""
Tungumál kennslu
Íslenska. Kennslubækur eru ýmist á íslensku eða ensku.
Lengd náms
3 ár.
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á eðli veruleikans?
  • Ert þú forvitin um tengsl hugsunar og heims ?
  • Viltu vinna fjölbreytt verkefni undir handleiðslu helstu sérfræðinga landsins í heimspeki?
  • Finnst þér gaman að rökræða?
  • Viltu fjölbreytt úrval námskeiða sem eru á þínu áhugasviði?
  • Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?

Nám til BA-prófs 180 eininga, námstími 3 ár miðað við fullt nám. 

Nemendur taka almenn og söguleg inngangsnámskeið, fjögur námskeið á meginsviðum heimspekinnar, nokkur valnámskeið af sérsviðum heimspekinnar, að lágmarki tvær málstofur ásamt verkefnum, nokkur fleiri valnámskeið, málstofur eða framhaldnámskeið og skrifa B.A.-ritgerð.

Meðal viðfangsefna

  • Fornaldarheimspeki
  • Gagnrýnin hugsun
  • Stjórnmál og samfélag
  • Rökfræði
  • Siðfræði
  • Nýaldarheimspeki
  • Þekkingarfræði
  • Listheimspeki
  • Feminísk heimspeki
  • Stjónmálaheimspeki
  • Miðaldarheimspeki

Meginsvið heimspekinnar

Eru jafnan talin fjögur:

  • Frumspeki, sem fjallar um eðli veruleikans og hlutanna í heiminum. Hver er munurinn á efni og anda? Hver eru tengsl hugsunar og heims? Hvert er eðli orsakalögmálsins, tímans? Eru til hinstu rök um lífið og heiminn?
  • Siðfræði, sem fjallar um grundvöll siðlegrar breytni. Er til hlutlægur mælikvarði á rétt og rangt, gott og slæmt? Hvað er góður vilji? Hvernig ber mér að haga lífi mínu?
  • Þekkingarfræði, sem fjallar um það hvað það er að vita. Hvað er sannleikur? Getum við vitað nokkuð með vissu? Hver eru tengslin á milli skoðunar og þekkingar?
  • Rökfræði, sem fjallar um reglur og lögmál hugsunarinnar. Hvernig er hægt að greina gildar röksemdafærslur frá ógildum? Hvað eru rökréttar ályktanir?

Markmið

Markmið heimspekikennslunnar á BA-stigi er að veita nemendum góða undirstöðumenntun í heimspeki:

  • almenna þekkingu á sögu vestrænnar heimspeki
  • skipulega innsýn í megingreinar heimspekinnar
  • dýpri skilning á einstökum undirgreinum, tímabilum, stefnum, höfundum eða viðfangsefnum í sögu og samtíð
  • færni í gagnrýninni hugsun, nákvæmum lestri og að gera skýra og rökstudda grein fyrir skoðunum sínum í ræðu og riti

Mögulegar námsleiðir

Heimspeki til 120 eininga - aðalgrein með 60 eininga aukagrein úr öðru námi. 

Nemendur taka þá almenn og söguleg inngangsnámskeið, fjögur námskeið á meginsviðum heimspekinnar, nokkur valnámskeið af sérsviðum heimspekinnar og eina málstofu ásamt verkefni, auk þess að skrifa B.A.-ritgerð. Einnig taka nemendur 60 einingar í annarri grein sem aukagrein. 

Heimspeki til 60 eininga - aukagrein með 120 eininga aðalgrein úr öðru námi.

Nemendur taka eitt almennt og tvö söguleg inngangsnámskeið, tvö námskeið að eigin vali á meginsviðum heimspekinnar og eitt valnámskeið af sérsviðum heimspekinnar. Einnig taka nemendur 120 einingar í annarri grein sem aðalgrein.

Undirgreinar heimspekinnar

  • Stjórnmálaheimspeki fjallar um eðli og grundvöll ríkisins, og um réttlætingu þess. Hvað er réttlæti? Hvað er réttlát stjórnskipan? Af hverju hefur ríkið einkarétt á valdbeitingu?
  • Fagurfræði fjallar um eðli listar og fegurðar. Er fegurðin huglæg eða hlutlæg? Eru til hlutlægir mælikvarðar á fegurð? Hvaða hlutverki gegnir listin í samfélaginu? Hvað er listaverk?
  • Trúarheimspeki fjallar um tilvist Guðs og tengsl mannsins við Guð. Er hægt að sanna tilvist Guðs? Getur Guð verið algóður þegar hið illa veður uppi í heiminum?
  • Vísindaheimspeki fæst við frumforsendur og aðferðir náttúru-, félags- og hugvísinda. Í vísindaheimspeki er m.a. rætt um þá viðleitni félagsvísinda og mannlegra fræða að taka upp aðferðir raunvísinda. Geta vísindi verið hlutlæg og hvað merkir að eitthvað sé “vísindalega sannað”?
  • Lögspeki fjallar um siðagrunn laga og samfélagslegt hlutverk lagasetninga. Hvað eru lög? Af hverju ber að framfylgja lögum? Hví ber mönnum að hlýða lögum, sem koma þeim illa?
  • Hugspeki veltir fyrir sér veruleika vitundarinnar. Í hverju felst meðvitund? Getur hugsun falist í efnafræðilegum ferlum í heilanum?
  • Málspeki fjallar um mörk máls og heims. Hver eru tengsl inntaks orða og þess sem orðin eru um? Hvert er eðli boðskipta?
  • Félagsleg heimspeki fjallar um samband einstaklinga og stofnana samfélagsins og þær siðferðilegu spurningar sem vakna í því samhengi.
  • Femínísk heimspeki fjallar um það hvernig karlar hafa mótað heimspekilega hugsun um aldir og viðleitni kvenna til að endurmeta og endurmóta heimspekina í ljósi kvenlegra gilda. Femínísk heimspeki skoðar m.a. siðfræði, vísindaheimspeki og þekkingarfræði í þessu ljósi svo heimspeki geti betur endurspeglað bæði heim karla og kvenna.
  • Tilvistarheimspeki fjallar um innviði og sérstöðu mannlegrar tilvistar og gengur út frá því að hún verði einungis skýrð og skilin réttilega með hliðsjón af persónulegri reynslu og ákvörðunum.

Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf. Nánari upplýsingar er að finna í 18. grein reglna um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022.

Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda grunnnám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku skv. 1. gr. reglnanna.

Til BA-prófs er krafist minnst 180 eininga og teljast 60 einingar á námsári vera fullt nám. Stúdent sem les heimspeki til 180 eininga BA-prófs skal ljúka eftirfarandi:

  1. Skyldunámskeið (80 einingar)
    Nemendur skulu ljúka öllum skyldunámskeiðum. Þau eru:
    • HSP103G Inngangur að heimspeki (10e)
    • HSP104G Fornaldarheimspeki (10e)
    • HSP105G Gagnrýnin hugsun (5e)
    • HSP107G Stjórnmál og samfélag (5e)
    • HSP201G Rökfræði (10e)
    • HSP202G Siðfræði (10e)
    • HSP203G Nýaldarheimspeki (10e)
    • HSP304G Þekkingarfræði (10e)
    • HSP416G Frumspeki (10e)
  1. Málstofur og málstofuverkefni (20 einingar)
    Nemendur í heimspeki til 180 eininga skulu ljúka að lágmarki tveimur 5 eininga málstofum ásamt tveimur 5 eininga tengdum verkefnum. Nemendur þurfa að hafa lokið a.m.k. 60 einingum í heimspeki áður en þeir taka málstofur. Þessi námskeið eru merkt sem „bundið val“ í kennsluskrá og eru titluð sem „málstofur“. 

  2. Valnámskeið í heimspeki (50-80 einingar)
    Nemendur skulu ljúka því sem samsvarar a.m.k. 50 einingum í valnámskeiðum í heimspeki. Til valnámskeiða teljast öll námskeið á HSP- og SIÐ-númeri, utan skyldunámskeiða, og námskeiðin KLM307G, SAG817M og KÍN502G. Námskeiðin eru merkt sem „bundið val“ og er námsframboðið breytilegt milli ára. Málstofur og málstofuverkefni sem nemendur ljúka umfram þær 20 einingar þeim bera að taka af slíkum námskeiðum, teljast til valnámskeiða í heimspeki.

  3. Valnámskeið utan greinar (0-20 einingar)
    Heimilt er að taka að hámarki 20 einingar utan heimspekinnar í valnámskeiðum. Öll námskeið sem ekki eru á HSP- eða SIÐ-númeri, fyrir utan námskeiðin KLM307G, SAG817M og KÍN502G, teljast sem valnámskeið utan greinar. Námskeiðin eru merkt sem „valfrjáls námskeið“.

  4. BA-ritgerð í heimspeki (0-10 einingar)
    BA-ritgerð í heimspeki gildir til 10 eininga. Áður en nemendur skrifa BA-ritgerð þurfa þeir að hafa lokið minnst 120 einingum af námi sínu og æskilegt að þeir hafi lokið a.m.k. einni málstofu ásamt tengdu málstofuverkefni. Þótt BA-ritgerð sé ekki skyldunámsþáttur til BA-prófs er hún skilyrði fyrir inntöku í MA-nám í heimspeki. Ef nemendur kjósa að skrifa ekki BA-ritgerð skulu þeir taka í staðinn 10 einingar í valnámskeiðum í heimspeki („bundið val“).
Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Inngangur að heimspeki (HSP103G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um spurninguna: „Hvað er heimspeki?“ og um tengsl heimspeki við vísindi, listir, trúarbrögð og stjórnmál. Lesnir verða textar eftir klassíska heimspekinga og samtímaheimspekinga í því augnamiði að skoða ólíkar aðferðir og vandamál heimspekinnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Fornaldarheimspeki (HSP104G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Veitt verður yfirlit yfir heimspeki fornaldar, byggt á nákvæmum lestri frumtexta. Fjallað verður um frumherja grískrar heimspeki fram yfir daga Sókratesar, heimspeki Platons og Aristótelesar, sem og arftaka þeirra, efahyggjumenn, epikúringa og stóumenn. Meginmarkmið námskeiðsins er að veita yfirsýn yfir og skilning á þróun fornaldarheimspeki frá frumherjunum til síðfornaldar. Auk þess er námskeiðinu ætlað að kynna nemendum samhengi heimspekisögu og heimspekilegrar rökræðu og þjálfa þá í að lesa og greina heimspekirit liðins tíma. Að námskeiðinu loknu eiga nemendur að þekkja helstu tímabil og höfunda fornaldarheimspeki, sem og hugmyndir þeirra og röksemdir. Þeir ættu að geta gert grein fyrir skoðunum fornaldarheimspekinga, stutt greinargerðina tilvísunum í frumtexta og borið saman hugmyndir ólíkra heimspekinga. Auk þess ættu þeir að hafa skilning á mikilvægi heimspekisögu fyrir heimspekilega rökræðu, sögulegum uppruna sígildra heimspekilegra vandamála.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Gagnrýnin hugsun (HSP105G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að gera nemendum grein fyrir mikilvægi gagnrýninnar hugsunar með því að kynna helstu hugtök og aðferðir og mismunandi skilning á eðli og hlutverki hennar. Nemendur verða þjálfaðir í gagnrýninni hugsun eins og hún kemur fyrir í heimspeki og í daglegu lífi og starfi. Lögð er áhersla á að greina röksemdafærslur. Ítarlega verður farið í samband gagnrýninnar hugsunar og siðfræði.

Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðutímum. Sérstök áhersla er lögð á umræður um raunhæf úrlausnarefni. Reynt verður að hafa verkefni eins hagnýt og kostur er og tengja þau sem flestum sviðum daglegrar reynslu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Haust
Stjórnmál og samfélag (HSP107G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur kynnast sígildum kenningum og álitamálum í samtímaumræðu á sviði stjórnspeki og félagslegrar heimspeki og öðlast færni í rökræðu um skipan lýðræðissamfélagsins. Nemendur læra að greina lykilhugtök í heimspekilegri orðræðu um ríki og réttlátt samfélag og tengja við viðfangsefni stjórnmála með sérstakri vísan í íslenskt samfélag.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Rökfræði (HSP201G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur öðlast grunnþekkingu í heimspekilegri og formlegri rökfræði. Áhersla er lögð á setningarökfræði (e. propositional logic, truth-functional logic) annars vegar og umsagnarökfræði (e. quantified logic, first-order logic) hins vegar. Einnig er farið stuttlega í óformlega rökfræði í upphafi námskeiðs, auk þess ræddar verða heimspekilegar spurningar um eðli og stöðu rökfræðinnar í lok námskeiðsins.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Siðfræði (HSP202G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Veitt verður yfirlit yfir þrjár af höfuðkenningum siðfræðinnar, reist á lestri frumtexta: kenningu Aristótelesar í Siðfræði hans, Johns Stuarts Mill í Nytjastefnunni og Immanuels Kant í Frumspeki siðlegrar breytni.

Námskeiðið er 10 eininga inngangsnámskeið í II. hluta heimspekináms. Ætlast er til að það sé tekið á öðru misseri fyrsta námsárs í heimspeki. Námskeiðið getur verið valnámskeið fyrir nemendur í ýmsum öðrum greinum.

Fluttir verða 2 x 12 fyrirlestrar. Lestur námsefnisins er nauðsynlegt skilyrði fyrir árangursríkri þátttöku í tímum. Hver fyrirlestur tekur fyrir afmarkað efni. Að loknum fyrirlestri verða glærur settar inn á heimasvæði námskeiðsins í Canvas.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Nýaldarheimspeki (HSP203G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Viðfangsefni
Námskeiðinu er ætlað að veita almennt yfirlit yfir strauma og stefnur í vestrænni heimspeki á 17. og 18. öld, kynna sérstaklega tiltekin viðfangsefni, kenningar og rökfærslur í þekkingarfræði og frumspeki þessa tímabils með nákvæmum lestri og samanburði valinna verka, einkum eftir Descartes, Hume og Kant, svo og að þjálfa nemendur í lestri, greiningu og túlkun heimspekirita.

Kennsla
Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðutímum. Í fyrirlestrum verður leitast við að gefa heildaryfirsýn yfir viðfangsefnið, setja verkin í samhengi og greina mikilvægustu kafla ritanna. Í umræðutímum verður rætt nánar um tiltekin efnisatriði, bókarkafla, rökfærslur eða spurningar sem vakna við lesturinn.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Vísindaheimspeki (HSP318G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verða teknar fyrir margar af helstu spurningum vísindaheimspekinnar á 20. og 21. öld. Hvernig eru vísindakenningar rökstuddar með tilraunum og athugunum?  Hvað eru náttúrulögmál? Hvers vegna ættum við að treysta vísindarannsóknum frekar en öðrum aðferðum við að afla okkur þekkingar? Eru vísindarannsóknir gildishlaðnar? Og hvað felst í því að segja að vísindin séu hlutlæg?

Kennslutungumál: Íslenska
Annað ár | Haust
Málstofa: Máttur skynhrifa í heimspeki Luce Irigaray (HSP551M, HSP552M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í ljósi fyrirbærafræði líkamans er ætlunin að skoða eðli sjálfshrifa í heimspeki Luce Irigaray og athuga hvernig skynhrifin gefa kost á hreyfingu handanverunnar sem eru frelsandi og umbreytandi. Skynhrifin grundvallast á kynjamismun, líkamleika og gerandavirkni, en stöðug víxlverkun okkar við heiminn leiðir af sér hinn merkingarbæra heim. Þá er ætlunin að skoða hina eðlislægu þrá mannsins og hið siðferðilega og fagurfræðilega inntak kynjamismunar sem miðar að því að yfirstíga skautun vestrænnar menningar. Loks verða verk Irigaray skoðuð í ljósi heimspeki Hegel´s um fyrirbærafræði andans og hugmynd Merleau-Ponty´s um hold heimsins sem og skrifa annarra heimspekinga og rithöfunda.

Kennslutungumál: Íslenska
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Haust
Verkefni í málstofu: Máttur skynhrifa í heimspeki Luce Irigaray (HSP551M, HSP552M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Verkefni í málstofu: Máttur skynhrifa í heimspeki Luce Irigaray. Nemendur þurfa að ljúka tengdri málstofu til að ljúka verkefninu

Málstofa: Dulspeki miðalda mætir ferlisheimspeki (HSP549M, HSP550M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið sameinar heimsmyndir og mannfræðikenningar sem virðast mjög ólíkar: hugsun klassískra þýskra dulspekinga eins og Meister Eckhart og Jakobs Boehme, sem höfðu djúpstæð áhrif á þýska heimspeki (t.d. Hegel, Schelling), og samtíma ferlisheimspeki eins og kenningar Alfred North Whitehead og Eugene Gendlin. Þrátt fyrir að vera að mörgu leyti ólíkar kenningar er viss samhljómur í þessum hugmyndir sem býður upp á nýja túlkunarmöguleika. Þær fjalla um hugtök eins og samsköpun, siðferðilega kunnáttu og opinn verufræðilegan skilning a heiminum. Mannfólk gegnir lykilhlutverki—ekki sem  gerendur sem þrýsta fram markmiðum sínum, heldur með umbreytingarmætti sínum. Við munum kanna fræðileg umgjörð hvorrar hefðar um sig: dulspekilegu hefðina, sem notar kristið orðfæri en endurtúlkar það á róttækan hátt, og ferilsheimspeki, sem tekur til sín og útfærir flækjustig opins og gagnvirks heims. Vinna með textana mun felast í nákvæmri lestri, umræðum og heimspekilegum æfingum sem spretta af þessum hefðum. Við munum takast á við textana með ítarlegum lestri, umræðum og heimspekilegum æfingum spretta af þessum hefðum

Kennslutungumál: Enska

Verkefni í málstofu: Dulspeki miðalda mætir ferlisheimspeki (HSP549M, HSP550M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Verkefni í málstofu: Dulspeki miðalda mætir ferlisheimspeki. Nemendur þurfa að ljúka tengdri málstofu til að ljúka verkefninu.

Listheimspeki (HSP310G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að veita stutt yfirlit yfir nokkur sígild viðfangsefni í heimspeki listarinnar; að kynna sérstaklega tilteknar spurningar, kenningar og rökfærslur á sviði listheimspeki með lestri valinna texta, bæði sögulegra og samtímalegra; og að þjálfa nemendur í greiningu og umræðu um listheimspekileg efni.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Hugmyndasaga 19. og 20. aldar (HSP321G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði eru hugmyndir sem höfðu grundvallaráhrif á vestræna heimspeki og hugmyndahefðir skoðaðar út frá 19. og 20. öldinni. Um er að ræða þær hugmyndir sem ollu samfélagsbreytingum á borð við frelsi, veraldarhyggju, jafnrétti, andóf, samband einstaklings og samfélags, hugmyndir um tilvist og sál, kúgun, misrétti, ríki sem og kapítalisma. Síðast og ekki síst verða skoðaðar hugmyndir um söguna, tímann og þróun mannkyns og plánetu. 

Í hverri viku fyrir sig er tekin fyrir nýr hugsuður eða ný hugmynd sem olli straumhvörfum í vestrænni hugmyndasögu. Hugsuðir á borð við G.W.F. Hegel, Karl Marx, Sigmund Freud, Rosu Luxembourg og Emmu Goldman verða teknir fyrir og áhrifamiklar stefnur á borð við fyrirbærafræði, nýfrjálshyggju eða póststrúktúralisma.

Markmiðið er að lesa verk þessara höfunda eða stefna út frá þeim tíðaranda sem verkin spruttu úr hverju sinni (að svo miklu leyti sem við fólk á 21. öldinni getum lesið tíðaranda eldri tíma). Á sama tíma er markmiðið að lesa djúpt frumtexta til þess að öðlast margvíðan skilning á hugmyndunum. Mikilvægt stef námskeiðsins er einnig að hugsa um þessar hugmyndir út frá samtímanum og þeim álitaefnum sem eru í deiglunni hverju sinni.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Ferlið og dygðin – Bókin um veginn – Daodejing – ritskýring (KÍN502G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður hið sígilda og áhrifamikla heimspeki- og trúarrit Daodejing lesið kafla fyrir kafla með það fyrir augum að gera grein fyrir inntaki textans í ljósi heimspekilegra og trúarlegra kenninga daoismans. Stuðst verður einkum við tvímála þýðingu Ragnars Baldurssonar sem nefnist á íslensku Ferlið og dygðin en jafnframt leitað fanga í öðrum erlendum þýðingum, túlkunum og skýringarritum. Kunnátta í kínversku ritmáli er kostur en ekki skilyrði fyrir þátttöku í námskeiðinu.

Kennslutungumál: Íslenska
Annað ár | Haust
Þekkingarfræði (HSP304G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu munum við spyrja um eðli þekkingar og glíma við ýmsar gátur sem tengjast þekkingu. Af hverju skiptir þekking máli? Er skilningur mikilvægari en þekking? Hver er munurinn á þekkingu og sannri skoðun? Hvers konar rökstuðning þarf til að breyta sannri skoðun í þekkingu? Getum við rannsakað þekkingu eins og meltingu, þ.e. með náttúruvísindalegum aðferðum, eða getum við bara rannsakað hana innan frá, þ.e. með því að skoða okkar eigin vitund? Getum við treyst skoðunum annarra? Hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að fólk njóti sannmælis, óháð kyni, kynþætti, aldri, kynhneigð o.s.frv.? Við lesum fyrst og fremst texta frá 20. og 21. öld og nemendur þjálfast í að beita aðferðafræði rökgreiningarheimspeki við að lesa og rýna heimspekilega texta.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Vor
Málstofa gistikennara: Þættir í loftslagssiðfræði (HSP450M, HSP451M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um heimspekileg og siðferðileg álitamál sem tengjast loftslagsbreytingum. Sum þessara álitamála varða ákvarðanir einstaklinga. Við munum til dæmis skoða hvaða skyldur loftslagsbreytingar leggja á herðar einstaklingum og hvort kolefnisjöfnun geti verið leið til að uppfylla þessar skyldur. Aðal áherslan verður þó á stefnumótun stjórnvalda í loftslagsmálum. Við munum meðal annars ræða hvernig meta megi loftslagsstefnur í ljósi þeirrar miklu óvissu sem ríkir t.d. um efnahagsleg og félagsleg áhrif loftslagsbreytinga, og hvernig takast megi á við þá hagsmunaárekstra milli kynslóða sem slík stefnumótun felur í sér. Einnig verður fjallað nánar um tilteknar stefnu- og aðgerðatillögur, svo sem „geoengineering“ og alþjóðlegan loftslagsbanka.

Kennslutungumál: Enska
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Vor
Verkefni í málstofu gistikennara: Þættir í loftslagssiðfræði (HSP450M, HSP451M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Verkefni í málstofu: Þættir í loftslagssiðfræði. Nemendur þurfa að ljúka tengdri málstofu til að ljúka verkefninu

Málstofa: Mennska og afmennskun (HSP539M, HSP540M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Vangaveltur um mennskuna eru mannfólkinu hugleiknar, hvort sem við köllum það eðli mannsins, merkingu þess að vera manneskja, eða eitthvað annað. Í krafti mennskunnar teljum við okkur eiga tilkall til mannréttinda þannig að mennska getur verið normatíft, eða siðferðilegt, hugtak. Á hinn bóginn getur afmennskun haft hörmulegar afleiðingar, þegar jaðarsettum einstaklingum eða hópum er neitað um fullan aðgang að samfélagi manna, og kúgun og ofbeldi hafa verið réttlætt á þeim forsendum.  Í þessar málstofu verða skoðaðar ýmsar mögulegar skilgreiningar bæði á mennsku og afmennskun, kenningar þar að lútandi og mismunandi nálganir. Þótt leitað verði fanga á mismunandi tímabilum í heimspekisögunni verður megináherslan á efni frá undanförnum áratugum og það sett í samhengi við málefni líðandi stundar.

Verkefni í málstofu: Mennska og afmennskun (HSP539M, HSP540M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Verkefni í málstofu: Mennska og afmennskun. Nemendur þurfa að ljúka tengdri málstofu til að ljúka verkefninu

Heimspeki og kvikmyndir (HSP410G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á námskeiðinu munum við bæði skoða heimspekilegar spurningar um bíómyndir (Hvað er bíómynd? Eru til hlutlægir mælikvarðar á ágæti bíómynda?) og einnig skoða heimspekilegar spurningar sem velt er upp í bíómyndum (Hvað er raunverulegt? Hvað er hjónaband?).

Námskeiðið er kennt á ensku.

Kennslutungumál: Enska
Annað ár | Vor
Heilbrigðis- og lífssiðfræði (HSP823M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um nokkur helstu álitamál á sviði lífsiðfræði á síðustu árum, einkum í tengslum við þróun á sviði erfðavísinda og erfðarannsókna og hugsanleg áhrif þeirra á heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstefnu.

Námskeiðið verður kennt samþjappað frá 2.–25. mars. Fyrirlestrar eru á þriðjudögum og fimmtudögum 15–17:20. 

Í lok námskeiðsins verður haldin málstofa með framsögum nemenda og verður tilhögun hennar ákveðin í samráði við nemendur. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Vor
Frumspeki (HSP416G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um nokkur af helstu viðfangsefnum nútímafrumspeki og sögu frumspekinnar á 20. og 21. öld. Meðal líklegra viðfangsefna má telja tilvist náttúrulegra tegunda og uppskáldaðra persóna, persónusamsemd, frjálsan vilja, hluthyggju, hughyggju og nafnhyggju, mögulega heima, tengsl tungumáls og heims og tengsl hugar og heila.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Haust

Austur-asísk heimspeki menntunar, kennslufræði og uppeldisfræði A: konfúsíanismi og daoismi (INT007M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Inntak námskeiðsins eru grundvallarhugmyndir í kínverskri menntaheimspeki, kennslufræði og uppeldisfræði með megináherslu á konfúsíanisma en einnig verður vikið að viðbrögðum við henni úr röðum daoisma. Gerð verður grein fyrir konfúsíanískum hugmyndum um menntun, uppeldissálfræði og sjálfsrækt sem fram koma í Speki Konfúsíusar (Lunyu 論語, e. Analects). Síðan verður vikið að völdum köflum í öðrum grundvallarritum konfúsíanisma á borð við Zhongyong (中庸e. Doctrine of the Mean/Focusing the Familiar), Daxue (大學e. The Great Learning), Xueji (學記e. Records of Learning/On Teaching and Learning), Mengzi 孟子 og Xunzi 荀子. Grundvallarhugtök konfúsíanískrar menntaheimspeki, uppeldisfræði og kennslufræði verða kynnt til sögunnar og þau útskýrð, þ.á m. jiao 教 (kennsla), xue 學 (að læra, að líkja eftir, að taka sér til fyrirmyndar), xiuji 修己 og xiushen 修身 (sjálfsrækt), li 禮 (helgiathafnir, siðir), xing 性 (náttúrulegar tilhneigingar, mannlegt eðli) og junzi 君子 (fyrirmyndarpersóna), auk annarra. Í því samhengi verður hugað vel að vægi fyrirmynda í konfúsíanískri kennslu- og uppeldisfræði sem og kennsluaðferðum, t.d. eins og þær eru kynntar í ritinu Xueji. Eftir því sem tími gefst verður vikið að viðbrögðum við þessum hugmyndum frá hugsuðum sem kenndir eru við daoisma, einkum höfunda Bókarinnar um veginn/Ferlisins og dygðarinnar (Daodejing 道德經) og Zhuangzi 莊子. Þeir töldu kennslufræði konfúsíanismans leiða til kredduhyggju og hræsni og lögðu til annars konar lærdóm eða sjálfsrækt sem væri sjálfstæðari frá samfélagslegum gildum og byggði fremur á „heimsrásinni“ eða „vegi veraldarinnar“, þ.e. heimsfræðilegum tilhneigingum náttúrunnar. Í því samhengi setja þeir fram „metaheimspekilegar“ hugmyndir á borð við það að „aflæra“ og „draga úr sjálfinu“. Í stað þess að læra af fornritum siðmenningarinnar leggja þeir áherslu á að aðlaga sig náttúrunni og athafna sig með háttum sem þeir kenna við ziran 自然 (sjálfkrafa) og wuwei 無爲 (ógjörð, óþvinguð athöfn).

Markmið
Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum innsýn í kínverska heimspeki og menningu fyrri tíma, einkum uppeldis- og kennslufræðilegar forsendur hennar eins og þær birtast í Konfúsínisma og í gagnrýni daoisma á þá heimspeki. Einnig er stefnt að því að nemendur öðlist skilning á því hvaða félagslegu og einstaklingsbundnu þættir felast í menntun og sjálfsrækt. Í þessu samhengi verður einnig hugað að því hvað gerist þegar menntun nær ekki markmiðum sínum, hvort hún geti verið óæskileg og jafnvel hættuleg. Leitast verður við að setja efnið í samhengi við samtímahugmyndir um menntun og kennslufræði.

Nálgun og námsefni
Stuðst er að mestu við heimspekilega frumtexta sem taldir eru upp í námslýsingu. Stúdentar geta nýtt sér hvaða þýðingu sem er á þessum grundvallarritum (á ensku eða öðrum málum). Á vefnum ctext.org má finna alla þessa texta í enskri þýðingu en kennari mun láta stúdentum aðrar útgáfur í té. Einnig verður stuðst við bókina Confucian Philosophy for Contemporary Education eftir Charlene Tan (Routledge 2020). Engar forkröfur eru gerðar til þekkingar á kínverskri heimspeki.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Haust
Verkefni tengt siðfræði náttúrunnar (HSP725M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Verkefni tengt námskeiðinu HSP722M Siðfræði náttúrunnar.

Kennslutungumál: Enska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Haust
BA-ritgerð í heimspeki (HSP261L)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

BA-ritgerð í heimspeki er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið heimspekilegt viðfangsefni eða verk heimspekings og að setja niðurstöður sínar fram í rituðu máli með fræðilega viðurkenndum hætti. Nemandi skrifar ritgerðina í samráði við einn leiðbeinanda úr hópi fastra kennara í heimspeki.

Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst. Lokaritgerð er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, vinna úr heimildum, svo og til að nota fræðileg hjálpargögn (t.d. handbækur, orðabækur eða sambærilegar vefsíður).

Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands [hlekkur: https://ritver.hi.is/is] sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.

Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar https://gervigreind.hi.is/

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar er að finna á síðu Deildar heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði um lokaverkefni og ritgerðir í Uglu.

Kennslutungumál: Íslenska
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Þriðja ár | Haust
Siðfræði náttúrunnar (HSP722M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um samband manns og náttúru frá heimspekilegu sjónarhorni. Fjallað er um helstu frumkvöðla náttúrusiðfræðinnar og áhrifamestu kenningar sem settar hafa verið fram. Gerð grein fyrir ólíkri náttúrusýn manna og mismunandi grunnafstöðum til náttúrunnar - þ.e. mannhverfri, visthverfri og lífhverfri afstöðu. Einnig fjallað um tengsl umhverfis- og þróunarmála og tengsl umhverfishyggju og lýðræðisþróunar. Rætt um álitaefni eins og: Getur siðfræðin nýst við lausn umhverfisvandamála?, Hvers konar verur hafa siðferðisstöðu?, Geta náttúrleg fyrirbæri búið yfir eigingildi?, Hafa dýr einhver réttindi?, Er einhver grundvallarmunur á (af)stöðu karla og kvenna gagnvart náttúrunni?, og Hvert er siðferðilegt inntak sjálfbærrar þróunar?

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Haust
Siðferðileg álitamál samtímans (HSP723M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Áleitin siðferðileg úrlausnarefni ofarlega á baugi í nútímasamfélagi eru meginviðfangsefni þessa námskeiðs. Sjónum er beint að möguleikum siðfræðinnar á að takast á við klemmur sem upp koma, jafnt í lífi einstaklinga sem á samfélagsgrundvelli. Val á viðfangsefnum getur breyst milli ára en meðal mögulegra viðfangsefna námskeiðsins má nefna tjáningarfrelsi, stöðu flóttafólks, réttindi dýra, fátækt og ójöfnuð, kynjamisrétti, kynþáttamisrétti, umhverfismál og ýmis álitamál úr heilbrigðiskerfinu. Farið er í tengsl fræðilegrar og hagnýttrar siðfræði. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum með ríkri áherslu á virka þátttöku nemenda í umræðum.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Vor

Þættir úr sögu og heimspeki vísindanna (SAG817M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið: Að kynna nemendum þróun vísinda og eðli með því að rekja dæmi úr vísindasögunni og nýleg viðhorf til vísinda og sögu þeirra. Að þjálfa nemendur í erindaflutningi og ritgerðasmíð um fræðileg efni á íslensku. -- Námsefni: Saga stjörnufræði og heimsmyndar fram yfir byltingu Kópernikusar og Newtons. Saga þróunarkenningarinnar. Nýleg viðhorf sem varða eðli, markmið og þróun vísinda, vísindi og samfélag. -- Hver nemandi flytur erindi á umræðufundi um efni, sem valið er í samráði við kennara, og skilar ritgerð í lok misseris. Áhersla er lögð á að þjálfa nemendur í að vinna með heimildir. Námsefni getur breyst með hliðsjón af nemendahópi, kennurum og öðrum aðstæðum.

Óháð námsári | Haust
Skapandi gervigreind: Um áhrif gervigreindar á skapandi vinnu (MFR715M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um tengslin á milli gervigreindar og skapandi starfa sem taka örum breytingum. Áhersla er lögð á listrænar, heimspekilegar, siðfræðilegar, félagslegar og menningarlegar víddir sköpunar sem knúin er áfram af gervigreind. Byggt er á aðferðum hugvísinda og horft til sköpunafræða. Í námskeiðinu leitast nemendur við að skilja og leggja gagnrýnið mat á hvernig gervigreind er að endurmóta hefðbundinn skilning á sköpun, höfundarverki og listrænni framleiðslu í heild sinni. Eftir að lykilhugtök sköpunarfræða hafa verið kynnt til sögunnar færist áherslan á önnur leiðarstef, svo sem hvernig gervigreind getur sett sjálfvirkni inn í skapandi vinnu, áhrif gervigreindar á spurningar sem varða eignarhald á hugverkum og höfundarrétt ásamt siðferðilegum vanda sem kemur upp í tengslum við menningarlega yfirtöku á tímum stafrænnar tækni. Nemendur munu ræða um togstreituna á milli gervigreindariðnaðarins og stórgagnavinnslu sem hann gerir mögulega annars vegar og skapandi vinnu með smærri gagnasöfn hins vegar og afleiðingar hennar fyrir listrænar nýjungar og frumlega hugsun. Með raunhæfum æfingum og umræðu um áþreifanleg dæmi munu nemendur kynna sér ólíkar tegundir sköpunar, rannsaka tæknilegt umhverfi gervigreindar og öðlast hagnýta reynslu við að nýta gervigreind til skapandi verkefna. Námskeiðið tengir helstu kenningar samtímans um sköpun við gagnrýna greiningu á gervigreind, sem knýr nemendur til að hugsa upp á nýtt um mörk mannlegrar og vélrænnar sköpunar. Námsmat byggir á skapandi vinnudagbókum sem nemendur halda á meðan á námskeiðinu stendur. Sömuleiðis er gert ráð fyrir virkri þátttöku í tímum ásamt tímafyrirlestri þar sem kynnt verður stutt ritgerð.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Haust
Heimur Forngrikkja: Saga og samfélag (KLM115G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Raktir verða þættir úr sögu Forngrikkja, með áherslu á menningu þeirra og hugmyndaheim frá upphafi til yfirráða Rómar. Lesnir verða valdir kaflar úr bókmenntaverkum þeirra í þýðingum.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári | Haust
Latína I: Byrjendanámskeið (KLM101G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er 10 eininga inngangsnámskeið í latínu ætlað byrjendum. Ekki er gert ráð fyrir kunnáttu í latínu við upphaf námskeiðs en æskilegt er að nemendur hafi góðan skilning á íslenskri málfræði. Farið er yfir beygingafræði latínunnar svo og undirstöðuatriði setningafræðinnar. Stuttir leskaflar og málfræðiæfingar.

Námskeiðið er kennt á íslensku en nemendur sem þurfa geta fengið leyfi til að skila verkefnum og prófum í þessu námskeiði á ensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Forngríska I: Byrjendanámskeið (KLM102G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður farið yfir beygingarfræði forngrísku (attísku) í meginatriðum svo og undirstöðuatriði setningafræðinnar. Áhersla er lögð á að nemendur læri í námskeiðinu þau atriði sem þeir þurfa til að geta byrjað að lesa og þýða forngríska texta. Ekki er gert ráð fyrir neinni kunnáttu í grísku í upphafi námskeiðs en æskilegt er að nemendur hafi góðan skilning á íslenskri málfræði.

Fylgt verður 2. útg. kennslubókar Donalds J. Mastronarde. Lögð verður áhersla á meginatriði. Kennt verður tvisvar í viku. Kennslustundir innihalda bæði fyrirlestur sem tekur fyrir afmarkað efni og verkefnavinnu þar sem reynir á virkni nemenda. Valdir textar verða þýddir og skýrðir málfræðilega. Lestur námsefnisins fyrir hvern tíma er nauðsynlegt skilyrði þess að nemendur nái valdi á námsefninu. Hverjum fyrirlestri fylgja glósur kennara, sem settar verða á Canvas.

Námskeiðið er kennt á íslensku en nemendur sem þurfa geta fengið leyfi til að skila verkefnum og prófum í þessu námskeiði á ensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Inngangur að klassískum fræðum (KLM103G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er inngangur að klassískum fræðum eða fornfræði. Fjallað verður um sögu og þróun fræðigreinarinnar og helstu viðfangsefni hennar og aðferðir í nútímanum: Nemendum verður kynnt klassísk textafræði og hinar ýmsu greinar klassískra fræða og viðfangsefnum þeirra, svo sem sagnfræði, heimspeki og bókmenntir fornaldar. Auk þess verður fjallað um heimildavinnu og vinnulag í klassískum fræðum og þær venjur sem mótast hafa í greininni. Nemendum verða kynnt helstu stoðrit klassískra fræða og reynt verður að efla ratvísi þeirra um heim klassíkurinnar. Þekking á fornmálunum er ekki áskilin.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Heimspeki og hugmyndasaga menntunar (UME304G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur verði færir um að taka málefnalega afstöðu til hugmynda og aðferða í kennslu og uppeldi í fortíð og nútíð, og geti tekið þátt í gagnrýninni umræðu um skólamál og gert grein fyrir eigin hugmyndum um menntun og uppeldi.

Viðfangsefni:

Á námskeiðinu verður fjallað um uppeldis- og menntunarhugmyndir allt frá tímum Forn-Grikkja og fram á okkar daga. Áhersluatriði í kennslunni eru eftirfarandi:

1. Maðurinn: Skynsemi, skilningur og siðvit
Fjallað verður um mannskilning á ólíkum tímum. Hvernig hugmyndir hugsuða um eðli mannsins höfðu áhrif á hugmyndir hvers tíma um uppeldi og menntun.

2. Markmið menntunar
Fjallað verður um markmið menntunar og forsendur þessara markmiða á hverjum tíma s.s að tileinka sér dygð, að uppfylla hlutverk sitt í samfélaginu, verða meiri maður, að axla ábyrgð í samfélagi, að verða virkur þátttakandi í lýðræðissamfélagi, að tileinka sér sjálfstæða og gagnrýna hugsun.

3. Frelsi og lýðræði
Fjallað verður um áhrif hugmynda um frelsi og sjálfræði mannsins í lýðræðissamfélagi á hugmyndir um menntun. Sérstaklega verður hugað að áhrifamikilli hugmyndafræði í samtímanum sem lýtur að menntun til lýðræðis, borgaralegri menntun, skóla án aðgreiningar og jafnréttis til náms.

Meðal viðfangsefna námskeiðsins verða þekkingar-, stjórn-, og siðspeki Platons, hugmyndir Rousseau um frelsi og sjálfræði, hugmyndir Kants um skynsemi og upplýsingu og hugmyndir Wollstonecraft um jafnrétti. Einnig verður frelsishugtakið skoðað í ljósi kenninga E. Key, A.S. Neill og P. Freire. Fjallað verður ítarlega um kenningar John Dewey um menntun, gagnrýna hugsun og lýðræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Vor
Andlegt ferðalag: Úkraínsk og rússnesk heimspeki (RÚS413G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Heimspeki- og trúarhefð Austurkirkjunnar er ólík rómversk-kaþólskri hefð sem þróaðist með fræðaiðkun í klaustrum og háskólum á miðöldum var nátengd þeim straumum sem síðar leiddu til meiriháttar samfélagsbreytinga í vesturhluta Evrópu. Innan heims rétttrúnaðarkirknanna voru ítök nýplatonisma alltaf sterk og beindu trúarlegri hugsun í átt að upplifun og tjáningu frekar en að frumspekilegri greiningu. Helstu heimspekingar rétttrúnaðarkirkjunnar í Rússneska keisaradæminu á nítjándu öld voru hins vegar vel menntaðir í vestrænni heimspeki sem varð til þess að í lok þeirrar aldar og snemma á tuttugustu öld varð til einstök heimspekihefð sem byggði bæði á andlegri áherslu austurkirkjunnar og á skynsemishyggju vestursins. Í námskeiðinu er stiklað á stóru í þessari sögu hugmynda og helstu hugsuðum, úkraínskum jafnt sem rússneskum.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Óháð námsári | Vor
Kínversk trúarbrögð (KÍN614G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður hafist handa við að draga fram þau sérkenni kínverskra trúarbragða sem greina þau frá trúarbrögðum hinnar abrahamísku trúarhefðar. Megininntak námskeiðsins eru síðan þau trúarbrögð sem hafa orðið til innan kínverskrar menningarhefðar, þ.e. daoismi, kínverskur búddismi (m.a. chan 禪, tiantai 天台 og jingtu 淨土) og kínversk alþýðutrú undir konfúsíanískum áhrifum. Rýnt verður í nokkur grunnrit þessara trúarbragða í því skyni að átta sig á helstu kenningum þeirra en jafnframt litið til birtingarforma þeirra í samtímanum, helgiathafna og samfélagslegrar stöðu, jafnt í Alþýðulýðveldinu Kína, Tævan, Malasíu, Singapúr og víðar. Eftir því sem tími gefst til verður jafnframt vikið að nokkrum nýlegum trúarhreyfingum sem blanda saman ýmsum eldri kínverskum hefðum, t.d. Tiandi jiao 天帝, Falun gong 法輪功 og Cao Dai í Víetnam, og hugað að öðrum trúarbragðahefðum sem hafa tekið sér bólstað í Kína, þ.á.m. kristni og íslam.

Kennslutungumál: Íslenska
Óháð námsári | Vor
Latína II: Úrval latneskra texta (KLM201G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið tekur við af KLM101G Latínu I. Í námskeiðinu verður lesið úrval latneskra texta eftir ýmsa höfunda.

Kennt er á íslensku en nemendur sem þurfa geta fengið leyfi til að skila verkefnum og prófum í þessu námskeiði á ensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Forngríska II (KLM202G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið tekur við af KLM102G Forngrísku I. Í fyrri hluta námskeiðsins er haldið áfram með málfræði og setningafræði forngrísku (attísku) þar sem yfirferð lauk í Forngrísku I. Í síðari hluta námskeiðsins lesa nemendur úrval forngrískra texta frá ýmsum tímum og eftir ýmsa höfunda.

Kennsla fer þannig fram að fyrir hvern tíma er settur ákveðinn texti. Ætlast er til að nemendur lesi textann heima. Í tímanum er textinn þýddur og skýrður málfræðilega (og efnislega eftir atvikum).

Nemendur sem þurfa geta fengið leyfi til að skila verkefnum og prófum í þessu námskeiði á ensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Miðaldalatína (KLM203G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verða lesnir og þýddir valdir kaflar úr latneskum miðaldabókmenntum (allt frá lokum 4ðu aldar til loka þeirrar 15du) úr ýmsum áttum: fagurbókmenntum og sagnaritun, heimspeki og guðfræði. Textar verða skýrðir málfræðilega og ræddir efnislega eftir þörfum.

Námskeiðið er kennt á íslensku en nemendum, sem hafa annað móðurmál en íslensku, stendur til boða að ljúka verkefnum og prófum á ensku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Grískir og rómverskir sagnaritarar (KLM204G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um sagnaritun Forngrikkja og Rómverja, rekur upphaf hennar og þróun og ræðir umfang hennar, eðli, aðferðir og tilgang. Fjallað verður um höfunda á borð við Heródótos, Þúkýdídes, Xenofon, Pólýbíos, Cato, Sallustius, Livius, Plútarkos, Suetonius, Tacitus, Ammianus Marcellinus auk annarra. Lesið verður m.a. úr frumtextum í þýðingum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Menning og andóf (MFR703M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um samspil pólitískrar róttækni, menningar, hefðar og valds. Sérstaklega er hugað að birtingarmyndum andófs í samtímanum, orðræðu lýðræðis og menningarlegs mismunar og viðbrögðum við gagnrýni og andófi innan hefðar nútímastjórnmála. Fjallað er um þátt menntamanna og rithöfunda og vægi listrænnar tjáningar og hönnunar við umbreytingu félagslegs og menningarlegs umhvefis. Þá er fjölmiðlaorðræða skoðuð og greind og fjallað um hin ólíku og oft andstæðu markmið sem sjá má í starfsemi stofnana samfélagsins. Valdir eru nokkrir átakapunktar menningar- og samfélagsorðræðu sem draga fram grundvallartogstreitu frjálslyndra lýðræðissamfélaga, svo sem spurningar um visku eða fávisku almennings, viðbrögð við loftslagsbreytingum, óöfnuð og ofsafátækt. Loks er fjallað um spillingu og vald, félagslega og menningarlega tjáningu, möguleika og takmarkanir tjáningarfrelsis, notkun og misnotkun upplýsinga, leynd, fals og falsfréttir.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár
  • Haust
  • HSP103G
    Inngangur að heimspeki
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um spurninguna: „Hvað er heimspeki?“ og um tengsl heimspeki við vísindi, listir, trúarbrögð og stjórnmál. Lesnir verða textar eftir klassíska heimspekinga og samtímaheimspekinga í því augnamiði að skoða ólíkar aðferðir og vandamál heimspekinnar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP104G
    Fornaldarheimspeki
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Veitt verður yfirlit yfir heimspeki fornaldar, byggt á nákvæmum lestri frumtexta. Fjallað verður um frumherja grískrar heimspeki fram yfir daga Sókratesar, heimspeki Platons og Aristótelesar, sem og arftaka þeirra, efahyggjumenn, epikúringa og stóumenn. Meginmarkmið námskeiðsins er að veita yfirsýn yfir og skilning á þróun fornaldarheimspeki frá frumherjunum til síðfornaldar. Auk þess er námskeiðinu ætlað að kynna nemendum samhengi heimspekisögu og heimspekilegrar rökræðu og þjálfa þá í að lesa og greina heimspekirit liðins tíma. Að námskeiðinu loknu eiga nemendur að þekkja helstu tímabil og höfunda fornaldarheimspeki, sem og hugmyndir þeirra og röksemdir. Þeir ættu að geta gert grein fyrir skoðunum fornaldarheimspekinga, stutt greinargerðina tilvísunum í frumtexta og borið saman hugmyndir ólíkra heimspekinga. Auk þess ættu þeir að hafa skilning á mikilvægi heimspekisögu fyrir heimspekilega rökræðu, sögulegum uppruna sígildra heimspekilegra vandamála.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP105G
    Gagnrýnin hugsun
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu er ætlað að gera nemendum grein fyrir mikilvægi gagnrýninnar hugsunar með því að kynna helstu hugtök og aðferðir og mismunandi skilning á eðli og hlutverki hennar. Nemendur verða þjálfaðir í gagnrýninni hugsun eins og hún kemur fyrir í heimspeki og í daglegu lífi og starfi. Lögð er áhersla á að greina röksemdafærslur. Ítarlega verður farið í samband gagnrýninnar hugsunar og siðfræði.

    Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðutímum. Sérstök áhersla er lögð á umræður um raunhæf úrlausnarefni. Reynt verður að hafa verkefni eins hagnýt og kostur er og tengja þau sem flestum sviðum daglegrar reynslu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • HSP107G
    Stjórnmál og samfélag
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur kynnast sígildum kenningum og álitamálum í samtímaumræðu á sviði stjórnspeki og félagslegrar heimspeki og öðlast færni í rökræðu um skipan lýðræðissamfélagsins. Nemendur læra að greina lykilhugtök í heimspekilegri orðræðu um ríki og réttlátt samfélag og tengja við viðfangsefni stjórnmála með sérstakri vísan í íslenskt samfélag.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • Vor
  • HSP201G
    Rökfræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur öðlast grunnþekkingu í heimspekilegri og formlegri rökfræði. Áhersla er lögð á setningarökfræði (e. propositional logic, truth-functional logic) annars vegar og umsagnarökfræði (e. quantified logic, first-order logic) hins vegar. Einnig er farið stuttlega í óformlega rökfræði í upphafi námskeiðs, auk þess ræddar verða heimspekilegar spurningar um eðli og stöðu rökfræðinnar í lok námskeiðsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP202G
    Siðfræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Veitt verður yfirlit yfir þrjár af höfuðkenningum siðfræðinnar, reist á lestri frumtexta: kenningu Aristótelesar í Siðfræði hans, Johns Stuarts Mill í Nytjastefnunni og Immanuels Kant í Frumspeki siðlegrar breytni.

    Námskeiðið er 10 eininga inngangsnámskeið í II. hluta heimspekináms. Ætlast er til að það sé tekið á öðru misseri fyrsta námsárs í heimspeki. Námskeiðið getur verið valnámskeið fyrir nemendur í ýmsum öðrum greinum.

    Fluttir verða 2 x 12 fyrirlestrar. Lestur námsefnisins er nauðsynlegt skilyrði fyrir árangursríkri þátttöku í tímum. Hver fyrirlestur tekur fyrir afmarkað efni. Að loknum fyrirlestri verða glærur settar inn á heimasvæði námskeiðsins í Canvas.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP203G
    Nýaldarheimspeki
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni
    Námskeiðinu er ætlað að veita almennt yfirlit yfir strauma og stefnur í vestrænni heimspeki á 17. og 18. öld, kynna sérstaklega tiltekin viðfangsefni, kenningar og rökfærslur í þekkingarfræði og frumspeki þessa tímabils með nákvæmum lestri og samanburði valinna verka, einkum eftir Descartes, Hume og Kant, svo og að þjálfa nemendur í lestri, greiningu og túlkun heimspekirita.

    Kennsla
    Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðutímum. Í fyrirlestrum verður leitast við að gefa heildaryfirsýn yfir viðfangsefnið, setja verkin í samhengi og greina mikilvægustu kafla ritanna. Í umræðutímum verður rætt nánar um tiltekin efnisatriði, bókarkafla, rökfærslur eða spurningar sem vakna við lesturinn.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Haust
  • HSP318G
    Vísindaheimspeki
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verða teknar fyrir margar af helstu spurningum vísindaheimspekinnar á 20. og 21. öld. Hvernig eru vísindakenningar rökstuddar með tilraunum og athugunum?  Hvað eru náttúrulögmál? Hvers vegna ættum við að treysta vísindarannsóknum frekar en öðrum aðferðum við að afla okkur þekkingar? Eru vísindarannsóknir gildishlaðnar? Og hvað felst í því að segja að vísindin séu hlutlæg?

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP551M, HSP552M
    Málstofa: Máttur skynhrifa í heimspeki Luce Irigaray
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í ljósi fyrirbærafræði líkamans er ætlunin að skoða eðli sjálfshrifa í heimspeki Luce Irigaray og athuga hvernig skynhrifin gefa kost á hreyfingu handanverunnar sem eru frelsandi og umbreytandi. Skynhrifin grundvallast á kynjamismun, líkamleika og gerandavirkni, en stöðug víxlverkun okkar við heiminn leiðir af sér hinn merkingarbæra heim. Þá er ætlunin að skoða hina eðlislægu þrá mannsins og hið siðferðilega og fagurfræðilega inntak kynjamismunar sem miðar að því að yfirstíga skautun vestrænnar menningar. Loks verða verk Irigaray skoðuð í ljósi heimspeki Hegel´s um fyrirbærafræði andans og hugmynd Merleau-Ponty´s um hold heimsins sem og skrifa annarra heimspekinga og rithöfunda.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP551M, HSP552M
    Verkefni í málstofu: Máttur skynhrifa í heimspeki Luce Irigaray
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Verkefni í málstofu: Máttur skynhrifa í heimspeki Luce Irigaray. Nemendur þurfa að ljúka tengdri málstofu til að ljúka verkefninu

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP549M, HSP550M
    Málstofa: Dulspeki miðalda mætir ferlisheimspeki
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið sameinar heimsmyndir og mannfræðikenningar sem virðast mjög ólíkar: hugsun klassískra þýskra dulspekinga eins og Meister Eckhart og Jakobs Boehme, sem höfðu djúpstæð áhrif á þýska heimspeki (t.d. Hegel, Schelling), og samtíma ferlisheimspeki eins og kenningar Alfred North Whitehead og Eugene Gendlin. Þrátt fyrir að vera að mörgu leyti ólíkar kenningar er viss samhljómur í þessum hugmyndir sem býður upp á nýja túlkunarmöguleika. Þær fjalla um hugtök eins og samsköpun, siðferðilega kunnáttu og opinn verufræðilegan skilning a heiminum. Mannfólk gegnir lykilhlutverki—ekki sem  gerendur sem þrýsta fram markmiðum sínum, heldur með umbreytingarmætti sínum. Við munum kanna fræðileg umgjörð hvorrar hefðar um sig: dulspekilegu hefðina, sem notar kristið orðfæri en endurtúlkar það á róttækan hátt, og ferilsheimspeki, sem tekur til sín og útfærir flækjustig opins og gagnvirks heims. Vinna með textana mun felast í nákvæmri lestri, umræðum og heimspekilegum æfingum sem spretta af þessum hefðum. Við munum takast á við textana með ítarlegum lestri, umræðum og heimspekilegum æfingum spretta af þessum hefðum

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP549M, HSP550M
    Verkefni í málstofu: Dulspeki miðalda mætir ferlisheimspeki
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Verkefni í málstofu: Dulspeki miðalda mætir ferlisheimspeki. Nemendur þurfa að ljúka tengdri málstofu til að ljúka verkefninu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP310G
    Listheimspeki
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu er ætlað að veita stutt yfirlit yfir nokkur sígild viðfangsefni í heimspeki listarinnar; að kynna sérstaklega tilteknar spurningar, kenningar og rökfærslur á sviði listheimspeki með lestri valinna texta, bæði sögulegra og samtímalegra; og að þjálfa nemendur í greiningu og umræðu um listheimspekileg efni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP321G
    Hugmyndasaga 19. og 20. aldar
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði eru hugmyndir sem höfðu grundvallaráhrif á vestræna heimspeki og hugmyndahefðir skoðaðar út frá 19. og 20. öldinni. Um er að ræða þær hugmyndir sem ollu samfélagsbreytingum á borð við frelsi, veraldarhyggju, jafnrétti, andóf, samband einstaklings og samfélags, hugmyndir um tilvist og sál, kúgun, misrétti, ríki sem og kapítalisma. Síðast og ekki síst verða skoðaðar hugmyndir um söguna, tímann og þróun mannkyns og plánetu. 

    Í hverri viku fyrir sig er tekin fyrir nýr hugsuður eða ný hugmynd sem olli straumhvörfum í vestrænni hugmyndasögu. Hugsuðir á borð við G.W.F. Hegel, Karl Marx, Sigmund Freud, Rosu Luxembourg og Emmu Goldman verða teknir fyrir og áhrifamiklar stefnur á borð við fyrirbærafræði, nýfrjálshyggju eða póststrúktúralisma.

    Markmiðið er að lesa verk þessara höfunda eða stefna út frá þeim tíðaranda sem verkin spruttu úr hverju sinni (að svo miklu leyti sem við fólk á 21. öldinni getum lesið tíðaranda eldri tíma). Á sama tíma er markmiðið að lesa djúpt frumtexta til þess að öðlast margvíðan skilning á hugmyndunum. Mikilvægt stef námskeiðsins er einnig að hugsa um þessar hugmyndir út frá samtímanum og þeim álitaefnum sem eru í deiglunni hverju sinni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KÍN502G
    Ferlið og dygðin – Bókin um veginn – Daodejing – ritskýring
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður hið sígilda og áhrifamikla heimspeki- og trúarrit Daodejing lesið kafla fyrir kafla með það fyrir augum að gera grein fyrir inntaki textans í ljósi heimspekilegra og trúarlegra kenninga daoismans. Stuðst verður einkum við tvímála þýðingu Ragnars Baldurssonar sem nefnist á íslensku Ferlið og dygðin en jafnframt leitað fanga í öðrum erlendum þýðingum, túlkunum og skýringarritum. Kunnátta í kínversku ritmáli er kostur en ekki skilyrði fyrir þátttöku í námskeiðinu.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP304G
    Þekkingarfræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu munum við spyrja um eðli þekkingar og glíma við ýmsar gátur sem tengjast þekkingu. Af hverju skiptir þekking máli? Er skilningur mikilvægari en þekking? Hver er munurinn á þekkingu og sannri skoðun? Hvers konar rökstuðning þarf til að breyta sannri skoðun í þekkingu? Getum við rannsakað þekkingu eins og meltingu, þ.e. með náttúruvísindalegum aðferðum, eða getum við bara rannsakað hana innan frá, þ.e. með því að skoða okkar eigin vitund? Getum við treyst skoðunum annarra? Hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að fólk njóti sannmælis, óháð kyni, kynþætti, aldri, kynhneigð o.s.frv.? Við lesum fyrst og fremst texta frá 20. og 21. öld og nemendur þjálfast í að beita aðferðafræði rökgreiningarheimspeki við að lesa og rýna heimspekilega texta.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • HSP450M, HSP451M
    Málstofa gistikennara: Þættir í loftslagssiðfræði
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um heimspekileg og siðferðileg álitamál sem tengjast loftslagsbreytingum. Sum þessara álitamála varða ákvarðanir einstaklinga. Við munum til dæmis skoða hvaða skyldur loftslagsbreytingar leggja á herðar einstaklingum og hvort kolefnisjöfnun geti verið leið til að uppfylla þessar skyldur. Aðal áherslan verður þó á stefnumótun stjórnvalda í loftslagsmálum. Við munum meðal annars ræða hvernig meta megi loftslagsstefnur í ljósi þeirrar miklu óvissu sem ríkir t.d. um efnahagsleg og félagsleg áhrif loftslagsbreytinga, og hvernig takast megi á við þá hagsmunaárekstra milli kynslóða sem slík stefnumótun felur í sér. Einnig verður fjallað nánar um tilteknar stefnu- og aðgerðatillögur, svo sem „geoengineering“ og alþjóðlegan loftslagsbanka.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP450M, HSP451M
    Verkefni í málstofu gistikennara: Þættir í loftslagssiðfræði
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Verkefni í málstofu: Þættir í loftslagssiðfræði. Nemendur þurfa að ljúka tengdri málstofu til að ljúka verkefninu

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP539M, HSP540M
    Málstofa: Mennska og afmennskun
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Vangaveltur um mennskuna eru mannfólkinu hugleiknar, hvort sem við köllum það eðli mannsins, merkingu þess að vera manneskja, eða eitthvað annað. Í krafti mennskunnar teljum við okkur eiga tilkall til mannréttinda þannig að mennska getur verið normatíft, eða siðferðilegt, hugtak. Á hinn bóginn getur afmennskun haft hörmulegar afleiðingar, þegar jaðarsettum einstaklingum eða hópum er neitað um fullan aðgang að samfélagi manna, og kúgun og ofbeldi hafa verið réttlætt á þeim forsendum.  Í þessar málstofu verða skoðaðar ýmsar mögulegar skilgreiningar bæði á mennsku og afmennskun, kenningar þar að lútandi og mismunandi nálganir. Þótt leitað verði fanga á mismunandi tímabilum í heimspekisögunni verður megináherslan á efni frá undanförnum áratugum og það sett í samhengi við málefni líðandi stundar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP539M, HSP540M
    Verkefni í málstofu: Mennska og afmennskun
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Verkefni í málstofu: Mennska og afmennskun. Nemendur þurfa að ljúka tengdri málstofu til að ljúka verkefninu

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP410G
    Heimspeki og kvikmyndir
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu munum við bæði skoða heimspekilegar spurningar um bíómyndir (Hvað er bíómynd? Eru til hlutlægir mælikvarðar á ágæti bíómynda?) og einnig skoða heimspekilegar spurningar sem velt er upp í bíómyndum (Hvað er raunverulegt? Hvað er hjónaband?).

    Námskeiðið er kennt á ensku.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP823M
    Heilbrigðis- og lífssiðfræði
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um nokkur helstu álitamál á sviði lífsiðfræði á síðustu árum, einkum í tengslum við þróun á sviði erfðavísinda og erfðarannsókna og hugsanleg áhrif þeirra á heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstefnu.

    Námskeiðið verður kennt samþjappað frá 2.–25. mars. Fyrirlestrar eru á þriðjudögum og fimmtudögum 15–17:20. 

    Í lok námskeiðsins verður haldin málstofa með framsögum nemenda og verður tilhögun hennar ákveðin í samráði við nemendur. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP416G
    Frumspeki

  • INT007M
    Austur-asísk heimspeki menntunar, kennslufræði og uppeldisfræði A: konfúsíanismi og daoismi
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Inntak námskeiðsins eru grundvallarhugmyndir í kínverskri menntaheimspeki, kennslufræði og uppeldisfræði með megináherslu á konfúsíanisma en einnig verður vikið að viðbrögðum við henni úr röðum daoisma. Gerð verður grein fyrir konfúsíanískum hugmyndum um menntun, uppeldissálfræði og sjálfsrækt sem fram koma í Speki Konfúsíusar (Lunyu 論語, e. Analects). Síðan verður vikið að völdum köflum í öðrum grundvallarritum konfúsíanisma á borð við Zhongyong (中庸e. Doctrine of the Mean/Focusing the Familiar), Daxue (大學e. The Great Learning), Xueji (學記e. Records of Learning/On Teaching and Learning), Mengzi 孟子 og Xunzi 荀子. Grundvallarhugtök konfúsíanískrar menntaheimspeki, uppeldisfræði og kennslufræði verða kynnt til sögunnar og þau útskýrð, þ.á m. jiao 教 (kennsla), xue 學 (að læra, að líkja eftir, að taka sér til fyrirmyndar), xiuji 修己 og xiushen 修身 (sjálfsrækt), li 禮 (helgiathafnir, siðir), xing 性 (náttúrulegar tilhneigingar, mannlegt eðli) og junzi 君子 (fyrirmyndarpersóna), auk annarra. Í því samhengi verður hugað vel að vægi fyrirmynda í konfúsíanískri kennslu- og uppeldisfræði sem og kennsluaðferðum, t.d. eins og þær eru kynntar í ritinu Xueji. Eftir því sem tími gefst verður vikið að viðbrögðum við þessum hugmyndum frá hugsuðum sem kenndir eru við daoisma, einkum höfunda Bókarinnar um veginn/Ferlisins og dygðarinnar (Daodejing 道德經) og Zhuangzi 莊子. Þeir töldu kennslufræði konfúsíanismans leiða til kredduhyggju og hræsni og lögðu til annars konar lærdóm eða sjálfsrækt sem væri sjálfstæðari frá samfélagslegum gildum og byggði fremur á „heimsrásinni“ eða „vegi veraldarinnar“, þ.e. heimsfræðilegum tilhneigingum náttúrunnar. Í því samhengi setja þeir fram „metaheimspekilegar“ hugmyndir á borð við það að „aflæra“ og „draga úr sjálfinu“. Í stað þess að læra af fornritum siðmenningarinnar leggja þeir áherslu á að aðlaga sig náttúrunni og athafna sig með háttum sem þeir kenna við ziran 自然 (sjálfkrafa) og wuwei 無爲 (ógjörð, óþvinguð athöfn).

    Markmið
    Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum innsýn í kínverska heimspeki og menningu fyrri tíma, einkum uppeldis- og kennslufræðilegar forsendur hennar eins og þær birtast í Konfúsínisma og í gagnrýni daoisma á þá heimspeki. Einnig er stefnt að því að nemendur öðlist skilning á því hvaða félagslegu og einstaklingsbundnu þættir felast í menntun og sjálfsrækt. Í þessu samhengi verður einnig hugað að því hvað gerist þegar menntun nær ekki markmiðum sínum, hvort hún geti verið óæskileg og jafnvel hættuleg. Leitast verður við að setja efnið í samhengi við samtímahugmyndir um menntun og kennslufræði.

    Nálgun og námsefni
    Stuðst er að mestu við heimspekilega frumtexta sem taldir eru upp í námslýsingu. Stúdentar geta nýtt sér hvaða þýðingu sem er á þessum grundvallarritum (á ensku eða öðrum málum). Á vefnum ctext.org má finna alla þessa texta í enskri þýðingu en kennari mun láta stúdentum aðrar útgáfur í té. Einnig verður stuðst við bókina Confucian Philosophy for Contemporary Education eftir Charlene Tan (Routledge 2020). Engar forkröfur eru gerðar til þekkingar á kínverskri heimspeki.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP725M
    Verkefni tengt siðfræði náttúrunnar
    Bundið valnámskeið
    4
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Verkefni tengt námskeiðinu HSP722M Siðfræði náttúrunnar.

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP261L
    BA-ritgerð í heimspeki
    Bundið valnámskeið
    0
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    BA-ritgerð í heimspeki er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið heimspekilegt viðfangsefni eða verk heimspekings og að setja niðurstöður sínar fram í rituðu máli með fræðilega viðurkenndum hætti. Nemandi skrifar ritgerðina í samráði við einn leiðbeinanda úr hópi fastra kennara í heimspeki.

    Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst. Lokaritgerð er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, vinna úr heimildum, svo og til að nota fræðileg hjálpargögn (t.d. handbækur, orðabækur eða sambærilegar vefsíður).

    Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands [hlekkur: https://ritver.hi.is/is] sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.

    Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar https://gervigreind.hi.is/

    Nánari upplýsingar og leiðbeiningar er að finna á síðu Deildar heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði um lokaverkefni og ritgerðir í Uglu.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • HSP722M
    Siðfræði náttúrunnar
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um samband manns og náttúru frá heimspekilegu sjónarhorni. Fjallað er um helstu frumkvöðla náttúrusiðfræðinnar og áhrifamestu kenningar sem settar hafa verið fram. Gerð grein fyrir ólíkri náttúrusýn manna og mismunandi grunnafstöðum til náttúrunnar - þ.e. mannhverfri, visthverfri og lífhverfri afstöðu. Einnig fjallað um tengsl umhverfis- og þróunarmála og tengsl umhverfishyggju og lýðræðisþróunar. Rætt um álitaefni eins og: Getur siðfræðin nýst við lausn umhverfisvandamála?, Hvers konar verur hafa siðferðisstöðu?, Geta náttúrleg fyrirbæri búið yfir eigingildi?, Hafa dýr einhver réttindi?, Er einhver grundvallarmunur á (af)stöðu karla og kvenna gagnvart náttúrunni?, og Hvert er siðferðilegt inntak sjálfbærrar þróunar?

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP723M
    Siðferðileg álitamál samtímans
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Áleitin siðferðileg úrlausnarefni ofarlega á baugi í nútímasamfélagi eru meginviðfangsefni þessa námskeiðs. Sjónum er beint að möguleikum siðfræðinnar á að takast á við klemmur sem upp koma, jafnt í lífi einstaklinga sem á samfélagsgrundvelli. Val á viðfangsefnum getur breyst milli ára en meðal mögulegra viðfangsefna námskeiðsins má nefna tjáningarfrelsi, stöðu flóttafólks, réttindi dýra, fátækt og ójöfnuð, kynjamisrétti, kynþáttamisrétti, umhverfismál og ýmis álitamál úr heilbrigðiskerfinu. Farið er í tengsl fræðilegrar og hagnýttrar siðfræði. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum með ríkri áherslu á virka þátttöku nemenda í umræðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • HSP450M, HSP451M
    Málstofa gistikennara: Þættir í loftslagssiðfræði
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um heimspekileg og siðferðileg álitamál sem tengjast loftslagsbreytingum. Sum þessara álitamála varða ákvarðanir einstaklinga. Við munum til dæmis skoða hvaða skyldur loftslagsbreytingar leggja á herðar einstaklingum og hvort kolefnisjöfnun geti verið leið til að uppfylla þessar skyldur. Aðal áherslan verður þó á stefnumótun stjórnvalda í loftslagsmálum. Við munum meðal annars ræða hvernig meta megi loftslagsstefnur í ljósi þeirrar miklu óvissu sem ríkir t.d. um efnahagsleg og félagsleg áhrif loftslagsbreytinga, og hvernig takast megi á við þá hagsmunaárekstra milli kynslóða sem slík stefnumótun felur í sér. Einnig verður fjallað nánar um tilteknar stefnu- og aðgerðatillögur, svo sem „geoengineering“ og alþjóðlegan loftslagsbanka.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP450M, HSP451M
    Verkefni í málstofu gistikennara: Þættir í loftslagssiðfræði
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Verkefni í málstofu: Þættir í loftslagssiðfræði. Nemendur þurfa að ljúka tengdri málstofu til að ljúka verkefninu

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP539M, HSP540M
    Málstofa: Mennska og afmennskun
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Vangaveltur um mennskuna eru mannfólkinu hugleiknar, hvort sem við köllum það eðli mannsins, merkingu þess að vera manneskja, eða eitthvað annað. Í krafti mennskunnar teljum við okkur eiga tilkall til mannréttinda þannig að mennska getur verið normatíft, eða siðferðilegt, hugtak. Á hinn bóginn getur afmennskun haft hörmulegar afleiðingar, þegar jaðarsettum einstaklingum eða hópum er neitað um fullan aðgang að samfélagi manna, og kúgun og ofbeldi hafa verið réttlætt á þeim forsendum.  Í þessar málstofu verða skoðaðar ýmsar mögulegar skilgreiningar bæði á mennsku og afmennskun, kenningar þar að lútandi og mismunandi nálganir. Þótt leitað verði fanga á mismunandi tímabilum í heimspekisögunni verður megináherslan á efni frá undanförnum áratugum og það sett í samhengi við málefni líðandi stundar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP539M, HSP540M
    Verkefni í málstofu: Mennska og afmennskun
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Verkefni í málstofu: Mennska og afmennskun. Nemendur þurfa að ljúka tengdri málstofu til að ljúka verkefninu

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP410G
    Heimspeki og kvikmyndir
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu munum við bæði skoða heimspekilegar spurningar um bíómyndir (Hvað er bíómynd? Eru til hlutlægir mælikvarðar á ágæti bíómynda?) og einnig skoða heimspekilegar spurningar sem velt er upp í bíómyndum (Hvað er raunverulegt? Hvað er hjónaband?).

    Námskeiðið er kennt á ensku.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP823M
    Heilbrigðis- og lífssiðfræði
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um nokkur helstu álitamál á sviði lífsiðfræði á síðustu árum, einkum í tengslum við þróun á sviði erfðavísinda og erfðarannsókna og hugsanleg áhrif þeirra á heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstefnu.

    Námskeiðið verður kennt samþjappað frá 2.–25. mars. Fyrirlestrar eru á þriðjudögum og fimmtudögum 15–17:20. 

    Í lok námskeiðsins verður haldin málstofa með framsögum nemenda og verður tilhögun hennar ákveðin í samráði við nemendur. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SAG817M
    Þættir úr sögu og heimspeki vísindanna
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið: Að kynna nemendum þróun vísinda og eðli með því að rekja dæmi úr vísindasögunni og nýleg viðhorf til vísinda og sögu þeirra. Að þjálfa nemendur í erindaflutningi og ritgerðasmíð um fræðileg efni á íslensku. -- Námsefni: Saga stjörnufræði og heimsmyndar fram yfir byltingu Kópernikusar og Newtons. Saga þróunarkenningarinnar. Nýleg viðhorf sem varða eðli, markmið og þróun vísinda, vísindi og samfélag. -- Hver nemandi flytur erindi á umræðufundi um efni, sem valið er í samráði við kennara, og skilar ritgerð í lok misseris. Áhersla er lögð á að þjálfa nemendur í að vinna með heimildir. Námsefni getur breyst með hliðsjón af nemendahópi, kennurum og öðrum aðstæðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP261L
    BA-ritgerð í heimspeki
    Bundið valnámskeið
    0
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    BA-ritgerð í heimspeki er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið heimspekilegt viðfangsefni eða verk heimspekings og að setja niðurstöður sínar fram í rituðu máli með fræðilega viðurkenndum hætti. Nemandi skrifar ritgerðina í samráði við einn leiðbeinanda úr hópi fastra kennara í heimspeki.

    Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst. Lokaritgerð er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, vinna úr heimildum, svo og til að nota fræðileg hjálpargögn (t.d. handbækur, orðabækur eða sambærilegar vefsíður).

    Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands [hlekkur: https://ritver.hi.is/is] sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.

    Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar https://gervigreind.hi.is/

    Nánari upplýsingar og leiðbeiningar er að finna á síðu Deildar heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði um lokaverkefni og ritgerðir í Uglu.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • Haust
  • MFR715M
    Skapandi gervigreind: Um áhrif gervigreindar á skapandi vinnu
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um tengslin á milli gervigreindar og skapandi starfa sem taka örum breytingum. Áhersla er lögð á listrænar, heimspekilegar, siðfræðilegar, félagslegar og menningarlegar víddir sköpunar sem knúin er áfram af gervigreind. Byggt er á aðferðum hugvísinda og horft til sköpunafræða. Í námskeiðinu leitast nemendur við að skilja og leggja gagnrýnið mat á hvernig gervigreind er að endurmóta hefðbundinn skilning á sköpun, höfundarverki og listrænni framleiðslu í heild sinni. Eftir að lykilhugtök sköpunarfræða hafa verið kynnt til sögunnar færist áherslan á önnur leiðarstef, svo sem hvernig gervigreind getur sett sjálfvirkni inn í skapandi vinnu, áhrif gervigreindar á spurningar sem varða eignarhald á hugverkum og höfundarrétt ásamt siðferðilegum vanda sem kemur upp í tengslum við menningarlega yfirtöku á tímum stafrænnar tækni. Nemendur munu ræða um togstreituna á milli gervigreindariðnaðarins og stórgagnavinnslu sem hann gerir mögulega annars vegar og skapandi vinnu með smærri gagnasöfn hins vegar og afleiðingar hennar fyrir listrænar nýjungar og frumlega hugsun. Með raunhæfum æfingum og umræðu um áþreifanleg dæmi munu nemendur kynna sér ólíkar tegundir sköpunar, rannsaka tæknilegt umhverfi gervigreindar og öðlast hagnýta reynslu við að nýta gervigreind til skapandi verkefna. Námskeiðið tengir helstu kenningar samtímans um sköpun við gagnrýna greiningu á gervigreind, sem knýr nemendur til að hugsa upp á nýtt um mörk mannlegrar og vélrænnar sköpunar. Námsmat byggir á skapandi vinnudagbókum sem nemendur halda á meðan á námskeiðinu stendur. Sömuleiðis er gert ráð fyrir virkri þátttöku í tímum ásamt tímafyrirlestri þar sem kynnt verður stutt ritgerð.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KLM115G
    Heimur Forngrikkja: Saga og samfélag
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Raktir verða þættir úr sögu Forngrikkja, með áherslu á menningu þeirra og hugmyndaheim frá upphafi til yfirráða Rómar. Lesnir verða valdir kaflar úr bókmenntaverkum þeirra í þýðingum.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KLM101G
    Latína I: Byrjendanámskeið
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er 10 eininga inngangsnámskeið í latínu ætlað byrjendum. Ekki er gert ráð fyrir kunnáttu í latínu við upphaf námskeiðs en æskilegt er að nemendur hafi góðan skilning á íslenskri málfræði. Farið er yfir beygingafræði latínunnar svo og undirstöðuatriði setningafræðinnar. Stuttir leskaflar og málfræðiæfingar.

    Námskeiðið er kennt á íslensku en nemendur sem þurfa geta fengið leyfi til að skila verkefnum og prófum í þessu námskeiði á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KLM102G
    Forngríska I: Byrjendanámskeið
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður farið yfir beygingarfræði forngrísku (attísku) í meginatriðum svo og undirstöðuatriði setningafræðinnar. Áhersla er lögð á að nemendur læri í námskeiðinu þau atriði sem þeir þurfa til að geta byrjað að lesa og þýða forngríska texta. Ekki er gert ráð fyrir neinni kunnáttu í grísku í upphafi námskeiðs en æskilegt er að nemendur hafi góðan skilning á íslenskri málfræði.

    Fylgt verður 2. útg. kennslubókar Donalds J. Mastronarde. Lögð verður áhersla á meginatriði. Kennt verður tvisvar í viku. Kennslustundir innihalda bæði fyrirlestur sem tekur fyrir afmarkað efni og verkefnavinnu þar sem reynir á virkni nemenda. Valdir textar verða þýddir og skýrðir málfræðilega. Lestur námsefnisins fyrir hvern tíma er nauðsynlegt skilyrði þess að nemendur nái valdi á námsefninu. Hverjum fyrirlestri fylgja glósur kennara, sem settar verða á Canvas.

    Námskeiðið er kennt á íslensku en nemendur sem þurfa geta fengið leyfi til að skila verkefnum og prófum í þessu námskeiði á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    KLM103G
    Inngangur að klassískum fræðum
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er inngangur að klassískum fræðum eða fornfræði. Fjallað verður um sögu og þróun fræðigreinarinnar og helstu viðfangsefni hennar og aðferðir í nútímanum: Nemendum verður kynnt klassísk textafræði og hinar ýmsu greinar klassískra fræða og viðfangsefnum þeirra, svo sem sagnfræði, heimspeki og bókmenntir fornaldar. Auk þess verður fjallað um heimildavinnu og vinnulag í klassískum fræðum og þær venjur sem mótast hafa í greininni. Nemendum verða kynnt helstu stoðrit klassískra fræða og reynt verður að efla ratvísi þeirra um heim klassíkurinnar. Þekking á fornmálunum er ekki áskilin.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • UME304G
    Heimspeki og hugmyndasaga menntunar
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur verði færir um að taka málefnalega afstöðu til hugmynda og aðferða í kennslu og uppeldi í fortíð og nútíð, og geti tekið þátt í gagnrýninni umræðu um skólamál og gert grein fyrir eigin hugmyndum um menntun og uppeldi.

    Viðfangsefni:

    Á námskeiðinu verður fjallað um uppeldis- og menntunarhugmyndir allt frá tímum Forn-Grikkja og fram á okkar daga. Áhersluatriði í kennslunni eru eftirfarandi:

    1. Maðurinn: Skynsemi, skilningur og siðvit
    Fjallað verður um mannskilning á ólíkum tímum. Hvernig hugmyndir hugsuða um eðli mannsins höfðu áhrif á hugmyndir hvers tíma um uppeldi og menntun.

    2. Markmið menntunar
    Fjallað verður um markmið menntunar og forsendur þessara markmiða á hverjum tíma s.s að tileinka sér dygð, að uppfylla hlutverk sitt í samfélaginu, verða meiri maður, að axla ábyrgð í samfélagi, að verða virkur þátttakandi í lýðræðissamfélagi, að tileinka sér sjálfstæða og gagnrýna hugsun.

    3. Frelsi og lýðræði
    Fjallað verður um áhrif hugmynda um frelsi og sjálfræði mannsins í lýðræðissamfélagi á hugmyndir um menntun. Sérstaklega verður hugað að áhrifamikilli hugmyndafræði í samtímanum sem lýtur að menntun til lýðræðis, borgaralegri menntun, skóla án aðgreiningar og jafnréttis til náms.

    Meðal viðfangsefna námskeiðsins verða þekkingar-, stjórn-, og siðspeki Platons, hugmyndir Rousseau um frelsi og sjálfræði, hugmyndir Kants um skynsemi og upplýsingu og hugmyndir Wollstonecraft um jafnrétti. Einnig verður frelsishugtakið skoðað í ljósi kenninga E. Key, A.S. Neill og P. Freire. Fjallað verður ítarlega um kenningar John Dewey um menntun, gagnrýna hugsun og lýðræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • RÚS413G
    Andlegt ferðalag: Úkraínsk og rússnesk heimspeki
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Heimspeki- og trúarhefð Austurkirkjunnar er ólík rómversk-kaþólskri hefð sem þróaðist með fræðaiðkun í klaustrum og háskólum á miðöldum var nátengd þeim straumum sem síðar leiddu til meiriháttar samfélagsbreytinga í vesturhluta Evrópu. Innan heims rétttrúnaðarkirknanna voru ítök nýplatonisma alltaf sterk og beindu trúarlegri hugsun í átt að upplifun og tjáningu frekar en að frumspekilegri greiningu. Helstu heimspekingar rétttrúnaðarkirkjunnar í Rússneska keisaradæminu á nítjándu öld voru hins vegar vel menntaðir í vestrænni heimspeki sem varð til þess að í lok þeirrar aldar og snemma á tuttugustu öld varð til einstök heimspekihefð sem byggði bæði á andlegri áherslu austurkirkjunnar og á skynsemishyggju vestursins. Í námskeiðinu er stiklað á stóru í þessari sögu hugmynda og helstu hugsuðum, úkraínskum jafnt sem rússneskum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • KÍN614G
    Kínversk trúarbrögð
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður hafist handa við að draga fram þau sérkenni kínverskra trúarbragða sem greina þau frá trúarbrögðum hinnar abrahamísku trúarhefðar. Megininntak námskeiðsins eru síðan þau trúarbrögð sem hafa orðið til innan kínverskrar menningarhefðar, þ.e. daoismi, kínverskur búddismi (m.a. chan 禪, tiantai 天台 og jingtu 淨土) og kínversk alþýðutrú undir konfúsíanískum áhrifum. Rýnt verður í nokkur grunnrit þessara trúarbragða í því skyni að átta sig á helstu kenningum þeirra en jafnframt litið til birtingarforma þeirra í samtímanum, helgiathafna og samfélagslegrar stöðu, jafnt í Alþýðulýðveldinu Kína, Tævan, Malasíu, Singapúr og víðar. Eftir því sem tími gefst til verður jafnframt vikið að nokkrum nýlegum trúarhreyfingum sem blanda saman ýmsum eldri kínverskum hefðum, t.d. Tiandi jiao 天帝, Falun gong 法輪功 og Cao Dai í Víetnam, og hugað að öðrum trúarbragðahefðum sem hafa tekið sér bólstað í Kína, þ.á.m. kristni og íslam.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KLM201G
    Latína II: Úrval latneskra texta
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið tekur við af KLM101G Latínu I. Í námskeiðinu verður lesið úrval latneskra texta eftir ýmsa höfunda.

    Kennt er á íslensku en nemendur sem þurfa geta fengið leyfi til að skila verkefnum og prófum í þessu námskeiði á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KLM202G
    Forngríska II
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið tekur við af KLM102G Forngrísku I. Í fyrri hluta námskeiðsins er haldið áfram með málfræði og setningafræði forngrísku (attísku) þar sem yfirferð lauk í Forngrísku I. Í síðari hluta námskeiðsins lesa nemendur úrval forngrískra texta frá ýmsum tímum og eftir ýmsa höfunda.

    Kennsla fer þannig fram að fyrir hvern tíma er settur ákveðinn texti. Ætlast er til að nemendur lesi textann heima. Í tímanum er textinn þýddur og skýrður málfræðilega (og efnislega eftir atvikum).

    Nemendur sem þurfa geta fengið leyfi til að skila verkefnum og prófum í þessu námskeiði á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KLM203G
    Miðaldalatína
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verða lesnir og þýddir valdir kaflar úr latneskum miðaldabókmenntum (allt frá lokum 4ðu aldar til loka þeirrar 15du) úr ýmsum áttum: fagurbókmenntum og sagnaritun, heimspeki og guðfræði. Textar verða skýrðir málfræðilega og ræddir efnislega eftir þörfum.

    Námskeiðið er kennt á íslensku en nemendum, sem hafa annað móðurmál en íslensku, stendur til boða að ljúka verkefnum og prófum á ensku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KLM204G
    Grískir og rómverskir sagnaritarar
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um sagnaritun Forngrikkja og Rómverja, rekur upphaf hennar og þróun og ræðir umfang hennar, eðli, aðferðir og tilgang. Fjallað verður um höfunda á borð við Heródótos, Þúkýdídes, Xenofon, Pólýbíos, Cato, Sallustius, Livius, Plútarkos, Suetonius, Tacitus, Ammianus Marcellinus auk annarra. Lesið verður m.a. úr frumtextum í þýðingum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MFR703M
    Menning og andóf

Annað ár

Þriðja ár

Óháð námsári

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Eftir BA-próf má læra heimspeki, heimspekikennslu og hagnýta siðfræði til MA-prófs. Eftir MA-próf má, að vissum skilyrðum uppfylltum, leggja stund á doktorsnám (PhD). MA-nám tekur að jafnaði tvö ár, doktorsnám þrjú til fjögur ár.

Heimspekin er að mörgu leyti persónulegri en aðrar fræðigreinar. Nemendur sem lagt hafa stund á heimspeki við Háskóla Íslands hafa haslað sér völl á fjölmörgum sviðum þjóðlífsins.

Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við:

  • Ritstörf
  • Fjölmiðla
  • Blaðamennsku
  • Mennta- og menningarstofnanir
  • Einkafyrirtæki
  • Stjórnmál

Listinn er ekki tæmandi.

Meira um félagslíf stúdenta í Hí

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Andrési Inga Jónssyni
Ég tók BA-próf í heimspeki við HÍ og hélt síðan náminu áfram í tvö ár við þýska háskóla. Eitt af því sem er rauður þráður í gegnum námið er æfing í að kynna sér ólíka afstöðu fólks til álitaefna, greina þá afstöðu með gagnrýnum hætti og mynda sér skoðun á þeim rökum sem liggja til grundvallar. Þetta einfalda verkfæri, kjarninn í gagnrýnni hugsun, hefur fylgt mér alla tíð síðan og hjálpað mér að skilja heiminn - hvort sem er í störfum mínum sem blaðamaður fljótlega eftir útskrift eða innan stjórnmálanna undanfarin ár. Svo er merkilegt hvernig sum verkefni fylgja manni árum saman, eins og t.d. að ég hafi greint orðræðu um aðskilnað ríkis og kirkju í BA-ritgerðinni minni fyrir 16 árum og sé í dag að sjálfur taka þátt í þeirri umræðu á vettvangi þingsins.
Ljósmynd af Guðrúnu Evu Mínervudóttur
Nám í heimspeki við Háskóla Íslands er sönn menntun. Fullorðins. En sönn menntun veitir ekki einungis einhverja takmarkaða færni, heldur víkkar hugann og gerir okkur betur í stakk búin til að halda menntuninni áfram á eigin vegum eftir að formlegu námi er lokið. Ég fæ seint fullþakkað þeim kennurum og prófessorum sem gáfu af viskubrunnum sínum á þeim árum sem ég var nemandi við HÍ.
Ljósmynd af Tinnu Jóhannsdóttur
Í heimspekinni lærði ég að hugsa. Með lestri, samtali, hlustun og leiðsögn frábærra heimspekinga við skólann lærði ég að efast og ég lærði að skilja og ég kynntist kjarnanum í sjálfri mér. Það hefur tekið mig áratugi að byggja upp stöðugt og áreiðanlegt samband við þennan sama kjarna og grunnur minn í heimspeki hefur gert mér kleift að þjóna honum af réttlæti og sanngirni, flesta daga. Heimspekileg nálgun á verkefnin sem á vegi mínum hafa orðið hefur jafnframt gert mig að betri samstarfs- og fagmanneskju, betri móður og félaga; leiðbeinanda og nemanda; betri einstaklingi, alla daga. Heimspekin er einfaldlega hagnýtasta nám sem ég hef stundað.
Portrait photo of Vigdís Hafliðadóttir
Forréttindi er það orð sem kemur fyrst upp í hugann þegar ég hugsa um nám mitt í heimspeki við Háskóla Íslands. Greinin sjálf er í fyrsta lagi einstakega fjölbreytt og merkileg en þeir krefjandi og fallegu textar sem við lesum og kenningar sem við kynnumst öðlast aðra merkingu undir handleiðslu mjög hæfra kennara sem vinna við deildina. Námið hefur haft mikil áhrif mig: tamið huga minn, gert mig víðsýnni, aukið umburðarlyndi mitt og gagnrýna hugsun svo fátt eitt sé nefnt sem hefur nýst mér vel við ýmis verkefni — hagnýt sem skapandi. Svo hefur það auðvitað líka bara verið skemmtilegt!
Ljósmynd af Berglindi Häsler
Eftir að ég skráði mig í heimspeki árið 2003 var ég mikið spurð ,,og hvað ætlar þú að gera við þessa gráðu?” Ég hafði ekki svarið þá en ég var bara alveg heilluð af heimspeki eftir einn kúrs í MH og hef aldrei séð eftir að hafa látið hjartað ráða för. Námið reyndist svo skemmtilegra, gagnlegra og áhugaverðara en ég hafði gert mér vonir um. Kennararnir fylltu mig innblæstri daglega og smituðu ástríðu út frá fræðunum. Ég var samferða virkilega góðum hópi nemenda og á margar góðar minningar frá þessum tíma. Námið er mjög fjölbreytt og góð þjálfun í gagnrýnni hugsun og öguðum vinnubrögðum. BA-nám í heimspeki reyndist hinn besti grunnur að þeirri fjölbreyttu starfsreynslu sem ég bý að í dag.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil