""
Tungumál kennslu
Íslenska. Stök námskeið og/eða námskeiðshluta geta verið kennd á ensku. Flestar kennslubækurnar eru á ensku eða öðrum erlendum tungumálum (t.d. dönsku eða öðrum Norðurlandamálum).
Lengd náms
Þrjú ár - 180 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Viltu fræðast um lyf frá öllum sjónarhornum?
  • Finnst þér spennandi að uppgötva og þróa ný lyf og vörur?
  • Hefur þú áhuga á raungreinum eins og efnafræði, stærðfræði og lífeðlisfræði?
  • Viltu stunda nám sem er bæði bóklegt og verklegt?
  • Langar þig í starf sem tengist flestum greinum heilbrigðisvísinda og lyfjaiðnaði?
  • Viltu hafa trygga atvinnumöguleika?

Í BS-námi í lyfjafræði er lögð áhersla á undirstöðugreinar lyfjafræðinnar,svo sem efnafræði, líffræði, stærðfræði auk ýmissa sérgreina í lyfjafræði.

Námið er byggt á fjölbreyttum kennsluháttum, fyrirlestrum, umræðutímum, verklegum æfingum, einstaklingsbundnum verkefnum, hópverkefnum og dæmatímum.

Meðal viðfangsefna

  • Efnafræði, bæði lífræn og ólífræn ásamt efnagreiningu
  • Virkni líkamans á frumu-og líffærastigi
  • Sameindalífvísindi
  • Sýkla- veiru- og örverufræði
  • Ónæmiskerfi líkamans í heilbrigðu og veiku ástandi
  • Eðlislyfjafræði
  • Bygging lyfjaefna og áhrif byggingar á verkun þess í líkamanum
  • Einangrun lyfjavirkra efna úr náttúrunni og virkni þeirra
  • Formúlering lyfja og greining á þeim og þeirra innihaldsefnum
  • Notkun nanótækni í lyfjagerð
  • Upptaka lyfja í líkamanum, umbrot þeirra og útskilnaður
  • Störf lyfjafræðinga og starfsemi apóteka

Lyfjafræðideild hefur aðsetur í byggingunni Haga við Hofsvallagötu. Þar fer kennslan að mestu fram og nemendur hafa aðstöðu og aðgang að lesrými og tölvuveri.

BS-nám í lyfjafræði er nauðsynlegur undirbúningur fyrir MS-nám í lyfjafræði en þeir sem lokið hafa MS-námi í lyfjafræði geta sótt um starfsleyfi lyfjafræðings til Landlæknis.

Til að hefja nám við Lyfjafræðideild skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu
prófi. Lokapróf frá háskólabrú Keilis eða háskólagrunni Háskólans í Reykjavík nægir til inngöngu í
Lyfjafræðideild, enda hafi viðkomandi stundað nám við verk- og raunvísindadeild eða tækni- og
verkfræðigrunn.

Gerð er krafa um að nemandi hafi lokið að lágmarki 25 einingum í stærðfræði, 10 einingum í efnafræði og 5 einingum í eðlisfræði en auk þess er gerð krafa um að nemandi hafi lokið að lágmarki samanlagt 50 einingum í þessum fögum og skyldum fögum, eins og t.d. líffræði eða lífeðlisfræði. Ofantaldar forkröfur þurfa að teljast til 2. til 4. hæfniþreps samkvæmt aðalnámsskrá framhaldsskóla.

Ef nemandi sem lokið hefur prófi frá erlendum skóla, hyggst stunda grunnnám sem kennt er á íslensku, skal hann jafnframt hafa staðist sérstakt inntökupróf í íslensku, sbr. 2. mgr. 1. gr. reglna nr. 331-2022, um inntökuskilyrði í grunnnám.

Inntökupróf í íslensku fyrir umsækjendur um nám sem kennt er á íslensku | Háskóli Íslands

Ljúka þarf 180 einingum fyrir lokapróf, 60 einingum á hverju ári. Nemandi skal hafa lokið a.m.k. 100 einingum af 1. og. 2. námsári, þar af 60 einingum af 1. námsári, áður en hann hefur nám á 3. námsári eða einstökum þáttum þess.

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Inngangur að lyfjafræði (LYF113G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er hugsað sem þverfagleg kynning á lyfjafræðistarfinu og helstu sérgreinum lyfjafræðinnar. Nemendur fá stutta kynning á lyfjalögum, lyfjastefnu, lögum um heilbrigðisþjónustu, sérlyfjaskrá og lyfjaverðskrá. Fjallað verður um ýmsar stofnanir lyfjamála og það sem þeim tengist s.s heilbrigðisráðuneytinu, Lyfjastofnun, Sjúkratryggingar Íslands, Tryggingastofnun og fleira. Fjallað verður stuttlega um vísindasvið lyfjafræðinnar, lyfhrifafræði, lyfjahvarfafræði, lyfjagerðafræði o.s.frv.

Nemendur fara í starfskynningar í apótek, heildsölur, lyfjaframleiðslufyrirtæki og fleiri stofnanir og skila skýrslum þar um. Nemendur fá kynningu á Lyfjafræðifélagi Íslands og farið verður í vettvangsferð í Lyfjafræðisafnið. Farið er í helstu atriði úr sögu lyfjafræðinnar, siðareglur lyfjafræðinga, þagnarskyldi, ábyrgð og fagmennsku.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Frumulífeðlisfræði (LYF102G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið í byggingu og starfsemi frumna og frumulíffæra, lífsameindir, stjórnun orkubúskapar og efnaskipta, boðskipti á milli frumna, lífeðlisfræðilega starfsemi taugakerfa, hormónakerfa og vöðva. Kynning á vefjaflokkum mannslíkamans.
Verklegar æfingar: Himnuspenna, boðefni og viðtakar; og beinagreindavöðvi (taugaleiðni).

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Efnisgjald er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Öryggisnámskeið fyrir rannsóknarstofur (LYF110G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
1 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Farið er yfir helstu atriði sem tengjast öryggismálum á rannsóknarstofum eins og meðhöndlun efna, viðbrögð við óhöppum og efnamengun og viðbrögð við slysum. Í námskeiðinu eru nokkur stutt verkleg verkefni á rannsóknarstofunni og námskeiðið endar á eldvarnaræfingu.

Námskeiðið er ávallt haldið í byrjun annar, áður en almenn kennsla hefst.

Nauðsynlegt er að sækja námskeiðið til að fá leyfi til að taka þátt í verklegum æfingum á rannsóknarstofum. Mögulegt upptökunámskeið er í byrjun janúar, næsta misseri.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Sameindalífvísindi A (LÆK310G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeið í sameindalífvísindum fyrir nemendur á 2. ári í lyfjafræði, næringarfræði og tannlæknisfræði. Farið verður yfir hugtök og aðferðir í erfðafræði, lífefnafræði og sameindalíffræði. Í inngangsfyrirlestrum verður gefið yfirlit yfir þessar fræðigreinar og samþættingu þeirra. Fyrirlestrar fjalla um erfðamengi, erfðaefni, litninga, mítósu og meiósu, gen, mendelskar-, mítókondríu- og fjölþátta erfðir, helstu efnaskipti DNA og erfðatækni. RNA sameindir, tjáningu gena og umritun. Amínósýrur, peptíðtengi, nýmyndun og niðurbrot próteina. Myndbygging próteina, próteinlyf, ensím og ensímhvötuð efnahvörf. Einnig verður fjallað um transgenísk tilraunadýr, lífupplýsingafræði, sameindaerfðafræði veira og genalækningar. Lögð verður áhersla á notkun þessara fræðigreina í heilbrigðisþjónustu.

Umræðutímar: Nemendasértækir umræðutímar fyrir hvern nemendahóp.

Verklegar æfingar: Einangrun og greining á DNA úr blóði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Lífræn efnafræði 1 (EFN309G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Lífræn efnafræði kemur við víðs vegar í lífinu okkar, bæði í lífheiminum okkar og í framleiðslu á hinum ýmsu vörum sem við notum dagsdaglega. Lífræn efnafræði kemur einnig fyrir í mörgum öðrum fögum, svo sem lífefnafræði, lyfjafræði, matvælafræði, og læknisfræði. Skilningur á lífrænu efnafræðinni getur hjálpað við að dýpka skilning okkar á framleiðsluferlum í efna- og matvælaiðnaði, ýmsum lífefnafræðiferlum, og virknihátt lyfja og framleiðslu þeirra.

Í þessu námskeiði verður farið yfir grunnatriði lífrænnar efnafræði. Farið verður yfir hina ýmsu virknihópa, helstu eiginleika þeirra og hvarfgirni með sérstakri áherslu á  alkana, alkena, alkyna, alkýl halíða, og arómata. Einnig verður farið yfir rúmefnafræðileg atriði og efnagreiningar lífrænna efna með NMR, IR og MS.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Almenn efnafræði L (EFN112G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Almenn og sérhæfð atriði um efnatengi og sameindabyggingu. Efnahvörf. Lofttegundir, vökvar, föst efni og lausnir. Varma- og hraðafræði efnahvarfa. Efnajafnvægi: sýru-basa, fellingar-, komplex- og afoxunar. Rafefnafræði og kjarnefnafræði.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Haust
Verkleg efnafræði 1a (EFN110G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Mólrúmmál loftkenndra efna, Efnafræðileg varmafræði,Vermi hvarfa og lögmál Hess, hraði efnahvarfa, niðurbrot vetnisperoxíðs, Le Chatelier, ákvörðun jafnvægisfasta með ljósgleypnimælingum, ákvörðun jónunarfasta sýru.

Skyldumæting er í öryggisfyrirlestur í fyrstu kennsluvikunni.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Inngangur í þverfræðileg heilbrigðisvísindi - heilbrigðisvísindadagurinn (HVS202G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
1 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er ætlað nemendum á fyrsta námsári í greinum heilbrigðisvísinda.  Sameiginlegur heilbrigðisvísindadagur nýnema allra deilda á Heilbrigðisvísindasviði í janúar ár hvert. Fjallað er um þverfaglegt samstarf og mikilvægi þess. Farið verður í grundvallarþætti samstarfsins svo sem sameiginlega sýn á réttindi til heilsu, samskipti og siðfræði. Einnig er fjallað um hlutverk og ábyrgð heilbrigðisvísinda.

Kennslutungumál: Íslenska
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Sameindalífvísindi B (LÆK408G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er fyrir nemendur á 2. ári í lyfjafræði, næringarfræði og tannlæknisfræði. Í námskeiðinu er lögð áhersla á efnaskipti og þá þætti efnaskipta sem hafa sérstaka þýðingu fyrir þessa nemahópa. Fjallað verður um háorkusambönd, efnaskipti kolvetna, fitu og amínósýra. Samhæfing efnaskipta, núkleótíð, járn, hem, lifur, hormón og næringu. Í síðasta hluta námskeiðsins sem er einungis fyrir lyfjafræðinema og tannlæknanema verður fjallað um meltingu, upptöku og virkni næringarefna með áherslu á áhrif þeirra á heilsu.

Umræðutímar: Efnaskipti

Verklegar æfingar: Einangrun próteins á súlu, mæling á próteinstyrk, rafdráttur próteina, ónæmismæling (ELISA).

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Eðlislyfjafræði I (LYF203G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um eðlisefnafræðielega eiginlega lyfjaefna sem skipta máli í lyfjafræði. Námskeiðið byggir á þekkingu nemenda úr efnafræði á haustönn 1. árs. Námskeiðið er nauðsynlegur grunnur fyrir lyfjagerðarfræði og frásog lyfja og dreifingu (lyfjahvarfafræði).
Í byrjun námskeiðs eru grunnhugtök stærðfræði fyrir lyfjafræðinemendur tekin fyrir og þeim hluta lýkur með hlutaprófi sem þarf að standast til að halda áfram í námskeiðinu. Í 2. hluta námskeiðs er farið yfir kristalbyggingar og eiginleika fastra efna. Í 3. hluta námskeiðs er farið í varmafræði og virkni. Auk þess farið í jónun lyfja. Í 4. hluta námskeiðsins er fjallað ítarlega um leysni lyfja og hvað getur haft áhrif á leysni og virkni lyfja í líkamanum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Lífræn efnafræði 2 (EFN406G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði verður fjallað ítarlega um efni sem tilheyra efnaflokkum arómatískra efnasambanda (kafli 16), alkohóla og fenóla (kafli 17), etera og epoxíða (kafli 18), þíóla og súlfíða (kafli 18), aldehýða og ketóna (kafli 19), karboxýlsýra og nítríla (kafli 20), karboxýlsýruafleiða (kafli 21), karbonynsambanda (kafli 22 og 23), auk amína og einfaldra heteróhringsambanda (kafli 24). Í gegnum fyrirlestra, dæmatíma, heimadæmi, og kaflapróf, verður lögð áhersla á hvarfganga, efnahvörf, hvarfsemi, hvarfgirni, og efnasmíðar ofangreindra efnaflokka.

Í námskeiðinu verður stuðst við WebAssign (stafrænn vettvangur heimanáms). Nemendur verða að kaupa aðgang (nánari upplýsingar verða á heimasíðu námskeiðsins).

Bókin Organic Chemistry er aðgengileg án kostnaðar í gegnum openstax.org:
https://openstax.org/details/books/organic-chemistry

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Fyrsta ár | Vor
Verkleg lífræn efnafræði L (EFN215G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Mörg þeirra efna sem við notum í okkar daglega lífi (plast, lyf, lím o.fl.) eru framleidd fyrir tilstilli lífrænnar efnafræði. Lyfjaiðnaðurinn er gott dæmi þar sem nauðsynlegt er að geta smíðað rétt efni, einangrað/hreinsað þau og borið kennsl á hvort rétt efni hafi verið smíðað.

Í þessu námskeiði munu nemendur fá þjálfun í grunnaðferðunum sem notaðar eru í verklegri lífrænni efnafræði og nýtist í efnaiðnaði. Einnig munu nemendur öðlast þjálfun í greiningu á niðurstöðum og skrifum á vísindalegum skýrslum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Lífeðlisfræði (LYF201G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu verður m.a. farið yfir eftirfarandi efnisatriði:

  • Miðtaugakerfið.
  • Skynjun, þar með talið sjón, heyrn, jafnvægi og efnaskyn.
  • Stjórn hreyfinga.
  • Hjarta og blóðrás.
  • Öndun.
  • Hitastjórnun.
  • Áreynsla.
  • Hormón.
  • Melting.
  • Nýru, vökva- og jónavægi.
  • Æxlun og þungun.

Yfirferð verður á formi fyrirlestra og samhliða umræðu. Að auki verða þrjár verklegar æfingar í námskeiðinu:

  • Skynjun.
  • Taugaleiðni og viðbrögð.
  • Hjarta og blóðrás.
Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Efnisgjald er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Störf lyfjafræðinga 1 (LYF310G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið veitir nemendum grunnþekkingu á ráðgjöf í apótekum og meðferð algengra einkenna og kvilla þar sem apótek eru oft fyrsti viðkomustaður einstaklinga. Farið verður yfir samskipti við skjólstæðinga og uppbyggingu lyfjaráðgjafar, auk algengra einkenna og kvilla frá öndunarfærum og meltingarvegi. Kennslan byggir á virkri þátttöku nemenda með Team-Based Learning (TBL), þar sem lögð er áhersla á klíníska hugsun, lausn raunhæfra tilfella og beitingu þekkingar í starfi apóteka. Einnig verður farið yfir helstu ákvæði lyfjalaga og reglugerðar um afhendingu lyfja. Í lok námskeiðs fara nemendur í tveggja vikna starfsnám í apóteki þar sem þeir vinna verkefni samhliða starfsþjálfun.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Eðlislyfjafræði II (LYF311G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er framhald af eðlislyfjafræði I og er tvískipt (tvö próf).  Í fyrri hluta námskeiðs er fjallað ítarlega um stöðugleika og niðurbrot lyfja. Í seinni hluta námskeiðs eru fjölliður teknar fyrir. Í námskeiðinu er mikilvægt að nemendur geti tengt námsefnið við lífræna efnafræði sem var kennd á 1. námsári.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Námskeið kennt fyrri hluta misseris
Annað ár | Haust
Lyfjahvarfafræði (ný kennsluskrá) (LYF314G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Eins, tveggja og þriggja hólfa kerfi. Dreifirúmmál og helmingunartími. Frásog lyfja. Aðgengi og frásogspróf. "Clearance". "First-pass" áhrif og útskilnaður lyfja um lifur. Áhrif próteinbindingar á dreifingu og útskilnað lyfja. Innrennslislyf. Fjölskömmtun, upphafsskammtur og viðhaldsskammtur. Áhrif þéttni lyfs á útskilnað þess. Útreikningar á lyfjaskömmtum. Lyfhrif, aukaverkanir og eiturverkanir. Langvirk lyfjaform. Áhersla verður lögð á stærðfræðilega útreikninga og notagildi þeirra. Umbrot lyfja í líkamanum, cytochrome P-450 ensím og flokkun þeirra, flutningsprótein fyrir lyf.

Forkröfur: Nemandi verður að kunna að reikna bestu línu (linear regression) og beita einfaldri tölfræði með notkun vasareiknivélar.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Annað ár | Haust
Lyfjagreiningar (LYF312G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
9 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn inn í notkun sérhæfðra lyfjagreiningaaðferða. Lyfjagreiningar eru notaðar við auðkenningu og magnákvörðun virkra efna og umbrotsefna í lyfjum og lífsýnum. Þessar aðferðir eru títranir, litrófsgreiningar (UV-Vis, IR, AAS, AES), vökvagreiningar (TLC, HPLC, UPLC), gasgreiningar (GC), rafdráttur (CE), massagreiningar (MS) og NMR.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Verkleg lyfjagreining (Ný kennsluskrá) (LYF313G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Sérhæfðar efnagreiningaraðferðir sem notaðar eru við lyfjamælingar verða kynntar. Efnagreiningaraðferðir sem notaðar eru við einangrun og auðkenningu lyfja ásamt aðferðum sem notaðar eru við magngreiningu lyfja. Rafeindaróf í sýnilegu og útfjólubláu ljósi, ljósmæling og vökvagreining (LC).

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Samþætt sjúkdóma og lyfjaefnafræði 1: Hjarta, æðakerfi, lungu og innkirtlar (LYF415G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um verður um einkenni, orsakir, meingerð og meðferð sem varðar Hjarta, æðakerfi, lungu og innkirtlasjúkdóma. Lögð er áhersla á verkunarhátt lyfja og áhrif þeirra á sjúklinga með hjarta- og æðasjúkdóma, lungnasjúkdóma og innkitlasjúkdóma. Í þessu námskeiði verða einnig tekin fyrir grunnhugtök í lyfhrifafræði og helstu gerðir viðtaka í líkamanum. Farið verður í meingerð og einkenni helstu sjúkdóma og klínískar leiðbeiningar við val á lyfjameðferðum. Farið verður í lyfjaefnafræði helstu flokka hjartalyfja, lungnalyfja og lyfja við innkritlasjúkdómum. Einnig er tekin fyrir klínísk aðgengisfræði, þætti eins og blóðmælingar, blóðgildi, nýrnastarfsemi o.fl. Sjúkratilfelli auk skömmtun vandmeðfarinna lyfja kemur einnig fyrir, svo sem hjartaglýkosíða. Einnig verður fjallað um algengar aukaverkanir og milliverkanir lyfja. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Lyfjaform og aðgengi 1 (LYF414G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
5 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðisins er að fjalla um þætti sem liggja til grundvallar lyfjagerð eins og dreifð kerfi, flæði vökva, hreinsun vökva, mismunandi aðferðir til að dauðhreinsa lyf og lyfjaumbúðir ætlaðar til gjafar fram hjá meltingarkerfinu (parenteral lyfjaform), síun og hjálparefni við lyfjagerð (rotvarnarefni, andoxunarefni, bragðefni, litarefni). 

Einnig munu nemendur kynnast lausnum, fleytum, dreifum, lyfjaformum á húð, augnlyfjaformum, samsetningu þeirra, aðgengi og þeim kröfum sem eru gerðar til þeirra samkvæmt Evrópsku lyfjaskránni (Ph.Eur). 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Störf lyfjafræðinga 2 (LYF411G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er hugsað sem kynning lögum og reglum sem snúa að starfsemi lyfjafræðinga. Í upphafi námskeiðs verða fyrirlestrar um lyfjalög með gestafyrirlesurum frá Lyfjastofnun, Embætti landlæknis og Sjúkratryggingum Íslands. Tekið er próf úr fræðilega hlutanum og eftir það eru tímar í hermisetrinu til þess að æfa færni í raunverulegum aðstæðum. Ákvarðanir verða að styðjast við lög og reglugerðir. Í þessu námskeiði er skyldumæting.  

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Lyfja- og efnafræði náttúruefna (LYF412G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er meðal annars farið í grunnatriði eins og annars stigs efni, vinnslu náttúruefna, hlutverk náttúruefna í lyfjauppgötvun, úrhlutunaraðferðir ásamt einangrun og auðkenningu náttúruefna. Einnig verður farið í stóra flokka náttúruefna eins og sykrur, shikimín-afleidd efnasambönd, fitur og pólýketíð. Síðar í námskeiðinu er farið í  stóra efnaflokka náttúruefna á borð við terpena, efnasambönd lífmynduð út frá amínósýrum, alkalóíða og púrín/pýrimidín sambönd.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Verkleg Lyfjaefna- og náttúruefnafræði (ný kennsluskrá) (LYF413G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið námskeiðsins er að nemendur kynnist algengum aðferðum sem notaðar eru við einangrun og auðkenningu lyfjavirkra náttúruefna. Markmið námskeiðsins er jafnframt að kynna aðferðir sem eru notaða í lyfjaefnafræði og lyfjaþróun, t.d. með hlutsmíðum á náttúruefnum. Nemendur eiga að framkvæma einfaldar efnasmíðar á líffræðilega virkum náttúruefnum. Hreinsa efnin og ákvarða hreinleika þeirra. Gera greiningar til að staðfesta efnabyggingu.  Framkvæma síðan líffræðileg próf og greina samband byggingar og virkni sem byggir á niðurstöðum fyrir efni sem nemendur hafa sjálfir smíðað ásamt efnum sem aðrir hafa smíðað. Notast verður við úrhlutanir og skiljunaraðferðir til einangrunar, efnahvörf til hlutsmíða, skiljumælingar og efnagreiningaraðferðir eins og t.d. TLC, SPE eða súluaðskiljun og HPLC ásamt UV, IR og NMR til að greina efnin.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt í lotu III
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Þriðja ár | Haust
Samþætt sjúkdóma- og lyfjaefnafræði 3: Sýkingar og lyfjameðferðir (LYF521G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um orsakir og lyfjameðferðir smitsjúkdóma.

Farið verður yfir uppbyggingu, eðli, sérkenni og mismun baktería, veira, sveppa og sníkjudýra, ásamt verklegri þjálfun á rannsóknarstofu í örverufræði. Farið verður í einkenni helstu smitsjúkdóma og klínískar leiðbeiningar við val á lyfjameðferðum. Farið verður í lyfjaefnafræði helstu flokka sýkingarlyfja, þar með talið gegn bakteríum, sveppum, veirum og sníkjudýrum. Samband byggingar og verkunar (SAR) helstu lyfjaflokka ásamt helstu frábendingum, auka- og milliverkunum. Einnig er tekin fyrir klínísk aðgengisfræði, sjúkratilfelli auk skömmtun vandmeðfarinna lyfja, svo sem vancomycin eða aminóglýkósíða.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Þriðja ár | Haust
Þverfræðileg samvinna í heilbrigðisvísindum (HVS501M)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
2 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið (2 ECTS) er ætlað nemendum á þriðja námsári eða síðar sem lokið hafa a.m.k. tveimur árum grunnnáms í greinum heilbrigðisvísinda.  Í námskeiðinu er lögð áhersla á þverfræðilega samvinnu í heilbrigðisþjónustu og mikilvægi hennar fyrir heildræna, sanngjarna og einstaklingsmiðaða þjónustu. Nemendur vinna saman í þverfræðilegum teymum að sameiginlegum verkefnum og fá tækifæri til að þjálfa sig í teymisvinnu, og efla samskipti. 

Sérstök áhersla er lögð á fjölbreytileika samfélagsins og reynslu einstaklinga og hópa sem búa við jaðarsetningu og/eða heilsuójöfnuð. Nemendur kynnast því hvernig félagslegir, menningarlegir og kerfisbundnir þættir geta haft áhrif á heilsu og aðgengi að þjónustu.

Námsmat (staðið/fallið) byggist á  verkefnavinnu, virkni í verkefnavinnu og prófum sem verða á rafrænu formi í kennslulotunni.
 
Kennslutilhögun:
Nemendum er skipt í þverfaglega námshópa í byrjun annar sem síðan skipuleggja fundartíma sínir sjálfir og skila lokaverkefnum fyrir lok október. 

Kennslutungumál: Íslenska
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Þriðja ár | Haust
Lyfjaform og aðgengi 2 (LYF522G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
7 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um hönnun og framleiðslu lyfjaforma, sem og aðgengisfræði ólíkra lyfjaleiða. Nemendur munu kynnast mismunandi lyfjaformum og lyfjaleiðum, þar á meðal lyfjaformum og lyfjagjöf um munn, til innöndunar, í nef, stungulyfjum og lyfjum í leggöng og endaþarm. Farið verður sérstaklega í framleiðslu á töflum og hylkjum þar sem atriði eins og kornastærð og eiginleikar agna, áhrif blöndunar á töfluslátt, val á hjálparefnum og húðun taflna verða kennd. Einnig verður farið sérstaklega í gæðaeftirlit töfluframleiðslu og kröfur sem eru settar fram af Ph.Eur til töfluframleiðslu.

Þá verður aðlögun lyfjaforma og lyfjagjafar til mismunandi sjúklingahópa skoðaðar, sérstaklega til barna og aldraðra.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Þriðja ár | Haust
Verkleg lyfjagerðarfræði (ný kennsluskrá) (LYF523G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
3 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Yfirgripsmikill verklegur áfangi þar sem unnið verður við grundvallaraðferðir við lyfjaframleiðslu. Almenn og sérhæfð atriði tengd helstu lyfjaformum og lyfjaframleiðslu á lausnum, dreifum, fleytum, smyrslum, kremum, áburðum, stílum, hylkjum, töflum. Ýmis hjálparefni verða notuð við lyfjagerð svo sem rotvarnarefni, andoxunarefni, bragðefni og litarefni. Blöndun duftefna, kornastærð, þurrkun, eiginleikar duftefna.

Verklegar æfingar: Almennar aðferðir samkvæmt verkhefti. Framleiðsla lyfjaforma samkvæmt forskriftum og lyfseðlum. Notast verður við lyfjastaðla og lyfjaskrár við framkæmd. Gæðaeftirlit; efnafræðilegt og tæknilegt mat á lyfjum og hjálparefnum til lyfjaframleiðslu samkvæmt gildandi lyfjastöðlum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt seinni hluta misseris
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Þriðja ár | Haust
Samþætt sjúkdóma-og lyfjaefnafærði 2: Ónæmiskerfið og lyfjameðferðir (LYF520G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið fjallar um starfsemi ónæmiskerfisins í heilbrigði og sjúkdómum, sem og verkun helstu lyfja sem hafa áhrif á ónæmissvörun, svo sem stera, ónæmisbælandi lyf og bóluefni. Áhersla er lögð á tengsl efnafræðilegrar byggingar lyfja við virkni þeirra og notkun í klínískri meðferð. 

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Þriðja ár | Vor
Samþætt sjúkdóma- og lyfjaefnafræði 4: Tauga- og geðsjúkdómar og lyfjameðferðir (LYF622G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
6 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um orsakir og lyfjameðferðir taugasjúkdóma og geðrænna kvilla.   Nánar tiltekið er farið í líffærfræði miðtaugakerfis, taugaboðefni og viðtakar þeirra, taugahrörnunarsjúkdóma og aðrir taugasjúkdóma, einnkenni, greining og meðhöndlun geðsjúkdóma og geðrænna kvilla.  Farið verður í klínískar leiðbeiningar við val á lyfjameðferðum. Farið verður í lyfjaefnafræði helstu flokka lyfja við taugahrörnunarsjúkdómum svo sem Parkinsons, Alzheimer, MS og NMD, taugsjúkdómum svo sem flogaveiki, heilaskaðar or mígreni, geðrænum kvillum eins og þunglyndi, geðrofi, oflæti og kvíða. Einnig verður fjallað um svefnlyf, sterk verkjalyf og fíkniefni.   Fjallað verður um samband byggingar og verkunar (SAR), og sameindafræðilega verkunarmát auk helstu  helstu frábendingum, auka- og milliverka þegar það á við. Einnig er tekin fyrir klínísk aðgengisfræði, sjúkratilfelli ákvörðun lyfjameðferað við taughrörnunarsjúkdómu og geðsjúkdómum.  

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Þriðja ár | Vor
Lyfjaform og aðgengi 3 (LYF623G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði fá nemendur að kynnast nanótækni í lyfjafræði sem og grunn í hönnun tilrauna (DoE). Nemendur læra sem dæmi um lyfjaform á nanóskala með það að markmiði að beita markvissri lyfjagjöf (e. passive and active targeting). Teknir verða fyrir nanólyfjaberar með fitugrunn, fjölliðugrunn, prótein-tegnda og svo líftæknihannaða (utanfrumubólur). Nýting þessara nanólyfjabera gagnvart ákveðnum sjúkdómum verður rædd og þau lyf sem eru á markaði í dag verða tekin fyrir. Greiningaraðferðir á nanólyfjaberum og reglugerðarþætti varðandi eiturverkun og öryggi þessara nanólyfjabera verða tekin fyrir

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Þriðja ár | Vor
BS verkefni (LYF618G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Markmið BS verkefnis er að takast á við áskoranir sem fylgja þróun lyfjaforma. Áskoranir felast m.a. í því að lyfjaefni og hjálparefni hafa ólíka eiginleika og þegar hanna á lyfjaform þarf að taka mið af þeim þáttum. Nemendur beita ólíkum aðferðum í verkefninu til að útbúa lyfjaform sem uppfyllir kröfur og markmið sem leiðbeinandi setur í upphafi námskeiðs.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Athugið! Þetta námskeið er ekki kennt á þessu misseri
Þriðja ár | Vor
Störf lyfjafræðinga 3 (LYF621G)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námskeiðið er starfsnám í apótekum. Umsjónarkennari námskeiðsins sér um að finna nemanda viðeigandi apótek og leiðbeinanda, í samráði við Lyfjafræðideild HÍ. Í upphafi námskeiðsins verða haldnir fyrirlestrar um náttúrlyf, náttúruvörur og fæðubótarefni. Eins verður kynnt félagslyfjafræði sem snýr að því hvernig lyf og lyfjafræðileg þjónusta hafa áhrif á samfélagið, heilbrigðiskerfið og einstaklinga. Það felur í sér að skoða hvernig lyfjanotkun, lyfjafræðileg ráðgjöf og þjónusta geta bætt heilsu, aukið öryggi og stuðlað að betri heilbrigðisþjónustu, með sérstakri áherslu á áhrif á samfélagið og notendur. Að því loknu fer nemandinn í fjögurra vikna starfsnám í því apóteki sem honum hefur verið úthlutað. Verkefni verða unnin samhliða starfsnáminu. Í þessu námskeiði er mætingarskylda.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Sjálfsnám: Nemendur vinna á sínum hraða
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár
  • Haust
  • LYF113G
    Inngangur að lyfjafræði
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er hugsað sem þverfagleg kynning á lyfjafræðistarfinu og helstu sérgreinum lyfjafræðinnar. Nemendur fá stutta kynning á lyfjalögum, lyfjastefnu, lögum um heilbrigðisþjónustu, sérlyfjaskrá og lyfjaverðskrá. Fjallað verður um ýmsar stofnanir lyfjamála og það sem þeim tengist s.s heilbrigðisráðuneytinu, Lyfjastofnun, Sjúkratryggingar Íslands, Tryggingastofnun og fleira. Fjallað verður stuttlega um vísindasvið lyfjafræðinnar, lyfhrifafræði, lyfjahvarfafræði, lyfjagerðafræði o.s.frv.

    Nemendur fara í starfskynningar í apótek, heildsölur, lyfjaframleiðslufyrirtæki og fleiri stofnanir og skila skýrslum þar um. Nemendur fá kynningu á Lyfjafræðifélagi Íslands og farið verður í vettvangsferð í Lyfjafræðisafnið. Farið er í helstu atriði úr sögu lyfjafræðinnar, siðareglur lyfjafræðinga, þagnarskyldi, ábyrgð og fagmennsku.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LYF102G
    Frumulífeðlisfræði
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið í byggingu og starfsemi frumna og frumulíffæra, lífsameindir, stjórnun orkubúskapar og efnaskipta, boðskipti á milli frumna, lífeðlisfræðilega starfsemi taugakerfa, hormónakerfa og vöðva. Kynning á vefjaflokkum mannslíkamans.
    Verklegar æfingar: Himnuspenna, boðefni og viðtakar; og beinagreindavöðvi (taugaleiðni).

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Efnisgjald er í námskeiðinu
  • LYF110G
    Öryggisnámskeið fyrir rannsóknarstofur
    Skyldunámskeið
    1
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    1 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Farið er yfir helstu atriði sem tengjast öryggismálum á rannsóknarstofum eins og meðhöndlun efna, viðbrögð við óhöppum og efnamengun og viðbrögð við slysum. Í námskeiðinu eru nokkur stutt verkleg verkefni á rannsóknarstofunni og námskeiðið endar á eldvarnaræfingu.

    Námskeiðið er ávallt haldið í byrjun annar, áður en almenn kennsla hefst.

    Nauðsynlegt er að sækja námskeiðið til að fá leyfi til að taka þátt í verklegum æfingum á rannsóknarstofum. Mögulegt upptökunámskeið er í byrjun janúar, næsta misseri.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK310G
    Sameindalífvísindi A
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeið í sameindalífvísindum fyrir nemendur á 2. ári í lyfjafræði, næringarfræði og tannlæknisfræði. Farið verður yfir hugtök og aðferðir í erfðafræði, lífefnafræði og sameindalíffræði. Í inngangsfyrirlestrum verður gefið yfirlit yfir þessar fræðigreinar og samþættingu þeirra. Fyrirlestrar fjalla um erfðamengi, erfðaefni, litninga, mítósu og meiósu, gen, mendelskar-, mítókondríu- og fjölþátta erfðir, helstu efnaskipti DNA og erfðatækni. RNA sameindir, tjáningu gena og umritun. Amínósýrur, peptíðtengi, nýmyndun og niðurbrot próteina. Myndbygging próteina, próteinlyf, ensím og ensímhvötuð efnahvörf. Einnig verður fjallað um transgenísk tilraunadýr, lífupplýsingafræði, sameindaerfðafræði veira og genalækningar. Lögð verður áhersla á notkun þessara fræðigreina í heilbrigðisþjónustu.

    Umræðutímar: Nemendasértækir umræðutímar fyrir hvern nemendahóp.

    Verklegar æfingar: Einangrun og greining á DNA úr blóði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • EFN309G
    Lífræn efnafræði 1
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Lífræn efnafræði kemur við víðs vegar í lífinu okkar, bæði í lífheiminum okkar og í framleiðslu á hinum ýmsu vörum sem við notum dagsdaglega. Lífræn efnafræði kemur einnig fyrir í mörgum öðrum fögum, svo sem lífefnafræði, lyfjafræði, matvælafræði, og læknisfræði. Skilningur á lífrænu efnafræðinni getur hjálpað við að dýpka skilning okkar á framleiðsluferlum í efna- og matvælaiðnaði, ýmsum lífefnafræðiferlum, og virknihátt lyfja og framleiðslu þeirra.

    Í þessu námskeiði verður farið yfir grunnatriði lífrænnar efnafræði. Farið verður yfir hina ýmsu virknihópa, helstu eiginleika þeirra og hvarfgirni með sérstakri áherslu á  alkana, alkena, alkyna, alkýl halíða, og arómata. Einnig verður farið yfir rúmefnafræðileg atriði og efnagreiningar lífrænna efna með NMR, IR og MS.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • EFN112G
    Almenn efnafræði L
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Almenn og sérhæfð atriði um efnatengi og sameindabyggingu. Efnahvörf. Lofttegundir, vökvar, föst efni og lausnir. Varma- og hraðafræði efnahvarfa. Efnajafnvægi: sýru-basa, fellingar-, komplex- og afoxunar. Rafefnafræði og kjarnefnafræði.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • EFN110G
    Verkleg efnafræði 1a
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Mólrúmmál loftkenndra efna, Efnafræðileg varmafræði,Vermi hvarfa og lögmál Hess, hraði efnahvarfa, niðurbrot vetnisperoxíðs, Le Chatelier, ákvörðun jafnvægisfasta með ljósgleypnimælingum, ákvörðun jónunarfasta sýru.

    Skyldumæting er í öryggisfyrirlestur í fyrstu kennsluvikunni.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Vor
  • HVS202G
    Inngangur í þverfræðileg heilbrigðisvísindi - heilbrigðisvísindadagurinn
    Skyldunámskeið
    1
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    1 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er ætlað nemendum á fyrsta námsári í greinum heilbrigðisvísinda.  Sameiginlegur heilbrigðisvísindadagur nýnema allra deilda á Heilbrigðisvísindasviði í janúar ár hvert. Fjallað er um þverfaglegt samstarf og mikilvægi þess. Farið verður í grundvallarþætti samstarfsins svo sem sameiginlega sýn á réttindi til heilsu, samskipti og siðfræði. Einnig er fjallað um hlutverk og ábyrgð heilbrigðisvísinda.

    Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem er
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LÆK408G
    Sameindalífvísindi B
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er fyrir nemendur á 2. ári í lyfjafræði, næringarfræði og tannlæknisfræði. Í námskeiðinu er lögð áhersla á efnaskipti og þá þætti efnaskipta sem hafa sérstaka þýðingu fyrir þessa nemahópa. Fjallað verður um háorkusambönd, efnaskipti kolvetna, fitu og amínósýra. Samhæfing efnaskipta, núkleótíð, járn, hem, lifur, hormón og næringu. Í síðasta hluta námskeiðsins sem er einungis fyrir lyfjafræðinema og tannlæknanema verður fjallað um meltingu, upptöku og virkni næringarefna með áherslu á áhrif þeirra á heilsu.

    Umræðutímar: Efnaskipti

    Verklegar æfingar: Einangrun próteins á súlu, mæling á próteinstyrk, rafdráttur próteina, ónæmismæling (ELISA).

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LYF203G
    Eðlislyfjafræði I
    Skyldunámskeið
    7
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um eðlisefnafræðielega eiginlega lyfjaefna sem skipta máli í lyfjafræði. Námskeiðið byggir á þekkingu nemenda úr efnafræði á haustönn 1. árs. Námskeiðið er nauðsynlegur grunnur fyrir lyfjagerðarfræði og frásog lyfja og dreifingu (lyfjahvarfafræði).
    Í byrjun námskeiðs eru grunnhugtök stærðfræði fyrir lyfjafræðinemendur tekin fyrir og þeim hluta lýkur með hlutaprófi sem þarf að standast til að halda áfram í námskeiðinu. Í 2. hluta námskeiðs er farið yfir kristalbyggingar og eiginleika fastra efna. Í 3. hluta námskeiðs er farið í varmafræði og virkni. Auk þess farið í jónun lyfja. Í 4. hluta námskeiðsins er fjallað ítarlega um leysni lyfja og hvað getur haft áhrif á leysni og virkni lyfja í líkamanum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • EFN406G
    Lífræn efnafræði 2
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði verður fjallað ítarlega um efni sem tilheyra efnaflokkum arómatískra efnasambanda (kafli 16), alkohóla og fenóla (kafli 17), etera og epoxíða (kafli 18), þíóla og súlfíða (kafli 18), aldehýða og ketóna (kafli 19), karboxýlsýra og nítríla (kafli 20), karboxýlsýruafleiða (kafli 21), karbonynsambanda (kafli 22 og 23), auk amína og einfaldra heteróhringsambanda (kafli 24). Í gegnum fyrirlestra, dæmatíma, heimadæmi, og kaflapróf, verður lögð áhersla á hvarfganga, efnahvörf, hvarfsemi, hvarfgirni, og efnasmíðar ofangreindra efnaflokka.

    Í námskeiðinu verður stuðst við WebAssign (stafrænn vettvangur heimanáms). Nemendur verða að kaupa aðgang (nánari upplýsingar verða á heimasíðu námskeiðsins).

    Bókin Organic Chemistry er aðgengileg án kostnaðar í gegnum openstax.org:
    https://openstax.org/details/books/organic-chemistry

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • EFN215G
    Verkleg lífræn efnafræði L
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Mörg þeirra efna sem við notum í okkar daglega lífi (plast, lyf, lím o.fl.) eru framleidd fyrir tilstilli lífrænnar efnafræði. Lyfjaiðnaðurinn er gott dæmi þar sem nauðsynlegt er að geta smíðað rétt efni, einangrað/hreinsað þau og borið kennsl á hvort rétt efni hafi verið smíðað.

    Í þessu námskeiði munu nemendur fá þjálfun í grunnaðferðunum sem notaðar eru í verklegri lífrænni efnafræði og nýtist í efnaiðnaði. Einnig munu nemendur öðlast þjálfun í greiningu á niðurstöðum og skrifum á vísindalegum skýrslum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LYF201G
    Lífeðlisfræði
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu verður m.a. farið yfir eftirfarandi efnisatriði:

    • Miðtaugakerfið.
    • Skynjun, þar með talið sjón, heyrn, jafnvægi og efnaskyn.
    • Stjórn hreyfinga.
    • Hjarta og blóðrás.
    • Öndun.
    • Hitastjórnun.
    • Áreynsla.
    • Hormón.
    • Melting.
    • Nýru, vökva- og jónavægi.
    • Æxlun og þungun.

    Yfirferð verður á formi fyrirlestra og samhliða umræðu. Að auki verða þrjár verklegar æfingar í námskeiðinu:

    • Skynjun.
    • Taugaleiðni og viðbrögð.
    • Hjarta og blóðrás.
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Efnisgjald er í námskeiðinu
  • Haust
  • LYF310G
    Störf lyfjafræðinga 1
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið veitir nemendum grunnþekkingu á ráðgjöf í apótekum og meðferð algengra einkenna og kvilla þar sem apótek eru oft fyrsti viðkomustaður einstaklinga. Farið verður yfir samskipti við skjólstæðinga og uppbyggingu lyfjaráðgjafar, auk algengra einkenna og kvilla frá öndunarfærum og meltingarvegi. Kennslan byggir á virkri þátttöku nemenda með Team-Based Learning (TBL), þar sem lögð er áhersla á klíníska hugsun, lausn raunhæfra tilfella og beitingu þekkingar í starfi apóteka. Einnig verður farið yfir helstu ákvæði lyfjalaga og reglugerðar um afhendingu lyfja. Í lok námskeiðs fara nemendur í tveggja vikna starfsnám í apóteki þar sem þeir vinna verkefni samhliða starfsþjálfun.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LYF311G
    Eðlislyfjafræði II
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er framhald af eðlislyfjafræði I og er tvískipt (tvö próf).  Í fyrri hluta námskeiðs er fjallað ítarlega um stöðugleika og niðurbrot lyfja. Í seinni hluta námskeiðs eru fjölliður teknar fyrir. Í námskeiðinu er mikilvægt að nemendur geti tengt námsefnið við lífræna efnafræði sem var kennd á 1. námsári.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Námskeið kennt fyrri hluta misseris
  • LYF314G
    Lyfjahvarfafræði (ný kennsluskrá)
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Eins, tveggja og þriggja hólfa kerfi. Dreifirúmmál og helmingunartími. Frásog lyfja. Aðgengi og frásogspróf. "Clearance". "First-pass" áhrif og útskilnaður lyfja um lifur. Áhrif próteinbindingar á dreifingu og útskilnað lyfja. Innrennslislyf. Fjölskömmtun, upphafsskammtur og viðhaldsskammtur. Áhrif þéttni lyfs á útskilnað þess. Útreikningar á lyfjaskömmtum. Lyfhrif, aukaverkanir og eiturverkanir. Langvirk lyfjaform. Áhersla verður lögð á stærðfræðilega útreikninga og notagildi þeirra. Umbrot lyfja í líkamanum, cytochrome P-450 ensím og flokkun þeirra, flutningsprótein fyrir lyf.

    Forkröfur: Nemandi verður að kunna að reikna bestu línu (linear regression) og beita einfaldri tölfræði með notkun vasareiknivélar.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LYF312G
    Lyfjagreiningar
    Skyldunámskeið
    9
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    9 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að veita nemendum innsýn inn í notkun sérhæfðra lyfjagreiningaaðferða. Lyfjagreiningar eru notaðar við auðkenningu og magnákvörðun virkra efna og umbrotsefna í lyfjum og lífsýnum. Þessar aðferðir eru títranir, litrófsgreiningar (UV-Vis, IR, AAS, AES), vökvagreiningar (TLC, HPLC, UPLC), gasgreiningar (GC), rafdráttur (CE), massagreiningar (MS) og NMR.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LYF313G
    Verkleg lyfjagreining (Ný kennsluskrá)
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Sérhæfðar efnagreiningaraðferðir sem notaðar eru við lyfjamælingar verða kynntar. Efnagreiningaraðferðir sem notaðar eru við einangrun og auðkenningu lyfja ásamt aðferðum sem notaðar eru við magngreiningu lyfja. Rafeindaróf í sýnilegu og útfjólubláu ljósi, ljósmæling og vökvagreining (LC).

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Vor
  • LYF415G
    Samþætt sjúkdóma og lyfjaefnafræði 1: Hjarta, æðakerfi, lungu og innkirtlar
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um verður um einkenni, orsakir, meingerð og meðferð sem varðar Hjarta, æðakerfi, lungu og innkirtlasjúkdóma. Lögð er áhersla á verkunarhátt lyfja og áhrif þeirra á sjúklinga með hjarta- og æðasjúkdóma, lungnasjúkdóma og innkitlasjúkdóma. Í þessu námskeiði verða einnig tekin fyrir grunnhugtök í lyfhrifafræði og helstu gerðir viðtaka í líkamanum. Farið verður í meingerð og einkenni helstu sjúkdóma og klínískar leiðbeiningar við val á lyfjameðferðum. Farið verður í lyfjaefnafræði helstu flokka hjartalyfja, lungnalyfja og lyfja við innkritlasjúkdómum. Einnig er tekin fyrir klínísk aðgengisfræði, þætti eins og blóðmælingar, blóðgildi, nýrnastarfsemi o.fl. Sjúkratilfelli auk skömmtun vandmeðfarinna lyfja kemur einnig fyrir, svo sem hjartaglýkosíða. Einnig verður fjallað um algengar aukaverkanir og milliverkanir lyfja. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LYF414G
    Lyfjaform og aðgengi 1
    Skyldunámskeið
    5
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    5 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðisins er að fjalla um þætti sem liggja til grundvallar lyfjagerð eins og dreifð kerfi, flæði vökva, hreinsun vökva, mismunandi aðferðir til að dauðhreinsa lyf og lyfjaumbúðir ætlaðar til gjafar fram hjá meltingarkerfinu (parenteral lyfjaform), síun og hjálparefni við lyfjagerð (rotvarnarefni, andoxunarefni, bragðefni, litarefni). 

    Einnig munu nemendur kynnast lausnum, fleytum, dreifum, lyfjaformum á húð, augnlyfjaformum, samsetningu þeirra, aðgengi og þeim kröfum sem eru gerðar til þeirra samkvæmt Evrópsku lyfjaskránni (Ph.Eur). 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LYF411G
    Störf lyfjafræðinga 2
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er hugsað sem kynning lögum og reglum sem snúa að starfsemi lyfjafræðinga. Í upphafi námskeiðs verða fyrirlestrar um lyfjalög með gestafyrirlesurum frá Lyfjastofnun, Embætti landlæknis og Sjúkratryggingum Íslands. Tekið er próf úr fræðilega hlutanum og eftir það eru tímar í hermisetrinu til þess að æfa færni í raunverulegum aðstæðum. Ákvarðanir verða að styðjast við lög og reglugerðir. Í þessu námskeiði er skyldumæting.  

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LYF412G
    Lyfja- og efnafræði náttúruefna
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er meðal annars farið í grunnatriði eins og annars stigs efni, vinnslu náttúruefna, hlutverk náttúruefna í lyfjauppgötvun, úrhlutunaraðferðir ásamt einangrun og auðkenningu náttúruefna. Einnig verður farið í stóra flokka náttúruefna eins og sykrur, shikimín-afleidd efnasambönd, fitur og pólýketíð. Síðar í námskeiðinu er farið í  stóra efnaflokka náttúruefna á borð við terpena, efnasambönd lífmynduð út frá amínósýrum, alkalóíða og púrín/pýrimidín sambönd.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LYF413G
    Verkleg Lyfjaefna- og náttúruefnafræði (ný kennsluskrá)
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið námskeiðsins er að nemendur kynnist algengum aðferðum sem notaðar eru við einangrun og auðkenningu lyfjavirkra náttúruefna. Markmið námskeiðsins er jafnframt að kynna aðferðir sem eru notaða í lyfjaefnafræði og lyfjaþróun, t.d. með hlutsmíðum á náttúruefnum. Nemendur eiga að framkvæma einfaldar efnasmíðar á líffræðilega virkum náttúruefnum. Hreinsa efnin og ákvarða hreinleika þeirra. Gera greiningar til að staðfesta efnabyggingu.  Framkvæma síðan líffræðileg próf og greina samband byggingar og virkni sem byggir á niðurstöðum fyrir efni sem nemendur hafa sjálfir smíðað ásamt efnum sem aðrir hafa smíðað. Notast verður við úrhlutanir og skiljunaraðferðir til einangrunar, efnahvörf til hlutsmíða, skiljumælingar og efnagreiningaraðferðir eins og t.d. TLC, SPE eða súluaðskiljun og HPLC ásamt UV, IR og NMR til að greina efnin.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt í lotu III
  • Haust
  • Ekki kennt á misserinu
    LYF521G
    Samþætt sjúkdóma- og lyfjaefnafræði 3: Sýkingar og lyfjameðferðir
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um orsakir og lyfjameðferðir smitsjúkdóma.

    Farið verður yfir uppbyggingu, eðli, sérkenni og mismun baktería, veira, sveppa og sníkjudýra, ásamt verklegri þjálfun á rannsóknarstofu í örverufræði. Farið verður í einkenni helstu smitsjúkdóma og klínískar leiðbeiningar við val á lyfjameðferðum. Farið verður í lyfjaefnafræði helstu flokka sýkingarlyfja, þar með talið gegn bakteríum, sveppum, veirum og sníkjudýrum. Samband byggingar og verkunar (SAR) helstu lyfjaflokka ásamt helstu frábendingum, auka- og milliverkunum. Einnig er tekin fyrir klínísk aðgengisfræði, sjúkratilfelli auk skömmtun vandmeðfarinna lyfja, svo sem vancomycin eða aminóglýkósíða.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • HVS501M
    Þverfræðileg samvinna í heilbrigðisvísindum
    Skyldunámskeið
    2
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið (2 ECTS) er ætlað nemendum á þriðja námsári eða síðar sem lokið hafa a.m.k. tveimur árum grunnnáms í greinum heilbrigðisvísinda.  Í námskeiðinu er lögð áhersla á þverfræðilega samvinnu í heilbrigðisþjónustu og mikilvægi hennar fyrir heildræna, sanngjarna og einstaklingsmiðaða þjónustu. Nemendur vinna saman í þverfræðilegum teymum að sameiginlegum verkefnum og fá tækifæri til að þjálfa sig í teymisvinnu, og efla samskipti. 

    Sérstök áhersla er lögð á fjölbreytileika samfélagsins og reynslu einstaklinga og hópa sem búa við jaðarsetningu og/eða heilsuójöfnuð. Nemendur kynnast því hvernig félagslegir, menningarlegir og kerfisbundnir þættir geta haft áhrif á heilsu og aðgengi að þjónustu.

    Námsmat (staðið/fallið) byggist á  verkefnavinnu, virkni í verkefnavinnu og prófum sem verða á rafrænu formi í kennslulotunni.
     
    Kennslutilhögun:
    Nemendum er skipt í þverfaglega námshópa í byrjun annar sem síðan skipuleggja fundartíma sínir sjálfir og skila lokaverkefnum fyrir lok október. 

    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Ekki kennt á misserinu
    LYF522G
    Lyfjaform og aðgengi 2
    Skyldunámskeið
    7
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    7 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um hönnun og framleiðslu lyfjaforma, sem og aðgengisfræði ólíkra lyfjaleiða. Nemendur munu kynnast mismunandi lyfjaformum og lyfjaleiðum, þar á meðal lyfjaformum og lyfjagjöf um munn, til innöndunar, í nef, stungulyfjum og lyfjum í leggöng og endaþarm. Farið verður sérstaklega í framleiðslu á töflum og hylkjum þar sem atriði eins og kornastærð og eiginleikar agna, áhrif blöndunar á töfluslátt, val á hjálparefnum og húðun taflna verða kennd. Einnig verður farið sérstaklega í gæðaeftirlit töfluframleiðslu og kröfur sem eru settar fram af Ph.Eur til töfluframleiðslu.

    Þá verður aðlögun lyfjaforma og lyfjagjafar til mismunandi sjúklingahópa skoðaðar, sérstaklega til barna og aldraðra.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    LYF523G
    Verkleg lyfjagerðarfræði (ný kennsluskrá)
    Skyldunámskeið
    3
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    3 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Yfirgripsmikill verklegur áfangi þar sem unnið verður við grundvallaraðferðir við lyfjaframleiðslu. Almenn og sérhæfð atriði tengd helstu lyfjaformum og lyfjaframleiðslu á lausnum, dreifum, fleytum, smyrslum, kremum, áburðum, stílum, hylkjum, töflum. Ýmis hjálparefni verða notuð við lyfjagerð svo sem rotvarnarefni, andoxunarefni, bragðefni og litarefni. Blöndun duftefna, kornastærð, þurrkun, eiginleikar duftefna.

    Verklegar æfingar: Almennar aðferðir samkvæmt verkhefti. Framleiðsla lyfjaforma samkvæmt forskriftum og lyfseðlum. Notast verður við lyfjastaðla og lyfjaskrár við framkæmd. Gæðaeftirlit; efnafræðilegt og tæknilegt mat á lyfjum og hjálparefnum til lyfjaframleiðslu samkvæmt gildandi lyfjastöðlum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt seinni hluta misseris
  • Ekki kennt á misserinu
    LYF520G
    Samþætt sjúkdóma-og lyfjaefnafærði 2: Ónæmiskerfið og lyfjameðferðir
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið fjallar um starfsemi ónæmiskerfisins í heilbrigði og sjúkdómum, sem og verkun helstu lyfja sem hafa áhrif á ónæmissvörun, svo sem stera, ónæmisbælandi lyf og bóluefni. Áhersla er lögð á tengsl efnafræðilegrar byggingar lyfja við virkni þeirra og notkun í klínískri meðferð. 

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • Ekki kennt á misserinu
    LYF622G
    Samþætt sjúkdóma- og lyfjaefnafræði 4: Tauga- og geðsjúkdómar og lyfjameðferðir
    Skyldunámskeið
    6
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um orsakir og lyfjameðferðir taugasjúkdóma og geðrænna kvilla.   Nánar tiltekið er farið í líffærfræði miðtaugakerfis, taugaboðefni og viðtakar þeirra, taugahrörnunarsjúkdóma og aðrir taugasjúkdóma, einnkenni, greining og meðhöndlun geðsjúkdóma og geðrænna kvilla.  Farið verður í klínískar leiðbeiningar við val á lyfjameðferðum. Farið verður í lyfjaefnafræði helstu flokka lyfja við taugahrörnunarsjúkdómum svo sem Parkinsons, Alzheimer, MS og NMD, taugsjúkdómum svo sem flogaveiki, heilaskaðar or mígreni, geðrænum kvillum eins og þunglyndi, geðrofi, oflæti og kvíða. Einnig verður fjallað um svefnlyf, sterk verkjalyf og fíkniefni.   Fjallað verður um samband byggingar og verkunar (SAR), og sameindafræðilega verkunarmát auk helstu  helstu frábendingum, auka- og milliverka þegar það á við. Einnig er tekin fyrir klínísk aðgengisfræði, sjúkratilfelli ákvörðun lyfjameðferað við taughrörnunarsjúkdómu og geðsjúkdómum.  

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    LYF623G
    Lyfjaform og aðgengi 3
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði fá nemendur að kynnast nanótækni í lyfjafræði sem og grunn í hönnun tilrauna (DoE). Nemendur læra sem dæmi um lyfjaform á nanóskala með það að markmiði að beita markvissri lyfjagjöf (e. passive and active targeting). Teknir verða fyrir nanólyfjaberar með fitugrunn, fjölliðugrunn, prótein-tegnda og svo líftæknihannaða (utanfrumubólur). Nýting þessara nanólyfjabera gagnvart ákveðnum sjúkdómum verður rædd og þau lyf sem eru á markaði í dag verða tekin fyrir. Greiningaraðferðir á nanólyfjaberum og reglugerðarþætti varðandi eiturverkun og öryggi þessara nanólyfjabera verða tekin fyrir

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • LYF618G
    BS verkefni
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Markmið BS verkefnis er að takast á við áskoranir sem fylgja þróun lyfjaforma. Áskoranir felast m.a. í því að lyfjaefni og hjálparefni hafa ólíka eiginleika og þegar hanna á lyfjaform þarf að taka mið af þeim þáttum. Nemendur beita ólíkum aðferðum í verkefninu til að útbúa lyfjaform sem uppfyllir kröfur og markmið sem leiðbeinandi setur í upphafi námskeiðs.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Ekki kennt á misserinu
    LYF621G
    Störf lyfjafræðinga 3

Annað ár

Þriðja ár

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Ljúka þarf MS-námi til að fá starfsleyfi lyfjafræðings. Fjölbreytt nám á breiðum grunni gerir lyfjafræðinga eftirsótta í atvinnulífinu og þeirra bíða spennandi atvinnutækifæri að námi loknu. Lyfjafræðingar starfa víða en algengast er að þeir starfi í lyfjaiðnaði, í apótekum, við markaðsmál eða á sjúkrahúsum.

Dæmi um starfsvettvang:

  • Framleiðsla og hönnun lyfja
  • Gæðaeftirlit og skráning lyfja innan lyfjafyrirtækja
  • Inn- og útflutningur lyfja og markaðsmál
  • Ráðgjöf, eftirlit, stjórnun og afgreiðsla lyfja í apótekum
  • Ráðgjöf til annarra heilbrigðisstarfsmanna
  • Skipulag og eftirlit með lyfjameðferð innan spítala og heilbrigðisstofnana
  • Framleiðsla lyfja- og næringablanda

Listinn er ekki tæmandi.

Tinktúra, félag lyfjafræðinema heldur uppi félagslífi og stendur vörð um hagsmuni lyfjafræðinema.

Félagið er aðili að alþjóðlegum samtökum lyfjafræðinema, IPSF og EPSA sem sjá um að miðla upplýsingum milli nemenda um þróun og nýjungar í náminu og störfum lyfjafræðinga. Tinktúra er einnig aðili að IAESTE, alþjóðlegum samtökum nema í raun- og heilbrigðisvísindum.

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Markúsi Leví Stefánssyni
Ég valdi lyfjafræði því ég hafði áhuga á lífrænni efnafræði og datt í hug að lyfjafræðin gæti skapað mér einhverja starfsmöguleika út frá því áhugamáli. Ég sé fram á frábæra starfsmöguleika jafnt hérlendis og erlendis þar sem námið er afar hagnýtt. Það verður ávallt þörf fyrir lyfjafræðinga og þeirra störf. Á síðastliðnum 3 árum hef ég kynnst bestu samnemendunum, unnið með frábærum kennurum og starfað innan skilningsríkrar deildar. Mér hefði aldrei dottið í hug að lyfjafræðinám myndi enda á því að verða nokkur af bestu árum lífs míns. Í gegnum námið þá hef ég lært svo margt um hvernig heimurinn hefur áhrif á líkamann og hvernig ég hef áhrif á umheiminn. Ég hef þar með öðlast töluvert betri skilning á sjálfum mér og öllu sem ég er. Ég horfi á Haga sem annað heimili þar sem alltaf er hlýlegt viðmót. Lyfjafræði, takk fyrir mig!
Ljósmynd af Kristínu Rún Gunnarsdóttur
Það kom mér á óvart hversu fjölbreyttur starfsvettvangur opnast að loknu námi í lyfjafræði. Á fyrsta ári í BS náminu fékk ég að kynnast ýmsum starfstöðvum lyfjafræðinga; allt frá apótekum til framleiðslu og innflutnings á lyfjum. Ástæðan fyrir því að lyfjafræði varð fyrir valinu er líklega vegna mikils áhuga á efnafræði úr menntaskóla, en þó svo að náminu fylgi töluverð efnafræði er svo margt fleira sem hefur vakið áhuga minn. Þar má t.d nefna námskeið í gæðakröfum og regluverki í lyfjaframleiðslu. Ég hóf störf hjá fyrirtækinu Alvotech eftir námið og hefur þekkingin og reynslan sem mér hefur áskotnast í hinum ýmsu námskeiðum lyfjafræðinnar nýst vel þar.
Ljósmynd af Ísaki Mána Stefánssyni
Ég valdi lyfjafræði vegna þess að það er fjölbreytt og alþjóðlegt nám sem er skemmtileg blanda af efnafræði og lífeðlisfræði, auk þess að snerta lítillega greinar félagsvísinda. Lyfjafræðingar eru eftirsóttir starfsmenn og þeir gegna mikilvægum störfum sem tengjast flestum sviðum heilbrigðisgeirans. Sem dæmi má nefna uppgötvun og þróun nýrra lyfjavirkra efna, markaðssetningu, rannsóknum og að veita almenningi og heilbrigðisstarfsfólki lyfjafræðilega þjónustu. Lyfjaiðnaðurinn á Íslandi fer hratt vaxandi sem býður upp á spennandi framtíðar möguleika.
Ljósmynd af Guðrúnu Sigríði Þórhallsdóttur
Lyfjafræðinámið er fjölbreytt og verkleg kennsla brýtur upp hefðbundið fyrirkomulag fyrirlestra. Kennslan er mjög persónuleg og góð tengsl myndast við kennarana. BS-verkefnið var klárlega punkturinn yfir i-ið og fengum við það verkefni að þróa og framleiða lyf. Það var skemmtilegt að finna það að allt sem við höfðum lært síðustu þrjú árin tvinnaðist saman og gerði okkur kleift að vinna að virkilega krefjandi en flottum verkefnum. Ég hef fengið tækifæri til að kynnast störfum tengdum náminu, ég hef bæði unnið á Rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði og á þróunarsviði hjá líftæknifyrirtækinu Alvotech.
Ljósmynd af Kristófer Hauki Haukssyni
Ég valdi lyfjafræðina vegna þess að það er skemmtileg blanda af lífvísindum og efnafræði. Auk þess eru kennsluhættir í náminu mjög fjölbreyttir þar sem við fáum oft að vinna með þau efni og þær aðferðir sem við lærum um í bóklega hlutanum til þess að fá betri tök og skilning á náminu. Félagslífið er rosalega sterkt í deildinni og við höfum myndað lítið samfélag fyrir okkur þar sem allir frá öllum árgöngum þekkjast og svo heldur Tinktúra uppi fjörinu alveg einstaklega vel. Lyfjafræðingar eru mjög eftirsóknarverðir starfskraftar og þegar komið er út á vinnumarkaðinn að námi loknu er leiðin greið. Sjálfur stefni ég á vinnu í rannsóknarstarfi en framtíðin er björt og enginn veit hvað hún ber í skauti sér.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu grunnnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Lyfjafræði
Virka daga 10:00 – 12:00 og 13:00 – 15:00
Þjónusta

Við bendum á þjónustumiðju HÍ fyrir allar almennar fyrirspurnir. Einnig er hægt að mæta á Þjónustuborðið á Háskólatorgi eða nota spjallmenni HÍ hér neðst til hægri á síðunni.

""

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil