""
Tungumál kennslu
Íslenska. Stöku námskeið eru kennd á ensku. Kennsluefni er á ensku eða íslensku.
Lengd náms
Þrjú ár - 180 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Vekja umhverfismál, skipulagsmál og nýting auðlinda áhuga þinn?
  • Langar þig að skilja hver eru brýnustu viðfangsefni samfélaga um víða veröld?
  • Hefur þú áhuga á því hvernig umhverfi þróast og hvernig hægt er að bregðast við loftslagsbreytingum og náttúruhamförum?
  • Viltu öðlast færni í kortagerð og vinnu með landfræðileg gögn?
  • Viltu vinna fjölbreytt verkefni undir handleiðslu helstu sérfræðinga landsins í landfræði?
  • Viltu geta valið úr fjölbreyttu úrvali námskeiða á þínu áhugasviði?
  • Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi? 

Landfræðinám er fjölbreytt og krefjandi, þverfræðilegt nám.

Í landfræðináminu er fjallað um sambúð fólks og náttúru og skoðað hvernig náttúra, samfélagsgerð og menning koma saman í einni heild. 

Lögð er áhersla á að nemendur öðlist færni í að nálgast úrlausnarefni á skapandi og gagnrýninn hátt, hvort sem unnið er sjálfstætt eða í teymum. 

Nemendur fá meðal annars hagnýta þjálfun í að nota landfræðileg upplýsingakerfi við kortlagningu, greiningu og samþættingu ólíkra gagna. Jafnframt veitir BS nám í landfræði trausta undirstöðu fyrir framhaldsnám.

Meðal viðfangsefna

  • Byggðaþróun og atvinnulíf 
  • Landslag
  • Auðlindanýting
  • Skipulagsmál og borgarumhverfi
  • Náttúruvernd og landvarsla 
  • Náttúruvá
  • Loftslagsbreytingar
  • Umhverfisbreytingar og gróðurframvinda 
  • Veður- og veðurfarsfræði
  • Jarðvegsfræði
  • Landupplýsingar og kortagerð 
  • Fjarkönnun

Nýleg BS verkefni í landfræði hafa meðal annars fjallað um:

  • Krapaflóð og loftslagsbreytingar
  • Áhrif eldgosa á stöðugleika lands
  • Áhrif orkuframleiðslu á landslag
  • Búsetuval og ferðavenjur eftir hverfum
  • Ferðir og staði heimilislausra í borgarlandslaginu

Annað

Hægt er að taka Landfræði sem: 

Sjá meira um aðal- og aukagreinar í grunnnámi undir Hjálplegt efni neðar á síðunni.

Íslenskt stúdentsprófi eða sambærilegt próf.

Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda grunnnám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR).

Inntökupróf í íslensku fyrir umsækjendur um nám sem kennt er á íslensku | Háskóli Íslands

Ljúka þarf 180 einingum til BS-gráðu. Skipulagt sem 3ja ára nám. Í námi til BS-gráðu í landfræði eru 141 einingar í kjarna og 39 einingar í vali af lista valnámskeiða. Mögulegt er að taka valnámskeið úr öðrum deildum með leyfi námsbrautar.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Náttúrulandfræði (LAN101G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur kunni skil á undirstöðuatriðum líflandfræði, jarðvegs og jarðvegsmyndunar, auk umhverfissögu Íslands, þekki helstu hugtök og aðferðir sem beitt er og verði færir um að greina og túlka íslenskt umhverfi í ljósi þeirra. Fjallað verður um flokkunarfræði lífríkis, fæðukeðjur og fæðuþrep, dreifingu tegunda og farið verður yfir hringrásir orku og efna, útbreiðslu lífríkis og áhrifaþætti, búsvæðabelti, líffræðilega fjölbreytni og verndun lífríkis.

Farið verður í myndun jarðvegs og eiginleika hans, útbreiðslu jarðvegsgerða, jarðvegsrof og jarðvegsmengun. Rætt verður sérstaklega um áhrif nýtingar og ástand jarðvegs og gróðurs, orsakir og afleiðingar jarðvegseyðingar og hnignunar gróðurlenda, fyrr og nú.

Haldnir verða þrír fyrirlestrar á viku þar sem farið verður yfir meginefni námskeiðsins. Tveimur tímum á viku, að jafnaði, verður varið í verkefnavinnu þar sem nemendur munu vinna í hópum að úrlausn verkefna. Ein hálfs dags ferð er farin út fyrir Reykjavík til að framkvæma gróðurmælingar og safna jarðvegssýnum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Kortagerð og kortahönnun (LAN102G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

“visualization is the process of making the invisible visible[...] the process of making the cognitive imagination visual using available and culturally dominant technologies is one of the most consistent behaviors of mankind.”

„Myndræn framsetning er að gera ósýnileg fyrirbæri sýnileg [eða] það að gera sjónrænt grein fyrir ímyndun hugans með tiltækri tækni og í samræmi við menningarleg viðmið. Þetta er eitt af því sem mannkynið hefur alltaf leitast við að gera.” - Cox, D. (2006). "Metaphoric Mappings: The Art of Visualization." MIT Press.

Kortagerð er einn af mikilvægum hlutum landupplýsingahönnunar.

Nemendur kynnast fræðilegri undirstöðu kortagerðar með hjálp stafrænnar tækni. Námskeiðinu er ætlað að veita nemendum greinargóðan skilning á hugtökum og hagnýtum atriðum sem snerta myndræna framsetningu á kortum og miðlun landfræðilegra upplýsinga. Það snertir ýmis mikilvæg svið í landfræði og skyldum greinum. Í gegnum fyrirlestra og umræður fá nemendur skilning á sögu kortagerðar, helstu kenningum og hugtökum á fagsviðinu og hlutverki landfræðilegra upplýsingakerfa við gerð korta nú á dögum. Fyrirlestrum er fylgt eftir með verkefnum sem hjálpa nemendum að skilja undirstöðuhugtök kortagerðar, sem og skipulegum æfingum í tölvuveri  þar sem nemendur læra að nýta sér landfræðileg upplýsingakerfi við einfalda greiningu og framsetningu landupplýsinga. Nemendur öðlast færni til að rýna eigin verk og annarra á gagnrýninn hátt og geta útskýrt og réttlætt eigin ákvarðanir varðandi myndræna framsetningu á korti.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Mannvistarlandfræði (LAN104G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kynnt verða hugtök og kenningastraumar í samfélagsvísindum, með áherslu á notkun og birtingarform í samtímarannsóknum í mannvistarlandfræði og ferðamálafræði. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á notkun hugtaka í vísindalegri umræðu og þjálfun í meðferð þeirra. Má þar telja algeng hugtök eins og staður, rými, hnattrænt, staðbundið, hnattvæðing, sjálfbær þróun, náttúra, landslag, menning, sjálfsmynd, ímynd og samfélag. Kennsluform er blanda fyrirlestra og umræðutíma í smærri hópum, sem tengjast skilaverkefnum nemenda. Próftökuréttur er háður verkefnaskilum og þátttöku í umræðuhópum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Vinnulag í landfræði og ferðamálafræði (LAN105G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið tekur á ólíkum þáttum vinnulags í háskólanámi og rannsóknum og er ætlað að veita nemendum hagnýtan undirbúning að háskólanámi. Námskeiðið skiptist í nokkra hluta og munu ákveðin verkefni og æfingar tengjast hverjum hluta. Fjallað verður um forsendur og markmið rannsókna og hugmyndafræðilega strauma, heimilda- og tilvísananotkun, tjáningu og framsögn ásamt ritun, stíl og framsetningu. Jafnframt verður stoðkerfi nemenda (s.s. bókasafn og námsráðgjöf) kynnt. Áhersla er lögð á vinnu nemenda með það að markmiði að nemendur tileinki sér árangursrík vinnubrögð í háskólanámi.

Önnur vinnulagsnámskeið geta verið metin jafngild þessu námskeiði

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Vinnustofa fyrir nýnema í land- og ferðamálafræði (LAN019G)
Valnámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Aðstoðartímar í ýmsum námskeiðum fyrir nemendur í land- og ferðamálafræði

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Ytri öfl jarðar (JAR202G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Helstu umfjöllunarefni námskeiðsins eru:

  • Grunnatriði í setlagafræði með áherslu á breytingar á kornastærð, kornastærðadreifingu, áferð og lögun korna við flutning með vatni, jöklum og vindi.
  • Vatnshringrás jarðar og hlutverk hennar í veðrun, flutningi bergmols og upphleðslu sets.
  • Rennandi vatn sem veigamesta ferlið við mótun þurrlendis jarðar, bæði hvað varðar rof og flutning bergmols.
  • Strendur jarðar: átök á mörkum láðs og lagar, sífelldar breytingar stranda og þættir sem ráða þróun þeirra.
  • Grunnvatn: þáttur þess í mótun lands, mikilvægi fyrir neysluvatn og leiðir til að vernda auðlindina.
  • Hringrás lofthjúps jarðar og áhrif á dreifingu úrkomu og útbreiðslu þurra svæða.
  • Helstu rof- og setmyndunarferli og landmótun þeirra hérlendis.
  • Jöklar: myndun, breytileg stærð og jöklunarsaga síðasta jökulskeiðs.
  • Ólífrænar og lífrænar auðlindir jarðar: myndun, útbreiðsla, vinnsla, notkun, förgun, endurnýjun og endurnýting.
  • Tenging fræðilegs efnis við Ísland með umfjöllun um sambærileg fyrirbæri hérlendis.

 Kennslufyrirkomulag 

Námskeiðið er 7,5 ECTS og spannar 14 vikur. Námsefni er kynnt í fyrirlestrum, umræðutímum, völdu lesefni, og námsferð.

  • Fyrirlestrar eru tvisvar í viku
  • Námsferðin er 5 daga ferð um Suðurland og Vestmannaeyjar. Námsferðin er farin strax að loknum síðasta vorprófsdegi og er skylduþáttaka í hana. Háskóli Íslands greiðir gistingu og rútur fyrir nemendur en þeir greiða sjálfir fyrir fæði.
  • Vikulega glíma nemendur við krossapróf úr köflum kennslubókar köflum og tímaritsgreinum.
Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Landfræði og hnattræn tengsl (LAN222G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um helstu einkenni á efnahagslífi heimsins, í ljósi hnattvæðingar viðskipta, stjórnmála og menningar á undanförnum áratugum. Athugað er hvernig þungamiðja heimshagkerfisins hefur færst til og hvernig hin ýmsu svæði og lönd tengjast því með mismunandi hætti. Teknir eru til athugunar helstu gerendur og stofnanir sem hafa áhrif á hnattvæðinguna, þar á meðal fjölþjóðafyrirtæki, alþjóðastofnanir og ríki. Dæmi eru tekin úr ólíkum geirum atvinnulífs, skoðað hvernig keðjur framleiðslu og neyslu hafa tekið breytingum með hnattvæðingu og greint hvaða áhrif slíkt hefur haft á staði og svæði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Umhverfislandfræði: Náttúra, samfélag og sjálfbærni (LAN221G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Umhverfismál eru eitt mikilvægasta viðfangsefni okkar tíma. Umhverfishugtakið sjálft vísar til snertiflata náttúru og samfélags, sem er kjarnaviðfangsefni landfræðinnar. Samþætting náttúru- og samfélagsvísinda er nauðsynleg við leit að lausnum sem stuðlað geta að aukinni sjálfbærni.

Í þessu námskeiði er gerð grein fyrir ýmsum landfræðilegum sjónarhornum á umhverfismál og nokkur veigamikil hnattræn málefni sem snerta umhverfið krufin til mergjar. Nemendur fá þekkingu á marghliða orsökum og afleiðingum og brjóta heilann um mögulegar lausnir. Fjallað verður sérstaklega um fólksfjölda og fæðuöryggi. Hvert er samhengi fólksfjöldaþróunar, matvælaframleiðslu og ágangs á náttúruauðlindir og umhverfi? Hvernig er staðan og hverjar eru framtíðarhorfur í hinum ýmsu heimshlutum? Hvernig má tryggja fæðuöryggi og sjálfbærni fæðuframleiðslu á næstu áratugum? Áhrif af breyttri landnýtingu og síaukinni neyslu á lífverur og vistkerfi jarðar verða einnig skoðuð. Hvernig bregst lífkerfi jarðar við búsvæðabreytingum og mengun? Hvaða lausnir þyrfti til að koma auðlindanýtingu mannkyns í betra jafnvægi en nú er og leysa þau vandamál sem fylgt hafa tilkomu neyslusamfélaga okkar tíma? Loks verður hugað að samfélagslegum þáttum loftslagsbreytinga. Hvernig koma þessar afdrifaríku breytingar á gangverki náttúrunnar fram í ólíkum heimshlutum og hjá mismunandi samfélagshópum?

Í námskeiðinu er lögð áhersla á hið hnattræna sjónarhorn, en nemendur eru jafnframt hvattir til að tengja efni þess við eiginn veruleika. Farnar eru stuttar námsferðir og unnin verkefni í tengslum við þær.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Landfræðileg upplýsingakerfi 1 (UMV401G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Stúdentar með UMV401G sem skyldunámskeið hafa forgang við skráningu. 

Markmið: Að gera stúdentum frá breiðum bakgrunni mögulegt að hagnýta landfræðileg upplýsingakerfi til kortagerðar og landfræðilegrar greiningar við skýrslu- og álitsgerð, kynningu verkefna, vinnu og rannsóknir. Að stúdentar öðlist þroska og þjálfun til að: 1) stýra verkefnum á sviði landfræðilegra upplýsinga, 2) meta hvernig landfræðileg greining og kort nýtast best fyrir fjölbreytt verkefni, 3) rita texta sem túlkar kort og lýsir landfræðilegri greiningu, 4) rita fagmannlega skýrslu um verkefni sem hagnýtir sér landfræðileg upplýsingakerfi, kort og landfræðilega greiningu. 

Efni: Stúdentar kynnast landfræðilegum upplýsingakerfum og landfræðilegum gögnum. Lærið gerð staðháttakorta og þemakorta. Notuð verða vektorgögn og rastagögn. Lærið val eftir eigindum og staðsetningu, og gerð kortalaga út frá vali. Lærið tengsl við töflugögn og landfræðileg tengsl. Æfðar verða fjölbreyttar aðgerðir með kortalög, t.d. klippa, sameina, flytja gögn á milli laga, auk teikningar og gerðar nýrra kortalaga. Tengið loftmynd við kortalög. Tengið GPS hnituð gögn við landakort. Framkvæmið landfræðilega greiningu gagna. Áhersla er á að stuðla að þroska nemenda við að velja innihald korta, aðgerðir og greiningartæki, hanna kort og túlka kort með texta. 

Kennsluhættir: Stúdentar kynnast og fá þjálfun í algengri hagnýtri notkun landfræðilegra upplýsingakerfa í verklegum kennslutímum í tölvustofu og við vinnu heimaverkefna og lokaverkefnis byggðum á raunverulegum gögnum. Verkefni eru hönnuð til að auka færni stúdenta í vali korta, innihalds og greiningartækni auk túlkunar korta.

Námsform

Námskeiðið er kennt í kennslustofu með beinu streymi og upptökur síðan gerðar aðgengilegar nokkrum dögum síðar. Hægt er að taka námskeiðið í staðnámi eða fjarnámi eða blandað. Ekki er gert ráð fyrir að hægt sé að taka námskeiðið sem netnámskeið án rauntímaþátttöku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Annað ár | Haust
Tölfræði I: Inngangur (FÉL306G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist undirstöðuþekkingu á tölfræði félagsvísinda. Nánar er fjallað um mælingar á miðlægni og dreifingu breyta. Stefnt er að því að nemendur geti gert grein fyrir helstu hugtökum ályktunartölfræði og framkvæmt marktektarpróf. Ennfremur er fjallað um mælingar á tengslum breyta, þ. á m. krosstöflur og einfalda aðhvarfsgreiningu. Þá er stuttlega fjallað um aðferðir til þess að stjórna breytum, s.s. hlutatöflur og hlutfylgni. Auk bóklegrar kennslu læra nemendur að nota tölfræðiforritið Jamovi til þess að framkvæma útreikninga.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Skipulag byggðar og lands (LAN302M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu eru viðfangsefni og markmið skipulagsfræði stuttlega kynnt.

Megináhersla námskeiðsins er annars vegar á stjórnkerfi og stjórntæki og ferli skipulagsmála og hins vegar á gögn og hagnýtar aðferðir við greiningu svæða og skipulagsgerð, sérstaklega fyrir skipulag stærri landfræðilegra heilda, eins og þéttbýlisstaða, sveitarfélaga eða landshluta. Nemendur kynnast og þjálfast í að afla gagna og beita ólíkum aðferðum við greiningu og túlkun á byggð, samfélagi og náttúrufari til að leggja mat á aðstæður, áskoranir og tækifæri á skipulagssvæðinu. Einnig er farið yfir aðferðir við framsetningu skipulagstillagna og stefnu í skipulagi.

Fyrirlestrar, umræðutímar og verkefnavinna. Einstaklings- og hópverkefni.

Námskeiðið er samkennt með námsbraut í skipulagsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Aðferðir við rannsóknir í náttúrulandfræði (LAN307G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur tileinki sér aðferðir til að framkvæma sjálfstæðar rannsóknir í náttúrulandfræði. Það nær m.a. til lýsinga og mælinga á jarðvegi (þurrlendi/votlendi) og seti samkvæmt alþjóðlegum stöðlum, gróðri og gróðurlendum samkvæmt íslenskum flokkunum, auk sýnatöku og gagnaöflunar sem varðar ofangreind atriði.

Námskeiðið veitir þjálfun í aðferðum sem notaðar eru í rannsóknum í náttúrulandfræði og sem krefjast öflunar og úrvinnslu gagna af vettvangi.

Námskeiðið samanstendur af fjögurra daga ferð í vikunni fyrir upphaf kennslu á haustmisseri. Í ferðinni eru nemendum kynntar aðferðir og tækjabúnaður sem gjarnan er notaður þegar safna þarf sýnum og öðrum upplýsingum, til rannsókna á breytingum á eðli og yfirborði lands sem ná yfir mismunandi tíma- og rýmiskvarða. 
Að ferð lokinni vinna nemendur verkefni sem snúa að úrvinnslu þeirra gagna sem aflað var í ferðinni og skipulagi og framkvæmd tiltekinna rannsóknaverkefna sem gögnin tengjast. Sú vinna fer fram á rannsóknastofu og í verkefnatímum. Nemendur skila skýrslum um verkefnin og halda fyrirlestra um þau í fyrri hluta nóvember.

Námsmat byggir á skýrslum, fyrirlestrum og þátttöku og virkni nemenda í vettvangsferð og á rannsóknastofu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Vor
Byggðaþróun og atvinnulíf (LAN417M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um kenningar og stefnumótun varðandi þróun byggða og svæða og það efni sett í samhengi við íslenskar aðstæður. Farið er í fólksfjöldaþróun, þróun  atvinnulífs og aðrar forsendur búsetu, í mismunandi byggðarlögum á Íslandi, með áherslu á 21. öldina.  Skoðuð eru markmið, leiðir og ágreiningsefni um  byggðastefnu. Að námskeiðinu loknu eiga nemendur að kunna skil á sérstöðu hinna ýmsu landshluta og byggðarlaga á Íslandi og vera færir um að sjá stöðu þeirra í stærra samhengi þróunar í heiminum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Vor
Veður og loftslag (LAN413G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið verður í grunndvallaratriði hitabúskapar á jörðinni, hvað hefur drifið langvarandi breytingar á hitabúskap hennar og hvernig það hefur birst í formi einstakra loftslagstímabila, nú síðast loftslagi á Nútíma (Holocene). Farið verður í undirstöðuatriði í veðurfræði (t.d. orkubúskapur, loftþrýstingur, vindar, stöðugleiki lofts, loftraki, skýjamyndun, úrkoma) til skilnings á stað- og svæðisbundnum einkennum loftslags (s.s. myndunar loftmassa, hæða og lægða) sem leiða til breytileika í myndun vistkerfa og búsetuskilyrða á jörðinni. Farið verður í hringrásir lofts í veðrahvolfinu og hafstrauma sem drifkrafta hitajöfnunar um jörðina. Hringrásum gróðurhúsalofttegunda verða gerð skil og hvernig maðurinn hefur haft áhrif á þær. Veðurfarslíkön sem varða smærri og stærri ferla í andrúmslofti verða til umfjöllunar í námskeiðinu. Sérstaklega verður farið í veður og loftslag á Íslandi og landfræðilegan breytileika í veðurfari.

Námskeiðið er kennt í formi fyrirlestra, verkefnavinnu, þema- og kaflaprófa og heimsókna á viðeigandi stofnanir þar sem veður og loftslag er til rannsókna og þar sem loftslagsbreytingar (gróðurhúsaáhrif) koma inn í störf rannsóknafólks.

Ekki er haldið lokapróf en allir þættir námskeiðs eru metnir til einkunnar, þema- og kaflapróf (60%), ritgerðir (30%), samantektir um lærdóm af heimsóknum (10%).

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Kannanir, viðtöl og vettvangsathuganir (LAN411G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að veita nemendum fræðilega undirstöðu og hagnýta þjálfun til að þeir geti beitt algengum félagsvísindalegum aðferðum við rannsóknir í landfræði og ferðamálafræði.

Fjallað verður um þekkingarfræðilegan grunn félagsvísindalegra rannsókna, rannsóknarsiðferði, og algengar rannsóknaraðferðir, bæði eigindlegar og megindlegar.

Sérstök áhersla verður lögð á: a) framkvæmd viðtalsrannsókna, þar með talið undirbúning og gerð viðtalsramma, val viðmælenda, framkvæmd viðtals, afritun, lyklun, greiningu og túlkun; b) framkvæmd spurningakannana, þar með talið skipulagningu spurningakannana, úrtaksgerð, gerð spurningalista, réttmæti og áreiðanleika, orðalag spurninga, gerð gagnagrunns og úrvinnslu; og c) samþættingu aðferða.

Fyrirlestrar og verkefnatímar í námskeiðinu þjóna því hlutverki að byggja undir og styðja við rannsóknarverkefni sem nemendur vinna yfir misserið.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Haust
Fjarkönnun og umhverfisvöktun (LAN514M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lögmál og grundvallaratriði fjarkönnunar. Rafsegulgeislun, víxlverkun við lofthjúp og yfirborð jarðar. Endurvarp og eigingeislun. Eiginleikar ljósmynda, hitamynda, örbylgju- og ratsjármynda. Yfirlit yfir annars konar fjarkönnun: LIDAR, bylgjuvíxlmyndir, fjölgeisla- og jarðsjármælingar, fjarkönnun á öðrum reikistjörnum.

Fjarkönnunargögn og aðferðir við öflun þeirra. Nemar og skannar um borð í gervitunglum og flugvélum. Upplausn mynda: rúmfræðileg, rófgreinihæfni, geislastyrkur, tími. Saga fjarkönnunar á 20. og 21. öld.

Notkun og túlkun loftmynda og gervitunglamynda. Myndvinnsla og greining: forvinna, upprétting, strekking, vinnsla með fjölda banda, stýrð og sjálfvirk flokkun, landgreiningar og rannsóknir á breytingum, líkangerð. GPS. Samfelling gagna og landupplýsinga. Framsetning og miðlun fjarkönnunargagna.

Umhverfisvöktun og gildi fjarkönnunar á ýmsum fræðasviðum: landfræði, jarðfræði og líffræði. Umhverfisvöktunarkerfi vegna snöggra og hægfara umhverfisbreytinga, náttúruvár, atburða og kortagerðar. Öflun og vinnsla rauntímagagna.

Kennslufyrirkomulag: Fyrirlestarar, umræðutímar og vikuleg verkefni í tölvuveri í öflun, greiningu og túlkun fjarkönnunargagna. Unnið verður með landupplýsingakerfi, einkum ArcGIS og QuantumGIS, svo og ýmis myndvinnsluforrit.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Þriðja ár | Haust
Rannsóknaráætlun fyrir BS verkefni (LAN523G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er ætlað nemendum sem hyggja á skrif BS ritgerðar í landfræði og ferðamálafræði.

Markmið námskeiðsins er að leiðbeina nemendum um gerð og frágang rannsóknaráætlunar.

Fjallað verður um uppbyggingu og efnistök í rannsóknartillögu, þar með talið:

  • markmið og rannsóknarspurningar,
  • stöðu þekkingar á fræðasviðinu,
  • vísindalegt gildi og hagnýtt gildi rannsóknar,
  • aðferðafræði,
  • verk- og tímaáætlun.

Nemendur vinna að rannsóknartillögu um efni að eigin vali undir handleiðslu umsjónarkennara og leiðbeinenda.

Gert er ráð fyrir að rannsóknaráætlunina megi nýta fyrir BS verkefni í landfræði og ferðamálafræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Haust
Sjónarhorn landfræðinnar (LAN515M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að veita nemendum yfirlit yfir viðfangsefni og viðmið í landfræðilegum rannsóknum. Fjallað er um sögu landfræðinnar og sérstöðu hennar innan vísinda. Gerð er grein fyrir þróun kenningarlegra sjónarhorna og rannsókna, með áherslu á mannvistarlandfræði. Helstu tegundir þekkingar- og aðferðafræði í landfræðirannsóknum eru bornar saman. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Þriðja ár | Vor
BS-verkefni í landfræði ( 2ja manna verkefni) (LAN218L, LAN219L)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Við lok grunnnáms vinna nemendur að sjálfstæðu rannsóknarverkefni á áhugasviði sínu innan ferðamálafræði. Almennt er gert ráð fyrir samvinnuverkefni tveggja nemenda en einnig má vinna það sem einstaklingsverkefni. Meginreglan er sú að verkefnið sé unnið á vormisseri en það má einnig vinna að hausti, og mögulega að sumri ef aðstæður leyfa. Í öllum tilvikum er gerð krafa um að skyldunámskeiðum 1. og 2. árs sé lokið áður en hafist er handa við BS verkefni.

Markmiðið er að veita þjálfun í að skipuleggja og framkvæma eigin rannsókn. Nemendur búa til rannsóknaráætlun þar sem viðfangsefnið er afmarkað, rannsóknarsnið er mótað, rannsóknarspurningar eru settar fram, fræðilegur rammi rannsóknarinnar er skilgreindur, sem og aðferðafræðileg nálgun. Rannsóknin er unnin á grundvelli áætlunarinnar og skulu henni gerð skil í heild sinni í ritgerð sem gengið er frá samkvæmt reglum Líf- og umhverfisvísindadeildar um rannsóknarritgerðir.

Vinna við BS verkefni er sett upp sem námskeið þar sem umsjónarkennari miðlar hagnýtum upplýsingum sem varða BS ferlið og verkefnavinnuna almennt. Hverju rannsóknarverkefni er jafnframt fenginn faglegur leiðbeinandi úr hópi kennara við námsbrautina. Undirbúningur hefst undir lok misserisins á undan með sameiginlegum fundi. Nemendur setja í kjölfarið fram hugmynd að rannsóknarverkefni og á grundvelli hennar er þeim fenginn leiðbeinandi. Nemendur ráðfæra sig við leiðbeinanda um mótun rannsóknaráætlunar sem síðan er skilað í byrjun misseris. Gert er ráð fyrir þremur sameiginlegum fundum með umsjónarkennara. Fjöldi funda með leiðbeinanda er samkomulagsatriði. Gerð er krafa um sjálfstæð vinnubrögð nemenda.

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Þriðja ár | Vor
BS-verkefni í landfræði (einstaklingsverkefni) (LAN218L, LAN219L)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Við lok grunnnáms vinna nemendur að sjálfstæðu rannsóknarverkefni á áhugasviði sínu innan landfræði. Almennt er gert ráð fyrir samvinnuverkefni tveggja nemenda en einnig má vinna það sem einstaklingsverkefni. Meginreglan er sú að verkefnið sé unnið á vormisseri en það má einnig vinna að hausti, og mögulega að sumri ef aðstæður leyfa. Í öllum tilvikum er gerð krafa um að skyldunámskeiðum 1. og 2. árs sé lokið áður en hafist er handa við BS verkefni.

Óháð námsári | Haust
Náttúruvá: Atburðir og eðli þeirra (LAN513M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um hina ýmsu atburði og ferla í náttúrunni sem skapað geta vá. Náttúruvá er skilgreind og hugað að sögu umfjöllunar á þessu mikilvæga fræðasviði í ýmsum greinum náttúruvísinda. Gerð er grein fyrir náttúrufræðilegum orsökum og eðli náttúruvár af ólíku tagi. Fjallað er um yfirstandandi loftslagsbreytingar sem náttúruvá, sem og um samhengi ýmissa veður- og loftslagstengdra atburða við loftslagsbreytingar. Fjallað verður um ferli náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands og ferli hættumats í tengslum við náttúruvá.

Nemendur fara í 1 dags ferð um Suðurland í byrjun september, þar sem ummerki atburða sem flokka má sem náttúruvá eru skoðuð og rædd.

Nemendur taka þátt í kostnaði við vettvangsferðir í þessu valnámskeiði.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Skipulag og stefnumótun í ferðamennsku (FER507M)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Viðfangsefni þessa námskeiðs er skipulagning og stefnumótun í ferðamennsku út frá umhverfis-, félags- og efnahaglegum þáttum. Í víðum skilningi snerta skipulagsmál alla þætti ferðamennsku. Nemendur læra um hugmyndafræðilegar forsendur skipulagsvinnu, sögulega þróun stefnumótunar á Íslandi og á alþjóðlegum vettvangi með sérstakri áherslu á sjálfbæra þróun og Heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna. Í námskeiðinu fá nemendur í hendur verkfæri til að lýsa, greina og meta forsendur, mótun og innleiðingu skipulags- og stefnumótunarvinnu í ferðaþjónustu þar sem lagt er upp úr að brúa milli fræðilegrar umræðu og hagnýtingar. Kennsla byggir á virkri þátttöku nemenda og námsmat reynir bæði á sjálfsstæði nemenda og hæfni þeirra til að vinna saman.

Vettvangstímar fara fram innan höfuðborgarsvæðisins.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Inngangur að áhættu- og öryggistjórnun (TÓS007M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið hentar vel nemendum sem eru í tómstunda- og félagsmálafræði, ferðamálafræði og kennarafræðum (þar á meðal íþrótta-, leikskóla- og grunnskólakennarafræði). Einnig hentar námskeiðið fagfólki á vettvangi eins og útikennurum og rannsakendum. Fjallað er um mikilvæga þekkingu og færni í áhættustjórnun og öryggisskipulagi þegar unnið er úti á vettvangi. Áhersla er á að sameina fræðilega þekkingu og hagnýta færni, sem gerir nemendum kleift að stjórna áhættu á markvissan hátt við fjölbreyttar aðstæður úti.

Vinnulag:

Fyrirlestrar og verkefnatímar: Vikulega frá upphafi kennslu og út október. Vettvangsferð (3 dagar): síðustu vikuna í september eða byrjun október.

  • Fyrirlestrar á neti og í kennslustundum með áherslu á fræðilega þekkingu og hópumræður.
  • Hópavinna: Samstarfsverkefni þar sem nemendur gera áætlaniri varðandi áhættustjórnun og þróa lausnir fyrir mismunandi sviðsmyndir sem geta komið upp í útimenntun. Lögð áhersla á raunverulegar áskoranir á sviði útimenntunar þar sem nemendur þurfa að nýta þekkingu sína í ákveðnum aðstæðum.
  • Gestafyrirlestrar: Innlegg frá sérfræðingum á sviði útimenntunar, öryggisstjórnunar og áhættumati.
  • Vettvangsferð (3 dagar): Verklegt nám utandyra til að æfa áhættustjórnun og öryggisfærni. Liður í ferðinni er skyndihjálparnámskeið sem felur í sér þjálfun í sértækri skyndihjálp utandyra.

Mikill hluti námskeiðsins fer fram utandyra og inniheldur praktískar æfingar til að byggja upp hagnýta reynslu.

Ferðakostnaður: Reikna má með nokkrum kostnaði vegna ferða á námskeiðinu, allt að 16.000 kr.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Óháð námsári | Haust
Starfsþjálfun í landfræði og ferðamálafræði (LAN018G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið starfsþjálfunar er að nemendur kynnist störfum sem tengjast landfræði og/eða ferðamálafræði og hljóti þjálfun í þeim undir faglegri handleiðslu reyndra stjórnenda hjá fyrirtækjum eða opinberum stofnunum. Verkefni nemenda eru fjölbreytt og liggja á sviði umhverfismála, sjálfbærni, markaðsmála, skipulagsvinnu, kortagerðar, gagnagreiningar og úrvinnslu, nýsköpunar, þjónustustjórnunar, ferðahönnunar og áætlunargerðar svo eitthvað sé nefnt. Verkefni nemenda skulu þannig reyna á þá þekkingu og færni sem þeir hafa þegar aflað sér í grunnnámi í landfræði eða ferðamálafræði.

Starfstími er 150 klst. (6 ECTS) og skal starfsþjálfun lokið innan 12 vikna frá því að hún hófst. Að auki er gert ráð fyrir viðbótartíma sem felst í dagbókar- og skýrsluskrifum. Lokaafurð starfsþjálfunar skal skilgreina í náms- og starfsmarkmiðum í samráði við umsjónarkennara og forsjáraðila fyrirtækis/stofnunar.

Í lok starfstímans skal skila til umsjónarkennara:

  • Lokaskýrslu nemanda (skv. skilgreiningu í verkefnislýsingu).
  • Dagbók sem nemandi hefur haldið meðan á starfsþjálfun stóð. Dagbókin skal fela í sér vikulegt yfirlit þar sem fram kemur hver verkefni vikunnar voru og hve miklum tíma var varið í einstök verkefni.
  • Staðfesting umsjónarmanns á ástundun nemanda og verkefnavinnu í lok starfsþjálfunar.

Umsjónarkennari skal yfirfara skýrslu og dagbók nemanda svo og staðfestingu umsjónarmanns fyrirtækis/stofnunar.

Einkunn er gefin sem staðist/fallið og ekki er gefin töluleg einkunn.

ATH: Nemendur geta ekki skráð sig sjálfir í þetta námskeið heldur eru þeir skráðir í námskeiðið þegar þeir hafa tryggt sér starfsþjálfunarstöðu hjá fyrirtæki eða stofnun.

Allar starfsþjálfunarstöður verða auglýstar sérstaklega á Tengslatorgi (www.tengslatorg.hi.is ) í upphafi hvers kennslumisseris og nemendur sækja sérstaklega um að komast í starfsþjálfun.  Umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi, þar sem nemendur tilgreina hvers vegna þeir hafa áhuga á að komast í starfsþjálfun hjá viðkomandi fyrirtæki skal senda á von-starfsthjalfun@hi.is

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Ferðamennska og víðerni (LAN616M)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennt annað hvert ár þegar ártal endar á sléttri tölu.

Landslagshugtakið er skoðað á gagnrýninn hátt út frá sjónarhorni mannvistarlandfræði. Breytingar á landnýtingu, orsakir þeirra og afleiðingar fyrir landslag eru ræddar. Sérstök áhersla verður lögð á nýtingu endurnýjanlegrar orku og landslagsáhrif hennar. Átök vegna ólíkra hagsmuna og/eða sýnar á náttúruna eru greind. Samspil orkuvinnslu, ferðaþjónustu og friðlýsingar svæða á Íslandi verður skoðað með tilliti til landslags. Einnig er rætt hvernig ákvarðanir um orkunýtingu eru teknar og að hve miklu leyti sjónarmið almennings koma við sögu.

Farin er vettvangsferð í nágrenni Reykjavíkur á laugardegi í september.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Jarðvegsfræði (LAN615M)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Jarðvegur er undirstaða vistkerfa, grunnur matvælaframleiðslu og mannlegrar búsetu og gegnir lykilhlutverki í hringrásum næringarefna, kolefnis og vatns. Jafnframt geymir jarðvegur mikilvægar upplýsingar um umhverfisbreytingar og samspil náttúru og manns í tímans rás.

Í þessu námskeiði kynnast nemendur jarðveg sem vistkerfi, auðlind og upplýsingagjafa. Námskeiðið veitir bæði traustan fræðilegan grunn í jarðvegsfræði og leggur jafnframt ríka áherslu á hagnýta færni, vettvangsvinnu og gagnagreiningu.

Það fjallar um eftirfarandi helstu þætti:

  • Jarðvegsmyndandi þætti og ferla sem leiða til myndunar mismunandi jarðvegsgerða um heiminn.
  • Eðlis- og efnaeiginleika jarðvegs, með sérstakri áherslu á hlutverk leirsteinda og lífrænna efna.
  • Íslenskan jarðveg, myndun hans og sérstöðu.
  • Jarðvegslíf – jarðveg sem vistkerfi og hlutverk hans í vistkerfum
  • Jarðveg sem auðlind - hlutverk jarðvegs í hringrásum næringarefna, kolefnis og vatns.
  • Ástand jarðvegs – hvernig meta megi heilbrigði jarðvegs bæði á vettvangi og með mælingum á rannsóknastofu.
  • Áhrif landnýtingar á jarðveg – jarðvegshningnun og landhnignun (rof, mengun, söltun o.fl.).
  • Tengsl jarðvegs og loftslags.
  • Jarðveg sem rannsóknarefni í tengslum við mannvist og umhverfissögu.

Kennsla fer fram í formi fyrirlestra, vettvangsferða og rannsóknastofuvinnu, þar sem nemendur öðlast reynslu af raunverulegum jarðvegsrannsóknum og læra að tengja fræðilega þekkingu við eigin rannsóknargögn.

Námskeiðið hentar nemendum í grunnámi á öðru og þriðja námsári sem og nemendum í meistaranámi.

Kennslutungumál: Enska
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Óháð námsári | Haust
Menningartengd ferðaþjónusta (FER506M)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður hugað að þýðingu og skilgreiningu hugtaksins menningar í menningartengdri ferðaþjónustu með sérstöku tilliti til framsetningar og miðlunar ímynda og menningar á mismunandi vettvangi. Velt verður upp pólitískum og siðferðilegum spurningum hvað varðar söfnun, framsetningu og miðlun menningar í mismunandi samhengi og á mismunandi vettvangi, erlendis og hérlendis. Einnig verða skoðuð tengsl ferðaþjónustu við skapandi greinar. Spurningum varðandi eignarhald á menningararfleifð verða íhugaðar svo og í höndum hvers það að skapa menningararfleifð er.

Vettvangstímar fara fram innan höfuðborgarsvæðisins.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Kenningar í ferðamálafræði (FER108M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á áttunda áratugnum byrjuðu fræðimenn að velta fyrir sér tilgangi, þróun og mikilvægi ferðamennsku í heiminum. Spurningar eins og „hver er ferðamaður?“, „hver er tilgangur þess að ferðast?“ og „hvað skilgreinir ferðalög?“ voru algengar framan af og enn þann dag í dag velta fræðimenn upp þessum sömu spurningum, þó með breyttum áherslum í síbreytilegum félagslegum og pólitískum aðstæðum.

Þessi áfangi leggur áherslu á helstu kenningar ferðamálafræðinnar og gefur innsýn í ólíkar nálganir og áherslur fræðanna. Krafa verður gerð á nemendur um að þeir velti fyrir sér mismunandi áherslum fræðimanna og setji fram eigin rannsóknarspurningar og móti hugsanlegar nálganir hvað varðar uppsetningu verkefnis í ferðamálafræðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Hreyfanleiki og rými (LAN520G)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu á samspili landfræðilegs hreyfanleika fólks og rýmis. Áherslan er annars vegar á búferlaflutninga milli landa og  svæða heimsins , með sérstaka áherslu á Ísland og einnig búferlaflutninga fólks innan Íslands. Hins vegar er rýnt í hreyfanleika fólks í sínu nærumhverfi. Fjallað er um efnið út frá fræðilegri umræðu í mannvistarlandfræði og m.a. velt upp spurningum um breytileika í hreyfanleika samfélagshópa staðbundið og hnattræn, og hvernig hreyfanleiki fólks mótar staði í samtímanum.  Horft er sérstaklega til áhrifa þátta eins og kyngervis, þjóðernis og kynvitundar á hreyfanleika og aðgengi einstaklinga og hópa að stöðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Greining landupplýsinga (LAN025M)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

„Allir hlutir tengjast öllum öðrum hlutum, en nálægir hlutir tengjast meira en fjarlægir hlutir.“ - Waldo R. Tobler (1970)

Greining landupplýsinga byggir á þeirri staðreynd að staðsetning skiptir máli. Gagnkvæm tengsl fyrirbæra í landfræðilegu rúmi, fjölbreytileiki þeirra, kvarði og skipan hefur mótandi áhrif á hvernig ferlar tengdir samfélaginu, umhverfinu og efnahagslífinu þróast. Þessum áfanga er ætlað að auka færni nemenda við greiningar hvers kyns landupplýsinga og gera þeim kleift að framkvæma slíkar greiningar með hugbúnaðarpakkanum R.

Í námskeiðinu er farið í gegnum samþætt vinnuflæði fyrir greiningu landupplýsinga, allt frá öflun og undirbúningi gagna til könnunar þeirra og greiningar á tengslum í rúmi. Sérstök áhersla er lögð á greiningar sem unnt er að endurtaka, sem og gagnrýna túlkun niðurstaðna og ábyrga miðlun niðurstaðna.

Nemendur nýta tölvustuddar aðferðir við landfræðilega greiningar á þverfræðilegum viðfangsefnum og auka hæfni sína til að skipuleggja slíkar greiningar og rökstyðja val á greiningaraðferðum. Sérstakur gaumur er gefinn að aðferðafræðilegum álitaefnum, svo sem þeim vanda sem fylgir breytilegri afmörkun svæða, landfræðilegum kvarða, áhrifum hnitakerfa, óvissu, og hættu sem fylgir ályktunum um einstök tilfelli út frá almennum alhæfingum. Námskeiðið er byggt upp af fyrirlestrum og verklegum æfingum í R. Því lýkur með sjálfstæðu verkefni í landfræðilegri greiningu sem krefst aðferðafræðilegs rökstuðnings, gagnsæis í vinnuferli og gagnrýninnar hugsunar.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Haust
Borgir og borgarumhverfi (LAN512M)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um helstu kenningar og aðferðir borgarlandfræði og borgarhönnunar við greiningu á lífi og umhverfi í borgum, með áherslu á bæjarrými, nærumhverfið og hverfi innan borga og bæja.

Fjallað er um sögulega þróun borga frá upphafi borgamyndunar til okkar daga. Þá er fjallað um helstu viðfangsefni borgarlandfræði og borgarhönnunar við greiningu og stefnumótun um borgir og borgarumhverfi, svo sem um ólíka félagshópa og búsetu, atvinnu og samgöngur í borg, upplifun og gæði bæjarrýma, list og menningu í bæjarrýmum, náttúruna í borginni og mörkun staða. Einnig um áskoranir borga á okkar samtíma, svo sem tengt loftslagsmálum, sjálfbærni og fjórðu iðnbyltingunni.

Fyrirlestrar, umræðutímar og verkefnavinna. Einstaklings- og hópverkefni.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Inngangur að ferðamálafræði (FER101G)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að kynna nemendum helstu hugtök og kenningar í ferðamálafræðum og leggja fræðilegan grunn að frekara námi í greininni. Lögð er áhersla á upphaf og þróun ferðamennsku, helstu ferðamannastrauma og þá samfélagslegu þætti sem móta ferðalög. Markmiðið er jafnframt að veita nemendum víðtæka sýn á áhrif ferðamennsku á umhverfi, samfélag og efnahag og gera þeim kleift að greina þau tækifæri og þær áskoranir sem fylgja vexti og uppbyggingu ferðaþjónustunnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Óháð námsári | Haust
Eldfjallafræði (JAR514M)
Valnámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Eldgos eru eitt þeirra meginferla sem skapar og mótar svipmót jarðar. Eldgos geta leitt af sér hamfarir og valdið verulegu tjóni á mannvirkjum. Kvikugösin sem rísa upp frá eldspúandi gígunum viðhalda andrúmslofti jarðar, sem og hafa veruleg áhrif á eiginleika andrúmsloftsins og loftstrauma þess. Kvikuvirkni neðanjarðar, og í sumum tilfellum eldvirknin ofan jarðar, hefur myndað beint eða óbeint stóran hluta að þeim málmum sem við nemum úr jörðu. Þannig að fyrirbærið eldgos hefur bein og óbein áhrif á mannkynið sem og tengsl við margar af undirgreinum jarðvísindanna. Af þeim sökum er grunnskilningur á því hvernig eldfjöll og eldstöðvakerfi virka og framlag eldvirkninar til hringrásaferla jarðar góð undirstaða fyrir alla nemendur í jarðvísindum.

Í þessu námskeiði verður farið í grunnatriði eldfjallafræðinnar; ferðalag kviku upptakastað til yfirborðs og almenn ferli sem stjórna eldvirkni á yfirborði og dreifingu gosefna. Fjallað verður líka um grunnatriði eldgosavár og hnattrænna áhrifa eldgosa.

Verklegar æfingar eru vikulega og beinast að því að leysa vandamál með útreikningum, greiningu gagna og rökstuðningi. Ein vettvangsferð á Reykjanes.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Óháð námsári | Haust
Verkleg efnafræði L (EFN113G)
Valnámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Mólrúmmál loftkenndra efna, Efnafræðileg varmafræði, Vermi hvarfa og lögmál Hess, Hraði efnahvarfa, niðurbrot vetnisperoxíðs, Le Chatelier, ákvörðun jafnvægisfasta með ljósgleypnimælingum, ákvörðun jónunarfasta sýru.

Skyldumæting er í öryggisfyrirlestur í fyrstu kennsluvikunni.

Námskeiðið taka nemendur í líffræði samhliða bóklega námskeiðinu Almenn efnafræði L.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Óháð námsári | Haust
Almenn efnafræði L (EFN112G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Almenn og sérhæfð atriði um efnatengi og sameindabyggingu. Efnahvörf. Lofttegundir, vökvar, föst efni og lausnir. Varma- og hraðafræði efnahvarfa. Efnajafnvægi: sýru-basa, fellingar-, komplex- og afoxunar. Rafefnafræði og kjarnefnafræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Eðlisfræði B (EÐL101G)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið þessa námskeiðs er að styrkja og breikka undirstöðuþekkingu nemenda á eðlisfræði þannig að þeir geti; a) sett fram og notað einföld líkön til að lýsa náttúrufyrirbærum, b) aflað sér frekari þekkingar þegar beita þarf eðlisfræði, c) lesið úr stærðfræðilegri lýsingu á náttúrulegum ferlum.

Námsefni: Aflfræði með áherslu á vinnu og orku, snúningshreyfingu og sveiflur. Vökvar. Varmafræði og varmaskipti. Hljóð og hljóðbylgjur. Rafkraftar, raf- og segulsvið.

Í verklegu æfingum kynnast nemendur ýmis konar búnaði, m.a. sveiflusjám, fjölmælum og litrófsgreini. Áhersla er lögð á þjálfun vinnulags við gagnasöfnun og gagnameðferð.

Námskeiðið er kennt á íslensku og ensku samkvæmt þörfum nemenda.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Grasafræði (LÍF102G)
Valnámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Plöntur sem lífverur. Bygging og starfsemi plöntufrumna. Ljóstillífun. Innri og ytri bygging plantna, vöxtur og æxlun. Ættliðaskipti, þróun, lífsferlar og einkenni helstu hópa plantna. Fjallað verður um mosa og útdauðar og núlifandi æðplöntur en mest áhersla lögð á blómplöntur. Þróun og gerð fræja, blóma og aldina. Helstu lífbelti jarðar. Gróður á Íslandi.

Verklegar æfingar: Dæmi skoðuð af ytri og innri byggingu plantna úr helstu hópum. Frumu- og vefjagerðir, fræ, blóm og aldin. Áhrif umhverfis á ytri og innri gerð plantna.

Próf: Verklegt (20%) og skriflegt próf (80% heildareinkunnar). Lágmarkseinkunnar er krafist í báðum prófhlutum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Óháð námsári | Haust
Vistfræði (LÍF311G)
Valnámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fyrirlestrar: Inngangur. Þróun. Atferli. Söguleg og vistfræðileg líflandafræði. Stofnar: Dreifing einstaklinga, fæðingartölur, dánartölur, aldursdreifing, líftöflur, vöxtur stofna, stjórnun stofnstærðar, stofnsveiflur, far. Samspil tegunda: Samkeppni, afrán, aðrar samskiptagerðir. Nýting stofna. Stjórnun skaðlegra stofna. Samfélög: Lýsing, tegundasamsetning, tegundafjölbreytni, fæðuvefir, stöðugleiki, framvinda. Vistkerfi: Hringrás efna, orkurás, framleiðni, næringarkeðjur, neysluþrep, vistfræðileg nýtni. Vistfræði þurrlendis, sjávar og fersks vatns; kynning á íslenskum vistkerfum.

Verklegar æfingar: Æfingar fara fram á rannsóknarstofu og úti við, eftir því sem aðstæður leyfa. Lögð er áhersla á beitingu vísindalegrar aðferðar í vistfræði, breytileika og meðferð gagna. Gerðar eru m.a. athuganir á stofnvexti bifdýrastofna, athuganir á gróðri og dýralífi þurrlendis, á beltaskiptingu í fjöru og á straumvatni.  Mætingarskylda: í allar verklegar æfingar. 

Námsmat: Verklegar æfingar og málstofur vega 50% af lokaeinkunn, þar af ein viðameiri skýrsla sem kynna á munnlega. Tíu skriflegar æfingar gilda 50%. Lágmarkseinkunnar er krafist úr öllum námshlutum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Umhverfisfræði (LÍF516M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Landnýting. Ólífrænar auðlindir, nýting og umhverfisáhrif. Sjálfbær þróun. Líffræðileg fjölbreytni í tíma og rúmi. Eyðing búsvæða, útdauði og válistar. Ágengar tegundir. Jarðvegur og eyðimerkurmyndun. Verndun landslags og víðerna. Siðfræði og saga náttúruverndar, íslensk náttúruverndarlöggjöf. Hagnýting vistfræðilegrar þekkingar til að leysa umhverfisvandamál, vistheimt, mat á umhverfisáhrifum framkvæmda, rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Hnattrænar loftslagsbreytingar. Ein dagsferð á laugardegi í september. Nemendafyrirlestrar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Landslag og orkumál (LAN024M)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennt annað hvert ár þegar ártal er slétt tala.

Landslagshugtakið er skoðað á gagnrýninn hátt út frá sjónarhorni mannvistarlandfræði. Breytingar á landnýtingu, orsakir þeirra og afleiðingar fyrir landslag eru ræddar. Sérstök áhersla verður lögð á vinnslu, flutning og nýtingu endurnýjanlegrar orku og landslagsáhrif mismunandi tegunda slíkrar orku. Greind eru dæmi um átök vegna ólíkra hagsmuna og/eða sýnar á náttúruna í tengslum við endurnýjanlega orku. Samspil orkuvinnslu, ferðaþjónustu og friðlýsingar svæða á Íslandi verður skoðað með tilliti til landslags. Einnig er rætt hvernig ákvarðanir um orkunýtingu eru teknar og að hve miklu leyti sjónarmið almennings koma við sögu.

Farin er vettvangsferð til að skoða núverandi og áformuð orkuvinnslusvæði.

Nemendur taka þátt í kostnaði við vettvangsferðir í þessu valnámskeiði.

Kennslutungumál: Enska
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Óháð námsári | Vor
Umhverfis- og samfélagsleg ábyrgð í ferðamennsku (LAN023M)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Samfara auknum umsvifum ferðaþjónustunnar út um allan heim aukast umhverfis- og samfélagsleg áhrif ferðamennsku jafnt og þétt. Það er því mikilvægt að nemendur í ferðamálafræði og skyldum fagsviðum þekki og skilji þessi áhrif og geti beitt viðeigandi aðferðum til að stýra þeim. Enn fremur er mikilvægt að nemendur skilji hlutverk þessara áhrifa í víðara samhengi og tengsl þeirra við loftlagsbreytingar og sjálfbæra framtíð. Markmið námskeiðsins er að efla þekkingu nemenda á umhverfis- og samfélagslegri ábyrgð í ferðamennsku og mikilvægi hennar í uppbyggingu sjálfbærrar ferðamennsku. Áhersla verður lögð á að greina umhverfis- og samfélagsleg áhrif ferðaþjónustu. Kynnt verða mismunandi umhverfisstjórnunarkerfi og umhverfisvottanir í ferðaþjónustu og samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja rædd. Mismunandi nálganir, tæki og aðferðir sem notaðar eru á sviði umhverfisstjórnar og samfélagslegrar ábyrgðar verða enn fremur kynnt.

Námskeiðið er á kennt á framhaldsstigi, en nemendur sem lokið hafa tveimur árum í grunnnámi geta einnig setið námskeiðið. Námskeiðið er kennt á ensku.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Mat á umhverfisáhrifum 1 (UMV205M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið: Að kynna hugmyndafræði og þær aðferðir, sem notaðar eru við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og á umhverfismati sem samfléttuðum þáttum við gerð skipulagsáætlana.

Efni: Ástæður og aðdragandi lagasetningar um mat á umhverfisáhrifum og hvernig framkvæmd mats er háttað á Íslandi. Aðferðafræði; gátlistar, töflur, glæruaðferðir og flæðirit. Notkun landfræðilegra upplýsingakerfa (LUK), sem byggjast á stafrænum kortagrunnum og gagnasöfnum. Fræðasvið, sem nýtast við matið; landfræði, vistfræði, straumfræði, jarðfræði, efnafræði, lögfræði, félagsfræði, hagfræði og fagurfræði. Aðferðir við framsetningu á matinu; skýrslugerð, myndræn framsetning og tölvugrafík. Dæmi um notkun mats á umhverfisáhrifum við undirbúning og hönnun mannvirkja; losun og förgun úrgangsefna, vega- og línulagnir, brýr, hafnir og flugvellir, verksmiðjur og einstök mannvirki. Einnig ný aðferðafræði um hvernig þarf að flétta aðferðir MÁU inn í gerð skipulagsáætlana, á þann veg að skipulags-, landnýtingar og staðarvalsákvarðanir taki mið af umhverfissjónarmiðum. Hópverkefni, sem tengjast efni námskeiðsins.

Kennslutungumál: Enska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Áfangastaðurinn Ísland (FER209G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að veita nemendum undirstöðuþekkingu á ferðamannalandinu Íslandi og helstu áfangastöðum og ferðaleiðum sem þar er að finna. Jafnframt er leitast við að veita nemendum hagnýta þjálfun til að þeir geti skipulagt ferðir um landið og notað til þess aðgengilegar aðferðir kortagerðar og unnið með með einfaldar landupplýsingar. Ferðaleiðir verða skoðaðar með tilliti til aðdráttarafls þeirra, afþreyingarmöguleika og upplifunar ferðamanna. Dregið verður saman það helsta um hverja leið með tilliti til samfélags þess svæðis sem ferðast er um, náttúru, sögu og menningu.

Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun í:

  • Að afla gagna til að skipuleggja ferðir um Ísland fyrir ólíka hópa ferðamanna.
  • Miðlun upplýsinga til ferðamanna og pistlagerð.
  • Rýmistengdri hugsun og notkun landfræðilegra upplýsinga við skipulagningu ferða.

Farið verður sýndarferðalög víðsvegar um landið. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Óháð námsári | Vor
Starfsþjálfun í landfræði og ferðamálafræði (LAN018G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið starfsþjálfunar er að nemendur kynnist störfum sem tengjast landfræði og/eða ferðamálafræði og hljóti þjálfun í þeim undir faglegri handleiðslu reyndra stjórnenda hjá fyrirtækjum eða opinberum stofnunum. Verkefni nemenda eru fjölbreytt og liggja á sviði umhverfismála, sjálfbærni, markaðsmála, skipulagsvinnu, kortagerðar, gagnagreiningar og úrvinnslu, nýsköpunar, þjónustustjórnunar, ferðahönnunar og áætlunargerðar svo eitthvað sé nefnt. Verkefni nemenda skulu þannig reyna á þá þekkingu og færni sem þeir hafa þegar aflað sér í grunnnámi í landfræði eða ferðamálafræði.

Starfstími er 150 klst. (6 ECTS) og skal starfsþjálfun lokið innan 12 vikna frá því að hún hófst. Að auki er gert ráð fyrir viðbótartíma sem felst í dagbókar- og skýrsluskrifum. Lokaafurð starfsþjálfunar skal skilgreina í náms- og starfsmarkmiðum í samráði við umsjónarkennara og forsjáraðila fyrirtækis/stofnunar.

Í lok starfstímans skal skila til umsjónarkennara:

  • Lokaskýrslu nemanda (skv. skilgreiningu í verkefnislýsingu).
  • Dagbók sem nemandi hefur haldið meðan á starfsþjálfun stóð. Dagbókin skal fela í sér vikulegt yfirlit þar sem fram kemur hver verkefni vikunnar voru og hve miklum tíma var varið í einstök verkefni.
  • Staðfesting umsjónarmanns á ástundun nemanda og verkefnavinnu í lok starfsþjálfunar.

Umsjónarkennari skal yfirfara skýrslu og dagbók nemanda svo og staðfestingu umsjónarmanns fyrirtækis/stofnunar.

Einkunn er gefin sem staðist/fallið og ekki er gefin töluleg einkunn.

ATH: Nemendur geta ekki skráð sig sjálfir í þetta námskeið heldur eru þeir skráðir í námskeiðið þegar þeir hafa tryggt sér starfsþjálfunarstöðu hjá fyrirtæki eða stofnun.

Allar starfsþjálfunarstöður verða auglýstar sérstaklega á Tengslatorgi (www.tengslatorg.hi.is ) í upphafi hvers kennslumisseris og nemendur sækja sérstaklega um að komast í starfsþjálfun.  Umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi, þar sem nemendur tilgreina hvers vegna þeir hafa áhuga á að komast í starfsþjálfun hjá viðkomandi fyrirtæki skal senda á von-starfsthjalfun@hi.is

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Ferðamennska og umhverfi (LAN022M)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður fjallað um náttúru og landslag sem auðlind ferðamennsku. Áhersla verður lögð á samspil manns og náttúru. Farið verður yfir sögu náttúruverndar og staða náttúruverndar í dag skoðuð í alþjóðlegu samhengi. Fjallað verður um skipulag og stjórnun þjóðgarða og annarra friðlýstra svæða og skoðaðar aðferðir við gildismat náttúrunnar. Áhrif ferðamennsku á umhverfi verða rædd með áherslu á álag ferðamanna og þolmörk umhverfis. Gefin verður innsýn í náttúrusiðfræði og viðhorf og umgengni ferðamanna við náttúruna rædd. Sérstök áhersla verður lögð á sjálfbæra ferðamennsku og möguleikar þróunar slíkrar ferðamennsku hér á landi verða ræddir í ljósi skipulagningar og stjórnunar ferðamennsku.

Námskeiðið mun samanstanda af fræðilegum fyrirlestrum, umræðuverkefnum og æfingum. Stúdentar þurfa að standast alla prófþætti námskeiðsins.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Listin að ferðast (LAN205G)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið fjallar um mismunandi tegundir ferðamennsku og birtingarmyndir ferðaþjónustu á ólíkum svæðum. Námskeiðið skoðar tiltekna strauma ferðamennsku eins og massaferðamennsku, fátækraferðamennsku og bakpokaferðamennsku ásamt því að kynna kenningar um drifkrafta ferðalaga. Umfjöllunin er tengd ákveðnum landsvæðum og sett í samhengi við samfélagslega þróun þeirra. Þannig er lögð áhersla lögð á að veita innsýn í landfræðilegt samhengi ferðaþjónustu í heiminum í dag ásamt þeim álitamálum og úrlausnarefnum sem ferðamennska á við að etja á ólíkum stöðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Námsferð til útlanda (LAN615G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Vettvangsnámskeið í landfræði og ferðamálafræði, sem að felur í sér undirbúningstíma á misserinu og um tíu daga vettvangsferð eftir próf í maí. Nemendur bera kostnað af þátttöku í vettvangsferðinni.

Vettvangsferð til Western Cape héraðs í Suður-Afríku, í samstarfi við Landfræði- og umhverfisdeild Stellenbosch háskóla, þar sem ferðamennska er einnig meðal viðfangsefna í rannsóknum kennara. Sambærileg námsferð var farin árið 2019 og 2023. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Landfræðileg upplýsingakerfi 2 (LAN617G)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er verkefnamiðað,nemendur vinna sjálfstætt að verkefnum undir leiðsögn kennara. Leiðsögn kennara felst einkum í tæknilegri og fræðilegri úrfærslu verkefna út frá landupplýsingafræðilegu (LUK) sjónarhorni. Stærri hluta af önninni vinna nemendur sín eigin verkefni, oft í tengslum við lokaverkefni (BS). Verkefni nemenda geta verið úr hvaða vísindagrein sem er, en með LUK sjónarhorn sem þarf að leysa.

Efni námskeiðsins: Hnit og varpanir. Landræn fyrirbæri, eigindi og gagnagrunnar, grannfræði og landræn svið. Landrænar greiningar og brúanir, framsetning og miðlun landrænna gagna, 3D. Lýsigögn og varðveisla. Opinn hugbúnaður.

Áfanginn er próflaus en einkunn verður gefin fyrir lokaskýrslu og minni verkefni. Í upphafi annar þurfa nemendur að hafa á reiðum höndum lýsingu á verkefninu sem þeir ætla að vinna að ásamt mati á þeim landfræðilegum gögnum sem þarf til verksins.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Friðlýst svæði, landvarsla og stjórnun (LAN622G)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að efla þekkingu nemenda á grundvallarþáttum náttúruverndar, og hlutverki stjórnunar og skipulags í náttúruvernd hér á landi með tilliti til ferðamennsku innan friðlýstra svæða. Áhersla verður lögð á samspil verndunar og ferðamennsku, með sérstakri áherslu á líffræðilega og jarðfræðilega fjölbreytni. Farið yfir helstu álitamál um landnýtingu og náttúruvernd, sem og helstu ákvæði friðlýsingar og náttúruverndarlaga. Jafnframt verður skipulag ferðamennsku innan friðlýstra svæða rædd ásamt öryggismálum ferðamannastaða í náttúru Íslands. Kennd verða grundvallaratriði umhverfistúlkunar og leiðsagnar um náttúrusvæði. Nemendur munu enn fremur fá hagnýta reynslu í umhverfistúlkun og landvörslu og þar með talið móttöku gesta og þjónustuhlutverk landvarða.

Farnar verða fjórar vettvangsferðir á námskeiðstímanum. Ferðir og uppihald kosta nemendur sjálfir. Til að ljúka námskeiðinu þurfa nemendur að mæta í allar ferðirnar.

Námskeiðið er unnið í samvinnu við Umhverfisstofnun. Lokapróf í námskeiðinu, ásamt BS prófi í jarðfræði, líffræði, landfræði eða ferðamálafræði, veitir starfsréttindi Umhverfisstofnunar sem landvörður.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Uppbygging fyrirtækja og starfshæfni í ferðaþjónustu (FER208G)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Viðfangsefni námskeiðsins snýr að stjórnun og uppbyggingu þjónustu og innra gæðastarfs hjá ferðaþjónustufyrirtækjum og stofnunum. Fjallað verður um hvernig þessi atriði hafa bein og / eða óbein áhrif á árangur fyrirtækja og stofnanna, sem meta má á fjölbreyttan hátt. Nemendur vinna að raunverkefni með fyrirtæki að eigin vali, þar sem innri starfsþættir og uppbygging fyrirtækis eru greind. Hluti námskeiðsins er helgaður starfsþróun, þar sem gefin er innsýn í störf á ferðaþjónustumarkaði og nemendur taka fyrstu skrefin í uppbyggingu ferilskrár og starfsferilmöppu.   

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Landvistkerfi (LÍF660M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um eftirfarandi efni:

Fæðuvefir og samfélög landvistkerfa bæði ofanjarðar og neðan. Hlutverk lífvera og annarra þátta við mótun búsvæða á landi. Samband líffræðilegrar fjölbreytni og vistkerfisferla, m.a. frumframleiðslu og hringrás næringarefna. Áhrif einstakra lífveruhópa og eiginleika þeirra, einkum plantna og grasbíta, á vistkerfisferla, stöðugleika og þanþol vistkerfa. Áhrif loftslagsbreytinga og landnýtingar á vistkerfi, með áherslu á norðurslóðir. Sérstaða íslenskara vistkerfa. Endurheimt hruninna og hnignaðra vistkerfa. Helstu aðferðir við rannsóknir á landvistkerfum.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Örverufræði (LÍF201G)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu kynnast nemendur þeim hluta lífheimsins sem er almennt ekki sjáanlegur með berum augum.  Þeir fá tækifæri til að öðlast grundvallar þekkingu á eiginleikum baktería, arkea, veira og heilkjarna örvera.  Í námskeiðinu verður m.a. annars fjallað um hvernig örverur eru undirstaða lífs á jörðinni, hlutverk þeirra í vistkerfum, hvernig sumar þeirra valda sjúkdómum eða eru mikilvægar í rannsóknum og iðnaði.  Nemendur fá innsýn í störf örverufræðinga og verklega þjálfun sem er nauðsynleg fyrir hvers kyns störf á rannsóknarstofum

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Gróðurríki Íslands og jarðvegur (LÍF615M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennt á móti LÍF 606M og ráða skráningar hvort námskeiðið er kennt. Íslenska háplöntuflóran; samsetning, fjölbreytni, staða í flóruríki jarðar. Heimskautaflóran: uppruni, kerfisfræði, vistfræði. Líflandafræði flórunnar við Norður Atlantshaf. Ísöld á norðurhveli, ísaldarlok á Íslandi og í Evrópu og gróðursaga á nútíma. Tilgátur um aldur og uppruna íslensku flórunnar og heimskautaflóru á norðurhveli. Íslenskur jarðvegur; myndun, sérkenni, eyðimerkurmyndun. Gróðurbreytingar eftir landnám. Flóra Íslands og útbreiðsla um landið, búsvæði og líffræðileg fjölbreytni. Válistategundir. Aðferðir til að lýsa og flokka gróður. Íslensk gróðurlendi: flokkun, útbreiðsla, umhverfi og nýting. Verkleg kennsla fer að hluta til fram að sumari til: 4 daga sumarnámskeið.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Fornvistfræði (FOR405G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið skiptist í þrjá hluta: 1. Almennur inngangur að fornvistfræði, markmiðum hennar og notagildi. 2. Aðferðir fornvistfræðinnar þ.m.t. sýnatökutækni, aldursgreiningar, greining lífveruleifa og túlkunarmöguleikar. 3. Rannsóknarvettvangur fornvistfræðinnar (land, ferskvatn, sjór, andrúmsloft, bólstaðir og menningarlandslag). Fjallað er með dæmum um rannsóknarspurningar sem svarað er með fornvistfræðilegum aðferðum. Kennsla fer fram með fyrirlestrum og verklegum æfingum. Æfingar fara fram í kennslustofu, en farinn verður einn borleiðangur í nærliggjandi stöðuvatn.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Efnismenning og samfélag: Hlutirnir, heimilið, líkaminn (ÞJÓ205G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður efnisleg hversdagsmenning tekin til gagngerrar umfjöllunar. Gefið verður yfirlit yfir þetta þverfaglega rannsóknarsvið og rýnt jöfnum höndum í dæmi úr samtímanum og frá fyrri tíð, íslensk og erlend. Meðal annars verður fjallað um föt og tísku, matarhætti, hlutina sem umkringja okkur í daglega lífinu, rusl og hreinlæti, handverk og neyslumenningu, hús og garða, heimilið, borgarlandslag, söfn og sýningar. Um leið kynnast nemendur ýmsum kenningum og sjónarhornum sem leggja t.a.m. áherslu á mannslíkamann, kyngervi, neyslu, rými og stað.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Jöklajarðfræði (JAR626M)
Valnámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um ferli rofs, setmyndunar og landmótunar í jökulumhverfi. Í fyrirlestrum er fjallað um jökulkerfi, hreyfingar jökla, rof, setmyndun, flutning, aflögun, landform og ferli við jökuljaðar. Fimm daga námsferð verður farin að loknum vormisserisprófum að jöklum á Suðurlandi (Mýrdalsjökull eða Vatnajökull) og fornu jökulumhverfi á Vesturlandi. Í námsferð verður verkefnum úthlutað og nemendur skila skýrslum. Þátttaka í feltferð er forsenda lokaeinkunnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Jöklafræði (JAR622M)
Valnámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Jöklar bregðast hratt við breytingum í loftslagi, breytingar í þeim gefa skýra mynd af hitabreytingum, en þeir hafa einnig áhrif á loftslagið t.d. vegna endurkasts áhrifa og breytinga í sjávarstöðu þegar ísinn bráðnar. Í þessu námskeiði verður fjallað um jökla, dreifingu þeirra á jörðinni, hvernig þeir myndast úr snjó, hvernig þeir hreyfast og bregðast við loftslagsbreytingum. Áhersla er á íslenska jökla, orkubúskap þeirra og afkomu, samspil jökla og jarðhita og eldfjalla og tíð jökulhlaup frá Vatnajökli. Í námskeiðinu munu nemendur læra hugtök og tungutak jöklafræðinnar, sem auðveldar þeim að skilja og taka þátt í umræðum um loftslagsbreytingar og hlutverk jökla í loftslagi jarðarinnar.  Kunnátta í eðlisfræði og stærðfræði er gagnleg fyrir námskeiðið því reiknisdæmi sem fjalla um hitastig, orkubúskap, afkomu og flæði jökla verða leyst í hópvinnu. Mælitækni jöklafræðinnar verður kynnt og í lok námskeiðsins setja nemendur leysinga stikur í Sólheimajökul í tveggja daga ferð. Skyldumæting er í ferðina.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Fyrsta ár
  • Haust
  • LAN101G
    Náttúrulandfræði
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur kunni skil á undirstöðuatriðum líflandfræði, jarðvegs og jarðvegsmyndunar, auk umhverfissögu Íslands, þekki helstu hugtök og aðferðir sem beitt er og verði færir um að greina og túlka íslenskt umhverfi í ljósi þeirra. Fjallað verður um flokkunarfræði lífríkis, fæðukeðjur og fæðuþrep, dreifingu tegunda og farið verður yfir hringrásir orku og efna, útbreiðslu lífríkis og áhrifaþætti, búsvæðabelti, líffræðilega fjölbreytni og verndun lífríkis.

    Farið verður í myndun jarðvegs og eiginleika hans, útbreiðslu jarðvegsgerða, jarðvegsrof og jarðvegsmengun. Rætt verður sérstaklega um áhrif nýtingar og ástand jarðvegs og gróðurs, orsakir og afleiðingar jarðvegseyðingar og hnignunar gróðurlenda, fyrr og nú.

    Haldnir verða þrír fyrirlestrar á viku þar sem farið verður yfir meginefni námskeiðsins. Tveimur tímum á viku, að jafnaði, verður varið í verkefnavinnu þar sem nemendur munu vinna í hópum að úrlausn verkefna. Ein hálfs dags ferð er farin út fyrir Reykjavík til að framkvæma gróðurmælingar og safna jarðvegssýnum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LAN102G
    Kortagerð og kortahönnun
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    “visualization is the process of making the invisible visible[...] the process of making the cognitive imagination visual using available and culturally dominant technologies is one of the most consistent behaviors of mankind.”

    „Myndræn framsetning er að gera ósýnileg fyrirbæri sýnileg [eða] það að gera sjónrænt grein fyrir ímyndun hugans með tiltækri tækni og í samræmi við menningarleg viðmið. Þetta er eitt af því sem mannkynið hefur alltaf leitast við að gera.” - Cox, D. (2006). "Metaphoric Mappings: The Art of Visualization." MIT Press.

    Kortagerð er einn af mikilvægum hlutum landupplýsingahönnunar.

    Nemendur kynnast fræðilegri undirstöðu kortagerðar með hjálp stafrænnar tækni. Námskeiðinu er ætlað að veita nemendum greinargóðan skilning á hugtökum og hagnýtum atriðum sem snerta myndræna framsetningu á kortum og miðlun landfræðilegra upplýsinga. Það snertir ýmis mikilvæg svið í landfræði og skyldum greinum. Í gegnum fyrirlestra og umræður fá nemendur skilning á sögu kortagerðar, helstu kenningum og hugtökum á fagsviðinu og hlutverki landfræðilegra upplýsingakerfa við gerð korta nú á dögum. Fyrirlestrum er fylgt eftir með verkefnum sem hjálpa nemendum að skilja undirstöðuhugtök kortagerðar, sem og skipulegum æfingum í tölvuveri  þar sem nemendur læra að nýta sér landfræðileg upplýsingakerfi við einfalda greiningu og framsetningu landupplýsinga. Nemendur öðlast færni til að rýna eigin verk og annarra á gagnrýninn hátt og geta útskýrt og réttlætt eigin ákvarðanir varðandi myndræna framsetningu á korti.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LAN104G
    Mannvistarlandfræði
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kynnt verða hugtök og kenningastraumar í samfélagsvísindum, með áherslu á notkun og birtingarform í samtímarannsóknum í mannvistarlandfræði og ferðamálafræði. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á notkun hugtaka í vísindalegri umræðu og þjálfun í meðferð þeirra. Má þar telja algeng hugtök eins og staður, rými, hnattrænt, staðbundið, hnattvæðing, sjálfbær þróun, náttúra, landslag, menning, sjálfsmynd, ímynd og samfélag. Kennsluform er blanda fyrirlestra og umræðutíma í smærri hópum, sem tengjast skilaverkefnum nemenda. Próftökuréttur er háður verkefnaskilum og þátttöku í umræðuhópum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LAN105G
    Vinnulag í landfræði og ferðamálafræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið tekur á ólíkum þáttum vinnulags í háskólanámi og rannsóknum og er ætlað að veita nemendum hagnýtan undirbúning að háskólanámi. Námskeiðið skiptist í nokkra hluta og munu ákveðin verkefni og æfingar tengjast hverjum hluta. Fjallað verður um forsendur og markmið rannsókna og hugmyndafræðilega strauma, heimilda- og tilvísananotkun, tjáningu og framsögn ásamt ritun, stíl og framsetningu. Jafnframt verður stoðkerfi nemenda (s.s. bókasafn og námsráðgjöf) kynnt. Áhersla er lögð á vinnu nemenda með það að markmiði að nemendur tileinki sér árangursrík vinnubrögð í háskólanámi.

    Önnur vinnulagsnámskeið geta verið metin jafngild þessu námskeiði

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LAN019G
    Vinnustofa fyrir nýnema í land- og ferðamálafræði
    Valnámskeið
    0
    Valnámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Aðstoðartímar í ýmsum námskeiðum fyrir nemendur í land- og ferðamálafræði

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • JAR202G
    Ytri öfl jarðar
    Skyldunámskeið
    7,5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Helstu umfjöllunarefni námskeiðsins eru:

    • Grunnatriði í setlagafræði með áherslu á breytingar á kornastærð, kornastærðadreifingu, áferð og lögun korna við flutning með vatni, jöklum og vindi.
    • Vatnshringrás jarðar og hlutverk hennar í veðrun, flutningi bergmols og upphleðslu sets.
    • Rennandi vatn sem veigamesta ferlið við mótun þurrlendis jarðar, bæði hvað varðar rof og flutning bergmols.
    • Strendur jarðar: átök á mörkum láðs og lagar, sífelldar breytingar stranda og þættir sem ráða þróun þeirra.
    • Grunnvatn: þáttur þess í mótun lands, mikilvægi fyrir neysluvatn og leiðir til að vernda auðlindina.
    • Hringrás lofthjúps jarðar og áhrif á dreifingu úrkomu og útbreiðslu þurra svæða.
    • Helstu rof- og setmyndunarferli og landmótun þeirra hérlendis.
    • Jöklar: myndun, breytileg stærð og jöklunarsaga síðasta jökulskeiðs.
    • Ólífrænar og lífrænar auðlindir jarðar: myndun, útbreiðsla, vinnsla, notkun, förgun, endurnýjun og endurnýting.
    • Tenging fræðilegs efnis við Ísland með umfjöllun um sambærileg fyrirbæri hérlendis.

     Kennslufyrirkomulag 

    Námskeiðið er 7,5 ECTS og spannar 14 vikur. Námsefni er kynnt í fyrirlestrum, umræðutímum, völdu lesefni, og námsferð.

    • Fyrirlestrar eru tvisvar í viku
    • Námsferðin er 5 daga ferð um Suðurland og Vestmannaeyjar. Námsferðin er farin strax að loknum síðasta vorprófsdegi og er skylduþáttaka í hana. Háskóli Íslands greiðir gistingu og rútur fyrir nemendur en þeir greiða sjálfir fyrir fæði.
    • Vikulega glíma nemendur við krossapróf úr köflum kennslubókar köflum og tímaritsgreinum.
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LAN222G
    Landfræði og hnattræn tengsl
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um helstu einkenni á efnahagslífi heimsins, í ljósi hnattvæðingar viðskipta, stjórnmála og menningar á undanförnum áratugum. Athugað er hvernig þungamiðja heimshagkerfisins hefur færst til og hvernig hin ýmsu svæði og lönd tengjast því með mismunandi hætti. Teknir eru til athugunar helstu gerendur og stofnanir sem hafa áhrif á hnattvæðinguna, þar á meðal fjölþjóðafyrirtæki, alþjóðastofnanir og ríki. Dæmi eru tekin úr ólíkum geirum atvinnulífs, skoðað hvernig keðjur framleiðslu og neyslu hafa tekið breytingum með hnattvæðingu og greint hvaða áhrif slíkt hefur haft á staði og svæði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LAN221G
    Umhverfislandfræði: Náttúra, samfélag og sjálfbærni
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Umhverfismál eru eitt mikilvægasta viðfangsefni okkar tíma. Umhverfishugtakið sjálft vísar til snertiflata náttúru og samfélags, sem er kjarnaviðfangsefni landfræðinnar. Samþætting náttúru- og samfélagsvísinda er nauðsynleg við leit að lausnum sem stuðlað geta að aukinni sjálfbærni.

    Í þessu námskeiði er gerð grein fyrir ýmsum landfræðilegum sjónarhornum á umhverfismál og nokkur veigamikil hnattræn málefni sem snerta umhverfið krufin til mergjar. Nemendur fá þekkingu á marghliða orsökum og afleiðingum og brjóta heilann um mögulegar lausnir. Fjallað verður sérstaklega um fólksfjölda og fæðuöryggi. Hvert er samhengi fólksfjöldaþróunar, matvælaframleiðslu og ágangs á náttúruauðlindir og umhverfi? Hvernig er staðan og hverjar eru framtíðarhorfur í hinum ýmsu heimshlutum? Hvernig má tryggja fæðuöryggi og sjálfbærni fæðuframleiðslu á næstu áratugum? Áhrif af breyttri landnýtingu og síaukinni neyslu á lífverur og vistkerfi jarðar verða einnig skoðuð. Hvernig bregst lífkerfi jarðar við búsvæðabreytingum og mengun? Hvaða lausnir þyrfti til að koma auðlindanýtingu mannkyns í betra jafnvægi en nú er og leysa þau vandamál sem fylgt hafa tilkomu neyslusamfélaga okkar tíma? Loks verður hugað að samfélagslegum þáttum loftslagsbreytinga. Hvernig koma þessar afdrifaríku breytingar á gangverki náttúrunnar fram í ólíkum heimshlutum og hjá mismunandi samfélagshópum?

    Í námskeiðinu er lögð áhersla á hið hnattræna sjónarhorn, en nemendur eru jafnframt hvattir til að tengja efni þess við eiginn veruleika. Farnar eru stuttar námsferðir og unnin verkefni í tengslum við þær.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • UMV401G
    Landfræðileg upplýsingakerfi 1
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Stúdentar með UMV401G sem skyldunámskeið hafa forgang við skráningu. 

    Markmið: Að gera stúdentum frá breiðum bakgrunni mögulegt að hagnýta landfræðileg upplýsingakerfi til kortagerðar og landfræðilegrar greiningar við skýrslu- og álitsgerð, kynningu verkefna, vinnu og rannsóknir. Að stúdentar öðlist þroska og þjálfun til að: 1) stýra verkefnum á sviði landfræðilegra upplýsinga, 2) meta hvernig landfræðileg greining og kort nýtast best fyrir fjölbreytt verkefni, 3) rita texta sem túlkar kort og lýsir landfræðilegri greiningu, 4) rita fagmannlega skýrslu um verkefni sem hagnýtir sér landfræðileg upplýsingakerfi, kort og landfræðilega greiningu. 

    Efni: Stúdentar kynnast landfræðilegum upplýsingakerfum og landfræðilegum gögnum. Lærið gerð staðháttakorta og þemakorta. Notuð verða vektorgögn og rastagögn. Lærið val eftir eigindum og staðsetningu, og gerð kortalaga út frá vali. Lærið tengsl við töflugögn og landfræðileg tengsl. Æfðar verða fjölbreyttar aðgerðir með kortalög, t.d. klippa, sameina, flytja gögn á milli laga, auk teikningar og gerðar nýrra kortalaga. Tengið loftmynd við kortalög. Tengið GPS hnituð gögn við landakort. Framkvæmið landfræðilega greiningu gagna. Áhersla er á að stuðla að þroska nemenda við að velja innihald korta, aðgerðir og greiningartæki, hanna kort og túlka kort með texta. 

    Kennsluhættir: Stúdentar kynnast og fá þjálfun í algengri hagnýtri notkun landfræðilegra upplýsingakerfa í verklegum kennslutímum í tölvustofu og við vinnu heimaverkefna og lokaverkefnis byggðum á raunverulegum gögnum. Verkefni eru hönnuð til að auka færni stúdenta í vali korta, innihalds og greiningartækni auk túlkunar korta.

    Námsform

    Námskeiðið er kennt í kennslustofu með beinu streymi og upptökur síðan gerðar aðgengilegar nokkrum dögum síðar. Hægt er að taka námskeiðið í staðnámi eða fjarnámi eða blandað. Ekki er gert ráð fyrir að hægt sé að taka námskeiðið sem netnámskeið án rauntímaþátttöku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Haust
  • FÉL306G
    Tölfræði I: Inngangur
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist undirstöðuþekkingu á tölfræði félagsvísinda. Nánar er fjallað um mælingar á miðlægni og dreifingu breyta. Stefnt er að því að nemendur geti gert grein fyrir helstu hugtökum ályktunartölfræði og framkvæmt marktektarpróf. Ennfremur er fjallað um mælingar á tengslum breyta, þ. á m. krosstöflur og einfalda aðhvarfsgreiningu. Þá er stuttlega fjallað um aðferðir til þess að stjórna breytum, s.s. hlutatöflur og hlutfylgni. Auk bóklegrar kennslu læra nemendur að nota tölfræðiforritið Jamovi til þess að framkvæma útreikninga.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    LAN302M
    Skipulag byggðar og lands
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu eru viðfangsefni og markmið skipulagsfræði stuttlega kynnt.

    Megináhersla námskeiðsins er annars vegar á stjórnkerfi og stjórntæki og ferli skipulagsmála og hins vegar á gögn og hagnýtar aðferðir við greiningu svæða og skipulagsgerð, sérstaklega fyrir skipulag stærri landfræðilegra heilda, eins og þéttbýlisstaða, sveitarfélaga eða landshluta. Nemendur kynnast og þjálfast í að afla gagna og beita ólíkum aðferðum við greiningu og túlkun á byggð, samfélagi og náttúrufari til að leggja mat á aðstæður, áskoranir og tækifæri á skipulagssvæðinu. Einnig er farið yfir aðferðir við framsetningu skipulagstillagna og stefnu í skipulagi.

    Fyrirlestrar, umræðutímar og verkefnavinna. Einstaklings- og hópverkefni.

    Námskeiðið er samkennt með námsbraut í skipulagsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    LAN307G
    Aðferðir við rannsóknir í náttúrulandfræði
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur tileinki sér aðferðir til að framkvæma sjálfstæðar rannsóknir í náttúrulandfræði. Það nær m.a. til lýsinga og mælinga á jarðvegi (þurrlendi/votlendi) og seti samkvæmt alþjóðlegum stöðlum, gróðri og gróðurlendum samkvæmt íslenskum flokkunum, auk sýnatöku og gagnaöflunar sem varðar ofangreind atriði.

    Námskeiðið veitir þjálfun í aðferðum sem notaðar eru í rannsóknum í náttúrulandfræði og sem krefjast öflunar og úrvinnslu gagna af vettvangi.

    Námskeiðið samanstendur af fjögurra daga ferð í vikunni fyrir upphaf kennslu á haustmisseri. Í ferðinni eru nemendum kynntar aðferðir og tækjabúnaður sem gjarnan er notaður þegar safna þarf sýnum og öðrum upplýsingum, til rannsókna á breytingum á eðli og yfirborði lands sem ná yfir mismunandi tíma- og rýmiskvarða. 
    Að ferð lokinni vinna nemendur verkefni sem snúa að úrvinnslu þeirra gagna sem aflað var í ferðinni og skipulagi og framkvæmd tiltekinna rannsóknaverkefna sem gögnin tengjast. Sú vinna fer fram á rannsóknastofu og í verkefnatímum. Nemendur skila skýrslum um verkefnin og halda fyrirlestra um þau í fyrri hluta nóvember.

    Námsmat byggir á skýrslum, fyrirlestrum og þátttöku og virkni nemenda í vettvangsferð og á rannsóknastofu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • LAN417M
    Byggðaþróun og atvinnulíf
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um kenningar og stefnumótun varðandi þróun byggða og svæða og það efni sett í samhengi við íslenskar aðstæður. Farið er í fólksfjöldaþróun, þróun  atvinnulífs og aðrar forsendur búsetu, í mismunandi byggðarlögum á Íslandi, með áherslu á 21. öldina.  Skoðuð eru markmið, leiðir og ágreiningsefni um  byggðastefnu. Að námskeiðinu loknu eiga nemendur að kunna skil á sérstöðu hinna ýmsu landshluta og byggðarlaga á Íslandi og vera færir um að sjá stöðu þeirra í stærra samhengi þróunar í heiminum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    LAN413G
    Veður og loftslag
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið verður í grunndvallaratriði hitabúskapar á jörðinni, hvað hefur drifið langvarandi breytingar á hitabúskap hennar og hvernig það hefur birst í formi einstakra loftslagstímabila, nú síðast loftslagi á Nútíma (Holocene). Farið verður í undirstöðuatriði í veðurfræði (t.d. orkubúskapur, loftþrýstingur, vindar, stöðugleiki lofts, loftraki, skýjamyndun, úrkoma) til skilnings á stað- og svæðisbundnum einkennum loftslags (s.s. myndunar loftmassa, hæða og lægða) sem leiða til breytileika í myndun vistkerfa og búsetuskilyrða á jörðinni. Farið verður í hringrásir lofts í veðrahvolfinu og hafstrauma sem drifkrafta hitajöfnunar um jörðina. Hringrásum gróðurhúsalofttegunda verða gerð skil og hvernig maðurinn hefur haft áhrif á þær. Veðurfarslíkön sem varða smærri og stærri ferla í andrúmslofti verða til umfjöllunar í námskeiðinu. Sérstaklega verður farið í veður og loftslag á Íslandi og landfræðilegan breytileika í veðurfari.

    Námskeiðið er kennt í formi fyrirlestra, verkefnavinnu, þema- og kaflaprófa og heimsókna á viðeigandi stofnanir þar sem veður og loftslag er til rannsókna og þar sem loftslagsbreytingar (gróðurhúsaáhrif) koma inn í störf rannsóknafólks.

    Ekki er haldið lokapróf en allir þættir námskeiðs eru metnir til einkunnar, þema- og kaflapróf (60%), ritgerðir (30%), samantektir um lærdóm af heimsóknum (10%).

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LAN411G
    Kannanir, viðtöl og vettvangsathuganir
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að veita nemendum fræðilega undirstöðu og hagnýta þjálfun til að þeir geti beitt algengum félagsvísindalegum aðferðum við rannsóknir í landfræði og ferðamálafræði.

    Fjallað verður um þekkingarfræðilegan grunn félagsvísindalegra rannsókna, rannsóknarsiðferði, og algengar rannsóknaraðferðir, bæði eigindlegar og megindlegar.

    Sérstök áhersla verður lögð á: a) framkvæmd viðtalsrannsókna, þar með talið undirbúning og gerð viðtalsramma, val viðmælenda, framkvæmd viðtals, afritun, lyklun, greiningu og túlkun; b) framkvæmd spurningakannana, þar með talið skipulagningu spurningakannana, úrtaksgerð, gerð spurningalista, réttmæti og áreiðanleika, orðalag spurninga, gerð gagnagrunns og úrvinnslu; og c) samþættingu aðferða.

    Fyrirlestrar og verkefnatímar í námskeiðinu þjóna því hlutverki að byggja undir og styðja við rannsóknarverkefni sem nemendur vinna yfir misserið.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Haust
  • LAN514M
    Fjarkönnun og umhverfisvöktun
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lögmál og grundvallaratriði fjarkönnunar. Rafsegulgeislun, víxlverkun við lofthjúp og yfirborð jarðar. Endurvarp og eigingeislun. Eiginleikar ljósmynda, hitamynda, örbylgju- og ratsjármynda. Yfirlit yfir annars konar fjarkönnun: LIDAR, bylgjuvíxlmyndir, fjölgeisla- og jarðsjármælingar, fjarkönnun á öðrum reikistjörnum.

    Fjarkönnunargögn og aðferðir við öflun þeirra. Nemar og skannar um borð í gervitunglum og flugvélum. Upplausn mynda: rúmfræðileg, rófgreinihæfni, geislastyrkur, tími. Saga fjarkönnunar á 20. og 21. öld.

    Notkun og túlkun loftmynda og gervitunglamynda. Myndvinnsla og greining: forvinna, upprétting, strekking, vinnsla með fjölda banda, stýrð og sjálfvirk flokkun, landgreiningar og rannsóknir á breytingum, líkangerð. GPS. Samfelling gagna og landupplýsinga. Framsetning og miðlun fjarkönnunargagna.

    Umhverfisvöktun og gildi fjarkönnunar á ýmsum fræðasviðum: landfræði, jarðfræði og líffræði. Umhverfisvöktunarkerfi vegna snöggra og hægfara umhverfisbreytinga, náttúruvár, atburða og kortagerðar. Öflun og vinnsla rauntímagagna.

    Kennslufyrirkomulag: Fyrirlestarar, umræðutímar og vikuleg verkefni í tölvuveri í öflun, greiningu og túlkun fjarkönnunargagna. Unnið verður með landupplýsingakerfi, einkum ArcGIS og QuantumGIS, svo og ýmis myndvinnsluforrit.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LAN523G
    Rannsóknaráætlun fyrir BS verkefni
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er ætlað nemendum sem hyggja á skrif BS ritgerðar í landfræði og ferðamálafræði.

    Markmið námskeiðsins er að leiðbeina nemendum um gerð og frágang rannsóknaráætlunar.

    Fjallað verður um uppbyggingu og efnistök í rannsóknartillögu, þar með talið:

    • markmið og rannsóknarspurningar,
    • stöðu þekkingar á fræðasviðinu,
    • vísindalegt gildi og hagnýtt gildi rannsóknar,
    • aðferðafræði,
    • verk- og tímaáætlun.

    Nemendur vinna að rannsóknartillögu um efni að eigin vali undir handleiðslu umsjónarkennara og leiðbeinenda.

    Gert er ráð fyrir að rannsóknaráætlunina megi nýta fyrir BS verkefni í landfræði og ferðamálafræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LAN515M
    Sjónarhorn landfræðinnar
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að veita nemendum yfirlit yfir viðfangsefni og viðmið í landfræðilegum rannsóknum. Fjallað er um sögu landfræðinnar og sérstöðu hennar innan vísinda. Gerð er grein fyrir þróun kenningarlegra sjónarhorna og rannsókna, með áherslu á mannvistarlandfræði. Helstu tegundir þekkingar- og aðferðafræði í landfræðirannsóknum eru bornar saman. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • LAN218L, LAN219L
    BS-verkefni í landfræði ( 2ja manna verkefni)
    Bundið valnámskeið
    0
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Við lok grunnnáms vinna nemendur að sjálfstæðu rannsóknarverkefni á áhugasviði sínu innan ferðamálafræði. Almennt er gert ráð fyrir samvinnuverkefni tveggja nemenda en einnig má vinna það sem einstaklingsverkefni. Meginreglan er sú að verkefnið sé unnið á vormisseri en það má einnig vinna að hausti, og mögulega að sumri ef aðstæður leyfa. Í öllum tilvikum er gerð krafa um að skyldunámskeiðum 1. og 2. árs sé lokið áður en hafist er handa við BS verkefni.

    Markmiðið er að veita þjálfun í að skipuleggja og framkvæma eigin rannsókn. Nemendur búa til rannsóknaráætlun þar sem viðfangsefnið er afmarkað, rannsóknarsnið er mótað, rannsóknarspurningar eru settar fram, fræðilegur rammi rannsóknarinnar er skilgreindur, sem og aðferðafræðileg nálgun. Rannsóknin er unnin á grundvelli áætlunarinnar og skulu henni gerð skil í heild sinni í ritgerð sem gengið er frá samkvæmt reglum Líf- og umhverfisvísindadeildar um rannsóknarritgerðir.

    Vinna við BS verkefni er sett upp sem námskeið þar sem umsjónarkennari miðlar hagnýtum upplýsingum sem varða BS ferlið og verkefnavinnuna almennt. Hverju rannsóknarverkefni er jafnframt fenginn faglegur leiðbeinandi úr hópi kennara við námsbrautina. Undirbúningur hefst undir lok misserisins á undan með sameiginlegum fundi. Nemendur setja í kjölfarið fram hugmynd að rannsóknarverkefni og á grundvelli hennar er þeim fenginn leiðbeinandi. Nemendur ráðfæra sig við leiðbeinanda um mótun rannsóknaráætlunar sem síðan er skilað í byrjun misseris. Gert er ráð fyrir þremur sameiginlegum fundum með umsjónarkennara. Fjöldi funda með leiðbeinanda er samkomulagsatriði. Gerð er krafa um sjálfstæð vinnubrögð nemenda.

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • LAN218L, LAN219L
    BS-verkefni í landfræði (einstaklingsverkefni)
    Bundið valnámskeið
    0
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Við lok grunnnáms vinna nemendur að sjálfstæðu rannsóknarverkefni á áhugasviði sínu innan landfræði. Almennt er gert ráð fyrir samvinnuverkefni tveggja nemenda en einnig má vinna það sem einstaklingsverkefni. Meginreglan er sú að verkefnið sé unnið á vormisseri en það má einnig vinna að hausti, og mögulega að sumri ef aðstæður leyfa. Í öllum tilvikum er gerð krafa um að skyldunámskeiðum 1. og 2. árs sé lokið áður en hafist er handa við BS verkefni.

    Markmiðið er að veita þjálfun í að skipuleggja og framkvæma eigin rannsókn. Nemendur búa til rannsóknaráætlun þar sem viðfangsefnið er afmarkað, rannsóknarsnið er mótað, rannsóknarspurningar eru settar fram, fræðilegur rammi rannsóknarinnar er skilgreindur, sem og aðferðafræðileg nálgun. Rannsóknin er unnin á grundvelli áætlunarinnar og skulu henni gerð skil í heild sinni í ritgerð sem gengið er frá samkvæmt reglum Líf- og umhverfisvísindadeildar um rannsóknarritgerðir.

    Vinna við BS verkefni er sett upp sem námskeið þar sem umsjónarkennari miðlar hagnýtum upplýsingum sem varða BS ferlið og verkefnavinnuna almennt. Hverju rannsóknarverkefni er jafnframt fenginn faglegur leiðbeinandi úr hópi kennara við námsbrautina. Undirbúningur hefst undir lok misserisins á undan með sameiginlegum fundi. Nemendur setja í kjölfarið fram hugmynd að rannsóknarverkefni og á grundvelli hennar er þeim fenginn leiðbeinandi. Nemendur ráðfæra sig við leiðbeinanda um mótun rannsóknaráætlunar sem síðan er skilað í byrjun misseris. Gert er ráð fyrir þremur sameiginlegum fundum með umsjónarkennara. Fjöldi funda með leiðbeinanda er samkomulagsatriði. Gerð er krafa um sjálfstæð vinnubrögð nemenda.

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • Haust
  • LAN513M
    Náttúruvá: Atburðir og eðli þeirra
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um hina ýmsu atburði og ferla í náttúrunni sem skapað geta vá. Náttúruvá er skilgreind og hugað að sögu umfjöllunar á þessu mikilvæga fræðasviði í ýmsum greinum náttúruvísinda. Gerð er grein fyrir náttúrufræðilegum orsökum og eðli náttúruvár af ólíku tagi. Fjallað er um yfirstandandi loftslagsbreytingar sem náttúruvá, sem og um samhengi ýmissa veður- og loftslagstengdra atburða við loftslagsbreytingar. Fjallað verður um ferli náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands og ferli hættumats í tengslum við náttúruvá.

    Nemendur fara í 1 dags ferð um Suðurland í byrjun september, þar sem ummerki atburða sem flokka má sem náttúruvá eru skoðuð og rædd.

    Nemendur taka þátt í kostnaði við vettvangsferðir í þessu valnámskeiði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FER507M
    Skipulag og stefnumótun í ferðamennsku
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni þessa námskeiðs er skipulagning og stefnumótun í ferðamennsku út frá umhverfis-, félags- og efnahaglegum þáttum. Í víðum skilningi snerta skipulagsmál alla þætti ferðamennsku. Nemendur læra um hugmyndafræðilegar forsendur skipulagsvinnu, sögulega þróun stefnumótunar á Íslandi og á alþjóðlegum vettvangi með sérstakri áherslu á sjálfbæra þróun og Heimsmarkmið Sameinuðu Þjóðanna. Í námskeiðinu fá nemendur í hendur verkfæri til að lýsa, greina og meta forsendur, mótun og innleiðingu skipulags- og stefnumótunarvinnu í ferðaþjónustu þar sem lagt er upp úr að brúa milli fræðilegrar umræðu og hagnýtingar. Kennsla byggir á virkri þátttöku nemenda og námsmat reynir bæði á sjálfsstæði nemenda og hæfni þeirra til að vinna saman.

    Vettvangstímar fara fram innan höfuðborgarsvæðisins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • TÓS007M
    Inngangur að áhættu- og öryggistjórnun
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið hentar vel nemendum sem eru í tómstunda- og félagsmálafræði, ferðamálafræði og kennarafræðum (þar á meðal íþrótta-, leikskóla- og grunnskólakennarafræði). Einnig hentar námskeiðið fagfólki á vettvangi eins og útikennurum og rannsakendum. Fjallað er um mikilvæga þekkingu og færni í áhættustjórnun og öryggisskipulagi þegar unnið er úti á vettvangi. Áhersla er á að sameina fræðilega þekkingu og hagnýta færni, sem gerir nemendum kleift að stjórna áhættu á markvissan hátt við fjölbreyttar aðstæður úti.

    Vinnulag:

    Fyrirlestrar og verkefnatímar: Vikulega frá upphafi kennslu og út október. Vettvangsferð (3 dagar): síðustu vikuna í september eða byrjun október.

    • Fyrirlestrar á neti og í kennslustundum með áherslu á fræðilega þekkingu og hópumræður.
    • Hópavinna: Samstarfsverkefni þar sem nemendur gera áætlaniri varðandi áhættustjórnun og þróa lausnir fyrir mismunandi sviðsmyndir sem geta komið upp í útimenntun. Lögð áhersla á raunverulegar áskoranir á sviði útimenntunar þar sem nemendur þurfa að nýta þekkingu sína í ákveðnum aðstæðum.
    • Gestafyrirlestrar: Innlegg frá sérfræðingum á sviði útimenntunar, öryggisstjórnunar og áhættumati.
    • Vettvangsferð (3 dagar): Verklegt nám utandyra til að æfa áhættustjórnun og öryggisfærni. Liður í ferðinni er skyndihjálparnámskeið sem felur í sér þjálfun í sértækri skyndihjálp utandyra.

    Mikill hluti námskeiðsins fer fram utandyra og inniheldur praktískar æfingar til að byggja upp hagnýta reynslu.

    Ferðakostnaður: Reikna má með nokkrum kostnaði vegna ferða á námskeiðinu, allt að 16.000 kr.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LAN018G
    Starfsþjálfun í landfræði og ferðamálafræði
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið starfsþjálfunar er að nemendur kynnist störfum sem tengjast landfræði og/eða ferðamálafræði og hljóti þjálfun í þeim undir faglegri handleiðslu reyndra stjórnenda hjá fyrirtækjum eða opinberum stofnunum. Verkefni nemenda eru fjölbreytt og liggja á sviði umhverfismála, sjálfbærni, markaðsmála, skipulagsvinnu, kortagerðar, gagnagreiningar og úrvinnslu, nýsköpunar, þjónustustjórnunar, ferðahönnunar og áætlunargerðar svo eitthvað sé nefnt. Verkefni nemenda skulu þannig reyna á þá þekkingu og færni sem þeir hafa þegar aflað sér í grunnnámi í landfræði eða ferðamálafræði.

    Starfstími er 150 klst. (6 ECTS) og skal starfsþjálfun lokið innan 12 vikna frá því að hún hófst. Að auki er gert ráð fyrir viðbótartíma sem felst í dagbókar- og skýrsluskrifum. Lokaafurð starfsþjálfunar skal skilgreina í náms- og starfsmarkmiðum í samráði við umsjónarkennara og forsjáraðila fyrirtækis/stofnunar.

    Í lok starfstímans skal skila til umsjónarkennara:

    • Lokaskýrslu nemanda (skv. skilgreiningu í verkefnislýsingu).
    • Dagbók sem nemandi hefur haldið meðan á starfsþjálfun stóð. Dagbókin skal fela í sér vikulegt yfirlit þar sem fram kemur hver verkefni vikunnar voru og hve miklum tíma var varið í einstök verkefni.
    • Staðfesting umsjónarmanns á ástundun nemanda og verkefnavinnu í lok starfsþjálfunar.

    Umsjónarkennari skal yfirfara skýrslu og dagbók nemanda svo og staðfestingu umsjónarmanns fyrirtækis/stofnunar.

    Einkunn er gefin sem staðist/fallið og ekki er gefin töluleg einkunn.

    ATH: Nemendur geta ekki skráð sig sjálfir í þetta námskeið heldur eru þeir skráðir í námskeiðið þegar þeir hafa tryggt sér starfsþjálfunarstöðu hjá fyrirtæki eða stofnun.

    Allar starfsþjálfunarstöður verða auglýstar sérstaklega á Tengslatorgi (www.tengslatorg.hi.is ) í upphafi hvers kennslumisseris og nemendur sækja sérstaklega um að komast í starfsþjálfun.  Umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi, þar sem nemendur tilgreina hvers vegna þeir hafa áhuga á að komast í starfsþjálfun hjá viðkomandi fyrirtæki skal senda á von-starfsthjalfun@hi.is

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    LAN616M
    Ferðamennska og víðerni
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennt annað hvert ár þegar ártal endar á sléttri tölu.

    Landslagshugtakið er skoðað á gagnrýninn hátt út frá sjónarhorni mannvistarlandfræði. Breytingar á landnýtingu, orsakir þeirra og afleiðingar fyrir landslag eru ræddar. Sérstök áhersla verður lögð á nýtingu endurnýjanlegrar orku og landslagsáhrif hennar. Átök vegna ólíkra hagsmuna og/eða sýnar á náttúruna eru greind. Samspil orkuvinnslu, ferðaþjónustu og friðlýsingar svæða á Íslandi verður skoðað með tilliti til landslags. Einnig er rætt hvernig ákvarðanir um orkunýtingu eru teknar og að hve miklu leyti sjónarmið almennings koma við sögu.

    Farin er vettvangsferð í nágrenni Reykjavíkur á laugardegi í september.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Ekki kennt á misserinu
    LAN615M
    Jarðvegsfræði
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Jarðvegur er undirstaða vistkerfa, grunnur matvælaframleiðslu og mannlegrar búsetu og gegnir lykilhlutverki í hringrásum næringarefna, kolefnis og vatns. Jafnframt geymir jarðvegur mikilvægar upplýsingar um umhverfisbreytingar og samspil náttúru og manns í tímans rás.

    Í þessu námskeiði kynnast nemendur jarðveg sem vistkerfi, auðlind og upplýsingagjafa. Námskeiðið veitir bæði traustan fræðilegan grunn í jarðvegsfræði og leggur jafnframt ríka áherslu á hagnýta færni, vettvangsvinnu og gagnagreiningu.

    Það fjallar um eftirfarandi helstu þætti:

    • Jarðvegsmyndandi þætti og ferla sem leiða til myndunar mismunandi jarðvegsgerða um heiminn.
    • Eðlis- og efnaeiginleika jarðvegs, með sérstakri áherslu á hlutverk leirsteinda og lífrænna efna.
    • Íslenskan jarðveg, myndun hans og sérstöðu.
    • Jarðvegslíf – jarðveg sem vistkerfi og hlutverk hans í vistkerfum
    • Jarðveg sem auðlind - hlutverk jarðvegs í hringrásum næringarefna, kolefnis og vatns.
    • Ástand jarðvegs – hvernig meta megi heilbrigði jarðvegs bæði á vettvangi og með mælingum á rannsóknastofu.
    • Áhrif landnýtingar á jarðveg – jarðvegshningnun og landhnignun (rof, mengun, söltun o.fl.).
    • Tengsl jarðvegs og loftslags.
    • Jarðveg sem rannsóknarefni í tengslum við mannvist og umhverfissögu.

    Kennsla fer fram í formi fyrirlestra, vettvangsferða og rannsóknastofuvinnu, þar sem nemendur öðlast reynslu af raunverulegum jarðvegsrannsóknum og læra að tengja fræðilega þekkingu við eigin rannsóknargögn.

    Námskeiðið hentar nemendum í grunnámi á öðru og þriðja námsári sem og nemendum í meistaranámi.

    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FER506M
    Menningartengd ferðaþjónusta
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður hugað að þýðingu og skilgreiningu hugtaksins menningar í menningartengdri ferðaþjónustu með sérstöku tilliti til framsetningar og miðlunar ímynda og menningar á mismunandi vettvangi. Velt verður upp pólitískum og siðferðilegum spurningum hvað varðar söfnun, framsetningu og miðlun menningar í mismunandi samhengi og á mismunandi vettvangi, erlendis og hérlendis. Einnig verða skoðuð tengsl ferðaþjónustu við skapandi greinar. Spurningum varðandi eignarhald á menningararfleifð verða íhugaðar svo og í höndum hvers það að skapa menningararfleifð er.

    Vettvangstímar fara fram innan höfuðborgarsvæðisins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FER108M
    Kenningar í ferðamálafræði
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á áttunda áratugnum byrjuðu fræðimenn að velta fyrir sér tilgangi, þróun og mikilvægi ferðamennsku í heiminum. Spurningar eins og „hver er ferðamaður?“, „hver er tilgangur þess að ferðast?“ og „hvað skilgreinir ferðalög?“ voru algengar framan af og enn þann dag í dag velta fræðimenn upp þessum sömu spurningum, þó með breyttum áherslum í síbreytilegum félagslegum og pólitískum aðstæðum.

    Þessi áfangi leggur áherslu á helstu kenningar ferðamálafræðinnar og gefur innsýn í ólíkar nálganir og áherslur fræðanna. Krafa verður gerð á nemendur um að þeir velti fyrir sér mismunandi áherslum fræðimanna og setji fram eigin rannsóknarspurningar og móti hugsanlegar nálganir hvað varðar uppsetningu verkefnis í ferðamálafræðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    LAN520G
    Hreyfanleiki og rými
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu á samspili landfræðilegs hreyfanleika fólks og rýmis. Áherslan er annars vegar á búferlaflutninga milli landa og  svæða heimsins , með sérstaka áherslu á Ísland og einnig búferlaflutninga fólks innan Íslands. Hins vegar er rýnt í hreyfanleika fólks í sínu nærumhverfi. Fjallað er um efnið út frá fræðilegri umræðu í mannvistarlandfræði og m.a. velt upp spurningum um breytileika í hreyfanleika samfélagshópa staðbundið og hnattræn, og hvernig hreyfanleiki fólks mótar staði í samtímanum.  Horft er sérstaklega til áhrifa þátta eins og kyngervis, þjóðernis og kynvitundar á hreyfanleika og aðgengi einstaklinga og hópa að stöðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    LAN025M
    Greining landupplýsinga
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    „Allir hlutir tengjast öllum öðrum hlutum, en nálægir hlutir tengjast meira en fjarlægir hlutir.“ - Waldo R. Tobler (1970)

    Greining landupplýsinga byggir á þeirri staðreynd að staðsetning skiptir máli. Gagnkvæm tengsl fyrirbæra í landfræðilegu rúmi, fjölbreytileiki þeirra, kvarði og skipan hefur mótandi áhrif á hvernig ferlar tengdir samfélaginu, umhverfinu og efnahagslífinu þróast. Þessum áfanga er ætlað að auka færni nemenda við greiningar hvers kyns landupplýsinga og gera þeim kleift að framkvæma slíkar greiningar með hugbúnaðarpakkanum R.

    Í námskeiðinu er farið í gegnum samþætt vinnuflæði fyrir greiningu landupplýsinga, allt frá öflun og undirbúningi gagna til könnunar þeirra og greiningar á tengslum í rúmi. Sérstök áhersla er lögð á greiningar sem unnt er að endurtaka, sem og gagnrýna túlkun niðurstaðna og ábyrga miðlun niðurstaðna.

    Nemendur nýta tölvustuddar aðferðir við landfræðilega greiningar á þverfræðilegum viðfangsefnum og auka hæfni sína til að skipuleggja slíkar greiningar og rökstyðja val á greiningaraðferðum. Sérstakur gaumur er gefinn að aðferðafræðilegum álitaefnum, svo sem þeim vanda sem fylgir breytilegri afmörkun svæða, landfræðilegum kvarða, áhrifum hnitakerfa, óvissu, og hættu sem fylgir ályktunum um einstök tilfelli út frá almennum alhæfingum. Námskeiðið er byggt upp af fyrirlestrum og verklegum æfingum í R. Því lýkur með sjálfstæðu verkefni í landfræðilegri greiningu sem krefst aðferðafræðilegs rökstuðnings, gagnsæis í vinnuferli og gagnrýninnar hugsunar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LAN512M
    Borgir og borgarumhverfi
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um helstu kenningar og aðferðir borgarlandfræði og borgarhönnunar við greiningu á lífi og umhverfi í borgum, með áherslu á bæjarrými, nærumhverfið og hverfi innan borga og bæja.

    Fjallað er um sögulega þróun borga frá upphafi borgamyndunar til okkar daga. Þá er fjallað um helstu viðfangsefni borgarlandfræði og borgarhönnunar við greiningu og stefnumótun um borgir og borgarumhverfi, svo sem um ólíka félagshópa og búsetu, atvinnu og samgöngur í borg, upplifun og gæði bæjarrýma, list og menningu í bæjarrýmum, náttúruna í borginni og mörkun staða. Einnig um áskoranir borga á okkar samtíma, svo sem tengt loftslagsmálum, sjálfbærni og fjórðu iðnbyltingunni.

    Fyrirlestrar, umræðutímar og verkefnavinna. Einstaklings- og hópverkefni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FER101G
    Inngangur að ferðamálafræði
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu er ætlað að kynna nemendum helstu hugtök og kenningar í ferðamálafræðum og leggja fræðilegan grunn að frekara námi í greininni. Lögð er áhersla á upphaf og þróun ferðamennsku, helstu ferðamannastrauma og þá samfélagslegu þætti sem móta ferðalög. Markmiðið er jafnframt að veita nemendum víðtæka sýn á áhrif ferðamennsku á umhverfi, samfélag og efnahag og gera þeim kleift að greina þau tækifæri og þær áskoranir sem fylgja vexti og uppbyggingu ferðaþjónustunnar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • JAR514M
    Eldfjallafræði
    Valnámskeið
    7,5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Eldgos eru eitt þeirra meginferla sem skapar og mótar svipmót jarðar. Eldgos geta leitt af sér hamfarir og valdið verulegu tjóni á mannvirkjum. Kvikugösin sem rísa upp frá eldspúandi gígunum viðhalda andrúmslofti jarðar, sem og hafa veruleg áhrif á eiginleika andrúmsloftsins og loftstrauma þess. Kvikuvirkni neðanjarðar, og í sumum tilfellum eldvirknin ofan jarðar, hefur myndað beint eða óbeint stóran hluta að þeim málmum sem við nemum úr jörðu. Þannig að fyrirbærið eldgos hefur bein og óbein áhrif á mannkynið sem og tengsl við margar af undirgreinum jarðvísindanna. Af þeim sökum er grunnskilningur á því hvernig eldfjöll og eldstöðvakerfi virka og framlag eldvirkninar til hringrásaferla jarðar góð undirstaða fyrir alla nemendur í jarðvísindum.

    Í þessu námskeiði verður farið í grunnatriði eldfjallafræðinnar; ferðalag kviku upptakastað til yfirborðs og almenn ferli sem stjórna eldvirkni á yfirborði og dreifingu gosefna. Fjallað verður líka um grunnatriði eldgosavár og hnattrænna áhrifa eldgosa.

    Verklegar æfingar eru vikulega og beinast að því að leysa vandamál með útreikningum, greiningu gagna og rökstuðningi. Ein vettvangsferð á Reykjanes.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • EFN113G
    Verkleg efnafræði L
    Valnámskeið
    2
    Valnámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Mólrúmmál loftkenndra efna, Efnafræðileg varmafræði, Vermi hvarfa og lögmál Hess, Hraði efnahvarfa, niðurbrot vetnisperoxíðs, Le Chatelier, ákvörðun jafnvægisfasta með ljósgleypnimælingum, ákvörðun jónunarfasta sýru.

    Skyldumæting er í öryggisfyrirlestur í fyrstu kennsluvikunni.

    Námskeiðið taka nemendur í líffræði samhliða bóklega námskeiðinu Almenn efnafræði L.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • EFN112G
    Almenn efnafræði L
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Almenn og sérhæfð atriði um efnatengi og sameindabyggingu. Efnahvörf. Lofttegundir, vökvar, föst efni og lausnir. Varma- og hraðafræði efnahvarfa. Efnajafnvægi: sýru-basa, fellingar-, komplex- og afoxunar. Rafefnafræði og kjarnefnafræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • EÐL101G
    Eðlisfræði B
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið þessa námskeiðs er að styrkja og breikka undirstöðuþekkingu nemenda á eðlisfræði þannig að þeir geti; a) sett fram og notað einföld líkön til að lýsa náttúrufyrirbærum, b) aflað sér frekari þekkingar þegar beita þarf eðlisfræði, c) lesið úr stærðfræðilegri lýsingu á náttúrulegum ferlum.

    Námsefni: Aflfræði með áherslu á vinnu og orku, snúningshreyfingu og sveiflur. Vökvar. Varmafræði og varmaskipti. Hljóð og hljóðbylgjur. Rafkraftar, raf- og segulsvið.

    Í verklegu æfingum kynnast nemendur ýmis konar búnaði, m.a. sveiflusjám, fjölmælum og litrófsgreini. Áhersla er lögð á þjálfun vinnulags við gagnasöfnun og gagnameðferð.

    Námskeiðið er kennt á íslensku og ensku samkvæmt þörfum nemenda.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LÍF102G
    Grasafræði
    Valnámskeið
    7,5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Plöntur sem lífverur. Bygging og starfsemi plöntufrumna. Ljóstillífun. Innri og ytri bygging plantna, vöxtur og æxlun. Ættliðaskipti, þróun, lífsferlar og einkenni helstu hópa plantna. Fjallað verður um mosa og útdauðar og núlifandi æðplöntur en mest áhersla lögð á blómplöntur. Þróun og gerð fræja, blóma og aldina. Helstu lífbelti jarðar. Gróður á Íslandi.

    Verklegar æfingar: Dæmi skoðuð af ytri og innri byggingu plantna úr helstu hópum. Frumu- og vefjagerðir, fræ, blóm og aldin. Áhrif umhverfis á ytri og innri gerð plantna.

    Próf: Verklegt (20%) og skriflegt próf (80% heildareinkunnar). Lágmarkseinkunnar er krafist í báðum prófhlutum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÍF311G
    Vistfræði
    Valnámskeið
    7,5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fyrirlestrar: Inngangur. Þróun. Atferli. Söguleg og vistfræðileg líflandafræði. Stofnar: Dreifing einstaklinga, fæðingartölur, dánartölur, aldursdreifing, líftöflur, vöxtur stofna, stjórnun stofnstærðar, stofnsveiflur, far. Samspil tegunda: Samkeppni, afrán, aðrar samskiptagerðir. Nýting stofna. Stjórnun skaðlegra stofna. Samfélög: Lýsing, tegundasamsetning, tegundafjölbreytni, fæðuvefir, stöðugleiki, framvinda. Vistkerfi: Hringrás efna, orkurás, framleiðni, næringarkeðjur, neysluþrep, vistfræðileg nýtni. Vistfræði þurrlendis, sjávar og fersks vatns; kynning á íslenskum vistkerfum.

    Verklegar æfingar: Æfingar fara fram á rannsóknarstofu og úti við, eftir því sem aðstæður leyfa. Lögð er áhersla á beitingu vísindalegrar aðferðar í vistfræði, breytileika og meðferð gagna. Gerðar eru m.a. athuganir á stofnvexti bifdýrastofna, athuganir á gróðri og dýralífi þurrlendis, á beltaskiptingu í fjöru og á straumvatni.  Mætingarskylda: í allar verklegar æfingar. 

    Námsmat: Verklegar æfingar og málstofur vega 50% af lokaeinkunn, þar af ein viðameiri skýrsla sem kynna á munnlega. Tíu skriflegar æfingar gilda 50%. Lágmarkseinkunnar er krafist úr öllum námshlutum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Ekki kennt á misserinu
    LÍF516M
    Umhverfisfræði
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Landnýting. Ólífrænar auðlindir, nýting og umhverfisáhrif. Sjálfbær þróun. Líffræðileg fjölbreytni í tíma og rúmi. Eyðing búsvæða, útdauði og válistar. Ágengar tegundir. Jarðvegur og eyðimerkurmyndun. Verndun landslags og víðerna. Siðfræði og saga náttúruverndar, íslensk náttúruverndarlöggjöf. Hagnýting vistfræðilegrar þekkingar til að leysa umhverfisvandamál, vistheimt, mat á umhverfisáhrifum framkvæmda, rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Hnattrænar loftslagsbreytingar. Ein dagsferð á laugardegi í september. Nemendafyrirlestrar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • Ekki kennt á misserinu
    LAN024M
    Landslag og orkumál
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennt annað hvert ár þegar ártal er slétt tala.

    Landslagshugtakið er skoðað á gagnrýninn hátt út frá sjónarhorni mannvistarlandfræði. Breytingar á landnýtingu, orsakir þeirra og afleiðingar fyrir landslag eru ræddar. Sérstök áhersla verður lögð á vinnslu, flutning og nýtingu endurnýjanlegrar orku og landslagsáhrif mismunandi tegunda slíkrar orku. Greind eru dæmi um átök vegna ólíkra hagsmuna og/eða sýnar á náttúruna í tengslum við endurnýjanlega orku. Samspil orkuvinnslu, ferðaþjónustu og friðlýsingar svæða á Íslandi verður skoðað með tilliti til landslags. Einnig er rætt hvernig ákvarðanir um orkunýtingu eru teknar og að hve miklu leyti sjónarmið almennings koma við sögu.

    Farin er vettvangsferð til að skoða núverandi og áformuð orkuvinnslusvæði.

    Nemendur taka þátt í kostnaði við vettvangsferðir í þessu valnámskeiði.

    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LAN023M
    Umhverfis- og samfélagsleg ábyrgð í ferðamennsku
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Samfara auknum umsvifum ferðaþjónustunnar út um allan heim aukast umhverfis- og samfélagsleg áhrif ferðamennsku jafnt og þétt. Það er því mikilvægt að nemendur í ferðamálafræði og skyldum fagsviðum þekki og skilji þessi áhrif og geti beitt viðeigandi aðferðum til að stýra þeim. Enn fremur er mikilvægt að nemendur skilji hlutverk þessara áhrifa í víðara samhengi og tengsl þeirra við loftlagsbreytingar og sjálfbæra framtíð. Markmið námskeiðsins er að efla þekkingu nemenda á umhverfis- og samfélagslegri ábyrgð í ferðamennsku og mikilvægi hennar í uppbyggingu sjálfbærrar ferðamennsku. Áhersla verður lögð á að greina umhverfis- og samfélagsleg áhrif ferðaþjónustu. Kynnt verða mismunandi umhverfisstjórnunarkerfi og umhverfisvottanir í ferðaþjónustu og samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja rædd. Mismunandi nálganir, tæki og aðferðir sem notaðar eru á sviði umhverfisstjórnar og samfélagslegrar ábyrgðar verða enn fremur kynnt.

    Námskeiðið er á kennt á framhaldsstigi, en nemendur sem lokið hafa tveimur árum í grunnnámi geta einnig setið námskeiðið. Námskeiðið er kennt á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    UMV205M
    Mat á umhverfisáhrifum 1
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið: Að kynna hugmyndafræði og þær aðferðir, sem notaðar eru við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og á umhverfismati sem samfléttuðum þáttum við gerð skipulagsáætlana.

    Efni: Ástæður og aðdragandi lagasetningar um mat á umhverfisáhrifum og hvernig framkvæmd mats er háttað á Íslandi. Aðferðafræði; gátlistar, töflur, glæruaðferðir og flæðirit. Notkun landfræðilegra upplýsingakerfa (LUK), sem byggjast á stafrænum kortagrunnum og gagnasöfnum. Fræðasvið, sem nýtast við matið; landfræði, vistfræði, straumfræði, jarðfræði, efnafræði, lögfræði, félagsfræði, hagfræði og fagurfræði. Aðferðir við framsetningu á matinu; skýrslugerð, myndræn framsetning og tölvugrafík. Dæmi um notkun mats á umhverfisáhrifum við undirbúning og hönnun mannvirkja; losun og förgun úrgangsefna, vega- og línulagnir, brýr, hafnir og flugvellir, verksmiðjur og einstök mannvirki. Einnig ný aðferðafræði um hvernig þarf að flétta aðferðir MÁU inn í gerð skipulagsáætlana, á þann veg að skipulags-, landnýtingar og staðarvalsákvarðanir taki mið af umhverfissjónarmiðum. Hópverkefni, sem tengjast efni námskeiðsins.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FER209G
    Áfangastaðurinn Ísland
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að veita nemendum undirstöðuþekkingu á ferðamannalandinu Íslandi og helstu áfangastöðum og ferðaleiðum sem þar er að finna. Jafnframt er leitast við að veita nemendum hagnýta þjálfun til að þeir geti skipulagt ferðir um landið og notað til þess aðgengilegar aðferðir kortagerðar og unnið með með einfaldar landupplýsingar. Ferðaleiðir verða skoðaðar með tilliti til aðdráttarafls þeirra, afþreyingarmöguleika og upplifunar ferðamanna. Dregið verður saman það helsta um hverja leið með tilliti til samfélags þess svæðis sem ferðast er um, náttúru, sögu og menningu.

    Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun í:

    • Að afla gagna til að skipuleggja ferðir um Ísland fyrir ólíka hópa ferðamanna.
    • Miðlun upplýsinga til ferðamanna og pistlagerð.
    • Rýmistengdri hugsun og notkun landfræðilegra upplýsinga við skipulagningu ferða.

    Farið verður sýndarferðalög víðsvegar um landið. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LAN018G
    Starfsþjálfun í landfræði og ferðamálafræði
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið starfsþjálfunar er að nemendur kynnist störfum sem tengjast landfræði og/eða ferðamálafræði og hljóti þjálfun í þeim undir faglegri handleiðslu reyndra stjórnenda hjá fyrirtækjum eða opinberum stofnunum. Verkefni nemenda eru fjölbreytt og liggja á sviði umhverfismála, sjálfbærni, markaðsmála, skipulagsvinnu, kortagerðar, gagnagreiningar og úrvinnslu, nýsköpunar, þjónustustjórnunar, ferðahönnunar og áætlunargerðar svo eitthvað sé nefnt. Verkefni nemenda skulu þannig reyna á þá þekkingu og færni sem þeir hafa þegar aflað sér í grunnnámi í landfræði eða ferðamálafræði.

    Starfstími er 150 klst. (6 ECTS) og skal starfsþjálfun lokið innan 12 vikna frá því að hún hófst. Að auki er gert ráð fyrir viðbótartíma sem felst í dagbókar- og skýrsluskrifum. Lokaafurð starfsþjálfunar skal skilgreina í náms- og starfsmarkmiðum í samráði við umsjónarkennara og forsjáraðila fyrirtækis/stofnunar.

    Í lok starfstímans skal skila til umsjónarkennara:

    • Lokaskýrslu nemanda (skv. skilgreiningu í verkefnislýsingu).
    • Dagbók sem nemandi hefur haldið meðan á starfsþjálfun stóð. Dagbókin skal fela í sér vikulegt yfirlit þar sem fram kemur hver verkefni vikunnar voru og hve miklum tíma var varið í einstök verkefni.
    • Staðfesting umsjónarmanns á ástundun nemanda og verkefnavinnu í lok starfsþjálfunar.

    Umsjónarkennari skal yfirfara skýrslu og dagbók nemanda svo og staðfestingu umsjónarmanns fyrirtækis/stofnunar.

    Einkunn er gefin sem staðist/fallið og ekki er gefin töluleg einkunn.

    ATH: Nemendur geta ekki skráð sig sjálfir í þetta námskeið heldur eru þeir skráðir í námskeiðið þegar þeir hafa tryggt sér starfsþjálfunarstöðu hjá fyrirtæki eða stofnun.

    Allar starfsþjálfunarstöður verða auglýstar sérstaklega á Tengslatorgi (www.tengslatorg.hi.is ) í upphafi hvers kennslumisseris og nemendur sækja sérstaklega um að komast í starfsþjálfun.  Umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi, þar sem nemendur tilgreina hvers vegna þeir hafa áhuga á að komast í starfsþjálfun hjá viðkomandi fyrirtæki skal senda á von-starfsthjalfun@hi.is

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LAN022M
    Ferðamennska og umhverfi
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður fjallað um náttúru og landslag sem auðlind ferðamennsku. Áhersla verður lögð á samspil manns og náttúru. Farið verður yfir sögu náttúruverndar og staða náttúruverndar í dag skoðuð í alþjóðlegu samhengi. Fjallað verður um skipulag og stjórnun þjóðgarða og annarra friðlýstra svæða og skoðaðar aðferðir við gildismat náttúrunnar. Áhrif ferðamennsku á umhverfi verða rædd með áherslu á álag ferðamanna og þolmörk umhverfis. Gefin verður innsýn í náttúrusiðfræði og viðhorf og umgengni ferðamanna við náttúruna rædd. Sérstök áhersla verður lögð á sjálfbæra ferðamennsku og möguleikar þróunar slíkrar ferðamennsku hér á landi verða ræddir í ljósi skipulagningar og stjórnunar ferðamennsku.

    Námskeiðið mun samanstanda af fræðilegum fyrirlestrum, umræðuverkefnum og æfingum. Stúdentar þurfa að standast alla prófþætti námskeiðsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LAN205G
    Listin að ferðast
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið fjallar um mismunandi tegundir ferðamennsku og birtingarmyndir ferðaþjónustu á ólíkum svæðum. Námskeiðið skoðar tiltekna strauma ferðamennsku eins og massaferðamennsku, fátækraferðamennsku og bakpokaferðamennsku ásamt því að kynna kenningar um drifkrafta ferðalaga. Umfjöllunin er tengd ákveðnum landsvæðum og sett í samhengi við samfélagslega þróun þeirra. Þannig er lögð áhersla lögð á að veita innsýn í landfræðilegt samhengi ferðaþjónustu í heiminum í dag ásamt þeim álitamálum og úrlausnarefnum sem ferðamennska á við að etja á ólíkum stöðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Ekki kennt á misserinu
    LAN615G
    Námsferð til útlanda
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Vettvangsnámskeið í landfræði og ferðamálafræði, sem að felur í sér undirbúningstíma á misserinu og um tíu daga vettvangsferð eftir próf í maí. Nemendur bera kostnað af þátttöku í vettvangsferðinni.

    Vettvangsferð til Western Cape héraðs í Suður-Afríku, í samstarfi við Landfræði- og umhverfisdeild Stellenbosch háskóla, þar sem ferðamennska er einnig meðal viðfangsefna í rannsóknum kennara. Sambærileg námsferð var farin árið 2019 og 2023. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    LAN617G
    Landfræðileg upplýsingakerfi 2
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er verkefnamiðað,nemendur vinna sjálfstætt að verkefnum undir leiðsögn kennara. Leiðsögn kennara felst einkum í tæknilegri og fræðilegri úrfærslu verkefna út frá landupplýsingafræðilegu (LUK) sjónarhorni. Stærri hluta af önninni vinna nemendur sín eigin verkefni, oft í tengslum við lokaverkefni (BS). Verkefni nemenda geta verið úr hvaða vísindagrein sem er, en með LUK sjónarhorn sem þarf að leysa.

    Efni námskeiðsins: Hnit og varpanir. Landræn fyrirbæri, eigindi og gagnagrunnar, grannfræði og landræn svið. Landrænar greiningar og brúanir, framsetning og miðlun landrænna gagna, 3D. Lýsigögn og varðveisla. Opinn hugbúnaður.

    Áfanginn er próflaus en einkunn verður gefin fyrir lokaskýrslu og minni verkefni. Í upphafi annar þurfa nemendur að hafa á reiðum höndum lýsingu á verkefninu sem þeir ætla að vinna að ásamt mati á þeim landfræðilegum gögnum sem þarf til verksins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LAN622G
    Friðlýst svæði, landvarsla og stjórnun
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að efla þekkingu nemenda á grundvallarþáttum náttúruverndar, og hlutverki stjórnunar og skipulags í náttúruvernd hér á landi með tilliti til ferðamennsku innan friðlýstra svæða. Áhersla verður lögð á samspil verndunar og ferðamennsku, með sérstakri áherslu á líffræðilega og jarðfræðilega fjölbreytni. Farið yfir helstu álitamál um landnýtingu og náttúruvernd, sem og helstu ákvæði friðlýsingar og náttúruverndarlaga. Jafnframt verður skipulag ferðamennsku innan friðlýstra svæða rædd ásamt öryggismálum ferðamannastaða í náttúru Íslands. Kennd verða grundvallaratriði umhverfistúlkunar og leiðsagnar um náttúrusvæði. Nemendur munu enn fremur fá hagnýta reynslu í umhverfistúlkun og landvörslu og þar með talið móttöku gesta og þjónustuhlutverk landvarða.

    Farnar verða fjórar vettvangsferðir á námskeiðstímanum. Ferðir og uppihald kosta nemendur sjálfir. Til að ljúka námskeiðinu þurfa nemendur að mæta í allar ferðirnar.

    Námskeiðið er unnið í samvinnu við Umhverfisstofnun. Lokapróf í námskeiðinu, ásamt BS prófi í jarðfræði, líffræði, landfræði eða ferðamálafræði, veitir starfsréttindi Umhverfisstofnunar sem landvörður.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FER208G
    Uppbygging fyrirtækja og starfshæfni í ferðaþjónustu
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni námskeiðsins snýr að stjórnun og uppbyggingu þjónustu og innra gæðastarfs hjá ferðaþjónustufyrirtækjum og stofnunum. Fjallað verður um hvernig þessi atriði hafa bein og / eða óbein áhrif á árangur fyrirtækja og stofnanna, sem meta má á fjölbreyttan hátt. Nemendur vinna að raunverkefni með fyrirtæki að eigin vali, þar sem innri starfsþættir og uppbygging fyrirtækis eru greind. Hluti námskeiðsins er helgaður starfsþróun, þar sem gefin er innsýn í störf á ferðaþjónustumarkaði og nemendur taka fyrstu skrefin í uppbyggingu ferilskrár og starfsferilmöppu.   

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    LÍF660M
    Landvistkerfi
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um eftirfarandi efni:

    Fæðuvefir og samfélög landvistkerfa bæði ofanjarðar og neðan. Hlutverk lífvera og annarra þátta við mótun búsvæða á landi. Samband líffræðilegrar fjölbreytni og vistkerfisferla, m.a. frumframleiðslu og hringrás næringarefna. Áhrif einstakra lífveruhópa og eiginleika þeirra, einkum plantna og grasbíta, á vistkerfisferla, stöðugleika og þanþol vistkerfa. Áhrif loftslagsbreytinga og landnýtingar á vistkerfi, með áherslu á norðurslóðir. Sérstaða íslenskara vistkerfa. Endurheimt hruninna og hnignaðra vistkerfa. Helstu aðferðir við rannsóknir á landvistkerfum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LÍF201G
    Örverufræði
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu kynnast nemendur þeim hluta lífheimsins sem er almennt ekki sjáanlegur með berum augum.  Þeir fá tækifæri til að öðlast grundvallar þekkingu á eiginleikum baktería, arkea, veira og heilkjarna örvera.  Í námskeiðinu verður m.a. annars fjallað um hvernig örverur eru undirstaða lífs á jörðinni, hlutverk þeirra í vistkerfum, hvernig sumar þeirra valda sjúkdómum eða eru mikilvægar í rannsóknum og iðnaði.  Nemendur fá innsýn í störf örverufræðinga og verklega þjálfun sem er nauðsynleg fyrir hvers kyns störf á rannsóknarstofum

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Ekki kennt á misserinu
    LÍF615M
    Gróðurríki Íslands og jarðvegur
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennt á móti LÍF 606M og ráða skráningar hvort námskeiðið er kennt. Íslenska háplöntuflóran; samsetning, fjölbreytni, staða í flóruríki jarðar. Heimskautaflóran: uppruni, kerfisfræði, vistfræði. Líflandafræði flórunnar við Norður Atlantshaf. Ísöld á norðurhveli, ísaldarlok á Íslandi og í Evrópu og gróðursaga á nútíma. Tilgátur um aldur og uppruna íslensku flórunnar og heimskautaflóru á norðurhveli. Íslenskur jarðvegur; myndun, sérkenni, eyðimerkurmyndun. Gróðurbreytingar eftir landnám. Flóra Íslands og útbreiðsla um landið, búsvæði og líffræðileg fjölbreytni. Válistategundir. Aðferðir til að lýsa og flokka gróður. Íslensk gróðurlendi: flokkun, útbreiðsla, umhverfi og nýting. Verkleg kennsla fer að hluta til fram að sumari til: 4 daga sumarnámskeið.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR405G
    Fornvistfræði
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið skiptist í þrjá hluta: 1. Almennur inngangur að fornvistfræði, markmiðum hennar og notagildi. 2. Aðferðir fornvistfræðinnar þ.m.t. sýnatökutækni, aldursgreiningar, greining lífveruleifa og túlkunarmöguleikar. 3. Rannsóknarvettvangur fornvistfræðinnar (land, ferskvatn, sjór, andrúmsloft, bólstaðir og menningarlandslag). Fjallað er með dæmum um rannsóknarspurningar sem svarað er með fornvistfræðilegum aðferðum. Kennsla fer fram með fyrirlestrum og verklegum æfingum. Æfingar fara fram í kennslustofu, en farinn verður einn borleiðangur í nærliggjandi stöðuvatn.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞJÓ205G
    Efnismenning og samfélag: Hlutirnir, heimilið, líkaminn
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður efnisleg hversdagsmenning tekin til gagngerrar umfjöllunar. Gefið verður yfirlit yfir þetta þverfaglega rannsóknarsvið og rýnt jöfnum höndum í dæmi úr samtímanum og frá fyrri tíð, íslensk og erlend. Meðal annars verður fjallað um föt og tísku, matarhætti, hlutina sem umkringja okkur í daglega lífinu, rusl og hreinlæti, handverk og neyslumenningu, hús og garða, heimilið, borgarlandslag, söfn og sýningar. Um leið kynnast nemendur ýmsum kenningum og sjónarhornum sem leggja t.a.m. áherslu á mannslíkamann, kyngervi, neyslu, rými og stað.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    JAR626M
    Jöklajarðfræði
    Valnámskeið
    7,5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um ferli rofs, setmyndunar og landmótunar í jökulumhverfi. Í fyrirlestrum er fjallað um jökulkerfi, hreyfingar jökla, rof, setmyndun, flutning, aflögun, landform og ferli við jökuljaðar. Fimm daga námsferð verður farin að loknum vormisserisprófum að jöklum á Suðurlandi (Mýrdalsjökull eða Vatnajökull) og fornu jökulumhverfi á Vesturlandi. Í námsferð verður verkefnum úthlutað og nemendur skila skýrslum. Þátttaka í feltferð er forsenda lokaeinkunnar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    JAR622M
    Jöklafræði

Annað ár

Þriðja ár

Óháð námsári

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Athugaðu að á stundatöflunni er ekki að finna dæmatíma eða hagnýta kennslu. Upplýsingar um þær kennslustundir má finna á Uglu, innri vef HÍ. Hver nemandi sækir aðeins einn dæmatíma og einn hagnýtan tíma (umræðuhóp, verklegar æfingar á tilraunastofu) í hverju námskeiði.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Vaxandi áhersla á umhverfis- og loftslagsmál og sjálfbæra þróun kallar á breiða þekkingu á þeim sviðum.
Hlutverk landfræðilegra greiningaraðferða hefur einnig aukist með tækniþróun í landfræðilegum upplýsingakerfum og stafrænni kortagerð.
Eftirspurn eftir fólki með landfræðimenntun endurspeglar þetta.

Landfræðingar starfa víða, hjá einkafyrirtækjum, sveitarfélögum og ríkisstofnunum.

Landfræðingar starfa meðal annars við:

  • Skipulagsmál
  • Náttúru- og umhverfisrannsóknir
  • Náttúruvernd og landvörslu
  • Umhverfismál og mat á umhverfisáhrifum
  • Kortagerð og meðferð landupplýsinga
  • Byggða- og atvinnuþróun
  • Kennslu
  • Þróunarsamvinnu

Listinn er ekki tæmandi

Meira um félagslíf stúdenta í Hí

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Erlu Diljá Sæmundardóttur
Landfræði er þverfaglegt, persónulegt, fjölbreytt og skemmtilegt nám sem sameinar áhuga minn á náttúru og fólki fullkomlega. Ég gæti ekki hugsað mér að vera í neinu öðru námi og svo skemmir ekki fyrir að félagslífið er frábært. Fjöldi valáfanga gefur nemendum svo rými og tækifæri til þess að finna út hvar þeirra áhugasvið liggur, dýpka þekkingu sína á ákveðnu sviði eða prófa ólíka en áhugaverða áfanga. Námið gefur góða yfirsýn yfir fjölbreytt málefni en kennarar leggja sig alla fram við að tengja námsefnið við það sem er í gangi í samfélaginu hverju sinni. Gott samband er á milli nemenda og kennara en þau eru alltaf til í að hjálpa og gefa góðar ráðleggingar.
Ljósmynd af Lísbeti Perlu Gestsdóttur
Ég valdi landfræði vegna þess hve þverfaglegt námið og gefur góðan og víðan grunn hvort sem er fyrir áframhaldandi nám eða atvinnulífið. Það sem heillaði mig mest var að námið er samsett af fjölþættum áföngum sem snúa bæði að umhverfi og náttúru ásamt fjölbreytileika mannlegs samfélags. Það sem gerir námið ekki síður skemmtilegt er mismunandi reynsla og skoðanir bæði samnemenda og kennara sem gera það að verkum að maður lærir eitthvað nýtt á hverjum degi.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Verkfræði- og náttúruvísindasvið
Virka daga 09:00 - 15:30
Netföng

Fylgdu okkur á Instagram og  Facebook 

Mynd af Tæknigarði

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil