- Vilt þú styrkja þekkingu þína í lyfjafræði?
- Langar þig að hafa starfsleyfi lyfjafræðings?
- Hefur þú áhuga á rannsóknum?
- Langar þig í framhaldsnám?
Lyfjafræðinámið er fjölbreytt nám, samsett af bóklegri og verklegri kennslu í greinum líf- og raunvísinda, auk félagsvísindagreina.
Uppbygging náms
Námið er 120 einingar og er skipulagt sem fullt nám til tveggja ára eða sem hlutanám til þriggja ára.
Námið skiptist í:
- Skyldunámskeið, 64 einingar
- Bundin valnámskeið, 6 einingar
- Starfsnám, 10 einingar
- Rannsóknaverkefni, 40 einingar
Uppbygging kennslu
Námið er kennt á íslensku en flestar kennslubækurnar eru á ensku.
Meginmarkmið
Veita nemendum haldgóða þekkingu í lyfjafræði með það að markmiði að nemendur geti uppfyllt kröfur Evrópubandalagsins um menntun lyfjafræðinga.
Annað
Með því að ljúka að auki minnst níu mánaða starfsþjálfun, þar af sex mánuðum í apóteki eða á sjúkrahúsapóteki, fá nemendur sem lokið hafa meistaraprófi í lyfjafræði starfsleyfi lyfjafræðings á Íslandi og í aðildarlöndum Evrópubandalagsins. Starfsleyfi er veitt af Landlæknisembættinu.
Námi lokið með fyrstu einkunn veitir aðgang að doktorsnámi.
BS-próf í lyfjafræði með einkunn 6,5 eða hærri.
Ef umsækjandi um meistaranám hefur hvorki lokið framhaldsskóla- né háskólanámi á íslensku skal hann hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR).
Inntökupróf í íslensku fyrir umsækjendur um nám sem kennt er á íslensku | Háskóli Íslands
Ljúka þarf 120 einingum fyrir lokapróf, þar af 80 einingum í námskeiðum. Náminu lýkur með 30 eininga meistaraverkefni. Auk ritgerðar er verkefnið kynnt með fyrirlestri.
- Ferilskrá (CV)
- Greinargerð um markmið með námi
- Prófskírteini/námsyfirlit
- Ef umsækjandi hefur erlent ríkisfang og erlent próf þarf að skila staðfestingu á enskukunnáttu.
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.
- Fyrsta ár
- Haust
- Lög og reglugerðir
- Líftölfræði I
- Samþætt sjúkdóma- og lyfhrifafræði
- Líftæknilyf
- Vor
- Lyfjaeiturefnafræði
- Siðfræði
- Klínísk lyfjafræði
- Samskiptatækni
- Starfsnám lyfjafræðinema II
- Lyfjafaraldsfræði
Lög og reglugerðir (LYF129F)
Í þessu námskeiði kynnast þáttakendur lögum, reglugerðum og öðrum stjórnvaldsfyrirmælum á heilbrigðissviði, með áherslu á lög og reglugerðir um lyf og lyfjafræðinga. Nemendur læra hvar þessar reglur er að finna og hvernig á að beita þeim. Fyrirlestrar kennara og gestafyrirlesara veita nemendum innsýn í helstu undirstöðuatriði, en nemar vinna jafnhliða verkefni sem tengjast námsefninu.
Líftölfræði I (LÝÐ105F)
Inngangur að hagnýtri líftölfræði í lífvísindum. Yfirlit er gefið yfir tegundir breyta; flokkabreytur, strjálar og samfelldar talnabreytur. Lýsandi tölfræði; lýsistærðir og myndræn framsetning gagna. Fræðilegar líkindadreifingar; tvíkostadreifing, Poisson dreifing og normaldreifing. Skilgreiningar á slembiúrtaki og þýði. Dreifingar lýsistærða. Notkun á öryggisbilum og tilgátuprófum. Samanburður á meðalgildi hópa (samfelldar mælingar). Tölfræðipróf fyrir tíðnitöflur (flokkabreytur). Einföld og lógistísk aðhvarfsgreining og ROC greining. Lifunargreining með aðferð Kaplan Meier og Cox. Í fyrirlestrum og dæmatímunum verður notast við tölfræðiforritið R og RStudio umhverfið.
Samþætt sjúkdóma- og lyfhrifafræði (LYF106F)
Fjallað verður um einkenni, orsakir, meingerð og meðferð sjúkdóma. Lögð er áhersla á verkunarhátt lyfja og áhrif þeirra á sjúklinga með hjartasjúkdóma, lungnasjúkdóma, nýrnasjúkdóma, blóðsjúkdóma, geðsjúkdóma og húðsjúkdóma. Að auki er fjallað um áhrif lyfja á aldraða. Ítarlega er farið yfir áhrif lyfja á sameindir, frumur, vefi og líffæri og tekin klínísk dæmi þar sem lyfin gegna mikilvægu hlutverki við meðferð. Einnig er fjallað um algengar aukaverkanir og milliverkanir lyfja.
Líftæknilyf (LYF122F)
Markmið námskeiðisins er að nemendur skilji grundvallaratriði í þróun og framleiðslu líftæknilyfja. Farið verður í framleiðsluferli líftæknilyfja byggða á frumuræktunum ásamt greiningaraðferðum sem fara fram bæði við þróun lyfsins og þegar lyfið er komið á markað. Fjallað verður um eftirfarandi tegundir líftæknilyfja: Mótefni (hefðbundin og einstofna), bólefni og peptíð- og próteinlyf. Útskýrt verður hvernig “Quality by design”(QbD) er notað í gegnum allt framleiðsuferlið ásamt þeim kröfum sem eru gerðar til líftæknilyfja samkvæmt góðum framleiðsluháttum í lyfjagerð (Annex 2 í EU GMP). Öryggi og eiturvirkni líftæknilyfja verða einnig rædd. Auk þess verður farið í nýjar aðferðir tengdar líftæknilyfjum eins og genameðferðir og notkun kirna (nucleotides). Í þessu námskeiði verður leitast við að hafa víðtækt samstarf við sérfræðinga úr líftækniiðnaðinum á Íslandi
Lyfjaeiturefnafræði (LYF213F)
Farið verður í gegnum ýmsa þætti sem tengjast lyfjaeiturefnafræði eins og eitranir, meinmynd þeirra og birtingarmynd t.d. í formi aukaverkana af völdum lyfja, sjúkdóma af völdum lyfja eða eitrunum. Farið verður í gegnum þær kröfur sem gerðar eru til lyfjaeiturefnafræðilegra prófana á lyfjum og áhættumati.
Siðfræði (LYF215F)
Markmið þessa námskeiðs er að nemendur fái innsýn í siðfræði og þjálfun í siðfræðilegri hugsun við að greina og rökræða raunhæf úrlausnarefni í heilbrigðisþjónustu.
Námskeiðið er undirbúningur undir klínískt nám í apóteki og verklega klíníska lyfjafræði
Klínísk lyfjafræði (LYF217F)
Farið er í grunnhugtök notuð í klínískri lyfjafræði. Áhersla er á kennslu í að taka nákvæma lyfjasögu og túlkun blóðrannsókna og hvernig þessar upplýsingar nýtast við að greina, leysa og fyrirbyggja lyfjatengd vandamál. Farið er í flokkun lyfjatengdra vandamála, milliverkanir lyfja og kynningu á að veita gagnreyndar upplýsingar við fyrirspurnum er varða lyf. Í undirbúningi fyrir verknám eru kynntir helstu gagnagrunnar sem notaðir eru ásamt lyfjafyrirmæla- og sjúkraskrárkerfi Landspítalns. Verknám námskeiðsins fer fram á Landspítalanum þar sem nemendur kynnast og taka þátt í klínískum störfum lyfjafræðinga. Nemendur fá einnig þjálfun í uppsetningu og kynningu raunverulegra sjúkratilfella með áherslu á úrlausn lyfjatendgdra vandamála á hnitmiðaðan hátt.
Samskiptatækni (LYF219F)
Markmið þessa námskeiðs er að veita nemendum grunnþekkingu í viðtalstækni, samskiptum og upplýsingasöfnun í heilbrigðisþjónustu.
Námskeiðið er undirbúningur undir klínískt nám í apóteki og verklega klíníska lyfjafræði
Starfsnám lyfjafræðinema II (LYF222F)
Námskeiðið er til undirbúnings fyrir nemendur að vinna í apótekum. Umsjónarkennari námskeiðs finnur apótek og leiðbeinanda fyrir nemann sem starfar í samráði við Lyfjafræðideild HÍ. Lyfjafræðingur þessi leiðbeinir nemanum á tímabilinu. Neminn vinnur verkefni í því apóteki sem honum er úthlutað.
Lyfjafaraldsfræði (LYF220F)
Markmið námskeiðsins er að kynna fyrir nemum grundvallaratriði í faraldsfræði og hvernig hún tengist tölfræði og heilbrigðisvísindum. Þessi vitneskja er notuð til að skoða nánar rannsóknarspurningar á sviði lyfjafaraldsfræði. Fyrirlestrar gefa helstu undirstöðuatriði, en nemar vinna jafnhliða verkefni sem tengjast námsefninu. Grundvallaratriði faraldsfræði og lyfjafaraldsfræð sem tekin eru fyrir: áhætta/vernd, útkoma, orsakatengsl, mæling á útbreiðslu sjúkdóma og mæling áhættu, rannsóknasnið, hlutverk tilviljunar, gruggunar og bjaga í faraldsfræði, lyfjanotkunarrannsóknir, réttmæti og áreiðanleiki, úrtak, spurningalistar, eigindlegar aðferðir, gagnagrunnar, kerfisbundin samantek og safngreining, siðfræði í faraldsfræðirannsóknum og lyfjagát (Pharmacovigilance).
Mikilvægar rannsóknarspurningar í lyfjafaraldsfræði.
Notagildi lyfjafaraldsfræði í ákvarðanatöku (klíník og stefnumörkun).
Gátlisti yfir gæði rannsókna í faraldsfræði og lyfjafaraldsfræði.
- Annað ár
- Haust
- Lífræn efnafræði 3
- Ekki kennt á misserinuMannauðsstjórnun
- Rekstur og heilbrigðisþjónusta
- Sjálfbær þróun, stefnumótun umhverfismála og stjórnun náttúruauðlinda
- Inngangur að umhverfis- og auðlindafræði
- Lýðheilsa: Vísindi, stjórnmál, forvarnir
- Aðferðafræði verkefnastjórnunar
- Ekki kennt á misserinuNýsköpunar- og frumkvöðlafræði
- Ekki kennt á misserinuInngangur að hagfræði fyrir meistaranema
- Lyfjaefnafræði /Lyfjahönnun
- Náttúrulyf /Náttúruvörur
- Þverfræðileg samvinna í heilbrigðisvísindum
- Aðferðarfræði og inngangur að MS verkefni í lyfjafræði
- Vor
- Meistaraverkefni í lyfjafræði
Lífræn efnafræði 3 (EFN515M)
Í fyrirlestrum verður fjallað um myndun og hvörf enólatanjóna, þ.m.t. alkýlun ketóna og 1,3-díkarbónýlefna, C- og O-alkýlun, aldól-þéttingu og asýlun kolefna. Einnig verður farið yfir afkarboxýlun, myndun tvítengja og fjallað um málmlífræna efnafræði. Þá verður einnig fjallað um notkun litrófsaðferða í við greiningu á lífrænum efnasamböndum og fjallað um notkun gagnagrunna (Scifinder). Skila ber 75% af þeim verkefnum (heimadæmum) sem lögð verða fyrir svo próftökuréttur fáist.
Mannauðsstjórnun (VIÐ194F)
Námskeiðið miðar að því að gera nemendum kleift að tileinka sér nýjustu og helstu kenningar á sviði mannauðsstjórnunar og að nemendur öðlist skilning og þjálfun í notkun helstu kenninga í stjórnun mannauðs. Kenningum um mannauðsstjórnun er gerð ítarleg skil og er markmiðið að nemendur skilji mikilvægi mannauðsstjórnunar sem fræðigrein og sem mikilvægan þátt innan skipulagsheildarinnar. Kynntir verða helstu þættir mannauðsstjórnunar og er mikilvægt að nemendur geti tileinkað sér efni þeirra í kennslu- og dæmatímum þar sem fengist er við úrlausn raunhæfra dæma.
Rekstur og heilbrigðisþjónusta (HJÚ142F)
Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í fræðilega nálgun ýmissa hagrænna þátta sem hafa áhrif á starfsumhverfi í heilbrigðisþjónustu. Þessir þættir eru óumflýjanlegir í öllum rekstri stórum og smáum, hvort sem er opinber rekstur eða einkarekstur. Í námskeiðinu er farið yfir með hvaða hætti þættirnir birtast og hvernig hægt er að hafa áhrif á þá rekstrinum til góða. Meðal hugtaka sem farið verður yfir:
- Framboð, eftirspurn, framleiðsluþættir, teygni
- Breytilegur-, fastur-, beinn- og óbeinn kostnaður.
- Áhrif skattheimtu og utanaðkomandi áhrif. Einkagæði og sameiginleg gæði.
- Viðskipti og hlutfallslegir yfirburðir. Hringrás efnahagslífsins.
- Framfærslukostnaður, vísitölur og þjóðhagsreikningar.
- Fjárhagsbókhald, rekstrar- og efnahagsreikningur.
- Rekstrarbókhald, mismunandi rekstrargreiningar.
Sjálfbær þróun, stefnumótun umhverfismála og stjórnun náttúruauðlinda (UAU101F)
Ýmsum aðferðum má beita til að hafa áhrif á lífsstíl fólks og hegðun til að draga úr óæskilegum áhrifum á umhverfið og stuðla að sjálfbærri þróun. Þetta námskeið fjallar um umhverfis og auðlindastjórnun sem hefur að markmiði sjálfbæra þróun. Námskeiðinu er skipt í þrjá hluta. Í þeim fyrsta er fjallað um sjálfbæra þróun og hugtakið skilgreint frá ýmsum sjónarhornum. Sérstaklega er rætt hvort hagvöxtur samrýmist sjálfbærri þróun, hvernig megi samræma hin mörgu markmið sem felast í sjálfbærri þróun, umhverfisvísar og framkvæmd markmiða sjálfbærrar þróunnar. Í öðrum hluta verður fjallað um aðferðir sem notaðar eru við ákvarðanatöku í umhverfis og auðlindastjórnun svo sem ákvarðanagreiningu, og kostnaðar-og ábatagreiningu sem og mat á virði nátturuauðs. Í síðasta hluta námskeiðsins verða ýmis stjórntæki sem notuð eru til umhverfis- og auðlindastjórnunar kynnt og krufin til mergjar í alþjóðlegu samhengi, bæði hvað varðar hugmyndafræðilegan grunn þeirra og þær aðferðir sem þau byggja á. Þau dæmi sem tekin eru breytast ár frá ári og byggja á áhuga þeirra nemenda sem taka námskeiðið hvert ár, svo sem kvótakerfi, skilagjöld, mengunarskattar og fjölmarkmiða stjórnun.
Inngangur að umhverfis- og auðlindafræði (UAU102F)
Hin öra fjölgun mannkynsins og umsvifin sem henni fylgja hafa á undanförnum áratugum haft gríðarleg og sívaxandi áhrif á náttúruauðlindir og umhverfi. Til þess að skilja þessi áhrif og og geta valið réttu leiðirnar til að takast á við þau, þarf að beita þverfræðilegum aðferðum, þar sem gripið er jöfnum höndum til náttúrufræði, félagsfræði, hagfræði,verkfræði og fleiri greina. Áður en nemendur læra um þverfræðilegar aðferðir til að nálgast aðsteðjandi vanda, þurfa þeir að átta sig á því í hverju vandinn er fólginn en það er einmitt markmið þessa námskeiðs. Fjallað verður um umhverfi og auðlindir almennt með áherslu á gildi þeirra fyrir mannkynið og helstu orsakir umhverfisvandamála og þýðingu þeirra bæði í íslensku og alþjóðlegu samhengi. Einkum verður farið yfir eftirtalda efnisflokka: Fólksfjölgun, tækni og hagvöxt. Líffræðilega fjölbreytni og útrýmingu tegunda. Jarðveg og jarðvegseyðingu. Landbúnað og umhverfisáhrif. Mengun og heilsu . Loftmengun, vatnsmengun og jarðvegsmengun. Helstu mengunarvalda í andrúmslofti og áhrif þeirra. Eyðingu ósonlagsins og loftslagsbreytingar. Sorp og spilliefni. Ferskvatnsauðlindir. Auðlindir sjávar. Auðlindir skóga og votlendis. Orkuauðlindir. Orkunýtingu og umhverfisáhrif.
Lýðheilsa: Vísindi, stjórnmál, forvarnir (LÝÐ101F)
Í námskeiðinu er farið yfir skilgreiningar, sögu, markmið, gildissvið, siðfræði og aðferðir lýðheilsuvísinda svo og íslensk- og alþjóðleg lög og sáttmála sem tengjast lýðheilsu. Nokkur áhersla er lögð á lýðheilsu og heilbrigðisvísa í alþjóðlegu samhengi en einnig á íslenska heilbrigðiskerfið, stjórnun og fjármögnun þess svo og samanburð við heilbrigðiskerfi annara þjóða. Ennfremur er farið yfir söfnun heilbrigðisupplýsinga á Íslandi sem á alþjóðavísu og nýtingu þeirra til rannsókna og stefnumótunar í heilbrigðismálum. Einnig er lögð áhersla á þau svið lýðheilsu sem eru á döfinni hverju sinni.
Aðferðafræði verkefnastjórnunar (VIÐ172F)
Markmið námskeiðsins er tvíþætt. Í fyrsta lagi að kynna fyrir nemendum helstu kenningar og aðferðir, sem þróaðar hafa verið á sviði verkefnastjórnunar. Takmarkið er, að nemendur öðlist góðan skilning á þætti verkefnavinnu og verkefnastjórnunar í rekstri fyrirtækja annars vegar, og hæfni til stjórnunar einstakra verkefna hins vegar. Nemendur kynnist þeim þáttum, sem stuðla að markvissri og skilvirkri verkefnastjórnun. Nemendur kynnist uppbyggingu áætlunar, framvindu og lúkningu í verkefnum. Nemendur kynnast jafnframt hugbúnaði og tækni sem nýta má við verkefnastjórnun. Nemendur fái kynningu á verkefnum í alþjóðlegu umhverfi og Agile hugmyndafræði.
Athugið, nemendur þurfa að stofna sér aðgang og kaupa bókina Project Management, The Managerial Proces á heimasíðu McGraw - Hill. Nánari upplýsingar má finna á Canvas síðu námskeiðsins.
Nýsköpunar- og frumkvöðlafræði (VIÐ186F)
Markmiðið með námskeiðinu er að veita nemendum yfirsýn um fræðasviðið nýsköpunar- og frumkvöðlafræði og undirbúa þá undir frekara nám, bæði fræðilegt og hagnýtt.
Farið verður í helstu kenningar og álitamál innan sviðsins, nýlegar fræðigreinar rýndar og kynnt verkfæri sem nota má til að greina helstu strauma og stefnur nýsköpunar.
Inngangur að hagfræði fyrir meistaranema (HAG124F)
Markmið námskeiðsins er að kynna nemandum fyrir grundvallaratriðum nútíma hagfræði, bæði rekstrarhagfræði og þjóðhagfræði. Í rekstrarhagfræðihlutanum er fjallað um neytendur og eftirspurn á markaði, teygni eftirspurnar, fyrirtæki og mismunandi markaðsform, neytendaábata, framleiðandaábata og velferð. Í þjóðhagfræðihlutanum er fjallað um helstu hugtök í efnahagsumræðu eins og hagvöxt, verðbólgu og atvinnuleysi. Fjallað er um lögmál efnahagslífsins og helstu grundvallarkenningar þjóðhagfræðinnar um þróun hagstærða til skamms og langs tíma.
Lyfjaefnafræði /Lyfjahönnun (LYF302F)
Í námskeiðinu er fjallað um ýmis grunnhugtök lyfjaefnafræðinnar og þær aðferðir sem eru notaðar við hönnun og efnafræðilega þróun á nýjum lyfjum. Í fyrirlestrum verður fjallað um eðli og einkenni lyfjaviðtaka, virknimælingar, uppruna lyfjaefna, hendni lyfja, lyfjakjarna, aðferðir til að hámarka virkni, sameindahermun í tölvum, hönnun og skilgreining efnasafna, frásogs-umbrots-dreifingar-útskilnaðar-eiturefnafræðilegir (ADMET) eiginleikar og nokkur dæmi um lyfjaþróun. Námskeiðið samanstendur af fyrirlestrum og verkefni.
Verkefnið er að gera Wikipedia síðu um efni sem tengist lyfjahönnun.
Náttúrulyf /Náttúruvörur (LYF310F)
Algeng náttúrulyf/náttúruvörur sem seld eru hér á landi; Jónsmessurunni, valeriana, ginseng, ginkgó, freyspálmi, engifer, hvítlaukur, sólhattur, mjólkurþistill, o.fl. Rætt er um notkun, innihaldsefni, vísindarannsóknir á virkni, aukaverkanir, milliverkanir við lyfseðilsskyld lyf, frábendingar. Mikilvægi ábyrgrar upplýsingamiðlunar til neytenda og fagfólks heilbrigðisstétta. Gæðaeftirlit. Lög og reglugerðir er varða náttúrulyf/náttúruvörur.
Þverfræðileg samvinna í heilbrigðisvísindum (HVS501M)
Námskeiðið (2 ECTS) er ætlað nemendum á þriðja námsári eða síðar sem lokið hafa a.m.k. tveimur árum grunnnáms í greinum heilbrigðisvísinda. Í námskeiðinu er lögð áhersla á þverfræðilega samvinnu í heilbrigðisþjónustu og mikilvægi hennar fyrir heildræna, sanngjarna og einstaklingsmiðaða þjónustu. Nemendur vinna saman í þverfræðilegum teymum að sameiginlegum verkefnum og fá tækifæri til að þjálfa sig í teymisvinnu, og efla samskipti.
Sérstök áhersla er lögð á fjölbreytileika samfélagsins og reynslu einstaklinga og hópa sem búa við jaðarsetningu og/eða heilsuójöfnuð. Nemendur kynnast því hvernig félagslegir, menningarlegir og kerfisbundnir þættir geta haft áhrif á heilsu og aðgengi að þjónustu.
Námsmat (staðið/fallið) byggist á verkefnavinnu, virkni í verkefnavinnu og prófum sem verða á rafrænu formi í kennslulotunni.
Kennslutilhögun:
Nemendum er skipt í þverfaglega námshópa í byrjun annar sem síðan skipuleggja fundartíma sínir sjálfir og skila lokaverkefnum fyrir lok október.
Aðferðarfræði og inngangur að MS verkefni í lyfjafræði (LYF324F)
Í námskeiðinu verður unnið að undirbúningi fyrir MS lokaverkefni í Lyfjafræði. Farið verður í nauðsynleg grunn atriði, svo sem gerð rannsóknaráætlunar, aðferðarfræði, mikilvæg rannsóknarverkfæri, gagnaúrvinnsluforrit, gagnagrunna, heimildaöflun, auk helsta hugbúnaðar sem gagngast við vísindaleg skrif í lyfjafræðirannsóknum (Scifinder, Endnote o.fl.). Leyfisumsóknir til siðanefnda verða einnig kynntar. Siðfræði í vísindaskrifum verður kynnt og ábyrg notkun gervigreindar. Farið verður í almenn vinnubrögð í rannsóknum, færslu dagbóka (log-bækur) svo og umgengni við rannsóknartæki á rannsóknarstofum (öryggiskröfur o.þ.h.). Námskeiðinu lýkur með skilum á vel unnum inngangi MS-ritgerðar í samráði við leiðbeinanda, vel unninni rannsóknaráætlun og að nemandi hafi lokið viðeignandi þjálfun og undirbúningi fyrir gagnasöfnun.
Meistaraverkefni í lyfjafræði (LYF301L)
Lokaverkefni til MS prófs í lyfjafræði er einstaklingsverkefni sem nemandi vinnur sjálfstætt undir leiðsögn leiðbeinanda. Nemendur skila inn ritgerð og kynna verkefni sitt.
Fyrri hluti meistaraverkefnisins er 10 ects.að hausti og 30 ects. að vori.
- Haust
- Námskeiðslýsing
Í þessu námskeiði kynnast þáttakendur lögum, reglugerðum og öðrum stjórnvaldsfyrirmælum á heilbrigðissviði, með áherslu á lög og reglugerðir um lyf og lyfjafræðinga. Nemendur læra hvar þessar reglur er að finna og hvernig á að beita þeim. Fyrirlestrar kennara og gestafyrirlesara veita nemendum innsýn í helstu undirstöðuatriði, en nemar vinna jafnhliða verkefni sem tengjast námsefninu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingInngangur að hagnýtri líftölfræði í lífvísindum. Yfirlit er gefið yfir tegundir breyta; flokkabreytur, strjálar og samfelldar talnabreytur. Lýsandi tölfræði; lýsistærðir og myndræn framsetning gagna. Fræðilegar líkindadreifingar; tvíkostadreifing, Poisson dreifing og normaldreifing. Skilgreiningar á slembiúrtaki og þýði. Dreifingar lýsistærða. Notkun á öryggisbilum og tilgátuprófum. Samanburður á meðalgildi hópa (samfelldar mælingar). Tölfræðipróf fyrir tíðnitöflur (flokkabreytur). Einföld og lógistísk aðhvarfsgreining og ROC greining. Lifunargreining með aðferð Kaplan Meier og Cox. Í fyrirlestrum og dæmatímunum verður notast við tölfræðiforritið R og RStudio umhverfið.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðLYF106FSamþætt sjúkdóma- og lyfhrifafræðiSkyldunámskeið12Skyldunámskeið á námsleiðinni12 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjallað verður um einkenni, orsakir, meingerð og meðferð sjúkdóma. Lögð er áhersla á verkunarhátt lyfja og áhrif þeirra á sjúklinga með hjartasjúkdóma, lungnasjúkdóma, nýrnasjúkdóma, blóðsjúkdóma, geðsjúkdóma og húðsjúkdóma. Að auki er fjallað um áhrif lyfja á aldraða. Ítarlega er farið yfir áhrif lyfja á sameindir, frumur, vefi og líffæri og tekin klínísk dæmi þar sem lyfin gegna mikilvægu hlutverki við meðferð. Einnig er fjallað um algengar aukaverkanir og milliverkanir lyfja.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðisins er að nemendur skilji grundvallaratriði í þróun og framleiðslu líftæknilyfja. Farið verður í framleiðsluferli líftæknilyfja byggða á frumuræktunum ásamt greiningaraðferðum sem fara fram bæði við þróun lyfsins og þegar lyfið er komið á markað. Fjallað verður um eftirfarandi tegundir líftæknilyfja: Mótefni (hefðbundin og einstofna), bólefni og peptíð- og próteinlyf. Útskýrt verður hvernig “Quality by design”(QbD) er notað í gegnum allt framleiðsuferlið ásamt þeim kröfum sem eru gerðar til líftæknilyfja samkvæmt góðum framleiðsluháttum í lyfjagerð (Annex 2 í EU GMP). Öryggi og eiturvirkni líftæknilyfja verða einnig rædd. Auk þess verður farið í nýjar aðferðir tengdar líftæknilyfjum eins og genameðferðir og notkun kirna (nucleotides). Í þessu námskeiði verður leitast við að hafa víðtækt samstarf við sérfræðinga úr líftækniiðnaðinum á Íslandi
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
NámskeiðslýsingFarið verður í gegnum ýmsa þætti sem tengjast lyfjaeiturefnafræði eins og eitranir, meinmynd þeirra og birtingarmynd t.d. í formi aukaverkana af völdum lyfja, sjúkdóma af völdum lyfja eða eitrunum. Farið verður í gegnum þær kröfur sem gerðar eru til lyfjaeiturefnafræðilegra prófana á lyfjum og áhættumati.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið þessa námskeiðs er að nemendur fái innsýn í siðfræði og þjálfun í siðfræðilegri hugsun við að greina og rökræða raunhæf úrlausnarefni í heilbrigðisþjónustu.
Námskeiðið er undirbúningur undir klínískt nám í apóteki og verklega klíníska lyfjafræðiStaðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingFarið er í grunnhugtök notuð í klínískri lyfjafræði. Áhersla er á kennslu í að taka nákvæma lyfjasögu og túlkun blóðrannsókna og hvernig þessar upplýsingar nýtast við að greina, leysa og fyrirbyggja lyfjatengd vandamál. Farið er í flokkun lyfjatengdra vandamála, milliverkanir lyfja og kynningu á að veita gagnreyndar upplýsingar við fyrirspurnum er varða lyf. Í undirbúningi fyrir verknám eru kynntir helstu gagnagrunnar sem notaðir eru ásamt lyfjafyrirmæla- og sjúkraskrárkerfi Landspítalns. Verknám námskeiðsins fer fram á Landspítalanum þar sem nemendur kynnast og taka þátt í klínískum störfum lyfjafræðinga. Nemendur fá einnig þjálfun í uppsetningu og kynningu raunverulegra sjúkratilfella með áherslu á úrlausn lyfjatendgdra vandamála á hnitmiðaðan hátt.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMarkmið þessa námskeiðs er að veita nemendum grunnþekkingu í viðtalstækni, samskiptum og upplýsingasöfnun í heilbrigðisþjónustu.
Námskeiðið er undirbúningur undir klínískt nám í apóteki og verklega klíníska lyfjafræði
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNámskeiðið er til undirbúnings fyrir nemendur að vinna í apótekum. Umsjónarkennari námskeiðs finnur apótek og leiðbeinanda fyrir nemann sem starfar í samráði við Lyfjafræðideild HÍ. Lyfjafræðingur þessi leiðbeinir nemanum á tímabilinu. Neminn vinnur verkefni í því apóteki sem honum er úthlutað.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að kynna fyrir nemum grundvallaratriði í faraldsfræði og hvernig hún tengist tölfræði og heilbrigðisvísindum. Þessi vitneskja er notuð til að skoða nánar rannsóknarspurningar á sviði lyfjafaraldsfræði. Fyrirlestrar gefa helstu undirstöðuatriði, en nemar vinna jafnhliða verkefni sem tengjast námsefninu. Grundvallaratriði faraldsfræði og lyfjafaraldsfræð sem tekin eru fyrir: áhætta/vernd, útkoma, orsakatengsl, mæling á útbreiðslu sjúkdóma og mæling áhættu, rannsóknasnið, hlutverk tilviljunar, gruggunar og bjaga í faraldsfræði, lyfjanotkunarrannsóknir, réttmæti og áreiðanleiki, úrtak, spurningalistar, eigindlegar aðferðir, gagnagrunnar, kerfisbundin samantek og safngreining, siðfræði í faraldsfræðirannsóknum og lyfjagát (Pharmacovigilance).
Mikilvægar rannsóknarspurningar í lyfjafaraldsfræði.
Notagildi lyfjafaraldsfræði í ákvarðanatöku (klíník og stefnumörkun).
Gátlisti yfir gæði rannsókna í faraldsfræði og lyfjafaraldsfræði.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Haust
- Námskeiðslýsing
Í fyrirlestrum verður fjallað um myndun og hvörf enólatanjóna, þ.m.t. alkýlun ketóna og 1,3-díkarbónýlefna, C- og O-alkýlun, aldól-þéttingu og asýlun kolefna. Einnig verður farið yfir afkarboxýlun, myndun tvítengja og fjallað um málmlífræna efnafræði. Þá verður einnig fjallað um notkun litrófsaðferða í við greiningu á lífrænum efnasamböndum og fjallað um notkun gagnagrunna (Scifinder). Skila ber 75% af þeim verkefnum (heimadæmum) sem lögð verða fyrir svo próftökuréttur fáist.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuVIÐ194FMannauðsstjórnunBundið valnámskeið7,5Bundið valnámskeið háð skilyrðum7,5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið miðar að því að gera nemendum kleift að tileinka sér nýjustu og helstu kenningar á sviði mannauðsstjórnunar og að nemendur öðlist skilning og þjálfun í notkun helstu kenninga í stjórnun mannauðs. Kenningum um mannauðsstjórnun er gerð ítarleg skil og er markmiðið að nemendur skilji mikilvægi mannauðsstjórnunar sem fræðigrein og sem mikilvægan þátt innan skipulagsheildarinnar. Kynntir verða helstu þættir mannauðsstjórnunar og er mikilvægt að nemendur geti tileinkað sér efni þeirra í kennslu- og dæmatímum þar sem fengist er við úrlausn raunhæfra dæma.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt í lotu IHJÚ142FRekstur og heilbrigðisþjónustaBundið valnámskeið6Bundið valnámskeið háð skilyrðum6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í fræðilega nálgun ýmissa hagrænna þátta sem hafa áhrif á starfsumhverfi í heilbrigðisþjónustu. Þessir þættir eru óumflýjanlegir í öllum rekstri stórum og smáum, hvort sem er opinber rekstur eða einkarekstur. Í námskeiðinu er farið yfir með hvaða hætti þættirnir birtast og hvernig hægt er að hafa áhrif á þá rekstrinum til góða. Meðal hugtaka sem farið verður yfir:
- Framboð, eftirspurn, framleiðsluþættir, teygni
- Breytilegur-, fastur-, beinn- og óbeinn kostnaður.
- Áhrif skattheimtu og utanaðkomandi áhrif. Einkagæði og sameiginleg gæði.
- Viðskipti og hlutfallslegir yfirburðir. Hringrás efnahagslífsins.
- Framfærslukostnaður, vísitölur og þjóðhagsreikningar.
- Fjárhagsbókhald, rekstrar- og efnahagsreikningur.
- Rekstrarbókhald, mismunandi rekstrargreiningar.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðUAU101FSjálfbær þróun, stefnumótun umhverfismála og stjórnun náttúruauðlindaBundið valnámskeið6Bundið valnámskeið háð skilyrðum6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÝmsum aðferðum má beita til að hafa áhrif á lífsstíl fólks og hegðun til að draga úr óæskilegum áhrifum á umhverfið og stuðla að sjálfbærri þróun. Þetta námskeið fjallar um umhverfis og auðlindastjórnun sem hefur að markmiði sjálfbæra þróun. Námskeiðinu er skipt í þrjá hluta. Í þeim fyrsta er fjallað um sjálfbæra þróun og hugtakið skilgreint frá ýmsum sjónarhornum. Sérstaklega er rætt hvort hagvöxtur samrýmist sjálfbærri þróun, hvernig megi samræma hin mörgu markmið sem felast í sjálfbærri þróun, umhverfisvísar og framkvæmd markmiða sjálfbærrar þróunnar. Í öðrum hluta verður fjallað um aðferðir sem notaðar eru við ákvarðanatöku í umhverfis og auðlindastjórnun svo sem ákvarðanagreiningu, og kostnaðar-og ábatagreiningu sem og mat á virði nátturuauðs. Í síðasta hluta námskeiðsins verða ýmis stjórntæki sem notuð eru til umhverfis- og auðlindastjórnunar kynnt og krufin til mergjar í alþjóðlegu samhengi, bæði hvað varðar hugmyndafræðilegan grunn þeirra og þær aðferðir sem þau byggja á. Þau dæmi sem tekin eru breytast ár frá ári og byggja á áhuga þeirra nemenda sem taka námskeiðið hvert ár, svo sem kvótakerfi, skilagjöld, mengunarskattar og fjölmarkmiða stjórnun.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðUAU102FInngangur að umhverfis- og auðlindafræðiBundið valnámskeið6Bundið valnámskeið háð skilyrðum6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingHin öra fjölgun mannkynsins og umsvifin sem henni fylgja hafa á undanförnum áratugum haft gríðarleg og sívaxandi áhrif á náttúruauðlindir og umhverfi. Til þess að skilja þessi áhrif og og geta valið réttu leiðirnar til að takast á við þau, þarf að beita þverfræðilegum aðferðum, þar sem gripið er jöfnum höndum til náttúrufræði, félagsfræði, hagfræði,verkfræði og fleiri greina. Áður en nemendur læra um þverfræðilegar aðferðir til að nálgast aðsteðjandi vanda, þurfa þeir að átta sig á því í hverju vandinn er fólginn en það er einmitt markmið þessa námskeiðs. Fjallað verður um umhverfi og auðlindir almennt með áherslu á gildi þeirra fyrir mannkynið og helstu orsakir umhverfisvandamála og þýðingu þeirra bæði í íslensku og alþjóðlegu samhengi. Einkum verður farið yfir eftirtalda efnisflokka: Fólksfjölgun, tækni og hagvöxt. Líffræðilega fjölbreytni og útrýmingu tegunda. Jarðveg og jarðvegseyðingu. Landbúnað og umhverfisáhrif. Mengun og heilsu . Loftmengun, vatnsmengun og jarðvegsmengun. Helstu mengunarvalda í andrúmslofti og áhrif þeirra. Eyðingu ósonlagsins og loftslagsbreytingar. Sorp og spilliefni. Ferskvatnsauðlindir. Auðlindir sjávar. Auðlindir skóga og votlendis. Orkuauðlindir. Orkunýtingu og umhverfisáhrif.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðLÝÐ101FLýðheilsa: Vísindi, stjórnmál, forvarnirBundið valnámskeið6Bundið valnámskeið háð skilyrðum6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er farið yfir skilgreiningar, sögu, markmið, gildissvið, siðfræði og aðferðir lýðheilsuvísinda svo og íslensk- og alþjóðleg lög og sáttmála sem tengjast lýðheilsu. Nokkur áhersla er lögð á lýðheilsu og heilbrigðisvísa í alþjóðlegu samhengi en einnig á íslenska heilbrigðiskerfið, stjórnun og fjármögnun þess svo og samanburð við heilbrigðiskerfi annara þjóða. Ennfremur er farið yfir söfnun heilbrigðisupplýsinga á Íslandi sem á alþjóðavísu og nýtingu þeirra til rannsókna og stefnumótunar í heilbrigðismálum. Einnig er lögð áhersla á þau svið lýðheilsu sem eru á döfinni hverju sinni.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeið kennt fyrri hluta misserisVIÐ172FAðferðafræði verkefnastjórnunarBundið valnámskeið7,5Bundið valnámskeið háð skilyrðum7,5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er tvíþætt. Í fyrsta lagi að kynna fyrir nemendum helstu kenningar og aðferðir, sem þróaðar hafa verið á sviði verkefnastjórnunar. Takmarkið er, að nemendur öðlist góðan skilning á þætti verkefnavinnu og verkefnastjórnunar í rekstri fyrirtækja annars vegar, og hæfni til stjórnunar einstakra verkefna hins vegar. Nemendur kynnist þeim þáttum, sem stuðla að markvissri og skilvirkri verkefnastjórnun. Nemendur kynnist uppbyggingu áætlunar, framvindu og lúkningu í verkefnum. Nemendur kynnast jafnframt hugbúnaði og tækni sem nýta má við verkefnastjórnun. Nemendur fái kynningu á verkefnum í alþjóðlegu umhverfi og Agile hugmyndafræði.
Athugið, nemendur þurfa að stofna sér aðgang og kaupa bókina Project Management, The Managerial Proces á heimasíðu McGraw - Hill. Nánari upplýsingar má finna á Canvas síðu námskeiðsins.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt í lotu IEkki kennt á misserinuVIÐ186FNýsköpunar- og frumkvöðlafræðiBundið valnámskeið7,5Bundið valnámskeið háð skilyrðum7,5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmiðið með námskeiðinu er að veita nemendum yfirsýn um fræðasviðið nýsköpunar- og frumkvöðlafræði og undirbúa þá undir frekara nám, bæði fræðilegt og hagnýtt.
Farið verður í helstu kenningar og álitamál innan sviðsins, nýlegar fræðigreinar rýndar og kynnt verkfæri sem nota má til að greina helstu strauma og stefnur nýsköpunar.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt í lotu IEkki kennt á misserinuHAG124FInngangur að hagfræði fyrir meistaranemaBundið valnámskeið7,5Bundið valnámskeið háð skilyrðum7,5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að kynna nemandum fyrir grundvallaratriðum nútíma hagfræði, bæði rekstrarhagfræði og þjóðhagfræði. Í rekstrarhagfræðihlutanum er fjallað um neytendur og eftirspurn á markaði, teygni eftirspurnar, fyrirtæki og mismunandi markaðsform, neytendaábata, framleiðandaábata og velferð. Í þjóðhagfræðihlutanum er fjallað um helstu hugtök í efnahagsumræðu eins og hagvöxt, verðbólgu og atvinnuleysi. Fjallað er um lögmál efnahagslífsins og helstu grundvallarkenningar þjóðhagfræðinnar um þróun hagstærða til skamms og langs tíma.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt í lotu INámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er fjallað um ýmis grunnhugtök lyfjaefnafræðinnar og þær aðferðir sem eru notaðar við hönnun og efnafræðilega þróun á nýjum lyfjum. Í fyrirlestrum verður fjallað um eðli og einkenni lyfjaviðtaka, virknimælingar, uppruna lyfjaefna, hendni lyfja, lyfjakjarna, aðferðir til að hámarka virkni, sameindahermun í tölvum, hönnun og skilgreining efnasafna, frásogs-umbrots-dreifingar-útskilnaðar-eiturefnafræðilegir (ADMET) eiginleikar og nokkur dæmi um lyfjaþróun. Námskeiðið samanstendur af fyrirlestrum og verkefni.
Verkefnið er að gera Wikipedia síðu um efni sem tengist lyfjahönnun.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingAlgeng náttúrulyf/náttúruvörur sem seld eru hér á landi; Jónsmessurunni, valeriana, ginseng, ginkgó, freyspálmi, engifer, hvítlaukur, sólhattur, mjólkurþistill, o.fl. Rætt er um notkun, innihaldsefni, vísindarannsóknir á virkni, aukaverkanir, milliverkanir við lyfseðilsskyld lyf, frábendingar. Mikilvægi ábyrgrar upplýsingamiðlunar til neytenda og fagfólks heilbrigðisstétta. Gæðaeftirlit. Lög og reglugerðir er varða náttúrulyf/náttúruvörur.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHVS501MÞverfræðileg samvinna í heilbrigðisvísindumSkyldunámskeið2Skyldunámskeið á námsleiðinni2 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið (2 ECTS) er ætlað nemendum á þriðja námsári eða síðar sem lokið hafa a.m.k. tveimur árum grunnnáms í greinum heilbrigðisvísinda. Í námskeiðinu er lögð áhersla á þverfræðilega samvinnu í heilbrigðisþjónustu og mikilvægi hennar fyrir heildræna, sanngjarna og einstaklingsmiðaða þjónustu. Nemendur vinna saman í þverfræðilegum teymum að sameiginlegum verkefnum og fá tækifæri til að þjálfa sig í teymisvinnu, og efla samskipti.
Sérstök áhersla er lögð á fjölbreytileika samfélagsins og reynslu einstaklinga og hópa sem búa við jaðarsetningu og/eða heilsuójöfnuð. Nemendur kynnast því hvernig félagslegir, menningarlegir og kerfisbundnir þættir geta haft áhrif á heilsu og aðgengi að þjónustu.
Námsmat (staðið/fallið) byggist á verkefnavinnu, virkni í verkefnavinnu og prófum sem verða á rafrænu formi í kennslulotunni.
Kennslutilhögun:
Nemendum er skipt í þverfaglega námshópa í byrjun annar sem síðan skipuleggja fundartíma sínir sjálfir og skila lokaverkefnum fyrir lok október.Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuLYF324FAðferðarfræði og inngangur að MS verkefni í lyfjafræðiSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verður unnið að undirbúningi fyrir MS lokaverkefni í Lyfjafræði. Farið verður í nauðsynleg grunn atriði, svo sem gerð rannsóknaráætlunar, aðferðarfræði, mikilvæg rannsóknarverkfæri, gagnaúrvinnsluforrit, gagnagrunna, heimildaöflun, auk helsta hugbúnaðar sem gagngast við vísindaleg skrif í lyfjafræðirannsóknum (Scifinder, Endnote o.fl.). Leyfisumsóknir til siðanefnda verða einnig kynntar. Siðfræði í vísindaskrifum verður kynnt og ábyrg notkun gervigreindar. Farið verður í almenn vinnubrögð í rannsóknum, færslu dagbóka (log-bækur) svo og umgengni við rannsóknartæki á rannsóknarstofum (öryggiskröfur o.þ.h.). Námskeiðinu lýkur með skilum á vel unnum inngangi MS-ritgerðar í samráði við leiðbeinanda, vel unninni rannsóknaráætlun og að nemandi hafi lokið viðeignandi þjálfun og undirbúningi fyrir gagnasöfnun.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Vor
NámskeiðslýsingLokaverkefni til MS prófs í lyfjafræði er einstaklingsverkefni sem nemandi vinnur sjálfstætt undir leiðsögn leiðbeinanda. Nemendur skila inn ritgerð og kynna verkefni sitt.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðarAnnað ár- Haust

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Frekari upplýsingar Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.
Möguleikar
Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.
Skilyrði
Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:
- 90 ECTS einingar í grunnnámi
- 60 ECTS einingar í framhaldsnámi
Námskeið metin til eininga
Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.
Lyfjafræðideild kappkostar að útskrifa lyfjafræðinga með fyrsta flokks menntun, hvort sem þeir kjósa að fara beint til starfa í atvinnulífinu eða hyggja á framhaldsnám hér á landi eða erlendis.
Fjölbreytt nám á breiðum grunni gerir lyfjafræðinga eftirsótta í atvinnulífinu og þeirra bíða spennandi atvinnutækifæri að námi loknu. Lyfjafræðingar starfa víða en algengast er að þeir starfi í lyfjaiðnaði, í apótekum, við markaðsmál eða á sjúkrahúsum.
Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við
- framleiðslu og hönnun lyfja
- gæðaeftirlit og skráningar
- inn- og útflutning lyfja og markaðsmál
- ráðgjöf, eftirlit, stjórnun og afgreiðsla lyfja í apótekum
- ráðgjöf til annarra heilbrigðisstarfsmanna
- skipulag og eftirlit með lyfjameðferð
- framleiðslu lyfja- og næringarblanda
Listinn er ekki tæmandi.
Tinktúra, félag lyfjafræðinema heldur uppi félagslífi og stendur vörð um hagsmuni lyfjafræðinema.
Félagið er aðili að alþjóðlegum samtökum lyfjafræðinema, IPSF og EPSA sem sjá um að miðla upplýsingum milli nemenda um þróun og nýjungar í náminu og störfum lyfjafræðinga. Tinktúra er einnig aðili að IAESTE, alþjóðlegum samtökum nema í raun- og heilbrigðisvísindum.
Umsagnir nemenda
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.Gagnlegt efni Námsvalshjólið
Á hverju hefur þú áhuga?
Veldu framhaldsnám
Skref fyrir skref
Hafðu samband LyfjafræðiVirka daga 10:00 – 12:00 og 13:00 – 15:00ÞjónustaVið bendum á þjónustumiðju HÍ fyrir allar almennar fyrirspurnir. Einnig er hægt að mæta á Þjónustuborðið á Háskólatorgi eða nota spjallmenni HÍ hér neðst til hægri á síðunni.
Deila