"
Tungumál kennslu
Íslenska
Lengd náms
Tvö ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú lokið leikskólaliðanámi/leikskólabrú?
  • Ert þú með starfsreynslu af leikskóla?
  • Stefnir þú að áframhaldandi námi í leikskólakennarafræðum?

Þetta nám er 60 eininga grunndiplóma fyrir þau sem lokið hafa námsbraut fyrir leikskólaliða eða leikskólabrú á framhaldsskólastigi.

Markmið námsleiðarinnar er að undirbúa nemendur fyrir áframhaldandi nám í leikskólakennarafræðum. 

Námið veitir aðgang að B.Ed. námi í leikskólakennarafræðum og geta nemendur fengið diplómanámið að fullu metið til eininga.

Námsleiðin er sett upp sem hálft nám í tvö ár, og er kennt í blöndu af stað- og fjarnámi.

Meðal viðfangsefna eru:

  • Starfshættir leikskóla
  • Hlutverk leikskólakennara
  • Máltaka og málþroski
  • Þróun máls og tvítyngi
  • Áhrif leiks á heilaþroska
  • Bernskulæsi
  • Hreyfing og leikræn tjáning í uppeldi og námi
  • Notkun tónlistar í faglegu starfi með börnum
  • Náttúruvísindi og stærðfræði
  • Yngstu börnin í leikskólanum

Annað

Við brautskráningu úr kennaranámi við íslenska háskóla skal kennari búa yfir hæfni í íslensku sem samsvarar að lágmarki C1 í Evrópska tungumálarammanum.

Hér má sjá Tungumálaramma Evrópuráðsins.

Undirbúningsnám sem felst í staðfestri námsbraut fyrir leikskólaliða, samkvæmt gildandi aðalnámskrá framhaldsskóla. Þriggja ára starfsreynsla í leikskóla og að nemendur séu starfandi í leikskóla meðan á náminu stendur.  

Ef umsækjandi hefur lokið prófi, sambærilegu stúdentsprófi, frá erlendum skóla skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku.

Ljúka þarf 60 einingum til diplómagráðu

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Nærumhverfi barna í leik og námi (LSK013G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um hvernig nærumhverfi barna getur skapað fjölbreytt og skapandi námstækifæri í náttúrufræði, stærðfræði og upplýsingatækni, með sérstakri áherslu á athuganir, rannsóknir og tilraunir barnanna sjálfra. Nemendur kynnast grunnhugmyndum útináms og fá kynningu á dæmum um viðfangsefni sem henta vel í slíku námi.

Skoðuð eru náttúrufræðileg og stærðfræðileg viðfangsefni sem finna má í nærumhverfi barna, svo sem spendýr, smádýr, plöntur, form, fjölda, mynstur, vatn og loft. Þá vinna nemendur með ýmis gögn og aðferðir sem styðja við skipulagningu og undirbúning viðfangsefna þar sem umhverfið er nýtt sem uppspretta þekkingar og náms. Að lokum fá nemendur tækifæri til að reyna valin verkefni með börnum á vettvangi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Gagnrýninn lestur og fræðileg vinnubrögð (LSK002G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginmarkmið námskeiðsins er að búa nemendur í háskólanámi undir lestur og ritun fræðilegra texta og þjálfa þá í gagnrýnum lestri enda er hvort tveggja grundvallaratriði í öllu háskólanámi. 

Fjallað verður um ýmsar tegundir fræðilegs efnis og framsetningar á því. Nemendur kynnast helstu einkennum fræðilegra skrifa og læra hvað felst í ritstýrðum og/eða ritrýndum textum. Nemendur öðlast þjálfun í að lesa, greina og meta slíka texta. Rætt verður um sjálfstæð, gagnrýnin og heiðarleg vinnubrögð ásamt því sem fjallað verður um höfundarrétt, ritstuld og falsfréttir.

Nemendur öðlast færni í að vinna efni upp úr fræðilegum texta, svo sem útdrætti, og að flétta saman heimildir við eigin texta. Rætt verður ítarlega um fræðilegar ritgerðir á háskólastigi og nemendur fá þjálfun við gerð slíkra ritgerða. Þá verður fjallað um viðeigandi málnotkun í fræðilegum skrifum og hún þjálfuð.

Fjallað verður sérstaklega um heimildaleit og heimildamat; gæði heimilda og hvernig greina megi vandaðar heimildir frá óvönduðum. Þá fá nemendur þjálfun í heimildaskráningu. Einnig verða nemendur þjálfaðir í að nota heimildir í eigin skrifum og greina milli eigin raddar og heimildarinnar sjálfrar.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Leikskólinn sem menntastofnun (LSK001G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið miðar að því að nemendur öðlist þekkingu og innsýn í hlutverk og stöðu leikskólans í íslensku menntakerfi, hvernig ólík hugmyndafræði, sýn og viðhorf endurspeglast í markmiðum og starfsháttum leikskóla og hlutverk leikskólakennara í námi barna.

Námskeiðið er inngangsnámskeið í leikskólafræði þar sem m.a. er lögð áhersla á að kynna menntunarhlutverk leikskóla og starfsvettvang leikskólakennara. Lögð er til grundvallar sú sýn að börn eigi rétt á krefjandi viðfangsefnum og tækifærum til að taka þátt í samfélagi sem byggir á jafnrétti og lýðræðislegri þátttöku.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Leikræn tjáning og hreyfing, úti og inni (LSK004G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kynntar verða leiðir í leikrænni tjáningu sem tengjast umhyggju, trausti og öryggiskennd barna sem leið til að efla umburðarlyndi, vináttu og tjáningu. Fjallað er um mikilvægi hreyfingar og hreyfiuppeldis, kynntar leiðir til tjáningar og líkamsþjálfunar sem hæfa börnum í leikskóla og yngri bekkjum grunnskóla. Fjallað er um val leikja og sköpun í tengslum við aðra þætti skólastarfs.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Skapandi leikskólastarf (LSK016G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er lögð áhersla á að  nemendur öðlist fræðilega og hagnýta þekkingu á skapandi starfi með ungum börnum, með áherslu á sköpunarferli, tjáningu og það nám sem verður til þegar hugmyndir, tilfinningar og ímyndun barna fá að njóta sín. Nemendur öðlast jafnframt þjálfun í að vinna með listir á skapandi hátt í samstarfi við börn á vettvangi.

Námskeiðið tekur mið af hugmyndafræði Reggio Emilia, þar sem litið er á umhverfið sem „þriðja kennarann“ þar sem gengið er út frá því að börn tjái sig á fjölbreyttan hátt. Í Reggio er talað um “hundrað tungumál barna“ sem vísar til óteljandi leiða barna til að tjá sig. Umhverfið er hannað til að hvetja til þessara tjáningarforma, þar sem kennarara hlusta, virða og stuðla að sköpunargágu barna. Fjallað er um þátttöku og áhrif barna í sköpunarferlinu, sem og hlutverk leikskólakennara í skapandi starfi.

Einnig er vikið að hlutverki opins og endurnýtanlegs efniviðar í skapandi starfi með börnum og hvernig hann getur virkað sem kveikja að hugmyndum, ýtt undir ímyndunarafl og stutt sjálfstæða könnun og sköpun. Nemendur kynnast leiðum til að velja, setja fram og nýta efnivið á markvissan hátt þannig að hann styðji við frumkvæði og fjölbreytta tjáningu barna.

Fjallað er um skynjunarleiki og hvernig má nýta þá til að efla upplifun og tjáningu barna. Jafnframt er ígrundaður munur á skapandi starfi þar sem áhersla er lögð á ferli annars vegar og afurðir hins vegar. Loks er sjónum beint að mikilvægi þess að hlusta á og fylgja eftir hugmyndum barna, þróa þær áfram, sem og að skapa aðstæður þar sem börn hafa raunveruleg áhrif á viðfangsefni og framvindu verkefna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Málþroski og málörvun (LSK015G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið skiptist í tvo nátengda meginþætti. Annars vegar kenningar um máltöku, rannsóknir á málþroska, þróun máls og tvítyngi hjá 0–6 ára börnum. Hins vegar bernskulæsi sem m.a. felur í sér skilning, hljóðkerfisvitund, bókstafaþekkingu og þróun ritmáls. Áhersla er lögð á barnabókmenntir, leik og samskipti sem námsleiðir við töku máls og læsis. Lögð er áhersla á mikilvægi samstarfs við foreldra í tengslum við málörvun og matsleiðir eru kynntar. Í námskeiðinu vinna nemendur verkefni á vettvangi þar sem þeir gera athuganir á mál- og læsisþekkingu barna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Vor
Leikur, samskipti og skráningar (LSK014G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um helstu kenningar um leik og áhrif þeirra á leikskólastarf. Rýnt verður í fjölbreyttar birtingamyndir leiks og náms, annars vegar út frá sjónarhorni barna og hins vegar sjónarhorni fullorðinna. Áhersla er á rannsóknir um samskipti barna, jafningjamenningu og fullgildi í leik. Fjallað verður um  hlutverk leikskólakennara í leik barna og kynntar verða athugunar- og skráningaleiðir sem nýttar eru í þeim tilgangi að meta og gera nám barna í leik sýnilegt. Auk þess verður skoðað hvernig námsumhverfi leikskólans hefur áhrif á þátttöku barna í leik. 

Mætingarskylda er í kennslustundir í hverri viku. Auk þess er mætingarskylda í staðlotur í Sögu.

Hluti verkefna í námskeiðinu eru vettvangstengd og vinna nemendur þau á sínum vinnustað. Lögð er áhersla á að nemendur æfist í að tengja fræðilegt lesefni við leikskólastarf á vettvangi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Vor
Tónlist í lífi ungra barna (LSK009G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á þessu námskeiði kynnast nemendur fræðilegum skrifum um tónlistarþroska barna og helstu aðferðum í notkun tónlistar í faglegu starfi með börnum. Lesefnið fjallar um nýjustu þekking á áhrifum tónlistar frá fæðingu og á fyrstu árum í lífi barns.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár
  • Haust
  • LSK013G
    Nærumhverfi barna í leik og námi
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um hvernig nærumhverfi barna getur skapað fjölbreytt og skapandi námstækifæri í náttúrufræði, stærðfræði og upplýsingatækni, með sérstakri áherslu á athuganir, rannsóknir og tilraunir barnanna sjálfra. Nemendur kynnast grunnhugmyndum útináms og fá kynningu á dæmum um viðfangsefni sem henta vel í slíku námi.

    Skoðuð eru náttúrufræðileg og stærðfræðileg viðfangsefni sem finna má í nærumhverfi barna, svo sem spendýr, smádýr, plöntur, form, fjölda, mynstur, vatn og loft. Þá vinna nemendur með ýmis gögn og aðferðir sem styðja við skipulagningu og undirbúning viðfangsefna þar sem umhverfið er nýtt sem uppspretta þekkingar og náms. Að lokum fá nemendur tækifæri til að reyna valin verkefni með börnum á vettvangi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LSK002G
    Gagnrýninn lestur og fræðileg vinnubrögð
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginmarkmið námskeiðsins er að búa nemendur í háskólanámi undir lestur og ritun fræðilegra texta og þjálfa þá í gagnrýnum lestri enda er hvort tveggja grundvallaratriði í öllu háskólanámi. 

    Fjallað verður um ýmsar tegundir fræðilegs efnis og framsetningar á því. Nemendur kynnast helstu einkennum fræðilegra skrifa og læra hvað felst í ritstýrðum og/eða ritrýndum textum. Nemendur öðlast þjálfun í að lesa, greina og meta slíka texta. Rætt verður um sjálfstæð, gagnrýnin og heiðarleg vinnubrögð ásamt því sem fjallað verður um höfundarrétt, ritstuld og falsfréttir.

    Nemendur öðlast færni í að vinna efni upp úr fræðilegum texta, svo sem útdrætti, og að flétta saman heimildir við eigin texta. Rætt verður ítarlega um fræðilegar ritgerðir á háskólastigi og nemendur fá þjálfun við gerð slíkra ritgerða. Þá verður fjallað um viðeigandi málnotkun í fræðilegum skrifum og hún þjálfuð.

    Fjallað verður sérstaklega um heimildaleit og heimildamat; gæði heimilda og hvernig greina megi vandaðar heimildir frá óvönduðum. Þá fá nemendur þjálfun í heimildaskráningu. Einnig verða nemendur þjálfaðir í að nota heimildir í eigin skrifum og greina milli eigin raddar og heimildarinnar sjálfrar.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Vor
  • LSK001G
    Leikskólinn sem menntastofnun
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið miðar að því að nemendur öðlist þekkingu og innsýn í hlutverk og stöðu leikskólans í íslensku menntakerfi, hvernig ólík hugmyndafræði, sýn og viðhorf endurspeglast í markmiðum og starfsháttum leikskóla og hlutverk leikskólakennara í námi barna.

    Námskeiðið er inngangsnámskeið í leikskólafræði þar sem m.a. er lögð áhersla á að kynna menntunarhlutverk leikskóla og starfsvettvang leikskólakennara. Lögð er til grundvallar sú sýn að börn eigi rétt á krefjandi viðfangsefnum og tækifærum til að taka þátt í samfélagi sem byggir á jafnrétti og lýðræðislegri þátttöku.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LSK004G
    Leikræn tjáning og hreyfing, úti og inni
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kynntar verða leiðir í leikrænni tjáningu sem tengjast umhyggju, trausti og öryggiskennd barna sem leið til að efla umburðarlyndi, vináttu og tjáningu. Fjallað er um mikilvægi hreyfingar og hreyfiuppeldis, kynntar leiðir til tjáningar og líkamsþjálfunar sem hæfa börnum í leikskóla og yngri bekkjum grunnskóla. Fjallað er um val leikja og sköpun í tengslum við aðra þætti skólastarfs.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Haust
  • Ekki kennt á misserinu
    LSK016G
    Skapandi leikskólastarf
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er lögð áhersla á að  nemendur öðlist fræðilega og hagnýta þekkingu á skapandi starfi með ungum börnum, með áherslu á sköpunarferli, tjáningu og það nám sem verður til þegar hugmyndir, tilfinningar og ímyndun barna fá að njóta sín. Nemendur öðlast jafnframt þjálfun í að vinna með listir á skapandi hátt í samstarfi við börn á vettvangi.

    Námskeiðið tekur mið af hugmyndafræði Reggio Emilia, þar sem litið er á umhverfið sem „þriðja kennarann“ þar sem gengið er út frá því að börn tjái sig á fjölbreyttan hátt. Í Reggio er talað um “hundrað tungumál barna“ sem vísar til óteljandi leiða barna til að tjá sig. Umhverfið er hannað til að hvetja til þessara tjáningarforma, þar sem kennarara hlusta, virða og stuðla að sköpunargágu barna. Fjallað er um þátttöku og áhrif barna í sköpunarferlinu, sem og hlutverk leikskólakennara í skapandi starfi.

    Einnig er vikið að hlutverki opins og endurnýtanlegs efniviðar í skapandi starfi með börnum og hvernig hann getur virkað sem kveikja að hugmyndum, ýtt undir ímyndunarafl og stutt sjálfstæða könnun og sköpun. Nemendur kynnast leiðum til að velja, setja fram og nýta efnivið á markvissan hátt þannig að hann styðji við frumkvæði og fjölbreytta tjáningu barna.

    Fjallað er um skynjunarleiki og hvernig má nýta þá til að efla upplifun og tjáningu barna. Jafnframt er ígrundaður munur á skapandi starfi þar sem áhersla er lögð á ferli annars vegar og afurðir hins vegar. Loks er sjónum beint að mikilvægi þess að hlusta á og fylgja eftir hugmyndum barna, þróa þær áfram, sem og að skapa aðstæður þar sem börn hafa raunveruleg áhrif á viðfangsefni og framvindu verkefna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Ekki kennt á misserinu
    LSK015G
    Málþroski og málörvun
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið skiptist í tvo nátengda meginþætti. Annars vegar kenningar um máltöku, rannsóknir á málþroska, þróun máls og tvítyngi hjá 0–6 ára börnum. Hins vegar bernskulæsi sem m.a. felur í sér skilning, hljóðkerfisvitund, bókstafaþekkingu og þróun ritmáls. Áhersla er lögð á barnabókmenntir, leik og samskipti sem námsleiðir við töku máls og læsis. Lögð er áhersla á mikilvægi samstarfs við foreldra í tengslum við málörvun og matsleiðir eru kynntar. Í námskeiðinu vinna nemendur verkefni á vettvangi þar sem þeir gera athuganir á mál- og læsisþekkingu barna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • Ekki kennt á misserinu
    LSK014G
    Leikur, samskipti og skráningar
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um helstu kenningar um leik og áhrif þeirra á leikskólastarf. Rýnt verður í fjölbreyttar birtingamyndir leiks og náms, annars vegar út frá sjónarhorni barna og hins vegar sjónarhorni fullorðinna. Áhersla er á rannsóknir um samskipti barna, jafningjamenningu og fullgildi í leik. Fjallað verður um  hlutverk leikskólakennara í leik barna og kynntar verða athugunar- og skráningaleiðir sem nýttar eru í þeim tilgangi að meta og gera nám barna í leik sýnilegt. Auk þess verður skoðað hvernig námsumhverfi leikskólans hefur áhrif á þátttöku barna í leik. 

    Mætingarskylda er í kennslustundir í hverri viku. Auk þess er mætingarskylda í staðlotur í Sögu.

    Hluti verkefna í námskeiðinu eru vettvangstengd og vinna nemendur þau á sínum vinnustað. Lögð er áhersla á að nemendur æfist í að tengja fræðilegt lesefni við leikskólastarf á vettvangi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Ekki kennt á misserinu
    LSK009G
    Tónlist í lífi ungra barna

Annað ár

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Þekking á sviði leikskólakennarafræði gæti nýst við:

  • Störf í leikskólum
  • Leiðtogastörf í leikskólum
  • Skipulagningu uppeldis- og menntastarfs

Listinn er ekki tæmandi. 

  • Nemendafélag kennaranema við Háskóla Íslands heitir Kennó
  • Félagið stendur fyrir skemmtilegum viðburðum, svo sem nýnemakvöldum, árshátíð og vísindaferðum
  • Fáðu innsýn í líf kennaranema og starfandi kennara í verkefnunum Komdu að kenna og Íslensku menntaverðlaunin

Meira um félagslíf stúdenta í Hí

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Menntavísindasvið | Kennsluskrifstofa
Virka daga 9:00 - 15:00
Þjónustuborð og samfélagsmiðlar

Á Þjónustuborði Háskólatorgs færðu aðstoð og upplýsingar um þjónustu Háskóla Íslands. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða notað vefspjallið neðst í hægra horninu á þessari síðu.

Fylgdu okkur á Instagram, Youtube og Facebook

Mynd af byggingunni Sögu við Hagatorg

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil