""
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækurnar eru á ensku.
Lengd náms
Fullt nám í tvö námsár (að loknu BS námi í hjúkrunarfræði).
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Langar þig að starfa við krefjandi, skemmtileg og gefandi verkefni?
  • Getur þú hugsað þér að vera í persónulegum tengslum við verðandi mæður?
  • Hefur þú áhuga á umönnun, fræðslu, ráðgjöf og forvörnum?
  • Vilt þú styðja við fjölskyldu móður á meðgöngu, í fæðingu og eftir fæðingu?
  • Heillar þig að vinna fjölbreytt starf sem felur í sér stuðning við verðandi foreldra?

MS nám í ljósmóðurfræði er fræðilegt og starfstengt nám á framhaldsstigi þar sem nemendur öðlast þekkingu, þjálfun og færni til þess að sinna fjölbreyttu starfi sem felur í sér stuðning við verðandi foreldra, heildræna umönnun, fræðslu, ráðgjöf og forvarnir.

Við námsbraut í ljósmóðurfræði fer fram öflugt rannsóknastarf og nemendur eiga kost á því að tengjast alþjóðlegu rannsóknasamstarfi. 

Stór hluti námsins fer fram á vettvangi í klíníkskri starfsþjálfun á sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum, á fæðingarstofum og í heimahúsum.

Uppbygging náms

Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára.

Námið skiptist í:

  • Námskeið, 35 einingar
  • Starfsþjálfun á vettvangi, 55 einingar
  • Lokaverkefni, 30 einingar

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á íslensku og flestar kennslubækur eru á ensku.

Námskeiðin eru kennt í lotum og fá nemendur þannig tækifæri til þess að einbeita sér betur að því námskeiði sem er í gangi á hverjum tíma. Mætingarskylda er í skyldunámskeiðum.

Klínisk starfsþjálfun fer fram á sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum, á fæðingarstofu og í heimahúsum.

Meginmarkmið

Er að veita nemendum kennslu sem byggð er á gagnreyndri þekkingu í starfsþjálfun með klínískum fræðilegum verkefnum.

Annað

Að námi loknu öðlast nemendur réttindum til þess að sækja um starfsleyfi ljósmóður til Embættis landlæknis.

Námið veitir aðgang að doktorsnámi.

Inntökuskilyrði er BS-gráða í hjúkrunarfræði og íslenskt hjúkrunarleyfi. Við inntöku í meistaranám í ljósmóðurfræði til starfsréttinda gildir sú meginregla að umsækjandi hafi lokið BS-prófi í hjúkrunarfræði með fyrstu einkunn (7.25). Forkrafa fyrir umsókn er einnig að hafa lokið tilteknum valnámskeiðum á 4. ári í hjúkrunarfræði við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands, Kynheilbrigði 6e (vor) og Konur, heilsa og samfélag 6e (vor) eða Heilbrigði kvenna 10e kennt við HA. Þessi námskeið eru kennd á vormisseri.

Fjöldatakmörkun er í námið. Árlega eru allt að 14 nemendur teknir inn. Því er umsækjendum bent á að sækja um annað nám samhliða (fleiri en eina umsókn) svo eigi inni umsókn ef komast ekki að.

Sjá nánar á vef Hjúkrunarfræðideildar.

Námið skiptist í 65 eininga fræðilegt nám, sem lýkur með 30 eininga meistaraverkefni, og starfsþjálfun (u.þ.b. 1600 stundir) sem metin er til 55 eininga. Ásamt bóklegri kennslu er byggt á gagnreyndri þekkingu í starfsþjálfun með klínískum fræðilegum verkefnum, munnlegum og skriflegum prófum. Klínisk starfsþjálfun fer fram á sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum, á fæðingarstofu og í heimahúsum.

Á seinna námsári vinna nemendur meistaraverkefni sín þar sem leitast er við að gefa þeim tækifæri til að efla þekkingu sína á ákveðnum sérsviðum ljósmóðurfræðinnar.

 ATH: Hvert námskeið er nauðsynleg undirstaða og forkrafa fyrir næsta námskeið. Því er ekki hægt að raða námskeiðum upp öðruvísi en  gefið er upp í kennsluskrá. Námshlé, t.d. vegna barneigna á námstímanum, þýðir seinkun í náminu um eitt ár. Sækja þarf um námsleyfi til námsbrautar í ljósmóðurfræði.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Ferilskrá (CV)
  • Greinargerð um markmið með námi
  • Meðmælandi 1, nafn og netfang
  • Meðmælandi 2, nafn og netfang
  • Prófskírteini/námsyfirlit

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Fyrsta ár | Haust
Þekking og aðferðir í ljósmóðurfræði (LJÓ110F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um sögu, menntun, þekkingarþróun og starfsvettvang ljósmæðra. Farið er yfir þróun menntunar ljósmæðra og hún skoðuð í alþjóðlegu samhengi. Áhrifamiklar hugmyndir í ljósmóðurfræði verða ræddar og leitast við að skoða hvernig þær hafa haft áhrif á eðli starfsins síðustu áratugi. Fjallað er um lög, siðareglur, siðfræðileg álitaefni og gagnreynda þekkingu í ljósmóðurstarfi.  Starfsvettvangur ljósmæðra er kynntur og farið verður í eina vettvangsheimsókn því tengt.

Helstu rannsóknaaðferðir í ljósmóðurfræði verða kynntar og grundvallarhugtök eru skoðuð s.s. upplýst val, sjálfræði, samfelld þjónusta o.fl.  Fjallað er um hugtakagreiningu og ritrýni fræðigreina.

Kennslutungumál: Íslenska
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt í lotu I
Fyrsta ár | Haust
Barneignarferli I – Meðganga, fæðing og sængurlega (LJÓ111F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði er fjallað um gagnreynda þekkingu á eðlilegu barneignarferli, á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu. Fjallað er áfram um mikilvæg hugtök í ljósmóðurfræði s.s. upplýst val og sjálfræði.

Byggt er á grunnhugmyndafræði ljósmóðurfræðinnar um barneign sem eðlilegt ferli og siðferðilegum álitamálum velt upp varðandi öryggi og notkun inngripa, meðferða og tækni í barneignaferlinu. Fjallað er um meðgönguvernd, umönnun í fæðingu og sængurlegu í eðlilegu ferli, brjóstagjöf og nýburann. Helstu rannsóknir og skimanir eru kynntar og fjallað er um hugmyndafræði ljósmæðra, heilsueflingu og mismunandi þjónustuform.

Kennslutungumál: Íslenska
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Nýburamat (LJÓ112F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Þar af 1 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Í heilsufarsmati nýbura er áhersla bæði á hrausta og veika nýburann, endurlífgun og gjörgæslu, auk klínískra verkefna. Rætt er um sorg og missi í barneignarferlinu. Litið er á umönnun kvenna sem heildrænt ferli þar sem öll fjölskyldan er tekin með inn í meðferð, upplýsingagjöf og umönnun. Áhersla er á upplýst val og samráð við ákvarðanatöku.

Kennslutungumál: Íslenska
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Haust
Klínisk starfsþjálfun I (LJÓ108F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
12 einingar, ETCS
Þar af 12 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Í þessu klíníska framhaldsnámskeiði er áhersla á eðlilegt barneignarferli, á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu. Áfram er áhersla á gagnreynda þekkingu og starfshætti, samfellda þjónustu, menningarhæfni og heildræna einstaklings- og fjölskyldumiðaða umönnun. Æfingar í klínískri færni fara fram í færnisetri og á starfsvettvangi. Klínísk kennsla fer fram innan og utan sjúkrahúsa með það fyrir augum að fræði og færni tengist á heildrænan hátt. Nemendur þjálfast í og öðlast fjölþætta klíníska færni og sérhæfða þekkingu um eðlilegt barneignaferli.

Kennslutungumál: Íslenska
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Barneignarferli II – frávik og meðferðir (LJÓ210F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Þar af 4 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Í þessu námskeiði er fjallað um gagnreynda þekkingu á frávikum, sjúkdómum og áhættuþáttum í barneignarferlinu, á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu. Byggt er á grunnhugmyndafræði ljósmóðurfræðinnar um barneign sem eðlilegt ferli og siðferðilegum álitamálum velt upp varðandi öryggi og notkun inngripa, meðferða og tækni í barneignarferli með frávikum. Rætt er um sorg og missi í barneignarferlinu. Litið er á umönnun kvenna sem heildrænt ferli þar sem öll fjölskyldan er tekin með inn í meðferð, upplýsingagjöf og umönnun. Áhersla er á upplýst val og samráð við ákvarðanatöku.

Kennslutungumál: Íslenska
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Námskeið kennt í lotu I
Fyrsta ár | Vor
Klínísk starfsþjálfun II (LJÓ205F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Þar af 10 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Í þessu klíníska framhaldsnámskeiði er áhersla á frávik og meðferðir í barneignarferlinu, á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu. Áfram er áhersla á gagnreynda þekkingu og starfshætti, samfellda þjónustu, menningarhæfni og heildræna einstaklings- og fjölskyldumiðaða umönnun. Æfingar í klínískri færni fara fram í færnisetri og á starfsvettvangi. Klínísk kennsla fer fram innan og utan sjúkrahúsa með það fyrir augum að fræði og færni tengist á heildrænan hátt. Nemendur þjálfast í og öðlast fjölþætta klíníska færni og sérhæfða þekkingu um frávik og meðferðir í barneignarferli.

Kennslutungumál: Íslenska
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Ráðgjöf um getnaðarvarnir (LJÓ203F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
4 einingar, ETCS
Þar af 1 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Almenn umfjöllun er um lög og reglur varðandi lyfjaávísanir og ábyrgðarskyldu heilbrigðisstarfsmanna. Farið er í lyfjafræði hormónagetnaðarvarna út frá áhrifum þeirra á líkamann og milliverkun lyfja. Gerð er grein fyrir helstu frábendingum getnaðarvarna og hvað skuli varast við ávísun þeirra. Lögð er áhersla á heilsufarssögu og fleiri áhrifaþætti (viðhorf, þekkingu, reynslu...) er varða upplýsta ákvörðun um val á getnaðarvörnum. Fjallað er um verkun prógesteróns og estrógens á líkamann, gerður samanburður á samsettum getnaðarvörnum og prógesterón getnaðarvörnum, kostum þeirra, aukaverkunum og meðhöndlun þeirra.  Nemendur fá þjálfun í ráðgjöf um getnaðarvarnir þar sem að miklu leiti er byggt á klínískum tilfellum. Þeir æfa sig við að beita aðferðum sem geta skipt sköpum til að ná árangri með ráðgjöfinni og stuðlað getur að markvissri notkun getnaðarvarna. Fjallað er um mismunandi áherslur viðtala eftir sérhópum. Fram fer sýnikennsla í uppsetningu á hormónastaf og lykkju og fá nemendur tækifæri til að æfa sig í þeim handbrögðum. 

Fræðilegi hluti námskeiðsins er kenndur í 4 daga lotu. Námskeiðið nær yfir tæpar fjórar vikur og á þeim tíma þurfa nemendur að skila einu verkefni og taka rafrænt lokapróf. 

Kennslutungumál: Íslenska
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár | Vor
Rannsóknir í ljósmóðurfræði (LJÓ211F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um fræðilegan grunn eigindlegra og megindlegra rannsókna aðferða og beitingu þeirra í ljósmóðurfræði. Lögð er áhersla á hagnýtingu rannsóknaniðurstaðna.

Fjallað er um megin rannsóknarsniðin sem stuðst er við í klínískum rannsóknum í heilbrigðisvísindum og áfram er unnið með hugtakið gagnreynd vinnubrögð. Farið er yfir helstu hugtök í hagnýtri tölfræði og ólíkar úrvinnsluaðferðir.

Nemendur kynnast helstu gagnagrunnum sem innihalda upplýsingar um barneiganferlið og leggja grunn að rannsóknaráætlun fyrir meistaraverkefni sitt.

Kennslutungumál: Íslenska
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Málstofa í ljósmóðurfræði (LJÓ008F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Málstofan er hluti af meistaraverkefni nemenda og miðar að því að styðja og leiðbeina nemendum í verkefnavinnunni. Henni er ætlað að rifja upp áherslur í greiningu gagna og ritun meistaraverkefnis. Málstofan byggir á þátttöku nemenda en í málstofu kynnir hver nemandi verkefni sitt og fær ábendingar og leiðbeiningu frá samnemendum og kennuurum.

Mætingaskylda er í málstofuna.

Kennslutungumál: Íslenska
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Barneignarferli III og kyn- og kvenheilbrigði (LJÓ305F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
8 einingar, ETCS
Þar af 5 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Þetta námskeið er það fyrsta af þremur klínískum námskeiðum á lokaári náms í ljósmóðurfræði. Þau byggja hvert á öðru og markmiðið er að öðlast vaxandi klíníska færni og kunnáttu til að beita fræðilegri þekkingu í starfi. Stuðningur við eðlilegt barneignarferli í öllum fæðingum og þekking á frávikum og viðbrögðum við þeim er í forgangi. Áhersla er á menningarhæfni, samfellda og heildræna þjónustu, einstaklings- og fjölskyldumiðaða umönnun og heilsueflingu. Í gegnum öll námskeiðin er lagður grunnur að sérhæfðri þekkingu um barneignarferlið, leiðtogahæfni og virkni í þverfaglegri teymisvinnu. Nemendur vinna sérhæfð klínísk verkefni, sinna forvörnum og veita meðferð, fræðslu og ráðgjöf um kyn- og kvenheilbrigði, getnaðarvarnir, barneignarferlið, nýburann, foreldrahlutverk, brjóstagjöf og heilsueflingu nýju fjölskyldunnar.

Kennslutungumál: Íslenska
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Klínísk starfsþjálfun III - sérhæfing í ljósmóðurstarfi (LJÓ307F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Þar af 10 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Lýsing á námskeiðinu á íslensku:

Í þessu framhaldsnámskeiði er lögð áhersla á klíníska starfsþjálfun undir leiðsögn starfandi  umsjónar- og kennsluljósmæðra. Tilfelli eða atvik sem upp koma í starfi eru íhuguð á gagnrýnan hátt og skráð í dagbók og litið er á hana sem hjálpartæki til að þjálfa klíníska fræðimennsku og dýpka þekkingu um barneignarferlið og kyn- og kvenheilbrigði. Val á verkefnum geta tengst meistaraverkefni eða sérstöku áhugasviði innan ljósmóðurfræðinnar. Á starfsvettvangi vinna nemendur vinna með konum og fjölskyldum þeirra innan og utan heilsugæslunnar og með áherslu á heildræna og samfellda þjónustu á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu,  á ólíkum fæðingarstöðum heima og heiman, um leið þróast fagmennska og sérhæfing í ljósmóðurstarfi.

Kennslutungumál: Íslenska
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Haust
Meistaraverkefni (LJÓ443L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
30 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námslýsing á íslensku

Kennslutungumál: Íslenska
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Annað ár | Vor
Málstofa í ljósmóðurfræði (LJÓ008F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
0 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Málstofan er hluti af meistaraverkefni nemenda og miðar að því að styðja og leiðbeina nemendum í verkefnavinnunni. Henni er ætlað að rifja upp áherslur í greiningu gagna og ritun meistaraverkefnis. Málstofan byggir á þátttöku nemenda en í málstofu kynnir hver nemandi verkefni sitt og fær ábendingar og leiðbeiningu frá samnemendum og kennuurum.

Mætingaskylda er í málstofuna.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Annað ár | Vor
Meistaraverkefni (LJÓ443L)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
30 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Námslýsing á íslensku

Kennslutungumál: Íslenska
Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
Annað ár | Vor
Klínísk starfsþjálfun IV – þróun fagmennsku og starfsréttindi í ljósmóðurstarfi (LJÓ404F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
12 einingar, ETCS
Þar af 12 vettvangseiningar
Námskeiðslýsing

Í þessu lokanámskeiði í klínískri starfsþjálfun er tækifæri til að efla þekkingu á ákveðnum sérsviðum ljósmóðurfræðinnar t.d. í samræmi við  meistaraverkefni.  Áhersla er lögð á fagmennsku og mat á hæfni til að útskrifast, hljóta starfsréttindi  og veita hágæða gagnreynda ljósmóðurþjónustu, sjálfstætt hvar sem er, á  heilsugæslustöðvum, sjúkrahúsum, fæðingarheimilum og í heimahúsum.

Kennslutungumál: Íslenska
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
Mætingaskylda er í námskeiðinu
Fyrsta ár
  • Haust
  • LJÓ110F
    Þekking og aðferðir í ljósmóðurfræði
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um sögu, menntun, þekkingarþróun og starfsvettvang ljósmæðra. Farið er yfir þróun menntunar ljósmæðra og hún skoðuð í alþjóðlegu samhengi. Áhrifamiklar hugmyndir í ljósmóðurfræði verða ræddar og leitast við að skoða hvernig þær hafa haft áhrif á eðli starfsins síðustu áratugi. Fjallað er um lög, siðareglur, siðfræðileg álitaefni og gagnreynda þekkingu í ljósmóðurstarfi.  Starfsvettvangur ljósmæðra er kynntur og farið verður í eina vettvangsheimsókn því tengt.

    Helstu rannsóknaaðferðir í ljósmóðurfræði verða kynntar og grundvallarhugtök eru skoðuð s.s. upplýst val, sjálfræði, samfelld þjónusta o.fl.  Fjallað er um hugtakagreiningu og ritrýni fræðigreina.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt í lotu I
  • LJÓ111F
    Barneignarferli I – Meðganga, fæðing og sængurlega
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði er fjallað um gagnreynda þekkingu á eðlilegu barneignarferli, á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu. Fjallað er áfram um mikilvæg hugtök í ljósmóðurfræði s.s. upplýst val og sjálfræði.

    Byggt er á grunnhugmyndafræði ljósmóðurfræðinnar um barneign sem eðlilegt ferli og siðferðilegum álitamálum velt upp varðandi öryggi og notkun inngripa, meðferða og tækni í barneignaferlinu. Fjallað er um meðgönguvernd, umönnun í fæðingu og sængurlegu í eðlilegu ferli, brjóstagjöf og nýburann. Helstu rannsóknir og skimanir eru kynntar og fjallað er um hugmyndafræði ljósmæðra, heilsueflingu og mismunandi þjónustuform.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LJÓ112F
    Nýburamat
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Þar af 1 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Í heilsufarsmati nýbura er áhersla bæði á hrausta og veika nýburann, endurlífgun og gjörgæslu, auk klínískra verkefna. Rætt er um sorg og missi í barneignarferlinu. Litið er á umönnun kvenna sem heildrænt ferli þar sem öll fjölskyldan er tekin með inn í meðferð, upplýsingagjöf og umönnun. Áhersla er á upplýst val og samráð við ákvarðanatöku.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LJÓ108F
    Klínisk starfsþjálfun I
    Skyldunámskeið
    12
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    12 einingar, ETCS
    Þar af 12 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Í þessu klíníska framhaldsnámskeiði er áhersla á eðlilegt barneignarferli, á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu. Áfram er áhersla á gagnreynda þekkingu og starfshætti, samfellda þjónustu, menningarhæfni og heildræna einstaklings- og fjölskyldumiðaða umönnun. Æfingar í klínískri færni fara fram í færnisetri og á starfsvettvangi. Klínísk kennsla fer fram innan og utan sjúkrahúsa með það fyrir augum að fræði og færni tengist á heildrænan hátt. Nemendur þjálfast í og öðlast fjölþætta klíníska færni og sérhæfða þekkingu um eðlilegt barneignaferli.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Vor
  • LJÓ210F
    Barneignarferli II – frávik og meðferðir
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Þar af 4 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Í þessu námskeiði er fjallað um gagnreynda þekkingu á frávikum, sjúkdómum og áhættuþáttum í barneignarferlinu, á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu. Byggt er á grunnhugmyndafræði ljósmóðurfræðinnar um barneign sem eðlilegt ferli og siðferðilegum álitamálum velt upp varðandi öryggi og notkun inngripa, meðferða og tækni í barneignarferli með frávikum. Rætt er um sorg og missi í barneignarferlinu. Litið er á umönnun kvenna sem heildrænt ferli þar sem öll fjölskyldan er tekin með inn í meðferð, upplýsingagjöf og umönnun. Áhersla er á upplýst val og samráð við ákvarðanatöku.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Námskeið kennt í lotu I
  • LJÓ205F
    Klínísk starfsþjálfun II
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Þar af 10 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Í þessu klíníska framhaldsnámskeiði er áhersla á frávik og meðferðir í barneignarferlinu, á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu. Áfram er áhersla á gagnreynda þekkingu og starfshætti, samfellda þjónustu, menningarhæfni og heildræna einstaklings- og fjölskyldumiðaða umönnun. Æfingar í klínískri færni fara fram í færnisetri og á starfsvettvangi. Klínísk kennsla fer fram innan og utan sjúkrahúsa með það fyrir augum að fræði og færni tengist á heildrænan hátt. Nemendur þjálfast í og öðlast fjölþætta klíníska færni og sérhæfða þekkingu um frávik og meðferðir í barneignarferli.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LJÓ203F
    Ráðgjöf um getnaðarvarnir
    Skyldunámskeið
    4
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Þar af 1 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Almenn umfjöllun er um lög og reglur varðandi lyfjaávísanir og ábyrgðarskyldu heilbrigðisstarfsmanna. Farið er í lyfjafræði hormónagetnaðarvarna út frá áhrifum þeirra á líkamann og milliverkun lyfja. Gerð er grein fyrir helstu frábendingum getnaðarvarna og hvað skuli varast við ávísun þeirra. Lögð er áhersla á heilsufarssögu og fleiri áhrifaþætti (viðhorf, þekkingu, reynslu...) er varða upplýsta ákvörðun um val á getnaðarvörnum. Fjallað er um verkun prógesteróns og estrógens á líkamann, gerður samanburður á samsettum getnaðarvörnum og prógesterón getnaðarvörnum, kostum þeirra, aukaverkunum og meðhöndlun þeirra.  Nemendur fá þjálfun í ráðgjöf um getnaðarvarnir þar sem að miklu leiti er byggt á klínískum tilfellum. Þeir æfa sig við að beita aðferðum sem geta skipt sköpum til að ná árangri með ráðgjöfinni og stuðlað getur að markvissri notkun getnaðarvarna. Fjallað er um mismunandi áherslur viðtala eftir sérhópum. Fram fer sýnikennsla í uppsetningu á hormónastaf og lykkju og fá nemendur tækifæri til að æfa sig í þeim handbrögðum. 

    Fræðilegi hluti námskeiðsins er kenndur í 4 daga lotu. Námskeiðið nær yfir tæpar fjórar vikur og á þeim tíma þurfa nemendur að skila einu verkefni og taka rafrænt lokapróf. 

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LJÓ211F
    Rannsóknir í ljósmóðurfræði
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um fræðilegan grunn eigindlegra og megindlegra rannsókna aðferða og beitingu þeirra í ljósmóðurfræði. Lögð er áhersla á hagnýtingu rannsóknaniðurstaðna.

    Fjallað er um megin rannsóknarsniðin sem stuðst er við í klínískum rannsóknum í heilbrigðisvísindum og áfram er unnið með hugtakið gagnreynd vinnubrögð. Farið er yfir helstu hugtök í hagnýtri tölfræði og ólíkar úrvinnsluaðferðir.

    Nemendur kynnast helstu gagnagrunnum sem innihalda upplýsingar um barneiganferlið og leggja grunn að rannsóknaráætlun fyrir meistaraverkefni sitt.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • Haust
  • LJÓ008F
    Málstofa í ljósmóðurfræði
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Málstofan er hluti af meistaraverkefni nemenda og miðar að því að styðja og leiðbeina nemendum í verkefnavinnunni. Henni er ætlað að rifja upp áherslur í greiningu gagna og ritun meistaraverkefnis. Málstofan byggir á þátttöku nemenda en í málstofu kynnir hver nemandi verkefni sitt og fær ábendingar og leiðbeiningu frá samnemendum og kennuurum.

    Mætingaskylda er í málstofuna.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LJÓ305F
    Barneignarferli III og kyn- og kvenheilbrigði
    Skyldunámskeið
    8
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    8 einingar, ETCS
    Þar af 5 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Þetta námskeið er það fyrsta af þremur klínískum námskeiðum á lokaári náms í ljósmóðurfræði. Þau byggja hvert á öðru og markmiðið er að öðlast vaxandi klíníska færni og kunnáttu til að beita fræðilegri þekkingu í starfi. Stuðningur við eðlilegt barneignarferli í öllum fæðingum og þekking á frávikum og viðbrögðum við þeim er í forgangi. Áhersla er á menningarhæfni, samfellda og heildræna þjónustu, einstaklings- og fjölskyldumiðaða umönnun og heilsueflingu. Í gegnum öll námskeiðin er lagður grunnur að sérhæfðri þekkingu um barneignarferlið, leiðtogahæfni og virkni í þverfaglegri teymisvinnu. Nemendur vinna sérhæfð klínísk verkefni, sinna forvörnum og veita meðferð, fræðslu og ráðgjöf um kyn- og kvenheilbrigði, getnaðarvarnir, barneignarferlið, nýburann, foreldrahlutverk, brjóstagjöf og heilsueflingu nýju fjölskyldunnar.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LJÓ307F
    Klínísk starfsþjálfun III - sérhæfing í ljósmóðurstarfi
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Þar af 10 vettvangseiningar
    Námskeiðslýsing

    Lýsing á námskeiðinu á íslensku:

    Í þessu framhaldsnámskeiði er lögð áhersla á klíníska starfsþjálfun undir leiðsögn starfandi  umsjónar- og kennsluljósmæðra. Tilfelli eða atvik sem upp koma í starfi eru íhuguð á gagnrýnan hátt og skráð í dagbók og litið er á hana sem hjálpartæki til að þjálfa klíníska fræðimennsku og dýpka þekkingu um barneignarferlið og kyn- og kvenheilbrigði. Val á verkefnum geta tengst meistaraverkefni eða sérstöku áhugasviði innan ljósmóðurfræðinnar. Á starfsvettvangi vinna nemendur vinna með konum og fjölskyldum þeirra innan og utan heilsugæslunnar og með áherslu á heildræna og samfellda þjónustu á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu,  á ólíkum fæðingarstöðum heima og heiman, um leið þróast fagmennska og sérhæfing í ljósmóðurstarfi.

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LJÓ443L
    Meistaraverkefni
    Skyldunámskeið
    30
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    30 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námslýsing á íslensku

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • Vor
  • LJÓ008F
    Málstofa í ljósmóðurfræði
    Skyldunámskeið
    0
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    0 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Málstofan er hluti af meistaraverkefni nemenda og miðar að því að styðja og leiðbeina nemendum í verkefnavinnunni. Henni er ætlað að rifja upp áherslur í greiningu gagna og ritun meistaraverkefnis. Málstofan byggir á þátttöku nemenda en í málstofu kynnir hver nemandi verkefni sitt og fær ábendingar og leiðbeiningu frá samnemendum og kennuurum.

    Mætingaskylda er í málstofuna.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
  • LJÓ443L
    Meistaraverkefni
    Skyldunámskeið
    30
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    30 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námslýsing á íslensku

    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Hluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar
  • LJÓ404F
    Klínísk starfsþjálfun IV – þróun fagmennsku og starfsréttindi í ljósmóðurstarfi

Annað ár

Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Starf ljósmæðra er fjölbreytt, þær vinna meðal annars við meðgönguvernd og fósturgreiningu, fæðingarhjálp, sængulegu og brjóstagjöf, forvarnir og ráðgjöf um kven- og kynheilbrigði.

Ljósmæður starfa sjálfstætt innan og utan stofnana og próf í ljósmóðurfræði gefur möguleika á að starfa erlendis.

Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við:

  • Sjúkrahús
  • Heilsugæslustöðvar
  • Leitarstöð Krabbameinsfélagsins
  • Einkafyrirtæki
  • Heimafræðingar og heimaþjónustu
  • Kennslu og rannsóknir

Listinn er ekki tæmandi.

Nemendafélagið Curator heldur uppi frábæru félagslífi við Hjúkrunar-og ljósmóðurfræðideild. Markmið Curator er að stuðla að skemmtun, samheldni og góðum anda í deildinni.

Félagið stendur meðal annars fyrir nýnemadegi, vísindaferðum, óvissuferð o.fl.

Umsagnir nemenda
Ljósmynd af Ellu Björg Rögvaldsdóttur
Ég valdi mér ljósmóðurfræði þar sem mér finnst starfsvettvangur ljósmæðra heillandi og fátt sem ég get hugsað mér betra en að vera fólki innan handar á jafn áhrifamiklum tíma í lífinu og í barneignaferlinu. Námið er fræðilegt en í senn mjög klínískt, krefjandi en skemmtilegt. Það sem helst hefur komið á óvart er hve fjölbreyttur starfsvettvangur ljósmæðra er. Rúsínan í pylsuendanum er svo að vera í svona litlum bekk þar sem myndast fljótt þéttur vinahópur.
Ljósmynd af Guðlaugu Erlu Vilhjálmsdóttur
Ég hafði gengið með ljósmóðurdrauminn í maganum í nokkur ár þegar ég loksins lét slag standa og sótti um. Ég sé svo sannarlega ekki eftir því. Námið er mjög skemmtilegt og við sem hófum nám á sama tíma höfum tengst sterkum vinaböndum. Námið er einnig að miklum hluta verklegt og það hefur verið krefjandi en jafnframt yndislegt að fá að fylgja konum og fjölskyldum þeirra í gegnum barneignarferlið. Ljósmóðurstarfið er líka fjölbreyttara en ég hafði séð fyrir sjálf. Ég hlakka til geta kallað mig ljósmóður.
Ljósmynd af Eddu Rún Kjartansdóttur
Að vera ljósmóðurnemi krefst mikils af manni. Það krefst óbilandi metnaðar, áhuga á einstaklingnum, gífurlegs faglegs innsæis en síðast en ekki síst heiðarleika við sjálfan sig og aðra. En það að vera ljósmóðurnemi er líka best í heimi. Á námstímanum fær maður tækifæri til að sinna skjólstæðingum í gegnum allt barneignarferlið, aðstoða þau og vera til staðar á mikilvægustu og ánægjuríkustu en jafnframt stundum erfiðustu stundum lífs þeirra. Námið er að mestu leyti verklegt og það hafa verið forréttindi að fá að læra undir handleiðslu þeirra faglegu ljósmæðra sem starfa á fjölbreyttum starfssviðum innan ljósmóðurfræðinnar. Bekkirnir eru fámennir og myndast því yfirleitt samheldinn og náinn hópur og ég er stolt af því að geta kallað þær ljósusystur mínar.
Ljósmynd af Rut Vestmann
Ég hefði varla trúað því hversu gefandi, fræðandi og innihaldsríkt ljósmæðranámið er. Í náminu myndast síðan fámennur og þéttur vinahópur sem er gott að hafa í svona krefjandi námi. Það sem mér þykir einna helst spennandi við ljósmæðrastarfið er það hversu fjölbreytt starfið er og hversu sjálfstætt ljósmæður starfa. Þetta starf er síðan frábær blanda af fræðilegri þekkingu og mannlegu innsæi. Námið sjálft er mjög krefjandi en um leið er alltaf skemmtilegt að mæta í skólann og það er fyrir utan alla klínísku kennsluna sem fer fram í gegnum allt námið þar sem enginn dagur er eins og maður bætir við þekkingu sína daglega.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild
Virka daga 9:00 - 15:00
Almenn þjónusta

Við bendum á þjónustumiðju HÍ fyrir allar almennar fyrirspurnir. Einnig er hægt að mæta á Þjónustuborðið á Háskólatorgi eða nota spjallmenni HÍ hér neðst til hægri á síðunni.

Eirberg

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil