""
Tungumál kennslu
Enska og kóreska
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á að kynnast Kóreu?
  • Hefur þú gaman af því kynnast nýrri menningu?
  • Viltu fara í stutt diplómanám?
  • Viltu læra kóresku?
  • Langar þig í einstaklingsmiðað nám?

Þetta 60 eininga diplómanám í kóreskum fræðum er sett upp sem fullt nám í eitt ár en einnig er hægt að ljúka því á 2 árum í hlutanámi.

Til þess að ljúka náminu þarftu að ljúka öllum námskeiðunum sem tilgreind eru á námsleiðinni.

Meðal viðfangsefna

  • Kóreska
  • Málnotkun
  • Asísk heimspeki
  • Einstaklingsverkefni

Umsjónarkennari styður þig í náminu en hann er jafnframt umsjónarmaður námsleiðarinnar.

Annað

Einnig er boðið upp á Kóresk fræði sem aukagrein með öðru 120 eininga námi ef stefnt er á að ljúka BA námi. 

  • Kynntu þér reglur um aðal og aukagreinar hér neðst á síðunni undir hjálplegt efni.

Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf frá erlendum skóla.

Til þess að ljúka diplómanámi í kóreskum fræðum þarf nemandi að ljúka öllum skyldunámskeiðum, 50 ECTS, sem tilgreind eru á námsleiðinni. Þar að auki velja nemendur 10 ECTS í valnámskeiðum á haustmisseri. Þessi valnámskeið mega koma frá öðrum námsleiðum innan Hugvísindasviðs. 

Haustmisseri:
KOR101G Kóreska I 10 ECTS
KOR102G Kóresk málnotkun I 10 ECTS
Frálst val innan Hugvísindasviðs 10 ECTS 

Vormisseri:
KOR201G Kóreska II 10 ECTS
KOR202G Kóresk málnotkun II 10 ECTS
KOR204G Kóreskt samfélag og menning 10 ECTS

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Kóreska I (KOR101G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Um er að ræða inngangsnámskeið í kóresku máli fyrir byrjendur. Markmiðið er að ná grundvallartökum á öllum þáttum kóresks máls. Áherslan verður á ritað mál og talmál. Kynnt verða til sögunnar ýmis viðfangsefni kóreskrar menningar til að auka skilning á málinu. Kennsla fer fram á ensku og kóresku.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Kóresk málnotkun I (KOR102G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Um er að ræða inngangsnámskeið í kóreskri málnotkun. Markmiðið er að gera stúdentum kleift að skilja talmál og geta tjáð sig um viðfangsefni daglegs lífs á kóresku. Lögð er áhersla á gagnvirka kennsluhætti og virk þátttaka nemenda er skilyrði þess að ná góðum árangri í námskeiðinu.

Þótt námskeiðið sé ætlað byrjendum er mælt með því að taka það samhliða námskeiðinu Kóreska I, þar eð gert er ráð fyrir forkunnáttu sem lýtur að ritmálinu. Kennt verður á kóresku.

Kennslutungumál: Kóreska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Kóreska II (KOR201G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Um er að ræða grunnnámskeið í kóresku máli fyrir þá sem hafa lokið námskeiðinu Kóreska I. Markmið námskeiðsins er að gera nemendum kleift að þróa með sér alhliða færni í málskilningi, tjáningu, lesskilningi og ritun og móta traustan grunn fyrir frekara kóreskunám. Áherslan verður á bæði rit- og talmál og fjallað verður um ýmis viðfangsefni kóreskrar menningar til að ná betri tökum á málinu. Kennt verður á ensku og kóresku.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Kóresk málnotkun II (KOR202G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið þetta er inngangsnámskeið í kóreskri málnotkun fyrir þá sem lokið hafa Kóreskri málnotkun I. Miðað er að því að gera nemendum kleift að skilja talað mál og taka þátt í eðlilegum samræðum á kóresku. Lögð er áhersla á gagnvirka kennsluhætti og virk þátttaka nemenda er skilyrði þess að ná góðum árangri í námskeiðinu. Kennt verður á kóresku.

Kennslutungumál: Kóreska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Kóreskt samfélag og menning (KOR204G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið kannar virkni og samspil milli djúpstæðra sögulegra rót Kóreu og hraðrar framkomu hennar sem alþjóðlegs tæknilegs og menningarlegs afl. Leitt af þemanu „Rótgróin í sögu, tengd framtíðinni“ munu nemendur skoða hvernig sögulegt arfleifð Kóreu, nýlendutími og eftirstríðsár, ásamt sérstöku hvata hennar til umbreytinga, hafa mótað samtímalegt samfélag og menningu – þar með talið stjórnmál, kyn og fjölskyldutengsl, kynslóðaskipti, Kóreubylgjan (Hallyu) og fleira – innan sífellt alþjóðlegra heima.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár
  • Haust
  • KOR101G
    Kóreska I
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Um er að ræða inngangsnámskeið í kóresku máli fyrir byrjendur. Markmiðið er að ná grundvallartökum á öllum þáttum kóresks máls. Áherslan verður á ritað mál og talmál. Kynnt verða til sögunnar ýmis viðfangsefni kóreskrar menningar til að auka skilning á málinu. Kennsla fer fram á ensku og kóresku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KOR102G
    Kóresk málnotkun I
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Um er að ræða inngangsnámskeið í kóreskri málnotkun. Markmiðið er að gera stúdentum kleift að skilja talmál og geta tjáð sig um viðfangsefni daglegs lífs á kóresku. Lögð er áhersla á gagnvirka kennsluhætti og virk þátttaka nemenda er skilyrði þess að ná góðum árangri í námskeiðinu.

    Þótt námskeiðið sé ætlað byrjendum er mælt með því að taka það samhliða námskeiðinu Kóreska I, þar eð gert er ráð fyrir forkunnáttu sem lýtur að ritmálinu. Kennt verður á kóresku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • KOR201G
    Kóreska II
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Um er að ræða grunnnámskeið í kóresku máli fyrir þá sem hafa lokið námskeiðinu Kóreska I. Markmið námskeiðsins er að gera nemendum kleift að þróa með sér alhliða færni í málskilningi, tjáningu, lesskilningi og ritun og móta traustan grunn fyrir frekara kóreskunám. Áherslan verður á bæði rit- og talmál og fjallað verður um ýmis viðfangsefni kóreskrar menningar til að ná betri tökum á málinu. Kennt verður á ensku og kóresku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KOR202G
    Kóresk málnotkun II
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeið þetta er inngangsnámskeið í kóreskri málnotkun fyrir þá sem lokið hafa Kóreskri málnotkun I. Miðað er að því að gera nemendum kleift að skilja talað mál og taka þátt í eðlilegum samræðum á kóresku. Lögð er áhersla á gagnvirka kennsluhætti og virk þátttaka nemenda er skilyrði þess að ná góðum árangri í námskeiðinu. Kennt verður á kóresku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KOR204G
    Kóreskt samfélag og menning
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið kannar virkni og samspil milli djúpstæðra sögulegra rót Kóreu og hraðrar framkomu hennar sem alþjóðlegs tæknilegs og menningarlegs afl. Leitt af þemanu „Rótgróin í sögu, tengd framtíðinni“ munu nemendur skoða hvernig sögulegt arfleifð Kóreu, nýlendutími og eftirstríðsár, ásamt sérstöku hvata hennar til umbreytinga, hafa mótað samtímalegt samfélag og menningu – þar með talið stjórnmál, kyn og fjölskyldutengsl, kynslóðaskipti, Kóreubylgjan (Hallyu) og fleira – innan sífellt alþjóðlegra heima.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Kóreska nýtist vel í viðskipalífinu, á alþjóðavettvangi og í ferðamennsku svo eitthvað sé nefnt. 

Fólk með kunnáttu í kóresku starfar meðal annars við:

  • Ferðaþjóðnustu
  • Alþjóðasamskipti
  • Leiðsögn
  • Þýðingar 
  • Túlkun
  • Viðskipti 
  • Inn- og útflutning

Listinn er ekki tæmandi.

  • Linguae er félag tungumálanema við Háskóla Íslands.
  • Markmið félagsins er að efla félagslíf nemenda innan Mála- og menningardeildar.
  • Enn sem komið er samanstendur það af ítölsku-, frönsku-, þýsku-, spænsku-, dönsku-, kínversku- og rússneskunemum.
  • Nemendafélagið heldur úti Facebook-síðu.

Meira um félagslíf stúdenta í Hí

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Lilju Rut Jónsdóttur
Kóresk fræði er ákaflega skemmtilegt nám og frábær grunnur fyrir þá sem vilja læra kóresku og hafa áhuga á kóreskri menningu. Ég valdi þetta nám til að kynnast nýju fólki og til að stunda framhaldsnám í Suður-Kóreu. Það getur verið yfirþyrmandi að læra nýtt ritmál og framandi málfræði, en námið fer vel yfir öll grundvallaratriði og hentar því mjög vel fyrir þá sem hafa enga reynslu af málinu. Tímarnir eru þátttökumiðaðir, þar sem þú kynnist samnemendum þínum vel og nærð tökum á tali, skrift, hlustun og lestri. Ég öðlaðist mjög góðan grunn sem nýtist mér í daglegum samskiptum í Kóreu og veitir dýpri skilning á þessari ríku menningu.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil