Fornleifafræðingar við uppgröft á Arnarstapa
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum málum (einkum Norðurlandamálum).
Lengd náms
3 ár.
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á fornminjum?
  • Viltu vinna með menningarverðmæti?
  • Hefur þú áhuga á vettvangsvinnu og útivist?
  • Langar þig að vita hvernig samfélagið var til forna?
  • Viltu læra að beita aðferðum raunvísinda, félagsvísinda og hugvísinda á flókin viðfangsefni?
  • Viltu eiga möguleika á að vinna við rannsóknir?

Fornleifafræði fæst við að lesa úr, túlka og draga ályktanir um horfin samfélög útfrá brotakenndum heimildum og reynir því oft á rökhyggju og öguð vinnubrögð.

Við vettvangsvinnu reynir ennfremur á verkvit og líkamlegt úthald.

Fornleifarannsóknir – einkum vettvangsvinna – felast oftar en ekki í samstarfi margra fræðimanna og það reynir á félagsþroska og getu til að skilja og nýta ólík sjónarmið og ólíkar fræðigreinar.

Meðal viðfangsefna

  • Vinnulag í fornleifafræði
  • Gagnrýnin hugsun
  • Íslensk fornleifafræði
  • Forsaga
  • Fornleifarannsókn á vettvangi
  • Forvarsla
  • Gripafræði
  • Þjóðhættir í sveitasamfélaginu
  • Jarðfornleifafræði
  • Mannabeinafræði
  • Menningararfur
  • Starfsreynsla við uppgröft eða safn

Markmið

Markmið náms í fornleifafræði til BA-prófs er að veita undirstöðu undir störf við fornleifarannsóknir og minjavörslu á Íslandi. Námið er jafnframt hugsað sem almenn þjálfun í þverfaglegum vinnubrögðum, gagnrýnni hugsun og greiningu sem kemur að notum við margvísleg störf í nútímasamfélagi.

Nám í fornleifafræði til MA-prófs og doktorsprófs er ætlað þeim sem hyggja á rannsóknarstörf á sérhæfðari sviðum innan greinarinnar.

Kennsluhættir

Verkleg kennsla í fornleifafræði fer fram á vettvangi fornleifarannsókna og í kennslustundum. Bókleg kennsla fer fram í fyrirlestrum, samræðuformi og málstofum. Tímasókn er mikilvæg en því aðeins hafa menn gagn af henni að þeir komi vel undirbúnir og frumskilyrði er að hafa lesið það efni sem fjalla á um hverju sinni.

Mögulegar námsleiðir

Ljúka þarf 180 einingum til þess að útskrifast með BA-prófgráðu.

Um fornleifafræði

Fornleifafræði fjallar um samfélög með því að rannsaka minjar um þau. Fortíðin er meginviðfangsefni fornleifafræðinnar en í vaxandi mæli er aðferðum hennar einnig beitt til að greina samfélög nútímans.

Fornleifafræði getur verið söguleg eða forsöguleg. Söguleg fornleifafræði fjallar um þau tímabil sem ritheimildir eru einnig til um en forsöguleg fornleifafræði fjallar um þá tíma sem fornleifar einar eru til frásagnar um.

Fornleifafræði getur varpað ljósi á langtímaþróun samfélaga, efnahagsleg og pólitísk kerfi og breytingar á þeim, landnýtingu og framleiðsluferli, tækni og tísku, handverk og listsköpun, sjálfsmynd og vitund en einnig tiltekna einstaklinga og hugmyndir þeirra.

Fornleifafræði sækir aðferðafræði sína og kennilegan grunn jöfnum höndum til hug- og félagsvísinda auk þess sem raunvísindalegar aðferðir hafa skipað stóran sess í fornleifarannsóknum síðan um 1960. Er þar helst að nefna greiningar manna- og dýrabeina, skordýra, fræja og frjókorna, auk aldursgreininga af ýmsu tagi.

Hin síðustu ár hafa rannsóknir fornleifafræðinga beinst í auknum mæli að félagslegum þáttum sem lesa má úr efnismenningu fortíðar.

Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf. Nánari upplýsingar er að finna í 18. grein reglna um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022.

Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda grunnnám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku skv. 1. gr. reglnanna.

Stúdent sem les fornleifafræði til 180 eininga BA prófs skal ljúka þessu námi:

  1. Skyldunámskeið (85 ECTS). Nemendur skulu ljúka öllum skyldunámskeiðum en þau eru:
    FOR101G Aðferðafræði I (10e), FOR202G Aðferðafræði II (10e), FOR102G Vinnulag í fornleifafræði (5e), HSP105G Gagnrýnin hugsun (5e), FOR103G Inngangur að fornleifafræði (10e), FOR205G Íslensk miðaldasaga í ljósi ritheimilda og fornleifa  (10e), FOR204G Forsaga (10e), FOR406G Fornleifarannsókn á vettvangi (10e), FOR303G Gripafræði (10e) og FOR408G Kennileg fornleifafræði (5e).
  2. Bundið val í fornleifafræði (50-75 ECTS) . Nemendur skulu ljúka a.m.k. því sem samsvarar 50 ECTS einingum í eftirfarandi námskeiðum: FOR405G Fornvistfræði (5e), FOR410G Kynjafornleifafræði (5e), FOR423G Dýrabeinafræði (5e), FOR405M Landshættir og fornleifaskráning (10e), FOR420G Jarðfornleifafræði (10e), FOR421G Mannabeinafræði (5e), FOR307G Fornleifafræði Norðurlanda (5e), FOR702M Fornleifafræði eftir 1500 (5e), FOR403G Vernd menningarminja á Íslandi (5e), FOR425G Innra starf safna (10e), FOR701M Þrettán hlutir (10e), FOR303M Matargerð til forna (10e).
  3. Starfsreynsla við uppgröft eða safn (5-10 ECTS). Nemendur skulu ljúka a.m.k. 5 einingum og að hámarki 10 einingum í starfreynslu við uppgröft eða safn.
  4. Valnámskeið innan fornleifafræði og valnámskeið utan greinar (0-30 ECTS). Nemendur taka  að hámarki 30 einingar í valnámskeiðum. Námskeiðin geta verið námskeið innan fornleifafræðinnar (námskeið með FOR-númer sem merkt eru sem val) eða önnur valnámskeið sem tilgreind eru í kennsluskrá námsins.
  5. BA-ritgerð í fornleifafræði (10 ECTS). Nemendur ljúka 10 eininga BA-ritgerð í fornleifafræði á 3. ári námsins.
Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Aðferðafræði I (FOR101G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður farið yfir grundvallaratriði fornleifafræðilegrar aðferðafræði. Helstu efni sem fjallað verður um eru: Saga aðferðafræðinnar, löggjöf og siðfræði, undirbúningur rannsókna, rannsóknaráætlanir og heimildakönnun, fornleifaskráning, loftljósmyndun og fjarkönnun, aðferðir við uppgröft og úrvinnslu uppgraftargagna, gagnasöfn, forvarsla og miðlun. Námskeiðið er kennt með fyrirlestrum og umræðutímum en í upphafi misseris verður námskeiðið kennt á vettvangi. Önnur námskeið í fornleifafræði sem kennd eru á sama misseri munu taka mið af því.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Vinnulag í fornleifafræði (FOR102G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að undirbúa nemendur fyrir frekara háskólanám í fornleifafræði. Framsetning efnis og þekkingar í ræðu og riti er veigamikill þáttur í því. Að námskeiðinu loknu ættu nemendur að hafa skýrar hugmyndir um þær kröfur sem gerðar eru til nemenda á háskólastigi og hvaða aðferðum þeir þurfa að beita til þess að uppfylla þessar kröfur.

 Farið er yfir helstu þætti í ritun fræðilegs texta með áherslu á ritgerðaskrif en einnig fjallað um önnur form sem varða fornleifafræði sérstaklega, s.s. uppgrafta- og skráningarskýrslur. Fjallað er um heimildanotkun og lögð áhersla á gagnrýnið viðhorf við meðferð og túlkun texta. Fjallað er um mismunandi gerðir heimilda og hvernig þær nýtast fornleifafræðingum við rannsóknir og kynntar ólíkar leiðir við miðlun fornleifafræðilegra upplýsinga.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Inngangur að fornleifafræði (FOR103G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Yfirlitsnámskeið um viðfangsefni og aðferðir fornleifafræðinnar. Hvað er fornleifafræði? Saga fornleifafræðinnar, hugmyndafræðilegur grundvöllur og samband hennar við aðrar greinar fortíðarvísinda. Hvernig eru fornleifar notaðar til að varpa ljósi á samfélagsgerð, umhverfi, hagkerfi og viðskipti, trú og hugmyndafræði, þróun og breytileika?

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Gagnrýnin hugsun (HSP105G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að gera nemendum grein fyrir mikilvægi gagnrýninnar hugsunar með því að kynna helstu hugtök og aðferðir og mismunandi skilning á eðli og hlutverki hennar. Nemendur verða þjálfaðir í gagnrýninni hugsun eins og hún kemur fyrir í heimspeki og í daglegu lífi og starfi. Lögð er áhersla á að greina röksemdafærslur. Ítarlega verður farið í samband gagnrýninnar hugsunar og siðfræði.

Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðutímum. Sérstök áhersla er lögð á umræður um raunhæf úrlausnarefni. Reynt verður að hafa verkefni eins hagnýt og kostur er og tengja þau sem flestum sviðum daglegrar reynslu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Forsaga (FOR204G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Forsaga fjallar um menningarsögu mannkyns eins og hún birtist í efnismenningunni, frá upphafi verkmenningar fyrir rúmlega 2,5 milljónum ára til loka járnaldar (≈ 0-800 AD), þ.e. einkum þau tímabil sem aðeins takmarkaðar eða engar ritheimildir eru til um. Í námskeiðinu verður farið yfir grundvallaratriði forsögu, svo sem tímatalsfræði og skilgreiningar forsögulegra menningarsamfélaga. Auk þess  verður fjallað um ýmsar birtingarmyndir forsögulegra menningarsamfélaga, svo sem búsetumynstur, grafsiði, verkmenningu og verktækni, verslun og viðurværi. Áhersla verður lögð á þróun mannsins í hnattrænu samhengi og síðari forsögu Evrópu (≈ 10.000 BC-800 AD).

Í lok námskeiðsins er þess vænst að nemendur geti fótað sig í orðfæri forsögulegrar fornleifafræði og kunni skil á helstu vörðum forsögulegrar tímatalsfræði og evrópskrar forsögu.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Íslensk miðaldasaga í ljósi ritheimilda og fornleifa (FOR205G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um sögu Íslands frá landnámi til siðaskipta í ljósi ritheimilda og fornleifa. Yfirlit um sögu víkingaaldar og sögu rannsókna á víkingaöld. Farið er yfir landnámið, forsendur þess og framgang í ljósi fornleifa og ritheimilda. Fjallað verður um mótun nýs samfélags, sjálfsmynd þess og hagrænan grundvöll, byggðaþróun, trú og trúskipti, pólitísk innanlandsátök og innleiðingu ríkisvalds á þrettándu öld.  Kirkjan og félagsleg, menningarleg, pólitísk og hagræn áhrif hennar eru í brennidepli í seinni hluta námskeiðsins. Þessi viðfangsefni verða sett í samhengi við almenna sagnaritun tímabilsins, þróun tækni og efnismenningar og þróun mála í umheiminum. Áhersla er lögð á að nemendur kynni sér frumheimildir, bæði ritheimildir og fornleifar. Kennslan fer fram í fyrirlestrum og í umræðutímum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Fornleifarannsókn á vettvangi (FOR406G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fornleifauppgröftur. Markmið námskeiðs er að auka færni og þekkingu nemenda á uppgraftaraðferðum, einstökum þáttum fornleifarannsókna og að vinna sjálfstætt. Á staðnum verður m.a. kennt á gagnagrunninn Intrasis og uppmælingar með alstöð. Nemendur fá þjálfun í frágangi og pökkun gripa sem finnast í uppgreftinum. Nemendur munu einnig skrá forngripi í menningarsögulegt gagnasafn, Sarp. Uppgraftarsvæði: Bæjarstæði Árbæjar á Árbæjarsafni í Reykjavík. Tími námskeiðs eru fjórar heilar vinnuvikur og hefst námskeiðið í maí eftir að vormisserisprófum líkur á Hugvísindasviði.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Sumar
Starfsreynsla við uppgröft eða safn (FOR413G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið felst í reynslu sem nemandi aflar sér af störfum við fornleifarannsóknir.  Það getur verið þátttaka í vettvangsskóla, vinna við uppgröft, fornleifaskráningu, úrvinnslu (þ.á.m. greining og frágangur gripa og forvarsla), vinna á safni eða við minjavörslu.  Hafið samband við námsbrautarformann ef þið eruð í vafa um hverskonar störf eru tekin gild.  Til að ljúka námskeiðinu þarf að vinna 40 heila daga og skila að því loknu staðfestingu undirritaðri af vinnuveitanda/stjórnanda rannsóknar til námsbrautarformanns. Eyðublaðið má nálgast hjá námsbrautarformanni í fornleifafræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Fyrsta ár | Sumar
Starfsreynsla við uppgröft eða safn (FOR419G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið felst í reynslu sem nemandi aflar sér af störfum við fornleifarannsóknir.  Það getur verið þátttaka í vettvangsskóla, vinna við uppgröft, fornleifaskráningu, úrvinnslu (þ.á.m. greining og frágangur gripa og forvarsla), vinna á safni eða við minjavörslu.  Hafið samband við námsbrautarformann ef þið eruð í vafa um hverskonar störf eru tekin gild.  Til að ljúka námskeiðinu þarf að vinna 20 heila daga og skila að því loknu staðfestingu undirritaðri af vinnuveitanda/stjórnanda rannsóknar til námsbrautarformanns. Eyðublaðið má nálgast hjá námsbrautarformanni í fornleifafræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Annað ár | Haust
Aðferðafræði II (FOR202G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er ætlað sem inngangur að þeim verklegum þáttum sem þarf að hafa í huga við úrvinnslu uppgraftargagna: Hvað er gert við gripina sem finnast, teikningarnar, mælingarnar, ljósmyndirnar? Á námskeiðinu er farið í gegnum öll þau atriði er snúa að úrvinnslunni og að lokum skrifa nemendur lokaskýrslu. Námskeiðinu er skipt upp í nokkrar lotur, þar sem hver lota snýr að ákveðnum verkefnum í tíma, undir handleiðslu kennara. Unnið verður úr þeim gögnum er fengust á námskeiðinu Fornleifarannsókn á vettvangi II (FOR406G). Það er því ráðlagt að nemendur hafi lokið þessu námskeiði á vorönn.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Gripafræði (FOR303G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar annars vegar um almennan grundvöll gripafræðinnar, gerðfræði og efnisfræði, og hins vegar um helstu flokka gripa sem finnast á Íslandi, leirker, steináhöld og steinílát, skartgripi og vopn, tréílát, vefnað, gler, krítarpípur o.fl.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Kennileg fornleifafræði (FOR408G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmiðið með námskeiðinu er að veita nemendum innsýn í kennilegan bakgrunn fornleifafræðinnar, einkum í Evrópu og Norður-Ameríku. Farið verður yfir sögu kenninga og skýrt frá áhrifum þeirra á þróun fræðigreina almennt. Merking kennilegrar fornleifafræði verður reifuð, samhliða því sem farið verður ítarlega yfir helstu kenningar, strauma og stefnur, og áhrif þeirra á fræðigreinina. Kennt verður með fyrirlestrum, auk þess sem nemendur verða látnir taka þátt í umræðum og vinna að hópverkefnum (4-5 nemendur saman) um kenningar fornleifafræðinnar og kynna niðurstöður þess með framsögu.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Jarðvegsfræði (LAN615M)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Jarðvegur er undirstaða vistkerfa, grunnur matvælaframleiðslu og mannlegrar búsetu og gegnir lykilhlutverki í hringrásum næringarefna, kolefnis og vatns. Jafnframt geymir jarðvegur mikilvægar upplýsingar um umhverfisbreytingar og samspil náttúru og manns í tímans rás.

Í þessu námskeiði kynnast nemendur jarðveg sem vistkerfi, auðlind og upplýsingagjafa. Námskeiðið veitir bæði traustan fræðilegan grunn í jarðvegsfræði og leggur jafnframt ríka áherslu á hagnýta færni, vettvangsvinnu og gagnagreiningu.

Það fjallar um eftirfarandi helstu þætti:

  • Jarðvegsmyndandi þætti og ferla sem leiða til myndunar mismunandi jarðvegsgerða um heiminn.
  • Eðlis- og efnaeiginleika jarðvegs, með sérstakri áherslu á hlutverk leirsteinda og lífrænna efna.
  • Íslenskan jarðveg, myndun hans og sérstöðu.
  • Jarðvegslíf – jarðveg sem vistkerfi og hlutverk hans í vistkerfum
  • Jarðveg sem auðlind - hlutverk jarðvegs í hringrásum næringarefna, kolefnis og vatns.
  • Ástand jarðvegs – hvernig meta megi heilbrigði jarðvegs bæði á vettvangi og með mælingum á rannsóknastofu.
  • Áhrif landnýtingar á jarðveg – jarðvegshningnun og landhnignun (rof, mengun, söltun o.fl.).
  • Tengsl jarðvegs og loftslags.
  • Jarðveg sem rannsóknarefni í tengslum við mannvist og umhverfissögu.

Kennsla fer fram í formi fyrirlestra, vettvangsferða og rannsóknastofuvinnu, þar sem nemendur öðlast reynslu af raunverulegum jarðvegsrannsóknum og læra að tengja fræðilega þekkingu við eigin rannsóknargögn.

Námskeiðið hentar nemendum í grunnámi á öðru og þriðja námsári sem og nemendum í meistaranámi.

Kennslutungumál: Enska
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Annað ár | Haust
Einstaklingsverkefni (FOR501G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Einstaklingsverkefni.

Kennslutungumál: Íslenska
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Haust
Eldfjallafræði (JAR514M)
Valnámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Eldgos eru eitt þeirra meginferla sem skapar og mótar svipmót jarðar. Eldgos geta leitt af sér hamfarir og valdið verulegu tjóni á mannvirkjum. Kvikugösin sem rísa upp frá eldspúandi gígunum viðhalda andrúmslofti jarðar, sem og hafa veruleg áhrif á eiginleika andrúmsloftsins og loftstrauma þess. Kvikuvirkni neðanjarðar, og í sumum tilfellum eldvirknin ofan jarðar, hefur myndað beint eða óbeint stóran hluta að þeim málmum sem við nemum úr jörðu. Þannig að fyrirbærið eldgos hefur bein og óbein áhrif á mannkynið sem og tengsl við margar af undirgreinum jarðvísindanna. Af þeim sökum er grunnskilningur á því hvernig eldfjöll og eldstöðvakerfi virka og framlag eldvirkninar til hringrásaferla jarðar góð undirstaða fyrir alla nemendur í jarðvísindum.

Í þessu námskeiði verður farið í grunnatriði eldfjallafræðinnar; ferðalag kviku upptakastað til yfirborðs og almenn ferli sem stjórna eldvirkni á yfirborði og dreifingu gosefna. Fjallað verður líka um grunnatriði eldgosavár og hnattrænna áhrifa eldgosa.

Verklegar æfingar eru vikulega og beinast að því að leysa vandamál með útreikningum, greiningu gagna og rökstuðningi. Ein vettvangsferð á Reykjanes.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Náttúrulandfræði (LAN101G)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur kunni skil á undirstöðuatriðum líflandfræði, jarðvegs og jarðvegsmyndunar, auk umhverfissögu Íslands, þekki helstu hugtök og aðferðir sem beitt er og verði færir um að greina og túlka íslenskt umhverfi í ljósi þeirra. Fjallað verður um flokkunarfræði lífríkis, fæðukeðjur og fæðuþrep, dreifingu tegunda og farið verður yfir hringrásir orku og efna, útbreiðslu lífríkis og áhrifaþætti, búsvæðabelti, líffræðilega fjölbreytni og verndun lífríkis.

Farið verður í myndun jarðvegs og eiginleika hans, útbreiðslu jarðvegsgerða, jarðvegsrof og jarðvegsmengun. Rætt verður sérstaklega um áhrif nýtingar og ástand jarðvegs og gróðurs, orsakir og afleiðingar jarðvegseyðingar og hnignunar gróðurlenda, fyrr og nú.

Haldnir verða þrír fyrirlestrar á viku þar sem farið verður yfir meginefni námskeiðsins. Tveimur tímum á viku, að jafnaði, verður varið í verkefnavinnu þar sem nemendur munu vinna í hópum að úrlausn verkefna. Ein hálfs dags ferð er farin út fyrir Reykjavík til að framkvæma gróðurmælingar og safna jarðvegssýnum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Kortagerð og kortahönnun (LAN102G)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

“visualization is the process of making the invisible visible[...] the process of making the cognitive imagination visual using available and culturally dominant technologies is one of the most consistent behaviors of mankind.”

„Myndræn framsetning er að gera ósýnileg fyrirbæri sýnileg [eða] það að gera sjónrænt grein fyrir ímyndun hugans með tiltækri tækni og í samræmi við menningarleg viðmið. Þetta er eitt af því sem mannkynið hefur alltaf leitast við að gera.” - Cox, D. (2006). "Metaphoric Mappings: The Art of Visualization." MIT Press.

Kortagerð er einn af mikilvægum hlutum landupplýsingahönnunar.

Nemendur kynnast fræðilegri undirstöðu kortagerðar með hjálp stafrænnar tækni. Námskeiðinu er ætlað að veita nemendum greinargóðan skilning á hugtökum og hagnýtum atriðum sem snerta myndræna framsetningu á kortum og miðlun landfræðilegra upplýsinga. Það snertir ýmis mikilvæg svið í landfræði og skyldum greinum. Í gegnum fyrirlestra og umræður fá nemendur skilning á sögu kortagerðar, helstu kenningum og hugtökum á fagsviðinu og hlutverki landfræðilegra upplýsingakerfa við gerð korta nú á dögum. Fyrirlestrum er fylgt eftir með verkefnum sem hjálpa nemendum að skilja undirstöðuhugtök kortagerðar, sem og skipulegum æfingum í tölvuveri  þar sem nemendur læra að nýta sér landfræðileg upplýsingakerfi við einfalda greiningu og framsetningu landupplýsinga. Nemendur öðlast færni til að rýna eigin verk og annarra á gagnrýninn hátt og geta útskýrt og réttlætt eigin ákvarðanir varðandi myndræna framsetningu á korti.

Mannvistarlandfræði (LAN104G)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kynnt verða hugtök og kenningastraumar í samfélagsvísindum, með áherslu á notkun og birtingarform í samtímarannsóknum í mannvistarlandfræði og ferðamálafræði. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á notkun hugtaka í vísindalegri umræðu og þjálfun í meðferð þeirra. Má þar telja algeng hugtök eins og staður, rými, hnattrænt, staðbundið, hnattvæðing, sjálfbær þróun, náttúra, landslag, menning, sjálfsmynd, ímynd og samfélag. Kennsluform er blanda fyrirlestra og umræðutíma í smærri hópum, sem tengjast skilaverkefnum nemenda. Próftökuréttur er háður verkefnaskilum og þátttöku í umræðuhópum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Jarðvegsfræði (LAN516G)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið hentar nemendum á öðru og þriðja námsári
Námskeiðið felur í sér eftirfarandi helstu þætti:

  • Jarðvegsmyndandi ferla
  • Eðlis- og efnaeiginleika jarðvegs
  • Flokkun jarðvegs og hnattræna dreifingu
  • Hlutverk jarðvegs í vistkerfum
  • Áhrif utan að komandi þátta (t.d. gróðurs og loftslags) á jarðveg og næringarefnainnihald
  • Jarðvegsrof og landhnignun
  • Íslenskur jarðvegur og einkenni hans
  • Áhrif fólks á jarðveg og gróður
  • Jarðvegur sem rannsóknarefni varðandi mannvist og umhverfissögu

Námskeiðið samanstendur af fyrirlesturum, vettvangs- og rannsóknastofuvinnu og ritgerðaskrifum.

Nemendur taka þátt í kostnaði við vettvangsferðir í þessu valnámskeiði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Aðferðafræði og hugtök listfræði (LIS101G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Aðferðafræði og hugtök listfræði (LIS101G) er inngangsnámskeið sem er hugsað sem grunnnám­skeið fræðigreinarinnar listfræði. Fjallað er um list­hug­tak­ið, sögu fræðigreinarinnar, fræðilegar forsendur listfræði sem sjálfstæðrar fræðigreinar og tengsl hennar við aðrar fræðigreinar. Helstu hug­tök, rannsóknaraðferðir og kenningar listfræðinnar eru kynnt. Nemendur fá þjálfun í mynd­grein­ingu og myndlestri og kynnast helstu greiningaraðferðum listfræði, s.s. formalískri, íkónó­grafískri og marxískri myndgreiningu. Áhersla er lögð á þjálfun gagnrýnnar hugsunar og hæfni nemenda til gagnrýnnar greiningar á texta og myndmáli.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Grasafræði (LÍF102G)
Valnámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Plöntur sem lífverur. Bygging og starfsemi plöntufrumna. Ljóstillífun. Innri og ytri bygging plantna, vöxtur og æxlun. Ættliðaskipti, þróun, lífsferlar og einkenni helstu hópa plantna. Fjallað verður um mosa og útdauðar og núlifandi æðplöntur en mest áhersla lögð á blómplöntur. Þróun og gerð fræja, blóma og aldina. Helstu lífbelti jarðar. Gróður á Íslandi.

Verklegar æfingar: Dæmi skoðuð af ytri og innri byggingu plantna úr helstu hópum. Frumu- og vefjagerðir, fræ, blóm og aldin. Áhrif umhverfis á ytri og innri gerð plantna.

Próf: Verklegt (20%) og skriflegt próf (80% heildareinkunnar). Lágmarkseinkunnar er krafist í báðum prófhlutum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Vistfræði (LÍF311G)
Valnámskeið á námsleiðinni
7,5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fyrirlestrar: Inngangur. Þróun. Atferli. Söguleg og vistfræðileg líflandafræði. Stofnar: Dreifing einstaklinga, fæðingartölur, dánartölur, aldursdreifing, líftöflur, vöxtur stofna, stjórnun stofnstærðar, stofnsveiflur, far. Samspil tegunda: Samkeppni, afrán, aðrar samskiptagerðir. Nýting stofna. Stjórnun skaðlegra stofna. Samfélög: Lýsing, tegundasamsetning, tegundafjölbreytni, fæðuvefir, stöðugleiki, framvinda. Vistkerfi: Hringrás efna, orkurás, framleiðni, næringarkeðjur, neysluþrep, vistfræðileg nýtni. Vistfræði þurrlendis, sjávar og fersks vatns; kynning á íslenskum vistkerfum.

Verklegar æfingar: Æfingar fara fram á rannsóknarstofu og úti við, eftir því sem aðstæður leyfa. Lögð er áhersla á beitingu vísindalegrar aðferðar í vistfræði, breytileika og meðferð gagna. Gerðar eru m.a. athuganir á stofnvexti bifdýrastofna, athuganir á gróðri og dýralífi þurrlendis, á beltaskiptingu í fjöru og á straumvatni.  Mætingarskylda: í allar verklegar æfingar. 

Námsmat: Verklegar æfingar og málstofur vega 50% af lokaeinkunn, þar af ein viðameiri skýrsla sem kynna á munnlega. Tíu skriflegar æfingar gilda 50%. Lágmarkseinkunnar er krafist úr öllum námshlutum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Inngangur að mannfræði (MAN103G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum undirstöðuatriði félagslegrar og menningarlegrar mannfræði og helstu efnisþætti greinarinnar. Fjallað er um verkefnasvið mannfræði, sögu greinarinnar, helstu kennistefnur, rannsóknaraðferðir og hugtök. Ennfremur er fjallað um skipan samfélaga almennt, tengsl vistkerfis og samfélags og félagslegar breytingar. Þá eru einstakir þættir félagsskipunar ræddir s.s. sifjar, stjórnskipan, hagskipan og trúarbrögð og fjallað er um rannsóknir mannfræðinga á íslensku samfélagi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Annað ár | Haust
Inngangur að líffræðilegri mannfræði (MAN330G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum undirstöðuatriði líffræðilegrar mannfræði og forsögu tegundarinnar Homo sapiens. Fjallað er um grunnþætti erfðafræðinnar, með áherslu á mannerfðafræði og stofnerfðafræði. Fjallað er um þróunarsögu prímata og þá eiginleika sem aðgreina prímata frá öðrum spendýrum, og þá eiginleika sem aðgreina manninn frá öðrum prímötum. Farið er ítarlega í þróunarsögu manntegunda (hominid evolution) með hliðsjón af steingervðum beinum, steinverkfærum og öðrum fornleifum sem fundist hafa í Afríku og víðar. Að lokum er fjallað um erfðafræðilegan breytileika og lífeðlisfræðilega aðlögunarhæfni tegundarinnar Homo sapiens.

Námskeiðið er eingöngu fyrir staðnema og fjarnema. Það er 80% mætingaskylda í fyrirlestra, sem gildir jafnt um staðnema og fjarnema. Mæting í fyrirlestra fyrir fjarnema er skilgreind sem lifandi þátttaka í gegnum Teams, þar sem fjarnemar eru í mynd á meðan kennsla fer fram.

Aftökur og upplýsing. Íslandssaga II (SAG112G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Veitt verður yfirlit um valda þætti í sögu Íslands frá byrjun sextándu aldar til upphafs þeirrar nítjándu og fjallað sérstaklega um nokkur viðfangsefni tímabilsins, m.a. út frá frumheimildum. Greint verður frá viðhorfi fræðimanna og almennings til þessa hluta Íslandssögunnar, ástæður þess og breytingar á síðustu áratugum, fjallað um breytingar á íslensku þjóðlífi í kjölfar siðaskipta og um heilbrigðismál, menntun og menningu, galdra og trúarstefnur, dómsmál, þéttbýlismyndun, framfarahugmyndir og tengsl Íslands við umheiminn fram undir aldamótin 1800. Nemendur skrifa stutta ritgerð eða verkefni um afmarkað efni sem einkum byggir á frumheimildum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Annað ár | Haust
Dauði og endurfæðing - Inngangur að síðmiðöldum - Heimssaga I (SAG115G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Síðmiðaldir (14.-15. öld) einkenndust af andstreymi á flestum sviðum evrópsks samfélags. Eftir mannfjölgun, þenslu og vöxt undangenginna þriggja alda sóttu drepsóttir nú fast að með mannfelli og hörmungum. Efnahagsþrengingar settu svip sinn á mannlíf hátt og lágt ― valdamenningu, félagsformgerðir og trúarlíf. Menntun, menning og listir héldu fyrra afli en dauði og forgengileiki mannlegs lífs var víða í forgrunni. Innri friður álfunnar átti einnig undir högg að sækja þegar konungsveldi efldust enn frekar, oft með íþyngjandi og ófriðlegum hætti fyrir vinnandi stéttir og almúga. Rómarkirkjan, sem risið hafði hátt undir páfavaldi á hámiðöldum, fór hins vegar halloka fyrir veraldarvaldhöfum eða staðbundnu kirkjuvaldi og dró úr völdum páfa innan kirkju og kristindóms. En hvert sem litið er á tímabilinu haldast dauði og endurfæðing í hendur, eftirvænting eftir því sem tekur við þessa heims og annars í skugga dauðans.
Dauði og endurfæðing er inngangsnámskeið sniðið að nýnemum í sagnfræði ― öðrum er velkomið að nýta það sem valnámskeið. Lesin verður grunnbók um tímabilið en sjónum einkum beint að eftirtöldum þemum í fyrirlestrum: (1) Hnignun páfavalds og efling kirkjuþinga; (2) trúarinnlifun, alþýðutrú og mystisismi; (3) efling ríkisvalds við þröngan kost, stríð og örðuga skattheimtu; (4) Svarti dauði og mannfækkun af hallærum ― langvinn áhrif á efnahag, verslun og félagsgerðir; (5) menntun, menning og listir í skugga mannfellis og drepsótta; (6) rætur siðaskipta og endurreisnar í miðaldamenningu.
Námsmat byggir á stuttri ritgerð og skriflegu lokaprófi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Haust
Miðaldakirkjur og list þeirra sem spegill á samfélagið (SAG355G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Hvað er vitað um íslenskar miðaldakirkjur og á hverju byggist sú vitneskja? Hvaða máli skiptu þessar kirkjur í samtíma sínum? Á Íslandi eru engar varðveittar miðaldakirkjur en samt er ýmislegt um þær vitað. Kirkjugrunnar hafa verið grafnir upp og rýnt hefur verið í ritheimildir til að átta sig á hvernig þessar kirkjur hafa litið út. Mikið af listmunum úr innra rými kirkna hefur aftur á móti varðveist. Námskeiðið miðar að því að kynna það sem vitað er um íslenskar miðaldakirkjur og um leið samfélagið sem byggði þær og notaði. Hverjir byggðu hvað og hvers vegna? Farið er yfir helstu flokka kirkna í stærðar- og tignarröð: Dómkirkjur, klausturkirkjur/kirkjur á stærri stöðum, aðrar kirkjur. Ytra form kirknanna verður kynnt ásamt heimildaefninu sem þessi þekking byggir á og endurnýting byggingartimburs fram eftir öldum. Einnig ríkidæmi innanbúnaðarins.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Haust
Inngangur að þjóðfræði (ÞJÓ103G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þjóðfræði kynnt sem fræðigrein á íslenska og alþjóðlega vísu. Helstu hugtök þjóðfræðinnar skýrð sem og svið hennar. Rætt er meðal annars um kenningar um hópa, efnismenningu, siði, túlkun þjóðfræðiefnisins og hlutverk þjóðfræðinnar. Þá verður rætt ítarlega um rannsóknarsögu þjóðfræði hérlendis og í nágrannalöndum. Stuðst verður við aðalinngangsrit um þjóðfræði og greinar helstu þjóðfræðitímarita.

Vinnulag
Kennsla fer fram í fyrirlestrum kennara og umræðum hópsins, auk þess sem nemendur flytja fyrirlestra og stjórna umræðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Annað ár | Vor
Fornvistfræði (FOR405G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið skiptist í þrjá hluta: 1. Almennur inngangur að fornvistfræði, markmiðum hennar og notagildi. 2. Aðferðir fornvistfræðinnar þ.m.t. sýnatökutækni, aldursgreiningar, greining lífveruleifa og túlkunarmöguleikar. 3. Rannsóknarvettvangur fornvistfræðinnar (land, ferskvatn, sjór, andrúmsloft, bólstaðir og menningarlandslag). Fjallað er með dæmum um rannsóknarspurningar sem svarað er með fornvistfræðilegum aðferðum. Kennsla fer fram með fyrirlestrum og verklegum æfingum. Æfingar fara fram í kennslustofu, en farinn verður einn borleiðangur í nærliggjandi stöðuvatn.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Landshættir og fornleifaskráning (FOR405M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um landshætti og rannsókn þeirra með fornleifafræðilegum aðferðum.  Fjallað er um kennilegar forsendur og aðferðir við greiningu en aðaláhersla lögð á þjálfun aðferða við fornleifaskráningu á vettvangi.

Kennslutungumál: Íslenska
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Vor
Mannabeinafræði (FOR421G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er kynning á fornleifafræðilegri mannabeinafræði, ferðafræðilegum og kennilegum forsendum hennar. Bein verða skoðuð með tilliti til innri og ytri gerðar, efnafræði, og smásærra rannsókna. Farið verður yfir undirstöðuatriði beinafræðinnar, greiningu á kyni, lífaldri og líkamshæð, og helstu atriði sjúkdómafræði beina og fornmeinafræði. Jafnframt verður fjallað um meginatriði gagnasöfnunnar og greiningar í tengslum við verklegan hluta kúrsins. Notagildi beinafræði við fornleifarannsóknir er skoðað. Þá verður fjallað um sögu þá sem gömul bein geta sagt okkur um mannlíf fyrri alda.

Kennslan fer fram í fyrirlestrum, umræðutímum, og verklegum tímum.

Ath. kennsla fer fram hjá Þjóðminjasafni Íslands, Tjarnarvöllum 11 í Hafnarfirði.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Dýrabeinafræði (FOR423G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er kynning á aðferðafræðilegum og kennilegum forsendum dýrabeinafræði. Dýrabein verða skoðuð með tilliti til innri gerðar, efnafræði og þróunarsögu. Ljósi verður varpað á þau ferli sem eiga sér stað frá dauða lífveru þar til bein hennar liggja á borði dýrabeinafræðings. Farið verður yfir meginatriði gagnasöfnunnar og greiningar. Notagildi dýrabeinafræði við rannsóknir á mismunandi samfélagsgerðum er skoðað. Þá verður fjallað um sögu þá sem gömul bein geta sagt okkur um mannlíf fyrri alda innan hins norræna menningarsvæðis, og þá sérstaklega á Íslandi.

Kennslutungumál: Enska
Annað ár | Vor
Fornleifafræði eftir 1500 (FOR702M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í nútíma heimi er auðvelt að hugsa um fortíðina sem eitthvað sem er langt í burtu og hversdeginum óviðkomandi – hvort sem það er heimsókn á safn eða jafnvel fornleifafræðinám, sagan virðist alltaf vera aðskilin frá hversdagsleikanum. Hún er áhugamál okkar eða eitthvað sem við skoðum okkur til skemmtunar. Markmið þessa námskeiðs er að skoða samtímann frá sjónarhorni fornleifa- og sagnfræði: á hvaða hátt er líf okkar afleiðing atburða sem gerðust í fortíðinni? Námskeiðið mun sýna hvernig fortíðin lifir í nútímanum – ekki sem sögustaðir eða fornleifafræðibók heldur sem eitthvað sem hefur áhrif á skipulag hversdagsins og efnisveruleikan sem við búum í. Þótt rætur þessa ferla nái aftur til líffræðilegrar þróunar okkar þá má færa sterk rök fyrir því að flestir áhrifavaldarnir sem skapa umhverfi okkar eigi sér upphaf á síðustu 500 árum.

Sjávarfornleifafræði (FOR428G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þessu námskeiði er ætlað að veita nemendum fræðilegan og aðferðafræðilegan undirbúning í sjávarfornleifafræði og verndun menningararfs á strönd og neðansjávar. Saga Íslendinga hefur alla tíð verið nátengd hafinu og segja má að frá miðöldum hafi afkoma í landinu byggst á nýtingu sjávarauðlinda og verslun þeirra. Í námskeiðinu verður fjallað almennt um viðfangsefni sjávarfornleifafræði en efnisleg áhersla námskeiðsins verður íslenskar sjávarminjar, þ.e. skipsflökum, minjum eftir erlenda hvalveiðimenn, bæði á 17. og 19. öld og loks ver- og minjum í sjó og í landi við verslunarstaði.  Að auki verður fjallað um verndun sjávarminja og þær hættur sem sjávarminjar standa fram fyrir bæði vegna náttúrulegra og mannlegra þátta. Námskeiðið mun gefa nemendum  góða yfirsýn yfir fræðilegar og hagnýtar áherslur í sjávarfornleifafræði, skilning á aðferðum og tækni í sjávarfornleifafræði og gera þeim kleift að auka þekkingu sína á efninu á sjálfstæðan hátt.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Einstaklingsverkefni (FOR610G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Einstaklingsverkefni.

Kennslutungumál: Íslenska
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Vor
Gróðurríki Íslands og jarðvegur (LÍF615M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennt á móti LÍF 606M og ráða skráningar hvort námskeiðið er kennt. Íslenska háplöntuflóran; samsetning, fjölbreytni, staða í flóruríki jarðar. Heimskautaflóran: uppruni, kerfisfræði, vistfræði. Líflandafræði flórunnar við Norður Atlantshaf. Ísöld á norðurhveli, ísaldarlok á Íslandi og í Evrópu og gróðursaga á nútíma. Tilgátur um aldur og uppruna íslensku flórunnar og heimskautaflóru á norðurhveli. Íslenskur jarðvegur; myndun, sérkenni, eyðimerkurmyndun. Gróðurbreytingar eftir landnám. Flóra Íslands og útbreiðsla um landið, búsvæði og líffræðileg fjölbreytni. Válistategundir. Aðferðir til að lýsa og flokka gróður. Íslensk gróðurlendi: flokkun, útbreiðsla, umhverfi og nýting. Verkleg kennsla fer að hluta til fram að sumari til: 4 daga sumarnámskeið.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Rokkar og stokkar og reður í krús: Söfn og fræði (SAF201G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er almennur inngangur að safnafræði. Fjallað verður um helstu þætti safnastarfs og fræðilegar og sögulegar forsendur þess. Skoðað verður hlutverk safna í fortíð og nútíð, uppbygging safnkosts, flokkun, skráning og varðveisla. Hugað verður að aðgengi, fræðslu, sýningagerð og gildi rannsókna fyrir safnastarf. Einnig verða skoðaðar mismunandi aðferðir við túlkun og framsetningu á sýningum. Íslensk söfn verða sett í samhengi við þjóðfræði, sem og erlent safnastarf og fræði. Námskeiðið skiptist í þrjár lotur, sem hver fyrir sig spannar um 4 vikna tímabil. Í hverjum hluta eru fyrirlestrar frá kennara auk skipulagðrar heimsóknar á tiltekið safn og umræður í kjölfarið. Áhersla verður lögð á umræður og verkefnavinnu innan safna.

Safn og samfélag: Sirkus dauðans? (SAF603M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um samfélagslegt hlutverk safna út frá margvíslegum sjónarhornum: efnahagslegum, pólitískum, menningarlegum, félagslegum og síðast en ekki síst alþjóðlegum. Fjallað verður meðal annars um hlutverk safna í hugmyndinni um þjóð, lagalegt umhverfi safna, rekstrarform, staða og hlutverk þjóðarsafna, safna í eigu sveitarfélaga, félagasamtaka og einkafyrirtækja, fjármögnun safnastarfs, stefna yfirvalda í málefnum safna, söfn og mannréttindi, söfn og áföll (trauma), kynjahugmyndir og fleira. Í námskeiðinu er einnig hugað að möguleikum safna á að virkja fólk og samfélög til þátttöku í starfsemi þeirra eins og söfnun, heimildaöflun, sýningarstjórnun, sýningargerð og annarri miðlun. Skoðuð verða innlend og erlend dæmi. Eftir því sem því verður komið við, eru farnar ein til tvær vettvangsferðir. Námskeiðið er eingöngu kennt í fjarnámi.

Efnahagur og lífshættir - Íslandssaga III (SAG270G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að veita nemendum yfirsýn yfir meginþætti í félags- og hagsögu Íslands frá byrjun 19. aldar og fram til okkar tíma. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist gagnrýninn skilning á félagslegum og efnahagslegum aðstæðum Íslendinga og hvernig þær breytast. Jafnframt er leitast við að nemendur öðlist færni við að greina og miðla fræðilegri þekkingu og byggi þar á því sem þeir hafa lært í námskeiðinu Sagnfræðileg vinnubrögð.  Helstu viðfangsefni námskeiðsins eru efnahagsleg tengsl Íslands við umheiminn; vöxtur og hnignun landbúnaðarsamfélagsins, orsakir og afleiðingar atvinnubyltingarinnar um 1900, stéttaskipting og nýir lífshættir í iðnaðarsamfélagi; konur, karlar og atvinnulífið; fólksfjöldi og fjölskyldulíf; áhrif heimsstyrjaldanna; kreppan mikla og haftakerfið, hagvöxtur og hagsveiflur; Evrópusamvinna og alþjóðavæðing efnahagslífs; vöxtur velferðarsamfélagsins; atvinnuþróun á lýðveldistímanum; fjármálavæðing efnahagslífs og „Hrunið“.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Vor
Stjórnmál og menning — Íslandssaga IV (SAG273G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að veita nemendum gagnrýnin skilning á sagnaritun um þróun íslensks stjórnmála- og menningarlífs frá upphafi nítjándu aldar til samtímans. Sjónum er beint að eftirtöldum þáttum: (i) þjóðríki og sjálfstæðisbarátta, (ii) lýðræði, (iii) menning og menntun, (iv) kyn, kynverund og stéttir, (v) flokkar og hagsmunasamtök og (vi) tengsl við umheiminn. Áhersla er lögð á að setja sögu Íslands í norrænt, vestrænt og hnattrænt samhengi. Í námskeiðinu fá nemendur þjálfun í að lesa og ræða frum- og eftirheimildir sem og í að afla heimilda og skrifa fræðilegan texta um afmarkað viðfangsefni.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Vor
Landfræðileg upplýsingakerfi 1 (UMV401G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Stúdentar með UMV401G sem skyldunámskeið hafa forgang við skráningu. 

Markmið: Að gera stúdentum frá breiðum bakgrunni mögulegt að hagnýta landfræðileg upplýsingakerfi til kortagerðar og landfræðilegrar greiningar við skýrslu- og álitsgerð, kynningu verkefna, vinnu og rannsóknir. Að stúdentar öðlist þroska og þjálfun til að: 1) stýra verkefnum á sviði landfræðilegra upplýsinga, 2) meta hvernig landfræðileg greining og kort nýtast best fyrir fjölbreytt verkefni, 3) rita texta sem túlkar kort og lýsir landfræðilegri greiningu, 4) rita fagmannlega skýrslu um verkefni sem hagnýtir sér landfræðileg upplýsingakerfi, kort og landfræðilega greiningu. 

Efni: Stúdentar kynnast landfræðilegum upplýsingakerfum og landfræðilegum gögnum. Lærið gerð staðháttakorta og þemakorta. Notuð verða vektorgögn og rastagögn. Lærið val eftir eigindum og staðsetningu, og gerð kortalaga út frá vali. Lærið tengsl við töflugögn og landfræðileg tengsl. Æfðar verða fjölbreyttar aðgerðir með kortalög, t.d. klippa, sameina, flytja gögn á milli laga, auk teikningar og gerðar nýrra kortalaga. Tengið loftmynd við kortalög. Tengið GPS hnituð gögn við landakort. Framkvæmið landfræðilega greiningu gagna. Áhersla er á að stuðla að þroska nemenda við að velja innihald korta, aðgerðir og greiningartæki, hanna kort og túlka kort með texta. 

Kennsluhættir: Stúdentar kynnast og fá þjálfun í algengri hagnýtri notkun landfræðilegra upplýsingakerfa í verklegum kennslutímum í tölvustofu og við vinnu heimaverkefna og lokaverkefnis byggðum á raunverulegum gögnum. Verkefni eru hönnuð til að auka færni stúdenta í vali korta, innihalds og greiningartækni auk túlkunar korta.

Námsform

Námskeiðið er kennt í kennslustofu með beinu streymi og upptökur síðan gerðar aðgengilegar nokkrum dögum síðar. Hægt er að taka námskeiðið í staðnámi eða fjarnámi eða blandað. Ekki er gert ráð fyrir að hægt sé að taka námskeiðið sem netnámskeið án rauntímaþátttöku.

Efnismenning og samfélag: Hlutirnir, heimilið, líkaminn (ÞJÓ205G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður efnisleg hversdagsmenning tekin til gagngerrar umfjöllunar. Gefið verður yfirlit yfir þetta þverfaglega rannsóknarsvið og rýnt jöfnum höndum í dæmi úr samtímanum og frá fyrri tíð, íslensk og erlend. Meðal annars verður fjallað um föt og tísku, matarhætti, hlutina sem umkringja okkur í daglega lífinu, rusl og hreinlæti, handverk og neyslumenningu, hús og garða, heimilið, borgarlandslag, söfn og sýningar. Um leið kynnast nemendur ýmsum kenningum og sjónarhornum sem leggja t.a.m. áherslu á mannslíkamann, kyngervi, neyslu, rými og stað.

Norræn trú (ÞJÓ437G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Trúarlíf manna á norðurslóðum er tekið fyrir og heimildir allt frá elstu tímum, eins og grafir, rúnasteinar, hellaristur og aðrar fornminjar verða skoðaðar. Einnig verða lesnar lýsingar á norrænum trúarathöfnum í verkum eftir Tacitus, Adam frá Brimum, Saxo Grammaticus og í fornritum Íslendinga eins og Eddukvæðum og Konungasögum. Auk norrænnar trúar verður fjallað um seið og sjamanisma. Örlagatrú er tekin til ítarlegrar umfjöllunar sem meginþáttur í forkristnum átrúnaði á Norðurlöndum. Loks er vikið að því hvernig kristindómur hefur fallið að norrænum lífsháttum og hugsunarhætti. Námskeiðið er kennt á ensku.

Vinnulag:
Kennsla fer fram í fyrirlestrum, og umræðum um fyrirlestra.

Menningararfur (ÞJÓ446G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Hvað er menningararfur og hvaða hlutverki þjónar hann? Af hverju er hann í stöðugri útrýmingarhættu? Hvernig tengir hann saman fortíð og samtíð? Hvað á hann skylt við þjóðríkið? Söguvitund? Hnattvæðingu? Kapítalisma? Stjórnmál? Í námskeiðinu verður leitað svara við þessum spurningum, kynntar nýlegar rannsóknir þjóðfræðinga, mannfræðinga, listfræðinga, félagsfræðinga, safnafræðinga, sagnfræðinga og fornleifafræðinga á menningararfi og tekinn púlsinn á því sem er að gerast á þessu ört vaxandi sviði.

Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðum.

Lúsakambar, hlandkoppar og kynlíf: Þjóðhættir og daglegt líf í sveitasamfélaginu (ÞJÓ447G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Athugið, námskeiðið kennt annað hvert ár. 

Í námskeiðinu er fjallað um þjóðhætti og daglegt líf í íslenska sveitasamfélaginu fyrr á öldum, jafnt til sjávar og sveita. Rætt er um aðferðir við rannsókn á efnismenningu, þjóðháttum og daglegu lífi og viðfangsefnið sett í erlent rannsóknarsamhengi. Nemendur kynnast margvíslegum þjóðháttarannsóknum og fjallað er á gagnrýnin hátt um ólíka heimildaflokka - yfirlitsrit, fræðirit og ýmsar frumheimildir. Lögð er áhersla á að greina hugmyndafræði hversdagsins og lífsferil einstaklinga í gamla sveitarfélaginu, um leið og skoðað er hvaða aðferðir dugi best til að rannsaka lífshætti fólksins sem þar ól allan sinn aldur. M.a. er unnið með óprentaðar persónulegar heimildir, svör við spurningalistum og dagbækur.

Tíska og fatnaður: Efnismenning í iðnvæddu markaðsþjóðfélagi (ÞJÓ606M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið beinir sjónum að fatatísku sem efnismenningu og rannsakar tískuhegðun einstaklinga í félagslegu samhengi. Nemendur lesa kenningar um tísku í markaðskerfi iðnvæddra þjóðfélaga og kynnast um leið ýmsum kenningum í heimspeki, félagsfræði, þjóðfræði og mannfræði. Tilgátur um áhrifavalda í fatatísku verða kannaðar með gagnrýnu hugarfari og heimfærðar á umhverfi nemenda. Tískukerfi á heimsvísu eru einnig könnuð og greind. Sérstaklega verður hugað að sambandi tískunnar við kyngervi , stétt, kynhneigð, aldur og aðrar helstu breytur félagslegs mismunar. Nemendur huga að „tíðarandanum“ (Zeitgeist) með smáverkefnum og vinna vettvangsrannsókn á fatatísku tiltekinna hópa eða staða og máta kenningarnar við sín eigin vettvangsgögn.

Rannsóknir og umræður leiða til lokaverkefnis þar sem lögð er fram útlistun á uppruna og eðli ríkjandi fatatísku og spáð á fræðilegan máta fyrir um stærri hreyfingar í fatatísku og tískumenningu komandi ára.

Námskeiðið hæfir meðal annars nemendum í þjóðfræði, mannfræði, menningarfræði og félagsfræði. Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðum. Fyrirlestrarnir verða á ensku og fjarkenndir þar sem aðalkennari námskeiðsins, Karl Aspelund, verður við University of Rhode Island þar sem hann kennir námskeiðið samtímis. Aðstoðarkennari stýrir síðan umræðutímum og vettvangsrannsóknum nemenda við Háskóla Íslands.

Annað ár | Sumar
Starfsreynsla við uppgröft eða safn (FOR413G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið felst í reynslu sem nemandi aflar sér af störfum við fornleifarannsóknir.  Það getur verið þátttaka í vettvangsskóla, vinna við uppgröft, fornleifaskráningu, úrvinnslu (þ.á.m. greining og frágangur gripa og forvarsla), vinna á safni eða við minjavörslu.  Hafið samband við námsbrautarformann ef þið eruð í vafa um hverskonar störf eru tekin gild.  Til að ljúka námskeiðinu þarf að vinna 40 heila daga og skila að því loknu staðfestingu undirritaðri af vinnuveitanda/stjórnanda rannsóknar til námsbrautarformanns. Eyðublaðið má nálgast hjá námsbrautarformanni í fornleifafræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Annað ár | Sumar
Starfsreynsla við uppgröft eða safn (FOR419G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið felst í reynslu sem nemandi aflar sér af störfum við fornleifarannsóknir.  Það getur verið þátttaka í vettvangsskóla, vinna við uppgröft, fornleifaskráningu, úrvinnslu (þ.á.m. greining og frágangur gripa og forvarsla), vinna á safni eða við minjavörslu.  Hafið samband við námsbrautarformann ef þið eruð í vafa um hverskonar störf eru tekin gild.  Til að ljúka námskeiðinu þarf að vinna 20 heila daga og skila að því loknu staðfestingu undirritaðri af vinnuveitanda/stjórnanda rannsóknar til námsbrautarformanns. Eyðublaðið má nálgast hjá námsbrautarformanni í fornleifafræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Annað ár | Sumar
Vettvangsskóli í fornleifafræði á Hofstöðum (FOR004M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennsla í námskeiðinu fer fram á vettvangi á Hofstöðum í Mývatnssveit. Nemendur kynnast helstu einkennum íslenskra fornleifa og taka þátt í vettvangsrannsóknum sem geta falið í sér uppmælingu, fjarkönnun, borkjarnakönnun og uppgröft.  Nemendur fá þjálfun í öllum stigum fornleifarannsóknar á vettvangi, frá hönnun rannsóknarverkefnis til úrvinnslu og kynningar fyrir fræðasamfélagi, almenningi og ferðamönnum.  Nemendur kynnast tímasetningaraðferðum, site formation processes og efnismenningu Norður Atlantshafs. Áhersla er lögð á að setja staðbundnar fornleifarannsóknir í fræðilegt samhengi, að nemendur kynnist þeirri umræðu og þeim álitamálum sem uppi eru á sviði fornleifafræði Norður Atlantshafs.  Einnig er lögð áhersla á að nemendur kynnist aðferðafræði minjaverndar og fá innsýn inn í áskoranir og möguleika menningararfs ferðaþjónustu.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Haust

Matargerð til forna (FOR303M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði er rýnt í matvæli og matarhefðir (e. foodways) fornra samfélaga víðs vegar um heiminn og hvernig mataræði þeirra getur mótað skilning okkar á þeim. Meðal viðfangsefna námskeiðsins er upphaf akuryrkju og húsdýrahalds, hjátrú og helgisiðir í kringum mat, séð frá sjónarhorni fornleifafræði, sagnfræði og etnógrafíu.

Kennslutungumál: Enska
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Haust
BA-ritgerð í fornleifafræði (FOR261L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

BA-ritgerð er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið viðfangsefni innan sinnar fræðigreinar og gera grein fyrir rannsókn sinni í vönduðum fræðilegum texta. Nemendur skrifa BA-ritgerð um rannsóknarefni að eigin vali eða velja sér verkefni af lista námsbrautar í samráði við leiðbeinanda sinn. Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst.

Lokaritgerð er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, vinna úr heimildum, svo og til að nota fræðileg hjálpargögn (t.d. handbækur, orðabækur eða sambærilegar vefsíður).

Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands [hlekkur: https://ritver.hi.is/is ] sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.

Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar https://gervigreind.hi.is/ 

Sjá nánar um reglur um BA-ritgerðir á Hugvísindasviði: https://ugla.hi.is/kerfi/view/page.php?sid=3544 

Kennslutungumál: Íslenska
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Þriðja ár | Haust
Heimum í samtvinnun: Miðaldir, fólk og náttúra (FOR501M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fyrir marga eru miðaldir (u.þ.b. 1000–1550) í Evrópu þekktar sem „hinar myrku aldir“, tímabil hugmyndalegrar og félagslegrar stöðnunar sem einkenndist einnig af plágum og trúarátökum. Hins vegar sýna fornleifarannsóknir og sögulegar heimildir að ýmsar heimspekilegar og tæknilegar nýjungar urðu til á þessu tímabili, einkum varðandi notkun landslags og hugmyndafræði um náttúruna. Umhverfisviðburðir á borð við hlýskeið miðalda (Medieval Climatic Optimum) og „litla ísöldin“ á 14. öld varð til þess að fólk brást við breyttum aðstæðum. Auk þess, þegar kristni verður ráðandi trú í Vestur-Evrópu, breytist merking náttúrunnar. Til er athyglisvert efni sem sýnir blandaðar nálganir við það að viðhalda og umbreyta landslagi þegar trúarhefðir renna saman. Náttúran var ekki aðeins auðlind fyrir fólk á miðöldum, heldur líka leið til að tjá sjálfsmynd, tilheyra samfélagi, marka kyngervi, stétt og andlega sýn. Í námskeiðinu verður fjallað um fræðilegar leiðir til að skilja tengsl á milli miðaldafólks og náttúru. Kynnt verða dæmi af fólki og samfélögum miðalda sem lifðu í og skilgreindu sig sem hluta af hinu náttúrulega umhverfi. Fjallað verður um kennilegar nálganir á borð við fyrirbærafræði, samtvinnun (entanglement), meira-en-mennska og staðarkennd (sence of place), og þær útskýrðar með dæmum af gripum og fornleifum. Einnig verða aðferðir til að rannsaka tengsl fólks við náttúruna til forna – svo sem vatna- og landmótunarfræði, steingervingafræði, réttarmeinafornleifafræði og fleira –skoðaðar í gegnum lesefni. Námskeiðist á 40 mínútna fyrirlestrim, 10 mínútna hléum og 40 mínútna umræðum um lesefni með fyrirlesara og nemendum. Ein kennslustund mun fara fram í göngu um svæði þar sem sjá má hagnýta og samfélagslega notkun á náttúrunni (t.d. í kirkjugarði).

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Haust
Norðurheimur á miðöldum (SAG716M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Sögulegt yfirlit og saga rannsóknarhefðar um valin þemu norrænna miðalda, með áherslu á Ísland og Noreg frá víkingaöld fram til fjórtándu aldar. Þemu telja, m.a.: vald, konungur og ríki; lög og fæðardeilur; kyngervi, mægðir og félagstengsl; trú og hugarfar; kristnitaka, kristni og kirkja; efnahagur. Grunnþekking í atburðasögu tímabilsins er hjálpleg en ekki skilyrði.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Vor

Vinnustofa: Líkaminn og efnisveruleiki í miðaldafornleifafræði (FOR302M)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þessi vinnustofa veitir nemendum fræðilegan grunn til þess að nálgast heimsmynd og upplifun fólks á miðöldum í gegnum efnismenningu. Þátttakendur kynnast hugtakinu efnisveruleika sem fæst við efniseiginleika hluta og áhrif þeirra á skynjun fólks. Á miðöldum einkenndist skilningur á efnisheiminum af sterkri trú á mætti hans; efni var gjarnan álitið lifandi og hlutir voru taldir geta miðlað guðlegri íhlutun og veitt vernd gegn sjúkdómum og hamförum. Auk efnisveruleika fjallar vinnustofan um hugmyndir miðalda um líkamann og skynjun til þess að dýpka skilning nemenda á upplifun fólks á heiminum í kringum sig.

Lýsingu á námskeiðsforminu, þ.e. vinnustofu, má finna hér.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Vor
BA-ritgerð í fornleifafræði (FOR261L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

BA-ritgerð er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið viðfangsefni innan sinnar fræðigreinar og gera grein fyrir rannsókn sinni í vönduðum fræðilegum texta. Nemendur skrifa BA-ritgerð um rannsóknarefni að eigin vali eða velja sér verkefni af lista námsbrautar í samráði við leiðbeinanda sinn. Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst.

Lokaritgerð er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, vinna úr heimildum, svo og til að nota fræðileg hjálpargögn (t.d. handbækur, orðabækur eða sambærilegar vefsíður).

Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands [hlekkur: https://ritver.hi.is/is ] sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.

Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar https://gervigreind.hi.is/ 

Sjá nánar um reglur um BA-ritgerðir á Hugvísindasviði: https://ugla.hi.is/kerfi/view/page.php?sid=3544 

Kennslutungumál: Íslenska
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Þriðja ár | Vor
Matur og menning: (NÆR613M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Matur er mannsins megin, uppspretta orkunnar og forsenda lífsins. En matur er líka sneisafullur af merkingu. Matarhættir veita innsýn í heimsmynd okkar, lífssýn og listfengi og matur mótar tilveru okkar, líkama, samfélag, hagkerfi, hugarfar og siðferði. Sjálfsmynd okkar og minningar eru nátengdar mat og matur er einhver mikilvægasti miðillinn fyrir samskipti okkar við annað fólk.

Í námskeiðinu skoðum við hvað fólk borðar, hvernig, hvenær, með hverjum og hvers vegna. Með þeim hætti fáum við dýrmæta innsýn í kyngervi og kynslóðir, fæðuöryggi og rétt til matar, stéttaskiptingu og menningarlegan margbreytileika, skynheim og fegurðarskyn, tækni og matvælaframleiðslu, tísku og matarkúra, matarhefðir og menningararf, tilfinningar, vináttu og fjölskyldubönd. Matarhættir tengja þannig saman menningu og náttúru, hnattvæðingu og hið staðbundna, heimilið og vinnustaðinn, fortíð og samtíð, manneskjur og örverur.

Í námskeiðinu beinum við sjónum að sambandi matarframleiðslu og neyslu á 21. öld með sérstaka áherslu á lýðheilsu, siðferðislega neyslu og sjálfbærni.

Matur og menning eru þverfagleg viðfangsefni og því er þetta námskeið kennt í samstarfi námsbrauta í þjóðfræði og matvæla- og næringarfræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Sumar
Starfsreynsla við uppgröft eða safn (FOR413G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið felst í reynslu sem nemandi aflar sér af störfum við fornleifarannsóknir.  Það getur verið þátttaka í vettvangsskóla, vinna við uppgröft, fornleifaskráningu, úrvinnslu (þ.á.m. greining og frágangur gripa og forvarsla), vinna á safni eða við minjavörslu.  Hafið samband við námsbrautarformann ef þið eruð í vafa um hverskonar störf eru tekin gild.  Til að ljúka námskeiðinu þarf að vinna 40 heila daga og skila að því loknu staðfestingu undirritaðri af vinnuveitanda/stjórnanda rannsóknar til námsbrautarformanns. Eyðublaðið má nálgast hjá námsbrautarformanni í fornleifafræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Þriðja ár | Sumar
Starfsreynsla við uppgröft eða safn (FOR419G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið felst í reynslu sem nemandi aflar sér af störfum við fornleifarannsóknir.  Það getur verið þátttaka í vettvangsskóla, vinna við uppgröft, fornleifaskráningu, úrvinnslu (þ.á.m. greining og frágangur gripa og forvarsla), vinna á safni eða við minjavörslu.  Hafið samband við námsbrautarformann ef þið eruð í vafa um hverskonar störf eru tekin gild.  Til að ljúka námskeiðinu þarf að vinna 20 heila daga og skila að því loknu staðfestingu undirritaðri af vinnuveitanda/stjórnanda rannsóknar til námsbrautarformanns. Eyðublaðið má nálgast hjá námsbrautarformanni í fornleifafræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Þriðja ár | Sumar
Vettvangsskóli í fornleifafræði á Hofstöðum (FOR004M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennsla í námskeiðinu fer fram á vettvangi á Hofstöðum í Mývatnssveit. Nemendur kynnast helstu einkennum íslenskra fornleifa og taka þátt í vettvangsrannsóknum sem geta falið í sér uppmælingu, fjarkönnun, borkjarnakönnun og uppgröft.  Nemendur fá þjálfun í öllum stigum fornleifarannsóknar á vettvangi, frá hönnun rannsóknarverkefnis til úrvinnslu og kynningar fyrir fræðasamfélagi, almenningi og ferðamönnum.  Nemendur kynnast tímasetningaraðferðum, site formation processes og efnismenningu Norður Atlantshafs. Áhersla er lögð á að setja staðbundnar fornleifarannsóknir í fræðilegt samhengi, að nemendur kynnist þeirri umræðu og þeim álitamálum sem uppi eru á sviði fornleifafræði Norður Atlantshafs.  Einnig er lögð áhersla á að nemendur kynnist aðferðafræði minjaverndar og fá innsýn inn í áskoranir og möguleika menningararfs ferðaþjónustu.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár
  • Haust
  • FOR101G
    Aðferðafræði I
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður farið yfir grundvallaratriði fornleifafræðilegrar aðferðafræði. Helstu efni sem fjallað verður um eru: Saga aðferðafræðinnar, löggjöf og siðfræði, undirbúningur rannsókna, rannsóknaráætlanir og heimildakönnun, fornleifaskráning, loftljósmyndun og fjarkönnun, aðferðir við uppgröft og úrvinnslu uppgraftargagna, gagnasöfn, forvarsla og miðlun. Námskeiðið er kennt með fyrirlestrum og umræðutímum en í upphafi misseris verður námskeiðið kennt á vettvangi. Önnur námskeið í fornleifafræði sem kennd eru á sama misseri munu taka mið af því.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR102G
    Vinnulag í fornleifafræði
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að undirbúa nemendur fyrir frekara háskólanám í fornleifafræði. Framsetning efnis og þekkingar í ræðu og riti er veigamikill þáttur í því. Að námskeiðinu loknu ættu nemendur að hafa skýrar hugmyndir um þær kröfur sem gerðar eru til nemenda á háskólastigi og hvaða aðferðum þeir þurfa að beita til þess að uppfylla þessar kröfur.

     Farið er yfir helstu þætti í ritun fræðilegs texta með áherslu á ritgerðaskrif en einnig fjallað um önnur form sem varða fornleifafræði sérstaklega, s.s. uppgrafta- og skráningarskýrslur. Fjallað er um heimildanotkun og lögð áhersla á gagnrýnið viðhorf við meðferð og túlkun texta. Fjallað er um mismunandi gerðir heimilda og hvernig þær nýtast fornleifafræðingum við rannsóknir og kynntar ólíkar leiðir við miðlun fornleifafræðilegra upplýsinga.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR103G
    Inngangur að fornleifafræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Yfirlitsnámskeið um viðfangsefni og aðferðir fornleifafræðinnar. Hvað er fornleifafræði? Saga fornleifafræðinnar, hugmyndafræðilegur grundvöllur og samband hennar við aðrar greinar fortíðarvísinda. Hvernig eru fornleifar notaðar til að varpa ljósi á samfélagsgerð, umhverfi, hagkerfi og viðskipti, trú og hugmyndafræði, þróun og breytileika?

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP105G
    Gagnrýnin hugsun
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu er ætlað að gera nemendum grein fyrir mikilvægi gagnrýninnar hugsunar með því að kynna helstu hugtök og aðferðir og mismunandi skilning á eðli og hlutverki hennar. Nemendur verða þjálfaðir í gagnrýninni hugsun eins og hún kemur fyrir í heimspeki og í daglegu lífi og starfi. Lögð er áhersla á að greina röksemdafærslur. Ítarlega verður farið í samband gagnrýninnar hugsunar og siðfræði.

    Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðutímum. Sérstök áhersla er lögð á umræður um raunhæf úrlausnarefni. Reynt verður að hafa verkefni eins hagnýt og kostur er og tengja þau sem flestum sviðum daglegrar reynslu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • Vor
  • FOR204G
    Forsaga
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Forsaga fjallar um menningarsögu mannkyns eins og hún birtist í efnismenningunni, frá upphafi verkmenningar fyrir rúmlega 2,5 milljónum ára til loka járnaldar (≈ 0-800 AD), þ.e. einkum þau tímabil sem aðeins takmarkaðar eða engar ritheimildir eru til um. Í námskeiðinu verður farið yfir grundvallaratriði forsögu, svo sem tímatalsfræði og skilgreiningar forsögulegra menningarsamfélaga. Auk þess  verður fjallað um ýmsar birtingarmyndir forsögulegra menningarsamfélaga, svo sem búsetumynstur, grafsiði, verkmenningu og verktækni, verslun og viðurværi. Áhersla verður lögð á þróun mannsins í hnattrænu samhengi og síðari forsögu Evrópu (≈ 10.000 BC-800 AD).

    Í lok námskeiðsins er þess vænst að nemendur geti fótað sig í orðfæri forsögulegrar fornleifafræði og kunni skil á helstu vörðum forsögulegrar tímatalsfræði og evrópskrar forsögu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR205G
    Íslensk miðaldasaga í ljósi ritheimilda og fornleifa
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um sögu Íslands frá landnámi til siðaskipta í ljósi ritheimilda og fornleifa. Yfirlit um sögu víkingaaldar og sögu rannsókna á víkingaöld. Farið er yfir landnámið, forsendur þess og framgang í ljósi fornleifa og ritheimilda. Fjallað verður um mótun nýs samfélags, sjálfsmynd þess og hagrænan grundvöll, byggðaþróun, trú og trúskipti, pólitísk innanlandsátök og innleiðingu ríkisvalds á þrettándu öld.  Kirkjan og félagsleg, menningarleg, pólitísk og hagræn áhrif hennar eru í brennidepli í seinni hluta námskeiðsins. Þessi viðfangsefni verða sett í samhengi við almenna sagnaritun tímabilsins, þróun tækni og efnismenningar og þróun mála í umheiminum. Áhersla er lögð á að nemendur kynni sér frumheimildir, bæði ritheimildir og fornleifar. Kennslan fer fram í fyrirlestrum og í umræðutímum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR406G
    Fornleifarannsókn á vettvangi
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fornleifauppgröftur. Markmið námskeiðs er að auka færni og þekkingu nemenda á uppgraftaraðferðum, einstökum þáttum fornleifarannsókna og að vinna sjálfstætt. Á staðnum verður m.a. kennt á gagnagrunninn Intrasis og uppmælingar með alstöð. Nemendur fá þjálfun í frágangi og pökkun gripa sem finnast í uppgreftinum. Nemendur munu einnig skrá forngripi í menningarsögulegt gagnasafn, Sarp. Uppgraftarsvæði: Bæjarstæði Árbæjar á Árbæjarsafni í Reykjavík. Tími námskeiðs eru fjórar heilar vinnuvikur og hefst námskeiðið í maí eftir að vormisserisprófum líkur á Hugvísindasviði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Sumar
  • FOR413G
    Starfsreynsla við uppgröft eða safn
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið felst í reynslu sem nemandi aflar sér af störfum við fornleifarannsóknir.  Það getur verið þátttaka í vettvangsskóla, vinna við uppgröft, fornleifaskráningu, úrvinnslu (þ.á.m. greining og frágangur gripa og forvarsla), vinna á safni eða við minjavörslu.  Hafið samband við námsbrautarformann ef þið eruð í vafa um hverskonar störf eru tekin gild.  Til að ljúka námskeiðinu þarf að vinna 40 heila daga og skila að því loknu staðfestingu undirritaðri af vinnuveitanda/stjórnanda rannsóknar til námsbrautarformanns. Eyðublaðið má nálgast hjá námsbrautarformanni í fornleifafræði.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR419G
    Starfsreynsla við uppgröft eða safn
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið felst í reynslu sem nemandi aflar sér af störfum við fornleifarannsóknir.  Það getur verið þátttaka í vettvangsskóla, vinna við uppgröft, fornleifaskráningu, úrvinnslu (þ.á.m. greining og frágangur gripa og forvarsla), vinna á safni eða við minjavörslu.  Hafið samband við námsbrautarformann ef þið eruð í vafa um hverskonar störf eru tekin gild.  Til að ljúka námskeiðinu þarf að vinna 20 heila daga og skila að því loknu staðfestingu undirritaðri af vinnuveitanda/stjórnanda rannsóknar til námsbrautarformanns. Eyðublaðið má nálgast hjá námsbrautarformanni í fornleifafræði.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Haust
  • FOR202G
    Aðferðafræði II
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er ætlað sem inngangur að þeim verklegum þáttum sem þarf að hafa í huga við úrvinnslu uppgraftargagna: Hvað er gert við gripina sem finnast, teikningarnar, mælingarnar, ljósmyndirnar? Á námskeiðinu er farið í gegnum öll þau atriði er snúa að úrvinnslunni og að lokum skrifa nemendur lokaskýrslu. Námskeiðinu er skipt upp í nokkrar lotur, þar sem hver lota snýr að ákveðnum verkefnum í tíma, undir handleiðslu kennara. Unnið verður úr þeim gögnum er fengust á námskeiðinu Fornleifarannsókn á vettvangi II (FOR406G). Það er því ráðlagt að nemendur hafi lokið þessu námskeiði á vorönn.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR303G
    Gripafræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar annars vegar um almennan grundvöll gripafræðinnar, gerðfræði og efnisfræði, og hins vegar um helstu flokka gripa sem finnast á Íslandi, leirker, steináhöld og steinílát, skartgripi og vopn, tréílát, vefnað, gler, krítarpípur o.fl.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR408G
    Kennileg fornleifafræði
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmiðið með námskeiðinu er að veita nemendum innsýn í kennilegan bakgrunn fornleifafræðinnar, einkum í Evrópu og Norður-Ameríku. Farið verður yfir sögu kenninga og skýrt frá áhrifum þeirra á þróun fræðigreina almennt. Merking kennilegrar fornleifafræði verður reifuð, samhliða því sem farið verður ítarlega yfir helstu kenningar, strauma og stefnur, og áhrif þeirra á fræðigreinina. Kennt verður með fyrirlestrum, auk þess sem nemendur verða látnir taka þátt í umræðum og vinna að hópverkefnum (4-5 nemendur saman) um kenningar fornleifafræðinnar og kynna niðurstöður þess með framsögu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    LAN615M
    Jarðvegsfræði
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Jarðvegur er undirstaða vistkerfa, grunnur matvælaframleiðslu og mannlegrar búsetu og gegnir lykilhlutverki í hringrásum næringarefna, kolefnis og vatns. Jafnframt geymir jarðvegur mikilvægar upplýsingar um umhverfisbreytingar og samspil náttúru og manns í tímans rás.

    Í þessu námskeiði kynnast nemendur jarðveg sem vistkerfi, auðlind og upplýsingagjafa. Námskeiðið veitir bæði traustan fræðilegan grunn í jarðvegsfræði og leggur jafnframt ríka áherslu á hagnýta færni, vettvangsvinnu og gagnagreiningu.

    Það fjallar um eftirfarandi helstu þætti:

    • Jarðvegsmyndandi þætti og ferla sem leiða til myndunar mismunandi jarðvegsgerða um heiminn.
    • Eðlis- og efnaeiginleika jarðvegs, með sérstakri áherslu á hlutverk leirsteinda og lífrænna efna.
    • Íslenskan jarðveg, myndun hans og sérstöðu.
    • Jarðvegslíf – jarðveg sem vistkerfi og hlutverk hans í vistkerfum
    • Jarðveg sem auðlind - hlutverk jarðvegs í hringrásum næringarefna, kolefnis og vatns.
    • Ástand jarðvegs – hvernig meta megi heilbrigði jarðvegs bæði á vettvangi og með mælingum á rannsóknastofu.
    • Áhrif landnýtingar á jarðveg – jarðvegshningnun og landhnignun (rof, mengun, söltun o.fl.).
    • Tengsl jarðvegs og loftslags.
    • Jarðveg sem rannsóknarefni í tengslum við mannvist og umhverfissögu.

    Kennsla fer fram í formi fyrirlestra, vettvangsferða og rannsóknastofuvinnu, þar sem nemendur öðlast reynslu af raunverulegum jarðvegsrannsóknum og læra að tengja fræðilega þekkingu við eigin rannsóknargögn.

    Námskeiðið hentar nemendum í grunnámi á öðru og þriðja námsári sem og nemendum í meistaranámi.

    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR501G
    Einstaklingsverkefni
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Einstaklingsverkefni.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • JAR514M
    Eldfjallafræði
    Valnámskeið
    7,5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Eldgos eru eitt þeirra meginferla sem skapar og mótar svipmót jarðar. Eldgos geta leitt af sér hamfarir og valdið verulegu tjóni á mannvirkjum. Kvikugösin sem rísa upp frá eldspúandi gígunum viðhalda andrúmslofti jarðar, sem og hafa veruleg áhrif á eiginleika andrúmsloftsins og loftstrauma þess. Kvikuvirkni neðanjarðar, og í sumum tilfellum eldvirknin ofan jarðar, hefur myndað beint eða óbeint stóran hluta að þeim málmum sem við nemum úr jörðu. Þannig að fyrirbærið eldgos hefur bein og óbein áhrif á mannkynið sem og tengsl við margar af undirgreinum jarðvísindanna. Af þeim sökum er grunnskilningur á því hvernig eldfjöll og eldstöðvakerfi virka og framlag eldvirkninar til hringrásaferla jarðar góð undirstaða fyrir alla nemendur í jarðvísindum.

    Í þessu námskeiði verður farið í grunnatriði eldfjallafræðinnar; ferðalag kviku upptakastað til yfirborðs og almenn ferli sem stjórna eldvirkni á yfirborði og dreifingu gosefna. Fjallað verður líka um grunnatriði eldgosavár og hnattrænna áhrifa eldgosa.

    Verklegar æfingar eru vikulega og beinast að því að leysa vandamál með útreikningum, greiningu gagna og rökstuðningi. Ein vettvangsferð á Reykjanes.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LAN101G
    Náttúrulandfræði
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur kunni skil á undirstöðuatriðum líflandfræði, jarðvegs og jarðvegsmyndunar, auk umhverfissögu Íslands, þekki helstu hugtök og aðferðir sem beitt er og verði færir um að greina og túlka íslenskt umhverfi í ljósi þeirra. Fjallað verður um flokkunarfræði lífríkis, fæðukeðjur og fæðuþrep, dreifingu tegunda og farið verður yfir hringrásir orku og efna, útbreiðslu lífríkis og áhrifaþætti, búsvæðabelti, líffræðilega fjölbreytni og verndun lífríkis.

    Farið verður í myndun jarðvegs og eiginleika hans, útbreiðslu jarðvegsgerða, jarðvegsrof og jarðvegsmengun. Rætt verður sérstaklega um áhrif nýtingar og ástand jarðvegs og gróðurs, orsakir og afleiðingar jarðvegseyðingar og hnignunar gróðurlenda, fyrr og nú.

    Haldnir verða þrír fyrirlestrar á viku þar sem farið verður yfir meginefni námskeiðsins. Tveimur tímum á viku, að jafnaði, verður varið í verkefnavinnu þar sem nemendur munu vinna í hópum að úrlausn verkefna. Ein hálfs dags ferð er farin út fyrir Reykjavík til að framkvæma gróðurmælingar og safna jarðvegssýnum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LAN102G
    Kortagerð og kortahönnun
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    “visualization is the process of making the invisible visible[...] the process of making the cognitive imagination visual using available and culturally dominant technologies is one of the most consistent behaviors of mankind.”

    „Myndræn framsetning er að gera ósýnileg fyrirbæri sýnileg [eða] það að gera sjónrænt grein fyrir ímyndun hugans með tiltækri tækni og í samræmi við menningarleg viðmið. Þetta er eitt af því sem mannkynið hefur alltaf leitast við að gera.” - Cox, D. (2006). "Metaphoric Mappings: The Art of Visualization." MIT Press.

    Kortagerð er einn af mikilvægum hlutum landupplýsingahönnunar.

    Nemendur kynnast fræðilegri undirstöðu kortagerðar með hjálp stafrænnar tækni. Námskeiðinu er ætlað að veita nemendum greinargóðan skilning á hugtökum og hagnýtum atriðum sem snerta myndræna framsetningu á kortum og miðlun landfræðilegra upplýsinga. Það snertir ýmis mikilvæg svið í landfræði og skyldum greinum. Í gegnum fyrirlestra og umræður fá nemendur skilning á sögu kortagerðar, helstu kenningum og hugtökum á fagsviðinu og hlutverki landfræðilegra upplýsingakerfa við gerð korta nú á dögum. Fyrirlestrum er fylgt eftir með verkefnum sem hjálpa nemendum að skilja undirstöðuhugtök kortagerðar, sem og skipulegum æfingum í tölvuveri  þar sem nemendur læra að nýta sér landfræðileg upplýsingakerfi við einfalda greiningu og framsetningu landupplýsinga. Nemendur öðlast færni til að rýna eigin verk og annarra á gagnrýninn hátt og geta útskýrt og réttlætt eigin ákvarðanir varðandi myndræna framsetningu á korti.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LAN104G
    Mannvistarlandfræði
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kynnt verða hugtök og kenningastraumar í samfélagsvísindum, með áherslu á notkun og birtingarform í samtímarannsóknum í mannvistarlandfræði og ferðamálafræði. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á notkun hugtaka í vísindalegri umræðu og þjálfun í meðferð þeirra. Má þar telja algeng hugtök eins og staður, rými, hnattrænt, staðbundið, hnattvæðing, sjálfbær þróun, náttúra, landslag, menning, sjálfsmynd, ímynd og samfélag. Kennsluform er blanda fyrirlestra og umræðutíma í smærri hópum, sem tengjast skilaverkefnum nemenda. Próftökuréttur er háður verkefnaskilum og þátttöku í umræðuhópum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    LAN516G
    Jarðvegsfræði
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið hentar nemendum á öðru og þriðja námsári
    Námskeiðið felur í sér eftirfarandi helstu þætti:

    • Jarðvegsmyndandi ferla
    • Eðlis- og efnaeiginleika jarðvegs
    • Flokkun jarðvegs og hnattræna dreifingu
    • Hlutverk jarðvegs í vistkerfum
    • Áhrif utan að komandi þátta (t.d. gróðurs og loftslags) á jarðveg og næringarefnainnihald
    • Jarðvegsrof og landhnignun
    • Íslenskur jarðvegur og einkenni hans
    • Áhrif fólks á jarðveg og gróður
    • Jarðvegur sem rannsóknarefni varðandi mannvist og umhverfissögu

    Námskeiðið samanstendur af fyrirlesturum, vettvangs- og rannsóknastofuvinnu og ritgerðaskrifum.

    Nemendur taka þátt í kostnaði við vettvangsferðir í þessu valnámskeiði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LIS101G
    Aðferðafræði og hugtök listfræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Aðferðafræði og hugtök listfræði (LIS101G) er inngangsnámskeið sem er hugsað sem grunnnám­skeið fræðigreinarinnar listfræði. Fjallað er um list­hug­tak­ið, sögu fræðigreinarinnar, fræðilegar forsendur listfræði sem sjálfstæðrar fræðigreinar og tengsl hennar við aðrar fræðigreinar. Helstu hug­tök, rannsóknaraðferðir og kenningar listfræðinnar eru kynnt. Nemendur fá þjálfun í mynd­grein­ingu og myndlestri og kynnast helstu greiningaraðferðum listfræði, s.s. formalískri, íkónó­grafískri og marxískri myndgreiningu. Áhersla er lögð á þjálfun gagnrýnnar hugsunar og hæfni nemenda til gagnrýnnar greiningar á texta og myndmáli.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LÍF102G
    Grasafræði
    Valnámskeið
    7,5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Plöntur sem lífverur. Bygging og starfsemi plöntufrumna. Ljóstillífun. Innri og ytri bygging plantna, vöxtur og æxlun. Ættliðaskipti, þróun, lífsferlar og einkenni helstu hópa plantna. Fjallað verður um mosa og útdauðar og núlifandi æðplöntur en mest áhersla lögð á blómplöntur. Þróun og gerð fræja, blóma og aldina. Helstu lífbelti jarðar. Gróður á Íslandi.

    Verklegar æfingar: Dæmi skoðuð af ytri og innri byggingu plantna úr helstu hópum. Frumu- og vefjagerðir, fræ, blóm og aldin. Áhrif umhverfis á ytri og innri gerð plantna.

    Próf: Verklegt (20%) og skriflegt próf (80% heildareinkunnar). Lágmarkseinkunnar er krafist í báðum prófhlutum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÍF311G
    Vistfræði
    Valnámskeið
    7,5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    7,5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fyrirlestrar: Inngangur. Þróun. Atferli. Söguleg og vistfræðileg líflandafræði. Stofnar: Dreifing einstaklinga, fæðingartölur, dánartölur, aldursdreifing, líftöflur, vöxtur stofna, stjórnun stofnstærðar, stofnsveiflur, far. Samspil tegunda: Samkeppni, afrán, aðrar samskiptagerðir. Nýting stofna. Stjórnun skaðlegra stofna. Samfélög: Lýsing, tegundasamsetning, tegundafjölbreytni, fæðuvefir, stöðugleiki, framvinda. Vistkerfi: Hringrás efna, orkurás, framleiðni, næringarkeðjur, neysluþrep, vistfræðileg nýtni. Vistfræði þurrlendis, sjávar og fersks vatns; kynning á íslenskum vistkerfum.

    Verklegar æfingar: Æfingar fara fram á rannsóknarstofu og úti við, eftir því sem aðstæður leyfa. Lögð er áhersla á beitingu vísindalegrar aðferðar í vistfræði, breytileika og meðferð gagna. Gerðar eru m.a. athuganir á stofnvexti bifdýrastofna, athuganir á gróðri og dýralífi þurrlendis, á beltaskiptingu í fjöru og á straumvatni.  Mætingarskylda: í allar verklegar æfingar. 

    Námsmat: Verklegar æfingar og málstofur vega 50% af lokaeinkunn, þar af ein viðameiri skýrsla sem kynna á munnlega. Tíu skriflegar æfingar gilda 50%. Lágmarkseinkunnar er krafist úr öllum námshlutum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • MAN103G
    Inngangur að mannfræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum undirstöðuatriði félagslegrar og menningarlegrar mannfræði og helstu efnisþætti greinarinnar. Fjallað er um verkefnasvið mannfræði, sögu greinarinnar, helstu kennistefnur, rannsóknaraðferðir og hugtök. Ennfremur er fjallað um skipan samfélaga almennt, tengsl vistkerfis og samfélags og félagslegar breytingar. Þá eru einstakir þættir félagsskipunar ræddir s.s. sifjar, stjórnskipan, hagskipan og trúarbrögð og fjallað er um rannsóknir mannfræðinga á íslensku samfélagi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAN330G
    Inngangur að líffræðilegri mannfræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum undirstöðuatriði líffræðilegrar mannfræði og forsögu tegundarinnar Homo sapiens. Fjallað er um grunnþætti erfðafræðinnar, með áherslu á mannerfðafræði og stofnerfðafræði. Fjallað er um þróunarsögu prímata og þá eiginleika sem aðgreina prímata frá öðrum spendýrum, og þá eiginleika sem aðgreina manninn frá öðrum prímötum. Farið er ítarlega í þróunarsögu manntegunda (hominid evolution) með hliðsjón af steingervðum beinum, steinverkfærum og öðrum fornleifum sem fundist hafa í Afríku og víðar. Að lokum er fjallað um erfðafræðilegan breytileika og lífeðlisfræðilega aðlögunarhæfni tegundarinnar Homo sapiens.

    Námskeiðið er eingöngu fyrir staðnema og fjarnema. Það er 80% mætingaskylda í fyrirlestra, sem gildir jafnt um staðnema og fjarnema. Mæting í fyrirlestra fyrir fjarnema er skilgreind sem lifandi þátttaka í gegnum Teams, þar sem fjarnemar eru í mynd á meðan kennsla fer fram.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SAG112G
    Aftökur og upplýsing. Íslandssaga II
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Veitt verður yfirlit um valda þætti í sögu Íslands frá byrjun sextándu aldar til upphafs þeirrar nítjándu og fjallað sérstaklega um nokkur viðfangsefni tímabilsins, m.a. út frá frumheimildum. Greint verður frá viðhorfi fræðimanna og almennings til þessa hluta Íslandssögunnar, ástæður þess og breytingar á síðustu áratugum, fjallað um breytingar á íslensku þjóðlífi í kjölfar siðaskipta og um heilbrigðismál, menntun og menningu, galdra og trúarstefnur, dómsmál, þéttbýlismyndun, framfarahugmyndir og tengsl Íslands við umheiminn fram undir aldamótin 1800. Nemendur skrifa stutta ritgerð eða verkefni um afmarkað efni sem einkum byggir á frumheimildum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • SAG115G
    Dauði og endurfæðing - Inngangur að síðmiðöldum - Heimssaga I
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Síðmiðaldir (14.-15. öld) einkenndust af andstreymi á flestum sviðum evrópsks samfélags. Eftir mannfjölgun, þenslu og vöxt undangenginna þriggja alda sóttu drepsóttir nú fast að með mannfelli og hörmungum. Efnahagsþrengingar settu svip sinn á mannlíf hátt og lágt ― valdamenningu, félagsformgerðir og trúarlíf. Menntun, menning og listir héldu fyrra afli en dauði og forgengileiki mannlegs lífs var víða í forgrunni. Innri friður álfunnar átti einnig undir högg að sækja þegar konungsveldi efldust enn frekar, oft með íþyngjandi og ófriðlegum hætti fyrir vinnandi stéttir og almúga. Rómarkirkjan, sem risið hafði hátt undir páfavaldi á hámiðöldum, fór hins vegar halloka fyrir veraldarvaldhöfum eða staðbundnu kirkjuvaldi og dró úr völdum páfa innan kirkju og kristindóms. En hvert sem litið er á tímabilinu haldast dauði og endurfæðing í hendur, eftirvænting eftir því sem tekur við þessa heims og annars í skugga dauðans.
    Dauði og endurfæðing er inngangsnámskeið sniðið að nýnemum í sagnfræði ― öðrum er velkomið að nýta það sem valnámskeið. Lesin verður grunnbók um tímabilið en sjónum einkum beint að eftirtöldum þemum í fyrirlestrum: (1) Hnignun páfavalds og efling kirkjuþinga; (2) trúarinnlifun, alþýðutrú og mystisismi; (3) efling ríkisvalds við þröngan kost, stríð og örðuga skattheimtu; (4) Svarti dauði og mannfækkun af hallærum ― langvinn áhrif á efnahag, verslun og félagsgerðir; (5) menntun, menning og listir í skugga mannfellis og drepsótta; (6) rætur siðaskipta og endurreisnar í miðaldamenningu.
    Námsmat byggir á stuttri ritgerð og skriflegu lokaprófi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • SAG355G
    Miðaldakirkjur og list þeirra sem spegill á samfélagið
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Hvað er vitað um íslenskar miðaldakirkjur og á hverju byggist sú vitneskja? Hvaða máli skiptu þessar kirkjur í samtíma sínum? Á Íslandi eru engar varðveittar miðaldakirkjur en samt er ýmislegt um þær vitað. Kirkjugrunnar hafa verið grafnir upp og rýnt hefur verið í ritheimildir til að átta sig á hvernig þessar kirkjur hafa litið út. Mikið af listmunum úr innra rými kirkna hefur aftur á móti varðveist. Námskeiðið miðar að því að kynna það sem vitað er um íslenskar miðaldakirkjur og um leið samfélagið sem byggði þær og notaði. Hverjir byggðu hvað og hvers vegna? Farið er yfir helstu flokka kirkna í stærðar- og tignarröð: Dómkirkjur, klausturkirkjur/kirkjur á stærri stöðum, aðrar kirkjur. Ytra form kirknanna verður kynnt ásamt heimildaefninu sem þessi þekking byggir á og endurnýting byggingartimburs fram eftir öldum. Einnig ríkidæmi innanbúnaðarins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • ÞJÓ103G
    Inngangur að þjóðfræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þjóðfræði kynnt sem fræðigrein á íslenska og alþjóðlega vísu. Helstu hugtök þjóðfræðinnar skýrð sem og svið hennar. Rætt er meðal annars um kenningar um hópa, efnismenningu, siði, túlkun þjóðfræðiefnisins og hlutverk þjóðfræðinnar. Þá verður rætt ítarlega um rannsóknarsögu þjóðfræði hérlendis og í nágrannalöndum. Stuðst verður við aðalinngangsrit um þjóðfræði og greinar helstu þjóðfræðitímarita.

    Vinnulag
    Kennsla fer fram í fyrirlestrum kennara og umræðum hópsins, auk þess sem nemendur flytja fyrirlestra og stjórna umræðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • FOR405G
    Fornvistfræði
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið skiptist í þrjá hluta: 1. Almennur inngangur að fornvistfræði, markmiðum hennar og notagildi. 2. Aðferðir fornvistfræðinnar þ.m.t. sýnatökutækni, aldursgreiningar, greining lífveruleifa og túlkunarmöguleikar. 3. Rannsóknarvettvangur fornvistfræðinnar (land, ferskvatn, sjór, andrúmsloft, bólstaðir og menningarlandslag). Fjallað er með dæmum um rannsóknarspurningar sem svarað er með fornvistfræðilegum aðferðum. Kennsla fer fram með fyrirlestrum og verklegum æfingum. Æfingar fara fram í kennslustofu, en farinn verður einn borleiðangur í nærliggjandi stöðuvatn.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR405M
    Landshættir og fornleifaskráning
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um landshætti og rannsókn þeirra með fornleifafræðilegum aðferðum.  Fjallað er um kennilegar forsendur og aðferðir við greiningu en aðaláhersla lögð á þjálfun aðferða við fornleifaskráningu á vettvangi.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR421G
    Mannabeinafræði
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er kynning á fornleifafræðilegri mannabeinafræði, ferðafræðilegum og kennilegum forsendum hennar. Bein verða skoðuð með tilliti til innri og ytri gerðar, efnafræði, og smásærra rannsókna. Farið verður yfir undirstöðuatriði beinafræðinnar, greiningu á kyni, lífaldri og líkamshæð, og helstu atriði sjúkdómafræði beina og fornmeinafræði. Jafnframt verður fjallað um meginatriði gagnasöfnunnar og greiningar í tengslum við verklegan hluta kúrsins. Notagildi beinafræði við fornleifarannsóknir er skoðað. Þá verður fjallað um sögu þá sem gömul bein geta sagt okkur um mannlíf fyrri alda.

    Kennslan fer fram í fyrirlestrum, umræðutímum, og verklegum tímum.

    Ath. kennsla fer fram hjá Þjóðminjasafni Íslands, Tjarnarvöllum 11 í Hafnarfirði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR423G
    Dýrabeinafræði
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er kynning á aðferðafræðilegum og kennilegum forsendum dýrabeinafræði. Dýrabein verða skoðuð með tilliti til innri gerðar, efnafræði og þróunarsögu. Ljósi verður varpað á þau ferli sem eiga sér stað frá dauða lífveru þar til bein hennar liggja á borði dýrabeinafræðings. Farið verður yfir meginatriði gagnasöfnunnar og greiningar. Notagildi dýrabeinafræði við rannsóknir á mismunandi samfélagsgerðum er skoðað. Þá verður fjallað um sögu þá sem gömul bein geta sagt okkur um mannlíf fyrri alda innan hins norræna menningarsvæðis, og þá sérstaklega á Íslandi.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR702M
    Fornleifafræði eftir 1500
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í nútíma heimi er auðvelt að hugsa um fortíðina sem eitthvað sem er langt í burtu og hversdeginum óviðkomandi – hvort sem það er heimsókn á safn eða jafnvel fornleifafræðinám, sagan virðist alltaf vera aðskilin frá hversdagsleikanum. Hún er áhugamál okkar eða eitthvað sem við skoðum okkur til skemmtunar. Markmið þessa námskeiðs er að skoða samtímann frá sjónarhorni fornleifa- og sagnfræði: á hvaða hátt er líf okkar afleiðing atburða sem gerðust í fortíðinni? Námskeiðið mun sýna hvernig fortíðin lifir í nútímanum – ekki sem sögustaðir eða fornleifafræðibók heldur sem eitthvað sem hefur áhrif á skipulag hversdagsins og efnisveruleikan sem við búum í. Þótt rætur þessa ferla nái aftur til líffræðilegrar þróunar okkar þá má færa sterk rök fyrir því að flestir áhrifavaldarnir sem skapa umhverfi okkar eigi sér upphaf á síðustu 500 árum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR428G
    Sjávarfornleifafræði
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þessu námskeiði er ætlað að veita nemendum fræðilegan og aðferðafræðilegan undirbúning í sjávarfornleifafræði og verndun menningararfs á strönd og neðansjávar. Saga Íslendinga hefur alla tíð verið nátengd hafinu og segja má að frá miðöldum hafi afkoma í landinu byggst á nýtingu sjávarauðlinda og verslun þeirra. Í námskeiðinu verður fjallað almennt um viðfangsefni sjávarfornleifafræði en efnisleg áhersla námskeiðsins verður íslenskar sjávarminjar, þ.e. skipsflökum, minjum eftir erlenda hvalveiðimenn, bæði á 17. og 19. öld og loks ver- og minjum í sjó og í landi við verslunarstaði.  Að auki verður fjallað um verndun sjávarminja og þær hættur sem sjávarminjar standa fram fyrir bæði vegna náttúrulegra og mannlegra þátta. Námskeiðið mun gefa nemendum  góða yfirsýn yfir fræðilegar og hagnýtar áherslur í sjávarfornleifafræði, skilning á aðferðum og tækni í sjávarfornleifafræði og gera þeim kleift að auka þekkingu sína á efninu á sjálfstæðan hátt.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR610G

    LÍF615M
    Gróðurríki Íslands og jarðvegur
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennt á móti LÍF 606M og ráða skráningar hvort námskeiðið er kennt. Íslenska háplöntuflóran; samsetning, fjölbreytni, staða í flóruríki jarðar. Heimskautaflóran: uppruni, kerfisfræði, vistfræði. Líflandafræði flórunnar við Norður Atlantshaf. Ísöld á norðurhveli, ísaldarlok á Íslandi og í Evrópu og gróðursaga á nútíma. Tilgátur um aldur og uppruna íslensku flórunnar og heimskautaflóru á norðurhveli. Íslenskur jarðvegur; myndun, sérkenni, eyðimerkurmyndun. Gróðurbreytingar eftir landnám. Flóra Íslands og útbreiðsla um landið, búsvæði og líffræðileg fjölbreytni. Válistategundir. Aðferðir til að lýsa og flokka gróður. Íslensk gróðurlendi: flokkun, útbreiðsla, umhverfi og nýting. Verkleg kennsla fer að hluta til fram að sumari til: 4 daga sumarnámskeið.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SAF201G
    Rokkar og stokkar og reður í krús: Söfn og fræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er almennur inngangur að safnafræði. Fjallað verður um helstu þætti safnastarfs og fræðilegar og sögulegar forsendur þess. Skoðað verður hlutverk safna í fortíð og nútíð, uppbygging safnkosts, flokkun, skráning og varðveisla. Hugað verður að aðgengi, fræðslu, sýningagerð og gildi rannsókna fyrir safnastarf. Einnig verða skoðaðar mismunandi aðferðir við túlkun og framsetningu á sýningum. Íslensk söfn verða sett í samhengi við þjóðfræði, sem og erlent safnastarf og fræði. Námskeiðið skiptist í þrjár lotur, sem hver fyrir sig spannar um 4 vikna tímabil. Í hverjum hluta eru fyrirlestrar frá kennara auk skipulagðrar heimsóknar á tiltekið safn og umræður í kjölfarið. Áhersla verður lögð á umræður og verkefnavinnu innan safna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    SAF603M
    Safn og samfélag: Sirkus dauðans?
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um samfélagslegt hlutverk safna út frá margvíslegum sjónarhornum: efnahagslegum, pólitískum, menningarlegum, félagslegum og síðast en ekki síst alþjóðlegum. Fjallað verður meðal annars um hlutverk safna í hugmyndinni um þjóð, lagalegt umhverfi safna, rekstrarform, staða og hlutverk þjóðarsafna, safna í eigu sveitarfélaga, félagasamtaka og einkafyrirtækja, fjármögnun safnastarfs, stefna yfirvalda í málefnum safna, söfn og mannréttindi, söfn og áföll (trauma), kynjahugmyndir og fleira. Í námskeiðinu er einnig hugað að möguleikum safna á að virkja fólk og samfélög til þátttöku í starfsemi þeirra eins og söfnun, heimildaöflun, sýningarstjórnun, sýningargerð og annarri miðlun. Skoðuð verða innlend og erlend dæmi. Eftir því sem því verður komið við, eru farnar ein til tvær vettvangsferðir. Námskeiðið er eingöngu kennt í fjarnámi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SAG270G
    Efnahagur og lífshættir - Íslandssaga III
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu er ætlað að veita nemendum yfirsýn yfir meginþætti í félags- og hagsögu Íslands frá byrjun 19. aldar og fram til okkar tíma. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist gagnrýninn skilning á félagslegum og efnahagslegum aðstæðum Íslendinga og hvernig þær breytast. Jafnframt er leitast við að nemendur öðlist færni við að greina og miðla fræðilegri þekkingu og byggi þar á því sem þeir hafa lært í námskeiðinu Sagnfræðileg vinnubrögð.  Helstu viðfangsefni námskeiðsins eru efnahagsleg tengsl Íslands við umheiminn; vöxtur og hnignun landbúnaðarsamfélagsins, orsakir og afleiðingar atvinnubyltingarinnar um 1900, stéttaskipting og nýir lífshættir í iðnaðarsamfélagi; konur, karlar og atvinnulífið; fólksfjöldi og fjölskyldulíf; áhrif heimsstyrjaldanna; kreppan mikla og haftakerfið, hagvöxtur og hagsveiflur; Evrópusamvinna og alþjóðavæðing efnahagslífs; vöxtur velferðarsamfélagsins; atvinnuþróun á lýðveldistímanum; fjármálavæðing efnahagslífs og „Hrunið“.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • SAG273G
    Stjórnmál og menning — Íslandssaga IV
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu er ætlað að veita nemendum gagnrýnin skilning á sagnaritun um þróun íslensks stjórnmála- og menningarlífs frá upphafi nítjándu aldar til samtímans. Sjónum er beint að eftirtöldum þáttum: (i) þjóðríki og sjálfstæðisbarátta, (ii) lýðræði, (iii) menning og menntun, (iv) kyn, kynverund og stéttir, (v) flokkar og hagsmunasamtök og (vi) tengsl við umheiminn. Áhersla er lögð á að setja sögu Íslands í norrænt, vestrænt og hnattrænt samhengi. Í námskeiðinu fá nemendur þjálfun í að lesa og ræða frum- og eftirheimildir sem og í að afla heimilda og skrifa fræðilegan texta um afmarkað viðfangsefni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • UMV401G
    Landfræðileg upplýsingakerfi 1
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Stúdentar með UMV401G sem skyldunámskeið hafa forgang við skráningu. 

    Markmið: Að gera stúdentum frá breiðum bakgrunni mögulegt að hagnýta landfræðileg upplýsingakerfi til kortagerðar og landfræðilegrar greiningar við skýrslu- og álitsgerð, kynningu verkefna, vinnu og rannsóknir. Að stúdentar öðlist þroska og þjálfun til að: 1) stýra verkefnum á sviði landfræðilegra upplýsinga, 2) meta hvernig landfræðileg greining og kort nýtast best fyrir fjölbreytt verkefni, 3) rita texta sem túlkar kort og lýsir landfræðilegri greiningu, 4) rita fagmannlega skýrslu um verkefni sem hagnýtir sér landfræðileg upplýsingakerfi, kort og landfræðilega greiningu. 

    Efni: Stúdentar kynnast landfræðilegum upplýsingakerfum og landfræðilegum gögnum. Lærið gerð staðháttakorta og þemakorta. Notuð verða vektorgögn og rastagögn. Lærið val eftir eigindum og staðsetningu, og gerð kortalaga út frá vali. Lærið tengsl við töflugögn og landfræðileg tengsl. Æfðar verða fjölbreyttar aðgerðir með kortalög, t.d. klippa, sameina, flytja gögn á milli laga, auk teikningar og gerðar nýrra kortalaga. Tengið loftmynd við kortalög. Tengið GPS hnituð gögn við landakort. Framkvæmið landfræðilega greiningu gagna. Áhersla er á að stuðla að þroska nemenda við að velja innihald korta, aðgerðir og greiningartæki, hanna kort og túlka kort með texta. 

    Kennsluhættir: Stúdentar kynnast og fá þjálfun í algengri hagnýtri notkun landfræðilegra upplýsingakerfa í verklegum kennslutímum í tölvustofu og við vinnu heimaverkefna og lokaverkefnis byggðum á raunverulegum gögnum. Verkefni eru hönnuð til að auka færni stúdenta í vali korta, innihalds og greiningartækni auk túlkunar korta.

    Námsform

    Námskeiðið er kennt í kennslustofu með beinu streymi og upptökur síðan gerðar aðgengilegar nokkrum dögum síðar. Hægt er að taka námskeiðið í staðnámi eða fjarnámi eða blandað. Ekki er gert ráð fyrir að hægt sé að taka námskeiðið sem netnámskeið án rauntímaþátttöku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞJÓ205G
    Efnismenning og samfélag: Hlutirnir, heimilið, líkaminn
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður efnisleg hversdagsmenning tekin til gagngerrar umfjöllunar. Gefið verður yfirlit yfir þetta þverfaglega rannsóknarsvið og rýnt jöfnum höndum í dæmi úr samtímanum og frá fyrri tíð, íslensk og erlend. Meðal annars verður fjallað um föt og tísku, matarhætti, hlutina sem umkringja okkur í daglega lífinu, rusl og hreinlæti, handverk og neyslumenningu, hús og garða, heimilið, borgarlandslag, söfn og sýningar. Um leið kynnast nemendur ýmsum kenningum og sjónarhornum sem leggja t.a.m. áherslu á mannslíkamann, kyngervi, neyslu, rými og stað.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞJÓ437G
    Norræn trú
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Trúarlíf manna á norðurslóðum er tekið fyrir og heimildir allt frá elstu tímum, eins og grafir, rúnasteinar, hellaristur og aðrar fornminjar verða skoðaðar. Einnig verða lesnar lýsingar á norrænum trúarathöfnum í verkum eftir Tacitus, Adam frá Brimum, Saxo Grammaticus og í fornritum Íslendinga eins og Eddukvæðum og Konungasögum. Auk norrænnar trúar verður fjallað um seið og sjamanisma. Örlagatrú er tekin til ítarlegrar umfjöllunar sem meginþáttur í forkristnum átrúnaði á Norðurlöndum. Loks er vikið að því hvernig kristindómur hefur fallið að norrænum lífsháttum og hugsunarhætti. Námskeiðið er kennt á ensku.

    Vinnulag:
    Kennsla fer fram í fyrirlestrum, og umræðum um fyrirlestra.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ446G
    Menningararfur
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Hvað er menningararfur og hvaða hlutverki þjónar hann? Af hverju er hann í stöðugri útrýmingarhættu? Hvernig tengir hann saman fortíð og samtíð? Hvað á hann skylt við þjóðríkið? Söguvitund? Hnattvæðingu? Kapítalisma? Stjórnmál? Í námskeiðinu verður leitað svara við þessum spurningum, kynntar nýlegar rannsóknir þjóðfræðinga, mannfræðinga, listfræðinga, félagsfræðinga, safnafræðinga, sagnfræðinga og fornleifafræðinga á menningararfi og tekinn púlsinn á því sem er að gerast á þessu ört vaxandi sviði.

    Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ447G
    Lúsakambar, hlandkoppar og kynlíf: Þjóðhættir og daglegt líf í sveitasamfélaginu
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Athugið, námskeiðið kennt annað hvert ár. 

    Í námskeiðinu er fjallað um þjóðhætti og daglegt líf í íslenska sveitasamfélaginu fyrr á öldum, jafnt til sjávar og sveita. Rætt er um aðferðir við rannsókn á efnismenningu, þjóðháttum og daglegu lífi og viðfangsefnið sett í erlent rannsóknarsamhengi. Nemendur kynnast margvíslegum þjóðháttarannsóknum og fjallað er á gagnrýnin hátt um ólíka heimildaflokka - yfirlitsrit, fræðirit og ýmsar frumheimildir. Lögð er áhersla á að greina hugmyndafræði hversdagsins og lífsferil einstaklinga í gamla sveitarfélaginu, um leið og skoðað er hvaða aðferðir dugi best til að rannsaka lífshætti fólksins sem þar ól allan sinn aldur. M.a. er unnið með óprentaðar persónulegar heimildir, svör við spurningalistum og dagbækur.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ606M
    Tíska og fatnaður: Efnismenning í iðnvæddu markaðsþjóðfélagi
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið beinir sjónum að fatatísku sem efnismenningu og rannsakar tískuhegðun einstaklinga í félagslegu samhengi. Nemendur lesa kenningar um tísku í markaðskerfi iðnvæddra þjóðfélaga og kynnast um leið ýmsum kenningum í heimspeki, félagsfræði, þjóðfræði og mannfræði. Tilgátur um áhrifavalda í fatatísku verða kannaðar með gagnrýnu hugarfari og heimfærðar á umhverfi nemenda. Tískukerfi á heimsvísu eru einnig könnuð og greind. Sérstaklega verður hugað að sambandi tískunnar við kyngervi , stétt, kynhneigð, aldur og aðrar helstu breytur félagslegs mismunar. Nemendur huga að „tíðarandanum“ (Zeitgeist) með smáverkefnum og vinna vettvangsrannsókn á fatatísku tiltekinna hópa eða staða og máta kenningarnar við sín eigin vettvangsgögn.

    Rannsóknir og umræður leiða til lokaverkefnis þar sem lögð er fram útlistun á uppruna og eðli ríkjandi fatatísku og spáð á fræðilegan máta fyrir um stærri hreyfingar í fatatísku og tískumenningu komandi ára.

    Námskeiðið hæfir meðal annars nemendum í þjóðfræði, mannfræði, menningarfræði og félagsfræði. Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðum. Fyrirlestrarnir verða á ensku og fjarkenndir þar sem aðalkennari námskeiðsins, Karl Aspelund, verður við University of Rhode Island þar sem hann kennir námskeiðið samtímis. Aðstoðarkennari stýrir síðan umræðutímum og vettvangsrannsóknum nemenda við Háskóla Íslands.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Sumar
  • FOR413G
    Starfsreynsla við uppgröft eða safn
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið felst í reynslu sem nemandi aflar sér af störfum við fornleifarannsóknir.  Það getur verið þátttaka í vettvangsskóla, vinna við uppgröft, fornleifaskráningu, úrvinnslu (þ.á.m. greining og frágangur gripa og forvarsla), vinna á safni eða við minjavörslu.  Hafið samband við námsbrautarformann ef þið eruð í vafa um hverskonar störf eru tekin gild.  Til að ljúka námskeiðinu þarf að vinna 40 heila daga og skila að því loknu staðfestingu undirritaðri af vinnuveitanda/stjórnanda rannsóknar til námsbrautarformanns. Eyðublaðið má nálgast hjá námsbrautarformanni í fornleifafræði.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR419G
    Starfsreynsla við uppgröft eða safn
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið felst í reynslu sem nemandi aflar sér af störfum við fornleifarannsóknir.  Það getur verið þátttaka í vettvangsskóla, vinna við uppgröft, fornleifaskráningu, úrvinnslu (þ.á.m. greining og frágangur gripa og forvarsla), vinna á safni eða við minjavörslu.  Hafið samband við námsbrautarformann ef þið eruð í vafa um hverskonar störf eru tekin gild.  Til að ljúka námskeiðinu þarf að vinna 20 heila daga og skila að því loknu staðfestingu undirritaðri af vinnuveitanda/stjórnanda rannsóknar til námsbrautarformanns. Eyðublaðið má nálgast hjá námsbrautarformanni í fornleifafræði.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR004M
    Vettvangsskóli í fornleifafræði á Hofstöðum

  • FOR303M
    Matargerð til forna
    Bundið valnámskeið
    10
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði er rýnt í matvæli og matarhefðir (e. foodways) fornra samfélaga víðs vegar um heiminn og hvernig mataræði þeirra getur mótað skilning okkar á þeim. Meðal viðfangsefna námskeiðsins er upphaf akuryrkju og húsdýrahalds, hjátrú og helgisiðir í kringum mat, séð frá sjónarhorni fornleifafræði, sagnfræði og etnógrafíu.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR261L
    BA-ritgerð í fornleifafræði
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    BA-ritgerð er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið viðfangsefni innan sinnar fræðigreinar og gera grein fyrir rannsókn sinni í vönduðum fræðilegum texta. Nemendur skrifa BA-ritgerð um rannsóknarefni að eigin vali eða velja sér verkefni af lista námsbrautar í samráði við leiðbeinanda sinn. Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst.

    Lokaritgerð er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, vinna úr heimildum, svo og til að nota fræðileg hjálpargögn (t.d. handbækur, orðabækur eða sambærilegar vefsíður).

    Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands [hlekkur: https://ritver.hi.is/is ] sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.

    Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar https://gervigreind.hi.is/ 

    Sjá nánar um reglur um BA-ritgerðir á Hugvísindasviði: https://ugla.hi.is/kerfi/view/page.php?sid=3544 

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • FOR501M
    Heimum í samtvinnun: Miðaldir, fólk og náttúra
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fyrir marga eru miðaldir (u.þ.b. 1000–1550) í Evrópu þekktar sem „hinar myrku aldir“, tímabil hugmyndalegrar og félagslegrar stöðnunar sem einkenndist einnig af plágum og trúarátökum. Hins vegar sýna fornleifarannsóknir og sögulegar heimildir að ýmsar heimspekilegar og tæknilegar nýjungar urðu til á þessu tímabili, einkum varðandi notkun landslags og hugmyndafræði um náttúruna. Umhverfisviðburðir á borð við hlýskeið miðalda (Medieval Climatic Optimum) og „litla ísöldin“ á 14. öld varð til þess að fólk brást við breyttum aðstæðum. Auk þess, þegar kristni verður ráðandi trú í Vestur-Evrópu, breytist merking náttúrunnar. Til er athyglisvert efni sem sýnir blandaðar nálganir við það að viðhalda og umbreyta landslagi þegar trúarhefðir renna saman. Náttúran var ekki aðeins auðlind fyrir fólk á miðöldum, heldur líka leið til að tjá sjálfsmynd, tilheyra samfélagi, marka kyngervi, stétt og andlega sýn. Í námskeiðinu verður fjallað um fræðilegar leiðir til að skilja tengsl á milli miðaldafólks og náttúru. Kynnt verða dæmi af fólki og samfélögum miðalda sem lifðu í og skilgreindu sig sem hluta af hinu náttúrulega umhverfi. Fjallað verður um kennilegar nálganir á borð við fyrirbærafræði, samtvinnun (entanglement), meira-en-mennska og staðarkennd (sence of place), og þær útskýrðar með dæmum af gripum og fornleifum. Einnig verða aðferðir til að rannsaka tengsl fólks við náttúruna til forna – svo sem vatna- og landmótunarfræði, steingervingafræði, réttarmeinafornleifafræði og fleira –skoðaðar í gegnum lesefni. Námskeiðist á 40 mínútna fyrirlestrim, 10 mínútna hléum og 40 mínútna umræðum um lesefni með fyrirlesara og nemendum. Ein kennslustund mun fara fram í göngu um svæði þar sem sjá má hagnýta og samfélagslega notkun á náttúrunni (t.d. í kirkjugarði).

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SAG716M
    Norðurheimur á miðöldum

  • FOR302M
    Vinnustofa: Líkaminn og efnisveruleiki í miðaldafornleifafræði
    Bundið valnámskeið
    5
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þessi vinnustofa veitir nemendum fræðilegan grunn til þess að nálgast heimsmynd og upplifun fólks á miðöldum í gegnum efnismenningu. Þátttakendur kynnast hugtakinu efnisveruleika sem fæst við efniseiginleika hluta og áhrif þeirra á skynjun fólks. Á miðöldum einkenndist skilningur á efnisheiminum af sterkri trú á mætti hans; efni var gjarnan álitið lifandi og hlutir voru taldir geta miðlað guðlegri íhlutun og veitt vernd gegn sjúkdómum og hamförum. Auk efnisveruleika fjallar vinnustofan um hugmyndir miðalda um líkamann og skynjun til þess að dýpka skilning nemenda á upplifun fólks á heiminum í kringum sig.

    Lýsingu á námskeiðsforminu, þ.e. vinnustofu, má finna hér.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • FOR261L
    BA-ritgerð í fornleifafræði
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    BA-ritgerð er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið viðfangsefni innan sinnar fræðigreinar og gera grein fyrir rannsókn sinni í vönduðum fræðilegum texta. Nemendur skrifa BA-ritgerð um rannsóknarefni að eigin vali eða velja sér verkefni af lista námsbrautar í samráði við leiðbeinanda sinn. Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst.

    Lokaritgerð er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, vinna úr heimildum, svo og til að nota fræðileg hjálpargögn (t.d. handbækur, orðabækur eða sambærilegar vefsíður).

    Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands [hlekkur: https://ritver.hi.is/is ] sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.

    Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar https://gervigreind.hi.is/ 

    Sjá nánar um reglur um BA-ritgerðir á Hugvísindasviði: https://ugla.hi.is/kerfi/view/page.php?sid=3544 

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • NÆR613M
    Matur og menning:

Annað ár

Þriðja ár

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Erlendis er hefð fyrir því að skipta fornleifafræðingum í tvo hópa eftir því hvort þeir leggja fyrst og fremst stund á vettvangsvinnu – uppgröft eða skráningu – eða hvort þeir stunda vinnu sína að mestu innandyra, við túlkun, úrvinnslu, sérfræðigreiningar, kennslu, stjórnsýslu eða safnvörslu.

Á Íslandi hefur slík aðgreining ekki tíðkast og flestir fornleifa-fræðingar sinna hvoru tveggja, vettvangsvinnu og innistörfum.

Menntun í fornleifafræði gerir fólki kleift að fást við fjölbreytileg störf þar sem reynir á þverfaglega og gagnrýna hugsun.

Fólk með þessa menntun starfar meðal annars:

  • á Þjóðminjasafninu
  • á Minjastofnun Íslands
  • við rannsóknir
  • við fjölmiðla
  • við kennslu
  • við safnvörlsu
  • við fornleifaleit og rannsóknir
  • við menningartengda ferðaþjónustu

Listinn er ekki tæmandi.

  • Nemendafélag fornleifafræðinema heitir KUML
  • Félagið gefur út tímaritið Eldjárn auk þess sem það sér um skemmtanir fyrir félagsmenn
  • Facebook-hópur félagsins

Meira um félagslíf stúdenta í Hí

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Snædísi Sunnu Thorlacius
Nám í fornleifafræði við Háskóla Íslands er einstaklega skemmtilegt og fjölbreytt. Fornleifafræði er mjög þverfagleg svo mögulegt er að taka valáfanga á áhugasviði hvers og eins auk þess sem það er gott jafnvægi á milli bóklegs og verklegs náms. Það er mjög góður andi meðal nemenda í fornleifafræðinni, sérstaklega vegna þess að fyrstu vikuna í náminu fara nýnemarnir í vettvangsferð þar sem þeir kynnast bæði innbyrðis og kynnast starfi fornleifafræðinga á vettvangi. Deildin er tiltölulega lítil og er því tilvalin til þess að mynda tengsl bæði við samnemendur og kennara, sem eru einnig meðal fremstu fræðimanna á sínu sviði.
Ljósmynd af Birnu Magnúsdóttur
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á fornleifafræði. Námið er frábært og það er mjög hagnýtt. Það er allt inni í þessu, fræðilegt, verklegt og góð útivera á sumrin. Margar fræðigreinar tvinnast saman í þessu námi og manni líður svolítið eins og maður sé í fjársjóðsleit þegar maður situr ofan í skurði með litla múrskeið og finnur merkilegan hlut sem hefur þýðingu fyrir söguna. Það er góð aðstaða til náms. Matsölurnar og bókabúðin eru frábær. Mér finnst svolítið eins og ég sé heima. Það kom mér líka á óvart hvað aldursbilið er breitt meðal nemanda, það er alltaf hægt að fara í nám og það er alltaf hægt að auka við sig. Láttu vaða og hlustaðu á hjartað!
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil