Nemandi á bókasafni
Tungumál kennslu
Íslenska og danska. Flestar kennslubækur eru á íslensku eða dönsku.
Lengd náms
Tvö ár - 120 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Langar þig að öðlast kennsluréttindi?
  • Vilt þú öðlast þekkingu á almennri kennslufræði og góða þekkingu á kennslufræði erlendra tungumála?
  • Getur þú séð fyrir þér að kenna dönsku í grunn- eða framhaldsskóla?
  • Ert þú að huga að framhaldsnámi?

Hér er um að ræða starfsmiðað réttindanám fyrir starfandi og verðandi dönskukennara í framhaldsskólum. Jafnframt er það undirbúningur fyrir störf sem fela í sér umsjón með dönskukennslu í skólum eða fræðsluumdæmum.

Námið er skipulagt og kennt í samvinnu við Menntavísindasvið og ljúka nemendur 60 einingum í kennslufræði og 60 einingum í dönsku.

Uppbygging náms

Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára.

Námið skiptist í:

  • Skyldunámskeið, 55 einingar
  • Vettvangsnám, 10 einingar
  • Valnámskeið, 25 einingar
  • Lokaverkefni, 30 einingar

Fyrirkomulag kennslu 

Námið er kennt bæði á dönsku og íslensku. Flestar kennslubækur eru á dönsku eða íslensku.

Hluti námsins fer fram á vettvangi. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum.

Sjá nánari upplýsingar um skipulag náms til MA-prófs í Menntun framhaldsskólakennara

Meginmarkmið 

Markmið eru meðal annars að nemendur öðlist: 

  • þekkingu á almennri kennslufræði og góða þekkingu á kennslufræði erlendra tungumála og geti ígrundað mismunandi stefnur og strauma sem og þróun og stöðu greinarinnar.
  • þekkingu á námsgögnum í tungumálakennslu, kennsluleiðbeiningum og öðrum hjálpargögnum, hlutverki þeirra, eiginleikum og rannsóknum á notkun þeirra.
  • færni til þess að skipuleggja tungumálakennslu í grunn- og framhaldsskólum, afla námsgagna, velja kennsluaðferðir, þróa verkefni og ákveða námsmat.

Annað

Námið veitir rétt til að nota starfsheitið kennari.

Námið veitir aðgang að doktorsnámi.

Umsækjendur um þessa námsleið athugið:

Á rafrænu umsóknareyðublaði skal velja Menntun framhaldsskólakennara, MA, 120 einingar, og kjörsviðið Dönskukennsla.

BA-próf í dönsku, eða B.Ed.-próf með dönsku sem kjörsvið, með fyrstu einkunn (7.25) veitir aðgang að MA-námi. Skilyrði er að hafa skrifað 10e lokaritgerð í BA-/B.Ed-náminu.

Nemendur þurfa að hafa B2 hæfni í íslensku til að sækja um í námið. 

Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla hyggst stunda nám sem kennt er á íslensku, og sem leiðir til leyfisbréfs kennara, skal hann hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR).

Þeir sem hafa lokið B.Ed.-prófi með dönsku sem kjörsvið þurfa þó að ljúka undirbúningsnámi á BA-stigi áður en þeir hefja nám á MA-stigi. Undirbúningsnámið er að jafnaði að taka allt fyrsta árið í BA í dönsku, mínus MOM-námskeiðin tvö, og skal nemandi einnig skrifa BA-ritgerð í dönsku.

Meistaranám dönskukennslu skiptist í þrjá hluta. Í fyrsta hluta eru námskeið sem fjalla um uppeldis- og kennslufræði og tilheyra þau flest Menntavísindasviði. Í öðrum hluta eru námskeið í grein þ.e. því tungumáli sem nemandinn hefur valið. Þessi námskeið tilheyra yfirleitt Hugvísindasviði. Í þriðja hluta er 30 ECTS lokaritgerð sem tilheyrir Hugvísindasviði þar sem nemendur sem ljúka MA-námi í kennslu erlends tungumáls útskrifast af því sviði. Aðal- eða meðleiðbeinandi getur þó verið af Menntavísindasviði.

Nemandi sem tekur MA-nám í kennslu erlends tungumáls uppfyllir öll skilyrði til að fá réttindi sem kennari í viðkomandi erlendu tungumáli á framhaldsskólastigi.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Greinargerð um markmið með námi
  • Meðmælandi 1, nafn og netfang
  • Meðmælandi 2, nafn og netfang
  • Prófskírteini/námsyfirlit

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Kennsla erlendra tungumála og vettvangsnám 1 (ÍET105F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Þar af 5 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Nemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í kennslu erlendra tungumála og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Gert er ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um tungumálanám og kennslu þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna og þróa sig sem kennarar. Viðeigandi kenningar, hugtök og aðferðir varðandi nám og kennslu erlendra tungumála eru kynntar, rannsakaðar og ræddar.

Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu. Starfsþjálfun á haustmisseri er tengd námskeiðinu Inngangi að kennslufræði og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Inngangur að kennslufræði framhaldsskóla (KEN104F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist innsýn inn í íslenskar og alþjóðlegar rannsóknir og kenningar á sviði skólastarfs. Meginviðfangsefni námskeiðs eru kenningar um og rannsóknir á námi, samskiptum og kennsluháttum. Einnig eru kenningar um og rannsóknir á starfi og fagmennsku kennara, svo og lagaákvæði, siðareglur og þess háttar, meðal meginviðfangsefna námskeiðsins.

Við val viðfangsefna og skipulag námskeiðsins er tekið mið af því að meginstarfsvettvangur þeirra sem taka námskeiðið verður í framhaldsskóla.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Kennsla erlendra tungumála og vettvangsnám 2 (ÍET211F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Þar af 5 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Nemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í kennslu erlendra tungumála og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Gert er ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um tungumálanám og kennslu þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna og þróa sig sem kennarar. Viðeigandi kenningar, hugtök og aðferðir varðandi nám og kennslu erlendra tungumála eru kynntar, rannsakaðar og ræddar.

Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu.

Starfsþjálfun á vormisseri er tengd námskeiðinu Námskrá og skólaþróun í framhaldsskólum og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Námskrá og skólaþróun í framhaldsskólum (KEN213F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um námskrárfræði og menntastefnu með áherslu á námskrár, nemendur og þróunarstarf í framhaldsskólum.

Viðfangsefnum í námskeiðinu er ætlað að þjálfa fagmannlegt verklag við mótun menntastefnu, námskrárgerð og skólaþróun í framhaldsskólum á Íslandi. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Meistararitgerð í dönskukennslu (DAN331L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lokaritgerð í MA í dönskukennslu.

Kennslutungumál: Danska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Annað ár | Haust
Að læra dönsku sem erlent mál (DAN010F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um kenningar um "intersprog". Nemendur kynnast villugreiningu og hvaða vísbendingar villur og málnotkun nemenda geta gefið um máltökuferlið. Einnig verða skoðaðar mállegar, félagslegar, sálfræðilegar og námslegar breytur sem áhrif hafa á málanám og málhæfni. Nemendur fá tækifæri til að skoða máltökuferlið nánar með eigin athugunum á ritmáli og talmáli nemenda sem eru að læra dönsku í íslenskum skólum.

Kennslutungumál: Danska
Annað ár | Haust
Málnotkun og framsetning: Danska (DAN703F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er bæði fræðilegt og hagnýtt. Nemendur rifja upp helstu reglur um danskt mál, málnotkun og stílbrögð. Þeir greina hvernig ólíkar textagerðir taka mið af mismunandi tilgangi tjáskipta. Áhersla verður einnig lögð á ritfærni nemenda á dönsku og þeir þjálfaðir í notkun hjálpargagna.

Kennslutungumál: Danska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Annað ár | Haust
Einstaklingsverkefni (DAN901F, DAN805F)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Einstaklingsverkefni.

Kennslutungumál: Danska
Annað ár | Haust
Einstaklingsverkefni (DAN901F, DAN805F)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Einstaklingsverkefni.

Kennslutungumál: Danska
Annað ár | Vor
Meistararitgerð í dönskukennslu (DAN331L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

MA ritgerð í dönskukennslu.

Kennslutungumál: Danska
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Annað ár | Vor
Að kenna dönsku sem erlent mál (DAN011F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður fjallað um kenningar og rannsóknir sem snerta dönskukennslu, m.a. færniþættina fjóra ásamt kenningum um málfræði og málnotkun. Fjallað verður um tjáskipti sem forsendur þess að ná tökum á erlendu máli og hvernig nýta má nýja miðla til þess að gefa nemendum tækifæri til að tjá sig. Beint verður sjónum að nýjum kenningum um orðaforða og orðaforðatileinkun og hvernig hægt er að nota þessa þekkingu til að brúa bilið milli lesturs og hlustunar annars vega og talmáls og ritunar hins vegar. Nemendur kynna kenningar um bókmenntalestur og menningarmiðlun í málakennslu.

Kennslutungumál: Danska
Annað ár | Vor
Danskt stjórnkerfi, saga og menning (DAN802F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið þessa námskeiðs er að nemendur öðlist yfirsýn yfir sögulega, pólitíska og menningarlega þróun í dönskum stjórnarháttum á 20. öld og fram til dagsins í dag – með áherslu á tímabilið: Frá einveldi til fulltrúalýðræðis. Í námskeiðinu verður fjallað um danska velferðarmódelið og lýðræðislegt öryggisnet í ljósi þjóðarbúskapar, landafræði, lýðfræði og trúarbragða, aðstæðna á vinnumarkaði, stjórnmálakerfis, heilbrigðis- og menntunarkerfis, tengsla Danmerkur við alþjóðasamfélagið og almennra strauma í dönsku samfélagi. Nemendur munu kynna verkefni og ljúka námskeiðinu með skriflegu heimaverkefni.

Kennslutungumál: Danska
Annað ár | Vor
Málnotkun og framsetning í kennslu (DAN806F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur kynna sér og vinna með ýmsar aðferðir sem notaðar eru við kennslu og þjálfun í ritun. Námskeiðið er hugsað sem framhald af "Málfræði og ritun" þar sem nemendur geta nýtt sér fengna þekkingu, reynslu og þjálfun í þeim tilgangi að yfirfæra á kennslu.

Kennslutungumál: Danska
Annað ár | Vor
Hvað eru námsgögn í tungumálakennslu? (DAN201F)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þegar námsgögn til tungumálakennslu /-náms eru samin er nauðsynlegt að líta til margra þátta, sem sumir hverjir virðast ekki mikilvægir í fljótu bragði. Sama gildir þegar námsgögn til tungumálakennslu/-náms er valið.

Í námskeiðinu verður litið til ýmissa þátta sem skipta máli við námsgagnagerð, og hvernig þessum þáttum hafa verið gerð skil í tímans rás. Hvaða þættir ráða mestu um ágæti og notagildi námsgagna í nútíma skóla? Hver eru áhrif námsgagnahöfunda?

Unnið verður með hugtök á borð við námsgögn, texta, myndir, hljóð, stafrænt efni, inntak, þyngdarstig, kennslu- eða notkunarleiðbeiningar og verkefni/viðfangsefni.

Fjallað verður um kenningar er varða sýn á tungumálið,  tileinkun tungumála, kennslu- og námsaðferðir, menningar- og umhverfisþætti. Einnig verður hlutverk kennara/nemenda í kennslustofu/-rými tengt við val og notkun námsgagna greint. Enn fremur verður komið inn á hagnýti náms, sjálfræði í námi, einstaklingsmiðað nám, samvinnu í námi – og þá er ótalið markmið með náminu, ánægjustuðul, virkni nemenda og áhugahvöt.

Kennslutungumál: Danska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Annað ár | Vor
Einstaklingsverkefni (DAN803F, DAN804F)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Einstaklingsverkefni.

Kennslutungumál: Danska
Annað ár | Vor
Einstaklingsverkefni (DAN803F, DAN804F)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Einstaklingsverkefni.

Kennslutungumál: Danska
Fyrsta ár
  • Haust
  • ÍET105F
    Kennsla erlendra tungumála og vettvangsnám 1
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Þar af 5 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Nemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í kennslu erlendra tungumála og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Gert er ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um tungumálanám og kennslu þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna og þróa sig sem kennarar. Viðeigandi kenningar, hugtök og aðferðir varðandi nám og kennslu erlendra tungumála eru kynntar, rannsakaðar og ræddar.

    Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu. Starfsþjálfun á haustmisseri er tengd námskeiðinu Inngangi að kennslufræði og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • KEN104F
    Inngangur að kennslufræði framhaldsskóla
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist innsýn inn í íslenskar og alþjóðlegar rannsóknir og kenningar á sviði skólastarfs. Meginviðfangsefni námskeiðs eru kenningar um og rannsóknir á námi, samskiptum og kennsluháttum. Einnig eru kenningar um og rannsóknir á starfi og fagmennsku kennara, svo og lagaákvæði, siðareglur og þess háttar, meðal meginviðfangsefna námskeiðsins.

    Við val viðfangsefna og skipulag námskeiðsins er tekið mið af því að meginstarfsvettvangur þeirra sem taka námskeiðið verður í framhaldsskóla.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Vor
  • ÍET211F
    Kennsla erlendra tungumála og vettvangsnám 2
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Þar af 5 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Nemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í kennslu erlendra tungumála og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Gert er ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um tungumálanám og kennslu þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna og þróa sig sem kennarar. Viðeigandi kenningar, hugtök og aðferðir varðandi nám og kennslu erlendra tungumála eru kynntar, rannsakaðar og ræddar.

    Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu.

    Starfsþjálfun á vormisseri er tengd námskeiðinu Námskrá og skólaþróun í framhaldsskólum og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • KEN213F
    Námskrá og skólaþróun í framhaldsskólum
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um námskrárfræði og menntastefnu með áherslu á námskrár, nemendur og þróunarstarf í framhaldsskólum.

    Viðfangsefnum í námskeiðinu er ætlað að þjálfa fagmannlegt verklag við mótun menntastefnu, námskrárgerð og skólaþróun í framhaldsskólum á Íslandi. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Haust
  • DAN331L
    Meistararitgerð í dönskukennslu
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lokaritgerð í MA í dönskukennslu.

    Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • DAN010F
    Að læra dönsku sem erlent mál
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um kenningar um "intersprog". Nemendur kynnast villugreiningu og hvaða vísbendingar villur og málnotkun nemenda geta gefið um máltökuferlið. Einnig verða skoðaðar mállegar, félagslegar, sálfræðilegar og námslegar breytur sem áhrif hafa á málanám og málhæfni. Nemendur fá tækifæri til að skoða máltökuferlið nánar með eigin athugunum á ritmáli og talmáli nemenda sem eru að læra dönsku í íslenskum skólum.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • DAN703F
    Málnotkun og framsetning: Danska
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er bæði fræðilegt og hagnýtt. Nemendur rifja upp helstu reglur um danskt mál, málnotkun og stílbrögð. Þeir greina hvernig ólíkar textagerðir taka mið af mismunandi tilgangi tjáskipta. Áhersla verður einnig lögð á ritfærni nemenda á dönsku og þeir þjálfaðir í notkun hjálpargagna.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • DAN901F, DAN805F
    Einstaklingsverkefni
    Valnámskeið

  • DAN011F
    Að kenna dönsku sem erlent mál
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður fjallað um kenningar og rannsóknir sem snerta dönskukennslu, m.a. færniþættina fjóra ásamt kenningum um málfræði og málnotkun. Fjallað verður um tjáskipti sem forsendur þess að ná tökum á erlendu máli og hvernig nýta má nýja miðla til þess að gefa nemendum tækifæri til að tjá sig. Beint verður sjónum að nýjum kenningum um orðaforða og orðaforðatileinkun og hvernig hægt er að nota þessa þekkingu til að brúa bilið milli lesturs og hlustunar annars vega og talmáls og ritunar hins vegar. Nemendur kynna kenningar um bókmenntalestur og menningarmiðlun í málakennslu.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • DAN802F
    Danskt stjórnkerfi, saga og menning
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið þessa námskeiðs er að nemendur öðlist yfirsýn yfir sögulega, pólitíska og menningarlega þróun í dönskum stjórnarháttum á 20. öld og fram til dagsins í dag – með áherslu á tímabilið: Frá einveldi til fulltrúalýðræðis. Í námskeiðinu verður fjallað um danska velferðarmódelið og lýðræðislegt öryggisnet í ljósi þjóðarbúskapar, landafræði, lýðfræði og trúarbragða, aðstæðna á vinnumarkaði, stjórnmálakerfis, heilbrigðis- og menntunarkerfis, tengsla Danmerkur við alþjóðasamfélagið og almennra strauma í dönsku samfélagi. Nemendur munu kynna verkefni og ljúka námskeiðinu með skriflegu heimaverkefni.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • DAN806F
    Málnotkun og framsetning í kennslu
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur kynna sér og vinna með ýmsar aðferðir sem notaðar eru við kennslu og þjálfun í ritun. Námskeiðið er hugsað sem framhald af "Málfræði og ritun" þar sem nemendur geta nýtt sér fengna þekkingu, reynslu og þjálfun í þeim tilgangi að yfirfæra á kennslu.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • DAN201F
    Hvað eru námsgögn í tungumálakennslu?
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þegar námsgögn til tungumálakennslu /-náms eru samin er nauðsynlegt að líta til margra þátta, sem sumir hverjir virðast ekki mikilvægir í fljótu bragði. Sama gildir þegar námsgögn til tungumálakennslu/-náms er valið.

    Í námskeiðinu verður litið til ýmissa þátta sem skipta máli við námsgagnagerð, og hvernig þessum þáttum hafa verið gerð skil í tímans rás. Hvaða þættir ráða mestu um ágæti og notagildi námsgagna í nútíma skóla? Hver eru áhrif námsgagnahöfunda?

    Unnið verður með hugtök á borð við námsgögn, texta, myndir, hljóð, stafrænt efni, inntak, þyngdarstig, kennslu- eða notkunarleiðbeiningar og verkefni/viðfangsefni.

    Fjallað verður um kenningar er varða sýn á tungumálið,  tileinkun tungumála, kennslu- og námsaðferðir, menningar- og umhverfisþætti. Einnig verður hlutverk kennara/nemenda í kennslustofu/-rými tengt við val og notkun námsgagna greint. Enn fremur verður komið inn á hagnýti náms, sjálfræði í námi, einstaklingsmiðað nám, samvinnu í námi – og þá er ótalið markmið með náminu, ánægjustuðul, virkni nemenda og áhugahvöt.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • DAN803F, DAN804F

Annað ár

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Störf að námi loknu

  • kennsla í grunn- eða framhaldsskólum
  • umsjón með kennslu í skólum eða umdæmum
  • deildar- eða fagstjórn
  • endurmenntun

Listinn er ekki tæmandi.

  • Linguae er félag tungumálanema við Háskóla Íslands
  • Markmið félagsins er að efla félagslíf nemenda innan Mála- og menningardeildar
  • Enn sem komið er samanstendur það af ítölsku-, frönsku-, þýsku-, spænsku-, dönsku-, kínversku- og rússneskunemum
  • Nemendafélagið er með Facebook hóp og Facebook-síðu

Meira um félagslíf stúdenta í Hí

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil