glittir í þrjú höfuð á bakvið matjurtir í gróðurhúsi
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækurnar eru á ensku.
Lengd náms
Þrjú ár - 180 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Finnst þér spennandi að þróa ný matvæli og vörur?
  • Hefur þú áhuga á heilbrigðisvísindum, raunvísindum og verkfræði?
  • Viltu taka þátt í að auka aðgengi fólks að næringarríkum mat?
  • Hefur þú gaman af því að mæla, reikna og rannsaka?
  • Langar þig í nám sem hefur bein tengsl við atvinnulífið?
  • Viltu ná þér í menntun sem býður upp á frábæra atvinnumöguleika?

Námið er þverfaglegt, fjölbreytt og krefjandi. Það byggir á sterkum grunni raun- og lífvísinda og verk- og tæknifræði en veitir einnig innsýn í heilbrigðisvísindi, samfélagsfræði, rekstur, umhverfismál og margt fleira.

Sjö námskeið eru sameiginleg með nemendum í næringarfræði og tólf námskeið sameiginleg með lífefna- og sameindalíffræði.

Nemendur fá tækifæri til að tengjast atvinnulífi og öðlast reynslu í samskiptum við innlenda og erlenda aðila. Hluti af náminu er kenndur í samstarfi við rannsókna- og þróunarfyrirtækið Matís. Nemendur fá tækifæri til að tengjast atvinnulífi með hagnýtum verkefnum, heimsóknum í fyrirtæki auk þess sem gestafyrirlestrar úr atvinnulífinu eru hluti af náminu.

Nýsköpun spilar stórt hlutverk og nemendur eru hvattir til þess að sýna frumkvæði.

Meðal viðfangsefna

  • Efnafræði
  • Næringarfræði
  • Tölfræði og gagnavinnsla
  • Lífefnafræði
  • Vöruþróun
  • Matvælaörverufræði
  • Matvælaverkfræði
  • Efnagreiningartækni
  • Framleiðslutækni
  • Varðveislutækni

Hvað er matvælafræði?

Matvælafræðin er  þverfagleg og læra matvælafræðingar greinar eins og:

  • matvælaefnafræði sem fjallar um efnafræði matvæla eins og samsetningu, byggingu og breytingar sem eiga sér stað við vinnslu og geymslu.
  • matvælavinnsla og matvælaverkfræði fjalla um framleiðslu og þá tækni sem notuð er við gerð og geymslu matvæla.
  • matvælaörverufræði fjallar um örverur sem notaðar eru í matvælavinnslu eins og við vinnslu mjólkurvara og bjór- og víngerð og um skaðleg áhrif örvera þar sem fjallað er um matvælaöryggi, geymsluþol, gæðaeftirlit og gæðastaðla.
  • næringarfræði fjallar um afdrif næringarefna í líkamanum og áhrif næringarefna á vöxt, heilsu og líðan.
  • skynmat er ríkur þáttur í störfum matvælafræðinga en þar er vísindalegum aðferðum beitt við smökkun og aðra skynjun matvæla.
  • líftækni í matvælaiðnaði við þróun og framleiðslu á lífefnum og heilsuvörum og við þróun á hefðbundinni matvælavinnslu eins nýjungar í og bjór- og ostagerð.
  • vöruþróun, nýsköpun og neytendafræði fjalla um vöruþróun frá hugmynd að fullunninni vöru, almennt um nýsköpun og tengsl við neytendur.

Tækifæri á sviði matvælafræði og líftækni eru mikil og uppbygging á þessum sviðum mikilvægur grundvöllur aukinnar verðmætasköpunar og aukinna útflutningstekna í íslensku hagkerfi.

Áhugi almennings á góðum og næringarríkum matvælum fer einnig vaxandi, matvælaframleiðsluþörf heimsins eykst sífellt og allt þetta kallar á matvælafræðinga til margra starfa í þjóðfélaginu og á alþjóðavettvangi. 

Stúdentspróf eða annað sambærilegt próf. Sambærilegt próf telst m.a. próf frá háskólagrunni Háskólans í Reykjavík (áður Tækniháskóla Íslands og Tækniskóla Íslands) og lokapróf frá frumgreinadeild Keilis (háskólabrú), enda hafi umsækjandi stundað nám við verk- og raunvísindadeild háskólabrúar. Æskilegur undirbúningur er stúdentspróf af raunvísindabraut.

Ljúka þarf 180 einingum fyrir lokapróf. Skipulagt sem 3ja ára nám. Ljúka þarf 40 einingum af námskeiðum 1. árs til að hefja nám á 2. námsári. Til að hefja nám á 3. ári þarf að hafa lokið a.m.k. 30 einingum af 2. ári auk allra námskeiða af 1. ári. Nemandi, sem sér fram á að geta ekki stundað nám eða haldið áfram námi við matvæla- og næringarfræðideild með eðlilegum hraða og telur sig hafa gildar ástæður til þess, getur sótt um að fá að innritast í námið sem hlutastarf. Grundvallarskilyrði gagnvart þessum reglum er að nemandi sæki um fyrir fram. Heimild, sem veitt er til náms skv. þessum reglum, gildir frá og með næsta misseri eftir að umsókn er lögð fram enda sé það gert eigi síðar en tveimur mánuðum áður en misserið hefst. Sama gildir um heimildir til breytinga á áætlun. Nemandi skal tilgreina skýrar ástæður og leggja fram rökstudda áætlun um framvindu námsins. Meginregla skal þá vera sú að námsframvindan sé tiltekin sem fjöldi eininga á ári allt til loka. Haft skal samband við skrifstofu deildar.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Frumulíffræði (MON204G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fyrirlestrar (46F): Inngangur; þróun lífsins; frumuhimnan: lífefnafræði og frumulíffræði; kjarninn: gen og genastjórn, litni, bygging kjarnans, kjarnahjúpur; frymisnet og Golgi líffæri; bólur og blöðrur; lýsósóm, peroxisóm og hvatberar; stoðkerfi og hreyfiprótein; boðferlar; frumuskipting; frumutengi og millifrumuefni (frumulíffræði og lífefnafræði); boðskipti (inngangur); þroskun og sérhæfing; upptaka og vinnsla næringarefna í frumur. Umræðutímar þar sem kynnt verður frumuræktun og smásjárskoðun auk þess sem nemendur skila myndbandsupptöku þar sem ræða námsefnið.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Almenn efnafræði L (EFN112G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Almenn og sérhæfð atriði um efnatengi og sameindabyggingu. Efnahvörf. Lofttegundir, vökvar, föst efni og lausnir. Varma- og hraðafræði efnahvarfa. Efnajafnvægi: sýru-basa, fellingar-, komplex- og afoxunar. Rafefnafræði og kjarnefnafræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Verkleg efnafræði L (EFN113G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Mólrúmmál loftkenndra efna, Efnafræðileg varmafræði, Vermi hvarfa og lögmál Hess, Hraði efnahvarfa, niðurbrot vetnisperoxíðs, Le Chatelier, ákvörðun jafnvægisfasta með ljósgleypnimælingum, ákvörðun jónunarfasta sýru.

Skyldumæting er í öryggisfyrirlestur í fyrstu kennsluvikunni.

Námskeiðið taka nemendur í líffræði samhliða bóklega námskeiðinu Almenn efnafræði L.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Öryggisnámskeið fyrir rannsóknarstofur (LYF110G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
1 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið er yfir helstu atriði sem tengjast öryggismálum á rannsóknarstofum eins og meðhöndlun efna, viðbrögð við óhöppum og efnamengun og viðbrögð við slysum. Í námskeiðinu eru nokkur stutt verkleg verkefni á rannsóknarstofunni og námskeiðið endar á eldvarnaræfingu.

Námskeiðið er ávallt haldið í byrjun annar, áður en almenn kennsla hefst.

Nauðsynlegt er að sækja námskeiðið til að fá leyfi til að taka þátt í verklegum æfingum á rannsóknarstofum. Mögulegt upptökunámskeið er í byrjun janúar, næsta misseri.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Aðferðir í matvæla- og næringarfræði (MON101G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að kynna almenn tól í verkfæra-kistu nemenda sem nýtast við nám og störf í matvæla- og næringarfræði. Á námskeiðinu verður nemendum kennt að beita í gegn-um verkefni í matvæla- og næringarfræði: 

  • Office 365 (Word, Excel, PowerPoint, Teams etc.) 
  • Námsumsjónarkerfin Uglu, Canvas og Inspera 
  • Almennrar gagna- og heimildarleit (Landsbókasafn, leitarvélar, gagna-grunnar) 
  • Lestur og mat á fræðigreinum  
  • Nýting heimildarumsjónarforrita s.s. Endnote, Mendeley etc. 
  • Almennu siðferði í námi og starfi, þar á meðal á ritstuldarforritið Turnitin 
  • Grunntökum í vísindamiðlun í ræðu og ritun, mikilvægi orðavals og akademískt tungutak. 
  • Matvæla- og næringarfræðitengdum forritum (næringarefnagagnagrunnar (ÍSGEM, hönnun matseðla,  kannanir á mataræði) 

Einnig verður starfsemi matvælatengdra eftirlitsstofnana s.s. MAST, WHO, FAO, EFSA, Sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna kynnt ásamt grunnhæfniþáttum þeirra.   

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Matur, næring og sjálfbærni (MON102G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að skoða samhengi matvælaframleiðslu og fæðutengdra ráðlegginga Embættis Landlæknis í því augnamiði að fyrirbyggja langvinna sjúkdóma en um leið minnka umhverfisáhrif matvælaframleiðslu og fæðuvals.  

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Lífræn efnafræði L (EFN214G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið fyrir nemendur í líffræði. Í fyrirlestrum, sem eru sameiginlegir með námskeiðinu Efnafræði II (EFN205G), verður höfð hliðsjón af viðfangsefnum líffræðinnar. Farið verður yfir flesta flokka lífrænnar efnafræði, þ. e. alkana, alkena, alkýna, arómata, alkýl halíð, alkóhól, etera, aldehýð, ketóna, lífrænar sýrur, sýruafleiður og amín. Farið verður yfir grundvallaratriði í rúmefnafræði sameinda nemendur læra að finna út hvenær sameind er hendin og hvenær hún er ljósvirk.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Verkleg lífræn efnafræði L (EFN215G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Mörg þeirra efna sem við notum í okkar daglega lífi (plast, lyf, lím o.fl.) eru framleidd fyrir tilstilli lífrænnar efnafræði. Lyfjaiðnaðurinn er gott dæmi þar sem nauðsynlegt er að geta smíðað rétt efni, einangrað/hreinsað þau og borið kennsl á hvort rétt efni hafi verið smíðað.

Í þessu námskeiði munu nemendur fá þjálfun í grunnaðferðunum sem notaðar eru í verklegri lífrænni efnafræði og nýtist í efnaiðnaði. Einnig munu nemendur öðlast þjálfun í greiningu á niðurstöðum og skrifum á vísindalegum skýrslum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Inngangur í þverfræðileg heilbrigðisvísindi - heilbrigðisvísindadagurinn (HVS202G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
1 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er ætlað nemendum á fyrsta námsári í greinum heilbrigðisvísinda.  Sameiginlegur heilbrigðisvísindadagur nýnema allra deilda á Heilbrigðisvísindasviði í janúar ár hvert. Fjallað er um þverfaglegt samstarf og mikilvægi þess. Farið verður í grundvallarþætti samstarfsins svo sem sameiginlega sýn á réttindi til heilsu, samskipti og siðfræði. Einnig er fjallað um hlutverk og ábyrgð heilbrigðisvísinda.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Áhrifaþættir fæðuvals - sálfræði og neytendur (MON104G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að kynna þá fjölmörgu þætti sem hafa áhrif á fæðuval einstaklinga. Í námskeiðinu er fjallað um líffræðilega hvata fæðuvals og hvernig mataræði mótast og breytist yfir ævina, þætti sem hafa áhrif á neysluhegðun út frá einstaklingnum sjálfum (svo sem viðhorf og gildi, næringarlæsi og færni) og umhverfinu sem hann tilheyrir. Kynnt verða áhrif félagslegs umhverfis, hönnunar umhverfisins (m.a. aðgengi að ólíkum matvælum frá framleiðendum, verslunum, í skólum, á vinnustöðum og heimilum). Þá er í áfanganum fjallað um áhrif stjórnvalda og stefnumótunar, efnahags, auglýsinga, fjölmiðla og samfélagsmiðla. Innsýn er gefin í viðfangsefni sálfræðinnar sem tengjast hegðun og því á hvaða grunni einstaklingar taka ákvarðanir, svo sem minni og nám, skynjun, áhugahvata, drif, markmiðasetningu, tilfinningar og atferli.  

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Matvæla- og næringarefnafræði (MON205G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um byggingu, eiginleika og virkni næringarefna og annarra efna í matvælum. Sjónum er beint að vatni og vatnsvirkni, efna- og eðlisfræðilegum eiginleikum orkugjafa, þ.e. kolvetna, fitu, og próteina. Ennfremur er farið í brúnun, þránun, hraðafræði ensíma og hvörf þeirra í matvælum, geymsluþol, aukefni, aðskotaefni og eiturefni. Þá er fjallað um áhrif mismunandi byggingar næringarefna á upptöku og aðgengileika (bioavailability) þeirra í líkamanum, víxlvirkni við önnur efni í matvælum, frásog frá meltingarvegi og niðurbrot. Einnig er komið inn á hvernig nýta megi þekkingu í matvæla- og næringarefnafræði við framleiðslu matvæla til að viðhalda gæðum, geymsluþoli og aðgengileika næringarefna. Gerð er grein fyrir helstu aðferðum, sem notaðar eru við rannsóknir á matvælum og lífvirkni næringarefna. Kennarar í matvælaefnafræði og næringarfræði koma að fyrirlestrum til að tryggja að þekking á efnum í matvælum tengist við næringu. Kennslan er á formi fyrirlestra kennara auk umræðna og vinnu með námsefni á netinu með virkri þátttöku nemenda.

Verklegar æfingar og nemendaverkefni: Lestur, samantekt og kynning greina úr erlendum vísindaritum um efni er tengist fyrirlestrum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Tölfræði og gagnavinnsla (STÆ209G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í byrjun námskeiðsins eru grunnhugtök tölfræðinnar kynnt til sögunnar, svo sem þýði, úrtak og breyta. Nemendur kynnast hinum ýmsu lýsistærðum og myndrænni framsetningu gagna. Því næst verður farið í grundvallaratriði líkindafræðinnar og helstu líkindadreifingar kynntar.

Síðasti hluti námskeiðsins snýr að ályktunartölfræði þar sem skoðuð verða tilgátupróf og öryggisbil fyrir meðaltöl, dreifni og hlutföll og farið verður í fervikagreiningu og aðhvarfsgreiningu. Nemendur læra beitingu allra ofangreindra aðferða í tölfræðihugbúnaðinum R.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Sameindalífvísindi A (LÆK310G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið í sameindalífvísindum fyrir nemendur á 2. ári í lyfjafræði, næringarfræði og tannlæknisfræði. Farið verður yfir hugtök og aðferðir í erfðafræði, lífefnafræði og sameindalíffræði. Í inngangsfyrirlestrum verður gefið yfirlit yfir þessar fræðigreinar og samþættingu þeirra. Fyrirlestrar fjalla um erfðamengi, erfðaefni, litninga, mítósu og meiósu, gen, mendelskar-, mítókondríu- og fjölþátta erfðir, helstu efnaskipti DNA og erfðatækni. RNA sameindir, tjáningu gena og umritun. Amínósýrur, peptíðtengi, nýmyndun og niðurbrot próteina. Myndbygging próteina, próteinlyf, ensím og ensímhvötuð efnahvörf. Einnig verður fjallað um transgenísk tilraunadýr, lífupplýsingafræði, sameindaerfðafræði veira og genalækningar. Lögð verður áhersla á notkun þessara fræðigreina í heilbrigðisþjónustu.

Umræðutímar: Nemendasértækir umræðutímar fyrir hvern nemendahóp.

Verklegar æfingar: Einangrun og greining á DNA úr blóði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Notkun gagnagrunna um efnainnihald matvæla (NÆR613G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Áður kennt sem hluti af NÆR503M.  

Farið er almennt yfir gagnagrunna um efnainnihald matvæla (e. Food composition databases).  Þeir skilgreindir og farið yfir helstu gagnasöfn sem til eru á heimsvísu.  Farið er sérstaklaega í danska, norska, sænska og bandaríska gagnagrunnurinn um næringarefni í mat .   Farið er yfir aðferðir við gagnaöflun, áreiðanleika þeirra og takmarkanir.  Þá er farið yfir íslenska gagnagrunna, farið yfir sögu þeirra og mikilvægi þeirra í rannsóknum á mataræði, á sjúkdómum og lýðheilsu.  Sérstaklega er farið yfir ÍSGEM og nemendur fá tækifæri til að vinna með gagnagrunninn og kynna sér hann í verki.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Lífeðlisfræði I TN (LÆK212G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

LÆK212G er fyrri hluti námskeiðs um lífeðlisfræði mannslíkamans, seinni hlutinn er tekinn fyrir í LÆK213G.  Tannlæknanemum, matvæla- næringarfræðinemum er kennt saman.  Forkrafa fyrir LÆK212G er námskeið í frumulíffræði, samanber LÆK112G Almenn líffræði A eða MON204G Frumulíffræði. 

Námskeiðið byggist upp af fyrirlestrum, umræðu,  teymisverkefnum, verklegum æfingum, áfangaprófum og lokaprófi.  Eftirfarandi efni er tekið fyrir í LÆK212G:  Samvægi, stýrikerfi, frumuhimnur, himnuspennur, taugalífeðlisfræði, miðtaugakerfið, skynjun, frálægi hluti úttaugakerfisins, beinagrindarvöðvar, sléttir vöðvar, stjórn hreyfinga, hjarta, blóðrás og blóðið. Framkvæmdar eru þrjár verklegar æfingar: Skynjun, vöðvar+taugar og hjartastarfsemi. Skyldumæting er í allar verklegu æfingarnar

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Efnisgjald er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Vítamín, steinefni og önnur efni í matvælum (MON302G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Kennsluefni

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu á

  • hlutverki orkugefandi næringarefna, vítamína, steinefna, snefilefna og aðra lífvirkra efna í líkamanum,
  • lífaðgengi þeirra,
  • áhrifum þeirra á líkamsstarfsemi,
  • samspili við önnur efni í fæðu,
  • tengslum mataræðis, næringarefna og heilsu,
  • vannæringu og ofneyslu,
  • einkennum skorts næringarefna og
  • afleiðingum ofneyslu.

Í námskeiðinu er líka fjallað um notkun fæðubótarefna og áhrif þeirra á heilsu í samanburði við inntöku næringarefna úr fæðu.

Einnig eru kynntar aðferðir til að meta líkamssamsetningu, næringarástand, þ.e. líkamsforða eða aðrar breytur sem tengjast hlutverki næringarefnanna í líkamanum með mælingum á lífsýnum (t.d. í blóði, þvagi, fituvef, hári eða öðrum lífsýnum).

Íslenskar rannsóknir sem tengjast kennsluefni eru jafnframt kynntar fyrir nemendum.

Kennsluaðferðir

Námskeiðið er samsett af fyrirlestrum, verklegum æfingum, nemendakynningum og umræðutímum. 

Það eru skipulagðar fimm vinnustofur um vítamín og streinefni þar sem nemendur afla sér ítarlegrar þekkingar um tvö næringarefni, skila skýrslu til kennara og kynna fyrir nemendum og kennara í lok námskeiðs. Áhersla er lögð á að auka skilning nemenda á aðferðum til að kanna neyslu vítamína og steinefna.

Í kennslutímum verður reglulega notuð PubMed (eða svipaðar vefsíður) til að fá nýjustu þekkingu um næringarefni og tengsl þeirra við heilsu og til að auka skilning nemenda á vísindagreinum, aðferðarfræði og tölfræði. Einnig er lögð áhersla á að kenna nemendum að nota vísindalega aðferð til að svara næringarfræðilegum spurningum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Haust
Næringarefnainnihald matvæla og matvælaefnagreining (NÆR503M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Áhersla er lögð á að nemendur dýpki þekkingu sína í matvæla- og næringarefnagreiningu, íslenska gagnagrunninn, ÍSGEM, um næringarefnasamsetningu matvæla og sambærilegum erlendum gagnagrunnum. Nemendur kynnast gögnum um efnainnihald matvæla, tilurð þeirra og hvernig þeim er komið fyrir í gagnagrunnum. Fjallað er um þætti sem hafa áhrif á efnainnihald matvæla og sérkenni íslenskra matvæla.  Alþjóðlegir staðlar um matvælagögn verða kynntir. Farið verður yfir LanguaL aðferðina við skilgreiningu á fæðutegundum. Gæði gagna verða tekin til skoðunar og aðferðir við gæðamat kynntar. Aðferðir við útreikninga á efnainnihaldi matvæla og máltíða eru skýrðar. Farið verður yfir notkun gagnanna í rannsóknum og ráðgjöf og hugað að áreiðanleika og skekkjum. Fjallað verður um helstu aðferðir til efnagreininga á matvælum, kosti þeirra og takmarkanir. Lýst verður aðferðum til að mæla einstök efni og efnaflokka. Kennsla er í formi fyrirlestra, verkefna, umræðutíma og verklegrar þjálfunar.

Verkleg þjálfun: Verklegar æfingar tengt efnagreiningu innihaldi. Unnið verður með hráefni, einangrun, notkun tækjabúnaðar og vinnslu gagna og skýrsluskil.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Annað ár | Vor
Málstofa um vísindalæsi (MON604M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um vinnibrögð við heimildaleit og nauðsynlega færni til meta gæði en einnig túlka og miðla vísindarannsóknum á áhrifaríkan hátt. Nemendur munu læra að bera kennsl á trúverðugar heimildir, greina mismunandi hluta vísindagreinar og meta gæði þeirra og þróa dýpri skilning á því hvað teljast öflugar og áhrifaríkar vísindarannsóknir. Þá læra nemendur grunninn að því hvað er að vera fagaðili í því fagi sem þeir hafa valið sér. Námskeiðið samþættir hagnýta þætti eins og „journal clubs“, umræður um málefni líðandi stundar tengt mat og næringu, ritrýniæfingar, jafningjamat og kynningar, meðal annars í framhaldsskólum. Þá verður horfti til framtíðar og gervigreindar og spáð í áhrif hennar á slíka vísindavinnu. Með því að sameina fræðilega þekkingu og praktíska reynslu munu nemendur efla gagnrýna hugsun, samvinnu og samskiptahæfileika sem búa þá undir fræðileg og fagleg verkefni framtíðarinnar

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Lífeðlisfræði II TN (LÆK213G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

LÆK213G er seinni hluti námskeiðs um lífeðlisfræði mannslíkamans. Forkrafa er LÆK212G, sem inniheldur fyrri hlutann. Tannlæknanemum og næringarfræðinemum og matvælafræðinemum er kennt saman. 

Námskeiðið byggist upp af fyrirlestrum, verklegum æfingum, umræðutímum, spurningaverkefnum og áfangaprófum.  Eftirfarandi efni er tekið fyrir í LÆK213G: Öndun, nýrnastarfsemi, vökva- og sýrubasavægi, stjórn fæðuinntöku, meltingarkerfið, undirstúka og heiladingull, dægursveiflur, orkuvægi og hitastjórnun, stjórn efnaskipta og vaxtar (starfsemi bris, skjaldkirtils og nýrnahetta), æxlunarlífeðlisfræði. Framkvæmd er ein verkleg æfing: Áreynslulífeðlisfræði. Skyldumæting er í verklegu æfingunar sem og tilheyrandi umræðufund. Það eru þrjú stutt áfangapróf og gilda tvö bestu inn í lokaeinkunn.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Efnisgjald er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Örverufræði (LÍF201G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu kynnast nemendur þeim hluta lífheimsins sem er almennt ekki sjáanlegur með berum augum.  Þeir fá tækifæri til að öðlast grundvallar þekkingu á eiginleikum baktería, arkea, veira og heilkjarna örvera.  Í námskeiðinu verður m.a. annars fjallað um hvernig örverur eru undirstaða lífs á jörðinni, hlutverk þeirra í vistkerfum, hvernig sumar þeirra valda sjúkdómum eða eru mikilvægar í rannsóknum og iðnaði.  Nemendur fá innsýn í störf örverufræðinga og verklega þjálfun sem er nauðsynleg fyrir hvers kyns störf á rannsóknarstofum

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Sameindalífvísindi B (LÆK408G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er fyrir nemendur á 2. ári í lyfjafræði, næringarfræði og tannlæknisfræði. Í námskeiðinu er lögð áhersla á efnaskipti og þá þætti efnaskipta sem hafa sérstaka þýðingu fyrir þessa nemahópa. Fjallað verður um háorkusambönd, efnaskipti kolvetna, fitu og amínósýra. Samhæfing efnaskipta, núkleótíð, járn, hem, lifur, hormón og næringu. Í síðasta hluta námskeiðsins sem er einungis fyrir lyfjafræðinema og tannlæknanema verður fjallað um meltingu, upptöku og virkni næringarefna með áherslu á áhrif þeirra á heilsu.

Umræðutímar: Efnaskipti

Verklegar æfingar: Einangrun próteins á súlu, mæling á próteinstyrk, rafdráttur próteina, ónæmismæling (ELISA).

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Hagnýt fjölvíð aðhvarfsgreining og gagnavinnsla (NÆR506M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að auka skilning og færni nemenda í að greina og vinna úr rannsóknargögnum svo þeir séu betur undir það búnir að leysa slík verkefni í framhaldsnámi og vinnu. Farið verður ítarlega yfir þær aðferðir sem mest eru notaðar við greiningar á faraldsfræðigögnum með það að markmiði að nemendur geti sjálfir beitt þeim og geti gengið úr skugga um að allar forsendur haldi.

Í  hverjum tíma leggur kennari fyrir verkefni sem byggja á gögnum úr fyrri rannsóknum sem framkvæmdar hafa verið á rannsóknarstofu í næringarfræði. Farið verður sameiginlega yfir helstu atriði og forsendur hvers verkefnis. Nemendur eiga að greina gögnin m.v. fyrirfram gefnar spurningar. Við tölfræðigreiningar verður mest notast við SPSS en einnig verður SAS kynnt til sögunnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Haust
Framleiðslutækni matvæla (MAT504M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað verður um helstu vinnsluaðferðir og áhrif þeirra á mismunandi tegundir matvæla eins og ávexti og grænmeti þar sem verður fjallað sérstaklega um kartöflur, tómata, agúrkur og sveppi. Korn og mölun mismunandi korn tegunda, kornvörur og vinnslu brauðs og kaffibrauðs , pasta og morgun korn. Mjólk og mjólkurvörur. Kjöt og kjötafurðir. Egg og vinnsla þeirra. Fita og olíur ásamt ýrulausnum. Drykkjarvörur eins og ávaxtasafa, gos, bjórgerð, víngerð, og framleiðslu á kaffi og te. Sælgætisgerð þar sem verður fjallað sérstaklega um sælgæti sem byggir á sykri og súkkulaði. Í öllum tilfellum verður fjallað um vinnsluferlið frá hráefni að fullunninni vöru þar sem farið verður yfir algengustu vinnslu hverrar afurðar fyrir sig og fjallað verður um þann tækjabúnað sem notaður er.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Haust
Matvælaverkfræði 1 (MAT507M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að kynna undirstöðuatriði matvælaverkfræði og framleiðslutækni. Í því felst kynning á uppstillingu og lausn massa- og orkujafnvægis, grunnhugtök varmafræði, straumfræði og áhrif þrýstingstaps og núnings í matvælaferlum. 

Kennsluefnið samanstendur af fyrirlestrum, dæmatímum og heimadæmum um fjölbreyttar vinnsluaðferðir. 

Kennslubók og annað lesefni:

1. Introduction to food engineering, 5th edition, 2013. Singh, Paul and Heldman, Dennis.

https://www.elsevier.com/books/introduction-to-food-engineering/singh/978-0-12-398530-9 Links to an external site. 

Paul Singh's youtube channel:

https://youtube.com/@RPaulSinghLinks to an external site.  

2. Glærur úr fyrirlestrum, vísindagreinar og annað lesefni dreift til nemenda á Canvas síðu námskeiðsins.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Þriðja ár | Haust
Fæðukerfi og fæðuöryggi (MON305M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing
  • Inntak námskeiðs er mataræði, fæðukerfi og tengd umhverfisáhrif 
  • Dæmi um mataræði sem fjallað verður um er vegan / ketó / sérfæði /ofurfæði 
  • Kynntar verða tengingar Landskönnunar og næringargagnabanka og hvernig þeir nýtast til að reikna út umhverfisáhrif  
  • Mismunandi fæðukerfi, þau greind og farið verður í flækjustig þeirra. Fjallað verður um lífsferil matvæla allt frá öflun hráefna, framleiðslu, neyslu og förgun. Hluti fæðukerfa eru umbúðir, geymsluþol 
  • Útreikningar á umhverfisáhrifum. Farið verður í útreikninga byggða á massa og orkubókhaldi fæðukerfa.   
  • Mismunur á milli útreiknisíða / gagnagrunna 
Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Haust
Eðlisfræði matvæla (MON501M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að kynna helstu lögmál og hugtök eðlisfræðinnar fyrir nemendum og hvernig þau tengjast gæðum og framleiðslu matvæla. Námskeiðinu er ætlað að veita nauðsynlega undirstöðu m.a. í afl-, bylgju- og varmafræðum fyrir frekara nám í matvælafræði og matvælaverkfræði.

Eðlis- og efnaeiginleikar matvæla (efnasamsetning, þéttleiki, föst efni og vökvar, varmaleiðni, rafleiðni etc.)

Afl- og hreyfifræði (þyngd,massamiðja, hraði, hröðun, kraftar, núningur, tregða, skriðþungi)

Vinna, orka og varðveisla orkunnar (vinna, stöðuorka, innri orka, efnaorka etc.)

Vökva- og straumfræði (þrýstingur, seigja og áferð, streymiseiginleikar (lag- og iðustreymi), orkujöfnur og Bernoulli)

Grunnlögmál varmafræðinnar (varmaleiðni, varmaburður og varmageislun)

Sveim og osmósa

Raf- og rafseguleiginleikar matvæla (rafleiðni, ljós og litur, IR- og UV rófin, seguleiginleikar, hljóðbylgjur)

Geislavirkni og meðhöndlun matvæla.

Námskeiðið skiptist í fyrirlestra, dæmatíma og verklegar æfingar og námsmat byggist á munnlegri og skriflegri kynningu nemenda á verklegum æfingum, skil á heimadæmum og skriflegu lokaprófi.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Þriðja ár | Vor
Vísindamiðlun (MON305G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu munu nemendur læra að koma vísindalegum upplýsingum á framfæri til almennings á mannamáli með því að búa til og halda úti hlaðvarpsþætti MoN.  

Nemendur munu taka viðtöl við sérfræðinga innan matvæla- og næringarfræði (vísindamenn, kennarar, doktorsnemendur, sérfræðinga í bransanum, nýsköpunaraðilar o.fl.) og kynnast þannig fjöbreyttum störfum og rannsóknarefnum matvæla- og næringar. Nemendur munu þá læra að koma vísindalegum upplýsingum á framfæri við breiðan áheyrendahóp á skýran hátt.  

Nemendur munu læra hvernig undirbúa skuli viðtal, búa til handrit, hvernig koma skuli fram, kynnast þvíað beita grunntækni á notkun upptökubúnaðar, og hvernig spyrja megi opinna spurninga sem leiða til líflegra umræða.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Vor
Matvælaörverufræði 2 (MAT506M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að veita nemendum nauðsynlega undirstöðu til að þekkja helsta uppruna örverumengunar í matvælum, helstu áhrif örvera á gæði og öryggi matvæla og aðferðir sem notaðar eru til að hindra skemmdir og matarsjúkdóma af völdum örvera í matvælum. Efni fyrirlestra skiptist í fimm hluta: (1) Uppruni, flokkun, ríkjandi örverur í matvælum og ræktun örvera í matvælum. Inngangur að og saga örverufræði matvæla. Hefðbundnar og nýjar aðferðir til ræktunar, einangrunar og talningar örvera í matvælum. Yfirlit yfir mikilvægustu hópa örvera í matvælum. (2) Þættir sem hafa áhrif á vöxt og lifun örvera í matvælum og varðveislutækni. Innri og ytri þættir sem hafa áhrif á örverur í matvælum: næringarinnihald, sýrustig, oxunarafoxunargeta, vatnsvirkni, raki, hitastig, andrúmsloft o.s.frv.. Örverufræði varðveislu matvæla: hitavinnsla, kæling og frysting, efnavarðveisla, þurrkun, breyting á andrúmslofti, geislun, háþrýstingur, gerjun og önnur arðbær notkun örvera í matvælaframleiðslu. (3) Matarsjúkdómar af völdum örvera. Örverufræði matvæla og lýðheilsa. Helstu orsakir matareitrunar og sýkinga: Salmonella, Campylobacter, E. coli, Vibrio, Listeria, Clostridium, Bacillus, Staphylococcus, Scombroid eitrun og aðrir bakteríusjúkdómar í matvælum. Óbakteríuvaldandi sjúkdómsvaldar sem valda matarsjúkdómum: sníkjudýr, eiturefnavaldandi þörungar, eiturefnavaldandi sveppir, matarveirur og kúariða. Nýir sjúkdómsvaldar. (4) Örverufræði matvæla. Uppsprettur örvera sem finnast í matvælum. Örverufræði sjávarafurða, kjötvara, mjólkurvara, drykkjarvatns, grænmetis og ávaxta. (5) Eftirlit með örverum í matvælum. Sýnatökuaðferðir, hreinlætisvenjur í framleiðslu og kynning á GMP, GHP, HACCP.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Þriðja ár | Vor
Vöruþróun matvæla (MAT609M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum fyrir helstu aðferðum vöruþróunar og þjálfa nemendur í notkun neytendadrifna aðferða við þróun á matvöru. Nemendur þróa vöru sem miðuð er að neytendum og fá leiðsögn í aðferðum við gerð frumgerða, val á hráefnum, tilraunauppsetningu, uppskölun og um regluverkið sem þarf að fylgja við gerð nýrra matvæla. Einnig munu nemendur kynnast hvernig skynmat er notað í vöruþróun og fá þjálfun í skynmati á eigin vöru. 

Vöruþróunarferli verður unnið í hóp en einnig verða smærri einstaklingsverkefni metin til einkunnar.  

Viðfangsefni: 

Grundvallaratriði við vöruþróun matvæla. Fjallað verður um: 

  • hugmyndaleit, hugmyndasíun, þróun frumgerðar og þróun frumgerðar til fullunninnar vöru og uppskölun á framleiðslu. 
  • notkun tilraunahögunar við síun og bestun afurða í vöruþróun.  
  • notkun skynmats í vöruþróun. 
  • val á hráefnum, notkun aukefna og helstu nýjungar í vistvænum próteinum.  
  • tengsl matvælalöggjafarinnar og hugverkaréttinda við vöruþróun. 

Farið verður í raunveruleg dæmi vöruþróunar hjá fyrirtækjum.  

Verklegt: Þróuð verður vara frá hugmynd til frumgerðar. 

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Vor
Gæðastjórnun og matvælaöryggi (MAT616M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að fjalla um gæðakröfur sem gerðar eru til vinnslu, meðhöndlun og dreifingu matvæla.  Fjallað er um gæðakröfur í alþjóðlegum viðskiptum og innlend og erlend regluverk um öryggi matvæla, þar með talið regluverk Evrópusambandsins og Bandaríkjanna.  Farið er yfir gerð eftirlitsáætlana ríkja s.s. áætlun um efnaleifar í matvælum, eftirlitáætlanir, uppbyggingu opinbers eftirlits og gerð varnaráætlana fyrir matvæli, fóður og heilbrigði dýra.  Þá er fjallað um áhættu stýringu og miðlun og hættur í matvælakeðjunni.  Fjallað er um góða framleiðsluhætti, góða landbúnaðarhætti og góða heilbrigðishætti og ítarlega farið yfir hættugreiningu og mikilvæga stýristaði (HACCP) við vinnslu matvæla.  Einnig er fjallað um sýnatökur við eftirlit og vöktun og hvaða mælikvarðar og viðmið eru notuð til að meta öryggi matvæla og fóðurs.  Einnig er farið yfir mikilvægi rekjanleika matvæla, innri og ytri úttektir og vottun rannsóknastofa.  Þá er fjallað um Codex leiðbeiningar, gæðastaðala (ISO-9000, ISO-14000 og ISO-22000) og vörustaðla kaupenda matvæla.

Verklega æfingar:  1) nemendur fá þjálfun í uppsetningu á HACCP kerfum og hvernig þau eru sannprófuð,  2) innri og ytri úttektir á gæðum og öryggi matvæla og 3) nemendaverkefni um nýleg útkomin efni er varða matvælaeftirlit.

Tilhögun námskeiðs:  Námið er í formi fyrirlestra, umræðu og verklegrar þjálfunar er tengist námsefninu.  Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda og að þeir kynni sér alþjóðlegar vísindagreinar er tengjast efni fyrirlestra.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Þriðja ár | Vor
Skynmat (MON603M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu kynnast nemendur skynmatsfræðum og hvernig skynmati er beitt til að meta eiginleika matvæla. Fjallað verður um hvernig á að kalla fram, mæla og meta skynræna eiginleika matvæla og mismunandi aðferðir sem notaðar eru í skynmati. Áhersla verður lögð á hefðbundnar skynmatsaðferðir (mismunapróf, myndræn próf, geðjunarpróf ofl), og hvernig þessar aðferðir eru notaðar í mismunandi aðstæðum eins og í gæðaeftirliti og vöruþróun. Aðferðum í neytendarannsóknum verða gerð skil. Jafnframt verður fjallað um þætti sem hafa áhrif á skynmat, skipulag skynmatsrannsókna (undirbúningur, framsetning sýna, val aðferða ofl), og skynmatshópa (val og þjálfun) sem og tölfræðigreining og túlkun skynmatsniðurstaðna.

Kennslan er á formi fyrirlestra, sem og verklegra æfinga undir leiðsögn kennara.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Óháð námsári | Haust
Líftækni í matvælaiðnaði (MAT706M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði fá nemendur kynningu á líftækni með sérstaka áherslu á beitingu hennar í matvælaiðnaði. Fjallað verður um grunnhugtök líftækninnar, þróun hennar og hvernig markviss nýting lífvera, einkum örvera, hefur skapað ný tækifæri til framleiðslu matvæla, innihaldsefna og lífvirkra efna með skilvirkum og sjálfbærari hætti.

Námskeiðið tengir saman grunnþekkingu í erfðafræði, frumulíffræði, lífefnafræði og örverufræði við helstu aðferðir sameindalíffræði og erfðatækni. Farið verður yfir kynbætur sem fyrsta form líftækni og sýnt hvernig nútíma erfðatækni getur gert markvissari og skilvirkari breytingar en hefðbundnar aðferðir. Jafnframt er fjallað um lífupplýsingafræði, framfarir í raðgreiningu erfðaefnis og notkun erfðagagnabanka sem eru undirstaða allrar nútíma líftækni.

Sérstök áhersla er lögð á að sýna dæmi úr núverandi rannsóknum og atvinnulífi, til að nemendur fái skýra mynd af því hvernig fræðileg þekking í líftækni nýtist beint í þróun matvæla, hráefna og sjálfbærra framleiðsluferla. Að loknu námskeiði hafa nemendur traustan skilning á hlutverki líftækni í nútíma matvælaiðnaði og þeirri vísindalegu og tæknilegu þekkingu sem liggur að baki nýsköpun og verðmætasköpun á sviðinu.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Óháð námsári | Haust
Straumfræði (VÉL502G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið:

1. Að kynna helstu hugtök straumfræðinnar og koma nemendum í skilning um hvernig stærðfræði er beitt við flókin viðfangsefni og hvernig hægt er að fá nálgunarlausnir með einföldun án þess að tapa miklu í nákvæmni.

2. Að gera nemendur færa um að beita straumfræðinni til þess að reikna mótstöðu hluta og þrýstifall í pípum.

3. Að þjálfa þá í að beita mæliaðferðum í straumfræði.

4. Að beita þverfaglegri þekkingu á helstu sviðum vélaverkfræðinnar.

Námsefni m.a.: Eiginleikar kvikefna (vökva og lofttegunda). Þrýstingur og kraftasvið í kyrrstæðum vökvum, þrýstingsmælar. Rennslisfræði, samfellujafna, skriðþunga- og orkujafna. Hreyfijafna Bernoullis. Víddargreining og líkanlögmál. Tvívítt streymi, seigjulausir vökvar, jaðarlög, lag- og iðustreymi, vökvamótstaða og formviðnám. Streymi þjappanlegra vökva, hljóðhraði, Mach tala, hljóðbylgjur, lögun túðu fyrir yfirhljóðhraða. Rennsli í opnum og lokuðum farvegum. Dæmaæfingar og verklegar tilraunir.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Hagnýtt lífefnafræði (LEF509M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið fjallar um undirstöðuatriði og helstu notkunarmöguleika líftækni með áherslu á mikilvægi hennar í atvinnulífi og samfélagi. Líftækni er þverfaglegt fræðasvið sem nýtir aðferðir úr sameindalíffræði, efnafræði, verkfræði og lyfjafræði. Í gegnum fyrirlestra, hópverkefni, kynningar nemenda og gestafyrirlestra verður fjallað um hvernig líftæknivörur og -ferlar þróast, allt frá rannsóknum á rannsóknarstofu til notkunar í iðnaði.

Námskeiðið skiptist í fimm meginsvið líftækni: (1) líftæknilyf, (2) iðnaðarlíftækni í efna- og matvælaiðnaði, (3) klínísk líftækni, (4) uppgötvun og hreinsun náttúruafurða og (5) orku- og umhverfislíftækni.

Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, verkefnavinnu, nemendakynningum og umræðum auk þess sem farið verður í eina vettvangsferð.

Námskeiðið er samkennt með ILT102F - Inngangur að iðnaðarlíftækni. Ekki er hægt að taka bæði námskeiðin

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Fiskiðnaðartækni 1 (MAT508M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið: Að gera nemendur færa um að skilja þýðingu góðrar meðferðar á fiskafla og fiskafurðum og að reikna út nauðsynlegar stærðir í vinnslu sjávarfangs. Námsefni m.a.:  Helstu fiskistofnar, veiðimynstur og veiðarfæri, aflameðferð, efni og efnabreytingar, prótein, fita o.fl., þættir, sem hafa áhrif á efnabreytingar, s.s. hitastig, selta, loftaðgangur, raki, sýrustig o.fl. Skemmdareinkenni á sjávarfangi vegna örveru- og efnabreytinga. Mikilvægar örverur og vöxtur örvera í sjávarfangi og tengsl við þrifavæna hönnun. Vöxtur örvera vegna hita, seltu, loftaðgangs, sýrustigs, raka, aukaefna o.fl. Kynning á helstu verkunar- og varðveisluaðferðum, s.s. saltfiskverkun, skreiðarverkun, harðfiskverkun, kælingu, ofurkælingu og frystingu. Orku- og massavægi fyrir hvert vinnsluþrep og vinnslurásina í heild sinni. Verklegt: Einstaka vinnslueiningar greindar og/eða endurhannaðar. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Vistkerafæði – hollur matur fyrir heilbrigði fólks og jarðar (HHE302G)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið Vistkerafæði (e. flexitarian diet) miðar að því að kynna nemendum hvernig fæðuval hefur áhrif á heilbrigði fólks og jarðar. Það er mikilvægt að hafa í huga að það sem við borðum hefur ekki aðeins áhrif á heilbrigði okkar sjálfra heldur einnig líka á heilbrigði jarðarinnar. Með heilbrigði fólks og jarðar að leiðarljósi inniheldur fæði okkar meira af grænmeti, ávöxtum, hnetum, baunum og heilkornum en í hefðbundnara fæði. Á námskeiðinu verður farið yfir undirstöðuþætti vistkerafæðis og hvernig hægt er að breyta fæðuvali til hagsbóta fyrir okkur sjálf og jörðina. Með breyttu fæðuvali væri hægt að minnka líkur á ýmsum sjúkdómum, framleiða nægan mat fyrir alla og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Efnisgjald er í námskeiðinu
Óháð námsári | Haust
Hagverkfræði (IÐN502G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að gera nemendur færa um:

1. Að skilja helstu hugtök bókhalds, kostnaðarreiknings og fjárfestingarfræði.

2. Að nota aðferðir til að meta hagkvæmni verktæknilegra kosta.

3. Að gera reiknilíkan til að meta arðsemi fjárfestinga, virði fyrirtækja og verðleggja hlutabréf og skuldabréf.

Meðal námsefnis er  bókhald, kostnaðarreikningar, greining á fjárstreymi, fjárfestingarfræði, mælikvarðar á arðsemi, þar á meðal núvirði og innri vextir, og gerð  arðsemilíkana. Námskeiðinu lýkur með hópverkefnum þar sem nemendur æfa arðsemimat verkefna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Verkefnastjórnun (IÐN503G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu eru kennd grunnatriði í verkefnastjórnun. Farið verður yfir grunnhugtök, umhverfi og val verkefna, áætlunargerð, eftifylgni, stjórnun verkefnateyma og lok verkefna. Nemendur fá þjálfun í gerð verkefnaáætlana og að takast á við áskoranir við framkvæmd og lok verkefna. Sérstök áhersla er á notkun verkefnastjórnunar við tækninýsköpun í skipuheildum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
R fyrir byrjendur (MAS103M)
Valnámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um tölfræðiúrvinnslu í forritinu R. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi grunnþekkingu í tölfræði og munu nemendur læra að beita þeim tölfræðiaðferðum sem þeir þekkja í R. Farið verður í innlestur gagna, myndræna framsetningu, lýsandi tölfræði og hvernig algengustu tilgátupróf (t-próf, kí-kvaðratpróf o.s.frv) eru framkvæmd í R. Að auki verður nemendum kennt að nota knitr pakkann til að vinna skýrslur.

Námskeiðið er kennt á fimm vikum í þrjár kennslustundir á viku. Kennari heldur fyrirlestra og nemendur vinna verkefni.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Haust
Matvælaefnafræði 2 (MAT505M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum yfirgripsmikla þekkingu á matvælaefnafræði. Upplýsingar um mismunandi efni í matvælum og eiginleika þeirra verða tengdar hagnýtum dæmum sem tengjast þróun og framleiðslu matvæla til að viðhalda gæðum, geymsluþoli og aðgengileika næringarefna. Farið verður yfir efna- og eðlisfræðilega eiginleika orkugjafa í matvælum (kolvetna, fitu, og próteina), notkunarmöguleika þeirra í matvælum, niðurbrot, hvörf við önnur efni, leiðir til að viðhalda eiginleikum þeirra og áhrif á geymsluþol. Farið verður yfir áhrif byggingar næringarefna á víxlvirkni þeirra við önnur efni í matvælum. Áhrif vatns og vatnsvirkni á geymsluþol og eiginleika matvæla verður rædd. Farið verður yfir hraðafræði ensíma, hvörf ensíma í matvælum, hagnýtingu ensíma í matvælaiðnaði og leiðir til að halda ensímefnahvörfum í matvælum í skefjum. Kynntar verða aðferðir til að innlima lífvirk efni í matvæli og vernda fyrir óæskilegum efnahvörfum. Efnafræði litarefna, rotvarnarefna og þráavarnarefna ásamt notkun þeirra í matvæli verður rædd. Áfanginn er lesáfangi með verklegri kennslu. Umræðutímar verða til þess að fara yfir námsefnið með nemendum ásamt nemendaverkefnum.

Samfélög manna og örvera: Örverur, menning, heilsa, og umhverfi (MON002M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðslýsing

Hvað segir skyrgerð okkur um þróun íslensks samfélags? Hver eru áhrif þarmaflórunnar á heilsu okkar? Hvernig losum við okkur við úrgang í þéttbýli á umhverfisvænan hátt og hvaða þögli meirihluti jarðarbúa er þar að verki? Lykillinn að öllum þessum spurningum er sá sami:  Samfélög örvera hafa mótað jörðina og íbúa hennar frá upphafi lífs eða í milljarða ára. Til að skilja og takast á við áskoranir 21. aldar varðandi umhverfi, heilsu og samfélag, þurfum við að skilja hlutverk þessara fyrstu lífvera betur og hvernig það tvinnast saman við líf okkar sjálfra og nágranna okkar í lífríkinu. Nýlegar rannsóknir sýna að meirihluti frumanna í og á mannslíkamanum tilheyrir fjölbreyttum tegundum örvera. Þýðir það að menn séu örverur? Eða “bara” að samlífið við örverur sé nánasta og mikilvægasta sambandið sem við eigum í? Námskeiðið býður nemendum að kanna samlífi örvera og manna út frá ýmsum sjónarhornum, sem eru m.a. ættuð úr örverufræði og þjóðfræði, matvælafræði, næringarfræði og mannfræði. Litið verður til þess hvernig örverur koma að þróun og varðveislu matvæla í samfélögum manna, hlutverk þeirra í meltingunni og tengsl við andlega og líkamlega heilsu. Einnig hvernig örverur viðhalda lífsnauðsynlegum hringrásum lífrænna efna  og geta umbreytt rusli og úrgangi í endurnýjanlegt form eins og heilbrigðan jarðveg.

Námskeiðið vinnur út frá hugmyndinni um „eina heilsu“ sem mótast hefur síðustu áratugi og vísar til þess að heilbrigði umhverfis, manna og annarra dýra, og samfélaga, er samtengt á þann hátt að niðurbrot á einhverju þessara sviða leiðir til niðurbrots á öðrum. Efnið verður skoðað út frá einstökum dæmum um samlífi örvera og manna, eins og áhrifum örvera á bragð og samsetningu matvæla, áhrifum mataræðis á þarmaflóru, hlutverki gerjunar í mótun mannlegra tengsla og hvernig losunarkerfi í þéttbýli rjúfa hringrás næringarefna í umhverfi mannsins.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Óháð námsári | Haust
Næringarlífeðlisfræði (NÆR502G)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur dýpki skilning sinn á margþættum hlutverkum næringarefna í líkamanum og ytri aðstæðum sem geta haft áhrif á efnaskipti. Sérstök áhersla verður lögð á efnaskipti fitusýra, sykra og amínósýra. Fjallað verður sérstaklega um hormón sem stýra matarlyst, sem tengjast öðru viðfangsefni námskeiðisin sem er svefn og svefnvandamál. Nemendur kynnast aðferðafræði tilraunavísinda sem tengjast næringarfræði og fá innsýn inn í ný rannsóknasvið á sviði næringarfræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Haust
Næring á mismunandi æviskeiðum (NÆR504M)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist djúpan skilning á áherslum um mataræði og næringu á sérstaklega mikilvægum æviskeiðum: á meðgöngu, meðal ungbarna, barna, unglinga, ungs fólks, við tíðahvörf og öldrun. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Matvælaefnafræði 2 (MAT505M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum yfirgripsmikla þekkingu á matvælaefnafræði. Upplýsingar um mismunandi efni í matvælum og eiginleika þeirra verða tengdar hagnýtum dæmum sem tengjast þróun og framleiðslu matvæla til að viðhalda gæðum, geymsluþoli og aðgengileika næringarefna. Farið verður yfir efna- og eðlisfræðilega eiginleika orkugjafa í matvælum (kolvetna, fitu, og próteina), notkunarmöguleika þeirra í matvælum, niðurbrot, hvörf við önnur efni, leiðir til að viðhalda eiginleikum þeirra og áhrif á geymsluþol. Farið verður yfir áhrif byggingar næringarefna á víxlvirkni þeirra við önnur efni í matvælum. Áhrif vatns og vatnsvirkni á geymsluþol og eiginleika matvæla verður rædd. Farið verður yfir hraðafræði ensíma, hvörf ensíma í matvælum, hagnýtingu ensíma í matvælaiðnaði og leiðir til að halda ensímefnahvörfum í matvælum í skefjum. Kynntar verða aðferðir til að innlima lífvirk efni í matvæli og vernda fyrir óæskilegum efnahvörfum. Efnafræði litarefna, rotvarnarefna og þráavarnarefna ásamt notkun þeirra í matvæli verður rædd. Áfanginn er lesáfangi með verklegri kennslu. Umræðutímar verða til þess að fara yfir námsefnið með nemendum ásamt nemendaverkefnum.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Óháð námsári | Vor
Matur og menning: (NÆR613M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Matur er mannsins megin, uppspretta orkunnar og forsenda lífsins. En matur er líka sneisafullur af merkingu. Matarhættir veita innsýn í heimsmynd okkar, lífssýn og listfengi og matur mótar tilveru okkar, líkama, samfélag, hagkerfi, hugarfar og siðferði. Sjálfsmynd okkar og minningar eru nátengdar mat og matur er einhver mikilvægasti miðillinn fyrir samskipti okkar við annað fólk.

Í námskeiðinu skoðum við hvað fólk borðar, hvernig, hvenær, með hverjum og hvers vegna. Með þeim hætti fáum við dýrmæta innsýn í kyngervi og kynslóðir, fæðuöryggi og rétt til matar, stéttaskiptingu og menningarlegan margbreytileika, skynheim og fegurðarskyn, tækni og matvælaframleiðslu, tísku og matarkúra, matarhefðir og menningararf, tilfinningar, vináttu og fjölskyldubönd. Matarhættir tengja þannig saman menningu og náttúru, hnattvæðingu og hið staðbundna, heimilið og vinnustaðinn, fortíð og samtíð, manneskjur og örverur.

Í námskeiðinu beinum við sjónum að sambandi matarframleiðslu og neyslu á 21. öld með sérstaka áherslu á lýðheilsu, siðferðislega neyslu og sjálfbærni.

Matur og menning eru þverfagleg viðfangsefni og því er þetta námskeið kennt í samstarfi námsbrauta í þjóðfræði og matvæla- og næringarfræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Matvælaörverufræði 2 (MAT506M)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að veita nemendum nauðsynlega undirstöðu til að þekkja helsta uppruna örverumengunar í matvælum, helstu áhrif örvera á gæði og öryggi matvæla og aðferðir sem notaðar eru til að hindra skemmdir og matarsjúkdóma af völdum örvera í matvælum. Efni fyrirlestra skiptist í fimm hluta: (1) Uppruni, flokkun, ríkjandi örverur í matvælum og ræktun örvera í matvælum. Inngangur að og saga örverufræði matvæla. Hefðbundnar og nýjar aðferðir til ræktunar, einangrunar og talningar örvera í matvælum. Yfirlit yfir mikilvægustu hópa örvera í matvælum. (2) Þættir sem hafa áhrif á vöxt og lifun örvera í matvælum og varðveislutækni. Innri og ytri þættir sem hafa áhrif á örverur í matvælum: næringarinnihald, sýrustig, oxunarafoxunargeta, vatnsvirkni, raki, hitastig, andrúmsloft o.s.frv.. Örverufræði varðveislu matvæla: hitavinnsla, kæling og frysting, efnavarðveisla, þurrkun, breyting á andrúmslofti, geislun, háþrýstingur, gerjun og önnur arðbær notkun örvera í matvælaframleiðslu. (3) Matarsjúkdómar af völdum örvera. Örverufræði matvæla og lýðheilsa. Helstu orsakir matareitrunar og sýkinga: Salmonella, Campylobacter, E. coli, Vibrio, Listeria, Clostridium, Bacillus, Staphylococcus, Scombroid eitrun og aðrir bakteríusjúkdómar í matvælum. Óbakteríuvaldandi sjúkdómsvaldar sem valda matarsjúkdómum: sníkjudýr, eiturefnavaldandi þörungar, eiturefnavaldandi sveppir, matarveirur og kúariða. Nýir sjúkdómsvaldar. (4) Örverufræði matvæla. Uppsprettur örvera sem finnast í matvælum. Örverufræði sjávarafurða, kjötvara, mjólkurvara, drykkjarvatns, grænmetis og ávaxta. (5) Eftirlit með örverum í matvælum. Sýnatökuaðferðir, hreinlætisvenjur í framleiðslu og kynning á GMP, GHP, HACCP.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Fiskiðnaðartækni 2 (VÉL601M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

ATH: námskeiðið verður ekki kennt vorið 2022. 

Markmið: Gera nemendur færa um að beita þverfaglegri þekkingu á helstu sviðum vélaverkfræðinnar til að hanna fiskvinnslurásir/flutningsferla. Námsefni m.a.: Vinnsluþrep og búnaður við vinnslu ferskfisks, frystingu, söltun, þurrkun, fiskmjölsvinnslu, lýsisgerð, meltugerð o.fl. Orku- og massavægi. Hönnunarforsendur fyrir fiskvinnslufyrirtæki. Vinnsluvélar, pökkunar- og geymsluaðferðir,  greining á starfsumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja, markaðsmál, hreinni framleiðslutækni, samkeppnisstaða, arðsemi, gæðamál, tæknivæðing o.fl.

Geymsluskilyrði (ljós, raki, hiti, samsetning lofts, o.s.frv.) og lykilþættir sem áhrif hafa á breytingar fiskafurða við geymslu, flutning og sölu/dreifingu. Stöðug og tímaháð varmaflutningsfræði, hagnýting Heisler- og Mollier-rita. 

Verklegt: Fiskvinnslurás/fiskvinnslufyrirtæki greint og/eða endurhannað.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Starfsnám í matvælafræði (MAT617M)
Valnámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Þar af 4 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Starfsnám í fyrirtæki eða stofnun tengdu matvælaiðnaði

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Efnagreiningartækni (EFN414G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er verklegt námskeið með vikulegum tveggja tíma stoðfyrirlestrum.  Þar verða undirstöðuatriði efnagreiningaraðferðanna kynnt svo og uppbygging, efnisval og notkun tækjabúnaðar.  Stoðfyrirlestrar eru hluti af verklegum æfingum og því er mætingaskylda í þá.

Kynntar verða almennar aðferðir í efnagreiningum sem byggja á hagnýtingu efna- og eðliseiginleika efna og víxlverkun eðliseiginleika efna við rafsegulsviðið.  Einnig verða kynntar skiljuaðferðir (chromatographic methods) til að greina efnablöndur í sundur, svo hægt sé að einangra hrein efni og bera kennsl á þau.  Námskeiðið tekur aðallega mið af  greiningu á lífrænum efnasamböndum.

Mæliaðferðirnar sem verða kynntar eru: litrófsmælingar á útfjólubláa og sýnilega sviðinu, atómgleypni, flúrljómun og titringsróf á innrauða sviðinu.  Kjarnarófsmælingar (NMR), massagreiningar og hagnýting röntgengeisla til byggingargreiningar.  Skiljuaðferðir (chromatographic methods): s.s. gasskilja og háþrýstivökvaskilja til þáttbundinna og magnbundinna greininga. Samtengd notkun mismunandi tækja/aðferða til greininga á óþekktum efnablöndum (GC, FT-IR, NMR og GC-MS).  

Nemendur vinna vinnubók og skila skýrslu úr einni æfingu ásamt vinnubókinni.

Stoðfyrirlestar: 2 tímar í viku.
10 verklegar æfingar: vinnubók og skýrsla.
Þriggja tíma skriflegt próf úr verklegu:

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Óháð námsári | Vor
Litrófsgreiningar sameinda og hvarfgangur efnahvarfa (EFN612M)
Valnámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Sameindabygging, orkuskipan og hraðafræði skv. litrófsgreiningum:

1. Gleypni, flúrljómun, Raman litróf, ljósjónun, Laser-litrófsgreining, Mössbauer greining og Röntgengreining. Kjarnarófsgreiningar (CW og FT NMR); víxlverkanir milli kjarna, hliðranir kjarna, kæliróf, slökunartímar, tvívíddar-NMR. Rafeindaspuni (EPR).

2. Hvarfslóð og hvarfgangur efnahvarfa ákvarðaður með litrófsmælingum og sameindabunum. Femtosekundu litrófsgreiningar.

3. Ljósefnafræði: stýring efnahvarfa með ljómun; ljósefnaferli háloftanna og geimefnafræði.

Kynntar verða ýmsar litrófsaðferðir í formi æfinga og/eða sýnikennslu. Áhersla er lögð á tölvuúrvinnslu mæligagna og túlkanir með hermilíkönum.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Tækninýsköpun (IÐN202M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmiðið með námskeiðinu er að þjálfa nemendur í að skilja og spá fyrir um samspil tækniþróunar og nýsköpunar. Sérstök áhersla er á að geta gert grein fyrir og útskýrt grundvallaratriði tæknilegrar nýsköpunar og að setja fram rökstudda spá um tækifæri til nýsköpunar á tæknisviði sem er í mótun. Námið fer fyrst og fremst fram með aðstoð gervigreindar (stór mállíkön) þar sem niðurstöður gervigreindarinnar eru rýndar á skipulegan hátt m.a. með astoð gagna og með hjálp frá hópnum, kennara og sérfræðingum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Bygging og eiginleikar próteina (LEF616M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Fjallað er um einkenni 1.-4. stigs byggingastiga prótein og hvernig þau ákvarða ýmsa eiginleika þeirra. Flokkun próteina á grundvelli myndbygginga og einkenni. Leitast er við að skýra samband myndbyggingar og eiginleika próteina með mismunandi líffræðileg hlutverk. Farið er yfir helstu byggingarþætti sem ákvarða stöðugleika myndbyggingar próteina, sem og afmyndun þeirra og svipmótunarferli. Fjallað er um áhrif þátta á borð við hitastig, sýrustigs, salta og afmyndara á stöðugleika próteina. Kynntar eru helstu aðferðir sem notaðar eru við rannsóknir á byggingar- og eðliseiginleikum próteina. Fjallað verður um valin dæmi um samband prótein byggingar og eiginleika.

Kennsluhættir. Fyrirlestrar tvisvar í viku (2x40 mín. hvort skipti). Tölvuver einu sinni í viku (2x40 mín.). Í tölvutímum er í fyrstu kynnt hagnýting veraldarvefsins við öflun og vinnslu upplýsinga á hinum margvíslegu vefsetrum sem fjalla um byggingu og eiginleika próteina. Þjálfuð er færni í notkun forritsins SwissPDBviewer til skoðunar og rannsókna á próteinum. Þetta forrit er notað til að leysa ýmis verkefni um byggingu próteina og eru valin með hliðsjón af yfirferð í fyrirlestrum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Lífefnafræði 4 (LEF617M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Áherslur í þessu námskeiði er að kynnast aðferðafræði og þeim helstu nýjungum í greiningar- og reikniaðferðum sem nýttar eru í rannsóknum í lífefnafræði. Námskeiðið er byggt upp af nokkrum námskeiðshlutum þar sem sérfræðingar á sínu sviði sinna kennslu hvers hluta. Námsefnið byggir að mestu á fyrirlestrum en einnig getur verið lagt fyrir nemendur annað námsefni, s.s. greinar eða bókarkaflar þegar við á. Einnig er mögulegt að sumir kennarar standi fyrir sýnikennslu á rannsóknartæki eða leggi fyrir hagnýt verkefni í tímunum. Nokkur verkefni verða lögð fyrir nemendur meðan námskeiðið er þreytt.

Nýlegar rannsóknir á ýmsum sérsviðum lífefnafræðinnar verða til umfjöllunar en námshlutar geta breyst hverju sinni.

Dæmi um sérsvið sem fjallað er um: Einsameinda litrófsgreining, massagreining próteina, byggingafræðileg lífefnafræði, bindisækniaðferðir og varmafræði og reiknifræðileg lífefnafræði.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Óháð námsári | Vor
Lýðheilsunæringarfræði (NÆR611M)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðslýsing:

Í námskeiðinu eru kynnt helstu viðfangsefni og áskoranir lýðheilsunæringarfræðinnar en einnig aðferðir og nálganir á sviði heilsueflingar. Áhersla verður lögð á heilsueflingarverkefni á sviði næringar á vesturlöndum en einnig í þróunarlöndum. Næring er sett í samhengi við aðra heilsutengda hegðun, aðstæður fólks og lífshætti. Kynntar verða helstu kenningar um heilsutengt atferli hvaða þættir stýra neysluhegðun og hvað getur skipt máli ef unnið er að breytingum á heilsutengdri hegðun. Kynnt verða helstu næringartengdu forvarna- og heilsueflingarverkefni á Íslandi auk erlendra verkefna. Nemendur öðlast færni í að skipuleggja lýðheilsuverkefni á sviði næringar og hvernig má nota rannsóknaniðurstöður til forvarna og aðgerða sem miða að bættri heilsu. Fjallað verður um öll helstu skref í mótun og undibúningi verkefnis, framkvæmd þess og mati á árangri.

Meðal spurninga sem leitað er svara við á námskeiðinu má nefna:

Ráðum við því raunverulega hvað við leggum okkur til munns – eða höfum við takmarkað val?

Ákvarðast lýðheilsa einungis af pólitík?

Er næringarlæsi mikilvægt hugtak?

Er mataræði þitt að eyðileggja heilsu móður jarðar?

Færð þú eitthvað að borða ef það er stríð í útlöndum?

Hver er ábyrgð þín á börnum sem svelta í heiminum?

Hvað stjórnar heiminum í raun og veru?

Viltu eiga þátt í að breyta heiminum?

Skapaðu heilsueflingarverkefni að eigin vali.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Óháð námsári | Vor
Rekstrarstjórnun (VIÐ404G)
Valnámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Velkomin í Rekstrarstjórnun

Hefurðu einhvern tíma tekið eftir því hvernig allt í kringum okkur virðist einhvern veginn bara virka? Um það snýst þetta námskeið - að afhjúpa heillandi heim ferla í fyrirtækjum sem og daglegu lífi okkar. Við munum kanna hvernig hlutirnir verða til, allt frá minnstu græjum til stærstu véla. Þetta snýst ekki bara um verksmiðjur og færibönd, heldur munum við kynna okkur hvernig allt frá þínu uppáhalds kaffihúsi til allra nýjustu tæknifyrirtækjanna nota ferla til að skila okkur vörum.
Kafað verður ofan í hvernig á að hanna þessa ferla, halda þeim gangandi og bæta þá stöðugt.
Vertu því tilbúin til að líta á heiminn í kringum þig á nýjan hátt, sem röð ferla sem gera líf okkar betra. Vertu tilbúin til að sjá heiminn eins og rekstrarstjóri.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Óháð námsári | Vor
Eldhúsnautnir, megrunarkúrar og matreiðsluþættir (ÞJÓ609M)
Valnámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið verður lotukennt alla daga vikunnar 10.-14. maí 2021 (sem er vikan eftir að lokaprófum á vormisseri lýkur) í sex stundir hvern dag (samtals 30 stundir). Nemendur verða að lesa allt námsefnið áður en námskeiðið hefst. Þeir vinna verkefni í vikunni og skrifa lokaritgerð eftir að námskeiðinu lýkur.

Í slow motion sleikir sjónvarpskokkurinn Nigella á sér fingurinn eftir að hafa dýft honum í rjómalagaða sveppasósu. Hún gefur frá sér nautnalegt hljóð, horfir í myndavélina með blik í auga og vill að við njótum með sér. Á annarri stöð öskrar sjónvarpskokkurinn Gordon Ramsey látlaust á aðra kokka sem berjast við að bjarga veitingastöðunum sínum. Margir þeirra fella tár undir reiðilestrinum.

Nautn, reiði, stress, spenna, karlremba, kvenleiki, rjómi, megrunarkúrar, heilsusamlegt mataræði, matarblogg, baksturskeppnir og barátta fyrir bættum og réttlátum matarháttum endurspeglar vinsældir matar sem afþreyingar og tækis til að rækta manneskjur og samfélag. Hvað útskýrir þennan gífurlega áhuga, jafnvel þráhyggju, samtímans gagnvart matarháttum og næringu?

Í námskeiðinu verður rýnt í nokkur vel valin hráefni sem umbreytt hefur verið í girnilegar menningarafurðir og sérstök áhersla lögð á hvernig hugmyndir um kyngervi og lífsstíl endurspeglast í matartengdum fyrirbærum á borð við matreiðsluþætti, matreiðslubækur, matarkeppnir og matarblogg.

Kennslutungumál: Enska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Fyrsta ár
  • Haust
  • MON204G
    Frumulíffræði
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fyrirlestrar (46F): Inngangur; þróun lífsins; frumuhimnan: lífefnafræði og frumulíffræði; kjarninn: gen og genastjórn, litni, bygging kjarnans, kjarnahjúpur; frymisnet og Golgi líffæri; bólur og blöðrur; lýsósóm, peroxisóm og hvatberar; stoðkerfi og hreyfiprótein; boðferlar; frumuskipting; frumutengi og millifrumuefni (frumulíffræði og lífefnafræði); boðskipti (inngangur); þroskun og sérhæfing; upptaka og vinnsla næringarefna í frumur. Umræðutímar þar sem kynnt verður frumuræktun og smásjárskoðun auk þess sem nemendur skila myndbandsupptöku þar sem ræða námsefnið.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • EFN112G
    Almenn efnafræði L
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Almenn og sérhæfð atriði um efnatengi og sameindabyggingu. Efnahvörf. Lofttegundir, vökvar, föst efni og lausnir. Varma- og hraðafræði efnahvarfa. Efnajafnvægi: sýru-basa, fellingar-, komplex- og afoxunar. Rafefnafræði og kjarnefnafræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • EFN113G
    Verkleg efnafræði L
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Mólrúmmál loftkenndra efna, Efnafræðileg varmafræði, Vermi hvarfa og lögmál Hess, Hraði efnahvarfa, niðurbrot vetnisperoxíðs, Le Chatelier, ákvörðun jafnvægisfasta með ljósgleypnimælingum, ákvörðun jónunarfasta sýru.

    Skyldumæting er í öryggisfyrirlestur í fyrstu kennsluvikunni.

    Námskeiðið taka nemendur í líffræði samhliða bóklega námskeiðinu Almenn efnafræði L.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LYF110G
    Öryggisnámskeið fyrir rannsóknarstofur
    Skyldunámskeið
    1
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    1 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið er yfir helstu atriði sem tengjast öryggismálum á rannsóknarstofum eins og meðhöndlun efna, viðbrögð við óhöppum og efnamengun og viðbrögð við slysum. Í námskeiðinu eru nokkur stutt verkleg verkefni á rannsóknarstofunni og námskeiðið endar á eldvarnaræfingu.

    Námskeiðið er ávallt haldið í byrjun annar, áður en almenn kennsla hefst.

    Nauðsynlegt er að sækja námskeiðið til að fá leyfi til að taka þátt í verklegum æfingum á rannsóknarstofum. Mögulegt upptökunámskeið er í byrjun janúar, næsta misseri.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • MON101G
    Aðferðir í matvæla- og næringarfræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að kynna almenn tól í verkfæra-kistu nemenda sem nýtast við nám og störf í matvæla- og næringarfræði. Á námskeiðinu verður nemendum kennt að beita í gegn-um verkefni í matvæla- og næringarfræði: 

    • Office 365 (Word, Excel, PowerPoint, Teams etc.) 
    • Námsumsjónarkerfin Uglu, Canvas og Inspera 
    • Almennrar gagna- og heimildarleit (Landsbókasafn, leitarvélar, gagna-grunnar) 
    • Lestur og mat á fræðigreinum  
    • Nýting heimildarumsjónarforrita s.s. Endnote, Mendeley etc. 
    • Almennu siðferði í námi og starfi, þar á meðal á ritstuldarforritið Turnitin 
    • Grunntökum í vísindamiðlun í ræðu og ritun, mikilvægi orðavals og akademískt tungutak. 
    • Matvæla- og næringarfræðitengdum forritum (næringarefnagagnagrunnar (ÍSGEM, hönnun matseðla,  kannanir á mataræði) 

    Einnig verður starfsemi matvælatengdra eftirlitsstofnana s.s. MAST, WHO, FAO, EFSA, Sjálfbærnimarkmið Sameinuðu þjóðanna kynnt ásamt grunnhæfniþáttum þeirra.   

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MON102G
    Matur, næring og sjálfbærni
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að skoða samhengi matvælaframleiðslu og fæðutengdra ráðlegginga Embættis Landlæknis í því augnamiði að fyrirbyggja langvinna sjúkdóma en um leið minnka umhverfisáhrif matvælaframleiðslu og fæðuvals.  

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • EFN214G
    Lífræn efnafræði L
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeið fyrir nemendur í líffræði. Í fyrirlestrum, sem eru sameiginlegir með námskeiðinu Efnafræði II (EFN205G), verður höfð hliðsjón af viðfangsefnum líffræðinnar. Farið verður yfir flesta flokka lífrænnar efnafræði, þ. e. alkana, alkena, alkýna, arómata, alkýl halíð, alkóhól, etera, aldehýð, ketóna, lífrænar sýrur, sýruafleiður og amín. Farið verður yfir grundvallaratriði í rúmefnafræði sameinda nemendur læra að finna út hvenær sameind er hendin og hvenær hún er ljósvirk.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • EFN215G
    Verkleg lífræn efnafræði L
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Mörg þeirra efna sem við notum í okkar daglega lífi (plast, lyf, lím o.fl.) eru framleidd fyrir tilstilli lífrænnar efnafræði. Lyfjaiðnaðurinn er gott dæmi þar sem nauðsynlegt er að geta smíðað rétt efni, einangrað/hreinsað þau og borið kennsl á hvort rétt efni hafi verið smíðað.

    Í þessu námskeiði munu nemendur fá þjálfun í grunnaðferðunum sem notaðar eru í verklegri lífrænni efnafræði og nýtist í efnaiðnaði. Einnig munu nemendur öðlast þjálfun í greiningu á niðurstöðum og skrifum á vísindalegum skýrslum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HVS202G
    Inngangur í þverfræðileg heilbrigðisvísindi - heilbrigðisvísindadagurinn
    Skyldunámskeið
    1
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    1 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er ætlað nemendum á fyrsta námsári í greinum heilbrigðisvísinda.  Sameiginlegur heilbrigðisvísindadagur nýnema allra deilda á Heilbrigðisvísindasviði í janúar ár hvert. Fjallað er um þverfaglegt samstarf og mikilvægi þess. Farið verður í grundvallarþætti samstarfsins svo sem sameiginlega sýn á réttindi til heilsu, samskipti og siðfræði. Einnig er fjallað um hlutverk og ábyrgð heilbrigðisvísinda.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • MON104G
    Áhrifaþættir fæðuvals - sálfræði og neytendur
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að kynna þá fjölmörgu þætti sem hafa áhrif á fæðuval einstaklinga. Í námskeiðinu er fjallað um líffræðilega hvata fæðuvals og hvernig mataræði mótast og breytist yfir ævina, þætti sem hafa áhrif á neysluhegðun út frá einstaklingnum sjálfum (svo sem viðhorf og gildi, næringarlæsi og færni) og umhverfinu sem hann tilheyrir. Kynnt verða áhrif félagslegs umhverfis, hönnunar umhverfisins (m.a. aðgengi að ólíkum matvælum frá framleiðendum, verslunum, í skólum, á vinnustöðum og heimilum). Þá er í áfanganum fjallað um áhrif stjórnvalda og stefnumótunar, efnahags, auglýsinga, fjölmiðla og samfélagsmiðla. Innsýn er gefin í viðfangsefni sálfræðinnar sem tengjast hegðun og því á hvaða grunni einstaklingar taka ákvarðanir, svo sem minni og nám, skynjun, áhugahvata, drif, markmiðasetningu, tilfinningar og atferli.  

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MON205G
    Matvæla- og næringarefnafræði
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um byggingu, eiginleika og virkni næringarefna og annarra efna í matvælum. Sjónum er beint að vatni og vatnsvirkni, efna- og eðlisfræðilegum eiginleikum orkugjafa, þ.e. kolvetna, fitu, og próteina. Ennfremur er farið í brúnun, þránun, hraðafræði ensíma og hvörf þeirra í matvælum, geymsluþol, aukefni, aðskotaefni og eiturefni. Þá er fjallað um áhrif mismunandi byggingar næringarefna á upptöku og aðgengileika (bioavailability) þeirra í líkamanum, víxlvirkni við önnur efni í matvælum, frásog frá meltingarvegi og niðurbrot. Einnig er komið inn á hvernig nýta megi þekkingu í matvæla- og næringarefnafræði við framleiðslu matvæla til að viðhalda gæðum, geymsluþoli og aðgengileika næringarefna. Gerð er grein fyrir helstu aðferðum, sem notaðar eru við rannsóknir á matvælum og lífvirkni næringarefna. Kennarar í matvælaefnafræði og næringarfræði koma að fyrirlestrum til að tryggja að þekking á efnum í matvælum tengist við næringu. Kennslan er á formi fyrirlestra kennara auk umræðna og vinnu með námsefni á netinu með virkri þátttöku nemenda.

    Verklegar æfingar og nemendaverkefni: Lestur, samantekt og kynning greina úr erlendum vísindaritum um efni er tengist fyrirlestrum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • STÆ209G
    Tölfræði og gagnavinnsla
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í byrjun námskeiðsins eru grunnhugtök tölfræðinnar kynnt til sögunnar, svo sem þýði, úrtak og breyta. Nemendur kynnast hinum ýmsu lýsistærðum og myndrænni framsetningu gagna. Því næst verður farið í grundvallaratriði líkindafræðinnar og helstu líkindadreifingar kynntar.

    Síðasti hluti námskeiðsins snýr að ályktunartölfræði þar sem skoðuð verða tilgátupróf og öryggisbil fyrir meðaltöl, dreifni og hlutföll og farið verður í fervikagreiningu og aðhvarfsgreiningu. Nemendur læra beitingu allra ofangreindra aðferða í tölfræðihugbúnaðinum R.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Haust
  • LÆK310G
    Sameindalífvísindi A
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeið í sameindalífvísindum fyrir nemendur á 2. ári í lyfjafræði, næringarfræði og tannlæknisfræði. Farið verður yfir hugtök og aðferðir í erfðafræði, lífefnafræði og sameindalíffræði. Í inngangsfyrirlestrum verður gefið yfirlit yfir þessar fræðigreinar og samþættingu þeirra. Fyrirlestrar fjalla um erfðamengi, erfðaefni, litninga, mítósu og meiósu, gen, mendelskar-, mítókondríu- og fjölþátta erfðir, helstu efnaskipti DNA og erfðatækni. RNA sameindir, tjáningu gena og umritun. Amínósýrur, peptíðtengi, nýmyndun og niðurbrot próteina. Myndbygging próteina, próteinlyf, ensím og ensímhvötuð efnahvörf. Einnig verður fjallað um transgenísk tilraunadýr, lífupplýsingafræði, sameindaerfðafræði veira og genalækningar. Lögð verður áhersla á notkun þessara fræðigreina í heilbrigðisþjónustu.

    Umræðutímar: Nemendasértækir umræðutímar fyrir hvern nemendahóp.

    Verklegar æfingar: Einangrun og greining á DNA úr blóði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • NÆR613G
    Notkun gagnagrunna um efnainnihald matvæla
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Áður kennt sem hluti af NÆR503M.  

    Farið er almennt yfir gagnagrunna um efnainnihald matvæla (e. Food composition databases).  Þeir skilgreindir og farið yfir helstu gagnasöfn sem til eru á heimsvísu.  Farið er sérstaklaega í danska, norska, sænska og bandaríska gagnagrunnurinn um næringarefni í mat .   Farið er yfir aðferðir við gagnaöflun, áreiðanleika þeirra og takmarkanir.  Þá er farið yfir íslenska gagnagrunna, farið yfir sögu þeirra og mikilvægi þeirra í rannsóknum á mataræði, á sjúkdómum og lýðheilsu.  Sérstaklega er farið yfir ÍSGEM og nemendur fá tækifæri til að vinna með gagnagrunninn og kynna sér hann í verki.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LÆK212G
    Lífeðlisfræði I TN
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    LÆK212G er fyrri hluti námskeiðs um lífeðlisfræði mannslíkamans, seinni hlutinn er tekinn fyrir í LÆK213G.  Tannlæknanemum, matvæla- næringarfræðinemum er kennt saman.  Forkrafa fyrir LÆK212G er námskeið í frumulíffræði, samanber LÆK112G Almenn líffræði A eða MON204G Frumulíffræði. 

    Námskeiðið byggist upp af fyrirlestrum, umræðu,  teymisverkefnum, verklegum æfingum, áfangaprófum og lokaprófi.  Eftirfarandi efni er tekið fyrir í LÆK212G:  Samvægi, stýrikerfi, frumuhimnur, himnuspennur, taugalífeðlisfræði, miðtaugakerfið, skynjun, frálægi hluti úttaugakerfisins, beinagrindarvöðvar, sléttir vöðvar, stjórn hreyfinga, hjarta, blóðrás og blóðið. Framkvæmdar eru þrjár verklegar æfingar: Skynjun, vöðvar+taugar og hjartastarfsemi. Skyldumæting er í allar verklegu æfingarnar

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Efnisgjald er í námskeiðinu
  • MON302G
    Vítamín, steinefni og önnur efni í matvælum
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Kennsluefni

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu á

    • hlutverki orkugefandi næringarefna, vítamína, steinefna, snefilefna og aðra lífvirkra efna í líkamanum,
    • lífaðgengi þeirra,
    • áhrifum þeirra á líkamsstarfsemi,
    • samspili við önnur efni í fæðu,
    • tengslum mataræðis, næringarefna og heilsu,
    • vannæringu og ofneyslu,
    • einkennum skorts næringarefna og
    • afleiðingum ofneyslu.

    Í námskeiðinu er líka fjallað um notkun fæðubótarefna og áhrif þeirra á heilsu í samanburði við inntöku næringarefna úr fæðu.

    Einnig eru kynntar aðferðir til að meta líkamssamsetningu, næringarástand, þ.e. líkamsforða eða aðrar breytur sem tengjast hlutverki næringarefnanna í líkamanum með mælingum á lífsýnum (t.d. í blóði, þvagi, fituvef, hári eða öðrum lífsýnum).

    Íslenskar rannsóknir sem tengjast kennsluefni eru jafnframt kynntar fyrir nemendum.

    Kennsluaðferðir

    Námskeiðið er samsett af fyrirlestrum, verklegum æfingum, nemendakynningum og umræðutímum. 

    Það eru skipulagðar fimm vinnustofur um vítamín og streinefni þar sem nemendur afla sér ítarlegrar þekkingar um tvö næringarefni, skila skýrslu til kennara og kynna fyrir nemendum og kennara í lok námskeiðs. Áhersla er lögð á að auka skilning nemenda á aðferðum til að kanna neyslu vítamína og steinefna.

    Í kennslutímum verður reglulega notuð PubMed (eða svipaðar vefsíður) til að fá nýjustu þekkingu um næringarefni og tengsl þeirra við heilsu og til að auka skilning nemenda á vísindagreinum, aðferðarfræði og tölfræði. Einnig er lögð áhersla á að kenna nemendum að nota vísindalega aðferð til að svara næringarfræðilegum spurningum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • NÆR503M
    Næringarefnainnihald matvæla og matvælaefnagreining
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Áhersla er lögð á að nemendur dýpki þekkingu sína í matvæla- og næringarefnagreiningu, íslenska gagnagrunninn, ÍSGEM, um næringarefnasamsetningu matvæla og sambærilegum erlendum gagnagrunnum. Nemendur kynnast gögnum um efnainnihald matvæla, tilurð þeirra og hvernig þeim er komið fyrir í gagnagrunnum. Fjallað er um þætti sem hafa áhrif á efnainnihald matvæla og sérkenni íslenskra matvæla.  Alþjóðlegir staðlar um matvælagögn verða kynntir. Farið verður yfir LanguaL aðferðina við skilgreiningu á fæðutegundum. Gæði gagna verða tekin til skoðunar og aðferðir við gæðamat kynntar. Aðferðir við útreikninga á efnainnihaldi matvæla og máltíða eru skýrðar. Farið verður yfir notkun gagnanna í rannsóknum og ráðgjöf og hugað að áreiðanleika og skekkjum. Fjallað verður um helstu aðferðir til efnagreininga á matvælum, kosti þeirra og takmarkanir. Lýst verður aðferðum til að mæla einstök efni og efnaflokka. Kennsla er í formi fyrirlestra, verkefna, umræðutíma og verklegrar þjálfunar.

    Verkleg þjálfun: Verklegar æfingar tengt efnagreiningu innihaldi. Unnið verður með hráefni, einangrun, notkun tækjabúnaðar og vinnslu gagna og skýrsluskil.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • MON604M
    Málstofa um vísindalæsi
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um vinnibrögð við heimildaleit og nauðsynlega færni til meta gæði en einnig túlka og miðla vísindarannsóknum á áhrifaríkan hátt. Nemendur munu læra að bera kennsl á trúverðugar heimildir, greina mismunandi hluta vísindagreinar og meta gæði þeirra og þróa dýpri skilning á því hvað teljast öflugar og áhrifaríkar vísindarannsóknir. Þá læra nemendur grunninn að því hvað er að vera fagaðili í því fagi sem þeir hafa valið sér. Námskeiðið samþættir hagnýta þætti eins og „journal clubs“, umræður um málefni líðandi stundar tengt mat og næringu, ritrýniæfingar, jafningjamat og kynningar, meðal annars í framhaldsskólum. Þá verður horfti til framtíðar og gervigreindar og spáð í áhrif hennar á slíka vísindavinnu. Með því að sameina fræðilega þekkingu og praktíska reynslu munu nemendur efla gagnrýna hugsun, samvinnu og samskiptahæfileika sem búa þá undir fræðileg og fagleg verkefni framtíðarinnar

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK213G
    Lífeðlisfræði II TN
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    LÆK213G er seinni hluti námskeiðs um lífeðlisfræði mannslíkamans. Forkrafa er LÆK212G, sem inniheldur fyrri hlutann. Tannlæknanemum og næringarfræðinemum og matvælafræðinemum er kennt saman. 

    Námskeiðið byggist upp af fyrirlestrum, verklegum æfingum, umræðutímum, spurningaverkefnum og áfangaprófum.  Eftirfarandi efni er tekið fyrir í LÆK213G: Öndun, nýrnastarfsemi, vökva- og sýrubasavægi, stjórn fæðuinntöku, meltingarkerfið, undirstúka og heiladingull, dægursveiflur, orkuvægi og hitastjórnun, stjórn efnaskipta og vaxtar (starfsemi bris, skjaldkirtils og nýrnahetta), æxlunarlífeðlisfræði. Framkvæmd er ein verkleg æfing: Áreynslulífeðlisfræði. Skyldumæting er í verklegu æfingunar sem og tilheyrandi umræðufund. Það eru þrjú stutt áfangapróf og gilda tvö bestu inn í lokaeinkunn.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Efnisgjald er í námskeiðinu
  • LÍF201G
    Örverufræði
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu kynnast nemendur þeim hluta lífheimsins sem er almennt ekki sjáanlegur með berum augum.  Þeir fá tækifæri til að öðlast grundvallar þekkingu á eiginleikum baktería, arkea, veira og heilkjarna örvera.  Í námskeiðinu verður m.a. annars fjallað um hvernig örverur eru undirstaða lífs á jörðinni, hlutverk þeirra í vistkerfum, hvernig sumar þeirra valda sjúkdómum eða eru mikilvægar í rannsóknum og iðnaði.  Nemendur fá innsýn í störf örverufræðinga og verklega þjálfun sem er nauðsynleg fyrir hvers kyns störf á rannsóknarstofum

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK408G
    Sameindalífvísindi B
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er fyrir nemendur á 2. ári í lyfjafræði, næringarfræði og tannlæknisfræði. Í námskeiðinu er lögð áhersla á efnaskipti og þá þætti efnaskipta sem hafa sérstaka þýðingu fyrir þessa nemahópa. Fjallað verður um háorkusambönd, efnaskipti kolvetna, fitu og amínósýra. Samhæfing efnaskipta, núkleótíð, járn, hem, lifur, hormón og næringu. Í síðasta hluta námskeiðsins sem er einungis fyrir lyfjafræðinema og tannlæknanema verður fjallað um meltingu, upptöku og virkni næringarefna með áherslu á áhrif þeirra á heilsu.

    Umræðutímar: Efnaskipti

    Verklegar æfingar: Einangrun próteins á súlu, mæling á próteinstyrk, rafdráttur próteina, ónæmismæling (ELISA).

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • NÆR506M
    Hagnýt fjölvíð aðhvarfsgreining og gagnavinnsla
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að auka skilning og færni nemenda í að greina og vinna úr rannsóknargögnum svo þeir séu betur undir það búnir að leysa slík verkefni í framhaldsnámi og vinnu. Farið verður ítarlega yfir þær aðferðir sem mest eru notaðar við greiningar á faraldsfræðigögnum með það að markmiði að nemendur geti sjálfir beitt þeim og geti gengið úr skugga um að allar forsendur haldi.

    Í  hverjum tíma leggur kennari fyrir verkefni sem byggja á gögnum úr fyrri rannsóknum sem framkvæmdar hafa verið á rannsóknarstofu í næringarfræði. Farið verður sameiginlega yfir helstu atriði og forsendur hvers verkefnis. Nemendur eiga að greina gögnin m.v. fyrirfram gefnar spurningar. Við tölfræðigreiningar verður mest notast við SPSS en einnig verður SAS kynnt til sögunnar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Haust
  • MAT504M
    Framleiðslutækni matvæla
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um helstu vinnsluaðferðir og áhrif þeirra á mismunandi tegundir matvæla eins og ávexti og grænmeti þar sem verður fjallað sérstaklega um kartöflur, tómata, agúrkur og sveppi. Korn og mölun mismunandi korn tegunda, kornvörur og vinnslu brauðs og kaffibrauðs , pasta og morgun korn. Mjólk og mjólkurvörur. Kjöt og kjötafurðir. Egg og vinnsla þeirra. Fita og olíur ásamt ýrulausnum. Drykkjarvörur eins og ávaxtasafa, gos, bjórgerð, víngerð, og framleiðslu á kaffi og te. Sælgætisgerð þar sem verður fjallað sérstaklega um sælgæti sem byggir á sykri og súkkulaði. Í öllum tilfellum verður fjallað um vinnsluferlið frá hráefni að fullunninni vöru þar sem farið verður yfir algengustu vinnslu hverrar afurðar fyrir sig og fjallað verður um þann tækjabúnað sem notaður er.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAT507M
    Matvælaverkfræði 1
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að kynna undirstöðuatriði matvælaverkfræði og framleiðslutækni. Í því felst kynning á uppstillingu og lausn massa- og orkujafnvægis, grunnhugtök varmafræði, straumfræði og áhrif þrýstingstaps og núnings í matvælaferlum. 

    Kennsluefnið samanstendur af fyrirlestrum, dæmatímum og heimadæmum um fjölbreyttar vinnsluaðferðir. 

    Kennslubók og annað lesefni:

    1. Introduction to food engineering, 5th edition, 2013. Singh, Paul and Heldman, Dennis.

    https://www.elsevier.com/books/introduction-to-food-engineering/singh/978-0-12-398530-9 Links to an external site. 

    Paul Singh's youtube channel:

    https://youtube.com/@RPaulSinghLinks to an external site.  

    2. Glærur úr fyrirlestrum, vísindagreinar og annað lesefni dreift til nemenda á Canvas síðu námskeiðsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • Ekki kennt á misserinu
    MON305M
    Fæðukerfi og fæðuöryggi
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing
    • Inntak námskeiðs er mataræði, fæðukerfi og tengd umhverfisáhrif 
    • Dæmi um mataræði sem fjallað verður um er vegan / ketó / sérfæði /ofurfæði 
    • Kynntar verða tengingar Landskönnunar og næringargagnabanka og hvernig þeir nýtast til að reikna út umhverfisáhrif  
    • Mismunandi fæðukerfi, þau greind og farið verður í flækjustig þeirra. Fjallað verður um lífsferil matvæla allt frá öflun hráefna, framleiðslu, neyslu og förgun. Hluti fæðukerfa eru umbúðir, geymsluþol 
    • Útreikningar á umhverfisáhrifum. Farið verður í útreikninga byggða á massa og orkubókhaldi fæðukerfa.   
    • Mismunur á milli útreiknisíða / gagnagrunna 
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MON501M
    Eðlisfræði matvæla
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að kynna helstu lögmál og hugtök eðlisfræðinnar fyrir nemendum og hvernig þau tengjast gæðum og framleiðslu matvæla. Námskeiðinu er ætlað að veita nauðsynlega undirstöðu m.a. í afl-, bylgju- og varmafræðum fyrir frekara nám í matvælafræði og matvælaverkfræði.

    Eðlis- og efnaeiginleikar matvæla (efnasamsetning, þéttleiki, föst efni og vökvar, varmaleiðni, rafleiðni etc.)

    Afl- og hreyfifræði (þyngd,massamiðja, hraði, hröðun, kraftar, núningur, tregða, skriðþungi)

    Vinna, orka og varðveisla orkunnar (vinna, stöðuorka, innri orka, efnaorka etc.)

    Vökva- og straumfræði (þrýstingur, seigja og áferð, streymiseiginleikar (lag- og iðustreymi), orkujöfnur og Bernoulli)

    Grunnlögmál varmafræðinnar (varmaleiðni, varmaburður og varmageislun)

    Sveim og osmósa

    Raf- og rafseguleiginleikar matvæla (rafleiðni, ljós og litur, IR- og UV rófin, seguleiginleikar, hljóðbylgjur)

    Geislavirkni og meðhöndlun matvæla.

    Námskeiðið skiptist í fyrirlestra, dæmatíma og verklegar æfingar og námsmat byggist á munnlegri og skriflegri kynningu nemenda á verklegum æfingum, skil á heimadæmum og skriflegu lokaprófi.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • Vor
  • MON305G
    Vísindamiðlun
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu munu nemendur læra að koma vísindalegum upplýsingum á framfæri til almennings á mannamáli með því að búa til og halda úti hlaðvarpsþætti MoN.  

    Nemendur munu taka viðtöl við sérfræðinga innan matvæla- og næringarfræði (vísindamenn, kennarar, doktorsnemendur, sérfræðinga í bransanum, nýsköpunaraðilar o.fl.) og kynnast þannig fjöbreyttum störfum og rannsóknarefnum matvæla- og næringar. Nemendur munu þá læra að koma vísindalegum upplýsingum á framfæri við breiðan áheyrendahóp á skýran hátt.  

    Nemendur munu læra hvernig undirbúa skuli viðtal, búa til handrit, hvernig koma skuli fram, kynnast þvíað beita grunntækni á notkun upptökubúnaðar, og hvernig spyrja megi opinna spurninga sem leiða til líflegra umræða.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • MAT506M
    Matvælaörverufræði 2
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að veita nemendum nauðsynlega undirstöðu til að þekkja helsta uppruna örverumengunar í matvælum, helstu áhrif örvera á gæði og öryggi matvæla og aðferðir sem notaðar eru til að hindra skemmdir og matarsjúkdóma af völdum örvera í matvælum. Efni fyrirlestra skiptist í fimm hluta: (1) Uppruni, flokkun, ríkjandi örverur í matvælum og ræktun örvera í matvælum. Inngangur að og saga örverufræði matvæla. Hefðbundnar og nýjar aðferðir til ræktunar, einangrunar og talningar örvera í matvælum. Yfirlit yfir mikilvægustu hópa örvera í matvælum. (2) Þættir sem hafa áhrif á vöxt og lifun örvera í matvælum og varðveislutækni. Innri og ytri þættir sem hafa áhrif á örverur í matvælum: næringarinnihald, sýrustig, oxunarafoxunargeta, vatnsvirkni, raki, hitastig, andrúmsloft o.s.frv.. Örverufræði varðveislu matvæla: hitavinnsla, kæling og frysting, efnavarðveisla, þurrkun, breyting á andrúmslofti, geislun, háþrýstingur, gerjun og önnur arðbær notkun örvera í matvælaframleiðslu. (3) Matarsjúkdómar af völdum örvera. Örverufræði matvæla og lýðheilsa. Helstu orsakir matareitrunar og sýkinga: Salmonella, Campylobacter, E. coli, Vibrio, Listeria, Clostridium, Bacillus, Staphylococcus, Scombroid eitrun og aðrir bakteríusjúkdómar í matvælum. Óbakteríuvaldandi sjúkdómsvaldar sem valda matarsjúkdómum: sníkjudýr, eiturefnavaldandi þörungar, eiturefnavaldandi sveppir, matarveirur og kúariða. Nýir sjúkdómsvaldar. (4) Örverufræði matvæla. Uppsprettur örvera sem finnast í matvælum. Örverufræði sjávarafurða, kjötvara, mjólkurvara, drykkjarvatns, grænmetis og ávaxta. (5) Eftirlit með örverum í matvælum. Sýnatökuaðferðir, hreinlætisvenjur í framleiðslu og kynning á GMP, GHP, HACCP.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAT609M
    Vöruþróun matvæla
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum fyrir helstu aðferðum vöruþróunar og þjálfa nemendur í notkun neytendadrifna aðferða við þróun á matvöru. Nemendur þróa vöru sem miðuð er að neytendum og fá leiðsögn í aðferðum við gerð frumgerða, val á hráefnum, tilraunauppsetningu, uppskölun og um regluverkið sem þarf að fylgja við gerð nýrra matvæla. Einnig munu nemendur kynnast hvernig skynmat er notað í vöruþróun og fá þjálfun í skynmati á eigin vöru. 

    Vöruþróunarferli verður unnið í hóp en einnig verða smærri einstaklingsverkefni metin til einkunnar.  

    Viðfangsefni: 

    Grundvallaratriði við vöruþróun matvæla. Fjallað verður um: 

    • hugmyndaleit, hugmyndasíun, þróun frumgerðar og þróun frumgerðar til fullunninnar vöru og uppskölun á framleiðslu. 
    • notkun tilraunahögunar við síun og bestun afurða í vöruþróun.  
    • notkun skynmats í vöruþróun. 
    • val á hráefnum, notkun aukefna og helstu nýjungar í vistvænum próteinum.  
    • tengsl matvælalöggjafarinnar og hugverkaréttinda við vöruþróun. 

    Farið verður í raunveruleg dæmi vöruþróunar hjá fyrirtækjum.  

    Verklegt: Þróuð verður vara frá hugmynd til frumgerðar. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAT616M
    Gæðastjórnun og matvælaöryggi
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að fjalla um gæðakröfur sem gerðar eru til vinnslu, meðhöndlun og dreifingu matvæla.  Fjallað er um gæðakröfur í alþjóðlegum viðskiptum og innlend og erlend regluverk um öryggi matvæla, þar með talið regluverk Evrópusambandsins og Bandaríkjanna.  Farið er yfir gerð eftirlitsáætlana ríkja s.s. áætlun um efnaleifar í matvælum, eftirlitáætlanir, uppbyggingu opinbers eftirlits og gerð varnaráætlana fyrir matvæli, fóður og heilbrigði dýra.  Þá er fjallað um áhættu stýringu og miðlun og hættur í matvælakeðjunni.  Fjallað er um góða framleiðsluhætti, góða landbúnaðarhætti og góða heilbrigðishætti og ítarlega farið yfir hættugreiningu og mikilvæga stýristaði (HACCP) við vinnslu matvæla.  Einnig er fjallað um sýnatökur við eftirlit og vöktun og hvaða mælikvarðar og viðmið eru notuð til að meta öryggi matvæla og fóðurs.  Einnig er farið yfir mikilvægi rekjanleika matvæla, innri og ytri úttektir og vottun rannsóknastofa.  Þá er fjallað um Codex leiðbeiningar, gæðastaðala (ISO-9000, ISO-14000 og ISO-22000) og vörustaðla kaupenda matvæla.

    Verklega æfingar:  1) nemendur fá þjálfun í uppsetningu á HACCP kerfum og hvernig þau eru sannprófuð,  2) innri og ytri úttektir á gæðum og öryggi matvæla og 3) nemendaverkefni um nýleg útkomin efni er varða matvælaeftirlit.

    Tilhögun námskeiðs:  Námið er í formi fyrirlestra, umræðu og verklegrar þjálfunar er tengist námsefninu.  Gert er ráð fyrir virkri þátttöku nemenda og að þeir kynni sér alþjóðlegar vísindagreinar er tengjast efni fyrirlestra.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • MON603M
    Skynmat
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu kynnast nemendur skynmatsfræðum og hvernig skynmati er beitt til að meta eiginleika matvæla. Fjallað verður um hvernig á að kalla fram, mæla og meta skynræna eiginleika matvæla og mismunandi aðferðir sem notaðar eru í skynmati. Áhersla verður lögð á hefðbundnar skynmatsaðferðir (mismunapróf, myndræn próf, geðjunarpróf ofl), og hvernig þessar aðferðir eru notaðar í mismunandi aðstæðum eins og í gæðaeftirliti og vöruþróun. Aðferðum í neytendarannsóknum verða gerð skil. Jafnframt verður fjallað um þætti sem hafa áhrif á skynmat, skipulag skynmatsrannsókna (undirbúningur, framsetning sýna, val aðferða ofl), og skynmatshópa (val og þjálfun) sem og tölfræðigreining og túlkun skynmatsniðurstaðna.

    Kennslan er á formi fyrirlestra, sem og verklegra æfinga undir leiðsögn kennara.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • Haust
  • MAT706M
    Líftækni í matvælaiðnaði
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði fá nemendur kynningu á líftækni með sérstaka áherslu á beitingu hennar í matvælaiðnaði. Fjallað verður um grunnhugtök líftækninnar, þróun hennar og hvernig markviss nýting lífvera, einkum örvera, hefur skapað ný tækifæri til framleiðslu matvæla, innihaldsefna og lífvirkra efna með skilvirkum og sjálfbærari hætti.

    Námskeiðið tengir saman grunnþekkingu í erfðafræði, frumulíffræði, lífefnafræði og örverufræði við helstu aðferðir sameindalíffræði og erfðatækni. Farið verður yfir kynbætur sem fyrsta form líftækni og sýnt hvernig nútíma erfðatækni getur gert markvissari og skilvirkari breytingar en hefðbundnar aðferðir. Jafnframt er fjallað um lífupplýsingafræði, framfarir í raðgreiningu erfðaefnis og notkun erfðagagnabanka sem eru undirstaða allrar nútíma líftækni.

    Sérstök áhersla er lögð á að sýna dæmi úr núverandi rannsóknum og atvinnulífi, til að nemendur fái skýra mynd af því hvernig fræðileg þekking í líftækni nýtist beint í þróun matvæla, hráefna og sjálfbærra framleiðsluferla. Að loknu námskeiði hafa nemendur traustan skilning á hlutverki líftækni í nútíma matvælaiðnaði og þeirri vísindalegu og tæknilegu þekkingu sem liggur að baki nýsköpun og verðmætasköpun á sviðinu.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • VÉL502G
    Straumfræði
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið:

    1. Að kynna helstu hugtök straumfræðinnar og koma nemendum í skilning um hvernig stærðfræði er beitt við flókin viðfangsefni og hvernig hægt er að fá nálgunarlausnir með einföldun án þess að tapa miklu í nákvæmni.

    2. Að gera nemendur færa um að beita straumfræðinni til þess að reikna mótstöðu hluta og þrýstifall í pípum.

    3. Að þjálfa þá í að beita mæliaðferðum í straumfræði.

    4. Að beita þverfaglegri þekkingu á helstu sviðum vélaverkfræðinnar.

    Námsefni m.a.: Eiginleikar kvikefna (vökva og lofttegunda). Þrýstingur og kraftasvið í kyrrstæðum vökvum, þrýstingsmælar. Rennslisfræði, samfellujafna, skriðþunga- og orkujafna. Hreyfijafna Bernoullis. Víddargreining og líkanlögmál. Tvívítt streymi, seigjulausir vökvar, jaðarlög, lag- og iðustreymi, vökvamótstaða og formviðnám. Streymi þjappanlegra vökva, hljóðhraði, Mach tala, hljóðbylgjur, lögun túðu fyrir yfirhljóðhraða. Rennsli í opnum og lokuðum farvegum. Dæmaæfingar og verklegar tilraunir.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LEF509M
    Hagnýtt lífefnafræði
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið fjallar um undirstöðuatriði og helstu notkunarmöguleika líftækni með áherslu á mikilvægi hennar í atvinnulífi og samfélagi. Líftækni er þverfaglegt fræðasvið sem nýtir aðferðir úr sameindalíffræði, efnafræði, verkfræði og lyfjafræði. Í gegnum fyrirlestra, hópverkefni, kynningar nemenda og gestafyrirlestra verður fjallað um hvernig líftæknivörur og -ferlar þróast, allt frá rannsóknum á rannsóknarstofu til notkunar í iðnaði.

    Námskeiðið skiptist í fimm meginsvið líftækni: (1) líftæknilyf, (2) iðnaðarlíftækni í efna- og matvælaiðnaði, (3) klínísk líftækni, (4) uppgötvun og hreinsun náttúruafurða og (5) orku- og umhverfislíftækni.

    Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, verkefnavinnu, nemendakynningum og umræðum auk þess sem farið verður í eina vettvangsferð.

    Námskeiðið er samkennt með ILT102F - Inngangur að iðnaðarlíftækni. Ekki er hægt að taka bæði námskeiðin

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    MAT508M
    Fiskiðnaðartækni 1
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið: Að gera nemendur færa um að skilja þýðingu góðrar meðferðar á fiskafla og fiskafurðum og að reikna út nauðsynlegar stærðir í vinnslu sjávarfangs. Námsefni m.a.:  Helstu fiskistofnar, veiðimynstur og veiðarfæri, aflameðferð, efni og efnabreytingar, prótein, fita o.fl., þættir, sem hafa áhrif á efnabreytingar, s.s. hitastig, selta, loftaðgangur, raki, sýrustig o.fl. Skemmdareinkenni á sjávarfangi vegna örveru- og efnabreytinga. Mikilvægar örverur og vöxtur örvera í sjávarfangi og tengsl við þrifavæna hönnun. Vöxtur örvera vegna hita, seltu, loftaðgangs, sýrustigs, raka, aukaefna o.fl. Kynning á helstu verkunar- og varðveisluaðferðum, s.s. saltfiskverkun, skreiðarverkun, harðfiskverkun, kælingu, ofurkælingu og frystingu. Orku- og massavægi fyrir hvert vinnsluþrep og vinnslurásina í heild sinni. Verklegt: Einstaka vinnslueiningar greindar og/eða endurhannaðar. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • HHE302G
    Vistkerafæði – hollur matur fyrir heilbrigði fólks og jarðar
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið Vistkerafæði (e. flexitarian diet) miðar að því að kynna nemendum hvernig fæðuval hefur áhrif á heilbrigði fólks og jarðar. Það er mikilvægt að hafa í huga að það sem við borðum hefur ekki aðeins áhrif á heilbrigði okkar sjálfra heldur einnig líka á heilbrigði jarðarinnar. Með heilbrigði fólks og jarðar að leiðarljósi inniheldur fæði okkar meira af grænmeti, ávöxtum, hnetum, baunum og heilkornum en í hefðbundnara fæði. Á námskeiðinu verður farið yfir undirstöðuþætti vistkerafæðis og hvernig hægt er að breyta fæðuvali til hagsbóta fyrir okkur sjálf og jörðina. Með breyttu fæðuvali væri hægt að minnka líkur á ýmsum sjúkdómum, framleiða nægan mat fyrir alla og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Efnisgjald er í námskeiðinu
  • IÐN502G
    Hagverkfræði
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að gera nemendur færa um:

    1. Að skilja helstu hugtök bókhalds, kostnaðarreiknings og fjárfestingarfræði.

    2. Að nota aðferðir til að meta hagkvæmni verktæknilegra kosta.

    3. Að gera reiknilíkan til að meta arðsemi fjárfestinga, virði fyrirtækja og verðleggja hlutabréf og skuldabréf.

    Meðal námsefnis er  bókhald, kostnaðarreikningar, greining á fjárstreymi, fjárfestingarfræði, mælikvarðar á arðsemi, þar á meðal núvirði og innri vextir, og gerð  arðsemilíkana. Námskeiðinu lýkur með hópverkefnum þar sem nemendur æfa arðsemimat verkefna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • IÐN503G
    Verkefnastjórnun
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu eru kennd grunnatriði í verkefnastjórnun. Farið verður yfir grunnhugtök, umhverfi og val verkefna, áætlunargerð, eftifylgni, stjórnun verkefnateyma og lok verkefna. Nemendur fá þjálfun í gerð verkefnaáætlana og að takast á við áskoranir við framkvæmd og lok verkefna. Sérstök áhersla er á notkun verkefnastjórnunar við tækninýsköpun í skipuheildum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAS103M
    R fyrir byrjendur
    Valnámskeið
    3
    Valnámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um tölfræðiúrvinnslu í forritinu R. Gert er ráð fyrir að nemendur hafi grunnþekkingu í tölfræði og munu nemendur læra að beita þeim tölfræðiaðferðum sem þeir þekkja í R. Farið verður í innlestur gagna, myndræna framsetningu, lýsandi tölfræði og hvernig algengustu tilgátupróf (t-próf, kí-kvaðratpróf o.s.frv) eru framkvæmd í R. Að auki verður nemendum kennt að nota knitr pakkann til að vinna skýrslur.

    Námskeiðið er kennt á fimm vikum í þrjár kennslustundir á viku. Kennari heldur fyrirlestra og nemendur vinna verkefni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    MAT505M
    Matvælaefnafræði 2
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að gefa nemendum yfirgripsmikla þekkingu á matvælaefnafræði. Upplýsingar um mismunandi efni í matvælum og eiginleika þeirra verða tengdar hagnýtum dæmum sem tengjast þróun og framleiðslu matvæla til að viðhalda gæðum, geymsluþoli og aðgengileika næringarefna. Farið verður yfir efna- og eðlisfræðilega eiginleika orkugjafa í matvælum (kolvetna, fitu, og próteina), notkunarmöguleika þeirra í matvælum, niðurbrot, hvörf við önnur efni, leiðir til að viðhalda eiginleikum þeirra og áhrif á geymsluþol. Farið verður yfir áhrif byggingar næringarefna á víxlvirkni þeirra við önnur efni í matvælum. Áhrif vatns og vatnsvirkni á geymsluþol og eiginleika matvæla verður rædd. Farið verður yfir hraðafræði ensíma, hvörf ensíma í matvælum, hagnýtingu ensíma í matvælaiðnaði og leiðir til að halda ensímefnahvörfum í matvælum í skefjum. Kynntar verða aðferðir til að innlima lífvirk efni í matvæli og vernda fyrir óæskilegum efnahvörfum. Efnafræði litarefna, rotvarnarefna og þráavarnarefna ásamt notkun þeirra í matvæli verður rædd. Áfanginn er lesáfangi með verklegri kennslu. Umræðutímar verða til þess að fara yfir námsefnið með nemendum ásamt nemendaverkefnum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MON002M
    Samfélög manna og örvera: Örverur, menning, heilsa, og umhverfi
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðslýsing

    Hvað segir skyrgerð okkur um þróun íslensks samfélags? Hver eru áhrif þarmaflórunnar á heilsu okkar? Hvernig losum við okkur við úrgang í þéttbýli á umhverfisvænan hátt og hvaða þögli meirihluti jarðarbúa er þar að verki? Lykillinn að öllum þessum spurningum er sá sami:  Samfélög örvera hafa mótað jörðina og íbúa hennar frá upphafi lífs eða í milljarða ára. Til að skilja og takast á við áskoranir 21. aldar varðandi umhverfi, heilsu og samfélag, þurfum við að skilja hlutverk þessara fyrstu lífvera betur og hvernig það tvinnast saman við líf okkar sjálfra og nágranna okkar í lífríkinu. Nýlegar rannsóknir sýna að meirihluti frumanna í og á mannslíkamanum tilheyrir fjölbreyttum tegundum örvera. Þýðir það að menn séu örverur? Eða “bara” að samlífið við örverur sé nánasta og mikilvægasta sambandið sem við eigum í? Námskeiðið býður nemendum að kanna samlífi örvera og manna út frá ýmsum sjónarhornum, sem eru m.a. ættuð úr örverufræði og þjóðfræði, matvælafræði, næringarfræði og mannfræði. Litið verður til þess hvernig örverur koma að þróun og varðveislu matvæla í samfélögum manna, hlutverk þeirra í meltingunni og tengsl við andlega og líkamlega heilsu. Einnig hvernig örverur viðhalda lífsnauðsynlegum hringrásum lífrænna efna  og geta umbreytt rusli og úrgangi í endurnýjanlegt form eins og heilbrigðan jarðveg.

    Námskeiðið vinnur út frá hugmyndinni um „eina heilsu“ sem mótast hefur síðustu áratugi og vísar til þess að heilbrigði umhverfis, manna og annarra dýra, og samfélaga, er samtengt á þann hátt að niðurbrot á einhverju þessara sviða leiðir til niðurbrots á öðrum. Efnið verður skoðað út frá einstökum dæmum um samlífi örvera og manna, eins og áhrifum örvera á bragð og samsetningu matvæla, áhrifum mataræðis á þarmaflóru, hlutverki gerjunar í mótun mannlegra tengsla og hvernig losunarkerfi í þéttbýli rjúfa hringrás næringarefna í umhverfi mannsins.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • NÆR502G
    Næringarlífeðlisfræði
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur dýpki skilning sinn á margþættum hlutverkum næringarefna í líkamanum og ytri aðstæðum sem geta haft áhrif á efnaskipti. Sérstök áhersla verður lögð á efnaskipti fitusýra, sykra og amínósýra. Fjallað verður sérstaklega um hormón sem stýra matarlyst, sem tengjast öðru viðfangsefni námskeiðisin sem er svefn og svefnvandamál. Nemendur kynnast aðferðafræði tilraunavísinda sem tengjast næringarfræði og fá innsýn inn í ný rannsóknasvið á sviði næringarfræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • NÆR504M
    Næring á mismunandi æviskeiðum
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist djúpan skilning á áherslum um mataræði og næringu á sérstaklega mikilvægum æviskeiðum: á meðgöngu, meðal ungbarna, barna, unglinga, ungs fólks, við tíðahvörf og öldrun. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • MAT505M

  • NÆR613M
    Matur og menning:
    Valnámskeið
    5
    Valnámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Matur er mannsins megin, uppspretta orkunnar og forsenda lífsins. En matur er líka sneisafullur af merkingu. Matarhættir veita innsýn í heimsmynd okkar, lífssýn og listfengi og matur mótar tilveru okkar, líkama, samfélag, hagkerfi, hugarfar og siðferði. Sjálfsmynd okkar og minningar eru nátengdar mat og matur er einhver mikilvægasti miðillinn fyrir samskipti okkar við annað fólk.

    Í námskeiðinu skoðum við hvað fólk borðar, hvernig, hvenær, með hverjum og hvers vegna. Með þeim hætti fáum við dýrmæta innsýn í kyngervi og kynslóðir, fæðuöryggi og rétt til matar, stéttaskiptingu og menningarlegan margbreytileika, skynheim og fegurðarskyn, tækni og matvælaframleiðslu, tísku og matarkúra, matarhefðir og menningararf, tilfinningar, vináttu og fjölskyldubönd. Matarhættir tengja þannig saman menningu og náttúru, hnattvæðingu og hið staðbundna, heimilið og vinnustaðinn, fortíð og samtíð, manneskjur og örverur.

    Í námskeiðinu beinum við sjónum að sambandi matarframleiðslu og neyslu á 21. öld með sérstaka áherslu á lýðheilsu, siðferðislega neyslu og sjálfbærni.

    Matur og menning eru þverfagleg viðfangsefni og því er þetta námskeið kennt í samstarfi námsbrauta í þjóðfræði og matvæla- og næringarfræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeiðið er kennt að uppfylltum skilyrðum
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAT506M
    Matvælaörverufræði 2
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að veita nemendum nauðsynlega undirstöðu til að þekkja helsta uppruna örverumengunar í matvælum, helstu áhrif örvera á gæði og öryggi matvæla og aðferðir sem notaðar eru til að hindra skemmdir og matarsjúkdóma af völdum örvera í matvælum. Efni fyrirlestra skiptist í fimm hluta: (1) Uppruni, flokkun, ríkjandi örverur í matvælum og ræktun örvera í matvælum. Inngangur að og saga örverufræði matvæla. Hefðbundnar og nýjar aðferðir til ræktunar, einangrunar og talningar örvera í matvælum. Yfirlit yfir mikilvægustu hópa örvera í matvælum. (2) Þættir sem hafa áhrif á vöxt og lifun örvera í matvælum og varðveislutækni. Innri og ytri þættir sem hafa áhrif á örverur í matvælum: næringarinnihald, sýrustig, oxunarafoxunargeta, vatnsvirkni, raki, hitastig, andrúmsloft o.s.frv.. Örverufræði varðveislu matvæla: hitavinnsla, kæling og frysting, efnavarðveisla, þurrkun, breyting á andrúmslofti, geislun, háþrýstingur, gerjun og önnur arðbær notkun örvera í matvælaframleiðslu. (3) Matarsjúkdómar af völdum örvera. Örverufræði matvæla og lýðheilsa. Helstu orsakir matareitrunar og sýkinga: Salmonella, Campylobacter, E. coli, Vibrio, Listeria, Clostridium, Bacillus, Staphylococcus, Scombroid eitrun og aðrir bakteríusjúkdómar í matvælum. Óbakteríuvaldandi sjúkdómsvaldar sem valda matarsjúkdómum: sníkjudýr, eiturefnavaldandi þörungar, eiturefnavaldandi sveppir, matarveirur og kúariða. Nýir sjúkdómsvaldar. (4) Örverufræði matvæla. Uppsprettur örvera sem finnast í matvælum. Örverufræði sjávarafurða, kjötvara, mjólkurvara, drykkjarvatns, grænmetis og ávaxta. (5) Eftirlit með örverum í matvælum. Sýnatökuaðferðir, hreinlætisvenjur í framleiðslu og kynning á GMP, GHP, HACCP.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    VÉL601M
    Fiskiðnaðartækni 2
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    ATH: námskeiðið verður ekki kennt vorið 2022. 

    Markmið: Gera nemendur færa um að beita þverfaglegri þekkingu á helstu sviðum vélaverkfræðinnar til að hanna fiskvinnslurásir/flutningsferla. Námsefni m.a.: Vinnsluþrep og búnaður við vinnslu ferskfisks, frystingu, söltun, þurrkun, fiskmjölsvinnslu, lýsisgerð, meltugerð o.fl. Orku- og massavægi. Hönnunarforsendur fyrir fiskvinnslufyrirtæki. Vinnsluvélar, pökkunar- og geymsluaðferðir,  greining á starfsumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja, markaðsmál, hreinni framleiðslutækni, samkeppnisstaða, arðsemi, gæðamál, tæknivæðing o.fl.

    Geymsluskilyrði (ljós, raki, hiti, samsetning lofts, o.s.frv.) og lykilþættir sem áhrif hafa á breytingar fiskafurða við geymslu, flutning og sölu/dreifingu. Stöðug og tímaháð varmaflutningsfræði, hagnýting Heisler- og Mollier-rita. 

    Verklegt: Fiskvinnslurás/fiskvinnslufyrirtæki greint og/eða endurhannað.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • MAT617M
    Starfsnám í matvælafræði
    Valnámskeið
    4
    Valnámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Þar af 4 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Starfsnám í fyrirtæki eða stofnun tengdu matvælaiðnaði

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • EFN414G
    Efnagreiningartækni
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er verklegt námskeið með vikulegum tveggja tíma stoðfyrirlestrum.  Þar verða undirstöðuatriði efnagreiningaraðferðanna kynnt svo og uppbygging, efnisval og notkun tækjabúnaðar.  Stoðfyrirlestrar eru hluti af verklegum æfingum og því er mætingaskylda í þá.

    Kynntar verða almennar aðferðir í efnagreiningum sem byggja á hagnýtingu efna- og eðliseiginleika efna og víxlverkun eðliseiginleika efna við rafsegulsviðið.  Einnig verða kynntar skiljuaðferðir (chromatographic methods) til að greina efnablöndur í sundur, svo hægt sé að einangra hrein efni og bera kennsl á þau.  Námskeiðið tekur aðallega mið af  greiningu á lífrænum efnasamböndum.

    Mæliaðferðirnar sem verða kynntar eru: litrófsmælingar á útfjólubláa og sýnilega sviðinu, atómgleypni, flúrljómun og titringsróf á innrauða sviðinu.  Kjarnarófsmælingar (NMR), massagreiningar og hagnýting röntgengeisla til byggingargreiningar.  Skiljuaðferðir (chromatographic methods): s.s. gasskilja og háþrýstivökvaskilja til þáttbundinna og magnbundinna greininga. Samtengd notkun mismunandi tækja/aðferða til greininga á óþekktum efnablöndum (GC, FT-IR, NMR og GC-MS).  

    Nemendur vinna vinnubók og skila skýrslu úr einni æfingu ásamt vinnubókinni.

    Stoðfyrirlestar: 2 tímar í viku.
    10 verklegar æfingar: vinnubók og skýrsla.
    Þriggja tíma skriflegt próf úr verklegu:

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • EFN612M
    Litrófsgreiningar sameinda og hvarfgangur efnahvarfa
    Valnámskeið
    8
    Valnámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Sameindabygging, orkuskipan og hraðafræði skv. litrófsgreiningum:

    1. Gleypni, flúrljómun, Raman litróf, ljósjónun, Laser-litrófsgreining, Mössbauer greining og Röntgengreining. Kjarnarófsgreiningar (CW og FT NMR); víxlverkanir milli kjarna, hliðranir kjarna, kæliróf, slökunartímar, tvívíddar-NMR. Rafeindaspuni (EPR).

    2. Hvarfslóð og hvarfgangur efnahvarfa ákvarðaður með litrófsmælingum og sameindabunum. Femtosekundu litrófsgreiningar.

    3. Ljósefnafræði: stýring efnahvarfa með ljómun; ljósefnaferli háloftanna og geimefnafræði.

    Kynntar verða ýmsar litrófsaðferðir í formi æfinga og/eða sýnikennslu. Áhersla er lögð á tölvuúrvinnslu mæligagna og túlkanir með hermilíkönum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • IÐN202M
    Tækninýsköpun
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmiðið með námskeiðinu er að þjálfa nemendur í að skilja og spá fyrir um samspil tækniþróunar og nýsköpunar. Sérstök áhersla er á að geta gert grein fyrir og útskýrt grundvallaratriði tæknilegrar nýsköpunar og að setja fram rökstudda spá um tækifæri til nýsköpunar á tæknisviði sem er í mótun. Námið fer fyrst og fremst fram með aðstoð gervigreindar (stór mállíkön) þar sem niðurstöður gervigreindarinnar eru rýndar á skipulegan hátt m.a. með astoð gagna og með hjálp frá hópnum, kennara og sérfræðingum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LEF616M
    Bygging og eiginleikar próteina
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað er um einkenni 1.-4. stigs byggingastiga prótein og hvernig þau ákvarða ýmsa eiginleika þeirra. Flokkun próteina á grundvelli myndbygginga og einkenni. Leitast er við að skýra samband myndbyggingar og eiginleika próteina með mismunandi líffræðileg hlutverk. Farið er yfir helstu byggingarþætti sem ákvarða stöðugleika myndbyggingar próteina, sem og afmyndun þeirra og svipmótunarferli. Fjallað er um áhrif þátta á borð við hitastig, sýrustigs, salta og afmyndara á stöðugleika próteina. Kynntar eru helstu aðferðir sem notaðar eru við rannsóknir á byggingar- og eðliseiginleikum próteina. Fjallað verður um valin dæmi um samband prótein byggingar og eiginleika.

    Kennsluhættir. Fyrirlestrar tvisvar í viku (2x40 mín. hvort skipti). Tölvuver einu sinni í viku (2x40 mín.). Í tölvutímum er í fyrstu kynnt hagnýting veraldarvefsins við öflun og vinnslu upplýsinga á hinum margvíslegu vefsetrum sem fjalla um byggingu og eiginleika próteina. Þjálfuð er færni í notkun forritsins SwissPDBviewer til skoðunar og rannsókna á próteinum. Þetta forrit er notað til að leysa ýmis verkefni um byggingu próteina og eru valin með hliðsjón af yfirferð í fyrirlestrum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LEF617M
    Lífefnafræði 4
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Áherslur í þessu námskeiði er að kynnast aðferðafræði og þeim helstu nýjungum í greiningar- og reikniaðferðum sem nýttar eru í rannsóknum í lífefnafræði. Námskeiðið er byggt upp af nokkrum námskeiðshlutum þar sem sérfræðingar á sínu sviði sinna kennslu hvers hluta. Námsefnið byggir að mestu á fyrirlestrum en einnig getur verið lagt fyrir nemendur annað námsefni, s.s. greinar eða bókarkaflar þegar við á. Einnig er mögulegt að sumir kennarar standi fyrir sýnikennslu á rannsóknartæki eða leggi fyrir hagnýt verkefni í tímunum. Nokkur verkefni verða lögð fyrir nemendur meðan námskeiðið er þreytt.

    Nýlegar rannsóknir á ýmsum sérsviðum lífefnafræðinnar verða til umfjöllunar en námshlutar geta breyst hverju sinni.

    Dæmi um sérsvið sem fjallað er um: Einsameinda litrófsgreining, massagreining próteina, byggingafræðileg lífefnafræði, bindisækniaðferðir og varmafræði og reiknifræðileg lífefnafræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • NÆR611M
    Lýðheilsunæringarfræði
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðslýsing:

    Í námskeiðinu eru kynnt helstu viðfangsefni og áskoranir lýðheilsunæringarfræðinnar en einnig aðferðir og nálganir á sviði heilsueflingar. Áhersla verður lögð á heilsueflingarverkefni á sviði næringar á vesturlöndum en einnig í þróunarlöndum. Næring er sett í samhengi við aðra heilsutengda hegðun, aðstæður fólks og lífshætti. Kynntar verða helstu kenningar um heilsutengt atferli hvaða þættir stýra neysluhegðun og hvað getur skipt máli ef unnið er að breytingum á heilsutengdri hegðun. Kynnt verða helstu næringartengdu forvarna- og heilsueflingarverkefni á Íslandi auk erlendra verkefna. Nemendur öðlast færni í að skipuleggja lýðheilsuverkefni á sviði næringar og hvernig má nota rannsóknaniðurstöður til forvarna og aðgerða sem miða að bættri heilsu. Fjallað verður um öll helstu skref í mótun og undibúningi verkefnis, framkvæmd þess og mati á árangri.

    Meðal spurninga sem leitað er svara við á námskeiðinu má nefna:

    Ráðum við því raunverulega hvað við leggum okkur til munns – eða höfum við takmarkað val?

    Ákvarðast lýðheilsa einungis af pólitík?

    Er næringarlæsi mikilvægt hugtak?

    Er mataræði þitt að eyðileggja heilsu móður jarðar?

    Færð þú eitthvað að borða ef það er stríð í útlöndum?

    Hver er ábyrgð þín á börnum sem svelta í heiminum?

    Hvað stjórnar heiminum í raun og veru?

    Viltu eiga þátt í að breyta heiminum?

    Skapaðu heilsueflingarverkefni að eigin vali.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • VIÐ404G
    Rekstrarstjórnun
    Valnámskeið
    6
    Valnámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Velkomin í Rekstrarstjórnun

    Hefurðu einhvern tíma tekið eftir því hvernig allt í kringum okkur virðist einhvern veginn bara virka? Um það snýst þetta námskeið - að afhjúpa heillandi heim ferla í fyrirtækjum sem og daglegu lífi okkar. Við munum kanna hvernig hlutirnir verða til, allt frá minnstu græjum til stærstu véla. Þetta snýst ekki bara um verksmiðjur og færibönd, heldur munum við kynna okkur hvernig allt frá þínu uppáhalds kaffihúsi til allra nýjustu tæknifyrirtækjanna nota ferla til að skila okkur vörum.
    Kafað verður ofan í hvernig á að hanna þessa ferla, halda þeim gangandi og bæta þá stöðugt.
    Vertu því tilbúin til að líta á heiminn í kringum þig á nýjan hátt, sem röð ferla sem gera líf okkar betra. Vertu tilbúin til að sjá heiminn eins og rekstrarstjóri.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    ÞJÓ609M
    Eldhúsnautnir, megrunarkúrar og matreiðsluþættir

Annað ár

Þriðja ár

Óháð námsári

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Matvælafræði veitir frábær atvinnutækifæri og yfir 90% útskrifaðra BS-nemenda ganga beint í spennandi starf við sitt hæfi. Að loknu BS-námi í matvælafræði geta nemendur sótt um starfsleyfi og réttindi til þess að kalla sig "matvælafræðing" frá Embætti landlæknis.

Á undanförnum árum hafa flestir matvælafræðingar aflað sér frekari menntunar og lokið meistaranámi. Vegna örrar þróunar í greininni er mælt með þessu og er námið í raun 5 ára nám. Sama þróun hefur átt sér stað erlendis.

Matvælafræðingar vinna fjölbreytt störf hjá einkafyrirtækjum, sprotafyrirtækjum og opinberum stofnunum í matvælaiðnaði, líftækni og lyfjaiðnaði.

Með þessa menntun gætir þú starfað við:

  • Vöruþróun
  • Nýsköpun
  • Stjórnun
  • Eftirlitsstörf
  • Ráðgjöf
  • Rannsóknir
  • Markaðsmál
  • Kennslu
  • Þróunarhjálp

Listinn er ekki tæmandi.

  • Hnallþóra er félag matvæla- og næringarfræðinema við Háskóla Íslands. Markmið félagsins er að gæta hagsmuna nemenda og efla samstöðu meðal þeirra.
  • Hnallþóra heldur uppi öflugu félagslífi, þar á meðal eru árshátíðin og reglulegar vísindaferðir og heimsóknir til fyrirtækja og stofnana sem tengjast náminu.

Meira um félagslíf stúdenta í Hí.

Umsagnir nemenda
Snorri Karl Birgisson
Ég valdi matvælafræði vegna þess að ég hafði unnið nokkur störf sem tengjast sjávarútvegi og þá vaknaði áhugi á að vita hvernig þetta allt virkaði. Með matvælafræðináminu sá ég möguleika á að öðlast meiri þekkingu á nýsköpun, stjórnun og gæðaeftirliti. Það vantar líka alltaf matvælafræðinga á vinnumarkaðinn.
Ljósmynd af Hildi Ingu Sveinsdóttur
Ég valdi matvælafræði af því að ég hef mikinn áhuga ýmsu tengdu matvælaiðnaði þá sérstaklega gæðum og öryggi matvæla. Einnig hef ég alltaf haft gaman af raungreinum og því heillaði kennsluskráin sérstaklega en þar er nokkuð mikil áhersla á efnafræði. Í framhaldi af þeirri miklu vitundarvakningu sem hefur orðið í samfélaginu er varðar mataræði og matvæli almennt tel ég atvinnumöguleika matvælafræðinga að námi loknu vera mjög góða.
Telma Björg
Nám í matvælafræði er krefjandi og fjölbreytt og gefur raunhæfa mynd af verkefnum í atvinnulífinu. Gerð ársreikninga, þróun nýrrar vöru frá grunni til lokaafurðar í samvinnu við matvælaframleiðanda, uppsetning gæðahandbókar og þjálfun í vinnubrögðun á rannsóknastofu er meðal þess sem námið býður upp á. Námið er góður stökkpallur fyrir tilvonandi gæðastjóra, framleiðslustjóra og skapandi frumkvöðla sem vilja lifa og hrærast í heimi matvæla í framtíðinni.
Páll Arnar Hauksson
Ég valdi matvælafræði vegna þess að ég vildi öðlast yfirgripsmikla þekkingu á matvælum, efnasamsetningu þeirra og vinnsluaðferðum. Ég hef sérstakan áhuga á vöruþróun og rannsóknum og sé fram á að starfa á þeim vettvangi að námi loknu.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Matvæla- og næringarfræði
Mán-fim: 9:00 - 15:00, fös: 9:00 - 12:00
Þjónusta

Við bendum á þjónustumiðju HÍ fyrir allar almennar fyrirspurnir. Einnig er hægt að mæta á Þjónustuborðið á Háskólatorgi eða nota spjallmenni HÍ hér neðst til hægri á síðunni.

Nýi Garður háskólabygging

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil