""
Tungumál kennslu
Íslenska og enska.
Lengd náms
Þrjú ár - (aukagrein meðtalin) 180 einingar.
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú brennandi áhuga á kvikmyndum og kvikmyndasögunni?
  • Viltu vita hvernig þekking og gott kvikmyndalæsi dýpkar áhorfið og breytir upplifuninni?
  • Langar þig til að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?
  • Finnst þér skemmtilegt að horfa á eldri myndir og jafnvel myndir frá ólíkum heimshlutum?
  • Hvernig líst þér á að taka námskeið á þínu áhugasviði en um leið kynnast nýjum, víkka sjóndeildarhringinn?
  • Finnst þér gaman að velta kvikmyndum fyrir þér?

Þetta nám er 120 eininga aðalgrein og því þarftu að taka 60 einingar í annnarri námsgrein með því til þess að útskrifast með BA próf. 

Þetta nám er líka hægt að taka sem 60 eininga aukagrein með 120 eininga aðalgrein úr öðru fagi.

Í kvikmyndafræði er lögð áhersla á að skoða kvikmyndamiðilinn í sem víðustu samhengi og teknar eru til sýninga tilrauna- og heimildamyndir, ekki síður en leiknar frásagnarmyndir, og þær greindar í ljósi fjölbreyttra fræðikenninga.

Við búum í stafrænum heimi sem er streymt til okkar í símana, tölvuleikir eru umfangsmesti menningariðnaður veraldar, og í vissum skilningi hafa kvikmyndir og tölvuleikir tekið að renna saman. Að hluta til vegna þess að sömu aðferðir eru notaðar til að skapa hvort tveggja, kvikmyndir og tölvuleiki. Framtíðin er stafræn og hún er myndræn. Nám í kvikmyndafræðinni undirbýr þig á fjölbreytilegan hátt fyrir framtíðina.

Helstu áhersluatriði

  • Kvikmyndarýni
  • Kvikmyndakenningar 
  • Kvikmyndasaga
  • Kvikmyndir þjóðlanda
  • Kvikmyndagreinar
  • Kvikmyndahöfundar
  • Tengsl kvikmynda og bókmennta
  • Táknfræði í kvikmyndum 

Helstu markmið

  • að veita yfirlit yfir sögu kvikmynda á Vesturlöndum og að nokkru leyti í öðrum heimshlutum,
  • að þjálfa nemendur í að skilja og túlka kvikmyndir frá ýmsum tímum og ólíkum þjóðlöndum, m.a. með hliðsjón af öðrum listgreinum, bókmenntum og menningu,
  • að kynna helstu hugtök og vinnuaðferðir í kvikmyndafræði og leiðbeina nemendum í gagnrýnni notkun á handbókum og öðrum ritum um kvikmyndir, bókmenntir og menningu almennt,
  • að þjálfa nemendur í að fjalla um kvikmyndir og annað myndefni og texta á sjálfstæðan hátt í fræðilegum ritgerðum

Kröfur og kennsluhættir

Gera þarf ráð fyrir mikilli heimavinnu. Í fyrsta lagi felst vinna nemenda í að greina og íhuga þær kvikmyndir sem eru skylduefni í viðkomandi námskeiðum, en jafnframt verða þeir að tileinka sér það lesefni sem vísað er til í kennslunni. Lesefni er fyrst og fremst á ensku og íslensku.

Tímasókn er mikilvæg en því aðeins hafa menn gagn af henni að þeir mæti vel undirbúnir og frumskilyrði er að hafa séð þær kvikmyndir og lesið þá texta sem fjalla á um hverju sinni.

Annar mikilvægur þáttur heimavinnunnar felst í vinnu verkefna og ritgerða. Til þess að kennslan megi verða lifandi samstarf getur verið nauðsynlegt að nemendur taki að sér að undirbúa og flytja í tímum verkefni af ýmsum gerðum. 

Fyrirlestra- og umræðutímar eru einkum haldnir í Aðalbyggingu og Árnagarði, en kvikmyndasýningar fara allajafna fram í Háskólabíói.

Um kvikmyndafræði

Kvikmyndin hefur verið ríkjandi listmiðill um langt skeið og svo er enn við upphaf tuttugustu og fyrstu aldarinnar. En með tilkomu samskiptamiðla og stafrænnar tækni hefur myndmiðlun af ýmsu tagi tekið stakkaskiptum.

Ungt fólk er ekki aðeins neytendur heldur einnig framleiðendur myndefnis, og myndefnið sjálft hefur umbreyst í samskiptaform. Af þessum sökum hefur mikilvægi myndlesturs, kvikmyndarýni og ímyndatúlkunar aukist og endurspeglast það hvergi betur en í náminu í kvikmyndafræði við Háskóla Íslands.

Í kvikmyndafræði læra nemendur að horfa á kvikmyndir og skjámenningu og hugsa um þær með nýjum aðferðum og meðvituðum hætti. Í því felst að nemendur læra að tjá sig um kvikmyndir og myndefni með fræðilegu orðfæri og hugtakanotkun.

Nemendur eru þjálfaðir í að skilja og túlka kvikmyndir frá ýmsum tímum og ólíkum þjóðlöndum, m.a. með hliðsjón af öðrum listgreinum, bókmenntum og menningu.

Námskeið í kvikmyndafræði á borð við það sem reglulega er kennt um költmyndir og námskeiðið „Guð fyrirgefur en ekki ég“ um vestrahefðina fjalla bæði um kvikmyndagreinar, og kvikmyndagreinar eru jafnframt ein af námsáherslum greinarinnar.

Önnur áherslusvið í kvikmyndafræðináminu eru „kvikmyndir þjóðlanda“, námskeið um japanskar, þýskar, og ítalskar myndir eru kennd reglulega. Einnig má nefna „kvikmyndahöfunda“ (Varda, Pasolini, Lynch) og „fræðilegar nálgunarleiðir“ (femínismi, hinsegin fræði, höfundarkenningin, þjóðarbíó/heimsbíó).

Kvikmyndafræðin hefur haldið úti gagnrýnendasveit frá árinu 2017, Engum stjörnum, sem birt hefur á þriðja hundrað kvikmyndadóma. Frá 2019 hafa Engar stjörnur einnig haldið úti hlaðvarpi um kvikmyndir. Þetta er gert í samstarfi við öll kvikmyndahús Reykjavíkur og nemendur skrifa dómana sína í samvinnu við og fá ritstjórn frá kennurum í kvikmyndafræðinni.

Skrifin eru birt á Hugrás og þeim er deilt á samfélagsmiðlum.

Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf. Nánari upplýsingar er að finna í 17. grein reglna um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022.

Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda grunnnám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku skv. 1. gr. reglnanna.

Ljúka þarf 120 einingum og teljast 60 einingar á námsári vera fullt nám. Skyldunámskeið eru 50 einingar: Kvikmyndarýni, Kvikmyndasaga, Kvikmyndakenningar, Menningarheimar og Bókmenntaritgerðir auk BA-ritgerðar. Enn fremur skulu nemendur taka a.m.k. 40 einingar í valnámskeiðum innan greinarinnar (sem merkt eru KVI) eða 30 einingar sé skrifuð 20 eininga BA-ritgerð. Önnur námskeið eru valfrjáls (sjá yfirlit undir samsetningu náms).

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Bókmenntaritgerðir (ABF103G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um ýmsar gerðir bókmennta- og kvikmyndaritgerða (allt frá fræðilegum ritgerðum til ritdóma, ádeilugreina og pistla). Nemendur hljóta þjálfun í hinum ýmsu þáttum ritgerðasmíðar: afmörkun viðfangsefnis, hugmyndaúrvinnslu, byggingu, röksemdafærslu, tilvísunum, heimildanotkun og frágangi. Kannað verður hvers konar orðræða liggur til grundvallar mismunandi ritgerðum, hver hinn innbyggði lesandi er og hvers konar almennri eða fræðilegri umræðu ritgerðin tengist. Nemendur eru hvattir til að taka námskeiðið á fyrsta námsári.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Kvikmyndarýni (KVI101G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Hér er um að ræða grunnfag námsgreinarinnar kvikmyndafræði þar sem kynnt eru til sögunnar lykilhugtök og aðferðir í túlkun kvikmynda. Farið verður ítarlega í frásagnaruppbyggingu og sviðsmynd kvikmynda, sem og kvikmyndatöku, klippingu, hljóðvinnslu og tónlist. Ræddar verða ólíkar gerðir kvikmynda og sýnd dæmi um heimilda- og tilraunamyndir auk hefðbundinna leikinna kvikmynda. Í framhaldi munu nemendur kynnast fræðilegri kvikmyndarýni þar sem lögð er áhersla á kvikmyndagreinar, -höfunda og -stjörnur. Á kvikmyndasýningunum verða dregin fram þau sérkenni sem einkenna lesefni hverrar viku enda er námskeiðið að stórum hlut hugsað sem inngangur og æfing í kvikmyndarýni.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
„Treystu engum“: Um samsæriskenningar í dægurmenningu 20. aldarinnar (ABF335G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Samsæriskenningar, allt frá hversdagslegum til mun hættulegri, hafa sífellt meiri og ógnvænlegri áhrif á nútímasamfélag. Gagnrýnin á samsæriskenningar er vel þekkt – en hvað ef við hugsum nútíma samsæriskenningar minna sem afurð „falsfrétta“ eða „fjölmiðlaneyslu“ sem „brjálaðir“ og/eða „fáfróðir“ einstaklingar neyta, og meira sem sérstakt frásagnarform í dægurmenningu? Nútíma samsæriskenningar eiga rætur sínar að rekja til 19. aldar og þróuðust samhliða uppgangi bókmenntagreina á 19. og snemma á 20. öld. Þær byrja svo að taka á sig skýrari mynd á síðari áratugum 20. aldar og halda áfram að þróast allt til dagsins í dag, ýktar af ört breytilegu fjölmiðlaumhverfi okkar og viðvarandi samfélagskreppum.  Í þessu námskeiði munum við greina ýmsar skáldsögur, kvikmyndir og sjónvarpsþætti sem taka samsæriskenninguna fyrir og spyrja hvers vegna og hvernig samsæri kemur fram sem form til að skilja heiminn á ákveðnum sögulegum tímum. Athygli verður beint að muninum (og samræminu) á bókmenntaformi og kvikmyndamáli, sem og að aðskildum tímabilum samsæriskenninga í kvikmyndum og bókmenntum (spennumyndir frá New Hollywood eftir Watergate-hneykslið, spjallborð á netinu á níunda og tíunda áratugnum, stafræn UFO-menning o.s.frv.).

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Fyrsta ár | Haust
Ævintýri og samfélag: Hjálparhellur, hetjur og vondar stjúpur (ÞJÓ334G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Ævintýri verða lesin og skoðuð í ljósi samfélagslegra gilda. Lögð verður áhersla á sagnahefðina, flutning sagnafólks, sísköpun þess og meðferð á sagnaminnum. Ævintýrin verða skoðuð m.t.t. hins breytilega efniviðar og hin ýmsu afbrigði einstakra gerða og minna borin saman. Leitast verður við að ráða í merkingu ævintýra, m.a. með táknrýni, auk þess sem þau verða skoðuð í félagslegu ljósi og sett í samhengi við það samfélag sem mótaði þau. Þá verður skoðað hvernig ævintýri eru nýtt og sífellt endursköpuð í nýrri miðlun.

Vinnulag

Kennsla fer einkum fram með fyrirlestrum, en einnig með umræðum svo sem kostur er.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Komið og sjáið (KVI112G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Titillinn á sögufrægri og harmrænni stríðsmynd Elem Klimov Komið og sjáið (1985) felur í sér það sem á yfirborðinu virðist vera saklaust boð en sem reynist, þegar á hólminn er komið, vera eitthvað allt annað. Myndin lýsir grimmilegu hernámi Þjóðverja á Hvítarússlandi í seinni heimsstyrjöldinni og unlingspilturinn sem er aðalpersóna myndarinnar verður vitni að óbærilegum grimmdarverkum. Vægðarleysi og raunsæislegur þungi myndarinnar, og boðið sem felst í titlinum, er innblástur þessa námskeiðs. Sjónum verður beint að kvikmyndum sem virkja áhorfið og færa handan ánægju og í átt að því að bera vitni og neyða þannig áhorfendur til að velta fyrir sér sögulegu samhengi ímyndanna og það hvernig kvikmyndir endurframleiða veruleikann. Teórískar áherslur námskeiðsins fela í sér hugmyndir um kvikmyndina sem metafórískt auga og verður þannig vöngum velt yfir siðferðilegum spurningum sem geta vaknað við áhorf. Meðal kvikmynda sem skoðaðar verða í námskeiðinu eru The Act of Killing, The Zone of Interest, Five Broken Cameras og Four Daughters.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Heimur Lars von Trier (KVI324G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Snemma á lýsti Lars von Trier því yfir að kvikmynd ætti að vera eins og steinvala í skóm áhorfenda. Þetta hefur orðið að nokkurs konar einkennisorðum leikstjórans, sem hefur á ferli sínum sífellt leitað nýrra leiða við að ögra áhorfendum, hvort sem er með efnistökum, stíl eða umdeildum ummælum. Trier olli straumhvörfum í danskri kvikmyndagerð á 9. áratugnum og átti hann eftir að umbylta dönskum kvikmyndaiðnaði til frambúðar. Eftir því sem frægðarsól Trier reis á 10. áratugnum varð hann þekktur sem „enfant terrible“ kvikmyndanna og átti eftir að hafa umtalsverð áhrif á alþjóðlega kvikmyndagerð næstu áratugi.

Í námskeiðinu verður ferill Trier kannaður frá ýmsum hliðum og í víðu samhengi, m.a. með hliðsjón af áhrifum evrópskrar menningar, formlegra tilrauna með kvikmyndamiðilinn og hugvitsamlegrar notkun stafrænnar tækni. Skoðuð verða valin verk Triers, sem og samverkamanna, áhrifavalda og fylgisveina, með það að markmiði að varpa ljósi á þróun ferils Trier og stöðu hans innan alþjóðlegrar kvikmyndagerðar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Jane Austen í samtímanum (ABF322G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður rýnt í menningarfræðilega höfundarvirkni Austen og hinn svokallaði Austen-iðnaður í samtímanum kynntur fyrir nemendum. Sérstaklega verður skoðað hvernig skáldsögur Austen eru endurritaðar innan þriggja bókmenntagreina, sem löngum hafa verið tengdar konum, þ.e. í ástarsögum, skvísusögum og sjálfshjálparritum – og svo hvernig gríðarlegar vinsældir greinanna þriggja hafa endurmótað höfundarvirkni skáldkonunnar og ímynd hennar. Einnig verða til umræðu kvikmyndir og sjónvarpsþáttaraðir byggðar á verkum skáldkonunnar og lífi hennar. Leitast verður við að svara spurningum sem hverfast um stöðu kvenna í póstfemínískri neyslumenningu, varpað ljósi á Darcy-æði samtímans auk þess að skoða hlutverk Jane Austen innan frásagnanna sem lífsgúru, leiðbeinanda og kennslukonu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Japanskar kvikmyndir (JAP107G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um japanskar kvikmyndir frá upphafi til dagsins í dag með aðaláherslu á „klassíska tímabilið“ 1950-70 og leikstjóra á borð við Kurosawa, Ozu, Mizoguchi og fleiri. Fjallað verður um bakgrunn þekktra kvikmynda og efni þeirra greint til sjá hvernig japönsk menning, saga og þjóðfélag endurspeglast í þeim.

Skoðaðar verða valdar myndir eftir fyrrnefndra leikstjóra og einnig nýrri verk.

Kennt er á ensku.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Lýðræðisþróun, iðnbylting, nýlendukapphlaup - Heimssaga III (SAG272G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um sögu tímabilsins frá 1815 og fram í fyrri heimsstyrjöld. Meginumfjöllunarefnið er lýðræðisþróun 19. aldar. Þrír þræðir verða dregnir í gegnum þá frásögn: 1) Fjallað verður um hugmyndir um kvenréttindi og kvennahreyfingar 19. aldar í samhengi við almenna þróun kosningaréttar, afnám þrælahalds og velferðarmál. 2) Sú umfjöllun er svo tengd við þjóðernishugmyndir og mótun þjóðríkja á tímabilinu og þá um leið hver uppfylli skilyrðin um þegn/borgara. 3) Þriðji þráðurinn tengist hinum tveimur – nýlendukapphlaup Evrópuríkja, Bandaríkjanna og Japans og áhrif þess á samfélög í Afríku og Asíu.  

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Stiklur um sænskt samfélag (SÆN105G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið býður upp á yfirlit yfir lykilatburði og áhrifamikla einstaklinga í sænsku samfélagi og sýnir hvernig þeir hafa mótað menningarlega og stjórnmálalega sjálfsmynd sænsku þjóðarinnar. Námskeiðið veitir innsýn í sænska siðferði og lífshætti, allt frá angurværu aðdráttarafli leikkonunnar Gretu Garbo til hinnar dýrmætu fika hefðar og djúpstæðra áhrifa morðsins á forsætisráðherranum Olof Palme árið 1986.

Kennslutungumál: Sænska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Fyrsta ár | Vor
Menningarheimar (TÁK204G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þverfaglegt inngangsnámskeið þar sem efnt er til samræðu milli fræðasviða námsbrautarinnar, þ.e. bókmenntafræði, kvikmyndafræði, kynjafræði, listfræði, málvísinda, menningarfræði, táknmálsfræði og þýðingafræði. Birtu verður brugðið á alþjóðlegar hræringar í hugvísindum á liðnum áratugum en jafnframt rýnt í tengsl fræða og heimsmyndar. Fjallað verður um táknfræði tungumálsins og m.a. spurt hvort það geti talist grundvöllur annarra táknkerfa. Spurst verður fyrir um tengsl og "sambúð" mismunandi tungumála og málheima. Er hægt að þýða á milli allra mál- og menningarheima? Hvað geta aðstæður heyrnarlausra sagt okkur um tengsl málheima? Hvað er fjölmenning? Hvernig tengjast talað mál, lesmál og sjónmenning í samfélaginu? Í hverju felst menningarlæsi? Hugað verður að bókmenntum, myndlist, kvikmyndum og öðru myndefni í þjóðlegu og alþjóðlegu samhengi og kannað hvernig þessi táknkerfi vinna með mörkin milli kynja, kynþátta, stétta, menningarhópa, þjóða og heimshluta. Lesið verður ýmiskonar fræðilegt efni og skáldverk, könnuð myndverk og kvikmyndir, en viðfangsefnin verða einnig sótt í fjölmiðla og það sem er á seyði í samtímanum. Námsmat felst í fjórum verkefnum á misserinu og skriflegu lokaprófi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Kvikmyndasaga (KVI201G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Yfirlit yfir sögu kvikmyndalistarinnar frá upphafi hennar undir lok 19. aldar til okkar daga. Áhrifaríkustu stefnur hvers tíma verða skoðaðar og lykilmyndir sýndar. Nemendur kynnast sovéska myndfléttuskólanum (montage), franska impressjónismanum, þýska expressjónismanum, stúdíókerfinu bandaríska, ítalska nýraunsæinu, japanska mínímalismanum, frönsku nýbylgjunni, þýska nýbíóinu, suður-ameríska byltingabíóinu og Hong Kong-hasarmyndinni svo eitthvað sé nefnt, og reynt verður að bera þessar ólíku stefnur saman. Lögð verður áhersla á að skoða fagurfræðilega þróun kvikmyndarinnar sem og samtímaleg áhrif á útlit og inntak hennar. Námsmat byggist á tveimur prófum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Kvikmyndakenningar (KVI401G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er hugsað sem ítarlegt sögulegt yfirlit yfir helstu kenningar kvikmyndafræðinnar allt frá upphafi til dagsins í dag. Lesnar verða kenningar frumherja á borð við Sergei Eisenstein, Rudolf Arnheim, Siegfried Kracauer og André Bazin. Tekin verða fyrir margvísleg og róttæk umskipti í nálgun kvikmynda á seinni hluta tuttugustu aldar, líkt og formgerðargreining, marxísk efnistúlkun, sálgreining og femínismi. Loks verða áhrif menningarfræðinnar rædd með áherslu á kynþætti og skoðuð staða kvikmyndarinnar á tímum hnattvæðingar. Kvikmyndir námskeiðsins munu endurspegla margbreytileika lesefnisins enda er þeim ætlað að draga fram sérstöðu ólíkra kenninga.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Vor
Póstmódernismi í kvikmyndum (KVI247G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður grennslast fyrir um það hvernig merkingarfræði kvikmyndamiðilsins samtvinnaðist hugmyndum um nútímann, nútímavæðingu og módernisma, en jafnframt verður gaumgæft hvernig kvikmyndin reyndist einn miðlægasti vígvöllur póstmódernískra hugmynda á síðari hluta tuttugustu aldarinnar. Hlutur kvikmyndarinnar í samfélagi sjónarspilsins verður skoðaður og verður í því sambandi gætt að vandræðagangi sannleikshugtaksins á póstmódernískum tímum, hlutverki nostalgíunnar í menningarneyslu, tilkomu veruleikalíkisins og ógninni sem stafar að frumleikahugtakinu á tímum textatengsla og endurmiðlunar. Meðal kvikmyndaverka sem kennd verða eru Videodrome (Cronenberg, 1982), Blue Velvet (Lynch, 1986), The Matrix (Wachowskis, 1999) og American Psycho (Harron, 2000). Meðal fræðimanna sem lesnir verða í námskeiðinu eru Jean Baudrillard, Jean-François Lyotard og Mark Fisher.

Kennslutungumál: Íslenska
Fyrsta ár | Vor
Költmyndir, aðdáendamenning og greinaflækjur (KVI417G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í hinu óendanlega hyldýpi smekksins er hægt að týna sér í hinu furðulega, vonda, vanskapaða og óþægilega. Allar sérþarfir áhorfendahópa má uppfylla og áhugasvið einskorðast í auknum mæli við afkima kvikmyndanna sem aðeins útvaldir þekkja til. Að sama skapi verða til hópar áhorfenda í kringum stærstu markaðsfyrirbæri kvikmyndaiðnaðarins þar sem afar tryggir aðdáendur mynda samfélög sem helga sig textanum. Það er á þessum mörkum texta og viðtöku sem greina má merkingarfræðilegar útlínur hugtaksins ,,költ.” Um þennan afkima kvikmyndafræðinnar er lítil eining meðal fræðimanna, sem þó keppast við að skilja og skilgreina költ. Á meðan sumir telja merkingu þess útþynnta með of almennri notkun og markaðsvæðingu fyrirbærisins eru aðrir sem leitast við að skilgreina merkingu hugtaksins á máta sem hægt er nýta í fræðilega umræðu. Í námskeiðinu verður hugtakið költ rannsakað, farið verður yfir sögu költsins, jaðarsmekks og jaðarmynda og þróun til dagsins í dag. Aðaláherslan verður þó á textalega (vondleiki, viðbjóður, textatengsl, nýbreytni, smekkleysi, greinavirkni og erfið fagurfræði) og viðtökufræðilega (aðdáun, trúarleg vegsömun, samfélag, virkni og uppreisn) nálgun á költi þar sem greinar er varða allar hliðar költs verða lesnar í samhengi við kvikmyndasýningar. Nemendur fá að sjá allt frá sóðalegustu stykkjum úr rotþró kvikmyndasögunnar til stærstu og fínpússuðustu aðdáendafyrirbæra kvikmyndanna.

Kennslutungumál: Íslenska
Fyrsta ár | Vor
Heimspeki og kvikmyndir (HSP410G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á námskeiðinu munum við bæði skoða heimspekilegar spurningar um bíómyndir (Hvað er bíómynd? Eru til hlutlægir mælikvarðar á ágæti bíómynda?) og einnig skoða heimspekilegar spurningar sem velt er upp í bíómyndum (Hvað er raunverulegt? Hvað er hjónaband?).

Námskeiðið er kennt á ensku.

Kennslutungumál: Enska
Fyrsta ár | Vor
Leikjafræði: Tölvuleikir og leikjamenning (JAP502G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmiðið með námskeiðinu er að veita nemendum grunnskilning á leikjafræðum (e. game studies). Um er að ræða nýtt fræðasvið sem hefur rutt sér til rúms á þeim forsendum að leikir, og þá sértaklega tölvuleikir, séu orðnir órjúfanlegur hluti af miðlamenningu samtímans. Í námskeiðinu munu nemendur kynnast lykiltextum og fást við grundvallarspurningar lækjafræðanna. Nemendur munu einnig kynnast fjölda raundæma úr leikjaheiminum þar sem kenningar verða ræddar í samhengi við ýmsa tölvuleiki og þeir skoðaðir frá ólíkum sjónarhornum – bæði út frá kenningum lækjafræðinnar og sem margþætt og vaxandi atvinnugrein. Veitt verður almennt yfirlit yfir þróun tölvuleikjasögunnar, en þó mun hluti námskeiðisins fjalla sérstaklega um japanska tölvuleiki. Að námskeiðinu loknu eiga nemendur að hafa öðlast almennan skilning á kenningum leikjafræðinnar og vera færir um að ræða leikjatengd álitamál á uppbyggilegan hátt.

Kennslutungumál: Enska
Fyrsta ár | Vor
Ítalskar kvikmyndir (ÍTA403G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu Ítalskar kvikmyndir er nemendum veitt innsýn í sögu kvikmyndagerðar á ítalíu á tuttugustu öld. Raktir verða helstu þættir sem hafa haft áhrif á ítalska kvikmyndagerð og reynt að greina hvað það er sem helst einkennir ítalskar kvikmyndir. Einnig verður farið í nokkur grunnatriði í kvikmyndagreiningu til að auðvelda nemendum rannsóknir sínar. Kennsla er byggð á fyrirlestrum kennara og umræðum í tíma. Ætlast er til þess að nemendur taki virkan þátt í umræðum.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Alþjóðleg nútímalistasaga frá 1850-1960 (LIS243G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um þróun myndlistar frá umbrotatímum módernismans á síðustu áratugum 19. aldar, í gegnum helstu framúrstefnuhreyfingar eða -isma 20.aldar fram til ársins 1960. Gerð verður grein fyrir helstu stefnum módernískrar myndlistar, forsendum þeirra, sérkennum og mikilvægi fyrir síðari tíma. Fjallað verður um tengsl listar við pólitík, heimspeki og þjóðfélagsþróun og hugað að róttæku endurmati á fegurðarhugtakinu í listum á 20. öld. Hvernig skila breyttar hugmyndir um tíma og rými sér í listinni? Hvernig raska ofangreindar listastefnur venjubundinni skynjun manna á umhverfinu og raunveruleikanum. Hvað er "innri veruleiki"? Þarf myndlist að vera sýnileg? Hver er munur á myndmáli og tungumáli og annars konar táknmáli? Reynt verður að fella alþjóðlegar sýningar sem hingað koma að námskeiðinu og verða þær sóttar heim í tengslum við það.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Valdastjórnmál, hugmyndabarátta og andspyrna á 20. öld: Heimssaga IV (SAG269G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á námskeiðinu verður fjallað um alþjóðasögu á 20. öld með áherslu á þær breytingar sem orðið hafa á alþjóðakerfinu og –stjórnmálum. Í fyrsta lagi verður sjónum beint að nýrri ríkjaskipan í Evrópu eftir fyrri heimsstyrjöld og áhrifum nýrra stjórnmálastefna eins og kommúnisma og nasisma/fasisma. Í annan stað verður gerð grein fyrir aðdraganda og þróun síðari heimsstyrjaldar og afleiðingum hennar, einkum afnám nýlendustefnunnar og þjóðernisbaráttu í Afríku og Asíu. Í þriðja lagi verður fjallað um birtingarmyndir þess valdakerfis sem lá kalda stríðinu til grundvallar og forræðisstöðu Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Loks verður vikið breyttri heimsskipan og nýjum valdahlutföllum í samtímanum, þar sem rætt verður um uppgang Kína og samkeppni við Bandaríkin.    

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Fyrsta ár | Vor
Hugarflug norðursins (ÞJÓ211G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

(Kennt á ensku, en nemendur sem þess óska geta skilað verkefnum á íslensku)

Both fixed and relative, lived and imagined, the North has been a reservoir of imaginary potential. In this potentiality, modern subjects -- local and distant -- might regenerate and reinvigorate. The North contains apparent contradictions: beautiful and terrifying, invigorating and deadly. The imagery of such an imagined and real north, read through history, folklore, literature, film, is the subject of this course. Comparative, interdisciplinary, and multi-sited, our investigations focus on the ways in which the construction of the North has been a contested field representing different agendas and offering divergent outcomes.

Teacher of the course: JoAnn Conrad

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Annað ár | Haust

BA-ritgerð í kvikmyndafræði (KVI241L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

BA-ritgerð er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið viðfangsefni innan sinnar fræðigreinar og gera grein fyrir rannsókn sinni í vönduðum fræðilegum texta. Nemendur skrifa BA-ritgerð um rannsóknarefni að eigin vali í samráði við leiðbeinanda sinn. Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst. Lokaritgerð er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, vinna úr heimildum, svo og til að nota fræðileg hjálpargögn (t.d. handbækur, orðabækur eða sambærilegar vefsíður).
Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands https://ritver.hi.is/is sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.
Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar https://gervigreind.hi.is/

Sjá nánar um reglur um BA-ritgerðir á Hugvísindasviði:
https://ugla.hi.is/kerfi/view/page.php?sid=3544

Kennslutungumál: Íslenska
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Annað ár | Vor

David Cronenberg’s Adaptations (ENS456M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

World renowned Canadian director David Cronenberg is commonly recognized as a cinematic pioneer of the body horror genre. However, much of Cronenberg’s work branches off from the horror genre, applying his auteurist imagery of body horror to other genres and stories. Cronenberg’s career, which began in the 1970s and continues to grow today, presents a large number of filmic adaptations of novels, short stories, and the lives of real life and historical figures.

In this course, we will examine four different films by Cronenberg, adapted from four different sources, to study the varying capacities of adaptation and adaptation theory, as well as auteur theory, in the attempt to understand how Cronenberg retells established narratives, which include his signature themes of body horror.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár
  • Haust
  • ABF103G
    Bókmenntaritgerðir
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um ýmsar gerðir bókmennta- og kvikmyndaritgerða (allt frá fræðilegum ritgerðum til ritdóma, ádeilugreina og pistla). Nemendur hljóta þjálfun í hinum ýmsu þáttum ritgerðasmíðar: afmörkun viðfangsefnis, hugmyndaúrvinnslu, byggingu, röksemdafærslu, tilvísunum, heimildanotkun og frágangi. Kannað verður hvers konar orðræða liggur til grundvallar mismunandi ritgerðum, hver hinn innbyggði lesandi er og hvers konar almennri eða fræðilegri umræðu ritgerðin tengist. Nemendur eru hvattir til að taka námskeiðið á fyrsta námsári.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KVI101G
    Kvikmyndarýni
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Hér er um að ræða grunnfag námsgreinarinnar kvikmyndafræði þar sem kynnt eru til sögunnar lykilhugtök og aðferðir í túlkun kvikmynda. Farið verður ítarlega í frásagnaruppbyggingu og sviðsmynd kvikmynda, sem og kvikmyndatöku, klippingu, hljóðvinnslu og tónlist. Ræddar verða ólíkar gerðir kvikmynda og sýnd dæmi um heimilda- og tilraunamyndir auk hefðbundinna leikinna kvikmynda. Í framhaldi munu nemendur kynnast fræðilegri kvikmyndarýni þar sem lögð er áhersla á kvikmyndagreinar, -höfunda og -stjörnur. Á kvikmyndasýningunum verða dregin fram þau sérkenni sem einkenna lesefni hverrar viku enda er námskeiðið að stórum hlut hugsað sem inngangur og æfing í kvikmyndarýni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ABF335G
    „Treystu engum“: Um samsæriskenningar í dægurmenningu 20. aldarinnar
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Samsæriskenningar, allt frá hversdagslegum til mun hættulegri, hafa sífellt meiri og ógnvænlegri áhrif á nútímasamfélag. Gagnrýnin á samsæriskenningar er vel þekkt – en hvað ef við hugsum nútíma samsæriskenningar minna sem afurð „falsfrétta“ eða „fjölmiðlaneyslu“ sem „brjálaðir“ og/eða „fáfróðir“ einstaklingar neyta, og meira sem sérstakt frásagnarform í dægurmenningu? Nútíma samsæriskenningar eiga rætur sínar að rekja til 19. aldar og þróuðust samhliða uppgangi bókmenntagreina á 19. og snemma á 20. öld. Þær byrja svo að taka á sig skýrari mynd á síðari áratugum 20. aldar og halda áfram að þróast allt til dagsins í dag, ýktar af ört breytilegu fjölmiðlaumhverfi okkar og viðvarandi samfélagskreppum.  Í þessu námskeiði munum við greina ýmsar skáldsögur, kvikmyndir og sjónvarpsþætti sem taka samsæriskenninguna fyrir og spyrja hvers vegna og hvernig samsæri kemur fram sem form til að skilja heiminn á ákveðnum sögulegum tímum. Athygli verður beint að muninum (og samræminu) á bókmenntaformi og kvikmyndamáli, sem og að aðskildum tímabilum samsæriskenninga í kvikmyndum og bókmenntum (spennumyndir frá New Hollywood eftir Watergate-hneykslið, spjallborð á netinu á níunda og tíunda áratugnum, stafræn UFO-menning o.s.frv.).

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ334G
    Ævintýri og samfélag: Hjálparhellur, hetjur og vondar stjúpur
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Ævintýri verða lesin og skoðuð í ljósi samfélagslegra gilda. Lögð verður áhersla á sagnahefðina, flutning sagnafólks, sísköpun þess og meðferð á sagnaminnum. Ævintýrin verða skoðuð m.t.t. hins breytilega efniviðar og hin ýmsu afbrigði einstakra gerða og minna borin saman. Leitast verður við að ráða í merkingu ævintýra, m.a. með táknrýni, auk þess sem þau verða skoðuð í félagslegu ljósi og sett í samhengi við það samfélag sem mótaði þau. Þá verður skoðað hvernig ævintýri eru nýtt og sífellt endursköpuð í nýrri miðlun.

    Vinnulag

    Kennsla fer einkum fram með fyrirlestrum, en einnig með umræðum svo sem kostur er.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KVI112G
    Komið og sjáið
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Titillinn á sögufrægri og harmrænni stríðsmynd Elem Klimov Komið og sjáið (1985) felur í sér það sem á yfirborðinu virðist vera saklaust boð en sem reynist, þegar á hólminn er komið, vera eitthvað allt annað. Myndin lýsir grimmilegu hernámi Þjóðverja á Hvítarússlandi í seinni heimsstyrjöldinni og unlingspilturinn sem er aðalpersóna myndarinnar verður vitni að óbærilegum grimmdarverkum. Vægðarleysi og raunsæislegur þungi myndarinnar, og boðið sem felst í titlinum, er innblástur þessa námskeiðs. Sjónum verður beint að kvikmyndum sem virkja áhorfið og færa handan ánægju og í átt að því að bera vitni og neyða þannig áhorfendur til að velta fyrir sér sögulegu samhengi ímyndanna og það hvernig kvikmyndir endurframleiða veruleikann. Teórískar áherslur námskeiðsins fela í sér hugmyndir um kvikmyndina sem metafórískt auga og verður þannig vöngum velt yfir siðferðilegum spurningum sem geta vaknað við áhorf. Meðal kvikmynda sem skoðaðar verða í námskeiðinu eru The Act of Killing, The Zone of Interest, Five Broken Cameras og Four Daughters.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KVI324G
    Heimur Lars von Trier
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Snemma á lýsti Lars von Trier því yfir að kvikmynd ætti að vera eins og steinvala í skóm áhorfenda. Þetta hefur orðið að nokkurs konar einkennisorðum leikstjórans, sem hefur á ferli sínum sífellt leitað nýrra leiða við að ögra áhorfendum, hvort sem er með efnistökum, stíl eða umdeildum ummælum. Trier olli straumhvörfum í danskri kvikmyndagerð á 9. áratugnum og átti hann eftir að umbylta dönskum kvikmyndaiðnaði til frambúðar. Eftir því sem frægðarsól Trier reis á 10. áratugnum varð hann þekktur sem „enfant terrible“ kvikmyndanna og átti eftir að hafa umtalsverð áhrif á alþjóðlega kvikmyndagerð næstu áratugi.

    Í námskeiðinu verður ferill Trier kannaður frá ýmsum hliðum og í víðu samhengi, m.a. með hliðsjón af áhrifum evrópskrar menningar, formlegra tilrauna með kvikmyndamiðilinn og hugvitsamlegrar notkun stafrænnar tækni. Skoðuð verða valin verk Triers, sem og samverkamanna, áhrifavalda og fylgisveina, með það að markmiði að varpa ljósi á þróun ferils Trier og stöðu hans innan alþjóðlegrar kvikmyndagerðar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ABF322G
    Jane Austen í samtímanum
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður rýnt í menningarfræðilega höfundarvirkni Austen og hinn svokallaði Austen-iðnaður í samtímanum kynntur fyrir nemendum. Sérstaklega verður skoðað hvernig skáldsögur Austen eru endurritaðar innan þriggja bókmenntagreina, sem löngum hafa verið tengdar konum, þ.e. í ástarsögum, skvísusögum og sjálfshjálparritum – og svo hvernig gríðarlegar vinsældir greinanna þriggja hafa endurmótað höfundarvirkni skáldkonunnar og ímynd hennar. Einnig verða til umræðu kvikmyndir og sjónvarpsþáttaraðir byggðar á verkum skáldkonunnar og lífi hennar. Leitast verður við að svara spurningum sem hverfast um stöðu kvenna í póstfemínískri neyslumenningu, varpað ljósi á Darcy-æði samtímans auk þess að skoða hlutverk Jane Austen innan frásagnanna sem lífsgúru, leiðbeinanda og kennslukonu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • JAP107G
    Japanskar kvikmyndir
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um japanskar kvikmyndir frá upphafi til dagsins í dag með aðaláherslu á „klassíska tímabilið“ 1950-70 og leikstjóra á borð við Kurosawa, Ozu, Mizoguchi og fleiri. Fjallað verður um bakgrunn þekktra kvikmynda og efni þeirra greint til sjá hvernig japönsk menning, saga og þjóðfélag endurspeglast í þeim.

    Skoðaðar verða valdar myndir eftir fyrrnefndra leikstjóra og einnig nýrri verk.

    Kennt er á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SAG272G
    Lýðræðisþróun, iðnbylting, nýlendukapphlaup - Heimssaga III
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um sögu tímabilsins frá 1815 og fram í fyrri heimsstyrjöld. Meginumfjöllunarefnið er lýðræðisþróun 19. aldar. Þrír þræðir verða dregnir í gegnum þá frásögn: 1) Fjallað verður um hugmyndir um kvenréttindi og kvennahreyfingar 19. aldar í samhengi við almenna þróun kosningaréttar, afnám þrælahalds og velferðarmál. 2) Sú umfjöllun er svo tengd við þjóðernishugmyndir og mótun þjóðríkja á tímabilinu og þá um leið hver uppfylli skilyrðin um þegn/borgara. 3) Þriðji þráðurinn tengist hinum tveimur – nýlendukapphlaup Evrópuríkja, Bandaríkjanna og Japans og áhrif þess á samfélög í Afríku og Asíu.  

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • SÆN105G
    Stiklur um sænskt samfélag
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið býður upp á yfirlit yfir lykilatburði og áhrifamikla einstaklinga í sænsku samfélagi og sýnir hvernig þeir hafa mótað menningarlega og stjórnmálalega sjálfsmynd sænsku þjóðarinnar. Námskeiðið veitir innsýn í sænska siðferði og lífshætti, allt frá angurværu aðdráttarafli leikkonunnar Gretu Garbo til hinnar dýrmætu fika hefðar og djúpstæðra áhrifa morðsins á forsætisráðherranum Olof Palme árið 1986.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • TÁK204G
    Menningarheimar

  • KVI201G
    Kvikmyndasaga
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Yfirlit yfir sögu kvikmyndalistarinnar frá upphafi hennar undir lok 19. aldar til okkar daga. Áhrifaríkustu stefnur hvers tíma verða skoðaðar og lykilmyndir sýndar. Nemendur kynnast sovéska myndfléttuskólanum (montage), franska impressjónismanum, þýska expressjónismanum, stúdíókerfinu bandaríska, ítalska nýraunsæinu, japanska mínímalismanum, frönsku nýbylgjunni, þýska nýbíóinu, suður-ameríska byltingabíóinu og Hong Kong-hasarmyndinni svo eitthvað sé nefnt, og reynt verður að bera þessar ólíku stefnur saman. Lögð verður áhersla á að skoða fagurfræðilega þróun kvikmyndarinnar sem og samtímaleg áhrif á útlit og inntak hennar. Námsmat byggist á tveimur prófum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KVI401G
    Kvikmyndakenningar
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er hugsað sem ítarlegt sögulegt yfirlit yfir helstu kenningar kvikmyndafræðinnar allt frá upphafi til dagsins í dag. Lesnar verða kenningar frumherja á borð við Sergei Eisenstein, Rudolf Arnheim, Siegfried Kracauer og André Bazin. Tekin verða fyrir margvísleg og róttæk umskipti í nálgun kvikmynda á seinni hluta tuttugustu aldar, líkt og formgerðargreining, marxísk efnistúlkun, sálgreining og femínismi. Loks verða áhrif menningarfræðinnar rædd með áherslu á kynþætti og skoðuð staða kvikmyndarinnar á tímum hnattvæðingar. Kvikmyndir námskeiðsins munu endurspegla margbreytileika lesefnisins enda er þeim ætlað að draga fram sérstöðu ólíkra kenninga.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KVI247G
    Póstmódernismi í kvikmyndum

  • KVI417G
    Költmyndir, aðdáendamenning og greinaflækjur

  • HSP410G
    Heimspeki og kvikmyndir
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu munum við bæði skoða heimspekilegar spurningar um bíómyndir (Hvað er bíómynd? Eru til hlutlægir mælikvarðar á ágæti bíómynda?) og einnig skoða heimspekilegar spurningar sem velt er upp í bíómyndum (Hvað er raunverulegt? Hvað er hjónaband?).

    Námskeiðið er kennt á ensku.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • JAP502G
    Leikjafræði: Tölvuleikir og leikjamenning

  • ÍTA403G
    Ítalskar kvikmyndir
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu Ítalskar kvikmyndir er nemendum veitt innsýn í sögu kvikmyndagerðar á ítalíu á tuttugustu öld. Raktir verða helstu þættir sem hafa haft áhrif á ítalska kvikmyndagerð og reynt að greina hvað það er sem helst einkennir ítalskar kvikmyndir. Einnig verður farið í nokkur grunnatriði í kvikmyndagreiningu til að auðvelda nemendum rannsóknir sínar. Kennsla er byggð á fyrirlestrum kennara og umræðum í tíma. Ætlast er til þess að nemendur taki virkan þátt í umræðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LIS243G
    Alþjóðleg nútímalistasaga frá 1850-1960

  • SAG269G
    Valdastjórnmál, hugmyndabarátta og andspyrna á 20. öld: Heimssaga IV

    ÞJÓ211G
    Hugarflug norðursins

  • KVI241L
    BA-ritgerð í kvikmyndafræði
    Skyldunámskeið
    0

  • ENS456M
    David Cronenberg’s Adaptations

Annað ár

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Krafa samfélagsins til sjórnrænnar miðlunar er mikil. Að þekkja menningu og hefðir kvikmynda getur gefið þér forskot á samkeppni við miðlun upplýsinga. 

Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við:

  • Fjölmiðlun
  • Ráðgjöf
  • Markaðsmál og auglýsingar
  • Menningarblaðamennska
  • Heimildamyndagerð
  • Kvikmyndagerð
  • Menningartengd stjórnsýsla
  • Markaðsrannsóknir
  • Kennslu

Listinn er ekki tæmandi.

  • Félagslífið í kvikmyndafræðinni hefur verið framúrskarandi. Nemendafélagið Rýnirinn brá sér nýverið á Berlinale, kvikmyndahátíðina í Berlín, og sífellt eru skemmtilegir viðburðir í gangi. Hvernig líst þér á tilhugsunina um að ganga inn í samheldið samfélag ástríðufullra kvikmyndaunnenda?
  • Nemendafélagið stendur fyrir margvíslegum uppákomum
  • Rýnirinn á X

Meira um félagslíf stúdenta í Hí

Umsagnir nemenda
Katla Magnúsdóttir
Að mínu mati er kvikmyndafræðin algjört möst fyrir upprennandi leikstjóra, handritshöfunda og framleiðendur. Planið mitt var að taka einungis eitt ár í kvikmyndafræði svo ég gæti farið í skiptinám í kvikmyndagerð. Það tók mig samt ekki langan tíma að átta mig á mikilvægi kvikmyndafræðanna og hvernig þau gera mig að betri kvikmyndagerðarmanni. Í skiptináminu gat ég fært margvísleg rök fyrir öllum mínum ákvörðunum á meðan hinir kvikmyndagerðarnemendurnir gátu það ekki. Kvikmyndafræðin dýpkaði skilning minn á kvikmyndum, Hollywood og sögunni sem skilar sér í því að verkefnin sem ég hef unnið i framhaldinu hafa fyrir vikið verið stórum betri. Þess vegna taldi ég mikilvægt að fara rakleiðis aftur í kvikmyndafræðina eftir skiptinámið til að klára. Kennararnir eru frábærir og skemmtilegar umræður skapast í tímum. Kvikmyndafræðin fær mann til að kafa dýpra.
Ljósmynd af Hrannari Má Ólafssyni
Kvikmyndafræðin veitti mér aðgengi að kvikmyndagersemum á hvíta tjaldinu. Meðan á náminu stendur er maður umkringdur einstaklingum sem deila með manni ást og áhuga fyrir kvikmyndum og er það einstaklega gefandi reynsla. Raunar á ég ótrúlega sterkar minningar um félagslífið og félagslegu hliðina í kvikmyndafræðinni. Þarna eignaðist ég vini fyrir lífstíð og tengi ég einvörðungu jákvæða, gefandi og ánægjulega hluti við námið.
Ljósmynd af Baldri Loga Björnssyni
Kvikmyndafræði í HÍ kom mér alveg á óvart. Það er svo miklu meira en mann grunar á bakvið hverja einustu kvikmynd sem við sjáum: kvikmyndasagan, listasagan, menningarpólitík, hugmyndafræði, listræn sýn og þekking, og kennararnir eru einstaklega færir í að sýna okkur hvernig hægt er koma auga á þessa hluti og nota til að gera kvikmyndaáhorfið ríkara. Það er svo gefandi að finna samfélag sem hefur svona mikla ástríðu fyrir því sama og maður gerir sjálfur. Félagslega eru nemendur í kvikmyndafræðinni langsterkasti hópur sem ég hef kynnst í námi.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil