Nemendur við HÍ
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækurnar eru á ensku.
Lengd náms
Þrjú ár - 180 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Langar þig að starfa við efnahagsmál?
  • Hefur þú gaman af því að finna snjallar lausnir á vandamálum?
  • Viltu vinna fjölbreytt verkefni undir handleiðslu helstu sérfræðinga landsins í hagfræði?
  • Hefur þú áhuga á raun- og félagsvísindum?
  • Viltu fjölbreytt úrval námskeiða sem eru á þínu áhugasviði?
  • Langar þig að eiga möguleika á áhugaverðum störfum í framtíðinni?

Með náminu öðlast nemendur m.a. þjálfun í stærðfræði og hagrannsóknum og þekkingu á kjarna greinarinnar, eindahagfræði og heildahagfræði, ásamt því að spreyta sig á sjálfstæðri greiningarvinnu með ritun lokaritgerðar á fræðilegum grunni.

Hægt er að velja milli fjölmargra námskeiða á sviði hagfræði, fjármálafræða og viðskiptafræða. Námið, sem stendur mitt á milli raunvísinda og félagsvísinda, er góð þjálfun fyrir störf á vinnumarkaði og afbragðs undirbúningur fyrir framhaldsnám, m.a. hagfræði og fjármálum.

Nemendur geta valið á milli eftirfarandi kjörsviða

Markmið

Markmiðið með kennslunni er að kynna hugsun, aðferðafræði og kenningar hagfræðinnar og varpa ljósi á samhengi hennar og áhrif. Til dæmis áhrifaþætti til breytinga á hagkerfum og hvernig á að greina og vinna úr gögnum sem geta spáð fyrir um markaðsþróun.

Annað

Einnig er boðið upp:

Ljúka þarf 180 einingum fyrir lokapróf, 120 aðalgrein og 60 eininga aukagrein í annarri námsgrein.

Til að hefja BS- og BA-nám við Hagfræðideild skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi að mati deildarinnar. Lokapróf frá háskólagrunni Háskólans í Reykjavík eða háskólabrú Keilis nægja til inngöngu í Hagfræðideild til jafns við stúdentspróf, enda hafi viðkomandi stundað nám sem er ætlað fyrir þá sem hyggja á frekara nám í hagfræði.

Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda grunnnám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR). Inntökupróf í íslensku fyrir umsækjendur um nám sem kennt er á íslensku | Háskóli Íslands

Ljúka þarf 180 ECTS einingum. Skipan BS námsins miðast við þrjú ár eða 6 misseri. Prófgreinar til BS gráðu í hagfræði eru eindahagfræði, heildahagfræði, hagræn stærðfræði, líkindafræði og aðrar greinar samkvæmt ákvörðun Hagfræðideildar, alls 180 einingar. Náminu lýkur með lokaritgerð. Til að standast próf þarf að ná einkunninni 5 eða hærra nema í Eindahagfræði I, Eindahagfræði II og Heildahagfræði I, í þeim námskeiðum þarf nemandi að ná 6,5. Til að útskrifast frá Hagfræðideild þarf stúdent að ná meðaleinkunninni 6,0.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Fyrsta ár | Haust
Fjármálahagfræði I (HAG106G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmiðið námskeiðsins er annars vegar að kynna nemendur fyrir grunnatriðum fjármála og fjármálahagfræði og hins vegar að þjálfa færni þeirra í því að leysa raunhæf verkefni á þessu sviði. Farið er yfir, vexti og vaxtaútreikninga, mismunandi tegundir fjármálagerninga, virkini og tegundir fjármálamarkaða og kenningar um skilvirkni markaða. Aðferðir við að meta virði fjármálagerninga með tilliti til tímavirðis og óvissu. Þá verður áhersla á að kynna nemendum fyrir innlendum fjármálamörkuðumi og virkni þeirra. Nemendur öðlist skilning á fórnarskiptum áhættu og ávöxtunar, s.s. með aðstoð CAPM líkansins. Loks er fjallað um samval eigna byggt á Markowitz líkaninu og áhættu með hliðsjón af nytjaföllum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Líkindafræði og forritun (Líkindareikningur og tölfræði) (HAG108G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um frumatriði líkinda- og tölfræði á grundvelli einfaldrar stærðfræðigreiningar.

Viðfangsefni:  
Útkomurúm, atburðir, líkindi, jöfn líkindi, óháðir atburðir, skilyrt líkindi, Bayes-regla. Slembistærð, dreififall, þéttleiki, samdreifing, óháðar stærðir, skilyrt dreifing. Væntigildi, miðgildi, dreifni, staðalfrávik, samdreifni, fylgni, lögmál mikils fjölda. Bernoulli-, tvíkosta-, Poisson-, jöfn-, veldis- og normleg stærð. Höfuðmarkgildisreglan. Poisson-ferli. Úrtak, lýsistærð, dreifing meðaltals og dreifing úrtaksdreifni í normlegu úrtaki. Punktmat, sennileikametill, meðalferskekkja, bjagi. Bilmat og tilgátupróf fyrir normleg, tvíkosta- og veldisúrtök. Einföld aðhvarfsgreining. Matgæði og tengslatöflur.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Eindahagfræði I (Inngangur að hagfræði) (HAG107G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Áhersla er lögð á, að nemar öðlist bæði þekkingu á helstu hugtökum og kenningum hagfræðinnar. Fjallað verður um helstu einkenni markaða. Jafnframt verður lögð áhersla á þjálfun í því, hvernig nota má hagfræðina til að fjalla skipulega um margvísleg mál. Hagrænt hlutverk hins opinbera verður skoðað og áhrif tiltekinna opinberra aðgerða á mörkuðum. Nemendur eiga í námskeiðslok að hafa öðlast nokkra leikni í að beita hagrænni hugsun og aðferðum hagfræðinnar til að leysa einföld hagræn vandamál.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Hagræn stærðfræði I (HAG101G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið: Markmið þessa námskeiðs er að leggja grunn að notkun stærðfræðilegra aðferða í hagfræði.
Námsefni: Í byrjun námskeiðs er fjallað um nokkur grunnatriði í stærðfræði eins og veldi og rætur, jöfnur og ójöfnur, þáttun og liðun, mengi, varpanir, föll. Síðan er fjallað um stærðfræðileg grundvallaratriði sem hafa mikla þýðingu í hagfræði. Þeirra á meðal eru vektorar, fylki, ákveður, andhverfur, eigingildi, eiginvektorar, lausn jöfnukerfa, mengi, varpanir (e. mappings) og föll, diffrun falla, Taylor setningu og nálganir, og tegrun falla. Þá er fjallað um ótímatengda (e. static) hámörkun án hliðarskilyrða.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Heildahagfræði I (Þjóðhagfræði I) (HAG103G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í helstu kenningar og hugtök heildahagfræði. Fjallað verður um lögmál efnahagslífsins og helstu grundvallarkenningar heildahagfræðinnar um þróun hagstærða til skamms og langs tíma ásamt helstu hugtökum í efnahagsumræðu. Áhersla er lögð bæði á fræðilegt inntak og hagnýtt gildi námsefnisins og tengsl þess við ýmis efnahagsmál, sem eru ofarlega á baugi á Íslandi og erlendis. Staðgóð þekking á þjóðhagfræði býr nemendur undir ýmis önnur námskeið, og lífið.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Fjármálahagfræði II (HAG208G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er þríþætt. Í fyrsta lagi að kynna fyrir nemendum grunnatriði reikningsskila og fjárhagsbókhalds þannig að þeir verði þokkalega læsir á ársreikninga fyrirtækja. Í öðru lagi að nemendur geti greint og metið upplýsingar og helstu verðkennitölur úr ársreikningum fyrirtækja og túlkað þær fyrir þeim sem þurfa á þessum upplýsingum að halda. Í þriðja lagi að nýta upplýsingar úr ársreikningum til þess að framkvæma verðmat á viðkomandi útgáfuaðila sem er byggt á sjóðstreymi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Hagrannsóknir (HAG210G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Gert er ráð fyrir að nemendur hafi lokið tölfræði og stærðfræði á fyrsta ári í hagfræði. Í námskeiðinu er fjallað um tölfræðilegar aðferðir í hagfræði, hagmælingar. Þungamiðja námskeiðsins er umfjöllun um aðferð minnstu kvaðrata og hið klassíska línulega líkan. Fjallað er um þá bresti sem fram geta komið í forsendum þess líkans, svo sem sjálffylgni, misdreifini, marglínuleika og fylgni á milli skýristærða og truflunar, og því hvernig bregðast skal við. Áhersla er lögð á að nemendur tileinki sér notkun tölfræðiforrita og séu færir um að túlka niðurstöður rannsókna sinna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Heildahagfræði II (Þjóðhagfræði II) (HAG209G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tilgangur þessa námskeiðs er að veita stúdentum yfirsýn yfir viðfangsefni nútímaþjóðhagfræði og innsýn í þau lögmál efnahagslífsins, sem þjóðhagfræði fjallar um. Höfuðáherzla er lögð á að lýsa ákvörðun og samspili þjóðartekna, atvinnu, verðlags, vaxta, launa og annarra helztu þjóðhagsstærða í bráð og lengd og skilyrðum almannavaldsins til að hafa áhrif á gang efnahagsmála. Áherzla er lögð bæði á fræðilegt inntak og hagnýtt gildi námsefnisins. Höfuðviðfangsefni námskeiðsins eru: Hagfræði og hagtölur. Hagvöxtur. Atvinnuleysi. Verðbólga. Heildareftirspurn og vörumarkaður. Ríkisfjármál og peningamarkaður. Heildarframboð og vinnumarkaður. Hagstjórn í opnu hagkerfi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Eindahagfræði II (Rekstrarhagfræði II) (HAG201G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er framhald af Inngangur að hagfræði/Rekstrarhagfræði I. Áhersla er lögð á nemar öðlist bæði víðtækari og dýpri þekkingu á kenningum hagfræðinnar. Það verður gert með því að gera frekari grein fyrir helstu kenningum í rekstrarhagfræði og sýna hvernig nota megi fræðin til að fjalla skipulega um margvísleg mál.

Hagræn stærðfræði II (HAG203G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið:
Markmið þessa námskeiðs er að halda áfram að kenna nemendum að beita grundvallaraðferðum í stærðfræðilegri hagfræði og veita þjálfun í notkun þeirra á hagræn viðfangsefni. Námskeiðið er framhald af þeim grunni sem lagður er í Hagrænni stærðfræði I.
Námsefni:
Fjalað er um ótímatengda hámörkun með hliðarskilyrðum (Lagrange aðferð og Kuhn-Tucker aðferð) og mikilvægar setningar í stærðfræði fyrir hagfræði sem tengjast hámörkun, þ.e. umslagssetninguna (e. envelope theorem) og setninguna um dulin föll (e. implicit functions theorem). Í framhaldi af því er fjallað um svokölluð virðisföll (e. value functions) og samanburðarjafnvægisgreiningu (e. comparative static analysis). Því næst er fjallað um runur og raðir. Námskeiðinu lýkur á umfjöllun um tímatengdaraðferðir í hagfræði, þ.e. lausn einfaldra diffurjafna. Áhersla er lögð á að þjáfa nemendur í að beita þessum aðferðum til að glíma við áhugaverð vandamál í hagfræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Eindahagrannsóknir (HAG308G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu og skilning nemenda á notkun tölfræðiaðferða í hagfræði, með sérstakri áherslu á greiningu orsakasambanda. Fjallað er um mat á hjálparbreytulíkönum (e. instrumental variable regression). Síðan er fjallað um mat á líkönum þar sem notað er sambland af tímaröðum og þversniðsgögnum (e. panel data), auk aðferða sem mæla áhrif með mismun í mismun (e. difference-in-differences). Að lokum skoðum við regression discontinuity design.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Heildahagfræði III (Þjóðhagfræði III) (HAG310G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um helstu kenningar nútíma heildahagfræði um neyslu, sparnað og fjárfestingu, atvinnuleysi, og peninga og verðbólgu til langs tíma. Auk þess er fjallað um heildareftirspurn, hagsveiflur og hagstjórn. Kenndar eru stærðfræðiaðferðir sem notaðar eru til þess að leysa nútíma heildahagfræðilíkön, þ.e. tímatengd hámörkun.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Heildahagrannsóknir (HAG309G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að kynna fyrir nemendur mikilvægar aðferðir hagrannsókna sem notaðar eru í heildahagfræði. Fjallað er um eiginleika gagna og aðferðir hagrannsókna í þjóðhagslíkanagerð, s.s. mismunajöfnur og kerfi mismunajafna, sístæðar (stationary) tímaraðir, ARMA og ARIMA líkön. Co-integration aðferðir fyrir ósístæðar tímaraðir, Granger-Engle og Johansen aðferðir, villuleiðréttingarlíkön, VAR líkön.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Eindahagfræði III (Rekstrarhagfræði III) (HAG304G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er framhald af rekstrarhagfræði I og II, en einnig er gert ráð fyrir að nemendur hafi lokið stærðfræði I og stærðfræði II. Í rekstrarhagfræði III er áhersla lögð á að nemar öðlist bæði víðtækari og dýpri þekkingu á kenningum hagfræðinnar. Lögð er áhersla á stærðfræðilega framsetningu þess fræðagrunns sem lagður hefur verið í fyrri námskeiðum í rekstrarhagfræði. Farið er vandlega yfir heildarjafnvægi í hagkerfinu og eiginleika þess. Sýnt er fram á tilveru þess við vissar aðstæður, forsendur þess að aðeins sé um eitt jafnvægi að ræða raktar og stöðugleiki þess kannaður. Velferðarsetningar 1 og 2 settar fram, rök færð fyrir þeim og ýtarlega fjallað um gildi þeirra í hagfræði. Í framhaldi af því er rætt er sérstaklega um tiltekna markaði eins og vinnumarkað, markað fyrir fjárfestingarvörur og markaði fyrir eignir eins og verðbréf. Þá verður fjallað um markaðsbresti, hagrænt gildi eignarréttar, og markað stjórnmálanna. Lögð er áhersla á að sýna hvernig nota megi rekstrarhagfræðina og aðferðir hennar til að komast að skynsamlegum niðurstöðum um ýmis efnhagsleg álitamál.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Haglýsing (HAG311G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um þróun íslenska þjóðarbúskaparins og stöðu hans í dag. Námsefnið er fjórskipt. Fyrst er fjallað um hagsögu fram til loka nítjándu aldar. Þá er farið yfir nútímavæðingu landsins með sérstakri áherslu á þéttbýlishagfræði og fasteignamarkaði. Og síðan er fjallað um hagþróun tuttugustu aldar með sérstakri áherslu á utanríkisviðskipti og gjaldeyrismarkað. Loks, er fjallað um þjóðhagslegan ábata, tekjuskiptingu og fjármagnsmarkaði. Lögð er áhersla á að tengja námskeiðið því sem hæst ber í efnahagsumræðu hverju sinni. Engar forkröfur eru gerðar um hagfræðikunnáttu til þess að geta setið námskeiðið en nemendur eru kynntir fyrir helstu hagfræðikenningum er máli skipta jafnóðum í gegnum námsefnið.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Þættir í heildahagfræði: Hagstjórn (HAG410G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið hefur það markmið að (a) kenna þjóðhagfræðilega nálgun við greiningu hagstjórnarvandamála, (b) kynna nemendum fyrir nokkrum af mikilvægustu áskorunum sem vestræn ríki standa frammi fyrir, og (c) lýsa því hvernig hægt væri að takast á við þessi vandamál. Námskeiðið mun kenna nemendum að fjalla um þessi viðfangsefni, skrifa stutta minnispunkta um eðli þeirra og skrifa lengri álitsgerð um eitt sérstakt hagstjórnartengt stefnumál.

Fyrsta umfjöllunarefni námskeiðsins er hlutverk ríkisvaldsins í hagkerfinu. Þar verður spurt hvers vegna ríkisvald grípur meira inn í á ákveðnum sviðum en öðrum, meira í sumum löndum en öðrum, og hvers vegna ríkið hefur þanist út í flestum löndum undanfarna áratugi. Því næst er fjallað um átta viðfangsefni sem eru: Efnahagsstefna nýs forseta Bandaríkjanna og möguleg áhrif á önnur ríki; peningastefna, verðbólga og vextir; opinberar skuldir og hallarekstur ríkisins; minnkandi framleiðni vöxtur á Vesturlöndum; sparnaður og hagfræðileg áhrif öldrunar þjóða; fjármálabólur og kreppur; ytri áhrif og umhverfismál; og veiting almannaþjónustu, svo sem landvarna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Þættir í eindahagfræði (Þættir í rekstrarhagfræði) (HAG403G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið sýnir hvernig uppfæra má forsendur eindahagfræðilíkana, oft varðandi eiginleika einstaklinga til þess að taka rökvísar (e. rational) ákvarðanir, til þess að auka spágildi tiltekinna líkana.

Helstu viðfangsefni eru:

  • Ákvarðanir neytenda um kaup
  • Ákvarðanir við áhættu og óvissu
  • Ákvarðanir milli tímabila
  • Afleiðing takmarkana til rökvísra ákvarðana á hagkvæmustu stefnumótun hins opinbera
Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Efnahagsmál í ræðu og riti (áður Aðferðir í hagfræði) (HAG408G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður farið yfir praktískar aðferðir í hagfræði. Áhersla er lögð á að nemendur tileinki sér vinnubrögð við úrvinnslu gagna og heimilda og við skrif á texta byggt á fræðilegum athugunum. Nemendur vinna einstaklingsverkefni af þeim toga. Þá er jafnframt kennd undirstöðuatriði við notkun hugbúnaðar sem gagnast í námi og starfi hagfræðinga.

Tilgangur námskeiðsins er að tengja hagfræðinámsefnið við efnahagsumræðuna á fjármálamörkuðum og í atvinnulífinu og veita nemendum tækifæri á að æfa sig í að skrifa stutta, áhrifaríka texta (greinar, ræður, stuttar greiningar) um efnahagsmál. Áhersla er á gagnadrifnar rökfærslur. Efni fyrirlestranna nýtist vel í þeirri vinnu. Stóru umræðuefnin í efnahagsmálum á Íslandi og erlendis verður efni fyrirlestranna. Nemendur eru hvattir til að fylgjast vel með efnahagsfréttum, sem styður við getu til að taka þátt í umræðum í tímum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Haust
Þjóðhagslíkön og þjóðhagsspár (HAG515G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er nemendum kynnt helstu þjóðhagslíkön sem eru notuð í tölulegri greiningu og spágerð. Fjallað um svokölluð DSGE líkön og nemendum kennt að leysa og herma líkönin, með því að nota forritið Dynare, sem þróað hefur verið af hagfræðingum við seðlabanka í Evrópu. Fjallað verður um forsögu DSGE líkana (svokölluð RBC og Ný-Keyensísk líkön), og rekstrarhagfræðilega undirstöðu, mat á líkönunum og notkun þeirra í hagfræðilegri greiningu. Þá er fjallað um einvíð og fjölvíð tímaraðalíkön og not þeirra í spágerð.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Haust
Alþjóðahagfræði (HAG508G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fyrri hluti - alþjóðaviðskipti: Yfirlit yfir alþjóðaviðskipti. Helstu hagfræðilíkön af alþjóðaviðskiptum. Ástæður viðskipta milli landa og afleiðingar viðskiptanna, til dæmis fyrir laun og vexti. Rætt er um tolla og aðrar takmarkanir á innflutningi. Þá er samhengi viðskipta, hagvaxtar og tekjuskiptingar kannað. Rætt er um stefnumörkun stjórnvalda í viðskiptum, s.s. með tollum og kvótum.

Seinni hluti - alþjóðafjármál: Greiðslujöfnuður og samsetningu hans; kaupmáttarjöfnuður gjaldmiðla (e. purchasing power parity). Fast gengi og fljótandi í hefðbundnum þjóðhagslíkönum. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Vor
Saga hagfræðikenninga (HAG615G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um hugmyndir manna um starfsemi efnahagslífsins, allt frá tímum Grikkja og til loka 20.aldar. Stiklað er á stóru. Stundum er fjallað um skemmri tímabil, s.s. þróun hagfræðikenninga frá 17. öld. Reynt er að skoða samhengi í þessari hugmyndasögu og þannig eru einstaka kenningasmiðir og humyndir þeirra tengdar saman eða settar fram sem andstæðar. Áhersla er lögð á sögulega þróun og vendipunkta fremur en nákvæma tæknilega útfærslu á kenningum einstakra hugsuða.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Vor
Fjármál hins opinbera (HAG605G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjármál hins opinbera fjallar um áhrif opinberrar stefnu á efnahagslífið bæði út frá hagkvæmi og réttlæti. Fjallað verður um helstu kenningar innan fjármála hins opinbera. Fjallað er um það hvenær og hvernig stjórnvöld ættu að grípa inn. Einnig verður fjallað um hvaða áhrif inngrip hafa á efnahagslífið og hvers vegna stjórnvöld grípa inn í með þeim hætti sem þau gera.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Óháð misseri
BS ritgerð (HAG261L, HAG261L, HAG261L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0/0/0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Allar upplýsingar um lokaritgerðir má finna í Uglu undir Lokaritgerðir:

https://ugla.hi.is/cms/milli.php?sid=4221

Sjá upplýsingar um skil á rannsóknaráætlun og ritgerðaskil í Kennsluskrá í kafla undir "Upplýsingar" - "Lokaritgerðir". Í samráði við leiðbeinanda gera nemendur rannsóknaráætlun og vinna lokaritgerð samkvæmt henni. Ritgerð skal skilað rafrænt í samræmi við auglýsingu þar að lútandi hverju sinni. Heimilt er að prófa stúdent munnlega úr efni ritgerðar og meta frammistöðu hans sem hluta af einkunn.

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða

Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar

Óháð námsári | Haust
Verðmat fyrirtækja (HAG512G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Viðfangsefni - markmið: Í námskeiðinu verður kennd nauðsynleg færni til þess að framkvæma ítarlegt virðsmat á fyrirtækjum. Áhersla verður lögð á rekstrarfélög og kenndar þrjár aðferðir: samanburðargreining, viðskiptamargfaldarar og sjóðstreymisgreining.

Jafnframt verður lögð áhersla á útleiðslu hlutafjárvirðis, virðishvata, virðismargfaldara og ávöxtunarkröfu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Hagfræði stjórnmálanna (HAG515M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Af hverju eru sumar þjóð ríkar og aðrar fátækar, er líklega mikilvægasta spurning hagfræðinnar. Tilgáta hagfræðinga hefur verið sú að hagkerfi sem byggja að mestu á markaðsskipulagi atvinnulífsins vaxi hraðar og skapil betri lífskjör en þau sem byggja að minna leyti á markaði. En er þessi tilgáta rétt í raun? Án viðtækra mælinga gæti reynst erfitt að svara spurningunni á sannfærandi hátt.

Undanfarna áratugi hafa hagfræðingar, undir merkjum nýju stofnanahagfræðinnar eða stjórnmálahagfræðinnar, birt fjölda rannsókna þar sem reynt er að meta áhrif efnahagslegra, stjórnmálalegra- og lagalegra stofnana á efnahagsárangur hagkerfa. Rannsóknir þessar virðast styðja þá tilgátu að stofnanir hafi mikil áhrif á hagvöxt og útskýri því mismunandi framleiðsluverðmæti landa. Aðrir þættir, eins og þjóðfélagsmenning, loftslag og landfræðileg staðsetning, geta einnig verið mikilvægir, en eiginleikar stofnanna virðast almennt hafa meiri skýringarmátt en hinar. Rannsóknir virðast einnig sýna meiri tengsl efnahagslegs vaxtar og hagrænna stofnanna heldur en við stjórnmálalegar stofnanir, eins og lýðræðis. Umræða meðal fræðimanna um hverjar þessar stofnana séu mikilvægastar fyrir vöxt hagkerfa og um tengsl orsaka og afleiðinga í efnahagslegu og stjórnmálalegu skipulagi er þó hvergi lokið.

Hagfræði stjórnmálanna lítur á stjórnmálin og stjórnskipulag frá sjónarhorni hagfræðinnar. Lögmál og kenningar hagfræðinnar eru nú kynntar í samhengi við þjóðfélagslegt umhverfi þeirra. Hér er litið á þjóðfélagsstofnanir; tilurð þeirra og þróun er umræðuefnið. Áhersla er lögð á að reyna að útskýra hvernig ólíkt stofnanaumhverfi hefur áhrif á hagræna hegðun einstaklinga og hvernig ólíkar stofnanir hafa mismunandi áhrif á virkni hagkerfa. Er m.a. fjallað um viðskiptakostnað og skipan eignarréttar og sýnt hvernig bæði móta hegðun einstaklinga, árangur í viðskiptum, og hagvöxt og velferð þjóðfélaga. Þá er fjallað er um áhrif óvissu og áhættu á ákvarðanir og hvernig takmörkuð þekking og viðskiptakostnaður hafa áhrif á og takmarka umbætur. Starfsemi ríkisins og leikreglur stjórnmálanna verða einnig gerð að umræðuefni.

Hagnýttar hagmælingar (HAG104M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið Hagnýtar hagmælingar miðar að því að auka færni nemenda í lestri, greiningu og mati á vísindalegum rannsóknum á sviði hagfræði. Nemendur munu lesa fræðigreinar, flytja fyrirlestra um þær og taka þátt í umræðum um rannsóknir. Einnig munu nemendur fá þjálfun í að draga saman upplýsingar um stöðu þekkingar á tilteknu sviði hagfræðinnar á skipulegan hátt. Námskeiðið leggur grunn að betri skilningi á rannsóknaraðferðum í hagfræði og undirbýr nemendur fyrir skrif lokaritgerðar og frekara nám eða starf þar sem greining og túlkun rannsókna er lykilatriði.

Fjármálastærðfræði II (Hagfræði og stærðfræði fjármálamarkaða) (HAG122M)
Valnámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði tölfræði og verðlagningar í fjármálum. Lögð er áhersla á kynna nemendum fyrir notkun töl- og stærðfræðilegra aðferða til að greina, verðleggja og afla upplýsinga um fjármálagerninga. Lögð er áhersla á raunveruleg dæmi þar sem nemendur fá þjálfun í að leysa verkefni lík þeim sem þau gætu þurft að leysa á vinnustað.

Í tölfræðihluta námskeiðsins verður farið yfir tímaraðagreiningu. Þar verða líkön á borð við sjálfsaðhverf líkön (e. Auto regressive model, AR model) og líkön með hlaupandi meðaltöl (e. Moving-average model, MA model) kynnt til leiks. Einnig samsetning þeirra ARMA, ARIMA og SARIMA líkön. Að lokum verður farið yfir líkön með skilyrða misdreifni eða ARCH og GARCH líkön.

Í verðlagningahluta verður farið í tvíliðutré, Wiener-ferli, hjálparsetningu Ito, líkan Black-Scoles-Merton og verðlagningu á valréttum á hlutabréf og gjaldeyri.

Námskeið kennt í lotu II
Óháð námsári | Haust
Vinnumarkaðshagfræði (HAG514M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Vinnumarkaðshagfræði leitast við að skilja virkni og gangverk markaðar fyrir launavinnu. Framboð og eftirspurn eftir vinnuafli, launamyndun og atvinna eru grundvallaratriði innan vinnumarkaðshagfræðinnar. Í faginu er einnig fjallað um hvað ákvarðar launadreifingu og áhrif stofnana vinnumarkaðar á laun og atvinnu.

Atvinnuvegahagfræði (HAG512M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Atvinnuvegahagfræði (industrial organization) er oft lýst sem anga af rekstrarhagfræði, sumir vilja segja hagnýt rekstrarhagfræði (applied microeconomics), og fjallar um ýmsa þætti í skipulagi og atferli fyrirtækja. Hér er byggt verður ofan á þá þekkingu sem nemendur hafa öðlast í fyrri námskeiðum og er áhersla á að auka skilning nemenda á grunnhugtökum og kenningum um verðmyndun á mörkuðum. Önnur og fleiri kenningarleg sjónarmið, svo sem kvik samkeppni, skapandi eyðilegging, einstígur, og kenningar um þróun fyrirtækja og markaða eru kynntar og áhersla er á að nemendur fái víðari sýn á atvinnuvegi en fyrri námskeið hafa sýnt.

Helstu viðfangsefni: Áhrif starfsskilyrða og samkeppni á tekju- og þróunarmöguleika fyrirtækis. Áhrif fjölda samkeppnisaðila, markaðsþróunar, verðaðgreiningar, vöruaðgreiningar, ófullkominna upplýsinga, auglýsinga, rannsókna og vöruþróunar á hagkvæmustu stefnu fyrirtækis og á markaði. Áhrif stefnu eins fyrirtækis á þróun annarra fyrirtækja í atvinnugreininni. Aðgerðir fyrirtækja til að gera öðrum erfiðari aðgang að atvinnugreininni. Áhrif aðgerða einstakra fyrirtækja í atvinnugrein á þróun greinarinnar. Einnig er hagfræðinni beitt til að útskýra tilhögun viðskipta á markaði og skipulag fyrirtækja, svo sem lóðréttra hamla, lóðréttrar samþættingar, og samruna. Þá eru afleiðingar af ýmsum höftum sem lögð eru á fyrirtæki og markaði greindar.

Óháð námsári | Vor
Almannavalsfræði (HAG405G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kenningum og aðferðum hagfræði er beitt hér á hegðun og ákvarðanatöku utan markaða. Grundvallarhugmyndir og tækjakista almannavalsfræðinnar eru kynntar og notkun líkana hagfræðinnar til greiningar á starfsemi stjórnmálanna og þjóðfélagsstofnanna. Aðferðum almannavalsfræðinnar eru notaðar til að skoða rökvísi einstaklingsvals og samvals, kosningahegðunar, samkeppni stjórnmálaflokka, samtaka og tilurðar samsteypa, og skipulags löggjafarstofnana. Þá er þeim aðferðum einnig beitt til greiningar á orsökum og afleiðingum vaxtar í starfsemi hins opinbera, hegðunar opinberra stofnanna, og þá eru hagræn rök takmarkanna á stærð og umfangi hins opinbera skoðuð.

Bankar og peningar (HAG409G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um hlutverk seðlabanka í hagstjórn, stjórntæki peningamála, miðlun aðgerða hans um fjármálamarkaðina og áhrif á hagkerfið, gengismál og alþjóðleg peningamál. Farið verður yfir helstu einkenni íslensks fjármálamarkaðar í samanburði við það sem þekkist erlendis, stiklað á stóru í sögu fjármagnsviðskipta og gert grein fyrir leiðni hagstjórnar í gegnum gengi og vexti. Einnig er um að ræða samspil stjórnar peningamála við aðra hagstjórn og stöðugleika fjármálakerfisins, svo og við ákvarðanir á vinnumarkaði. Þá skal fjalla um stjórnmálahagfræði tengda peningastjórn, svo sem varðandi skipulag ákvarðana í peningamálum. Markmiðið er veita yfirlit um tengsl hagstjórnar og fjármálamarkaða. Lögð er sérstök áhersla á að tengja kenningar peningamálahagfræðinnar við þau málefni sem efst eru á baugi í efnahags- og þjóðmálaumræðu á hverjum tíma, þannig að nemendur öðlist hagnýta fræðilega þekkingu á hagstjórn og peningamálum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Umhverfishagfræði (UAU206M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði er fjallað um ýmsar veigamiklar hliðar umhverfishagfræði. Rætt er um efnahagslegt gildi umhverfisins, mismunandi not þess, kostnað við umhverfisrýrnun og svokallaða "græna" landsframleiðslu. Ennfremur er fjallað sérstaklega um land, landnotkun og landvirði. Þá er geta markaðskerfisins til að framkalla hagkvæma nýtingu umhverfisins rannsökuð, aðferðir til að lagfæra "mistök" í því efni skoðaðar og bornar saman við hugmyndir umhverfissinna.

Kennslutungumál: Enska

Hagrannsóknir III (HAG606G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið fyrri hluta námskeiðsins er að kynna fyrir nemendum ýmsar aðferðir í tímaraðagreiningu, svo sem líkön fyrir fjármálagögn (ARCH/GARCH/SV líkön), líkön með tímaháðum stikum, Kalman síuna og Bayesískar matsaðferðir. Í seinni hluta námskeiðsins eru helstu aðferðir í vélnámi og gagnavísindum (Machine Learning and Data Science) kynntar, svo sem þáttalíkön (factor models), Ridge og LASSO aðhvörf, flokkunar aðferðir (classification), aðhvarfstré (regression trees), klösun (clustering) og málgreining (natural language processing) eftir því sem tími gefst. Áhersla verður á að kynna fræðilegan grunn umfjöllunarefnis námskeiðsins og nýtingu þeirra við gagnavinnslu. Æskilegar forkröfur eru grunnnámsskeið í tölfræði/hagrannsóknum, heildarhagrannsóknir og viss geta í tölvuvinnu með gögn.

Inngangur að réttarhagfræði (HAG617M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í réttarhagfræði, sem fjallar um hvernig setning og framkvæmd laga hefur áhrif á hagkerfið. Fjallað verður um helstu hugtök rekstrarhagfræðinnar, sem lögð eru til grundvallar í réttarhagfræðinni eins og verðmyndunarkerfið, mælikvarða á skilvirkni laga (Pareto og Kaldor-Hicks) og Coase kenninguna. Þá verður umfjöllun um helstu undirsvið réttarhagfræðinnar eins og eignarréttarhagfræði, bótaréttarhagfræði, samningaréttarhagfræði, samkeppnisréttarhagfræði og réttarfar og refsiréttarhagfræði. Eftirfarandi eru dæmi um viðfangsefni: Hvaða reglur vernda best réttindi? Hvaða aðstæður réttlæta inngrip ríkisins? Hefur úthlutun réttinda áhrif á skilvirkni framleiðslu í þjóðfélaginu eða getur framsal réttinda með frjálsum samningum aukið hana? Hver er kostnaðurinn og ábatinn, sem fylgir lagasetningu og athöfnum manna? Hvaða reglur lágmarka samfélagslegan kostnað á bótaskyldu tjóni? Hver er skilvirkni samningsbóta og riftunarreglna samninga? Er unnt að skipta ábata af samrunum á milli framleiðenda og neytenda? Er til þjóðhagslega hagkvæm brotatíðni? Hvenær eiga aðilar að leita sátta og hvenær sækja mál fyrir dómstólum? Ef tími leyfir verður einnig umfjöllun um atferlisréttarhagfræði, leikjafræði lögfræðinnar og hugmyndir manna um skilvirkni laga á þjóðveldisöld. Þrátt fyrir að hafa þróast innan lögfræðinnar, hafa margar af helstu kenningum réttarhagfræðinnar verið settar fram af hagfræðingum, eins og t.d. Nóbelsverðlaunahöfundunum Gary Becker, Ronald Coase, Oliver Hart, Elinor Ostrom og Oliver Williamson. Áhersla verður jöfnum höndum á fræðilegt inntak og hagnýtt gildi námsefnisins. Ætti námskeiðið að vekja áhuga allra, sem hafa áhuga á áhrifum laga og reglna á athafnir fólks og þjóðhagslegri hagkvæmni laga, og sérstaklega þeirra á sviði lögfræði, hagfræði, viðskiptafræði og stjórnmálafræði. Einungis er gert ráð fyrir þekkingu á stærðfræði, sem allir nemendur, sem skráðir eru í Háskóla Íslands ættu að uppfylla.  Kennsla verður á íslensku.

Náttúruauðlindir og fiskihagfræði (HAG031M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið þessa námskeiðs er að kynna og útskýra hagræn grundvallarlögmál um nýtingu náttúruaðlinda. Hagkvæmasta nýting í kyrrstæðu og tímatengdu samhengi er leidd út. Ástæðurnar fyrir því að nýting náttúruauðlinda er iðulega ekki hagkvæm eru raktar og útskýrðar. Á þeim grundvelli er fjallað um hagkvæm stjórnkerfi fyrir nýtingu náttúruauðlinda. Hagfræði fiskveiða, orkulinda og umhverfisgæða er skoðuð sérstaklega. Beitt er greiningaraðferðum hagfræðinnar.

Hagkerfi (HAG601M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í öðrum námskeiðum hafa ýmis lögmál og kenningar hagfræðinnar verið kynntar án þess þó að rætt væri um þjóðfélagslegt umhverfi þeirra kenninga. Hér er þessu snúið við, umhverfi kenninganna er umræðuefnið. Áhersla er lögð á að sýna hverning ólík stofnanaumhverfi hafa áhrif á hagræna hegðun einstaklinga og einnig á það hvernig stofnanaumhverfið er tilkomið. Samanburður stofnanna og hagkerfa krefst stórra spurninga og svörin eru því oft almenn eðlis. Í námskeiðinu verður fyrst reynt að svara því hvers vegna markaðshagkerfi virðast hafa yfirburði yfir annarskonar hagkerfi, en um leið má jafnvel finna svar við því hvers vegna sovésku hagkerfin runnu sín skeið á enda. Megináherslan verður þó á að skýra tilkomu ýmissa stofnanna markaðshagkerfa og hvernig ólíkar stofnanir hafa mismunandi áhrif á virkni slíkra hagkerfa. Verður m.a. fjallað um viðskiptakostnað og skipan eignarréttar og sýnt hvernig bæði móta hegðun einstaklinga og árangur í viðskiptum. Starfsemi ríkisins og leikreglur stjórnmálanna verða einnig gerð að umræðuefni.

Takið eftir að ætlast er til þess að nemendur komi lesnir í tíma og geti svarað spurningum og rætt efni dagsins.

Þættir í hagrannsóknum (HAG616G)

Lögfræði A - almenn viðskiptalögfræði (VIÐ302G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er farið yfir atriði í íslenskri lögfræði m.a. helstu réttarheimildir, uppbyggingu á íslensku réttarkerfi og stjórnsýslu. Þá verður farið yfir réttarsvið sem horfa ber til í daglegum viðskiptum.

Tilgangur námskeiðsins er að undirbúa nemendur undir viðfangsefni sem líkleg eru til þess að verða á vegi þeirra í störfum í viðskiptalífinu. Lögð er áhersla að nemendur fái kynningu á lögfræðinni til að geta betur greint lögfræðileg úrlausnarefni og tekið á þeim áður en þau verða að lögfræðilegum vandamálum.

Helstu viðfangsefni til umfjöllunar eru: Réttarheimildir, stjórnsýsluréttur, samningar, tilurð þeirra, túlkun og gildi, helstu reglur um lausfjárkaup og úrræði samningsaðila vegna galla og annarra vanefnda ásamt fullnustugerðum. Fjallað verður um gjaldþrotaskipti, kröfurétt, félaga- og samkeppnisrétt og persónuvernd.

Lögfræði B - þættir úr fjármálalögfræði (VIÐ601G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um löggjöf og lagaleg viðfangsefni sem snerta fjármálamarkaði, fjármál fyrirtækja og rekstur þeirra. 
Fjallað verður um lagaumhverfi fjármálafyrirtækja, löggjöf um verðbréfaviðskipti, ábyrgð sem hvílir á sérfræðingum, auðgunarbrot, lögfræðileg viðfangsefni sem tengjast kaupum og sölum fyrirtækja, áreiðanleikakannanir o.fl. Þá verður fjallað um samninga og skjöl sem reynir á á fjármálamarkaði, þar á meðal lánasamninga, kaupsamninga, og hluthafasamninga.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Haust
Fjármálagerningar (VIÐ503G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um vaxtamarkaði og hvernig eingreiðsluvaxtaferlar eru leiddir út. Verðlagning mismunandi tegunda skuldabréfa er skoðuð og farið er yfir eiginleika og áhættu helstu skuldabréfa á markaði með áherslu á íslenskan vaxtamarkað. Verðlagning afleiðna er því næst skoðuð og hverjir eru helstu eiginleikar þeirra. Sérstaklega eru skoðaðir framvirkir samningar, skiptasamningar og valréttir. Farið er yfir tilgang og eðli afleiðuviðskipta og hverjir helstu áhættuþættirnir eru.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Haust
Verðmat fyrirtækja (HAG512G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Viðfangsefni - markmið: Í námskeiðinu verður kennd nauðsynleg færni til þess að framkvæma ítarlegt virðsmat á fyrirtækjum. Áhersla verður lögð á rekstrarfélög og kenndar þrjár aðferðir: samanburðargreining, viðskiptamargfaldarar og sjóðstreymisgreining.

Jafnframt verður lögð áhersla á útleiðslu hlutafjárvirðis, virðishvata, virðismargfaldara og ávöxtunarkröfu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Vor
Stýring fjármálasafna (VIÐ604G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um þá aðferðafræði sem liggur að baki ákvarðanatöku fjárfesta og fyrirtækja við myndun og stýringu eigna- og skuldasafna. Áhættustýring fyrirtækja verður einnig tekin fyrir.

Námskeiðið er kennt á ensku

Þættir í heildahagfræði (Þættir í Þjóðhagfræði) (HAG407G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um mikilvæg þjóðhagfræðilíkön sem notuð eru í vinnu hagfræðinga og þau notuð til greiningar auk þess sem nemendum eru kenndar stærðfræðiaðferðir sem notaðar eru til þess að leiða út jafnvægisskilyrði í þeim, þ.e. tímatengd hámörkun í samfelldum tíma og lausn á kerfum diffurjafna. M.a. er fjallað um neyslu- og fjárfestingarkenningar og um líkön Ramsey og Diamond og þau notuð til þess að greina áhrif ríkisfjármálastefna og til greiningar á lífeyrissjóðamálum.

Bundið valnámskeið háð skilyrðum

Inngangur að verkefnastjórnun (VIÐ506G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er viðfangsefnið lífshlaup og einkenni verkefna, markmið, verkgreining, sundurliðun verkþátta og flæðirit, áætlanagerð, aðfangastýring, lágmörkun verkefnatímans, áhættustýring, verkkaupin, verkefnastjórinn, verkefnateymið, hagaðila og samspil allra þessara þátta. 

Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir; fyrirlestrar, umræður, verkefnavinna,  þar sem leitast er við að ýta undir áhuga, vikni og þátttöku nemenda.

Athugið, nemendur þurfa að stofna sér aðgang og kaupa bókina Project Management, The Managerial Proces á heimasíðu McGraw - Hill. Nánari upplýsingar má finna á Canvas síðu námskeiðsins.

Stjórnun og skipulagsheildir (VIÐ415G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmiðið er að nemendur öðlist þekkingu og skilning á því hvað skipulagsheild er og á því umhverfi sem skipulagsheildir starfa í. Fjallað er um hagsmunaaðila og hvernig má auka líkurnar á því að ná árangri og virðisauka í rekstri skipulagsheilda. Farið er yfir áhrifaþætti og áskoranir er varða hönnun skipu­­lags og siðferðislegar og samfélagslegar áskoranir. Komið er inn á hvernig ýmsar breytingar og þróun geta haft áhrif á ákvarðanatöku, skipu­lag, stefnu, starfsfólk og menningu. Einnig  er fjallað um umbreyt­ingar og líftíma skipu­lags­heilda, sem og ágreining og völd. Þá verður getið um áhrif gervigreindar á skipulag og starfshætti skipulagsheilda.

Fyrsta ár
  • Haust
  • HAG106G
    Fjármálahagfræði I
    Skyldunámskeið
    6

  • HAG108G
    Líkindafræði og forritun (Líkindareikningur og tölfræði)

  • HAG107G
    Eindahagfræði I (Inngangur að hagfræði)
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Áhersla er lögð á, að nemar öðlist bæði þekkingu á helstu hugtökum og kenningum hagfræðinnar. Fjallað verður um helstu einkenni markaða. Jafnframt verður lögð áhersla á þjálfun í því, hvernig nota má hagfræðina til að fjalla skipulega um margvísleg mál. Hagrænt hlutverk hins opinbera verður skoðað og áhrif tiltekinna opinberra aðgerða á mörkuðum. Nemendur eiga í námskeiðslok að hafa öðlast nokkra leikni í að beita hagrænni hugsun og aðferðum hagfræðinnar til að leysa einföld hagræn vandamál.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HAG101G
    Hagræn stærðfræði I
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið: Markmið þessa námskeiðs er að leggja grunn að notkun stærðfræðilegra aðferða í hagfræði.
    Námsefni: Í byrjun námskeiðs er fjallað um nokkur grunnatriði í stærðfræði eins og veldi og rætur, jöfnur og ójöfnur, þáttun og liðun, mengi, varpanir, föll. Síðan er fjallað um stærðfræðileg grundvallaratriði sem hafa mikla þýðingu í hagfræði. Þeirra á meðal eru vektorar, fylki, ákveður, andhverfur, eigingildi, eiginvektorar, lausn jöfnukerfa, mengi, varpanir (e. mappings) og föll, diffrun falla, Taylor setningu og nálganir, og tegrun falla. Þá er fjallað um ótímatengda (e. static) hámörkun án hliðarskilyrða.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HAG103G
    Heildahagfræði I (Þjóðhagfræði I)
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í helstu kenningar og hugtök heildahagfræði. Fjallað verður um lögmál efnahagslífsins og helstu grundvallarkenningar heildahagfræðinnar um þróun hagstærða til skamms og langs tíma ásamt helstu hugtökum í efnahagsumræðu. Áhersla er lögð bæði á fræðilegt inntak og hagnýtt gildi námsefnisins og tengsl þess við ýmis efnahagsmál, sem eru ofarlega á baugi á Íslandi og erlendis. Staðgóð þekking á þjóðhagfræði býr nemendur undir ýmis önnur námskeið, og lífið.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • HAG208G
    Fjármálahagfræði II
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er þríþætt. Í fyrsta lagi að kynna fyrir nemendum grunnatriði reikningsskila og fjárhagsbókhalds þannig að þeir verði þokkalega læsir á ársreikninga fyrirtækja. Í öðru lagi að nemendur geti greint og metið upplýsingar og helstu verðkennitölur úr ársreikningum fyrirtækja og túlkað þær fyrir þeim sem þurfa á þessum upplýsingum að halda. Í þriðja lagi að nýta upplýsingar úr ársreikningum til þess að framkvæma verðmat á viðkomandi útgáfuaðila sem er byggt á sjóðstreymi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HAG210G
    Hagrannsóknir
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Gert er ráð fyrir að nemendur hafi lokið tölfræði og stærðfræði á fyrsta ári í hagfræði. Í námskeiðinu er fjallað um tölfræðilegar aðferðir í hagfræði, hagmælingar. Þungamiðja námskeiðsins er umfjöllun um aðferð minnstu kvaðrata og hið klassíska línulega líkan. Fjallað er um þá bresti sem fram geta komið í forsendum þess líkans, svo sem sjálffylgni, misdreifini, marglínuleika og fylgni á milli skýristærða og truflunar, og því hvernig bregðast skal við. Áhersla er lögð á að nemendur tileinki sér notkun tölfræðiforrita og séu færir um að túlka niðurstöður rannsókna sinna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HAG209G
    Heildahagfræði II (Þjóðhagfræði II)

  • HAG201G
    Eindahagfræði II (Rekstrarhagfræði II)
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er framhald af Inngangur að hagfræði/Rekstrarhagfræði I. Áhersla er lögð á nemar öðlist bæði víðtækari og dýpri þekkingu á kenningum hagfræðinnar. Það verður gert með því að gera frekari grein fyrir helstu kenningum í rekstrarhagfræði og sýna hvernig nota megi fræðin til að fjalla skipulega um margvísleg mál.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HAG203G
    Hagræn stærðfræði II

  • HAG308G
    Eindahagrannsóknir
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu og skilning nemenda á notkun tölfræðiaðferða í hagfræði, með sérstakri áherslu á greiningu orsakasambanda. Fjallað er um mat á hjálparbreytulíkönum (e. instrumental variable regression). Síðan er fjallað um mat á líkönum þar sem notað er sambland af tímaröðum og þversniðsgögnum (e. panel data), auk aðferða sem mæla áhrif með mismun í mismun (e. difference-in-differences). Að lokum skoðum við regression discontinuity design.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HAG310G
    Heildahagfræði III (Þjóðhagfræði III)

  • HAG309G
    Heildahagrannsóknir

  • HAG304G
    Eindahagfræði III (Rekstrarhagfræði III)

  • HAG311G
    Haglýsing

  • HAG410G
    Þættir í heildahagfræði: Hagstjórn

  • HAG403G
    Þættir í eindahagfræði (Þættir í rekstrarhagfræði)

  • HAG408G
    Efnahagsmál í ræðu og riti (áður Aðferðir í hagfræði)

  • HAG515G
    Þjóðhagslíkön og þjóðhagsspár

  • HAG508G
    Alþjóðahagfræði

  • HAG615G
    Saga hagfræðikenninga

  • HAG605G
    Fjármál hins opinbera

  • Óháð misseri
  • HAG261L, HAG261L, HAG261L
    BS ritgerð
    Skyldunámskeið
    0/0/0

  • HAG512G
    Verðmat fyrirtækja
    Valnámskeið

  • Ekki kennt á misserinu
    HAG515M
    Hagfræði stjórnmálanna

  • HAG104M
    Hagnýttar hagmælingar

  • HAG122M
    Fjármálastærðfræði II (Hagfræði og stærðfræði fjármálamarkaða)
    Valnámskeið
    7,5

  • HAG514M
    Vinnumarkaðshagfræði

    HAG512M
    Atvinnuvegahagfræði

  • HAG405G
    Almannavalsfræði

  • HAG409G
    Bankar og peningar

  • UAU206M
    Umhverfishagfræði

    HAG606G
    Hagrannsóknir III

  • HAG617M
    Inngangur að réttarhagfræði

  • HAG031M
    Náttúruauðlindir og fiskihagfræði

  • HAG601M
    Hagkerfi

  • HAG616G
    Þættir í hagrannsóknum

Annað ár

Þriðja ár

Óháð námsári

    Fjármálahagfræði I hide

    Líkindafræði og forritun (Líkindareikningur og tölfræði) hide

    Eindahagfræði I (Inngangur að hagfræði) hide

    Hagræn stærðfræði I hide

    Heildahagfræði I (Þjóðhagfræði I) hide

    Fjármálahagfræði II hide

    Hagrannsóknir hide

    Heildahagfræði II (Þjóðhagfræði II) hide

    Eindahagfræði II (Rekstrarhagfræði II) hide

    Hagræn stærðfræði II hide

    Heildahagrannsóknir hide

    Eindahagrannsóknir hide

  • VIÐ302G
    Lögfræði A - almenn viðskiptalögfræði hide
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er farið yfir atriði í íslenskri lögfræði m.a. helstu réttarheimildir, uppbyggingu á íslensku réttarkerfi og stjórnsýslu. Þá verður farið yfir réttarsvið sem horfa ber til í daglegum viðskiptum.

    Tilgangur námskeiðsins er að undirbúa nemendur undir viðfangsefni sem líkleg eru til þess að verða á vegi þeirra í störfum í viðskiptalífinu. Lögð er áhersla að nemendur fái kynningu á lögfræðinni til að geta betur greint lögfræðileg úrlausnarefni og tekið á þeim áður en þau verða að lögfræðilegum vandamálum.

    Helstu viðfangsefni til umfjöllunar eru: Réttarheimildir, stjórnsýsluréttur, samningar, tilurð þeirra, túlkun og gildi, helstu reglur um lausfjárkaup og úrræði samningsaðila vegna galla og annarra vanefnda ásamt fullnustugerðum. Fjallað verður um gjaldþrotaskipti, kröfurétt, félaga- og samkeppnisrétt og persónuvernd.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HAG304G
    Eindahagfræði III (Rekstrarhagfræði III) hide

    Haglýsing hide

    Efnahagsmál í ræðu og riti (áður Aðferðir í hagfræði) hide

    Bankar og peningar hide

  • VIÐ601G
    Lögfræði B - þættir úr fjármálalögfræði hide
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um löggjöf og lagaleg viðfangsefni sem snerta fjármálamarkaði, fjármál fyrirtækja og rekstur þeirra. 
    Fjallað verður um lagaumhverfi fjármálafyrirtækja, löggjöf um verðbréfaviðskipti, ábyrgð sem hvílir á sérfræðingum, auðgunarbrot, lögfræðileg viðfangsefni sem tengjast kaupum og sölum fyrirtækja, áreiðanleikakannanir o.fl. Þá verður fjallað um samninga og skjöl sem reynir á á fjármálamarkaði, þar á meðal lánasamninga, kaupsamninga, og hluthafasamninga.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Haust
  • VIÐ503G
    Fjármálagerningar hide
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um vaxtamarkaði og hvernig eingreiðsluvaxtaferlar eru leiddir út. Verðlagning mismunandi tegunda skuldabréfa er skoðuð og farið er yfir eiginleika og áhættu helstu skuldabréfa á markaði með áherslu á íslenskan vaxtamarkað. Verðlagning afleiðna er því næst skoðuð og hverjir eru helstu eiginleikar þeirra. Sérstaklega eru skoðaðir framvirkir samningar, skiptasamningar og valréttir. Farið er yfir tilgang og eðli afleiðuviðskipta og hverjir helstu áhættuþættirnir eru.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HAG512G
    Verðmat fyrirtækja hide

  • VIÐ604G
    Stýring fjármálasafna hide
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um þá aðferðafræði sem liggur að baki ákvarðanatöku fjárfesta og fyrirtækja við myndun og stýringu eigna- og skuldasafna. Áhættustýring fyrirtækja verður einnig tekin fyrir.

    Námskeiðið er kennt á ensku

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Óháð misseri
  • HAG261L, HAG261L, HAG261L
    BS ritgerð hide

    Hagfræði stjórnmálanna hide

    Alþjóðahagfræði hide

    Heildahagfræði III (Þjóðhagfræði III) hide

    Þjóðhagslíkön og þjóðhagsspár hide

    Hagnýttar hagmælingar hide

    Fjármálastærðfræði II (Hagfræði og stærðfræði fjármálamarkaða) hide

    Vinnumarkaðshagfræði hide

    Atvinnuvegahagfræði hide

    HAG407G
    Þættir í heildahagfræði (Þættir í Þjóðhagfræði) hide
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um mikilvæg þjóðhagfræðilíkön sem notuð eru í vinnu hagfræðinga og þau notuð til greiningar auk þess sem nemendum eru kenndar stærðfræðiaðferðir sem notaðar eru til þess að leiða út jafnvægisskilyrði í þeim, þ.e. tímatengd hámörkun í samfelldum tíma og lausn á kerfum diffurjafna. M.a. er fjallað um neyslu- og fjárfestingarkenningar og um líkön Ramsey og Diamond og þau notuð til þess að greina áhrif ríkisfjármálastefna og til greiningar á lífeyrissjóðamálum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HAG605G
    Fjármál hins opinbera hide

    Þættir í heildahagfræði: Hagstjórn hide

    Þættir í eindahagfræði (Þættir í rekstrarhagfræði) hide

    Saga hagfræðikenninga hide

    Almannavalsfræði hide

    Umhverfishagfræði hide

    Hagrannsóknir III hide

    Inngangur að réttarhagfræði hide

    Náttúruauðlindir og fiskihagfræði hide

    Hagkerfi hide

    Þættir í hagrannsóknum hide

    Bundið valnámskeið

  • VIÐ506G
    Inngangur að verkefnastjórnun hide
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er viðfangsefnið lífshlaup og einkenni verkefna, markmið, verkgreining, sundurliðun verkþátta og flæðirit, áætlanagerð, aðfangastýring, lágmörkun verkefnatímans, áhættustýring, verkkaupin, verkefnastjórinn, verkefnateymið, hagaðila og samspil allra þessara þátta. 

    Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir; fyrirlestrar, umræður, verkefnavinna,  þar sem leitast er við að ýta undir áhuga, vikni og þátttöku nemenda.

    Athugið, nemendur þurfa að stofna sér aðgang og kaupa bókina Project Management, The Managerial Proces á heimasíðu McGraw - Hill. Nánari upplýsingar má finna á Canvas síðu námskeiðsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HAG512G
    Verðmat fyrirtækja hide
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni - markmið: Í námskeiðinu verður kennd nauðsynleg færni til þess að framkvæma ítarlegt virðsmat á fyrirtækjum. Áhersla verður lögð á rekstrarfélög og kenndar þrjár aðferðir: samanburðargreining, viðskiptamargfaldarar og sjóðstreymisgreining.

    Jafnframt verður lögð áhersla á útleiðslu hlutafjárvirðis, virðishvata, virðismargfaldara og ávöxtunarkröfu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • VIÐ415G
    Stjórnun og skipulagsheildir hide

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Með BS gráðu í hagfræði getur þú starfað sem hagfræðingar strax að námi loknu.

Hagfræðinámið er góður undirbúningur fyrir frekara framhaldsnám, hvort sem er í hagfræði eða öðrum greinum.

Þá hafa hagfræðingar með BS gráðu verið mjög eftirsóttir í atvinnulífinu, bæði vegna skilnings á efnahagslífinu sem og greiningarfærni, svo sem í stærðfræði eða tölfræði og finnast oftar en ekki í stjórnunarstöðum í fyrirtækjum.

Fólk með hagfræðipróf starfar meðal annars hjá:

  • Fjármálafyrirtækjum
  • Tryggingafyrirtækjum
  • Verkalýðshreyfingunni
  • Inn- og útflutningsfyrirtækjum
  • Félagasamtökum
  • Nýsköpunarfyrirtækjum

Listinn er ekki tæmandi.

Nemandafélag Hagfræðinema heitir Ökonomia.

Stúdentakjallarinn er veitingastaður, kaffihús og skemmtistaður. Hann er staðsettur á neðstu hæð Háskólatorgs. Þar er aðstaða fyrir tónleika, fundi og annað félagslíf nemenda og er opið frá morgni til kvölds alla daga vikunnar.

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Kristófer Má Maronssyni
Hagfræðinámið hefur opnað fyrir mér og fleirum nýja sýn á öllu í kringum okkur, við lærum ekki bara um peninga eða þjóðarframleiðslu heldur breytir lærdómurinn því hvernig nánast allar ákvarðanir í lífinu eru teknar. Námið er metnaðarfullt og krefjandi ásamt því að deildin er lítil og óhjákvæmilegt er að eignast nýja vini.
Ljósmynd af Birni Ívari Björnssyni
Námið er mjög praktísk og það er hægt að nota það sem við lærum í hagfræði við hvað sem er í lífinu hvort sem það er vinna eða eitthvað annað. Það sem er líka skemmtilegt er hvað það er yndislega gott fólk í hagfræðinni, við erum ekki mörg en þetta er ein stór fjölskylda og allir hjálpast að.
Ljósmynd af Lilju Sólveigu Kro
Hjá mér stóð valið á milli viðskiptafræði og hagfræði. Ég valdi hagfræði ég vildi takast á við krefjandi nám sem gefur góðan grunn fyrir framhaldsnám og ég taldi að með því að taka hagfræði væri ég ekki að loka neinum dyrum. Það sem mér fannst skemmtilegast við námið er hvað það er fjölbreytt.
Ljósmynd af Lilju Dögg Jónsdóttur
Námið er mjög hagnýtt og nýtist hvar sem er, hvort sem í daglega lífinu eða á vinnumarkaði
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Nemenda- og kennsluþjónusta félagsvísindasviðs
Virka daga 9:00 - 15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þér er velkomið að koma við hjá okkur á skrifstofunni í Gimli eða þú getur bókað fjarfund á Teams með nemenda- og kennsluþjónustu.

Fylgdu hagfræðideildinni á Facebook

Manneskja gengur yfir ganginn á milli Gimli og Odda

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil