- Hefur þú áhuga á japönsku tungumáli?
- Hefur þú gaman af japönskum bókmenntum og menningu?
- Viltu fjölbreytt úrval námskeiða sem eru á þínu áhugasviði?
- Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?
Til viðbótar við tungumálakennslu er veitt yfirlit yfir japanska sögu, samfélag og menningu. Nemendur fá þannig innsýn í m.a. daglegt líf í Japan, hefðbundna menningu og dægurmenningu, efnahagsþróun, stjórnmál og ýmis málefni sem efst eru á baugi í japönsku samfélagi. Í gegnum valnámskeið geta nemendur einnig fengið nánari kynningu á til dæmis japönskum kvikmyndum, teiknimyndum og bókmenntum.
Þessi námsleið er 120 einingar og telst sem aðalgrein, til þess að útskrifast með BA próf þarf að bæta við 60 eininga aukagrein, samtals 180 einingar. Það er líka hægt að taka þetta nám sem 60 eininga aukagrein eða 60 eininga diplóma.
Frekari upplýsingar um aðal- og aukagreinar má finna undir hjálplegt efni, neðar á síðunni.
Meðal viðfangsefna
- Japanskt mál og málnotkun
- Þjóðfélag og menning Japans
- Japanskar kvikmyndir
- Japönsk saga
- Japanskar bókmenntir
Markmið námsins
Að kynna nemendum helstu reglur japanskrar málfræði og gera þeim kleift að skilja talað mál og tjá sig á japönsku.
Nemendur kynnast einnig japönsku ritmáli; kana og kanji, og læra að lesa og skrifa þau tákn sem koma fyrir í námsefninu. Áhersla er lögð á að nemendur tileinki sér orðaforða til lesturs og ritunar einfaldra texta.
Í upphafi tungumálanámsins læra nemendur þann grunn sem nauðsynlegt er að hafa til þess að læra japönsku; ritmálið.
- Hiragana. Notað til að rita orð af japönskum uppruna
- Katakana. Notað til að rita orð af erlendum uppruna – t.d. eru erlend sérnöfn skrifuð með þessu letri
- Kanji. Kínverskt myndletur sem notað er samhliða Hiragana og Katakana
Kana ritmálin eru fljótlærð í byrjun námsins og stöðugt mun bætast í ritskilning Kanji tákna ásamt því að nemendur byggja upp nýjan orðaforða og læra málfræðina. Að loknu námi munu nemendur hafa innsýn í japanska menningu og menningarsögu, geta haldið uppi samræðum um almenn málefni á japönsku og geta lesið og skrifað einfaldari texta.
Skiptinám fyrir nemendur í japönsku
Nemendum í japönsku gefst kostur á að fara í skiptinám í japanskan háskóla eða annan erlendan háskóla sem er með kennslu í japönsku og er í samstarfi við Háskóla Íslands. Þeir nemendur, sem taka japönsku sem aðalfag (180 einingar) og eru á þriðja ári eða hafa lokið 120 einingum í japönsku, hafa forgang.
Japanska menntamálaráðuneytið býður upp á tvo svonefnda Monbukagakusho-styrki, sem ætlað er að standa straum af kostnaði við ferðalög og uppihald, skólagjöld og ýmsan annan kostnað sem hlotist getur af dvöl í Japan. Einnig býður IJCE (Iceland Japan Cultural Exchange) nokkrum nemendum til þátttöku í stúdentaþingi í Japan og á Íslandi ár hvert.
Um japönsku
Japanska er áttunda útbreiddasta tungumál veraldar og hafa tæplega 130 milljónir manna hana að móðurmáli. Kunnátta í japönsku er mikilvæg fyrir pólitísk, menningarleg og efnahagsleg samskipti við Japan.
Að loknu tveggja ára námi í japönsku hafa nemendur öðlast grundvallarþekkingu á tungumálinu og eru tilbúnir til framhaldsnáms í japönsku við erlenda háskóla.
Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf frá erlendum skóla. Nánari upplýsingar er að finna í 15. grein reglna um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022.
Nemandi skal ljúka öllum skyldunámskeiðum sem tilgreind eru á kennsluskrá, samtals 110 einingum, þar af 5 einingar í bundnu vali. Nemandi velur sér 10 einingar af valnámskeiðum á kennsluskrá til að ljúka náminu.
2/3 hlutar námsins felst í tungumálanámskeiðum, þar sem kennd eru grunnatriði japanskrar málfræði og japanskt ritmál kynnt, en að auki er sérstök áhersla lögð á tjáningu og tileinkun orðaforða.
Þriðjungur námsins felst í námskeiðum þar sem fjallað er um japanska sögu, menningu og þjóðfélag.
Vilji nemendur ljúka 180e námi í japönsku taka þeir eitt ár í skiptinámi við Háskóla í Japan, eða annars staðar þar sem japanska er kennd, og Háskóli Íslands hefur gert samsstarfssamninga. Skiptinámið er að öllu jöfnu ætlað nemum á 3. ári náms.
Einnig er í boði kjörsviðið Japanskt mál og menning og viðskiptafræði þar sem nemendur taka 120 eininga japönsku sem aðalgrein og 60 eininga viðskiptafræði sem aukagrein. Námið er þverfaglegt í samstarfi Mála- og menningardeildar og Viðskiptafræðideildar en námið er vistað í Mála- og menningardeild og nemendur brautskrást þaðan.
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
- Fyrsta ár
- Haust
- Mál og menning I: Vinnulag og aðferðir í hugvísindum

- Japönsk málnotkun I
- Japanskt ritmál I
- Japanskur framburður og skilningur á töluðu máli I
- Japanskt þjóðfélag og menning I
- Vor
- Japönsk málnotkun II
- Japanskt ritmál II
- Japanskur framburður og skilningur á töluðu máli II
- Japönsk saga
- Menning: að greina og skilja
- Menning: að greina og skilja
Mál og menning I: Vinnulag og aðferðir í hugvísindum (MOM101G, MOM102G)
Meginmarkmið námskeiðsins er að veita nemendum grunnþjálfun í meðferð ritaðs máls og fræðilegum skrifum. Nemendur hljóta þjálfun í ritun með vikulegum heimaverkefnum, fyrirlestrum, umræðum og ritstundum. Auk þess heimsækja nemendur Ritver Háskóla Íslands og fá þar ráðgjöf. Í námskeiðinu er fjallað um vinnulag við ritun fræðilegra texta, val og afmörkun viðfangsefnis, byggingu ritsmíðarinnar, heimildanotkun og frágang. Nemendur fá einnig þjálfun í málnotkun í fræðilegum textum og fjallað verður meðal annars um málsnið, stíl, stafsetningu, greinarmerkjasetningu og hjálpargögn málnotenda. Nemendur skrifa fræðilega ritgerð í leiðsagnarmati og fá reglulega endurgjöf kennara og aðstoðarkennara. Námsmat byggist á vikulegum heimaverkefnum, miðmisserisverkefni, lokaverkefni og virkri þátttöku nemenda í tímum, ritstundum og heimsóknum í Ritverið.
ATHUGIÐ! NÁMSKEIÐIÐ ER KENNT Á ÍSLENSKU OG Í STAÐNÁMI. ÞEIR SEM TAKA NÁMSKEIÐIÐ Á ENSKU OG Í FJARNÁMI EIGA AÐ VERA SKRÁÐIR Í MOM102G.
MOM101G er ætlað nemendum í erlendum tungumálum ÖÐRUM en ensku. Nemendur í ensku og þeir sem ekki eiga íslensku að móðurmáli eiga að vera skráðir í MOM102G.

Námskeiðið er inngangsnámskeið í Mála- og menningardeild. Megin markmið og tilgangur námskeiðsins er kynning á grundvallar hugtökum og sértækum orðaforða á þessu sviði, skoðun á gagnrýnni hugsun til að auka lesskilning akademískra texta, innleyðing gagnlegra námsaðferða og fræðilegra vinnubragða er stuðla að árangursríku háskólanámi, umræður um ritstuld og fræðilegan heiðarleika, mat á fræðilegum kröfum o.s.frv. Nemendur fá hagnýta þjálfun í gagnrýnu mati á fræðilegum textum og gagnrýnni greiningu innihalds þeirra, að þekkja/auðkenna ákveðna orðræðu (munstur) og uppbyggingu ýmissa textategunda, að velja viðeigandi og trúverðugar heimildir og kynningu á greinandi lestri. Að auki fá nemendur að kynnast mikilvægi akademísks læsis til að auka skilning á fræðilegu efni, ritun þess og framsetningu.
Námskeiðið er kennt á ensku og er ætlað nemendum:
- Í ensku til BA
- Annarra erlendra tungumála en ensku
*Þeir nemendur sem vantar einingar vegna breyts fyrirkomulags Mála og menningar námskeiðana, þar sem MOM102 var áður 5 einingar, þurfa að bæta við sig einstaklingsverkefni (MOM001G, 1 eining) innan MOM102 námskeiðsins.
- Þetta einstaklingsverkefni er einungis ætlað þeim nemendum sem sátu MOM202G fyrir skólaárið 2024-2025, og eru núna í MOM102G, og því einungis með 9 einingar í Mála og menningar námskeiðunum.
- Nemendur sem ætla að bæta upp einingafjöldann með 6 eininga námskeiði innan greinar er frjálst að gera það og taka ekki þetta einstaklingsverkefni.
Til að skrá sig í einstaklingsverkefnið þarf að hafa samband við kennara MOM102G.
Japönsk málnotkun I (JAP101G)
Þetta er kjarnanámskeiðið í japönsku fyrir byrjendur. Nemendur kynnast helstu reglum í japanskri málfræði. Áherslan er á talmál (samtöl). Nemendur læra að skilja talað mál og tjá sig í töluðu máli á japönsku. Lögð er áhersla á orðaforða daglegs lífs. Fyrirlestrar eru í byrjun viku og síðan fer kennslan fram í litlum hópum. Heimaæfingar og tímapróf verða tíð.
Japanskt ritmál I (JAP102G)
Nemendur læra að lesa og skrifa japönsk tákn, þ.e. kana og kanji. Áhersla er lögð á tileinkun orðaforða og lestur og ritun einfaldra texta.
Japanskur framburður og skilningur á töluðu máli I (JAP103G)
Framburðaræfingar og þjálfun í að hlusta á japönsku. Æfingatímar fara að hluta til fram í málveri.
Athugið að upplýsingar um kennara verða uppfærðar vor 2024.
Japanskt þjóðfélag og menning I (JAP105G)
Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum innsýn í japanskt þjóðfélag og menningu bæði fyrr og nú. Viðfangsefni námskeiðsins eru m.a. sjálfsmynd, menntun, trúarbrögð, hefðir og listir í Japan.
Japönsk málnotkun II (JAP202G)
Framhald af námskeiðinu Málnotkun I. Aðaláherslan er lögð á undirstöðuatriði í málfræði og orðaforða daglegs lífs. Reglulega verða tekin próf í tímum.
Athugið að upplýsingar um kennara verða uppfærðar vor 2024.
Japanskt ritmál II (JAP203G)
Framhald af námskeiðinu Japanskt ritmál I. Áhersla verður lögð á að lesa, skrifa og skilja hiragana og katakana. Nemendur þurfa að ná tökum á 58 kanji. Reglulega eru próf í tímum.
Japanskur framburður og skilningur á töluðu máli II (JAP204G)
Framhald á námskeiðinu Japanskur framburður og skilningur á töluðu máli I. Áhersla er lögð á framburð og talað mál. Æfingatímar fara að hluta til fram í málveri og að hluta til í litlum hópum undir stjórn kennara.
Athugið að upplýsingar um kennara verða uppfærðar vor 2024.
Japönsk saga (JAP208G)
Yfirlits námskeið þar sem fjallað verður um sögu Japans frá forsögulegum tíma til samtímans. Saga Japans er mikið og stórt verkefni og því verður stiklað á stóru í þessu yfirlitsnámskeiði, en lögð verður áhersla á að nemendur öðlist skilning á þeim samfélagslegu þáttum sem hafa átt sinn þátt í að móta það menningarlega umhverfi sem fyrirfinnst í Japan nútímans. Fyrirlestrar nemenda munu skipa veigamikinn sess í tímum og nemendur hjálpast að við undirbúning á samantekt efnis til undirbúnings fyrir próf. Í rannsóknarverkefni munu nemendur fá tækifæri til að kynna sér ítarlegar sjálfvalið efni innan sögulega rammans.
Menning: að greina og skilja (MOM201G, MOM202G)
Námskeiðslýsing:
Samsæriskenningar, falsfréttir, falsanir byggðar á gervigreind og afneitun á vísindalegum og sögulegum staðreyndum verða stöðugt algengari í okkar samtíma. Því er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að vera fær um að greina og skilja stjórnmál, menningu og samfélagið með gagnrýnu hugarfari.
Í námskeiðinu er athygli beint að menningu. Tilgangur þess er að efla getu ykkar sem nemendur og borgarar til þess að túlka texta og sjónræna menninguÞið fáið þjálfun í að beita túlkunarhæfni ykkar með greiningu á stuttum frásögnum og á myndum. Þið munuð einnig setja verkin í sögulegt samhengi og styðjast við valdar greinar um bókmenntafræði, menningarfræði og sjónræna menningu.
Megináhersla í kennslustundum verður lögð á að efla gagnrýna hugsun og umræður. Þið fáið tækifæri til að deila skoðunum ykkar með samnemendum og verða þátttakendur í túlkunarsamfélagi um viðfangsefni námskeiðsins.

Í námskeiðinu er athygli beint að menningu. Tilgangur þess er að efla getu ykkar sem nemendur og borgarar til þess að túlka texta og sjónræna menningu. Þið fáið þjálfun í að beita túlkunarhæfni ykkar með greiningu á stuttum frásögnum og á myndum.
Þið munuð einnig setja verkin í sögulegt samhengi og styðjast við valdar greinar um bókmenntafræði, menningarfræði og sjónræna menningu.

- Annað ár
- Haust
- Ekki kennt á misserinuJapanskar nútímabókmenntir
- Japanskar kvikmyndir
- Japanskt þjóðfélag og menning II
- Japönsk málnotkun III
- Japanskt ritmál III
- Japanskur framburður og skilningur á töluðu máli III
- Ekki kennt á misserinuAlþjóðaviðskipti í Asíu (Japan og Kína)
- BA-ritgerð í japönsku máli og menningu
- Vor
- Menning: að greina og skilja
- Menning: að greina og skilja
- Japönsk málnotkun IV
- Japanskt ritmál IV
- Japanskur framburður og skilningur á töluðu máli IV
- Leikjafræði: Tölvuleikir og leikjamenning
- Ekki kennt á misserinuNútímasaga Austur-Asíu
- Ekki kennt á misserinuNútímasaga Austur-Asíu
- BA-ritgerð í japönsku máli og menningu
- Tungumál og leiklist
Japanskar nútímabókmenntir (JAP305G)
Nemendum eru kynntar stefnur og straumar í japönskum nútímabókmenntum, þar sem einkum er horft á þróun skáldskapar. Lesefni námskeiðsins eru þýðingar á ensku á smásögum og köflum úr stærri verkum frá Meiji tímabilinu til dagsins í dag. Áhersla er lögð á 20. öldina. Í tímum verða haldnir kynningarfyrirlestrar á lesefni og umræður um valda texta fara fram í kjölfarið.
Japanskar kvikmyndir (JAP107G)
Fjallað er um japanskar kvikmyndir frá upphafi til dagsins í dag með aðaláherslu á „klassíska tímabilið“ 1950-70 og leikstjóra á borð við Kurosawa, Ozu, Mizoguchi og fleiri. Fjallað verður um bakgrunn þekktra kvikmynda og efni þeirra greint til sjá hvernig japönsk menning, saga og þjóðfélag endurspeglast í þeim.
Skoðaðar verða valdar myndir eftir fyrrnefndra leikstjóra og einnig nýrri verk.
Kennt er á ensku.
Japanskt þjóðfélag og menning II (JAP106G)
Markmið námskeiðsins er að kynna helstu einkenni japansks þjóðfélags í dag. Rætt verður um ýmsar hliðar þjóðfélagsins, m.a. frá sjónarhorni menntakerfis, kynjahlutverka og fjölskyldu, fyrirtækjamenningar, stjórnmála og dægurmenningar. Fyrirlestrar skiptast niður á kennara eftir sérsviðum.
Japönsk málnotkun III (JAP302G)
Framhald af Málnotkun II. Málfræði og orðaforði aukinn, auk talæfinga. Reglulega eru próf í tímum.
Athugið að upplýsingar um kennara verða uppfærðar vor 2024.
Japanskt ritmál III (JAP303G)
Framhald af námskeiðinu Ritmál II. Nemendur munu læra frekar kanji, hiragana og katakana orð og orðasamsetningar. Þeir auka við skining sinn á lestri og ritun á japönsku máli. Reglulega eru próf í tímum.
Japanskur framburður og skilningur á töluðu máli III (JAP304G)
Framhald af námskeiðinu Japanskur framburður og skilningur á töluðu máli II. Stefnt er að því að nemendur auki skilning sinn á hlustun og auki hæfni í framburði. Æfingatímar fara að hluta til fram í málveri og að hluta til í litlum hópum undir stjórn kennara.
Athugið að upplýsingar um kennara verða uppfærðar vor 2024.
Alþjóðaviðskipti í Asíu (Japan og Kína) (VIÐ506M)
Nemendur skoða alþjóðaviðskipti Vesturlanda og Asíu (Kína og Japan) út frá þjóðhagsfræðilegu sjónarmiði. Einnig nota örgreiningu (micro persective) á fyrirtæki sem stunda viðskipti í Asíu (Kína og Japan).
- Nemendur skoða hvernig viðskipti og fjárfestingarmynstur á Asíusvæðinu mótast af alþjóðlegu stjórnmálahagkerfi.
- Nemendur munu greina einstök fyrirtæki og viðskipti þeirra á Asíumarkaði, hvernig fjárfestingum (FDI) er háttað hjá þessum fyrirtækjum og greina virðiskeðju þeirra.
- Nemendur vinna raundæmi (Hópverkefni) á fyrirtæki sem stundar viðskipti í Asíu
Nánari lýsing:
Þetta námskeið er hugsað sem kynning á rekstri fyrirtækja og þjóðhagsfræðilegum atriðum með sérstaka tilvísun til Asíu og þá Japan og Kína. Í námskeiðinu er notast bæði við fræðilegar skilgreiningar sem og raundæmi. Námskeiðinu er skipt í 3 megin hluta:
- Í fyrsta hluta verður þjóðhagsfræðilegt sjónarhorn á viðskipti og fjárfestingar á Asíu svæðinu rædd út frá einstökum gögnum um viðskipti, afleiðingum WTO sem og fríverslunarsamningar verða kynntir og afleiðingar þeirra, sérstaklega verður fríverslunarsamningur Kína og Íslands skoðaður og afleiðingar hans.
- Í öðrum hluta námskeiðsins verður örgreining (microperspective) á fyrirtæki sem stunda viðskipti í Asíu kynnt. Skoðuð verður bein erlend fjárfesting (FDI) og alþjóðlegar virðiskeðjur (GVC). Fræðileg nálgun verður notuð til að útskýra val fyrirtækja á staðsetningu vegna FDI. Vestræn fyrirtæki sem koma inn í Asíu sem og asísk fyrirtæki sem koma inn á vestræna markaði verða í brennidepli.
- Þriðji hluti námskeiðsins fer í verkefnavinnu þar sem nemendur greina fyrirtæki sem hefur starfsemi í Kína eða Japan eða þá kínversk/japönsk fyrirtæki sem hafa haslað sér völl á Íslandi. Nemendur vinna raundæmi (e.case) og gera rannsókn á fyrirtæki með starfsemi í Asíu.
BA-ritgerð í japönsku máli og menningu (JAP241L)
BA-ritgerð er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið viðfangsefni innan sinnar fræðigreinar og gera grein fyrir rannsókn sinni í vönduðum fræðilegum texta. Nemendur skrifa BA-ritgerð um rannsóknarefni að eigin vali í samráði við leiðbeinanda sinn. Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst. Lokaritgerð er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, vinna úr heimildum, svo og til að nota fræðileg hjálpargögn (t.d. handbækur, orðabækur eða sambærilegar vefsíður).
Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands [https://ritver.hi.is/is] sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.
Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar https://gervigreind.hi.is/
Sjá nánar um reglur um BA-ritgerðir á Hugvísindasviði: https://ugla.hi.is/kerfi/view/page.php?sid=3544
Menning: að greina og skilja (MOM201G, MOM202G)
Námskeiðslýsing:
Samsæriskenningar, falsfréttir, falsanir byggðar á gervigreind og afneitun á vísindalegum og sögulegum staðreyndum verða stöðugt algengari í okkar samtíma. Því er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að vera fær um að greina og skilja stjórnmál, menningu og samfélagið með gagnrýnu hugarfari.
Í námskeiðinu er athygli beint að menningu. Tilgangur þess er að efla getu ykkar sem nemendur og borgarar til þess að túlka texta og sjónræna menninguÞið fáið þjálfun í að beita túlkunarhæfni ykkar með greiningu á stuttum frásögnum og á myndum. Þið munuð einnig setja verkin í sögulegt samhengi og styðjast við valdar greinar um bókmenntafræði, menningarfræði og sjónræna menningu.
Megináhersla í kennslustundum verður lögð á að efla gagnrýna hugsun og umræður. Þið fáið tækifæri til að deila skoðunum ykkar með samnemendum og verða þátttakendur í túlkunarsamfélagi um viðfangsefni námskeiðsins.
Menning: að greina og skilja (MOM201G, MOM202G)
Samsæriskenningar, falsfréttir, falsanir byggðar á gervigreind og afneitun á vísindalegum og sögulegum staðreyndum verða stöðugt algengari í okkar samtíma. Því er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að vera fær um að greina og skilja stjórnmál, menningu og samfélagið með gagnrýnu hugarfari.
Í námskeiðinu er athygli beint að menningu. Tilgangur þess er að efla getu ykkar sem nemendur og borgarar til þess að túlka texta og sjónræna menningu. Þið fáið þjálfun í að beita túlkunarhæfni ykkar með greiningu á stuttum frásögnum og á myndum.
Þið munuð einnig setja verkin í sögulegt samhengi og styðjast við valdar greinar um bókmenntafræði, menningarfræði og sjónræna menningu.
Megináhersla í kennslustundum verður lögð á að efla gagnrýna hugsun og umræður. Þið fáið tækifæri til að deila skoðunum ykkar með samnemendum og verða þátttakendur í túlkunarsamfélagi um viðfangsefni námskeiðsins.
Japönsk málnotkun IV (JAP403G)
Málnotkun IV er framhald af Málnotkun III. Farið verður nánar yfir námsefni á námskeiðunum Málnotkun I, II og III. Einnig verður farið í það efni sem nemendur hafa ekki náð góðum tökum á.
Athugið að upplýsingar um kennara verða uppfærðar vor 2024.
Japanskt ritmál IV (JAP404G)
Framhald af námskeiðinu Japanskt ritmál III. Haldið er áfram að kenna notkun hiragana, katakana og kanji. Reglulega eru próf í tímum.
Japanskur framburður og skilningur á töluðu máli IV (JAP405G)
Framhald af námskeiðinu Japanskur framburður og skilningur á töluðu máli III. Áhersla er lögð á framburð og talað mál. Æfingatímar fara að hluta til fram í málveri og að hluta til í litlum hópum undir stjórn kennara.
Athugið að upplýsingar um kennara verða uppfærðar vor 2024.
Leikjafræði: Tölvuleikir og leikjamenning (JAP502G)
Markmiðið með námskeiðinu er að veita nemendum grunnskilning á leikjafræðum (e. game studies). Um er að ræða nýtt fræðasvið sem hefur rutt sér til rúms á þeim forsendum að leikir, og þá sértaklega tölvuleikir, séu orðnir órjúfanlegur hluti af miðlamenningu samtímans. Í námskeiðinu munu nemendur kynnast lykiltextum og fást við grundvallarspurningar lækjafræðanna. Nemendur munu einnig kynnast fjölda raundæma úr leikjaheiminum þar sem kenningar verða ræddar í samhengi við ýmsa tölvuleiki og þeir skoðaðir frá ólíkum sjónarhornum – bæði út frá kenningum lækjafræðinnar og sem margþætt og vaxandi atvinnugrein. Veitt verður almennt yfirlit yfir þróun tölvuleikjasögunnar, en þó mun hluti námskeiðisins fjalla sérstaklega um japanska tölvuleiki. Að námskeiðinu loknu eiga nemendur að hafa öðlast almennan skilning á kenningum leikjafræðinnar og vera færir um að ræða leikjatengd álitamál á uppbyggilegan hátt.
Nútímasaga Austur-Asíu (JAP412G, JAP413G)
Asía er stærst heimsálfanna og þar búa u.þ.b. tveir af hverjum þremur jarðarbúum. Asía hefur einnig í auknum mæli fest sig í sessi sem þungamiðja í efnahagslegum skilningi þar sem Kína, Japan og Indland eiga öll sæti á listanum yfir fimm stærstu efnahagveldi heims. Á sama tíma ríkir vaxandi spenna í álfunni sem m.a. skýrist af vígbúnaðarkapphlaupi kjarnorkuríkjanna, fjölda landamæradeilna, undiröldu þjóðernishyggju, eigna- og tekjuójöfnuði, sem og yfirvofandi umhverfis- og loftslagsvanda á stórum svæðum. Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum breiða sýn á sameiginlega sögu og samskipti ríkjanna í Austur-Asíu frá miðri 19. öld til dagsins í dag. Megináhersla verður lögð á Japan, Kína og Suður-Kóreu.
Á námskeiðinu verður farið yfir: kynningu á löndum, menningarsvæðum og öðrum svæðaskiptingum innan Asíu, nýlenduvæðingu og sjálfstæðisbaráttu, heimsstyrjaldirnar og kalda stríðið í Austur-Asíu, hlutverk Bandaríkjanna í álfunni, alþjóða- og svæðasamstarf (ASEAN, APEC, ADB), aukið vægi Kína og Indlands. Á námskeiðinu verður einnig farið yfir ýmis brýn mál í samtímanum allt frá „soft power“ stefnu til norðurslóðaáherslu Austur-Asíuríkjanna.
Nútímasaga Austur-Asíu (JAP412G, JAP413G)
Asía er stærst heimsálfanna og þar búa u.þ.b. tveir af hverjum þremur jarðarbúum. Asía hefur einnig í auknum mæli fest sig í sessi sem þungamiðja í efnahagslegum skilningi þar sem Kína, Japan og Indland eiga öll sæti á listanum yfir fimm stærstu efnahagveldi heims. Á sama tíma ríkir vaxandi spenna í álfunni sem m.a. skýrist af vígbúnaðarkapphlaupi kjarnorkuríkjanna, fjölda landamæradeilna, undiröldu þjóðernishyggju, eigna- og tekjuójöfnuði, sem og yfirvofandi umhverfis- og loftslagsvanda á stórum svæðum. Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum breiða sýn á sameiginlega sögu og samskipti ríkjanna í Austur-Asíu frá miðri 19. öld til dagsins í dag. Megináhersla verður lögð á Japan, Kína og Suður-Kóreu.
Á námskeiðinu verður farið yfir: kynningu á löndum, menningarsvæðum og öðrum svæðaskiptingum innan Asíu, nýlenduvæðingu og sjálfstæðisbaráttu, heimsstyrjaldirnar og kalda stríðið í Austur-Asíu, hlutverk Bandaríkjanna í álfunni, alþjóða- og svæðasamstarf (ASEAN, APEC, ADB), aukið vægi Kína og Indlands. Á námskeiðinu verður einnig farið yfir ýmis brýn mál í samtímanum allt frá „soft power“ stefnu til norðurslóðaáherslu Austur-Asíuríkjanna.
BA-ritgerð í japönsku máli og menningu (JAP241L)
BA-ritgerð er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið viðfangsefni innan sinnar fræðigreinar og gera grein fyrir rannsókn sinni í vönduðum fræðilegum texta. Nemendur skrifa BA-ritgerð um rannsóknarefni að eigin vali í samráði við leiðbeinanda sinn. Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst. Lokaritgerð er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, vinna úr heimildum, svo og til að nota fræðileg hjálpargögn (t.d. handbækur, orðabækur eða sambærilegar vefsíður).
Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands [https://ritver.hi.is/is] sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.
Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar https://gervigreind.hi.is/
Sjá nánar um reglur um BA-ritgerðir á Hugvísindasviði: https://ugla.hi.is/kerfi/view/page.php?sid=3544
Tungumál og leiklist (MOM401G)
Valnámskeið í leiklist fyrir nemendur í Mála- og menningardeild, á 2. og 3. ári BA-náms, er samstarfsverkefni deildarinnar.
Nemendur vinna með þekkt leikverk á því tungumáli sem þeir eru að læra, en kennslan fer fram á íslensku og nemendur geta nýtt sér íslensku þýðinguna ef vill.
Nemendur velja senur úr verkinu með sviðsetningu í huga.
Þessi hluti skiptist í upphitunaræfingar, slökunaræfingar og ýmis konar framburðaræfingar. Vinna nemenda felst í samvinnu að leita leiða við uppsetningu þeirra sena sem valdar voru í fyrri hlutanum.
Kennarar í þeim tungumálum sem taka þátt aðstoða við framburð og tjáningu í viðkomandi tungumáli.
Kennslan fer fram í fyrirlestrasal Veraldar á miðvikudögum frá kl. 15:00 til 18:00 og er mæting forsenda þess að þetta verkefni nái markmiðum sínum.
Hámarksfjöldi nemenda er 15.
- Óháð námsári
- Haust
- Heildahagfræði I (Þjóðhagfræði I)
- Inngangur að markaðsfræði
- Stærðfræði A
- Vinnulag í viðskiptafræði
- Inngangur að alþjóðaviðskiptum
- Lögfræði A - almenn viðskiptalögfræði
- Fjármál I
- Inngangur að fjárhagsbókhaldi
- Rekstrarhagfræði I
- Vinnumarkaðurinn og þróun hans
- Inngangur að mannauðsstjórnun
- Markaðsrannsóknir
- Fjármálamarkaðir
- Inngangur að vörumerkjastjórnun
- Ársreikningagerð A
- Ekki kennt á misserinuSkapandi atvinnugreinar
- Inngangur að verkefnastjórnun
- Einstaklingsskattaréttur
- UII - viðskiptagreining og gagnavinnsla
- Viðskipti og alþjóðasamskipti
- Vor
- Reikningsskil
- Fjármál II
- Tjáning og samskipti
- UI - tölvunotkun og töflureiknir
- Eindahagfræði II (Rekstrarhagfræði II)
- Tölfræði A
- Rekstrarbókhald
- Inngangur að stjórnun
- Markaðsfærsla þjónustu
- Rekstrarstjórnun
- Stjórnun og skipulagsheildir
- Stefnumótun fyrirtækja
- Stjórnun fjölbreytileika
- Ársreikningagerð B
- Markaðsáætlanagerð
- Stýring fjármálasafna
Heildahagfræði I (Þjóðhagfræði I) (HAG103G)
Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í helstu kenningar og hugtök heildahagfræði. Fjallað verður um lögmál efnahagslífsins og helstu grundvallarkenningar heildahagfræðinnar um þróun hagstærða til skamms og langs tíma ásamt helstu hugtökum í efnahagsumræðu. Áhersla er lögð bæði á fræðilegt inntak og hagnýtt gildi námsefnisins og tengsl þess við ýmis efnahagsmál, sem eru ofarlega á baugi á Íslandi og erlendis. Staðgóð þekking á þjóðhagfræði býr nemendur undir ýmis önnur námskeið, og lífið.
Inngangur að markaðsfræði (VIÐ101G)
Viðfangsefni námskeiðs eru markaðshugtakið, markaðsáherslur og tengsl markaðsfræðinnar við stjórnun og stefnumótun. Einnig er fjallað um greiningu á markaðsumhverfinu, greiningu á kauphegðun, stefnumótun markaðsmála, samkeppni og samkeppnisforskot. Að síðustu er fjallað um með hvaða hætti á að útfæra markaðsstarf svo árangur náist. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda í fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu.
Stærðfræði A (VIÐ102G)
Mikilvæg atriði úr námsefni framhaldsskóla rifjuð upp. Línuleg og ólínuleg föll. Prósentureikningur og grunnatriði í fjármálastærðfræði. Diffrun og hlutdiffrun. Hámörkun og lágmörkun með og án hliðarskilyrða, aðferð Lagrange. Heildun. Undirstöðuatriði fylkjareiknings.
Vinnulag í viðskiptafræði (VIÐ157G)
Í námskeiðinu verður fjallað um gagnrýna hugsun, siðferði, hópavinnu, samskipti, hlustun, notkun gervigreindar, skriflega framsetningu og kynningu á verkefnum. Nemendur vinna hóp- og einstaklingsverkefni af ýmsum toga
Markmið námskeiðs er að veita nemendum grundvallarfærni í faglegum akademískum vinnubrögðum í viðskiptafræði; meðal annars er lögð áhersla á að nemendur öðlist leikni við skrif, framsetningu, úrvinnslu heimilda og hvernig vinna á í hópum.
Inngangur að alþjóðaviðskiptum (VIÐ303G)
Fjallað er um helstu kenningar í alþjóðaviðskiptum, umhverfi og þróun. Þá er fjallað um áhrif menningar í alþjóðlegum viðskiptum, alþjóðlega mannauðsstjórnun, erlenda fjárfestingu og staðsetningu framleiðslu. Fjallað er um mögulegar leiðir við alþjóðavæðingu fyrirtækja, kosti þess og galla fyrir fyrirtæki að hafa starfsemi erlendis, útrás íslenskra fyrirtækja og hvað má læra af sögunni, skipulag alþjóðlegs rekstrar, alþjóðlega markaðssetningu og þróunarstarf, alþjóðlegt samstarf og stjórnun. Þá verður fjallað um hvernig kreppur hafa áhrif á rekstur sem og heimsfaraldur á borð við Covid 19.
Lögfræði A - almenn viðskiptalögfræði (VIÐ302G)
Í námskeiðinu er farið yfir atriði í íslenskri lögfræði m.a. helstu réttarheimildir, uppbyggingu á íslensku réttarkerfi og stjórnsýslu. Þá verður farið yfir réttarsvið sem horfa ber til í daglegum viðskiptum.
Tilgangur námskeiðsins er að undirbúa nemendur undir viðfangsefni sem líkleg eru til þess að verða á vegi þeirra í störfum í viðskiptalífinu. Lögð er áhersla að nemendur fái kynningu á lögfræðinni til að geta betur greint lögfræðileg úrlausnarefni og tekið á þeim áður en þau verða að lögfræðilegum vandamálum.
Helstu viðfangsefni til umfjöllunar eru: Réttarheimildir, stjórnsýsluréttur, samningar, tilurð þeirra, túlkun og gildi, helstu reglur um lausfjárkaup og úrræði samningsaðila vegna galla og annarra vanefnda ásamt fullnustugerðum. Fjallað verður um gjaldþrotaskipti, kröfurétt, félaga- og samkeppnisrétt og persónuvernd.
Fjármál I (VIÐ301G)
Markmið með námskeiðunum Fjármál I og Fjármál II er að nemendur tileinki sér:
* Aðferðir að meta gildi einfaldra fjármálagerninga á mismunandi tíma; að reikna til núvirðis mismunandi fjárstrauma peningalegra eigna, verkefna og fastafjármuna.
* Tækni, við fjármálastjórn og áætlanagerð fyrirtækja.
* Aðferðir, sem fjármálafræði býr yfir, þegar leitað er lausna á torveldum viðfangsefnum.
Inngangur að fjárhagsbókhaldi (VIÐ103G)
Meginmarkmið námskeiðsins er að kynna grundvallaratriði fjárhagsbókhalds og ársreiknings og gera nemendur læsa á reikningsskil fyrirtækja.
Eðli tvíhliða bókhalds verður skýrt út frá bókhaldsjöfnunni og lögð áhersla á að nemendur skilji hvernig einstök viðskipti hafa áhrif á eignir, skuldir, eigið fé, tekjur og gjöld.
Fjallað verður um grundvallarforsendur, reglur og hugtök reikningshalds og form og uppbyggingu ársreiknings.
Sérstök áhersla verður lögð á rökrænt samhengi milli:
-
bókhalds,
-
rekstrarreiknings,
-
efnahagsreiknings,
-
eiginfjáryfirlits,
-
sjóðstreymisyfirlits.
Fjallað verður um hvað veldur breytingum á eigin fé og nemendur kynnast helstu aðferðum við greiningu ársreikninga, einkum útreikningi og túlkun kennitalna.
Notkun bókhaldskerfisins Reglu í seinni hluta námskeiðsins hefur það markmið að tengja fræðilega þekkingu nemenda við raunverulega framkvæmd bókhalds og gerð reikningsskila.
Rekstrarhagfræði I (VIÐ105G)
Markmið námskeiðsins er að kenna nemendum grunnatriði í hagrænni hugsun og meginkenningum í rekstrarhagfræði þannig að þeir kunni skil á helstu hugtökum og notkun. Framboð, eftirspurn og teygni. Neytendahagfræði. Markaðir, skilvirkni og velferð. Skattkerfi og áhrif skattlagningar. Ytri áhrif, samgæði og auðlindir. Ósamhverfar upplýsingar, freistnivandi og hrakval. Kostnaður við framleiðslu, samkeppni, fákeppni, einokun. Vinnumarkaður, mismunun og tekjuskipting. Verkaskipting og verslun.
Vinnumarkaðurinn og þróun hans (VIÐ510G)
Markmið með námskeiðinu er að kynna fyrir viðskiptafræðinemum helstu grunnatriði í vinnumarkaðsfræðum (industrial/employee relations). Rætt verður um skipulag á íslenskum vinumarkaði, tvískiptingu hans og rætt um mun á hinum almenna og opinbera vinnumarkaði. Fjallað verður um kenningar um vinnumarkaðinn og samskipti aðila vinnumarkaðarins, stofnanauppbyggingu, hlutverk einstakra aðila á vinnumarkaði (verkalýðsfélög, atvinnurekendur og ríkisvald). Fjallað verður um kjarasamninga (fyrirtækja- og vinnustaðasamninga), vinnulöggjöfina, verkföll og verkfallskenningar. Enn fremur farið í helstu réttindi og skyldur í vinnusambandinu, ráðningarsamband, samkeppnisákvæði.
Inngangur að mannauðsstjórnun (VIÐ509G)
The course covers the basic principles and techniques of human resource management (HRM). A practical view is taken to integrate the contributions of the behavioral sciences with the technical aspect of implementing HRM practices of recruitment, performance management, development, rewards and employee relations. Not everyone taking this course will become a human resource professional, although they will learn about the role of different HRM professionals in organizations. As this will be the only HRM course that many business students take it is intended to build the base for them as managers playing an integral role in implementing and carrying out HRM policies and practices in organizations. In addition, managers have to understand the HRM department and be able to communicate and cooperate with HRM professionals. The course is designed to be an interactive class as the subject matter of HRM is quite rich and complex. Therefore both preparation before class and participation in class are important factors of the learning process. Practical exercises and analysis of cases will take place in class.
Markaðsrannsóknir (VIÐ511G)
Fjallað er um markaðsrannsóknarferlið og mismunandi tegundir og aðferðir markaðsrannsókna. Gerður er greinarmunur á megindlegum og eigindlegum aðferðum og við hvaða aðstæður hvor aðferðir hentar betur. Fjallað er um fyrirliggjandi gögn og frumgögn og nemendur þjálfaðir í að vinna niðurstöður úr tölulegum gögnum og setja þær fram. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda í fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu.
Fjármálamarkaðir (VIÐ505G)
Í siðmenntuðum ríkjum mynda fjármálastofnanir stoðkerfi efnahagslífsins. Hlutverk þeirra er að styðja fólk og fyrirtæki í allri framleiðslu þeirra og framkvæmdum, sem og að liðsinna í áhættustjórnun, áhættu, sem fólk og fyrirtæki tekst á hendur. Afar mikilvægt er að öðlast skilning á tilgangi og innri virkni fjármálafyrirtækja, til þess að geta séð fyrir um hegðun þeirra og framþróun. Þannig má öðlast færni við að draga ályktanir um áhrif þessara stofnana á raunhagkerfið sjálft frá einum tíma til annars, í einu landi eða öðru. Þetta námskeið miðar af því að kynna fjármálafræði (e. theory of finance) í gegnum sögu fjármálastofnana og fjármálaþjónustu, svo sem banka, greiðslumiðlunar, tryggingafélaga, seðlabanka, verðbréfamarkaða og afleiðumarkaða. Farið verður yfir styrkleika þessara stofnana sem og ófullkomleika, til að varpa ljósi á það, hvert þessar stofnanir stefna til framtíðar. Íslenska bankahrunið býður upp á ótal dæmi, sem dreginn verður lærdómur af í gegnum allt námskeiðið.
Inngangur að vörumerkjastjórnun (VIÐ513G)
Markmið námskeiðsins er að nemandinn þekki vel til þeirra lykilþátta sem mynda markaðsmál með sérstakri og skarpri áherslu á stjórnun vörumerkja. Marmiðið er að nemandinn skilji lykiláherslur vörumerkjafræða og átti sig á hvernig einstakir þættir þess sviðs tengjast innbyrðis. Ekki síst er lögð áhersla að nemandi átti sig á tengingu vörumerkjafræða við stefnumótun, samkeppnisstöðu og aðgreiningu á markaði.
Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda í fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu.
Ársreikningagerð A (VIÐ505M)
Námskeiðið er ætlað nemendum á fjármála- eða reikningshaldskjörsviði. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu og skilning á atriðum sem stjórnendur fyrirtækja þurfa að tileinka sér til að geta lagt fram ársreikning samkvæmt viðurkenndum reikningsskilaaðferðum. Í námskeiðinu verður fjallað um helstu reglur í reikningshaldi sem gilda samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum og ákvæðum íslenskra laga. Farið verður yfir: formkröfur reikningsskila, rekstrarreikning, efnahagsreikning og sjóðstreymi. Meðferð tekna og kostnaðar, meðhöndlun birgða, viðskiptakröfur, varanlega rekstrarfjármuni, óefnislegar eignir, tekjuskatt, virðisrýrnunarpróf, bókun áhættufjármuna og skulda, skammtímaskuldir, langtímalán og eiginfjárliði. Verkefni verða lögð fyrir.
Skapandi atvinnugreinar (VIÐ522G)
Markmið námsskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á sérstöðu skapandi atvinnugreina og lista sem hvorutveggja eru háð styrkjum til framfærslu sinnar á sama tíma og hluti af sömu greinum eru í arðbærum rekstri. Jafnframt verður framtíð skapandi atvinnugreina skoðuð í ljósi aukinnar alþjóðavæðingar ekki síst í formi starfrænnar dreifingar.
Kennslan mun fara fram í formi fyrirlestra og umræðutíma og verða gestafyrirlestrar og kynningar fyrirtækja í skapandi atvinnugreinum eftir efnum.
Inngangur að verkefnastjórnun (VIÐ506G)
Í námskeiðinu er viðfangsefnið lífshlaup og einkenni verkefna, markmið, verkgreining, sundurliðun verkþátta og flæðirit, áætlanagerð, aðfangastýring, lágmörkun verkefnatímans, áhættustýring, verkkaupin, verkefnastjórinn, verkefnateymið, hagaðila og samspil allra þessara þátta.
Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir; fyrirlestrar, umræður, verkefnavinna, þar sem leitast er við að ýta undir áhuga, vikni og þátttöku nemenda.
Athugið, nemendur þurfa að stofna sér aðgang og kaupa bókina Project Management, The Managerial Proces á heimasíðu McGraw - Hill. Nánari upplýsingar má finna á Canvas síðu námskeiðsins.
Einstaklingsskattaréttur (VIÐ501G)
Á námskeiðinu verður farið yfir meginreglur ísl. skattalaga um skattskylda aðila og skattskyldar tekjur þar á meðal hvaða gjöld heimilt er að draga frá þeim. Sérstök áhersla verður lögð á uppgjör tekjuskattsstofna hjá einstaklingum og sjálfstætt starfandi með úrlausnum á dæmum og raunhæfum verkefnum. Kynnt verður gerð skattframtals einstaklinga og hjóna svo og atvinnurekstrarframtals. Fjallað verður um ákvörðun hvers konar bóta og afslátta frá skatti. Farið verður yfir grundvallarreglur réttarfars í skattamálum, endurákvarðanir á sköttum og afleiðingar af vísvitandi röngum skattskilum. Veitt verður innsýn í meginreglur laga um virðisaukaskatt og tryggingagjald. Að námskeiðinu loknu er við það miðað að námsmaður geti talið fram fyrir einstaklinga og lítil fyrirtæki svo og kært skattákvörðun ef hún er röng að hans mati.
UII - viðskiptagreining og gagnavinnsla (VIÐ502G)
Markmið námskeiðsins er að kynna fyrir nemendum verkfæri upplýsingatækni sem nýtast við stefnumótun og ákvarðanatöku á sviði viðskiptalífsins. Lögð er áhersla á að nemendur auki færni sína í úrvinnslu gagna, skoðuð uppbygging gagnagrunna, vöruhús og SQL fyrirspurnamálið. Farið er yfir viðskiptagreiningu, gervigreind, gagnavísindi, rafræn viðskipti. Skoðuð helstu notkunarsvið og hvernig hún styður við stefnumótun og ákvarðanatöku í stjórnun og rekstri.
Áhersla er lögð á að leysa hagnýt verkefni með ýmsum verkfærum s.s. Excel, Access, og Power BI.
Viðskipti og alþjóðasamskipti (VIÐ512G)
Námskeiðinu er ætlað að búa nemendur undir að starfa á vettvangi alþjóðaviðskipta, efla menningarlæsi þeirra og aðlögunarhæfni. Markmið námskeiðsins eru að nemendur: Þekki og geti beitt helstu kenningum um menningarlegan mismun og fjölbreytileika. Hafi skilning á og séu meðvitaðir um eigin menningu, gildi og viðhorf og áhrif þeirra á samskipti og hegðun. Hafi skilning á og geti greint vinnumenningu og þjóðmenningu. Hafi skilning á viðskiptum í menningarlega fjölbreyttu samfélagi og samskiptum ólikra hópa. Geti aðlagað sig að fjölbreyttum aðstæðum og átt samskipti við einstaklinga og hópa frá fjölbreyttum menningarheimum. Nemendur taka þátt í fjölmenningarlegri hópvinnu, flytja fyrirlestra og skrifa skýrslur. Öll kennsla og samskipti í námskeiðinu fara fram á ensku.
Reikningsskil (VIÐ401G)
Námskeiðið er framhald af Inngangi að fjárhagsbókhaldi. Lögð er áhersla á færslutæknileg atriði í bókhaldi og við lokun uppgjörstímabils, niðurfærsla viðskiptakrafna, afskriftir varanlegra rekstrarfjármuna, viðskiptavild og aðrar óefnislegar eignir, birgðamatsaðferðir, afföll og yfirverð á skuldabréfum, ábyrgðarskuldbindingar, tekjuskattsskuldbinding o.fl. Flokkun áhættufjármuna og peningalegra eigna. Sjóðstreymi. Fyrirmæli laga um ársreikninga verða skoðuð rækilega og höfð hliðsjón af alþjóðlegum reikningsskilastöðlum, IFRS. Útreikningur tekjuskatts er tekinn til meðferðar. Lögð verða verkefni fyrir nemendur í því skyni að gera þá færa um að semja tiltölulega einfaldan ársreikning. Skilaskylt heimaverkefni.
Fjármál II (VIÐ402G)
Góðir stjórnarhættir og sérstaklega vönduð fjármálastjórnun hafa úrslitaáhrif á rekstrarárangur fyrirtækja. Fjármál II er framhald af Fjármálum I þar sem meginviðfangsefnið er fyrirtækið sjálft og hvernig það er rekið í fjármálalegu tilliti. Þá er farið yfir hvað eru góðir stjórnarhættir, hvernig hvatarnir liggja innan fyrirtækja og hvaða áhrif þeir kunna að hafa á fjárhagslega afkomu félagsins. Meginviðfangsefni námskeiðsins er fjármálastjórnun, þ.e. fjármagnsskipan félagsins, skammtíma fjármögnun og langtímafjármögnun, gerð fjármögnunaráætlana, arðgreiðslur til hluthafa, fjárfestingarákvarðanir félagsins, hlutskipti og hegðan þess á fjármálamarkaðnum sjálfum. Þá verður einnig farið yfir þær ákvarðanir sem stjórnendur standa frammi fyrir þegar verulegir fjárhagserfiðleikar eiga sér stað.
Tjáning og samskipti (VIÐ406G)
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur: Geti tjáð hug sinn skýrt í töluðu máli, séu öruggir, áheyrilegir og í góðu sambandi við áheyrendur. Geti tjáð sig skýrt og markvisst í rituðu máli. Þekki fræðin um upplýsingamiðlun á vinnumarkaði. Munnleg tjáning: Raddbeiting, framsögn og öndun. Áheyrileiki og samband við áheyrendur. Kvíði og aðferðir til að yfirvinna hann. Skýrt skipulag og efnistök. Tjáning á fundum og í smærri hópum. Skrifleg tjáning: Einföldun upplýsinga, skýrslugerð og gerð ferilskráa. Upplýsingamiðlun: Skipulag, aðgengi og notagildi upplýsinga, notendagreining. Nemendur taka þátt í munnlegum og skriflegum æfingum. Námskeiðið er kennt á ensku.
UI - tölvunotkun og töflureiknir (VIÐ201G)
Námskeiðinu er skipt í verklegan- og fræðilegan hluta.
Í verklegum hluta verður farið yfir helstu þætti Excel með áherslu á fjármálaútreikninga, gerð rekstrarlíkana og úrvinnsla gagna. Farið verður yfir hagnýt verkefni sem ætla má að komi nemendum að gagni í öðrum greinum námsins og í starfi síðar meir.
Í fræðilegum hluta verður leitast við að gefa nemendum yfirsýn yfir tölvunotkun í fyrirtækjum, innsýn í fræðilegar hliðar tölvunotkunar og þá þætti sem máli skipta í fjárfestingu og rekstri tölvukerfa.
Í námskeiðinu er gert ráð fyrir að nemendur hafi tölvu og þekkingu á notkun stýrikerfis.
Eindahagfræði II (Rekstrarhagfræði II) (HAG201G)
Námskeiðið er framhald af Inngangur að hagfræði/Rekstrarhagfræði I. Áhersla er lögð á nemar öðlist bæði víðtækari og dýpri þekkingu á kenningum hagfræðinnar. Það verður gert með því að gera frekari grein fyrir helstu kenningum í rekstrarhagfræði og sýna hvernig nota megi fræðin til að fjalla skipulega um margvísleg mál.
Tölfræði A (VIÐ263G)
Markmið námskeiðsins er að byggja traustan grunn undir notkun tölfræði í öðrum námskeiðum, í starfi og í daglegu lífi, og að gera nemendur talnagleggri. Efni: Lýsandi tölfræði. Líkindafræði: atburðir, líkur, hendingar, helstu dreifingar. Ályktunartölfræði. matsaðferðir, tölfræðileg próf. Línulegt aðhvarf.
Rekstrarbókhald (VIÐ204G)
Kynning á rekstrarbókhaldi. Kynnt verða fjölmörg kostnaðarhugtök og kostnaðargreining (núllpunktsgreining). Farið yfir helstu aðferðir við bókun framleiðslukostnaðar og skiptingu óbeins kostnaðar. Munurinn á rekstrarreikningi út frá aðferð fjárhagsbókhalds og með framlegðarútreikningi. Áætlanagerð, staðalbókhald og frávikagreining. Frammistöðumat deilda og afurða og skipting kostnaðar. Að námskeiðinu loknu eiga nemendur að hafa góðan skilning á mikilvægi rekstrarbókhalds við ákvarðanatöku um rekstur fyrirtækja.
Inngangur að stjórnun (VIÐ258G)
Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur kynnist grundvallar hugtökum, kenningum og aðferðum í stjórnun og forystu fyrirtækja og stofnana. Nálgunin og sjónarhornið er út frá viðfangsefnum og hlutverkum stjórnenda og stjórnun mannauðsins.
Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir; fyrirlestrar, gestafyrirlestrasr, umræður, verkefnavinna, og herminám þar sem leitast er við að ýta undir áhuga, vikni og þátttöku nemenda.
Markaðsfærsla þjónustu (VIÐ205G)
Fjallað er um eðli og eiginleika þjónustu, þjónustuþríhyrninginn, þjónustugapið, kauphegðun í þjónustu, væntingar og skynjun ásamt mikilvægi þess að byggja upp varanlegt samband við réttan hóp viðskiptavina. Einnig er fjallað um hönnun þjónustu, staðla og viðmið, umgjörð þjónustu, hlutverk viðskiptavinar í árangursríkri þjónustuframkvæmd, hlutverk starfsfólks í árangursríkri þjónustuframkvæmd, jafnvægi framboðs og eftirspurnar þegar þjónusta er annars vegar, verðlagningu og hvað ber að hafa í huga þegar mótuð er kynningarstefna fyrir þjónustulausnir. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda í fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu.
Rekstrarstjórnun (VIÐ404G)
Velkomin í Rekstrarstjórnun
Hefurðu einhvern tíma tekið eftir því hvernig allt í kringum okkur virðist einhvern veginn bara virka? Um það snýst þetta námskeið - að afhjúpa heillandi heim ferla í fyrirtækjum sem og daglegu lífi okkar. Við munum kanna hvernig hlutirnir verða til, allt frá minnstu græjum til stærstu véla. Þetta snýst ekki bara um verksmiðjur og færibönd, heldur munum við kynna okkur hvernig allt frá þínu uppáhalds kaffihúsi til allra nýjustu tæknifyrirtækjanna nota ferla til að skila okkur vörum.
Kafað verður ofan í hvernig á að hanna þessa ferla, halda þeim gangandi og bæta þá stöðugt.
Vertu því tilbúin til að líta á heiminn í kringum þig á nýjan hátt, sem röð ferla sem gera líf okkar betra. Vertu tilbúin til að sjá heiminn eins og rekstrarstjóri.
Stjórnun og skipulagsheildir (VIÐ415G)
Markmiðið er að nemendur öðlist þekkingu og skilning á því hvað skipulagsheild er og á því umhverfi sem skipulagsheildir starfa í. Fjallað er um hagsmunaaðila og hvernig má auka líkurnar á því að ná árangri og virðisauka í rekstri skipulagsheilda. Farið er yfir áhrifaþætti og áskoranir er varða hönnun skipulags og siðferðislegar og samfélagslegar áskoranir. Komið er inn á hvernig ýmsar breytingar og þróun geta haft áhrif á ákvarðanatöku, skipulag, stefnu, starfsfólk og menningu. Einnig er fjallað um umbreytingar og líftíma skipulagsheilda, sem og ágreining og völd. Þá verður getið um áhrif gervigreindar á skipulag og starfshætti skipulagsheilda.
Stefnumótun fyrirtækja (VIÐ609G)
Í upphafi námskeiðs er áherslan á umfjöllun um fagið og skilgreiningar á lykilhugtökum. Markmiðið er að nemandinn nái vel utan um þekkinguna og þau viðfangsefni sem fagið spannar. Síðan er viðfangsefnið greining á ytra umhverfi fyrirtækja og innra umhverfi þeirra. Markmiðið þar er að nemendur nái skilningi og færni í að meta stöðu fyrirtækjanna, þ.m.t styrkleika þeirra og þau tækifæri sem þeim bjóðast. Þá er farið yfir það sem ná þarf utan um í stefnumótun fyrirtækis, sérstaklega heildarstefnu og viðskiptastefnu. Að lokum er farið yfir það sem tryggir árangursríka framkvæmd stefnu. Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir; fyrirlestrar, umræður, verkefnavinna, þar sem leitast er við að ýta undir áhuga, vikni og þátttöku nemenda.
Stjórnun fjölbreytileika (VIÐ416G)
Fjölbreytileiki er flókið og margþætt fyrirbæri. Í þessu námskeiði verður kafað inn í þetta flókna fyrirbæri með því að veita innsýn inn í félagsfræði, sálfræði, alþjóðasamskipti, mannkynssögu, stjórnun, viðskipti og rannsóknir um skipulagsheildir. Þetta námskeið er hannað með það að markmiði að byggja upp skilning á grunnhugtökum og grundvallarreglum í stjórnun fjölbreytileika, til að gera nemendum kleift að efla samskipti sín við fólk með mismunandi bakgrunn og eiginleika. Það er nauðsynlegt fyrir stjórnendur og starfsfólk skipulagsheilda að þróa fræðileg, hugtaka- og hæfniviðmið, til að auka skilning í þessu sérstaka samhengi og til að geta þróað áhrifaríkar leiðir í stjórnun fjölbreytileika.
Ársreikningagerð B (VIÐ604M)
Námskeiðið er beint framhald af námskeiðinu Ársreikningagerð A, sem kennt er á haustmisseri. Reiknað er með að nemendum þessa námskeiðs sé fullkunnugt efni fyrra námskeiðsins.
Í námskeiðinu verður fjallað um gildandi reglur í reikningshaldi samkvæmt IFRS og ákvæðum íslenskra laga. Umfjöllunarefni: sjóðstreymi, tekjuskattur, hagnaður á hlut, fjármálagerningar, tekjuskráning, skuldbindingar, fjármögnunarleigusamningar, fastafjármunir til sölu og aflagður rekstur, fjárfestingaeignir, skuldbindingar, upplýsingar í ársreikningi og tengdir aðilar.
Verkefni verða lögð fyrir og er skilaskylda á þeim.
Áskilinn réttur til breytingar á námskeiðslýsingu.
Markaðsáætlanagerð (VIÐ602G)
Umfjöllunarefni námskeiðsins er gerð stefnumiðaðra markaðsáætlana. Farið er ítarlega í þá aðferðafræði sem tengist gerð markaðsáætlunar, allt frá greiningu markaðstækifæra til aðgerðaáætlunar. Fjallað er um aðferðir við að greina stöðu vöru eða þjónustu á markaði, hvernig móta á markaðsstefnu og hvernig samvali söluráðanna skuli hátta. Nemendur vinna stefnumiðaða
markaðsáætlun fyrir vöru eða þjónustu, 4 í hóp og er ætlað að koma sjálfir með tillögu að verkefnum fyrir skipulagsheild sem þeir vinna undir handleiðslu kennara.
Stýring fjármálasafna (VIÐ604G)
Fjallað verður um þá aðferðafræði sem liggur að baki ákvarðanatöku fjárfesta og fyrirtækja við myndun og stýringu eigna- og skuldasafna. Áhættustýring fyrirtækja verður einnig tekin fyrir.
Námskeiðið er kennt á ensku
- Haust
- MOM101G, MOM102GMál og menning I: Vinnulag og aðferðir í hugvísindumSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Meginmarkmið námskeiðsins er að veita nemendum grunnþjálfun í meðferð ritaðs máls og fræðilegum skrifum. Nemendur hljóta þjálfun í ritun með vikulegum heimaverkefnum, fyrirlestrum, umræðum og ritstundum. Auk þess heimsækja nemendur Ritver Háskóla Íslands og fá þar ráðgjöf. Í námskeiðinu er fjallað um vinnulag við ritun fræðilegra texta, val og afmörkun viðfangsefnis, byggingu ritsmíðarinnar, heimildanotkun og frágang. Nemendur fá einnig þjálfun í málnotkun í fræðilegum textum og fjallað verður meðal annars um málsnið, stíl, stafsetningu, greinarmerkjasetningu og hjálpargögn málnotenda. Nemendur skrifa fræðilega ritgerð í leiðsagnarmati og fá reglulega endurgjöf kennara og aðstoðarkennara. Námsmat byggist á vikulegum heimaverkefnum, miðmisserisverkefni, lokaverkefni og virkri þátttöku nemenda í tímum, ritstundum og heimsóknum í Ritverið.
ATHUGIÐ! NÁMSKEIÐIÐ ER KENNT Á ÍSLENSKU OG Í STAÐNÁMI. ÞEIR SEM TAKA NÁMSKEIÐIÐ Á ENSKU OG Í FJARNÁMI EIGA AÐ VERA SKRÁÐIR Í MOM102G.
MOM101G er ætlað nemendum í erlendum tungumálum ÖÐRUM en ensku. Nemendur í ensku og þeir sem ekki eiga íslensku að móðurmáli eiga að vera skráðir í MOM102G.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMOM101G, MOM102GMál og menning I: Vinnulag og aðferðir í hugvísindumSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið er inngangsnámskeið í Mála- og menningardeild. Megin markmið og tilgangur námskeiðsins er kynning á grundvallar hugtökum og sértækum orðaforða á þessu sviði, skoðun á gagnrýnni hugsun til að auka lesskilning akademískra texta, innleyðing gagnlegra námsaðferða og fræðilegra vinnubragða er stuðla að árangursríku háskólanámi, umræður um ritstuld og fræðilegan heiðarleika, mat á fræðilegum kröfum o.s.frv. Nemendur fá hagnýta þjálfun í gagnrýnu mati á fræðilegum textum og gagnrýnni greiningu innihalds þeirra, að þekkja/auðkenna ákveðna orðræðu (munstur) og uppbyggingu ýmissa textategunda, að velja viðeigandi og trúverðugar heimildir og kynningu á greinandi lestri. Að auki fá nemendur að kynnast mikilvægi akademísks læsis til að auka skilning á fræðilegu efni, ritun þess og framsetningu.
Námskeiðið er kennt á ensku og er ætlað nemendum:
- Í ensku til BA
- Annarra erlendra tungumála en ensku
*Þeir nemendur sem vantar einingar vegna breyts fyrirkomulags Mála og menningar námskeiðana, þar sem MOM102 var áður 5 einingar, þurfa að bæta við sig einstaklingsverkefni (MOM001G, 1 eining) innan MOM102 námskeiðsins.
- Þetta einstaklingsverkefni er einungis ætlað þeim nemendum sem sátu MOM202G fyrir skólaárið 2024-2025, og eru núna í MOM102G, og því einungis með 9 einingar í Mála og menningar námskeiðunum.
- Nemendur sem ætla að bæta upp einingafjöldann með 6 eininga námskeiði innan greinar er frjálst að gera það og taka ekki þetta einstaklingsverkefni.
Til að skrá sig í einstaklingsverkefnið þarf að hafa samband við kennara MOM102G.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÞetta er kjarnanámskeiðið í japönsku fyrir byrjendur. Nemendur kynnast helstu reglum í japanskri málfræði. Áherslan er á talmál (samtöl). Nemendur læra að skilja talað mál og tjá sig í töluðu máli á japönsku. Lögð er áhersla á orðaforða daglegs lífs. Fyrirlestrar eru í byrjun viku og síðan fer kennslan fram í litlum hópum. Heimaæfingar og tímapróf verða tíð.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNemendur læra að lesa og skrifa japönsk tákn, þ.e. kana og kanji. Áhersla er lögð á tileinkun orðaforða og lestur og ritun einfaldra texta.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuJAP103GJapanskur framburður og skilningur á töluðu máli ISkyldunámskeið4Skyldunámskeið á námsleiðinni4 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFramburðaræfingar og þjálfun í að hlusta á japönsku. Æfingatímar fara að hluta til fram í málveri.
Athugið að upplýsingar um kennara verða uppfærðar vor 2024.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að gefa nemendum innsýn í japanskt þjóðfélag og menningu bæði fyrr og nú. Viðfangsefni námskeiðsins eru m.a. sjálfsmynd, menntun, trúarbrögð, hefðir og listir í Japan.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
NámskeiðslýsingFramhald af námskeiðinu Málnotkun I. Aðaláherslan er lögð á undirstöðuatriði í málfræði og orðaforða daglegs lífs. Reglulega verða tekin próf í tímum.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingFramhald af námskeiðinu Japanskt ritmál I. Áhersla verður lögð á að lesa, skrifa og skilja hiragana og katakana. Nemendur þurfa að ná tökum á 58 kanji. Reglulega eru próf í tímum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuJAP204GJapanskur framburður og skilningur á töluðu máli IISkyldunámskeið4Skyldunámskeið á námsleiðinni4 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFramhald á námskeiðinu Japanskur framburður og skilningur á töluðu máli I. Áhersla er lögð á framburð og talað mál. Æfingatímar fara að hluta til fram í málveri og að hluta til í litlum hópum undir stjórn kennara.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingYfirlits námskeið þar sem fjallað verður um sögu Japans frá forsögulegum tíma til samtímans. Saga Japans er mikið og stórt verkefni og því verður stiklað á stóru í þessu yfirlitsnámskeiði, en lögð verður áhersla á að nemendur öðlist skilning á þeim samfélagslegu þáttum sem hafa átt sinn þátt í að móta það menningarlega umhverfi sem fyrirfinnst í Japan nútímans. Fyrirlestrar nemenda munu skipa veigamikinn sess í tímum og nemendur hjálpast að við undirbúning á samantekt efnis til undirbúnings fyrir próf. Í rannsóknarverkefni munu nemendur fá tækifæri til að kynna sér ítarlegar sjálfvalið efni innan sögulega rammans.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNámskeiðslýsing:
Samsæriskenningar, falsfréttir, falsanir byggðar á gervigreind og afneitun á vísindalegum og sögulegum staðreyndum verða stöðugt algengari í okkar samtíma. Því er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að vera fær um að greina og skilja stjórnmál, menningu og samfélagið með gagnrýnu hugarfari.
Í námskeiðinu er athygli beint að menningu. Tilgangur þess er að efla getu ykkar sem nemendur og borgarar til þess að túlka texta og sjónræna menninguÞið fáið þjálfun í að beita túlkunarhæfni ykkar með greiningu á stuttum frásögnum og á myndum. Þið munuð einnig setja verkin í sögulegt samhengi og styðjast við valdar greinar um bókmenntafræði, menningarfræði og sjónræna menningu.
Megináhersla í kennslustundum verður lögð á að efla gagnrýna hugsun og umræður. Þið fáið tækifæri til að deila skoðunum ykkar með samnemendum og verða þátttakendur í túlkunarsamfélagi um viðfangsefni námskeiðsins.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingSamsæriskenningar, falsfréttir, falsanir byggðar á gervigreind og afneitun á vísindalegum og sögulegum staðreyndum verða stöðugt algengari í okkar samtíma. Því er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að vera fær um að greina og skilja stjórnmál, menningu og samfélagið með gagnrýnu hugarfari.
Í námskeiðinu er athygli beint að menningu. Tilgangur þess er að efla getu ykkar sem nemendur og borgarar til þess að túlka texta og sjónræna menningu. Þið fáið þjálfun í að beita túlkunarhæfni ykkar með greiningu á stuttum frásögnum og á myndum.
Þið munuð einnig setja verkin í sögulegt samhengi og styðjast við valdar greinar um bókmenntafræði, menningarfræði og sjónræna menningu.
Megináhersla í kennslustundum verður lögð á að efla gagnrýna hugsun og umræður. Þið fáið tækifæri til að deila skoðunum ykkar með samnemendum og verða þátttakendur í túlkunarsamfélagi um viðfangsefni námskeiðsins.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Haust
- Ekki kennt á misserinuJAP305GJapanskar nútímabókmenntirBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Nemendum eru kynntar stefnur og straumar í japönskum nútímabókmenntum, þar sem einkum er horft á þróun skáldskapar. Lesefni námskeiðsins eru þýðingar á ensku á smásögum og köflum úr stærri verkum frá Meiji tímabilinu til dagsins í dag. Áhersla er lögð á 20. öldina. Í tímum verða haldnir kynningarfyrirlestrar á lesefni og umræður um valda texta fara fram í kjölfarið.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingFjallað er um japanskar kvikmyndir frá upphafi til dagsins í dag með aðaláherslu á „klassíska tímabilið“ 1950-70 og leikstjóra á borð við Kurosawa, Ozu, Mizoguchi og fleiri. Fjallað verður um bakgrunn þekktra kvikmynda og efni þeirra greint til sjá hvernig japönsk menning, saga og þjóðfélag endurspeglast í þeim.
Skoðaðar verða valdar myndir eftir fyrrnefndra leikstjóra og einnig nýrri verk.
Kennt er á ensku.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að kynna helstu einkenni japansks þjóðfélags í dag. Rætt verður um ýmsar hliðar þjóðfélagsins, m.a. frá sjónarhorni menntakerfis, kynjahlutverka og fjölskyldu, fyrirtækjamenningar, stjórnmála og dægurmenningar. Fyrirlestrar skiptast niður á kennara eftir sérsviðum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingFramhald af Málnotkun II. Málfræði og orðaforði aukinn, auk talæfinga. Reglulega eru próf í tímum.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingFramhald af námskeiðinu Ritmál II. Nemendur munu læra frekar kanji, hiragana og katakana orð og orðasamsetningar. Þeir auka við skining sinn á lestri og ritun á japönsku máli. Reglulega eru próf í tímum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuJAP304GJapanskur framburður og skilningur á töluðu máli IIISkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFramhald af námskeiðinu Japanskur framburður og skilningur á töluðu máli II. Stefnt er að því að nemendur auki skilning sinn á hlustun og auki hæfni í framburði. Æfingatímar fara að hluta til fram í málveri og að hluta til í litlum hópum undir stjórn kennara.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuVIÐ506MAlþjóðaviðskipti í Asíu (Japan og Kína)Valnámskeið7,5Valnámskeið á námsleiðinni7,5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNemendur skoða alþjóðaviðskipti Vesturlanda og Asíu (Kína og Japan) út frá þjóðhagsfræðilegu sjónarmiði. Einnig nota örgreiningu (micro persective) á fyrirtæki sem stunda viðskipti í Asíu (Kína og Japan).
- Nemendur skoða hvernig viðskipti og fjárfestingarmynstur á Asíusvæðinu mótast af alþjóðlegu stjórnmálahagkerfi.
- Nemendur munu greina einstök fyrirtæki og viðskipti þeirra á Asíumarkaði, hvernig fjárfestingum (FDI) er háttað hjá þessum fyrirtækjum og greina virðiskeðju þeirra.
- Nemendur vinna raundæmi (Hópverkefni) á fyrirtæki sem stundar viðskipti í Asíu
Nánari lýsing:
Þetta námskeið er hugsað sem kynning á rekstri fyrirtækja og þjóðhagsfræðilegum atriðum með sérstaka tilvísun til Asíu og þá Japan og Kína. Í námskeiðinu er notast bæði við fræðilegar skilgreiningar sem og raundæmi. Námskeiðinu er skipt í 3 megin hluta:- Í fyrsta hluta verður þjóðhagsfræðilegt sjónarhorn á viðskipti og fjárfestingar á Asíu svæðinu rædd út frá einstökum gögnum um viðskipti, afleiðingum WTO sem og fríverslunarsamningar verða kynntir og afleiðingar þeirra, sérstaklega verður fríverslunarsamningur Kína og Íslands skoðaður og afleiðingar hans.
- Í öðrum hluta námskeiðsins verður örgreining (microperspective) á fyrirtæki sem stunda viðskipti í Asíu kynnt. Skoðuð verður bein erlend fjárfesting (FDI) og alþjóðlegar virðiskeðjur (GVC). Fræðileg nálgun verður notuð til að útskýra val fyrirtækja á staðsetningu vegna FDI. Vestræn fyrirtæki sem koma inn í Asíu sem og asísk fyrirtæki sem koma inn á vestræna markaði verða í brennidepli.
- Þriðji hluti námskeiðsins fer í verkefnavinnu þar sem nemendur greina fyrirtæki sem hefur starfsemi í Kína eða Japan eða þá kínversk/japönsk fyrirtæki sem hafa haslað sér völl á Íslandi. Nemendur vinna raundæmi (e.case) og gera rannsókn á fyrirtæki með starfsemi í Asíu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingBA-ritgerð er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið viðfangsefni innan sinnar fræðigreinar og gera grein fyrir rannsókn sinni í vönduðum fræðilegum texta. Nemendur skrifa BA-ritgerð um rannsóknarefni að eigin vali í samráði við leiðbeinanda sinn. Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst. Lokaritgerð er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, vinna úr heimildum, svo og til að nota fræðileg hjálpargögn (t.d. handbækur, orðabækur eða sambærilegar vefsíður).
Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands [https://ritver.hi.is/is] sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.
Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar https://gervigreind.hi.is/
Sjá nánar um reglur um BA-ritgerðir á Hugvísindasviði: https://ugla.hi.is/kerfi/view/page.php?sid=3544
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar- Vor
NámskeiðslýsingNámskeiðslýsing:

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMálnotkun IV er framhald af Málnotkun III. Farið verður nánar yfir námsefni á námskeiðunum Málnotkun I, II og III. Einnig verður farið í það efni sem nemendur hafa ekki náð góðum tökum á.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingFramhald af námskeiðinu Japanskt ritmál III. Haldið er áfram að kenna notkun hiragana, katakana og kanji. Reglulega eru próf í tímum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuJAP405GJapanskur framburður og skilningur á töluðu máli IVSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFramhald af námskeiðinu Japanskur framburður og skilningur á töluðu máli III. Áhersla er lögð á framburð og talað mál. Æfingatímar fara að hluta til fram í málveri og að hluta til í litlum hópum undir stjórn kennara.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuJAP502GLeikjafræði: Tölvuleikir og leikjamenningValnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmiðið með námskeiðinu er að veita nemendum grunnskilning á leikjafræðum (e. game studies). Um er að ræða nýtt fræðasvið sem hefur rutt sér til rúms á þeim forsendum að leikir, og þá sértaklega tölvuleikir, séu orðnir órjúfanlegur hluti af miðlamenningu samtímans. Í námskeiðinu munu nemendur kynnast lykiltextum og fást við grundvallarspurningar lækjafræðanna. Nemendur munu einnig kynnast fjölda raundæma úr leikjaheiminum þar sem kenningar verða ræddar í samhengi við ýmsa tölvuleiki og þeir skoðaðir frá ólíkum sjónarhornum – bæði út frá kenningum lækjafræðinnar og sem margþætt og vaxandi atvinnugrein. Veitt verður almennt yfirlit yfir þróun tölvuleikjasögunnar, en þó mun hluti námskeiðisins fjalla sérstaklega um japanska tölvuleiki. Að námskeiðinu loknu eiga nemendur að hafa öðlast almennan skilning á kenningum leikjafræðinnar og vera færir um að ræða leikjatengd álitamál á uppbyggilegan hátt.
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuJAP412G, JAP413GNútímasaga Austur-AsíuValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingAsía er stærst heimsálfanna og þar búa u.þ.b. tveir af hverjum þremur jarðarbúum. Asía hefur einnig í auknum mæli fest sig í sessi sem þungamiðja í efnahagslegum skilningi þar sem Kína, Japan og Indland eiga öll sæti á listanum yfir fimm stærstu efnahagveldi heims. Á sama tíma ríkir vaxandi spenna í álfunni sem m.a. skýrist af vígbúnaðarkapphlaupi kjarnorkuríkjanna, fjölda landamæradeilna, undiröldu þjóðernishyggju, eigna- og tekjuójöfnuði, sem og yfirvofandi umhverfis- og loftslagsvanda á stórum svæðum. Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum breiða sýn á sameiginlega sögu og samskipti ríkjanna í Austur-Asíu frá miðri 19. öld til dagsins í dag. Megináhersla verður lögð á Japan, Kína og Suður-Kóreu.
Á námskeiðinu verður farið yfir: kynningu á löndum, menningarsvæðum og öðrum svæðaskiptingum innan Asíu, nýlenduvæðingu og sjálfstæðisbaráttu, heimsstyrjaldirnar og kalda stríðið í Austur-Asíu, hlutverk Bandaríkjanna í álfunni, alþjóða- og svæðasamstarf (ASEAN, APEC, ADB), aukið vægi Kína og Indlands. Á námskeiðinu verður einnig farið yfir ýmis brýn mál í samtímanum allt frá „soft power“ stefnu til norðurslóðaáherslu Austur-Asíuríkjanna.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuJAP412G, JAP413GNútímasaga Austur-AsíuValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingAsía er stærst heimsálfanna og þar búa u.þ.b. tveir af hverjum þremur jarðarbúum. Asía hefur einnig í auknum mæli fest sig í sessi sem þungamiðja í efnahagslegum skilningi þar sem Kína, Japan og Indland eiga öll sæti á listanum yfir fimm stærstu efnahagveldi heims. Á sama tíma ríkir vaxandi spenna í álfunni sem m.a. skýrist af vígbúnaðarkapphlaupi kjarnorkuríkjanna, fjölda landamæradeilna, undiröldu þjóðernishyggju, eigna- og tekjuójöfnuði, sem og yfirvofandi umhverfis- og loftslagsvanda á stórum svæðum. Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum breiða sýn á sameiginlega sögu og samskipti ríkjanna í Austur-Asíu frá miðri 19. öld til dagsins í dag. Megináhersla verður lögð á Japan, Kína og Suður-Kóreu.

Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðarNámskeiðslýsingValnámskeið í leiklist fyrir nemendur í Mála- og menningardeild, á 2. og 3. ári BA-náms, er samstarfsverkefni deildarinnar.
Nemendur vinna með þekkt leikverk á því tungumáli sem þeir eru að læra, en kennslan fer fram á íslensku og nemendur geta nýtt sér íslensku þýðinguna ef vill.
Nemendur velja senur úr verkinu með sviðsetningu í huga.
Þessi hluti skiptist í upphitunaræfingar, slökunaræfingar og ýmis konar framburðaræfingar. Vinna nemenda felst í samvinnu að leita leiða við uppsetningu þeirra sena sem valdar voru í fyrri hlutanum.
Kennarar í þeim tungumálum sem taka þátt aðstoða við framburð og tjáningu í viðkomandi tungumáli.
Kennslan fer fram í fyrirlestrasal Veraldar á miðvikudögum frá kl. 15:00 til 18:00 og er mæting forsenda þess að þetta verkefni nái markmiðum sínum.
Hámarksfjöldi nemenda er 15.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Haust
- HAG103GHeildahagfræði I (Þjóðhagfræði I)Bundið valnámskeið6Bundið valnámskeið háð skilyrðum6 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í helstu kenningar og hugtök heildahagfræði. Fjallað verður um lögmál efnahagslífsins og helstu grundvallarkenningar heildahagfræðinnar um þróun hagstærða til skamms og langs tíma ásamt helstu hugtökum í efnahagsumræðu. Áhersla er lögð bæði á fræðilegt inntak og hagnýtt gildi námsefnisins og tengsl þess við ýmis efnahagsmál, sem eru ofarlega á baugi á Íslandi og erlendis. Staðgóð þekking á þjóðhagfræði býr nemendur undir ýmis önnur námskeið, og lífið.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingViðfangsefni námskeiðs eru markaðshugtakið, markaðsáherslur og tengsl markaðsfræðinnar við stjórnun og stefnumótun. Einnig er fjallað um greiningu á markaðsumhverfinu, greiningu á kauphegðun, stefnumótun markaðsmála, samkeppni og samkeppnisforskot. Að síðustu er fjallað um með hvaða hætti á að útfæra markaðsstarf svo árangur náist. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda í fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMikilvæg atriði úr námsefni framhaldsskóla rifjuð upp. Línuleg og ólínuleg föll. Prósentureikningur og grunnatriði í fjármálastærðfræði. Diffrun og hlutdiffrun. Hámörkun og lágmörkun með og án hliðarskilyrða, aðferð Lagrange. Heildun. Undirstöðuatriði fylkjareiknings.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verður fjallað um gagnrýna hugsun, siðferði, hópavinnu, samskipti, hlustun, notkun gervigreindar, skriflega framsetningu og kynningu á verkefnum. Nemendur vinna hóp- og einstaklingsverkefni af ýmsum toga
Markmið námskeiðs er að veita nemendum grundvallarfærni í faglegum akademískum vinnubrögðum í viðskiptafræði; meðal annars er lögð áhersla á að nemendur öðlist leikni við skrif, framsetningu, úrvinnslu heimilda og hvernig vinna á í hópum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðVIÐ303GInngangur að alþjóðaviðskiptumBundið valnámskeið6Bundið valnámskeið háð skilyrðum6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjallað er um helstu kenningar í alþjóðaviðskiptum, umhverfi og þróun. Þá er fjallað um áhrif menningar í alþjóðlegum viðskiptum, alþjóðlega mannauðsstjórnun, erlenda fjárfestingu og staðsetningu framleiðslu. Fjallað er um mögulegar leiðir við alþjóðavæðingu fyrirtækja, kosti þess og galla fyrir fyrirtæki að hafa starfsemi erlendis, útrás íslenskra fyrirtækja og hvað má læra af sögunni, skipulag alþjóðlegs rekstrar, alþjóðlega markaðssetningu og þróunarstarf, alþjóðlegt samstarf og stjórnun. Þá verður fjallað um hvernig kreppur hafa áhrif á rekstur sem og heimsfaraldur á borð við Covid 19.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðVIÐ302GLögfræði A - almenn viðskiptalögfræðiBundið valnámskeið6Bundið valnámskeið háð skilyrðum6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er farið yfir atriði í íslenskri lögfræði m.a. helstu réttarheimildir, uppbyggingu á íslensku réttarkerfi og stjórnsýslu. Þá verður farið yfir réttarsvið sem horfa ber til í daglegum viðskiptum.
Tilgangur námskeiðsins er að undirbúa nemendur undir viðfangsefni sem líkleg eru til þess að verða á vegi þeirra í störfum í viðskiptalífinu. Lögð er áhersla að nemendur fái kynningu á lögfræðinni til að geta betur greint lögfræðileg úrlausnarefni og tekið á þeim áður en þau verða að lögfræðilegum vandamálum.
Helstu viðfangsefni til umfjöllunar eru: Réttarheimildir, stjórnsýsluréttur, samningar, tilurð þeirra, túlkun og gildi, helstu reglur um lausfjárkaup og úrræði samningsaðila vegna galla og annarra vanefnda ásamt fullnustugerðum. Fjallað verður um gjaldþrotaskipti, kröfurétt, félaga- og samkeppnisrétt og persónuvernd.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið með námskeiðunum Fjármál I og Fjármál II er að nemendur tileinki sér:
* Aðferðir að meta gildi einfaldra fjármálagerninga á mismunandi tíma; að reikna til núvirðis mismunandi fjárstrauma peningalegra eigna, verkefna og fastafjármuna.
* Tækni, við fjármálastjórn og áætlanagerð fyrirtækja.
* Aðferðir, sem fjármálafræði býr yfir, þegar leitað er lausna á torveldum viðfangsefnum.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðVIÐ103GInngangur að fjárhagsbókhaldiBundið valnámskeið6Bundið valnámskeið háð skilyrðum6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMeginmarkmið námskeiðsins er að kynna grundvallaratriði fjárhagsbókhalds og ársreiknings og gera nemendur læsa á reikningsskil fyrirtækja.
Eðli tvíhliða bókhalds verður skýrt út frá bókhaldsjöfnunni og lögð áhersla á að nemendur skilji hvernig einstök viðskipti hafa áhrif á eignir, skuldir, eigið fé, tekjur og gjöld.
Fjallað verður um grundvallarforsendur, reglur og hugtök reikningshalds og form og uppbyggingu ársreiknings.
Sérstök áhersla verður lögð á rökrænt samhengi milli:
-
bókhalds,
-
rekstrarreiknings,
-
efnahagsreiknings,
-
eiginfjáryfirlits,
-
sjóðstreymisyfirlits.
Fjallað verður um hvað veldur breytingum á eigin fé og nemendur kynnast helstu aðferðum við greiningu ársreikninga, einkum útreikningi og túlkun kennitalna.
Notkun bókhaldskerfisins Reglu í seinni hluta námskeiðsins hefur það markmið að tengja fræðilega þekkingu nemenda við raunverulega framkvæmd bókhalds og gerð reikningsskila.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að kenna nemendum grunnatriði í hagrænni hugsun og meginkenningum í rekstrarhagfræði þannig að þeir kunni skil á helstu hugtökum og notkun. Framboð, eftirspurn og teygni. Neytendahagfræði. Markaðir, skilvirkni og velferð. Skattkerfi og áhrif skattlagningar. Ytri áhrif, samgæði og auðlindir. Ósamhverfar upplýsingar, freistnivandi og hrakval. Kostnaður við framleiðslu, samkeppni, fákeppni, einokun. Vinnumarkaður, mismunun og tekjuskipting. Verkaskipting og verslun.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið með námskeiðinu er að kynna fyrir viðskiptafræðinemum helstu grunnatriði í vinnumarkaðsfræðum (industrial/employee relations). Rætt verður um skipulag á íslenskum vinumarkaði, tvískiptingu hans og rætt um mun á hinum almenna og opinbera vinnumarkaði. Fjallað verður um kenningar um vinnumarkaðinn og samskipti aðila vinnumarkaðarins, stofnanauppbyggingu, hlutverk einstakra aðila á vinnumarkaði (verkalýðsfélög, atvinnurekendur og ríkisvald). Fjallað verður um kjarasamninga (fyrirtækja- og vinnustaðasamninga), vinnulöggjöfina, verkföll og verkfallskenningar. Enn fremur farið í helstu réttindi og skyldur í vinnusambandinu, ráðningarsamband, samkeppnisákvæði.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingThe course covers the basic principles and techniques of human resource management (HRM). A practical view is taken to integrate the contributions of the behavioral sciences with the technical aspect of implementing HRM practices of recruitment, performance management, development, rewards and employee relations. Not everyone taking this course will become a human resource professional, although they will learn about the role of different HRM professionals in organizations. As this will be the only HRM course that many business students take it is intended to build the base for them as managers playing an integral role in implementing and carrying out HRM policies and practices in organizations. In addition, managers have to understand the HRM department and be able to communicate and cooperate with HRM professionals. The course is designed to be an interactive class as the subject matter of HRM is quite rich and complex. Therefore both preparation before class and participation in class are important factors of the learning process. Practical exercises and analysis of cases will take place in class.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingFjallað er um markaðsrannsóknarferlið og mismunandi tegundir og aðferðir markaðsrannsókna. Gerður er greinarmunur á megindlegum og eigindlegum aðferðum og við hvaða aðstæður hvor aðferðir hentar betur. Fjallað er um fyrirliggjandi gögn og frumgögn og nemendur þjálfaðir í að vinna niðurstöður úr tölulegum gögnum og setja þær fram. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda í fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ siðmenntuðum ríkjum mynda fjármálastofnanir stoðkerfi efnahagslífsins. Hlutverk þeirra er að styðja fólk og fyrirtæki í allri framleiðslu þeirra og framkvæmdum, sem og að liðsinna í áhættustjórnun, áhættu, sem fólk og fyrirtæki tekst á hendur. Afar mikilvægt er að öðlast skilning á tilgangi og innri virkni fjármálafyrirtækja, til þess að geta séð fyrir um hegðun þeirra og framþróun. Þannig má öðlast færni við að draga ályktanir um áhrif þessara stofnana á raunhagkerfið sjálft frá einum tíma til annars, í einu landi eða öðru. Þetta námskeið miðar af því að kynna fjármálafræði (e. theory of finance) í gegnum sögu fjármálastofnana og fjármálaþjónustu, svo sem banka, greiðslumiðlunar, tryggingafélaga, seðlabanka, verðbréfamarkaða og afleiðumarkaða. Farið verður yfir styrkleika þessara stofnana sem og ófullkomleika, til að varpa ljósi á það, hvert þessar stofnanir stefna til framtíðar. Íslenska bankahrunið býður upp á ótal dæmi, sem dreginn verður lærdómur af í gegnum allt námskeiðið.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að nemandinn þekki vel til þeirra lykilþátta sem mynda markaðsmál með sérstakri og skarpri áherslu á stjórnun vörumerkja. Marmiðið er að nemandinn skilji lykiláherslur vörumerkjafræða og átti sig á hvernig einstakir þættir þess sviðs tengjast innbyrðis. Ekki síst er lögð áhersla að nemandi átti sig á tengingu vörumerkjafræða við stefnumótun, samkeppnisstöðu og aðgreiningu á markaði.
Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda í fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNámskeiðið er ætlað nemendum á fjármála- eða reikningshaldskjörsviði. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu og skilning á atriðum sem stjórnendur fyrirtækja þurfa að tileinka sér til að geta lagt fram ársreikning samkvæmt viðurkenndum reikningsskilaaðferðum. Í námskeiðinu verður fjallað um helstu reglur í reikningshaldi sem gilda samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum og ákvæðum íslenskra laga. Farið verður yfir: formkröfur reikningsskila, rekstrarreikning, efnahagsreikning og sjóðstreymi. Meðferð tekna og kostnaðar, meðhöndlun birgða, viðskiptakröfur, varanlega rekstrarfjármuni, óefnislegar eignir, tekjuskatt, virðisrýrnunarpróf, bókun áhættufjármuna og skulda, skammtímaskuldir, langtímalán og eiginfjárliði. Verkefni verða lögð fyrir.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuVIÐ522GSkapandi atvinnugreinarValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið námsskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á sérstöðu skapandi atvinnugreina og lista sem hvorutveggja eru háð styrkjum til framfærslu sinnar á sama tíma og hluti af sömu greinum eru í arðbærum rekstri. Jafnframt verður framtíð skapandi atvinnugreina skoðuð í ljósi aukinnar alþjóðavæðingar ekki síst í formi starfrænnar dreifingar.
Kennslan mun fara fram í formi fyrirlestra og umræðutíma og verða gestafyrirlestrar og kynningar fyrirtækja í skapandi atvinnugreinum eftir efnum.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er viðfangsefnið lífshlaup og einkenni verkefna, markmið, verkgreining, sundurliðun verkþátta og flæðirit, áætlanagerð, aðfangastýring, lágmörkun verkefnatímans, áhættustýring, verkkaupin, verkefnastjórinn, verkefnateymið, hagaðila og samspil allra þessara þátta.
Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir; fyrirlestrar, umræður, verkefnavinna, þar sem leitast er við að ýta undir áhuga, vikni og þátttöku nemenda.
Athugið, nemendur þurfa að stofna sér aðgang og kaupa bókina Project Management, The Managerial Proces á heimasíðu McGraw - Hill. Nánari upplýsingar má finna á Canvas síðu námskeiðsins.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu verður farið yfir meginreglur ísl. skattalaga um skattskylda aðila og skattskyldar tekjur þar á meðal hvaða gjöld heimilt er að draga frá þeim. Sérstök áhersla verður lögð á uppgjör tekjuskattsstofna hjá einstaklingum og sjálfstætt starfandi með úrlausnum á dæmum og raunhæfum verkefnum. Kynnt verður gerð skattframtals einstaklinga og hjóna svo og atvinnurekstrarframtals. Fjallað verður um ákvörðun hvers konar bóta og afslátta frá skatti. Farið verður yfir grundvallarreglur réttarfars í skattamálum, endurákvarðanir á sköttum og afleiðingar af vísvitandi röngum skattskilum. Veitt verður innsýn í meginreglur laga um virðisaukaskatt og tryggingagjald. Að námskeiðinu loknu er við það miðað að námsmaður geti talið fram fyrir einstaklinga og lítil fyrirtæki svo og kært skattákvörðun ef hún er röng að hans mati.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðVIÐ502GUII - viðskiptagreining og gagnavinnslaValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að kynna fyrir nemendum verkfæri upplýsingatækni sem nýtast við stefnumótun og ákvarðanatöku á sviði viðskiptalífsins. Lögð er áhersla á að nemendur auki færni sína í úrvinnslu gagna, skoðuð uppbygging gagnagrunna, vöruhús og SQL fyrirspurnamálið. Farið er yfir viðskiptagreiningu, gervigreind, gagnavísindi, rafræn viðskipti. Skoðuð helstu notkunarsvið og hvernig hún styður við stefnumótun og ákvarðanatöku í stjórnun og rekstri.
Áhersla er lögð á að leysa hagnýt verkefni með ýmsum verkfærum s.s. Excel, Access, og Power BI.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNámskeiðinu er ætlað að búa nemendur undir að starfa á vettvangi alþjóðaviðskipta, efla menningarlæsi þeirra og aðlögunarhæfni. Markmið námskeiðsins eru að nemendur: Þekki og geti beitt helstu kenningum um menningarlegan mismun og fjölbreytileika. Hafi skilning á og séu meðvitaðir um eigin menningu, gildi og viðhorf og áhrif þeirra á samskipti og hegðun. Hafi skilning á og geti greint vinnumenningu og þjóðmenningu. Hafi skilning á viðskiptum í menningarlega fjölbreyttu samfélagi og samskiptum ólikra hópa. Geti aðlagað sig að fjölbreyttum aðstæðum og átt samskipti við einstaklinga og hópa frá fjölbreyttum menningarheimum. Nemendur taka þátt í fjölmenningarlegri hópvinnu, flytja fyrirlestra og skrifa skýrslur. Öll kennsla og samskipti í námskeiðinu fara fram á ensku.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
NámskeiðslýsingNámskeiðið er framhald af Inngangi að fjárhagsbókhaldi. Lögð er áhersla á færslutæknileg atriði í bókhaldi og við lokun uppgjörstímabils, niðurfærsla viðskiptakrafna, afskriftir varanlegra rekstrarfjármuna, viðskiptavild og aðrar óefnislegar eignir, birgðamatsaðferðir, afföll og yfirverð á skuldabréfum, ábyrgðarskuldbindingar, tekjuskattsskuldbinding o.fl. Flokkun áhættufjármuna og peningalegra eigna. Sjóðstreymi. Fyrirmæli laga um ársreikninga verða skoðuð rækilega og höfð hliðsjón af alþjóðlegum reikningsskilastöðlum, IFRS. Útreikningur tekjuskatts er tekinn til meðferðar. Lögð verða verkefni fyrir nemendur í því skyni að gera þá færa um að semja tiltölulega einfaldan ársreikning. Skilaskylt heimaverkefni.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingGóðir stjórnarhættir og sérstaklega vönduð fjármálastjórnun hafa úrslitaáhrif á rekstrarárangur fyrirtækja. Fjármál II er framhald af Fjármálum I þar sem meginviðfangsefnið er fyrirtækið sjálft og hvernig það er rekið í fjármálalegu tilliti. Þá er farið yfir hvað eru góðir stjórnarhættir, hvernig hvatarnir liggja innan fyrirtækja og hvaða áhrif þeir kunna að hafa á fjárhagslega afkomu félagsins. Meginviðfangsefni námskeiðsins er fjármálastjórnun, þ.e. fjármagnsskipan félagsins, skammtíma fjármögnun og langtímafjármögnun, gerð fjármögnunaráætlana, arðgreiðslur til hluthafa, fjárfestingarákvarðanir félagsins, hlutskipti og hegðan þess á fjármálamarkaðnum sjálfum. Þá verður einnig farið yfir þær ákvarðanir sem stjórnendur standa frammi fyrir þegar verulegir fjárhagserfiðleikar eiga sér stað.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að þátttakendur: Geti tjáð hug sinn skýrt í töluðu máli, séu öruggir, áheyrilegir og í góðu sambandi við áheyrendur. Geti tjáð sig skýrt og markvisst í rituðu máli. Þekki fræðin um upplýsingamiðlun á vinnumarkaði. Munnleg tjáning: Raddbeiting, framsögn og öndun. Áheyrileiki og samband við áheyrendur. Kvíði og aðferðir til að yfirvinna hann. Skýrt skipulag og efnistök. Tjáning á fundum og í smærri hópum. Skrifleg tjáning: Einföldun upplýsinga, skýrslugerð og gerð ferilskráa. Upplýsingamiðlun: Skipulag, aðgengi og notagildi upplýsinga, notendagreining. Nemendur taka þátt í munnlegum og skriflegum æfingum. Námskeiðið er kennt á ensku.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðVIÐ201GUI - tölvunotkun og töflureiknirBundið valnámskeið6Bundið valnámskeið háð skilyrðum6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðinu er skipt í verklegan- og fræðilegan hluta.
Í verklegum hluta verður farið yfir helstu þætti Excel með áherslu á fjármálaútreikninga, gerð rekstrarlíkana og úrvinnsla gagna. Farið verður yfir hagnýt verkefni sem ætla má að komi nemendum að gagni í öðrum greinum námsins og í starfi síðar meir.
Í fræðilegum hluta verður leitast við að gefa nemendum yfirsýn yfir tölvunotkun í fyrirtækjum, innsýn í fræðilegar hliðar tölvunotkunar og þá þætti sem máli skipta í fjárfestingu og rekstri tölvukerfa.
Í námskeiðinu er gert ráð fyrir að nemendur hafi tölvu og þekkingu á notkun stýrikerfis.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHAG201GEindahagfræði II (Rekstrarhagfræði II)Bundið valnámskeið6Bundið valnámskeið háð skilyrðum6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið er framhald af Inngangur að hagfræði/Rekstrarhagfræði I. Áhersla er lögð á nemar öðlist bæði víðtækari og dýpri þekkingu á kenningum hagfræðinnar. Það verður gert með því að gera frekari grein fyrir helstu kenningum í rekstrarhagfræði og sýna hvernig nota megi fræðin til að fjalla skipulega um margvísleg mál.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að byggja traustan grunn undir notkun tölfræði í öðrum námskeiðum, í starfi og í daglegu lífi, og að gera nemendur talnagleggri. Efni: Lýsandi tölfræði. Líkindafræði: atburðir, líkur, hendingar, helstu dreifingar. Ályktunartölfræði. matsaðferðir, tölfræðileg próf. Línulegt aðhvarf.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingKynning á rekstrarbókhaldi. Kynnt verða fjölmörg kostnaðarhugtök og kostnaðargreining (núllpunktsgreining). Farið yfir helstu aðferðir við bókun framleiðslukostnaðar og skiptingu óbeins kostnaðar. Munurinn á rekstrarreikningi út frá aðferð fjárhagsbókhalds og með framlegðarútreikningi. Áætlanagerð, staðalbókhald og frávikagreining. Frammistöðumat deilda og afurða og skipting kostnaðar. Að námskeiðinu loknu eiga nemendur að hafa góðan skilning á mikilvægi rekstrarbókhalds við ákvarðanatöku um rekstur fyrirtækja.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMeginmarkmið námskeiðsins er að nemendur kynnist grundvallar hugtökum, kenningum og aðferðum í stjórnun og forystu fyrirtækja og stofnana. Nálgunin og sjónarhornið er út frá viðfangsefnum og hlutverkum stjórnenda og stjórnun mannauðsins.
Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir; fyrirlestrar, gestafyrirlestrasr, umræður, verkefnavinna, og herminám þar sem leitast er við að ýta undir áhuga, vikni og þátttöku nemenda.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingFjallað er um eðli og eiginleika þjónustu, þjónustuþríhyrninginn, þjónustugapið, kauphegðun í þjónustu, væntingar og skynjun ásamt mikilvægi þess að byggja upp varanlegt samband við réttan hóp viðskiptavina. Einnig er fjallað um hönnun þjónustu, staðla og viðmið, umgjörð þjónustu, hlutverk viðskiptavinar í árangursríkri þjónustuframkvæmd, hlutverk starfsfólks í árangursríkri þjónustuframkvæmd, jafnvægi framboðs og eftirspurnar þegar þjónusta er annars vegar, verðlagningu og hvað ber að hafa í huga þegar mótuð er kynningarstefna fyrir þjónustulausnir. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda í fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingVelkomin í Rekstrarstjórnun
Hefurðu einhvern tíma tekið eftir því hvernig allt í kringum okkur virðist einhvern veginn bara virka? Um það snýst þetta námskeið - að afhjúpa heillandi heim ferla í fyrirtækjum sem og daglegu lífi okkar. Við munum kanna hvernig hlutirnir verða til, allt frá minnstu græjum til stærstu véla. Þetta snýst ekki bara um verksmiðjur og færibönd, heldur munum við kynna okkur hvernig allt frá þínu uppáhalds kaffihúsi til allra nýjustu tæknifyrirtækjanna nota ferla til að skila okkur vörum.
Kafað verður ofan í hvernig á að hanna þessa ferla, halda þeim gangandi og bæta þá stöðugt.
Vertu því tilbúin til að líta á heiminn í kringum þig á nýjan hátt, sem röð ferla sem gera líf okkar betra. Vertu tilbúin til að sjá heiminn eins og rekstrarstjóri.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðVIÐ415GStjórnun og skipulagsheildirBundið valnámskeið6Bundið valnámskeið háð skilyrðum6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmiðið er að nemendur öðlist þekkingu og skilning á því hvað skipulagsheild er og á því umhverfi sem skipulagsheildir starfa í. Fjallað er um hagsmunaaðila og hvernig má auka líkurnar á því að ná árangri og virðisauka í rekstri skipulagsheilda. Farið er yfir áhrifaþætti og áskoranir er varða hönnun skipulags og siðferðislegar og samfélagslegar áskoranir. Komið er inn á hvernig ýmsar breytingar og þróun geta haft áhrif á ákvarðanatöku, skipulag, stefnu, starfsfólk og menningu. Einnig er fjallað um umbreytingar og líftíma skipulagsheilda, sem og ágreining og völd. Þá verður getið um áhrif gervigreindar á skipulag og starfshætti skipulagsheilda.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ upphafi námskeiðs er áherslan á umfjöllun um fagið og skilgreiningar á lykilhugtökum. Markmiðið er að nemandinn nái vel utan um þekkinguna og þau viðfangsefni sem fagið spannar. Síðan er viðfangsefnið greining á ytra umhverfi fyrirtækja og innra umhverfi þeirra. Markmiðið þar er að nemendur nái skilningi og færni í að meta stöðu fyrirtækjanna, þ.m.t styrkleika þeirra og þau tækifæri sem þeim bjóðast. Þá er farið yfir það sem ná þarf utan um í stefnumótun fyrirtækis, sérstaklega heildarstefnu og viðskiptastefnu. Að lokum er farið yfir það sem tryggir árangursríka framkvæmd stefnu. Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir; fyrirlestrar, umræður, verkefnavinna, þar sem leitast er við að ýta undir áhuga, vikni og þátttöku nemenda.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingFjölbreytileiki er flókið og margþætt fyrirbæri. Í þessu námskeiði verður kafað inn í þetta flókna fyrirbæri með því að veita innsýn inn í félagsfræði, sálfræði, alþjóðasamskipti, mannkynssögu, stjórnun, viðskipti og rannsóknir um skipulagsheildir. Þetta námskeið er hannað með það að markmiði að byggja upp skilning á grunnhugtökum og grundvallarreglum í stjórnun fjölbreytileika, til að gera nemendum kleift að efla samskipti sín við fólk með mismunandi bakgrunn og eiginleika. Það er nauðsynlegt fyrir stjórnendur og starfsfólk skipulagsheilda að þróa fræðileg, hugtaka- og hæfniviðmið, til að auka skilning í þessu sérstaka samhengi og til að geta þróað áhrifaríkar leiðir í stjórnun fjölbreytileika.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNámskeiðið er beint framhald af námskeiðinu Ársreikningagerð A, sem kennt er á haustmisseri. Reiknað er með að nemendum þessa námskeiðs sé fullkunnugt efni fyrra námskeiðsins.
Í námskeiðinu verður fjallað um gildandi reglur í reikningshaldi samkvæmt IFRS og ákvæðum íslenskra laga. Umfjöllunarefni: sjóðstreymi, tekjuskattur, hagnaður á hlut, fjármálagerningar, tekjuskráning, skuldbindingar, fjármögnunarleigusamningar, fastafjármunir til sölu og aflagður rekstur, fjárfestingaeignir, skuldbindingar, upplýsingar í ársreikningi og tengdir aðilar.Verkefni verða lögð fyrir og er skilaskylda á þeim.
Áskilinn réttur til breytingar á námskeiðslýsingu.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingUmfjöllunarefni námskeiðsins er gerð stefnumiðaðra markaðsáætlana. Farið er ítarlega í þá aðferðafræði sem tengist gerð markaðsáætlunar, allt frá greiningu markaðstækifæra til aðgerðaáætlunar. Fjallað er um aðferðir við að greina stöðu vöru eða þjónustu á markaði, hvernig móta á markaðsstefnu og hvernig samvali söluráðanna skuli hátta. Nemendur vinna stefnumiðaða
markaðsáætlun fyrir vöru eða þjónustu, 4 í hóp og er ætlað að koma sjálfir með tillögu að verkefnum fyrir skipulagsheild sem þeir vinna undir handleiðslu kennara.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingFjallað verður um þá aðferðafræði sem liggur að baki ákvarðanatöku fjárfesta og fyrirtækja við myndun og stýringu eigna- og skuldasafna. Áhættustýring fyrirtækja verður einnig tekin fyrir.
Námskeiðið er kennt á ensku
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðAnnað ár- Haust
- MOM101G, MOM102GMál og menning I: Vinnulag og aðferðir í hugvísindumSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Meginmarkmið námskeiðsins er að veita nemendum grunnþjálfun í meðferð ritaðs máls og fræðilegum skrifum. Nemendur hljóta þjálfun í ritun með vikulegum heimaverkefnum, fyrirlestrum, umræðum og ritstundum. Auk þess heimsækja nemendur Ritver Háskóla Íslands og fá þar ráðgjöf. Í námskeiðinu er fjallað um vinnulag við ritun fræðilegra texta, val og afmörkun viðfangsefnis, byggingu ritsmíðarinnar, heimildanotkun og frágang. Nemendur fá einnig þjálfun í málnotkun í fræðilegum textum og fjallað verður meðal annars um málsnið, stíl, stafsetningu, greinarmerkjasetningu og hjálpargögn málnotenda. Nemendur skrifa fræðilega ritgerð í leiðsagnarmati og fá reglulega endurgjöf kennara og aðstoðarkennara. Námsmat byggist á vikulegum heimaverkefnum, miðmisserisverkefni, lokaverkefni og virkri þátttöku nemenda í tímum, ritstundum og heimsóknum í Ritverið.
ATHUGIÐ! NÁMSKEIÐIÐ ER KENNT Á ÍSLENSKU OG Í STAÐNÁMI. ÞEIR SEM TAKA NÁMSKEIÐIÐ Á ENSKU OG Í FJARNÁMI EIGA AÐ VERA SKRÁÐIR Í MOM102G.
MOM101G er ætlað nemendum í erlendum tungumálum ÖÐRUM en ensku. Nemendur í ensku og þeir sem ekki eiga íslensku að móðurmáli eiga að vera skráðir í MOM102G.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMOM101G, MOM102GMál og menning I: Vinnulag og aðferðir í hugvísindumSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNámskeiðið er inngangsnámskeið í Mála- og menningardeild. Megin markmið og tilgangur námskeiðsins er kynning á grundvallar hugtökum og sértækum orðaforða á þessu sviði, skoðun á gagnrýnni hugsun til að auka lesskilning akademískra texta, innleyðing gagnlegra námsaðferða og fræðilegra vinnubragða er stuðla að árangursríku háskólanámi, umræður um ritstuld og fræðilegan heiðarleika, mat á fræðilegum kröfum o.s.frv. Nemendur fá hagnýta þjálfun í gagnrýnu mati á fræðilegum textum og gagnrýnni greiningu innihalds þeirra, að þekkja/auðkenna ákveðna orðræðu (munstur) og uppbyggingu ýmissa textategunda, að velja viðeigandi og trúverðugar heimildir og kynningu á greinandi lestri. Að auki fá nemendur að kynnast mikilvægi akademísks læsis til að auka skilning á fræðilegu efni, ritun þess og framsetningu.
Námskeiðið er kennt á ensku og er ætlað nemendum:
- Í ensku til BA
- Annarra erlendra tungumála en ensku
*Þeir nemendur sem vantar einingar vegna breyts fyrirkomulags Mála og menningar námskeiðana, þar sem MOM102 var áður 5 einingar, þurfa að bæta við sig einstaklingsverkefni (MOM001G, 1 eining) innan MOM102 námskeiðsins.
- Þetta einstaklingsverkefni er einungis ætlað þeim nemendum sem sátu MOM202G fyrir skólaárið 2024-2025, og eru núna í MOM102G, og því einungis með 9 einingar í Mála og menningar námskeiðunum.
- Nemendur sem ætla að bæta upp einingafjöldann með 6 eininga námskeiði innan greinar er frjálst að gera það og taka ekki þetta einstaklingsverkefni.
Til að skrá sig í einstaklingsverkefnið þarf að hafa samband við kennara MOM102G.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÞetta er kjarnanámskeiðið í japönsku fyrir byrjendur. Nemendur kynnast helstu reglum í japanskri málfræði. Áherslan er á talmál (samtöl). Nemendur læra að skilja talað mál og tjá sig í töluðu máli á japönsku. Lögð er áhersla á orðaforða daglegs lífs. Fyrirlestrar eru í byrjun viku og síðan fer kennslan fram í litlum hópum. Heimaæfingar og tímapróf verða tíð.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNemendur læra að lesa og skrifa japönsk tákn, þ.e. kana og kanji. Áhersla er lögð á tileinkun orðaforða og lestur og ritun einfaldra texta.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuJAP103GJapanskur framburður og skilningur á töluðu máli ISkyldunámskeið4Skyldunámskeið á námsleiðinni4 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFramburðaræfingar og þjálfun í að hlusta á japönsku. Æfingatímar fara að hluta til fram í málveri.
Athugið að upplýsingar um kennara verða uppfærðar vor 2024.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að gefa nemendum innsýn í japanskt þjóðfélag og menningu bæði fyrr og nú. Viðfangsefni námskeiðsins eru m.a. sjálfsmynd, menntun, trúarbrögð, hefðir og listir í Japan.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
NámskeiðslýsingFramhald af námskeiðinu Málnotkun I. Aðaláherslan er lögð á undirstöðuatriði í málfræði og orðaforða daglegs lífs. Reglulega verða tekin próf í tímum.
Athugið að upplýsingar um kennara verða uppfærðar vor 2024.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingFramhald af námskeiðinu Japanskt ritmál I. Áhersla verður lögð á að lesa, skrifa og skilja hiragana og katakana. Nemendur þurfa að ná tökum á 58 kanji. Reglulega eru próf í tímum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuJAP204GJapanskur framburður og skilningur á töluðu máli IISkyldunámskeið4Skyldunámskeið á námsleiðinni4 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFramhald á námskeiðinu Japanskur framburður og skilningur á töluðu máli I. Áhersla er lögð á framburð og talað mál. Æfingatímar fara að hluta til fram í málveri og að hluta til í litlum hópum undir stjórn kennara.
Athugið að upplýsingar um kennara verða uppfærðar vor 2024.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingYfirlits námskeið þar sem fjallað verður um sögu Japans frá forsögulegum tíma til samtímans. Saga Japans er mikið og stórt verkefni og því verður stiklað á stóru í þessu yfirlitsnámskeiði, en lögð verður áhersla á að nemendur öðlist skilning á þeim samfélagslegu þáttum sem hafa átt sinn þátt í að móta það menningarlega umhverfi sem fyrirfinnst í Japan nútímans. Fyrirlestrar nemenda munu skipa veigamikinn sess í tímum og nemendur hjálpast að við undirbúning á samantekt efnis til undirbúnings fyrir próf. Í rannsóknarverkefni munu nemendur fá tækifæri til að kynna sér ítarlegar sjálfvalið efni innan sögulega rammans.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNámskeiðslýsing:
Samsæriskenningar, falsfréttir, falsanir byggðar á gervigreind og afneitun á vísindalegum og sögulegum staðreyndum verða stöðugt algengari í okkar samtíma. Því er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að vera fær um að greina og skilja stjórnmál, menningu og samfélagið með gagnrýnu hugarfari.
Í námskeiðinu er athygli beint að menningu. Tilgangur þess er að efla getu ykkar sem nemendur og borgarar til þess að túlka texta og sjónræna menninguÞið fáið þjálfun í að beita túlkunarhæfni ykkar með greiningu á stuttum frásögnum og á myndum. Þið munuð einnig setja verkin í sögulegt samhengi og styðjast við valdar greinar um bókmenntafræði, menningarfræði og sjónræna menningu.
Megináhersla í kennslustundum verður lögð á að efla gagnrýna hugsun og umræður. Þið fáið tækifæri til að deila skoðunum ykkar með samnemendum og verða þátttakendur í túlkunarsamfélagi um viðfangsefni námskeiðsins.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingSamsæriskenningar, falsfréttir, falsanir byggðar á gervigreind og afneitun á vísindalegum og sögulegum staðreyndum verða stöðugt algengari í okkar samtíma. Því er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að vera fær um að greina og skilja stjórnmál, menningu og samfélagið með gagnrýnu hugarfari.
Í námskeiðinu er athygli beint að menningu. Tilgangur þess er að efla getu ykkar sem nemendur og borgarar til þess að túlka texta og sjónræna menningu. Þið fáið þjálfun í að beita túlkunarhæfni ykkar með greiningu á stuttum frásögnum og á myndum.
Þið munuð einnig setja verkin í sögulegt samhengi og styðjast við valdar greinar um bókmenntafræði, menningarfræði og sjónræna menningu.
Megináhersla í kennslustundum verður lögð á að efla gagnrýna hugsun og umræður. Þið fáið tækifæri til að deila skoðunum ykkar með samnemendum og verða þátttakendur í túlkunarsamfélagi um viðfangsefni námskeiðsins.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Haust
- Ekki kennt á misserinuJAP305GJapanskar nútímabókmenntirBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Nemendum eru kynntar stefnur og straumar í japönskum nútímabókmenntum, þar sem einkum er horft á þróun skáldskapar. Lesefni námskeiðsins eru þýðingar á ensku á smásögum og köflum úr stærri verkum frá Meiji tímabilinu til dagsins í dag. Áhersla er lögð á 20. öldina. Í tímum verða haldnir kynningarfyrirlestrar á lesefni og umræður um valda texta fara fram í kjölfarið.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingFjallað er um japanskar kvikmyndir frá upphafi til dagsins í dag með aðaláherslu á „klassíska tímabilið“ 1950-70 og leikstjóra á borð við Kurosawa, Ozu, Mizoguchi og fleiri. Fjallað verður um bakgrunn þekktra kvikmynda og efni þeirra greint til sjá hvernig japönsk menning, saga og þjóðfélag endurspeglast í þeim.
Skoðaðar verða valdar myndir eftir fyrrnefndra leikstjóra og einnig nýrri verk.
Kennt er á ensku.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að kynna helstu einkenni japansks þjóðfélags í dag. Rætt verður um ýmsar hliðar þjóðfélagsins, m.a. frá sjónarhorni menntakerfis, kynjahlutverka og fjölskyldu, fyrirtækjamenningar, stjórnmála og dægurmenningar. Fyrirlestrar skiptast niður á kennara eftir sérsviðum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingFramhald af Málnotkun II. Málfræði og orðaforði aukinn, auk talæfinga. Reglulega eru próf í tímum.
Athugið að upplýsingar um kennara verða uppfærðar vor 2024.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingFramhald af námskeiðinu Ritmál II. Nemendur munu læra frekar kanji, hiragana og katakana orð og orðasamsetningar. Þeir auka við skining sinn á lestri og ritun á japönsku máli. Reglulega eru próf í tímum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuJAP304GJapanskur framburður og skilningur á töluðu máli IIISkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFramhald af námskeiðinu Japanskur framburður og skilningur á töluðu máli II. Stefnt er að því að nemendur auki skilning sinn á hlustun og auki hæfni í framburði. Æfingatímar fara að hluta til fram í málveri og að hluta til í litlum hópum undir stjórn kennara.
Athugið að upplýsingar um kennara verða uppfærðar vor 2024.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuVIÐ506MAlþjóðaviðskipti í Asíu (Japan og Kína)Valnámskeið7,5Valnámskeið á námsleiðinni7,5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNemendur skoða alþjóðaviðskipti Vesturlanda og Asíu (Kína og Japan) út frá þjóðhagsfræðilegu sjónarmiði. Einnig nota örgreiningu (micro persective) á fyrirtæki sem stunda viðskipti í Asíu (Kína og Japan).
- Nemendur skoða hvernig viðskipti og fjárfestingarmynstur á Asíusvæðinu mótast af alþjóðlegu stjórnmálahagkerfi.
- Nemendur munu greina einstök fyrirtæki og viðskipti þeirra á Asíumarkaði, hvernig fjárfestingum (FDI) er háttað hjá þessum fyrirtækjum og greina virðiskeðju þeirra.
- Nemendur vinna raundæmi (Hópverkefni) á fyrirtæki sem stundar viðskipti í Asíu
Nánari lýsing:
Þetta námskeið er hugsað sem kynning á rekstri fyrirtækja og þjóðhagsfræðilegum atriðum með sérstaka tilvísun til Asíu og þá Japan og Kína. Í námskeiðinu er notast bæði við fræðilegar skilgreiningar sem og raundæmi. Námskeiðinu er skipt í 3 megin hluta:- Í fyrsta hluta verður þjóðhagsfræðilegt sjónarhorn á viðskipti og fjárfestingar á Asíu svæðinu rædd út frá einstökum gögnum um viðskipti, afleiðingum WTO sem og fríverslunarsamningar verða kynntir og afleiðingar þeirra, sérstaklega verður fríverslunarsamningur Kína og Íslands skoðaður og afleiðingar hans.
- Í öðrum hluta námskeiðsins verður örgreining (microperspective) á fyrirtæki sem stunda viðskipti í Asíu kynnt. Skoðuð verður bein erlend fjárfesting (FDI) og alþjóðlegar virðiskeðjur (GVC). Fræðileg nálgun verður notuð til að útskýra val fyrirtækja á staðsetningu vegna FDI. Vestræn fyrirtæki sem koma inn í Asíu sem og asísk fyrirtæki sem koma inn á vestræna markaði verða í brennidepli.
- Þriðji hluti námskeiðsins fer í verkefnavinnu þar sem nemendur greina fyrirtæki sem hefur starfsemi í Kína eða Japan eða þá kínversk/japönsk fyrirtæki sem hafa haslað sér völl á Íslandi. Nemendur vinna raundæmi (e.case) og gera rannsókn á fyrirtæki með starfsemi í Asíu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingBA-ritgerð er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið viðfangsefni innan sinnar fræðigreinar og gera grein fyrir rannsókn sinni í vönduðum fræðilegum texta. Nemendur skrifa BA-ritgerð um rannsóknarefni að eigin vali í samráði við leiðbeinanda sinn. Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst. Lokaritgerð er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, vinna úr heimildum, svo og til að nota fræðileg hjálpargögn (t.d. handbækur, orðabækur eða sambærilegar vefsíður).
Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands [https://ritver.hi.is/is] sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.
Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar https://gervigreind.hi.is/
Sjá nánar um reglur um BA-ritgerðir á Hugvísindasviði: https://ugla.hi.is/kerfi/view/page.php?sid=3544
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar- Vor
NámskeiðslýsingNámskeiðslýsing:
Samsæriskenningar, falsfréttir, falsanir byggðar á gervigreind og afneitun á vísindalegum og sögulegum staðreyndum verða stöðugt algengari í okkar samtíma. Því er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að vera fær um að greina og skilja stjórnmál, menningu og samfélagið með gagnrýnu hugarfari.
Í námskeiðinu er athygli beint að menningu. Tilgangur þess er að efla getu ykkar sem nemendur og borgarar til þess að túlka texta og sjónræna menninguÞið fáið þjálfun í að beita túlkunarhæfni ykkar með greiningu á stuttum frásögnum og á myndum. Þið munuð einnig setja verkin í sögulegt samhengi og styðjast við valdar greinar um bókmenntafræði, menningarfræði og sjónræna menningu.
Megináhersla í kennslustundum verður lögð á að efla gagnrýna hugsun og umræður. Þið fáið tækifæri til að deila skoðunum ykkar með samnemendum og verða þátttakendur í túlkunarsamfélagi um viðfangsefni námskeiðsins.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingSamsæriskenningar, falsfréttir, falsanir byggðar á gervigreind og afneitun á vísindalegum og sögulegum staðreyndum verða stöðugt algengari í okkar samtíma. Því er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að vera fær um að greina og skilja stjórnmál, menningu og samfélagið með gagnrýnu hugarfari.
Í námskeiðinu er athygli beint að menningu. Tilgangur þess er að efla getu ykkar sem nemendur og borgarar til þess að túlka texta og sjónræna menningu. Þið fáið þjálfun í að beita túlkunarhæfni ykkar með greiningu á stuttum frásögnum og á myndum.
Þið munuð einnig setja verkin í sögulegt samhengi og styðjast við valdar greinar um bókmenntafræði, menningarfræði og sjónræna menningu.
Megináhersla í kennslustundum verður lögð á að efla gagnrýna hugsun og umræður. Þið fáið tækifæri til að deila skoðunum ykkar með samnemendum og verða þátttakendur í túlkunarsamfélagi um viðfangsefni námskeiðsins.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMálnotkun IV er framhald af Málnotkun III. Farið verður nánar yfir námsefni á námskeiðunum Málnotkun I, II og III. Einnig verður farið í það efni sem nemendur hafa ekki náð góðum tökum á.
Athugið að upplýsingar um kennara verða uppfærðar vor 2024.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingFramhald af námskeiðinu Japanskt ritmál III. Haldið er áfram að kenna notkun hiragana, katakana og kanji. Reglulega eru próf í tímum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuJAP405GJapanskur framburður og skilningur á töluðu máli IVSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFramhald af námskeiðinu Japanskur framburður og skilningur á töluðu máli III. Áhersla er lögð á framburð og talað mál. Æfingatímar fara að hluta til fram í málveri og að hluta til í litlum hópum undir stjórn kennara.
Athugið að upplýsingar um kennara verða uppfærðar vor 2024.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuJAP502GLeikjafræði: Tölvuleikir og leikjamenningValnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmiðið með námskeiðinu er að veita nemendum grunnskilning á leikjafræðum (e. game studies). Um er að ræða nýtt fræðasvið sem hefur rutt sér til rúms á þeim forsendum að leikir, og þá sértaklega tölvuleikir, séu orðnir órjúfanlegur hluti af miðlamenningu samtímans. Í námskeiðinu munu nemendur kynnast lykiltextum og fást við grundvallarspurningar lækjafræðanna. Nemendur munu einnig kynnast fjölda raundæma úr leikjaheiminum þar sem kenningar verða ræddar í samhengi við ýmsa tölvuleiki og þeir skoðaðir frá ólíkum sjónarhornum – bæði út frá kenningum lækjafræðinnar og sem margþætt og vaxandi atvinnugrein. Veitt verður almennt yfirlit yfir þróun tölvuleikjasögunnar, en þó mun hluti námskeiðisins fjalla sérstaklega um japanska tölvuleiki. Að námskeiðinu loknu eiga nemendur að hafa öðlast almennan skilning á kenningum leikjafræðinnar og vera færir um að ræða leikjatengd álitamál á uppbyggilegan hátt.
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuJAP412G, JAP413GNútímasaga Austur-AsíuValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingAsía er stærst heimsálfanna og þar búa u.þ.b. tveir af hverjum þremur jarðarbúum. Asía hefur einnig í auknum mæli fest sig í sessi sem þungamiðja í efnahagslegum skilningi þar sem Kína, Japan og Indland eiga öll sæti á listanum yfir fimm stærstu efnahagveldi heims. Á sama tíma ríkir vaxandi spenna í álfunni sem m.a. skýrist af vígbúnaðarkapphlaupi kjarnorkuríkjanna, fjölda landamæradeilna, undiröldu þjóðernishyggju, eigna- og tekjuójöfnuði, sem og yfirvofandi umhverfis- og loftslagsvanda á stórum svæðum. Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum breiða sýn á sameiginlega sögu og samskipti ríkjanna í Austur-Asíu frá miðri 19. öld til dagsins í dag. Megináhersla verður lögð á Japan, Kína og Suður-Kóreu.
Á námskeiðinu verður farið yfir: kynningu á löndum, menningarsvæðum og öðrum svæðaskiptingum innan Asíu, nýlenduvæðingu og sjálfstæðisbaráttu, heimsstyrjaldirnar og kalda stríðið í Austur-Asíu, hlutverk Bandaríkjanna í álfunni, alþjóða- og svæðasamstarf (ASEAN, APEC, ADB), aukið vægi Kína og Indlands. Á námskeiðinu verður einnig farið yfir ýmis brýn mál í samtímanum allt frá „soft power“ stefnu til norðurslóðaáherslu Austur-Asíuríkjanna.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuJAP412G, JAP413GNútímasaga Austur-AsíuValnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingAsía er stærst heimsálfanna og þar búa u.þ.b. tveir af hverjum þremur jarðarbúum. Asía hefur einnig í auknum mæli fest sig í sessi sem þungamiðja í efnahagslegum skilningi þar sem Kína, Japan og Indland eiga öll sæti á listanum yfir fimm stærstu efnahagveldi heims. Á sama tíma ríkir vaxandi spenna í álfunni sem m.a. skýrist af vígbúnaðarkapphlaupi kjarnorkuríkjanna, fjölda landamæradeilna, undiröldu þjóðernishyggju, eigna- og tekjuójöfnuði, sem og yfirvofandi umhverfis- og loftslagsvanda á stórum svæðum. Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum breiða sýn á sameiginlega sögu og samskipti ríkjanna í Austur-Asíu frá miðri 19. öld til dagsins í dag. Megináhersla verður lögð á Japan, Kína og Suður-Kóreu.
Á námskeiðinu verður farið yfir: kynningu á löndum, menningarsvæðum og öðrum svæðaskiptingum innan Asíu, nýlenduvæðingu og sjálfstæðisbaráttu, heimsstyrjaldirnar og kalda stríðið í Austur-Asíu, hlutverk Bandaríkjanna í álfunni, alþjóða- og svæðasamstarf (ASEAN, APEC, ADB), aukið vægi Kína og Indlands. Á námskeiðinu verður einnig farið yfir ýmis brýn mál í samtímanum allt frá „soft power“ stefnu til norðurslóðaáherslu Austur-Asíuríkjanna.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingBA-ritgerð er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið viðfangsefni innan sinnar fræðigreinar og gera grein fyrir rannsókn sinni í vönduðum fræðilegum texta. Nemendur skrifa BA-ritgerð um rannsóknarefni að eigin vali í samráði við leiðbeinanda sinn. Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst. Lokaritgerð er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, vinna úr heimildum, svo og til að nota fræðileg hjálpargögn (t.d. handbækur, orðabækur eða sambærilegar vefsíður).
Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands [https://ritver.hi.is/is] sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.
Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar https://gervigreind.hi.is/
Sjá nánar um reglur um BA-ritgerðir á Hugvísindasviði: https://ugla.hi.is/kerfi/view/page.php?sid=3544
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðarNámskeiðslýsingValnámskeið í leiklist fyrir nemendur í Mála- og menningardeild, á 2. og 3. ári BA-náms, er samstarfsverkefni deildarinnar.
Nemendur vinna með þekkt leikverk á því tungumáli sem þeir eru að læra, en kennslan fer fram á íslensku og nemendur geta nýtt sér íslensku þýðinguna ef vill.
Nemendur velja senur úr verkinu með sviðsetningu í huga.
Þessi hluti skiptist í upphitunaræfingar, slökunaræfingar og ýmis konar framburðaræfingar. Vinna nemenda felst í samvinnu að leita leiða við uppsetningu þeirra sena sem valdar voru í fyrri hlutanum.
Kennarar í þeim tungumálum sem taka þátt aðstoða við framburð og tjáningu í viðkomandi tungumáli.
Kennslan fer fram í fyrirlestrasal Veraldar á miðvikudögum frá kl. 15:00 til 18:00 og er mæting forsenda þess að þetta verkefni nái markmiðum sínum.
Hámarksfjöldi nemenda er 15.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Haust
- HAG103GHeildahagfræði I (Þjóðhagfræði I)Bundið valnámskeið6Bundið valnámskeið háð skilyrðum6 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn í helstu kenningar og hugtök heildahagfræði. Fjallað verður um lögmál efnahagslífsins og helstu grundvallarkenningar heildahagfræðinnar um þróun hagstærða til skamms og langs tíma ásamt helstu hugtökum í efnahagsumræðu. Áhersla er lögð bæði á fræðilegt inntak og hagnýtt gildi námsefnisins og tengsl þess við ýmis efnahagsmál, sem eru ofarlega á baugi á Íslandi og erlendis. Staðgóð þekking á þjóðhagfræði býr nemendur undir ýmis önnur námskeið, og lífið.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingViðfangsefni námskeiðs eru markaðshugtakið, markaðsáherslur og tengsl markaðsfræðinnar við stjórnun og stefnumótun. Einnig er fjallað um greiningu á markaðsumhverfinu, greiningu á kauphegðun, stefnumótun markaðsmála, samkeppni og samkeppnisforskot. Að síðustu er fjallað um með hvaða hætti á að útfæra markaðsstarf svo árangur náist. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda í fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMikilvæg atriði úr námsefni framhaldsskóla rifjuð upp. Línuleg og ólínuleg föll. Prósentureikningur og grunnatriði í fjármálastærðfræði. Diffrun og hlutdiffrun. Hámörkun og lágmörkun með og án hliðarskilyrða, aðferð Lagrange. Heildun. Undirstöðuatriði fylkjareiknings.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verður fjallað um gagnrýna hugsun, siðferði, hópavinnu, samskipti, hlustun, notkun gervigreindar, skriflega framsetningu og kynningu á verkefnum. Nemendur vinna hóp- og einstaklingsverkefni af ýmsum toga
Markmið námskeiðs er að veita nemendum grundvallarfærni í faglegum akademískum vinnubrögðum í viðskiptafræði; meðal annars er lögð áhersla á að nemendur öðlist leikni við skrif, framsetningu, úrvinnslu heimilda og hvernig vinna á í hópum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðVIÐ303GInngangur að alþjóðaviðskiptumBundið valnámskeið6Bundið valnámskeið háð skilyrðum6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjallað er um helstu kenningar í alþjóðaviðskiptum, umhverfi og þróun. Þá er fjallað um áhrif menningar í alþjóðlegum viðskiptum, alþjóðlega mannauðsstjórnun, erlenda fjárfestingu og staðsetningu framleiðslu. Fjallað er um mögulegar leiðir við alþjóðavæðingu fyrirtækja, kosti þess og galla fyrir fyrirtæki að hafa starfsemi erlendis, útrás íslenskra fyrirtækja og hvað má læra af sögunni, skipulag alþjóðlegs rekstrar, alþjóðlega markaðssetningu og þróunarstarf, alþjóðlegt samstarf og stjórnun. Þá verður fjallað um hvernig kreppur hafa áhrif á rekstur sem og heimsfaraldur á borð við Covid 19.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðVIÐ302GLögfræði A - almenn viðskiptalögfræðiBundið valnámskeið6Bundið valnámskeið háð skilyrðum6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er farið yfir atriði í íslenskri lögfræði m.a. helstu réttarheimildir, uppbyggingu á íslensku réttarkerfi og stjórnsýslu. Þá verður farið yfir réttarsvið sem horfa ber til í daglegum viðskiptum.
Tilgangur námskeiðsins er að undirbúa nemendur undir viðfangsefni sem líkleg eru til þess að verða á vegi þeirra í störfum í viðskiptalífinu. Lögð er áhersla að nemendur fái kynningu á lögfræðinni til að geta betur greint lögfræðileg úrlausnarefni og tekið á þeim áður en þau verða að lögfræðilegum vandamálum.
Helstu viðfangsefni til umfjöllunar eru: Réttarheimildir, stjórnsýsluréttur, samningar, tilurð þeirra, túlkun og gildi, helstu reglur um lausfjárkaup og úrræði samningsaðila vegna galla og annarra vanefnda ásamt fullnustugerðum. Fjallað verður um gjaldþrotaskipti, kröfurétt, félaga- og samkeppnisrétt og persónuvernd.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið með námskeiðunum Fjármál I og Fjármál II er að nemendur tileinki sér:
* Aðferðir að meta gildi einfaldra fjármálagerninga á mismunandi tíma; að reikna til núvirðis mismunandi fjárstrauma peningalegra eigna, verkefna og fastafjármuna.
* Tækni, við fjármálastjórn og áætlanagerð fyrirtækja.
* Aðferðir, sem fjármálafræði býr yfir, þegar leitað er lausna á torveldum viðfangsefnum.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðVIÐ103GInngangur að fjárhagsbókhaldiBundið valnámskeið6Bundið valnámskeið háð skilyrðum6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMeginmarkmið námskeiðsins er að kynna grundvallaratriði fjárhagsbókhalds og ársreiknings og gera nemendur læsa á reikningsskil fyrirtækja.
Eðli tvíhliða bókhalds verður skýrt út frá bókhaldsjöfnunni og lögð áhersla á að nemendur skilji hvernig einstök viðskipti hafa áhrif á eignir, skuldir, eigið fé, tekjur og gjöld.
Fjallað verður um grundvallarforsendur, reglur og hugtök reikningshalds og form og uppbyggingu ársreiknings.
Sérstök áhersla verður lögð á rökrænt samhengi milli:
-
bókhalds,
-
rekstrarreiknings,
-
efnahagsreiknings,
-
eiginfjáryfirlits,
-
sjóðstreymisyfirlits.
Fjallað verður um hvað veldur breytingum á eigin fé og nemendur kynnast helstu aðferðum við greiningu ársreikninga, einkum útreikningi og túlkun kennitalna.
Notkun bókhaldskerfisins Reglu í seinni hluta námskeiðsins hefur það markmið að tengja fræðilega þekkingu nemenda við raunverulega framkvæmd bókhalds og gerð reikningsskila.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að kenna nemendum grunnatriði í hagrænni hugsun og meginkenningum í rekstrarhagfræði þannig að þeir kunni skil á helstu hugtökum og notkun. Framboð, eftirspurn og teygni. Neytendahagfræði. Markaðir, skilvirkni og velferð. Skattkerfi og áhrif skattlagningar. Ytri áhrif, samgæði og auðlindir. Ósamhverfar upplýsingar, freistnivandi og hrakval. Kostnaður við framleiðslu, samkeppni, fákeppni, einokun. Vinnumarkaður, mismunun og tekjuskipting. Verkaskipting og verslun.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið með námskeiðinu er að kynna fyrir viðskiptafræðinemum helstu grunnatriði í vinnumarkaðsfræðum (industrial/employee relations). Rætt verður um skipulag á íslenskum vinumarkaði, tvískiptingu hans og rætt um mun á hinum almenna og opinbera vinnumarkaði. Fjallað verður um kenningar um vinnumarkaðinn og samskipti aðila vinnumarkaðarins, stofnanauppbyggingu, hlutverk einstakra aðila á vinnumarkaði (verkalýðsfélög, atvinnurekendur og ríkisvald). Fjallað verður um kjarasamninga (fyrirtækja- og vinnustaðasamninga), vinnulöggjöfina, verkföll og verkfallskenningar. Enn fremur farið í helstu réttindi og skyldur í vinnusambandinu, ráðningarsamband, samkeppnisákvæði.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingThe course covers the basic principles and techniques of human resource management (HRM). A practical view is taken to integrate the contributions of the behavioral sciences with the technical aspect of implementing HRM practices of recruitment, performance management, development, rewards and employee relations. Not everyone taking this course will become a human resource professional, although they will learn about the role of different HRM professionals in organizations. As this will be the only HRM course that many business students take it is intended to build the base for them as managers playing an integral role in implementing and carrying out HRM policies and practices in organizations. In addition, managers have to understand the HRM department and be able to communicate and cooperate with HRM professionals. The course is designed to be an interactive class as the subject matter of HRM is quite rich and complex. Therefore both preparation before class and participation in class are important factors of the learning process. Practical exercises and analysis of cases will take place in class.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingFjallað er um markaðsrannsóknarferlið og mismunandi tegundir og aðferðir markaðsrannsókna. Gerður er greinarmunur á megindlegum og eigindlegum aðferðum og við hvaða aðstæður hvor aðferðir hentar betur. Fjallað er um fyrirliggjandi gögn og frumgögn og nemendur þjálfaðir í að vinna niðurstöður úr tölulegum gögnum og setja þær fram. Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda í fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ siðmenntuðum ríkjum mynda fjármálastofnanir stoðkerfi efnahagslífsins. Hlutverk þeirra er að styðja fólk og fyrirtæki í allri framleiðslu þeirra og framkvæmdum, sem og að liðsinna í áhættustjórnun, áhættu, sem fólk og fyrirtæki tekst á hendur. Afar mikilvægt er að öðlast skilning á tilgangi og innri virkni fjármálafyrirtækja, til þess að geta séð fyrir um hegðun þeirra og framþróun. Þannig má öðlast færni við að draga ályktanir um áhrif þessara stofnana á raunhagkerfið sjálft frá einum tíma til annars, í einu landi eða öðru. Þetta námskeið miðar af því að kynna fjármálafræði (e. theory of finance) í gegnum sögu fjármálastofnana og fjármálaþjónustu, svo sem banka, greiðslumiðlunar, tryggingafélaga, seðlabanka, verðbréfamarkaða og afleiðumarkaða. Farið verður yfir styrkleika þessara stofnana sem og ófullkomleika, til að varpa ljósi á það, hvert þessar stofnanir stefna til framtíðar. Íslenska bankahrunið býður upp á ótal dæmi, sem dreginn verður lærdómur af í gegnum allt námskeiðið.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að nemandinn þekki vel til þeirra lykilþátta sem mynda markaðsmál með sérstakri og skarpri áherslu á stjórnun vörumerkja. Marmiðið er að nemandinn skilji lykiláherslur vörumerkjafræða og átti sig á hvernig einstakir þættir þess sviðs tengjast innbyrðis. Ekki síst er lögð áhersla að nemandi átti sig á tengingu vörumerkjafræða við stefnumótun, samkeppnisstöðu og aðgreiningu á markaði.
Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda í fyrirlestrum, umræðum og verkefnavinnu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNámskeiðið er ætlað nemendum á fjármála- eða reikningshaldskjörsviði. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu og skilning á atriðum sem stjórnendur fyrirtækja þurfa að tileinka sér til að geta lagt fram ársreikning samkvæmt viðurkenndum reikningsskilaaðferðum. Í námskeiðinu verður fjallað um helstu reglur í reikningshaldi sem gilda samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum og ákvæðum íslenskra laga. Farið verður yfir: formkröfur reikningsskila, rekstrarreikning, efnahagsreikning og sjóðstreymi. Meðferð tekna og kostnaðar, meðhöndlun birgða, viðskiptakröfur, varanlega rekstrarfjármuni, óefnislegar eignir, tekjuskatt, virðisrýrnunarpróf, bókun áhættufjármuna og skulda, skammtímaskuldir, langtímalán og eiginfjárliði. Verkefni verða lögð fyrir.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðEkki kennt á misserinuVIÐ522GSkapandi atvinnugreinarValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið námsskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á sérstöðu skapandi atvinnugreina og lista sem hvorutveggja eru háð styrkjum til framfærslu sinnar á sama tíma og hluti af sömu greinum eru í arðbærum rekstri. Jafnframt verður framtíð skapandi atvinnugreina skoðuð í ljósi aukinnar alþjóðavæðingar ekki síst í formi starfrænnar dreifingar.
Kennslan mun fara fram í formi fyrirlestra og umræðutíma og verða gestafyrirlestrar og kynningar fyrirtækja í skapandi atvinnugreinum eftir efnum.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er viðfangsefnið lífshlaup og einkenni verkefna, markmið, verkgreining, sundurliðun verkþátta og flæðirit, áætlanagerð, aðfangastýring, lágmörkun verkefnatímans, áhættustýring, verkkaupin, verkefnastjórinn, verkefnateymið, hagaðila og samspil allra þessara þátta.
Nýttir verða fjölbreyttir kennsluhættir; fyrirlestrar, umræður, verkefnavinna, þar sem leitast er við að ýta undir áhuga, vikni og þátttöku nemenda.
Athugið, nemendur þurfa að stofna sér aðgang og kaupa bókina Project Management, The Managerial Proces á heimasíðu McGraw - Hill. Nánari upplýsingar má finna á Canvas síðu námskeiðsins.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÁ námskeiðinu verður farið yfir meginreglur ísl. skattalaga um skattskylda aðila og skattskyldar tekjur þar á meðal hvaða gjöld heimilt er að draga frá þeim. Sérstök áhersla verður lögð á uppgjör tekjuskattsstofna hjá einstaklingum og sjálfstætt starfandi með úrlausnum á dæmum og raunhæfum verkefnum. Kynnt verður gerð skattframtals einstaklinga og hjóna svo og atvinnurekstrarframtals. Fjallað verður um ákvörðun hvers konar bóta og afslátta frá skatti. Farið verður yfir grundvallarreglur réttarfars í skattamálum, endurákvarðanir á sköttum og afleiðingar af vísvitandi röngum skattskilum. Veitt verður innsýn í meginreglur laga um virðisaukaskatt og tryggingagjald. Að námskeiðinu loknu er við það miðað að námsmaður geti talið fram fyrir einstaklinga og lítil fyrirtæki svo og kært skattákvörðun ef hún er röng að hans mati.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðVIÐ502GUII - viðskiptagreining og gagnavinnslaValnámskeið6Valnámskeið á námsleiðinni6 einingar, ETCS