""
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á íslensku, ensku eða Norðurlandamálum.
Lengd náms
Þrjú ár - 180 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á íslensku máli eða íslenskum bókmenntum? 
  • Vilt þú vinna fjölbreytt verkefni undir handleiðslu sérfræðinga í máli eða bókmenntum? 
  • Langar þig til að skilja eðli málbreytinga í íslensku? 
  • Langar þig til að skilja hvernig íslenskar bókmenntir endurspegla samfélagið? 
  • Vilt þú starfa á sviði þar sem þekking á máli og bókmenntum kemur að góðum notum? 
  • Langar þig til að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?

Í náminu öðlast nemendur víðtæka þekkingu á margvíslegum greinum íslenskra bókmennta frá ólíkum tímabilum og skilning á mikilvægum kenningum í bókmenntafræði. Nemendur fá einnig góða yfirsýn yfir íslenskt málkerfi á öllum öldum og þjálfun í að beita fræðilegum hugmyndum og hugtökum á málfræðileg gögn úr íslensku.

Námið er einnig góður undirbúningur fyrir margvíslegt framhaldsnám, bæði hérlendis og erlendis, t.d. í bókmenntafræði, málvísindum, talmeinafræði, ritlist, máltækni, fjölmiðlun, útgáfustarfsemi, þýðingum o.fl.

Meðal viðfangsefna

  • Málfræði 
  • Miðaldabókmenntir 
  • Hljóðkerfisfræði 
  • Samtímabókmenntir 
  • Máltækni 
  • Bókmenntafræði 
  • Setningafræði 
  • Íslensk málsaga 
  • Handritafræði 
  • Þjóðsagnafræði 
  • Máltaka barna 
  • Íslensk bókmenntasaga 
  • Málnotkun 
  • Fornmálið 
  • Ritfærni 
  • Tal- og málmein 

Námsmöguleikar 

Hverjum nemanda gefst kostur á að haga náminu að nokkru leyti eftir áhugasviði sínu og framtíðaráætlunum. Með því að velja ákveðna samsetningu valnámskeiða á þeim sviðum sem nefnd eru hér fyrir ofan geta nemendur sérhæft sig strax á B.A.-stigi. 

Samvinna við aðrar kennslugreinar gerir það einnig að verkum að nemendum standa til boða valnámskeið í almennri bókmenntafræði, almennum málvísindum, þjóðfræði, ritlist, þýðingafræði, erlendum málum og fleiri greinum.  

Nám í íslensku er líka hægt að taka sem: 

Þau sem taka íslensku sem aðalgrein þurfa að ljúka ákveðnum fjölda námskeiða í bókmenntum og málfræði en síðan geta nemendur búið sig undir mismunandi störf og margvíslegt framhaldsnám með því að velja ólíkar leiðir innan íslenskunámsins. 

Með aðalgreininni íslensku er hægt að velja sem aukagrein aðra kennslugrein á Hugvísindasviði eða jafnvel grein af öðrum sviðum Háskólans. 

Kennsluhættir 

Kennsla í íslensku fer fram með fyrirlestrum og umræðutímum. Einnig eru heimaverkefni og ritgerðir mikilvægur þáttur kennslunnar í flestum námskeiðum og því eru sjálfstæð og öguð vinnubrögð forsenda góðs gengis í náminu.  

Námsmat er fjölbreytt og getur falist í skriflegum og munnlegum prófum, framsögu í tímum, ritgerðum, heimaverkefnum og fleiru. 

Í námslok skrifa nemendur B.A.-ritgerð sem reynir á hæfni til sjálfstæðra vinnubragða og rannsókna. B.A.-ritgerðir eru aðgengilegar á síðunni skemman.is. 

Hús íslenskunnar

Sumarið 2023 flytur námsbraut í íslensku ásamt námsbraut í íslensku sem öðru máli og Árnastofnun í nýja byggingu: Hús íslenskunnar. Þar fer fram kennsla í íslensku og fastir kennarar greinarinnar hafa þar skrifstofu. Nemendafélagið Mímir hefur einnig aðstöðu í húsinu og þar verður lesaðstaða fyrir grunn- og framhaldsnema. 

Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf. Nánari upplýsingar er að finna í 17. grein reglna um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022.

Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda grunnnám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku skv. 1. gr. reglnanna.

Námið skiptist í kjarna og val. Kjarninn er samtals 120 einingar, þar af 50 einingar í málfræði og 50 í bókmenntum. Í kjarna eru einnig Aðferðir og vinnubrögð og annaðhvort námskeiðið Bókmenntasaga eða Þróun málvísinda (bundið val). Nemendum sem taka íslensku sem aðalgrein til 180 eininga er skylt að taka öll kjarnanámskeið auk BA-ritgerðar (10 eða 20 e). Að öðru leyti er val námskeiða frjálst. Unnt er að taka námskeið úr ýmsum öðrum greinum sem hluta af vali, s.s. úr almennri bókmenntafræði, almennum málvísindum, þjóðfræði, fjölmiðlafræði o.fl.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Aðferðir og vinnubrögð (ÍSL109G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er sameiginlegt nemendum í íslensku, almennum málvísindum og táknmálsfræði. Það skiptist í tvennt. Í öðrum helmingi námskeiðsins (kennt á fimmtudögum) er fjallað um gagnrýna hugsun og ritgerðasmíð frá ýmsum hliðum: uppbyggingu ritgerða, efnisafmörkun, mál og stíl, heimildanotkun og heimildamat, tilvísanir, heimildaskrá, frágang o.fl.
Í hinum helmingi námskeiðsins (kennt á þriðjudögum) munu fræðimenn á áðurnefndum sviðum kynna viðfangsefni sín og gestir utan háskólans kynna starfsvettvang íslenskufræðinga, málvísindamanna og táknmálsfræðinga.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Inngangur að málfræði (ÍSL110G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kynnt verða helstu viðfangsefni málvísinda og undirstöðuatriði í íslenskri málfræði. Fjallað verður um valin atriði innan höfuðgreina málvísinda og helstu hliðargreinar þeirra auk þess sem gefið verður yfirlit yfir þróun málvísinda í gegnum aldirnar. Meginmarkmið námskeiðsins er að efla skilning nemenda á eðli tungumála og kynna þeim helstu grundvallarhugtök og aðferðir málvísinda. Kennsla felst í fyrirlestrum kennara og umræðum nemenda og kennara um efnið. Nemendur vinna heimaverkefni reglulega yfir misserið, taka tvö heimakrossapróf og ljúka námskeiðinu með lokaprófi í stofu á háskólasvæðinu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Bókmenntafræði (ÍSL111G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Vilt þú læra nýjar leiðir til að lesa og skilja bókmenntir, kafa undir yfirborð texta og ræða um skáldverk á faglegan hátt? Í þessu námskeiði kynnast nemendur undirstöðuhugtökum í bókmenntafræði, textagreiningu og ritun bókmenntaritgerða. Nemendur læra um ólíkar nálganir í bókmenntagreiningu og fá þjálfun í að beita hugtökum við greiningu á skáldtextum af ýmsu tagi, bæði munnlega og í rituðu máli. Námskeiðið skiptist í fjóra hluta: Inngang að bókmenntafræði, ljóð, frásagnir (sögur og leikrit) og loks bókmenntaritgerðaskrif. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Íslensk bókmenntasaga til 1900 (ÍSL205G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Yfirlit yfir íslenska bókmenntasögu frá öndverðu til loka 19. aldar. Lögð verður áhersla á að setja hræringar og nýjungar í íslenskum bókmenntum í samhengi við alþjóðlega strauma í bókmenntum álfunnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Miðaldabókmenntir (ÍSL206G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um mismunandi leiðir til þess að nálgast miðaldatexta, hvort sem er eftir hefðbundnum leiðum bókmenntafræði miðalda eða nútímabókmenntarannsókna. Þá verður lesið og rætt um viðhorf miðaldamanna til bókmenningar, sagnaskemmtunar og skáldskapar. Helstu greinar íslenskra miðaldabókmennta verða lesnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Málkerfið – hljóð og orð (ÍSL209G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta er grundvallarnámskeið í íslenskri hljóðfræði, hljóðkerfisfræði, beygingarfræði og orðmyndunarfræði. Farið verður í grundvallaratriði hljóðeðlisfræði og íslenskrar hljóðmyndunar og nemendur þjálfaðir í hljóðritun. Helstu hugtök í hljóðkerfisfræði verða kynnt og gefið yfirlit yfir hljóðferli í íslensku og skilyrðingu þeirra. Einnig verða grundvallarhugtök orðhlutafræðinnar kynnt og farið yfir helstu orðmyndunarferli í íslensku og virkni þeirra. Málfræðilegar formdeildir verða skoðaðar, beygingu helstu orðflokka lýst og gerð grein fyrir beygingarflokkum og tilbrigðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Straumar og stefnur í bókmenntafræði (ÍSL301G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Sögulegt yfirlit yfir þróun bókmenntafræði á 20. og 21. öld. Auk fyrirlestra þar sem fjallað er um valdar lykilkenningar er gert ráð fyrir umræðutímum þar sem nemendur æfast í að beita ólíkum nálgunarleiðum á bókmenntatexta.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Breytingar og tilbrigði (ÍSL320G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið þessa námskeiðs er að skýra þau tengsl sem eru á milli málbreytinga í sögu tungumáls og samtímalegra tilbrigða í máli. Meginhugmyndin er sú að málbreytingar leiði að jafnaði til samtímalegra tilbrigða á einhverju tímabili og að öll samtímaleg tilbrigði stafi af einhvers konar málbreytingu eða vísi að breytingu. Í námskeiðinu verða annars vegar kynntar helstu hugmyndir um eðli og tegundir málbreytinga, hvernig breytingar kvikna og hvernig þær breiðast út, og hins vegar hugmyndir um samtímaleg tilbrigði og eðli þeirra. Athyglinni verður fyrst og fremst beint að þróun íslensku, og því verða dæmi einkum tekin úr íslenskri málsögu og íslensku nútímamáli en jafnframt verður bent á hliðstæður í öðrum tungumálum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Setningar og samhengi (ÍSL321G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður fjallað um grundvallaratriði í íslenskri setningafræði, meðal annars orðflokkagreiningu, setningaliði, flokkun sagna, færslur af ýmsu tagi og málfræðihlutverk. Einnig verður fjallað um málnotkun, merkingu og samhengi og tengsl þessara atriða við setningafræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Ásta Sigurðardóttir og Svava Jakobsdóttir (ÍSL343G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður fjallað um verk tveggja merkra skáldkvenna og frumkvöðla í ritun módernískra bókmennta á Íslandi á 20. öld, Ástu Sigurðardóttur (1930–1971) og Svövu Jakobsdóttur (1930–2004). Rætt verður um viðtökur verkanna og bókmenntasögulegt samhengi þeirra, ævi og störf höfundanna og hvernig reynsla þeirra og ímynd birtist í verkunum, sem og áhrif hugmyndastrauma og samfélagsumróts á borð við femínisma og stéttabaráttu. Textar Ástu og Svövu verða bornir saman og athygli beint að tengingum milli höfundarverkanna tveggja og því sem greinir þau að, auk þess sem horft verður til áhrifa þeirra á aðra höfunda og íslenskt bókmenntasvið á 21. öld.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Sálfræði tungumáls, heilinn og erfðir (AMV313G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður fjallað um helstu aðferðir sálfræðilegra málvísinda og hugrænna taugavísinda í rannsóknum á tungumáli. Rætt verður m.a. um úrvinnslu heilans á merkingu og setningafræði og fjallað um viðfangsefni á borð við tvítyngi, talmyndun, málþroska og túlkun á óbeinu máli (t.d. kaldhæðni). Að lokum verður stuttlega farið yfir nýjustu rannsóknir á erfðaþáttum tungumáls.

Námskeiðið er kennt á ensku og samkennt með námskeiði á framhaldsstigi en námskröfur eru ólíkar.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Dróttkvæði og rímur: menntun og skemmtun fyrri alda (ÍSL342G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Íslenskur kvæðaarfur er samofinn íslenskri menningarsögu og þjóðlífi en fornkvæðin gegna m.a. mikilvægu hlutverki sem hluti af stærri sagnatextum eða af sagnahefð almennt og sem sjálfstæðir bálkar frásagnarkvæða. Í þessu námskeiði verður fjallað um tvær megingreinar íslenskra fornkvæða, dróttkvæði og rímur, allt frá elstu heimildum fram til siðbreytingar. Nemendur hljóta þjálfun í lestri og greiningu dróttkvæða og rímna og rætt verður um gildi og hlutverk vísna í ólíkum textum, samspil sagna og rímna, heimildagildi þeirra sem og munnlega og skriflega geymd kvæðanna á ólíkum tímum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Tungumálið í notkun: Samtöl og samhengi (AMV106G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Merking orða og setninga ræðst oft af samhenginu, til dæmis við beitingu og túlkun á kaldhæðni. Hvernig geta aðrir skilið okkur ef við segjum ekki alltaf það sem við meinum? Hvað eiga samtöl í ólíkum menningarheimum og tungumálum sameiginlegt? Í námskeiðinu verður fjallað um notkun tungumálsins í samskiptum frá ýmsum sjónarhornum málvísinda. Kennd verða undirstöðuatriði í málnotkunarfræði og varpað ljósi á áhrif samhengis á merkingu orða og setninga. Kynnt verða helstu viðfangsefni og aðferðir samtalsgreiningar og rætt um samanburðarrannsóknir á samtölum víða um heim. Að lokum fá nemendur innsýn í þverfaglegar rannsóknir á málnotkun með aðferðum sálfræðilegra málvísinda. Nemendur kynnast upptöku á samtölum, greiningu á tali með efni námskeiðsins í huga og notkun viðeigandi forrita (t.d. Praat til vinnslu á hljóði og ELAN til að skrá samtöl).

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Tal- og málmein (AMV415G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu fá nemendur yfirlit yfir helstu viðfangsefni talmeinafræðinga á Íslandi. Um er að ræða fjölbreytt efni, allt frá greiningu og meðferð málstols og kyngingartregðu hjá fullorðnum einstaklingum yfir í málþroskaröskun og framburðarfrávik barna á leikskólaaldri. Unnið er út frá nauðsynlegri grunnþekkingu og yfir í hagnýtari nálganir á viðfangsefnið. Einnig verður lögð áhersla á að nemendur geti kynnt sér fræðilega umræðu og ritrýndar greinar á sviði talmeinafræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Forritun fyrir hugvísindafólk (ÍSL333G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er fyrst og fremst ætlað nemendum í grunnnámi í hugvísindum við HÍ sem vilja geta notað forritun í sínum störfum. Í námskeiðinu er farið í grunnþætti forritunar með forritunarmálinu Python og áhersla er lögð á greiningu textagagna. Námskeiðið hentar því vel fyrir þau sem vilja kynnast máltækni í BA-námi, ekki síst þeim sem stefna á MA-nám í máltækni. Námskeiðið er samkennt með MLT701F Forritun í máltækni á MA-stigi og allir nemendur sitja sömu fyrirlestrana en BA-nemar fá styttri verkefni en MA-nemar. Við textagreiningu í námskeiðinu skiptir máli að nemendur hafi grunnþekkingu á helstu hugtökum í málfræði en ef nemandi er í vafa um hvort hún, hann eða hán hefur viðeigandi bakgrunn til að taka námskeiðið er sjálfsagt að hafa samband við kennara fyrir frekari upplýsingar. 

Tilgangur þessa námskeiðs er að styðja við nemendur á fyrstu stigum forritunar, aðstoða þá við að ná tökum á grunnþáttum hennar og veita þeim þjálfun í að leysa einföld en fjölbreytt máltækniverkefni í forritunarmálinu Python. Nemendur kynnast þar fyrir utan nokkrum málvinnslutólum sem hægt er að beita við textavinnslu. Nemendur sem síðar halda áfram í MA-nám í máltækni munu nota grunninn úr þessu námskeiði í öðrum námskeiðum um málvinnslu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Hljóðfræði og hljóðkerfisfræði (ÍSL340G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um undirstöðuatriði hljóðfræði og hljóðkerfisfræði. Fyrri hluti námskeiðsins er tileinkaður hljóðfræði. Fjallað er um gerð talfæra og hljóðmyndun. Nemendur fá þjálfun í hljóðritun. Kynntar verðu helstu aðferðir á sviði hljóðeðlisfræði og fjallað um tengsl hljóðfræði og hljóðkerfisfræði. Í seinni hluta námskeiðsins verða kynnt hugtök og aðferðir við greiningu hljóðkerfa og nemendur þjálfaðir í notkun þeirra. Ólíkar kenningar í hljóðkerfisfræði verða skoðaðar í tengslum við tungumál almennt og íslenskt hljóðkerfi sérstaklega.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Ritfærni: Fræðileg skrif (ÍSR301G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Ritfærni: Fræðileg skrif er grunnnámskeið í meðferð ritaðs máls. Nemendur hljóta þjálfun í ritun með reglulegum heimaverkefnum, fyrirlestrum, umræðum og smiðjuvinnu. Fjallað verður um vinnulag við ritun fræðilegra texta, svo sem val og afmörkun viðfangsefnis, byggingu, heimildanotkun og frágang. Einnig verður lögð áhersla á að þjálfa nemendur í málnotkun í fræðilegum textum og fjallað meðal annars um málsnið, stíl, stafsetningu, greinarmerkjasetningu og hjálpargögn málnotenda. Nemendur skrifa fræðilega ritgerð í leiðsagnarmati og fá reglulega endurgjöf kennara sem og samnemenda. Námsmat byggist á reglulegum heimaverkefnum, miðmisserisverkefni, jafningjamati, lokaverkefni og virkri þátttöku í ritsmiðjum. Vakin er athygli á því að aðeins er hægt að ljúka námskeiðinu sé öllum verkefnum skilað.

Nemendur sem hyggjast taka námskeiðið sem netnám eru beðnir að skrá sig sem slíkir inni á Uglu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Annað ár | Vor
Bókmenntasaga (ABF210G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði er veitt yfirsýn yfir bókmenntasögu síðustu 4000 ára með lestri valinna meistaraverka frá Afríku, Asíu og Evrópu. Verkin verða lesin í íslenskum þýðingum. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Þróun málvísinda (AMV205G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er saga málvísinda og málspeki rakin í megindráttum frá fornöld til nútímans. Áhersla er lögð á þær kenningar og uppgötvanir sem afdrifaríkastar hafa orðið fyrir hugmyndir og aðferðafræði málvísinda. Meðal annars er fjallað um málvísindi fornaldar, íslenska miðaldamálfræði og sögu málvísindanna á 19. og 20. öld. Að lokum verður rætt um strauma og stefnur í málvísindum nútímans.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Fornmálið (ÍSL211G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið þessa námskeiðs er að gefa haldgott yfirlit um íslenskt fornmál, einkum hljóðkerfi og beygingarkerfi. Fjallað verður um hljóðkerfi íslensks fornmáls og forsögu þess. Fyrsta málfræðiritgerðin verður lesin og grein gerð fyrir mikilvægi hennar bæði fyrir íslenska og norræna málfræði og sögu málvísinda. Loks verður fjallað rækilega um beygingarkerfi fornmáls.

Kennsla felst að mestu leyti í fyrirlestrum. Auk þess verða allmörg heimaverkefni lögð fyrir nemendur og um þau fjallað í sérstökum æfingatímum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Íslenskar samtímabókmenntir (ÍSL213G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um íslenska bókmenntasögu 20. og 21. aldar. Skáldverk af ýmsum toga eru lesin, rædd og sett í samhengi við íslenska samfélags- og menningarsögu og alþjóðlega strauma.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Náttúrusögur: (yfir)náttúra í þjóðsögum og bókmenntum fyrri alda (ÍSB814M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Með hliðsjón af þjóðsögum, bókmenntatextum og öðrum heimildum fjallar námskeiðið um birtingarmyndir náttúru og yfirnáttúru í frásagnarmenningu á Íslandi í gegnum aldirnar. Nemendur læra um þýðingu, snertifleti og óljós mörk þessara fyrirbæra og hvernig þau hafa mótað samfélag og umhverfi. Nemendur kynnast þannig ólíkum hugmyndum um stöðu fólks og (annarra) dýra innan, yfir eða utan við náttúruna. Í fjölbreyttum fyrirlestrum og verkefnavinnu verður fjallað með gagnrýnum hætti um mennsku og dýrsleika, lífheima og handanheima, efnisleika og hið yfirskilvitlega.  Kannað verður hvaða hlutverk og form landslag, lífverur, líkamar, veður og náttúrufyrirbrigði taka í frásögnunum.  Kynntar verða nýjustu rannsóknir á þessu breiða sviði, svo sem á framsetningu jarðhræringa og himingeima, bjarndýra, hvala, sela og húsdýra, og á náttúrvættum og öðrum þjóðsagnaverum á borð við álfa, drauga, tröll og berserki.  Nemendur læra hvernig sagnaheimar og þjóðtrú hafa sett mark sitt á náttúruskynjun, alþýðuhefðir, þjóðhætti og samfélagsleg rými svo sem álagabletti, helga staði og staði sem eru þekktir fyrir reimleika. Einnig spyrjum við hvernig þessar frásagnir birtast í alþýðulist og myndlist, allt frá fyrri öldum til nútímans. Að lokum munum við kanna hvaða þýðingu frásagnir af náttúru og yfirnáttúru hafa í samhengi mannaldar, mannmiðaðra sjónarhorna, loftslagsbreytinga og ólíkrar stöðu samfélagshópa og tegunda.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Vor
Mál og samfélag (ÍSL004M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður fjallað um samspil tungumáls og samfélags með aðferðum og hugtökum félagslegra málvísinda og með hliðsjón af alþjóðlegum og innlendum rannsóknum á því sviði.
 
Rætt verður m.a. um málviðhorf, málsnertingu, mállýskur, málsnið og málstýringu. Hugað verður að ýmsum birtingarmyndum málnotkunar og breytileika í máli og að því hvernig þættir á borð við umhverfi, samhengi og bakgrunn málnotanda hafa áhrif á málnotkun og val málsniðs.

Yfirlit verður veitt um helstu rannsóknaraðferðir, eigindlegar og megindlegar, nýlega strauma í félagslegum málvísindum og aðferðir metnar með tilliti til rannsóknarefnis.

Kynntar verða rannsóknir á viðhorfum til málnotkunar og máls, eigin máls og annarra, ásamt því að ræða hvað óhefðbundin málnotkun hefur í för með sér. Í því samhengi verður sérstök áhersla lögð á mál þeirra sem tala íslensku sem erlent mál og stöðu innflytjenda.

Fjallað verður um stöðu íslensku í dag, einkum gagnvart ensku og öðrum tungumálum. Hugað verður að lögmálum um málstýringu og að hugmyndum fólks um tungumálið fyrr og síðar. Fjallað verður um íslenska málstefnu, málstýringu, málstöðlun og hreintunguhneigð frá ýmsum hliðum, m.a. í samtímalegu og sögulegu ljósi og með hliðsjón af erlendum málsamfélögum.

Til umræðu verður málnotkun tiltekinna félagshópa (t.d. unglinga) með tilliti til félagslegs hlutverks málnotkunarinnar innan hópsins annars vegar og innan málsamfélagsins í heild sinni hins vegar.

Gert er ráð fyrir að nemendur vinni verkefni, hópverkefni eða einstaklingsverkefni, þar sem leitað er svara við ýmsum spurningum sem bornar verða fram í kennslu og umræðu.

Íslensk miðaldahandrit (ÍSL416M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður fjallað um íslenska handritamenningu frá ýmsum hliðum. Nemendur fá þjálfun í að lesa íslensk handrit frá ýmsum tímum, allt frá elstu skinnhandritunum á tólftu og þrettándu öld og fram á tíma pappírshandrita á sautjándu og átjándu öld. Gefið verður yfirlit yfir skriftarsöguna, fjallað um uppruna íslenskrar skriftar og helstu breytingar á henni í tímans rás og nemendur þjálfaðir í að lesa ólíkar skriftartegundir frá ólíkum tímum. Stafsetning fornra handrita er um margt ólík þeirri stafsetningu sem við eigum að venjast í nútímanum. Þar er til að mynda notað kerfi skammstafana sem að hluta til er arfur úr miklu eldri latínustafsetningu. Nemendur fá þjálfun í að lesa úr þessum styttingum. Íslenskt mál hefur einnig breyst í tímans rás og margvíslegar málbreytingar birtast þegar lesnir eru íslenskir textar frá ólíkum tímum. Rætt verður um valdar breytingar. Breytingar á skrift, stafsetningu og máli veita mikilvægar vísbendingar um aldur handrita og fá nemendur þjálfun í að tímasetja íslensk handrit á grundvelli skriftar, stafsetningar og máls.

Fjallað verður um bókagerð á miðöldum og meðal annars rætt um skinnaverkun, blekgerð og bókband. Fjallað verður um skrifara og skrifaraskóla og líklegar miðstöðvar bókagerðar á Íslandi á miðöldum. Rýnt verður í verk nokkurra afkastamikilla skrifara frá fjórtándu öld. Hvað var skrifað? Hvernig var skrifað? Breyttust vinnubrögð skrifara á löngum skrifaraferli? Enn fremur verður fjallað um textana sem handritin geyma og undirstöður textafræðinnar kynntar. Njáls saga hefur, svo dæmi sé tekið, varðveist í ríflega sextíu handritum og textinn í þeim er nokkuð breytilegur. Hvaða handrit á að leggja til grundvallar við útgáfu Njáls sögu? Rætt verður um mismunandi útgáfur fornra texta og nemendur takast á við útgáfuverkefni. Fjallað verður um rafrænar útgáfur og nemendur fá þjálfun í merkingu fornra texta með textamerkingarmálinu XML eftir leiðbeiningum Medieval Nordic Text Archive (MENOTA) og Medieval Unicode Font Initiative (MUFI).

Námskeiðið er kennt með blöndu af fyrirlestrum og vinnustofum með virkri þátttöku nemenda. Efni verður oft miðlað með upptökum á fyrirlestrum til að geta nýtt meiri tíma í kennslustofu fyrir umræður og virka þátttöku nemenda.

Námskeiðið er kennt í samstarfi við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og fara nemendur í heimsókn á stofnunina til að kynnast safnkosti og vinnuaðstöðu og skoða handrit.

Efnisþættir

Vika 1
(1) Inngangur
Námskeiðið kynnt: kennslufyrirkomulag, lesefni, verkefni, námsmat.
Viðfangsefnið kynnt: Íslensk miðaldahandrit.

(2) Elstu handrit og upphaf ritunar á Íslandi
Ágrip af sögu latínuleturs og elstu handrit á íslensku. Hvar lærðu Íslendingar að nota latínuletur? Hvaða stafsetning var notuð? Helstu einkenni miðaldastafsetningar og notkun styttinga.

Vika 2
(3) Rafrænar útgáfur norrænna forntexta
Hvernig er hægt að miðla fornum textum með rafrænum hætti? Textamerkingarmálið XML, TEI, MENOTA, MUFI og fleira því tengt. Við spreytum okkur á að skrifa upp og merkja texta í XML.

(4) Stafsetning elstu handrita og Fyrsta málfræðiritgerðin
Notkun latínustafrófsins við að skrifa íslensku: áskoranir — og lausnir höfundar Fyrstu málfræðiritgerðarinnar um miðja tólftu öld.

Vika 3
(5) Íslensk skrift og stafsetning á þrettándu öld
Munurinn á íslenskri og norskri skrift og stafsetningu á tólftu öld. Hvað breyttist á þrettándu öld?

(6) Ólíkar tegundir prentútgáfna: fræðilegar útgáfur
Hversu nákvæmar eiga prentaðar útgáfur að vera? Á að prenta hvern stafkrók úr handritinu? Hvað er „samræmd stafsetning forn“? Hverjar eru þarfir notenda? Hvert er hlutverk útgefandans?

Vika 4
(7) Norsk áhrif á skrift, stafsetningu og mál í handritum á Íslandi
Hvernig birtast norsk áhrif? Hve djúpt ristu þau? Hve lengi má finna þau í íslensku ritmáli?

(8) Aldursgreining handrita: skrift, stafsetning og mál
Hvernig er unnt að aldursgreina miðaldahandrit? Fjallað um nokkur einkenni í skrift, stafsetningu og máli er að gagni geta komið.

Vika 5
(9) Íslensk skrift og stafsetning á fjórtándu öld
Helstu einkenni og helstu breytingar.

(10) Ein rithönd eða margar?
Að sjá handa skil: Nokkur greinimörk. Íslenska hómilíubókin frá um 1200: Einn skrifari eða fjórtán?

Vika 6
(11) Bókagerð: skinn, blek, band og forvarsla
Hvernig var skinn verkað til bókfells? Hvernig var blek unnið? Hönnun bókar og bókband.

(12) Bókagerð: skinn, blek, band og forvarsla
Heimsókn á Stofnun Árna Magnússonar: Viðgerð bóka í nútímanum og varðveisla til framtíðar. Gripið í fjaðrapenna, oddur skorinn og dýft í blek.

— VERKEFNAVIKA —

Vika 7
(13) Skrifarar, samfélag skrifara, útflutningur bóka
Um atvinnuskrifara, samvinnu skrifara og mikla bókaframleiðslu. Skrifuðu Íslendingar bækur til útflutnings á þrettándu og fjórtándu öld?

(14) Íslensk skrift og stafsetning á fimmtándu og sextándu öld
Helstu einkenni og helstu breytingar.

Vika 8
(15) Textafræði
Handrit verður til af handriti; textinn tekur breytingum. Um textageymd, lesbrigði, skyldleika handrita og stemmu.

(16) Textafræði
Lesið og skrifað upp úr íslenskum miðaldahandritum, handrit borin saman og lesbrigðum safnað.

Vika 9
(17) Lýsingar í handritum
Um skreytta upphafsstafi og myndlist í miðaldahandritum; listamenn, handbragð og fyrirmyndir.

(18) Handritaskrár og handritaskráning
Við kynnumst helstu handritaskrám og ferlinu við skráningu handrits.

Vika 10
(19) Íslensk skrift og stafsetning á sautjándu og átjándu öld
Helstu einkenni og helstu breytingar.

(20) Miðlun texta í uppskriftum: forngripur eða lifandi texti?
Hvernig breyttist tungumálið í meðförum skrifara sem skrifuðu upp gömul handrit? Njáls saga er talin skrifuð undir lok þrettándu aldar. Hvaða mál er á Njáls sögu á sautjándu og átjándu öld?

Vika 11
(21) Fornfræðaáhugi, handritasöfnun og uppskriftaöld
Á sextándu öld kviknaði mikill áhugi á fornum fræðum, gömlum handritum var safnað og þau skrifuð upp af kappi.

(22) Ólíkar tegundir prentútgáfna: alþýðlegar útgáfur
Hvernig á að búa forna texta í hendur almenningi? Á að halda fornum einkennum í máli og stafsetningu eða á að færa allt til nútímahorfs? Um trúnað við handrit og trúnað við lesendur.

Vika 12
(23) Handritasöfn og handritasafnarar
Ævi og starf Árna Magnússonar.

(24) Handritamálið og heimkoma handritanna
Leitin að Skarðsbók postulasagna og kaup á æsispennandi uppboði, handritamálið og heimkoma handritanna.

— Þetta yfirlit er birt með fyrirvara um breytingar. —

Lesefni

Listi yfir lesefni er að finna á Canvas. Efni þar er (oftast) skipt í þrjá flokka:

(a) Skyldulesning: Textar sem ætlast er til að allir nemendur lesi.

(b) Valfrjálst viðbótarlesefni: Þetta er viðbótarlesefni fyrir þá sem vilja kafa dýpra.

(c) Fyrir þá sem vilja enn þá meira! Hér eru ábendingar um ýmiss konar lesefni. Þessi hluti er mest til upplýsingar en gæti komið að gagni við rannsóknaverkefnið.

Drjúgur hluti skyldulesefninu (og nokkuð af valfrjálsa viðbótarlesefninu) er á Canvas. Lesefni sem ekki er á Canvas er hægt að nálgast á rannsóknabókasafni Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í Eddu og á Landsbókasafni-Háskólabókasafni í Þjóðarbókhlöðu.

Forkröfur
Námskeiðið er á meistarastigi en opið grunnnemum sem lokið hafa að minnsta kosti 90 ECTS einingum með fyrstu einkunn (M-námskeið). Kunnátta í íslensku er nauðsynleg.

Kennslufyrirkomulag
Námskeiðið er kennt með blöndu af fyrirlestrum og vinnustofum með virkri þátttöku nemenda. Efni verður oft miðlað með upptökum á fyrirlestrum til að geta nýtt meiri tíma í kennslustofu fyrir umræður og virka þátttöku nemenda (vendikennsla).

Vinnumál: Námskeiðið situr blandaður hópur nemenda hvaðanæva úr heiminum og því eru notuð tvö vinnumál, íslenska og enska. Fyrirlestrar eru teknir upp bæði á íslensku og ensku (að frátöldum gestafyrirlesurum sem flytja sitt mál á ensku), skrifleg verkefni eru bæði á íslensku og ensku, lesefni er á íslensku, ensku og Norðurlandamálum. Umræður í kennslustofu eru að mestu á ensku en íslensku má einnig nota í umræðum. — Sjá sérstakt minnisblað um vinnumál og vinnulag í kennslustofu.

Kröfur og námsmat
Lokaeinkunn í námskeiðinu verður byggð á eftirfarandi þáttum:

(1) Uppskriftir texta úr handritum: 30%
(2) Verkefni í handritaskráningu: 10%
(3) Verkefni í aldursgreining handrits: 10%
(4) Kynning á handriti dagsins: 10%
(5) Rannsóknarritgerð: 30%
(6) Virkni í kennslustundum: 10%

Skriflegum verkefnum verður öllum skilað í gegnum Canvas. Nánari fyrirmæli um verkefni og skilafresti er að finna á Canvas.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Vor
Setningafræði (ÍSL440G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið
Að nemendur öðlist þekkingu á ýmsum mikilvægum hugtökum og fræðilegum hugmyndum í setningafræði og geti notað þessa þekkingu til að takast á við ný viðfangsefni á þessu sviði.

Viðfangsefni
Kynntar verða helstu aðferðir og hugtök setningafræðinnar. Af einstökum viðfangsefnum má nefna setningaliði, liðgerðakenninguna, hlutverksvarpanir, sagnfærslu, rökformgerð, fallmörkun, bindilögmál og hömlur á færslum. Umfjöllunin verður byggð á dæmum úr íslensku, ensku og ýmsum öðrum tungumálum.

Vinnulag
Kennsla í námskeiðinu er einkum í formi fyrirlestra en nemendur eru hvattir til virkrar þátttöku með spurningum og athugasemdum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Beygingar- og orðmyndunarfræði (ÍSL447G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta er framhaldsnámskeið í beygingar- og orðmyndunarfræði og það er kennt annað hvert ár. Fjallað verður um helstu hugtök og aðferðir í beygingar- og orðmyndunarfræði, morfemgreiningu, orðmyndunarferli, beygingarreglur og tengsl orðmyndunar og beygingar við hljóðkerfisfræði og setningafræði. Umfjöllunin verður studd dæmum úr íslensku og ýmsum öðrum tungumálum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Máltaka barna (ÍSL508G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Gefið verður yfirlit yfir málfræðilegar rannsóknir á máltöku barna. Byrjað verður á að kynna líffræðilegar forsendur máltöku (málstöðvar í heilanum, markaldur í máli, o.fl.) og áhrif þess málumhverfis sem börn alast upp í á málþroska þeirra. Í því sambandi verður rætt um nýlegar rannsóknir á áhrifum stafræns málsambýlis við ensku á máltöku íslenskra barna. Auk þess verður fjallað um kenningar um máltöku og saga barnamálsrannsókna rakin. Síðan verður gerð grein fyrir því hvernig börn ná valdi á höfuðþáttum móðurmáls síns, þ.e. hljóð- og hljóðkerfisfræði, beygingar- og orðmyndunarfræði, setningafræði, merkingarfræði og þróun orðaforða. Einnig verður rætt um tengsl máltöku við málbreytingar, þróun læsis og tengsl málþroska við lestrarfærni, t.d. um mikilvægi orðaforða og hljóðkerfisvitundar fyrir lestrarnám. Að lokum verða frávik í málþroska rædd (lesblinda, stam, málþroskaröskun og aðrar málraskanir), fjallað um máltöku annars og erlends máls, tvítyngi og fjöltyngi. Markmið námskeiðsins er að varpa ljósi á hvernig börn læra móðurmál sitt og þau stig sem þau ganga í gegnum í málþroska. Í þessum tilgangi verður lesin yfirlitsbók um efnið auk greina um íslenskar og erlendar barnamálsrannsóknir.

Athugið að fjöldi nemenda í námskeiðið takmarkast við 70.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Stílfræði (ÍSL615G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður fjallað um það hvernig hægt er að rannsaka bókmenntatexta frá sjónarhóli tungumáls og málvísinda. Námskeiðið ætti því að henta þeim sem hafa bæði áhuga á málfræði og bókmenntum. Meðal viðfangsefna eru stíltegundir, notkun tíða, orðaröð, nafngiftir sögupersóna, kynhlutlaust mál, hljóðtáknun, virkni sagna og nafnorða, sjónarhorn, myndlíkingar og fleira. Fjallað verður um alls kyns bókmenntatexta frá öllum tímum og eftir marga ólíka höfunda, t.d. Dag Hjartarson, Gyrði Elíasson, Guðrúnu frá Lundi, Halldór Laxness, Jakobínu Sigurðardóttur, Stein Steinarr, Vigdísi Grímsdóttur og Þórberg Þórðarson. Í fyrri hluta námskeiðsins er almenn umfjöllun um stílfræði en í seinni hlutanum verður fjallað um einstök verk og þar er gert ráð fyrir fjölda gestafyrirlesara, bæði bókmenntafræðinga og málfræðinga.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Tilbúin tungumál: Hvað geta álfamál Tolkiens og esperantó kennt okkur um málvísindi? (AMV604M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Dæmi um svokölluð „tilbúin tungumál“ (e. constructed languages) má finna allt aftur til 7. aldar en hugmyndir manna um uppruna tungumála og uppbyggingu þeirra eru líklega jafngamlar mannkyninu sjálfu. Tilbúin tungumál eru samin í ýmsum tilgangi, hvort sem það er eingöngu
til yndisauka, til að skapa umgjörð um tilbúinn veruleika, eins og t.d. álfamál Tolkiens og geimverumál Star Trek-heimsins, eða til að einfalda alþjóðasamskipti, eins og esperantó, solresol og volapük eiga að gera. Hver sem tilgangur tilbúna málsins er, þá er ljóst að að baki liggur gríðarleg þekking málhafa á tungumálinu sjálfu og hvaða eiginleika tungumál geta haft – og geta ekki haft – til þess að þau virki sem alvöru tungumál. Í námskeiðinu verður fjallað um ólíkar gerðir tilbúinna tungumála og hugmyndafræðina sem þau byggja á. Fjallað verður um uppbyggingu og eiginleika tilbúinna tungumála og þau skoðuð í samanburði við raunmál (e. natural languages). Einnig verða tilbúin tungumál borin saman við önnur gervimál, eins og bullmál (e. gibberish) og dulmál. Nemendur læra að aðgreina tilbúin tungumál út frá markmiðum og notkunarsviði þeirra. Fjallað verður um málgerðir tilbúinna tungumála og læra nemendur að brjóta niður og rýna í málfræðiformdeildir ólíkra mála með eftirfarandi spurningar að leiðarljósi: Hvað þurfa málhafar að vita um eigið tungumál til að geta tileinkað sér tilbúið tungumál og hvað geta tilbúin tungumál kennt okkur um raunmál?

Reiði í bókmenntum og listum (ABF814M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Reiði er áberandi hreyfafl og þema í bókmenntum og listum allt frá upphafi vestrænnar menningarhefðar. Reiði er samofin sjálfu eðli frásagnarlistar. Í námskeiðinu skoðum við ýmis dæmi um reiði og setjum í samhengi við kenningar tilfinningafræða. Allt frá reiði Akkillesar til Andrésar Andar. Hverjir mega reiðast? Af hverju eru þeir svona reiðir og hvaða tilgangi þjónar reiði þeirra í menningarsögulegu samhengi. Lesin verða úrval verka og fræðitexta sem fjalla um reiði og reiði sem fyrirbæri. 

Kennslutungumál: Íslenska
Annað ár | Vor
Ritfærni: Skapandi fræðamiðlun (ÍSR401G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tilgangur þessa námskeiðs er að þjálfa nemendur í ritfærni. Áhersla verður lögð á þjálfun í meðferð texta af ýmsu tagi. Regluleg ritunarverkefni munu þjálfa ólíkar leiðir til að miðla fræðilegum textum á skapandi hátt, t.a.m. í formi pistla og sannsagna (e. creative nonfiction). Einnig munu nemendur skrifa skapandi texta, svo sem örsögur og smásögur. Nemendum mun gefast tækifæri til að notast við efnivið úr sínum aðalgreinum en þurfa einnig að takast á við nýjar áskoranir. Kennsla byggir á fyrirlestrum, umræðum, verkefnum í tíma og ritsmiðjum. Námsmat byggist á reglulegum heimaverkefnum, miðmisserisverkefni, lokaverkefni, ferilmöppu og mætingu og þátttöku. Mæting og þátttaka gildir 15% af einkunn og verður að hluta til skyldumæting (8 af 12 ritsmiðjum). Námskeiðið er opið öllum grunnnemum við Háskóla Ísland en nemendur þurfa sjálfir að aðgæta hvort þeir geti fengið námskeiðið metið upp í sína gráðu.

Netnám:

Námskeiðið er kennt í staðnámi en allir fyrirlestrar kennara verða teknir upp. Þetta er gert til að auka aðgengi að námskeiðinu. Ekki er hægt að tryggja upptökur á umræðum eða framsögum nemenda ef á við. Þeir nemendur sem ekki mæta í tíma skulu hlusta á fyrirlestra og skila skýrslu um efni þeirra með hliðsjón af lesefni. Þá skulu þeir vinna sjálfir að þeim ritsmiðjuverkefnum sem lögð eru fyrir í tíma og skila inn til kennara. Sú vinna er þá jafngildi mætingar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Þriðja ár | Haust

BA-ritgerð í íslensku (ÍSL261L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

BA-ritgerð er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið viðfangsefni innan sinnar fræðigreinar og gera grein fyrir rannsókn sinni í vönduðum fræðilegum texta. Nemendur skrifa BA-ritgerð um rannsóknarefni að eigin vali í samráði við leiðbeinanda sinn. Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst. Lokaritgerð er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, vinna úr heimildum, svo og til að nota fræðileg hjálpargögn (t.d. handbækur, orðabækur eða sambærilegar vefsíður).
Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands https://ritver.hi.is/is sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.
Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar https://gervigreind.hi.is/

Nemandi sem hyggst skrifa BA-ritgerð skal leita til námsbrautarformanns um val á leiðbeinanda. Hafi nemandi ósk um tiltekinn leiðbeinanda er reynt að verða við henni en að öðrum kosti tekur val á leiðbeinanda mið af efni ritgerðarinnar og sérfræðiþekkingu þeirra sem kenna í íslensku.

Sjá nánar um reglur um BA-ritgerðir á Hugvísindasviði:
https://ugla.hi.is/kerfi/view/page.php?sid=3544

Kennslutungumál: Íslenska
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Þriðja ár | Vor

Náttúrusögur: (yfir)náttúra í þjóðsögum og bókmenntum fyrri alda (ÞJÓ614M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Með hliðsjón af þjóðsögum, bókmenntatextum og öðrum heimildum fjallar námskeiðið um birtingarmyndir náttúru og yfirnáttúru í frásagnarmenningu á Íslandi í gegnum aldirnar. Nemendur læra um þýðingu, snertifleti og óljós mörk þessara fyrirbæra og hvernig þau hafa mótað samfélag og umhverfi. Nemendur kynnast þannig ólíkum hugmyndum um stöðu fólks og (annarra) dýra innan, yfir eða utan við náttúruna. Í fjölbreyttum fyrirlestrum og verkefnavinnu verður fjallað með gagnrýnum hætti um mennsku og dýrsleika, lífheima og handanheima, efnisleika og hið yfirskilvitlega. Kannað verður hvaða hlutverk og form landslag, lífverur, líkamar, veður og náttúrufyrirbrigði taka í frásögnunum. Kynntar verða nýjustu rannsóknir á þessu breiða sviði, svo sem á framsetningu jarðhræringa og himingeima, bjarndýra, hvala, sela og húsdýra, og á náttúrvættum og öðrum þjóðsagnaverum á borð við álfa, drauga, tröll og berserki. Nemendur læra hvernig sagnaheimar og þjóðtrú hafa sett mark sitt á náttúruskynjun, alþýðuhefðir, þjóðhætti og samfélagsleg rými svo sem álagabletti, helga staði og staði sem eru þekktir fyrir reimleika. Einnig spyrjum við hvernig þessar frásagnir birtast í alþýðulist og myndlist, allt frá fyrri öldum til nútímans. Að lokum munum við kanna hvaða þýðingu frásagnir af náttúru og yfirnáttúru hafa í samhengi mannaldar, mannmiðaðra sjónarhorna, loftslagsbreytinga og ólíkrar stöðu samfélagshópa og tegunda

Kennslutungumál: Íslenska
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Fyrsta ár
  • Haust
  • ÍSL109G
    Aðferðir og vinnubrögð
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er sameiginlegt nemendum í íslensku, almennum málvísindum og táknmálsfræði. Það skiptist í tvennt. Í öðrum helmingi námskeiðsins (kennt á fimmtudögum) er fjallað um gagnrýna hugsun og ritgerðasmíð frá ýmsum hliðum: uppbyggingu ritgerða, efnisafmörkun, mál og stíl, heimildanotkun og heimildamat, tilvísanir, heimildaskrá, frágang o.fl.
    Í hinum helmingi námskeiðsins (kennt á þriðjudögum) munu fræðimenn á áðurnefndum sviðum kynna viðfangsefni sín og gestir utan háskólans kynna starfsvettvang íslenskufræðinga, málvísindamanna og táknmálsfræðinga.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL110G
    Inngangur að málfræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kynnt verða helstu viðfangsefni málvísinda og undirstöðuatriði í íslenskri málfræði. Fjallað verður um valin atriði innan höfuðgreina málvísinda og helstu hliðargreinar þeirra auk þess sem gefið verður yfirlit yfir þróun málvísinda í gegnum aldirnar. Meginmarkmið námskeiðsins er að efla skilning nemenda á eðli tungumála og kynna þeim helstu grundvallarhugtök og aðferðir málvísinda. Kennsla felst í fyrirlestrum kennara og umræðum nemenda og kennara um efnið. Nemendur vinna heimaverkefni reglulega yfir misserið, taka tvö heimakrossapróf og ljúka námskeiðinu með lokaprófi í stofu á háskólasvæðinu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL111G
    Bókmenntafræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Vilt þú læra nýjar leiðir til að lesa og skilja bókmenntir, kafa undir yfirborð texta og ræða um skáldverk á faglegan hátt? Í þessu námskeiði kynnast nemendur undirstöðuhugtökum í bókmenntafræði, textagreiningu og ritun bókmenntaritgerða. Nemendur læra um ólíkar nálganir í bókmenntagreiningu og fá þjálfun í að beita hugtökum við greiningu á skáldtextum af ýmsu tagi, bæði munnlega og í rituðu máli. Námskeiðið skiptist í fjóra hluta: Inngang að bókmenntafræði, ljóð, frásagnir (sögur og leikrit) og loks bókmenntaritgerðaskrif. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • ÍSL205G
    Íslensk bókmenntasaga til 1900
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Yfirlit yfir íslenska bókmenntasögu frá öndverðu til loka 19. aldar. Lögð verður áhersla á að setja hræringar og nýjungar í íslenskum bókmenntum í samhengi við alþjóðlega strauma í bókmenntum álfunnar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL206G
    Miðaldabókmenntir
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um mismunandi leiðir til þess að nálgast miðaldatexta, hvort sem er eftir hefðbundnum leiðum bókmenntafræði miðalda eða nútímabókmenntarannsókna. Þá verður lesið og rætt um viðhorf miðaldamanna til bókmenningar, sagnaskemmtunar og skáldskapar. Helstu greinar íslenskra miðaldabókmennta verða lesnar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL209G
    Málkerfið – hljóð og orð
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta er grundvallarnámskeið í íslenskri hljóðfræði, hljóðkerfisfræði, beygingarfræði og orðmyndunarfræði. Farið verður í grundvallaratriði hljóðeðlisfræði og íslenskrar hljóðmyndunar og nemendur þjálfaðir í hljóðritun. Helstu hugtök í hljóðkerfisfræði verða kynnt og gefið yfirlit yfir hljóðferli í íslensku og skilyrðingu þeirra. Einnig verða grundvallarhugtök orðhlutafræðinnar kynnt og farið yfir helstu orðmyndunarferli í íslensku og virkni þeirra. Málfræðilegar formdeildir verða skoðaðar, beygingu helstu orðflokka lýst og gerð grein fyrir beygingarflokkum og tilbrigðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Haust
  • ÍSL301G
    Straumar og stefnur í bókmenntafræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Sögulegt yfirlit yfir þróun bókmenntafræði á 20. og 21. öld. Auk fyrirlestra þar sem fjallað er um valdar lykilkenningar er gert ráð fyrir umræðutímum þar sem nemendur æfast í að beita ólíkum nálgunarleiðum á bókmenntatexta.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL320G
    Breytingar og tilbrigði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið þessa námskeiðs er að skýra þau tengsl sem eru á milli málbreytinga í sögu tungumáls og samtímalegra tilbrigða í máli. Meginhugmyndin er sú að málbreytingar leiði að jafnaði til samtímalegra tilbrigða á einhverju tímabili og að öll samtímaleg tilbrigði stafi af einhvers konar málbreytingu eða vísi að breytingu. Í námskeiðinu verða annars vegar kynntar helstu hugmyndir um eðli og tegundir málbreytinga, hvernig breytingar kvikna og hvernig þær breiðast út, og hins vegar hugmyndir um samtímaleg tilbrigði og eðli þeirra. Athyglinni verður fyrst og fremst beint að þróun íslensku, og því verða dæmi einkum tekin úr íslenskri málsögu og íslensku nútímamáli en jafnframt verður bent á hliðstæður í öðrum tungumálum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL321G
    Setningar og samhengi
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður fjallað um grundvallaratriði í íslenskri setningafræði, meðal annars orðflokkagreiningu, setningaliði, flokkun sagna, færslur af ýmsu tagi og málfræðihlutverk. Einnig verður fjallað um málnotkun, merkingu og samhengi og tengsl þessara atriða við setningafræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL343G
    Ásta Sigurðardóttir og Svava Jakobsdóttir
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður fjallað um verk tveggja merkra skáldkvenna og frumkvöðla í ritun módernískra bókmennta á Íslandi á 20. öld, Ástu Sigurðardóttur (1930–1971) og Svövu Jakobsdóttur (1930–2004). Rætt verður um viðtökur verkanna og bókmenntasögulegt samhengi þeirra, ævi og störf höfundanna og hvernig reynsla þeirra og ímynd birtist í verkunum, sem og áhrif hugmyndastrauma og samfélagsumróts á borð við femínisma og stéttabaráttu. Textar Ástu og Svövu verða bornir saman og athygli beint að tengingum milli höfundarverkanna tveggja og því sem greinir þau að, auk þess sem horft verður til áhrifa þeirra á aðra höfunda og íslenskt bókmenntasvið á 21. öld.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • AMV313G
    Sálfræði tungumáls, heilinn og erfðir
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður fjallað um helstu aðferðir sálfræðilegra málvísinda og hugrænna taugavísinda í rannsóknum á tungumáli. Rætt verður m.a. um úrvinnslu heilans á merkingu og setningafræði og fjallað um viðfangsefni á borð við tvítyngi, talmyndun, málþroska og túlkun á óbeinu máli (t.d. kaldhæðni). Að lokum verður stuttlega farið yfir nýjustu rannsóknir á erfðaþáttum tungumáls.

    Námskeiðið er kennt á ensku og samkennt með námskeiði á framhaldsstigi en námskröfur eru ólíkar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL342G
    Dróttkvæði og rímur: menntun og skemmtun fyrri alda
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Íslenskur kvæðaarfur er samofinn íslenskri menningarsögu og þjóðlífi en fornkvæðin gegna m.a. mikilvægu hlutverki sem hluti af stærri sagnatextum eða af sagnahefð almennt og sem sjálfstæðir bálkar frásagnarkvæða. Í þessu námskeiði verður fjallað um tvær megingreinar íslenskra fornkvæða, dróttkvæði og rímur, allt frá elstu heimildum fram til siðbreytingar. Nemendur hljóta þjálfun í lestri og greiningu dróttkvæða og rímna og rætt verður um gildi og hlutverk vísna í ólíkum textum, samspil sagna og rímna, heimildagildi þeirra sem og munnlega og skriflega geymd kvæðanna á ólíkum tímum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • AMV106G
    Tungumálið í notkun: Samtöl og samhengi
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Merking orða og setninga ræðst oft af samhenginu, til dæmis við beitingu og túlkun á kaldhæðni. Hvernig geta aðrir skilið okkur ef við segjum ekki alltaf það sem við meinum? Hvað eiga samtöl í ólíkum menningarheimum og tungumálum sameiginlegt? Í námskeiðinu verður fjallað um notkun tungumálsins í samskiptum frá ýmsum sjónarhornum málvísinda. Kennd verða undirstöðuatriði í málnotkunarfræði og varpað ljósi á áhrif samhengis á merkingu orða og setninga. Kynnt verða helstu viðfangsefni og aðferðir samtalsgreiningar og rætt um samanburðarrannsóknir á samtölum víða um heim. Að lokum fá nemendur innsýn í þverfaglegar rannsóknir á málnotkun með aðferðum sálfræðilegra málvísinda. Nemendur kynnast upptöku á samtölum, greiningu á tali með efni námskeiðsins í huga og notkun viðeigandi forrita (t.d. Praat til vinnslu á hljóði og ELAN til að skrá samtöl).

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    AMV415G
    Tal- og málmein
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu fá nemendur yfirlit yfir helstu viðfangsefni talmeinafræðinga á Íslandi. Um er að ræða fjölbreytt efni, allt frá greiningu og meðferð málstols og kyngingartregðu hjá fullorðnum einstaklingum yfir í málþroskaröskun og framburðarfrávik barna á leikskólaaldri. Unnið er út frá nauðsynlegri grunnþekkingu og yfir í hagnýtari nálganir á viðfangsefnið. Einnig verður lögð áhersla á að nemendur geti kynnt sér fræðilega umræðu og ritrýndar greinar á sviði talmeinafræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL333G
    Forritun fyrir hugvísindafólk
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er fyrst og fremst ætlað nemendum í grunnnámi í hugvísindum við HÍ sem vilja geta notað forritun í sínum störfum. Í námskeiðinu er farið í grunnþætti forritunar með forritunarmálinu Python og áhersla er lögð á greiningu textagagna. Námskeiðið hentar því vel fyrir þau sem vilja kynnast máltækni í BA-námi, ekki síst þeim sem stefna á MA-nám í máltækni. Námskeiðið er samkennt með MLT701F Forritun í máltækni á MA-stigi og allir nemendur sitja sömu fyrirlestrana en BA-nemar fá styttri verkefni en MA-nemar. Við textagreiningu í námskeiðinu skiptir máli að nemendur hafi grunnþekkingu á helstu hugtökum í málfræði en ef nemandi er í vafa um hvort hún, hann eða hán hefur viðeigandi bakgrunn til að taka námskeiðið er sjálfsagt að hafa samband við kennara fyrir frekari upplýsingar. 

    Tilgangur þessa námskeiðs er að styðja við nemendur á fyrstu stigum forritunar, aðstoða þá við að ná tökum á grunnþáttum hennar og veita þeim þjálfun í að leysa einföld en fjölbreytt máltækniverkefni í forritunarmálinu Python. Nemendur kynnast þar fyrir utan nokkrum málvinnslutólum sem hægt er að beita við textavinnslu. Nemendur sem síðar halda áfram í MA-nám í máltækni munu nota grunninn úr þessu námskeiði í öðrum námskeiðum um málvinnslu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL340G
    Hljóðfræði og hljóðkerfisfræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um undirstöðuatriði hljóðfræði og hljóðkerfisfræði. Fyrri hluti námskeiðsins er tileinkaður hljóðfræði. Fjallað er um gerð talfæra og hljóðmyndun. Nemendur fá þjálfun í hljóðritun. Kynntar verðu helstu aðferðir á sviði hljóðeðlisfræði og fjallað um tengsl hljóðfræði og hljóðkerfisfræði. Í seinni hluta námskeiðsins verða kynnt hugtök og aðferðir við greiningu hljóðkerfa og nemendur þjálfaðir í notkun þeirra. Ólíkar kenningar í hljóðkerfisfræði verða skoðaðar í tengslum við tungumál almennt og íslenskt hljóðkerfi sérstaklega.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSR301G
    Ritfærni: Fræðileg skrif
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Ritfærni: Fræðileg skrif er grunnnámskeið í meðferð ritaðs máls. Nemendur hljóta þjálfun í ritun með reglulegum heimaverkefnum, fyrirlestrum, umræðum og smiðjuvinnu. Fjallað verður um vinnulag við ritun fræðilegra texta, svo sem val og afmörkun viðfangsefnis, byggingu, heimildanotkun og frágang. Einnig verður lögð áhersla á að þjálfa nemendur í málnotkun í fræðilegum textum og fjallað meðal annars um málsnið, stíl, stafsetningu, greinarmerkjasetningu og hjálpargögn málnotenda. Nemendur skrifa fræðilega ritgerð í leiðsagnarmati og fá reglulega endurgjöf kennara sem og samnemenda. Námsmat byggist á reglulegum heimaverkefnum, miðmisserisverkefni, jafningjamati, lokaverkefni og virkri þátttöku í ritsmiðjum. Vakin er athygli á því að aðeins er hægt að ljúka námskeiðinu sé öllum verkefnum skilað.

    Nemendur sem hyggjast taka námskeiðið sem netnám eru beðnir að skrá sig sem slíkir inni á Uglu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • ABF210G
    Bókmenntasaga
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði er veitt yfirsýn yfir bókmenntasögu síðustu 4000 ára með lestri valinna meistaraverka frá Afríku, Asíu og Evrópu. Verkin verða lesin í íslenskum þýðingum. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • AMV205G
    Þróun málvísinda
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er saga málvísinda og málspeki rakin í megindráttum frá fornöld til nútímans. Áhersla er lögð á þær kenningar og uppgötvanir sem afdrifaríkastar hafa orðið fyrir hugmyndir og aðferðafræði málvísinda. Meðal annars er fjallað um málvísindi fornaldar, íslenska miðaldamálfræði og sögu málvísindanna á 19. og 20. öld. Að lokum verður rætt um strauma og stefnur í málvísindum nútímans.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL211G
    Fornmálið
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið þessa námskeiðs er að gefa haldgott yfirlit um íslenskt fornmál, einkum hljóðkerfi og beygingarkerfi. Fjallað verður um hljóðkerfi íslensks fornmáls og forsögu þess. Fyrsta málfræðiritgerðin verður lesin og grein gerð fyrir mikilvægi hennar bæði fyrir íslenska og norræna málfræði og sögu málvísinda. Loks verður fjallað rækilega um beygingarkerfi fornmáls.

    Kennsla felst að mestu leyti í fyrirlestrum. Auk þess verða allmörg heimaverkefni lögð fyrir nemendur og um þau fjallað í sérstökum æfingatímum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL213G
    Íslenskar samtímabókmenntir
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um íslenska bókmenntasögu 20. og 21. aldar. Skáldverk af ýmsum toga eru lesin, rædd og sett í samhengi við íslenska samfélags- og menningarsögu og alþjóðlega strauma.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSB814M
    Náttúrusögur: (yfir)náttúra í þjóðsögum og bókmenntum fyrri alda

  • ÍSL004M
    Mál og samfélag

  • ÍSL416M
    Íslensk miðaldahandrit

    ÍSL440G
    Setningafræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið
    Að nemendur öðlist þekkingu á ýmsum mikilvægum hugtökum og fræðilegum hugmyndum í setningafræði og geti notað þessa þekkingu til að takast á við ný viðfangsefni á þessu sviði.

    Viðfangsefni
    Kynntar verða helstu aðferðir og hugtök setningafræðinnar. Af einstökum viðfangsefnum má nefna setningaliði, liðgerðakenninguna, hlutverksvarpanir, sagnfærslu, rökformgerð, fallmörkun, bindilögmál og hömlur á færslum. Umfjöllunin verður byggð á dæmum úr íslensku, ensku og ýmsum öðrum tungumálum.

    Vinnulag
    Kennsla í námskeiðinu er einkum í formi fyrirlestra en nemendur eru hvattir til virkrar þátttöku með spurningum og athugasemdum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL447G
    Beygingar- og orðmyndunarfræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta er framhaldsnámskeið í beygingar- og orðmyndunarfræði og það er kennt annað hvert ár. Fjallað verður um helstu hugtök og aðferðir í beygingar- og orðmyndunarfræði, morfemgreiningu, orðmyndunarferli, beygingarreglur og tengsl orðmyndunar og beygingar við hljóðkerfisfræði og setningafræði. Umfjöllunin verður studd dæmum úr íslensku og ýmsum öðrum tungumálum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL508G
    Máltaka barna

  • ÍSL615G
    Stílfræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður fjallað um það hvernig hægt er að rannsaka bókmenntatexta frá sjónarhóli tungumáls og málvísinda. Námskeiðið ætti því að henta þeim sem hafa bæði áhuga á málfræði og bókmenntum. Meðal viðfangsefna eru stíltegundir, notkun tíða, orðaröð, nafngiftir sögupersóna, kynhlutlaust mál, hljóðtáknun, virkni sagna og nafnorða, sjónarhorn, myndlíkingar og fleira. Fjallað verður um alls kyns bókmenntatexta frá öllum tímum og eftir marga ólíka höfunda, t.d. Dag Hjartarson, Gyrði Elíasson, Guðrúnu frá Lundi, Halldór Laxness, Jakobínu Sigurðardóttur, Stein Steinarr, Vigdísi Grímsdóttur og Þórberg Þórðarson. Í fyrri hluta námskeiðsins er almenn umfjöllun um stílfræði en í seinni hlutanum verður fjallað um einstök verk og þar er gert ráð fyrir fjölda gestafyrirlesara, bæði bókmenntafræðinga og málfræðinga.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • AMV604M
    Tilbúin tungumál: Hvað geta álfamál Tolkiens og esperantó kennt okkur um málvísindi?

  • ABF814M
    Reiði í bókmenntum og listum
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Reiði er áberandi hreyfafl og þema í bókmenntum og listum allt frá upphafi vestrænnar menningarhefðar. Reiði er samofin sjálfu eðli frásagnarlistar. Í námskeiðinu skoðum við ýmis dæmi um reiði og setjum í samhengi við kenningar tilfinningafræða. Allt frá reiði Akkillesar til Andrésar Andar. Hverjir mega reiðast? Af hverju eru þeir svona reiðir og hvaða tilgangi þjónar reiði þeirra í menningarsögulegu samhengi. Lesin verða úrval verka og fræðitexta sem fjalla um reiði og reiði sem fyrirbæri. 

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSR401G
    Ritfærni: Skapandi fræðamiðlun

  • ÍSL261L
    BA-ritgerð í íslensku
    Skyldunámskeið
    0

    ÞJÓ614M

Annað ár

Þriðja ár

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Fólk með háskólamenntun í íslensku fæst við kennslu á öllum skólastigum og fræðistörf, m.a. á rannsóknastofnunum á sviði íslenskra fræða.

Að námi loknu leggur fólk gjarnan fyrir sig ritstörf eða önnur störf á sviði menningar og lista, fjölmiðlun af ýmsu tagi og útgáfustörf.

Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við:

  • Kennslu á öllum skólastigum
  • Fræðastörf
  • Fjölmiðlun
  • Ritstjórn
  • Málfarsráðgjöf
  • Útgáfustörf
  • Þýðingar
  • Bókmenntagagnrýni
  • Vefmiðlun

Listinn er ekki tæmandi.

Meira um félagslíf stúdenta í Hí

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Elínrósu Þorkelsdóttur
Eftir mikla umhugsun ákvað ég að fara í íslensku við HÍ og hef aldrei séð eftir þeirri ákvörðun. Íslenskan hefur kennt mér svo margt, til dæmis hef ég fengið að skyggnast inn í fornar og nýjar bókmenntir og lært hvernig tungumálið okkar virkar. Fyrst og fremst hefur íslenskan þó opnað huga minn og aukið víðsýni mína. Ég mæli því hiklaust með íslenskunni – svo spillir heldur ekki fyrir að félagslífið er alveg frábært.
Ljósmynd af Oddi Snorrasyni
Þrátt fyrir að íslenskunemendur séu hver öðrum ólíkari er þetta náinn hópur. Það er dæmalaust að jafn ólíkt fólk geti blaðrað jafn mikið, dag eftir dag, um landsbyggðarmállýskur og eddukvæðin. Það er ekki hægt að ganga inn í Árnagarð án þess að lenda á spjalli. Nemendurnir hafa allir brennandi áhuga á faginu. Þeir eru annaðhvort helteknir af hljóðkerfisfræði eða ástríðufullir bókmenntafræðingar. Ég valdi íslenskuna af bókmenntaáhuga en nú er ég jafn hugfanginn af málfræðinni.
Ljósmynd af Ösp Vilberg Baldursdóttur
Rétt áður en ég lauk stúdentsprófi hvíslaði íslenskukennarinn minn því að mér hvort ég hefði skoðað Hugvísindasvið HÍ. Ég þakkaði henni fyrir hvatninguna en aðeins fyrir kurteisissakir, Hugvísindasvið kom ekki til greina. Hvatning kennarans hafði þó einhver áhrif á mig – í það minnsta nægilega mikil til þess að ég íhugaði málið. Fjölbreytileiki námsins heillaði mig og ég sló til. Íslenska er best geymda leyndarmál Háskóla Íslands.
Ljósmynd af Gunnlaugi Bjarnasyni
My expectations for IcelaÉg hafði ákveðna hugmynd um námið þegar ég skráði mig en strax á fyrsta skóladegi sá ég að hugmyndir mínar um íslensku náðu bara til lítils hluta námsins enda möguleikarnir sem manni bjóðast í náminu gífurlega margir. Eftir það var ekki aftur snúið og ekki skemmdi það fyrir hvað skemmtanalífið er frábært og kennararnir sömuleiðis.ndic studies were exceeded from day one. The programme's vast opportunities and excellent social life make it exciting. The supportive teachers add to the enjoyment.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil