- Viltu kenna í framhaldsskóla?
- Viltu fjölbreytt nám sem er bæði bóklegt og fer fram á vettvangi?
- Hefur þú gaman af að vera með ungu fólki og stuðla að menntun þess og þroska?
- Ertu nú þegar að kenna en langar að styrkja þig og sérhæfa í ákveðinni faggrein eða viðfangsefni?
- Hefur þú gaman af að vera með ungu fólki og stuðla að menntun þess og þroska?
Nám í menntun framhaldsskólakennara til M.Ed.-prófs (Master of Education) er 120 eininga nám á meistarastigi með 30e lokaverkefni. Nemendur í meistaranámi geta skipulagt nám sitt sem fullt nám til tveggja ára eða sem hlutanám sem dreifist á fjögur ár.
Fjögur námskeið í 40 eininga kjarna í kennslufræði sem þarf að taka öll á sama háskólaárinu og eru skipulögð sem staðbundið nám ásamt vettvangsnámi.
Námleiðin veitir rétt til þess að sækja um leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari samkvæmt lögum nr. 95/2019.
Námsleiðin getur veitt aðgang að doktorsnámi.
Helstu áherslur
- Kennslufræði og kennsla á vettvangi
- Aðferðir og kenningar
- Námsskeið á kjörsviði
- Meistaraverkefni
Kjörsvið
Sex kjörsvið eru í almennu boði og eitt kjörsvið sem ætlað er framhaldsskólakennurum sem þegar hafa leyfisbréf til kennslu í framhaldsskóla.
Þú velur þér kjörsvið sem felur í sér sérhæfingu í ákveðnum viðfangsefnum skólastarfs þvert á námsgreinar og skólastig. Á kjörsviðinu velur þú 30 einingar af vallistum sem settir eru upp fyrir hverja sérhæfingu, með það í huga að þau veiti samstæða heild og byggi auk þess undir lokaverkefni. Á sumum kjörsviðum er eitt námskeið í skyldu eða bundnu vali.
- Grunnþættir og gildi: Sjálfbærni – jafnrétti – lífsleikni
- Kyn og jafnrétti
- Nám og kennsla í skóla án aðgreiningar í fjölmenningarsamfélagi
- Námskrárþróun, námsmat og námsefnisgerð
- Skólaþróun og mat á skólastarfi
- Upplýsingatækni í skólastarfi
Fyrir framhaldsskólakennara
- Sérskipulagt námssvið fyrir framhaldsskólakennara
Umsækjandi sem óskar eftir innritun á þetta svið setur saman rökstudda námsáætlun um þau námskeið sem hann óskar eftir að tilheyri slíku sérskipulögðu námssviði. Námsáætunin þarf einnig að innihalda námskeið í aðferðum og kenningum sem tengjast fyrirhugaðri meistaraprófsrannsókn. Áætlunin er yfirfarin af matsnefnd.
Námskeiðin geta verið úr þinni faggrein, sérhæfðum námskeiðum sem tengjast kennslufræði faggreinar, vallistum annarra námssviða og úr þeim námskeiðum sem hægt er að rökstyðja að myndi samfellu.
Markmið
Meginmarkmið námsins er að efla þekkingu og færni þátttakenda í kennslu og kennslufræðum tengdum þessum greinum þannig að þeir verði betur í stakk búnir að kenna.
Annað
Við brautskráningu úr kennaranámi við íslenska háskóla skal kennari búa yfir hæfni í íslensku sem samsvarar að lágmarki C1 í Evrópska tungumálarammanum.
Bakkalárpróf í kennslugrein framhaldsskóla með fyrstu einkunn (7,25 eða hærra). Heimilt er að veita undanþágu frá ákvæði um fyrstu einkunn í þeim tilvikum þegar nemandi er brautskráður með bakkalárpróf frá háskóladeild sem heimilar aðgang að meistaranámi með lægri lokaeinkunn.
Ef umsækjandi um meistaranám sem leiðir til leyfisbréfs kennara hefur hvorki lokið framhaldsskóla- né háskólanámi á íslensku skal hann hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku á stigi B2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR).
Ljúka þarf 120 einingum til M.Ed.-prófs og skiptast þær þannig:
1) Námskeið í kjarna í kennslufræði sem öll ber að taka á sama háskólaárinu og eru skipulögð sem staðbundið nám ásamt vettvangsnámi, 40 einingar.
2) Námskeið í aðferðum og/eða kenningum menntavísinda, 20 einingar.
3) Kjörsvið: a) Námskeið á kjörsviði, 30 einingar og b) M.Ed.-verkefni á kjörsviði, 30 einingar.
- Ferilskrá (CV)
- Greinargerð um markmið með námi
- Meðmælandi 1, nafn og netfang
- Meðmælandi 2, nafn og netfang
- Prófskírteini/námsyfirlit
Námið er þverfaglegt en haldið er utan um námið á
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
- Fyrsta ár
- Haust
- Kennsla list- og verkgreina og vettvangsnám 1
- Kennsla náttúrufræði og stærðfræði og vettvangsnám 1
- Kennsla samfélagsgreina og vettvangsnám 1
- Kennsla erlendra tungumála og vettvangsnám 1
- Kennsla íslensku og vettvangsnám 1
- Inngangur að kennslufræði framhaldsskóla
- Vor
- Kennsla list- og verkgreina og vettvangsnám 2
- Kennsla náttúrufræði og stærðfræði og vettvangsnám 2
- Kennsla samfélagsgreina og vettvangsnám 2
- Kennsla erlendra tungumála og vettvangsnám 2
- Kennsla íslensku og vettvangsnám 2
- Námskrá og skólaþróun í framhaldsskólum
Kennsla list- og verkgreina og vettvangsnám 1 (LVG104F)
Nemendur kynnast uppbyggingu námsbrauta og markmiðssetningu náms á sínu sérsviði. Markmiðið er að kennaranemi geti skipulagt og útbúið áfanga með áfangalýsingu og hæfniviðmiðum með tengingu við hæfniþrep náms, lykilhæfni og grunnþætti menntunnar. Áhersla er lögð á stigvaxandi kröfu um þekkingu, leikni og hæfni nemenda á grunn- og framhaldsskólastigi í átt til sérhæfingar með frekara nám í huga eða þátttöku í atvinnulífi greina sem heyra undir listir og hönnun.
Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu. Starfsþjálfun á haustmisseri er tengd námskeiðinu Inngangi að kennslufræði og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.
Kennsla náttúrufræði og stærðfræði og vettvangsnám 1 (SNU103F)
Nemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í náttúrufræðigreinum og stærðfræði, og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Gengið er út frá því að það að læra að kenna felist að miklu leyti í því að ígrunda og móta hugmyndir sínar um eigin kennslu. Því er gert ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um nám og kennslu í náttúrufræði og/eða stærðfræði þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna sínar greinar og til þess að halda áfram að þróa sig sem kennarar.
Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu. Starfsþjálfun á haustmisseri er tengd námskeiðinu Inngangi að kennslufræði og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.
Kennsla samfélagsgreina og vettvangsnám 1 (SFG105F)
Nemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í samfélagsgreinum og nokkrum greinum hugvísinda, að frátöldum íslensku og námi í erlendum tungumálum, og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Verkefni í námskeiðinu eru samþætt vettvangsnámi. Lögð er áhersla á mikilvægi ígrundunar fyrir verðandi kennara. Því er gert ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um nám og kennslu í samfélagsgreinum og verði þannig betur í stakk búnir til að kenna sínar greinar og til þess að halda áfram að þróast sem kennarar.

Kennsla erlendra tungumála og vettvangsnám 1 (ÍET105F)
Nemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í kennslu erlendra tungumála og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Gert er ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um tungumálanám og kennslu þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna og þróa sig sem kennarar. Viðeigandi kenningar, hugtök og aðferðir varðandi nám og kennslu erlendra tungumála eru kynntar, rannsakaðar og ræddar.

Kennsla íslensku og vettvangsnám 1 (ÍET104F)
Í námskeiðinu kynnast nemendur undirstöðuatriðum í kennslu íslensku, fá kennslu í verkefnagerð á flestum sviðum íslensku og grundvallarþjálfun í námsmati í íslensku á framhaldsskólastigi. Þá verður leikni nemenda við að vinna með aðalnámskrá efld. Lögð er áhersla á að nemendur læri aðferðir til að hagnýta fræðilega þekkingu sína á faggreininni og nýti sér ígrundun til að móta og þróa hugmyndir um eigin kennslu og nám nemenda. Verkefni í námskeiðinu eru samþætt vettvangsnámi.
Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu.
Starfsþjálfun á haustmisseri er tengd námskeiðinu Inngangi að kennslufræði og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.
Inngangur að kennslufræði framhaldsskóla (KEN104F)
Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist innsýn inn í íslenskar og alþjóðlegar rannsóknir og kenningar á sviði skólastarfs. Meginviðfangsefni námskeiðs eru kenningar um og rannsóknir á námi, samskiptum og kennsluháttum. Einnig eru kenningar um og rannsóknir á starfi og fagmennsku kennara, svo og lagaákvæði, siðareglur og þess háttar, meðal meginviðfangsefna námskeiðsins.
Við val viðfangsefna og skipulag námskeiðsins er tekið mið af því að meginstarfsvettvangur þeirra sem taka námskeiðið verður í framhaldsskóla.
Kennsla list- og verkgreina og vettvangsnám 2 (LVG203F)
Nemendur kynnast uppbyggingu námsbrauta og markmiðssetningu náms á sínu sérsviði. Markmiðið er að kennaranemi geti skipulagt og útbúið áfanga með áfangalýsingu og hæfniviðmiðum með tengingu við hæfniþrep náms, lykilhæfni og grunnþætti menntunnar. Áhersla er lögð á stigvaxandi kröfu um þekkingu, leikni og hæfni nemenda á grunn- og framhaldsskólastigi í átt til sérhæfingar með frekara nám í huga eða þátttöku í atvinnulífi greina sem heyra undir listir og hönnun.
Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu.
Starfsþjálfun á vormisseri er tengd námskeiðinu Námskrá og skólaþróun í framhaldsskólum og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.
Kennsla náttúrufræði og stærðfræði og vettvangsnám 2 (SNU205F)
Nemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í náttúrufræðigreinum og stærðfræði, og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Gengið er út frá því að það að læra að kenna felist að miklu leyti í því að ígrunda og móta hugmyndir sínar um eigin kennslu. Því er gert ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um nám og kennslu í náttúrufræði og/eða stærðfræði þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna sínar greinar og til þess að halda áfram að þróa sig sem kennarar.
Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu.
Starfsþjálfun á vormisseri er tengd námskeiðinu Námskrá og skólaþróun í framhaldsskólum og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.
Kennsla samfélagsgreina og vettvangsnám 2 (SFG206F)
Nemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í samfélagsgreinum og nokkrum greinum hugvísinda, að frátöldum íslensku og námi í erlendum tungumálum, og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Verkefni í námskeiðinu eru samþætt vettvangsnámi. Lögð er áhersla á mikilvægi ígrundunar fyrir verðandi kennara. Því er gert ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um nám og kennslu í samfélagsgreinum og verði þannig betur í stakk búnir til að kenna sínar greinar og til þess að halda áfram að þróast sem kennarar.
Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu.
Starfsþjálfun á vormisseri er tengd námskeiðinu Námskrá og skólaþróun í framhaldsskólum og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.
Kennsla erlendra tungumála og vettvangsnám 2 (ÍET211F)
Nemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í kennslu erlendra tungumála og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Gert er ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um tungumálanám og kennslu þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna og þróa sig sem kennarar. Viðeigandi kenningar, hugtök og aðferðir varðandi nám og kennslu erlendra tungumála eru kynntar, rannsakaðar og ræddar.
Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu.
Starfsþjálfun á vormisseri er tengd námskeiðinu Námskrá og skólaþróun í framhaldsskólum og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.
Kennsla íslensku og vettvangsnám 2 (ÍET210F)
Í námskeiðinu kynnast nemendur undirstöðuatriðum í kennslu íslensku, fá kennslu í verkefnagerð á flestum sviðum íslensku og grundvallarþjálfun í námsmati í íslensku á framhaldsskólastigi. Þá verður leikni nemenda við að vinna með aðalnámskrá efld. Lögð er áhersla á að nemendur læri aðferðir til að hagnýta fræðilega þekkingu sína á faggreininni og nýti sér ígrundun til að móta og þróa hugmyndir um eigin kennslu og nám nemenda. Verkefni í námskeiðinu eru samþætt vettvangsnámi.
Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu.
Starfsþjálfun á vormisseri er tengd námskeiðinu Námskrá og skólaþróun í framhaldsskólum og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.
Námskrá og skólaþróun í framhaldsskólum (KEN213F)
Í námskeiðinu er fjallað um námskrárfræði og menntastefnu með áherslu á námskrár, nemendur og þróunarstarf í framhaldsskólum.
Viðfangsefnum í námskeiðinu er ætlað að þjálfa fagmannlegt verklag við mótun menntastefnu, námskrárgerð og skólaþróun í framhaldsskólum á Íslandi.
- Annað ár
- Haust
- Meistaraverkefni
- Vor
- Meistaraverkefni
Meistaraverkefni (MFK443L)
Lokaverkefni til M.Ed.-prófs er einstaklingsverkefni sem nemandi vinnur sjálfstætt undir leiðsögn leiðbeinanda/leiðbeinenda.
Nemendur skulu hafa samráð við formann námsbrautar um val á leiðbeinanda. Leiðbeinandi er að jafnaði valinn úr hópi fastra kennara Menntavísindasviðs.
Nemandi velur viðfangsefni í samráði við formann námsbrautar og leiðbeinanda. Þess skal gætt að efni lokaverkefnis tengist vettvangi og sérsviði því sem nemandi hefur valið, það er að segja, að verkefnið tengist viðfangsefnum viðkomandi námsleiðar og einnig kjörsviði/sérsviði/námssviði þar sem það á við.
Verkefni til M.Ed.-prófs getur verið af ólíku tagi, til dæmis rannsóknarritgerð (heimildarannsókn), rannsóknarskýrsla (ritgerð sem byggir á rannsókn), starfstengt þróunar- eða matsverkefni, námskrárgerð eða námsefnisgerð. Öllum verkefnum, öðrum en rannsóknarritgerðum og rannsóknarskýrslum, skal fylgja fræðileg greinargerð.
Nemandi sem vinnur að lokaverkefni skráir sig í lokaverkefni í árlegri skráningu, miðað við áætlaða framvindu á haustmisseri og vormisseri. Að öllu jöfnu er gert ráð fyrir að undirbúningur og vinna lokaverkefnis til M.Ed.-prófs dreifist á tvö misseri eða fleiri. Á tilteknum námsleiðum er gert ráð fyrir að vinna verkefnis skiptist á þrjú misseri, sjá nánari upplýsingar undir krækjunni skipulag náms fyrir hverja námsleið í kennsluskrá.
Ekki eru gefnar tölueinkunnir fyrir lokaverkefni til meistaraprófs heldur er gefið annað hvort staðið eða fallið. Við mat á meistaraverkefnum er farið að reglum Menntavísindasviðs.
Nemendur skulu fylgja nánari leiðbeiningum og reglum Menntavísindasviðs um verklag við M.Ed.-verkefni. Sjá á innri vef Menntavísindasviðs, Uglu: Fræðasvið / Menntavísindasvið / Kennslumál / Meistaraverkefni
Meistaraverkefni (MFK443L)
Lokaverkefni til M.Ed.-prófs er einstaklingsverkefni sem nemandi vinnur sjálfstætt undir leiðsögn leiðbeinanda/leiðbeinenda.
Nemendur skulu hafa samráð við formann námsbrautar um val á leiðbeinanda. Leiðbeinandi er að jafnaði valinn úr hópi fastra kennara Menntavísindasviðs.
Nemandi velur viðfangsefni í samráði við formann námsbrautar og leiðbeinanda. Þess skal gætt að efni lokaverkefnis tengist vettvangi og sérsviði því sem nemandi hefur valið, það er að segja, að verkefnið tengist viðfangsefnum viðkomandi námsleiðar og einnig kjörsviði/sérsviði/námssviði þar sem það á við.
Verkefni til M.Ed.-prófs getur verið af ólíku tagi, til dæmis rannsóknarritgerð (heimildarannsókn), rannsóknarskýrsla (ritgerð sem byggir á rannsókn), starfstengt þróunar- eða matsverkefni, námskrárgerð eða námsefnisgerð. Öllum verkefnum, öðrum en rannsóknarritgerðum og rannsóknarskýrslum, skal fylgja fræðileg greinargerð.
Nemandi sem vinnur að lokaverkefni skráir sig í lokaverkefni í árlegri skráningu, miðað við áætlaða framvindu á haustmisseri og vormisseri. Að öllu jöfnu er gert ráð fyrir að undirbúningur og vinna lokaverkefnis til M.Ed.-prófs dreifist á tvö misseri eða fleiri. Á tilteknum námsleiðum er gert ráð fyrir að vinna verkefnis skiptist á þrjú misseri, sjá nánari upplýsingar undir krækjunni Skipulag náms fyrir hverja námsleið í kennsluskrá.
Ekki eru gefnar tölueinkunnir fyrir lokaverkefni til meistaraprófs heldur er gefið annað hvort staðið eða fallið. Við mat á meistaraverkefnum er farið að reglum Menntavísindasviðs.
Nemendur skulu fylgja nánari leiðbeiningum og reglum Menntavísindasviðs um verklag við M.Ed.-verkefni. Sjá á innri vef Menntavísindasviðs, Uglu
- Óháð námsári
- Haust
- Ekki kennt á misserinuLífsleikni - sjálfið
- Sjálfbærnimenntun og forysta
- Margbreytileiki og félagslegt réttlæti
- Kenningar í félagsfræði og heimspeki menntunar
- Vor
- Sjálfbærnimenntun og nám
- Ekki kennt á misserinuSjálfbær framtíð
- Menntun og kyngervi
- Menntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytinga
- Ekki kennt á misserinuGagnrýnin hugsun og heimspekileg samræða
- Áhættuhegðun og seigla ungmenna
- Bókmenntir og grunnþættir
- Menntun til hnattrænnar borgaravitundar - frá stefnu til starfs
- Kenningar í kynjafræði
- Menntun og kyngervi
- Menntun og menntastefnur í alþjóðlegu samhengi
- Kenningar um nám: Hagnýting og rannsóknir
- Starfendarannsóknir
- Inngangur að megindlegum rannsóknaraðferðum
- Inngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðum
- Óháð misseri
- Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi
Lífsleikni - sjálfið (SFG104F)
Viðfangsefni: Á námskeiðinu er unnið með þá þætti lífsleikni sem miða að sjálfinu og persónulegri hæfni með fræðilegum og hagnýtum hætti. Efni námskeiðsins er í samræmi við ákvæði úr námskrám íslenskra leik-, grunn- og framhaldsskóla um að efla andlega heilsu, heilbrigða sjálfsmynd og siðferðilegan styrk nemenda. Meðal annars er fjallað um mannkostamenntun, lífstilraunir og nútvitund.
Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða í flestum vikum. Fyrirlestrar verða að jafnaði teknir upp fyrirfram og settir á Canvas-vef námskeiðsins. Gert er ráð fyrir að nemendur kynni sér þá og taki svo þátt í umræðum. Umræðutímarnir verða ekki teknir upp en þeir sem ekki komast í umræðutíma geta uppfyllt þátttökuskyldu með því að skila þátttökubloggi. Einnig eru unnin þrjú verkefni auk lokaverkefnis. Í staðlotum I og II eru tímarnir verklegir.
Sjálfbærnimenntun og forysta (SFG003F)
Viðfangsefni: Megintilgangur þessa námskeiðs er að rýna með gagnrýnum hætti í sjálfbærni og sjálfbærnimenntun út frá sjónarhorni stofnana eða heilla kerfa, út frá ólíkum gerðum forystu og hugmyndum um sérfræðiþekkingu. Rýnt verður í hugtökin fagmennsku og faglega sjálfsmynd fólks í forystu bæði á sviði menntunar og viðfangsefnum tengdum sjálfbærri þróun. Illviðráðanleg vandamál (e. wicked problems) verða skilgreind og rædd, fjallað um mögulegar lausnir, hvað gæti hindrað framganginn og hvernig mætti meta lausnirnar. Rætt verður um hvers konar nám fagfólks leiðir til breytinga og þátt forystu í að koma hlutum í framkvæmd. Viðfangsefnin verða tengd við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna (SÞ) og átta gerðir lykilhæfni SÞ til sjálfbærrar þróunar og félagslegrar nýsköpunar. Sjónum verður beint að félagsauði og samþættu námi þar sem beitt er ígrundun og efnisþáttum náms. Síðasta viðfangsefnið verður starfsþróunaráætlunar þar sem afrakstur ígrundunar og sjálfsmats verður þrætt inn í skipulagða persónulega starfsþróunaráætlun.
Vinnulag: Kennslustundir og umræður á milli þeirra byggjast á upplýstri rökræðu og virkri þátttöku (80% mætingarskylda í kennslustundir). Unnin verða einstaklingsverkefni sem eru fá skrifleg verkefni ásamt þátttöku í umræðuþráðum. Krafist er virkrar þátttöku í teymisvinnu við skipulagningu kennslustunda, flytja fyrirlestur og því að leiða umræður eða vera í hlutverki rýnis. Til að standast námskeiðið þarf að fá að lágmarki einkunnina 5,0 fyrir hvert verkefni námskeiðsins og uppfylla lágmarkskröfur um mætingu, þátttöku í tímum og í umræðuþráðum. Nánari útfærsla og upplýsingar um kennslufyrirkomulag verður á Canvas.
Margbreytileiki og félagslegt réttlæti (UME103F)
Markmið: Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á margbreytileika samfélagsins, mikilvægi hans í menntunarlegu félagslegu tilliti, átti sig betur á stöðu einstaklinga og hópa sem þrýst er að jaðri samfélagsins. Einnig munu nemendur öðlast þekkingu á margvíslegum myndum, tilurð og afleiðingum útilokunar og stimplunar og kunna skil á afmörkuðum þáttum í sögu og siðfræði sem varða margbreytileika, félagslegan auð, útilokun og félagslegt réttlæti. Einnig verður lögð áhersla á að nemendur öðlist færni í að beita fræðilegum hugtökum á vettvangi og geti sett hugmyndir um fagmennsku og fagstétt í sögulegt og siðfræðilegt samhengi. Rík áhersla er á að nemendur geti ígrundað eigin viðhorf og vinnu í ljósi siðfræðilegra, félagsfræðilegra og menntunarfræðilegra hugtaka eins og sjálfræðis, virðingar, mannlegrar reisnar, trausts og umhyggju, félagslegt réttlæti og félagsleg mismunun, félagsauður og valdefling.
Viðfangsefni: Meginviðfangsefni námskeiðsins er margbreytileiki samfélagsins og staða jaðarhópa í skóla og samfélagi. Námskeiðið skiptist í þrjá hluta þar sem fyrstu tveir hlutarnir byggjast á fræðilegri umfjöllun um álitamál, sögu og siðfræði, en í þriðja hlutanum er gert ráð fyrir að nemendur beiti þeim fræðilegu undirstöðum sem lagðar hafa verið í fyrstu tveim hlutunum til að skoða vettvang, eigið starf og eigin viðhorf.
Kenningar í félagsfræði og heimspeki menntunar (MVS101F)
Í þessu námskeiði eru ræddar ýmsar áhrifamiklar kenningar á sviði félagfræði og heimspeki menntunar og þær settar í samhengi við álitamál í samfélaginu hversu sinni svo sem kynjajafnrétti, fjölmenningu, stéttaskiptingu, uppeldishætti, kennslufræði, lýðræði og skóla án aðgreiningar.
Á fyrri hluta misseris er röð fyrirlestra og umræðutímar.
Á seinni hluta misseris vinna nemendur tiltölulega sjálfstæð verkefni í hópum og fá leiðsögn um notkun kenninga við mótun rannsóknaráætlana eða þróunarverkefna á sviði kennslu eða uppeldisfræða.
Sjálfbærnimenntun og nám (SFG207F)
Viðfangsefni: Meginmarkmið þessa námskeiðs er að ræða með gagnrýnum hætti hvernig megi koma á jákvæðum umbótum í átt til sjálfbærrara samfélags og hvers konar nám stuðlar að því. Rætt verður um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og lykilhæfnina sem þarf til að ná þeim markmiðum. Rýnt verður í og ígrundað hvaðan menntun okkar kemur, nám um og í gegnum vinnu og hvernig námið getur eða ætti að leiða til aðgerða. Fjallað verður um hugtökin geta til aðgerða, trú á eigin getu og getu heildarinnar, umbreytandi nám og félagslegt nám út frá ólíkum sjónarhornum. Sjónum verður beint að námsmati, hlutverki þess og færninni sem gott námsmat krefst af kennurum, en líka hvaða upplýsingar eru góðar og leiðbeinandi fyrir nemendur. Rýnt verður í hindranir náms, nám sem lífsmáta og áhrif nemenda á nám sitt, bæði formlegt og óformlegt nám.
Vinnulag: Kennslustundir og umræður á milli þeirra byggjast á upplýstri rökræðu og virkri þátttöku (80% mætingarskylda í kennslustundir). Unnin verða einstaklingsverkefni sem eru fá skrifleg verkefni ásamt þátttöku í umræðuþráðum. Krafist er virkrar þátttöku í teymisvinnu við skipulagningu kennslustunda, flytja fyrirlestur og því að leiða umræður eða vera í hlutverki rýnis. Til að standast námskeiðið þarf að fá að lágmarki einkunnina 5,0 fyrir hvert verkefni námskeiðsins og uppfylla lágmarkskröfur um mætingu, þátttöku í tímum og í umræðuþráðum. Nánari útfærsla og upplýsingar um kennslufyrirkomulag verður á Canvas.
Sjálfbær framtíð (UAU207M)
Markmið námskeiðsins er að þjálfa gagnrýna hugsun nemenda og leiðtogahæfileika með sjálfbæra framtíð að markmiði. Námskeiðið mun kenna praktískar aðferðir sem minnka munu vistfótspor (e. ecological footprint), einstaklinga/fyrirtækja/stofnana/samfélags. Áhersla verður lögð á þverfræðileika og vísindalegan ramma sjálfbærni - byggðan á aðferðafræði "systems thinking". Nemendur munu læra að nýta vísindi í víðum skilningi til að styðja við regulgerðir (e. Policy), kynnast þeim eiginleikum og aðferðum sem þarf til að leiða breytingar þjóðfélaga í átt til sjálfbærni auk þeirra þátta sem nauðsynlegir eru þegar sjálfbær samfélög eru skipulögð.
Við lok námskeiðsins munu nemendur hafa öðlast hæfileika til að leiða breytingar samfélags í átt til sjálfbærrar framtíðar. Nemendur munu ma. annars geta leitt vinnustofur sem miða að sjálfbærni. Námsmat mun fara byggt á frammistöðu í vinnustofum, kynningum og hópverkefnum.
Lotunámskeið, kennt yfir fjórar helgar. Dagsetningar á vormisseri 2023 eru: 20.-21. janúar, 10.-11. febrúar, 3.-4. mars og 24.-25. mars.
Menntun og kyngervi (UME004M)
Markmið: Markmið námskeiðsins er að nemar kynnist hugmyndum, kenningum og rannsóknum um uppeldi og menntun í ljósi kynjafræðilegra sjónarmiða og hugtaksins kyngervi (gender).
Viðfangsefni. Unnið verður með hugtökin, kyngervi, kynjun, kynímyndir, staðalmyndir, kvenfrelsi, félagsleg mismunun, kynhlutverk, kynjablinda, tvíhyggja og valdatengsl. Fjallað verður um hvernig hugmyndir um menntun kynjanna hafa þróast sögulega, rýnt í orðræðuna um drengi og stúlkur og staðreyndir og gagnrýni á menntun og kynferði á öllum skólastigum. Sjónarmið félagslegar mótunarhyggju og eðlishyggju verða notuð til að útskýra mismunandi hugmyndir um kynjamismunun. Athyglinni verður beint sérstaklega að nýjum rannsóknum á sviðinu og fræðilegri nálgun mismunandi fræðimanna. Að síðustu verður athyglinni beint að íslenska skólakerfinu, stöðu drengja og stúlkna, leiðtogum og stjórnendum, námskrám og stöðu lögbundinnar jafnréttisfræðslu á öllum skólastigum. Lesnar verða nýjar íslenskar og erlendara rannsóknir á kyngervi og skólastarfi, t.d. rannsóknir á námsframmistöðu kynjanna, mismunandi hugmyndum stelpna og stráka um námsgreinar, námshæfni og námsval og hvernig skólar bregðast við kynjun skóla og samfélags.
Vinnulag
Námskeiðið er skipulagt sem staðnám, með möguleikum til fjarnáms ef þörf krefur. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, hópvinnu og verkefnavinnu.
Menntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytinga (FAG201F)
Fjallað verður um hugtakið sjálfbær þróun og meginhugmyndir alþjóðlegra sáttmála um sjálfbærni. Tekin verða dæmi af ýmsum vandamálum er tengjast umhverfi og náttúru, s.s. loftslagsmálum, tegundafækkun, jarðvegseyðingu og mengun. Lögð verður áhersla á að greina vandamál úr umhverfi nemenda með áherslu á að finna mögulegar lausnir. Fjallað verður um hlutverk kennara í að vinna með ágreiningsmál og hvernig þeir geta kennt börnum að greina vanda, meta upplýsingar og setja fram hugsanlegar lausnir. Þátttakendur lesi og noti rannsóknir á sjálfbærnimenntun. Einnig munu þátttakendur skoða eigin viðhorf til sjálfbærrar þróunar, gildi sín og meta eigin hegðun.
Skyldumæting er í staðlotur samkvæmt kennslualmanaki Menntavísindasviðs.
Gagnrýnin hugsun og heimspekileg samræða (UME204F)
Markmið
Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á markmiðum og tilgangi þess að stunda heimspekilega rökræðu með börnum og fullorðnum. Að þeir hafi á valdi sínu grunnatriði í rökfræði og öðrum undirstöðuþáttum gagnrýninnar hugsunar. Einnig að nemendur kynnist hugmyndafræði barnaheimspekinnar, t.d. eins og hún hefur verið þróuð af Matthew Lipman. Hér skipta meginmáli hugmyndir hans um rannsóknarsamfélag og uppruni þeirrar hugmyndafræði í heimspeki bandarísku pragmatistanna Charles S. Peirce, Williams James, og Johns Dewey. Einnig að nemendur geti leitt heimspekilegar rökræður með hópi fólks með þeirri tækni sem hugmyndafræði barnaheimspekinnar felur í sér.
Viðfangsefni
Á námskeiðinu verður fjallað um rökræðuna sem kennsluaðferð og hugmyndafræði Matthews Lipman og annarra fræðimanna um tilgang og markmið þess að stunda heimspekilega rökræðu með börnum. Fjallað verður um tengsl íslenskra námskráa á mismunandi skólastigum við meginmarkmið heimspekilegrar samræðu, s.s. sjálfstæða hugsun, gagnrýna hugsun, skapandi hugsun, fordómaleysi, sjálfsþekkingu og undirbúning fyrir þátttöku í í lýðræðissamfélagi. Fjallað verður ítarlega um þessi hugtök eins og þau birtast í hugmyndafræði barnaheimspekinnar.
Áhættuhegðun og seigla ungmenna (UME206F)
Í námskeiðinu er lögð áhersla á umfjöllun um áhættuhegðun ungmenna (t.d. vímuefnaneyslu, frávikshegðun, brokkgenga skólagöngu) og seiglu þeirra í tengslum við ýmsa uppeldislega, félagslega og sálfræðilega þætti. Viðfangsefni eru m.a. samskiptahæfni, geðraskanir, kynheilbrigði og áföll. Fjallað er ítarlega um ýmis konar verndandi þætti og áhættuþætti og þátt heimila, skóla og tómstundastarfs í að stuðla að velferð ungmenna. Kynntar eru bæði innlendar og erlendar rannsóknir á fræðasviðinu. Sérstök áhersla er á rannsóknir sem skoða tengsl ýmissa þroskaþátta og áhættuhegðunar. Verkefni í námskeiðinu miða að því að leita eftir sýn ungs fólks á áhættuþætti í lífi sínu.
Athugið: Hægt er að taka námskeiðið í fjarnámi. Kennsluinnlegg eru almennt tekin upp og sett inn á námsumsjónarkerfið CANVAS fyrirfram en ef kennsla fer fram í rauntíma þá er hún tekin upp. Vikulega eru umræðutímar (60 mín.) þar sem nemendur geta valið milli þess að koma á staðinn eða vera með á netinu. Hið sama á við þegar ritgerðir eru kynntar einu sinni á önninni þá geta nemendur verið á staðnum eða með á netinu.
Bókmenntir og grunnþættir (ÍET002F)
Námskeiðið er 5 einingar. Lesnir verða fjölbreyttir bókmenntatextar sem vel eru til þess fallnir að opna umræðu um grunnþætti menntunar eins og þeir eru skilgreindir í Aðalnámskrá grunnskóla (2013): Læsi, sjálfbærni, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti, heilbrigði, velferð og sköpun. Lesefni verður breytilegt en valið út frá þremur meginþemum sem tengjast grunnþáttunum. Valið skal lesefni sem veitir jafnframt almenna menntun í bókmenntum, tungumáli og tjáningu. Grunnþemun þrjú eiga erindi við nemendur allra deilda Menntavísindasviðs. Þau eru:
- Börn og þroski
- Jafnrétti
- Menningararfur og samfélagsskilningur.
Lykilorð námskeiðsins eru: Lesskilningur, orðaforði, tjáning og túlkunarfærni.
Menntun til hnattrænnar borgaravitundar - frá stefnu til starfs (UME002F)
Í námskeiðinu er fjallað um þætti sem undirbyggja og styðja við menntun til hnattrænnar borgaravitundar (e. global citizenship education). Rætt er um mikilvægi þess að borgarar skynji að þeir hafi tiltekinn rétt í samfélaginu en jafnframt ábyrgð og skyldur. Áhersla er lögð á fræðilega og stefnumótandi umræðu um hugtök á borð við hnattvæðingu, borgaravitund, borgaralega þátttöku, lýðræði, mannréttindi, menntun og sjálfbærni. Fjallað verður um ólíkar nálganir og skilgreiningar á hnattrænni borgaravitund þar sem áhersla er lögð á gagnrýna nálgun og unnið með dæmi af alþjóðlegum og innlendum vettvangi menntunar svo sem heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og grunnþætti menntunar. Þá verður kastljósinu einnig beint að stöðu barna og ungmenna og hvernig við lærum og kennum í anda hnattrænnar borgaravitundar.
Kenningar í kynjafræði (KYN211F)
Í námskeiðinu er fjallað um heimspekilegan og kenningalegan grundvöll kynjafræða og gagnrýnið og þverfræðilegt inntak þeirra. Fjallað er um birtingarform og merkingu kyns (e. sex) og kyngervis (e. gender) í tungumáli og menningu, sögu, samfélagi og vísindum. Sjónarmið fræðanna eru kynnt og tengsl þeirra við aðferðafræði. Þá eru nemendur þjálfaðir í að beita á sjálfstæðan og gagnrýninn hátt fræðilegum hugtökum og aðferðum.
Menntun og kyngervi (UME004M)
Markmið: Markmið námskeiðsins er að nemar kynnist hugmyndum, kenningum og rannsóknum um uppeldi og menntun í ljósi kynjafræðilegra sjónarmiða og hugtaksins kyngervi (gender).
Viðfangsefni. Unnið verður með hugtökin, kyngervi, kynjun, kynímyndir, staðalmyndir, kvenfrelsi, félagsleg mismunun, kynhlutverk, kynjablinda, tvíhyggja og valdatengsl. Fjallað verður um hvernig hugmyndir um menntun kynjanna hafa þróast sögulega, rýnt í orðræðuna um drengi og stúlkur og staðreyndir og gagnrýni á menntun og kynferði á öllum skólastigum. Sjónarmið félagslegar mótunarhyggju og eðlishyggju verða notuð til að útskýra mismunandi hugmyndir um kynjamismunun. Athyglinni verður beint sérstaklega að nýjum rannsóknum á sviðinu og fræðilegri nálgun mismunandi fræðimanna. Að síðustu verður athyglinni beint að íslenska skólakerfinu, stöðu drengja og stúlkna, leiðtogum og stjórnendum, námskrám og stöðu lögbundinnar jafnréttisfræðslu á öllum skólastigum. Lesnar verða nýjar íslenskar og erlendara rannsóknir á kyngervi og skólastarfi, t.d. rannsóknir á námsframmistöðu kynjanna, mismunandi hugmyndum stelpna og stráka um námsgreinar, námshæfni og námsval og hvernig skólar bregðast við kynjun skóla og samfélags.
Vinnulag
Námskeiðið er skipulagt sem staðnám, með möguleikum til fjarnáms ef þörf krefur. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, hópvinnu og verkefnavinnu.
Menntun og menntastefnur í alþjóðlegu samhengi (STM207F)
Markmið námskeiðsins eru að nemendur geti greint yfirstandandi hræringar í þróun og framkvæmd menntastefnu í ýmsum löndum út frá ólíkum sjónarhornum, gagnrýnum kenningum og rannsóknum. Lögð er áhersla a að nemendur skilji merkingu og ólík form markaðsvæðingar í menntun, bæði varðandi þátttöku einkageirans (ytri markaðsvæðing) og kerfisbreytingar á opinbera menntageiranum (innri markaðsvæðing). Rýnt verður í hvernig stjórnarhættir (governance) og hlutverk skólastjórnenda, kennara, foreldra og nemenda í skólastarfi hafa mótast af þessum þáttum.
Fjallað er um menntakerfi og menntastefnur, tengsl við framkvæmd og möguleg áhrif þeirra á samfélagið, þ.m.t. á mismunandi nemendahópa eftir kynferði, stétt, búsetu, fötlun og uppruna. Til umfjöllunar eru alþjóðlegar rannsóknir á menntakerfum og lykilhugtök eins og gæði, val, stjórnun og skilvirkni.
Fyrirlestrar og samræða í vikulegum kennslustundum eða að fyrirlestrar verða birtir á námskeiðsvef og efni þeirra rætt í kennslustundum. Nokkir fyrirlesara kenna á ensku. Nemendur vinna saman að beitingu fræðanna á tiltekin viðfangsefni. Námsmat samanstendur af fræðilegum ritgerðum og rannsóknarverkefnum sem nemendur kynna í málstofum.
Kenningar um nám: Hagnýting og rannsóknir (MVS009F)
Markmið
Markmið námskeiðsins er þríþætt. Í fyrsta lagi, að nemendur fái innsýn í valdar námskenningar, einkum þær sem hafa haft áhrif á uppeldis- og skólastarf á okkar tímum. Í öðru lagi, að nemendur öðlist skilning á hvernig nýta megi kenningarnar í framkvæmd við uppeldi, kennslu og skipulagningu náms fyrir fólk á öllum aldri. Í þriðja lagi, að nemendur þekki til rannsókna á áhrifum mismunandi kennslunálgana og hverjar þeirra teljast gagnreyndar til að ná tilteknum námsmarkmiðum.
Inntak / viðfangsefni
- Fjallað verður um nokkrar af meginkenningum um nám svo sem atferlishyggju (behaviourism), hugfræðilega nálgun (cognitive psychology) og kenningum um áhugahvöt til náms (motivation in education).
- Áhersla er lögð á helstu hugtök sem beitt er í ofangreindum kenningum og að þær geta byggt á ólíkum skilgreiningum á námi
- Nemendur lesa rannsóknargreinar þar sem þessum kenningum er beitt í uppeldis- og skólastarfi og þjálfast í að skilja notkun hugtaka og kenninga í rannsóknum á vettvangi
- Fjallað verður um hvað gerir aðferðir gagnreyndar (evidence-based) og hvernig er hægt velja viðeigandi og áhrifaríkar aðferðir til að stuðla að námi fjölbreytts hóps á ólíkum sviðum.
- Nemendur gera áætlun um námsferli á vettvangi uppeldis- og skólastarfs þar sem þeir beita viðeigandi kenningum að eigin vali og dýpka þar með þekkingu sína í einhverri af þeim kenningum sem fengist er við í námskeiðinu. Áhersla er lögð á tengsl áætlunar við rannsóknir og kenningar í verkefninu og að sama tíma sé hugað að hagnýtingu og útfærslu.
Starfendarannsóknir (MVS011F)
Inntak / viðfangsefni
Á námskeiðinu verður farið yfir tilurð og þróun starfendarannsókna í ýmsum löndum, m.a. Japan, Ástralíu, Bandaríkjunum og Bretlandi. Rýnt verður í hugmyndafræði slíkra rannsókna og hinar margvíslegu myndir sem þær hafa tekið á sig og birtast í ólíkum orðum sem notuð eru um slíkar rannsóknir, t.d. starfendarannsóknir (action research), kennararannsóknir (teacher research), kennslurýni (lesson study), starfstengd sjálfsrýni (self-study) og practitioner research. Sérstök áhersla verður lögð á starfendarannsóknir í skólum og öðrum vettvangi menntunnar, þar á meðal á Íslandi og ákveðin dæmi skoðuð í því sambandi. Megináherslan í námskeiðinu er á að þátttakendur geri rannsókn á eigin starfi/starfsháttum og kynni hana í námskeiðinu. Ekki er skilyrði að nemendur séu í starfi þegar þeir taka námskeiðið.
Vinnulag
Námskeiðið er vettvangs- og samstarfsmiðað. Grunnhugmyndin er sú að þátttakendur geri rannsókn í tengslum við eigið starf í samráði við kennara og aðra þátttakendur í námskeiðinu og vinni úr henni í nánu samstarfi við kennara og aðra þátttakendur, t.d. í gegnum ígrundanir, kynningar og samræður. Nemendur halda leiðarbók eða rannsóknardagbók um rannsókn sínar og gera lestrardagbók í tengslum við lestur fræðigreina. Að auki taka þeir þátt í ýmis konar verkefnum og umræðum á netinu.
Inngangur að megindlegum rannsóknaraðferðum (MVS213F)
Markmiðið er að nemendur
- hafi innsýn í megindlega aðferðafræði á sviði rannsókna í uppeldis- og menntunarfræði
- þekki helstu rannsóknaraðferðir og hugtök sem þeim tengjast
- geti beitt algengum rannsóknaraðferðum og þannig aflað gagna, unnið úr þeim og túlkað á agaðan og viðurkenndan hátt
- séu færir um að rýna í rannsóknir og nýta sér niðurstöður þeirra
- hafi tileinkað sér rannsakandi hugarfar og gagnrýna hugsun
Kynnt verða algeng rannsóknarsnið megindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemendur nota tölvuforrit til að reikna algenga tölfræðistuðla og halda utan um og vinna úr gögnum. Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun í túlkun matsniðurstaðna sem líklegt er að verði á vegi þeirra hópa sem taka námskeiðið.
Fyrirlestrar á vef, umræður og verkefni. Námskeiðið er kennt vikulega en fyrirlestrar verða eingöngu á vef. Verkefnatímar verða ekki teknir upp. Ekki er mætingarskylda í námskeiðið en nemendur eru hvattir til að mæta í kennslustundir.
Nemendur verða að hafa Jamovi (sjá nýjustu útgáfu á https://www.jamovi.org) uppsetta á fartölvum sem þeir mæta með í kennslustundir.
Lesefni: Kaflar 1-11 í Navarro DJ and Foxcroft DR (2019). Learning statistics with jamovi: a tutorial for psychology students and other beginners. (Version 0.70). DOI: 10.24384/hgc3-7p15. Rafræn ókeypis kennslubók sem hala má niður á síðunni https://www.learnstatswithjamovi.com.
Inngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðum (MVS212F)
Fjallað verður um ólíkar rannsóknarstefnur og tengsl þeirra við uppbyggingu og útfærslu rannsókna. Einnig um siðfræði vísinda með áherslu á hagnýt atriði og um gæðahugtök, s.s. réttmæti, trúverðugleika og ólíka sýn á þessi hugtök. Í námskeiðinu beinist athyglin að eigindlegum aðferðum. Kynnt verða algeng rannsóknarsnið eigindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemar fá nokkra þjálfun í að beita algengum aðferðum rannsókna m.a. vettvangsathugunum, viðtölum og heimildaathugunum. Þá vinna nemar með öflun, skráningu, flokkun, greiningu og túlkun gagna, og með framsetningu þeirra og gera heildstæða rannsóknaræfingu.
Fyrirlestrar, umræður og verkefni. Skyldumæting er í staðlotum.
Jafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfi (FAG101M)
Í námskeiðinu verður fjallað um jafnrétti og jafnréttisfræði og hvernig þau nýtast til að skilja og skipuleggja skólastarf. Þá verður kynnt löggjöf um jafnrétti í skólastarfi og fjallað um tengsl jafnréttis í víðu samhengi við áhrifabreytur svo sem kyn, kyngervi, hinseginleika, fötlun, félagslega stöðu og uppruna. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur í námskeiðinu geti greint námsumhverfi, aðferðir og námsefni frá margþættu jafnréttissjónarhorni.
Aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla liggur námskeiðinu til grundvallar og því verður gengið út frá því grundvallarsjónarmiði að menntun um jafnrétti feli í sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu og að kennarar geti kennt börnum og ungmennum að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda annarra.
Áherslan í námskeiðinu miðar að því að nemendur stefni að kennslu á mið- og unglingastigi grunnskóla eða framhaldsskóla.
- Haust
- LVG104FKennsla list- og verkgreina og vettvangsnám 1Bundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSÞar af 5 vettvangseiningarNámskeiðslýsing
Nemendur kynnast uppbyggingu námsbrauta og markmiðssetningu náms á sínu sérsviði. Markmiðið er að kennaranemi geti skipulagt og útbúið áfanga með áfangalýsingu og hæfniviðmiðum með tengingu við hæfniþrep náms, lykilhæfni og grunnþætti menntunnar. Áhersla er lögð á stigvaxandi kröfu um þekkingu, leikni og hæfni nemenda á grunn- og framhaldsskólastigi í átt til sérhæfingar með frekara nám í huga eða þátttöku í atvinnulífi greina sem heyra undir listir og hönnun.
Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu. Starfsþjálfun á haustmisseri er tengd námskeiðinu Inngangi að kennslufræði og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuSNU103FKennsla náttúrufræði og stærðfræði og vettvangsnám 1Bundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSÞar af 5 vettvangseiningarNámskeiðslýsingNemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í náttúrufræðigreinum og stærðfræði, og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Gengið er út frá því að það að læra að kenna felist að miklu leyti í því að ígrunda og móta hugmyndir sínar um eigin kennslu. Því er gert ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um nám og kennslu í náttúrufræði og/eða stærðfræði þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna sínar greinar og til þess að halda áfram að þróa sig sem kennarar.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuSFG105FKennsla samfélagsgreina og vettvangsnám 1Bundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSÞar af 5 vettvangseiningarNámskeiðslýsingNemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í samfélagsgreinum og nokkrum greinum hugvísinda, að frátöldum íslensku og námi í erlendum tungumálum, og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Verkefni í námskeiðinu eru samþætt vettvangsnámi. Lögð er áhersla á mikilvægi ígrundunar fyrir verðandi kennara. Því er gert ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um nám og kennslu í samfélagsgreinum og verði þannig betur í stakk búnir til að kenna sínar greinar og til þess að halda áfram að þróast sem kennarar.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuÍET105FKennsla erlendra tungumála og vettvangsnám 1Bundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSÞar af 5 vettvangseiningarNámskeiðslýsingNemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í kennslu erlendra tungumála og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Gert er ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um tungumálanám og kennslu þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna og þróa sig sem kennarar. Viðeigandi kenningar, hugtök og aðferðir varðandi nám og kennslu erlendra tungumála eru kynntar, rannsakaðar og ræddar.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuÍET104FKennsla íslensku og vettvangsnám 1Bundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSÞar af 5 vettvangseiningarNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu kynnast nemendur undirstöðuatriðum í kennslu íslensku, fá kennslu í verkefnagerð á flestum sviðum íslensku og grundvallarþjálfun í námsmati í íslensku á framhaldsskólastigi. Þá verður leikni nemenda við að vinna með aðalnámskrá efld. Lögð er áhersla á að nemendur læri aðferðir til að hagnýta fræðilega þekkingu sína á faggreininni og nýti sér ígrundun til að móta og þróa hugmyndir um eigin kennslu og nám nemenda. Verkefni í námskeiðinu eru samþætt vettvangsnámi.
Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu.
Starfsþjálfun á haustmisseri er tengd námskeiðinu Inngangi að kennslufræði og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuKEN104FInngangur að kennslufræði framhaldsskólaSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að nemendur öðlist innsýn inn í íslenskar og alþjóðlegar rannsóknir og kenningar á sviði skólastarfs. Meginviðfangsefni námskeiðs eru kenningar um og rannsóknir á námi, samskiptum og kennsluháttum. Einnig eru kenningar um og rannsóknir á starfi og fagmennsku kennara, svo og lagaákvæði, siðareglur og þess háttar, meðal meginviðfangsefna námskeiðsins.
Við val viðfangsefna og skipulag námskeiðsins er tekið mið af því að meginstarfsvettvangur þeirra sem taka námskeiðið verður í framhaldsskóla.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Vor
LVG203FKennsla list- og verkgreina og vettvangsnám 2Bundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSÞar af 5 vettvangseiningarNámskeiðslýsingNemendur kynnast uppbyggingu námsbrauta og markmiðssetningu náms á sínu sérsviði. Markmiðið er að kennaranemi geti skipulagt og útbúið áfanga með áfangalýsingu og hæfniviðmiðum með tengingu við hæfniþrep náms, lykilhæfni og grunnþætti menntunnar. Áhersla er lögð á stigvaxandi kröfu um þekkingu, leikni og hæfni nemenda á grunn- og framhaldsskólastigi í átt til sérhæfingar með frekara nám í huga eða þátttöku í atvinnulífi greina sem heyra undir listir og hönnun.
Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu.
Starfsþjálfun á vormisseri er tengd námskeiðinu Námskrá og skólaþróun í framhaldsskólum og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuSNU205FKennsla náttúrufræði og stærðfræði og vettvangsnám 2Bundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSÞar af 5 vettvangseiningarNámskeiðslýsingNemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í náttúrufræðigreinum og stærðfræði, og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Gengið er út frá því að það að læra að kenna felist að miklu leyti í því að ígrunda og móta hugmyndir sínar um eigin kennslu. Því er gert ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um nám og kennslu í náttúrufræði og/eða stærðfræði þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna sínar greinar og til þess að halda áfram að þróa sig sem kennarar.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuSFG206FKennsla samfélagsgreina og vettvangsnám 2Bundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSÞar af 5 vettvangseiningarNámskeiðslýsingNemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í samfélagsgreinum og nokkrum greinum hugvísinda, að frátöldum íslensku og námi í erlendum tungumálum, og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Verkefni í námskeiðinu eru samþætt vettvangsnámi. Lögð er áhersla á mikilvægi ígrundunar fyrir verðandi kennara. Því er gert ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um nám og kennslu í samfélagsgreinum og verði þannig betur í stakk búnir til að kenna sínar greinar og til þess að halda áfram að þróast sem kennarar.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuÍET211FKennsla erlendra tungumála og vettvangsnám 2Bundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSÞar af 5 vettvangseiningarNámskeiðslýsingNemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í kennslu erlendra tungumála og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Gert er ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um tungumálanám og kennslu þannig að þeir verði betur í stakk búnir til að kenna og þróa sig sem kennarar. Viðeigandi kenningar, hugtök og aðferðir varðandi nám og kennslu erlendra tungumála eru kynntar, rannsakaðar og ræddar.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuÍET210FKennsla íslensku og vettvangsnám 2Bundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSÞar af 5 vettvangseiningarNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu kynnast nemendur undirstöðuatriðum í kennslu íslensku, fá kennslu í verkefnagerð á flestum sviðum íslensku og grundvallarþjálfun í námsmati í íslensku á framhaldsskólastigi. Þá verður leikni nemenda við að vinna með aðalnámskrá efld. Lögð er áhersla á að nemendur læri aðferðir til að hagnýta fræðilega þekkingu sína á faggreininni og nýti sér ígrundun til að móta og þróa hugmyndir um eigin kennslu og nám nemenda. Verkefni í námskeiðinu eru samþætt vettvangsnámi.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuKEN213FNámskrá og skólaþróun í framhaldsskólumSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er fjallað um námskrárfræði og menntastefnu með áherslu á námskrár, nemendur og þróunarstarf í framhaldsskólum.
Viðfangsefnum í námskeiðinu er ætlað að þjálfa fagmannlegt verklag við mótun menntastefnu, námskrárgerð og skólaþróun í framhaldsskólum á Íslandi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Haust
- Námskeiðslýsing
Lokaverkefni til M.Ed.-prófs er einstaklingsverkefni sem nemandi vinnur sjálfstætt undir leiðsögn leiðbeinanda/leiðbeinenda.
Nemendur skulu hafa samráð við formann námsbrautar um val á leiðbeinanda. Leiðbeinandi er að jafnaði valinn úr hópi fastra kennara Menntavísindasviðs.
Nemandi velur viðfangsefni í samráði við formann námsbrautar og leiðbeinanda. Þess skal gætt að efni lokaverkefnis tengist vettvangi og sérsviði því sem nemandi hefur valið, það er að segja, að verkefnið tengist viðfangsefnum viðkomandi námsleiðar og einnig kjörsviði/sérsviði/námssviði þar sem það á við.
Verkefni til M.Ed.-prófs getur verið af ólíku tagi, til dæmis rannsóknarritgerð (heimildarannsókn), rannsóknarskýrsla (ritgerð sem byggir á rannsókn), starfstengt þróunar- eða matsverkefni, námskrárgerð eða námsefnisgerð. Öllum verkefnum, öðrum en rannsóknarritgerðum og rannsóknarskýrslum, skal fylgja fræðileg greinargerð.
Nemandi sem vinnur að lokaverkefni skráir sig í lokaverkefni í árlegri skráningu, miðað við áætlaða framvindu á haustmisseri og vormisseri. Að öllu jöfnu er gert ráð fyrir að undirbúningur og vinna lokaverkefnis til M.Ed.-prófs dreifist á tvö misseri eða fleiri. Á tilteknum námsleiðum er gert ráð fyrir að vinna verkefnis skiptist á þrjú misseri, sjá nánari upplýsingar undir krækjunni skipulag náms fyrir hverja námsleið í kennsluskrá.
Ekki eru gefnar tölueinkunnir fyrir lokaverkefni til meistaraprófs heldur er gefið annað hvort staðið eða fallið. Við mat á meistaraverkefnum er farið að reglum Menntavísindasviðs.
Nemendur skulu fylgja nánari leiðbeiningum og reglum Menntavísindasviðs um verklag við M.Ed.-verkefni. Sjá á innri vef Menntavísindasviðs, Uglu: Fræðasvið / Menntavísindasvið / Kennslumál / MeistaraverkefniSjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar- Vor
NámskeiðslýsingLokaverkefni til M.Ed.-prófs er einstaklingsverkefni sem nemandi vinnur sjálfstætt undir leiðsögn leiðbeinanda/leiðbeinenda.
Nemendur skulu hafa samráð við formann námsbrautar um val á leiðbeinanda. Leiðbeinandi er að jafnaði valinn úr hópi fastra kennara Menntavísindasviðs.
Nemandi velur viðfangsefni í samráði við formann námsbrautar og leiðbeinanda. Þess skal gætt að efni lokaverkefnis tengist vettvangi og sérsviði því sem nemandi hefur valið, það er að segja, að verkefnið tengist viðfangsefnum viðkomandi námsleiðar og einnig kjörsviði/sérsviði/námssviði þar sem það á við.
Verkefni til M.Ed.-prófs getur verið af ólíku tagi, til dæmis rannsóknarritgerð (heimildarannsókn), rannsóknarskýrsla (ritgerð sem byggir á rannsókn), starfstengt þróunar- eða matsverkefni, námskrárgerð eða námsefnisgerð. Öllum verkefnum, öðrum en rannsóknarritgerðum og rannsóknarskýrslum, skal fylgja fræðileg greinargerð.
Nemandi sem vinnur að lokaverkefni skráir sig í lokaverkefni í árlegri skráningu, miðað við áætlaða framvindu á haustmisseri og vormisseri. Að öllu jöfnu er gert ráð fyrir að undirbúningur og vinna lokaverkefnis til M.Ed.-prófs dreifist á tvö misseri eða fleiri. Á tilteknum námsleiðum er gert ráð fyrir að vinna verkefnis skiptist á þrjú misseri, sjá nánari upplýsingar undir krækjunni Skipulag náms fyrir hverja námsleið í kennsluskrá.
Ekki eru gefnar tölueinkunnir fyrir lokaverkefni til meistaraprófs heldur er gefið annað hvort staðið eða fallið. Við mat á meistaraverkefnum er farið að reglum Menntavísindasviðs.
Nemendur skulu fylgja nánari leiðbeiningum og reglum Menntavísindasviðs um verklag við M.Ed.-verkefni. Sjá á innri vef Menntavísindasviðs, Uglu
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraðaForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar- Haust
- Ekki kennt á misserinuSFG104FLífsleikni - sjálfiðBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsing
Viðfangsefni: Á námskeiðinu er unnið með þá þætti lífsleikni sem miða að sjálfinu og persónulegri hæfni með fræðilegum og hagnýtum hætti. Efni námskeiðsins er í samræmi við ákvæði úr námskrám íslenskra leik-, grunn- og framhaldsskóla um að efla andlega heilsu, heilbrigða sjálfsmynd og siðferðilegan styrk nemenda. Meðal annars er fjallað um mannkostamenntun, lífstilraunir og nútvitund.
Vinnulag: Fyrirlestrar og umræður verða í flestum vikum. Fyrirlestrar verða að jafnaði teknir upp fyrirfram og settir á Canvas-vef námskeiðsins. Gert er ráð fyrir að nemendur kynni sér þá og taki svo þátt í umræðum. Umræðutímarnir verða ekki teknir upp en þeir sem ekki komast í umræðutíma geta uppfyllt þátttökuskyldu með því að skila þátttökubloggi. Einnig eru unnin þrjú verkefni auk lokaverkefnis. Í staðlotum I og II eru tímarnir verklegir.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðSFG003FSjálfbærnimenntun og forystaBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingViðfangsefni: Megintilgangur þessa námskeiðs er að rýna með gagnrýnum hætti í sjálfbærni og sjálfbærnimenntun út frá sjónarhorni stofnana eða heilla kerfa, út frá ólíkum gerðum forystu og hugmyndum um sérfræðiþekkingu. Rýnt verður í hugtökin fagmennsku og faglega sjálfsmynd fólks í forystu bæði á sviði menntunar og viðfangsefnum tengdum sjálfbærri þróun. Illviðráðanleg vandamál (e. wicked problems) verða skilgreind og rædd, fjallað um mögulegar lausnir, hvað gæti hindrað framganginn og hvernig mætti meta lausnirnar. Rætt verður um hvers konar nám fagfólks leiðir til breytinga og þátt forystu í að koma hlutum í framkvæmd. Viðfangsefnin verða tengd við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna (SÞ) og átta gerðir lykilhæfni SÞ til sjálfbærrar þróunar og félagslegrar nýsköpunar. Sjónum verður beint að félagsauði og samþættu námi þar sem beitt er ígrundun og efnisþáttum náms. Síðasta viðfangsefnið verður starfsþróunaráætlunar þar sem afrakstur ígrundunar og sjálfsmats verður þrætt inn í skipulagða persónulega starfsþróunaráætlun.
Vinnulag: Kennslustundir og umræður á milli þeirra byggjast á upplýstri rökræðu og virkri þátttöku (80% mætingarskylda í kennslustundir). Unnin verða einstaklingsverkefni sem eru fá skrifleg verkefni ásamt þátttöku í umræðuþráðum. Krafist er virkrar þátttöku í teymisvinnu við skipulagningu kennslustunda, flytja fyrirlestur og því að leiða umræður eða vera í hlutverki rýnis. Til að standast námskeiðið þarf að fá að lágmarki einkunnina 5,0 fyrir hvert verkefni námskeiðsins og uppfylla lágmarkskröfur um mætingu, þátttöku í tímum og í umræðuþráðum. Nánari útfærsla og upplýsingar um kennslufyrirkomulag verður á Canvas.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuUME103FMargbreytileiki og félagslegt réttlætiBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið: Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á margbreytileika samfélagsins, mikilvægi hans í menntunarlegu félagslegu tilliti, átti sig betur á stöðu einstaklinga og hópa sem þrýst er að jaðri samfélagsins. Einnig munu nemendur öðlast þekkingu á margvíslegum myndum, tilurð og afleiðingum útilokunar og stimplunar og kunna skil á afmörkuðum þáttum í sögu og siðfræði sem varða margbreytileika, félagslegan auð, útilokun og félagslegt réttlæti. Einnig verður lögð áhersla á að nemendur öðlist færni í að beita fræðilegum hugtökum á vettvangi og geti sett hugmyndir um fagmennsku og fagstétt í sögulegt og siðfræðilegt samhengi. Rík áhersla er á að nemendur geti ígrundað eigin viðhorf og vinnu í ljósi siðfræðilegra, félagsfræðilegra og menntunarfræðilegra hugtaka eins og sjálfræðis, virðingar, mannlegrar reisnar, trausts og umhyggju, félagslegt réttlæti og félagsleg mismunun, félagsauður og valdefling.
Viðfangsefni: Meginviðfangsefni námskeiðsins er margbreytileiki samfélagsins og staða jaðarhópa í skóla og samfélagi. Námskeiðið skiptist í þrjá hluta þar sem fyrstu tveir hlutarnir byggjast á fræðilegri umfjöllun um álitamál, sögu og siðfræði, en í þriðja hlutanum er gert ráð fyrir að nemendur beiti þeim fræðilegu undirstöðum sem lagðar hafa verið í fyrstu tveim hlutunum til að skoða vettvang, eigið starf og eigin viðhorf.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMVS101FKenningar í félagsfræði og heimspeki menntunarBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði eru ræddar ýmsar áhrifamiklar kenningar á sviði félagfræði og heimspeki menntunar og þær settar í samhengi við álitamál í samfélaginu hversu sinni svo sem kynjajafnrétti, fjölmenningu, stéttaskiptingu, uppeldishætti, kennslufræði, lýðræði og skóla án aðgreiningar.
Á fyrri hluta misseris er röð fyrirlestra og umræðutímar.
Á seinni hluta misseris vinna nemendur tiltölulega sjálfstæð verkefni í hópum og fá leiðsögn um notkun kenninga við mótun rannsóknaráætlana eða þróunarverkefna á sviði kennslu eða uppeldisfræða.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Vor
NámskeiðslýsingViðfangsefni: Meginmarkmið þessa námskeiðs er að ræða með gagnrýnum hætti hvernig megi koma á jákvæðum umbótum í átt til sjálfbærrara samfélags og hvers konar nám stuðlar að því. Rætt verður um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og lykilhæfnina sem þarf til að ná þeim markmiðum. Rýnt verður í og ígrundað hvaðan menntun okkar kemur, nám um og í gegnum vinnu og hvernig námið getur eða ætti að leiða til aðgerða. Fjallað verður um hugtökin geta til aðgerða, trú á eigin getu og getu heildarinnar, umbreytandi nám og félagslegt nám út frá ólíkum sjónarhornum. Sjónum verður beint að námsmati, hlutverki þess og færninni sem gott námsmat krefst af kennurum, en líka hvaða upplýsingar eru góðar og leiðbeinandi fyrir nemendur. Rýnt verður í hindranir náms, nám sem lífsmáta og áhrif nemenda á nám sitt, bæði formlegt og óformlegt nám.

Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuUAU207MSjálfbær framtíðBundið valnámskeið6Bundið valnámskeið háð skilyrðum6 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins er að þjálfa gagnrýna hugsun nemenda og leiðtogahæfileika með sjálfbæra framtíð að markmiði. Námskeiðið mun kenna praktískar aðferðir sem minnka munu vistfótspor (e. ecological footprint), einstaklinga/fyrirtækja/stofnana/samfélags. Áhersla verður lögð á þverfræðileika og vísindalegan ramma sjálfbærni - byggðan á aðferðafræði "systems thinking". Nemendur munu læra að nýta vísindi í víðum skilningi til að styðja við regulgerðir (e. Policy), kynnast þeim eiginleikum og aðferðum sem þarf til að leiða breytingar þjóðfélaga í átt til sjálfbærni auk þeirra þátta sem nauðsynlegir eru þegar sjálfbær samfélög eru skipulögð.
Við lok námskeiðsins munu nemendur hafa öðlast hæfileika til að leiða breytingar samfélags í átt til sjálfbærrar framtíðar. Nemendur munu ma. annars geta leitt vinnustofur sem miða að sjálfbærni. Námsmat mun fara byggt á frammistöðu í vinnustofum, kynningum og hópverkefnum.
Lotunámskeið, kennt yfir fjórar helgar. Dagsetningar á vormisseri 2023 eru: 20.-21. janúar, 10.-11. febrúar, 3.-4. mars og 24.-25. mars.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið: Markmið námskeiðsins er að nemar kynnist hugmyndum, kenningum og rannsóknum um uppeldi og menntun í ljósi kynjafræðilegra sjónarmiða og hugtaksins kyngervi (gender).
Viðfangsefni. Unnið verður með hugtökin, kyngervi, kynjun, kynímyndir, staðalmyndir, kvenfrelsi, félagsleg mismunun, kynhlutverk, kynjablinda, tvíhyggja og valdatengsl. Fjallað verður um hvernig hugmyndir um menntun kynjanna hafa þróast sögulega, rýnt í orðræðuna um drengi og stúlkur og staðreyndir og gagnrýni á menntun og kynferði á öllum skólastigum. Sjónarmið félagslegar mótunarhyggju og eðlishyggju verða notuð til að útskýra mismunandi hugmyndir um kynjamismunun. Athyglinni verður beint sérstaklega að nýjum rannsóknum á sviðinu og fræðilegri nálgun mismunandi fræðimanna. Að síðustu verður athyglinni beint að íslenska skólakerfinu, stöðu drengja og stúlkna, leiðtogum og stjórnendum, námskrám og stöðu lögbundinnar jafnréttisfræðslu á öllum skólastigum. Lesnar verða nýjar íslenskar og erlendara rannsóknir á kyngervi og skólastarfi, t.d. rannsóknir á námsframmistöðu kynjanna, mismunandi hugmyndum stelpna og stráka um námsgreinar, námshæfni og námsval og hvernig skólar bregðast við kynjun skóla og samfélags.
Vinnulag
Námskeiðið er skipulagt sem staðnám, með möguleikum til fjarnáms ef þörf krefur. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, hópvinnu og verkefnavinnu.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðFAG201FMenntun til sjálfbærni – hæfni í heimi breytingaBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjallað verður um hugtakið sjálfbær þróun og meginhugmyndir alþjóðlegra sáttmála um sjálfbærni. Tekin verða dæmi af ýmsum vandamálum er tengjast umhverfi og náttúru, s.s. loftslagsmálum, tegundafækkun, jarðvegseyðingu og mengun. Lögð verður áhersla á að greina vandamál úr umhverfi nemenda með áherslu á að finna mögulegar lausnir. Fjallað verður um hlutverk kennara í að vinna með ágreiningsmál og hvernig þeir geta kennt börnum að greina vanda, meta upplýsingar og setja fram hugsanlegar lausnir. Þátttakendur lesi og noti rannsóknir á sjálfbærnimenntun. Einnig munu þátttakendur skoða eigin viðhorf til sjálfbærrar þróunar, gildi sín og meta eigin hegðun.
Skyldumæting er í staðlotur samkvæmt kennslualmanaki Menntavísindasviðs.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuEkki kennt á misserinuUME204FGagnrýnin hugsun og heimspekileg samræðaBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið
Meginmarkmið námskeiðsins er að nemendur öðlist skilning á markmiðum og tilgangi þess að stunda heimspekilega rökræðu með börnum og fullorðnum. Að þeir hafi á valdi sínu grunnatriði í rökfræði og öðrum undirstöðuþáttum gagnrýninnar hugsunar. Einnig að nemendur kynnist hugmyndafræði barnaheimspekinnar, t.d. eins og hún hefur verið þróuð af Matthew Lipman. Hér skipta meginmáli hugmyndir hans um rannsóknarsamfélag og uppruni þeirrar hugmyndafræði í heimspeki bandarísku pragmatistanna Charles S. Peirce, Williams James, og Johns Dewey. Einnig að nemendur geti leitt heimspekilegar rökræður með hópi fólks með þeirri tækni sem hugmyndafræði barnaheimspekinnar felur í sér.Viðfangsefni
Á námskeiðinu verður fjallað um rökræðuna sem kennsluaðferð og hugmyndafræði Matthews Lipman og annarra fræðimanna um tilgang og markmið þess að stunda heimspekilega rökræðu með börnum. Fjallað verður um tengsl íslenskra námskráa á mismunandi skólastigum við meginmarkmið heimspekilegrar samræðu, s.s. sjálfstæða hugsun, gagnrýna hugsun, skapandi hugsun, fordómaleysi, sjálfsþekkingu og undirbúning fyrir þátttöku í í lýðræðissamfélagi. Fjallað verður ítarlega um þessi hugtök eins og þau birtast í hugmyndafræði barnaheimspekinnar.Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðUME206FÁhættuhegðun og seigla ungmennaBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er lögð áhersla á umfjöllun um áhættuhegðun ungmenna (t.d. vímuefnaneyslu, frávikshegðun, brokkgenga skólagöngu) og seiglu þeirra í tengslum við ýmsa uppeldislega, félagslega og sálfræðilega þætti. Viðfangsefni eru m.a. samskiptahæfni, geðraskanir, kynheilbrigði og áföll. Fjallað er ítarlega um ýmis konar verndandi þætti og áhættuþætti og þátt heimila, skóla og tómstundastarfs í að stuðla að velferð ungmenna. Kynntar eru bæði innlendar og erlendar rannsóknir á fræðasviðinu. Sérstök áhersla er á rannsóknir sem skoða tengsl ýmissa þroskaþátta og áhættuhegðunar. Verkefni í námskeiðinu miða að því að leita eftir sýn ungs fólks á áhættuþætti í lífi sínu.
Athugið: Hægt er að taka námskeiðið í fjarnámi. Kennsluinnlegg eru almennt tekin upp og sett inn á námsumsjónarkerfið CANVAS fyrirfram en ef kennsla fer fram í rauntíma þá er hún tekin upp. Vikulega eru umræðutímar (60 mín.) þar sem nemendur geta valið milli þess að koma á staðinn eða vera með á netinu. Hið sama á við þegar ritgerðir eru kynntar einu sinni á önninni þá geta nemendur verið á staðnum eða með á netinu.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingNámskeiðið er 5 einingar. Lesnir verða fjölbreyttir bókmenntatextar sem vel eru til þess fallnir að opna umræðu um grunnþætti menntunar eins og þeir eru skilgreindir í Aðalnámskrá grunnskóla (2013): Læsi, sjálfbærni, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti, heilbrigði, velferð og sköpun. Lesefni verður breytilegt en valið út frá þremur meginþemum sem tengjast grunnþáttunum. Valið skal lesefni sem veitir jafnframt almenna menntun í bókmenntum, tungumáli og tjáningu. Grunnþemun þrjú eiga erindi við nemendur allra deilda Menntavísindasviðs. Þau eru:
- Börn og þroski
- Jafnrétti
- Menningararfur og samfélagsskilningur.
Lykilorð námskeiðsins eru: Lesskilningur, orðaforði, tjáning og túlkunarfærni.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuUME002FMenntun til hnattrænnar borgaravitundar - frá stefnu til starfsBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er fjallað um þætti sem undirbyggja og styðja við menntun til hnattrænnar borgaravitundar (e. global citizenship education). Rætt er um mikilvægi þess að borgarar skynji að þeir hafi tiltekinn rétt í samfélaginu en jafnframt ábyrgð og skyldur. Áhersla er lögð á fræðilega og stefnumótandi umræðu um hugtök á borð við hnattvæðingu, borgaravitund, borgaralega þátttöku, lýðræði, mannréttindi, menntun og sjálfbærni. Fjallað verður um ólíkar nálganir og skilgreiningar á hnattrænni borgaravitund þar sem áhersla er lögð á gagnrýna nálgun og unnið með dæmi af alþjóðlegum og innlendum vettvangi menntunar svo sem heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og grunnþætti menntunar. Þá verður kastljósinu einnig beint að stöðu barna og ungmenna og hvernig við lærum og kennum í anda hnattrænnar borgaravitundar.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er fjallað um heimspekilegan og kenningalegan grundvöll kynjafræða og gagnrýnið og þverfræðilegt inntak þeirra. Fjallað er um birtingarform og merkingu kyns (e. sex) og kyngervis (e. gender) í tungumáli og menningu, sögu, samfélagi og vísindum. Sjónarmið fræðanna eru kynnt og tengsl þeirra við aðferðafræði. Þá eru nemendur þjálfaðir í að beita á sjálfstæðan og gagnrýninn hátt fræðilegum hugtökum og aðferðum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNetnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið: Markmið námskeiðsins er að nemar kynnist hugmyndum, kenningum og rannsóknum um uppeldi og menntun í ljósi kynjafræðilegra sjónarmiða og hugtaksins kyngervi (gender).

Námskeiðið er skipulagt sem staðnám, með möguleikum til fjarnáms ef þörf krefur. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, umræðum, málstofum, hópvinnu og verkefnavinnu.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðSTM207FMenntun og menntastefnur í alþjóðlegu samhengiBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðsins eru að nemendur geti greint yfirstandandi hræringar í þróun og framkvæmd menntastefnu í ýmsum löndum út frá ólíkum sjónarhornum, gagnrýnum kenningum og rannsóknum. Lögð er áhersla a að nemendur skilji merkingu og ólík form markaðsvæðingar í menntun, bæði varðandi þátttöku einkageirans (ytri markaðsvæðing) og kerfisbreytingar á opinbera menntageiranum (innri markaðsvæðing). Rýnt verður í hvernig stjórnarhættir (governance) og hlutverk skólastjórnenda, kennara, foreldra og nemenda í skólastarfi hafa mótast af þessum þáttum.
Fjallað er um menntakerfi og menntastefnur, tengsl við framkvæmd og möguleg áhrif þeirra á samfélagið, þ.m.t. á mismunandi nemendahópa eftir kynferði, stétt, búsetu, fötlun og uppruna. Til umfjöllunar eru alþjóðlegar rannsóknir á menntakerfum og lykilhugtök eins og gæði, val, stjórnun og skilvirkni.
Fyrirlestrar og samræða í vikulegum kennslustundum eða að fyrirlestrar verða birtir á námskeiðsvef og efni þeirra rætt í kennslustundum. Nokkir fyrirlesara kenna á ensku. Nemendur vinna saman að beitingu fræðanna á tiltekin viðfangsefni. Námsmat samanstendur af fræðilegum ritgerðum og rannsóknarverkefnum sem nemendur kynna í málstofum.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuMVS009FKenningar um nám: Hagnýting og rannsóknirBundið valnámskeið10Bundið valnámskeið háð skilyrðum10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið
Markmið námskeiðsins er þríþætt. Í fyrsta lagi, að nemendur fái innsýn í valdar námskenningar, einkum þær sem hafa haft áhrif á uppeldis- og skólastarf á okkar tímum. Í öðru lagi, að nemendur öðlist skilning á hvernig nýta megi kenningarnar í framkvæmd við uppeldi, kennslu og skipulagningu náms fyrir fólk á öllum aldri. Í þriðja lagi, að nemendur þekki til rannsókna á áhrifum mismunandi kennslunálgana og hverjar þeirra teljast gagnreyndar til að ná tilteknum námsmarkmiðum.Inntak / viðfangsefni
- Fjallað verður um nokkrar af meginkenningum um nám svo sem atferlishyggju (behaviourism), hugfræðilega nálgun (cognitive psychology) og kenningum um áhugahvöt til náms (motivation in education).
- Áhersla er lögð á helstu hugtök sem beitt er í ofangreindum kenningum og að þær geta byggt á ólíkum skilgreiningum á námi
- Nemendur lesa rannsóknargreinar þar sem þessum kenningum er beitt í uppeldis- og skólastarfi og þjálfast í að skilja notkun hugtaka og kenninga í rannsóknum á vettvangi
- Fjallað verður um hvað gerir aðferðir gagnreyndar (evidence-based) og hvernig er hægt velja viðeigandi og áhrifaríkar aðferðir til að stuðla að námi fjölbreytts hóps á ólíkum sviðum.
- Nemendur gera áætlun um námsferli á vettvangi uppeldis- og skólastarfs þar sem þeir beita viðeigandi kenningum að eigin vali og dýpka þar með þekkingu sína í einhverri af þeim kenningum sem fengist er við í námskeiðinu. Áhersla er lögð á tengsl áætlunar við rannsóknir og kenningar í verkefninu og að sama tíma sé hugað að hagnýtingu og útfærslu.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingInntak / viðfangsefni
Á námskeiðinu verður farið yfir tilurð og þróun starfendarannsókna í ýmsum löndum, m.a. Japan, Ástralíu, Bandaríkjunum og Bretlandi. Rýnt verður í hugmyndafræði slíkra rannsókna og hinar margvíslegu myndir sem þær hafa tekið á sig og birtast í ólíkum orðum sem notuð eru um slíkar rannsóknir, t.d. starfendarannsóknir (action research), kennararannsóknir (teacher research), kennslurýni (lesson study), starfstengd sjálfsrýni (self-study) og practitioner research. Sérstök áhersla verður lögð á starfendarannsóknir í skólum og öðrum vettvangi menntunnar, þar á meðal á Íslandi og ákveðin dæmi skoðuð í því sambandi. Megináherslan í námskeiðinu er á að þátttakendur geri rannsókn á eigin starfi/starfsháttum og kynni hana í námskeiðinu. Ekki er skilyrði að nemendur séu í starfi þegar þeir taka námskeiðið.
Vinnulag
Námskeiðið er vettvangs- og samstarfsmiðað. Grunnhugmyndin er sú að þátttakendur geri rannsókn í tengslum við eigið starf í samráði við kennara og aðra þátttakendur í námskeiðinu og vinni úr henni í nánu samstarfi við kennara og aðra þátttakendur, t.d. í gegnum ígrundanir, kynningar og samræður. Nemendur halda leiðarbók eða rannsóknardagbók um rannsókn sínar og gera lestrardagbók í tengslum við lestur fræðigreina. Að auki taka þeir þátt í ýmis konar verkefnum og umræðum á netinu.Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuMVS213FInngangur að megindlegum rannsóknaraðferðumBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmiðið er að nemendur
- hafi innsýn í megindlega aðferðafræði á sviði rannsókna í uppeldis- og menntunarfræði
- þekki helstu rannsóknaraðferðir og hugtök sem þeim tengjast
- geti beitt algengum rannsóknaraðferðum og þannig aflað gagna, unnið úr þeim og túlkað á agaðan og viðurkenndan hátt
- séu færir um að rýna í rannsóknir og nýta sér niðurstöður þeirra
- hafi tileinkað sér rannsakandi hugarfar og gagnrýna hugsun
Kynnt verða algeng rannsóknarsnið megindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemendur nota tölvuforrit til að reikna algenga tölfræðistuðla og halda utan um og vinna úr gögnum. Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun í túlkun matsniðurstaðna sem líklegt er að verði á vegi þeirra hópa sem taka námskeiðið.
Fyrirlestrar á vef, umræður og verkefni. Námskeiðið er kennt vikulega en fyrirlestrar verða eingöngu á vef. Verkefnatímar verða ekki teknir upp. Ekki er mætingarskylda í námskeiðið en nemendur eru hvattir til að mæta í kennslustundir.Nemendur verða að hafa Jamovi (sjá nýjustu útgáfu á https://www.jamovi.org) uppsetta á fartölvum sem þeir mæta með í kennslustundir.
Lesefni: Kaflar 1-11 í Navarro DJ and Foxcroft DR (2019). Learning statistics with jamovi: a tutorial for psychology students and other beginners. (Version 0.70). DOI: 10.24384/hgc3-7p15. Rafræn ókeypis kennslubók sem hala má niður á síðunni https://www.learnstatswithjamovi.com.Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuMVS212FInngangur að eigindlegum rannsóknaraðferðumBundið valnámskeið5Bundið valnámskeið háð skilyrðum5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingFjallað verður um ólíkar rannsóknarstefnur og tengsl þeirra við uppbyggingu og útfærslu rannsókna. Einnig um siðfræði vísinda með áherslu á hagnýt atriði og um gæðahugtök, s.s. réttmæti, trúverðugleika og ólíka sýn á þessi hugtök. Í námskeiðinu beinist athyglin að eigindlegum aðferðum. Kynnt verða algeng rannsóknarsnið eigindlegra rannsókna, aðferðir við öflun gagna og greiningu þeirra, og fjallað um ritun og framsetningu niðurstaðna. Nemar fá nokkra þjálfun í að beita algengum aðferðum rannsókna m.a. vettvangsathugunum, viðtölum og heimildaathugunum. Þá vinna nemar með öflun, skráningu, flokkun, greiningu og túlkun gagna, og með framsetningu þeirra og gera heildstæða rannsóknaræfingu.
Fyrirlestrar, umræður og verkefni. Skyldumæting er í staðlotum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Óháð misseri
FAG101MJafnréttisnám og jafnréttisfræði í skólastarfiSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu verður fjallað um jafnrétti og jafnréttisfræði og hvernig þau nýtast til að skilja og skipuleggja skólastarf. Þá verður kynnt löggjöf um jafnrétti í skólastarfi og fjallað um tengsl jafnréttis í víðu samhengi við áhrifabreytur svo sem kyn, kyngervi, hinseginleika, fötlun, félagslega stöðu og uppruna. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur í námskeiðinu geti greint námsumhverfi, aðferðir og námsefni frá margþættu jafnréttissjónarhorni.

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuAnnað ár- Haust

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuÓháð námsári- Haust

Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erNámskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðumForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu