Hópur nýnema á lóð HÍ
Tungumál kennslu
Ítalska og enska. Flestar kennslubækur eru á ítölsku.
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á ítalskri tungu?
  • Hefur þú gaman af ítalskri sögu og menningu?
  • Þarftu að eiga samskipti á ítölsku í þínu starfi?
  • Viltu læra eða styrkja kunnáttu þína í ítölsku?

Nám í ítölsku við HÍ er opið bæði nemendum sem hafa enga kunnáttu í ítölsku svo og fyrir lengra komna.

Námið er í góðu samstarfi við tungumálaskóla á Ítalíu og veitir nemendum möguleika á að eyða spennandi tímabili á kafi í tungumálinu auk allrar listar, matarmenningar og arkitektúrs sem hægt er að finna í ítölskum borgum.

Meðal viðfangsefna

  • Ítölsk málfræði
  • Listasaga Ítalíu
  • Ítalska óperan
  • Málnotkun og talþjálfun
  • Bókmenntir
  • Kvikmyndir frá Ítalíu
  • Latína
  • Land, menning og saga
  • Þýðingar
  • Ítölsk málvísindi

Markmið

Markmið ítölskunáms við Háskóla Íslands er að kenna nemendum að njóta ítalskrar tungu, sögu, bókmennta, kvikmynda og lista.

Nemendur eru þjálfaðir í notkun málsins og fá færni til að lesa og skilja bókmenntatexta út frá félagslegu og sögulegu baksviði þeirra.

Annað

Það er einnig hægt að taka ítölsku sem:

Meira um aðal- og aukagreina undir Hjálplegt efni neðst á síðunni.

Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf frá erlendum skóla.

Til þess að ljúka diplómanámi í ítölsku þarf nemandi að ljúka öllum skyldunámskeiðunum sem tilgreind eru á námsleiðinni:

  • ÍTA119G Ítölsk málfræð I 10e
  • ÍTA120G Málnotkun og talþjálfun I 10e
  • ÍTA004G Sjálfsnám í ítölsku II 5e
  • ÍTA249G Ítölsk málfræði II 10e
  • ÍTA250G Málnotkun og talþjálfun II 10e

Nemendur velja sér 15 einingar af valnámskeiðum á kennsluskrá.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Óháð námsári | Haust
Ítölsk málfræði I (ÍTA119G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kúrsinum er ætlað að byggja upp alveg frá grunni samskiptahæfni á ítölsku, að bæta málfræðikunnáttu, setningafræði og orðaforða, að bæta skilning og getu með stigvaxandi framsetningu ósvikins efnis til lestrar og hlustunar. Námskeiðið er kennt bæði á íslensku og ítölsku.

Kennslutungumál: Íslenska/Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Málnotkun og talþjálfun I (ÍTA120G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kúrsinn er opinn nemendum sem ekki hafa kunnáttu í ítölsku fyrir og tengist kúrsinum Ítölsk málfræði I. Það verða einstaklingsverkefni og hópverkefni eins og hlustun, samtöl, lestur, leikur, role-play og svo framvegis. Með notkun málvers er hægt að styrkja framburð og bæta skilning á töluðu máli. Námskeiðið er kennt bæði á ensku og ítölsku.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Sjálfsnám í ítölsku I (fjarnám) (ÍTA003G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Sjálfsnám í ítölsku I er nemendastýrt fjarnám fyrir þá sem hafa náð færni sem samsvarar A2 eða meira skv. Evrópska tungumálarammanum.

Nemendur stjórna að hluta til helstu þáttum námsins svo sem markmiðum, aðferðum og efnisvali. Námið fer fram í nánu samstarfi við umsjónarkennara sem nemendur hitta í sérstökum viðtölum 3 sinnum á kennslutímabilinu. Auk þess taka nemendur þátt í vinnustofum til að þjálfa talmál og ritun. Námsmat tekur tillit til allra færniþátta: ritun, lestur, talmál og hlustun.

Kennslutungumál: Enska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Haust
Land, menning og saga (ÍTA324G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þessu byrjendanámskeiði er ætlað að draga upp yfirlitsmynd af Ítalíu samtímans og kynna fyrir nemendum menningu, landafræði og samfélag. Farið nánar út í málefni er snúa að landsvæðum og almenningi, ríksstofnunum, menningu og efnahag auk þess sem drepið verður á hefðum landsins og matarmenningu.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Ítalska óperan (ÍTA420G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

The objective of this course is to introduce the students to the world of Italian music, and in particular to one of its most successful products: the Opera. In particular, the course will aim to provide some tools and to develop the necessary awareness for an enjoyable fruition of this art form.

The course will start by offering a preliminary and rudimentary foundation of music history and theory, where students will also learn some basic notions of music notation. The course will include an overview on the history of western classical music, to better understand how the Opera came into being. Students will thus become acquainted with the main features of its development.

Pivotal figures in the development of the genre will be presented, along with some of their most significant works, particularly Monteverdi, Mozart, Rossini, Verdi and Puccini.

Listening assignments will be administered weekly and students will become acquainted with a number of fundamental entries of the classical canon and repertoire.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Sjálfsnám í ítölsku II (ÍTA004G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Sjálfsnám í ítölsku II er nemendastýrt fjarnám fyrir þá sem hafa náð færni sem samsvarar A2 eða meira skv. Evrópska tungumálarammanum.

Nemendur stjórna að hluta til helstu þáttum námsins svo sem markmiðum, aðferðum og efnisvali. Um er að ræða framhaldsnámskeið fyrir þá nemendur sem hafa lokið Sjálfsnámi í ítölsku I. Það námskeið er þó ekki nauðsynlegur undirbúningur og nýir nemendur geta skráð sig í þetta námskeið að uppfylltum forkröfum. Sjálfsnám fer fram í nánu samstarfi við umsjónarkennara sem nemendur hitta í sérstökum viðtölum 3 sinnum á misseri. Auk þess taka nemendur þátt í vinnustofum til að þjálfa talmál og ritun. Námsmat tekur tillit til allra færniþátta: ritun, lestur, talmál og hlustun.

Kennslutungumál: Enska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Ítölsk málfræði II (ÍTA249G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

ÍTÖLSK MÁLFRÆÐI II er námskeið fyrir sjálfstæða notendur í málinu (B1-B2) og tengist námskeiðinu ÍTA250G Málnotkun og talþjálfun II (Language Use and Oral Expression II). Markmiðið er að læra grunnreglur ítalskrar málfræði og er kennt tvisvar í viku. Aukatími til að æfa málið er einu sinni á viku í Tungumálamiðstöðinni á 2. hæð í Veröld - húsi Vigdísar.

Kennslutungumál: Ítalska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Málnotkun og talþjálfun II (ÍTA250G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Framhald af námskeiðinu Málnotkun og talþjálfun I.

Kennslutungumál: Ítalska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Inngangur að ítölskum bókmenntum (ÍTA248G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur kynnast kenningum, heitum og hugtökum í bókmenntafræði með áherslu á ítalskar bókmenntir.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Ítalskar kvikmyndir (ÍTA403G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu Ítalskar kvikmyndir er nemendum veitt innsýn í sögu kvikmyndagerðar á ítalíu á tuttugustu öld. Raktir verða helstu þættir sem hafa haft áhrif á ítalska kvikmyndagerð og reynt að greina hvað það er sem helst einkennir ítalskar kvikmyndir. Einnig verður farið í nokkur grunnatriði í kvikmyndagreiningu til að auðvelda nemendum rannsóknir sínar. Kennsla er byggð á fyrirlestrum kennara og umræðum í tíma. Ætlast er til þess að nemendur taki virkan þátt í umræðum.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári
  • Haust
  • ÍTA119G
    Ítölsk málfræði I
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kúrsinum er ætlað að byggja upp alveg frá grunni samskiptahæfni á ítölsku, að bæta málfræðikunnáttu, setningafræði og orðaforða, að bæta skilning og getu með stigvaxandi framsetningu ósvikins efnis til lestrar og hlustunar. Námskeiðið er kennt bæði á íslensku og ítölsku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍTA120G
    Málnotkun og talþjálfun I
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kúrsinn er opinn nemendum sem ekki hafa kunnáttu í ítölsku fyrir og tengist kúrsinum Ítölsk málfræði I. Það verða einstaklingsverkefni og hópverkefni eins og hlustun, samtöl, lestur, leikur, role-play og svo framvegis. Með notkun málvers er hægt að styrkja framburð og bæta skilning á töluðu máli. Námskeiðið er kennt bæði á ensku og ítölsku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍTA003G
    Sjálfsnám í ítölsku I (fjarnám)
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Sjálfsnám í ítölsku I er nemendastýrt fjarnám fyrir þá sem hafa náð færni sem samsvarar A2 eða meira skv. Evrópska tungumálarammanum.

    Nemendur stjórna að hluta til helstu þáttum námsins svo sem markmiðum, aðferðum og efnisvali. Námið fer fram í nánu samstarfi við umsjónarkennara sem nemendur hitta í sérstökum viðtölum 3 sinnum á kennslutímabilinu. Auk þess taka nemendur þátt í vinnustofum til að þjálfa talmál og ritun. Námsmat tekur tillit til allra færniþátta: ritun, lestur, talmál og hlustun.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍTA324G
    Land, menning og saga
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þessu byrjendanámskeiði er ætlað að draga upp yfirlitsmynd af Ítalíu samtímans og kynna fyrir nemendum menningu, landafræði og samfélag. Farið nánar út í málefni er snúa að landsvæðum og almenningi, ríksstofnunum, menningu og efnahag auk þess sem drepið verður á hefðum landsins og matarmenningu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÍTA420G
    Ítalska óperan
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    The objective of this course is to introduce the students to the world of Italian music, and in particular to one of its most successful products: the Opera. In particular, the course will aim to provide some tools and to develop the necessary awareness for an enjoyable fruition of this art form.

    The course will start by offering a preliminary and rudimentary foundation of music history and theory, where students will also learn some basic notions of music notation. The course will include an overview on the history of western classical music, to better understand how the Opera came into being. Students will thus become acquainted with the main features of its development.

    Pivotal figures in the development of the genre will be presented, along with some of their most significant works, particularly Monteverdi, Mozart, Rossini, Verdi and Puccini.

    Listening assignments will be administered weekly and students will become acquainted with a number of fundamental entries of the classical canon and repertoire.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • ÍTA004G
    Sjálfsnám í ítölsku II
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Sjálfsnám í ítölsku II er nemendastýrt fjarnám fyrir þá sem hafa náð færni sem samsvarar A2 eða meira skv. Evrópska tungumálarammanum.

    Nemendur stjórna að hluta til helstu þáttum námsins svo sem markmiðum, aðferðum og efnisvali. Um er að ræða framhaldsnámskeið fyrir þá nemendur sem hafa lokið Sjálfsnámi í ítölsku I. Það námskeið er þó ekki nauðsynlegur undirbúningur og nýir nemendur geta skráð sig í þetta námskeið að uppfylltum forkröfum. Sjálfsnám fer fram í nánu samstarfi við umsjónarkennara sem nemendur hitta í sérstökum viðtölum 3 sinnum á misseri. Auk þess taka nemendur þátt í vinnustofum til að þjálfa talmál og ritun. Námsmat tekur tillit til allra færniþátta: ritun, lestur, talmál og hlustun.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍTA249G
    Ítölsk málfræði II
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    ÍTÖLSK MÁLFRÆÐI II er námskeið fyrir sjálfstæða notendur í málinu (B1-B2) og tengist námskeiðinu ÍTA250G Málnotkun og talþjálfun II (Language Use and Oral Expression II). Markmiðið er að læra grunnreglur ítalskrar málfræði og er kennt tvisvar í viku. Aukatími til að æfa málið er einu sinni á viku í Tungumálamiðstöðinni á 2. hæð í Veröld - húsi Vigdísar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍTA250G
    Málnotkun og talþjálfun II
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Framhald af námskeiðinu Málnotkun og talþjálfun I.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍTA248G
    Inngangur að ítölskum bókmenntum
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur kynnast kenningum, heitum og hugtökum í bókmenntafræði með áherslu á ítalskar bókmenntir.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍTA403G
    Ítalskar kvikmyndir
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu Ítalskar kvikmyndir er nemendum veitt innsýn í sögu kvikmyndagerðar á ítalíu á tuttugustu öld. Raktir verða helstu þættir sem hafa haft áhrif á ítalska kvikmyndagerð og reynt að greina hvað það er sem helst einkennir ítalskar kvikmyndir. Einnig verður farið í nokkur grunnatriði í kvikmyndagreiningu til að auðvelda nemendum rannsóknir sínar. Kennsla er byggð á fyrirlestrum kennara og umræðum í tíma. Ætlast er til þess að nemendur taki virkan þátt í umræðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Í nútímasamfélagi eru mörg störf sem krefjast góðrar ítölskukunnáttu.

Störf sem ítölskumælandi sinna eru meðal annars:

  • Störf við fjölmiðla
  • Störf á alþjóðavettvangi
  • Viðskipti
  • Ferðaþjónusta
  • Leiðsögn
  • Kennsla
  • Þýðingar
  • Túlkun

Listinn er ekki tæmandi.

  • Linguae er félag tungumálanema við Háskóla Íslands.
  • Markmið félagsins er að efla félagslíf nemenda innan Mála- og menningardeildar.
  • Enn sem komið er samanstendur það af ítölsku-, frönsku-, þýsku-, spænsku-, dönsku-, kínversku- og rússneskunemum.
  • Nemendafélagið heldur úti Facebook-hóp og Facebook-síðu.

Meira um félagslíf stúdenta í Hí.

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Helgu Jónsdóttur
Áður en ég hóf BA námið hafði ég tekið stutt byrjandanámskeið í ítölsku auk þess að hafa margoft ferðast um Ítalíu og heillast af menningunni og tungumálinu. Ítölskunámið er vel skipulagt og kennararnir áhugasamir og allir af vilja gerðir að aðstoða nemendur. Skiptinám á Ítalíu er spennandi valkostur sem veitir möguleika á að kynnast menningu landsins og tungumálinu enn betur. Ítölskunámið er krefjandi en jafnframt ákaflega gefandi og skemmtilegt, enda vandfundið fegurra tungumál en ítalskan.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil