- Langar þig að öðlast skilning á nýjustu þekkingu innan iðnaðarverkfræði?
- Vilt þú öðlast yfirgripsmikla þekkingu á framleiðslu-, gæða- og vörustjórnun í fyrirtækjum, tilhögun nýsköpunar og vöruþróunar?
- Hefur þú áhuga á rekstri og stjórnun fyrirtækja ásamt fjármálastjórnun þeirra?
- Vilt þú læra meira um aðgerðargreiningu, tölfræði, bestunaraðferðir og ákvörðunarfræði?
Allstaðar er þörf á að setja upp nýtt verklag eða bæta það verklag sem fyrir er og þar eru iðnaðarverkfræðingar afar eftirsóttir starfskraftar.
Nemendur vinna rannsóknarverkefni iðulega í tengslum við atvinnulíf og fá nemendur færi á sjálfstæðri rannsóknarvinnu undir leiðsögn umsjónarkennara.
Uppbygging náms
Námið er 120 einingar og er skipulagt sem fullt nám til tveggja ára.
Námið skiptist í:
- Námskeið, 60 - 90 einingar
- Rannsóknarverkefni, 30 - 60 einingar
Samsetning námsáætlunar er sniðin að hverjum nemanda í samráði við umsjónarkennara.
Fyrirkomulag kennslu
Námið er kennt á íslensku en flestar kennslubækur eru á ensku.
Meistaraverkefnin geta verið fræðileg eða hagnýt og þá gjarnan í samstarfi við fyrirtæki og stofnanir. Ýmsir möguleikar eru á styrkjum.
Meginmarkmið
Miðað er að því að nemendur öðlist meðal annars þekkingu og hæfni til að greina og leysa flókin vandamál á hinum ýmsu sérhæfðu sviðum innan iðnaðarverkfræðinnar. Nemendur geti sýnt sjálfstæða og skapandi hugsun við lausn vandamála og lokið greiningu þannig að niðustöður séu skýrar.
Annað
Að loknu meistaraprófi í iðnaðarverkfræði geta nemendur sótt um leyfi til iðnaðarráðherra til að geta kallað sig verkfræðinga. Starfsheitið er lögverndað.
Meistaragráða í iðnaðarverkfræði opnar möguleika á doktorsnámi.
- Fyrsta háskólagráða, BSc-gráða í verkfræði með lágmarkseinkunn 6,5. Skyldunámskeið í MSc námi geta breyst í samræmi við hvaða BSc verkfræðigráðu nemandi hefur.
- Umsækjendur skulu skila stuttri greinargerð (1 bls.) þar sem þeir tilgreina hvers vegna þeir hafa áhuga á þessu námi, markmið með náminu og hugsanlegt viðfangsefni í meistararitgerð.
- Öllum umsóknum skulu fylgja meðmæli frá 2 einstaklingum (kennari/yfirmaður) sem þekkja vel til umsækjenda og geta veitt honum skýra umsögn. Umsagnaraðilar þurfa að skila skriflegum umsögnum beint til Háskóla Íslands á netfangið umsokn@hi.is. Ef nemandi er að sækja um áframhaldandi nám í sömu deild þarf ekki að skila skriflegum umsögnum/meðmælabréfum.
Ljúka þarf 120 einingum til MS-gráðu. Skipulagt sem 2 ára nám. Námið er 60 einingar í námskeiðum og 60 eininga rannsóknarverkefni. Námskeiðin eru meistaranámskeið sem valin eru í samráði við umsjónarkennara.
- Ferilskrá (CV)
- Greinargerð um markmið með námi
- Meðmælandi 1, nafn og netfang
- Meðmælandi 2, nafn og netfang
- Leiðbeinandi/leiðbeinandi kennari við HÍ
- Prófskírteini/námsyfirlit
- Ef umsækjandi hefur erlent ríkisfang og erlent próf þarf að skila staðfestingu á enskukunnáttu
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.
- Óháð námsári
- Haust
- Lokaverkefni: verkefnastjórnun, ritfærni og kynning
- Lokaverkefni
- Aðgerðagreining 2
- Vöruþróun og hönnun framleiðslukerfa
- Vörustjórnun og umhverfismál
- Nýsköpun og sprotaþróun
- Ekki kennt á misserinuVerkefni í Kerfishugsun
- Ekki kennt á misserinuVerkefni í Nýsköpunarstjórnun
- Ekki kennt á misserinuVerkefni í Tæknistjórnun
- Gæðastjórnun
- Ekki kennt á misserinuReiknigreind
- Mannlegir þættir í verkfræðilegri hönnun
- Ekki kennt á misserinuRýmishljóðhönnun
- Ekki kennt á misserinuStjórnun sjálfbærra aðfangakeðja
- Stefnumótun í aðfangakeðjum
- Ekki kennt á misserinuHönnun og bestun
- Vor
- Lokaverkefni
- Áætlanagerð
- Hönnun þjónustukerfa
- Ekki kennt á misserinuVerkefni í Aðgerðagreiningu
- Ekki kennt á misserinuVerkefni í Aðgerðastjórnun
- Tækninýsköpun
- Ekki kennt á misserinuNýsköpun og viðskiptaþróun í framkvæmd (II)
- Ekki kennt á misserinuNýsköpun og sprotaþróun
- Ekki kennt á misserinuTækniþróun og nýsköpun
- Árangursstjórnun
- Ekki kennt á misserinuFramleiðni þekkingarstarfsmanna
- Hermun
- Straumlínustjórnun - Virði, sóun og umbótamenning
- Viðskiptagreind
Lokaverkefni: verkefnastjórnun, ritfærni og kynning (VON001F)
Námskeiðið fjallar um inngang að vísindalegum aðferðum, siðfræði vísinda í háskólasamfélaginu. Einnig verður farið í hlutverk nemanda, leiðbeinanda og prófdómara. Tekin verða fyrir árangursrík og heiðarleg samskipti sem og gerð fræðilegrar umfjöllunar með notkun gagnasafna og réttri heimildanotkun. Gerð rannsóknaráætlunar og rannsóknaaðferðir verða kynntar og einnig hagnýt framsetning tölulegra gagna. Farið verður í verklag við gerð fræðiritgerða, hvernig skipta á stóru verkefni niður í smærri einingar, gerð áætlunar og tímalínu og hvernig á að fylgja þeim. Lífið eftir brautskráningu og vinnumarkaðurinn.
Lokaverkefni (IÐN441L)
- Efni lokaverkefnis skal valið í samráði við leiðbeinanda (leiðbeinendur) úr hópi fastra kennara deildar. Lokaverkefnið er 30 einingar. Sérhverjum meistaranema er frá upphafi náms úthlutað umsjónarkennara sem leiðbeinir um skipulag námsins. Ef nemandi er ekki komin með leiðbeinanda fyrir lokaverkefni þá ber honum að snúa sér til umsjónarkennara til að fá aðstoð við það
- Val viðfangsefnis er fyrst og fremst á ábyrgð nemandans en í samráði við leiðbeinanda. Þess skal gætt að verkefnið tengist viðfangsefnum viðkomandi námsleiðar
- Meistaranemandi skrifar meistararitgerð skv. sniðmáti sviðsins og ver ritgerðina í meistaravörn (prófi).
- Próf lokaverkefnis skiptist í tvo hluta: Munnlegt próf og opinberan fyrirlestur
- Viðstaddir í munnlegu prófi er nemandi, leiðbeinandi, prófdómari og meðlimir meistaranámsnefndar. Nemandinn heldur stutta kynningu um verkefnið sitt.
- Nemandinn skilar meistararitgerð og veggspjaldi.
- Samkvæmt reglum meistaranám sviðsins þurfa allir nemendur sem hyggjast brautskrást frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði að halda opinberan fyrirlestur um lokaverkefnið sitt.
- Skil þarf rafrænu eintaki af lokaverkefni í Skemmuna sem er stafrænt varðveislusafn lokaverkefna við alla háskóla á Íslandi.
- Samkvæmt reglum Háskóla Íslands eiga allar MS ritgerðir að vera opnar eftir að þeim hefur verið skilað inn á skemmuna.
Hæfniviðmið:
Að MS-ritgerð lokinni á nemandi að geta:
- Mótað verkfræðilegt hönnunarverkefni/rannsóknarspurningu
- Greint og leyst verkfræðileg verkefni á sérhæfðu sviði.
- Framkvæmt vandaða heimildaöflun og heimildarýni.
- Sýnt frumkvæði og sjálfstæða skapandi hugsun.
- Nýtt hefðbundnar aðferðir til þess að svara tiltekinni rannsóknarspurningu
- Dregið saman þekkingu á fræðasviðinu og unnið rannsókn sem felur í sér framlag til þess
- Unnið úr niðurstöðum, greint óvissuþætti og takmarkanir og túlkað niðurstöður.
- Metið umfang rannsóknarefnis og skipulagt vinnu sína í samræmi við það
- Sett fram rannsóknaniðurstöður, rökstutt þær og tengt við stöðu þekkingarinnar á fræðasviðinu
Aðgerðagreining 2 (IÐN508M)
Í námskeiðinu er nemendum kynnt hvernig gera á skipulega mynd af ákvörðunar- og bestunarverkefnum í aðgerðagreiningu. Að námskeiði loknu eiga nemendur að hafa færni í að setja upp, greina og leysa stærðfræðileg líkön sem standa fyrir raunhæfum verkefnum og hvernig meta eigi lausn þeirra á gagnrýninn hátt. Tekin er fyrir heiltölu og slembin verkefni (e. Integer Programming and Stochastic Programming). Nemendur kynnast líkangerð með Python.
Vöruþróun og hönnun framleiðslukerfa (IÐN509M)
Markmiðið með námskeiðinu er að undirbúa nemendur til þátttöku í vöruþróun og hönnun framleiðslukerfa. Farið verður í vöruþróunarferlið og einstaka þætti þess, með sérstakri áherslu á framleiðanleika og hönnun framleiðslukerfa (flæði, útlagning, efnisflæði og geymslu). Lögð er áhersla á notkun ferla- og kerfisgreininga og reiknilíkana við ákvarðanatöku.
Vörustjórnun og umhverfismál (IÐN510M)
Tilgangur námskeiðsins er að fara í gegnum grundvallaratriði lokistik (vörustjórnunar), stjórnun aðfangakeðja og áhrif þeirra á umhverfið. Námskeiðið er í raun þríþætt þar sem byrjað er á að fara í gegnum þá þætti sem snúa að innkaupum á vörum og þjónustu ásamt stjórnun birgða. Því næst er tekið á þeim þáttum sem snúa að flutningum og dreifingu. Að lokum er áhrifum aðfangakeðja á umhverfi gert greinagóð skil og öllum þremur þáttunum steypt saman í eina heild sem styður sjálfbærni.
Námskeiðið er kennt með því fyrirkomulagi að haldnir eru fyrirlestrar til að útskýra fræðilega undirstöðu greinarinnar en til að fá aukinn skilning á einstökum þáttum verða reiknuð dæmi sem skila þarf inn til yfirferðar. Samhliða fyrirlestrum og dæmatímum verður unnið með fyrirtækjaspil í hópum auk þess að spila „The Beer game“ - þar sem þáttakendur leika hlutverk fyrirtækja sem og taka þátt í raunhæfum hlutverkum stjórnenda.
Nýsköpun og sprotaþróun (IÐN121F)
Í námskeiðinu vinna nemendur að þróun á sprotaverkefnum frá hugmynd til afurðar. Lögð er áhersla á hagnýta vinnu við raunveruleg viðfangsefni þar sem nemendur beita notendamiðuðum aðferðum, vinna með viðskiptalíkön og gera fjölbreyttar greiningar og áætlanir. Námskeiðið byggir mikið á vinnustofum og samvinnu milli nemenda með ólíkan faglegan bakgrunn. Áhersla er á gagnrýna greiningu á tækifærum til nýsköpunar og frumkvöðlastarfs, skapandi lausnaleit og þróun hugmynda út frá þörfum notenda. Nemendur öðlast hæfni í aðferðum við að prófa og miðla hugmyndum og lausnum og kynnast hagnýtum og samfélagslegum áhrifum nýsköpunar á breiðum grunni. Námskeiðið hentar nemendum sem vilja efla frumkvöðlahugsun og læra að beita aðferðum nýsköpunar, hvort sem er innan stofnana, starfandi fyrirtækja eða sem sjálfstæðir frumkvöðlar.
Verkefni í Kerfishugsun (IÐN127F)
Markmiðið með námskeiðinu er að æfa nemendur í að beita fræðasviðum iðnaðarverkfræðinnar við að leysa hagnýt verkefni.
Verkefni í Nýsköpunarstjórnun (IÐN132F)
Markmiðið með námskeiðinu er að æfa nemendur í að beita fræðasviðum iðnaðarverkfræðinnar við að leysa hagnýt verkefni.
Verkefni í Tæknistjórnun (IÐN133F)
Markmiðið með námskeiðinu er að æfa nemendur í að beita fræðasviðum iðnaðarverkfræðinnar við að leysa hagnýt verkefni.
Gæðastjórnun (IÐN101M)
Markmið: Nemendur fái skilning á uppruna og þróun gæðastjórnunar og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta byggt upp stjórnkerfi á grundvelli alþjóðlegs gæðastjórnunarstaðals. Í námskeiðinu er meðal annars fjallað um gæðahugtakið, innri og ytri viðskiptavini, gæðabrag, umbótaferli, liðsvinnu, gæðakostnað og gæðahringhrás og samhengi gæðastjórnunar og hönnunar og notkun tölfræði í gæðastjórnun. Sérstök áhersla er lögð á umfjöllun um ISO9001 gæðastaðalinn og nemendur fást við hann í hópvinnu með því að skoða kröfur hans í samhengi við starfandi fyrirtæki.
Reiknigreind (IÐN102M)
Við hönnun á greind kerfi er þörf fyrir sjálfvirk kerfi sem læra að taka góðar ákvarðanir út frá eigin reynslu. Í námskeiðinu er kynnt fyrir nemendum styrkingalærdómur (e. reinforcement learning), reiknifræðileg nálgun þar sem kerfi endurbætast sjálfkrafa með gagnvirkni og umbun—án beinnar leiðsagnar. Fjallað er um Markov-ákvörðunarferli, kvik-bestun (e. dynamic programming), Monte Carlo aðferðir, bestun á stefnu (e. policy optimization), áætlanagerð, leitaraðferðir og djúp tauganet sem nálgunarlíkön. Námskeiðið sameinar fræðilega umfjöllun og verkefnavinnu þar sem nemendur fá tækifæri til að móta, greina og leysa stærðfræðileg líkön fyrir ákvörðunarverkefni. Jafnframt er lögð áhersla á ítrunarferli og gagnrýna umræðu um hvað það þýðir að reiknirit læri og hvaða áhrif sjálfstæð reiknigreind gæti haft á vísindi og samfélag.
Mannlegir þættir í verkfræðilegri hönnun (IÐN128F)
Námskeiðið veitir yfirlit yfir mannlega þætti sem skipta máli við hönnun vara (e. products). Markmiðið er að nýta upplýsingarnar til að hanna vöru, ferli, kerfi eða umhverfi sem lágmarka mannleg mistök og eykur framleiðni. Á sama tíma er markmiðið að hámarka öryggi, heilsu og þægindi notenda og rekstraraðila. Til að ná þessu, þarf að styðjast við sálfræðilegar og lífeðlisfræðilegar aðferðir til að ákvarða mannlega eiginleika (getu, takmarkanir og hegðun). Meðal efnis sem fjallað verður um í námskeiðinu eru notendaprófanir, sáleðlisfræðileg próf, sálhljóðfræði, mannfræðilegar mælingar og líkamleg, vitsmunaleg og skipulagsleg vinnuvistfræði.
Rýmishljóðhönnun (IÐN129F)
Námskeiðið veitir yfirlit yfir sýndarhljóðvist (e. virtual acoustics) sem er einnig þekkt sem þrívíddarhljóð, þrívíddarhljóð, tvísýnt hljóð eða rýmisbundið hljóð. Efni námskeiðsins kemur frá mörgum undirgreinum hljóðfræði, þar á meðal sálhljóðfræði , efnislegri hljóðfræði, merkjavinnslu, virkri hljóðstýringu, byggingarhljóðvist, hljóðverkfræði og reiknilegri hljóðfræði.
Meðal efnis sem fjallað verður um eru líkamstengd yfirfærsluföll (HRTFs); grunnþættir sálhljóðfræði þrívíddarhljóða; „stereo tvípólinn“; hljóðmyndun (þar á meðal endurómunaráhrif); sýndarhljóðkerfi; lágmörkun milliheyrslu; ambisonics; staðbundið hljóðmyndunarferli; fjölrása hljóð; 3D líkanagerð og forrit tengd hljóðvinnslu.
Stjórnun sjálfbærra aðfangakeðja (IÐN130F)
Í námskeiðinu er lögð áhersla á að nemendur öðlist þekkingu í sjálfbærri stjórnun aðfangakeðja. Farið verður yfir mismunandi mismunandi þætti logistík út frá sjónarhóli sjálfbærni, allt frá vali á birgjum, innkaupum, birgðastjórnunar, flutninga og dreifingar auk áhrifa hringrásarhagkerfis á sjálfbærni, o.fl. Lögð er áhersla á nýsköpun þekkingar á afmörkuðu sviði vörustjórnunar með vali á verkefni sem unnið er að og ræðst af áhuga nemenda sem er gert kleift að vinna hópverkefni sem tengjast völdu sviði. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, málstofum og verkefnavinnu þar sem unnið er að raunhæfu verkefni, oft beint tengt fyrirtækjum og þeirra starfsemi. Námsmat byggir á símati og skil á verkefni.
Stefnumótun í aðfangakeðjum (IÐN131F)
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum yfirgripsmikla þekkingu á stefnumótandi stjórnun á rekstrar- og aðfangakeðjum í skipuheildum mismunandi geira, bæði stofnana og fyritækja. Í námskeiðinu er raunveruleg dæmi notuð til að greina áhrif mismunandi aðferða á starfsemina. Mismunandi verkfæri eru notuð til að greina aðstæður og framtíðar uppsetningu valinnar aðfangakeðju, þar á meðal SCOR líkanið, SVÓT greiningu, virðisstraumagreiningu, almenna ferlagreiningu, o.s.frv. Þetta verður gert í hópvinnu og inniheldur fjölda málstofa og verkefna. Eftir að hafa staðist námskeiðið á nemandi að hafa þekkingu til að greina skipuheildir auk þess að hanna og stjórna aðfangakeðjur. Námsmat byggir á símati, skil á verkefnum og útkomu úr málstofum.
Hönnun og bestun (VÉL113F)
Markmið: Að gera nemendur færa um að beita aðferðum bestunarfræðinnar við hönnun. Námsefni: Línuleg og ólínuleg bestun. Þróunaraðferðir, tauganet og óskýr rökfræði við verkfræðilega hönnun. Hönnun dreifikerfa, framleiðslukerfa, vélbúnaðar og burðarvirkja.
Lokaverkefni (IÐN441L)
- Efni lokaverkefnis skal valið í samráði við leiðbeinanda (leiðbeinendur) úr hópi fastra kennara deildar. Lokaverkefnið er 30 einingar. Sérhverjum meistaranema er frá upphafi náms úthlutað umsjónarkennara sem leiðbeinir um skipulag námsins. Ef nemandi er ekki komin með leiðbeinanda fyrir lokaverkefni þá ber honum að snúa sér til umsjónarkennara til að fá aðstoð við það
- Val viðfangsefnis er fyrst og fremst á ábyrgð nemandans en í samráði við leiðbeinanda. Þess skal gætt að verkefnið tengist viðfangsefnum viðkomandi námsleiðar
- Meistaranemandi skrifar meistararitgerð skv. sniðmáti sviðsins og ver ritgerðina í meistaravörn (prófi).
- Próf lokaverkefnis skiptist í tvo hluta: Munnlegt próf og opinberan fyrirlestur
- Viðstaddir í munnlegu prófi er nemandi, leiðbeinandi, prófdómari og meðlimir meistaranámsnefndar. Nemandinn heldur stutta kynningu um verkefnið sitt.
- Nemandinn skilar meistararitgerð og veggspjaldi.
- Samkvæmt reglum meistaranám sviðsins þurfa allir nemendur sem hyggjast brautskrást frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði að halda opinberan fyrirlestur um lokaverkefnið sitt.
- Skil þarf rafrænu eintaki af lokaverkefni í Skemmuna sem er stafrænt varðveislusafn lokaverkefna við alla háskóla á Íslandi.
- Samkvæmt reglum Háskóla Íslands eiga allar MS ritgerðir að vera opnar eftir að þeim hefur verið skilað inn á skemmuna.
Hæfniviðmið:
Að MS-ritgerð lokinni á nemandi að geta:
- Mótað verkfræðilegt hönnunarverkefni/rannsóknarspurningu
- Greint og leyst verkfræðileg verkefni á sérhæfðu sviði.
- Framkvæmt vandaða heimildaöflun og heimildarýni.
- Sýnt frumkvæði og sjálfstæða skapandi hugsun.
- Nýtt hefðbundnar aðferðir til þess að svara tiltekinni rannsóknarspurningu
- Dregið saman þekkingu á fræðasviðinu og unnið rannsókn sem felur í sér framlag til þess
- Unnið úr niðurstöðum, greint óvissuþætti og takmarkanir og túlkað niðurstöður.
- Metið umfang rannsóknarefnis og skipulagt vinnu sína í samræmi við það
- Sett fram rannsóknaniðurstöður, rökstutt þær og tengt við stöðu þekkingarinnar á fræðasviðinu
Áætlanagerð (IÐN611M)
Tilgangur námskeiðs er að nemendur öðlist skilning á gerð aðgerðaáætlana í bæði framleiðslustjórnun og þjónustu. Nemendur nái valdi á bæði fræðilegum og hagnýtum aðferðum sem notaðar eru við gerð aðgerðaáætlana. Í framleiðslustjórnunarhluta er fjallað er um gerð spálíkana um eftirspurn, hvernig þau drífa gerð afurðaáætlana (bæði vörur og íhlutir), hvernig verkáætlanir og verkröðun deila auðlindum og hvernig aðgerðaáætlanir eru notaðar til að jafna breytileika. Í þjónustuáætlunum er fjallað um þjónustustig, notkun aðgerðaáætlana í þjónustu, vaktaáætlanir og fleira.
Hönnun þjónustukerfa (IÐN612M)
Markmið námskeiðsins er að undirbúa nemendur til þátttöku í hönnun þjónustukerfa. Farið verður í ferli þjónustuhönnunar. Skilgreindur rammi þjónustu, hvernig á að þjónusta fólk, hvernig fer afhending á þjónustu fram og hvernig er þjónusta hönnuð. Farið verður í einstaka þætti þessara hluta, með sérstakri áherslu á þarfagreiningu og hönnun ferla og kerfa til að mæta þörfum viðskiptavina. Einnig er farið í vöru-þjónustukerfi, þjónustuvæðingu og upplifunarhagkerfið. Lögð er áhersla á fjölbreyttar aðferðir við kortlagninu þarfa (vinnustofur, rannsóknir), skapandi vinnubrögð, notkun frumgerða og kynninga.
Verkefni í Aðgerðagreiningu (IÐN231F)
Markmiðið með námskeiðinu er að æfa nemendur í að beita fræðasviðum iðnaðarverkfræðinnar við að leysa hagnýt verkefni.
Verkefni í Aðgerðastjórnun (IÐN232F)
Markmiðið með námskeiðinu er að æfa nemendur í að beita fræðasviðum iðnaðarverkfræðinnar við að leysa hagnýt verkefni.
Tækninýsköpun (IÐN202M)
Markmiðið með námskeiðinu er að þjálfa nemendur í að skilja og spá fyrir um samspil tækniþróunar og nýsköpunar. Sérstök áhersla er á að geta gert grein fyrir og útskýrt grundvallaratriði tæknilegrar nýsköpunar og að setja fram rökstudda spá um tækifæri til nýsköpunar á tæknisviði sem er í mótun. Námið fer fyrst og fremst fram með aðstoð gervigreindar (stór mállíkön) þar sem niðurstöður gervigreindarinnar eru rýndar á skipulegan hátt m.a. með astoð gagna og með hjálp frá hópnum, kennara og sérfræðingum.
Nýsköpun og viðskiptaþróun í framkvæmd (II) (IÐN216F)
Námskeiðið er framhald af námskeiðinu IÐN222F Nýsköpun og viðskiptaþróun í framkvæmd (I)“ og er kennt á vikum 8-14 á vormisseri. Þessi hluti námskeiðsins felst í ítarlegri þróun viðskiptalíkans fyrir tiltekið viðskiptatækifæri. Sú þróun fer fram í hópum þar sem áhersla er lögð á að leiða saman einstaklinga með bakgrunn í viðskiptum og stjórnun og einstaklinga með fagþekkingu á því sviði nýsköpunar sem viðskiptatækifærið byggir á. Uppruni verkefnanna getur verið í sjálfstæðu viðskiptatækifæri eða innan samstarfsfyrirtækja. Í báðum tilvikum er lögð áhersla á að verkefnin feli í sér afurðaþróun byggða á fagþekkingu þar sem viðskiptalegar forsendur tækifærisins og prófun þeirra eru í forgrunni.
Nýsköpun og sprotaþróun (IÐN222F)
Í námskeiðinu vinna nemendur að þróun á sprotaverkefnum frá hugmynd til afurðar. Lögð er áhersla á hagnýta vinnu við raunveruleg viðfangsefni þar sem nemendur beita notendamiðuðum aðferðum, vinna með viðskiptalíkön og gera fjölbreyttar greiningar og áætlanir. Námskeiðið byggir mikið á vinnustofum og samvinnu milli nemenda með ólíkan faglegan bakgrunn. Áhersla er á gagnrýna greiningu á tækifærum til nýsköpunar og frumkvöðlastarfs, skapandi lausnaleit og þróun hugmynda út frá þörfum notenda. Nemendur öðlast hæfni í aðferðum við að prófa og miðla hugmyndum og lausnum og kynnast hagnýtum og samfélagslegum áhrifum nýsköpunar á breiðum grunni. Námskeiðið hentar nemendum sem vilja efla frumkvöðlahugsun og læra að beita aðferðum nýsköpunar, hvort sem er innan stofnana, starfandi fyrirtækja eða sem sjálfstæðir frumkvöðlar.
Tækniþróun og nýsköpun (IÐN227F)
Markmiðið með námskeiðinu er að veita nemendum innsýn í rannsóknir um samspil tækniþróunar og nýsköpunar í samfélaginu. Farið verður yfir helstu hugtök, kenningar og álitamál á þessu sviði, nýlegar fræðigreinar rýndar og fjallað um þau mál sem eru í brennidepli á hverjum tíma. Sérstök áhersla verður lögð á notkun hermilíkana við rannsóknir á þessu sviði.
Árangursstjórnun (IÐN229F)
Í námskeiðinu eru hinar ýmsu hliðar árangurstjórnunar kynntar. Tveir meginpólar eru í námskeiðinu, árangursstjórnun séð frá viðskiptalegum sjónarhóli og árangursmælingar séð frá rekstrarfræðilegum sjónarhóli. Farið verður í grunn hugmyndafræði árangursstjórnunar, innleiðingarferli, helstu tæki og tól og svo neikvæðar hliðar slíkra kerfa. Námskeiðið inniheldur m.a. : lykilmælingar (KPI‘s), kerfisnálgun (PMS), framleiðni (productivity), árangursmælingar (performance measures) og hönnun mælinga. Nemendur kynnast framkvæmd árangurstjórnunar í íslenskum fyrirtækjum og stofnunum og vinna að raunhæfum verkefnum.
Framleiðni þekkingarstarfsmanna (IÐN230F)
Markmiðið með námskeiðinu er að veita nemendum innsýn í rannsóknir um framleiðni þekkingarstarfsmanna. Farið verður yfir helstu hugtök, kenningar og álitamál á þessu sviði, nýlegar fræðigreinar rýndar og fjallað um þau mál sem eru í brennidepli á hverjum tíma. Framleiðni þekkingarstarfsmann verður sett í samhengi við framleiðni verkamanna og sjálfvirknivæðingu nútímans.
Hermun (IÐN403M)
Farið er yfir stakræna atburða hermun, tölfræðilega líkanagerð, hönnun hermilíkana, gerð tilrauna, prófanir líkana og túlkun niðurstaðna hermana. Fjallað er um sennileikamat á líkindadreifingum út frá mælingum. Námskeiðið kynnir auk þess fræðin á bak við gerð slembuframkallara og prófun þeirra. Farið er í grunnforritun á hermilíkönum og sérhæfðir hermihugbúnaðir kynntir. Nemendur vinna raunhæft hermiverkefni þar sem áhersla er lögð á hönnun og greiningu á framleiðslukerfi eða þjónustukerfi.
Straumlínustjórnun - Virði, sóun og umbótamenning (IÐN601M)
Á námskeiðinu er farið ítarlega í aðferðir straumlínustjórnunar (Lean Management). Markmið Lean er að hámarka virði til viðskiptavina með því að vinna að stöðugum umbótum (Kaizen) á framleiðslu- og þjónustuferli, staðla vinnubrögð og jafna álag á vélar og fólk (Heijunka). Nemendur læra hvernig hægt er að beita aðferðarfræðinni til að hámarka gæði, lágmarka framleiðslutíma og minnka kostnað. Farið er yfir hvernig stöðugt flæði (Just-in-time) styttir framleiðslutímann ásamt því að auðkenna samstundis þau vandamál sem koma upp í ferlinu (Jidoka). Nemendur læra að teikna upp virðisstraum (value stream mapping) fyrir framleiðslu- og þjónustuferli, rótargreiningu vandamála ásamt öðrum þekktum umbótatólum svo sem 5S, Kaizen Blitz, A3, sýnilegri stjórnun, Kanban og SMED. Fjallað verður um fyrirtæki sem hafa tileinkað sér Lean með góðum árangri þar á meðal Toyota, Intel og Nike
Viðskiptagreind (IÐN610M)
Viðskiptagreind nær yfir aðferðir og tækni sem fyrirtæki nota til að safna gögnum, túlka þau og nýta við ákvarðanatöku. Í þessu námskeiði er farið út fyrir skýrslur og mælaborð og sýnt hvernig gervigreind er notuð til að öðlast innsýn í starfsemina og útbúa tillögur að úrbótum. Námskeiðið samanstendur af fimm námseiningum: 1) Aðhvarfsgreining og flokkun sem byggir á merktum gögnum, 2) flokkun hálfmerktra og ómerktra gagna á grundvelli þess hversu lík þau eru, 3) greining atburða í ferlum, 4) málvinnsla og 5) gagnasiðfræði. Í hverri námseiningu undirbúa nemendur sig fyrir kennslustundir og vinna saman í teymum við að leysa raunhæf verkefni sem fylgt er eftir með einstaklingsmati.
- Haust
- VON001FLokaverkefni: verkefnastjórnun, ritfærni og kynningSkyldunámskeið4Skyldunámskeið á námsleiðinni4 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Námskeiðið fjallar um inngang að vísindalegum aðferðum, siðfræði vísinda í háskólasamfélaginu. Einnig verður farið í hlutverk nemanda, leiðbeinanda og prófdómara. Tekin verða fyrir árangursrík og heiðarleg samskipti sem og gerð fræðilegrar umfjöllunar með notkun gagnasafna og réttri heimildanotkun. Gerð rannsóknaráætlunar og rannsóknaaðferðir verða kynntar og einnig hagnýt framsetning tölulegra gagna. Farið verður í verklag við gerð fræðiritgerða, hvernig skipta á stóru verkefni niður í smærri einingar, gerð áætlunar og tímalínu og hvernig á að fylgja þeim. Lífið eftir brautskráningu og vinnumarkaðurinn.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsing- Efni lokaverkefnis skal valið í samráði við leiðbeinanda (leiðbeinendur) úr hópi fastra kennara deildar. Lokaverkefnið er 30 einingar. Sérhverjum meistaranema er frá upphafi náms úthlutað umsjónarkennara sem leiðbeinir um skipulag námsins. Ef nemandi er ekki komin með leiðbeinanda fyrir lokaverkefni þá ber honum að snúa sér til umsjónarkennara til að fá aðstoð við það
- Val viðfangsefnis er fyrst og fremst á ábyrgð nemandans en í samráði við leiðbeinanda. Þess skal gætt að verkefnið tengist viðfangsefnum viðkomandi námsleiðar
- Meistaranemandi skrifar meistararitgerð skv. sniðmáti sviðsins og ver ritgerðina í meistaravörn (prófi).
- Próf lokaverkefnis skiptist í tvo hluta: Munnlegt próf og opinberan fyrirlestur
- Viðstaddir í munnlegu prófi er nemandi, leiðbeinandi, prófdómari og meðlimir meistaranámsnefndar. Nemandinn heldur stutta kynningu um verkefnið sitt.
- Nemandinn skilar meistararitgerð og veggspjaldi.
- Samkvæmt reglum meistaranám sviðsins þurfa allir nemendur sem hyggjast brautskrást frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði að halda opinberan fyrirlestur um lokaverkefnið sitt.
- Skil þarf rafrænu eintaki af lokaverkefni í Skemmuna sem er stafrænt varðveislusafn lokaverkefna við alla háskóla á Íslandi.
- Samkvæmt reglum Háskóla Íslands eiga allar MS ritgerðir að vera opnar eftir að þeim hefur verið skilað inn á skemmuna.
Hæfniviðmið:
Að MS-ritgerð lokinni á nemandi að geta:
- Mótað verkfræðilegt hönnunarverkefni/rannsóknarspurningu
- Greint og leyst verkfræðileg verkefni á sérhæfðu sviði.
- Framkvæmt vandaða heimildaöflun og heimildarýni.
- Sýnt frumkvæði og sjálfstæða skapandi hugsun.
- Nýtt hefðbundnar aðferðir til þess að svara tiltekinni rannsóknarspurningu
- Dregið saman þekkingu á fræðasviðinu og unnið rannsókn sem felur í sér framlag til þess
- Unnið úr niðurstöðum, greint óvissuþætti og takmarkanir og túlkað niðurstöður.
- Metið umfang rannsóknarefnis og skipulagt vinnu sína í samræmi við það
- Sett fram rannsóknaniðurstöður, rökstutt þær og tengt við stöðu þekkingarinnar á fræðasviðinu
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðarNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er nemendum kynnt hvernig gera á skipulega mynd af ákvörðunar- og bestunarverkefnum í aðgerðagreiningu. Að námskeiði loknu eiga nemendur að hafa færni í að setja upp, greina og leysa stærðfræðileg líkön sem standa fyrir raunhæfum verkefnum og hvernig meta eigi lausn þeirra á gagnrýninn hátt. Tekin er fyrir heiltölu og slembin verkefni (e. Integer Programming and Stochastic Programming). Nemendur kynnast líkangerð með Python.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðIÐN509MVöruþróun og hönnun framleiðslukerfaSkyldunámskeið6Skyldunámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmiðið með námskeiðinu er að undirbúa nemendur til þátttöku í vöruþróun og hönnun framleiðslukerfa. Farið verður í vöruþróunarferlið og einstaka þætti þess, með sérstakri áherslu á framleiðanleika og hönnun framleiðslukerfa (flæði, útlagning, efnisflæði og geymslu). Lögð er áhersla á notkun ferla- og kerfisgreininga og reiknilíkana við ákvarðanatöku.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingTilgangur námskeiðsins er að fara í gegnum grundvallaratriði lokistik (vörustjórnunar), stjórnun aðfangakeðja og áhrif þeirra á umhverfið. Námskeiðið er í raun þríþætt þar sem byrjað er á að fara í gegnum þá þætti sem snúa að innkaupum á vörum og þjónustu ásamt stjórnun birgða. Því næst er tekið á þeim þáttum sem snúa að flutningum og dreifingu. Að lokum er áhrifum aðfangakeðja á umhverfi gert greinagóð skil og öllum þremur þáttunum steypt saman í eina heild sem styður sjálfbærni.
Námskeiðið er kennt með því fyrirkomulagi að haldnir eru fyrirlestrar til að útskýra fræðilega undirstöðu greinarinnar en til að fá aukinn skilning á einstökum þáttum verða reiknuð dæmi sem skila þarf inn til yfirferðar. Samhliða fyrirlestrum og dæmatímum verður unnið með fyrirtækjaspil í hópum auk þess að spila „The Beer game“ - þar sem þáttakendur leika hlutverk fyrirtækja sem og taka þátt í raunhæfum hlutverkum stjórnenda.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu vinna nemendur að þróun á sprotaverkefnum frá hugmynd til afurðar. Lögð er áhersla á hagnýta vinnu við raunveruleg viðfangsefni þar sem nemendur beita notendamiðuðum aðferðum, vinna með viðskiptalíkön og gera fjölbreyttar greiningar og áætlanir. Námskeiðið byggir mikið á vinnustofum og samvinnu milli nemenda með ólíkan faglegan bakgrunn. Áhersla er á gagnrýna greiningu á tækifærum til nýsköpunar og frumkvöðlastarfs, skapandi lausnaleit og þróun hugmynda út frá þörfum notenda. Nemendur öðlast hæfni í aðferðum við að prófa og miðla hugmyndum og lausnum og kynnast hagnýtum og samfélagslegum áhrifum nýsköpunar á breiðum grunni. Námskeiðið hentar nemendum sem vilja efla frumkvöðlahugsun og læra að beita aðferðum nýsköpunar, hvort sem er innan stofnana, starfandi fyrirtækja eða sem sjálfstæðir frumkvöðlar.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt seinni hluta misserisEkki kennt á misserinuIÐN127FVerkefni í KerfishugsunValnámskeið7,5Valnámskeið á námsleiðinni7,5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmiðið með námskeiðinu er að æfa nemendur í að beita fræðasviðum iðnaðarverkfræðinnar við að leysa hagnýt verkefni.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erSjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt seinni hluta misserisEkki kennt á misserinuIÐN132FVerkefni í NýsköpunarstjórnunValnámskeið7,5Valnámskeið á námsleiðinni7,5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmiðið með námskeiðinu er að æfa nemendur í að beita fræðasviðum iðnaðarverkfræðinnar við að leysa hagnýt verkefni.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erSjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt fyrri hluta misserisEkki kennt á misserinuIÐN133FVerkefni í TæknistjórnunValnámskeið7,5Valnámskeið á námsleiðinni7,5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmiðið með námskeiðinu er að æfa nemendur í að beita fræðasviðum iðnaðarverkfræðinnar við að leysa hagnýt verkefni.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erSjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt seinni hluta misserisNámskeiðslýsingMarkmið: Nemendur fái skilning á uppruna og þróun gæðastjórnunar og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta byggt upp stjórnkerfi á grundvelli alþjóðlegs gæðastjórnunarstaðals. Í námskeiðinu er meðal annars fjallað um gæðahugtakið, innri og ytri viðskiptavini, gæðabrag, umbótaferli, liðsvinnu, gæðakostnað og gæðahringhrás og samhengi gæðastjórnunar og hönnunar og notkun tölfræði í gæðastjórnun. Sérstök áhersla er lögð á umfjöllun um ISO9001 gæðastaðalinn og nemendur fást við hann í hópvinnu með því að skoða kröfur hans í samhengi við starfandi fyrirtæki.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingVið hönnun á greind kerfi er þörf fyrir sjálfvirk kerfi sem læra að taka góðar ákvarðanir út frá eigin reynslu. Í námskeiðinu er kynnt fyrir nemendum styrkingalærdómur (e. reinforcement learning), reiknifræðileg nálgun þar sem kerfi endurbætast sjálfkrafa með gagnvirkni og umbun—án beinnar leiðsagnar. Fjallað er um Markov-ákvörðunarferli, kvik-bestun (e. dynamic programming), Monte Carlo aðferðir, bestun á stefnu (e. policy optimization), áætlanagerð, leitaraðferðir og djúp tauganet sem nálgunarlíkön. Námskeiðið sameinar fræðilega umfjöllun og verkefnavinnu þar sem nemendur fá tækifæri til að móta, greina og leysa stærðfræðileg líkön fyrir ákvörðunarverkefni. Jafnframt er lögð áhersla á ítrunarferli og gagnrýna umræðu um hvað það þýðir að reiknirit læri og hvaða áhrif sjálfstæð reiknigreind gæti haft á vísindi og samfélag.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðIÐN128FMannlegir þættir í verkfræðilegri hönnunValnámskeið7,5Valnámskeið á námsleiðinni7,5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið veitir yfirlit yfir mannlega þætti sem skipta máli við hönnun vara (e. products). Markmiðið er að nýta upplýsingarnar til að hanna vöru, ferli, kerfi eða umhverfi sem lágmarka mannleg mistök og eykur framleiðni. Á sama tíma er markmiðið að hámarka öryggi, heilsu og þægindi notenda og rekstraraðila. Til að ná þessu, þarf að styðjast við sálfræðilegar og lífeðlisfræðilegar aðferðir til að ákvarða mannlega eiginleika (getu, takmarkanir og hegðun). Meðal efnis sem fjallað verður um í námskeiðinu eru notendaprófanir, sáleðlisfræðileg próf, sálhljóðfræði, mannfræðilegar mælingar og líkamleg, vitsmunaleg og skipulagsleg vinnuvistfræði.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erSjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuIÐN129FRýmishljóðhönnunValnámskeið7,5Valnámskeið á námsleiðinni7,5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið veitir yfirlit yfir sýndarhljóðvist (e. virtual acoustics) sem er einnig þekkt sem þrívíddarhljóð, þrívíddarhljóð, tvísýnt hljóð eða rýmisbundið hljóð. Efni námskeiðsins kemur frá mörgum undirgreinum hljóðfræði, þar á meðal sálhljóðfræði , efnislegri hljóðfræði, merkjavinnslu, virkri hljóðstýringu, byggingarhljóðvist, hljóðverkfræði og reiknilegri hljóðfræði.
Meðal efnis sem fjallað verður um eru líkamstengd yfirfærsluföll (HRTFs); grunnþættir sálhljóðfræði þrívíddarhljóða; „stereo tvípólinn“; hljóðmyndun (þar á meðal endurómunaráhrif); sýndarhljóðkerfi; lágmörkun milliheyrslu; ambisonics; staðbundið hljóðmyndunarferli; fjölrása hljóð; 3D líkanagerð og forrit tengd hljóðvinnslu.
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuIÐN130FStjórnun sjálfbærra aðfangakeðjaValnámskeið7,5Valnámskeið á námsleiðinni7,5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er lögð áhersla á að nemendur öðlist þekkingu í sjálfbærri stjórnun aðfangakeðja. Farið verður yfir mismunandi mismunandi þætti logistík út frá sjónarhóli sjálfbærni, allt frá vali á birgjum, innkaupum, birgðastjórnunar, flutninga og dreifingar auk áhrifa hringrásarhagkerfis á sjálfbærni, o.fl. Lögð er áhersla á nýsköpun þekkingar á afmörkuðu sviði vörustjórnunar með vali á verkefni sem unnið er að og ræðst af áhuga nemenda sem er gert kleift að vinna hópverkefni sem tengjast völdu sviði. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, málstofum og verkefnavinnu þar sem unnið er að raunhæfu verkefni, oft beint tengt fyrirtækjum og þeirra starfsemi. Námsmat byggir á símati og skil á verkefni.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erSjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að veita þátttakendum yfirgripsmikla þekkingu á stefnumótandi stjórnun á rekstrar- og aðfangakeðjum í skipuheildum mismunandi geira, bæði stofnana og fyritækja. Í námskeiðinu er raunveruleg dæmi notuð til að greina áhrif mismunandi aðferða á starfsemina. Mismunandi verkfæri eru notuð til að greina aðstæður og framtíðar uppsetningu valinnar aðfangakeðju, þar á meðal SCOR líkanið, SVÓT greiningu, virðisstraumagreiningu, almenna ferlagreiningu, o.s.frv. Þetta verður gert í hópvinnu og inniheldur fjölda málstofa og verkefna. Eftir að hafa staðist námskeiðið á nemandi að hafa þekkingu til að greina skipuheildir auk þess að hanna og stjórna aðfangakeðjur. Námsmat byggir á símati, skil á verkefnum og útkomu úr málstofum.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erSjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuVÉL113FHönnun og bestunValnámskeið7,5Valnámskeið á námsleiðinni7,5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið: Að gera nemendur færa um að beita aðferðum bestunarfræðinnar við hönnun. Námsefni: Línuleg og ólínuleg bestun. Þróunaraðferðir, tauganet og óskýr rökfræði við verkfræðilega hönnun. Hönnun dreifikerfa, framleiðslukerfa, vélbúnaðar og burðarvirkja.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
Námskeiðslýsing- Efni lokaverkefnis skal valið í samráði við leiðbeinanda (leiðbeinendur) úr hópi fastra kennara deildar. Lokaverkefnið er 30 einingar. Sérhverjum meistaranema er frá upphafi náms úthlutað umsjónarkennara sem leiðbeinir um skipulag námsins. Ef nemandi er ekki komin með leiðbeinanda fyrir lokaverkefni þá ber honum að snúa sér til umsjónarkennara til að fá aðstoð við það
- Val viðfangsefnis er fyrst og fremst á ábyrgð nemandans en í samráði við leiðbeinanda. Þess skal gætt að verkefnið tengist viðfangsefnum viðkomandi námsleiðar
- Meistaranemandi skrifar meistararitgerð skv. sniðmáti sviðsins og ver ritgerðina í meistaravörn (prófi).
- Próf lokaverkefnis skiptist í tvo hluta: Munnlegt próf og opinberan fyrirlestur
- Viðstaddir í munnlegu prófi er nemandi, leiðbeinandi, prófdómari og meðlimir meistaranámsnefndar. Nemandinn heldur stutta kynningu um verkefnið sitt.
- Nemandinn skilar meistararitgerð og veggspjaldi.
- Samkvæmt reglum meistaranám sviðsins þurfa allir nemendur sem hyggjast brautskrást frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði að halda opinberan fyrirlestur um lokaverkefnið sitt.
- Skil þarf rafrænu eintaki af lokaverkefni í Skemmuna sem er stafrænt varðveislusafn lokaverkefna við alla háskóla á Íslandi.
- Samkvæmt reglum Háskóla Íslands eiga allar MS ritgerðir að vera opnar eftir að þeim hefur verið skilað inn á skemmuna.
Hæfniviðmið:
Að MS-ritgerð lokinni á nemandi að geta:
- Mótað verkfræðilegt hönnunarverkefni/rannsóknarspurningu
- Greint og leyst verkfræðileg verkefni á sérhæfðu sviði.
- Framkvæmt vandaða heimildaöflun og heimildarýni.
- Sýnt frumkvæði og sjálfstæða skapandi hugsun.
- Nýtt hefðbundnar aðferðir til þess að svara tiltekinni rannsóknarspurningu
- Dregið saman þekkingu á fræðasviðinu og unnið rannsókn sem felur í sér framlag til þess
- Unnið úr niðurstöðum, greint óvissuþætti og takmarkanir og túlkað niðurstöður.
- Metið umfang rannsóknarefnis og skipulagt vinnu sína í samræmi við það
- Sett fram rannsóknaniðurstöður, rökstutt þær og tengt við stöðu þekkingarinnar á fræðasviðinu
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðarNámskeiðslýsingTilgangur námskeiðs er að nemendur öðlist skilning á gerð aðgerðaáætlana í bæði framleiðslustjórnun og þjónustu. Nemendur nái valdi á bæði fræðilegum og hagnýtum aðferðum sem notaðar eru við gerð aðgerðaáætlana. Í framleiðslustjórnunarhluta er fjallað er um gerð spálíkana um eftirspurn, hvernig þau drífa gerð afurðaáætlana (bæði vörur og íhlutir), hvernig verkáætlanir og verkröðun deila auðlindum og hvernig aðgerðaáætlanir eru notaðar til að jafna breytileika. Í þjónustuáætlunum er fjallað um þjónustustig, notkun aðgerðaáætlana í þjónustu, vaktaáætlanir og fleira.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að undirbúa nemendur til þátttöku í hönnun þjónustukerfa. Farið verður í ferli þjónustuhönnunar. Skilgreindur rammi þjónustu, hvernig á að þjónusta fólk, hvernig fer afhending á þjónustu fram og hvernig er þjónusta hönnuð. Farið verður í einstaka þætti þessara hluta, með sérstakri áherslu á þarfagreiningu og hönnun ferla og kerfa til að mæta þörfum viðskiptavina. Einnig er farið í vöru-þjónustukerfi, þjónustuvæðingu og upplifunarhagkerfið. Lögð er áhersla á fjölbreyttar aðferðir við kortlagninu þarfa (vinnustofur, rannsóknir), skapandi vinnubrögð, notkun frumgerða og kynninga.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuIÐN231FVerkefni í AðgerðagreininguValnámskeið7,5Valnámskeið á námsleiðinni7,5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmiðið með námskeiðinu er að æfa nemendur í að beita fræðasviðum iðnaðarverkfræðinnar við að leysa hagnýt verkefni.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erSjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt fyrri hluta misserisEkki kennt á misserinuIÐN232FVerkefni í AðgerðastjórnunValnámskeið7,5Valnámskeið á námsleiðinni7,5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmiðið með námskeiðinu er að æfa nemendur í að beita fræðasviðum iðnaðarverkfræðinnar við að leysa hagnýt verkefni.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erSjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt seinni hluta misserisNámskeiðslýsingMarkmiðið með námskeiðinu er að þjálfa nemendur í að skilja og spá fyrir um samspil tækniþróunar og nýsköpunar. Sérstök áhersla er á að geta gert grein fyrir og útskýrt grundvallaratriði tæknilegrar nýsköpunar og að setja fram rökstudda spá um tækifæri til nýsköpunar á tæknisviði sem er í mótun. Námið fer fyrst og fremst fram með aðstoð gervigreindar (stór mállíkön) þar sem niðurstöður gervigreindarinnar eru rýndar á skipulegan hátt m.a. með astoð gagna og með hjálp frá hópnum, kennara og sérfræðingum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuIÐN216FNýsköpun og viðskiptaþróun í framkvæmd (II)Valnámskeið7,5Valnámskeið á námsleiðinni7,5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið er framhald af námskeiðinu IÐN222F Nýsköpun og viðskiptaþróun í framkvæmd (I)“ og er kennt á vikum 8-14 á vormisseri. Þessi hluti námskeiðsins felst í ítarlegri þróun viðskiptalíkans fyrir tiltekið viðskiptatækifæri. Sú þróun fer fram í hópum þar sem áhersla er lögð á að leiða saman einstaklinga með bakgrunn í viðskiptum og stjórnun og einstaklinga með fagþekkingu á því sviði nýsköpunar sem viðskiptatækifærið byggir á. Uppruni verkefnanna getur verið í sjálfstæðu viðskiptatækifæri eða innan samstarfsfyrirtækja. Í báðum tilvikum er lögð áhersla á að verkefnin feli í sér afurðaþróun byggða á fagþekkingu þar sem viðskiptalegar forsendur tækifærisins og prófun þeirra eru í forgrunni.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt seinni hluta misserisEkki kennt á misserinuIÐN222FNýsköpun og sprotaþróunValnámskeið7,5Valnámskeið á námsleiðinni7,5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu vinna nemendur að þróun á sprotaverkefnum frá hugmynd til afurðar. Lögð er áhersla á hagnýta vinnu við raunveruleg viðfangsefni þar sem nemendur beita notendamiðuðum aðferðum, vinna með viðskiptalíkön og gera fjölbreyttar greiningar og áætlanir. Námskeiðið byggir mikið á vinnustofum og samvinnu milli nemenda með ólíkan faglegan bakgrunn. Áhersla er á gagnrýna greiningu á tækifærum til nýsköpunar og frumkvöðlastarfs, skapandi lausnaleit og þróun hugmynda út frá þörfum notenda. Nemendur öðlast hæfni í aðferðum við að prófa og miðla hugmyndum og lausnum og kynnast hagnýtum og samfélagslegum áhrifum nýsköpunar á breiðum grunni. Námskeiðið hentar nemendum sem vilja efla frumkvöðlahugsun og læra að beita aðferðum nýsköpunar, hvort sem er innan stofnana, starfandi fyrirtækja eða sem sjálfstæðir frumkvöðlar.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeið kennt seinni hluta misserisEkki kennt á misserinuIÐN227FTækniþróun og nýsköpunValnámskeið7,5Valnámskeið á námsleiðinni7,5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmiðið með námskeiðinu er að veita nemendum innsýn í rannsóknir um samspil tækniþróunar og nýsköpunar í samfélaginu. Farið verður yfir helstu hugtök, kenningar og álitamál á þessu sviði, nýlegar fræðigreinar rýndar og fjallað um þau mál sem eru í brennidepli á hverjum tíma. Sérstök áhersla verður lögð á notkun hermilíkana við rannsóknir á þessu sviði.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erSjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu eru hinar ýmsu hliðar árangurstjórnunar kynntar. Tveir meginpólar eru í námskeiðinu, árangursstjórnun séð frá viðskiptalegum sjónarhóli og árangursmælingar séð frá rekstrarfræðilegum sjónarhóli. Farið verður í grunn hugmyndafræði árangursstjórnunar, innleiðingarferli, helstu tæki og tól og svo neikvæðar hliðar slíkra kerfa. Námskeiðið inniheldur m.a. : lykilmælingar (KPI‘s), kerfisnálgun (PMS), framleiðni (productivity), árangursmælingar (performance measures) og hönnun mælinga. Nemendur kynnast framkvæmd árangurstjórnunar í íslenskum fyrirtækjum og stofnunum og vinna að raunhæfum verkefnum.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erSjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuIÐN230FFramleiðni þekkingarstarfsmannaValnámskeið7,5Valnámskeið á námsleiðinni7,5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmiðið með námskeiðinu er að veita nemendum innsýn í rannsóknir um framleiðni þekkingarstarfsmanna. Farið verður yfir helstu hugtök, kenningar og álitamál á þessu sviði, nýlegar fræðigreinar rýndar og fjallað um þau mál sem eru í brennidepli á hverjum tíma. Framleiðni þekkingarstarfsmann verður sett í samhengi við framleiðni verkamanna og sjálfvirknivæðingu nútímans.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erSjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingFarið er yfir stakræna atburða hermun, tölfræðilega líkanagerð, hönnun hermilíkana, gerð tilrauna, prófanir líkana og túlkun niðurstaðna hermana. Fjallað er um sennileikamat á líkindadreifingum út frá mælingum. Námskeiðið kynnir auk þess fræðin á bak við gerð slembuframkallara og prófun þeirra. Farið er í grunnforritun á hermilíkönum og sérhæfðir hermihugbúnaðir kynntir. Nemendur vinna raunhæft hermiverkefni þar sem áhersla er lögð á hönnun og greiningu á framleiðslukerfi eða þjónustukerfi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðIÐN601MStraumlínustjórnun - Virði, sóun og umbótamenningValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu er farið ítarlega í aðferðir straumlínustjórnunar (Lean Management). Markmið Lean er að hámarka virði til viðskiptavina með því að vinna að stöðugum umbótum (Kaizen) á framleiðslu- og þjónustuferli, staðla vinnubrögð og jafna álag á vélar og fólk (Heijunka). Nemendur læra hvernig hægt er að beita aðferðarfræðinni til að hámarka gæði, lágmarka framleiðslutíma og minnka kostnað. Farið er yfir hvernig stöðugt flæði (Just-in-time) styttir framleiðslutímann ásamt því að auðkenna samstundis þau vandamál sem koma upp í ferlinu (Jidoka). Nemendur læra að teikna upp virðisstraum (value stream mapping) fyrir framleiðslu- og þjónustuferli, rótargreiningu vandamála ásamt öðrum þekktum umbótatólum svo sem 5S, Kaizen Blitz, A3, sýnilegri stjórnun, Kanban og SMED. Fjallað verður um fyrirtæki sem hafa tileinkað sér Lean með góðum árangri þar á meðal Toyota, Intel og Nike
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingViðskiptagreind nær yfir aðferðir og tækni sem fyrirtæki nota til að safna gögnum, túlka þau og nýta við ákvarðanatöku. Í þessu námskeiði er farið út fyrir skýrslur og mælaborð og sýnt hvernig gervigreind er notuð til að öðlast innsýn í starfsemina og útbúa tillögur að úrbótum. Námskeiðið samanstendur af fimm námseiningum: 1) Aðhvarfsgreining og flokkun sem byggir á merktum gögnum, 2) flokkun hálfmerktra og ómerktra gagna á grundvelli þess hversu lík þau eru, 3) greining atburða í ferlum, 4) málvinnsla og 5) gagnasiðfræði. Í hverri námseiningu undirbúa nemendur sig fyrir kennslustundir og vinna saman í teymum við að leysa raunhæf verkefni sem fylgt er eftir með einstaklingsmati.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Frekari upplýsingar Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.
Möguleikar
Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.
Skilyrði
Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:
- 90 ECTS einingar í grunnnámi
- 60 ECTS einingar í framhaldsnámi
Námskeið metin til eininga
Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.
Iðnaðarverkfræðingar eru afar eftirsóttir starfskraftar. Þeir geta oftast valið sér starfsvettvang og veljast gjarnan til ábyrgðarstarfa hér á landi sem erlendis.
Þeir vinna meðal annars við:
- Framleiðslu
- Þjónustu
- Fjármál
- Nýsköpun
- Stjórnun við margskonar aðstæður
Listinn er ekki tæmandi.
- Vélin er hagsmunafélag nemenda í iðnaðar-, véla- og efnaverkfræði við Háskóla Íslands.
- Vélin sér vélmennum sínum fyrir félagsskap, veitingum og veigum við öll góð tækifæri.
Umsagnir nemenda
Ég er í iðnaðarverkfræði og ákvað að taka nýsköpunaráfanga sem val og sé alls ekki eftir því. Áfangarnir passa vel með verkfræðináminu og henta öllum sem hafa áhuga á að skapa eitthvað nýtt. Tímarnir voru virkilega líflegir og skemmtilegir og tóku á raunverulegum vandamálum sem nemendur völdu. Rúsínan í pylsuendanum var svo að þarna kynntist ég nemendum frá öðrum námsleiðum og fékk tækifæri til að vinna með þeim.Gagnlegt efni Námsvalshjólið
Á hverju hefur þú áhuga?
Veldu framhaldsnám
Skref fyrir skref
Hafðu samband Verkfræði- og náttúruvísindasviðTæknigarður og AskjaVirka daga 09:00 - 15:30Netföng- Grunnnám: nemvon@hi.is
- Meistaranám: mssens@hi.is
- Doktorsnám: phdsens@hi.is
- Umhverfis- og auðlindafræði: umhverfi@hi.is
Deila