""
Tungumál kennslu
Þýska
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið Fjarnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Vilt þú fara í stutt og hnitmiðað þýskunám sem styrkir þig í starfi eða leik?
  • Hefur þú áhuga á menningu og sögu Þýskalands?
  • Hefur þú gaman af tungumálum?
  • Talar þú þýsku?

Þetta diplómanám er hægt að fá metið að mestum hluta til BA-gráðu ef þú ákveður að halda áfram þýskunámi. Námsleiðina er hægt að taka í fjarnámi. 

Diplómanámið er ætlað þeim sem vilja búa sig undir störf þar sem sérstaklega reynir á almenna og starfstengda þýskukunnáttu, til dæmis í viðskiptum, ferðaþjónustu og alþjóðasamskiptum, sem og nám og störf í þýskumælandi löndum.

Meðal viðfangsefna

  • Tal og tjáskipti
  • Málfræði og framburður
  • Hagnýt þýska fyrir atvinnulíf

Markmið

Markmið eins árs diplómanáms í þýsku sem og náms í hagnýtri þýsku er að nemendur:

  • bæti færni sína í talaðri og ritaðri þýsku og auki orðaforða sinn, einkum með tilliti til þátttöku í atvinnulífinu
  • hljóti undirbúning undir störf í atvinnulífinu, t.d. í ferðaþjónustu, verslun og stjórnsýslu.

Kennsluhættir

Þýska er einkum kennd í æfinga- og umræðuformi og að nokkru leyti í formi fyrirlestra, auk þess sem heimavinna, fjölbreytt verkefnavinna og ritgerðasmíð er veigamikill þáttur í náminu.

Annað

Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf frá erlendum skóla.

Gert er ráð fyrir að nemendur geti sýnt fram á A2 færni í tungumálinu samkvæmt samevrópska tungumálarammanum. Námið hentar ekki algerum byrjendum, sem bent skal á námskeiðin Þýska fyrir byrjendur I og II.

Flest námskeið námsleiðarinnar eru skyldunámskeið (alls 38e) en þó eru tvö námskeið (alls 12e) vormisseris í bundnu vali þar sem valið skal á milli tveggja námskeiða hvoru sinni. Nemendur velja sér 10e af kennsluskrá 180 eininga námsleiðar í þýsku til að ljúka diplóma náminu.

Markmið námsins er að búa nemendur undir störf í t.d. ferðaþjónustu, viðskiptum og alþjóðasamskiptum, sem og nám/störf í þýskumælandi löndum. Megináhersla er lögð á hagnýta málnotkun, menningarlæsi og þekkingu á þjóðlífi þýskumælandi ríkja.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Óháð námsári | Haust
Þýskur framburður (ÞÝS101G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Framburðaræfingar í málveri.

Kennslutungumál: Þýska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Haust
Hagnýt þýska fyrir atvinnulífið I (ÞÝS102G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lestur og ritun nytjatexta; notkun talaðs máls við ýmsar aðstæður í atvinnulífinu. Framkoma, samskipti og kynningarstarfsemi í viðskiptum við þýskumælandi lönd. Hefðir og óskrifaðar reglur atvinnulífsins á þýska málsvæðinu. Tilhögun kennslu verður nánar kynnt í upphafi misseris.

Kennslutungumál: Þýska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Haust
Þýskt mál I (ÞÝS103G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Til að koma til móts við mjög mismunandi færnistig nemenda í upphafi náms hefst námskeiðið á stöðuprófi. Á grundvelli niðurstaðna þess verður námskeiðinu síðan að líkindum skipt upp í tvö mismunandi námskeið:

Nemendur, sem ekki eru komnir á færnistig B1, munu taka þátt í almennu þýskunámskeiði á færnistigi A2 til B1. Þar verður unnið með kennslubók og gerðar æfingar sem lúta að ritun, hlustun og lestri (og að nokkru leyti tali). Haldin verða styttri próf á kennslutímabilinu.

Ef til skiptingar námskeiðsins kemur verður einnig komið á laggirnar sjálfstæðu B1+-námskeiði sem nálgast orðaforða og málfræði þýsks nútímamáls á ýmsa lund. Vinna í námskeiðinu byggist einkum á fjölbreyttum verkefnum sem farið er yfir í tímum og sem inniheldur málfræði-, orðaforða- og textaæfingar. Rættar verða algengar villur sem erlendir nemendur gera í þýsku. Einnig verða þýðingar á þýsku og þýskar framburðarreglur á grunni hljóðritunar tekin fyrir.

Allir nemendur (bæði nemendur á A2-B1 stígi og nemendur á B1+ stígit) vinna úr bókinni "Deutsche Grammatik 2.0 - Übungsbuch 1"  á eigin spýtur.

Kennslutungumál: Þýska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Haust
Ritfærni í þýsku I (ÞÝS105G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Ritun stuttra texta sem fela í sér lýsingar af ýmsu tagi, þ. á m. á fólki, staðháttum og athöfnum. Munnlegar lýsingar og orðaforðaæfingar til stuðnings. Vinnan í námskeiðinu byggist á hópvinnu og samspili stuttra kynninga og umræðna

Kennslutungumál: Þýska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Haust
Talfærni í þýsku I: Tjáskipti (ÞÝS106G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur nái tökum á þýsku til tjáskipta. Áhersla lögð á talmál og hlustun. Nemendur flytja stutta fyrirlestra um ýmis efni. Notaðir verða ýmsir miðlar (tölvur, hljóðsnældur, myndbönd og ritaðir textar). Kennsla fer bæði fram í einum stórum hóp og 2-4 manna smáhópum. Ef fjöldi nemenda gefur tilefni til verður stóra hópnum skipt í tvo hópa.

Kennslutungumál: Þýska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Haust
Þýsk málfræði I (ÞÝS108G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Málfræði þýsks nútímamáls í formi fyrirlestra og æfinga.

Sérstaklega er fjallað um margvísleg birtingarform sagnarinnar að viðtengingarhætti undanskildum.

Verkefni eru rædd og aðallega leiðrétt í kennslustundum. Skyndipróf eru lögð fyrir reglulega til að nemendur geti metið stöðu sína í málfræðilegri leikni.

Kennslutungumál: Þýska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Vor
Ritfærni í þýsku II: Þýðingar á þýsku (ÞÝS201G, ÞÝS420G, ÞÝS417G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þýðing stuttra texta úr íslensku á þýsku. Lögð er áhersla á hagnýtan orðaforða og algeng málfræðiatriði. Farið verður ítarlega í villugreiningu og stílfræðileg atriði. Nemendur fá fyrir fram skriflegar ábendingar um vandasöm atriði í hverri þýðingu. - Einnig verður gerðar æfingar sem lúta að algengum villum erlendra þýskunema.

Vinna nemenda byggist á skriflegum verkefnum, hlutaprófum og undirbúningi fyrir þýðingar sem unnar eru sameiginlega í tímum. Í tímum fara fram umræður um þýðingarvillur, -vandamál og -valkosti.

Kennslutungumál: Þýska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Vor
Þýska í ferðaþjónustu A: Landkynning fyrir þýskumælandi ferðamenn (ÞÝS201G, ÞÝS420G, ÞÝS417G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Teknir verða fyrir textar (bæklingar og annað auglýsingaefni á þýsku) úr ferðaþjónustugeiranum með tilliti til málfars og innihalds. Námskeiðið er jafnframt þjálfun í því að miðla upplýsingum til þýskumælandi ferðamanna, bæði skriflega og munnlega.

Kennslutungumál: Þýska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Vor
Þýska í ferðaþjónustu B: Leiðsögn og leiðarlýsingar (ÞÝS201G, ÞÝS420G, ÞÝS417G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur verða þjálfaðir markvisst í því að kynna íslensk efni svo sem bókmenntir, menningu, þjóðlíf, dýralíf og náttúru landsins á þýsku fyrir þýskumælandi ferðamenn. Mikil áhersla er lögð á munnlega framsetningu efnisins. Nemendur verða þjálfaðir sérstaklega í orðaforða sem notaður er í leiðarlýsingum fyrir þýskumælandi ferðamenn. Kynning á þýsku efni þar sem fjallað er um Ísland.

Kennslutungumál: Þýska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Vor
Talfærni í þýsku II: Endursögn, samantekt, rökræður (ÞÝS207G, ÞÝS208G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þjálfun í því að endursegja texta og draga saman aðalatriði þeirra á skipulagðan og markvissan hátt. Þjálfun í rökræðum og miðlun orðaforða sem almennt nýtist í skoðanaskiptum. Kennsla fer bæði fram í einum stórum hóp og 2-4 manna smáhópum. Ef fjöldi nemenda gefur tilefni til verður stóra hópnum skipt í tvo hópa. Ef af námskeiðinu ÞÝS208G Talfærninámskeið í Þýskalandi verður fellur þetta námskeið niður. Nemendum, sem ekki fara til Tübingen, verður samt gefinn kostur á að taka próf upp úr þessu námskeiði.

Kennslutungumál: Þýska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Vor
Talfærninámskeið í Þýskalandi (ÞÝS207G, ÞÝS208G)
Bundið valnámskeið háð skilyrðum
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tveggja vikna „samþjappað“ talfærni- og þjóðlífsnámskeið (Intensivkurs) í febrúarmánuði. Ef af þessu námskeiði verður kemur það í stað námskeiðsins ÞÝS207G Talfærni í þýsku II. (Sjá einnig ÞÝS207G).

Kennslutungumál: Þýska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Vor
Landeskunde I (ÞÝS203G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um þýskumælandi ríki með tilliti til eftirfarandi viðfangsefna: landafræði og merkir staðir; stjórnmál, efnahagsmál, umhverfismál og þjóðfélagsgerð; menntakerfi; fjölmiðlar; daglegt líf.

Kennslutungumál: Þýska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Vor
Þýsk málfræði II (ÞÝS206G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Beint, sjálfstætt framhald af námskeiðinu ÞÝS108G Þýsk málfræði I.

Byrjað verður á að fjalla um viðtengingarhátt sagna, síðan taka aðrir orðflokkar við eins og nafnorð, lýsingarorð, forsetningar, samtengingar, neitunarorð o.s.frv.

Verkefni eru rædd og aðallega leiðrétt í kennslustundum. Skyndipróf eru lögð fyrir reglulega til að nemendur geti metið stöðu sína í málfræðilegri leikni.

Kennslutungumál: Þýska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári
  • Haust
  • ÞÝS101G
    Þýskur framburður
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Framburðaræfingar í málveri.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞÝS102G
    Hagnýt þýska fyrir atvinnulífið I
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lestur og ritun nytjatexta; notkun talaðs máls við ýmsar aðstæður í atvinnulífinu. Framkoma, samskipti og kynningarstarfsemi í viðskiptum við þýskumælandi lönd. Hefðir og óskrifaðar reglur atvinnulífsins á þýska málsvæðinu. Tilhögun kennslu verður nánar kynnt í upphafi misseris.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞÝS103G
    Þýskt mál I
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Til að koma til móts við mjög mismunandi færnistig nemenda í upphafi náms hefst námskeiðið á stöðuprófi. Á grundvelli niðurstaðna þess verður námskeiðinu síðan að líkindum skipt upp í tvö mismunandi námskeið:

    Nemendur, sem ekki eru komnir á færnistig B1, munu taka þátt í almennu þýskunámskeiði á færnistigi A2 til B1. Þar verður unnið með kennslubók og gerðar æfingar sem lúta að ritun, hlustun og lestri (og að nokkru leyti tali). Haldin verða styttri próf á kennslutímabilinu.

    Ef til skiptingar námskeiðsins kemur verður einnig komið á laggirnar sjálfstæðu B1+-námskeiði sem nálgast orðaforða og málfræði þýsks nútímamáls á ýmsa lund. Vinna í námskeiðinu byggist einkum á fjölbreyttum verkefnum sem farið er yfir í tímum og sem inniheldur málfræði-, orðaforða- og textaæfingar. Rættar verða algengar villur sem erlendir nemendur gera í þýsku. Einnig verða þýðingar á þýsku og þýskar framburðarreglur á grunni hljóðritunar tekin fyrir.

    Allir nemendur (bæði nemendur á A2-B1 stígi og nemendur á B1+ stígit) vinna úr bókinni "Deutsche Grammatik 2.0 - Übungsbuch 1"  á eigin spýtur.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞÝS105G
    Ritfærni í þýsku I
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Ritun stuttra texta sem fela í sér lýsingar af ýmsu tagi, þ. á m. á fólki, staðháttum og athöfnum. Munnlegar lýsingar og orðaforðaæfingar til stuðnings. Vinnan í námskeiðinu byggist á hópvinnu og samspili stuttra kynninga og umræðna

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞÝS106G
    Talfærni í þýsku I: Tjáskipti
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur nái tökum á þýsku til tjáskipta. Áhersla lögð á talmál og hlustun. Nemendur flytja stutta fyrirlestra um ýmis efni. Notaðir verða ýmsir miðlar (tölvur, hljóðsnældur, myndbönd og ritaðir textar). Kennsla fer bæði fram í einum stórum hóp og 2-4 manna smáhópum. Ef fjöldi nemenda gefur tilefni til verður stóra hópnum skipt í tvo hópa.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞÝS108G
    Þýsk málfræði I
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Málfræði þýsks nútímamáls í formi fyrirlestra og æfinga.

    Sérstaklega er fjallað um margvísleg birtingarform sagnarinnar að viðtengingarhætti undanskildum.

    Verkefni eru rædd og aðallega leiðrétt í kennslustundum. Skyndipróf eru lögð fyrir reglulega til að nemendur geti metið stöðu sína í málfræðilegri leikni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • ÞÝS201G, ÞÝS420G, ÞÝS417G
    Ritfærni í þýsku II: Þýðingar á þýsku
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þýðing stuttra texta úr íslensku á þýsku. Lögð er áhersla á hagnýtan orðaforða og algeng málfræðiatriði. Farið verður ítarlega í villugreiningu og stílfræðileg atriði. Nemendur fá fyrir fram skriflegar ábendingar um vandasöm atriði í hverri þýðingu. - Einnig verður gerðar æfingar sem lúta að algengum villum erlendra þýskunema.

    Vinna nemenda byggist á skriflegum verkefnum, hlutaprófum og undirbúningi fyrir þýðingar sem unnar eru sameiginlega í tímum. Í tímum fara fram umræður um þýðingarvillur, -vandamál og -valkosti.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞÝS201G, ÞÝS420G, ÞÝS417G
    Þýska í ferðaþjónustu A: Landkynning fyrir þýskumælandi ferðamenn
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Teknir verða fyrir textar (bæklingar og annað auglýsingaefni á þýsku) úr ferðaþjónustugeiranum með tilliti til málfars og innihalds. Námskeiðið er jafnframt þjálfun í því að miðla upplýsingum til þýskumælandi ferðamanna, bæði skriflega og munnlega.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞÝS201G, ÞÝS420G, ÞÝS417G
    Þýska í ferðaþjónustu B: Leiðsögn og leiðarlýsingar
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur verða þjálfaðir markvisst í því að kynna íslensk efni svo sem bókmenntir, menningu, þjóðlíf, dýralíf og náttúru landsins á þýsku fyrir þýskumælandi ferðamenn. Mikil áhersla er lögð á munnlega framsetningu efnisins. Nemendur verða þjálfaðir sérstaklega í orðaforða sem notaður er í leiðarlýsingum fyrir þýskumælandi ferðamenn. Kynning á þýsku efni þar sem fjallað er um Ísland.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞÝS207G, ÞÝS208G
    Talfærni í þýsku II: Endursögn, samantekt, rökræður
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þjálfun í því að endursegja texta og draga saman aðalatriði þeirra á skipulagðan og markvissan hátt. Þjálfun í rökræðum og miðlun orðaforða sem almennt nýtist í skoðanaskiptum. Kennsla fer bæði fram í einum stórum hóp og 2-4 manna smáhópum. Ef fjöldi nemenda gefur tilefni til verður stóra hópnum skipt í tvo hópa. Ef af námskeiðinu ÞÝS208G Talfærninámskeið í Þýskalandi verður fellur þetta námskeið niður. Nemendum, sem ekki fara til Tübingen, verður samt gefinn kostur á að taka próf upp úr þessu námskeiði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞÝS207G, ÞÝS208G
    Talfærninámskeið í Þýskalandi
    Bundið valnámskeið
    6
    Bundið valnámskeið háð skilyrðum
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Tveggja vikna „samþjappað“ talfærni- og þjóðlífsnámskeið (Intensivkurs) í febrúarmánuði. Ef af þessu námskeiði verður kemur það í stað námskeiðsins ÞÝS207G Talfærni í þýsku II. (Sjá einnig ÞÝS207G).

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞÝS203G
    Landeskunde I
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um þýskumælandi ríki með tilliti til eftirfarandi viðfangsefna: landafræði og merkir staðir; stjórnmál, efnahagsmál, umhverfismál og þjóðfélagsgerð; menntakerfi; fjölmiðlar; daglegt líf.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÞÝS206G
    Þýsk málfræði II
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Beint, sjálfstætt framhald af námskeiðinu ÞÝS108G Þýsk málfræði I.

    Byrjað verður á að fjalla um viðtengingarhátt sagna, síðan taka aðrir orðflokkar við eins og nafnorð, lýsingarorð, forsetningar, samtengingar, neitunarorð o.s.frv.

    Verkefni eru rædd og aðallega leiðrétt í kennslustundum. Skyndipróf eru lögð fyrir reglulega til að nemendur geti metið stöðu sína í málfræðilegri leikni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Menntun í þýsku opnar dyr að málsvæði sem er okkur Íslendingum mjög mikilvægt í menningar-, stjórnmála- og efnahagslegu tilliti. Þýska er móðurmál u.þ.b. 90 milljóna Evrópubúa og opinbert tungumál fimm evrópskra ríkja sem við tengjumst með margvíslegum hætti í alþjóðlegu samstarfi.

Efnahags- of menningartengsl Íslands við þýskumælandi ríki eru afar sterk og er Þýskaland eitt almikilvægasta viðskiptaland okkar.

Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við:

  • Ferðaþjónustu
  • Sölu og markaðsmál
  • Fölmiðla
  • Menningarmiðlun
  • Grunn-, framhalds- og háskólakennslu, svo og við sí- og endurmenntun
  • Þýðingar og túlkun
  • Alþjóðasamskipti

Listinn er ekki tæmandi.

  • Linguae er félag tungumálanema við Háskóla Íslands.
  • Markmið félagsins er að efla félagslíf nemenda innan Mála- og menningardeildar.
  • Félagið samanstendur af ítölsku-, frönsku-, þýsku-, spænsku-, dönsku-, kínversku- og rússneskunemum.
  • Nemendafélagið heldur úti Facebook-hóp og Facebook-síðu.

Meira um félagslíf stúdenta í Hí.

Umsagnir nemenda
Jovana Lilja
Ég valdi hagnýta þýsku fyrir atvinnulífið til að bæta mig í þýskunni og kynnast enn betur landinu og menningunni. Það kom mér á óvart hvað kennsluaðferðirnar eru fjölbreyttar. Kennararnir eru færir i sínu fagi, sveigjanlegir og skilningsríkir.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil