Háskóli Íslands býður upp á nám á þremur stigum:
- Grunnnám, í flestum tilvikum í 3 ár, sem lýkur með bakkalárgráðu (BA, BS eða B.Ed.)
- Framhaldsnám, í eitt og hálft til tvö ár, sem lýkur með meistaragráðu (MA, MS eða M.Ed.)
- Doktorsnám, í þrjú ár, sem lýkur með doktorsgráðu (Ph.D. eða Ed.D.)
Auk þess eru í boði styttri námsleiðir, örnám, diplómanám og viðbótarpróf, bæði á grunn- og framhaldsstigi.
Fullt nám í eitt ár er metið til 60 eininga, 30 einingar á hvoru misseri.
Einingar við HÍ eru jafngildar ECTS-einingum (European Credit Transfer and Accumulation System).
Umsækjendur verða að sækja um námsleið sem kennd er við HÍ áður en þau skrá sig í námskeið. Ekki er hægt að sækja um einstök námskeið.