hugtak.
Kynning á stýrikerfinu Unix. Skipulag skráakerfis, helstu hjálparforrit, gluggakerfi, skipanalínuvinnsla og skeljarforritun. Einnig er farið yfir ritla í skelinni og höndlun gagna í henni. Ritvinnslukerfið LaTeX.
Stærðfræði N (STÆ108G)
Í námskeiðinu er fjallað um undirstöðuatriði stærðfræðigreiningarinnar auk fylkjareiknings. Meginviðfansefni eru fallahugtakið, helstu föll stærðfræðigreiningarinnar (lograr, veldisvísisföll, hornaföll), markgildi, samfelldni, deildanleg föll, reglur um afleiður, afleiður af hærra stigi, stofnföll, notkun deildareiknings (svo sem útgildisverkefni og línuleg nálgun), meðalgildissetningin, heildun, ákveðin heildi og reiknireglur fyrir þau, undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar, heildunartækni, óeiginleg heildi, afleiðujöfnur, vigrar og fylkjareikningur.
Tölvunarfræði 1 (TÖL101G)
Ath.: Einingar til BS-prófs gilda aðeins fyrir annaðhvort TÖL101G Tölvunarfræði 1 eða TÖL105G Tölvunarfræði 1a.
Java forritunarmálið er notað til að kynna grunnhugtök í tölvuforritun: Tjáning og fullyrðingar, texta- og tölulegar gagnategundir, aðstæður og lykkjur, fylki, aðferðir, flokkar og hluti, inntak og úttak. Forritun og kembiforrit eru stunduð í spurningakeppnum og verkefnum alla önnina.
Stærðfræðimynstur (TÖL104G)
Yrðingar, umsagnir og rökleiðingar. Mengjareikningur og Boolealgebrur. Þrepun og endurkvæmni. Grunnaðferðir við greiningu reiknirita og talningu. Einföld reiknirit í talnafræði. Vensl, eiginleikar þeirra og framsetning. Tré og net og einföld reiknirit tengd þeim.
Vefforritun 1 (TÖL107G)
Kenndur er grunnur í vefsmíði með áherslu á framenda: HTML, CSS og JavaScript.
Staðlar, venjur og það sem þarf til að útbúa góða vefi. Hönnun, útlit og að vinna með hönnunarskjöl.
Forritun í túlkaða forritunarmálinu JavaScript, tenging þess við vafra og tól tengdum því. HTTP staðallinn kynntur.
Verkefni felast í smíði vefja þar sem nýta skal það sem kennt er.
Viðmótsforritun (HBV201G)
Í þessu námskeiði munu nemendur þjálfa forritun grafísks notendaviðmóts í Java og læra um helstu skref í þróun hugbúnaðarverkefnis frá hugmyndavinnu til prófana. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist meiri færni í forritun stærri verkefna en í byrjendanámskeiði í forritun (TÖL101G), geti hannað gagnvirkt notendaviðmót, forritað það og prófað. Í því felst að nemendur geti kynnt sér stór forritasöfn (hér JavaFX) og notað þau. Einnig að nemendur geti lesið, skilið og útfært fyrirmæli um virkni, þ.m.t. gagnvirkni. Nemendur munu kynnast hönnunarferli sem samanstendur af fimm sprettum, skilja verkefnið, skissa hugmyndir og gagnvirkni, velja úr og skilgreina, forrita frumgerð og að kokum prófa og ígrunda. Gefin er innsýn í efnisatriði eins og notendamiðaða þróun, hönnun gagnvirkni, frumgerðir og notendaprófanir.
Námskeiðið mun undirbúa nemendur fyrir námskeiðin Þróun hugbúnaðar og Hugbúnaðarverkefni 1 og þau námskeið þar sem nemendur þurfa að forrita. Námskeiðið er einnig góður grunnur fyrir námskeið eins og TÖL502M Samskipti manns og tölvu.
Stærðfræði og reiknifræði (REI201G)
Einingar til BS-prófs gilda aðeins fyrir annaðhvort REI201G Stærðfræði og reiknifræði eða STÆ107G Línuleg algebra.
Skekkjumat við fleytitölureikninga. Lausn ólinulegra jafna með ítrekun. Reiknifræðileg forritun í Python. Vigrar, fylki, lausn línulegra jöfnuhneppa, aðhvarfsgreining.
Tölvunarfræði 2 (TÖL203G)
Námskeiðið mun nota forritunarmálið Java. Fjallað er um gagnaskipan, reiknirit og huglæg gagnatög. Meðal gagnaskipana, sem farið er yfir, eru listar, hlaðar, biðraðir, forgangsbiðraðir, tré, tvítré, tvíleitartré og hrúgur auk viðkomandi reiknirita. Kynnt verða ýmis leitar- og röðunarreiknirit. Reiknirit eru greind, hvað þau taka langan tíma í vinnslu og hve mikið minnisrými. Forritunarverkefni, sem nota áðurnefnda gagnaskipan og reiknirit, eru leyst í Java. Mörg lítil forritunarverkefni verða í námskeiðinu.
Tölvufærni 2 (TÖL210G)
Þetta námskeið er systurnámskeið Tölvufærni 1. Í námskeiðunum er snert á mörgum hlutum sem tengjast tölvufærni. Markmið námskeiðsins er að kynna nemandann fyrir ýmsum hugtökum án þess þó að kafa djúpt í hvert hugtak.
Farið er yfir útgáfustjórnunarkerfi eins og Git, notkun aflúsunaraðferða og aðferða til að byggja hugbúnað. Farið er yfir algeng hugtök í dulmálsfræðum og kynnt eru hugtök á borð við sýndarvélar og gáma.
Greining og hönnun stafrænna rása (TÖV201G)
Virkni og notkun flétturása, kóðara, afkóðara, lesminni (ROM), og forritanlegs rökrásabúnaðar við rásahönnun. Hönnun og greining reiknirása, samleggjari/frádragari, margfaldari. Hönnun og greining runurása bæði samhæfðar og ósamhæfðar. Farið verður í hönnun rása með D og JK vippum. Sérstakar runurásir, teljarar og hliðrunargisti. Meðhöndlun og notkun stöðuvéla (FSM). Stöðulágmörkun, stöðustjórnun, stöðukennsl. Runuvinnsla með stöðuvélum. Grundvallaratriði í notkun vélhermimáls (HDL) og forritanlegs rása búnaðar (FPGA) í samræmi við fyrrnefndar rásir. Nemendur munu skila sjö verklegum verkefnum sem byggja á stafrænni rásahönnun, Verilog og FPGA. Auk þess munu nemendur kynnast eldri aðferðum með notkun á tengibrettum til að byggja rásir nokkurra valinna verkefna.
Á síðari vikum námskeiðsins verður farið í hönnun flóknari rása með verilog og FPGA. Fjallað verður um kerfi á kubb ofl. Sem tengist notkunn FPGA og Xilinx hönnunarumhverfisins.
Markmið: Meðal markmiða námskeiðsins er að nemendur átti sig á grundvallaratriðum á greiningu og hönnun stafrænna rása og öðlist reynslu og þekkingu á leiðandi aðferðum við hönnun stafrænna rása.
- Annað ár
- Haust
- Formleg mál og reiknanleiki
- Gagnasafnsfræði
- Forritunarmál
- Tölvutækni og forritun
- Vor
- Þróun hugbúnaðar
- Tölfræði og gagnavinnsla
- Stýrikerfi
- Greining reiknirita
Formleg mál og reiknanleiki (TÖL301G)
Endanlegar stöðuvélar, regluleg mál og málskipan, staflavélar, samhengisóháð mál og málskipan, Turingvélar, almenn mál og málskipan og helstu eiginleikar þeirra.
Ávarðanleg og listanleg mál, yfirfærsla milli mála, tengsl við ákvörðnarverkefni og sönnun á óleysanleika slíkra verkefna. Flækjustigsflokkarnir P og NP og NP-fullkomleiki. Dæmi um ýmis líkön af reiknanleika.
Gagnasafnsfræði (TÖL303G)
Gagnasöfn og gagnasafnskerfi. Einindavenslalíkanið. Töflulíkanið og töflualgebra. SQL fyrirspurnarmálið. Hagkvæmni geymsluaðferða og úrvinnsluaðferða. Fallákveður, lyklar og staðalskipulag gagna í venslalíkaninu. Bestun fyrirspurna. Hreyfingar, samhliða vinnsla hreyfinga og læsingar. Endurbygging gagnasafna. Öryggi gagnasafna og aðgangsheimildir. Vöruhús gagna.
Forritunarmál (TÖL304G)
Helstu gerðir forritunarmála kynntar. Bálkmótuð mál, listavinnslumál, hlutbundin forritun. Lýsing forritunarmála, þýðendur og túlkar. Uppbygging bálkmótaðra mála. Einingaforritun. Föll og undirforrit, viðföng og samskipti. Minnismeðhöndlun, ruslasöfnun. Forritunarmálin Scheme, CAML, Java, Morpho, C++ og Haskell verða skoðuð. Hlutbundin forritunarmál. Hlutir og erfðir. Listavinnsla og fallsforritun. Lýsing forritunarmála. Málfræði, uppbygging þýðenda. Áhersla er lögð á einingaforritun (einkum fjölnota einingar), listavinnslu, fallsforritun, og bálkmótun.
Tölvutækni og forritun (TÖL309G)
Námskeiðið fjallar um innri gerð tölva og hvernig best er að haga forritun til að nýta sem best eiginleika nútíma tölva. Farið verður í forritunarmálið C og sér í lagi fjallað um benda og minnisnotkun. Táknun heiltalna og kommutalna í tölvum. Forritun í x86-64 smalamáli. Sérstaklega verður skoðað hvernig aðgerðir í C eru útfærðar í smalamáli. Minnisstigveldi og áhrif þess á afköst forrita. Ferli og stýring þeirra. Útfærsla og notkun frábrigða í tölvum. Sýndarminni tölva.
Heimilt er að nýta aðstoð gervigreindarlausna við uppsetningu forrita og greiningu á villuskilaboðum við þýðingu forrita en óheimilt að nýta þær við úrlausnir á verkefnum.
Þróun hugbúnaðar (HBV401G)
Í þessu námskeiði stíga nemendur skrefið frá því að forrita sjálfir lítil forrit til að leysa vel skilgreind afmörkuð verkefni yfir í að vinna í hópi með öðrum að gerð stærri forritakerfa sem uppfylla stundum óljósar kröfur viðskiptavina. Námskeiðið fjallar um ýmsar grunnhugmyndir hugbúnaðarverkfræði til að fást við slík stærri kerfi, svo sem lipur hugbúnaðarferli, hugbúnaðarferli byggð á áætlunum, þarfaverkfræði, mat á vinnumagni, hlutbundna greiningu og hönnun, högun hugbúnaðar og þróun byggða á prófunum. Notkun þessara hugtaka er æfð í hópvinnuverkefnum þar sem nemendur þróa kerfi sem eru samsett úr minni þáttum og forrituð í Java.
Tölfræði og gagnavinnsla (STÆ209G)
Í byrjun námskeiðsins eru grunnhugtök tölfræðinnar kynnt til sögunnar, svo sem þýði, úrtak og breyta. Nemendur kynnast hinum ýmsu lýsistærðum og myndrænni framsetningu gagna. Því næst verður farið í grundvallaratriði líkindafræðinnar og helstu líkindadreifingar kynntar.
Síðasti hluti námskeiðsins snýr að ályktunartölfræði þar sem skoðuð verða tilgátupróf og öryggisbil fyrir meðaltöl, dreifni og hlutföll og farið verður í fervikagreiningu og aðhvarfsgreiningu. Nemendur læra beitingu allra ofangreindra aðferða í tölfræðihugbúnaðinum R.
Stýrikerfi (TÖL401G)
Innihald námskeiðsins nær yfir hugtök um stýrikerfi tölva.
Auk grunn undirstöðu í vélbúnaðarbyggingum tölva og almennri uppbyggingu stýrikerfa verður farið yfir helstu hugtök um ferla (processes) og þræði (threads) ásamt stjórnun þeirra, meginreglur um tímasetningar og tímasetninga fyrir reiknirit, samskipti og samstillingu milli ferla og vandamál sem tengjast sjálfheldu, meginreglur í minnisstjórnun þar á meðal sýndarminni og reiknirit fyrir síðuskipti, skjalakerfi og útfærslu þeirra, sem og stjórnun á geymslu gagna.
Ef tíminn leyfir þá verður fjallað um meginreglur er varða vernd og öryggi og þætti er snúa að dreifingu (t.d. hugtök dreifðra kerfa og dreifðra skjalkerfa). Í þessu námskeiði eru almenn hugtök kynnt sem notuð eru við innleiðingu stýrikerfa og sem forritunarhönnuður þarf að þekkja við hönnun á notendahugbúnaði.
Í námskeiðinu er ekki fjallað um smáatriði er varða útfærslu stýrikerfa. Þar sem við á eru stýrikerfi eins og Microsoft Windows og POSIX-samhæft UNIX-líkt kerfi (t.d. Linux) notuð sem tilviksrannsókn við útfærslu og stýrikerfisköll. Notkun á stýrikerfis þjónustu innan forritunarmála (t.d. C, C++ og Java) er sýnd á grundvelli forritunar viðmóta (API), sem ríkjandi kerfis bókasöfn (system libraries) bjóða upp á.
Greining reiknirita (TÖL403G)
Aðferðir við hönnun og greiningu á tímaflækju reiknirita. Kynning og greining á reikniritum fyrir röðun, leit, netafræði og fylkjareikning. Torleysanleg vandamál, nálgunaraðferðir og slembin reiknirit.
- Þriðja ár
- Haust
- Hugbúnaðarverkefni 1
- Vor
- Hugbúnaðarverkefni 2
Hugbúnaðarverkefni 1 (HBV501G)
Markmið námskeiðsins er að nemendur geti þróað hugbúnaðarkerfi, tekið þátt í hugbúnaðarverkefnum og hugleitt hugbúnaðarþróun.
Einn meginhluti námskeiðsins er þróun hugbúnaðar sem nemendur vinna að í teymum. Kennslan er verkefnismiðuð. Efni námskeiðsins spannar fyrri fasa hugbúnaðarþróunar, stærðarmat, hönnun og forritun og samstæðustjórnun.
Verkefni sem nemendur vinna að í námskeiðinu vinna þeir áfram í námskeiðinu HBV601G Hugbúnaðarverkefni 2.
Hugbúnaðarverkefni 2 (HBV601G)
Seinna námskeiðið af tveimur (HBV501G og HBV601G) þar sem nemendur vinna að umfangsmiklu hugbúnaðarverkefni í hópvinnu. Fínönnun, útfærsla, prófanir, uppsetning og afhending verkefnisins, sem var þarfagreint og hannað í námskeiðinu Hugbúnaðarverkefni 1. Útfærsla á skrefum. Forritunarstaðlar, skjölun, rekjanleiki og sönnun forrita. Gallalaus forritun. Mat á umfangi hugbúnaðarkerfa. Prófunaraðferðir. Prófanir og gæðamat á hugbúnaðarverkefnum. Rýni á hönnun og útfærslu. Uppsetning og viðtaka kerfa. Líftími hugbúnaðarkerfa. Mælingar í hugbúnaðargerð. Alþjóðlegir staðlar um þróun hugbúnaðar.
- Óháð námsári
- Heilsársnámskeið
- Mentor í Spretti
- Haust
- Grunnatriði siðferðislegrar hökkunar
- Ekki kennt á misserinuStarfsþjálfun
- Ekki kennt á misserinuViðhald hugbúnaðar
- Ekki kennt á misserinuLokaverkefni
- Verkfræði kröfugreiningar
- Ekki kennt á misserinuReiknigreind
- Tæknistjórnun
- Greining ferla og kerfa
- Hagverkfræði
- Verkefnastjórnun
- Vörustjórnun og umhverfismál
- Ekki kennt á misserinuGreining á frammistöðu tölvukerfa
- Skýjaforritun og stórgögn
- Gervigreind
- Netafræði
- Forritun snjalltækja
- Ekki kennt á misserinuTölvugrafík
- Ekki kennt á misserinuTölvunet og öryggi
- Ekki kennt á misserinuTölvuleikjaforritun
- Ekki kennt á misserinuFrá hugmynd að veruleika
- Samskipti manns og tölvu
- Dreifð kerfi
- Inngangur að djúpum tauganetum
- Skapandi gervigreind: Um áhrif gervigreindar á skapandi vinnu
- Ekki kennt á misserinuGervigreind fyrir jarðarkönnun keyrt á ofurtölvum
- Inngangur að gagnaöryggi
- Vor
- Inngangur að máltækni
- Þættir úr sögu og heimspeki vísindanna
- Málstofa í tölvunarfræði
- Örugg hugbúnaðargerð
- Ekki kennt á misserinuUndirstöður internetsins
- Gervigreind fyrir jarðarkönnun keyrt á ofurtölvum
- Sjálfaðlagandi aðferðir í netöryggi
- Starfsþjálfun
- Prófun hugbúnaðar
- Ekki kennt á misserinuLokaverkefni
- Vefforritun 2
- Hagnýt hugbúnaðarverkfræði
- Starfsnám í tölvunarfræði og hugbúnaðarverkfræði - grunnnám
- Aðgerðir í skipuheildum
- Aðgerðagreining
- Inngangur að kerfislíffræði
- Forritun ofurtölva
- Lífsferill gervigreindarlausna
- Þýðendur
- Ekki kennt á misserinuRökstudd forritun
- Ekki kennt á misserinuMálstofa í tölvunarfræði fyrir grunnnema
- Ekki kennt á misserinuFrá hugmynd að veruleika II
- Ekki kennt á misserinuReiknirit í lífupplýsingafræði
- Ekki kennt á misserinuKeppnisforritun
- Reiknirit í raunheimum
- Óháð misseri
- Ekki kennt á misserinuHagnýt dulritunarfræði
Mentor í Spretti (GKY001M)
Í námskeiðinu felast verkefni nemenda í því að starfa sem mentor fyrir þátttakendur á framhalds- og háskólastigi í verkefninu „Sprettur“. Mentorar sinna mikilvægu hlutverki við að styðja og hvetja aðra nemendur í námi og félagslífi. Hlutverk mentora er að skapa uppbyggjandi samband við þátttakendur, vera jákvæð fyrirmynd og taka þátt í sameiginlegum viðburðum sem skipulagðir eru innan Spretts. Mentor hlutverkið byggir á tengslamyndun og reglulegri samveru og felur í sér skuldbindingu gagnvart þeim nemendum sem mentor styður.
Sprettur er stuðningsverkefni fyrir nemendur með erlendan bakgrunn sem óska eftir auknum stuðningi til að efla námsárangur og þátttöku í háskólasamfélaginu. Nemendur í námskeiðinu starfa sem mentorar og eru tengdir saman við þátttakendur með hliðsjón af sameiginlegum áhugasviðum. Mentorar vinna jafnframt saman í hópum og í samráði við kennara og umsjónaraðila verkefnisins.
Nemendur geta valið að skrá sig í námskeiðið á haustönn, vorönn eða dreifa álaginu yfir báðar annir (allt skólaárið). Skipulag námskeiðsins tekur mið af þessu vali, en allar námskröfur eru þær sömu óháð annaskiptingu. Mentorar skipuleggja reglubundna samveru með þátttakendum í Spretti og verja að jafnaði þremur klukkustundum á mánuði í samveru með þátttakendum, þremur klukkustundum á mánuði í heimavinnuhópi og mæta í alls fimm málstofur.
Nemendur skila dagbókarfærslum á Canvas og þurfa að hanna og framkvæma námsupplifun fyrir þátttakendur í Spretti. Dagbókarfærslur byggjast á lesefni og gagnrýnum hugleiðingum um mentorstarfið og eigin reynslu af þátttöku í verkefninu. Námskeiðið er kennt á íslensku og ensku.
Að loknu námskeiði, og að uppfylltum öllum kröfum, fá nemendur 5 ECTS einingar auk formlegs vottorðs fyrir þátttöku og lok verkefnisins.
Nemendur fylla út rafrænt umsóknareyðublað og umsjónarkennari hefur samband við umsækjendur.
Frekari upplýsingar um verkefnið „Sprettur” má nálgast hér: www.hi.is/sprettur
Grunnatriði siðferðislegrar hökkunar (TÖL605M)
Siðferðisleg tölvuinnbrot er fræðigrein sem byggist á að greina öryggi kerfa út frá sjónarhóli árásarmanns. Með því að nota verkfæri og aðferðir sem illviljaðir tölvuinnbrotamenn beita öðlast siðferðislegir tölvuinnbrotamenn verðmætar upplýsingar sem nýtast til að styrkja öryggi kerfa.
Í námskeiðinu kynnast nemendur grunnhugtökum og aðferðum siðferðislegra tölvuinnbrota. Nemendur byrja á að setja upp öruggt tilraunastofuumhverfi með hjálp sýndarvélatækni. Á tveggja vikna fresti verður nýr hluti í aðferðafræði siðferðislegra tölvuinnbrota og tengd verkfæri kynnt. Nemendur skila inn vikulegum skýrslum sem sýna bæði fræðilegan og praktískan skilning á námsefninu.
Mælt er með að nemendur noti tölvu sem ræður við x86 sýndarvélahugbúnað. Makkar henta ekki eins vel. Nemendur sem hafa ekki viðeigandi vélbúnað geta notað sýndarvélar á netþjónum skólans í netöryggisumhverfi.
Starfsþjálfun (HBV004G)
Markmið starfsþjálfunarinnar er að þjálfa nemendur í að vinna störf undir handleiðslu sérfræðinga hjá fyrirtækjum og stofnunum. Verkefnin skulu tengjast einhverjum þeirra námsgreina sem kenndar eru við Námsbraut í tölvunarfræði og skulu þau reyna á þá þekkingu og færni sem nemandi hefur aflað sér þar.
Við upphaf starfstímans skal nemandi senda tölvupóst á umsjónarkennara sem skráður er hér í UGLA til að koma á sambandi.
Í lok starfstímans skal nemandi skila til umsjónarmanns:
- Skýrslu (u.þ.b. 3 bls.) um meginverkefni nemandans og tengslum þess við nám hans í tölvunarfræði/hugbúnaðarverkfræði. Í skýrslunni skal einnig koma fram hvaða námsmarkmið nemandinn setti sér í upphafi starfsþjálfunar og hvernig hann náði þeim í verkefnunum.
- Dagbók sem nemandi hefur haldið meðan á starfstíma stóð. Dagbókin skal fela í sér vikulegt yfirlit þar sem fram kemur hver verkefni vikunnar voru og hve miklum tíma var varið í einstök verkefni.
Starfsþjálfun telst ekki lokið fyrr en umsjónarmaður fyrirtækis/stofnunar hefur skilað staðfestingu á ástundun nemandans og verkefnavinnu og umsjónarmaður starfsþjálfunar hjá Námsbraut í tölvunarfræði hefur staðfest skilin.
Einkunnagjöf er staðið/fall.
ATH: Nemendur geta ekki skráð sig sjálfir í þetta námskeið heldur eru þeir skráðir í námskeiðið þegar þeir hafa tryggt sér starfsþjálfunarstöðu hjá fyrirtæki eða stofnun.
Allar starfsþjálfunarstöður verða auglýstar sérstaklega á Tengslatorgi (www.tengslatorg.hi.is ) í upphafi hvers kennslumisseris og nemendur sækja sérstaklega um að komast í starfsþjálfun. Umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi, þar sem nemendur tilgreina hvers vegna þeir hafa áhuga á að komast í starfsþjálfun hjá viðkomandi fyrirtæki skal senda á von-starfsthjalfun@hi.is
Bent er á að þátttaka í þessu námskeiði útilokar þátttöku í námskeiðunum HBV502G og HBV603G starfsnámi og lokaverkefni HBV261L.
Viðhald hugbúnaðar (HBV103M)
The first part of the course is based on flipped-classroom style weekly reading, videos and assignments on:
- Evolution of Software and Lehman’s laws,
- Maintenance processes,
- Metrics useful for maintenance,
- Software analysis,
- Re-engineering,
- Reverse engineering,
- Code Smells & Refactoring,
- Basics of (Regression-)Testing,
- Design principles to support change & Design Patterns,
- Tools for software maintenance (including advanced features of an IDE).
In the second part of this course, these techniques will be applied in order to maintain a real legacy software written in Java.
Note: while this is an "M" course, it is rather on MSc. level. BSc. students who take this course need to be advanced in their BSc. studies and you need solid Java programming experience: we will maintain a complex software and being able to understand how such a grown software works and to fix bugs is even more difficult to write such a software from scratch. Hence, you should have passed HBV501G Software Project 1, preferably even HBV601G Software Project 2. (It is impossible to maintain a software if you would not even be able to develop it.) Also, BSc. students should not take this course, if they know that they are going to continue with MSc. studies, because they might then experience a lack of suitable courses in their MSc. studies.
Lokaverkefni (HBV261L)
Lokaverkefni er námskeið þar sem nemendur vinna verkefni undir handleiðslu kennara innan námsbrautar í Tölvunarfræði. Nemendur þurfa sjálfir að finna verkefni og kennara sem er tilbúinn að leiðbeina þeim. Verkefnum er ekki úthlutað. Í flestum tilfellum er unnið að forriti/vefsíðu/appi en það er ekki skilyrði. Verkefni lýkur með skýrslu sem skilað er til kennarans og hann gefur í kjölfarið einkunn.
Viðmiðunarregla er að 6 eininga verkefni sé þriggja vikna vinna og 8 einingar svari til fjögurra vikna, og þar með eru gerðar meiri kröfur til 8 eininga verkefna.
Upplýsingar um skil á verkefni
Skil eru í maí fyrir júníbrautskráningu
Skil eru í september fyrir októberbrautskráningu
Skil eru í janúar fyrir febrúarbrautskráningu
Í upphafi misseris koma nemandi og leiðbeinandi sér upp tímalínu um skil á verkefni
Skil á fullbúnu verkefni til leiðbeinanda/umsjónarkennara er 10. maí/ september/ janúar
Skil nemanda inn á Skemmu eru í síðasta lagi 30. maí/ september/ janúar og senda þarf staðfestingu um samþykkt skil á nemvon@hi.is
Einkunn frá leiðbeinanda á að hafa borist skrifstofu í síðasta lagi 30. maí/ september/ janúar
Bent er á að þátttaka í þessu námskeiði útilokar þátttöku í námskeiðunum HBV004G, HBV502G og HBV603G starfsnámi.
Verkfræði kröfugreiningar (HBV301G)
Hugbúnaðarkröfur lýsa virkni, eiginleikum og takmörkunum hugbúnaðar og byggja á raunverulegum þörfir notenda og annarra hagsmunaaðila.
Í námskeiðinu er lögð áhersla á að skilja samhengi hugbúnaðarkerfa og beita aðferðum til að afla, greina, forgangsraða, skilgreina og staðfesta kröfur. Fjallað er um mismunandi tegundir krafna og hagsmunaaðila, framsetningu og gæði krafna, og hvernig tryggja má að þær séu skýrar, sannreynanlegar og framkvæmanlegar, auk þess að greina tengsl, ágreining og málamiðlanir milli þeirra.
Einnig er fjallað um breytingastjórnun og rekjanleika krafna yfir líftíma hugbúnaðar.
Nemendur vinna í hópum að verkefnum þar sem þeir beita aðferðum kröfugreiningar í raunverulegu samhengi.
Reiknigreind (IÐN102M)
Við hönnun á greind kerfi er þörf fyrir sjálfvirk kerfi sem læra að taka góðar ákvarðanir út frá eigin reynslu. Í námskeiðinu er kynnt fyrir nemendum styrkingalærdómur (e. reinforcement learning), reiknifræðileg nálgun þar sem kerfi endurbætast sjálfkrafa með gagnvirkni og umbun—án beinnar leiðsagnar. Fjallað er um Markov-ákvörðunarferli, kvik-bestun (e. dynamic programming), Monte Carlo aðferðir, bestun á stefnu (e. policy optimization), áætlanagerð, leitaraðferðir og djúp tauganet sem nálgunarlíkön. Námskeiðið sameinar fræðilega umfjöllun og verkefnavinnu þar sem nemendur fá tækifæri til að móta, greina og leysa stærðfræðileg líkön fyrir ákvörðunarverkefni. Jafnframt er lögð áhersla á ítrunarferli og gagnrýna umræðu um hvað það þýðir að reiknirit læri og hvaða áhrif sjálfstæð reiknigreind gæti haft á vísindi og samfélag.
Tæknistjórnun (IÐN103G)
Tilgangur námskeiðsins er að undirbúa nemendur undir störf í tæknifyrirtækjum og tæknimiðuðum skipuheildum. Farið verður í helstu þætti í reksti fyrirtækja og annarra skipuheilda og fjallað um hlutverk verkfræðinga og áskoranir sem þeir standa frammi fyrir. Nemendur kynnast greiningaraðferðum sem notaðar eru við ákvarðantöku, túlka niðurstöður þeirra og miðla munnlega og skriflega.
Greining ferla og kerfa (IÐN301G)
Markmiðið með námskeiðinu er að undirbúa nemendur í að greina ferla og kerfi. Farið verður í hvernig ferlum er lýst með það að markmiði að greina þá. Farið er í kortun ferla og hvernig uppgötva megi ferla. Farið verður í 3 aðferðir til að uppgötva ferla: staðreyndaleið, viðtalsleið og vinnustofuleið. Þegar ferlar liggja fyrir er hægt að greina þá. Farið er í bæði megindlegar og eigindlegar aðferðir við greiningu ferla. Kynntar verða eigindlegu aðferðirnar virðisgreining, rótargreining og áhættumat. Kynntar verða megindlegu aðferðirnar árangursmælingar, flæðisgreining, biðraðafræði og hermun.
Seinni hluti námskeiðsins fjallar um kerfi og greiningu kerfa. Fjallað verður um hvernig hægt er að lýsa heiminum sem kerfi. Farið verður í aðferðir til að lýsa kerfum eins og orsakarit og birgðir-og-flæði (e. stock and flow). Í lok námskeiðs verða bæði ferli og kerfi hermd.
Hagverkfræði (IÐN502G)
Markmið námskeiðsins er að gera nemendur færa um:
1. Að skilja helstu hugtök bókhalds, kostnaðarreiknings og fjárfestingarfræði.
2. Að nota aðferðir til að meta hagkvæmni verktæknilegra kosta.
3. Að gera reiknilíkan til að meta arðsemi fjárfestinga, virði fyrirtækja og verðleggja hlutabréf og skuldabréf.
Meðal námsefnis er bókhald, kostnaðarreikningar, greining á fjárstreymi, fjárfestingarfræði, mælikvarðar á arðsemi, þar á meðal núvirði og innri vextir, og gerð arðsemilíkana. Námskeiðinu lýkur með hópverkefnum þar sem nemendur æfa arðsemimat verkefna.
Verkefnastjórnun (IÐN503G)
Í námskeiðinu eru kennd grunnatriði í verkefnastjórnun. Farið verður yfir grunnhugtök, umhverfi og val verkefna, áætlunargerð, eftifylgni, stjórnun verkefnateyma og lok verkefna. Nemendur fá þjálfun í gerð verkefnaáætlana og að takast á við áskoranir við framkvæmd og lok verkefna. Sérstök áhersla er á notkun verkefnastjórnunar við tækninýsköpun í skipuheildum.
Vörustjórnun og umhverfismál (IÐN510M)
Tilgangur námskeiðsins er að fara í gegnum grundvallaratriði lokistik (vörustjórnunar), stjórnun aðfangakeðja og áhrif þeirra á umhverfið. Námskeiðið er í raun þríþætt þar sem byrjað er á að fara í gegnum þá þætti sem snúa að innkaupum á vörum og þjónustu ásamt stjórnun birgða. Því næst er tekið á þeim þáttum sem snúa að flutningum og dreifingu. Að lokum er áhrifum aðfangakeðja á umhverfi gert greinagóð skil og öllum þremur þáttunum steypt saman í eina heild sem styður sjálfbærni.
Námskeiðið er kennt með því fyrirkomulagi að haldnir eru fyrirlestrar til að útskýra fræðilega undirstöðu greinarinnar en til að fá aukinn skilning á einstökum þáttum verða reiknuð dæmi sem skila þarf inn til yfirferðar. Samhliða fyrirlestrum og dæmatímum verður unnið með fyrirtækjaspil í hópum auk þess að spila „The Beer game“ - þar sem þáttakendur leika hlutverk fyrirtækja sem og taka þátt í raunhæfum hlutverkum stjórnenda.
Greining á frammistöðu tölvukerfa (REI503M)
Kennt að jafnaði annað hvert ár.
Námskeiðið fjallar um gerð líkana af tölvu- og samskiptakerfum auk mælinga á frammistöðu. Stór dreifð tölvukerfi afgreiða þjónustubeiðnir (t.d. vefsíðufyrirspurnir) samhliða til að lágmarka svartíma og hámarka ánægju notenda. Aðrir mælikvarðar á frammistöðu eru afköst (afgreiddar beiðnir á tímaeiningu) og uppfylling samkomulags um þjónustustig. Meðal námsefnis eru stærðfræðilegar aðferðir til að meta og skilja slík kerfi, bæði veikleika þeirra og styrkleika, til dæmis varðandi hönnun, verkröðunaraðferðir og rekstrarstefnur. Umfjöllunin byggir á aðferðum aðgerðagreiningar, sér í lagi biðraðafræði og Markov-ferlum (fyrirfram þekking á þessum aðferðum er ekki krafa).
Eindregið er mælt með mætingu í tíma.
Skýjaforritun og stórgögn (REI504M)
Yfirlit yfir forritun ofurtölva og stórgögn, umhverfi ofurtölva, tölvunet og gagnalausnir og samhliða forritun. Innviðir fyrir geymslu gagna og þjónustur fyrir stórgögn, greining fyrir stórgögn, ”map-reduce” aðferðarfræðin, formuð og hálfformuð gögn. Hagnýt verkefni: (A) Nemendur nota Amazon Web Services (AWS) skýið eða sambærilega lausn til að setja upp fjöltölvuvefþjónustu og samsvarandi kerfi fyrir prófun á henni. (B) Nemendur leysa verkefni á stórgögnum með ”map-reduce” aðferðafræði á AWS skýinu.
Gervigreind (REI505M)
Fjallað er um hugtök, aðferðir og reiknirit á sviði gervigreindar, með áherslu á studdan og óstuddan lærdóm. Forvinnsla og myndræn framsetning gagna. Mat á gæðum líkana og val á líkönum. Línuleg aðhvarfsgreining, næstu nágrannar, stoðvigravélar, tauganet, ákvarðanatré og safnaðferðir. Djúpur lærdómur. Þyrpingagreining og k-means aðferðin. Nemendur útfæra einföld reiknirit í Python og læra á sérhæfða forritspakka. Námskeiðinu lýkur með hagnýtu verkefni.
Netafræði (STÆ520M)
Net, netamótanir og netaeinsmótanir. Hlutnet, spannandi hlutnet. Vegir, tengd net. Örvanet. Tvíhlutanet. Euler-net og Hamilton-net; setningar Chvátals, Pósa, Ores og Diracs. Keppnisnet. Tré, spannandi tré, trjáfylkjasetningin, Cayley-setningin. Vegin net, reiknirit Kruskals og Dijkstra. Flæðinet, setning um hámarksflæði og lágmarkssnið, Ford-Fulkerson-reikniritið, Menger-setningin. Spyrðingar, Berge-setningin, giftingarsetning Halls, König-Egerváry-setningin, Kuhn-Munkres-reikniritið. Óaðskiljanleg net, tvítengd net. Lagnet, Euler-formúla, Kuratowski-setningin, nykurnet. Greypingar neta í fleti, Ringel-Youngs-Mayer-setningin. Litanir, litunarsetning Heawoods, Brooks-setningin, litamargliða; leggjalitanir, Vizing-setningin.
Forritun snjalltækja (TÖL103M)
Námskeiðið býður upp á verklegan inngang að hönnun og forritun hugbúnaðar í örtölvum í samhengi IoT snjalltækja.
Svona tækieiga oft marga inn- og úttakspinnar, eitthvað af skyndiminni og geymsluminni, og þráðlausan samskiptabúnað (WiFi, Bluetooth, o.s.frv.).
Þessir eiginleikar gera tækin tilvalin fyrir ýmiss verkefni sem tengjast gagnasöfnun, úrvinnslu gagna og þráðlausum samskiptum.
Í þessum áfanga verða lögð fyrir verkefni aðra hverja viku sem tengjast meðal annars samskiptum yfir raðbundin (serial) tengi, gagnasöfnun og úrvinnsla, hönnun forrita fyrir rauntíma-stýrikerfi (RTOS), þráðlaus samskipti og TCP/IP samskipti sem miðlari/biðlari.
Áfanganum lýkur síðan með lokaverkefni sem er byggt á þessum þáttum.
Tölvugrafík (TÖL105M)
Megináhersla námskeiðsins er á grunnhugtök og stærðfræði fyrir þrívíddar tölvugrafík. Tvívíðar og þvívíðar varpanir. Sjónvörpun. Ljós og litun hluta. Mynsturvörpun, blöndun, holuvörpun. Forritanleg litun. Ferlar og yfirborð. Forritunarverkefni í WebGL.
Tölvunet og öryggi (TÖL305G)
Kennt að jafnaði annað hvert ár.
Námskeiðið er hagnýtt námskeið sem kennir nemendum undirstöðuatriði tölvuneta. Lögð er áhersla á staðarnet, 802.3 og 802.11, og jafnframt á TCP/IP. Farið er í greiningu á þörfum fyrir tölvunet og hönnun þeirra. Fjallað verður um hug- og vélbúnað sem notaður er til útfærslu tölvuneta. Uppsetning og viðhald tölvuneta. Öryggiskerfi fyrir tölvunet. Nemendur læra að greina hættur og bregðast við þeim.
Tölvuleikjaforritun (TÖL308G)
Umfjöllunarefnið er helstu aðferðir og verkefni sem tengjast forritun tölvuleikja. Verkefnin snúast meðal annars um stýringu rammatíðni, hlutastjórnun, löggengi, minnisstýringu og keyrsluafköst. Athyglinni verður sér í lagi beint að drifbúnaði tölvuleikja. Grundvallaratriði í gerð tölvuleikja með fjöldaþátttöku á netinu verða skoðuð. Skoðuð verða dæmi tengd einföldum tvíðvíðum leikjum, t.d. Asteroids og PacMan, en áherslan verður á almennar aðferðir sem einnig má beita við gerð háþróaðra nútímalegra tölvuleikja.
Frá hugmynd að veruleika (TÖL501G)
Námskeiðið hefur verið í þróun í rúman áratug undir nafninu „Tölvukerfi og markaðsmál“.
Námskeiðið byggist á fyrirlestrum kennara og einstaklings- og hópverkefnum sem hjálpa nemendum að hugsa út fyrir kassann. Kennari mun segja frá reynslu sinni af því að gera hugmynd að veruleika og mun hann ekki síður tala um þau mistök sem hafa verið gerð en það sem hefur heppnast.
Lokaverkefni námskeiðsins er viðskiptaáætlun sem varin er munnlega fyrir prófdómara. Viðskiptaáætlunin fjallar um hugmynd nemenda og hvernig hann vill hrinda henni í framkvæmd.
Samskipti manns og tölvu (TÖL502M)
Kennt að jafnaði annað hvert ár.
Markmið námskeiðsins er að leyfa nemendum að kafa dýpra í einstaka afmarkaða þætti í samskiptum manns og tölvu heldur en gert er námskeiðinu Viðmótsforritun HBV201G sem er inngangsnámskeið í faginu. Þættirnir eru hönnun notendaviðmóta með frumgerðum, forritun snjalltækja og viðtaka notenda á hugbúnaðinum. Lögð verður áhersla á mismunandi tækni og tól til að gera frumgerðir. Áhersla er á hönnun notendaviðmóta og útfærsla þeirra í snjallsíma eða spjaldtölva (native). Þróunarferli miðast allt við að tryggja aðgengileika búnaðarins og viðtöku notenda. Nemendur vinna að litlum einstaklingsverkefnum en einnig að stærri verkefnum í hópum.
Dreifð kerfi (TÖL503M)
Kennt að jafnaði annað hvert ár.
This course covers concepts of distributed systems and their application. Besides foundations on characteristics and models of distributed systems, networking and security, this includes network-based low-level interprocess communication, high-level remote procedure calls, the distributed object model and remote method invocation, services relevant in distributed systems (such as name services or distributed file systems), selected topics of distributed algorithms and their implementation (such as coordination, agreement, time, replication). Furthermore, special types of distributed systems may be covered (such as peer-to-peer systems, Cloud and Grid computing). Current technologies (such as Java RMI, Web Services, gRPC) are used as case study and as platform for developing distributed applications using high-level programming languages (such as Java).
Note: while this is an "M" course, it is rather on MSc. level. BSc. students who take this course need to be advanced in their BSc. studies. (E.g. we will implement middleware in Java, so you should have programming experience well beyond "TÖL101G Computer Science 1". As a middleware adds functionality on top of an Operating System, you should have also passed TÖL401G Operating Systems.)
Inngangur að djúpum tauganetum (TÖL506M)
Í þessu námskeiði förum við yfir djúp tauganet og helstu aðferðir tengdar þeim. Kynnt verða net og aðferðir fyrir mynd, hljóð og textagreiningu. Lögð verður áhersla á hagnýtingu lausna og munu nemendur t.a.m. kynna verkefni eða grein á þessu sviði.
Skapandi gervigreind: Um áhrif gervigreindar á skapandi vinnu (MFR715M)
Í námskeiðinu er fjallað um tengslin á milli gervigreindar og skapandi starfa sem taka örum breytingum. Áhersla er lögð á listrænar, heimspekilegar, siðfræðilegar, félagslegar og menningarlegar víddir sköpunar sem knúin er áfram af gervigreind. Byggt er á aðferðum hugvísinda og horft til sköpunafræða. Í námskeiðinu leitast nemendur við að skilja og leggja gagnrýnið mat á hvernig gervigreind er að endurmóta hefðbundinn skilning á sköpun, höfundarverki og listrænni framleiðslu í heild sinni. Eftir að lykilhugtök sköpunarfræða hafa verið kynnt til sögunnar færist áherslan á önnur leiðarstef, svo sem hvernig gervigreind getur sett sjálfvirkni inn í skapandi vinnu, áhrif gervigreindar á spurningar sem varða eignarhald á hugverkum og höfundarrétt ásamt siðferðilegum vanda sem kemur upp í tengslum við menningarlega yfirtöku á tímum stafrænnar tækni. Nemendur munu ræða um togstreituna á milli gervigreindariðnaðarins og stórgagnavinnslu sem hann gerir mögulega annars vegar og skapandi vinnu með smærri gagnasöfn hins vegar og afleiðingar hennar fyrir listrænar nýjungar og frumlega hugsun. Með raunhæfum æfingum og umræðu um áþreifanleg dæmi munu nemendur kynna sér ólíkar tegundir sköpunar, rannsaka tæknilegt umhverfi gervigreindar og öðlast hagnýta reynslu við að nýta gervigreind til skapandi verkefna. Námskeiðið tengir helstu kenningar samtímans um sköpun við gagnrýna greiningu á gervigreind, sem knýr nemendur til að hugsa upp á nýtt um mörk mannlegrar og vélrænnar sköpunar. Námsmat byggir á skapandi vinnudagbókum sem nemendur halda á meðan á námskeiðinu stendur. Sömuleiðis er gert ráð fyrir virkri þátttöku í tímum ásamt tímafyrirlestri þar sem kynnt verður stutt ritgerð.
Gervigreind fyrir jarðarkönnun keyrt á ofurtölvum (TÖV605M)
Í þessu námskeiði er farið yfir grundvallaratriði fjarkönnunar með gervitunglum, aðferðir á sviði tölvusjónar sem byggja á djúpum tauganetum og hagnýtingu slíkra aðferða með ofurtölvum.
Námskeiðinu er skipt í fjóra hluta sem endurspegla þau fræðilegu hugtök sem farið er yfir í námskeiðinu og í hverjum hluta vinna nemendur verkefni sem tengist viðfangsefninu hverju sinni. Verkefnin tengjast öll fjarkönnun og myndaflokkun og nemendur vinna að verkefninu í gegnum misserið.
Inngangur að gagnaöryggi (TÖL029M)
Þetta námskeið byggir grunn að skilningi á lykilatriðum sem tengjast verndun upplýsinga, ákvörðun á verndarstigi og viðbrögð við öryggisatvikum, og hönnun á samræmdu raunhæfu upplýsingaöryggiskerfi, með viðeigandi innbrotsskynjun og tilkynningum. Tilgangur námskeiðsins er að veita nemandanum yfirsýn yfir svið upplýsingaöryggis og upplýsingatrygginga. Nemendur munu sjá ýmsar gerðir öryggisaðgerða, aðferðafræða og verklags. Umfjöllunin mun taka fyrir skoðun og vernd upplýsingaeigna, uppgötvun og viðbrögð við ógnum við upplýsingaeignir, verklagsreglur fyrir og eftir öryggisatvik, tæknileg og stjórnunarleg viðbrögð og yfirlit yfir skipulagningu upplýsingaöryggis og starfsmannahald. Meðal efnis eru áhættumat, auðkenning, veföryggi, öryggi forrita, persónuvernd og gagnavernd, kynning á dulmálskóðun, öryggisarkitektúr, eldveggir og önnur tæki og netskipulag.
Inngangur að máltækni (TÖL025M)
If requested, the course may be taught in English.
Í námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði í máltækni með áherslu á greiningu og vinnslu ritaðs máls. Farið verður yfir helstu kjarnaverkefni í máltækni og nytsemi þeirra. Helstu tól og málföng verða kynnt, auk þess sem farið verður sérstaklega yfir stöðu íslenskrar máltækni.
Áhersla verður lögð á aðferðir sem nýta greypingar, djúp tauganet og mállíkön við lausn hagnýtra verkefna auk þess sem farið verður yfir hvernig gervigreindaraðferðir hafa nær alfarið tekið yfir við vinnslu mannlegs máls.
Í námskeiðinu verða 6 heimaverkefni sem gilda 60% af lokaeinkunn námskeiðsins auk stærra lokaverkefnis sem gildir 40%. Auk þess verða verkefni í fyrirlestrum sem geta minnkað vægi heimaverkefna um 5% ef lágmarksfjölda er skilað.
Þættir úr sögu og heimspeki vísindanna (SAG448G)
Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum þróun og eðli vísinda með því að rekja dæmi úr vísindasögunni og nýleg viðhorf sem varða eðli, markmið og þróun vísinda. Sérstök áhersla verður lögð á sögu eðlisvísinda frá Aristótelesi fram á daga Newtons, þar á meðal hræringar í stjörnufræði í Vísindabyltingunni. Auk þessa verður saga þróunarkenningar Darwins skoðuð sérstaklega. Þá verður lögð sérstök áhersla á að skoða sögu vísinda út frá ólíkum hugmyndum um vísindalegar framfarir og út frá nýlegum hugmyndum um tengsl vísinda og samfélags. Námsefnið getur breyst með hliðsjón af áhugasviði nemenda.
Málstofa í tölvunarfræði (TÖL606M)
Nemendur í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði og reikniverkfræði sækja vikulega málstofu þar sem þeir flytja fyrirlestra um rannsóknarverkefni sín eða önnur áhugaverð viðfangsefni sem tengjast þeim.
Örugg hugbúnaðargerð (HBV506M)
Örugg hugbúnaðargerð felur í sér að greina og draga úr veikleikum til að minnka ógnun við hugbúnað. Nemendur öðlast í þessu námskeið skilning á öruggum vinnubrögðum í hugbúnaðargerð og hvernig hægt er að beita þeim í gegnum allan þróunarferil hugbúnaðar.
Nemendur munu (í teymum) hanna, þróa og viðhalda vefforriti fyrir viðskiptavin í samræmi við öruggar hugbúnaðarverkfræðilegar meginreglur. Nemendur munu sýna skilning sinn og verklega hæfni á öryggismati (hvítkassi og svartkassi) með því að prófa eigin forrit og forrit annarra teyma fyrir veikleika gegn OWASP 10 - helstu hættum vefforrita.
Því er gert ráð fyrir að nemendur hafi þekkingu á þróun vefforrita með notkun JavaScript.
Dæmi um kóða og námsefni verða veitt.
Að auki þurfa nemendur að hafa aðgang að viðeigandi rannsóknarumhverfi fyrir innbrotsprófanir og hafa náð grunnfærni í notkun tækja og aðferða við slíkar prófanir. Því er krafist að nemendur hafi lokið áfanganum TÖL605M - Grunnatriði siðferðislegrar hökkunar áður en þeir taka þennan áfanga. Nemendur sem ekki hafa lokið þeim áfanga en telja sig uppfylla skilyrðin ættu að hafa samband við kennara til að fara í gegnum stutt mat.
Undirstöður internetsins (RAF617M)
Fjarskipti nútímans einkennast af því að gögnin eru send eftir fastlínunetum stærstan hluta leiðarinnar en við seinasta spölinn er oft notuð þráðlaus tækni sem veitir þægindi þráðlausrar upplifunar. Nærri öll gögn sem send eru milli fólks eða tækja fara eftir fastlínukerfum stærstan hluta leiðarinnar. Fyrir verkfræðinga á sviði fjarskipta skiptir því afar miklu að hafa yfirgripsmikla þekkingu á fastlínunetum og þeim fjölbreyttu aðferðum sem beitt er á því sviði.
Í námskeiðinu verða kenndar helstu aðferðir við uppbyggingu stofnneta, ljósleiðaratækni verður kynnt og m.a.farið yfir DWDM, SDH, Ethernet, ATM og MPLS-TP. Á sviði aðgangsneta verður ítarlega fjallað um kopar-, kóax- og ljósleiðaranet, ADSL, VDSL, G.fast og fleiri meðlimi DSL fjölskyldunnar, kapalkerfi og DOCSIS staðalinn, FTTH og mismunandi útfærslur þeirra eins og virkt Ethernet og GPON.
Grunntækni fastlínuneta nútímans er IP tæknin og verða henni gerð góð skil allt frá bitaflutningslagi til notkunarlags. Á greinalagi verður lögð áhersla á Ethernet og MPLS. Farið verður í rása- og pakkaskiptingu, rásamiðuð og rásalaus fjarskipti. Þjónustuþáttum eins og PSTN, VoIP, IPTV, OTT og P2P verður lýst. Jafnframt verður fjallað um bakfæðingu þráðlausra neta eins og farsíma og Wi-Fi. Sýndarvæðing í fjarskiptum verður kynnt og fjallað um hugbúnaðardrifin net (SDN) ásamt sýndarvæðingu netaðgerða (NFV). Farið verður yfir laga- og regluumhverfi fjarskipta og fjallað um þætti eins og nethlutleysi, netnjósnir, skerðingu netfrelsis og aðila eins og Google, Apple, Microsoft og Netflix. Að lokum verður stuttlega farið í staðarnet (LAN) með áherslu á heimanet. Fjallað verður um beina, myndlykla, NAS, fjarskipti um raflínur (PLC), plastljósleiðara, MOCA og Wi-Fi kynnt til sögunnar.
Kennslan mun að mestu fara fram á fyrirlestra- og umræðuformi. Unnin verða verkefni á sviði IP fjarskipta en auk þess eiga nemendur að skrifa fjórar greinar um valið efni og halda stutta fyrirlestra um efnið.
Gervigreind fyrir jarðarkönnun keyrt á ofurtölvum (TÖV606M)
Námskeiðið veitir ítarlega umfjöllun um vélrænt nám og afkastamikla reiknivinnslu (High-Performance Computing, HPC) með áherslu á gervihnattafjarkönnun og jarðathuganir (Earth Observation, EO). Fjallað er um sögulega þróun jarðathugana, allt frá fyrstu loftmyndum til nútímalegra gervihnattakerfa á borð við Sentinel og Landsat, og sett er fram samhengi nútíma EO innan fordæmalauss stórgagnaumhverfis þar sem terabætum af myndgögnum er safnað daglega.
Námskeiðið byggir á grunnhugtökum hefðbundinnar pixlamiðaðrar myndgreiningar og leiðir nemendur áfram í nútímalegar aðferðir sem byggja á djúpnámi og svokölluðum grunngerðarlíkönum gervigreindar (AI foundation models). Lögð er áhersla á sjálfsnám og Transformer-byggðar tauganetsskipanir, sem gera kleift að draga fram mynstur og merkingu úr stórum, ómerktum gagnasöfnum. Fjallað er um hvernig þessar aðferðir eru að umbreyta greiningu EO-gagna umfram hefðbundnar, handsmíðaðar aðferðir.
Megináhersla námskeiðsins er á samspil stórskalavélræns náms og HPC. Nemendur kynnast því hvernig ofurtölvur og dreifð reiknivinnsla gera mögulega þjálfun, keyrslu og hagnýtingu landfræðilegra gervigreindarlíkana (Geospatial AI) fyrir jarðathuganir. Fjallað er um dreifða þjálfun, samsíða reiknirit, afkastabestun og nýtingu HPC-innviða. Einnig er farið yfir viðmiðunarprófanir og frammistöðumat, þar sem nemendur læra að nota stöðluð matskerfi og mælikvarða til að meta stigstærð, nýtni og nákvæmni líkana í raunverulegum EO-verkefnum.
Námskeiðið er að hluta til verklegt. Nemendur vinna að lokaverkefni yfir heilt misseri þar sem þeir hanna, innleiða og meta vélrænar námslausnir á raunverulegum EO-gagnasöfnum. Verkefnið er unnið með Python, opnum hugbúnaði og aðgengilegum líkanum. Markmið verkefnisins er að samþætta fræðilega þekkingu og hagnýta færni og undirbúa nemendur fyrir rannsóknir eða störf á sviði gervigreindar og jarðathugana.
Sjálfaðlagandi aðferðir í netöryggi (HBV012M)
Í þessu námskeiði verða skoðaðar leiðir til að þróa sjálfvirkar netöryggislausnir með aðferðum aðlagandi hugbúnaðarverkfræði. Slík kerfi búa yfir getu til sjálf-samstillingar, sjálf-bestunar, sjálf-viðgerða, sjálfsvarnar o.s.frv. á meðan á keyrslu stendur. Námskeiðið byggir á ramma Weyns um hinar sjö bylgjur sjálf-aðlagandi kerfa, þar sem viðeigandi tækni úr hverri bylgju er skoðuð og nýtt til að þróa öflugar sjálf-* lausnir á sviði netöryggis.
Námskeiðinu lýkur með lokaverkefni um námstengda aðlögun. Í verkefninu verður sjálfstæðum stórum mállíkönum (agentic LLMs) beitt á flókið vandamál í sjálfaðlagandi netöryggi.
Starfsþjálfun (HBV004G)
Markmið starfsþjálfunarinnar er að þjálfa nemendur í að vinna störf undir handleiðslu sérfræðinga hjá fyrirtækjum og stofnunum. Verkefnin skulu tengjast einhverjum þeirra námsgreina sem kenndar eru við Námsbraut í tölvunarfræði og skulu þau reyna á þá þekkingu og færni sem nemandi hefur aflað sér þar.
Við upphaf starfstímans skal nemandi senda tölvupóst á umsjónarkennara sem skráður er hér í UGLA til að koma á sambandi.
Í lok starfstímans skal nemandi skila til umsjónarmanns:
- Skýrslu (u.þ.b. 3 bls.) um meginverkefni nemandans og tengslum þess við nám hans í tölvunarfræði/hugbúnaðarverkfræði. Í skýrslunni skal einnig koma fram hvaða námsmarkmið nemandinn setti sér í upphafi starfsþjálfunar og hvernig hann náði þeim í verkefnunum.
- Dagbók sem nemandi hefur haldið meðan á starfstíma stóð. Dagbókin skal fela í sér vikulegt yfirlit þar sem fram kemur hver verkefni vikunnar voru og hve miklum tíma var varið í einstök verkefni.
Starfsþjálfun telst ekki lokið fyrr en umsjónarmaður fyrirtækis/stofnunar hefur skilað staðfestingu á ástundun nemandans og verkefnavinnu og umsjónarmaður starfsþjálfunar hjá Námsbraut í tölvunarfræði hefur staðfest skilin.
Einkunnagjöf er staðið/fall.
ATH: Nemendur geta ekki skráð sig sjálfir í þetta námskeið heldur eru þeir skráðir í námskeiðið þegar þeir hafa tryggt sér starfsþjálfunarstöðu hjá fyrirtæki eða stofnun.
Allar starfsþjálfunarstöður verða auglýstar sérstaklega á Tengslatorgi (www.tengslatorg.hi.is ) í upphafi hvers kennslumisseris og nemendur sækja sérstaklega um að komast í starfsþjálfun. Umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi, þar sem nemendur tilgreina hvers vegna þeir hafa áhuga á að komast í starfsþjálfun hjá viðkomandi fyrirtæki skal senda á von-starfsthjalfun@hi.is
Bent er á að þátttaka í þessu námskeiði útilokar þátttöku í námskeiðunum HBV502G og HBV603G starfsnámi og lokaverkefni HBV261L.
Prófun hugbúnaðar (HBV205M)
Usually taught every second year (typically in spring of odd years, but this is subject to change in 2024).
This course covers testing of software. Besides basic foundations, this includes both dynamic testing where the software under test is executed and static approaches where software and other artefacts produced during software development are investigated without executing them. The focus of this course is, however, on dynamic testing. The different levels of testing (component test, integration test, system and acceptance test) and types of testing (functional, non-functional, structural and change-related) are covered as well as different test design techniques (black box test and white box test). Furthermore, test management and principles of test tools are discussed. In addition, selected advanced topics may be covered (for example, test languages, testing of object-oriented software, test process improvement, agile testing). The covered topics are a superset of the International Software Testing Qualifications Board's (ISTQB) certified tester foundation level syllabus.
The first part of the course is based on flipped-classroom style weekly reading, videos and assignments. In the second part, students work independently on some project related to software testing.
Note: while this is an "M" course, it is rather on MSc. level. BSc. students who take this course need to be very advanced in their BSc. studies, i.e. have experience in programming languages, software development and applying it in some software project, but should also be familiar with theoretical concepts from automata theory.
Also, BSc. students should not take this course, if they know that they are going to continue with MSc. studies, because they might then experience a lack of suitable courses in their MSc. studies.
Lokaverkefni (HBV261L)
Lokaverkefni er námskeið þar sem nemendur vinna verkefni undir handleiðslu kennara innan námsbrautar í Tölvunarfræði. Nemendur þurfa sjálfir að finna verkefni og kennara sem er tilbúinn að leiðbeina þeim. Verkefnum er ekki úthlutað. Í flestum tilfellum er unnið að forriti/vefsíðu/appi en það er ekki skilyrði. Verkefni lýkur með skýrslu sem skilað er til kennarans og hann gefur í kjölfarið einkunn.
Viðmiðunarregla er að 6 eininga verkefni sé þriggja vikna vinna og 8 einingar svari til fjögurra vikna, og þar með eru gerðar meiri kröfur til 8 eininga verkefna.
Upplýsingar um skil á verkefni
Skil eru í maí fyrir júníbrautskráningu
Skil eru í september fyrir októberbrautskráningu
Skil eru í janúar fyrir febrúarbrautskráningu
Í upphafi misseris koma nemandi og leiðbeinandi sér upp tímalínu um skil á verkefni
Skil á fullbúnu verkefni til leiðbeinanda/umsjónarkennara er 10. maí/ september/ janúar
Skil nemanda inn á Skemmu eru í síðasta lagi 30. maí/ september/ janúar og senda þarf staðfestingu um samþykkt skil á nemvon@hi.is
Einkunn frá leiðbeinanda á að hafa borist skrifstofu í síðasta lagi 30. maí/ september/ janúar
Bent er á að þátttaka í þessu námskeiði útilokar þátttöku í námskeiðunum HBV004G, HBV502G og HBV603G starfsnámi.
Vefforritun 2 (HBV403G)
Framhald af vefforritun I þar sem farið er í umhverfi bakendaforritunar í node.js, smíði og tengingar við vefþjónustur og tengingar við gagnagrunna. Framenda forritasöfn/framework notuð til að setja upp framenda (React, Ember, Vue). Öryggismál sem huga þarf að þegar vefverkefni eru unnin. Verkefni felast í smíði vefja þar sem nýta skal það sem kennt er.
Hagnýt hugbúnaðarverkfræði (HBV404G)
Námskeiðið fjallar um lagaleg og hagfræðileg viðfangsefni hugbúnaðarverkfræði og hugbúnaðarverkefnastjórnunar.
Í fyrirlestrum, gestafyrirlestrum, málstofum og vinnu við hagnýt verkefni, mun námskeiðið skoða viðskiptalíkön fyrir þróun og/eða rekstur hugbúnaðar, kynna leiðir til áætlunar á stærð, tíma og mannaflaþarfa hugbúnaðar, áhættustjórnunar og verðmats, útskýra líkön fyrir hugbúnaðarleyfi og ræða mismunandi hliðar siðfræði, persónuverndar og öryggi í hugbúnaði.
Nýtt skyldunámskeið - fyrst kennt 2023-2024.
Starfsnám í tölvunarfræði og hugbúnaðarverkfræði - grunnnám (HBV603G)
Markmiðið er að tryggja starfsþjálfun undir faglegri handleiðslu reyndra stjórnenda hjá fyrirtækjum eða opinberum stofnunum sem tengjast tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði.
Hlutverk nemanda
• Vinna við eitt veigamikið verkefni
• Nemandi er í 5 mánaða starfsnámi frá byrjun janúar og fram í byrjun júní.
Nemandi má ekki taka Lokaverkefni (TÖL261L eða HBV261L)
Verkefni nemanda
Hér getur verið um að ræða þarfagreiningu, forritshönnun, forritun, prófanir hugbúnaðar, uppsetningu og rekstur tölvukerfa. Verkefnið skal vera á sviði tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði og reyna á þá þekkingu og færni sem nemandi hefur aflað sér í náminu. Lokaafurð starfsþjálfunar skal skilgreina í verkefnalýsingu, þ.e. hvað lokaskýrsla skuli innihalda. Umsjónarkennari starfsnáms þarf að samþykkja tillögu að verkefni.
Hlutverk fyrirtækis/stofnunar
• Fyrirtæki lætur nemanda í té vinnuaðstöðu og tilnefnir umsjónarmann innan fyrirtækis sem fylgist með vinnu hans.
• Nemandi er launþegi fyrirtækis og greiðir fyrirtæki nemanda laun samkvæmt nánari samningi þar um.
• Í upphafi starfsþjálfunar liggur fyrir hvaða verkefni nemandi á að sinna. Verkefnislýsing skal fylgja með samningi.
• Umsjónarmaður og nemandi hittast reglulega og meta framvindu verkefna.
Fullnusta starfsþjálfunar
• Í lok starfstímans skal skila til umsjónarkennara:
1. Lokaskýrslu nemanda (skv. skilgreiningu í verkefnislýsingu). Ef um er að ræða 24 ECTS námskeið skal nemandi skila áfangaskýrslu um miðbik starfsnámsins.
2. Dagbók sem nemandi hefur haldið meðan á starfsþjálfun stóð. Dagbókin skal fela í sér vikulegt yfirlit þar sem fram kemur hver verkefni vikunnar voru og hve miklum tíma var varið í einstök verkefni.
3. Staðfesting umsjónarmanns á ástundum nemanda og verkefnavinnu í lok starfsþjálfunar.
• Námskeiðinu telst ekki lokið fyrr en bæði umsjónarkennari starfsnáms og umsjónarmaður starfþjálfunar telja að viðunandi árangur hafi náðst og áfanga- og lokaskýrslum verið skilað.
Bent er á að þátttaka í þessu námskeiði útilokar þátttöku í námskeiðunum HBV004G og HBV502G starfsnámi og lokaverkefni HBV261L.
Aðgerðir í skipuheildum (IÐN201G)
Markmiðið með námskeiðinu er að undirbúa nemendur í að nálgast skipuheildir sem röð af aðgerðum. Farið verður í hvernig lýsa megi skipuheildum sem safni af aðgerðum sem framkvæma virðisaukandi verk. Fyrirtæki verða heimsókn og þeim lýst af nemendum. Farið verður í aðferðir til að lýsa aðgerðum, greina aðgerðir og setja fram aðgerðayfirlit. Nemendur kynnast greiningaraðferðum sem notaðar eru við lýsingu og greiningu aðgerða, túlka niðurstöður þeirra og miðla munnlega og skriflega.
Aðgerðagreining (IÐN401G)
Í námskeiðinu er nemendum kynnt hvernig gera á skipulega mynd af ákvörðunar- og bestunarverkefnum í aðgerðagreiningu.
Að námskeiði loknu eiga nemendur að hafa færni í að setja upp, greina og leysa stærðfræðileg líkön sem standa fyrir raunhæfum verkefnum og hvernig meta eigi lausn þeirra á gagnrýninn hátt. Tekin eru fyrir línuleg bestun og Simplex aðferðin, auk skyld fræðileg efni.
Námskeiðið kynnir auk þess stærðfræðileg líkön fyrir einstök verkefni; flutningsverkefni, úthlutunarverkefni, netverkefni og heiltölubestun. Nemendur kynnast einnig sérhæfðu forritunarmáli við líkangerð fyrir línulega bestun.
Inngangur að kerfislíffræði (LVF601M)
Kerfislíffræði er þverfaglegt svið sem rannsakar líffræðileg fyrirbæri byggt á samverkandi líffræðilegum þáttum. Í kerfislíffræði er sérstök áhersla lögð á það hvernig líffræðileg kerfi breytast yfir tíma. Í þessu námskeiði munum við fjalla sérstaklega um þá þætti kerfislíffræðinnar sem snúa að heilsu og sjúkdómum manna.
Þetta námskeið mun kynna 1) notkun líkana fyrir líffræðileg ferli (bæði genastjórnunarlíkön og efnaskiptalíkön); 2) frumulíffræðileg fyrirbæri sem stuðla að samvægi (e. homeostasis), t.d. þroskun vefja og seiglu örvera og 3) greiningu á sameindamynstri sem finnast í stórum erfðagreiningargögnum, sem tengjast sjúkdómum í mönnum og geta nýst í flokkun sjúklinga og uppgötvun lífmerkja. Þannig mun námskeiðið fjalla um notkun kerfislíffræðilegra aðferða á þremur helstu stigum líffræðinnar, þ.e. á sameindum, frumum og lífverum.
Námskeiðið felur í sér lestur og túlkun vísindagreina, útfærslu reiknirita, vinnslu á rannsóknarverkefni og kynningu á vísindalegum niðurstöðum.
Fyrirlestrar munu samanstanda af bæði (1) kynningu á grunnhugtökum kerfislíffræðinnar og (2) tölvukennslu þar sem Python forritunarmálið er notað. Námskeiðið verður kennt á ensku.
Forritun ofurtölva (REI204M)
Hönnun samhliða tölva og ýmis líkön af forritun þeirra. Högun tölva út frá samnota minni og út frá dreifðu minni með skeytaflutningi. Samhliða forritun tölvuklasa með MPI og samhliða forritun fjölkjarna tölva með OpenMP. Samhliða reiknirit við röðun, leit og ýmis verkefni í línulegri algebru og netafræði.
For a longer description refer to the English page.
Course topics will be very similar like HPC in Fall 2019:
http://www.morrisriedel.de/hpc-course-fall-2019
Lífsferill gervigreindarlausna (REI603M)
Í þessu námskeiði kynnumst við lífsferli gervigreindarlausna og hvernig þróa á rekstrarhæfar lausnir.
Við förum yfir eftirfarandi skref lífsferilsins:
- Gagnasöfnun og undirbúningur gagna
- Breytuval
- Þjálfun líkana
- Mat á gæðum líkana
- Líkön sett í rekstur
- Líkön sem þjónustur
- Hvernig vakta á líkön
- Hvernig viðhalda á líkönum
Yfir misserið verða þrjú stór verkefni þar sem nemendur keppa um að smíða gervigreindarlausnir.
Þýðendur (TÖL202M)
Hönnun forritunarmála. Skipulag og hönnun þýðenda. Lesgreinar, ofansæknir og neðansæknir þáttarar, þulusmiðir. Stórt einstaklingsverkefni.
Rökstudd forritun (TÖL212M)
Fjallað er um grundvallaratriði í rökstuddri forritun. Áhersla verður lögð á að nota rökstudda forritun til að þróa traust og sönnuð afbrigði af vel þekktum reikniritum, einkum á sviði leitar, röðunar og tvíleitartrjáa. Meðal reiknirita sem fjallað verður um eru ýmis afbrigði af insertion sort, selection sort, quicksort, helmingunarleit og leit í tvíleitartré. Áhersla verður lögð á að dýpka skilning nemenda á reikniritunum ásamt því að ná góðum tökum á rökstuddri forritun. Að hluta verða verkefni leyst með hjálp sannreyningartóla svo sem Dafny eða OpenJML.
Málstofa í tölvunarfræði fyrir grunnnema (TÖL602G)
Nemendur setji sig inn í tiltekið efni í tölvunarfræði, t.d. einhverja (fræðilega) aðferð, eitthvert reikniverkefni, eða eitthvert forritunarmál, með því að lesa viðeigandi fræðilegt efni. Þeir halda síðan fyrirlestur um efnið fyrir kennara sinn og samnemendur. Nemendur geta stungið upp á efni sem þeir hafa áhuga á eða valið efni sem kennari stingur upp á. Samhliða því að læra umfjöllunarefnið er markmið námskeiðsins að æfa sig í munnlegri framsetningu.
Frá hugmynd að veruleika II (TÖL602M)
Námskeiðið er framhaldsnámskeið af námskeiðinu „Frá hugmynd að veruleika“. Ætlast er til að nemendur haldi áfram að þróa hugmynd sína sem þeir voru með í námskeiðinu „Frá hugmynd að veruleika“. Ef nemendur eru ekki sáttir við fyrri hugmynd sína og telja sig vera komna með betri hugmynd þá er það í lagi og ef kennari er sáttur við nýju hugmyndina.
Nemendur þurfa að sækja um styrki í samkeppnissjóði. Æfa að kynna hugmynd sína fyrir hugsanlegum fjárfestum og samnemendum sínum.
Kennari mun fara yfir bókhaldsmál og áætlanagerð byggða á líkum.
Kennari mun fara yfir stofnun fyrirtækja og skattamál.
Reiknirit í lífupplýsingafræði (TÖL604M)
Efni námskeiðsins eru helstu reiknirit sem notuð eru í lífupplýsingafræði. Í upphafi er stutt yfirlit yfir erfðamengjafræði og reiknirit fyrir nemendur af öðrum sviðum. Námskeiðinu er skipt upp í nokkrar einingar og er hverri ætlað að fara yfir einstök verkefni í lífupplýsingafræði sem mótast af rannsóknarverkefnum. Hver eining samanstendur af verkefnislýsingu og aðferðum sem beitt er við úrlausn. Viðfangsefnin verða m.a. mynstraleit, strengjafjarlægð, samröðun gena og erfðamengja, þyrpingagreining, raðgreining og myndun erfðamengja og að lokum aðferðir við úrvinnslu úr háhraðaraðgreiningar gögnum.
Keppnisforritun (TÖL607G)
Í þessu námskeiði fá nemendur þjálfun í að leysa reikniverkefni af þeim toga sem oft koma fyrir í forritunarkeppnum. Færni til að leysa slík verkefni nýtist ekki eingöngu við keppnisforritun heldur kemur hún einnig að gagni við almenna forritun, í framhaldsnámskeiðum í tölvunarfræði og í atvinnuviðtölum.
Fjallað verður um helstu reiknirit og lausnaraðferðir sem koma við sögu í keppnisverkefnum. Ennfremur verður farið í netreiknirit, strengjavinnslu, reiknirúmfræði og talningafræði. Nemendur verja mestum hluta tíma síns í að forrita lausnir á keppnisverkefnum.
Reiknirit í raunheimum (TÖL608M)
Kennt að jafnaði annað hvert ár.
Í námskeiðinu verður farið yfir hönnun og greiningu reiknirita, með sérstaka áherslu á reiknirit sem vinna á stórum gagnasettum og eru notuð í raunverulegum verkefnum.
Reikniritin koma úr ýmsum áttum, m.a. þjöppun gagna og texta, villuleiðréttingar með leiðréttingarkóðum, leit í stórum textasöfnum fyrir leitarvélar, samhliða vinnsla, GPU forritun, straumareiknirit, slembin reiknirit, nágrannaleit í margvíðum gögnum.
Hagnýt dulritunarfræði (TÖL213M)
Í þessu námskeiði nálgast nemendur dulritun á hagnýtan hátt: þeir byggja, greina og brjóta dulritunarútfærslur. Fyrri hluti námskeiðsins felst í forritunarverkefnum og litlum stúdíum, en seinni hlutinn felst í lokaverkefni, hugbúnaðarverkefni sem nýtir dulritunartækni. Námskeiðið er að fullu metið með verkefnavinnu. Lokaverkefnið byggir á vikulegum kynningum fyrir kennara og það er skyldumæting á þessa fundi. Nemendur byrja á að læra um, útfæra og rannsaka sögulegar dulritunaraðferðir, svo sem Caesar-dulmálið, og halda síðan áfram með nútímalausnir á borð við AES og TLS. Þeir munu einnig læra um hlutverk dulritunar í samfélaginu í víðara samhengi með því að kanna hvernig umdeild tækni, svo sem enda-í-enda dulritun og Tor, hefur áhrif á réttlæti og persónuvernd.
Námskeiðið mun ná yfir eftirfarandi þætti:
1. Útfærsla og rannsókn á grunnþáttum dulritunar í forritunarmáli að eigin vali.
2. Aðferðir við að hanna hugbúnaðarlausnir sem nýta grunnþætti dulritunar og samskiptareglur.
3. Gerð ógnalíkana fyrir dulritunarútfærslur og hagnýtar árásir á þær.
4. Hugbúnaðarverkefni sem sýnir beitingu dulritunar á raunverulegt viðfangsefni.
- Haust
- Námskeiðslýsing
Þetta námskeið er systurnámskeið Tölvufærni 2. Í námskeiðunum er snert á mörgum hlutum sem tengjast tölvufærni. Markmið námskeiðsins er að kynna nemandann fyrir ýmsum hugtökum án þess þó að kafa djúpt í hvert hugtak.
Kynning á stýrikerfinu Unix. Skipulag skráakerfis, helstu hjálparforrit, gluggakerfi, skipanalínuvinnsla og skeljarforritun. Einnig er farið yfir ritla í skelinni og höndlun gagna í henni. Ritvinnslukerfið LaTeX.
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinuSjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er fjallað um undirstöðuatriði stærðfræðigreiningarinnar auk fylkjareiknings. Meginviðfansefni eru fallahugtakið, helstu föll stærðfræðigreiningarinnar (lograr, veldisvísisföll, hornaföll), markgildi, samfelldni, deildanleg föll, reglur um afleiður, afleiður af hærra stigi, stofnföll, notkun deildareiknings (svo sem útgildisverkefni og línuleg nálgun), meðalgildissetningin, heildun, ákveðin heildi og reiknireglur fyrir þau, undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar, heildunartækni, óeiginleg heildi, afleiðujöfnur, vigrar og fylkjareikningur.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingAth.: Einingar til BS-prófs gilda aðeins fyrir annaðhvort TÖL101G Tölvunarfræði 1 eða TÖL105G Tölvunarfræði 1a.
Java forritunarmálið er notað til að kynna grunnhugtök í tölvuforritun: Tjáning og fullyrðingar, texta- og tölulegar gagnategundir, aðstæður og lykkjur, fylki, aðferðir, flokkar og hluti, inntak og úttak. Forritun og kembiforrit eru stunduð í spurningakeppnum og verkefnum alla önnina.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingYrðingar, umsagnir og rökleiðingar. Mengjareikningur og Boolealgebrur. Þrepun og endurkvæmni. Grunnaðferðir við greiningu reiknirita og talningu. Einföld reiknirit í talnafræði. Vensl, eiginleikar þeirra og framsetning. Tré og net og einföld reiknirit tengd þeim.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingKenndur er grunnur í vefsmíði með áherslu á framenda: HTML, CSS og JavaScript.
Staðlar, venjur og það sem þarf til að útbúa góða vefi. Hönnun, útlit og að vinna með hönnunarskjöl.
Forritun í túlkaða forritunarmálinu JavaScript, tenging þess við vafra og tól tengdum því. HTTP staðallinn kynntur.
Verkefni felast í smíði vefja þar sem nýta skal það sem kennt er.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
NámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði munu nemendur þjálfa forritun grafísks notendaviðmóts í Java og læra um helstu skref í þróun hugbúnaðarverkefnis frá hugmyndavinnu til prófana. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist meiri færni í forritun stærri verkefna en í byrjendanámskeiði í forritun (TÖL101G), geti hannað gagnvirkt notendaviðmót, forritað það og prófað. Í því felst að nemendur geti kynnt sér stór forritasöfn (hér JavaFX) og notað þau. Einnig að nemendur geti lesið, skilið og útfært fyrirmæli um virkni, þ.m.t. gagnvirkni. Nemendur munu kynnast hönnunarferli sem samanstendur af fimm sprettum, skilja verkefnið, skissa hugmyndir og gagnvirkni, velja úr og skilgreina, forrita frumgerð og að kokum prófa og ígrunda. Gefin er innsýn í efnisatriði eins og notendamiðaða þróun, hönnun gagnvirkni, frumgerðir og notendaprófanir.
Námskeiðið mun undirbúa nemendur fyrir námskeiðin Þróun hugbúnaðar og Hugbúnaðarverkefni 1 og þau námskeið þar sem nemendur þurfa að forrita. Námskeiðið er einnig góður grunnur fyrir námskeið eins og TÖL502M Samskipti manns og tölvu.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingEiningar til BS-prófs gilda aðeins fyrir annaðhvort REI201G Stærðfræði og reiknifræði eða STÆ107G Línuleg algebra.
Skekkjumat við fleytitölureikninga. Lausn ólinulegra jafna með ítrekun. Reiknifræðileg forritun í Python. Vigrar, fylki, lausn línulegra jöfnuhneppa, aðhvarfsgreining.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNámskeiðið mun nota forritunarmálið Java. Fjallað er um gagnaskipan, reiknirit og huglæg gagnatög. Meðal gagnaskipana, sem farið er yfir, eru listar, hlaðar, biðraðir, forgangsbiðraðir, tré, tvítré, tvíleitartré og hrúgur auk viðkomandi reiknirita. Kynnt verða ýmis leitar- og röðunarreiknirit. Reiknirit eru greind, hvað þau taka langan tíma í vinnslu og hve mikið minnisrými. Forritunarverkefni, sem nota áðurnefnda gagnaskipan og reiknirit, eru leyst í Java. Mörg lítil forritunarverkefni verða í námskeiðinu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÞetta námskeið er systurnámskeið Tölvufærni 1. Í námskeiðunum er snert á mörgum hlutum sem tengjast tölvufærni. Markmið námskeiðsins er að kynna nemandann fyrir ýmsum hugtökum án þess þó að kafa djúpt í hvert hugtak.
Farið er yfir útgáfustjórnunarkerfi eins og Git, notkun aflúsunaraðferða og aðferða til að byggja hugbúnað. Farið er yfir algeng hugtök í dulmálsfræðum og kynnt eru hugtök á borð við sýndarvélar og gáma.
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinuSjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðTÖV201GGreining og hönnun stafrænna rásaSkyldunámskeið6Skyldunámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingVirkni og notkun flétturása, kóðara, afkóðara, lesminni (ROM), og forritanlegs rökrásabúnaðar við rásahönnun. Hönnun og greining reiknirása, samleggjari/frádragari, margfaldari. Hönnun og greining runurása bæði samhæfðar og ósamhæfðar. Farið verður í hönnun rása með D og JK vippum. Sérstakar runurásir, teljarar og hliðrunargisti. Meðhöndlun og notkun stöðuvéla (FSM). Stöðulágmörkun, stöðustjórnun, stöðukennsl. Runuvinnsla með stöðuvélum. Grundvallaratriði í notkun vélhermimáls (HDL) og forritanlegs rása búnaðar (FPGA) í samræmi við fyrrnefndar rásir. Nemendur munu skila sjö verklegum verkefnum sem byggja á stafrænni rásahönnun, Verilog og FPGA. Auk þess munu nemendur kynnast eldri aðferðum með notkun á tengibrettum til að byggja rásir nokkurra valinna verkefna.
Á síðari vikum námskeiðsins verður farið í hönnun flóknari rása með verilog og FPGA. Fjallað verður um kerfi á kubb ofl. Sem tengist notkunn FPGA og Xilinx hönnunarumhverfisins.
Markmið: Meðal markmiða námskeiðsins er að nemendur átti sig á grundvallaratriðum á greiningu og hönnun stafrænna rása og öðlist reynslu og þekkingu á leiðandi aðferðum við hönnun stafrænna rása.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Haust
- Námskeiðslýsing
Endanlegar stöðuvélar, regluleg mál og málskipan, staflavélar, samhengisóháð mál og málskipan, Turingvélar, almenn mál og málskipan og helstu eiginleikar þeirra.
Ávarðanleg og listanleg mál, yfirfærsla milli mála, tengsl við ákvörðnarverkefni og sönnun á óleysanleika slíkra verkefna. Flækjustigsflokkarnir P og NP og NP-fullkomleiki. Dæmi um ýmis líkön af reiknanleika.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingGagnasöfn og gagnasafnskerfi. Einindavenslalíkanið. Töflulíkanið og töflualgebra. SQL fyrirspurnarmálið. Hagkvæmni geymsluaðferða og úrvinnsluaðferða. Fallákveður, lyklar og staðalskipulag gagna í venslalíkaninu. Bestun fyrirspurna. Hreyfingar, samhliða vinnsla hreyfinga og læsingar. Endurbygging gagnasafna. Öryggi gagnasafna og aðgangsheimildir. Vöruhús gagna.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingHelstu gerðir forritunarmála kynntar. Bálkmótuð mál, listavinnslumál, hlutbundin forritun. Lýsing forritunarmála, þýðendur og túlkar. Uppbygging bálkmótaðra mála. Einingaforritun. Föll og undirforrit, viðföng og samskipti. Minnismeðhöndlun, ruslasöfnun. Forritunarmálin Scheme, CAML, Java, Morpho, C++ og Haskell verða skoðuð. Hlutbundin forritunarmál. Hlutir og erfðir. Listavinnsla og fallsforritun. Lýsing forritunarmála. Málfræði, uppbygging þýðenda. Áhersla er lögð á einingaforritun (einkum fjölnota einingar), listavinnslu, fallsforritun, og bálkmótun.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNámskeiðið fjallar um innri gerð tölva og hvernig best er að haga forritun til að nýta sem best eiginleika nútíma tölva. Farið verður í forritunarmálið C og sér í lagi fjallað um benda og minnisnotkun. Táknun heiltalna og kommutalna í tölvum. Forritun í x86-64 smalamáli. Sérstaklega verður skoðað hvernig aðgerðir í C eru útfærðar í smalamáli. Minnisstigveldi og áhrif þess á afköst forrita. Ferli og stýring þeirra. Útfærsla og notkun frábrigða í tölvum. Sýndarminni tölva.
Heimilt er að nýta aðstoð gervigreindarlausna við uppsetningu forrita og greiningu á villuskilaboðum við þýðingu forrita en óheimilt að nýta þær við úrlausnir á verkefnum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
NámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði stíga nemendur skrefið frá því að forrita sjálfir lítil forrit til að leysa vel skilgreind afmörkuð verkefni yfir í að vinna í hópi með öðrum að gerð stærri forritakerfa sem uppfylla stundum óljósar kröfur viðskiptavina. Námskeiðið fjallar um ýmsar grunnhugmyndir hugbúnaðarverkfræði til að fást við slík stærri kerfi, svo sem lipur hugbúnaðarferli, hugbúnaðarferli byggð á áætlunum, þarfaverkfræði, mat á vinnumagni, hlutbundna greiningu og hönnun, högun hugbúnaðar og þróun byggða á prófunum. Notkun þessara hugtaka er æfð í hópvinnuverkefnum þar sem nemendur þróa kerfi sem eru samsett úr minni þáttum og forrituð í Java.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ byrjun námskeiðsins eru grunnhugtök tölfræðinnar kynnt til sögunnar, svo sem þýði, úrtak og breyta. Nemendur kynnast hinum ýmsu lýsistærðum og myndrænni framsetningu gagna. Því næst verður farið í grundvallaratriði líkindafræðinnar og helstu líkindadreifingar kynntar.
Síðasti hluti námskeiðsins snýr að ályktunartölfræði þar sem skoðuð verða tilgátupróf og öryggisbil fyrir meðaltöl, dreifni og hlutföll og farið verður í fervikagreiningu og aðhvarfsgreiningu. Nemendur læra beitingu allra ofangreindra aðferða í tölfræðihugbúnaðinum R.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingInnihald námskeiðsins nær yfir hugtök um stýrikerfi tölva.
Auk grunn undirstöðu í vélbúnaðarbyggingum tölva og almennri uppbyggingu stýrikerfa verður farið yfir helstu hugtök um ferla (processes) og þræði (threads) ásamt stjórnun þeirra, meginreglur um tímasetningar og tímasetninga fyrir reiknirit, samskipti og samstillingu milli ferla og vandamál sem tengjast sjálfheldu, meginreglur í minnisstjórnun þar á meðal sýndarminni og reiknirit fyrir síðuskipti, skjalakerfi og útfærslu þeirra, sem og stjórnun á geymslu gagna.
Ef tíminn leyfir þá verður fjallað um meginreglur er varða vernd og öryggi og þætti er snúa að dreifingu (t.d. hugtök dreifðra kerfa og dreifðra skjalkerfa). Í þessu námskeiði eru almenn hugtök kynnt sem notuð eru við innleiðingu stýrikerfa og sem forritunarhönnuður þarf að þekkja við hönnun á notendahugbúnaði.
Í námskeiðinu er ekki fjallað um smáatriði er varða útfærslu stýrikerfa. Þar sem við á eru stýrikerfi eins og Microsoft Windows og POSIX-samhæft UNIX-líkt kerfi (t.d. Linux) notuð sem tilviksrannsókn við útfærslu og stýrikerfisköll. Notkun á stýrikerfis þjónustu innan forritunarmála (t.d. C, C++ og Java) er sýnd á grundvelli forritunar viðmóta (API), sem ríkjandi kerfis bókasöfn (system libraries) bjóða upp á.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingAðferðir við hönnun og greiningu á tímaflækju reiknirita. Kynning og greining á reikniritum fyrir röðun, leit, netafræði og fylkjareikning. Torleysanleg vandamál, nálgunaraðferðir og slembin reiknirit.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Haust
- Námskeiðslýsing
Markmið námskeiðsins er að nemendur geti þróað hugbúnaðarkerfi, tekið þátt í hugbúnaðarverkefnum og hugleitt hugbúnaðarþróun.
Einn meginhluti námskeiðsins er þróun hugbúnaðar sem nemendur vinna að í teymum. Kennslan er verkefnismiðuð. Efni námskeiðsins spannar fyrri fasa hugbúnaðarþróunar, stærðarmat, hönnun og forritun og samstæðustjórnun.
Verkefni sem nemendur vinna að í námskeiðinu vinna þeir áfram í námskeiðinu HBV601G Hugbúnaðarverkefni 2.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
NámskeiðslýsingSeinna námskeiðið af tveimur (HBV501G og HBV601G) þar sem nemendur vinna að umfangsmiklu hugbúnaðarverkefni í hópvinnu. Fínönnun, útfærsla, prófanir, uppsetning og afhending verkefnisins, sem var þarfagreint og hannað í námskeiðinu Hugbúnaðarverkefni 1. Útfærsla á skrefum. Forritunarstaðlar, skjölun, rekjanleiki og sönnun forrita. Gallalaus forritun. Mat á umfangi hugbúnaðarkerfa. Prófunaraðferðir. Prófanir og gæðamat á hugbúnaðarverkefnum. Rýni á hönnun og útfærslu. Uppsetning og viðtaka kerfa. Líftími hugbúnaðarkerfa. Mælingar í hugbúnaðargerð. Alþjóðlegir staðlar um þróun hugbúnaðar.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Heilsársnámskeið
- Námskeiðslýsing
Í námskeiðinu felast verkefni nemenda í því að starfa sem mentor fyrir þátttakendur á framhalds- og háskólastigi í verkefninu „Sprettur“. Mentorar sinna mikilvægu hlutverki við að styðja og hvetja aðra nemendur í námi og félagslífi. Hlutverk mentora er að skapa uppbyggjandi samband við þátttakendur, vera jákvæð fyrirmynd og taka þátt í sameiginlegum viðburðum sem skipulagðir eru innan Spretts. Mentor hlutverkið byggir á tengslamyndun og reglulegri samveru og felur í sér skuldbindingu gagnvart þeim nemendum sem mentor styður.
Sprettur er stuðningsverkefni fyrir nemendur með erlendan bakgrunn sem óska eftir auknum stuðningi til að efla námsárangur og þátttöku í háskólasamfélaginu. Nemendur í námskeiðinu starfa sem mentorar og eru tengdir saman við þátttakendur með hliðsjón af sameiginlegum áhugasviðum. Mentorar vinna jafnframt saman í hópum og í samráði við kennara og umsjónaraðila verkefnisins.
Nemendur geta valið að skrá sig í námskeiðið á haustönn, vorönn eða dreifa álaginu yfir báðar annir (allt skólaárið). Skipulag námskeiðsins tekur mið af þessu vali, en allar námskröfur eru þær sömu óháð annaskiptingu. Mentorar skipuleggja reglubundna samveru með þátttakendum í Spretti og verja að jafnaði þremur klukkustundum á mánuði í samveru með þátttakendum, þremur klukkustundum á mánuði í heimavinnuhópi og mæta í alls fimm málstofur.
Nemendur skila dagbókarfærslum á Canvas og þurfa að hanna og framkvæma námsupplifun fyrir þátttakendur í Spretti. Dagbókarfærslur byggjast á lesefni og gagnrýnum hugleiðingum um mentorstarfið og eigin reynslu af þátttöku í verkefninu. Námskeiðið er kennt á íslensku og ensku.
Að loknu námskeiði, og að uppfylltum öllum kröfum, fá nemendur 5 ECTS einingar auk formlegs vottorðs fyrir þátttöku og lok verkefnisins.
Nemendur fylla út rafrænt umsóknareyðublað og umsjónarkennari hefur samband við umsækjendur.
Frekari upplýsingar um verkefnið „Sprettur” má nálgast hér: www.hi.is/sprettur
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Haust
NámskeiðslýsingSiðferðisleg tölvuinnbrot er fræðigrein sem byggist á að greina öryggi kerfa út frá sjónarhóli árásarmanns. Með því að nota verkfæri og aðferðir sem illviljaðir tölvuinnbrotamenn beita öðlast siðferðislegir tölvuinnbrotamenn verðmætar upplýsingar sem nýtast til að styrkja öryggi kerfa.
Í námskeiðinu kynnast nemendur grunnhugtökum og aðferðum siðferðislegra tölvuinnbrota. Nemendur byrja á að setja upp öruggt tilraunastofuumhverfi með hjálp sýndarvélatækni. Á tveggja vikna fresti verður nýr hluti í aðferðafræði siðferðislegra tölvuinnbrota og tengd verkfæri kynnt. Nemendur skila inn vikulegum skýrslum sem sýna bæði fræðilegan og praktískan skilning á námsefninu.
Mælt er með að nemendur noti tölvu sem ræður við x86 sýndarvélahugbúnað. Makkar henta ekki eins vel. Nemendur sem hafa ekki viðeigandi vélbúnað geta notað sýndarvélar á netþjónum skólans í netöryggisumhverfi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið starfsþjálfunarinnar er að þjálfa nemendur í að vinna störf undir handleiðslu sérfræðinga hjá fyrirtækjum og stofnunum. Verkefnin skulu tengjast einhverjum þeirra námsgreina sem kenndar eru við Námsbraut í tölvunarfræði og skulu þau reyna á þá þekkingu og færni sem nemandi hefur aflað sér þar.
Við upphaf starfstímans skal nemandi senda tölvupóst á umsjónarkennara sem skráður er hér í UGLA til að koma á sambandi.
Í lok starfstímans skal nemandi skila til umsjónarmanns:
- Skýrslu (u.þ.b. 3 bls.) um meginverkefni nemandans og tengslum þess við nám hans í tölvunarfræði/hugbúnaðarverkfræði. Í skýrslunni skal einnig koma fram hvaða námsmarkmið nemandinn setti sér í upphafi starfsþjálfunar og hvernig hann náði þeim í verkefnunum.
- Dagbók sem nemandi hefur haldið meðan á starfstíma stóð. Dagbókin skal fela í sér vikulegt yfirlit þar sem fram kemur hver verkefni vikunnar voru og hve miklum tíma var varið í einstök verkefni.
Starfsþjálfun telst ekki lokið fyrr en umsjónarmaður fyrirtækis/stofnunar hefur skilað staðfestingu á ástundun nemandans og verkefnavinnu og umsjónarmaður starfsþjálfunar hjá Námsbraut í tölvunarfræði hefur staðfest skilin.
Einkunnagjöf er staðið/fall.
ATH: Nemendur geta ekki skráð sig sjálfir í þetta námskeið heldur eru þeir skráðir í námskeiðið þegar þeir hafa tryggt sér starfsþjálfunarstöðu hjá fyrirtæki eða stofnun.
Allar starfsþjálfunarstöður verða auglýstar sérstaklega á Tengslatorgi (www.tengslatorg.hi.is ) í upphafi hvers kennslumisseris og nemendur sækja sérstaklega um að komast í starfsþjálfun. Umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi, þar sem nemendur tilgreina hvers vegna þeir hafa áhuga á að komast í starfsþjálfun hjá viðkomandi fyrirtæki skal senda á von-starfsthjalfun@hi.isBent er á að þátttaka í þessu námskeiði útilokar þátttöku í námskeiðunum HBV502G og HBV603G starfsnámi og lokaverkefni HBV261L.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuHBV103MViðhald hugbúnaðarValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingThe first part of the course is based on flipped-classroom style weekly reading, videos and assignments on:
- Evolution of Software and Lehman’s laws,
- Maintenance processes,
- Metrics useful for maintenance,
- Software analysis,
- Re-engineering,
- Reverse engineering,
- Code Smells & Refactoring,
- Basics of (Regression-)Testing,
- Design principles to support change & Design Patterns,
- Tools for software maintenance (including advanced features of an IDE).
In the second part of this course, these techniques will be applied in order to maintain a real legacy software written in Java.
Note: while this is an "M" course, it is rather on MSc. level. BSc. students who take this course need to be advanced in their BSc. studies and you need solid Java programming experience: we will maintain a complex software and being able to understand how such a grown software works and to fix bugs is even more difficult to write such a software from scratch. Hence, you should have passed HBV501G Software Project 1, preferably even HBV601G Software Project 2. (It is impossible to maintain a software if you would not even be able to develop it.) Also, BSc. students should not take this course, if they know that they are going to continue with MSc. studies, because they might then experience a lack of suitable courses in their MSc. studies.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingLokaverkefni er námskeið þar sem nemendur vinna verkefni undir handleiðslu kennara innan námsbrautar í Tölvunarfræði. Nemendur þurfa sjálfir að finna verkefni og kennara sem er tilbúinn að leiðbeina þeim. Verkefnum er ekki úthlutað. Í flestum tilfellum er unnið að forriti/vefsíðu/appi en það er ekki skilyrði. Verkefni lýkur með skýrslu sem skilað er til kennarans og hann gefur í kjölfarið einkunn.
Viðmiðunarregla er að 6 eininga verkefni sé þriggja vikna vinna og 8 einingar svari til fjögurra vikna, og þar með eru gerðar meiri kröfur til 8 eininga verkefna.
Upplýsingar um skil á verkefni
Skil eru í maí fyrir júníbrautskráningu
Skil eru í september fyrir októberbrautskráningu
Skil eru í janúar fyrir febrúarbrautskráninguÍ upphafi misseris koma nemandi og leiðbeinandi sér upp tímalínu um skil á verkefni
Skil á fullbúnu verkefni til leiðbeinanda/umsjónarkennara er 10. maí/ september/ janúar
Skil nemanda inn á Skemmu eru í síðasta lagi 30. maí/ september/ janúar og senda þarf staðfestingu um samþykkt skil á nemvon@hi.is
Einkunn frá leiðbeinanda á að hafa borist skrifstofu í síðasta lagi 30. maí/ september/ janúar
Bent er á að þátttaka í þessu námskeiði útilokar þátttöku í námskeiðunum HBV004G, HBV502G og HBV603G starfsnámi.
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðarNámskeiðslýsingHugbúnaðarkröfur lýsa virkni, eiginleikum og takmörkunum hugbúnaðar og byggja á raunverulegum þörfir notenda og annarra hagsmunaaðila.
Í námskeiðinu er lögð áhersla á að skilja samhengi hugbúnaðarkerfa og beita aðferðum til að afla, greina, forgangsraða, skilgreina og staðfesta kröfur. Fjallað er um mismunandi tegundir krafna og hagsmunaaðila, framsetningu og gæði krafna, og hvernig tryggja má að þær séu skýrar, sannreynanlegar og framkvæmanlegar, auk þess að greina tengsl, ágreining og málamiðlanir milli þeirra.
Einnig er fjallað um breytingastjórnun og rekjanleika krafna yfir líftíma hugbúnaðar.
Nemendur vinna í hópum að verkefnum þar sem þeir beita aðferðum kröfugreiningar í raunverulegu samhengi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingVið hönnun á greind kerfi er þörf fyrir sjálfvirk kerfi sem læra að taka góðar ákvarðanir út frá eigin reynslu. Í námskeiðinu er kynnt fyrir nemendum styrkingalærdómur (e. reinforcement learning), reiknifræðileg nálgun þar sem kerfi endurbætast sjálfkrafa með gagnvirkni og umbun—án beinnar leiðsagnar. Fjallað er um Markov-ákvörðunarferli, kvik-bestun (e. dynamic programming), Monte Carlo aðferðir, bestun á stefnu (e. policy optimization), áætlanagerð, leitaraðferðir og djúp tauganet sem nálgunarlíkön. Námskeiðið sameinar fræðilega umfjöllun og verkefnavinnu þar sem nemendur fá tækifæri til að móta, greina og leysa stærðfræðileg líkön fyrir ákvörðunarverkefni. Jafnframt er lögð áhersla á ítrunarferli og gagnrýna umræðu um hvað það þýðir að reiknirit læri og hvaða áhrif sjálfstæð reiknigreind gæti haft á vísindi og samfélag.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingTilgangur námskeiðsins er að undirbúa nemendur undir störf í tæknifyrirtækjum og tæknimiðuðum skipuheildum. Farið verður í helstu þætti í reksti fyrirtækja og annarra skipuheilda og fjallað um hlutverk verkfræðinga og áskoranir sem þeir standa frammi fyrir. Nemendur kynnast greiningaraðferðum sem notaðar eru við ákvarðantöku, túlka niðurstöður þeirra og miðla munnlega og skriflega.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmiðið með námskeiðinu er að undirbúa nemendur í að greina ferla og kerfi. Farið verður í hvernig ferlum er lýst með það að markmiði að greina þá. Farið er í kortun ferla og hvernig uppgötva megi ferla. Farið verður í 3 aðferðir til að uppgötva ferla: staðreyndaleið, viðtalsleið og vinnustofuleið. Þegar ferlar liggja fyrir er hægt að greina þá. Farið er í bæði megindlegar og eigindlegar aðferðir við greiningu ferla. Kynntar verða eigindlegu aðferðirnar virðisgreining, rótargreining og áhættumat. Kynntar verða megindlegu aðferðirnar árangursmælingar, flæðisgreining, biðraðafræði og hermun.
Seinni hluti námskeiðsins fjallar um kerfi og greiningu kerfa. Fjallað verður um hvernig hægt er að lýsa heiminum sem kerfi. Farið verður í aðferðir til að lýsa kerfum eins og orsakarit og birgðir-og-flæði (e. stock and flow). Í lok námskeiðs verða bæði ferli og kerfi hermd.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að gera nemendur færa um:
1. Að skilja helstu hugtök bókhalds, kostnaðarreiknings og fjárfestingarfræði.
2. Að nota aðferðir til að meta hagkvæmni verktæknilegra kosta.
3. Að gera reiknilíkan til að meta arðsemi fjárfestinga, virði fyrirtækja og verðleggja hlutabréf og skuldabréf.
Meðal námsefnis er bókhald, kostnaðarreikningar, greining á fjárstreymi, fjárfestingarfræði, mælikvarðar á arðsemi, þar á meðal núvirði og innri vextir, og gerð arðsemilíkana. Námskeiðinu lýkur með hópverkefnum þar sem nemendur æfa arðsemimat verkefna.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu eru kennd grunnatriði í verkefnastjórnun. Farið verður yfir grunnhugtök, umhverfi og val verkefna, áætlunargerð, eftifylgni, stjórnun verkefnateyma og lok verkefna. Nemendur fá þjálfun í gerð verkefnaáætlana og að takast á við áskoranir við framkvæmd og lok verkefna. Sérstök áhersla er á notkun verkefnastjórnunar við tækninýsköpun í skipuheildum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingTilgangur námskeiðsins er að fara í gegnum grundvallaratriði lokistik (vörustjórnunar), stjórnun aðfangakeðja og áhrif þeirra á umhverfið. Námskeiðið er í raun þríþætt þar sem byrjað er á að fara í gegnum þá þætti sem snúa að innkaupum á vörum og þjónustu ásamt stjórnun birgða. Því næst er tekið á þeim þáttum sem snúa að flutningum og dreifingu. Að lokum er áhrifum aðfangakeðja á umhverfi gert greinagóð skil og öllum þremur þáttunum steypt saman í eina heild sem styður sjálfbærni.
Námskeiðið er kennt með því fyrirkomulagi að haldnir eru fyrirlestrar til að útskýra fræðilega undirstöðu greinarinnar en til að fá aukinn skilning á einstökum þáttum verða reiknuð dæmi sem skila þarf inn til yfirferðar. Samhliða fyrirlestrum og dæmatímum verður unnið með fyrirtækjaspil í hópum auk þess að spila „The Beer game“ - þar sem þáttakendur leika hlutverk fyrirtækja sem og taka þátt í raunhæfum hlutverkum stjórnenda.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuREI503MGreining á frammistöðu tölvukerfaValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingKennt að jafnaði annað hvert ár.
Námskeiðið fjallar um gerð líkana af tölvu- og samskiptakerfum auk mælinga á frammistöðu. Stór dreifð tölvukerfi afgreiða þjónustubeiðnir (t.d. vefsíðufyrirspurnir) samhliða til að lágmarka svartíma og hámarka ánægju notenda. Aðrir mælikvarðar á frammistöðu eru afköst (afgreiddar beiðnir á tímaeiningu) og uppfylling samkomulags um þjónustustig. Meðal námsefnis eru stærðfræðilegar aðferðir til að meta og skilja slík kerfi, bæði veikleika þeirra og styrkleika, til dæmis varðandi hönnun, verkröðunaraðferðir og rekstrarstefnur. Umfjöllunin byggir á aðferðum aðgerðagreiningar, sér í lagi biðraðafræði og Markov-ferlum (fyrirfram þekking á þessum aðferðum er ekki krafa).
Eindregið er mælt með mætingu í tíma.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingYfirlit yfir forritun ofurtölva og stórgögn, umhverfi ofurtölva, tölvunet og gagnalausnir og samhliða forritun. Innviðir fyrir geymslu gagna og þjónustur fyrir stórgögn, greining fyrir stórgögn, ”map-reduce” aðferðarfræðin, formuð og hálfformuð gögn. Hagnýt verkefni: (A) Nemendur nota Amazon Web Services (AWS) skýið eða sambærilega lausn til að setja upp fjöltölvuvefþjónustu og samsvarandi kerfi fyrir prófun á henni. (B) Nemendur leysa verkefni á stórgögnum með ”map-reduce” aðferðafræði á AWS skýinu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingFjallað er um hugtök, aðferðir og reiknirit á sviði gervigreindar, með áherslu á studdan og óstuddan lærdóm. Forvinnsla og myndræn framsetning gagna. Mat á gæðum líkana og val á líkönum. Línuleg aðhvarfsgreining, næstu nágrannar, stoðvigravélar, tauganet, ákvarðanatré og safnaðferðir. Djúpur lærdómur. Þyrpingagreining og k-means aðferðin. Nemendur útfæra einföld reiknirit í Python og læra á sérhæfða forritspakka. Námskeiðinu lýkur með hagnýtu verkefni.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNet, netamótanir og netaeinsmótanir. Hlutnet, spannandi hlutnet. Vegir, tengd net. Örvanet. Tvíhlutanet. Euler-net og Hamilton-net; setningar Chvátals, Pósa, Ores og Diracs. Keppnisnet. Tré, spannandi tré, trjáfylkjasetningin, Cayley-setningin. Vegin net, reiknirit Kruskals og Dijkstra. Flæðinet, setning um hámarksflæði og lágmarkssnið, Ford-Fulkerson-reikniritið, Menger-setningin. Spyrðingar, Berge-setningin, giftingarsetning Halls, König-Egerváry-setningin, Kuhn-Munkres-reikniritið. Óaðskiljanleg net, tvítengd net. Lagnet, Euler-formúla, Kuratowski-setningin, nykurnet. Greypingar neta í fleti, Ringel-Youngs-Mayer-setningin. Litanir, litunarsetning Heawoods, Brooks-setningin, litamargliða; leggjalitanir, Vizing-setningin.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNámskeiðið býður upp á verklegan inngang að hönnun og forritun hugbúnaðar í örtölvum í samhengi IoT snjalltækja.
Svona tækieiga oft marga inn- og úttakspinnar, eitthvað af skyndiminni og geymsluminni, og þráðlausan samskiptabúnað (WiFi, Bluetooth, o.s.frv.).
Þessir eiginleikar gera tækin tilvalin fyrir ýmiss verkefni sem tengjast gagnasöfnun, úrvinnslu gagna og þráðlausum samskiptum.
Í þessum áfanga verða lögð fyrir verkefni aðra hverja viku sem tengjast meðal annars samskiptum yfir raðbundin (serial) tengi, gagnasöfnun og úrvinnsla, hönnun forrita fyrir rauntíma-stýrikerfi (RTOS), þráðlaus samskipti og TCP/IP samskipti sem miðlari/biðlari.
Áfanganum lýkur síðan með lokaverkefni sem er byggt á þessum þáttum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMegináhersla námskeiðsins er á grunnhugtök og stærðfræði fyrir þrívíddar tölvugrafík. Tvívíðar og þvívíðar varpanir. Sjónvörpun. Ljós og litun hluta. Mynsturvörpun, blöndun, holuvörpun. Forritanleg litun. Ferlar og yfirborð. Forritunarverkefni í WebGL.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuTÖL305GTölvunet og öryggiValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingKennt að jafnaði annað hvert ár.
Námskeiðið er hagnýtt námskeið sem kennir nemendum undirstöðuatriði tölvuneta. Lögð er áhersla á staðarnet, 802.3 og 802.11, og jafnframt á TCP/IP. Farið er í greiningu á þörfum fyrir tölvunet og hönnun þeirra. Fjallað verður um hug- og vélbúnað sem notaður er til útfærslu tölvuneta. Uppsetning og viðhald tölvuneta. Öryggiskerfi fyrir tölvunet. Nemendur læra að greina hættur og bregðast við þeim.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuTÖL308GTölvuleikjaforritunValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingUmfjöllunarefnið er helstu aðferðir og verkefni sem tengjast forritun tölvuleikja. Verkefnin snúast meðal annars um stýringu rammatíðni, hlutastjórnun, löggengi, minnisstýringu og keyrsluafköst. Athyglinni verður sér í lagi beint að drifbúnaði tölvuleikja. Grundvallaratriði í gerð tölvuleikja með fjöldaþátttöku á netinu verða skoðuð. Skoðuð verða dæmi tengd einföldum tvíðvíðum leikjum, t.d. Asteroids og PacMan, en áherslan verður á almennar aðferðir sem einnig má beita við gerð háþróaðra nútímalegra tölvuleikja.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuTÖL501GFrá hugmynd að veruleikaValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið hefur verið í þróun í rúman áratug undir nafninu „Tölvukerfi og markaðsmál“.
Námskeiðið byggist á fyrirlestrum kennara og einstaklings- og hópverkefnum sem hjálpa nemendum að hugsa út fyrir kassann. Kennari mun segja frá reynslu sinni af því að gera hugmynd að veruleika og mun hann ekki síður tala um þau mistök sem hafa verið gerð en það sem hefur heppnast.
Lokaverkefni námskeiðsins er viðskiptaáætlun sem varin er munnlega fyrir prófdómara. Viðskiptaáætlunin fjallar um hugmynd nemenda og hvernig hann vill hrinda henni í framkvæmd.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingKennt að jafnaði annað hvert ár.
Markmið námskeiðsins er að leyfa nemendum að kafa dýpra í einstaka afmarkaða þætti í samskiptum manns og tölvu heldur en gert er námskeiðinu Viðmótsforritun HBV201G sem er inngangsnámskeið í faginu. Þættirnir eru hönnun notendaviðmóta með frumgerðum, forritun snjalltækja og viðtaka notenda á hugbúnaðinum. Lögð verður áhersla á mismunandi tækni og tól til að gera frumgerðir. Áhersla er á hönnun notendaviðmóta og útfærsla þeirra í snjallsíma eða spjaldtölva (native). Þróunarferli miðast allt við að tryggja aðgengileika búnaðarins og viðtöku notenda. Nemendur vinna að litlum einstaklingsverkefnum en einnig að stærri verkefnum í hópum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingKennt að jafnaði annað hvert ár.
This course covers concepts of distributed systems and their application. Besides foundations on characteristics and models of distributed systems, networking and security, this includes network-based low-level interprocess communication, high-level remote procedure calls, the distributed object model and remote method invocation, services relevant in distributed systems (such as name services or distributed file systems), selected topics of distributed algorithms and their implementation (such as coordination, agreement, time, replication). Furthermore, special types of distributed systems may be covered (such as peer-to-peer systems, Cloud and Grid computing). Current technologies (such as Java RMI, Web Services, gRPC) are used as case study and as platform for developing distributed applications using high-level programming languages (such as Java).
Note: while this is an "M" course, it is rather on MSc. level. BSc. students who take this course need to be advanced in their BSc. studies. (E.g. we will implement middleware in Java, so you should have programming experience well beyond "TÖL101G Computer Science 1". As a middleware adds functionality on top of an Operating System, you should have also passed TÖL401G Operating Systems.)
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði förum við yfir djúp tauganet og helstu aðferðir tengdar þeim. Kynnt verða net og aðferðir fyrir mynd, hljóð og textagreiningu. Lögð verður áhersla á hagnýtingu lausna og munu nemendur t.a.m. kynna verkefni eða grein á þessu sviði.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMFR715MSkapandi gervigreind: Um áhrif gervigreindar á skapandi vinnuValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er fjallað um tengslin á milli gervigreindar og skapandi starfa sem taka örum breytingum. Áhersla er lögð á listrænar, heimspekilegar, siðfræðilegar, félagslegar og menningarlegar víddir sköpunar sem knúin er áfram af gervigreind. Byggt er á aðferðum hugvísinda og horft til sköpunafræða. Í námskeiðinu leitast nemendur við að skilja og leggja gagnrýnið mat á hvernig gervigreind er að endurmóta hefðbundinn skilning á sköpun, höfundarverki og listrænni framleiðslu í heild sinni. Eftir að lykilhugtök sköpunarfræða hafa verið kynnt til sögunnar færist áherslan á önnur leiðarstef, svo sem hvernig gervigreind getur sett sjálfvirkni inn í skapandi vinnu, áhrif gervigreindar á spurningar sem varða eignarhald á hugverkum og höfundarrétt ásamt siðferðilegum vanda sem kemur upp í tengslum við menningarlega yfirtöku á tímum stafrænnar tækni. Nemendur munu ræða um togstreituna á milli gervigreindariðnaðarins og stórgagnavinnslu sem hann gerir mögulega annars vegar og skapandi vinnu með smærri gagnasöfn hins vegar og afleiðingar hennar fyrir listrænar nýjungar og frumlega hugsun. Með raunhæfum æfingum og umræðu um áþreifanleg dæmi munu nemendur kynna sér ólíkar tegundir sköpunar, rannsaka tæknilegt umhverfi gervigreindar og öðlast hagnýta reynslu við að nýta gervigreind til skapandi verkefna. Námskeiðið tengir helstu kenningar samtímans um sköpun við gagnrýna greiningu á gervigreind, sem knýr nemendur til að hugsa upp á nýtt um mörk mannlegrar og vélrænnar sköpunar. Námsmat byggir á skapandi vinnudagbókum sem nemendur halda á meðan á námskeiðinu stendur. Sömuleiðis er gert ráð fyrir virkri þátttöku í tímum ásamt tímafyrirlestri þar sem kynnt verður stutt ritgerð.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuTÖV605MGervigreind fyrir jarðarkönnun keyrt á ofurtölvumValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði er farið yfir grundvallaratriði fjarkönnunar með gervitunglum, aðferðir á sviði tölvusjónar sem byggja á djúpum tauganetum og hagnýtingu slíkra aðferða með ofurtölvum.
Námskeiðinu er skipt í fjóra hluta sem endurspegla þau fræðilegu hugtök sem farið er yfir í námskeiðinu og í hverjum hluta vinna nemendur verkefni sem tengist viðfangsefninu hverju sinni. Verkefnin tengjast öll fjarkönnun og myndaflokkun og nemendur vinna að verkefninu í gegnum misserið.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÞetta námskeið byggir grunn að skilningi á lykilatriðum sem tengjast verndun upplýsinga, ákvörðun á verndarstigi og viðbrögð við öryggisatvikum, og hönnun á samræmdu raunhæfu upplýsingaöryggiskerfi, með viðeigandi innbrotsskynjun og tilkynningum. Tilgangur námskeiðsins er að veita nemandanum yfirsýn yfir svið upplýsingaöryggis og upplýsingatrygginga. Nemendur munu sjá ýmsar gerðir öryggisaðgerða, aðferðafræða og verklags. Umfjöllunin mun taka fyrir skoðun og vernd upplýsingaeigna, uppgötvun og viðbrögð við ógnum við upplýsingaeignir, verklagsreglur fyrir og eftir öryggisatvik, tæknileg og stjórnunarleg viðbrögð og yfirlit yfir skipulagningu upplýsingaöryggis og starfsmannahald. Meðal efnis eru áhættumat, auðkenning, veföryggi, öryggi forrita, persónuvernd og gagnavernd, kynning á dulmálskóðun, öryggisarkitektúr, eldveggir og önnur tæki og netskipulag.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
NámskeiðslýsingIf requested, the course may be taught in English.
Í námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði í máltækni með áherslu á greiningu og vinnslu ritaðs máls. Farið verður yfir helstu kjarnaverkefni í máltækni og nytsemi þeirra. Helstu tól og málföng verða kynnt, auk þess sem farið verður sérstaklega yfir stöðu íslenskrar máltækni.
Áhersla verður lögð á aðferðir sem nýta greypingar, djúp tauganet og mállíkön við lausn hagnýtra verkefna auk þess sem farið verður yfir hvernig gervigreindaraðferðir hafa nær alfarið tekið yfir við vinnslu mannlegs máls.
Í námskeiðinu verða 6 heimaverkefni sem gilda 60% af lokaeinkunn námskeiðsins auk stærra lokaverkefnis sem gildir 40%. Auk þess verða verkefni í fyrirlestrum sem geta minnkað vægi heimaverkefna um 5% ef lágmarksfjölda er skilað.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að kynna nemendum þróun og eðli vísinda með því að rekja dæmi úr vísindasögunni og nýleg viðhorf sem varða eðli, markmið og þróun vísinda. Sérstök áhersla verður lögð á sögu eðlisvísinda frá Aristótelesi fram á daga Newtons, þar á meðal hræringar í stjörnufræði í Vísindabyltingunni. Auk þessa verður saga þróunarkenningar Darwins skoðuð sérstaklega. Þá verður lögð sérstök áhersla á að skoða sögu vísinda út frá ólíkum hugmyndum um vísindalegar framfarir og út frá nýlegum hugmyndum um tengsl vísinda og samfélags. Námsefnið getur breyst með hliðsjón af áhugasviði nemenda.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNemendur í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði og reikniverkfræði sækja vikulega málstofu þar sem þeir flytja fyrirlestra um rannsóknarverkefni sín eða önnur áhugaverð viðfangsefni sem tengjast þeim.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÖrugg hugbúnaðargerð felur í sér að greina og draga úr veikleikum til að minnka ógnun við hugbúnað. Nemendur öðlast í þessu námskeið skilning á öruggum vinnubrögðum í hugbúnaðargerð og hvernig hægt er að beita þeim í gegnum allan þróunarferil hugbúnaðar.
Nemendur munu (í teymum) hanna, þróa og viðhalda vefforriti fyrir viðskiptavin í samræmi við öruggar hugbúnaðarverkfræðilegar meginreglur. Nemendur munu sýna skilning sinn og verklega hæfni á öryggismati (hvítkassi og svartkassi) með því að prófa eigin forrit og forrit annarra teyma fyrir veikleika gegn OWASP 10 - helstu hættum vefforrita.
Því er gert ráð fyrir að nemendur hafi þekkingu á þróun vefforrita með notkun JavaScript.
Dæmi um kóða og námsefni verða veitt.
Að auki þurfa nemendur að hafa aðgang að viðeigandi rannsóknarumhverfi fyrir innbrotsprófanir og hafa náð grunnfærni í notkun tækja og aðferða við slíkar prófanir. Því er krafist að nemendur hafi lokið áfanganum TÖL605M - Grunnatriði siðferðislegrar hökkunar áður en þeir taka þennan áfanga. Nemendur sem ekki hafa lokið þeim áfanga en telja sig uppfylla skilyrðin ættu að hafa samband við kennara til að fara í gegnum stutt mat.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuRAF617MUndirstöður internetsinsValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjarskipti nútímans einkennast af því að gögnin eru send eftir fastlínunetum stærstan hluta leiðarinnar en við seinasta spölinn er oft notuð þráðlaus tækni sem veitir þægindi þráðlausrar upplifunar. Nærri öll gögn sem send eru milli fólks eða tækja fara eftir fastlínukerfum stærstan hluta leiðarinnar. Fyrir verkfræðinga á sviði fjarskipta skiptir því afar miklu að hafa yfirgripsmikla þekkingu á fastlínunetum og þeim fjölbreyttu aðferðum sem beitt er á því sviði.
Í námskeiðinu verða kenndar helstu aðferðir við uppbyggingu stofnneta, ljósleiðaratækni verður kynnt og m.a.farið yfir DWDM, SDH, Ethernet, ATM og MPLS-TP. Á sviði aðgangsneta verður ítarlega fjallað um kopar-, kóax- og ljósleiðaranet, ADSL, VDSL, G.fast og fleiri meðlimi DSL fjölskyldunnar, kapalkerfi og DOCSIS staðalinn, FTTH og mismunandi útfærslur þeirra eins og virkt Ethernet og GPON.
Grunntækni fastlínuneta nútímans er IP tæknin og verða henni gerð góð skil allt frá bitaflutningslagi til notkunarlags. Á greinalagi verður lögð áhersla á Ethernet og MPLS. Farið verður í rása- og pakkaskiptingu, rásamiðuð og rásalaus fjarskipti. Þjónustuþáttum eins og PSTN, VoIP, IPTV, OTT og P2P verður lýst. Jafnframt verður fjallað um bakfæðingu þráðlausra neta eins og farsíma og Wi-Fi. Sýndarvæðing í fjarskiptum verður kynnt og fjallað um hugbúnaðardrifin net (SDN) ásamt sýndarvæðingu netaðgerða (NFV). Farið verður yfir laga- og regluumhverfi fjarskipta og fjallað um þætti eins og nethlutleysi, netnjósnir, skerðingu netfrelsis og aðila eins og Google, Apple, Microsoft og Netflix. Að lokum verður stuttlega farið í staðarnet (LAN) með áherslu á heimanet. Fjallað verður um beina, myndlykla, NAS, fjarskipti um raflínur (PLC), plastljósleiðara, MOCA og Wi-Fi kynnt til sögunnar.
Kennslan mun að mestu fara fram á fyrirlestra- og umræðuformi. Unnin verða verkefni á sviði IP fjarskipta en auk þess eiga nemendur að skrifa fjórar greinar um valið efni og halda stutta fyrirlestra um efnið.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðTÖV606MGervigreind fyrir jarðarkönnun keyrt á ofurtölvumValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið veitir ítarlega umfjöllun um vélrænt nám og afkastamikla reiknivinnslu (High-Performance Computing, HPC) með áherslu á gervihnattafjarkönnun og jarðathuganir (Earth Observation, EO). Fjallað er um sögulega þróun jarðathugana, allt frá fyrstu loftmyndum til nútímalegra gervihnattakerfa á borð við Sentinel og Landsat, og sett er fram samhengi nútíma EO innan fordæmalauss stórgagnaumhverfis þar sem terabætum af myndgögnum er safnað daglega.
Námskeiðið byggir á grunnhugtökum hefðbundinnar pixlamiðaðrar myndgreiningar og leiðir nemendur áfram í nútímalegar aðferðir sem byggja á djúpnámi og svokölluðum grunngerðarlíkönum gervigreindar (AI foundation models). Lögð er áhersla á sjálfsnám og Transformer-byggðar tauganetsskipanir, sem gera kleift að draga fram mynstur og merkingu úr stórum, ómerktum gagnasöfnum. Fjallað er um hvernig þessar aðferðir eru að umbreyta greiningu EO-gagna umfram hefðbundnar, handsmíðaðar aðferðir.
Megináhersla námskeiðsins er á samspil stórskalavélræns náms og HPC. Nemendur kynnast því hvernig ofurtölvur og dreifð reiknivinnsla gera mögulega þjálfun, keyrslu og hagnýtingu landfræðilegra gervigreindarlíkana (Geospatial AI) fyrir jarðathuganir. Fjallað er um dreifða þjálfun, samsíða reiknirit, afkastabestun og nýtingu HPC-innviða. Einnig er farið yfir viðmiðunarprófanir og frammistöðumat, þar sem nemendur læra að nota stöðluð matskerfi og mælikvarða til að meta stigstærð, nýtni og nákvæmni líkana í raunverulegum EO-verkefnum.
Námskeiðið er að hluta til verklegt. Nemendur vinna að lokaverkefni yfir heilt misseri þar sem þeir hanna, innleiða og meta vélrænar námslausnir á raunverulegum EO-gagnasöfnum. Verkefnið er unnið með Python, opnum hugbúnaði og aðgengilegum líkanum. Markmið verkefnisins er að samþætta fræðilega þekkingu og hagnýta færni og undirbúa nemendur fyrir rannsóknir eða störf á sviði gervigreindar og jarðathugana.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði verða skoðaðar leiðir til að þróa sjálfvirkar netöryggislausnir með aðferðum aðlagandi hugbúnaðarverkfræði. Slík kerfi búa yfir getu til sjálf-samstillingar, sjálf-bestunar, sjálf-viðgerða, sjálfsvarnar o.s.frv. á meðan á keyrslu stendur. Námskeiðið byggir á ramma Weyns um hinar sjö bylgjur sjálf-aðlagandi kerfa, þar sem viðeigandi tækni úr hverri bylgju er skoðuð og nýtt til að þróa öflugar sjálf-* lausnir á sviði netöryggis.
Námskeiðinu lýkur með lokaverkefni um námstengda aðlögun. Í verkefninu verður sjálfstæðum stórum mállíkönum (agentic LLMs) beitt á flókið vandamál í sjálfaðlagandi netöryggi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið starfsþjálfunarinnar er að þjálfa nemendur í að vinna störf undir handleiðslu sérfræðinga hjá fyrirtækjum og stofnunum. Verkefnin skulu tengjast einhverjum þeirra námsgreina sem kenndar eru við Námsbraut í tölvunarfræði og skulu þau reyna á þá þekkingu og færni sem nemandi hefur aflað sér þar.
Við upphaf starfstímans skal nemandi senda tölvupóst á umsjónarkennara sem skráður er hér í UGLA til að koma á sambandi.
Í lok starfstímans skal nemandi skila til umsjónarmanns:
- Skýrslu (u.þ.b. 3 bls.) um meginverkefni nemandans og tengslum þess við nám hans í tölvunarfræði/hugbúnaðarverkfræði. Í skýrslunni skal einnig koma fram hvaða námsmarkmið nemandinn setti sér í upphafi starfsþjálfunar og hvernig hann náði þeim í verkefnunum.
- Dagbók sem nemandi hefur haldið meðan á starfstíma stóð. Dagbókin skal fela í sér vikulegt yfirlit þar sem fram kemur hver verkefni vikunnar voru og hve miklum tíma var varið í einstök verkefni.
Starfsþjálfun telst ekki lokið fyrr en umsjónarmaður fyrirtækis/stofnunar hefur skilað staðfestingu á ástundun nemandans og verkefnavinnu og umsjónarmaður starfsþjálfunar hjá Námsbraut í tölvunarfræði hefur staðfest skilin.
Einkunnagjöf er staðið/fall.
ATH: Nemendur geta ekki skráð sig sjálfir í þetta námskeið heldur eru þeir skráðir í námskeiðið þegar þeir hafa tryggt sér starfsþjálfunarstöðu hjá fyrirtæki eða stofnun.
Allar starfsþjálfunarstöður verða auglýstar sérstaklega á Tengslatorgi (www.tengslatorg.hi.is ) í upphafi hvers kennslumisseris og nemendur sækja sérstaklega um að komast í starfsþjálfun. Umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi, þar sem nemendur tilgreina hvers vegna þeir hafa áhuga á að komast í starfsþjálfun hjá viðkomandi fyrirtæki skal senda á von-starfsthjalfun@hi.isBent er á að þátttaka í þessu námskeiði útilokar þátttöku í námskeiðunum HBV502G og HBV603G starfsnámi og lokaverkefni HBV261L.
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingUsually taught every second year (typically in spring of odd years, but this is subject to change in 2024).
This course covers testing of software. Besides basic foundations, this includes both dynamic testing where the software under test is executed and static approaches where software and other artefacts produced during software development are investigated without executing them. The focus of this course is, however, on dynamic testing. The different levels of testing (component test, integration test, system and acceptance test) and types of testing (functional, non-functional, structural and change-related) are covered as well as different test design techniques (black box test and white box test). Furthermore, test management and principles of test tools are discussed. In addition, selected advanced topics may be covered (for example, test languages, testing of object-oriented software, test process improvement, agile testing). The covered topics are a superset of the International Software Testing Qualifications Board's (ISTQB) certified tester foundation level syllabus.
The first part of the course is based on flipped-classroom style weekly reading, videos and assignments. In the second part, students work independently on some project related to software testing.
Note: while this is an "M" course, it is rather on MSc. level. BSc. students who take this course need to be very advanced in their BSc. studies, i.e. have experience in programming languages, software development and applying it in some software project, but should also be familiar with theoretical concepts from automata theory.
Also, BSc. students should not take this course, if they know that they are going to continue with MSc. studies, because they might then experience a lack of suitable courses in their MSc. studies.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingLokaverkefni er námskeið þar sem nemendur vinna verkefni undir handleiðslu kennara innan námsbrautar í Tölvunarfræði. Nemendur þurfa sjálfir að finna verkefni og kennara sem er tilbúinn að leiðbeina þeim. Verkefnum er ekki úthlutað. Í flestum tilfellum er unnið að forriti/vefsíðu/appi en það er ekki skilyrði. Verkefni lýkur með skýrslu sem skilað er til kennarans og hann gefur í kjölfarið einkunn.
Viðmiðunarregla er að 6 eininga verkefni sé þriggja vikna vinna og 8 einingar svari til fjögurra vikna, og þar með eru gerðar meiri kröfur til 8 eininga verkefna.
Upplýsingar um skil á verkefni
Skil eru í maí fyrir júníbrautskráningu
Skil eru í september fyrir októberbrautskráningu
Skil eru í janúar fyrir febrúarbrautskráninguÍ upphafi misseris koma nemandi og leiðbeinandi sér upp tímalínu um skil á verkefni
Skil á fullbúnu verkefni til leiðbeinanda/umsjónarkennara er 10. maí/ september/ janúar
Skil nemanda inn á Skemmu eru í síðasta lagi 30. maí/ september/ janúar og senda þarf staðfestingu um samþykkt skil á nemvon@hi.is
Einkunn frá leiðbeinanda á að hafa borist skrifstofu í síðasta lagi 30. maí/ september/ janúar
Bent er á að þátttaka í þessu námskeiði útilokar þátttöku í námskeiðunum HBV004G, HBV502G og HBV603G starfsnámi.
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðarNámskeiðslýsingFramhald af vefforritun I þar sem farið er í umhverfi bakendaforritunar í node.js, smíði og tengingar við vefþjónustur og tengingar við gagnagrunna. Framenda forritasöfn/framework notuð til að setja upp framenda (React, Ember, Vue). Öryggismál sem huga þarf að þegar vefverkefni eru unnin. Verkefni felast í smíði vefja þar sem nýta skal það sem kennt er.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNámskeiðið fjallar um lagaleg og hagfræðileg viðfangsefni hugbúnaðarverkfræði og hugbúnaðarverkefnastjórnunar.
Í fyrirlestrum, gestafyrirlestrum, málstofum og vinnu við hagnýt verkefni, mun námskeiðið skoða viðskiptalíkön fyrir þróun og/eða rekstur hugbúnaðar, kynna leiðir til áætlunar á stærð, tíma og mannaflaþarfa hugbúnaðar, áhættustjórnunar og verðmats, útskýra líkön fyrir hugbúnaðarleyfi og ræða mismunandi hliðar siðfræði, persónuverndar og öryggi í hugbúnaði.
Nýtt skyldunámskeið - fyrst kennt 2023-2024.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHBV603GStarfsnám í tölvunarfræði og hugbúnaðarverkfræði - grunnnámValnámskeið24Valnámskeið á námsleiðinni24 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmiðið er að tryggja starfsþjálfun undir faglegri handleiðslu reyndra stjórnenda hjá fyrirtækjum eða opinberum stofnunum sem tengjast tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði.
Hlutverk nemanda
• Vinna við eitt veigamikið verkefni
• Nemandi er í 5 mánaða starfsnámi frá byrjun janúar og fram í byrjun júní.
Nemandi má ekki taka Lokaverkefni (TÖL261L eða HBV261L)Verkefni nemanda
Hér getur verið um að ræða þarfagreiningu, forritshönnun, forritun, prófanir hugbúnaðar, uppsetningu og rekstur tölvukerfa. Verkefnið skal vera á sviði tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði og reyna á þá þekkingu og færni sem nemandi hefur aflað sér í náminu. Lokaafurð starfsþjálfunar skal skilgreina í verkefnalýsingu, þ.e. hvað lokaskýrsla skuli innihalda. Umsjónarkennari starfsnáms þarf að samþykkja tillögu að verkefni.
Hlutverk fyrirtækis/stofnunar
• Fyrirtæki lætur nemanda í té vinnuaðstöðu og tilnefnir umsjónarmann innan fyrirtækis sem fylgist með vinnu hans.
• Nemandi er launþegi fyrirtækis og greiðir fyrirtæki nemanda laun samkvæmt nánari samningi þar um.
• Í upphafi starfsþjálfunar liggur fyrir hvaða verkefni nemandi á að sinna. Verkefnislýsing skal fylgja með samningi.
• Umsjónarmaður og nemandi hittast reglulega og meta framvindu verkefna.
Fullnusta starfsþjálfunar
• Í lok starfstímans skal skila til umsjónarkennara:
1. Lokaskýrslu nemanda (skv. skilgreiningu í verkefnislýsingu). Ef um er að ræða 24 ECTS námskeið skal nemandi skila áfangaskýrslu um miðbik starfsnámsins.
2. Dagbók sem nemandi hefur haldið meðan á starfsþjálfun stóð. Dagbókin skal fela í sér vikulegt yfirlit þar sem fram kemur hver verkefni vikunnar voru og hve miklum tíma var varið í einstök verkefni.
3. Staðfesting umsjónarmanns á ástundum nemanda og verkefnavinnu í lok starfsþjálfunar.
• Námskeiðinu telst ekki lokið fyrr en bæði umsjónarkennari starfsnáms og umsjónarmaður starfþjálfunar telja að viðunandi árangur hafi náðst og áfanga- og lokaskýrslum verið skilað.Bent er á að þátttaka í þessu námskeiði útilokar þátttöku í námskeiðunum HBV004G og HBV502G starfsnámi og lokaverkefni HBV261L.
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMarkmiðið með námskeiðinu er að undirbúa nemendur í að nálgast skipuheildir sem röð af aðgerðum. Farið verður í hvernig lýsa megi skipuheildum sem safni af aðgerðum sem framkvæma virðisaukandi verk. Fyrirtæki verða heimsókn og þeim lýst af nemendum. Farið verður í aðferðir til að lýsa aðgerðum, greina aðgerðir og setja fram aðgerðayfirlit. Nemendur kynnast greiningaraðferðum sem notaðar eru við lýsingu og greiningu aðgerða, túlka niðurstöður þeirra og miðla munnlega og skriflega.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er nemendum kynnt hvernig gera á skipulega mynd af ákvörðunar- og bestunarverkefnum í aðgerðagreiningu.
Að námskeiði loknu eiga nemendur að hafa færni í að setja upp, greina og leysa stærðfræðileg líkön sem standa fyrir raunhæfum verkefnum og hvernig meta eigi lausn þeirra á gagnrýninn hátt. Tekin eru fyrir línuleg bestun og Simplex aðferðin, auk skyld fræðileg efni.
Námskeiðið kynnir auk þess stærðfræðileg líkön fyrir einstök verkefni; flutningsverkefni, úthlutunarverkefni, netverkefni og heiltölubestun. Nemendur kynnast einnig sérhæfðu forritunarmáli við líkangerð fyrir línulega bestun.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingKerfislíffræði er þverfaglegt svið sem rannsakar líffræðileg fyrirbæri byggt á samverkandi líffræðilegum þáttum. Í kerfislíffræði er sérstök áhersla lögð á það hvernig líffræðileg kerfi breytast yfir tíma. Í þessu námskeiði munum við fjalla sérstaklega um þá þætti kerfislíffræðinnar sem snúa að heilsu og sjúkdómum manna.
Þetta námskeið mun kynna 1) notkun líkana fyrir líffræðileg ferli (bæði genastjórnunarlíkön og efnaskiptalíkön); 2) frumulíffræðileg fyrirbæri sem stuðla að samvægi (e. homeostasis), t.d. þroskun vefja og seiglu örvera og 3) greiningu á sameindamynstri sem finnast í stórum erfðagreiningargögnum, sem tengjast sjúkdómum í mönnum og geta nýst í flokkun sjúklinga og uppgötvun lífmerkja. Þannig mun námskeiðið fjalla um notkun kerfislíffræðilegra aðferða á þremur helstu stigum líffræðinnar, þ.e. á sameindum, frumum og lífverum.
Námskeiðið felur í sér lestur og túlkun vísindagreina, útfærslu reiknirita, vinnslu á rannsóknarverkefni og kynningu á vísindalegum niðurstöðum.
Fyrirlestrar munu samanstanda af bæði (1) kynningu á grunnhugtökum kerfislíffræðinnar og (2) tölvukennslu þar sem Python forritunarmálið er notað. Námskeiðið verður kennt á ensku.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingHönnun samhliða tölva og ýmis líkön af forritun þeirra. Högun tölva út frá samnota minni og út frá dreifðu minni með skeytaflutningi. Samhliða forritun tölvuklasa með MPI og samhliða forritun fjölkjarna tölva með OpenMP. Samhliða reiknirit við röðun, leit og ýmis verkefni í línulegri algebru og netafræði.
For a longer description refer to the English page.
Course topics will be very similar like HPC in Fall 2019:
http://www.morrisriedel.de/hpc-course-fall-2019
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði kynnumst við lífsferli gervigreindarlausna og hvernig þróa á rekstrarhæfar lausnir.
Við förum yfir eftirfarandi skref lífsferilsins:
- Gagnasöfnun og undirbúningur gagna
- Breytuval
- Þjálfun líkana
- Mat á gæðum líkana
- Líkön sett í rekstur
- Líkön sem þjónustur
- Hvernig vakta á líkön
- Hvernig viðhalda á líkönum
Yfir misserið verða þrjú stór verkefni þar sem nemendur keppa um að smíða gervigreindarlausnir.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingHönnun forritunarmála. Skipulag og hönnun þýðenda. Lesgreinar, ofansæknir og neðansæknir þáttarar, þulusmiðir. Stórt einstaklingsverkefni.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuTÖL212MRökstudd forritunValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjallað er um grundvallaratriði í rökstuddri forritun. Áhersla verður lögð á að nota rökstudda forritun til að þróa traust og sönnuð afbrigði af vel þekktum reikniritum, einkum á sviði leitar, röðunar og tvíleitartrjáa. Meðal reiknirita sem fjallað verður um eru ýmis afbrigði af insertion sort, selection sort, quicksort, helmingunarleit og leit í tvíleitartré. Áhersla verður lögð á að dýpka skilning nemenda á reikniritunum ásamt því að ná góðum tökum á rökstuddri forritun. Að hluta verða verkefni leyst með hjálp sannreyningartóla svo sem Dafny eða OpenJML.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuTÖL602GMálstofa í tölvunarfræði fyrir grunnnemaValnámskeið2Valnámskeið á námsleiðinni2 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNemendur setji sig inn í tiltekið efni í tölvunarfræði, t.d. einhverja (fræðilega) aðferð, eitthvert reikniverkefni, eða eitthvert forritunarmál, með því að lesa viðeigandi fræðilegt efni. Þeir halda síðan fyrirlestur um efnið fyrir kennara sinn og samnemendur. Nemendur geta stungið upp á efni sem þeir hafa áhuga á eða valið efni sem kennari stingur upp á. Samhliða því að læra umfjöllunarefnið er markmið námskeiðsins að æfa sig í munnlegri framsetningu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuTÖL602MFrá hugmynd að veruleika IIValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið er framhaldsnámskeið af námskeiðinu „Frá hugmynd að veruleika“. Ætlast er til að nemendur haldi áfram að þróa hugmynd sína sem þeir voru með í námskeiðinu „Frá hugmynd að veruleika“. Ef nemendur eru ekki sáttir við fyrri hugmynd sína og telja sig vera komna með betri hugmynd þá er það í lagi og ef kennari er sáttur við nýju hugmyndina.
Nemendur þurfa að sækja um styrki í samkeppnissjóði. Æfa að kynna hugmynd sína fyrir hugsanlegum fjárfestum og samnemendum sínum.
Kennari mun fara yfir bókhaldsmál og áætlanagerð byggða á líkum.
Kennari mun fara yfir stofnun fyrirtækja og skattamál.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuTÖL604MReiknirit í lífupplýsingafræðiValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingEfni námskeiðsins eru helstu reiknirit sem notuð eru í lífupplýsingafræði. Í upphafi er stutt yfirlit yfir erfðamengjafræði og reiknirit fyrir nemendur af öðrum sviðum. Námskeiðinu er skipt upp í nokkrar einingar og er hverri ætlað að fara yfir einstök verkefni í lífupplýsingafræði sem mótast af rannsóknarverkefnum. Hver eining samanstendur af verkefnislýsingu og aðferðum sem beitt er við úrlausn. Viðfangsefnin verða m.a. mynstraleit, strengjafjarlægð, samröðun gena og erfðamengja, þyrpingagreining, raðgreining og myndun erfðamengja og að lokum aðferðir við úrvinnslu úr háhraðaraðgreiningar gögnum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði fá nemendur þjálfun í að leysa reikniverkefni af þeim toga sem oft koma fyrir í forritunarkeppnum. Færni til að leysa slík verkefni nýtist ekki eingöngu við keppnisforritun heldur kemur hún einnig að gagni við almenna forritun, í framhaldsnámskeiðum í tölvunarfræði og í atvinnuviðtölum.
Fjallað verður um helstu reiknirit og lausnaraðferðir sem koma við sögu í keppnisverkefnum. Ennfremur verður farið í netreiknirit, strengjavinnslu, reiknirúmfræði og talningafræði. Nemendur verja mestum hluta tíma síns í að forrita lausnir á keppnisverkefnum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingKennt að jafnaði annað hvert ár.
Í námskeiðinu verður farið yfir hönnun og greiningu reiknirita, með sérstaka áherslu á reiknirit sem vinna á stórum gagnasettum og eru notuð í raunverulegum verkefnum.
Reikniritin koma úr ýmsum áttum, m.a. þjöppun gagna og texta, villuleiðréttingar með leiðréttingarkóðum, leit í stórum textasöfnum fyrir leitarvélar, samhliða vinnsla, GPU forritun, straumareiknirit, slembin reiknirit, nágrannaleit í margvíðum gögnum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Óháð misseri
Ekki kennt á misserinuTÖL213MHagnýt dulritunarfræðiValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði nálgast nemendur dulritun á hagnýtan hátt: þeir byggja, greina og brjóta dulritunarútfærslur. Fyrri hluti námskeiðsins felst í forritunarverkefnum og litlum stúdíum, en seinni hlutinn felst í lokaverkefni, hugbúnaðarverkefni sem nýtir dulritunartækni. Námskeiðið er að fullu metið með verkefnavinnu. Lokaverkefnið byggir á vikulegum kynningum fyrir kennara og það er skyldumæting á þessa fundi. Nemendur byrja á að læra um, útfæra og rannsaka sögulegar dulritunaraðferðir, svo sem Caesar-dulmálið, og halda síðan áfram með nútímalausnir á borð við AES og TLS. Þeir munu einnig læra um hlutverk dulritunar í samfélaginu í víðara samhengi með því að kanna hvernig umdeild tækni, svo sem enda-í-enda dulritun og Tor, hefur áhrif á réttlæti og persónuvernd.
Námskeiðið mun ná yfir eftirfarandi þætti:
1. Útfærsla og rannsókn á grunnþáttum dulritunar í forritunarmáli að eigin vali.2. Aðferðir við að hanna hugbúnaðarlausnir sem nýta grunnþætti dulritunar og samskiptareglur.
3. Gerð ógnalíkana fyrir dulritunarútfærslur og hagnýtar árásir á þær.
4. Hugbúnaðarverkefni sem sýnir beitingu dulritunar á raunverulegt viðfangsefni.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðAnnað ár- Haust
- Námskeiðslýsing
Þetta námskeið er systurnámskeið Tölvufærni 2. Í námskeiðunum er snert á mörgum hlutum sem tengjast tölvufærni. Markmið námskeiðsins er að kynna nemandann fyrir ýmsum hugtökum án þess þó að kafa djúpt í hvert hugtak.
Kynning á stýrikerfinu Unix. Skipulag skráakerfis, helstu hjálparforrit, gluggakerfi, skipanalínuvinnsla og skeljarforritun. Einnig er farið yfir ritla í skelinni og höndlun gagna í henni. Ritvinnslukerfið LaTeX.
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinuSjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er fjallað um undirstöðuatriði stærðfræðigreiningarinnar auk fylkjareiknings. Meginviðfansefni eru fallahugtakið, helstu föll stærðfræðigreiningarinnar (lograr, veldisvísisföll, hornaföll), markgildi, samfelldni, deildanleg föll, reglur um afleiður, afleiður af hærra stigi, stofnföll, notkun deildareiknings (svo sem útgildisverkefni og línuleg nálgun), meðalgildissetningin, heildun, ákveðin heildi og reiknireglur fyrir þau, undirstöðusetning stærðfræðigreiningarinnar, heildunartækni, óeiginleg heildi, afleiðujöfnur, vigrar og fylkjareikningur.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingAth.: Einingar til BS-prófs gilda aðeins fyrir annaðhvort TÖL101G Tölvunarfræði 1 eða TÖL105G Tölvunarfræði 1a.
Java forritunarmálið er notað til að kynna grunnhugtök í tölvuforritun: Tjáning og fullyrðingar, texta- og tölulegar gagnategundir, aðstæður og lykkjur, fylki, aðferðir, flokkar og hluti, inntak og úttak. Forritun og kembiforrit eru stunduð í spurningakeppnum og verkefnum alla önnina.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingYrðingar, umsagnir og rökleiðingar. Mengjareikningur og Boolealgebrur. Þrepun og endurkvæmni. Grunnaðferðir við greiningu reiknirita og talningu. Einföld reiknirit í talnafræði. Vensl, eiginleikar þeirra og framsetning. Tré og net og einföld reiknirit tengd þeim.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingKenndur er grunnur í vefsmíði með áherslu á framenda: HTML, CSS og JavaScript.
Staðlar, venjur og það sem þarf til að útbúa góða vefi. Hönnun, útlit og að vinna með hönnunarskjöl.
Forritun í túlkaða forritunarmálinu JavaScript, tenging þess við vafra og tól tengdum því. HTTP staðallinn kynntur.
Verkefni felast í smíði vefja þar sem nýta skal það sem kennt er.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
NámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði munu nemendur þjálfa forritun grafísks notendaviðmóts í Java og læra um helstu skref í þróun hugbúnaðarverkefnis frá hugmyndavinnu til prófana. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist meiri færni í forritun stærri verkefna en í byrjendanámskeiði í forritun (TÖL101G), geti hannað gagnvirkt notendaviðmót, forritað það og prófað. Í því felst að nemendur geti kynnt sér stór forritasöfn (hér JavaFX) og notað þau. Einnig að nemendur geti lesið, skilið og útfært fyrirmæli um virkni, þ.m.t. gagnvirkni. Nemendur munu kynnast hönnunarferli sem samanstendur af fimm sprettum, skilja verkefnið, skissa hugmyndir og gagnvirkni, velja úr og skilgreina, forrita frumgerð og að kokum prófa og ígrunda. Gefin er innsýn í efnisatriði eins og notendamiðaða þróun, hönnun gagnvirkni, frumgerðir og notendaprófanir.
Námskeiðið mun undirbúa nemendur fyrir námskeiðin Þróun hugbúnaðar og Hugbúnaðarverkefni 1 og þau námskeið þar sem nemendur þurfa að forrita. Námskeiðið er einnig góður grunnur fyrir námskeið eins og TÖL502M Samskipti manns og tölvu.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingEiningar til BS-prófs gilda aðeins fyrir annaðhvort REI201G Stærðfræði og reiknifræði eða STÆ107G Línuleg algebra.
Skekkjumat við fleytitölureikninga. Lausn ólinulegra jafna með ítrekun. Reiknifræðileg forritun í Python. Vigrar, fylki, lausn línulegra jöfnuhneppa, aðhvarfsgreining.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNámskeiðið mun nota forritunarmálið Java. Fjallað er um gagnaskipan, reiknirit og huglæg gagnatög. Meðal gagnaskipana, sem farið er yfir, eru listar, hlaðar, biðraðir, forgangsbiðraðir, tré, tvítré, tvíleitartré og hrúgur auk viðkomandi reiknirita. Kynnt verða ýmis leitar- og röðunarreiknirit. Reiknirit eru greind, hvað þau taka langan tíma í vinnslu og hve mikið minnisrými. Forritunarverkefni, sem nota áðurnefnda gagnaskipan og reiknirit, eru leyst í Java. Mörg lítil forritunarverkefni verða í námskeiðinu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÞetta námskeið er systurnámskeið Tölvufærni 1. Í námskeiðunum er snert á mörgum hlutum sem tengjast tölvufærni. Markmið námskeiðsins er að kynna nemandann fyrir ýmsum hugtökum án þess þó að kafa djúpt í hvert hugtak.
Farið er yfir útgáfustjórnunarkerfi eins og Git, notkun aflúsunaraðferða og aðferða til að byggja hugbúnað. Farið er yfir algeng hugtök í dulmálsfræðum og kynnt eru hugtök á borð við sýndarvélar og gáma.
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinuSjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðTÖV201GGreining og hönnun stafrænna rásaSkyldunámskeið6Skyldunámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingVirkni og notkun flétturása, kóðara, afkóðara, lesminni (ROM), og forritanlegs rökrásabúnaðar við rásahönnun. Hönnun og greining reiknirása, samleggjari/frádragari, margfaldari. Hönnun og greining runurása bæði samhæfðar og ósamhæfðar. Farið verður í hönnun rása með D og JK vippum. Sérstakar runurásir, teljarar og hliðrunargisti. Meðhöndlun og notkun stöðuvéla (FSM). Stöðulágmörkun, stöðustjórnun, stöðukennsl. Runuvinnsla með stöðuvélum. Grundvallaratriði í notkun vélhermimáls (HDL) og forritanlegs rása búnaðar (FPGA) í samræmi við fyrrnefndar rásir. Nemendur munu skila sjö verklegum verkefnum sem byggja á stafrænni rásahönnun, Verilog og FPGA. Auk þess munu nemendur kynnast eldri aðferðum með notkun á tengibrettum til að byggja rásir nokkurra valinna verkefna.
Á síðari vikum námskeiðsins verður farið í hönnun flóknari rása með verilog og FPGA. Fjallað verður um kerfi á kubb ofl. Sem tengist notkunn FPGA og Xilinx hönnunarumhverfisins.
Markmið: Meðal markmiða námskeiðsins er að nemendur átti sig á grundvallaratriðum á greiningu og hönnun stafrænna rása og öðlist reynslu og þekkingu á leiðandi aðferðum við hönnun stafrænna rása.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Haust
- Námskeiðslýsing
Endanlegar stöðuvélar, regluleg mál og málskipan, staflavélar, samhengisóháð mál og málskipan, Turingvélar, almenn mál og málskipan og helstu eiginleikar þeirra.
Ávarðanleg og listanleg mál, yfirfærsla milli mála, tengsl við ákvörðnarverkefni og sönnun á óleysanleika slíkra verkefna. Flækjustigsflokkarnir P og NP og NP-fullkomleiki. Dæmi um ýmis líkön af reiknanleika.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingGagnasöfn og gagnasafnskerfi. Einindavenslalíkanið. Töflulíkanið og töflualgebra. SQL fyrirspurnarmálið. Hagkvæmni geymsluaðferða og úrvinnsluaðferða. Fallákveður, lyklar og staðalskipulag gagna í venslalíkaninu. Bestun fyrirspurna. Hreyfingar, samhliða vinnsla hreyfinga og læsingar. Endurbygging gagnasafna. Öryggi gagnasafna og aðgangsheimildir. Vöruhús gagna.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingHelstu gerðir forritunarmála kynntar. Bálkmótuð mál, listavinnslumál, hlutbundin forritun. Lýsing forritunarmála, þýðendur og túlkar. Uppbygging bálkmótaðra mála. Einingaforritun. Föll og undirforrit, viðföng og samskipti. Minnismeðhöndlun, ruslasöfnun. Forritunarmálin Scheme, CAML, Java, Morpho, C++ og Haskell verða skoðuð. Hlutbundin forritunarmál. Hlutir og erfðir. Listavinnsla og fallsforritun. Lýsing forritunarmála. Málfræði, uppbygging þýðenda. Áhersla er lögð á einingaforritun (einkum fjölnota einingar), listavinnslu, fallsforritun, og bálkmótun.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNámskeiðið fjallar um innri gerð tölva og hvernig best er að haga forritun til að nýta sem best eiginleika nútíma tölva. Farið verður í forritunarmálið C og sér í lagi fjallað um benda og minnisnotkun. Táknun heiltalna og kommutalna í tölvum. Forritun í x86-64 smalamáli. Sérstaklega verður skoðað hvernig aðgerðir í C eru útfærðar í smalamáli. Minnisstigveldi og áhrif þess á afköst forrita. Ferli og stýring þeirra. Útfærsla og notkun frábrigða í tölvum. Sýndarminni tölva.
Heimilt er að nýta aðstoð gervigreindarlausna við uppsetningu forrita og greiningu á villuskilaboðum við þýðingu forrita en óheimilt að nýta þær við úrlausnir á verkefnum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
NámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði stíga nemendur skrefið frá því að forrita sjálfir lítil forrit til að leysa vel skilgreind afmörkuð verkefni yfir í að vinna í hópi með öðrum að gerð stærri forritakerfa sem uppfylla stundum óljósar kröfur viðskiptavina. Námskeiðið fjallar um ýmsar grunnhugmyndir hugbúnaðarverkfræði til að fást við slík stærri kerfi, svo sem lipur hugbúnaðarferli, hugbúnaðarferli byggð á áætlunum, þarfaverkfræði, mat á vinnumagni, hlutbundna greiningu og hönnun, högun hugbúnaðar og þróun byggða á prófunum. Notkun þessara hugtaka er æfð í hópvinnuverkefnum þar sem nemendur þróa kerfi sem eru samsett úr minni þáttum og forrituð í Java.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ byrjun námskeiðsins eru grunnhugtök tölfræðinnar kynnt til sögunnar, svo sem þýði, úrtak og breyta. Nemendur kynnast hinum ýmsu lýsistærðum og myndrænni framsetningu gagna. Því næst verður farið í grundvallaratriði líkindafræðinnar og helstu líkindadreifingar kynntar.
Síðasti hluti námskeiðsins snýr að ályktunartölfræði þar sem skoðuð verða tilgátupróf og öryggisbil fyrir meðaltöl, dreifni og hlutföll og farið verður í fervikagreiningu og aðhvarfsgreiningu. Nemendur læra beitingu allra ofangreindra aðferða í tölfræðihugbúnaðinum R.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingInnihald námskeiðsins nær yfir hugtök um stýrikerfi tölva.
Auk grunn undirstöðu í vélbúnaðarbyggingum tölva og almennri uppbyggingu stýrikerfa verður farið yfir helstu hugtök um ferla (processes) og þræði (threads) ásamt stjórnun þeirra, meginreglur um tímasetningar og tímasetninga fyrir reiknirit, samskipti og samstillingu milli ferla og vandamál sem tengjast sjálfheldu, meginreglur í minnisstjórnun þar á meðal sýndarminni og reiknirit fyrir síðuskipti, skjalakerfi og útfærslu þeirra, sem og stjórnun á geymslu gagna.
Ef tíminn leyfir þá verður fjallað um meginreglur er varða vernd og öryggi og þætti er snúa að dreifingu (t.d. hugtök dreifðra kerfa og dreifðra skjalkerfa). Í þessu námskeiði eru almenn hugtök kynnt sem notuð eru við innleiðingu stýrikerfa og sem forritunarhönnuður þarf að þekkja við hönnun á notendahugbúnaði.
Í námskeiðinu er ekki fjallað um smáatriði er varða útfærslu stýrikerfa. Þar sem við á eru stýrikerfi eins og Microsoft Windows og POSIX-samhæft UNIX-líkt kerfi (t.d. Linux) notuð sem tilviksrannsókn við útfærslu og stýrikerfisköll. Notkun á stýrikerfis þjónustu innan forritunarmála (t.d. C, C++ og Java) er sýnd á grundvelli forritunar viðmóta (API), sem ríkjandi kerfis bókasöfn (system libraries) bjóða upp á.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingAðferðir við hönnun og greiningu á tímaflækju reiknirita. Kynning og greining á reikniritum fyrir röðun, leit, netafræði og fylkjareikning. Torleysanleg vandamál, nálgunaraðferðir og slembin reiknirit.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Haust
- Námskeiðslýsing
Markmið námskeiðsins er að nemendur geti þróað hugbúnaðarkerfi, tekið þátt í hugbúnaðarverkefnum og hugleitt hugbúnaðarþróun.
Einn meginhluti námskeiðsins er þróun hugbúnaðar sem nemendur vinna að í teymum. Kennslan er verkefnismiðuð. Efni námskeiðsins spannar fyrri fasa hugbúnaðarþróunar, stærðarmat, hönnun og forritun og samstæðustjórnun.
Verkefni sem nemendur vinna að í námskeiðinu vinna þeir áfram í námskeiðinu HBV601G Hugbúnaðarverkefni 2.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
NámskeiðslýsingSeinna námskeiðið af tveimur (HBV501G og HBV601G) þar sem nemendur vinna að umfangsmiklu hugbúnaðarverkefni í hópvinnu. Fínönnun, útfærsla, prófanir, uppsetning og afhending verkefnisins, sem var þarfagreint og hannað í námskeiðinu Hugbúnaðarverkefni 1. Útfærsla á skrefum. Forritunarstaðlar, skjölun, rekjanleiki og sönnun forrita. Gallalaus forritun. Mat á umfangi hugbúnaðarkerfa. Prófunaraðferðir. Prófanir og gæðamat á hugbúnaðarverkefnum. Rýni á hönnun og útfærslu. Uppsetning og viðtaka kerfa. Líftími hugbúnaðarkerfa. Mælingar í hugbúnaðargerð. Alþjóðlegir staðlar um þróun hugbúnaðar.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Heilsársnámskeið
- Námskeiðslýsing
Í námskeiðinu felast verkefni nemenda í því að starfa sem mentor fyrir þátttakendur á framhalds- og háskólastigi í verkefninu „Sprettur“. Mentorar sinna mikilvægu hlutverki við að styðja og hvetja aðra nemendur í námi og félagslífi. Hlutverk mentora er að skapa uppbyggjandi samband við þátttakendur, vera jákvæð fyrirmynd og taka þátt í sameiginlegum viðburðum sem skipulagðir eru innan Spretts. Mentor hlutverkið byggir á tengslamyndun og reglulegri samveru og felur í sér skuldbindingu gagnvart þeim nemendum sem mentor styður.
Sprettur er stuðningsverkefni fyrir nemendur með erlendan bakgrunn sem óska eftir auknum stuðningi til að efla námsárangur og þátttöku í háskólasamfélaginu. Nemendur í námskeiðinu starfa sem mentorar og eru tengdir saman við þátttakendur með hliðsjón af sameiginlegum áhugasviðum. Mentorar vinna jafnframt saman í hópum og í samráði við kennara og umsjónaraðila verkefnisins.
Nemendur geta valið að skrá sig í námskeiðið á haustönn, vorönn eða dreifa álaginu yfir báðar annir (allt skólaárið). Skipulag námskeiðsins tekur mið af þessu vali, en allar námskröfur eru þær sömu óháð annaskiptingu. Mentorar skipuleggja reglubundna samveru með þátttakendum í Spretti og verja að jafnaði þremur klukkustundum á mánuði í samveru með þátttakendum, þremur klukkustundum á mánuði í heimavinnuhópi og mæta í alls fimm málstofur.
Nemendur skila dagbókarfærslum á Canvas og þurfa að hanna og framkvæma námsupplifun fyrir þátttakendur í Spretti. Dagbókarfærslur byggjast á lesefni og gagnrýnum hugleiðingum um mentorstarfið og eigin reynslu af þátttöku í verkefninu. Námskeiðið er kennt á íslensku og ensku.
Að loknu námskeiði, og að uppfylltum öllum kröfum, fá nemendur 5 ECTS einingar auk formlegs vottorðs fyrir þátttöku og lok verkefnisins.
Nemendur fylla út rafrænt umsóknareyðublað og umsjónarkennari hefur samband við umsækjendur.
Frekari upplýsingar um verkefnið „Sprettur” má nálgast hér: www.hi.is/sprettur
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Haust
NámskeiðslýsingSiðferðisleg tölvuinnbrot er fræðigrein sem byggist á að greina öryggi kerfa út frá sjónarhóli árásarmanns. Með því að nota verkfæri og aðferðir sem illviljaðir tölvuinnbrotamenn beita öðlast siðferðislegir tölvuinnbrotamenn verðmætar upplýsingar sem nýtast til að styrkja öryggi kerfa.
Í námskeiðinu kynnast nemendur grunnhugtökum og aðferðum siðferðislegra tölvuinnbrota. Nemendur byrja á að setja upp öruggt tilraunastofuumhverfi með hjálp sýndarvélatækni. Á tveggja vikna fresti verður nýr hluti í aðferðafræði siðferðislegra tölvuinnbrota og tengd verkfæri kynnt. Nemendur skila inn vikulegum skýrslum sem sýna bæði fræðilegan og praktískan skilning á námsefninu.
Mælt er með að nemendur noti tölvu sem ræður við x86 sýndarvélahugbúnað. Makkar henta ekki eins vel. Nemendur sem hafa ekki viðeigandi vélbúnað geta notað sýndarvélar á netþjónum skólans í netöryggisumhverfi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið starfsþjálfunarinnar er að þjálfa nemendur í að vinna störf undir handleiðslu sérfræðinga hjá fyrirtækjum og stofnunum. Verkefnin skulu tengjast einhverjum þeirra námsgreina sem kenndar eru við Námsbraut í tölvunarfræði og skulu þau reyna á þá þekkingu og færni sem nemandi hefur aflað sér þar.
Við upphaf starfstímans skal nemandi senda tölvupóst á umsjónarkennara sem skráður er hér í UGLA til að koma á sambandi.
Í lok starfstímans skal nemandi skila til umsjónarmanns:
- Skýrslu (u.þ.b. 3 bls.) um meginverkefni nemandans og tengslum þess við nám hans í tölvunarfræði/hugbúnaðarverkfræði. Í skýrslunni skal einnig koma fram hvaða námsmarkmið nemandinn setti sér í upphafi starfsþjálfunar og hvernig hann náði þeim í verkefnunum.
- Dagbók sem nemandi hefur haldið meðan á starfstíma stóð. Dagbókin skal fela í sér vikulegt yfirlit þar sem fram kemur hver verkefni vikunnar voru og hve miklum tíma var varið í einstök verkefni.
Starfsþjálfun telst ekki lokið fyrr en umsjónarmaður fyrirtækis/stofnunar hefur skilað staðfestingu á ástundun nemandans og verkefnavinnu og umsjónarmaður starfsþjálfunar hjá Námsbraut í tölvunarfræði hefur staðfest skilin.
Einkunnagjöf er staðið/fall.
ATH: Nemendur geta ekki skráð sig sjálfir í þetta námskeið heldur eru þeir skráðir í námskeiðið þegar þeir hafa tryggt sér starfsþjálfunarstöðu hjá fyrirtæki eða stofnun.
Allar starfsþjálfunarstöður verða auglýstar sérstaklega á Tengslatorgi (www.tengslatorg.hi.is ) í upphafi hvers kennslumisseris og nemendur sækja sérstaklega um að komast í starfsþjálfun. Umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi, þar sem nemendur tilgreina hvers vegna þeir hafa áhuga á að komast í starfsþjálfun hjá viðkomandi fyrirtæki skal senda á von-starfsthjalfun@hi.isBent er á að þátttaka í þessu námskeiði útilokar þátttöku í námskeiðunum HBV502G og HBV603G starfsnámi og lokaverkefni HBV261L.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuHBV103MViðhald hugbúnaðarValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingThe first part of the course is based on flipped-classroom style weekly reading, videos and assignments on:
- Evolution of Software and Lehman’s laws,
- Maintenance processes,
- Metrics useful for maintenance,
- Software analysis,
- Re-engineering,
- Reverse engineering,
- Code Smells & Refactoring,
- Basics of (Regression-)Testing,
- Design principles to support change & Design Patterns,
- Tools for software maintenance (including advanced features of an IDE).
In the second part of this course, these techniques will be applied in order to maintain a real legacy software written in Java.
Note: while this is an "M" course, it is rather on MSc. level. BSc. students who take this course need to be advanced in their BSc. studies and you need solid Java programming experience: we will maintain a complex software and being able to understand how such a grown software works and to fix bugs is even more difficult to write such a software from scratch. Hence, you should have passed HBV501G Software Project 1, preferably even HBV601G Software Project 2. (It is impossible to maintain a software if you would not even be able to develop it.) Also, BSc. students should not take this course, if they know that they are going to continue with MSc. studies, because they might then experience a lack of suitable courses in their MSc. studies.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingLokaverkefni er námskeið þar sem nemendur vinna verkefni undir handleiðslu kennara innan námsbrautar í Tölvunarfræði. Nemendur þurfa sjálfir að finna verkefni og kennara sem er tilbúinn að leiðbeina þeim. Verkefnum er ekki úthlutað. Í flestum tilfellum er unnið að forriti/vefsíðu/appi en það er ekki skilyrði. Verkefni lýkur með skýrslu sem skilað er til kennarans og hann gefur í kjölfarið einkunn.
Viðmiðunarregla er að 6 eininga verkefni sé þriggja vikna vinna og 8 einingar svari til fjögurra vikna, og þar með eru gerðar meiri kröfur til 8 eininga verkefna.
Upplýsingar um skil á verkefni
Skil eru í maí fyrir júníbrautskráningu
Skil eru í september fyrir októberbrautskráningu
Skil eru í janúar fyrir febrúarbrautskráninguÍ upphafi misseris koma nemandi og leiðbeinandi sér upp tímalínu um skil á verkefni
Skil á fullbúnu verkefni til leiðbeinanda/umsjónarkennara er 10. maí/ september/ janúar
Skil nemanda inn á Skemmu eru í síðasta lagi 30. maí/ september/ janúar og senda þarf staðfestingu um samþykkt skil á nemvon@hi.is
Einkunn frá leiðbeinanda á að hafa borist skrifstofu í síðasta lagi 30. maí/ september/ janúar
Bent er á að þátttaka í þessu námskeiði útilokar þátttöku í námskeiðunum HBV004G, HBV502G og HBV603G starfsnámi.
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðarNámskeiðslýsingHugbúnaðarkröfur lýsa virkni, eiginleikum og takmörkunum hugbúnaðar og byggja á raunverulegum þörfir notenda og annarra hagsmunaaðila.
Í námskeiðinu er lögð áhersla á að skilja samhengi hugbúnaðarkerfa og beita aðferðum til að afla, greina, forgangsraða, skilgreina og staðfesta kröfur. Fjallað er um mismunandi tegundir krafna og hagsmunaaðila, framsetningu og gæði krafna, og hvernig tryggja má að þær séu skýrar, sannreynanlegar og framkvæmanlegar, auk þess að greina tengsl, ágreining og málamiðlanir milli þeirra.
Einnig er fjallað um breytingastjórnun og rekjanleika krafna yfir líftíma hugbúnaðar.
Nemendur vinna í hópum að verkefnum þar sem þeir beita aðferðum kröfugreiningar í raunverulegu samhengi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingVið hönnun á greind kerfi er þörf fyrir sjálfvirk kerfi sem læra að taka góðar ákvarðanir út frá eigin reynslu. Í námskeiðinu er kynnt fyrir nemendum styrkingalærdómur (e. reinforcement learning), reiknifræðileg nálgun þar sem kerfi endurbætast sjálfkrafa með gagnvirkni og umbun—án beinnar leiðsagnar. Fjallað er um Markov-ákvörðunarferli, kvik-bestun (e. dynamic programming), Monte Carlo aðferðir, bestun á stefnu (e. policy optimization), áætlanagerð, leitaraðferðir og djúp tauganet sem nálgunarlíkön. Námskeiðið sameinar fræðilega umfjöllun og verkefnavinnu þar sem nemendur fá tækifæri til að móta, greina og leysa stærðfræðileg líkön fyrir ákvörðunarverkefni. Jafnframt er lögð áhersla á ítrunarferli og gagnrýna umræðu um hvað það þýðir að reiknirit læri og hvaða áhrif sjálfstæð reiknigreind gæti haft á vísindi og samfélag.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingTilgangur námskeiðsins er að undirbúa nemendur undir störf í tæknifyrirtækjum og tæknimiðuðum skipuheildum. Farið verður í helstu þætti í reksti fyrirtækja og annarra skipuheilda og fjallað um hlutverk verkfræðinga og áskoranir sem þeir standa frammi fyrir. Nemendur kynnast greiningaraðferðum sem notaðar eru við ákvarðantöku, túlka niðurstöður þeirra og miðla munnlega og skriflega.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmiðið með námskeiðinu er að undirbúa nemendur í að greina ferla og kerfi. Farið verður í hvernig ferlum er lýst með það að markmiði að greina þá. Farið er í kortun ferla og hvernig uppgötva megi ferla. Farið verður í 3 aðferðir til að uppgötva ferla: staðreyndaleið, viðtalsleið og vinnustofuleið. Þegar ferlar liggja fyrir er hægt að greina þá. Farið er í bæði megindlegar og eigindlegar aðferðir við greiningu ferla. Kynntar verða eigindlegu aðferðirnar virðisgreining, rótargreining og áhættumat. Kynntar verða megindlegu aðferðirnar árangursmælingar, flæðisgreining, biðraðafræði og hermun.
Seinni hluti námskeiðsins fjallar um kerfi og greiningu kerfa. Fjallað verður um hvernig hægt er að lýsa heiminum sem kerfi. Farið verður í aðferðir til að lýsa kerfum eins og orsakarit og birgðir-og-flæði (e. stock and flow). Í lok námskeiðs verða bæði ferli og kerfi hermd.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að gera nemendur færa um:
1. Að skilja helstu hugtök bókhalds, kostnaðarreiknings og fjárfestingarfræði.
2. Að nota aðferðir til að meta hagkvæmni verktæknilegra kosta.
3. Að gera reiknilíkan til að meta arðsemi fjárfestinga, virði fyrirtækja og verðleggja hlutabréf og skuldabréf.
Meðal námsefnis er bókhald, kostnaðarreikningar, greining á fjárstreymi, fjárfestingarfræði, mælikvarðar á arðsemi, þar á meðal núvirði og innri vextir, og gerð arðsemilíkana. Námskeiðinu lýkur með hópverkefnum þar sem nemendur æfa arðsemimat verkefna.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu eru kennd grunnatriði í verkefnastjórnun. Farið verður yfir grunnhugtök, umhverfi og val verkefna, áætlunargerð, eftifylgni, stjórnun verkefnateyma og lok verkefna. Nemendur fá þjálfun í gerð verkefnaáætlana og að takast á við áskoranir við framkvæmd og lok verkefna. Sérstök áhersla er á notkun verkefnastjórnunar við tækninýsköpun í skipuheildum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingTilgangur námskeiðsins er að fara í gegnum grundvallaratriði lokistik (vörustjórnunar), stjórnun aðfangakeðja og áhrif þeirra á umhverfið. Námskeiðið er í raun þríþætt þar sem byrjað er á að fara í gegnum þá þætti sem snúa að innkaupum á vörum og þjónustu ásamt stjórnun birgða. Því næst er tekið á þeim þáttum sem snúa að flutningum og dreifingu. Að lokum er áhrifum aðfangakeðja á umhverfi gert greinagóð skil og öllum þremur þáttunum steypt saman í eina heild sem styður sjálfbærni.
Námskeiðið er kennt með því fyrirkomulagi að haldnir eru fyrirlestrar til að útskýra fræðilega undirstöðu greinarinnar en til að fá aukinn skilning á einstökum þáttum verða reiknuð dæmi sem skila þarf inn til yfirferðar. Samhliða fyrirlestrum og dæmatímum verður unnið með fyrirtækjaspil í hópum auk þess að spila „The Beer game“ - þar sem þáttakendur leika hlutverk fyrirtækja sem og taka þátt í raunhæfum hlutverkum stjórnenda.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuREI503MGreining á frammistöðu tölvukerfaValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingKennt að jafnaði annað hvert ár.
Námskeiðið fjallar um gerð líkana af tölvu- og samskiptakerfum auk mælinga á frammistöðu. Stór dreifð tölvukerfi afgreiða þjónustubeiðnir (t.d. vefsíðufyrirspurnir) samhliða til að lágmarka svartíma og hámarka ánægju notenda. Aðrir mælikvarðar á frammistöðu eru afköst (afgreiddar beiðnir á tímaeiningu) og uppfylling samkomulags um þjónustustig. Meðal námsefnis eru stærðfræðilegar aðferðir til að meta og skilja slík kerfi, bæði veikleika þeirra og styrkleika, til dæmis varðandi hönnun, verkröðunaraðferðir og rekstrarstefnur. Umfjöllunin byggir á aðferðum aðgerðagreiningar, sér í lagi biðraðafræði og Markov-ferlum (fyrirfram þekking á þessum aðferðum er ekki krafa).
Eindregið er mælt með mætingu í tíma.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingYfirlit yfir forritun ofurtölva og stórgögn, umhverfi ofurtölva, tölvunet og gagnalausnir og samhliða forritun. Innviðir fyrir geymslu gagna og þjónustur fyrir stórgögn, greining fyrir stórgögn, ”map-reduce” aðferðarfræðin, formuð og hálfformuð gögn. Hagnýt verkefni: (A) Nemendur nota Amazon Web Services (AWS) skýið eða sambærilega lausn til að setja upp fjöltölvuvefþjónustu og samsvarandi kerfi fyrir prófun á henni. (B) Nemendur leysa verkefni á stórgögnum með ”map-reduce” aðferðafræði á AWS skýinu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingFjallað er um hugtök, aðferðir og reiknirit á sviði gervigreindar, með áherslu á studdan og óstuddan lærdóm. Forvinnsla og myndræn framsetning gagna. Mat á gæðum líkana og val á líkönum. Línuleg aðhvarfsgreining, næstu nágrannar, stoðvigravélar, tauganet, ákvarðanatré og safnaðferðir. Djúpur lærdómur. Þyrpingagreining og k-means aðferðin. Nemendur útfæra einföld reiknirit í Python og læra á sérhæfða forritspakka. Námskeiðinu lýkur með hagnýtu verkefni.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNet, netamótanir og netaeinsmótanir. Hlutnet, spannandi hlutnet. Vegir, tengd net. Örvanet. Tvíhlutanet. Euler-net og Hamilton-net; setningar Chvátals, Pósa, Ores og Diracs. Keppnisnet. Tré, spannandi tré, trjáfylkjasetningin, Cayley-setningin. Vegin net, reiknirit Kruskals og Dijkstra. Flæðinet, setning um hámarksflæði og lágmarkssnið, Ford-Fulkerson-reikniritið, Menger-setningin. Spyrðingar, Berge-setningin, giftingarsetning Halls, König-Egerváry-setningin, Kuhn-Munkres-reikniritið. Óaðskiljanleg net, tvítengd net. Lagnet, Euler-formúla, Kuratowski-setningin, nykurnet. Greypingar neta í fleti, Ringel-Youngs-Mayer-setningin. Litanir, litunarsetning Heawoods, Brooks-setningin, litamargliða; leggjalitanir, Vizing-setningin.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNámskeiðið býður upp á verklegan inngang að hönnun og forritun hugbúnaðar í örtölvum í samhengi IoT snjalltækja.
Svona tækieiga oft marga inn- og úttakspinnar, eitthvað af skyndiminni og geymsluminni, og þráðlausan samskiptabúnað (WiFi, Bluetooth, o.s.frv.).
Þessir eiginleikar gera tækin tilvalin fyrir ýmiss verkefni sem tengjast gagnasöfnun, úrvinnslu gagna og þráðlausum samskiptum.
Í þessum áfanga verða lögð fyrir verkefni aðra hverja viku sem tengjast meðal annars samskiptum yfir raðbundin (serial) tengi, gagnasöfnun og úrvinnsla, hönnun forrita fyrir rauntíma-stýrikerfi (RTOS), þráðlaus samskipti og TCP/IP samskipti sem miðlari/biðlari.
Áfanganum lýkur síðan með lokaverkefni sem er byggt á þessum þáttum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMegináhersla námskeiðsins er á grunnhugtök og stærðfræði fyrir þrívíddar tölvugrafík. Tvívíðar og þvívíðar varpanir. Sjónvörpun. Ljós og litun hluta. Mynsturvörpun, blöndun, holuvörpun. Forritanleg litun. Ferlar og yfirborð. Forritunarverkefni í WebGL.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuTÖL305GTölvunet og öryggiValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingKennt að jafnaði annað hvert ár.
Námskeiðið er hagnýtt námskeið sem kennir nemendum undirstöðuatriði tölvuneta. Lögð er áhersla á staðarnet, 802.3 og 802.11, og jafnframt á TCP/IP. Farið er í greiningu á þörfum fyrir tölvunet og hönnun þeirra. Fjallað verður um hug- og vélbúnað sem notaður er til útfærslu tölvuneta. Uppsetning og viðhald tölvuneta. Öryggiskerfi fyrir tölvunet. Nemendur læra að greina hættur og bregðast við þeim.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuTÖL308GTölvuleikjaforritunValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingUmfjöllunarefnið er helstu aðferðir og verkefni sem tengjast forritun tölvuleikja. Verkefnin snúast meðal annars um stýringu rammatíðni, hlutastjórnun, löggengi, minnisstýringu og keyrsluafköst. Athyglinni verður sér í lagi beint að drifbúnaði tölvuleikja. Grundvallaratriði í gerð tölvuleikja með fjöldaþátttöku á netinu verða skoðuð. Skoðuð verða dæmi tengd einföldum tvíðvíðum leikjum, t.d. Asteroids og PacMan, en áherslan verður á almennar aðferðir sem einnig má beita við gerð háþróaðra nútímalegra tölvuleikja.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuTÖL501GFrá hugmynd að veruleikaValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið hefur verið í þróun í rúman áratug undir nafninu „Tölvukerfi og markaðsmál“.
Námskeiðið byggist á fyrirlestrum kennara og einstaklings- og hópverkefnum sem hjálpa nemendum að hugsa út fyrir kassann. Kennari mun segja frá reynslu sinni af því að gera hugmynd að veruleika og mun hann ekki síður tala um þau mistök sem hafa verið gerð en það sem hefur heppnast.
Lokaverkefni námskeiðsins er viðskiptaáætlun sem varin er munnlega fyrir prófdómara. Viðskiptaáætlunin fjallar um hugmynd nemenda og hvernig hann vill hrinda henni í framkvæmd.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið