Mynd af háskólanema sem situr brosandi fyrir framan bókaskáp
Tungumál kennslu
Danska
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Langar þig að tala og skrifa dönsku betur?
  • Viltu kynnast danskri menningu?
  • Þarftu að læra dönsku betur út af starfinu þínu?
  • Viltu styrkja þekkingu þína í dönsku?
  • Sækist þú eftir stuttu en gagnlegu tungumálanámi?

Meginmarkmið er að nemendur nái öruggum tökum á dönsku máli, tileinki sér akademísk vinnubrögð og öðlist fræðilega þekkingu á danskri tungu og dönsku þjóðlífi ásamt bókmenntum og menningu Dana.

Markmið námsins er að undirbúa nemendur undir almenn störf sem krefjast dönskukunnáttu og fræðilegrar þekkingar á danskri menningu og þjóðlífi.

Meðal viðfangsefna

  • Vinnulag og aðferðir í hugvísindum
  • Danskar bókmenntir og þýðingar
  • Tunga, tjáning og menning
  • Dönsk málfræði og setningarfræði
  • Hugmyndasaga og tungumál
  • Dönsk saga og samfélag
  • Framburður og hljóðfræði
  • Kvikmyndir og sjálfsmynd
  • Tengsl Danmerkur og Íslands

Gert er ráð fyrir að nemandi sem vill halda áfram námi í dönsku við Háskóla Íslands geti það og fái námskeið úr diplómanámi sínu metin inn í BA-nám.

Annað

Einnig er hægt að taka dönsku sem 

Frekari upplýsingar um aðal- og aukagreinar má finna undir Hjálplegt efni neðst á síðunni.

Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf frá erlendum skóla.

Hæfni nemenda á að vera á B2 skv. samevrópska tungumálarammanum.

Eftirfarandi námskeið eru skyldunámskeið:

- DAN110G Danskar samtímabókmenntir
- DAN112G Danska: Tunga, tjáning og menning
- DAN114G Dönsk málfræði I: Orðflokkar og orðmyndun
- DAN317G Skilvirkt dönskunám
- DAN206G Danskar bókmenntir á 20. öld
- DAN208G Danska: Tjáning, tal og ritun
- DAN211G Dönsk málfræði II: Setningafræði
- DAN427G Danskur framburður og hljóðfræði

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Óháð námsári | Haust
Danskar samtímabókmenntir (DAN110G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði í dönskum samtímabókmenntum verður lögð áhersla á danskar bókmenntir eftir 2000. Með því að lesa texta sem tengjast ýmist raunsæi, töfraraunsæi, sjálfsögum, loftslagsbreytingum eða mínímalísma öðlast nemandinn þekkingu á greiningarverkfærum bókmenntafræðinnar: túlkun, stíl, grein, o.s.frv.

Kennslutungumál: Danska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Danska: Tunga, tjáning, menning (DAN112G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmiðið er að nemendur öðlist aukna alhliða samskiptahæfni á dönsku sem tekur til allra færniþátta; hlusta, lesa, tala, skrifa (fimmti færniþátturinn er „að samtala“). Í námskeiðinu verður unnið með danska menningu, hefðir og siði í víðu samhengi. Áhersla verður lögð á markvissa vinnu með þemabundinn orðaforða, auk þess sem nemendur þjálfast í notkun hvers konar hjálpargagna á sviði veforðabóka og leiðréttingaforrita. Efniviður námskeiðsins verður sóttur í alla hugsanlega miðla; dagblöð, tímarit, smásögur, söngtextar, útvarps- og sjónvarpsefni og kvikmyndir.

Kennslutungumál: Danska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Dönsk málfræði I: Orðflokkar og orðmyndun (DAN114G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu læra nemendur grundvallarreglur danskrar málfræði og beita þeim í talmáli og ritmáli. Nemendur verða að kunna skil á fræðilegri orðræðu um efnið.

Einnig verður farið í byggingu dansks máls. Námskeiðið er bæði fræðilegt og hagnýtt með áherslu á hvað er líkt og ólíkt með dönskri og íslenskri beyginga- og setningafræði. Nemendur vinna með fræðilega texa um efnið og nota þekkingu sína til að greina orð og setningar með tilliti til merkingar, beyginga og setningafræði. Nemendur vinna með hagnýt verkefni í tengslum við fræðin.

Kennslutungumál: Danska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Haust
Skilvirkt dönskunám (DAN317G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er nemendum leiðbeint um hvernig þeir geta hratt, og af öryggi bætt dönskukunnáttu sína, bæði í tali og ritun. Hverjum nemanda verður mætt á því kunnáttustigi sem hann er og hann aðstoðaður við að vinna með áhugasvið sitt (t.d. ferðafræði, tölvufræði, viðskiptafræði, læknisfræði). Nemendur kynnast margvíslegum aðgengilegum hjálpargögnum, orðabókum og hvers konar vefefni. Unnið verður markvisst að eflingu orðaforða með þekktum aðferðum og leiðum sem gagnast nemendum vel til að efla dönskukunnáttu þeirra. Námsmat er fólgið í munnlegum og skriflegum verkefnum sem nemendur skila yfir misserið.

Kennslutungumál: Danska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Vor
Danskar bókmenntir á 20. öld (DAN206G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmiðið með námskeiðinu er að nemendur öðlist yfirsýn yfir danska bókmenntasögu 20. aldar og kynnist höfundum tímabilsins með því að vinna með lykilverk. Við lok námskeiðsins skulu nemendur geta sýnt hæfni í að gera grein fyrir ákveðnum tímabilum, hugtökum og höfundaverkum í dönskum bókmenntum 20. aldar. Á grundvelli bókmenntalegra sérkenna eiga nemendur að geta staðsett texta í bókmenntasögulegu samhengi og gert grein fyrir fagurfræðilegum straumum tímabilsins.

Kennslutungumál: Danska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Danska: Tjáning, saga og samfélag (DAN208G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmiðið er að nemendur öðlist enn aukna alhliða samskiptahæfni á dönsku sem tekur til allra færniþátta. Í námskeiðinu verður unnið með efni af ýmsu tagi og breytilegu þyngdarstigi og sem fjalla um samfélagsleg málefni, stjórnmál og sögulega atburði. Nemendur þjálfast í að tjá sig um samfélagsleg málefni, jafnt stjórnmál, sögu sem og önnur málefni sem efst eru á baugi hverju sinni. Nemendur semja texta bæði skriflega og munnlega fyrir mismunandi tilefni, ásamt því að nota málsnið sem hæfir aðstæðum og samhengi hverju sinni.  

Kennslutungumál: Danska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Vor
Dönsk málfræði II: Setningafræði (DAN211G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmiðið með námskeiðinu er að nemendur öðlist staðgóða fræðilega þekkingu á danskri málfræði, þ.e. setningafræði (þmt. aukasetningum), beygingafræði og orðmyndun.

Enn fremur að nemendur hafi vald á réttri notkun íðorða, geti beitt fræðilegri þekkingu til greiningar á orðum, auka- og aðalsetningum og texta, sem og fræðilegri þekkingu á málfræði á eigin málnotkun

Í námskeiðinu er dýpkuð þekking á hluta þess efnis sem fjallað var um í Danskri málfræði I: beygingafræði, orðmyndun og setningafræði. Sérstök áhersla er lögð á aukasetningar og greiningu á þeim. Í því sambandi verður fjallað um kommureglur. Enn fremur er unnið með orðmyndun og ný orð í dönsku bæði nýmyndanir og tökuorð.

Kennslutungumál: Danska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Danskur framburður og hljóðfræði (DAN427G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið verður yfir danska hljóðfræði og framburður æfður. Að hluta til verður kennt í málveri.

Kennslutungumál: Danska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári
  • Haust
  • DAN110G
    Danskar samtímabókmenntir
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði í dönskum samtímabókmenntum verður lögð áhersla á danskar bókmenntir eftir 2000. Með því að lesa texta sem tengjast ýmist raunsæi, töfraraunsæi, sjálfsögum, loftslagsbreytingum eða mínímalísma öðlast nemandinn þekkingu á greiningarverkfærum bókmenntafræðinnar: túlkun, stíl, grein, o.s.frv.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • DAN112G
    Danska: Tunga, tjáning, menning
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmiðið er að nemendur öðlist aukna alhliða samskiptahæfni á dönsku sem tekur til allra færniþátta; hlusta, lesa, tala, skrifa (fimmti færniþátturinn er „að samtala“). Í námskeiðinu verður unnið með danska menningu, hefðir og siði í víðu samhengi. Áhersla verður lögð á markvissa vinnu með þemabundinn orðaforða, auk þess sem nemendur þjálfast í notkun hvers konar hjálpargagna á sviði veforðabóka og leiðréttingaforrita. Efniviður námskeiðsins verður sóttur í alla hugsanlega miðla; dagblöð, tímarit, smásögur, söngtextar, útvarps- og sjónvarpsefni og kvikmyndir.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • DAN114G
    Dönsk málfræði I: Orðflokkar og orðmyndun
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu læra nemendur grundvallarreglur danskrar málfræði og beita þeim í talmáli og ritmáli. Nemendur verða að kunna skil á fræðilegri orðræðu um efnið.

    Einnig verður farið í byggingu dansks máls. Námskeiðið er bæði fræðilegt og hagnýtt með áherslu á hvað er líkt og ólíkt með dönskri og íslenskri beyginga- og setningafræði. Nemendur vinna með fræðilega texa um efnið og nota þekkingu sína til að greina orð og setningar með tilliti til merkingar, beyginga og setningafræði. Nemendur vinna með hagnýt verkefni í tengslum við fræðin.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • DAN317G
    Skilvirkt dönskunám
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er nemendum leiðbeint um hvernig þeir geta hratt, og af öryggi bætt dönskukunnáttu sína, bæði í tali og ritun. Hverjum nemanda verður mætt á því kunnáttustigi sem hann er og hann aðstoðaður við að vinna með áhugasvið sitt (t.d. ferðafræði, tölvufræði, viðskiptafræði, læknisfræði). Nemendur kynnast margvíslegum aðgengilegum hjálpargögnum, orðabókum og hvers konar vefefni. Unnið verður markvisst að eflingu orðaforða með þekktum aðferðum og leiðum sem gagnast nemendum vel til að efla dönskukunnáttu þeirra. Námsmat er fólgið í munnlegum og skriflegum verkefnum sem nemendur skila yfir misserið.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • DAN206G
    Danskar bókmenntir á 20. öld
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmiðið með námskeiðinu er að nemendur öðlist yfirsýn yfir danska bókmenntasögu 20. aldar og kynnist höfundum tímabilsins með því að vinna með lykilverk. Við lok námskeiðsins skulu nemendur geta sýnt hæfni í að gera grein fyrir ákveðnum tímabilum, hugtökum og höfundaverkum í dönskum bókmenntum 20. aldar. Á grundvelli bókmenntalegra sérkenna eiga nemendur að geta staðsett texta í bókmenntasögulegu samhengi og gert grein fyrir fagurfræðilegum straumum tímabilsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • DAN208G
    Danska: Tjáning, saga og samfélag
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmiðið er að nemendur öðlist enn aukna alhliða samskiptahæfni á dönsku sem tekur til allra færniþátta. Í námskeiðinu verður unnið með efni af ýmsu tagi og breytilegu þyngdarstigi og sem fjalla um samfélagsleg málefni, stjórnmál og sögulega atburði. Nemendur þjálfast í að tjá sig um samfélagsleg málefni, jafnt stjórnmál, sögu sem og önnur málefni sem efst eru á baugi hverju sinni. Nemendur semja texta bæði skriflega og munnlega fyrir mismunandi tilefni, ásamt því að nota málsnið sem hæfir aðstæðum og samhengi hverju sinni.  

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • DAN211G
    Dönsk málfræði II: Setningafræði
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmiðið með námskeiðinu er að nemendur öðlist staðgóða fræðilega þekkingu á danskri málfræði, þ.e. setningafræði (þmt. aukasetningum), beygingafræði og orðmyndun.

    Enn fremur að nemendur hafi vald á réttri notkun íðorða, geti beitt fræðilegri þekkingu til greiningar á orðum, auka- og aðalsetningum og texta, sem og fræðilegri þekkingu á málfræði á eigin málnotkun

    Í námskeiðinu er dýpkuð þekking á hluta þess efnis sem fjallað var um í Danskri málfræði I: beygingafræði, orðmyndun og setningafræði. Sérstök áhersla er lögð á aukasetningar og greiningu á þeim. Í því sambandi verður fjallað um kommureglur. Enn fremur er unnið með orðmyndun og ný orð í dönsku bæði nýmyndanir og tökuorð.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • DAN427G
    Danskur framburður og hljóðfræði
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið verður yfir danska hljóðfræði og framburður æfður. Að hluta til verður kennt í málveri.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Reynslan sýnir að dönskunám nýtist víða í atvinnulífinu, allt eftir námsgráðu og sérhæfingu nemenda.

Námið undirbýr nemendur vel fyrir störf sem krefjast sérhæfðrar kunnáttu í dönsku.

Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við:

  • Ferðaþjónustu
  • Kynningarstörf
  • Leiðsögn
  • Markaðssetningu
  • Fjölmiðla
  • Dönskukennslu á grunn- og framhaldsskólastigi
  • Námsstjórn og námsefnisgerð
  • Menningarstarfsemi
  • Þýðingar
  • Viðskipti

Listinn er ekki tæmandi.

  • Linguae er félag tungumálanema við Háskóla Íslands.
  • Markmið félagsins er að efla félagslíf nemenda innan Mála- og menningardeildar.
  • Félagið samanstendur af ítölsku-, frönsku-, þýsku-, spænsku-, dönsku-, kínversku- og rússneskunemum.
  • Nemendafélagið heldur úti Facebook-hóp og Facebook-síðu.

Meira um félagslíf stúdenta í Hí.

Umsagnir nemenda
Hugrún Egla
Það var mjög gott að byrja langt nám í Danmörku með stjórn á dönskunni, og þar með jafnari tækifæri á við danska samnemendur. Mér tókst að falla vel inn í vinahópinn og samfélagið, og þar hefur lærdómur um danska sögu, stjórnmál og menningu skipt miklu máli. Ég fékk fljótt vinnu á spítölunum, þar sem ég tek meðal annars vaktir á geðdeildum og tek blóðprufur. Ég er gríðarlega ánægð með dönskunámið í HÍ og hvernig það hefur hjálpað mér að aðlagast dönsku samfélagi og njóta tilverunnar hérna í botn.
Ljósmynd af Alexander Kristjáni
Ég sótti um í dönskunám í HÍ með það í huga að viðhalda tungumálinu þangað til ég kæmist aftur út og fannst mér fátt hljóma spennandi við danskar samtímabókmenntir, hljóðfræði og tjáningu. Mér til mikillar undrunar hef ég sjaldan haft eins gaman af námi eins og í HÍ og lært svo miklu meira en bara tungumálið og hvernig á að beita því. Kennararnir eru einstaklega fagmannlegir á sínu sviði og vita nákvæmlega hvernig á að nálgast fjölbreyttan hóp af fólki og get ég því mælt með náminu fyrir alla
Ljósmynd af Berglindi Ellen Petersen
Ég ákvað að fara í dönskunám í Háskóla Íslands vegna þess að mig langaði til að öðlast víðtækari innsýn í málið, menninguna og söguna. Námið er frábært tækifæri til að nálgast það tungumál sem þú heillast af og langar að kynnast nánar. Á námsferlinum hef ég meðal annars fengið dýpri skilning og áhuga fyrir dönskum bókmenntum, málvísindum og skilvirkni í námi. Ég hef kynnst nýju fólki og fallegu umhverfi sem Veröld, hús Vigdísar, býður þér upp á. Hvort sem þú hyggur á frekara nám í Danmörku eða vilt nýta þér málið í lífi og starfi þá tel ég Hugvísindasvið HÍ vera rétta staðinn til að byrja á.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil