Þrír nemendur í kennslustofu
Tungumál kennslu
Íslenska
Lengd náms
1 og ½ ár.
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Langar þig í dýpri skilning á siðfræði?
  • Viltu auka færni þína í að takast á við siðfræðileg viðfangsefni?
  • Hefur þú áhuga á bættu samfélagi með siðfræði að vopni?
  • Viltu fara í hagnýtt nám?

Námið er sniðið að nemendum sem hafa lokið B.A., B.Sc., B.Ed.-prófi eða öðru sambærilegu háskólaprófi.

Námið er 90 einingar og er sett upp sem fullt nám sem tekur eitt og hálft skólaár að ljúka.

Í MA-námi í hagnýtri siðfræði kynnast nemendur helstu kenningum siðfræðinnar, rannsóknaaðferðum í hagnýtri siðfræði og fá þjálfun í rökræðum um siðferðileg úrlausnarefni.

MA- prófgráða með fyrstu einkunn, getur gefið aðgang að doktorsnámi í greininni.

Fyrirkomulag náms

Nám í hagnýtri siðfræði samanstendur af þremur kjörsviðum.

Heilbrigðis- og lífsiðfræði

Námið þjálfar fólk í að nota siðfræðilega hugsun við að greina og rökræða raunhæf úrlausnarefni í heilbrigðisþjónustu og lífvísindum.

Kjörsviðið hentar vel fólki með bakgrunn í hjúkrunarfræði, læknisfræði, líffræði, erfðafræði, lögfræði, guðfræði og félagsvísindum svo dæmi séu nefnd.

  • Umhverfis- og náttúrusiðfræði
  • Viðskiptasiðfræði

Umhverfis- og náttúrusiðfræði

Námið þjálfar fólk í rökræðu um siðferðileg úrlausnarefni á sviði umhverfismála og í að greina mismunandi viðhorf til náttúrunnar.

Kjörsviðið hentar vel fólki með með bakgrunn í líffræði, skipulagsfræði, verkfræði, heimspeki, bókmenntum og félagsvísindum svo dæmi séu nefnd.

Viðskiptasiðfræði

Í náminu er sérstaklega hugað að spurningum um ábyrgð fyrirtækja í samfélaginu, hver séu tengsl markaðar við siðferðið og fjallað um siðferðilega ábyrgð einstaklinga.

Kjörsviðið hentar vel fólki með bakgrunn í viðskiptafræði, lögfræði, hug- og félagsvísindum, vefhönnun og atvinnulífinu svo dæmi séu nefnd.

Meginmarkmið

Markmið kennslu í hagnýtri siðfræði er að veita nemendum góða undirstöðumenntun í siðfræði. Nemendur í hagnýtri siðfræði við Háskóla Íslands eiga að öðlast:

  • almenna þekkingu og skilning á aðferðum og kenningum í heimspekilegri siðfræði og hagnýtri siðfræði
  • nákvæma þekkingu og skýran skilning á einu sérsviða hagnýtrar siðfræði
  • færni til þess að taka rökstudda afstöðu til siðferðilegra álitamála
  • þjálfun í gagnrýninni hugsun, nákvæmum lestri og að gera skýra og rökstudda grein fyrir skoðunum sínum í rituðu máli

BA, BS, B.Ed. eða sambærilegt háskólapróf með fyrstu einkunn (7,25) að lágmarki eða jafngildi hennar frá viðurkenndum háskóla og a.m.k. 10 eininga lokaverkefni, sem hlotið hefur að lágmarki fyrstu einkunn. Hafi nemandi ekki skrifað a.m.k. 10 eininga lokaverkefni eða skortir annan mikilvægan undirbúning úr grunnnámi sínu getur framhaldsnámsnefnd ákveðið í samráði við námsbraut að nemandinn þurfi að ljúka tilteknum námskeiðum áður en hann hefur meistaranámið. 

Meistaranám í hagnýtri siðfræði er 90 eininga nám að loknu BA, BS, B.Ed. eða sambærilegu háskólaprófi. 60 einingar eru teknar í námskeiðum og nemandi skrifar 30 eininga lokaritgerð á kjörsviði (viðskiptasiðfræði,heilbrigðis- og lífsiðfræði eða umhverfis- og náttúrusiðfræði). Gerð er krafa um fyrstu einkunn (7,25) í námskeiðunum  HSP724M Gagnrýnin hugsun og HSP808F Inngangi að siðfræði.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Ferilskrá (CV)
  • Greinargerð um markmið með námi
  • Meðmælandi 1, nafn og netfang
  • Meðmælandi 2, nafn og netfang
  • Prófskírteini/námsyfirlit

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Viðskiptasiðfræði (HSP710F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um siðferðilegar áskoranir í rekstri fyrirtækja og hvernig þær birtast innan fyrirtækja og í samskiptum þeirra við hagsmunaaðila, stjórnvöld og samfélagið í heild. Áhersla er lögð á að nemendur greini, beiti, meti, rökstyðji og móti siðferðilegar lausnir á raunveruleg viðfangsefni viðskipta með hliðsjón af kenningum viðskiptasiðfræðinnar.

Kennsluefni og verkefni byggja á raunhæfum dæmisögum, fræðilegum textum og samvinnu við aðila úr atvinnulífi. Nemendur vinna markvisst að því að greina siðferðileg álitamál, beita fræðilegum nálgunum, meta ólíkar leiðir fyrirtækja, rökstyðja eigin siðferðilega afstöðu og móta hagnýtar tillögur að ferlum og/eða stefnum í flóknu samfélagslegu samhengi.

Námskeiðið leggur jafnframt áherslu á að nemendur þrói meðvitaða og ábyrgða afstöðu til eigin hlutverks sem sérfræðingar og stjórnendur, í takt við gildi Háskóla Íslands um samfélagslega ábyrgð, jafnrétti, sjálfbærni og nýsköpun, með gott siðferði að leiðarljósi.

Nemendur velja umfang námskeiðsins út frá ECTS einingum. Námskeiðið er hægt að taka sem 7,5 ECTS einingar, 6 ECTS einingar (nemendur úr heimspeki), 3 ECTS einingar og 1,5 ECTS einingar.

Athygli er vakin á því að námskeiðið er kennt í fyrstu lotu haustannar, samkvæmt lotukerfi meistaranáms Viðskiptafræðideildar. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt í lotu I
Fyrsta ár | Haust
Verkefni á kjörsviði (HSP712F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að koma nemendum í hagnýtri siðfræði í gang með meistararitgerðina. Þeir kynnast reglum um MA ritgerðir og fá aðstoð við val á leiðbeinanda. Námskeiðið auðveldar nemendum að skipuleggja ritgerðina (í samráði við leiðbeinanda). Nemendur kynna hugmyndir sínar um lokaverkefni í hópnum og fá umræðu um þær.

Kennslutungumál: Íslenska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Fyrsta ár | Haust
Siðfræði náttúrunnar (HSP722M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um samband manns og náttúru frá heimspekilegu sjónarhorni. Fjallað er um helstu frumkvöðla náttúrusiðfræðinnar og áhrifamestu kenningar sem settar hafa verið fram. Gerð grein fyrir ólíkri náttúrusýn manna og mismunandi grunnafstöðum til náttúrunnar - þ.e. mannhverfri, visthverfri og lífhverfri afstöðu. Einnig fjallað um tengsl umhverfis- og þróunarmála og tengsl umhverfishyggju og lýðræðisþróunar. Rætt um álitaefni eins og: Getur siðfræðin nýst við lausn umhverfisvandamála?, Hvers konar verur hafa siðferðisstöðu?, Geta náttúrleg fyrirbæri búið yfir eigingildi?, Hafa dýr einhver réttindi?, Er einhver grundvallarmunur á (af)stöðu karla og kvenna gagnvart náttúrunni?, og Hvert er siðferðilegt inntak sjálfbærrar þróunar?

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Siðferðileg álitamál samtímans (HSP723M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Áleitin siðferðileg úrlausnarefni ofarlega á baugi í nútímasamfélagi eru meginviðfangsefni þessa námskeiðs. Sjónum er beint að möguleikum siðfræðinnar á að takast á við klemmur sem upp koma, jafnt í lífi einstaklinga sem á samfélagsgrundvelli. Val á viðfangsefnum getur breyst milli ára en meðal mögulegra viðfangsefna námskeiðsins má nefna tjáningarfrelsi, stöðu flóttafólks, réttindi dýra, fátækt og ójöfnuð, kynjamisrétti, kynþáttamisrétti, umhverfismál og ýmis álitamál úr heilbrigðiskerfinu. Farið er í tengsl fræðilegrar og hagnýttrar siðfræði. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum með ríkri áherslu á virka þátttöku nemenda í umræðum.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár | Haust
Gagnrýnin hugsun (HSP724M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að gera nemendum grein fyrir mikilvægi gagnrýninnar hugsunar með því að kynna helstu hugtök og aðferðir og mismunandi skilning á eðli og hlutverki hennar. Nemendur verða þjálfaðir í gagnrýninni hugsun eins og hún kemur fyrir í heimspeki og í daglegu lífi og starfi. Lögð er áhersla á að greina röksemdafærslur og vinna með rökskipurit. Helstu rökvillur og rökbrellur verða ræddar og nemendum kennt hvernig má greina þær og forðast. Ítarlega verður farið í samband gagnrýninnar hugsunar og siðfræði.

Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðutímum. Sérstök áhersla er lögð á umræður um raunhæf úrlausnarefni. Reynt verður að hafa verkefni eins hagnýt og kostur er og tengja þau sem flestum sviðum daglegrar reynslu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Siðfræði vísinda og rannsókna (HSP806F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er eingöngu ætlað framhaldsnemum. Tekið verður mið af þörfum nemenda af ólíkum fræðasviðum við útfærslu námskeiðsins. 

Kennsla fer fram á fyrstu sex vikum vormisseris á föstudögum kl. 13:20 til 15:40.

Viðfangsefni:
Meðal annars verður fjallað um eftirfarandi efni: Fagmennska og ábyrgð vísindamanna. Kröfur um fræðilega hlutlægni og hlutleysi vísinda. Jafnréttissjónarmið og ríkjandi viðmið í vísindastarfi. Vald og vísindi. Hagsmunaárekstrar í vísindastarfi. Vísindin og samfélagið. Siðfræði rannsókna.

Markmið: 
Nemendur öðlist þekkingu á siðferðislegri vídd vísinda og rannsókna og fái þjálfun í að greina og rökræða um siðferðileg ágreiningsefni tengd vísindum og rannsóknum í nútímasamfélagi.

Kennsla er í formi fyrirlestra og umræðna. Námskeiðið er hugsað sem akademískt samfélag þar sem nemendur taka virkan þátt í markvissri umræðu um viðfangsefnin. Hver nemandi flytur framsöguerindi samkvæmt áætlun sem gerð er í upphafi misseris og jafnframt kynna aðrir nemendur sér efnið og ræða það í málstofunni undir handleiðslu kennara.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Fyrsta ár | Vor
Siðfræði (HSP808F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Sama námskeið og HSP202G en lægra einingavægi, auknar kröfur og lágmarkseinkunn 7,25 þar sem um grunnnámskeið er að ræða.

Veitt verður yfirlit yfir þrjár af höfuðkenningum siðfræðinnar, reist á lestri frumtexta: kenningu Aristótelesar í Siðfræði hans, Johns Stuarts Mill í Nytjastefnunni og Immanuels Kant í Frumspeki siðlegrar breytni.

Fluttir verða 2 x 12 fyrirlestrar. Lestur námsefnisins er nauðsynlegt skilyrði fyrir árangursríkri þátttöku í tímum. Hver fyrirlestur tekur fyrir afmarkað efni. Að loknum fyrirlestri verða glærur settar inn á heimasvæði námskeiðsins í Canvas.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Meistararannsókn (HSP809F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðinu er ætlað að leggja grunn að meistararannsókn nemandans sem mun ljúka með MA ritgerð. Nemandinn vinnur undir handleiðslu leiðbeinanda við að afla sér þekkingar á helstu rannsóknum á sviði MA rannsóknar sinnar (umfangið á að svara til lesturs um 10 tímaritsgreina) og kynnir sér jafnframt nýlegar alþjóðlegar rannsóknir á fræðasviði sínu. Nemandinn mótar rannsóknarspurningar og gerir rannsóknaráætlun sem kynnt er í hópi samnemenda. Nemandinn skilar rannsóknayfirliti í formi ritgerðar (um 5000 orð).

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Heilbrigðis- og lífssiðfræði (HSP823M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um nokkur helstu álitamál á sviði lífsiðfræði á síðustu árum, einkum í tengslum við þróun á sviði erfðavísinda og erfðarannsókna og hugsanleg áhrif þeirra á heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstefnu.

Námskeiðið verður kennt samþjappað frá 2.–25. mars. Fyrirlestrar eru á þriðjudögum og fimmtudögum 15–17:20. 

Í lok námskeiðsins verður haldin málstofa með framsögum nemenda og verður tilhögun hennar ákveðin í samráði við nemendur. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Haust
Meistararitgerð í hagnýtri siðfræði (SIÐ431L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meistararitgerð til 30e skal vera 20.000-30.000 orð. Í henni skal tekið til rannsóknar afmarkað og samstætt viðfangsefni og það kannað rækilega með fræðilegum aðferðum. Í upphafi skal gera grein fyrir viðfangsefninu, þeim spurningum sem bornar verða upp og rannsóknaraðferð. Niðurstöður verður að setja fram skýrt og aðgengilega. Almenn krafa til meistararitgerða er að þar sé fylgt viðurkenndum fræðilegum rannsóknaraðferðum og að þær séu sjálfstætt framlag til þekkingarsköpunar á fræðasviðinu. Meistararitgerð skal að jafnaði vera skrifuð á íslensku eða ensku. Í hverri ritgerð skal vera útdráttur á íslensku og ensku.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Fyrsta ár
  • Haust
  • HSP710F
    Viðskiptasiðfræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um siðferðilegar áskoranir í rekstri fyrirtækja og hvernig þær birtast innan fyrirtækja og í samskiptum þeirra við hagsmunaaðila, stjórnvöld og samfélagið í heild. Áhersla er lögð á að nemendur greini, beiti, meti, rökstyðji og móti siðferðilegar lausnir á raunveruleg viðfangsefni viðskipta með hliðsjón af kenningum viðskiptasiðfræðinnar.

    Kennsluefni og verkefni byggja á raunhæfum dæmisögum, fræðilegum textum og samvinnu við aðila úr atvinnulífi. Nemendur vinna markvisst að því að greina siðferðileg álitamál, beita fræðilegum nálgunum, meta ólíkar leiðir fyrirtækja, rökstyðja eigin siðferðilega afstöðu og móta hagnýtar tillögur að ferlum og/eða stefnum í flóknu samfélagslegu samhengi.

    Námskeiðið leggur jafnframt áherslu á að nemendur þrói meðvitaða og ábyrgða afstöðu til eigin hlutverks sem sérfræðingar og stjórnendur, í takt við gildi Háskóla Íslands um samfélagslega ábyrgð, jafnrétti, sjálfbærni og nýsköpun, með gott siðferði að leiðarljósi.

    Nemendur velja umfang námskeiðsins út frá ECTS einingum. Námskeiðið er hægt að taka sem 7,5 ECTS einingar, 6 ECTS einingar (nemendur úr heimspeki), 3 ECTS einingar og 1,5 ECTS einingar.

    Athygli er vakin á því að námskeiðið er kennt í fyrstu lotu haustannar, samkvæmt lotukerfi meistaranáms Viðskiptafræðideildar. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt í lotu I
  • HSP712F
    Verkefni á kjörsviði
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að koma nemendum í hagnýtri siðfræði í gang með meistararitgerðina. Þeir kynnast reglum um MA ritgerðir og fá aðstoð við val á leiðbeinanda. Námskeiðið auðveldar nemendum að skipuleggja ritgerðina (í samráði við leiðbeinanda). Nemendur kynna hugmyndir sínar um lokaverkefni í hópnum og fá umræðu um þær.

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP722M
    Siðfræði náttúrunnar
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um samband manns og náttúru frá heimspekilegu sjónarhorni. Fjallað er um helstu frumkvöðla náttúrusiðfræðinnar og áhrifamestu kenningar sem settar hafa verið fram. Gerð grein fyrir ólíkri náttúrusýn manna og mismunandi grunnafstöðum til náttúrunnar - þ.e. mannhverfri, visthverfri og lífhverfri afstöðu. Einnig fjallað um tengsl umhverfis- og þróunarmála og tengsl umhverfishyggju og lýðræðisþróunar. Rætt um álitaefni eins og: Getur siðfræðin nýst við lausn umhverfisvandamála?, Hvers konar verur hafa siðferðisstöðu?, Geta náttúrleg fyrirbæri búið yfir eigingildi?, Hafa dýr einhver réttindi?, Er einhver grundvallarmunur á (af)stöðu karla og kvenna gagnvart náttúrunni?, og Hvert er siðferðilegt inntak sjálfbærrar þróunar?

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP723M
    Siðferðileg álitamál samtímans
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Áleitin siðferðileg úrlausnarefni ofarlega á baugi í nútímasamfélagi eru meginviðfangsefni þessa námskeiðs. Sjónum er beint að möguleikum siðfræðinnar á að takast á við klemmur sem upp koma, jafnt í lífi einstaklinga sem á samfélagsgrundvelli. Val á viðfangsefnum getur breyst milli ára en meðal mögulegra viðfangsefna námskeiðsins má nefna tjáningarfrelsi, stöðu flóttafólks, réttindi dýra, fátækt og ójöfnuð, kynjamisrétti, kynþáttamisrétti, umhverfismál og ýmis álitamál úr heilbrigðiskerfinu. Farið er í tengsl fræðilegrar og hagnýttrar siðfræði. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum með ríkri áherslu á virka þátttöku nemenda í umræðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP724M
    Gagnrýnin hugsun
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu er ætlað að gera nemendum grein fyrir mikilvægi gagnrýninnar hugsunar með því að kynna helstu hugtök og aðferðir og mismunandi skilning á eðli og hlutverki hennar. Nemendur verða þjálfaðir í gagnrýninni hugsun eins og hún kemur fyrir í heimspeki og í daglegu lífi og starfi. Lögð er áhersla á að greina röksemdafærslur og vinna með rökskipurit. Helstu rökvillur og rökbrellur verða ræddar og nemendum kennt hvernig má greina þær og forðast. Ítarlega verður farið í samband gagnrýninnar hugsunar og siðfræði.

    Kennslan fer fram í fyrirlestrum og umræðutímum. Sérstök áhersla er lögð á umræður um raunhæf úrlausnarefni. Reynt verður að hafa verkefni eins hagnýt og kostur er og tengja þau sem flestum sviðum daglegrar reynslu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • Vor
  • HSP806F
    Siðfræði vísinda og rannsókna
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er eingöngu ætlað framhaldsnemum. Tekið verður mið af þörfum nemenda af ólíkum fræðasviðum við útfærslu námskeiðsins. 

    Kennsla fer fram á fyrstu sex vikum vormisseris á föstudögum kl. 13:20 til 15:40.

    Viðfangsefni:
    Meðal annars verður fjallað um eftirfarandi efni: Fagmennska og ábyrgð vísindamanna. Kröfur um fræðilega hlutlægni og hlutleysi vísinda. Jafnréttissjónarmið og ríkjandi viðmið í vísindastarfi. Vald og vísindi. Hagsmunaárekstrar í vísindastarfi. Vísindin og samfélagið. Siðfræði rannsókna.

    Markmið: 
    Nemendur öðlist þekkingu á siðferðislegri vídd vísinda og rannsókna og fái þjálfun í að greina og rökræða um siðferðileg ágreiningsefni tengd vísindum og rannsóknum í nútímasamfélagi.

    Kennsla er í formi fyrirlestra og umræðna. Námskeiðið er hugsað sem akademískt samfélag þar sem nemendur taka virkan þátt í markvissri umræðu um viðfangsefnin. Hver nemandi flytur framsöguerindi samkvæmt áætlun sem gerð er í upphafi misseris og jafnframt kynna aðrir nemendur sér efnið og ræða það í málstofunni undir handleiðslu kennara.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • HSP808F
    Siðfræði
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Sama námskeið og HSP202G en lægra einingavægi, auknar kröfur og lágmarkseinkunn 7,25 þar sem um grunnnámskeið er að ræða.

    Veitt verður yfirlit yfir þrjár af höfuðkenningum siðfræðinnar, reist á lestri frumtexta: kenningu Aristótelesar í Siðfræði hans, Johns Stuarts Mill í Nytjastefnunni og Immanuels Kant í Frumspeki siðlegrar breytni.

    Fluttir verða 2 x 12 fyrirlestrar. Lestur námsefnisins er nauðsynlegt skilyrði fyrir árangursríkri þátttöku í tímum. Hver fyrirlestur tekur fyrir afmarkað efni. Að loknum fyrirlestri verða glærur settar inn á heimasvæði námskeiðsins í Canvas.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP809F
    Meistararannsókn
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðinu er ætlað að leggja grunn að meistararannsókn nemandans sem mun ljúka með MA ritgerð. Nemandinn vinnur undir handleiðslu leiðbeinanda við að afla sér þekkingar á helstu rannsóknum á sviði MA rannsóknar sinnar (umfangið á að svara til lesturs um 10 tímaritsgreina) og kynnir sér jafnframt nýlegar alþjóðlegar rannsóknir á fræðasviði sínu. Nemandinn mótar rannsóknarspurningar og gerir rannsóknaráætlun sem kynnt er í hópi samnemenda. Nemandinn skilar rannsóknayfirliti í formi ritgerðar (um 5000 orð).

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HSP823M
    Heilbrigðis- og lífssiðfræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um nokkur helstu álitamál á sviði lífsiðfræði á síðustu árum, einkum í tengslum við þróun á sviði erfðavísinda og erfðarannsókna og hugsanleg áhrif þeirra á heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstefnu.

    Námskeiðið verður kennt samþjappað frá 2.–25. mars. Fyrirlestrar eru á þriðjudögum og fimmtudögum 15–17:20. 

    Í lok námskeiðsins verður haldin málstofa með framsögum nemenda og verður tilhögun hennar ákveðin í samráði við nemendur. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Haust
  • SIÐ431L
    Meistararitgerð í hagnýtri siðfræði
    Skyldunámskeið
    0

Annað ár

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Þórunni Sveinbjarnadóttur
Hagnýta siðfræðin færði mér ný og betri verkfæri til að mynda mér upplýsta skoðun um flókin málefni. Hún kenndi mér líka að varast það að hrapa að ályktunum um mál sem ég hef fyrirfram sterkar skoðanir á. Það var holl lexía. Hagnýt siðfræði er parktískt og gott nám fyrir alla sem vilja vanda sig í vinnunni.
Ljósmynd af Ólafi Ólafssyni
Ég hafði starfað í heilbrigðisgeiranum sem lyfjafræðingur í áratugi þegar ég hóf nám í hagnýtri siðfræði. Námið var áhugavert og ýtti undir opna umræðu og skapandi hugsun. Þannig var að ég sat í laganefnd Lyfjafræðingafélags Íslands þegar hrunið skall á og varð mér þá ljós skortur á siðfræðilegri hugsun þegar kom að skerðingu réttinda sjúklinga. Þó að margt hafi áunnist verður alltaf þörf fyrir gagnrýna siðfræðilega hugsun í samfélaginu. Námið hefur gagnast vel, verið hagnýtt, meðal annars í nefndarvinnu minni í Siðanefnd Frumtaka, samtaka frumlyfjaframleiðenda, sem setur siðareglur um samskipti lyfjaiðnaðarins og heilbrigðisstarfsmanna, -stofnana og sjúklingasamtaka. Námið hefur reynst gott vegarnesti.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil