- Hefur þú áhuga á að efla heilbrigði og heilsuvitund?
- Finnst þér gaman að heilsutengdum viðfangsefnum?
- Viltu stuðla að betri heilsu barna á öllum skólastigum?
- Viltu bæta við þig fjölbreyttu námi á meistarastigi?
MT nám í heilsueflingu og heimilisfræði er fyrst og fremst ætlað þeim sem vilja verða heimilisfræðikennarar í grunnskólum og er lögð áhersla á að verðandi heimilisfræðikennarar geti tekið að sér leiðandi hlutverk innan heilsueflandi skóla.
Nemendur sækja hagnýt og fræðileg námskeið um heilsueflingu, kennslufræði, matreiðslu og næringu, auk aðferðafræði- og vinnulagsnámskeiða.
MT námsleiðir fela það í sér að nemandi getur tekið kennslufræðitengd námskeið í stað þess að skrifa 30 eininga rannsóknarritgerð.
Uppbygging náms
Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára eða hlutanám til allt að fjögurra ára.
Námið er samsett úr skyldunámskeiðum og valpökkum sem sniðnir eru að þremur áherslulínum og vettvangsnámi. Nemendur velja eina áherslulínu.
- Íþrótta- og næringarfræði
- Tómstundafræði
- Yngri barna kennsla
Nemendur geta einnig sérsniðið valpakka í samráði við námsbrautarformann.
Vettvangsnámið 24 einingar er tekið á síðara ári námsins.
Kjörsvið
Þrjú kjörsvið eru í boði og miðast þau við fyrri menntun nemanda.
- Kjörsviðið fimm ára kennaranám er fyrir þau sem hafa B.Ed. próf í heilsueflingu og heimilisfræði eða eldra B.Ed. próf í grunnskólakennarafræði með kjörsviðið matur, menning, heilsa.
- Kjörsviðið að loknu B.Ed prófi er fyrir þau sem hafa annað B.Ed próf
- Kjörsviðið að loknu BA/BS prófi er fyrir þau sem hafa annan bakgrunn en B.Ed. próf. Gerð er krafa um að nemendur komi með 30 einingar með sér úr grunnnámi sem talist geta til faggreinarinnar heilsuefling og heimilisfræði.
Fyrirkomulag kennslu
Námið er kennt á íslensku og bæði er kennt í stað- og fjarnámi.
Meginmarkmið
Námsbrautinni er ætlað að mennta heimilisfræðikennara sem sérfræðinga í heilsueflingu og heimilisfræðikennslu. Meginmarkmið námsins er að undirbúa nema fyrir heimilisfræðikennslu í grunnskóla og samstarf kennara þar sem viðkomandi getur tekið að sér leiðtogahlutverk í heilsueflingu innan skólans og víðar í samfélaginu.
Leyfisbréf
Námsleiðin veitir rétt til þess að sækja um leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.
Umsækjendur með BA/BS próf eða B.Ed próf úr öðru en heilsueflingu og heimilisfræði geta þurft að bæta við sig námskeiðum umfram skipulag námsleiðar til að uppfylla skilyrði um faggrein.
Til að fá leyfisbréf þurfa allir nemendur sem ljúka M.Ed. og MT námi frá HHE braut að hafa tekið eftirfarandi námskeið:
- HÍT504M Hugur, heilsa og heilsulæsi 10e
- HHE402G Kennslumiðuð matreiðsla 5e*
- HHE401G Vettvangsnám í heilsueflingu og heimilisfræði I - Lífshættir og vinnubrögð 5e*
- HHE602G Matur menning heilsa 5e**
- HHE601G Vettvangsnám í heilsueflingu og heimilisfræði II - Matarmenning og umhverfi 5e**
- HÍT201G Næring og orkujafnvægi 5e***
- HÍT401G Næring og heilsa 5e***
*Áður kennt sem námskeiðið HHE201G Kennslumiðuð matreiðsla 10e
**Áður kennt sem námskeiðið HHE202G Matur menning heilsa 10e
***Einingar ekki metnar til gráðu á meistarastigi, nemendur í framhaldsnámi hafa heimild til að taka námskeiðin samhliða.
Annað
Við brautskráningu úr kennaranámi við íslenska háskóla skal kennari búa yfir hæfni í íslensku sem samsvarar að lágmarki C1 í Evrópska tungumálarammanum.
Hér má sjá Tungumálaramma Evrópuráðsins.
Námið getur veitt aðgang að meistaranámi á stigi 2.2 en veitir ekki aðgang að doktorsnámi.
Við inntöku í nám til MT-prófs gildir sú meginregla að umsækjandi hafi lokið fyrstu háskólagráðu með fyrstu einkunn (7,25) eða hærra.
Námið byggir á lögum nr. 95/2019 um að við brautskráningu búi kennari með sérhæfingu á grunnskólastigi yfir sérhæfðri hæfni í faggrein/kennslugrein grunnskóla, að lágmarki 90 námseiningar. Kjörsvið sem leiða til kennsluréttinda eru skipulögð með fyrra nám umsækjenda í huga. Ef fyrra nám umsækjanda er af öðru sviði en valin námsleið á meistarastigi, er líklegt að viðkomandi þurfi að bæta við sig námskeiðum úr grunnnámi til að uppfylla kröfur um lágmarksfjölda eininga í faggrein.
Ef umsækjandi um meistaranám sem leiðir til leyfisbréfs kennara hefur hvorki lokið framhaldsskóla- né háskólanámi á íslensku skal hann hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR).
Ljúka þarf 120 einingum til lokaprófs.
- Ferilskrá (CV)
- Greinargerð um markmið með námi
- Meðmælandi 1, nafn og netfang
- Meðmælandi 2, nafn og netfang
- Prófskírteini/námsyfirlit
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
- Fyrsta ár
- Haust
- Sjálfbærnimenntun og forysta
- Heilsuefling, íþróttir og tómstundir – fræði og vettvangur
- Nám og kennsla: Að mæta sérþörfum
- Áhrifaþættir heilsu
- Vor
- Heilsuefling
- Heilsuhegðun og fæðuval – áhrifaþættir og mótun
- Ekki kennt á misserinuKennslumiðuð matreiðsla
- Ekki kennt á misserinuVettvangsnám í heilsueflingu og heimilisfræði I - Lífshættir og vinnubrögð 5e
- Matur menning heilsa
- Vettvangsnám í heilsueflingu og heimilisfræði II – Matarmenning og umhverfi
Sjálfbærnimenntun og forysta (SFG003F)
Viðfangsefni: Megintilgangur þessa námskeiðs er að rýna með gagnrýnum hætti í sjálfbærni og sjálfbærnimenntun út frá sjónarhorni stofnana eða heilla kerfa, út frá ólíkum gerðum forystu og hugmyndum um sérfræðiþekkingu. Rýnt verður í hugtökin fagmennsku og faglega sjálfsmynd fólks í forystu bæði á sviði menntunar og viðfangsefnum tengdum sjálfbærri þróun. Illviðráðanleg vandamál (e. wicked problems) verða skilgreind og rædd, fjallað um mögulegar lausnir, hvað gæti hindrað framganginn og hvernig mætti meta lausnirnar. Rætt verður um hvers konar nám fagfólks leiðir til breytinga og þátt forystu í að koma hlutum í framkvæmd. Viðfangsefnin verða tengd við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna (SÞ) og átta gerðir lykilhæfni SÞ til sjálfbærrar þróunar og félagslegrar nýsköpunar. Sjónum verður beint að félagsauði og samþættu námi þar sem beitt er ígrundun og efnisþáttum náms. Síðasta viðfangsefnið verður starfsþróunaráætlunar þar sem afrakstur ígrundunar og sjálfsmats verður þrætt inn í skipulagða persónulega starfsþróunaráætlun.
Vinnulag: Kennslustundir og umræður á milli þeirra byggjast á upplýstri rökræðu og virkri þátttöku (80% mætingarskylda í kennslustundir). Unnin verða einstaklingsverkefni sem eru fá skrifleg verkefni ásamt þátttöku í umræðuþráðum. Krafist er virkrar þátttöku í teymisvinnu við skipulagningu kennslustunda, flytja fyrirlestur og því að leiða umræður eða vera í hlutverki rýnis. Til að standast námskeiðið þarf að fá að lágmarki einkunnina 5,0 fyrir hvert verkefni námskeiðsins og uppfylla lágmarkskröfur um mætingu, þátttöku í tímum og í umræðuþráðum. Nánari útfærsla og upplýsingar um kennslufyrirkomulag verður á Canvas.
Heilsuefling, íþróttir og tómstundir – fræði og vettvangur (HÍT101F)
Námskeiðið er ætlað nemendum sem eru að hefja framhaldsnám í Deild heilsueflingar, íþrótta- og tómstunda. Í því verður ljósi varpað á mikilvæg hugtök og kenningar sem notuð eru í þeim fræðigreinum sem kenndar eru í deildinni. Í námskeiðinu verður lögð áhersla á að rýna í hvernig ólíkir þættir, svo sem heilsuhegðun og félagslegt umhverfi, og sampil þeirra hafa áhrif á heilsu og lífsgæði fólks. Fjallað verður um viðfangsefni sem eru efst á baugi í samfélaginu og varða hreyfingu, næringu, heilsueflingu, lífsleikni, nám og þroska og tengsl þeirra við andlega, líkamlega og félagslega velferð einstaklinga. Lögð er áhersla á að nemendur tileinki sér gagnrýna og skapandi nálgun á viðfangsefni sem tengjast náið þeim vettvangi sem þeir munu starfa á að námi loknu. Nemendur æfa í því skyni teymisvinnu og efla samskipti út frá hugmyndafræði þverfræðilegrar samvinnu. Nemendur fá tækifæri til að dýpka þekkingu sína í tilteknu viðfangsefni sem valið er í samráði við kennara og munu í lok námskeiðs setja fram áætlun um nám sitt.
Nám og kennsla: Að mæta sérþörfum (MAL102F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins eru kennsluhættir og námsaðstæður sem miða að því að efla árangur fjölbreyttra nemendahópa, huga að styrkleikum þeirra og veikleikum í skóla án aðgreiningar með manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Fjallað er um algengustu sérþarfir nemenda og sérstök áhersla lögð á árangursríkar (gagnreyndar) leiðir til að mæta margbreytilegum þörfum nemenda og efla þá í námi, meðal annars til að draga úr vanda varðandi lestrarnám, hegðun, líðan, einbeitingu, ofvirkni og einhverfu. Samhliða er rætt um mikilvægi þess að hafa hæfileika og styrkleika nemenda ávallt í forgrunni og aðgreina erfiðleika frá eiginleikum einstaklinga. Einnig er fjallað um fjölmenningarkennslu og kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku. Kynntar eru helstu aðferðir við bekkjarstjórnun og einstaklingsmiðuð úrræði til að bæta hegðun, félagsfærni, líðan og námsárangur fjölbreytts hóps nemenda. Fjallað er um þverfaglegt samstarf, teymisvinnu og samvinnu við foreldra barna með sérþarfir. Umfjöllunarefni námskeiðsins grundvallast á hugmyndafræði skóla án aðgreiningar og rannsóknum á því sem vel hefur gefist við að mæta fjölbreytilegum nemendahópi, með það að markmiði að veita öllum nemendum jafngild tækifæri í námi.
Áhrifaþættir heilsu (HÍT504M)
Í þessu námskeiði verður farið yfir grunnskilgreiningar á hugtökunum: heilsa og heilbrigði, sjúkdómar og fötlun. Farið verður yfir helstu áhrifaþætti heilbrigðis og ræddir verða sérstakir áhrifavaldar á heilsufar. Bæði verða kynntir þættir sem geta ógnað heilsu og heilbrigði en einnig skoðað hvaða þættir geta haft jákvæð heilsueflandi áhrif. Sérstök áhersla verður á áhrif umverfis á heilsu. Fjallað verður um ólíkar nálganir í heilsueflingu og hverjir beri ábyrgð á heilsueflingu
Athugið: Námskeiðið hét áður Hugur, heilsa og heilsulæsi.
Heilsuefling (ÍÞH209F)
Fjallað verður um fyrirkomulag og mikilvægi heilsueflingar í skólum, á vinnustað, í hvers kyns þjálfun, endurhæfingu, íþróttum og tómstundastarfi. Mismunandi kenningar um heilsueflingu verða kynntar, sem og framkvæmd, mat og heildstætt ferli heilsueflingar. Allt frá því hvernig heilsueflandi verkefni eru skipulögð og hvernig þau eru innleidd, framkvæmd og metin. Sérstök áhersla verður lögð á fræðilegan þátt heilsueflingarferlisins til að undirbúa nemendur fyrir faglegt starf tengt heilsueflingu á vettvangi.
Heilsuhegðun og fæðuval – áhrifaþættir og mótun (ÍÞH036M)
Viðfangsefni námskeiðsins er heilsuhegðun í víðum skilningi. Fjallað verður um heilsuhegðun mismunandi aldurshópa og samband líffræðilegra þátta, heilsuhegðunar og félagslegra aðstæðna. Farið verður yfir hvernig hegðun einstaklinga, bjargráð og streita hafa áhrif á heilsufar. Hegðun í tengslum við fæðuval og neysluvenjur er sérstaklega skoðuð. Þá verður horft til þess hvernig má móta heilsusamlegar lífsvenjur frá æsku, svo sem hafa áhrif á fæðuval og vinna á matvendni. Samfélagsáhrif og þáttur fjölmiðla eru einnig könnuð. Námsefnið byggir á fræðbókum og vísindagreinum frá mismunandi áttum og ólíkum sviðum sem spanna viðfangsefnið og nálgast það á ólíkan hátt.
Námskeiðið er ætlað nemendum á efri stigum grunnnáms og á meistarastigi og er opið öllum.
Kennslumiðuð matreiðsla (HHE002F, HHE001F)
Helstu námsþættur eru matreiðsla, bakstur, sýnikennsla, matarsóun og sjálfbærni. Námskeiðið miðar að því að nemendur fái þjálfun í kennslu matreiðslu sem byggir í aðalatriðum á því að kynna námsefni í heimilisfræði fyrir nemendum. Farið verður yfir hvernig á að halda sýnikennslu, vinna og tala samhliða fyrir framan aðra. Farið verðu yfir matreiðslu með nemendum á yngri og eldri stigum þar sem áhersla verður lögð á grunnþætti matreiðslu. Einnig á holla daglega næringu barna- og ungmenna og hvað þau þurfa að kunna. Matarsóun á eigin heimili verður skoðuð og farið yfir umbúðalæsi, umbúðanotkun og sóun auðlinda í kringum þær. Matarsóun á eigin heimili verður skoðuð og farið yfir umbúðalæsi, umbúðanotkun og sóun auðlinda í kringum þær, ásamt kolefnisspori mismunandi matvæla.
Nemendur vinna að fræðilegu verkefni með vísindalegri nálgun og lestri fræðigreina.
Vettvangsnám í heilsueflingu og heimilisfræði I - Lífshættir og vinnubrögð 5e (HHE002F, HHE001F)
Námskeiðið skal taka samhliða námskeiðinu Kennslumiðuð matreiðsla. Námskeiðið miðar að því að undirbúa nemendur fyrir vettvangsnám í heimilisfræði með áherslu á lífshætti og vinnubrögð í samhengi við kennslufræðilega þætti og náms- og starfsumhverfi greinarinnar í grunn- og framhaldsskólum. Markmiðið er að nemendur geti tengt og rökstutt gildi og mikilvægi heilsueflingar og heimilisfræði fyrir framtíð einstaklinga og samfélagsins alls með vísindalegri nálgun og lestri fræðigreina. Nemendur kynnast margbreytileika kennslunnar, hugtakanotkun, fjölbreyttum kennsluaðferðum og vísindalegum rannsóknum sem tengjast heilsueflingu og heimilisfræði. Nemendur vinna með eigin hugmyndir að kennsluverkefnum í samráði við kennara námskeiðsins og leiðsagnarkennara á vettvangi. Einnig taka þeir mið af hæfniviðmiðum heimilisfræðinnar í aðalnámskrá og skólanámskrá viðtökuskóla. Kennsluverkefnin eru aldursmiðuð og með tengingu við sköpun, sjálfbærni og læsi sem og aðra grunnþætti menntunar. Nemendur fá þjálfun í vinnulagi við innlagnir og sýnikennslu, gerð kennsluáætlana og bera saman ólíkar námsmatsleiðir sem hæfa fjölbreyttum aðferðum heimilisfræðinnar. Nemendur fá þjálfun í gerð kennsluverkefna fyrir öll stig grunnskóla. Kynntar verða ýmsar aðferðir við kennslu í næringarfræði, meðal annars með því að samþætta við aðrar námsgreinar. Nemendur halda leiðarbók sem tengist verkefnum og vettvangshluta námsins og skila greinargerð um vettvangshluta námsins ásamt ritun á fræðilegum texta.
Matur menning heilsa (HHE004F, HHE003F)
Lögð er áhersla á að lesa fræðilega texta um matreiðslu og bakstur og þá eðlisfræði sem þar liggur að baki. Í tengslum við lesturinn læra nemendur helstu grundvallar aðferðir í matreiðslu og bakstri og hvernig þær tengjast hollustu matarins. Lögð verður áhersla á að nemendur kynni sér vel hvað felst í hollu mataræði. Matreiddir verða meðal annars ýmsir réttir sem tengjast viðfangsefni lesefnisins og einnig réttir sem teljast lýsandi fyrir íslenska matargerð á 20. öld. Til samanburðar verða matreiddir þjóðarréttir frá ýmsum löndum. Farið verður yfir undirstöðuþætti almennra hreinlætis- og örverufræða. Nemendum er ætlað að öðlast skilning á mikilvægi hollra lífshátta og hreinlætis út frá persónulegu sjónarmiði og sjónarmiðum samfélagsins sem tengjast heilbrigði og fjárhag.
Nemendur vinna að fræðilegu verkefni með vísindalegri nálgun og lestri fræðigreina.
Vettvangsnám í heilsueflingu og heimilisfræði II – Matarmenning og umhverfi (HHE004F, HHE003F)
Námskeiðið skal taka samhliða námskeiðinu Matur menning heilsa. Námskeiðið miðar að því að undirbúa nemendur fyrir vettvangsnám í heimilisfræði með áherslu á matarmenningu og umhverfi í samhengi við kennslufræðilega þætti og náms- og starfsumhverfi greinarinnar í grunn- og framhaldsskólum. Markmiðið er að nemendur geti tengt og rökstutt gildi og mikilvægi heilsueflingar og heimilisfræði fyrir framtíð einstaklinga og samfélagsins alls með vísindalegri nálgun og lestri fræðigreina. Nemendur kynnast margbreytileika kennslunnar, hugtakanotkun og fjölbreyttum kennsluaðferðum sem og lestri á vísindalegum fræðigreinum sem tengjast heilsueflingu og heimilisfræði. Nemendur vinna með eigin hugmyndir að kennsluverkefnum í samráði við kennara námskeiðsins og leiðsagnarkennara á vettvangi. Einnig taka þeir mið af hæfniviðmiðum heimilisfræðinnar í aðalnámskrá og skólanámskrá viðtökuskóla. Kennsluverkefnin eru aldursmiðuð og með tengingu við sköpun, sjálfbærni og læsi sem og aðra grunnþætti menntunar. Áhersla verður lögð á þjálfun í gerð þemaverkefna um matarmenningu og samþættingu sjálfbærni við verkefni í heimilisfræði. Nemendur halda leiðarbók sem tengist verkefnum og vettvangshluta námsins og skila greinargerð um vettvangshluta námsins ásamt vinnu að fræðilegu verkefni tengt vettvangi.
- Annað ár
- Haust
- Sérfæði og matur við sérstök tækifæri
- Færni og fæðuval
- Nám og kennsla - fagmennska í starfi
- Vor
- Matur menning heilsa
- Ekki kennt á misserinuKennslumiðuð matreiðsla
- Færniþjálfun á heilsueflingarvettvangi
- Nám og kennsla – vettvangsnám í faggrein
Sérfæði og matur við sérstök tækifæri (HHE501M, HHE502M)
Inntak og meginviðfangsefni:
Á námskeiðinu verður farið í ýmsa þá þætti mataræðis sem ekki falla undir hefðbundið mataræði. Kannaður verður munurinn á sérfæði og matarvenjum. Undir hugtakið sérfæði falla sjúkdómar, algeng matarofnæmi, mataróþol og trúarbrögð og verða þessir þættir skoðaðir sérstaklega. Nemendur læra að aðlaga og breyta uppskriftum fyrir sérfæði. Þei fá einnig að æfa sig í að elda sérfæði ýmiskonar. Fjallað verður um mat til hátíðarbrigða, nesti í gönguferðir og ferðalög og svo fæði íþróttafólks. Nemendur fá að spreyta sig á að útbúa veisluborð, nesti fyrir gönguferðir og ferðalög og mat fyrir ýmsar íþróttagreinar. Skoðað verður hvaða stefnur og straumar eru vinsælastar í matargerð jafn innanlands sem utan bæði í betri og mat og svo sérfæði ýmiskonar.
Kennslufyrirkomulag:
Námið felst í beinni miðlun kennara, verklegum æfingum nemenda, kennsluæfingum, hópverkefnum og sjálfstæðum verkefnum einstakra nemenda.
Vinnulag:
Námskeiðið er kennt bæði sem staðnám og fjarnám þar sem fyrirlestrar eru teknir upp á settir inn á fjarnámsvef. Skyldumæting er í staðlotur. Á námskeiðinu vinna nemendur eitt fræðilegt verkefni og þrjú önnur verkefni. Í innlotum eru fyrirlestrar og vinnustofur. Staðnemar matreiða í tímum rétti í samræmi við þarfir ólíkra hópa og fjarnemar gera heima valin verkefni úr verklegum tímum í stað þess að mæta í verklega tíma. Námskeiðið felur í sér efnisgjald.
Til að standast námskeið þarf lágmarkseinkunnina 5,0 í sérhverju verkefni og prófi.
Færni og fæðuval (HHE501M, HHE502M)
Inntak og meginviðfangsefni
Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig þjálfa má færni mismunandi hópa við matreiðslu og hafa þannig áhrif á fæðuval þeirra. Aðstæður, þarfir og geta hópa er mismunandi og á námskeiðinu verður farið yfir þessa þætti. Unnið verður námsefni og kennsluleiðbeiningar fyrir valinn hóp með sérþarfir.
Ung börn hafa yfirleitt áhuga á og ánægju af að vinna með foreldrum sínum í eldhúsinu. Þau geta aðstoðað á ýmsan hátt og um leið þjálfað færni og fínhreyfingar. Farið verður yfir helstu atriði matreiðslu með ungum börnum og hugað að næringarþörf þeirra og matarsmekk. Matreiddar verða uppskriftir sem börn geta hjálpað til við að elda og börn vilja gjarnan borða. Kennsluaðferðir og geta hvers aldurs í eldhúsinu verða skoðaðar.
Næringarþörf eldri borgara er að mestu leiti sambærileg næringarþörf annarra hópa en þó þarf að taka tillit til ýmissa þátta við matargerð og fæðuval, s.s. breytingar á búsetuformi, heilsu, hreyfigetu og tækifærum til innkaupa. Á námskeiðinu verður farið yfir þá þætti sem geta haft áhrif á fæðuval og getu til vinnu í eldhúsi. Einnig hvernig best er að haga fæðuvali fyrir þann sem býr orðið einn á efri árum og er jafnvel ekki vanur að matreiða.
Unnið verður að gerð námsefnis og kennsluleiðbeininga fyrir hópa sem þurfa sjónrænni og ítarlegri leiðbeiningar í uppskriftum en almennt gengur og gerist.
Kennslufyrirkomulag
Námið felst í beinni miðlun kennara, verklegum æfingum nemenda, kennsluæfingum, hópverkefnum og sjálfstæðum verkefnum nemenda.
Vinnulag
Námskeiðið er kennt bæði sem staðnám og fjarnám þar sem fyrirlestrar eru teknir upp á settir inn á fjarnámsvef. Á námskeiðinu fá nemendur námsefni miðlað á vef og taka heimapróf á Canvas úr lesefni og vinna einnig fræðileg verkefni. Í innlotum eru aðrir fyrirlestrar og vinnustofur. Staðnemar matreiða í verklegum tímum rétti í samræmi við þarfir ólíkra hópa og fjarnemar gera heima valin verkefni úr þeim tímum í stað þess að mæta í verklega tíma. Skyldumæting er í staðlotur. Námskeiðið felur í sér efnisgjald.
Til að standast námskeið þarf lágmarkseinkunnina 5,0 í sérhverju verkefni og prófi.
Nám og kennsla - fagmennska í starfi (KME301F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins er fagmennska í starfi kennara og hlutverk, ábyrgð og skyldur umsjónarkennara sem og fagreinakennara. Sérstök áhersla er lögð á að styðja kennaranema í að móta heildstæða starfskenningu, efla fagvitund, skerpa sýn á kennarastarfið og skilning á þeim skuldbindingum sem starfið felur í sér. Á námskeiðinu er áhersla lögð á tengsl kennslu og náms og það hlutverk kennarans að byggja upp öflugt og skapandi námsumhverfi. Fjallað verður um siðfræði kennarastarfsins, manngildissjónarmið og ábyrgð kennara, gagnvart velferð barna og foreldrasamstarfi. Meðal viðfangsefna verða sjálfsrýni og sjálfsmat, ígrundun eigin kennslu og í samræðu við nema úr öðrum faggreinum. Auk þess er lögð áhersla á samskiptafærni, m.a. í samskiptum við foreldra, viðtalstækni, samvinnu kennara og mismunandi leiðir til bekkjarstjórnunar.
Vinnulag byggir á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við vettvangsnám. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr skólastarfi. Kennaranemar lesa valdar greinar og rannsóknir sem tengjast námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér. Þeir vinna námsþáttaverkefni og halda rannsóknardagbók a.m.k. einu sinni í viku meðan á vettvangsnámi stendur. Námsþættir sem nemar vinna með og vettvangsnámið eiga að mynda eina samofna heild.
Vettvangsnámið dreifist yfir allt skólaárið, allt frá því þegar skólar hefja störf í ágúst þar til skóla lýkur að vori. Mætingaskylda er á námskeiðinu á mánudögum eftir hádegi á Menntavísindasviði eða í rauntíma á neti fyrir þá sem búa á landsbyggðinni utan við Selfoss eða Akranes.
Kennaranemar velja sjálfir hvort þeir fara í launað starfsnám eða ólaunað vettvangsnám:
Launað starfsnám (leiðbeinendur í kennslu). Kennaranemar sem hyggja á launað starfsnám leita sér sjálfir að stöðu og sækja um. Þeir stunda vettvangsnámið í eigin bekk/námshópum sem þeir eru að kenna.
Í launuðu starfsnámi er hálft starf fullgilt vettvangsnám og kennaranemar sinna bæði störfum umsjónarkennara og kennslu í faggrein/sérhæfingu sinni. Miðað er við að allir kenni að lágmarki 4 kennslustundir á viku í faggrein sinni. Vettvangsnámið er hluti af starfi og fylgir því skólaárinu í grunnskóla viðkomandi.
Ólaunað vettvangsnám. Kennaranemar sem hyggja á ólaunað vettvangsnám geta lagt til hvar þeir vilji stunda sitt vettvangsnám. Í könnun sem send verður út í maí geta þeir óskað eftir borgarhluta/ landsvæði eða skóla.
Á vettvangi skila þeir að jafnaði fjögurra til sex klukkustunda viðveru á dag, 2 – 3 daga í viku, þ.e. 12 klukkustundum á viku. Þar af er miðað við að þeir kenni 8 kennslustundir og þarf kennsla í faggrein að vera minnst 4 kennslustundir á viku. Einnig þarf nemi að hafa tækifæri til að kynnast hlutverki umsjónarkennara.
Vettvangsnámstímabilið í ólaunuðu vettvangsnámi fylgir háskólaárinu.
Matur menning heilsa (HHE004F)
Lögð er áhersla á að lesa fræðilega texta um matreiðslu og bakstur og þá eðlisfræði sem þar liggur að baki. Í tengslum við lesturinn læra nemendur helstu grundvallar aðferðir í matreiðslu og bakstri og hvernig þær tengjast hollustu matarins. Lögð verður áhersla á að nemendur kynni sér vel hvað felst í hollu mataræði. Matreiddir verða meðal annars ýmsir réttir sem tengjast viðfangsefni lesefnisins og einnig réttir sem teljast lýsandi fyrir íslenska matargerð á 20. öld. Til samanburðar verða matreiddir þjóðarréttir frá ýmsum löndum. Farið verður yfir undirstöðuþætti almennra hreinlætis- og örverufræða. Nemendum er ætlað að öðlast skilning á mikilvægi hollra lífshátta og hreinlætis út frá persónulegu sjónarmiði og sjónarmiðum samfélagsins sem tengjast heilbrigði og fjárhag.
Nemendur vinna að fræðilegu verkefni með vísindalegri nálgun og lestri fræðigreina.
Kennslumiðuð matreiðsla (HHE002F)
Helstu námsþættur eru matreiðsla, bakstur, sýnikennsla, matarsóun og sjálfbærni. Námskeiðið miðar að því að nemendur fái þjálfun í kennslu matreiðslu sem byggir í aðalatriðum á því að kynna námsefni í heimilisfræði fyrir nemendum. Farið verður yfir hvernig á að halda sýnikennslu, vinna og tala samhliða fyrir framan aðra. Farið verðu yfir matreiðslu með nemendum á yngri og eldri stigum þar sem áhersla verður lögð á grunnþætti matreiðslu. Einnig á holla daglega næringu barna- og ungmenna og hvað þau þurfa að kunna. Matarsóun á eigin heimili verður skoðuð og farið yfir umbúðalæsi, umbúðanotkun og sóun auðlinda í kringum þær. Matarsóun á eigin heimili verður skoðuð og farið yfir umbúðalæsi, umbúðanotkun og sóun auðlinda í kringum þær, ásamt kolefnisspori mismunandi matvæla.
Nemendur vinna að fræðilegu verkefni með vísindalegri nálgun og lestri fræðigreina.
Færniþjálfun á heilsueflingarvettvangi (HHE201M)
Á námskeiðinu fá nemendur tækifæri til að kynnast vettvangi þar sem heilsuefling hefur verið innleidd eða ætlunin er að innleiða heilseflandi verkefni, hvort heldur sem er í skólastarfi, frístundstarfi, íþróttastarfsemi, vinnustað eða annars staðar í samfélaginu. Nemendur gera úttekt á stöðunni og meta það starf sem er í gangi auk þess að taka þátt í undirbúningi og innleiðingu verkefnis eða heilsueflandi starfi sem þegar er í gangi. Þannig fá nemendur tækifæri til að nýta þær aðferðir, verkfæri og hugmyndir sem þeir hafa kynnst í öðrum námskeiðum.
Nám og kennsla – vettvangsnám í faggrein (FAG401F)
Meginviðfangsefni námskeiðsins er vettvangsnám í faggrein. Lögð er áhersla á að nemar prófi sig í kennslu og fái tækifæri til að ræða, meta, ígrunda og þróa kennslu sína. Þeir þróa kennsluáætlun byggða á aðalnámskrá grunnskóla og skólanámskrá. Þeir greina atvik úr kennslu sinni og draga lærdóm af þeim. Þeir skoða fjölbreyttar kennsluaðferðir og beita þeim í kennslu á vettvangi.
Vinnulag: Nemendur eru á vettvangi alla önnina á báðum námskeiðum og mæta reglulega í kennslustundir í háskólanum. Byggt er á fyrirlestrum, umræðum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við námskeiðið Nám og kennsla - fagmennska. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér.
- Óháð námsári
- Haust
- Líkamleg þjálfun, ákefð og endurheimt
- Menntunarfræði yngri barna
- Næring og þjálfun ungmenna
- Tómstundafræði og forysta
- Sterkir hópar: Samkennd, samvinna og liðsheild
- Ekki kennt á misserinuLífsleikni - sjálfið
- Svefn, heilsa og endurheimt
- Kennsla í margbreytilegum nemendahópi
- Næring í afreksþjálfun
- Félagsfærni og sjálfsefling með jákvæðri hópastjórnun
- Einelti, forvarnir og inngrip
- Vor
- Alþjóðaheilsa
- Ójöfnuður og heilsa
- Siðfræði og samfélag
- Ekki kennt á misserinuÞróun stærðfræðihugmynda ungra barna
- Hegðun og tilfinningar barna: Áskoranir og úrræði
- Heildstæð yngri barna kennsla
- Áhættuhegðun og seigla ungmenna
- Matur og menning:
- Lestur og lestrarkennsla: áherslur og þróun
- Faraldsfræði hreyfingar
- Sumar
- Staðartengd útimenntun
Líkamleg þjálfun, ákefð og endurheimt (ÍÞH115F)
Fjallað verður um aðlaganir sem verða á starfsemi líkamans við líkamlega þjálfun. Farið verður yfir mikilvægi markmiðsetningar í tengslum skipulagningu og framkvæmd líkamsþjálfunar. Fjallað verður um greiningu á vinnukröfum íþróttagreina og notkun slíkrar greiningar í uppsetningu og framkvæmd þjálfunaráætlana. Sérstök áhersla verður lögð á að skýra tengsl magns og ákefðar líkamlegrar þjálfunar með skýrskotun til bæði skammtíma- og langtíma þjálfunaráætlana. Fjallað verður um mikilvægi hvíldar og endurheimtar í tengslum við líkamlega þjálfun, með sérstakri áherslu á svefn og svefnþörf íþróttafólks.
ATH: Námskeiðin ÍÞH101M/ÍÞH115F Líkamleg þjálfun, ákefð og endurheimt, 5e og ÍÞH114F Líkamleg þjálfun barna og unglinga 5e koma í stað námskeiðsins ÍÞH102F Þjálfunarlífeðlisfræði, 10e. Þeir nemendur sem hafa lokið því þurfa ekki að taka 5e námskeiðin.
Menntunarfræði yngri barna (KME109F)
Á námskeiðinu verður fjallað um sýn á börn, rannsóknir á námi þeirra og þá hugmyndafræði sem þær byggja á og athyglinni beint að ýmsum áherslum og álitamálum á sviðinu. Kynntar verða innlendar og erlendar rannsóknir og kenningar á eftirfarandi sviðum:
- Sýn á börn og nám í nútíma samfélagi: Fjallað verður um grundvallarhugmyndir um nám barna og hvernig þeim eru skapaðar námsaðstæður í skólum þar sem þátttaka, valdefling, lýðræði og vellíðan eru í brennidepli.
- Félagslegur raunveruleiki barna og áhrif hans á virka þátttöku þeirra í skólastarfi, m.a. jafnrétti í víðum skilningi, foreldrasamskipti, tækni í lífi barna.
- Þróun náms, skipulag námsumhverfis og fjölbreyttar leiðir til að meta nám ungra barna sem snerta meðal annars námssvið í leik- og grunnskóla.
Vinnulag:
Mætingarskylda er í tveimur staðlotum. Vikulegar kennslustundir eru yfir önnina þar sem nemendur geta valið mismunandi tíma dagsins í kennslustofu eða á neti.
Kennsla verður í formi fyrirlestra, umræðna og verkefna sem nemendur kynna og ræða. Nemendur athuga hvernig nýta má kenningar og niðurstöður rannsókna í skólastarfi. Þeir velja sér afmarkað svið til að dýpka þekkingu sína á með því að kynna sér niðurstöður rannsókna og starf á vettvangi. Dæmi um viðfangsefni eru: Mat í skólastarfi, margbreytilegur barnahópur (svo sem menningarlæsi, kynjagervi, fjölmenning) ákveðið námssvið, leik og námssamfélag barna, foreldrasamstarf, læsi, samfella í námi barna og skapandi starf.
Næring og þjálfun ungmenna (HÍT501M)
Hlutverk næringar í þjálfun og áhrif á árangur í íþróttum eru viðfangsefni þessa námskeiðs. Áhersla er lögð á að skoða þá þætti sem helst eru til umfjöllunar í samfélaginu hverju sinni og sá sérstaklega þætti sem viðkoma þjálfun og viðhorfum ungmenna til næringartengdra þátta.
Megináhersla er lögð á orkuefnin, hlutverk þeirra og þarfir við mismunandi þjálfun. Jafnframt er horft til ólíkra þarfa eftir aldri, kyni, líkamsímynd og líkamsbyggingu. Einnig verður fjallað um vökvaþörf, vítamín, stein- og snefilefni, andoxunarefni og fæðubótarefni í tengslum við þjálfun.
Farið verður yfir nýjustu rannsóknir um efnið og takmarkanir og framfarir á stöðu þekkingar á sviðinu skoðaðar. Áhersla er lögð á að geta greint sundur raunverulega stöðu þekkingar samanborið við markaðssetningu og tískustrauma sem oft hafa áhrif á neysluvenjur og viðhorf ungmenna.
Ennfremur er lögð áhersla á þverfræðilega teymisvinnu milli fagaðila og fjallað er um hvernig má hámarka árangur og stuðla að heilsueflingu með samvinnu fagstétta.
Vinnulag:
Námskeiðið byggist á fyrirlestrum og vinnustofu. Ætlast er til virkar þátttöku nemenda í umræðum og verkefnavinnu. Gerð er krafa um grunnþekkingu í næringarfræði til að hægt sé að velja námskeiðið. Námsmat er byggt á virkni nemenda, vinnustofu og lokaprófi. Mætingaskylda er í vinnustofu og lokapróf.
ATH: Var áður kennt sem hluti af námskeiðinu Íþróttir og næring.
Tómstundafræði og forysta (TÓS102F)
Viðfangsefni námskeiðsins
Forysta, fagmennska og markmið stofnana á vettvangi frítímans eru viðfangsefni námskeiðsins. Þátttakendur kynnast ólíkum forystukenningum, inngildandi leiðtogafærni, breytinga- og krísustjórnun og gildi menningar á starfsstöðum. Vettvangur frítímans verður í brennidepli en einnig samspil vettvangsins við aðrar stofnanir sem koma að menntun og farsæld.
Fjallað verður um hlutverk leiðtogans í samfélagi án aðgreiningar og þróun forystu í íslensku sem og alþjóðlegu samhengi. Nemendum gefst kostur á að tengja hugmyndir sínar, þekkingu og reynslu af vettvangi við viðfangsefni námskeiðsins.
Áherslur námskeiðsins
Þátttakendur námskeiðs fá töluvert frelsi til athafna í verkefnavinnu og verða hvattir til sjálfstæðra vinnubragða.
Í námskeiðinu er lögð áhersla á að ná jafnvægi milli fjölbreyttra gerða náms:
- Tileinkun náms (e. acquisition)
- Umræður (e. discussion)
- Könnun og/eða rannsókn (e. investigation)
- Samvinna (e. collaboration)
- Virkni og/eða æfing (e. practice)
- Afurð (e. production)
Vinnulag námskeiðsins
Í hverri lotu er umræðutími. Þeir sem ekki eiga kost á þátttöku í umræðutímum í rauntíma vinna verkefni á vef. Hver lota er að jafnaði tvær vikur að lengd.
Þátttökuskylda er í staðlotum og málstofum.
Stuðst er öllu jafna við vendinám í bland við fyrirlestra, umræður, samvinnu- og einstaklingsverkefni.
Í lok námskeiðs sjá nemendur um málstofur tengdar viðfangsefni námskeiðsins.
Sterkir hópar: Samkennd, samvinna og liðsheild (TÓS301F)
Markmið þessa námskeiðs er að nemendur öðlist fræðilega þekkingu á árangursríkum leiðum til að vinna með og efla hópa í skóla- og frístundastarfi, með áherslu á félags- og tilfinningahæfni, samkennd, samvinnu og liðsheild.
Viðfangsefni:
Þemu námskeiðsins eru sex, þar sem fyrstu fjögur eru megin þemu:
- Sterkir hópar - einkenni þeirra og hlutverk fagfólks í að byggja þá upp
- Samkennd: Hvað segja rannsóknir og hvernig kennum við samkennd?
- Samvinna: Hvað segia rannsóknir og hvernig kennum við samvinnu?
- Liðsheild og þýðing hennar fyrir jákvæða menningu í skóla- og frístundasamfélaginu
- Félags- og tilfinningahæfni
- Farsæld og samspil hennar við það samfélagslega samhengi sem börn og ungmenni tilheyra
Nálgun og vinnulag námskeiðs
Í námskeiðinu er lögð áhersla á að ná jafnvægi milli fjölbreyttra gerða náms:
- Tileinkun náms (e. acquisition)
- Umræður (e. discussion)
- Könnun og/eða rannsókn (e. investigation)
- Samvinna (e. collaboration)
- Virkni og æfing (e. practice)
- Afurð (e. production)
Námskeiðið er skipulagt þannig að tímar eru einu sinni í viku, í staðbundnum lotum og fjarnámi. Nemendur geta valið að mæta í tíma, vera á Zoom í rauntíma eða hlusta á upptökur og gera virkniverkefni. Þar fyrir utan er skyldumæting í staðbundnar lotur. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, umræðum, lestri, hlustun og áhorfi, sem og verkefnavinnu sem bæði verður unnin í hóp og á einstaklingsgrunni. Þá er farið í ferðalag yfir nótt eða sambærilegt í borginni. Leitast verður við að tengja viðfangsefni námskeiðsins sem mest aðstæðum og reynslu nemenda.
Lífsleikni - sjálfið (SFG104F)
Viðfangsefni: Á námskeiðinu er unnið með þá þætti lífsleikni sem miða að sjálfinu og persónulegri hæfni með fræðilegum og hagnýtum hætti. Efni námskeiðsins er í samræmi við ákvæði úr námskrám íslenskra leik-, grunn- og framhaldsskóla um að efla andlega heilsu, heilbrigða sjálfsmynd og siðferðilegan styrk nemenda. Meðal annars er fjallað um mannkostamenntun, lífstilraunir og nútvitund.
Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða í flestum vikum. Fyrirlestrar verða að jafnaði teknir upp fyrirfram og settir á Canvas-vef námskeiðsins. Gert er ráð fyrir að nemendur kynni sér þá og taki svo þátt í umræðum. Umræðutímarnir verða ekki teknir upp en þeir sem ekki komast í umræðutíma geta uppfyllt þátttökuskyldu með því að skila þátttökubloggi. Einnig eru unnin þrjú verkefni auk lokaverkefnis. Í staðlotum I og II eru tímarnir verklegir.
Svefn, heilsa og endurheimt (ÍÞH049F)
Í námskeiðinu verður fjallað almennt um svefn en einnig verður fjallað um svefn í tengslum við íþróttir, heilsu og almenna vellíðan. Fjallað verður um svefn uppbyggingu, svefn hinna ýmsu aldurshópa og svefn í tengslum við heilsu, íþrótta- og afrekshópa, kvíða og algengar svefnraskanir. Námskeiðið verður byggt á útgefnu efni um lífeðlisfræði svefns og rannsóknum á svefni tengdum lýðheilsu og íþróttum.
Kennsla í margbreytilegum nemendahópi (KME115F)
Markmið námskeiðsins er að starfandi kennarar og kennaranemar eflist í að nýta eigin auðlindir í vinnu með margbreytilegum nemendahópum. Byggt er á kennslufræði menntunar fyrir alla (inclusive pedagogy) og kennslufræði nýsköpunarmenntar þar sem lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu og að nýta auðlindir nemenda.
Viðfangsefni
Námskeiðið byggir á hugmyndafræði menntunar fyrir alla og nýsköpunar- og frumkvöðlamenntunar. Fjallað verður um mismunandi vinnubrögð og kynntir kennsluhættir og kennsluaðferðir sem hafa reynst vel í fjölbreyttum nemendahópum. Áhersla er á kennsluhætti og kennsluaðferðir nýsköpunarmenntar, samvirks náms, altæka hönnun náms, fjölmenningarlega kennslu og listrænar og skapandi aðferðir. Fjallað verður um samstarf við foreldra og aðrar starfsstéttir er starfa við eða tengjast skólastarfi. Þátttakendur skilgreina og þróa eigin starfskenningu.
Vinnulag
Námskeiðið er skipulagt sem blandað nám, bæði fjarnám og staðnám. Kennslan fer fram bæði í staðlotum og staðtímum milli staðlota og á netinu. Námskeiðinu er skipt upp í fjórar námslotur (tímabil) sem eru skipulagðar út frá ákveðnum þemum. Þau tengjast öll kennslu í margbreytilegum nemendahópi og eru: hugmyndafræði menntunar fyrir alla og nýsköpunarmenntar, fagmennska og forysta í kennslu margbreytilegra nemendahópa, kennsluhættir í margbreytilegum nemendahópum og samstarf í skóla fyrir alla. Hver námslota stendur yfir í þrjár til fjórar vikur. Kennsla og nám verður í formi fyrirlestra, umræðna í tímum og á Canvas, stuttra verkefna í tímum og á Canvas og verkefna með formlegum skilum. Námskeiðið byggir á sjálfstæðri vinnu, ábyrgð og þátttöku nemenda.
Gert er ráð fyrir 80% þátttöku í virkni á námskeiðinu (þátttaka og skil verkefna).
Næring í afreksþjálfun (HÍT502M)
Hlutverk næringar í afreksþjálfun með áherslu á árangur í íþróttum er viðfangsefni þessa námskeiðs sem er framhald af námskeiðinu Næring og þjálfun ungmenna. Áhersla er lögð á að dýpka þá þekkingu sem komin er og vinna hagnýt verkefni. Þau byggja á matseðlagerð og rýni í sérþarfir í afreksþjálfun t.d. á keppnistímabili og hvíldartímabilum, við undirbúning, í keppni og í endurheimt. Einnig er skoðuð þyngdarstjórnun í greinum þar sem þyngdarflokkar skipta máli.
Farið verður yfir nýjustu rannsóknir um efnið og takmarkanir og framfarir á stöðu þekkingar á sviðinu skoðaðar. Áhersla er lögð á að geta greint sundur raunverulega stöðu þekkingar samanborið við leiðir sem markaðssettar eru til árangurs eða fá hljómgrunn í ýmsum keppnisgreinum.
Ennfremur er lögð áhersla á þverfræðilega teymisvinnu milli fagaðila og fjallað er um hvernig má hámarka árangur og stuðla að heilsueflingu með samvinnu fagstétta.
Vinnulag
Námskeiðið byggist á fyrirlestrum og verkefnavinnu í smærri hópum. Ætlast er til virkar þátttöku nemenda í umræðum og verkefnavinnu. Gerð er krafa um að einnig sé tekið námskeiðið Næring og þjálfun ungmenna, auk þess sem grunnþekking í næringarfræði er nauðsynleg. Námsmat er byggt á virkni í tímum, verkefnavinnu og lokaprófi.
ATH: Var áður kennt sem hluti af námskeiðinu Íþróttir og næring.
Félagsfærni og sjálfsefling með jákvæðri hópastjórnun (HÍT001F)
|
Tilgangur námskeiðsins er að þátttakendur – kennarar, tómstunda- og félagsmálafræðingar og aðrir sem vinna með hópa barna og unglinga í leikskóla, grunnskóla- og frístundastarfi – efli þekkingu sína á aðferðum sem stuðla að æskilegri hegðun barna. Þeir læri að beita árangursríkum og gagnreyndum aðferðum sem byggjast á trausti og virðingu, styðja við félagsfærni og sjálfseflingu barna og unglinga og stuðla að bættri líðan þeirra. Þættir sem unnið er með:
Samhliða því að þátttakendur námskeiðsins tileinki sér færnina sjálfir og æfi hana, eru kenndar leiðir til að miðla til - og þjálfa annað fagfólk í notkun aðferðanna. Vinnulag Námskeiðið skiptist í vinnu í tímum og verkefni („heimavinnu“) á milli tíma sem þátttakendur geta prófað í eigin starfi og nýtt þannig beint til þróunar á eigin starfsháttum. Kennsla fer fram með umræðum, æfingum og fjölbreyttum sameiginlegum viðfangsefnum. Námsmat byggist á lestri kafla og greina, skilaverkefnum sem unnin eru með barna- og unglingahópum sem tengjast þátttakendum, samhliða miðlun til annars fagfólks og virkri þátttöku í umræðum um viðfangsefni námskeiðsins. Miðað er við kennslu í rauntíma, á Zoom eða á staðnum (í staðlotum), átta hálfa daga á tímabilinu ágúst til nóvember, þar sem unnið er með þætti námskeiðsins og gerðar æfingar. Þátttakendur reyna aðferðirnar sjálfir með sínum barnahópum í verkefnum á milli tíma. Námskeiðið er vettvangs- og samstarfsmiðað. Þátttakendur fá tækifæri til að læra saman og styðja hvern annan í að þróa árangursríka starfshætti með börnum. Grunnhugmyndin er að þátttakendur líti á það sem sameiginlegt verkefni allra í skóla- og frístundasamfélaginu að nota uppbyggilegar og gagnreyndar aðferðir til að stuðla að góðri aðlögun barna og starfsánægju fagfólks. Námskeiðið hentar öllum kennurum, tómstunda- og félagsmálafræðingum og öðrum sem vinna með hópa barna og unglinga í leikskóla, grunnskóla- og frístundastarfi. |
Einelti, forvarnir og inngrip (TÓS509M)
Þetta námskeið er um einelti og markmiðið er að þeir sem ljúka námskeiðinu öðlist þekkingu, leikni og hæfni til að geta tekist á við og komið í veg fyrir einelti meðal barna og unglinga.
Námskeiðið byggir á kenningum og rannsóknum á einelti. Námskeiðið er bæði fræðilegt og hagnýtt. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa hug á að vinna með börnum og unglingum og hentar því vel fyrir nemendur á menntavísindasviði HÍ. Nemendur á öðrum sviðum eru einnig velkomnir. Á námskeiðinu verður fjallað um fjölmarga þætti sem snúa að einelti, þar á meðal mismunandi birtingarmyndir, árangursríkar aðferðir við forvarnir og inngrip, samstarf við foreldra og forsjáraðila og árangursríka vinnu með þolendum, gerendum og áhorfendum. Námskeiðið fer fram á íslensku en lesefni er á íslensku og ensku.
Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, umræðu- og verkefnatímum, reynslusögum af vettvangi og kynningum nemenda.
Skyldumæting er í námskeiðið (lágmark 80%). Skyldumæting er fyrir fjarnema í staðlotur námskeiðsins. Missi þeir af staðlotu verða þeir að vinna það upp með því að mæta í aðra tíma í staðinn. Fjarnemum er frjálst að mæta í aðrar kennslustundir. Fjarnemar hlusta á upptökur og vinna virkniverkefni um kennslustundir sem þeir mæta ekki í.
Alþjóðaheilsa (LÝÐ045F)
Námskeiðið fjallar um lýðheilsu í hnattrænu samhengi, sögu og áherslur. Fjallað verður um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og stefnu Íslands í innleiðingu þeirra. Einnig munu sérfræðingar á hverju sviði, íslenskir og erlendir, fjalla um viðfangsefni innan alþjóðaheilsunnar, svo sem heilbrigðisvísa; sjúkdómsbyrði og áhrifaþætti heilsu í löndum heimsins sem búa við fátækt og ójöfnuð og þær leiðir sem gætu stuðlað að bættri heilbrigðisþjónustu og auknu heilbrigði; áhrif öryggis og átaka á heilsu; og heilsuáhrif hamfara.
Stefnt verður á að nemendum verði boðið í vettvangsheimsókni til stofnana sem koma að stefnu Íslands í alþjóðastarfi og móttöku flóttamanna.
Ójöfnuður og heilsa (FÉL098F)
Félagslegur ójöfnuður hefur áhrif á heilsu. Almennt hafa þeir sem eru í viðkvæmari stöðu í samfélaginu verri heilsu en þeir sem að betra hafa það. Í þessu námskeiði er sjónum beint að sambandi félagslegrar stöðu og heilsufars. Nemendur munu kynnast helstu kenningum innan heilsufélagsfræðinnar, s.s. kenningum Link og Phelan um grundvallarástæður sjúkdóma (fundamental causes of disease) og fara yfir rannsóknir á sviðinu. Eitt mikilvægasta framlag félagsfræðinnar er skilningur á því hvernig stærri samfélagslegir þættir (t.d. heilbrigðis- og velferðarkerfið) móta líf einstaklinga og við munum því skoða hvernig samband félagslegrar stöðu og heilsu mótast af svona þáttum. Þar sem að heilsa fólks er flókið fyrirbæri munum við einnig skoða hana í þverfaglegu ljósi og notast meðal annars við kenningar og rannsóknir úr lýðheilsufræðum, heilbrigðisvísindum, mannfræði og stjórnmálafræði.
Siðfræði og samfélag (MVS210F)
Viðfangsefni
Í námskeiðinu verða greind tiltekin heimspekileg og siðferðileg álitamál í íslensku samfélagi. Sjónum verður beint að heimspekilegum og siðferðilegum spurningum sem til dæmis tengjast heilbrigðismálum, náttúru og menntun, og andlegri velferð. Dregið verður fram hvað einkennir sérstaklega heimspekilegan/siðferðilegan vanda og rætt hvernig hægt er að takast á við hann. Til að nálgast það verkefni verða skoðuð dæmi um málefni í opinberri umræðu í íslensku samfélagi, þau greind þar sem átakalínur og undirliggjandi gildi verða skoðuð.
Þróun stærðfræðihugmynda ungra barna (KME203F)
Markmið að nemendur:
- Þekki rannsóknir á stærðfræðilegri hugsun ungra barna og hugmyndum þeirra um stærðfræðileg fyrirbæri.
- Geri sér grein fyrir hverjar eru meginstoðir þeirrar stærðfræðilegu þekkingar sem nemendur þróa með sér fyrstu átta æviárin.
- Geti kannað stærðfræðilegar hugmyndir ungra barna með athugunarverkefnum og viðtölum.
- Séu færir um að nýta niðurstöður rannsókna á stærðfræðinámi ungra barna við skipulagningu skólastarfs í leikskóla og í fyrstu bekkjum grunnskóla.
Viðfangsefni:
Nemendur kynnast nýlegum rannsóknum á stærðfræðilegri hugsun ungra barna. Þeir kynna sér þróun þekkingar og skilnings barna á mismunandi inntaksþáttum stærðfræðinnar. Sjónum verður beint að því stærðfræðinámi sem fram fer fyrstu æviárin og sem er mikilvægur grunnur fyrir frekara nám á þessu sviði. Áhersla er á hvernig byggja má upp námsumhverfi þar sem nám fer fram í leik og daglegu starfi. Sérstaklega verður skoðað hvaða rannsóknaraðferðum er beitt við að kanna hugmyndir og skilning ungra barna. Nemendur prófa að framkvæma athuganir á stærðfræðilegum skilningi ungra barna og beita við það mismunandi aðferðum. Hugað verður að því hvernig nýta má rannsóknarniðurstöður til að skipuleggja þróunarstarf sem hefur það að markmiði að stærðfræðileg hugsun barna eflist.
Vinnulag:
Áhersla er lögð á að þróa námssamfélag sem allir taka virkan þátt í að móta. Hægt er að taka þátt á staðnum, með fjarfundabúnaði og á vefsvæði námskeiðsins. Haldnir verða fyrirlestrar, málstofur og umræðutímar. Nemar lesa fræðilega texta og leita svara við áleitnum spurningum um efnið. Þeir framkvæma rannsóknir, gera grein fyrir niðurstöðum og draga af þeim ályktanir. Þeir setja fram hugmyndir um hvernig byggja má upp og þróa námsumhverfi og stærðfræðikennslu fyrir ung börn.
Hegðun og tilfinningar barna: Áskoranir og úrræði (MAL003F)
Markmiðið með námskeiðinu er að gefa þátttakendum kost á að kynnast völdum þáttum, bæði fræðilegum og hagnýtum, sem auðvelda almennum kennurum og sérkennurum að skilja, meta og bregðast við þörfum nemenda sem eiga við hegðunar- og/eða tilfinningavanda að etja. Fjallað verður um aðferðir við skimun og mat, áhrifaþætti og algengi mismunandi hegðunar- og/eða tilfinningalegra erfiðleika, s.s. mótþróa, þunglyndis og kvíða. Einnig verður fjallað um hegðunar- og/eða tilfinningalega erfiðleika nemenda með athyglisbrest með ofvirkni (ADHD) eða röskun á einhverfurófinu. Sérstök áhersla er á að auka færni þátttakenda í að sníða skólastarf og skólasamfélag betur að þörfum nemenda með hegðunar- og/eða tilfinningalega erfiðleika og veita kennurum og skólastjórnendum ráð um hvernig unnt er að gera slíkt og fjarlægja hindranir sem útiloka og einangra nemendur með slíkan vanda.
Nemendur hafi aflað sér grunnþekkingar á helstu hugtökum og sjónarhornum þroskasálfræði eða félagsvísinda á námsferli sínum áður en þeir sækja námskeiðið. Reynsla af vinnu með börnum eða ungmennum æskileg.
Helstu efnisþættir
- Mismunandi skilgreiningar á hegðunar- og tilfinningaörðugleikum - alþjóðleg viðmið og flokkunarkerfi.
- Hegðunar- og tilfinningaörðugleikar í samfélagslegu samhengi.
- Helstu kenningar um hegðunar- og tilfinningaörðugleika barna og unglinga (conceptual models).
- Viðbrögð skólasamfélagsins; nemendasýn og skólastefna - skóli án aðgreiningar, sérdeildir eða sérskólar? Ólík sjónarhorn við að skilgreina vandann.
- Sértæk úrræði innan skólasamfélagsins og fræðilegur bakgrunnur þeirra.
- Mismunandi aðferðir við virknimat (functional behavioral assessment) til að ákvarða hvaða þættir ýta undir hegðunar- og/eða tilfinningalega erfiðleika nemenda.
- Gerð stuðningsáætlunar með margvíslegum aðferðum til að fyrirbyggja erfiða hegðun eða vanlíðan, kenna og styrkja viðeigandi hegðun og bregðast þannig við erfiðri hegðun þannig að dragi úr henni með tímanum og nemendum líði betur.
- Aðferðir til að auka félagsfærni og sjálfstæð vinnubrögð nemenda með hegðunar- og/eða tilfinningalega erfiðleika.
Vinnulag
Í staðlotum verða fyrirlestrar auk verkefnatíma. Á kennsluvefnum Canvas verða birtar hljóðglærur og kennslubréf, og þar fara fram umræður úr völdum efnisþáttum. Námskeiðið er kennt með fjarnámssniði en mætingarskylda er í staðlotur. Námsmat er að mestu leyti fólgið í hópverkefnum.
Heildstæð yngri barna kennsla (GKY201F)
Á námskeiðinu verður lögð áhersla á þróun náms hjá börnum í yngstu bekkjum grunnskóla og tengsl þess við skipulag kennslu og námsefnis fyrir yngsta stigið. Áhersla verður lögð á innlendar og erlendar rannsóknir um nám og kennslu barna á þessu aldursstigi sem snerta námsgreinar grunnskólans og einnig félagslega þætti sem tengjast skólastarfi á yngsta stigi grunnskóla án aðgreiningar. Unnið verðum með samþættingu námsgreina, sérlega samfélagsfræði og nátturufræði, auk skapandi vinnu með fjölbreyttum efnivið og tæknilausnum. Nemendur velja sér afmarkað svið í verkefnavinnu t.d., ákveðna námsgrein, læsi, námssamfélag, fjölmenningu eða skapandi starf og dýpka þekkingu sína í gegnum lestur rannsókna og annara fræðilegra skrifa.
Áhættuhegðun og seigla ungmenna (UME206F)
Í námskeiðinu er lögð áhersla á umfjöllun um áhættuhegðun ungmenna (t.d. vímuefnaneyslu, frávikshegðun, brokkgenga skólagöngu) og seiglu þeirra í tengslum við ýmsa uppeldislega, félagslega og sálfræðilega þætti. Viðfangsefni eru m.a. samskiptahæfni, geðraskanir, kynheilbrigði og áföll. Fjallað er ítarlega um ýmis konar verndandi þætti og áhættuþætti og þátt heimila, skóla og tómstundastarfs í að stuðla að velferð ungmenna. Kynntar eru bæði innlendar og erlendar rannsóknir á fræðasviðinu. Sérstök áhersla er á rannsóknir sem skoða tengsl ýmissa þroskaþátta og áhættuhegðunar. Verkefni í námskeiðinu miða að því að leita eftir sýn ungs fólks á áhættuþætti í lífi sínu.
Athugið: Hægt er að taka námskeiðið í fjarnámi. Kennsluinnlegg eru almennt tekin upp og sett inn á námsumsjónarkerfið CANVAS fyrirfram en ef kennsla fer fram í rauntíma þá er hún tekin upp. Vikulega eru umræðutímar (60 mín.) þar sem nemendur geta valið milli þess að koma á staðinn eða vera með á netinu. Hið sama á við þegar ritgerðir eru kynntar einu sinni á önninni þá geta nemendur verið á staðnum eða með á netinu.
Matur og menning: (NÆR613M)
Matur er mannsins megin, uppspretta orkunnar og forsenda lífsins. En matur er líka sneisafullur af merkingu. Matarhættir veita innsýn í heimsmynd okkar, lífssýn og listfengi og matur mótar tilveru okkar, líkama, samfélag, hagkerfi, hugarfar og siðferði. Sjálfsmynd okkar og minningar eru nátengdar mat og matur er einhver mikilvægasti miðillinn fyrir samskipti okkar við annað fólk.
Í námskeiðinu skoðum við hvað fólk borðar, hvernig, hvenær, með hverjum og hvers vegna. Með þeim hætti fáum við dýrmæta innsýn í kyngervi og kynslóðir, fæðuöryggi og rétt til matar, stéttaskiptingu og menningarlegan margbreytileika, skynheim og fegurðarskyn, tækni og matvælaframleiðslu, tísku og matarkúra, matarhefðir og menningararf, tilfinningar, vináttu og fjölskyldubönd. Matarhættir tengja þannig saman menningu og náttúru, hnattvæðingu og hið staðbundna, heimilið og vinnustaðinn, fortíð og samtíð, manneskjur og örverur.
Í námskeiðinu beinum við sjónum að sambandi matarframleiðslu og neyslu á 21. öld með sérstaka áherslu á lýðheilsu, siðferðislega neyslu og sjálfbærni.
Matur og menning eru þverfagleg viðfangsefni og því er þetta námskeið kennt í samstarfi námsbrauta í þjóðfræði og matvæla- og næringarfræði.
Lestur og lestrarkennsla: áherslur og þróun (KME206F)
Helstu viðfangsefni í námskeiðinu varða fimm meginþætti lestrarnáms: hljóðkerfis- og hljóðavitund, umskráningu, lesfimi, orðaforða og lesskilning/hlustunarskilning ásamt ritun, hjá byrjendum og lengra komnum. Lögð er áhersla á að skoða áhrifaríkar, raunprófaðar kennsluaðferðir sem efla sem best færni nemenda í völdum þáttum og þær metnar í ljósi rannsóknaniðurstaðna og fræðilegra kenninga um lestrarnám og lestrarkennslu. Skoðaðar verða kennslu- og matsaðferðir í umskráningu/lesfimi og orðaforða/lesskilningi. Hugað verður að mikilvægum áhrifaþáttum í þróun umskráningar, lesfimi, orðaforða, lesskilnings og ritunar og verður í því tilliti litið til náms- og kennsluaðferða.
Faraldsfræði hreyfingar (ÍÞH211F)
Markmið: Að nemendur
– dýpki þekkingu sína á samspili lífshátta sem tengjast hreyfingu og heilbrigði og skoði rannsóknir á því sviði
– öðlist aukna þekkingu á ýmsum lífsstílstengdum sjúkdómum og á áhrifum hreyfingar og þjálfunar á þá, bæði gegnum fyrirbyggjandi aðgerðir (fyrsta stigs forvarnir) og sem meðferðarúrræði (annars stigs forvarnir).
Námskeiðinu er ætlað að kynna faraldsfræðilegar rannsóknaraðferðir á sviði tengsla hreyfingar og heilsufars og auka skilning og færni nemenda í að lesa vísindagreinar með gagnrýnum hætti. Farið verður í saumana á því hvernig hreyfing hefur áhrif á heilbrigði og minnkar áhættu á ýmsum lífsstílstengdum sjúkdómum. Rannsóknir og athuganir á samspili hreyfitengdra lífshátta og ólíkra heilsufarsþátta verða reifaðar. Námskeiðið verður kennt í fyrirlestraformi.
Staðartengd útimenntun (TÓS001M)
Á námskeiðinu ræður samfélag staðarins tilhögun námsins og við beitum reynslunámi þar sem nemendur upplifa „siglingar, strönd og arfleifð sjóferða“. Í staðartengdri útimenntun er unnið með námsferli sem grundvallað er á upplifun af sögum sem eiga rætur að rekja til ákveðins staðar; einstökum sögulegum staðreyndum, umhverfi, menningu, efnahag, bókmenntum og listum staðarins.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur upplifi staðinn með öllum sínum skynfærunum og öðlist þannig tengsl við staðinn sem verða grunnur að þekkingarleit. Með því að tengjast staðnum og bregðast við honum þroska nemendur með sér dýpri skilning á einkennum staðarins, virðingu og vitund um hann. Gengið verður og siglt um undraheim staðarins, inn í fornar og nýjar sögur hans og nemendur velta fyrir sér framtíð staðarins.
Með þennan nýja skilning og viðmið að leiðarljósi munu nemendur kanna með fjölbreyttum hætti ýmis alþjóðleg vandamál, rétt umhverfisins, sjálfbærni og félagslegt réttlæti staðarins?
Nemendur eru hvattir til að beina sjónum sínum að samfélagi, sögum, menningu og hagsmunahópum og munu ýmsir sérfróðir aðilar taka þátt í kennslu á námskeiðinu ásamt kennurum. Nemendur upplifa staðartengda uppeldisfræði (e. pedagogy of place) bæði úti og inni að eigin raun og geta með því beitt henni í lífi og starfi.
Námskeiðið hefur verið þróað í samstarfi milli Háskóla Íslands og Outdoor Learning teymisins í Plymouth Marjon University í Bretlandi og er stutt af Siglingaklúbbnum Ými, Vatnasportmiðstöðinni Siglunesi, Sjóminjasafni Reykjavíkur og Sjávarklasanun.
Fæðis- og ferðakostnaður: 15.000 kr.
Vinnulag:
Námskeiðið byggir á virkri þátttöku allra. Undirbúningsdagur er xx. júní kl. 16.30-18. Námskeiðið er dagana xx. ágúst og xx. 2027 og miðað er við kennslu allan daginn og við erum mjög mikið úti.
Námskeiðið fer fram mikið úti. Stefnt er að því að fara á sjó, upplifa fjöru og strandlengju, kynnast nýjum hliðum á Reykjavík og fara í Viðey og jafnvel Gróttu. Mögulega verður gist í Viðey xxx. ágúst.
- Haust
- Námskeiðslýsing
Viðfangsefni: Megintilgangur þessa námskeiðs er að rýna með gagnrýnum hætti í sjálfbærni og sjálfbærnimenntun út frá sjónarhorni stofnana eða heilla kerfa, út frá ólíkum gerðum forystu og hugmyndum um sérfræðiþekkingu. Rýnt verður í hugtökin fagmennsku og faglega sjálfsmynd fólks í forystu bæði á sviði menntunar og viðfangsefnum tengdum sjálfbærri þróun. Illviðráðanleg vandamál (e. wicked problems) verða skilgreind og rædd, fjallað um mögulegar lausnir, hvað gæti hindrað framganginn og hvernig mætti meta lausnirnar. Rætt verður um hvers konar nám fagfólks leiðir til breytinga og þátt forystu í að koma hlutum í framkvæmd. Viðfangsefnin verða tengd við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna (SÞ) og átta gerðir lykilhæfni SÞ til sjálfbærrar þróunar og félagslegrar nýsköpunar. Sjónum verður beint að félagsauði og samþættu námi þar sem beitt er ígrundun og efnisþáttum náms. Síðasta viðfangsefnið verður starfsþróunaráætlunar þar sem afrakstur ígrundunar og sjálfsmats verður þrætt inn í skipulagða persónulega starfsþróunaráætlun.
Vinnulag: Kennslustundir og umræður á milli þeirra byggjast á upplýstri rökræðu og virkri þátttöku (80% mætingarskylda í kennslustundir). Unnin verða einstaklingsverkefni sem eru fá skrifleg verkefni ásamt þátttöku í umræðuþráðum. Krafist er virkrar þátttöku í teymisvinnu við skipulagningu kennslustunda, flytja fyrirlestur og því að leiða umræður eða vera í hlutverki rýnis. Til að standast námskeiðið þarf að fá að lágmarki einkunnina 5,0 fyrir hvert verkefni námskeiðsins og uppfylla lágmarkskröfur um mætingu, þátttöku í tímum og í umræðuþráðum. Nánari útfærsla og upplýsingar um kennslufyrirkomulag verður á Canvas.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuHÍT101FHeilsuefling, íþróttir og tómstundir – fræði og vettvangurSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið er ætlað nemendum sem eru að hefja framhaldsnám í Deild heilsueflingar, íþrótta- og tómstunda. Í því verður ljósi varpað á mikilvæg hugtök og kenningar sem notuð eru í þeim fræðigreinum sem kenndar eru í deildinni. Í námskeiðinu verður lögð áhersla á að rýna í hvernig ólíkir þættir, svo sem heilsuhegðun og félagslegt umhverfi, og sampil þeirra hafa áhrif á heilsu og lífsgæði fólks. Fjallað verður um viðfangsefni sem eru efst á baugi í samfélaginu og varða hreyfingu, næringu, heilsueflingu, lífsleikni, nám og þroska og tengsl þeirra við andlega, líkamlega og félagslega velferð einstaklinga. Lögð er áhersla á að nemendur tileinki sér gagnrýna og skapandi nálgun á viðfangsefni sem tengjast náið þeim vettvangi sem þeir munu starfa á að námi loknu. Nemendur æfa í því skyni teymisvinnu og efla samskipti út frá hugmyndafræði þverfræðilegrar samvinnu. Nemendur fá tækifæri til að dýpka þekkingu sína í tilteknu viðfangsefni sem valið er í samráði við kennara og munu í lok námskeiðs setja fram áætlun um nám sitt.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuMAL102FNám og kennsla: Að mæta sérþörfumSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMeginviðfangsefni námskeiðsins eru kennsluhættir og námsaðstæður sem miða að því að efla árangur fjölbreyttra nemendahópa, huga að styrkleikum þeirra og veikleikum í skóla án aðgreiningar með manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi. Fjallað er um algengustu sérþarfir nemenda og sérstök áhersla lögð á árangursríkar (gagnreyndar) leiðir til að mæta margbreytilegum þörfum nemenda og efla þá í námi, meðal annars til að draga úr vanda varðandi lestrarnám, hegðun, líðan, einbeitingu, ofvirkni og einhverfu. Samhliða er rætt um mikilvægi þess að hafa hæfileika og styrkleika nemenda ávallt í forgrunni og aðgreina erfiðleika frá eiginleikum einstaklinga. Einnig er fjallað um fjölmenningarkennslu og kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku. Kynntar eru helstu aðferðir við bekkjarstjórnun og einstaklingsmiðuð úrræði til að bæta hegðun, félagsfærni, líðan og námsárangur fjölbreytts hóps nemenda. Fjallað er um þverfaglegt samstarf, teymisvinnu og samvinnu við foreldra barna með sérþarfir. Umfjöllunarefni námskeiðsins grundvallast á hugmyndafræði skóla án aðgreiningar og rannsóknum á því sem vel hefur gefist við að mæta fjölbreytilegum nemendahópi, með það að markmiði að veita öllum nemendum jafngild tækifæri í námi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði verður farið yfir grunnskilgreiningar á hugtökunum: heilsa og heilbrigði, sjúkdómar og fötlun. Farið verður yfir helstu áhrifaþætti heilbrigðis og ræddir verða sérstakir áhrifavaldar á heilsufar. Bæði verða kynntir þættir sem geta ógnað heilsu og heilbrigði en einnig skoðað hvaða þættir geta haft jákvæð heilsueflandi áhrif. Sérstök áhersla verður á áhrif umverfis á heilsu. Fjallað verður um ólíkar nálganir í heilsueflingu og hverjir beri ábyrgð á heilsueflingu
Athugið: Námskeiðið hét áður Hugur, heilsa og heilsulæsi.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Vor
NámskeiðslýsingFjallað verður um fyrirkomulag og mikilvægi heilsueflingar í skólum, á vinnustað, í hvers kyns þjálfun, endurhæfingu, íþróttum og tómstundastarfi. Mismunandi kenningar um heilsueflingu verða kynntar, sem og framkvæmd, mat og heildstætt ferli heilsueflingar. Allt frá því hvernig heilsueflandi verkefni eru skipulögð og hvernig þau eru innleidd, framkvæmd og metin. Sérstök áhersla verður lögð á fræðilegan þátt heilsueflingarferlisins til að undirbúa nemendur fyrir faglegt starf tengt heilsueflingu á vettvangi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeið kennt fyrri hluta misserisÍÞH036MHeilsuhegðun og fæðuval – áhrifaþættir og mótunSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni námskeiðsins er heilsuhegðun í víðum skilningi. Fjallað verður um heilsuhegðun mismunandi aldurshópa og samband líffræðilegra þátta, heilsuhegðunar og félagslegra aðstæðna. Farið verður yfir hvernig hegðun einstaklinga, bjargráð og streita hafa áhrif á heilsufar. Hegðun í tengslum við fæðuval og neysluvenjur er sérstaklega skoðuð. Þá verður horft til þess hvernig má móta heilsusamlegar lífsvenjur frá æsku, svo sem hafa áhrif á fæðuval og vinna á matvendni. Samfélagsáhrif og þáttur fjölmiðla eru einnig könnuð. Námsefnið byggir á fræðbókum og vísindagreinum frá mismunandi áttum og ólíkum sviðum sem spanna viðfangsefnið og nálgast það á ólíkan hátt.
Námskeiðið er ætlað nemendum á efri stigum grunnnáms og á meistarastigi og er opið öllum.Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuHHE002F, HHE001FKennslumiðuð matreiðslaSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingHelstu námsþættur eru matreiðsla, bakstur, sýnikennsla, matarsóun og sjálfbærni. Námskeiðið miðar að því að nemendur fái þjálfun í kennslu matreiðslu sem byggir í aðalatriðum á því að kynna námsefni í heimilisfræði fyrir nemendum. Farið verður yfir hvernig á að halda sýnikennslu, vinna og tala samhliða fyrir framan aðra. Farið verðu yfir matreiðslu með nemendum á yngri og eldri stigum þar sem áhersla verður lögð á grunnþætti matreiðslu. Einnig á holla daglega næringu barna- og ungmenna og hvað þau þurfa að kunna. Matarsóun á eigin heimili verður skoðuð og farið yfir umbúðalæsi, umbúðanotkun og sóun auðlinda í kringum þær. Matarsóun á eigin heimili verður skoðuð og farið yfir umbúðalæsi, umbúðanotkun og sóun auðlinda í kringum þær, ásamt kolefnisspori mismunandi matvæla.
Nemendur vinna að fræðilegu verkefni með vísindalegri nálgun og lestri fræðigreina.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuHHE002F, HHE001FVettvangsnám í heilsueflingu og heimilisfræði I - Lífshættir og vinnubrögð 5eSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið skal taka samhliða námskeiðinu Kennslumiðuð matreiðsla. Námskeiðið miðar að því að undirbúa nemendur fyrir vettvangsnám í heimilisfræði með áherslu á lífshætti og vinnubrögð í samhengi við kennslufræðilega þætti og náms- og starfsumhverfi greinarinnar í grunn- og framhaldsskólum. Markmiðið er að nemendur geti tengt og rökstutt gildi og mikilvægi heilsueflingar og heimilisfræði fyrir framtíð einstaklinga og samfélagsins alls með vísindalegri nálgun og lestri fræðigreina. Nemendur kynnast margbreytileika kennslunnar, hugtakanotkun, fjölbreyttum kennsluaðferðum og vísindalegum rannsóknum sem tengjast heilsueflingu og heimilisfræði. Nemendur vinna með eigin hugmyndir að kennsluverkefnum í samráði við kennara námskeiðsins og leiðsagnarkennara á vettvangi. Einnig taka þeir mið af hæfniviðmiðum heimilisfræðinnar í aðalnámskrá og skólanámskrá viðtökuskóla. Kennsluverkefnin eru aldursmiðuð og með tengingu við sköpun, sjálfbærni og læsi sem og aðra grunnþætti menntunar. Nemendur fá þjálfun í vinnulagi við innlagnir og sýnikennslu, gerð kennsluáætlana og bera saman ólíkar námsmatsleiðir sem hæfa fjölbreyttum aðferðum heimilisfræðinnar. Nemendur fá þjálfun í gerð kennsluverkefna fyrir öll stig grunnskóla. Kynntar verða ýmsar aðferðir við kennslu í næringarfræði, meðal annars með því að samþætta við aðrar námsgreinar. Nemendur halda leiðarbók sem tengist verkefnum og vettvangshluta námsins og skila greinargerð um vettvangshluta námsins ásamt ritun á fræðilegum texta.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingLögð er áhersla á að lesa fræðilega texta um matreiðslu og bakstur og þá eðlisfræði sem þar liggur að baki. Í tengslum við lesturinn læra nemendur helstu grundvallar aðferðir í matreiðslu og bakstri og hvernig þær tengjast hollustu matarins. Lögð verður áhersla á að nemendur kynni sér vel hvað felst í hollu mataræði. Matreiddir verða meðal annars ýmsir réttir sem tengjast viðfangsefni lesefnisins og einnig réttir sem teljast lýsandi fyrir íslenska matargerð á 20. öld. Til samanburðar verða matreiddir þjóðarréttir frá ýmsum löndum. Farið verður yfir undirstöðuþætti almennra hreinlætis- og örverufræða. Nemendum er ætlað að öðlast skilning á mikilvægi hollra lífshátta og hreinlætis út frá persónulegu sjónarmiði og sjónarmiðum samfélagsins sem tengjast heilbrigði og fjárhag.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHHE004F, HHE003FVettvangsnám í heilsueflingu og heimilisfræði II – Matarmenning og umhverfiSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið skal taka samhliða námskeiðinu Matur menning heilsa. Námskeiðið miðar að því að undirbúa nemendur fyrir vettvangsnám í heimilisfræði með áherslu á matarmenningu og umhverfi í samhengi við kennslufræðilega þætti og náms- og starfsumhverfi greinarinnar í grunn- og framhaldsskólum. Markmiðið er að nemendur geti tengt og rökstutt gildi og mikilvægi heilsueflingar og heimilisfræði fyrir framtíð einstaklinga og samfélagsins alls með vísindalegri nálgun og lestri fræðigreina. Nemendur kynnast margbreytileika kennslunnar, hugtakanotkun og fjölbreyttum kennsluaðferðum sem og lestri á vísindalegum fræðigreinum sem tengjast heilsueflingu og heimilisfræði. Nemendur vinna með eigin hugmyndir að kennsluverkefnum í samráði við kennara námskeiðsins og leiðsagnarkennara á vettvangi. Einnig taka þeir mið af hæfniviðmiðum heimilisfræðinnar í aðalnámskrá og skólanámskrá viðtökuskóla. Kennsluverkefnin eru aldursmiðuð og með tengingu við sköpun, sjálfbærni og læsi sem og aðra grunnþætti menntunar. Áhersla verður lögð á þjálfun í gerð þemaverkefna um matarmenningu og samþættingu sjálfbærni við verkefni í heimilisfræði. Nemendur halda leiðarbók sem tengist verkefnum og vettvangshluta námsins og skila greinargerð um vettvangshluta námsins ásamt vinnu að fræðilegu verkefni tengt vettvangi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Haust
- HHE501M, HHE502MSérfæði og matur við sérstök tækifæriBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Inntak og meginviðfangsefni:
Á námskeiðinu verður farið í ýmsa þá þætti mataræðis sem ekki falla undir hefðbundið mataræði. Kannaður verður munurinn á sérfæði og matarvenjum. Undir hugtakið sérfæði falla sjúkdómar, algeng matarofnæmi, mataróþol og trúarbrögð og verða þessir þættir skoðaðir sérstaklega. Nemendur læra að aðlaga og breyta uppskriftum fyrir sérfæði. Þei fá einnig að æfa sig í að elda sérfæði ýmiskonar. Fjallað verður um mat til hátíðarbrigða, nesti í gönguferðir og ferðalög og svo fæði íþróttafólks. Nemendur fá að spreyta sig á að útbúa veisluborð, nesti fyrir gönguferðir og ferðalög og mat fyrir ýmsar íþróttagreinar. Skoðað verður hvaða stefnur og straumar eru vinsælastar í matargerð jafn innanlands sem utan bæði í betri og mat og svo sérfæði ýmiskonar.Kennslufyrirkomulag:
Námið felst í beinni miðlun kennara, verklegum æfingum nemenda, kennsluæfingum, hópverkefnum og sjálfstæðum verkefnum einstakra nemenda.Vinnulag:
Námskeiðið er kennt bæði sem staðnám og fjarnám þar sem fyrirlestrar eru teknir upp á settir inn á fjarnámsvef. Skyldumæting er í staðlotur. Á námskeiðinu vinna nemendur eitt fræðilegt verkefni og þrjú önnur verkefni. Í innlotum eru fyrirlestrar og vinnustofur. Staðnemar matreiða í tímum rétti í samræmi við þarfir ólíkra hópa og fjarnemar gera heima valin verkefni úr verklegum tímum í stað þess að mæta í verklega tíma. Námskeiðið felur í sér efnisgjald.Til að standast námskeið þarf lágmarkseinkunnina 5,0 í sérhverju verkefni og prófi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEfnisgjald er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuHHE501M, HHE502MFærni og fæðuvalBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingInntak og meginviðfangsefni
Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig þjálfa má færni mismunandi hópa við matreiðslu og hafa þannig áhrif á fæðuval þeirra. Aðstæður, þarfir og geta hópa er mismunandi og á námskeiðinu verður farið yfir þessa þætti. Unnið verður námsefni og kennsluleiðbeiningar fyrir valinn hóp með sérþarfir.Ung börn hafa yfirleitt áhuga á og ánægju af að vinna með foreldrum sínum í eldhúsinu. Þau geta aðstoðað á ýmsan hátt og um leið þjálfað færni og fínhreyfingar. Farið verður yfir helstu atriði matreiðslu með ungum börnum og hugað að næringarþörf þeirra og matarsmekk. Matreiddar verða uppskriftir sem börn geta hjálpað til við að elda og börn vilja gjarnan borða. Kennsluaðferðir og geta hvers aldurs í eldhúsinu verða skoðaðar.
Næringarþörf eldri borgara er að mestu leiti sambærileg næringarþörf annarra hópa en þó þarf að taka tillit til ýmissa þátta við matargerð og fæðuval, s.s. breytingar á búsetuformi, heilsu, hreyfigetu og tækifærum til innkaupa. Á námskeiðinu verður farið yfir þá þætti sem geta haft áhrif á fæðuval og getu til vinnu í eldhúsi. Einnig hvernig best er að haga fæðuvali fyrir þann sem býr orðið einn á efri árum og er jafnvel ekki vanur að matreiða.
Unnið verður að gerð námsefnis og kennsluleiðbeininga fyrir hópa sem þurfa sjónrænni og ítarlegri leiðbeiningar í uppskriftum en almennt gengur og gerist.
Kennslufyrirkomulag
Námið felst í beinni miðlun kennara, verklegum æfingum nemenda, kennsluæfingum, hópverkefnum og sjálfstæðum verkefnum nemenda.Vinnulag
Námskeiðið er kennt bæði sem staðnám og fjarnám þar sem fyrirlestrar eru teknir upp á settir inn á fjarnámsvef. Á námskeiðinu fá nemendur námsefni miðlað á vef og taka heimapróf á Canvas úr lesefni og vinna einnig fræðileg verkefni. Í innlotum eru aðrir fyrirlestrar og vinnustofur. Staðnemar matreiða í verklegum tímum rétti í samræmi við þarfir ólíkra hópa og fjarnemar gera heima valin verkefni úr þeim tímum í stað þess að mæta í verklega tíma. Skyldumæting er í staðlotur. Námskeiðið felur í sér efnisgjald.Til að standast námskeið þarf lágmarkseinkunnina 5,0 í sérhverju verkefni og prófi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEfnisgjald er í námskeiðinuKME301FNám og kennsla - fagmennska í starfiSkyldunámskeið20Skyldunámskeið á námsleiðinni20 einingar, ETCSÞar af 12 vettvangseiningarNámskeiðslýsingMeginviðfangsefni námskeiðsins er fagmennska í starfi kennara og hlutverk, ábyrgð og skyldur umsjónarkennara sem og fagreinakennara. Sérstök áhersla er lögð á að styðja kennaranema í að móta heildstæða starfskenningu, efla fagvitund, skerpa sýn á kennarastarfið og skilning á þeim skuldbindingum sem starfið felur í sér. Á námskeiðinu er áhersla lögð á tengsl kennslu og náms og það hlutverk kennarans að byggja upp öflugt og skapandi námsumhverfi. Fjallað verður um siðfræði kennarastarfsins, manngildissjónarmið og ábyrgð kennara, gagnvart velferð barna og foreldrasamstarfi. Meðal viðfangsefna verða sjálfsrýni og sjálfsmat, ígrundun eigin kennslu og í samræðu við nema úr öðrum faggreinum. Auk þess er lögð áhersla á samskiptafærni, m.a. í samskiptum við foreldra, viðtalstækni, samvinnu kennara og mismunandi leiðir til bekkjarstjórnunar.
Vinnulag byggir á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við vettvangsnám. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr skólastarfi. Kennaranemar lesa valdar greinar og rannsóknir sem tengjast námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér. Þeir vinna námsþáttaverkefni og halda rannsóknardagbók a.m.k. einu sinni í viku meðan á vettvangsnámi stendur. Námsþættir sem nemar vinna með og vettvangsnámið eiga að mynda eina samofna heild.
Vettvangsnámið dreifist yfir allt skólaárið, allt frá því þegar skólar hefja störf í ágúst þar til skóla lýkur að vori. Mætingaskylda er á námskeiðinu á mánudögum eftir hádegi á Menntavísindasviði eða í rauntíma á neti fyrir þá sem búa á landsbyggðinni utan við Selfoss eða Akranes.
Kennaranemar velja sjálfir hvort þeir fara í launað starfsnám eða ólaunað vettvangsnám:
Launað starfsnám (leiðbeinendur í kennslu). Kennaranemar sem hyggja á launað starfsnám leita sér sjálfir að stöðu og sækja um. Þeir stunda vettvangsnámið í eigin bekk/námshópum sem þeir eru að kenna.
Í launuðu starfsnámi er hálft starf fullgilt vettvangsnám og kennaranemar sinna bæði störfum umsjónarkennara og kennslu í faggrein/sérhæfingu sinni. Miðað er við að allir kenni að lágmarki 4 kennslustundir á viku í faggrein sinni. Vettvangsnámið er hluti af starfi og fylgir því skólaárinu í grunnskóla viðkomandi.Ólaunað vettvangsnám. Kennaranemar sem hyggja á ólaunað vettvangsnám geta lagt til hvar þeir vilji stunda sitt vettvangsnám. Í könnun sem send verður út í maí geta þeir óskað eftir borgarhluta/ landsvæði eða skóla.
Á vettvangi skila þeir að jafnaði fjögurra til sex klukkustunda viðveru á dag, 2 – 3 daga í viku, þ.e. 12 klukkustundum á viku. Þar af er miðað við að þeir kenni 8 kennslustundir og þarf kennsla í faggrein að vera minnst 4 kennslustundir á viku. Einnig þarf nemi að hafa tækifæri til að kynnast hlutverki umsjónarkennara.
Vettvangsnámstímabilið í ólaunuðu vettvangsnámi fylgir háskólaárinu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
NámskeiðslýsingLögð er áhersla á að lesa fræðilega texta um matreiðslu og bakstur og þá eðlisfræði sem þar liggur að baki. Í tengslum við lesturinn læra nemendur helstu grundvallar aðferðir í matreiðslu og bakstri og hvernig þær tengjast hollustu matarins. Lögð verður áhersla á að nemendur kynni sér vel hvað felst í hollu mataræði. Matreiddir verða meðal annars ýmsir réttir sem tengjast viðfangsefni lesefnisins og einnig réttir sem teljast lýsandi fyrir íslenska matargerð á 20. öld. Til samanburðar verða matreiddir þjóðarréttir frá ýmsum löndum. Farið verður yfir undirstöðuþætti almennra hreinlætis- og örverufræða. Nemendum er ætlað að öðlast skilning á mikilvægi hollra lífshátta og hreinlætis út frá persónulegu sjónarmiði og sjónarmiðum samfélagsins sem tengjast heilbrigði og fjárhag.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuHHE002FKennslumiðuð matreiðslaSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingHelstu námsþættur eru matreiðsla, bakstur, sýnikennsla, matarsóun og sjálfbærni. Námskeiðið miðar að því að nemendur fái þjálfun í kennslu matreiðslu sem byggir í aðalatriðum á því að kynna námsefni í heimilisfræði fyrir nemendum. Farið verður yfir hvernig á að halda sýnikennslu, vinna og tala samhliða fyrir framan aðra. Farið verðu yfir matreiðslu með nemendum á yngri og eldri stigum þar sem áhersla verður lögð á grunnþætti matreiðslu. Einnig á holla daglega næringu barna- og ungmenna og hvað þau þurfa að kunna. Matarsóun á eigin heimili verður skoðuð og farið yfir umbúðalæsi, umbúðanotkun og sóun auðlinda í kringum þær. Matarsóun á eigin heimili verður skoðuð og farið yfir umbúðalæsi, umbúðanotkun og sóun auðlinda í kringum þær, ásamt kolefnisspori mismunandi matvæla.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHHE201MFærniþjálfun á heilsueflingarvettvangiSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu fá nemendur tækifæri til að kynnast vettvangi þar sem heilsuefling hefur verið innleidd eða ætlunin er að innleiða heilseflandi verkefni, hvort heldur sem er í skólastarfi, frístundstarfi, íþróttastarfsemi, vinnustað eða annars staðar í samfélaginu. Nemendur gera úttekt á stöðunni og meta það starf sem er í gangi auk þess að taka þátt í undirbúningi og innleiðingu verkefnis eða heilsueflandi starfi sem þegar er í gangi. Þannig fá nemendur tækifæri til að nýta þær aðferðir, verkfæri og hugmyndir sem þeir hafa kynnst í öðrum námskeiðum.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erSjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuFAG401FNám og kennsla – vettvangsnám í faggreinSkyldunámskeið15Skyldunámskeið á námsleiðinni15 einingar, ETCSÞar af 12 vettvangseiningarNámskeiðslýsingMeginviðfangsefni námskeiðsins er vettvangsnám í faggrein. Lögð er áhersla á að nemar prófi sig í kennslu og fái tækifæri til að ræða, meta, ígrunda og þróa kennslu sína. Þeir þróa kennsluáætlun byggða á aðalnámskrá grunnskóla og skólanámskrá. Þeir greina atvik úr kennslu sinni og draga lærdóm af þeim. Þeir skoða fjölbreyttar kennsluaðferðir og beita þeim í kennslu á vettvangi.
Vinnulag: Nemendur eru á vettvangi alla önnina á báðum námskeiðum og mæta reglulega í kennslustundir í háskólanum. Byggt er á fyrirlestrum, umræðum, sjálfstæðri vinnu og samvinnuverkefnum. Námsþættir námskeiðsins eru í beinum tengslum við námskeiðið Nám og kennsla - fagmennska. Ýmis álitamál verða skoðuð og rædd með vísun til dæma úr námsþáttunum, bæði efni sem kennarar velja og efni sem nemar viða að sér.
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Haust
- Námskeiðslýsing
Fjallað verður um aðlaganir sem verða á starfsemi líkamans við líkamlega þjálfun. Farið verður yfir mikilvægi markmiðsetningar í tengslum skipulagningu og framkvæmd líkamsþjálfunar. Fjallað verður um greiningu á vinnukröfum íþróttagreina og notkun slíkrar greiningar í uppsetningu og framkvæmd þjálfunaráætlana. Sérstök áhersla verður lögð á að skýra tengsl magns og ákefðar líkamlegrar þjálfunar með skýrskotun til bæði skammtíma- og langtíma þjálfunaráætlana. Fjallað verður um mikilvægi hvíldar og endurheimtar í tengslum við líkamlega þjálfun, með sérstakri áherslu á svefn og svefnþörf íþróttafólks.
ATH: Námskeiðin ÍÞH101M/ÍÞH115F Líkamleg þjálfun, ákefð og endurheimt, 5e og ÍÞH114F Líkamleg þjálfun barna og unglinga 5e koma í stað námskeiðsins ÍÞH102F Þjálfunarlífeðlisfræði, 10e. Þeir nemendur sem hafa lokið því þurfa ekki að taka 5e námskeiðin.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt fyrri hluta misserisNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu verður fjallað um sýn á börn, rannsóknir á námi þeirra og þá hugmyndafræði sem þær byggja á og athyglinni beint að ýmsum áherslum og álitamálum á sviðinu. Kynntar verða innlendar og erlendar rannsóknir og kenningar á eftirfarandi sviðum:
- Sýn á börn og nám í nútíma samfélagi: Fjallað verður um grundvallarhugmyndir um nám barna og hvernig þeim eru skapaðar námsaðstæður í skólum þar sem þátttaka, valdefling, lýðræði og vellíðan eru í brennidepli.
- Félagslegur raunveruleiki barna og áhrif hans á virka þátttöku þeirra í skólastarfi, m.a. jafnrétti í víðum skilningi, foreldrasamskipti, tækni í lífi barna.
- Þróun náms, skipulag námsumhverfis og fjölbreyttar leiðir til að meta nám ungra barna sem snerta meðal annars námssvið í leik- og grunnskóla.
Vinnulag:
Mætingarskylda er í tveimur staðlotum. Vikulegar kennslustundir eru yfir önnina þar sem nemendur geta valið mismunandi tíma dagsins í kennslustofu eða á neti.Kennsla verður í formi fyrirlestra, umræðna og verkefna sem nemendur kynna og ræða. Nemendur athuga hvernig nýta má kenningar og niðurstöður rannsókna í skólastarfi. Þeir velja sér afmarkað svið til að dýpka þekkingu sína á með því að kynna sér niðurstöður rannsókna og starf á vettvangi. Dæmi um viðfangsefni eru: Mat í skólastarfi, margbreytilegur barnahópur (svo sem menningarlæsi, kynjagervi, fjölmenning) ákveðið námssvið, leik og námssamfélag barna, foreldrasamstarf, læsi, samfella í námi barna og skapandi starf.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingHlutverk næringar í þjálfun og áhrif á árangur í íþróttum eru viðfangsefni þessa námskeiðs. Áhersla er lögð á að skoða þá þætti sem helst eru til umfjöllunar í samfélaginu hverju sinni og sá sérstaklega þætti sem viðkoma þjálfun og viðhorfum ungmenna til næringartengdra þátta.
Megináhersla er lögð á orkuefnin, hlutverk þeirra og þarfir við mismunandi þjálfun. Jafnframt er horft til ólíkra þarfa eftir aldri, kyni, líkamsímynd og líkamsbyggingu. Einnig verður fjallað um vökvaþörf, vítamín, stein- og snefilefni, andoxunarefni og fæðubótarefni í tengslum við þjálfun.
Farið verður yfir nýjustu rannsóknir um efnið og takmarkanir og framfarir á stöðu þekkingar á sviðinu skoðaðar. Áhersla er lögð á að geta greint sundur raunverulega stöðu þekkingar samanborið við markaðssetningu og tískustrauma sem oft hafa áhrif á neysluvenjur og viðhorf ungmenna.
Ennfremur er lögð áhersla á þverfræðilega teymisvinnu milli fagaðila og fjallað er um hvernig má hámarka árangur og stuðla að heilsueflingu með samvinnu fagstétta.
Vinnulag:
Námskeiðið byggist á fyrirlestrum og vinnustofu. Ætlast er til virkar þátttöku nemenda í umræðum og verkefnavinnu. Gerð er krafa um grunnþekkingu í næringarfræði til að hægt sé að velja námskeiðið. Námsmat er byggt á virkni nemenda, vinnustofu og lokaprófi. Mætingaskylda er í vinnustofu og lokapróf.ATH: Var áður kennt sem hluti af námskeiðinu Íþróttir og næring.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeið kennt fyrri hluta misserisNámskeiðslýsingViðfangsefni námskeiðsins
Forysta, fagmennska og markmið stofnana á vettvangi frítímans eru viðfangsefni námskeiðsins. Þátttakendur kynnast ólíkum forystukenningum, inngildandi leiðtogafærni, breytinga- og krísustjórnun og gildi menningar á starfsstöðum. Vettvangur frítímans verður í brennidepli en einnig samspil vettvangsins við aðrar stofnanir sem koma að menntun og farsæld.Fjallað verður um hlutverk leiðtogans í samfélagi án aðgreiningar og þróun forystu í íslensku sem og alþjóðlegu samhengi. Nemendum gefst kostur á að tengja hugmyndir sínar, þekkingu og reynslu af vettvangi við viðfangsefni námskeiðsins.
Áherslur námskeiðsins
Þátttakendur námskeiðs fá töluvert frelsi til athafna í verkefnavinnu og verða hvattir til sjálfstæðra vinnubragða.
Í námskeiðinu er lögð áhersla á að ná jafnvægi milli fjölbreyttra gerða náms:
- Tileinkun náms (e. acquisition)
- Umræður (e. discussion)
- Könnun og/eða rannsókn (e. investigation)
- Samvinna (e. collaboration)
- Virkni og/eða æfing (e. practice)
- Afurð (e. production)
Vinnulag námskeiðsins
Í hverri lotu er umræðutími. Þeir sem ekki eiga kost á þátttöku í umræðutímum í rauntíma vinna verkefni á vef. Hver lota er að jafnaði tvær vikur að lengd.Þátttökuskylda er í staðlotum og málstofum.
Stuðst er öllu jafna við vendinám í bland við fyrirlestra, umræður, samvinnu- og einstaklingsverkefni.
Í lok námskeiðs sjá nemendur um málstofur tengdar viðfangsefni námskeiðsins.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðTÓS301FSterkir hópar: Samkennd, samvinna og liðsheildValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið þessa námskeiðs er að nemendur öðlist fræðilega þekkingu á árangursríkum leiðum til að vinna með og efla hópa í skóla- og frístundastarfi, með áherslu á félags- og tilfinningahæfni, samkennd, samvinnu og liðsheild.
Viðfangsefni:
Þemu námskeiðsins eru sex, þar sem fyrstu fjögur eru megin þemu:- Sterkir hópar - einkenni þeirra og hlutverk fagfólks í að byggja þá upp
- Samkennd: Hvað segja rannsóknir og hvernig kennum við samkennd?
- Samvinna: Hvað segia rannsóknir og hvernig kennum við samvinnu?
- Liðsheild og þýðing hennar fyrir jákvæða menningu í skóla- og frístundasamfélaginu
- Félags- og tilfinningahæfni
- Farsæld og samspil hennar við það samfélagslega samhengi sem börn og ungmenni tilheyra
Nálgun og vinnulag námskeiðs
Í námskeiðinu er lögð áhersla á að ná jafnvægi milli fjölbreyttra gerða náms:
- Tileinkun náms (e. acquisition)
- Umræður (e. discussion)
- Könnun og/eða rannsókn (e. investigation)
- Samvinna (e. collaboration)
- Virkni og æfing (e. practice)
- Afurð (e. production)
Námskeiðið er skipulagt þannig að tímar eru einu sinni í viku, í staðbundnum lotum og fjarnámi. Nemendur geta valið að mæta í tíma, vera á Zoom í rauntíma eða hlusta á upptökur og gera virkniverkefni. Þar fyrir utan er skyldumæting í staðbundnar lotur. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, umræðum, lestri, hlustun og áhorfi, sem og verkefnavinnu sem bæði verður unnin í hóp og á einstaklingsgrunni. Þá er farið í ferðalag yfir nótt eða sambærilegt í borginni. Leitast verður við að tengja viðfangsefni námskeiðsins sem mest aðstæðum og reynslu nemenda.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuSFG104FLífsleikni - sjálfiðValnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni: Á námskeiðinu er unnið með þá þætti lífsleikni sem miða að sjálfinu og persónulegri hæfni með fræðilegum og hagnýtum hætti. Efni námskeiðsins er í samræmi við ákvæði úr námskrám íslenskra leik-, grunn- og framhaldsskóla um að efla andlega heilsu, heilbrigða sjálfsmynd og siðferðilegan styrk nemenda. Meðal annars er fjallað um mannkostamenntun, lífstilraunir og nútvitund.
Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða í flestum vikum. Fyrirlestrar verða að jafnaði teknir upp fyrirfram og settir á Canvas-vef námskeiðsins. Gert er ráð fyrir að nemendur kynni sér þá og taki svo þátt í umræðum. Umræðutímarnir verða ekki teknir upp en þeir sem ekki komast í umræðutíma geta uppfyllt þátttökuskyldu með því að skila þátttökubloggi. Einnig eru unnin þrjú verkefni auk lokaverkefnis. Í staðlotum I og II eru tímarnir verklegir.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verður fjallað almennt um svefn en einnig verður fjallað um svefn í tengslum við íþróttir, heilsu og almenna vellíðan. Fjallað verður um svefn uppbyggingu, svefn hinna ýmsu aldurshópa og svefn í tengslum við heilsu, íþrótta- og afrekshópa, kvíða og algengar svefnraskanir. Námskeiðið verður byggt á útgefnu efni um lífeðlisfræði svefns og rannsóknum á svefni tengdum lýðheilsu og íþróttum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeið kennt seinni hluta misserisKME115FKennsla í margbreytilegum nemendahópiValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að starfandi kennarar og kennaranemar eflist í að nýta eigin auðlindir í vinnu með margbreytilegum nemendahópum. Byggt er á kennslufræði menntunar fyrir alla (inclusive pedagogy) og kennslufræði nýsköpunarmenntar þar sem lögð er áhersla á heildstæða og skapandi nálgun við undirbúning og skipulag kennslu og að nýta auðlindir nemenda.
Viðfangsefni
Námskeiðið byggir á hugmyndafræði menntunar fyrir alla og nýsköpunar- og frumkvöðlamenntunar. Fjallað verður um mismunandi vinnubrögð og kynntir kennsluhættir og kennsluaðferðir sem hafa reynst vel í fjölbreyttum nemendahópum. Áhersla er á kennsluhætti og kennsluaðferðir nýsköpunarmenntar, samvirks náms, altæka hönnun náms, fjölmenningarlega kennslu og listrænar og skapandi aðferðir. Fjallað verður um samstarf við foreldra og aðrar starfsstéttir er starfa við eða tengjast skólastarfi. Þátttakendur skilgreina og þróa eigin starfskenningu.Vinnulag
Námskeiðið er skipulagt sem blandað nám, bæði fjarnám og staðnám. Kennslan fer fram bæði í staðlotum og staðtímum milli staðlota og á netinu. Námskeiðinu er skipt upp í fjórar námslotur (tímabil) sem eru skipulagðar út frá ákveðnum þemum. Þau tengjast öll kennslu í margbreytilegum nemendahópi og eru: hugmyndafræði menntunar fyrir alla og nýsköpunarmenntar, fagmennska og forysta í kennslu margbreytilegra nemendahópa, kennsluhættir í margbreytilegum nemendahópum og samstarf í skóla fyrir alla. Hver námslota stendur yfir í þrjár til fjórar vikur. Kennsla og nám verður í formi fyrirlestra, umræðna í tímum og á Canvas, stuttra verkefna í tímum og á Canvas og verkefna með formlegum skilum. Námskeiðið byggir á sjálfstæðri vinnu, ábyrgð og þátttöku nemenda.Gert er ráð fyrir 80% þátttöku í virkni á námskeiðinu (þátttaka og skil verkefna).
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingHlutverk næringar í afreksþjálfun með áherslu á árangur í íþróttum er viðfangsefni þessa námskeiðs sem er framhald af námskeiðinu Næring og þjálfun ungmenna. Áhersla er lögð á að dýpka þá þekkingu sem komin er og vinna hagnýt verkefni. Þau byggja á matseðlagerð og rýni í sérþarfir í afreksþjálfun t.d. á keppnistímabili og hvíldartímabilum, við undirbúning, í keppni og í endurheimt. Einnig er skoðuð þyngdarstjórnun í greinum þar sem þyngdarflokkar skipta máli.
Farið verður yfir nýjustu rannsóknir um efnið og takmarkanir og framfarir á stöðu þekkingar á sviðinu skoðaðar. Áhersla er lögð á að geta greint sundur raunverulega stöðu þekkingar samanborið við leiðir sem markaðssettar eru til árangurs eða fá hljómgrunn í ýmsum keppnisgreinum.
Ennfremur er lögð áhersla á þverfræðilega teymisvinnu milli fagaðila og fjallað er um hvernig má hámarka árangur og stuðla að heilsueflingu með samvinnu fagstétta.
Vinnulag
Námskeiðið byggist á fyrirlestrum og verkefnavinnu í smærri hópum. Ætlast er til virkar þátttöku nemenda í umræðum og verkefnavinnu. Gerð er krafa um að einnig sé tekið námskeiðið Næring og þjálfun ungmenna, auk þess sem grunnþekking í næringarfræði er nauðsynleg. Námsmat er byggt á virkni í tímum, verkefnavinnu og lokaprófi.ATH: Var áður kennt sem hluti af námskeiðinu Íþróttir og næring.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeið kennt seinni hluta misserisHÍT001FFélagsfærni og sjálfsefling með jákvæðri hópastjórnunValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingTilgangur námskeiðsins er að þátttakendur – kennarar, tómstunda- og félagsmálafræðingar og aðrir sem vinna með hópa barna og unglinga í leikskóla, grunnskóla- og frístundastarfi – efli þekkingu sína á aðferðum sem stuðla að æskilegri hegðun barna. Þeir læri að beita árangursríkum og gagnreyndum aðferðum sem byggjast á trausti og virðingu, styðja við félagsfærni og sjálfseflingu barna og unglinga og stuðla að bættri líðan þeirra.
Þættir sem unnið er með:
- Framkvæmd mats á stöðu hópastjórnunar og styrkleikar hópa metnir. Reglur um hegðun barna mótaðar og þjálfun í kennslu þeirra. Æfingar í að nota skýr fyrirmæli til að efla samstarf í barnahópum.
- Þjálfun í notkun hvatningar með margbreytilegum hætti, áhersla er lögð á hópinn í heild sinni.
- Farið yfir jafnvægi í hvatningu og leiðum til að stöðva erfiða hegðun. Praktískir þættir í hópastjórnun skoðaðir nánar og æfðir.
- Markviss notkun lausnaleitar kennd og skoðaðir mikilvægir þættir sem tengjast samstarfi við foreldra. Endurmat á stöðu hópastjórnunar í lok námskeiðs.
Samhliða því að þátttakendur námskeiðsins tileinki sér færnina sjálfir og æfi hana, eru kenndar leiðir til að miðla til - og þjálfa annað fagfólk í notkun aðferðanna.
Vinnulag
Námskeiðið skiptist í vinnu í tímum og verkefni („heimavinnu“) á milli tíma sem þátttakendur geta prófað í eigin starfi og nýtt þannig beint til þróunar á eigin starfsháttum. Kennsla fer fram með umræðum, æfingum og fjölbreyttum sameiginlegum viðfangsefnum. Námsmat byggist á lestri kafla og greina, skilaverkefnum sem unnin eru með barna- og unglingahópum sem tengjast þátttakendum, samhliða miðlun til annars fagfólks og virkri þátttöku í umræðum um viðfangsefni námskeiðsins.
Miðað er við kennslu í rauntíma, á Zoom eða á staðnum (í staðlotum), átta hálfa daga á tímabilinu ágúst til nóvember, þar sem unnið er með þætti námskeiðsins og gerðar æfingar. Þátttakendur reyna aðferðirnar sjálfir með sínum barnahópum í verkefnum á milli tíma.
Námskeiðið er vettvangs- og samstarfsmiðað. Þátttakendur fá tækifæri til að læra saman og styðja hvern annan í að þróa árangursríka starfshætti með börnum. Grunnhugmyndin er að þátttakendur líti á það sem sameiginlegt verkefni allra í skóla- og frístundasamfélaginu að nota uppbyggilegar og gagnreyndar aðferðir til að stuðla að góðri aðlögun barna og starfsánægju fagfólks.
Námskeiðið hentar öllum kennurum, tómstunda- og félagsmálafræðingum og öðrum sem vinna með hópa barna og unglinga í leikskóla, grunnskóla- og frístundastarfi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingÞetta námskeið er um einelti og markmiðið er að þeir sem ljúka námskeiðinu öðlist þekkingu, leikni og hæfni til að geta tekist á við og komið í veg fyrir einelti meðal barna og unglinga.
Námskeiðið byggir á kenningum og rannsóknum á einelti. Námskeiðið er bæði fræðilegt og hagnýtt. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa hug á að vinna með börnum og unglingum og hentar því vel fyrir nemendur á menntavísindasviði HÍ. Nemendur á öðrum sviðum eru einnig velkomnir. Á námskeiðinu verður fjallað um fjölmarga þætti sem snúa að einelti, þar á meðal mismunandi birtingarmyndir, árangursríkar aðferðir við forvarnir og inngrip, samstarf við foreldra og forsjáraðila og árangursríka vinnu með þolendum, gerendum og áhorfendum. Námskeiðið fer fram á íslensku en lesefni er á íslensku og ensku.
Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, umræðu- og verkefnatímum, reynslusögum af vettvangi og kynningum nemenda.
Skyldumæting er í námskeiðið (lágmark 80%). Skyldumæting er fyrir fjarnema í staðlotur námskeiðsins. Missi þeir af staðlotu verða þeir að vinna það upp með því að mæta í aðra tíma í staðinn. Fjarnemum er frjálst að mæta í aðrar kennslustundir. Fjarnemar hlusta á upptökur og vinna virkniverkefni um kennslustundir sem þeir mæta ekki í.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Vor
NámskeiðslýsingNámskeiðið fjallar um lýðheilsu í hnattrænu samhengi, sögu og áherslur. Fjallað verður um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og stefnu Íslands í innleiðingu þeirra. Einnig munu sérfræðingar á hverju sviði, íslenskir og erlendir, fjalla um viðfangsefni innan alþjóðaheilsunnar, svo sem heilbrigðisvísa; sjúkdómsbyrði og áhrifaþætti heilsu í löndum heimsins sem búa við fátækt og ójöfnuð og þær leiðir sem gætu stuðlað að bættri heilbrigðisþjónustu og auknu heilbrigði; áhrif öryggis og átaka á heilsu; og heilsuáhrif hamfara.
Stefnt verður á að nemendum verði boðið í vettvangsheimsókni til stofnana sem koma að stefnu Íslands í alþjóðastarfi og móttöku flóttamanna.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeið kennt fyrri hluta misserisNámskeiðslýsingFélagslegur ójöfnuður hefur áhrif á heilsu. Almennt hafa þeir sem eru í viðkvæmari stöðu í samfélaginu verri heilsu en þeir sem að betra hafa það. Í þessu námskeiði er sjónum beint að sambandi félagslegrar stöðu og heilsufars. Nemendur munu kynnast helstu kenningum innan heilsufélagsfræðinnar, s.s. kenningum Link og Phelan um grundvallarástæður sjúkdóma (fundamental causes of disease) og fara yfir rannsóknir á sviðinu. Eitt mikilvægasta framlag félagsfræðinnar er skilningur á því hvernig stærri samfélagslegir þættir (t.d. heilbrigðis- og velferðarkerfið) móta líf einstaklinga og við munum því skoða hvernig samband félagslegrar stöðu og heilsu mótast af svona þáttum. Þar sem að heilsa fólks er flókið fyrirbæri munum við einnig skoða hana í þverfaglegu ljósi og notast meðal annars við kenningar og rannsóknir úr lýðheilsufræðum, heilbrigðisvísindum, mannfræði og stjórnmálafræði.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingViðfangsefni
Í námskeiðinu verða greind tiltekin heimspekileg og siðferðileg álitamál í íslensku samfélagi. Sjónum verður beint að heimspekilegum og siðferðilegum spurningum sem til dæmis tengjast heilbrigðismálum, náttúru og menntun, og andlegri velferð. Dregið verður fram hvað einkennir sérstaklega heimspekilegan/siðferðilegan vanda og rætt hvernig hægt er að takast á við hann. Til að nálgast það verkefni verða skoðuð dæmi um málefni í opinberri umræðu í íslensku samfélagi, þau greind þar sem átakalínur og undirliggjandi gildi verða skoðuð.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuKME203FÞróun stærðfræðihugmynda ungra barnaValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið að nemendur:
- Þekki rannsóknir á stærðfræðilegri hugsun ungra barna og hugmyndum þeirra um stærðfræðileg fyrirbæri.
- Geri sér grein fyrir hverjar eru meginstoðir þeirrar stærðfræðilegu þekkingar sem nemendur þróa með sér fyrstu átta æviárin.
- Geti kannað stærðfræðilegar hugmyndir ungra barna með athugunarverkefnum og viðtölum.
- Séu færir um að nýta niðurstöður rannsókna á stærðfræðinámi ungra barna við skipulagningu skólastarfs í leikskóla og í fyrstu bekkjum grunnskóla.
Viðfangsefni:
Nemendur kynnast nýlegum rannsóknum á stærðfræðilegri hugsun ungra barna. Þeir kynna sér þróun þekkingar og skilnings barna á mismunandi inntaksþáttum stærðfræðinnar. Sjónum verður beint að því stærðfræðinámi sem fram fer fyrstu æviárin og sem er mikilvægur grunnur fyrir frekara nám á þessu sviði. Áhersla er á hvernig byggja má upp námsumhverfi þar sem nám fer fram í leik og daglegu starfi. Sérstaklega verður skoðað hvaða rannsóknaraðferðum er beitt við að kanna hugmyndir og skilning ungra barna. Nemendur prófa að framkvæma athuganir á stærðfræðilegum skilningi ungra barna og beita við það mismunandi aðferðum. Hugað verður að því hvernig nýta má rannsóknarniðurstöður til að skipuleggja þróunarstarf sem hefur það að markmiði að stærðfræðileg hugsun barna eflist.Vinnulag:
Áhersla er lögð á að þróa námssamfélag sem allir taka virkan þátt í að móta. Hægt er að taka þátt á staðnum, með fjarfundabúnaði og á vefsvæði námskeiðsins. Haldnir verða fyrirlestrar, málstofur og umræðutímar. Nemar lesa fræðilega texta og leita svara við áleitnum spurningum um efnið. Þeir framkvæma rannsóknir, gera grein fyrir niðurstöðum og draga af þeim ályktanir. Þeir setja fram hugmyndir um hvernig byggja má upp og þróa námsumhverfi og stærðfræðikennslu fyrir ung börn.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuMAL003FHegðun og tilfinningar barna: Áskoranir og úrræðiValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSÞar af 2 vettvangseiningarNámskeiðslýsingMarkmiðið með námskeiðinu er að gefa þátttakendum kost á að kynnast völdum þáttum, bæði fræðilegum og hagnýtum, sem auðvelda almennum kennurum og sérkennurum að skilja, meta og bregðast við þörfum nemenda sem eiga við hegðunar- og/eða tilfinningavanda að etja. Fjallað verður um aðferðir við skimun og mat, áhrifaþætti og algengi mismunandi hegðunar- og/eða tilfinningalegra erfiðleika, s.s. mótþróa, þunglyndis og kvíða. Einnig verður fjallað um hegðunar- og/eða tilfinningalega erfiðleika nemenda með athyglisbrest með ofvirkni (ADHD) eða röskun á einhverfurófinu. Sérstök áhersla er á að auka færni þátttakenda í að sníða skólastarf og skólasamfélag betur að þörfum nemenda með hegðunar- og/eða tilfinningalega erfiðleika og veita kennurum og skólastjórnendum ráð um hvernig unnt er að gera slíkt og fjarlægja hindranir sem útiloka og einangra nemendur með slíkan vanda.
Nemendur hafi aflað sér grunnþekkingar á helstu hugtökum og sjónarhornum þroskasálfræði eða félagsvísinda á námsferli sínum áður en þeir sækja námskeiðið. Reynsla af vinnu með börnum eða ungmennum æskileg.
Helstu efnisþættir
- Mismunandi skilgreiningar á hegðunar- og tilfinningaörðugleikum - alþjóðleg viðmið og flokkunarkerfi.
- Hegðunar- og tilfinningaörðugleikar í samfélagslegu samhengi.
- Helstu kenningar um hegðunar- og tilfinningaörðugleika barna og unglinga (conceptual models).
- Viðbrögð skólasamfélagsins; nemendasýn og skólastefna - skóli án aðgreiningar, sérdeildir eða sérskólar? Ólík sjónarhorn við að skilgreina vandann.
- Sértæk úrræði innan skólasamfélagsins og fræðilegur bakgrunnur þeirra.
- Mismunandi aðferðir við virknimat (functional behavioral assessment) til að ákvarða hvaða þættir ýta undir hegðunar- og/eða tilfinningalega erfiðleika nemenda.
- Gerð stuðningsáætlunar með margvíslegum aðferðum til að fyrirbyggja erfiða hegðun eða vanlíðan, kenna og styrkja viðeigandi hegðun og bregðast þannig við erfiðri hegðun þannig að dragi úr henni með tímanum og nemendum líði betur.
- Aðferðir til að auka félagsfærni og sjálfstæð vinnubrögð nemenda með hegðunar- og/eða tilfinningalega erfiðleika.
Vinnulag
Í staðlotum verða fyrirlestrar auk verkefnatíma. Á kennsluvefnum Canvas verða birtar hljóðglærur og kennslubréf, og þar fara fram umræður úr völdum efnisþáttum. Námskeiðið er kennt með fjarnámssniði en mætingarskylda er í staðlotur. Námsmat er að mestu leyti fólgið í hópverkefnum.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu verður lögð áhersla á þróun náms hjá börnum í yngstu bekkjum grunnskóla og tengsl þess við skipulag kennslu og námsefnis fyrir yngsta stigið. Áhersla verður lögð á innlendar og erlendar rannsóknir um nám og kennslu barna á þessu aldursstigi sem snerta námsgreinar grunnskólans og einnig félagslega þætti sem tengjast skólastarfi á yngsta stigi grunnskóla án aðgreiningar. Unnið verðum með samþættingu námsgreina, sérlega samfélagsfræði og nátturufræði, auk skapandi vinnu með fjölbreyttum efnivið og tæknilausnum. Nemendur velja sér afmarkað svið í verkefnavinnu t.d., ákveðna námsgrein, læsi, námssamfélag, fjölmenningu eða skapandi starf og dýpka þekkingu sína í gegnum lestur rannsókna og annara fræðilegra skrifa.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er lögð áhersla á umfjöllun um áhættuhegðun ungmenna (t.d. vímuefnaneyslu, frávikshegðun, brokkgenga skólagöngu) og seiglu þeirra í tengslum við ýmsa uppeldislega, félagslega og sálfræðilega þætti. Viðfangsefni eru m.a. samskiptahæfni, geðraskanir, kynheilbrigði og áföll. Fjallað er ítarlega um ýmis konar verndandi þætti og áhættuþætti og þátt heimila, skóla og tómstundastarfs í að stuðla að velferð ungmenna. Kynntar eru bæði innlendar og erlendar rannsóknir á fræðasviðinu. Sérstök áhersla er á rannsóknir sem skoða tengsl ýmissa þroskaþátta og áhættuhegðunar. Verkefni í námskeiðinu miða að því að leita eftir sýn ungs fólks á áhættuþætti í lífi sínu.
Athugið: Hægt er að taka námskeiðið í fjarnámi. Kennsluinnlegg eru almennt tekin upp og sett inn á námsumsjónarkerfið CANVAS fyrirfram en ef kennsla fer fram í rauntíma þá er hún tekin upp. Vikulega eru umræðutímar (60 mín.) þar sem nemendur geta valið milli þess að koma á staðinn eða vera með á netinu. Hið sama á við þegar ritgerðir eru kynntar einu sinni á önninni þá geta nemendur verið á staðnum eða með á netinu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMatur er mannsins megin, uppspretta orkunnar og forsenda lífsins. En matur er líka sneisafullur af merkingu. Matarhættir veita innsýn í heimsmynd okkar, lífssýn og listfengi og matur mótar tilveru okkar, líkama, samfélag, hagkerfi, hugarfar og siðferði. Sjálfsmynd okkar og minningar eru nátengdar mat og matur er einhver mikilvægasti miðillinn fyrir samskipti okkar við annað fólk.
Í námskeiðinu skoðum við hvað fólk borðar, hvernig, hvenær, með hverjum og hvers vegna. Með þeim hætti fáum við dýrmæta innsýn í kyngervi og kynslóðir, fæðuöryggi og rétt til matar, stéttaskiptingu og menningarlegan margbreytileika, skynheim og fegurðarskyn, tækni og matvælaframleiðslu, tísku og matarkúra, matarhefðir og menningararf, tilfinningar, vináttu og fjölskyldubönd. Matarhættir tengja þannig saman menningu og náttúru, hnattvæðingu og hið staðbundna, heimilið og vinnustaðinn, fortíð og samtíð, manneskjur og örverur.
Í námskeiðinu beinum við sjónum að sambandi matarframleiðslu og neyslu á 21. öld með sérstaka áherslu á lýðheilsu, siðferðislega neyslu og sjálfbærni.
Matur og menning eru þverfagleg viðfangsefni og því er þetta námskeið kennt í samstarfi námsbrauta í þjóðfræði og matvæla- og næringarfræði.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðKME206FLestur og lestrarkennsla: áherslur og þróunValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingHelstu viðfangsefni í námskeiðinu varða fimm meginþætti lestrarnáms: hljóðkerfis- og hljóðavitund, umskráningu, lesfimi, orðaforða og lesskilning/hlustunarskilning ásamt ritun, hjá byrjendum og lengra komnum. Lögð er áhersla á að skoða áhrifaríkar, raunprófaðar kennsluaðferðir sem efla sem best færni nemenda í völdum þáttum og þær metnar í ljósi rannsóknaniðurstaðna og fræðilegra kenninga um lestrarnám og lestrarkennslu. Skoðaðar verða kennslu- og matsaðferðir í umskráningu/lesfimi og orðaforða/lesskilningi. Hugað verður að mikilvægum áhrifaþáttum í þróun umskráningar, lesfimi, orðaforða, lesskilnings og ritunar og verður í því tilliti litið til náms- og kennsluaðferða.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMarkmið: Að nemendur
– dýpki þekkingu sína á samspili lífshátta sem tengjast hreyfingu og heilbrigði og skoði rannsóknir á því sviði
– öðlist aukna þekkingu á ýmsum lífsstílstengdum sjúkdómum og á áhrifum hreyfingar og þjálfunar á þá, bæði gegnum fyrirbyggjandi aðgerðir (fyrsta stigs forvarnir) og sem meðferðarúrræði (annars stigs forvarnir).
Námskeiðinu er ætlað að kynna faraldsfræðilegar rannsóknaraðferðir á sviði tengsla hreyfingar og heilsufars og auka skilning og færni nemenda í að lesa vísindagreinar með gagnrýnum hætti. Farið verður í saumana á því hvernig hreyfing hefur áhrif á heilbrigði og minnkar áhættu á ýmsum lífsstílstengdum sjúkdómum. Rannsóknir og athuganir á samspili hreyfitengdra lífshátta og ólíkra heilsufarsþátta verða reifaðar. Námskeiðið verður kennt í fyrirlestraformi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt fyrri hluta misseris- Sumar
NámskeiðslýsingÁ námskeiðinu ræður samfélag staðarins tilhögun námsins og við beitum reynslunámi þar sem nemendur upplifa „siglingar, strönd og arfleifð sjóferða“. Í staðartengdri útimenntun er unnið með námsferli sem grundvallað er á upplifun af sögum sem eiga rætur að rekja til ákveðins staðar; einstökum sögulegum staðreyndum, umhverfi, menningu, efnahag, bókmenntum og listum staðarins.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuAnnað ár- Haust

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuÓháð námsári- Haust