""
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum málum (einkum Norðurlandamálum).
Lengd náms
Þrjú ár - 180 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á tungumálum?
  • Langar þig að fást við tungumálið, rannsóknir eða kynningarstarf?
  • Hefur þú gaman af setningarfræði, samanburði á tungumálum eða málnotkun?
  • Viltu vinna fjölbreytt verkefni undir handleiðslu helstu sérfræðinga landsins í málvísindum?
  • Ertu forvitin(n) um máltöku barna, málþroskaraskanir eða sálfræði tungumálsins?
  • Viltu fjölbreytt úrval námskeiða á þínu áhugasviði?
  • Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?

Í almennum málvísindum er fjallað um eðli mannlegs máls og sérkenni einstakra tungumála.

Nemendur í málvísindum við Háskóla Íslands öðlast þjálfun í málvísindalegri hugsun og greiningu og fá innsýn í nýjar, þverfræðilegar rannsóknir á sviði tungumáls.

Meðal viðfangsefna

  • Málnotkun í samtölum
  • Setningarfræði
  • Hljóð- og hljóðkerfisfræði
  • Indóevrópsk samanburðarmálfræði
  • Máltaka barna
  • Tal- og málmein
  • Sálfræði tungumáls, heilinn og erfðir
  • Þróun málvísinda

Helstu viðfangsefni málvísindanna eru setningarfræði, merking, hljóð- og hljóðkerfisfræði og orðmyndun. Einnig fást málvísindamenn meðal annars við sálfræði tungumáls og úrvinnslu heilans á máli, notkun þess í samskiptum og ýmsa félagslega þætti, málbreytingar og tilbrigði, samanburð á tungumálum heimsins, máltöku, þróun mannlegs máls, máltækni og fleira.

Markmið

Markmið náms í almennum málvísindum er að veita nemendum góða undirstöðumenntun í greininni. Nemendur í málvísindum við Háskóla Íslands eiga að öðlast:

  • góða þekkingu á megingreinum almennra málvísinda
  • skilning á einstökum undirgreinum, stefnum eða viðfangsefnum, sögulegum eða samtímalegum
  • innsýn í þverfræðilegar rannsóknir á sviði tungumáls
  • þjálfun í málvísindalegri hugsun og greiningu, ásamt því að geta fjallað um málvísindi í ræðu og riti

Kennsluhættir

Kennsluform í almennum málvísindum er nokkuð mismunandi eftir eðli námskeiðanna. Yfirleitt er þó um að ræða blöndu af fyrirlestrum, umræðutímum og verkefnavinnu.

Hagnýtt gildi

Málvísindanám er góð undirstaða fyrir margs konar störf þar sem fengist er við tungumálið og samskipti almennt, þar á meðal ritstörf, fjölmiðlun og kynningarstarf, auk starfa sem tengjast tungumálum með beinni hætti eins og máltækni, tungumálaráðgjöf, þýðingar og talmeinafræði.

Almenn málvísindi nýtast tungumálanemum sem vilja sérhæfa sig í málinu sjálfu frekar en bókmenntum eða bókmenntafræði. 

Þar sem tungumálið er einstakur mannlegur eiginleiki eiga málvísindi erindi við fjölmörg fræðasvið sem fjalla um samskipti mannsins og samfélag, þar á meðal sálfræði, mannfræði, félagsfræði, heimspeki, bókmenntafræði, gervigreind og tölvunarfræði.

Þekking á almennum málvísindum getur því nýst mjög vel í ýmsu öðru háskólanámi, bæði grunnnámi og framhaldsnámi, og verið gagnleg í margs konar störfum þar sem fengist er við tungumálið og samskipti almennt.

Möguleikar á námsleiðinni

Þetta nám er líka hægt að taka sem:

Íslenskt stúdentspróf eða sambærilegt próf. Nánari upplýsingar er að finna í 17. grein reglna um inntökuskilyrði í grunnnám nr. 331-2022.

Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda grunnnám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku skv. 1. gr. reglnanna.

Til BA-prófs er krafist minnst 180 eininga og teljast 60 einingar á námsári vera fullt nám. Fimm námskeið á fyrsta ári eru skyldunámskeið. Einnig skulu nemendur taka námskeiðið Setningar og samhengi á öðru ári og ljúka eftirfarandi fimm námskeiðum á öðru eða þriðja ári: Breytingar og tilbrigði; Sálfræði tungumáls, heilinn og erfðir; Hljóðfræði og hljóðkerfisfræði; Beygingar- og orðmyndunarfræði; og Setningafræði.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Tungumálið í notkun: Samtöl og samhengi (AMV106G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Merking orða og setninga ræðst oft af samhenginu, til dæmis við beitingu og túlkun á kaldhæðni. Hvernig geta aðrir skilið okkur ef við segjum ekki alltaf það sem við meinum? Hvað eiga samtöl í ólíkum menningarheimum og tungumálum sameiginlegt? Í námskeiðinu verður fjallað um notkun tungumálsins í samskiptum frá ýmsum sjónarhornum málvísinda. Kennd verða undirstöðuatriði í málnotkunarfræði og varpað ljósi á áhrif samhengis á merkingu orða og setninga. Kynnt verða helstu viðfangsefni og aðferðir samtalsgreiningar og rætt um samanburðarrannsóknir á samtölum víða um heim. Að lokum fá nemendur innsýn í þverfaglegar rannsóknir á málnotkun með aðferðum sálfræðilegra málvísinda. Nemendur kynnast upptöku á samtölum, greiningu á tali með efni námskeiðsins í huga og notkun viðeigandi forrita (t.d. Praat til vinnslu á hljóði og ELAN til að skrá samtöl).

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Aðferðir og vinnubrögð (ÍSL109G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er sameiginlegt nemendum í íslensku, almennum málvísindum og táknmálsfræði. Það skiptist í tvennt. Í öðrum helmingi námskeiðsins (kennt á fimmtudögum) er fjallað um gagnrýna hugsun og ritgerðasmíð frá ýmsum hliðum: uppbyggingu ritgerða, efnisafmörkun, mál og stíl, heimildanotkun og heimildamat, tilvísanir, heimildaskrá, frágang o.fl.
Í hinum helmingi námskeiðsins (kennt á þriðjudögum) munu fræðimenn á áðurnefndum sviðum kynna viðfangsefni sín og gestir utan háskólans kynna starfsvettvang íslenskufræðinga, málvísindamanna og táknmálsfræðinga.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Inngangur að málfræði (ÍSL110G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kynnt verða helstu viðfangsefni málvísinda og undirstöðuatriði í íslenskri málfræði. Fjallað verður um valin atriði innan höfuðgreina málvísinda og helstu hliðargreinar þeirra auk þess sem gefið verður yfirlit yfir þróun málvísinda í gegnum aldirnar. Meginmarkmið námskeiðsins er að efla skilning nemenda á eðli tungumála og kynna þeim helstu grundvallarhugtök og aðferðir málvísinda. Kennsla felst í fyrirlestrum kennara og umræðum nemenda og kennara um efnið. Nemendur vinna heimaverkefni reglulega yfir misserið, taka tvö heimakrossapróf og ljúka námskeiðinu með lokaprófi í stofu á háskólasvæðinu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Þróun málvísinda (AMV205G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er saga málvísinda og málspeki rakin í megindráttum frá fornöld til nútímans. Áhersla er lögð á þær kenningar og uppgötvanir sem afdrifaríkastar hafa orðið fyrir hugmyndir og aðferðafræði málvísinda. Meðal annars er fjallað um málvísindi fornaldar, íslenska miðaldamálfræði og sögu málvísindanna á 19. og 20. öld. Að lokum verður rætt um strauma og stefnur í málvísindum nútímans.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Málkerfið – hljóð og orð (ÍSL209G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta er grundvallarnámskeið í íslenskri hljóðfræði, hljóðkerfisfræði, beygingarfræði og orðmyndunarfræði. Farið verður í grundvallaratriði hljóðeðlisfræði og íslenskrar hljóðmyndunar og nemendur þjálfaðir í hljóðritun. Helstu hugtök í hljóðkerfisfræði verða kynnt og gefið yfirlit yfir hljóðferli í íslensku og skilyrðingu þeirra. Einnig verða grundvallarhugtök orðhlutafræðinnar kynnt og farið yfir helstu orðmyndunarferli í íslensku og virkni þeirra. Málfræðilegar formdeildir verða skoðaðar, beygingu helstu orðflokka lýst og gerð grein fyrir beygingarflokkum og tilbrigðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Máltaka barna (ÍSL508G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Gefið verður yfirlit yfir málfræðilegar rannsóknir á máltöku barna. Byrjað verður á að kynna líffræðilegar forsendur máltöku (málstöðvar í heilanum, markaldur í máli, o.fl.) og áhrif þess málumhverfis sem börn alast upp í á málþroska þeirra. Í því sambandi verður rætt um nýlegar rannsóknir á áhrifum stafræns málsambýlis við ensku á máltöku íslenskra barna. Auk þess verður fjallað um kenningar um máltöku og saga barnamálsrannsókna rakin. Síðan verður gerð grein fyrir því hvernig börn ná valdi á höfuðþáttum móðurmáls síns, þ.e. hljóð- og hljóðkerfisfræði, beygingar- og orðmyndunarfræði, setningafræði, merkingarfræði og þróun orðaforða. Einnig verður rætt um tengsl máltöku við málbreytingar, þróun læsis og tengsl málþroska við lestrarfærni, t.d. um mikilvægi orðaforða og hljóðkerfisvitundar fyrir lestrarnám. Að lokum verða frávik í málþroska rædd (lesblinda, stam, málþroskaröskun og aðrar málraskanir), fjallað um máltöku annars og erlends máls, tvítyngi og fjöltyngi. Markmið námskeiðsins er að varpa ljósi á hvernig börn læra móðurmál sitt og þau stig sem þau ganga í gegnum í málþroska. Í þessum tilgangi verður lesin yfirlitsbók um efnið auk greina um íslenskar og erlendar barnamálsrannsóknir.

Athugið að fjöldi nemenda í námskeiðið takmarkast við 70.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Stílfræði (ÍSL615G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður fjallað um það hvernig hægt er að rannsaka bókmenntatexta frá sjónarhóli tungumáls og málvísinda. Námskeiðið ætti því að henta þeim sem hafa bæði áhuga á málfræði og bókmenntum. Meðal viðfangsefna eru stíltegundir, notkun tíða, orðaröð, nafngiftir sögupersóna, kynhlutlaust mál, hljóðtáknun, virkni sagna og nafnorða, sjónarhorn, myndlíkingar og fleira. Fjallað verður um alls kyns bókmenntatexta frá öllum tímum og eftir marga ólíka höfunda, t.d. Dag Hjartarson, Gyrði Elíasson, Guðrúnu frá Lundi, Halldór Laxness, Jakobínu Sigurðardóttur, Stein Steinarr, Vigdísi Grímsdóttur og Þórberg Þórðarson. Í fyrri hluta námskeiðsins er almenn umfjöllun um stílfræði en í seinni hlutanum verður fjallað um einstök verk og þar er gert ráð fyrir fjölda gestafyrirlesara, bæði bókmenntafræðinga og málfræðinga.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Sálfræði tungumáls, heilinn og erfðir (AMV313G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður fjallað um helstu aðferðir sálfræðilegra málvísinda og hugrænna taugavísinda í rannsóknum á tungumáli. Rætt verður m.a. um úrvinnslu heilans á merkingu og setningafræði og fjallað um viðfangsefni á borð við tvítyngi, talmyndun, málþroska og túlkun á óbeinu máli (t.d. kaldhæðni). Að lokum verður stuttlega farið yfir nýjustu rannsóknir á erfðaþáttum tungumáls.

Námskeiðið er kennt á ensku og samkennt með námskeiði á framhaldsstigi en námskröfur eru ólíkar.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Setningar og samhengi (ÍSL321G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður fjallað um grundvallaratriði í íslenskri setningafræði, meðal annars orðflokkagreiningu, setningaliði, flokkun sagna, færslur af ýmsu tagi og málfræðihlutverk. Einnig verður fjallað um málnotkun, merkingu og samhengi og tengsl þessara atriða við setningafræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Hljóðfræði og hljóðkerfisfræði (ÍSL340G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um undirstöðuatriði hljóðfræði og hljóðkerfisfræði. Fyrri hluti námskeiðsins er tileinkaður hljóðfræði. Fjallað er um gerð talfæra og hljóðmyndun. Nemendur fá þjálfun í hljóðritun. Kynntar verðu helstu aðferðir á sviði hljóðeðlisfræði og fjallað um tengsl hljóðfræði og hljóðkerfisfræði. Í seinni hluta námskeiðsins verða kynnt hugtök og aðferðir við greiningu hljóðkerfa og nemendur þjálfaðir í notkun þeirra. Ólíkar kenningar í hljóðkerfisfræði verða skoðaðar í tengslum við tungumál almennt og íslenskt hljóðkerfi sérstaklega.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Breytingar og tilbrigði (ÍSL320G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið þessa námskeiðs er að skýra þau tengsl sem eru á milli málbreytinga í sögu tungumáls og samtímalegra tilbrigða í máli. Meginhugmyndin er sú að málbreytingar leiði að jafnaði til samtímalegra tilbrigða á einhverju tímabili og að öll samtímaleg tilbrigði stafi af einhvers konar málbreytingu eða vísi að breytingu. Í námskeiðinu verða annars vegar kynntar helstu hugmyndir um eðli og tegundir málbreytinga, hvernig breytingar kvikna og hvernig þær breiðast út, og hins vegar hugmyndir um samtímaleg tilbrigði og eðli þeirra. Athyglinni verður fyrst og fremst beint að þróun íslensku, og því verða dæmi einkum tekin úr íslenskri málsögu og íslensku nútímamáli en jafnframt verður bent á hliðstæður í öðrum tungumálum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Arabíska I (MAF102G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemendur byrja á því að læra arabíska stafrófið og málhljóðin ásamt undirstöðuatriðum. Eftir að nemendur hafa náð góðum tökum á stafrófinu verður farið í helstu málfræðiatriði, einfalda setningargerð og orðaforða. Samhliða því er einblínt á bæði hlustun og munnlega tjáningu. Mikil áhersla er lögð á mætingu og heimavinnu nemenda. Námskeiðið er kennt á íslensku.

Námskeiðið er undanfari MAF204G: Arabíska II.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Annað ár | Haust
Tal- og málmein (AMV415G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu fá nemendur yfirlit yfir helstu viðfangsefni talmeinafræðinga á Íslandi. Um er að ræða fjölbreytt efni, allt frá greiningu og meðferð málstols og kyngingartregðu hjá fullorðnum einstaklingum yfir í málþroskaröskun og framburðarfrávik barna á leikskólaaldri. Unnið er út frá nauðsynlegri grunnþekkingu og yfir í hagnýtari nálganir á viðfangsefnið. Einnig verður lögð áhersla á að nemendur geti kynnt sér fræðilega umræðu og ritrýndar greinar á sviði talmeinafræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Einstaklingsverkefni (AMV601G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemandi velur sér viðfangsefni í samráði við fastan kennara, kynnir sér það og skilar skýrslu, ritgerð eða annars konar verkefnum eftir atvikum. Námskeið sem þetta er eingöngu fyrir þá sem taka almenn málvísindi til 180 eininga. Frekari upplýsingar veitir greinarformaður námsleiðar.

Kennslutungumál: Íslenska
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Haust
Forritun fyrir hugvísindafólk (ÍSL333G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er fyrst og fremst ætlað nemendum í grunnnámi í hugvísindum við HÍ sem vilja geta notað forritun í sínum störfum. Í námskeiðinu er farið í grunnþætti forritunar með forritunarmálinu Python og áhersla er lögð á greiningu textagagna. Námskeiðið hentar því vel fyrir þau sem vilja kynnast máltækni í BA-námi, ekki síst þeim sem stefna á MA-nám í máltækni. Námskeiðið er samkennt með MLT701F Forritun í máltækni á MA-stigi og allir nemendur sitja sömu fyrirlestrana en BA-nemar fá styttri verkefni en MA-nemar. Við textagreiningu í námskeiðinu skiptir máli að nemendur hafi grunnþekkingu á helstu hugtökum í málfræði en ef nemandi er í vafa um hvort hún, hann eða hán hefur viðeigandi bakgrunn til að taka námskeiðið er sjálfsagt að hafa samband við kennara fyrir frekari upplýsingar. 

Tilgangur þessa námskeiðs er að styðja við nemendur á fyrstu stigum forritunar, aðstoða þá við að ná tökum á grunnþáttum hennar og veita þeim þjálfun í að leysa einföld en fjölbreytt máltækniverkefni í forritunarmálinu Python. Nemendur kynnast þar fyrir utan nokkrum málvinnslutólum sem hægt er að beita við textavinnslu. Nemendur sem síðar halda áfram í MA-nám í máltækni munu nota grunninn úr þessu námskeiði í öðrum námskeiðum um málvinnslu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Ritfærni: Fræðileg skrif (ÍSR301G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Ritfærni: Fræðileg skrif er grunnnámskeið í meðferð ritaðs máls. Nemendur hljóta þjálfun í ritun með reglulegum heimaverkefnum, fyrirlestrum, umræðum og smiðjuvinnu. Fjallað verður um vinnulag við ritun fræðilegra texta, svo sem val og afmörkun viðfangsefnis, byggingu, heimildanotkun og frágang. Einnig verður lögð áhersla á að þjálfa nemendur í málnotkun í fræðilegum textum og fjallað meðal annars um málsnið, stíl, stafsetningu, greinarmerkjasetningu og hjálpargögn málnotenda. Nemendur skrifa fræðilega ritgerð í leiðsagnarmati og fá reglulega endurgjöf kennara sem og samnemenda. Námsmat byggist á reglulegum heimaverkefnum, miðmisserisverkefni, jafningjamati, lokaverkefni og virkri þátttöku í ritsmiðjum. Vakin er athygli á því að aðeins er hægt að ljúka námskeiðinu sé öllum verkefnum skilað.

Nemendur sem hyggjast taka námskeiðið sem netnám eru beðnir að skrá sig sem slíkir inni á Uglu.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Annað ár | Haust
Almenn sálfræði (SÁL103G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Inngangur að viðfangsefnum sálfræði. Helstu viðfangsefni eru skynhrif, skynjun, minni, hugsun, áhugi, nám, þroski, persónuleiki, greind, félagsskilningur og sálmein.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Tölfræði I (SÁL102G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Meginefni námskeiðsins er lýsandi tölfræði og myndræn framsetning gagna. Fjallað verður m.a. um helstu mælitölur lýsandi tölfræði, myndræna framsetningu gagna, einfalda línulega aðhvarfsgreiningu, fylgni, úrtaksgerð, grunnatriði líkindafræði og úrtakadreifingar.

Námskeiðið er ekki kennt í fjarnámi. Ætlast er til þess að nemendur mæti í alla fyrirlestra.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Vor

Setningafræði (ÍSL440G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið
Að nemendur öðlist þekkingu á ýmsum mikilvægum hugtökum og fræðilegum hugmyndum í setningafræði og geti notað þessa þekkingu til að takast á við ný viðfangsefni á þessu sviði.

Viðfangsefni
Kynntar verða helstu aðferðir og hugtök setningafræðinnar. Af einstökum viðfangsefnum má nefna setningaliði, liðgerðakenninguna, hlutverksvarpanir, sagnfærslu, rökformgerð, fallmörkun, bindilögmál og hömlur á færslum. Umfjöllunin verður byggð á dæmum úr íslensku, ensku og ýmsum öðrum tungumálum.

Vinnulag
Kennsla í námskeiðinu er einkum í formi fyrirlestra en nemendur eru hvattir til virkrar þátttöku með spurningum og athugasemdum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Beygingar- og orðmyndunarfræði (ÍSL447G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta er framhaldsnámskeið í beygingar- og orðmyndunarfræði og það er kennt annað hvert ár. Fjallað verður um helstu hugtök og aðferðir í beygingar- og orðmyndunarfræði, morfemgreiningu, orðmyndunarferli, beygingarreglur og tengsl orðmyndunar og beygingar við hljóðkerfisfræði og setningafræði. Umfjöllunin verður studd dæmum úr íslensku og ýmsum öðrum tungumálum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Tilbúin tungumál: Hvað geta álfamál Tolkiens og esperantó kennt okkur um málvísindi? (AMV604M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Dæmi um svokölluð „tilbúin tungumál“ (e. constructed languages) má finna allt aftur til 7. aldar en hugmyndir manna um uppruna tungumála og uppbyggingu þeirra eru líklega jafngamlar mannkyninu sjálfu. Tilbúin tungumál eru samin í ýmsum tilgangi, hvort sem það er eingöngu
til yndisauka, til að skapa umgjörð um tilbúinn veruleika, eins og t.d. álfamál Tolkiens og geimverumál Star Trek-heimsins, eða til að einfalda alþjóðasamskipti, eins og esperantó, solresol og volapük eiga að gera. Hver sem tilgangur tilbúna málsins er, þá er ljóst að að baki liggur gríðarleg þekking málhafa á tungumálinu sjálfu og hvaða eiginleika tungumál geta haft – og geta ekki haft – til þess að þau virki sem alvöru tungumál. Í námskeiðinu verður fjallað um ólíkar gerðir tilbúinna tungumála og hugmyndafræðina sem þau byggja á. Fjallað verður um uppbyggingu og eiginleika tilbúinna tungumála og þau skoðuð í samanburði við raunmál (e. natural languages). Einnig verða tilbúin tungumál borin saman við önnur gervimál, eins og bullmál (e. gibberish) og dulmál. Nemendur læra að aðgreina tilbúin tungumál út frá markmiðum og notkunarsviði þeirra. Fjallað verður um málgerðir tilbúinna tungumála og læra nemendur að brjóta niður og rýna í málfræðiformdeildir ólíkra mála með eftirfarandi spurningar að leiðarljósi: Hvað þurfa málhafar að vita um eigið tungumál til að geta tileinkað sér tilbúið tungumál og hvað geta tilbúin tungumál kennt okkur um raunmál?

Ritfærni: Skapandi fræðamiðlun (ÍSR401G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Tilgangur þessa námskeiðs er að þjálfa nemendur í ritfærni. Áhersla verður lögð á þjálfun í meðferð texta af ýmsu tagi. Regluleg ritunarverkefni munu þjálfa ólíkar leiðir til að miðla fræðilegum textum á skapandi hátt, t.a.m. í formi pistla og sannsagna (e. creative nonfiction). Einnig munu nemendur skrifa skapandi texta, svo sem örsögur og smásögur. Nemendum mun gefast tækifæri til að notast við efnivið úr sínum aðalgreinum en þurfa einnig að takast á við nýjar áskoranir. Kennsla byggir á fyrirlestrum, umræðum, verkefnum í tíma og ritsmiðjum. Námsmat byggist á reglulegum heimaverkefnum, miðmisserisverkefni, lokaverkefni, ferilmöppu og mætingu og þátttöku. Mæting og þátttaka gildir 15% af einkunn og verður að hluta til skyldumæting (8 af 12 ritsmiðjum). Námskeiðið er opið öllum grunnnemum við Háskóla Ísland en nemendur þurfa sjálfir að aðgæta hvort þeir geti fengið námskeiðið metið upp í sína gráðu.

Netnám:

Námskeiðið er kennt í staðnámi en allir fyrirlestrar kennara verða teknir upp. Þetta er gert til að auka aðgengi að námskeiðinu. Ekki er hægt að tryggja upptökur á umræðum eða framsögum nemenda ef á við. Þeir nemendur sem ekki mæta í tíma skulu hlusta á fyrirlestra og skila skýrslu um efni þeirra með hliðsjón af lesefni. Þá skulu þeir vinna sjálfir að þeim ritsmiðjuverkefnum sem lögð eru fyrir í tíma og skila inn til kennara. Sú vinna er þá jafngildi mætingar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Annað ár | Vor
Einstaklingsverkefni (AMV601G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Nemandi velur sér viðfangsefni í samráði við fastan kennara, kynnir sér það og skilar skýrslu, ritgerð eða annars konar verkefnum eftir atvikum. Námskeið sem þetta er eingöngu fyrir þá sem taka almenn málvísindi til 180 eininga. Frekari upplýsingar veitir greinarformaður námsleiðar.

Kennslutungumál: Íslenska
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Vor
Félagsmálvísindi (ENS313G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeið verður fjallað um samspil tungumáls og samfélags og afleiðingar þess þegar tvö eða fleiri tungumál eða málafbrigði snertast bæði hjá einstaklingum og í samfélögum. Skoðuð verða áhrif viðmælenda, umræðuefnis og umhverfis á tungumálanotkun, hvernig afstaða einstaklinga og hópa til sjálfs sín og annarra endurspeglast í vali og notkun tungumáls og hvernig málafbrigði endurspegla þjóðfélagsstöðu, kyn og aldur m.m.. Þá verður fjallað um málstefnu og afleiðingar hennar.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er

Mál og samfélag (ÍSL004M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður fjallað um samspil tungumáls og samfélags með aðferðum og hugtökum félagslegra málvísinda og með hliðsjón af alþjóðlegum og innlendum rannsóknum á því sviði.
 
Rætt verður m.a. um málviðhorf, málsnertingu, mállýskur, málsnið og málstýringu. Hugað verður að ýmsum birtingarmyndum málnotkunar og breytileika í máli og að því hvernig þættir á borð við umhverfi, samhengi og bakgrunn málnotanda hafa áhrif á málnotkun og val málsniðs.

Yfirlit verður veitt um helstu rannsóknaraðferðir, eigindlegar og megindlegar, nýlega strauma í félagslegum málvísindum og aðferðir metnar með tilliti til rannsóknarefnis.

Kynntar verða rannsóknir á viðhorfum til málnotkunar og máls, eigin máls og annarra, ásamt því að ræða hvað óhefðbundin málnotkun hefur í för með sér. Í því samhengi verður sérstök áhersla lögð á mál þeirra sem tala íslensku sem erlent mál og stöðu innflytjenda.

Fjallað verður um stöðu íslensku í dag, einkum gagnvart ensku og öðrum tungumálum. Hugað verður að lögmálum um málstýringu og að hugmyndum fólks um tungumálið fyrr og síðar. Fjallað verður um íslenska málstefnu, málstýringu, málstöðlun og hreintunguhneigð frá ýmsum hliðum, m.a. í samtímalegu og sögulegu ljósi og með hliðsjón af erlendum málsamfélögum.

Til umræðu verður málnotkun tiltekinna félagshópa (t.d. unglinga) með tilliti til félagslegs hlutverks málnotkunarinnar innan hópsins annars vegar og innan málsamfélagsins í heild sinni hins vegar.

Gert er ráð fyrir að nemendur vinni verkefni, hópverkefni eða einstaklingsverkefni, þar sem leitað er svara við ýmsum spurningum sem bornar verða fram í kennslu og umræðu.

Fornmálið (ÍSL211G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið þessa námskeiðs er að gefa haldgott yfirlit um íslenskt fornmál, einkum hljóðkerfi og beygingarkerfi. Fjallað verður um hljóðkerfi íslensks fornmáls og forsögu þess. Fyrsta málfræðiritgerðin verður lesin og grein gerð fyrir mikilvægi hennar bæði fyrir íslenska og norræna málfræði og sögu málvísinda. Loks verður fjallað rækilega um beygingarkerfi fornmáls.

Kennsla felst að mestu leyti í fyrirlestrum. Auk þess verða allmörg heimaverkefni lögð fyrir nemendur og um þau fjallað í sérstökum æfingatímum.

Gagnaöflun og tölfræðiúrvinnsla í hugvísindum og máltækni  (ÍSL612M)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Á undanförnum árum hefur vægi gagnasöfnunar og tölfræðiúrvinnslu aukist í hugvísindum. Þetta kemur skýrt fram í undirgreinum á borð við sálfræðileg málvísindi (e. psycholinguistics), hugræna bókmenntafræði (e. cognitive literary studies) og tilraunaheimspeki (e. experimental philosophy). Þessi aukna áhersla á megindlega aðferðafræði í hugvísindum á sér stað á sama tíma og réttmæti rótgróinna tölfræðiaðferða er dregið í efa í öðrum greinum og hertar kröfur eru um að hægt sé að endurtaka rannsóknir og nálgast gögn í opnum aðgangi um leið og persónuverndar er gætt. Í þessu námskeiði munu nemendur rýna í vægi megindlegra aðferða í sínum greinum og fá þjálfun í öflun og úrvinnslu gagna. Fjölbreyttar rannsóknaraðferðir verða til umfjöllunar, allt frá greiningu textasafna yfir í skoðanakannanir og tilraunir þar sem skynjun áreita (svo sem orða, texta eða myndbrota) er mæld. Einnig verður farið yfir grunnhugtök og aðferðir í tölfræði svo nemendur þekki muninn á lýsandi tölfræði og ályktunartölfræði, skilji tölfræðilega marktækni og kunni að lesa úr myndrænni framsetningu gagna í gröfum. Lögð er áhersla á að nemendur spreyti sig undir leiðsögn kennara og bæði safni gögnum og greini þau. Nemendur vinna verkefni innan eigin fræðigreinar en kanna einnig grundvöll fyrir þverfaglegu samstarfi. Öll verkefni verða unnin í opnum hugbúnaði á borð við R Studio en engin fyrri þekking á forritinu né tölfræði er nauðsynleg. Námskeiðið hentar öllum nemendum á Hugvísindasviði sem vilja safna megindlegum gögnum til að svara áhugaverðum spurningum og gæti þannig reynst vel sem undirbúningur fyrir BA- eða MA-verkefni.

Menningarheimar (TÁK204G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þverfaglegt inngangsnámskeið þar sem efnt er til samræðu milli fræðasviða námsbrautarinnar, þ.e. bókmenntafræði, kvikmyndafræði, kynjafræði, listfræði, málvísinda, menningarfræði, táknmálsfræði og þýðingafræði. Birtu verður brugðið á alþjóðlegar hræringar í hugvísindum á liðnum áratugum en jafnframt rýnt í tengsl fræða og heimsmyndar. Fjallað verður um táknfræði tungumálsins og m.a. spurt hvort það geti talist grundvöllur annarra táknkerfa. Spurst verður fyrir um tengsl og "sambúð" mismunandi tungumála og málheima. Er hægt að þýða á milli allra mál- og menningarheima? Hvað geta aðstæður heyrnarlausra sagt okkur um tengsl málheima? Hvað er fjölmenning? Hvernig tengjast talað mál, lesmál og sjónmenning í samfélaginu? Í hverju felst menningarlæsi? Hugað verður að bókmenntum, myndlist, kvikmyndum og öðru myndefni í þjóðlegu og alþjóðlegu samhengi og kannað hvernig þessi táknkerfi vinna með mörkin milli kynja, kynþátta, stétta, menningarhópa, þjóða og heimshluta. Lesið verður ýmiskonar fræðilegt efni og skáldverk, könnuð myndverk og kvikmyndir, en viðfangsefnin verða einnig sótt í fjölmiðla og það sem er á seyði í samtímanum. Námsmat felst í fjórum verkefnum á misserinu og skriflegu lokaprófi.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Málfræði táknmáls I (TÁK207G)
Valnámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur átti sig á grunneiningum og uppbyggingu táknmála almennt, verði færir um að útskýra þá þætti og bera saman við raddmál. Gefið verður yfirlit yfir meginþætti málfræði íslenska táknmálsins og þá málfræðiþætti sem táknmál eiga sameiginlega.

Kennslan byggist að miklu leyti á gagnvirkum fyrirlestrum og mikilvægt er að nemendur séu virkir í kennslustundum. Lesefni er mestallt á ensku en dæmi úr íslenska táknmálinu eru rædd í fyrirlestrum. Æskilegt er að nemendur hafi einhverja kunnáttu í táknmáli (íslensku eða erlendu). Námsmat byggist á heimaverkefnum, ritgerð og skriflegu lokaprófi (rafrænu) sem haldið verður í lok misseris. Listi yfir lesefni til prófs verður birtur í byrjun apríl. Viðmið um vinnuálag í háskólum gerir ráð fyrir að í 10 eininga námskeiði sé vinnuframlag nemanda 250-300 stundir á misseri. Ef gert er ráð fyrir 15 vikna misseri (kennsla 13 vikur og próftími/ritgerðarvinna 2 vikur) ætti nemandi að vinna að meðaltali 16-20 tíma á viku, kennslustundir þar meðtaldar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Haust

BA-ritgerð í almennum málvísindum (AMV261L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

BA-ritgerð er einkum ætlað að þjálfa nemendur í að rannsaka valið viðfangsefni innan sinnar fræðigreinar og gera grein fyrir rannsókn sinni í vönduðum fræðilegum texta. Nemendur skrifa BA-ritgerð um rannsóknarefni að eigin vali í samráði við leiðbeinanda sinn. Umsjónarmaður aðstoðar nemendur við val á leiðbeinanda ef þörf krefur. Nemendur eru hvattir til að funda með leiðbeinanda og leggja fyrstu drög að rannsóknarverkefni áður en BA-ritgerðarmisserið hefst. Ritgerðinni er ætlað að sýna hæfni nemenda til að vinna sjálfstætt og fræðilega, setja fram efni rökrétt og skipulega, nota fræðileg hjálpargögn og vinna úr heimildum.

Nemendur eru hvattir til að notfæra sér þjónustu Ritvers Háskóla Íslands https://ritver.hi.is/is sem býður aðstoð við fræðileg skrif. Í Ritveri geta nemendur pantað viðtalsfund og fengið góð ráð um hvers kyns úrlausnarefni sem tengjast fræðilegum ritgerðum, skýrslum og öðrum skriflegum verkefnum.

Nemendum er bent á að kynna sér viðmið HÍ um notkun gervigreindar: https://gervigreind.hi.is/

Sjá nánar um reglur um BA-ritgerðir á Hugvísindasviði: https://ugla.hi.is/kerfi/view/page.php?sid=3544

Kennslutungumál: Íslenska
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Þriðja ár | Vor

Fyrsta ár
  • Haust
  • AMV106G
    Tungumálið í notkun: Samtöl og samhengi
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Merking orða og setninga ræðst oft af samhenginu, til dæmis við beitingu og túlkun á kaldhæðni. Hvernig geta aðrir skilið okkur ef við segjum ekki alltaf það sem við meinum? Hvað eiga samtöl í ólíkum menningarheimum og tungumálum sameiginlegt? Í námskeiðinu verður fjallað um notkun tungumálsins í samskiptum frá ýmsum sjónarhornum málvísinda. Kennd verða undirstöðuatriði í málnotkunarfræði og varpað ljósi á áhrif samhengis á merkingu orða og setninga. Kynnt verða helstu viðfangsefni og aðferðir samtalsgreiningar og rætt um samanburðarrannsóknir á samtölum víða um heim. Að lokum fá nemendur innsýn í þverfaglegar rannsóknir á málnotkun með aðferðum sálfræðilegra málvísinda. Nemendur kynnast upptöku á samtölum, greiningu á tali með efni námskeiðsins í huga og notkun viðeigandi forrita (t.d. Praat til vinnslu á hljóði og ELAN til að skrá samtöl).

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL109G
    Aðferðir og vinnubrögð
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er sameiginlegt nemendum í íslensku, almennum málvísindum og táknmálsfræði. Það skiptist í tvennt. Í öðrum helmingi námskeiðsins (kennt á fimmtudögum) er fjallað um gagnrýna hugsun og ritgerðasmíð frá ýmsum hliðum: uppbyggingu ritgerða, efnisafmörkun, mál og stíl, heimildanotkun og heimildamat, tilvísanir, heimildaskrá, frágang o.fl.
    Í hinum helmingi námskeiðsins (kennt á þriðjudögum) munu fræðimenn á áðurnefndum sviðum kynna viðfangsefni sín og gestir utan háskólans kynna starfsvettvang íslenskufræðinga, málvísindamanna og táknmálsfræðinga.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL110G
    Inngangur að málfræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kynnt verða helstu viðfangsefni málvísinda og undirstöðuatriði í íslenskri málfræði. Fjallað verður um valin atriði innan höfuðgreina málvísinda og helstu hliðargreinar þeirra auk þess sem gefið verður yfirlit yfir þróun málvísinda í gegnum aldirnar. Meginmarkmið námskeiðsins er að efla skilning nemenda á eðli tungumála og kynna þeim helstu grundvallarhugtök og aðferðir málvísinda. Kennsla felst í fyrirlestrum kennara og umræðum nemenda og kennara um efnið. Nemendur vinna heimaverkefni reglulega yfir misserið, taka tvö heimakrossapróf og ljúka námskeiðinu með lokaprófi í stofu á háskólasvæðinu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • AMV205G
    Þróun málvísinda
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er saga málvísinda og málspeki rakin í megindráttum frá fornöld til nútímans. Áhersla er lögð á þær kenningar og uppgötvanir sem afdrifaríkastar hafa orðið fyrir hugmyndir og aðferðafræði málvísinda. Meðal annars er fjallað um málvísindi fornaldar, íslenska miðaldamálfræði og sögu málvísindanna á 19. og 20. öld. Að lokum verður rætt um strauma og stefnur í málvísindum nútímans.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL209G
    Málkerfið – hljóð og orð
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta er grundvallarnámskeið í íslenskri hljóðfræði, hljóðkerfisfræði, beygingarfræði og orðmyndunarfræði. Farið verður í grundvallaratriði hljóðeðlisfræði og íslenskrar hljóðmyndunar og nemendur þjálfaðir í hljóðritun. Helstu hugtök í hljóðkerfisfræði verða kynnt og gefið yfirlit yfir hljóðferli í íslensku og skilyrðingu þeirra. Einnig verða grundvallarhugtök orðhlutafræðinnar kynnt og farið yfir helstu orðmyndunarferli í íslensku og virkni þeirra. Málfræðilegar formdeildir verða skoðaðar, beygingu helstu orðflokka lýst og gerð grein fyrir beygingarflokkum og tilbrigðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL508G
    Máltaka barna
    Valnámskeið

  • ÍSL615G
    Stílfræði

  • AMV313G
    Sálfræði tungumáls, heilinn og erfðir
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður fjallað um helstu aðferðir sálfræðilegra málvísinda og hugrænna taugavísinda í rannsóknum á tungumáli. Rætt verður m.a. um úrvinnslu heilans á merkingu og setningafræði og fjallað um viðfangsefni á borð við tvítyngi, talmyndun, málþroska og túlkun á óbeinu máli (t.d. kaldhæðni). Að lokum verður stuttlega farið yfir nýjustu rannsóknir á erfðaþáttum tungumáls.

    Námskeiðið er kennt á ensku og samkennt með námskeiði á framhaldsstigi en námskröfur eru ólíkar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL321G
    Setningar og samhengi
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður fjallað um grundvallaratriði í íslenskri setningafræði, meðal annars orðflokkagreiningu, setningaliði, flokkun sagna, færslur af ýmsu tagi og málfræðihlutverk. Einnig verður fjallað um málnotkun, merkingu og samhengi og tengsl þessara atriða við setningafræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL340G
    Hljóðfræði og hljóðkerfisfræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um undirstöðuatriði hljóðfræði og hljóðkerfisfræði. Fyrri hluti námskeiðsins er tileinkaður hljóðfræði. Fjallað er um gerð talfæra og hljóðmyndun. Nemendur fá þjálfun í hljóðritun. Kynntar verðu helstu aðferðir á sviði hljóðeðlisfræði og fjallað um tengsl hljóðfræði og hljóðkerfisfræði. Í seinni hluta námskeiðsins verða kynnt hugtök og aðferðir við greiningu hljóðkerfa og nemendur þjálfaðir í notkun þeirra. Ólíkar kenningar í hljóðkerfisfræði verða skoðaðar í tengslum við tungumál almennt og íslenskt hljóðkerfi sérstaklega.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • ÍSL320G
    Breytingar og tilbrigði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið þessa námskeiðs er að skýra þau tengsl sem eru á milli málbreytinga í sögu tungumáls og samtímalegra tilbrigða í máli. Meginhugmyndin er sú að málbreytingar leiði að jafnaði til samtímalegra tilbrigða á einhverju tímabili og að öll samtímaleg tilbrigði stafi af einhvers konar málbreytingu eða vísi að breytingu. Í námskeiðinu verða annars vegar kynntar helstu hugmyndir um eðli og tegundir málbreytinga, hvernig breytingar kvikna og hvernig þær breiðast út, og hins vegar hugmyndir um samtímaleg tilbrigði og eðli þeirra. Athyglinni verður fyrst og fremst beint að þróun íslensku, og því verða dæmi einkum tekin úr íslenskri málsögu og íslensku nútímamáli en jafnframt verður bent á hliðstæður í öðrum tungumálum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAF102G
    Arabíska I
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur byrja á því að læra arabíska stafrófið og málhljóðin ásamt undirstöðuatriðum. Eftir að nemendur hafa náð góðum tökum á stafrófinu verður farið í helstu málfræðiatriði, einfalda setningargerð og orðaforða. Samhliða því er einblínt á bæði hlustun og munnlega tjáningu. Mikil áhersla er lögð á mætingu og heimavinnu nemenda. Námskeiðið er kennt á íslensku.

    Námskeiðið er undanfari MAF204G: Arabíska II.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    AMV415G
    Tal- og málmein
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu fá nemendur yfirlit yfir helstu viðfangsefni talmeinafræðinga á Íslandi. Um er að ræða fjölbreytt efni, allt frá greiningu og meðferð málstols og kyngingartregðu hjá fullorðnum einstaklingum yfir í málþroskaröskun og framburðarfrávik barna á leikskólaaldri. Unnið er út frá nauðsynlegri grunnþekkingu og yfir í hagnýtari nálganir á viðfangsefnið. Einnig verður lögð áhersla á að nemendur geti kynnt sér fræðilega umræðu og ritrýndar greinar á sviði talmeinafræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • AMV601G
    Einstaklingsverkefni

  • ÍSL333G
    Forritun fyrir hugvísindafólk

  • ÍSR301G
    Ritfærni: Fræðileg skrif

  • SÁL103G
    Almenn sálfræði
    Valnámskeið
    10
    Valnámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Inngangur að viðfangsefnum sálfræði. Helstu viðfangsefni eru skynhrif, skynjun, minni, hugsun, áhugi, nám, þroski, persónuleiki, greind, félagsskilningur og sálmein.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • SÁL102G
    Tölfræði I

    ÍSL440G
    Setningafræði

  • ÍSL447G
    Beygingar- og orðmyndunarfræði

  • AMV604M
    Tilbúin tungumál: Hvað geta álfamál Tolkiens og esperantó kennt okkur um málvísindi?

  • ÍSR401G
    Ritfærni: Skapandi fræðamiðlun

  • ENS313G
    Félagsmálvísindi

  • ÍSL004M
    Mál og samfélag

  • ÍSL211G
    Fornmálið

    ÍSL612M
    Gagnaöflun og tölfræðiúrvinnsla í hugvísindum og máltækni 

  • TÁK204G
    Menningarheimar

  • TÁK207G
    Málfræði táknmáls I

  • AMV261L
    BA-ritgerð í almennum málvísindum
    Skyldunámskeið
    0

Annað ár

Þriðja ár

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Málvísindanám er góð undirstaða fyrir margs konar störf þar sem fengist er við tungumálið og samskipti almennt.

Þekking á almennum málvísindum getur nýst mjög vel í ýmsu öðru háskólanámi og verið gagnleg sem undirbúningur fyrir þá sem vilja leggja fyrir sig rannsóknir og fræðastörf.

Fólk með þessa menntun starfar til dæmis við:

  • Rannsóknir og fræðastörf
  • Talmeinafræði
  • Máltækni
  • Ritstörf
  • Fjölmiðla
  • Kynningarstörf

Listinn er ekki tæmandi.

Mímir er nemendafélag stúdenta í íslenskum fræðum og almennum málvísindum

  • Félagið stuðlar að virku félagslífi og gætir hagsmuna sinna félagsmanna
  • Félagið heldur meðal annars árshátíð og skipuleggur vísindaferðir í stofnanir og fyrirtæki

Meira um félagslíf stúdenta í Hí

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Evu Ragnarsdóttur Kamban
Ég valdi almenn málvísindi vegna þess að mig langaði til að vita meira um vísindin á bak við tungumál. Í náminu hef ég öðlast skilning á mörgum af hinum fjölmörgu hliðum mannlegs máls – hliðum sem ég vissi jafnvel ekki að væru til en innan málvísinda er enn á nógu að taka, enda tungumálið í sífelldri þróun. Á þessum tíma hef ég kynnst fjöldanum öllum af fólki sem deilir þessum áhuga með mér og eignast vini fyrir lífstíð.
Ljósmynd af Evu Hrund Sigurjónsdóttur
Það var einstaklega þægilegt að fara inn í litla deild þar sem auðvelt er að kynnast samnemendum sínum og samstarf við kennara náið. Ég vissi ekki beint hverju ég ætti að búast við af námsleiðinni en hún reyndist betri en ég átti von á vegna hve fjölbreytt, skemmtilegt og áhugavert efnið var. Einnig kom það mér á óvart hve mikla vinnu var hægt að fá sem B.A. nemi en fjölmargar málfræðirannsóknir fara fram á vegum háskólans og Árnastofnunar og eru þá oft nemendur ráðnir inn til að sinna vísindastörfum.
Ljósmynd af Höllu Hauksdóttur
Að velja að leggja stund á málvísindi haustið 2018 reyndist mér mikið gæfuspor. Lítil deild, stórar pælingar, náin kynni. Að öllu leyti frábær menntun sem ég mun búa að þar til yfir lýkur.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hugvísindasvið
Virka daga 10:00-12:00 og 13:00-15:00
Þjónusta og samfélagsmiðlar

Þjónustuborðið Háskólatorgi veitir upplýsingar og aðstoð. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða haft samband í gegnum vefspjallið.

Fylgstu með Hugvísindasviði á Instagram, Youtube og Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil