Hjá tölvuþjónustu Upplýsingatæknisviðs Háskóla Íslands má leita upplýsinga um úrlausnir á tölvutengdum vandamálum.
Upplýsingatæknisvið hjálpar meðal annars til við:
- Notendanöfn og lykilorð nemenda
- Tengingu við þráðlaust net - eduroam
- Tölvupóst
- Upplýsingar um prentun
- Hugbúnað
Þjónustumiðjan hefur að geyma yfirlit yfir þá þjónustu sem er í boði og leiðbeiningar um hvernig hægt er að nýta sér hana auk úrlausna á algengum vandamálum.
Nemendum er bent á að Þjónustuborðið á Háskólatorgi sér meðal annars um:
- Sölu á prentkvóta.
- Úthlutun á veflyklum.
- Afhendingu stúdentakorta.