""
Tungumál kennslu
Enska og íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum málum.
Lengd náms
Tvö ár - 120 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Langar þig að öðlast kennsluréttindi?
  • Vilt þú öðlast þekkingu á almennri kennslufræði og góða þekkingu á kennslufræði erlendra tungumála?
  • Getur þú séð fyrir þér að kenna ensku í grunn- eða framhaldsskóla?
  • Ert þú að huga að framhaldsnámi?

MA nám í enskukennslu er hluti af námsleiðinni Menntun framhaldskólakennara og er enskukennsla þar kjörsviðið. Námið er unnið í samvinnu Menntavísindasviðs og Mála- og menningardeildar og þurfa nemendur að ljúka 60 einingum í kennslufræði og 60 einingum í ensku.

Uppbygging náms 

Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára.

Námið skiptist í:

  • Skyldunámskeið, 50 einingar
  • Vettvangsnám, 10 einingar
  • Valnámskeið, 30 einingar
  • Lokaverkefni, 30 einingar

Fyrirkomulag kennslu 

Námið er kennt bæði á ensku og íslensku. Flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum tungumálum.

Hluti námsins fer fram á vettvangi. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum.

Nánar um menntun framhaldsskólakennara.

Meginmarkmið 

Markmið eru m.a. að nemendur öðlist: 

  • þekkingu á almennri kennslufræði og góða þekkingu á kennslufræði erlendra tungumála og geti ígrundað mismunandi stefnur og strauma sem og þróun og stöðu greinarinnar.
  • þekkingu á námsgögnum í tungumálakennslu, kennsluleiðbeiningum og öðrum hjálpargögnum, hlutverki þeirra, eiginleikum og rannsóknum á notkun þeirra.
  • færni til þess að skipuleggja tungumálakennslu í grunn- og framhaldsskólum, afla námsgagna, velja kennsluaðferðir, þróa verkefni og ákveða námsmat.

Annað

Lokapróf af námsleiðinni uppfyllir skilyrði fyrir því að fá leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.

Námið getur veitt aðgang að doktorsnámi.

Umsækjendur um þessa námsleið athugið:

Á rafrænu umsóknareyðublaði skal velja Menntun framhaldsskólakennara, MA, 120 einingar, og kjörsviðið >Enskukennsla.

BA-próf í enskum fræðum, eða B.Ed.-próf með ensku sem kjörsvið, með fyrstu einkunn (7.25) veitir aðgang að MA-námi. Skilyrði er að hafa skrifað 10e lokaritgerð í BA-/B.Ed-náminu.

Nemendur þurfa að hafa B2 hæfni í íslensku til að sækja um í námið. 

Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla hyggst stunda nám sem kennt er á íslensku, og sem leiðir til leyfisbréfs kennara, skal hann hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR).

Þeir sem hafa lokið B.Ed.-prófi með ensku sem kjörsvið þurfa að ljúka undirbúningsnámi á BA-stigi áður en þeir hefja nám á MA-stigi. Undirbúningsnámið er allt fyrsta árið í BA í ensku, að undanskildu MOM102G og MOM202G, og skal nemandi einnig skrifa BA-ritgerð í ensku.

Færni í ensku þarf að vera C1. TOEFL 5.5, IELTS 7.5.
BA próf í enskum fræðum frá HÍ uppfyllir þessa tungumálafærni.

TOEFL próf tekinn fyrir 21. janúar 2026 þurfa að vera með TOEFL 100.

Sérstakar undanþágur á skilum TOEFL/IELTS gilda, frekari upplýsingar um það er hægt að finna á ensku útgáfu þessara kennsluskrá.

Meistaranám enskukennslu skiptist í þrjá hluta. Í fyrsta hluta eru námskeið sem fjalla um uppeldis- og kennslufræði og tilheyra þau flest Menntavísindasviði. Í öðrum hluta eru námskeið í grein þ.e. því tungumáli sem nemandinn hefur valið. Þessi námskeið tilheyra yfirleitt Hugvísindasviði. Í þriðja hluta er lokaritgerð sem tilheyrir Hugvísindasviði þar sem nemendur sem ljúka MA-námi í kennslu erlends tungumáls útskrifast af því sviði. Aðal- eða meðleiðbeinandi getur þó verið af Menntavísindasviði.

Nemendur geta tekið námið sem samþætt nám eða samsett nám, og fylgja þá dálki A1 eða B1 í töflu 1 sem hægt er að finna hérna. Þegar leið A1 er valin skrifar nemandi lokaritgerð með kennslufræðilegri nálgun. Þegar leið B1 er valin skrifar nemandi lokaritgerð um ensk fræði (bókmenntir eða málvísindi) sem er ekki kennslufræðileg, en á móti þarf nemandinn að taka 20 einingar í valnámskeiðum í kennslufræði.

Nemandi sem tekur MA-nám í kennslu erlends tungumáls uppfyllir öll skilyrði til að fá réttindi sem kennari í viðkomandi erlendu tungumáli á framhaldsskólastigi.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Greinargerð um markmið með námi
  • Meðmælandi 1, nafn og netfang
  • Meðmælandi 2, nafn og netfang
  • Prófskírteini/námsyfirlit

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Kennsla erlendra tungumála og vettvangsnám 1 (ÍET105F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Þar af 5 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Nemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í kennslu erlendra tungumála og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Gert er ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um tungumálanám og kennslu þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna og þróa sig sem kennarar. Viðeigandi kenningar, hugtök og aðferðir varðandi nám og kennslu erlendra tungumála eru kynntar, rannsakaðar og ræddar.

Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu. Starfsþjálfun á haustmisseri er tengd námskeiðinu Inngangi að kennslufræði og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Inngangur að kennslufræði framhaldsskóla (KEN104F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist innsýn inn í íslenskar og alþjóðlegar rannsóknir og kenningar á sviði skólastarfs. Meginviðfangsefni námskeiðs eru kenningar um og rannsóknir á námi, samskiptum og kennsluháttum. Einnig eru kenningar um og rannsóknir á starfi og fagmennsku kennara, svo og lagaákvæði, siðareglur og þess háttar, meðal meginviðfangsefna námskeiðsins.

Við val viðfangsefna og skipulag námskeiðsins er tekið mið af því að meginstarfsvettvangur þeirra sem taka námskeiðið verður í framhaldsskóla.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Kenningar um tileinkun og kennslu erlendra mála (ENS034F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verða kynntar helstu kenningar um máltöku annars máls og erlendra mála og áhrif kenninga á kennslu. Skoðaðar verða mállegar, félagslegar, sálfræðilegra og námslegar breytur sem áhrif hafa á málanám og málfærni. Til að mynda verður fjallað um máltöku annars máls og erlendra mála hjá börnum og unglingum. Tvítyngi verður skoðað og áhrif þess á málþroska, læsi og námsframvindu barna. Einnig, verður farið yfir helstu kenningar um eðli máltileinkunnar hjá fullorðnum. Nemendur munu leysa verkefni sem skoða máltöku og kennsluaðferðir á mismunandi efni á öðru eða erlendu máli. 

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Fyrsta ár | Vor
Kennsla erlendra tungumála og vettvangsnám 2 (ÍET211F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Þar af 5 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Nemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í kennslu erlendra tungumála og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Gert er ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um tungumálanám og kennslu þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna og þróa sig sem kennarar. Viðeigandi kenningar, hugtök og aðferðir varðandi nám og kennslu erlendra tungumála eru kynntar, rannsakaðar og ræddar.

Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu.

Starfsþjálfun á vormisseri er tengd námskeiðinu Námskrá og skólaþróun í framhaldsskólum og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Námskrá og skólaþróun í framhaldsskólum (KEN213F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um námskrárfræði og menntastefnu með áherslu á námskrár, nemendur og þróunarstarf í framhaldsskólum.

Viðfangsefnum í námskeiðinu er ætlað að þjálfa fagmannlegt verklag við mótun menntastefnu, námskrárgerð og skólaþróun í framhaldsskólum á Íslandi. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Rannsóknir á tileinkun og kennslu erlendra mála (ENS235F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verða kynntar helstu rannsóknir á máltöku og kennslu annars máls og erlendra mála. Fjallað verður um eigindlegar og megindlegar rannsóknaraðferðir sem notaðar eru við könnun á máltöku og kennsluaðferðum. Nemendur fá innsýn í raunveruleg dæmi og takast sjálfir á við rannsóknir á þessu sviði.  

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Annað ár | Haust
Meistararitgerð í enskukennslu (ENS331L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meistararitgerð í enskukennslu.

Kennslutungumál: Enska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Annað ár | Haust
Áhætta og umbun: Spilamennska í bókmenntum átjándu aldar (ENS503F)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Áhugi á fjárhættuspil kom fram í sögulínum leikrita og skáldsagna þar sem persónur taka fjárhagslega og persónulega áhættu, spenntar yfir möguleikanum á mögulega velmegandi og ábatasamri nýrri fjárfestingu. Gamanleikir Susönnu Centlivre, The Gamester (1705) og The Basset Table (1705), sýna röð fjárhagslegra og persónulegra áhættuþátta fjárhættuspila og afleiðingar þeirra. Á átjándu öldinni var einnig sýnd persóna kvenkyns spilara sem dæmi um lastsemi. Við munum ræða tengslin milli fjárhættuspila, happdrætta og annarra viðskiptaáhættu, og hvernig bókmenntir sýndu áhrif þeirra á fjölskyldu og persónuleg sambönd í leikritum og skáldsögum sem Mary Pix’s The Beau Defeated (1700), Susanna Centlivre’s The Gamester (1705), Henry Fieldng’s The Lottery (1732), Edward Moore’s The Gamester (1753), Frances Brooke's The Excursion (1777), Thomas Holcroft’s The Road to Ruin (1792), and Maria Edgeworth’s Belinda (1801).  Við munum einnig skoða persónulega áhættu sem persónur taka í ástarsögum leikrita og skáldsagna og hversu miklu leyti þessar persónur fá umbun eða verða að breytast.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Annað ár | Haust
Merking sagnorða - hvernig orðin ná tökum á óreiðu atburða (ENS718F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Viðurkenndar skoðanir í málvísindum ganga út frá að merking sagna ráði að hluta til þeim setningafræðilegu mynstrum sem rökliðir sagnorða birtast í. Til dæmis eru gerendur alltaf frumlög og sagnir í ensku sem merkja breytingu ástandi vegna ytri áhrifa geta almennt bæði verið áhrifssagnir og áhrifslausar. Í þessu námskeiði er lagt mat á rök og fræðikenningar sem málfræðingar hafa notað til að ná utan um alhæfingar á þessu sviði.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Efst á baugi: Seminar með innlendum og erlendum fræðimönnum (AMF002F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Gert er ráð fyrir að nemendur taki þátt í stuttum málstofum, seminörum og ráðstefnum sem tengjast nýjungum á fræðasviðinu. Kostnaður við seminörin verður að einhverju leyti fjármagnaður gegnum styrkumsóknir s.s. Erasmus. Markmiðið er að efla tengsl nemenda við fræðimenn innan og utan Háskólans og gefa nemendum tækifæri til að taka þátt í alþjóðlegri umræðu á fræðasviðinu.

Kennslutungumál: Íslenska
Annað ár | Haust
MA-málstofa: Ráðstefna framhaldsnema (ENS113F)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta er skyldunámskeið fyrir alla meistaranema í ensku. Haldnar eru stuttar málstofur þar sem nemendur fá tækifæri til að ræða stefnur og tilgátur tengdum enskum fræðum og undirbúa sig fyrir að kynna eigin verk og annarra á vettvangi sinna fræða, heima eða erlendis. Mat er byggt á þátttöku í námskeiðinu: 2 stuttum verkefnum og kynningu á rannsóknarverkefni sem unnið er í tengslum við námskeið valnámskeið eða lokaverkefni.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Einstaklingsverkefni (ENS223F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Heimilt er að taka allt að 15e í einstaklingsverkefnum. Nemandi velur sér rannsóknaverkefni til úrlausnar í samráði við kennara á MA-stigi, og þarf samþykki umsjónarkennara að liggja fyrir áður en hægt er að skrá sig í þetta verkefni. Einstaklingsverkefni skulu að öllu jöfnu tengjast MA- námskeiðum sem nemandinn hefur þegar lokið eða vera á því sviði sem hann hefur valið sér.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Fræði og ritun (ENS231F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á þessu námskeiði fjöllum við um menningar-, frásagnar- og aðlögunarfræði. Virk þátttaka er nauðsynleg.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Postwar American Literature (ENS305F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

By 1945, the United States had emerged as the dominant global economic and military power. The American standard of living was the envy of the world and political leaders in the US were never more confident in the ideals and myths of the American system. Yet the twenty years after the war were marked by increasing paranoia, dissension, and divisions within the country. An irrational fear of communist infiltration created a police state atmosphere; civil rights’ movements were met with new forms of intolerance, persecution, and oppression; a counterculture movement challenged the very foundations of US society; and major rifts opened between numerous groups divided on intersectional, regional, and generational lines. From out of the turmoil of these years emerged a new generation of literary voices in America—authors who celebrated the potential of their culture even as they exposed and subverted its failings. This course will explore the interrelationship between the dynamics of postwar American society and literature written during this period.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Tileinkun orðaforða: Rannsóknir og kenningar (ENS344M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á námskeiðinu verður farið í ýmsar aðferðir til að auka orðaforða eins og tengiorðaaðferðina, notkun flýtispjalda og gildi yfirgripsmikils lestrar. Þá verður eðli orðaforðatileinkunar gerð skil t.d. hvað felst í að læra nýtt orð auk ýmis konar tölfræði varðandi mismunandi kunnáttu í orðaforða.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Haust
Mary Stuart í skáldævisögum og -kvikmyndum/sjónvarpsþáttum (ENS812F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

ENS812F – María Stúart: Endurtúlkun ævi hennar og ímyndar í leikritum, skáldævisögum og ævisögulegum kvikmyndum (10 ECTS)

Námskeiðið fjallar um líf og valdaferil Maríu Stúart Skotadrottningar og hvernig hún hefur verið túlkuð í ólíkum miðlum, svo sem ævisögum, skáldævisögum, kvikmyndum og leikritum. Nemendur lesa valin verk sem fjalla um líf hennar og stjórnartíð og horfa á kvikmyndir og sjónvarpsþætti þar sem hún gegnir aðal- eða aukahlutverki. Kafað er í sögulegar, bókmenntalegar og menningarlegar túlkanir á hlutverki Maríu í sögunni, með sérstakri áherslu á samskipti Skotlands Englands, átök milli mótmælenda og kaþólikka, og hið víðara samhengi siðskiptanna í Evrópu. Jafnframt er fjallað um kyn, drottningarvald og pólitísk áhrif, þjóðernisvitund, söguminni og goðsagnamyndun, sem og hvernig sögulegar persónur umbreytast í bókmenntum, kvikmyndum og dægurmenningu.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Skapandi skrif (enska) (ENS817M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Ef þú hefur brennandi löngun til þess að skrifa skáldsögur, smásögur eða ljóð á ensku, og hefur ánægju af lestri góðra bóka, er þetta námskeið fyrir þig.

Tilgangur námsins er m.a.

1. Að skerpa hæfni nemenda með ritæfingum og ritskoðun á eigin texta.

2. Að auka hæfni nemenda til þess að veita öðrum uppbyggjandi gagnrýni á verk þeirra í ritsmiðju og gefa góð ráð um ritskoðun og endurritun.

Auk þess að örva andagiftina læra nemendur nytsama hluti eins og skipulagningu, uppbyggingu, fléttu, sögusvið, persónusköpun og ritun samtala.

Nemendur skoða einnig og skilgreina verk frægra höfunda til þess að uppgötva hvernig hægt er að nýta bestu tækni til áhrifa á lesandann. Stöðugt endurmat á námsekiðinu tryggir að nemendur bæti verk sín og verði í kjölfarið betri gagnrýnendur á verk annarra. Í lok námskeiðsins skrifar hver nemandi eina smásögu í fullri lengd eða skrifar samansafn ljóða, auk annarra ritæfinga.

Krafist er 100% mætingarskyldu og því hentar námskeiðið ekki fyrir fjarnemendur. Nemendur mæta einu sinni í viku - á fyrirlestur og ritsmiðju (3 kennslustundir í senn).

Nemendur sem uppfylla forkröfur námskeiðins verða skráðir í það. 6 sæti eru ætluð MA nemendum og 6 sæti eru ætluð BA nemendum og þegar kemur að skráningu þá er það fyrstur kemur fyrstur fær. Öll sæti sem eru laus í námskeiðið eftir fyrstu viku misseris verða boðin út til nemenda á biðlista. 

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Tungumál og menning I (MOM301F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Viðfangsefni námskeiðsins eru margvísleg tengsl menningar og tungumála út frá hugmyndasögulegum, félags- og málvísindalegum forsendum. Gömul og ný heimsmál verða kynnt, tilurð þeirra, áhrif og afleiðingar. Fjallað verður um talmál og ritmál: Hvað er skrifað, hvers vegna og hvernig? Reglur og ólík viðhorf til tungumála eru rædd og velt verður upp spurningum um tengsl mannsins við hugsun og tungumál.

Kennslutungumál: Enska
Annað ár | Vor
Meistararitgerð í enskukennslu (ENS331L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meistararitgerð í enskukennslu.

Kennslutungumál: Enska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Annað ár | Vor
Arfur og útlegð í íslensk-Norður Amerískum bókmenntum frá síðari hluta 19. aldar til þriðja áratugar 20. aldar (ENS820M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Viðfangefnið í þessu námskeiði snýr að íslensk-Norður Amerískum bókmenntum frá tímum vesturferða á síðari hluta 19. aldar fram yfir fyrri heimsstyrjöld. Hugað verður sérstaklega að þáttum menningararfs og útlegðar í skáldskap Helgu Steinvarar Baldvinsdóttur (1858 – 1942), sem orti ljóð sín undir skáldanafninu Undína, ljóðum Stephan G. Stephansson (1853 – 1927), og ljóðum og leikritum Guttorms J. Guttormssonar (1878 – 1966). Áhersla verður jafnframt lögð á að skoða hugmyndir um útlegðarpóesíu í vestrænum nútímabókmenntum og hvernig skáldskapur íslenskra vesturfara svarar þeim hugmyndum. 

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Vor
Aðlaganir (ENS217F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður rýnt í bókmenntaverk sem hafa verið aðlöguð yfir í sjónvarpsseríur og kvikmyndir og glímt við hin fjölmörgu hugtök og kenningar sem tengjast þessari tiltölulega nýju og sívaxandi fræðigrein. Námsefnið samanstendur af sérvöldum fræðigreinum, smásögum auk skyldutexta námskeiðsins, Adaptation and Appropriation, eftir Julie Sanders, New Critical Idiom 2015.

Með þessu verður leitast við að skilja hvernig aðlaganir myndast og geta nýst til að brjóta niður hefðir og menningarmúra.

Skoðaðar verða sérvaldir þættir úr nokkrum sjónvarpsseríum sem byggðar hafa verið á skáldsögum eða smásögum, s.s. Saga þernunnar, e. Margaret Atwood, Hroki og hleypidómar og eða Vonir og væntingar, e. Jane Austen og Big Little Lies, e. Liane Moriarty ofl.

Kennslutungumál: Enska
Annað ár | Vor
Einstaklingsverkefni (ENS223F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Heimilt er að taka allt að 15e í einstaklingsverkefnum. Nemandi velur sér rannsóknaverkefni til úrlausnar í samráði við kennara á MA-stigi, og þarf samþykki umsjónarkennara að liggja fyrir áður en hægt er að skrá sig í þetta verkefni. Einstaklingsverkefni skulu að öllu jöfnu tengjast MA- námskeiðum sem nemandinn hefur þegar lokið eða vera á því sviði sem hann hefur valið sér.

Kennslutungumál: Enska
Annað ár | Vor
Uppruni enskra orða (ENS350M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið fjallar um enskan orðaforða frá ólíkum hliðum. Á meðal viðfangsefna eru atriði eins og nöfn á börnum, örnefni, hlutverk fagmáls, gildi slangurs og kímni í mállýskum. Einnig verður hugað að því hvernig meta skal stærð orðaforðans og hvernig tungumál hafa áhrif hvert á annað. Loks verður fjallað um sögu orða og málbreytingar. Meginspurningin er: Hvaðan koma orðin?

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Vor
Englar, hreinar meyjar, nornir og hórur: Endurritun kvenna úr sögunni í skáldskap (ENS448F)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður skoðað hvernig saga kvenna og reynsla þeirra hefur verið endurrituð í sögulegum skáldskap, með áherslu á bókmenntatexta gefna út frá árinu 2000.  Við skoðum hinar ýmsu hliðar á því hvernig sögulegar bókmenntir skapa nýtt rými fyrir konur í annars karllægri mannkynssögu, og hvernig þær vinna gegn hinum ýmsu staðalmyndum um konur. Kenningar og gagnrýni tengt efninu verður einnig lesið og rætt, með áherslu á femínisma, endurskoðunarstefnu og póstmódernisma.

ATH. Þetta námskeið er ekki skráð sem fjarnámskeið en nemendur sem hafa áhuga á að taka það utanskóla eru hvattir til að hafa samband við kennara varðandi mögulegar ráðstafanir.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
David Cronenberg’s Adaptations (ENS456M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

World renowned Canadian director David Cronenberg is commonly recognized as a cinematic pioneer of the body horror genre. However, much of Cronenberg’s work branches off from the horror genre, applying his auteurist imagery of body horror to other genres and stories. Cronenberg’s career, which began in the 1970s and continues to grow today, presents a large number of filmic adaptations of novels, short stories, and the lives of real life and historical figures.

In this course, we will examine four different films by Cronenberg, adapted from four different sources, to study the varying capacities of adaptation and adaptation theory, as well as auteur theory, in the attempt to understand how Cronenberg retells established narratives, which include his signature themes of body horror.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Vor
Tungumál og menning II: Evrópsk menntahefð (MOM402M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Evrópsk mennta- og umræðuhefð einkennist af sterkum tengslum háskóla og samfélags. Margir áhrifamestu hugsuða Evrópu á 19. og 20. öld störfuðu utan háskólanna og margir þeirra sem áttu hefðbundinn starfsferil innan háskólanna voru líka virkir samfélagsgagnrýnendur, skiptu sér af stjórnmálaumræðu dagsins og höfðu jafnvel talsverð áhrif. Í námskeiðinu lítum við á verk nokkurra valinna evrópskra hugsuða sem eiga það sameiginlegt að hafa verið áhrifamiklir jafnt í fræðunum sem á vettvangi samfélagsumræðunnar. Um leið hugleiðum við stöðu hins „evrópska“ – að hvaða leyti verk þessara hugsuða eru í eðli sínu evrópumiðuð og að hvaða marki við sjáum skilning á menningarlegri óvissu koma fram.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Fyrsta ár
  • Haust
  • ÍET105F
    Kennsla erlendra tungumála og vettvangsnám 1
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Þar af 5 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Nemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í kennslu erlendra tungumála og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Gert er ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um tungumálanám og kennslu þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna og þróa sig sem kennarar. Viðeigandi kenningar, hugtök og aðferðir varðandi nám og kennslu erlendra tungumála eru kynntar, rannsakaðar og ræddar.

    Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu. Starfsþjálfun á haustmisseri er tengd námskeiðinu Inngangi að kennslufræði og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • KEN104F
    Inngangur að kennslufræði framhaldsskóla
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist innsýn inn í íslenskar og alþjóðlegar rannsóknir og kenningar á sviði skólastarfs. Meginviðfangsefni námskeiðs eru kenningar um og rannsóknir á námi, samskiptum og kennsluháttum. Einnig eru kenningar um og rannsóknir á starfi og fagmennsku kennara, svo og lagaákvæði, siðareglur og þess háttar, meðal meginviðfangsefna námskeiðsins.

    Við val viðfangsefna og skipulag námskeiðsins er tekið mið af því að meginstarfsvettvangur þeirra sem taka námskeiðið verður í framhaldsskóla.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • ENS034F
    Kenningar um tileinkun og kennslu erlendra mála
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verða kynntar helstu kenningar um máltöku annars máls og erlendra mála og áhrif kenninga á kennslu. Skoðaðar verða mállegar, félagslegar, sálfræðilegra og námslegar breytur sem áhrif hafa á málanám og málfærni. Til að mynda verður fjallað um máltöku annars máls og erlendra mála hjá börnum og unglingum. Tvítyngi verður skoðað og áhrif þess á málþroska, læsi og námsframvindu barna. Einnig, verður farið yfir helstu kenningar um eðli máltileinkunnar hjá fullorðnum. Nemendur munu leysa verkefni sem skoða máltöku og kennsluaðferðir á mismunandi efni á öðru eða erlendu máli. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • ÍET211F
    Kennsla erlendra tungumála og vettvangsnám 2
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Þar af 5 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Nemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í kennslu erlendra tungumála og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Gert er ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um tungumálanám og kennslu þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna og þróa sig sem kennarar. Viðeigandi kenningar, hugtök og aðferðir varðandi nám og kennslu erlendra tungumála eru kynntar, rannsakaðar og ræddar.

    Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu.

    Starfsþjálfun á vormisseri er tengd námskeiðinu Námskrá og skólaþróun í framhaldsskólum og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • KEN213F
    Námskrá og skólaþróun í framhaldsskólum
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um námskrárfræði og menntastefnu með áherslu á námskrár, nemendur og þróunarstarf í framhaldsskólum.

    Viðfangsefnum í námskeiðinu er ætlað að þjálfa fagmannlegt verklag við mótun menntastefnu, námskrárgerð og skólaþróun í framhaldsskólum á Íslandi. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • ENS235F
    Rannsóknir á tileinkun og kennslu erlendra mála
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verða kynntar helstu rannsóknir á máltöku og kennslu annars máls og erlendra mála. Fjallað verður um eigindlegar og megindlegar rannsóknaraðferðir sem notaðar eru við könnun á máltöku og kennsluaðferðum. Nemendur fá innsýn í raunveruleg dæmi og takast sjálfir á við rannsóknir á þessu sviði.  

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Haust
  • ENS331L
    Meistararitgerð í enskukennslu
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meistararitgerð í enskukennslu.

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • ENS503F
    Áhætta og umbun: Spilamennska í bókmenntum átjándu aldar
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Áhugi á fjárhættuspil kom fram í sögulínum leikrita og skáldsagna þar sem persónur taka fjárhagslega og persónulega áhættu, spenntar yfir möguleikanum á mögulega velmegandi og ábatasamri nýrri fjárfestingu. Gamanleikir Susönnu Centlivre, The Gamester (1705) og The Basset Table (1705), sýna röð fjárhagslegra og persónulegra áhættuþátta fjárhættuspila og afleiðingar þeirra. Á átjándu öldinni var einnig sýnd persóna kvenkyns spilara sem dæmi um lastsemi. Við munum ræða tengslin milli fjárhættuspila, happdrætta og annarra viðskiptaáhættu, og hvernig bókmenntir sýndu áhrif þeirra á fjölskyldu og persónuleg sambönd í leikritum og skáldsögum sem Mary Pix’s The Beau Defeated (1700), Susanna Centlivre’s The Gamester (1705), Henry Fieldng’s The Lottery (1732), Edward Moore’s The Gamester (1753), Frances Brooke's The Excursion (1777), Thomas Holcroft’s The Road to Ruin (1792), and Maria Edgeworth’s Belinda (1801).  Við munum einnig skoða persónulega áhættu sem persónur taka í ástarsögum leikrita og skáldsagna og hversu miklu leyti þessar persónur fá umbun eða verða að breytast.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS718F
    Merking sagnorða - hvernig orðin ná tökum á óreiðu atburða
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðurkenndar skoðanir í málvísindum ganga út frá að merking sagna ráði að hluta til þeim setningafræðilegu mynstrum sem rökliðir sagnorða birtast í. Til dæmis eru gerendur alltaf frumlög og sagnir í ensku sem merkja breytingu ástandi vegna ytri áhrifa geta almennt bæði verið áhrifssagnir og áhrifslausar. Í þessu námskeiði er lagt mat á rök og fræðikenningar sem málfræðingar hafa notað til að ná utan um alhæfingar á þessu sviði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • AMF002F
    Efst á baugi: Seminar með innlendum og erlendum fræðimönnum
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Gert er ráð fyrir að nemendur taki þátt í stuttum málstofum, seminörum og ráðstefnum sem tengjast nýjungum á fræðasviðinu. Kostnaður við seminörin verður að einhverju leyti fjármagnaður gegnum styrkumsóknir s.s. Erasmus. Markmiðið er að efla tengsl nemenda við fræðimenn innan og utan Háskólans og gefa nemendum tækifæri til að taka þátt í alþjóðlegri umræðu á fræðasviðinu.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS113F
    MA-málstofa: Ráðstefna framhaldsnema
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta er skyldunámskeið fyrir alla meistaranema í ensku. Haldnar eru stuttar málstofur þar sem nemendur fá tækifæri til að ræða stefnur og tilgátur tengdum enskum fræðum og undirbúa sig fyrir að kynna eigin verk og annarra á vettvangi sinna fræða, heima eða erlendis. Mat er byggt á þátttöku í námskeiðinu: 2 stuttum verkefnum og kynningu á rannsóknarverkefni sem unnið er í tengslum við námskeið valnámskeið eða lokaverkefni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS223F
    Einstaklingsverkefni
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Heimilt er að taka allt að 15e í einstaklingsverkefnum. Nemandi velur sér rannsóknaverkefni til úrlausnar í samráði við kennara á MA-stigi, og þarf samþykki umsjónarkennara að liggja fyrir áður en hægt er að skrá sig í þetta verkefni. Einstaklingsverkefni skulu að öllu jöfnu tengjast MA- námskeiðum sem nemandinn hefur þegar lokið eða vera á því sviði sem hann hefur valið sér.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS231F
    Fræði og ritun
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á þessu námskeiði fjöllum við um menningar-, frásagnar- og aðlögunarfræði. Virk þátttaka er nauðsynleg.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS305F
    Postwar American Literature
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    By 1945, the United States had emerged as the dominant global economic and military power. The American standard of living was the envy of the world and political leaders in the US were never more confident in the ideals and myths of the American system. Yet the twenty years after the war were marked by increasing paranoia, dissension, and divisions within the country. An irrational fear of communist infiltration created a police state atmosphere; civil rights’ movements were met with new forms of intolerance, persecution, and oppression; a counterculture movement challenged the very foundations of US society; and major rifts opened between numerous groups divided on intersectional, regional, and generational lines. From out of the turmoil of these years emerged a new generation of literary voices in America—authors who celebrated the potential of their culture even as they exposed and subverted its failings. This course will explore the interrelationship between the dynamics of postwar American society and literature written during this period.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS344M
    Tileinkun orðaforða: Rannsóknir og kenningar
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Á námskeiðinu verður farið í ýmsar aðferðir til að auka orðaforða eins og tengiorðaaðferðina, notkun flýtispjalda og gildi yfirgripsmikils lestrar. Þá verður eðli orðaforðatileinkunar gerð skil t.d. hvað felst í að læra nýtt orð auk ýmis konar tölfræði varðandi mismunandi kunnáttu í orðaforða.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS812F
    Mary Stuart í skáldævisögum og -kvikmyndum/sjónvarpsþáttum
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    ENS812F – María Stúart: Endurtúlkun ævi hennar og ímyndar í leikritum, skáldævisögum og ævisögulegum kvikmyndum (10 ECTS)

    Námskeiðið fjallar um líf og valdaferil Maríu Stúart Skotadrottningar og hvernig hún hefur verið túlkuð í ólíkum miðlum, svo sem ævisögum, skáldævisögum, kvikmyndum og leikritum. Nemendur lesa valin verk sem fjalla um líf hennar og stjórnartíð og horfa á kvikmyndir og sjónvarpsþætti þar sem hún gegnir aðal- eða aukahlutverki. Kafað er í sögulegar, bókmenntalegar og menningarlegar túlkanir á hlutverki Maríu í sögunni, með sérstakri áherslu á samskipti Skotlands Englands, átök milli mótmælenda og kaþólikka, og hið víðara samhengi siðskiptanna í Evrópu. Jafnframt er fjallað um kyn, drottningarvald og pólitísk áhrif, þjóðernisvitund, söguminni og goðsagnamyndun, sem og hvernig sögulegar persónur umbreytast í bókmenntum, kvikmyndum og dægurmenningu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS817M
    Skapandi skrif (enska)
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Ef þú hefur brennandi löngun til þess að skrifa skáldsögur, smásögur eða ljóð á ensku, og hefur ánægju af lestri góðra bóka, er þetta námskeið fyrir þig.

    Tilgangur námsins er m.a.

    1. Að skerpa hæfni nemenda með ritæfingum og ritskoðun á eigin texta.

    2. Að auka hæfni nemenda til þess að veita öðrum uppbyggjandi gagnrýni á verk þeirra í ritsmiðju og gefa góð ráð um ritskoðun og endurritun.

    Auk þess að örva andagiftina læra nemendur nytsama hluti eins og skipulagningu, uppbyggingu, fléttu, sögusvið, persónusköpun og ritun samtala.

    Nemendur skoða einnig og skilgreina verk frægra höfunda til þess að uppgötva hvernig hægt er að nýta bestu tækni til áhrifa á lesandann. Stöðugt endurmat á námsekiðinu tryggir að nemendur bæti verk sín og verði í kjölfarið betri gagnrýnendur á verk annarra. Í lok námskeiðsins skrifar hver nemandi eina smásögu í fullri lengd eða skrifar samansafn ljóða, auk annarra ritæfinga.

    Krafist er 100% mætingarskyldu og því hentar námskeiðið ekki fyrir fjarnemendur. Nemendur mæta einu sinni í viku - á fyrirlestur og ritsmiðju (3 kennslustundir í senn).

    Nemendur sem uppfylla forkröfur námskeiðins verða skráðir í það. 6 sæti eru ætluð MA nemendum og 6 sæti eru ætluð BA nemendum og þegar kemur að skráningu þá er það fyrstur kemur fyrstur fær. Öll sæti sem eru laus í námskeiðið eftir fyrstu viku misseris verða boðin út til nemenda á biðlista. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • MOM301F
    Tungumál og menning I
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Viðfangsefni námskeiðsins eru margvísleg tengsl menningar og tungumála út frá hugmyndasögulegum, félags- og málvísindalegum forsendum. Gömul og ný heimsmál verða kynnt, tilurð þeirra, áhrif og afleiðingar. Fjallað verður um talmál og ritmál: Hvað er skrifað, hvers vegna og hvernig? Reglur og ólík viðhorf til tungumála eru rædd og velt verður upp spurningum um tengsl mannsins við hugsun og tungumál.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • ENS331L
    Meistararitgerð í enskukennslu
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meistararitgerð í enskukennslu.

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • Námskeiðslýsing

    Viðfangefnið í þessu námskeiði snýr að íslensk-Norður Amerískum bókmenntum frá tímum vesturferða á síðari hluta 19. aldar fram yfir fyrri heimsstyrjöld. Hugað verður sérstaklega að þáttum menningararfs og útlegðar í skáldskap Helgu Steinvarar Baldvinsdóttur (1858 – 1942), sem orti ljóð sín undir skáldanafninu Undína, ljóðum Stephan G. Stephansson (1853 – 1927), og ljóðum og leikritum Guttorms J. Guttormssonar (1878 – 1966). Áhersla verður jafnframt lögð á að skoða hugmyndir um útlegðarpóesíu í vestrænum nútímabókmenntum og hvernig skáldskapur íslenskra vesturfara svarar þeim hugmyndum. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS217F
    Aðlaganir
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður rýnt í bókmenntaverk sem hafa verið aðlöguð yfir í sjónvarpsseríur og kvikmyndir og glímt við hin fjölmörgu hugtök og kenningar sem tengjast þessari tiltölulega nýju og sívaxandi fræðigrein. Námsefnið samanstendur af sérvöldum fræðigreinum, smásögum auk skyldutexta námskeiðsins, Adaptation and Appropriation, eftir Julie Sanders, New Critical Idiom 2015.

    Með þessu verður leitast við að skilja hvernig aðlaganir myndast og geta nýst til að brjóta niður hefðir og menningarmúra.

    Skoðaðar verða sérvaldir þættir úr nokkrum sjónvarpsseríum sem byggðar hafa verið á skáldsögum eða smásögum, s.s. Saga þernunnar, e. Margaret Atwood, Hroki og hleypidómar og eða Vonir og væntingar, e. Jane Austen og Big Little Lies, e. Liane Moriarty ofl.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS223F
    Einstaklingsverkefni
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Heimilt er að taka allt að 15e í einstaklingsverkefnum. Nemandi velur sér rannsóknaverkefni til úrlausnar í samráði við kennara á MA-stigi, og þarf samþykki umsjónarkennara að liggja fyrir áður en hægt er að skrá sig í þetta verkefni. Einstaklingsverkefni skulu að öllu jöfnu tengjast MA- námskeiðum sem nemandinn hefur þegar lokið eða vera á því sviði sem hann hefur valið sér.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS350M
    Uppruni enskra orða
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið fjallar um enskan orðaforða frá ólíkum hliðum. Á meðal viðfangsefna eru atriði eins og nöfn á börnum, örnefni, hlutverk fagmáls, gildi slangurs og kímni í mállýskum. Einnig verður hugað að því hvernig meta skal stærð orðaforðans og hvernig tungumál hafa áhrif hvert á annað. Loks verður fjallað um sögu orða og málbreytingar. Meginspurningin er: Hvaðan koma orðin?

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS448F
    Englar, hreinar meyjar, nornir og hórur: Endurritun kvenna úr sögunni í skáldskap
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður skoðað hvernig saga kvenna og reynsla þeirra hefur verið endurrituð í sögulegum skáldskap, með áherslu á bókmenntatexta gefna út frá árinu 2000.  Við skoðum hinar ýmsu hliðar á því hvernig sögulegar bókmenntir skapa nýtt rými fyrir konur í annars karllægri mannkynssögu, og hvernig þær vinna gegn hinum ýmsu staðalmyndum um konur. Kenningar og gagnrýni tengt efninu verður einnig lesið og rætt, með áherslu á femínisma, endurskoðunarstefnu og póstmódernisma.

    ATH. Þetta námskeið er ekki skráð sem fjarnámskeið en nemendur sem hafa áhuga á að taka það utanskóla eru hvattir til að hafa samband við kennara varðandi mögulegar ráðstafanir.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ENS456M
    David Cronenberg’s Adaptations
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    World renowned Canadian director David Cronenberg is commonly recognized as a cinematic pioneer of the body horror genre. However, much of Cronenberg’s work branches off from the horror genre, applying his auteurist imagery of body horror to other genres and stories. Cronenberg’s career, which began in the 1970s and continues to grow today, presents a large number of filmic adaptations of novels, short stories, and the lives of real life and historical figures.

    In this course, we will examine four different films by Cronenberg, adapted from four different sources, to study the varying capacities of adaptation and adaptation theory, as well as auteur theory, in the attempt to understand how Cronenberg retells established narratives, which include his signature themes of body horror.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MOM402M
    Tungumál og menning II: Evrópsk menntahefð

Annað ár

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Störf að námi loknu

  • Kennsla í grunn- eða framhaldsskólum
  • Umsjón með kennslu í skólum eða umdæmum
  • Deildar- eða fagstjórn
  • Endurmenntun

Listinn er ekki tæmandi.

  • Linguae er félag tungumálanema við Háskóla Íslands
  • Markmið félagsins er að efla félagslíf nemenda innan Mála- og menningardeildar
  • Enn sem komið er samanstendur það af ítölsku-, frönsku-, þýsku-, spænsku-, dönsku-, kínversku- og rússneskunemum
  • Nemendafélagið er með Facebook hóp og Facebook-síðu

Meira um félagslíf stúdenta í Hí

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil