""
Reglur um andmælendur

Andmælendur skulu vera viðurkenndir sérfræðingar í viðfangsefni doktorsritgerðarinnar. Þeir skulu hafa birt ritsmíðar er tengjast verkefni stúdents á vettvangi sem gerir strangar fræðilegar kröfur og geta tekið þátt í vísindalegri rökræðu um efnisatriði doktorsrannsóknarinnar.

Andmælendur skulu hafa doktorspróf eða jafngildi þess. Hæfnisdómur fyrir starf prófessors getur komið í stað doktorsprófs.

Andmælendur mega ekki hafa setið í doktorsnefnd viðkomandi verkefnis og mega ekki tilheyra sama rannsóknarteymi.

Þegar þess er kostur skal a.m.k. annar andmælenda vera kennari eða sérfræðingur við annan háskóla eða rannsóknastofnun.

Andmælendur mega ekki hafa þau faglegu tengsl við doktorsnema, leiðbeinanda eða doktorsnefnd sem valda því að hægt sé að draga hæfi þeirra í efa. Að jafnaði er miðað við að andmælendur hafi ekki birt vísindagreinar með leiðbeinanda eða doktorsnefndarmönnum undanfarin fimm ár. Að starfa í sömu deild og leiðbeinandi þykir almennt bera vott um of mikla nálægð.

Ef tilnefndur andmælandi starfar innan þess skóla sem doktorsneminn stundar nám sitt eða hefur önnur tengsl við doktorsnema, leiðbeinanda eða doktorsnefnd (t.d. átt í samstarfi við eða birt vísindagreinar með) skal greina frá þeim tengslum. Rökstyðja þarf valið á tilnefndum andmælanda og hvers vegna áðurnefnd tengsl valda ekki vanhæfi. Stjórn MF metur hvort hægt er að draga hæfi andmælenda í efa og kallar eftir nýrri tilnefningu ef hún telur að svo sé.

Um önnur tengsl sem kunna að leiða til vanhæfis gilda vanhæfisákvæði Stjórnsýslulaga (nr. 37/1993).

Umsóknarkennari fyllir út beiðni um skipan andmælenda í Doktorsnámunni og sendir til deildar. Fastanefnd deildar tilnefnir þá andmælendur sem hún metur að uppfylli ofangreind skilyrði.

MF skilar áliti innan tveggja vikna frá því að tillögur um andmælendur berast.

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil